Skip to main content

Víkurfréttir 28 tbl. 46. árg.

Page 1

Fannar kveður Grindavík 18-19 rétti f r a g e l g Da Miðvikudagur 10. september 2025 // 28. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

r!

vf is

Tugþúsundir sóttu vel lukkaða Ljósanótt

Heimamenn telja að aldrei hafi fleiri sótt bæjar- og fjölskylduhátíðina Ljósanótt í Reykjanesbæ en nú í ár. Gríðarlega fjölbreytt dagskrá stóð yfir í fjóra daga sem náði hámarki á laugardagskvöld þegar líklega á mili 30 og 40 þúsund manns voru í og við hátíðarsvæðið á Bakkalág í miðbæ Reykjanesbæjar. Fleiri myndir og umfjöllun er í blaðinu og verður einnig í Sjónvarpi Víkurfrétta. VF-mynd/hilmarbragi.

Höfuðstöðvar Samkaupa í Reykjanesbæ fluttar n Nettó mætir aukinni samkeppni og er nú opið til miðnættis Skrifstofur Samkaupa fluttu í Smáralind í Kópavogi 29. ágúst síðast­ liðinn. Félagið er nú í meirihluta eigu Dranga hf. og systurfélög þess eru Orkan, Löður og Lyfjaval. „Suðurnesin eru okkur mikilvægt svæði og við höldum áfram góðri tengingu við íbúa,“ segir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Samkaupum en fyrirtækið hefur verið eitt það stærsta í eigu Suðurnesjamanna í ára­ tugi og verið með höfuðstöðvar á efstu hæð stærsta skrifstofuhús­ næðis í Reykjanesbæ í mörg ár. Þar störfuðu á sjötta tug starfsmanna áður en félagið fór undir Dranga í sumar. Á þriðja tug starfsmanna var sagt upp fljótlega eftir eigendaskiptin. „Mikil samlegðartækifæri og samvinna er á milli félaga í samstæðunni og er því mikilvægt að vera með skrifstofur félaganna í nágrenni við hvor aðra. Það hafa engar frekari uppsagnir verið á skrifstofunni en alls starfa þar 9 starfsmenn sem búsettir eru á Suðurnesjum. Þá erum við með einn svæðisstjóra sem er með aðstöðu í Reykjanesbæ og sinnir verslunum þar. Samkaup reka nú sjö verslanir á Suðurnesjum og engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingar á

rekstri þessara verslana ef frá er talin breyting á opnunartíma Nettó í Krossmóa. Þar höfum við aukið við þjónustu okkar og verslunin er nú opin frá 7:30 til miðnættis. Við hlökkum síðan til að opna nýja Nettó verslun á Aðaltorgi á næsta ári. Félagsmenn í Kaupfélagi Suðurnesja njóta áfram afsláttarkjara í gegnum Samkaupa appið, við höfum lagt áherslu á að styrkja íþróttafélögin á svæðinu og Nettó var einn af aðalbakhjörlum Ljósanætur í ár,“ sagði Heiður.

Hringtorg og nýr verslunarkjarni við Fitjabraut Nýr og veglegur verslunarkjarni hefur risið við Fitjabraut í Njarðvík en þar hafa þrjár verslanir opnað að undanförnu, fyrst Krónan en síðan Gæludýr.is og Byko. Miklar vegaframkvæmdir hafa einnig staðið yfir með gerð hringtorgs sem opnaði fyrir Ljósanótt. Fyrir nokkru sagði eigandi World Class líkams­ ræktarstöðvanna frá fyrirhuguðum framkvæmdum við byggingu 200 herbergja lúxushótels, líkams­ ræktarstöðvar og baðlóns á þessu svæði. Á heimasíðu World Class er sagt frá því að framkvæmdin geti kostað um 20 milljarða króna. Björn Leifsson, eigandi bindur vonir við að lónið verði opnað árið 2028.

24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í 45 ÁR


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 28 tbl. 46. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu