Skip to main content

Víkurfréttir 21. tbl. 47. tbl.

Page 1

• Miðvikudagurinn 21. október 2026 • 21. tölublað • 47. árgangur

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS

SÍÐA12

SÍÐA 8-9

39 milljónir í styrki hjá Blue Car

FJÖR Á SAMFÉS

Goðsögn setur skóna á hilluna

SÍÐA15

Mikil bjartsýni og viðamiklar framkvæmdir á Suðurnesjum n Tækifærin á Suðurnesjum voru rauður þráður í máli ræðumanna og gesta á 20 ára afmælisráðstefnu Kacdeo. Langtímaáætlanir á Keflavíkurflugvelli gera ráð fyrir eftirspurn eftir flugi fyrir um 12 milljónir farþega árið 2035 og að drög að uppbyggingaráætlun næstu tíu ára gerðu ráð fyrir fjárfestingum hjá Isavia upp á meira en 14 milljarða króna á ári að meðaltali. Þetta kom m.a. fram hjá Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Iavia á 20 ára afmælisráðstefnu Kadeco í Hljómahöll í síðustu viku. Sveinbjörn lagði sérstaka áherslu á þau miklu efnahagslegu áhrif sem rekstur og uppbygging Keflavíkurflugvallar hefði á nærsamfélagið.

Hann nefndi rammasamning um þjónustu iðnaðarmanna sem Isavia bauð út árið 2021. Fjölmörg fyrirtæki á Suðurnesjum væru aðilar

að samningnum og árlega keypti Isavia um 100 þúsund vinnustundir á grundvelli hans, sem jafngilti um 51 stöðugildi. „Frá 2021 er heildarverðmæti þessa samnings inn í þetta samfélag um tíu milljarðar króna,“ sagði Sveinbjörn. Hann lagði þó áherslu á að ávinningurinn væri gagnkvæmur. Flugvöllurinn væri háður því að hafa aðgang að öflugum verk-

tökum og hæfu starfsfólki í nærsamfélaginu. Mikil bjartsýni kom fram í máli ráðstefnufrummælenda og í pallborði en gríðar miklar framkvæmdir eru framundan hjá gagnaverum, Samherja á Reykjanesi, Bláa Lóninu og fleirum. Nánar í miðopnu blaðsins.

Gríðar miklar framkvæmdir eru framundan hjá gagnaverum.

Reykjanesbær undir landsmeðaltali á öllum sviðum PISA Nemendur í Reykjanesbæ eru undir landsmeðaltali í vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi samkvæmt nýrri greiningu á niðurstöðum PISA 2025. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til bakgrunns nemenda en hverfur ekki. Árangur nemenda í sjö fjölmennustu sveitarfélögum er landsins borinn saman við landsmeðaltal. Reykjanesbær er eina sveitarfélagið í hópnum sem mælist undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum eftir leiðréttingu fyrir félags- og efnahagslegri stöðu og erlendum bakgrunni nemenda. Í greiningunni kemur fram að hlutfall nemenda með innflytjendabakgrunn sé hæst í Reykjanesbæ

Næsta blað kemur út 4. nóvember

meðal sveitarfélaganna sjö og félags- og efnahagsleg staða þeirra lægst að jafnaði. Áður en leiðrétt er fyrir bakgrunni er hlutfall nemenda í Reykjanesbæ sem nær grunnhæfni undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum. Eftir leiðréttingu er sá munur aðeins tölfræðilega marktækur í lesskilningi. Þótt samsetning nemendahópsins skýri þannig hluta munarins stendur Reykjanesbær áfram verr að vígi í hlutfalli nemenda sem nær grunnhæfni í lesskilningi. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla sem eftir því leita um sínar niðurstöður í PISA 2025. Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD.

Líf og fjör á starfakynningu

20%

Afsláttur ef þú bókar í Noona appinu Annars alltaf velkomið að renna við!

1 6 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0


2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Fulltrúar gefenda með Erlu Guðmundsdóttur, sóknarpresti sem stýrði bleikri messu í Keflavíkurkirkju. VF/pket.

Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki fer vel af stað Nærri helmingur safnaðist fyrir nýju tæki strax í upphafi söfnunarinnar. Tannlæknastofa gaf 10 milljónir króna. Söfnunin stendur til 18. nóvember Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki sem verður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur farið vel af stað. Styrkir fyrir rúmlega 22 milljónir króna voru afhentir í bleikri messu í Keflavíkurkirkju sl. sunnudag. Nýtt tæki með uppsetningu kostar um 50 milljónir króna. All nokkur félagasamtök og líknarfélög afhentu sína styrki en þar má nefna að Oddfellowstúkur í Reykjanesbæ gáfu 5 milljónir króna, Rotaryklúbbur Keflavíkur, Soroptimistaklúbbur Keflavíkur, Krabbameinsfélag Suðurnesja og fyrirtækin Aðaltorg og Couirtyard by Marriott gáfu öll hvert eina milljón króna í söfnunina. Þá gaf Tannlæknastofan að Hafnargötu 91 í Keflavík tíu milljónir króna í söfnunina. Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, halda utan um söfnunina og er ábyrgðaraðili hennar en söfnunin stendur í mánuð. Tækinu verður komið fyrir í röntgenrými HSS og stofnunin hefur þegar hafið undirbúning að þessum skimunum með því að senda 3 geislafræðinga í verknám til þess að vinna með tækið í framtíðinni.

Ingvar Eyfjörð frá SAR segir þetta verkefni sem snerti okkur öll. „Með sameiginlegu átaki fyrirtækja, félagasamtaka og almennings getum við lagt okkar af mörkum til að bæta heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og skapa betri möguleika til snemmgreiningar fyrir núverandi og komandi kynslóðir. Við hvetjum fyrirtæki, einstaklinga og félagasamtök til þess að taka þátt í þessu mikilvæga samfélagsverkefni og styðja söfnunina með þeim hætti sem hver og einn getur. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Öll framlög, stór sem smá, skipta máli í þessu samhengi. Við trúum því að öflugt samfélag byggist á samstöðu, ábyrgð og umhyggju. Með þátttöku í þessari söfnun erum við ekki aðeins að fjárfesta í tæki heldur í heilsu, öryggi og velferð kvenna á Suður-

nesjum. Byrjunin lofar góðu en vonandi náum við að klára dæmið.“ Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS tók við styrkjunum í Kirkjulundi að lokinni bleikri messu. Hún segir að byrjun söfnunarinnar sé frábær og ljóst að samfélagið á Suðurnesjum sé sterkt. „Ég á bara eiginlega ekki orð yfir þessi viðbrögð og vil bara þakka innilega fyrir,“ sagði hún.

Á heimasíðu sar.is er hægt að leggja söfnuninni lið með greiðslukorti. Til þess að leggja beint inn á söfnunina eru greiðsluuplýsingarnar: Samtök Atvinnurekenda á Reykjanesi Kt. 481110-1220 Reikningur: 0133-26-022579 Söfnunin stendur frá 18. október til 18. nóvember og er markmiðið skýrt: að færa brjóstaskimun nær konum á Suðurnesjum og auka þátttöku í henni. Söfnunin mun fara fram á vefnum sar.is en þar verður er aðgengileg greiðslugátt til að leggja málstaðnum lið. Ingvar Eyfjörð frá Samtökum atvinnurekenda þakkaði gefendum en sagði mikilvægt að hvetja fólk og fyrirtæki að taka þátt í söfnuninni.

Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi lækningaforstjóri HSS flutti ávarp .

Stórt skref í framkvæmdum við uppbyggingu Eldisgarðs á Reykjanesi Borun 21 sjóholu lokið við Eldisgarð á Reykjanesi. Stærsta fjárfestingarverkefni í sögu Samherja.

Fjölgun innbrota í bifreiðar Nokkuð hefur verið um tilkynnt innbrot í bifreiðar í umdæminu á síðustu viku. Í sumum tilvikum hefur tjónið verið metið upp á hundruð þúsunda að því er fram kemur í frétt frá Lögreglunni á Suðurnesjum. Lögreglan vil hvetja umráðamenn bifreiða að læsa þeim og skilja ekki eftir verðmæti á opnum og óvörðum stað. Þar sem bifreiðum er lagt á vegum fyrirtækja hefur það mikið forvarnargildi að stilla upp myndavélum til að vakta bifreiðastæði. Jafnframt viljum við hvetja íbúa til að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir.

Nýverið lauk vinnu við borun á tuttugu og einni sjóholu fyrir fyrsta áfanga Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar Samherja fiskeldis á Reykjanesi. Aðgangur að hreinum jarðsjó er einn af lykilþáttum starfseminnar og ástæða þess að staðsetningin á Reykjanesi þykir sérstaklega hentug fyrir landeldi Samherja en þetta er stærsta fjárfestingaverkefni í sögu fyrirtækisins. Alls voru boraðar 21 sjóhola, ýmist 36 eða 42 metra djúpar. Boranir hófust 12. janúar síðastliðinn og stóð verkefnið yfir í um níu mánuði. Það markaði því mikilvæg tímamót í uppbyggingu Eldisgarðs þegar Ræktunarsamband Flóa og Skeiða lauk borun síðustu holunnar. Tvö teymi á vegum fyrirtækisins hafa skipst á að sinna borununum og unnið í vikulöngum lotum á löngum vöktum. Þegar síðustu borvaktinni lauk var hafist handa við að taka niður borinn og annan búnað og undirbúa brottför af framkvæmdasvæðinu.

Hreinn jarðsjór mikilvægur Jarðsjónum sem nýttur verður í Eldisgarði verður dælt upp úr sjóholunum. Sjórinn er fullsaltur og á hver hola að geta skilað um 500 lítrum af sjó á sekúndu. Rannsóknir á sjónum úr holunum hafa leitt í ljós að hann er mjög tær, enda síast hann með náttúrulegum hætti í gegnum hraunið á Reykjanesi. Hitastig sjávarins er jafnframt ákjósanlegt og hentar vel til fiskeldisins.

Framkvæmdir við fyrsta áfanga í fullum gangi Uppbygging fyrsta áfanga Eldisgarðs er nú í fullum gangi. Starfsfólk Samherja f iskeldis hefur komið sér upp starfsstöð á framkvæmdasvæðinu þar sem það vinnur ásamt verktökum að uppbyggingu stöðvarinnar. Áætlað er að Eldisgarður rísi í þremur áföngum. Þegar stöðin verður fullbyggð er stefnt að því að þar verði hægt að framleiða um 36.000 tonn af óslægðum laxi á ári.

Um er að ræða stærsta fjárfestingarverkefni í sögu Samherja. Gert er ráð fyrir að um 30 manns starfi við landeldið þegar fyrsti áfanginn verður kominn í rekstur. Þegar uppbyggingu allra þriggja áfanganna lýkur er áætlað að starfsmenn verði um 60 talsins. Flest störfin verða þekkingarstörf. Auk þess mun starfsemin í Eldisgarði njóta stuðnings þeirra 120 starfsmanna og sérfræðinga sem þegar starfa hjá Samherja fiskeldi.


4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Telja um 80 milljónir enn óuppgerðar vegna hjúkrunarheimilis

Frá undirritun kaupsamningsins, f.v. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri, Þuríður Elísdóttir, forstöðumaður Hrafnistu Nesvalla og Brynjar Steinarson, framkvæmdastjóri KSK eigna.

Mi n n i h l u t i b æ j a r s t j ó r n a r Reykjanesbæjar telur að enn standi eftir um 80 milljóna króna uppgjör við ríkið vegna byggingar nýja hjúkrunarheimilisins á Nesvöllum. Guðný Birna Guðmundsdóttir nefndi upphæðina þegar hún fór yfir hálfsársuppgjör sveitarfélagsins 6. október. Hún sagði minnihlutanum reiknast svo til að uppgjörinu væri enn ólokið. Málið var nefnt samhliða umræðu um rekstrarniðurstöðu og fjárhagslegt svigrúm bæjarins.

Á sama fundi var rætt um væntanlegan söluhagnað vegna Nesvalla og mögulega nýtingu hans til skólaframkvæmda. Upphæðin sem Guðný Birna nefndi vegna ríkisins var hins vegar sett fram sem ólokið uppgjör vegna byggingar hjúkrunarheimilisins. Ekki var greint frá því hvenær vænta mætti niðurstöðu eða greiðslu frá ríkinu. Upphæðin var kynnt sem útreikningur minnihlutans en ekki sem staðfest tilkynning um greiðslu.

KSK eignir kaupa Nesvelli af Reykjanesbæ KSK eignir ehf., dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja (KSK), hefur keypt fasteignina að Njarðarvöllum 2 af Reykjanesbæ, þar sem hjúkrunarheimilið Nesvellir er starfrækt. Kaupin marka mikilvægt skref í þeirri stefnu KSK eigna og móðurfélagsins, Kaupfélags Suðurnesja, að leggja aukna áherslu á fjárfestingar á Suðurnesjum. Í tillkynningu frá Reykjanesbæ segir að þetta séu jafnframt ánægjuleg tíðindi fyrir Reykjanesbæ, enda sé kaupandinn rótgróið fyrirtæki úr nærsamfélaginu sem hefur um áratugaskeið verið hluti af atvinnulífi og uppbyggingu svæðisins. Í fasteigninni að Njarðarvöllum 2 rekur Hrafnista hjúkrunarheimili með 60 hjúkrunarrýmum. Um er að ræða mikilvæga samfélagslega starfsemi sem gegnir lykilhlutverki í þjónustu við aldraða í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum. Kaupin fela eingöngu í sér eigendaskipti á fasteigninni og hafa ekki áhrif á núverandi rekstur hjúkrunarheimilisins, sem áfram verður í höndum Hrafnistu. Fasteignin var tekin í notkun árið 2014 og er vönduð og vel búin til þeirrar starfsemi sem þar fer fram. „Við erum afar ánægð með kaupin á Nesvöllum. Þau falla mjög vel að þeirri stefnu okkar að beina fjárfestingum KSK eigna í auknum mæli að okkar heimasvæði. KSK á sterkar rætur á Suðurnesjum

og okkur finnst mikilvægt að geta fjárfest hér heima og þannig lagt okkar af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins,“ segir Brynjar Steinarsson, framkvæmdastjóri KSK eigna.

Ánægjulegt að heimamenn fjárfesti í eigin samfélagi Reykjanesbær fagnar því að kaupandi fasteignarinnar sé fyrirtæki sem á rætur sínar í samfélaginu og hefur sýnt í verki vilja til að fjárfesta í uppbyggingu Suðurnesja. „Það eru afar ánægjuleg tíðindi að KSK eignir, dótturfélag hins rótgróna Kaupfélags Suðurnesja, skuli fjárfesta í þessari mikilvægu fasteign hér í Reykjanesbæ. Það skiptir miklu máli fyrir samfélagið okkar að hér séu sterk fyrirtæki sem hafa trú á svæðinu, vilja fjárfesta hér og taka þátt í uppbyggingunni til framtíðar. KSK hefur verið samofið atvinnulífi og sögu Suðurnesja um langt skeið og það er sérstaklega ánægjulegt að

sjá félagið halda áfram að styrkja tengsl sín við heimabyggðina með þessum hætti. Við fögnum þessum viðskiptum og óskum KSK eignum til hamingju með kaupin,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Mikilvæg samfélagsleg starfsemi til framtíðar Meginstarfsemi KSK eigna er þróun, eignarhald og útleiga fasteigna. Félagið leggur áherslu á traust, gæði, árangur og samvinnu. Kaupin á Nesvöllum endurspegla þá stefnu félagsins að fjárfesta til langs tíma í fasteignum sem skapa verðmæti og styðja við öflugt atvinnu- og samfélagslíf. „Það hefur sérstakt vægi fyrir okkur að fjárfestingin sé ekki aðeins góð viðbót við fasteignasafn KSK eigna heldur hýsi fasteignin jafnframt mikilvæga þjónustu fyrir íbúa svæðisins. Þetta er langtímafjárfesting og við hlökkum til samstarfsins við Hrafnistu. Við munum leggja ríka áherslu á að vera traustur og góður fasteignaeigandi og skapa góðar forsendur fyrir áframhaldandi farsælu samstarfi,“ segir Brynjar.

Tilboðsgerð – Þotugildrur á Keflavíkurflugvelli Utanríkisráðuneytið, varnarmálaskrifstofa og Landhelgisgæslan, varnarmálasvið, vekja athygli á auglýsingu innkaupastofnunar Atlantshafsbandalagsins (NSPA) um ósk um tilboð í verkefnið TZS26002 – Arrestor gear chamber constuction – Keflavik air base. Verkefnið felur í sér þátttöku í uppbyggingu og ísetningu þotugildra við fjóra flugbrautarenda á Keflavíkurflugvelli og niðurrif eldri gildra. Hægt er að finna verkefnið og tilheyrandi útboðsgögn á útboðsvef NSPA; eportal.nspa.nato.int/eProcurement5G undir verknúmerinu TZS26002. Vakin er athygli á því að bjóðendur þurfa að skrá sig á bjóðendalista NSPA (NSPA source file) fyrir lok útboðsfrestar til að tilboð séu metin gild. Áhugasamir bjóðendur sem ekki eru þegar skráðir á vottaða bjóðendalistann eru hvattir til að gera slíkt sem fyrst þar sem tæknigögn eru með takmörkuðu aðgengi.

Tvö Suðurnesjaverkefni frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026 Fjór tán f jölbrey tt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. Tvö verkefni frá Suðurnesjum voru valin, Kraftý Café og Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus. Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu. Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes – SSS) Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu.

Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir. Kraftý Café (Suðurnes – SSS) Nýstárlegt kaffihús og upplifun sem efla samfélag og menningarlíf. Þátttakendur: Alexandra Ósk Laxdal og Inga Hrönn Kristjánsdóttir. Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi þann 6. nóvember. Saunagus í Leirunni.

Öll 18 mánaða börn komast á leikskóla Reykjanesbær hefur í fyrsta sinn náð að innrita öll 18 mánaða börn í leikskóla og yngstu börnin sem fengu pláss í ágústinnritun voru 16 mánaða. Þetta sagði Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í umræðu um fundargerð leikskólaráðs á bæjarstjórnarfundi 6. október. Hún fagnaði fjölgun leikskólaplássa og sagði árangurinn stórkostlegan. Um væri að ræða mikilvægan áfanga í leikskólastarfi bæjarins þar sem tekist hefði að lækka aldur þeirra barna sem fengju vistun. Guðný Birna sagðist hafa spurt sviðsstjóra sérstaklega um mönnun leikskólanna. Svörin hefðu verið þau að hún gengi vel miðað við þau börn sem væru innrituð.

Hún sagði það ekki sjálfgefið, enda væru mönnunaráskoranir í leikskólum víða. Hún þakkaði starfsfólki og nefndi góða vinnustaði, stefnu og húsakost sem þætti í árangrinum. Í umræðunni kom jafnframt fram að stýrihópur starfaði að leikskólamálum. Guðný Birna sagði forvitnilegt verða að sjá hvað kæmi út úr þeirri vinnu. Hún minnti á að sambærilegur hópur hefði starfað á síðasta kjörtímabili og flestum tillögum hans hefði verið hrint í framkvæmd. Fundargerð leikskólaráðs var samþykkt með öllum ellefu atkvæðum bæjarstjórnar. Engin önnur aldursviðmið við innritun voru kynnt á fundinum en þau sem Guðný Birna lýsti.

Leikskólinn Asparlaut opnaði fyrir stuttu síðan í Reykjanesbæ.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 5

NÝR MEIRIHLUTI Í SUÐURNESJABÆ Endurbætur við Hlévang kostuðu rúmlega eitthundrað milljónir króna.

Endurbættur Hlévangur opnaður sem skammtíma hjúkrunarheimili Hlévangur við Faxabraut í Keflavík hefur verið opnaður að nýju en hjúkrunarheimilinu var lokað um síðustu áramót en opnar nú sem skammtíma hjúkrunarheimili og eru þegar þrír einstaklingar þegar fluttir inn ig mun þeim fjölga á næstunni. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fagnaði með heilbrigðisráðherra og félags- og barnamálaráðherra og fleiri aðilum en framkvæmdir hafa staðið yfir í húsnæðinu síðustu mánuði.

Hlévangi er ætlað að létta af álagi á Landspítala en einnig á Suðurnesjum en fólk hefur beðið eftir hjúkrunarheimilisplássi á 2. hæð sjúkrahússins í Keflavík. Kostnaður við breytingar og kaup á nýjum húsgögnum og rúmum er rúmar hundrað milljónir króna. Húsnæðið er í eigu Reykjanesbæjar en samningur var gerður við ríkið um leigu á því til tveggja ára með mögulegri framlengingu. Ráðuneytið stóð straum af kostnaði við endurbætur og heilbrigðisráðuneytið fjármagnar síðan reksturinn

sem er í höndum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Ráðherrarnir Alma D. Möller og Inga Sæland fögnuðu því að þessum áfanga hafi verið náð á skömmum tíma og að vel hafi verið að verki staðið hjá öllum sem komu að þessu verkefni. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók undir með þeim og þakkaði þeim sem komu að þessari ákvörðun og framvindu verkefnisins.

Prestarnir Fitz Jörgenson og Erla Guðmundsdóttir blessuðu endurbættan Hlévang. Frá opnun Hlévangs, Inga Sæland, Vilhjálmur Árnason, Alma D. Möller og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir. VF/pket.

Tryggingar hjá Landsbankanum Nú getur þú einfaldað þér heimilisreksturinn og daglega lífið með því að kaupa tryggingar hjá Landsbankanum.

Vátryggt hjá TM – Við erum betri saman

S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra stofnuðu stofnuðu nýjan meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulagið byggir á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrga fjármálastjórn, öfluga þjónustu við íbúa, uppbyggingu innviða og áframhaldandi framfarir í sveitarfélaginu, segir í frétt frá nýja meirihlutanum. Málefnasamningur flokkanna var kynntur á bæjarstjórnarfundi 13. október. Svavar Grétarsson verður áfram formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson verður forseti bæjarstjórnar. Alexandra Jóhannsdóttir mun áfram gegna embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar.


6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Stefnir í hörmulegan október

Fulltrúar þeirra aðila sem standa að Öruggari Suðurnes eftir endurnýjun samstarfsins sem undirritað var á lögreglustöðinni. VF/pket.

Öruggari Suðurnes endurnýjað til 2030 – heimilisofbeldi hefur minnkar en kynferðisofbeldi milli ungmenna stendur í stað Helstu stofnanir, sveitarfélög og þjónustuaðilar á Suðurnesjum hafa endurnýjað samstarfið Öruggari Suðurnes til ársins 2030. Markmiðið er að efla samvinnu gegn ofbeldi og afbrotum og bæta þjónustu við íbúa og þolendur. Nýjar tölur sýna jákvæða þróun í nokkrum málaflokkum, meðal annars verulega fækkun unglinga sem hafa upplifað heimilisofbeldi. Á sama tíma vekur staða kynferðisofbeldis milli unglinga áhyggjur. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, sveitarfélögin fjögur á svæðinu, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Suðurhlíð og Sýslumaðurinn hafa endurnýjað samstarfsyfirlýsingu Öruggari Suðurnes. Samstarfið byggir á því að þessir aðilar vinni saman gegn ofbeldi og öðrum afbrotum með sameiginlegum markmiðum og aðgerðum sem taka mið af aðstæðum á Suðurnesjum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum leiðir samstarfið og boðar til samráðsfunda.

Heimilisofbeldi meðal unglinga minnkar Tölur úr Íslensku æskulýðsrannsókninni fyrir Suðurnes árin 2023 til 2026 sýna umtalsverða breytingu til hins betra þegar kemur að heimilisofbeldi.

Árið 2023 sögðust tæplega 17% unglinga í 8. til 10. bekk hafa orðið fyrir heimilisofbeldi eða orðið vitni að því. Árið 2026 var hlutfallið komið niður í um 12%. Það jafngildir fækkun um rúman fjórðung og samkvæmt gögnunum er lækkunin meiri á Suðurnesjum en í öðrum landshlutum. Suðurnes voru áður yfir landsmeðaltali en eru nú nær því. Mesta lækkunin hefur orðið meðal barna sem búa við þrengri fjárhag. Þrátt fyrir það eru þau enn rúmlega tvöfalt líklegri en önnur börn til að hafa upplifað heimilisofbeldi.

Kynferðisofbeldi fullorðinna minnkar Einnig hefur dregið úr kynferðisofbeldi fullorðinna gagnvart ungmennum. Hlutfall þeirra sem greina frá slíku fór úr um 13% árið

Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á

vf is

Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu

HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //

Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir

Rétturinn

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík

Opið:

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Ljúffengur heimilismatur í hádeginu

11-13:30

alla virka daga

2023 í tæp 9% árið 2026. Sambærileg þróun hefur átt sér stað annars staðar á landinu. Önnur mynd blasir hins vegar við þegar litið er til kynferðisofbeldis milli unglinga. Um 8% unglinga á Suðurnesjum segjast hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu annars unglings. Hlutfallið hefur ekki lækkað frá árinu 2023. Á sama tíma hefur það lækkað annars staðar á landinu og er því nú hærra á Suðurnesjum en á landsvísu. Þetta er eitt þeirra verkefna sem samstarfsaðilar Öruggari Suðurnes þurfa áfram að takast á við.

Frá því að síðasti pistill var skrifaður þá tók ég mér smá frí og skellti mér ásamt konu minni til Mílanó á Ítalíu, ekki get ég nú tengt mikið sjávartengt frá Suðurnesjunum við þann stað, og fann engan íslenskan fisk í búðunum í borginni. Þó svo að veðrið hjá mér í Mílanó hafi verið býsna gott þá var það ekki það sama hérna á Suðurnesjum því það var svo til bræla alla þessa viku meðan ég var í burtu. Og eins og þetta lítur út núna þá stefnir í hörmulegan októbermánuð, í það minnsta núna. Komið vel yfir miðjan október og bátar frá Suðurnesjunum hafa lítið komist á sjóinn. Reyndar er komandi vika svo til skárri en síðasta vika og kannski geta menn skotist út milli veðra. Allavega ef við horfum bara á aflatölur hérna á Suðurnesjum núna í október þá líta þær ekki vel út. Byrjum á færabátunum, þeir komust aðeins á sjóinn snemma í október en síðan ekki neitt, Ólafur GK var með 1,3 tonn í 2 róðrum í Grindavík. Dímon GK með 890 kíló í 2, Guðrún GK 660 kíló í 2, Hawkerinn GK 50 kíló, Fagravík GK 80 kíló og Una KE 220 kíló, allir eftir einn róður. Vonandi komast þessir bátar á sjóinn núna í vikunni, því ufsinn bara bíður eftir þeim í Röstinni. Og talandi um ufsann þá hefur Sigvaldi skipstjóri á Grímsa GK verið að eltast við hann, en reyndar hefur báturinn lítið róið núna þessa viku sem ég var á Ítalíu, og

AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is

hann er að fá félagsskap, því að núna hefur í Sandgerði legið bátur sem Siggi Alla á og gerir út, og það er Margrét GK. Þessi bátur á sér nokkuð langa sögu í útgerð á Íslandi og meðal annars frá Suðurnesjum því að Stakkavík ehf. átti þennan bát um tíma og hét hann þá Gulltoppur GK og var þá á línuveiðum með bölum. Siggi Alla eignaðist bátinn árið 2024, en hann hefur gert út nokkuð marga báta sem hafa heitið þessu nafni Margrét GK, og líka aðra báta sem hafa heitir Kristbjörg ÁR og GK. Allir þessir bátar hafa átt það sameiginlegt að stunda veiðar með dragnót. En núna verður breyting á, vegna þess að Margrét GK er núna búin að liggja við bryggju í Sandgerði og öllum búnaði fyrir dragnót hefur verið hent í land og settur í bátinn netabúnaður. Nú eru 20 ár síðan þessi bátur var síðast á netaveiðum og hét báturinn þá Egill Halldórsson SH og var frá Ólafsvík. Krissi sem hefur verið skipstjóri á Margréti GK á dragnót verður með bátinn á netunum en hann hefur lengi róið fyrir Sigga og ráðgert er að hann muni líka fara að eltast við ufsann eins og Grímsi GK, en Grímsi GK hefur verið við veiðar út á Hrygg og Boða. Það verður áhugavert að sjá hvernig Margréti GK mun ganga á netaveiðunum.

Margrét GK hefur legið við bryggju í Sandgerði.

Þriðjungur hefur lent í slagsmálum eða líkamsárás Litlar breytingar hafa orðið þegar kemur að slagsmálum og líkamsárásum. Um þriðjungur nemenda í 6. til 10. bekk á Suðurnesjum hefur lent í slagsmálum eða orðið fyrir líkamsárás á síðasta ári. Hlutfallið er svipað og í öðrum landshlutum og hefur lítið breyst á undanförnum árum.

Sameiginleg framkvæmdaáætlun á hverjum vetri Með endurnýjuðu samstarfi á að samræma betur þá umfangsmiklu forvarnavinnu sem þegar fer fram á Suðurnesjum og styrkja tengsl þeirra aðila sem koma að afbrotaog ofbeldisvörnum. Áhersla verður meðal annars lögð á að auka öryggi íbúa og öryggistilfinningu þeirra, styrkja og gera núverandi forvarnastarf sýnilegra og þróa nýjar aðgerðir til að draga úr ofbeldi og bæta þjónustu við þolendur. Jafnframt á að tengja vinnuna öðrum verkefnum í þágu almannaheilla á Suðurnesjum, meðal annars innleiðingu farsældar barna, lýðheilsuvísum og áætlunum sveitarfélaganna. Samstarfsaðilar munu setja saman sameiginlega framkvæmdaáætlun í upphafi hvers vetrar og skuldbinda sig til að fylgja aðgerðum hennar eftir. Nýja samstarfsyfirlýsingin tók gildi 7. október og gildir til loka kjörtímabils sveitarstjórna árið 2030. Stöðumat, markmið og framkvæmdaáætlun verða endurskoðuð árlega, eða fyrr verði verulegar breytingar á aðstæðum í samfélaginu.

Ævar bangsi í alla sjúkrabíla landsins Í 32 ár hefur Kiwanisklúbburinn Keilir gefið bangsa í sjúkrabíla á Suðurnesjum. Þessi mjúki aðstoðarmaður hefur það mikilvæga hlutverk að róa og hughreysta börn sem þurfa á sjúkraflutningi að halda. Bangsinn hefur staðið sína vakt með prýði í öll þessi ár, hann var nefndur Ævar bangsi árið 2014. Verkefnið hefur vakið athygli. Á heimsþingi Kiwanis starfsárið 2024–2025 var Ævar bangsi valinn eitt af bestu verkefnum Kiwanishreyfingarinnar á heimsvísu, það

var mikil viðurkenning fyrir Kiwanisklúbbinn Keili. Á nýliðnu umdæmisþingi Kiwanisumdæmisins Ísland–Færeyjar, sem haldið var á Höfn í Hornafirði, var tekið stórt skref í sögu verkefnisins þar sem samþykkt var að gera Ævar bangsa að landsverkefni Kiwanis. Það þýðir að innan skamms verður þessi litli vinur kominn í sjúkrabíla um land allt, tilbúinn að veita börnum öryggi og huggun þegar mest á reynir.

Á meðfylgjandi mynd eru Rögnvaldur Eiríksson, forseti Kiwanisklúbbsins Keilis, og Ingólfur Ingibergsson, formaðaur Styrktarsjóðs Keilis, ásamt starfsmönnum Brunavarna Suðurnesja. Myndin er tekin þegar nýjar birgðir af Ævari bangsa voru afhentar.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.


Blue Car Rental þakkar eftirtöldum fyrirtækjum fyrir að leggja okkur lið á Góðgerðarfestinu. Með ykkar aðstoð og aðstoð fjölmargra einstaklinga söfnuðust 39 milljónir króna sem runnu í góð og þörf málefni í nærsamfélagi okkar.

ehf.

ÞÓRUKOT

SJÁUMST Á NÆSTA ÁRI


8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Þrjátíu og níu milljónir til 33 aðila frá Góðgerðarfesti Blue

Fulltrúar styrkþega 2026 ásamt fulltrúum Blue Car.

Þrjátíu og níu milljónir króna söfnuðust í Góðgerðarfesti Blue Car rental sem renna til 33 aðila. Styrkirnir voru afhentir í húsnæði Blue Car að Blikavöllum á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku. „Við viljum láta gott af okkur leiða. Þetta byrjaði sem starfsmannapartý en upp úr því kom hugmyndin að gera meira og nú er þetta orðinn mjög stór viðburður, sjálft góðgerðarfestið þar sem við tvinnum saman skemmtun og peningasöfnun sem rennur öll í góð málefni. Við söfnuðum 12 milljónum fyrsta árið, sextán ári síðar. Svo höfum við alltaf náð að toppa árið á undan og nú sjötta árið náðum við 39 milljónum,“ sögðu þeir bræður, Magnús Sverrir og Þorsteinn Þorsteinsson, við afhendingu styrkjanna.

Samtals hafa á sex árum safnast 144 milljónir króna sem allar hafa runnið til fjölda aðila sem eru nær allir á Suðurnesjum. Um 150 fyrirtæki og fjölmargir einstaklingar lögðu söfnuninni lið. Á hátíðinni sem fór fram í reiðhöll Mána í Reykjanesbæ 10. október mætti mikill fjöldi gesta, skálaði í októberstíl og skemmti sér. Nokkrir af helstu tónlistarmönnum landsins mættu, m.a. Bubbi Morthens, bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir, Herra Hnetusmjör, Kristmundur Axel og Salka Sól.

Styrkþegar - Góðgerðarfest 2026 n Krabbameinsfélag Suðurnesja n Ljónshjarta n Gleym mér ei styrktarfélag n Barnaheill n Píetar n Styrktarsjóður Hæfingarstöðvar n Minningarsjóður Ragga Margeirs n Minningarsjóður Ölla n Starfsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja n Viðja, sérhæft námsúrræði í Myllubakkaskóla n Stapaskóli, sérhæft námsúrræði n Sandgerðisskóli, Drekagarður og Friðgarður sérúrræði n Ösp, sérhæft námsúrræði Njarðvíkurskóla n Heiðarskóli, Meistaravellir sérúrræði n Eikin, Holtaskóli sérúrræði

Magnús Sverrir Þorsteinsson, Guðrún Sædal Björgvinsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson frá Blue Car afhendtu styrkina 2026.

n Háaleitisskóli, sérúrræði n Akurskóli, sérúrræði n Gerðaskóli, sérúrræði n Vogar, félagsmiðstöð sérúrræði n Hlýjan n Íþróttafélagið NES n Björgunarsveit Suðurnesja n Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum n Unglingaráð körfuknattleiksdeildar UMFN n Styrktarsjóður Ingvars Mia Magic n Íþróttafélag fatlaðra Reykjavík n Fimleikadeild Keflavíkur n Félagsstarf fyrir eldra fólk í þjónustumiðstöðinni á Nesvöllum n Heiðarholt n Björk við Njarðvíkurskóla n Bíladagur Birtu Maríu n Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Keflavíkur.


Skálað í góðri skemmtun

VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 9

eru ekki allir sem komast á svið með Bubba Morthens. Blue bræðurnir Magnús Sverrir og Þorsteinn Þorsteinssynir voru búnir að æfa heima og fengu Bræðurnir með Bubba! Það því að koma upp á svið. Bubbi fór á kostum í reiðhöll Mána og tryllti lýðinn með magnaðri frammistöðu. Fleiri myndir frá kvöldinu má sjá á vf.is

Það var ekki bara Bubbi sem fór á svið. Bræðurnir úr Hafnarfirði, Jón og Friðrik Dór Jónssynr og Kristmundur Axel tók lagið ásamt einvala tónlistarfólki.

Aukaársfundur 2026 Aukaársfundur Festu lífeyrissjóðs 2026 verður haldinn miðvikudaginn 4. nóvember n.k. á Grand Hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík. Fundarstörf hefjast kl. 18:00. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.

Dagskrá fundarins: 1. Samþykkt fundargerðar síðasta ársfundar 2. Kynning á samrunasamningi Festu lífeyrissjóðs og Gildis lífeyrissjóðs 3. Kynning tryggingastærðfræðings Festu á tryggingafræðilegum áhrifum sameiningarinnar 4. Kynning á samþykktum sameinaðs sjóðs og breytingar frá núgildandi samþykktum Festu 5. Kosning um sameiningu Festu lífeyrissjóðs við Gildi lífeyrissjóð 6. Önnur mál.

Sameinaður Lífeyrissjóður Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands

Sími: 420 2100 - netfang: festa@festa.is


10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar

Veruleikinn fór fram úr okkar djörfustu ímyndun Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS, opnaði ráðstefnuna í tilefni 20 ára afmælis Kadeco í Stapa og sagði að vorið 2008, á fyrstu starfsárum Kadeco, settist 30 manna hópur niður og reyndi að sjá fyrir sér Reykjanes árið 2020. Úr varð skjal með fjórum sviðsmyndum. Þær hétu Íslenskt hugvit, Íslenski draumurinn, Verstöðin – og Dehli norðursins. „Þetta var ekki spá. Þetta var æfing í því að hugsa um breytingar áður en þær skella á, svo þær breytingar kæmu síður á óvart. Og það er fróðlegt að fletta þessu upp í dag. Bjartsýnasta sviðsmyndin af fjórum, sú allra djarfasta, gerði ráð fyrir því að um 950 þúsund ferðamenn kæmu til Íslands árið 2020.

Vel heppnuð ráðstefna í Hljómahöll í tilefni 20 ára afmælis Kadeco:

Út af dálitlu var nánast ekkert flug til Íslands árið 2020 en árið 2019 voru ferðamenn um 2 milljónir og í fyrra voru þeir um 2,3 milljónir. Lærdómurinn er ekki sá að þetta fólk hafi haft rangt fyrir sér. Þetta var vandað fólk sem vann vandaða vinnu og margt af því sem það sá fyrir hefur ræst. Lærdómurinn er sá að veruleikinn fór fram úr okkar djörfustu ímyndun. Það er það sem ég vil að við höfum í huga í dag, þegar við tölum um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar,“ sagði Berglind þegar hún opnaði ráðstefnuna.

Gert ráð fyrir fjárfestingum fyrir 14 milljarða á ári næsta áratuginn Stefnt að 12 milljónum farþega um Keflavíkurflugvöll árið 2035. „Það er mikil orka að leysast úr læðingi á Suðurnesjum“, segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Við erum að skapa flugtengingar, ekki bara flugferðir,“ sagði Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í erindi sínu á ráðstefnu á Suðurnesjum þar sem hann fjallaði um mikilvægi Keflavíkurflugvallar fyrir atvinnulíf, verðmætasköpun og hagvöxt. Hann sagði langtímaáætlanir gera ráð fyrir eftirspurn eftir flugi fyrir um 12 milljónir farþega árið 2035 og að drög að uppbyggingaráætlun næstu tíu ára gerðu ráð fyrir fjárfestingum upp á meira en 14 milljarða króna á ári að meðaltali.

eftir heimsfaraldurinn. Þá hefði skipt sköpum að geta kallað til reynslumikið starfsfólk sem þekkti starfsemi flugvallarins og þyrfti minni þjálfun en nýliðar.

Sveinbjörn sagði mikla orku vera að leysast úr læðingi á Suðurnesjum og mikilvægt væri að íbúar og fyrirtæki gerðu sér grein fyrir þeim tækifærum sem svæðið hefði upp á að bjóða. „Ég hef fundið það síðustu mánuði og misseri að það er einhvern veginn meiri orka að leysast úr læðingi hérna á Suðurnesjunum,“ sagði hann og bætti við að fólki væri tamt að aka í gegnum svæðið á leið til útlanda án þess að staldra við og skoða þá miklu starfsemi sem þar færi fram.

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár og sagði Sveinbjörn að fjárfestingar síðustu tíu ára næmu um 100 milljörðum króna. Þar af hefðu tæplega 60 milljarðar farið í framkvæmdir á síðustu fjórum árum. Hann sagði jafnframt að umfangsmikil uppbygging væri fram undan. „Drög að uppbyggingaráætlun næstu tíu ára gefa til kynna að við séum að fara að fjárfesta fyrir einhvers staðar að meðaltali 14 milljarða plús á ári. Þannig að þetta heldur bara áfram.“ Sveinbjörn sagði að framkvæmdirnar sköpuðu fjölmörg störf, bæði innan flugvallarsvæðisins og utan þess. Samkvæmt reynslu Isavia ættu um 50 til 60% starfa sem tengdust framkvæmdunum uppruna sinn á Suðurnesjum. Ha n n r i f j a ð i e i n n i g u p p ákvörðun stjórnvalda um að auka hlutafé Isavia í heimsfaraldrinum til þess að hægt væri að hefja fjárfestingar á ný. Þá hefði atvinnuleysi á Suðurnesjum verið mikið og framkvæmdir á flugvellinum því ekki aðeins mikilvægar fyrir framtíð flugvallarins heldur einnig til að skapa störf á svæðinu. „Fyrir hann var þetta líka tæki til þess að draga úr atvinnuleysi á Suðurnesjunum,“ sagði Sveinbjörn um ákvörðun þáverandi fjármála-

Horfa til ársins 2035 þrátt fyrir áföll Sveinbjörn sagði að Isavia þyrfti stöðugt að horfa til framtíðar þrátt fyrir sveiflur í flugrekstri. Félagið hefði sett sér þá framtíðarsýn að tengja heiminn í gegnum Ísland og leggja áherslu á hlutverk Keflavíkurflugvallar sem alþjóðlegrar tengistöðvar. „Það er gríðarlega mikilvægt að við munum eftir því að við erum að reka tengistöð á Keflavíkurflugvelli því það er tengistöðin sem býr til flugtengingar.“ Hann sagði að áætlanir um þróun flugvallarins næðu til ársins 2035 og að hagfræðilegar greiningar bentu til þess að þá gæti verið eftirspurn eftir flugi til, frá og um Keflavíkurflugvöll sem samsvaraði um 12 milljónum farþega. Sveinbjörn rif jaði upp þær miklu breytingar sem orðið hefðu í flugrekstri á undanförnum árum, meðal annars fall WOW air, heimsfaraldurinn og nú síðast fall Play. „Við þurfum að byggja upp það hæfi hjá okkur til að geta brugðist við öllum þessum áföllum og áskorunum án þess að missa sjónar af langtímatækifærinu,“ sagði hann.

Langtímasýnin væri lykillinn að því að tryggja arðsemi félagsins og skapa verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Til þess þyrfti að fjölga farþegum og styrkja flugtengingar Íslands við umheiminn.

Tíu milljarðar til iðnfyrirtækja og 100 þúsund vinnustundir á ári Sveinbjörn lagði sérstaka áherslu á þau miklu efnahagslegu áhrif sem rekstur og uppbygging Keflavíkurflugvallar hefði á nærsamfélagið. Hann nefndi rammasamning um þjónustu iðnaðarmanna sem Isavia bauð út árið 2021. Fjölmörg fyrirtæki á Suðurnesjum væru aðilar að samningnum og árlega keypti Isavia um 100 þúsund vinnustundir á grundvelli hans, sem jafngilti um 51 stöðugildi. „Frá 2021 er heildarverðmæti þessa samnings inn í þetta samfélag um tíu milljarðar króna,“ sagði Sveinbjörn. Hann lagði þó áherslu á að ávinningurinn væri gagnkvæmur. Flugvöllurinn væri háður því að hafa aðgang að öflugum verktökum og hæfu starfsfólki í nærsamfélaginu. „Það að hafa aðgang að þessu hæfi í nærsamfélaginu, það er ómetanlegt fyrir okkur.“ Sveinbjörn sagði að þetta hefði meðal annars komið skýrt í ljós þegar flugumferð tók hratt við sér

Fjárfestingar fyrir meira en 14 milljarða á ári

ráðherra, Bjarna Benediktssonar, og lýsti henni sem gríðarlega mikilvægri.

Hvert þúsund farþega skapar um eitt starf Sveinbjörn vísaði til skýrslu sem Isavia gaf út árið 2016 og byggði meðal annars á erlendum rannsóknum. Þar kom fram að fyrir hverja þúsund farþega sem færu um flugvöll yrði að jafnaði til um eitt starf í flugvallarsamfélaginu. Þetta sýndi hversu mikil áhrif breytingar á farþegafjölda hefðu á atvinnulíf Suðurnesja. „Þegar okkur tekst vel til að búa til farþegafjölgun, þá verða bara til ný og ný störf. Á sama tíma, þegar það verður samdráttur, þá hverfa störfin.“ Hann sagði að flugvallarsamfélagið væri mun stærra en Isavia eitt og sér. Starfsfólk félagsins væri innan við 20% af öllum þeim sem störfuðu á Keflavíkurflugvelli.

Flugtengingar undirstaða hagvaxtar Í erindi sínu fjallaði Sveinbjörn einnig um tengsl flugsamgangna og hagvaxtar. Hann vísaði til evrópskrar rannsóknar á vegum Alþjóðasamtaka flugvalla í Evrópu sem benti til þess að 10% fjölgun beinna flugtenginga á stærsta flugvelli lands tengdist 0,5% aukningu landsframleiðslu á mann. Sveinbjörn taldi að áhrifin gætu verið enn meiri á Íslandi vegna legu landsins og þess að hér væri rekin alþjóðleg tengistöð. „Við erum eyríki. Við höfum ekki lestarsamgöngur eins og mörg eða flest af löndum á meginlandi Evrópu hafa til þess að flytja vörur og fólk á milli landa.“ Hann sagði að oft væri horft á flugtengingar fyrst og fremst út frá ferðaþjónustu, en áhrif þeirra væru mun víðtækari. Þær auðvelduðu alþjóðaviðskipti, bættu s a m ke p p n i s h æ f n i í s l e n s k ra fyrirtækja og opnuðu aðgang að menntun, menningu og erlendum mörkuðum. „Það sem Keflavíkurflugvöllur gerir er að hann einfaldlega

...Frá 2021 er heildarverðmæti þessa rammasamnings inn í þetta samfélag um tíu milljarðar króna ... stækkar þennan litla markað,“ sagði Sveinbjörn og vísaði til þess hversu fámennt Ísland væri í alþjóðlegum samanburði. Hann nefndi jafnframt að fjöldi áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli hefði verið á bilinu 70 til 80 yfir vetrartímann og 80 til 90 yfir sumartímann á árunum eftir heimsfaraldurinn. Slíkt væri óvenjulegt fyrir jafn fámennan markað og Ísland og byggðist að stórum hluta á tengifarþegum.

„Iceland is in the middle of everywhere“ Í lok erindisins vék Sveinbjörn aftur að Suðurnesjum og þeirri jákvæðu þróun sem hann sagðist finna fyrir í umræðu um svæðið. Hann sagði sögu af því þegar hann hefði áður gert að gamni sínu við erlenda gesti að Ísland væri staðsett „in the middle of nowhere“, eða úti í miðri óbyggð. Fyrir um þremur árum hefði erlendur viðmælandi hins vegar leiðrétt hann. „Nei, þetta er rangt hjá þér. Iceland is in the middle of everywhere.“ Sveinbjörn sagði þessi orð lýsa vel þeim tækifærum sem fælust í landfræðilegri legu Íslands og hlutverki Keflavíkurflugvallar sem tengistöðvar milli heimsálfa. „Við höfum þá tækifæri sem eyþjóð að vera á þessum stað að tengja Ísland við þessa alþjóðlegu markaði,“ sagði Sveinbjörn. Með öflugum flugtengingum væri lagður grunnur að hagvexti, velsæld og áframhaldandi þróun íslensks samfélags.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11

Einstakir möguleikar Suðurnesja

Fimm einstaklingar tóku þátt í pallborðsumræðum í lok ráðstefnunnar, fjórir úr atvinnulífinu og ein þingkona. Bergur Ebbi stjórnaði ráðstefnunni og pallborðsumræðunum.

Suðurnesin hafa einstaka möguleika á að laða að erlenda fjárfestingu og byggja upp verðmæta þekkingarstarfsemi. Alþjóðaflugvöllur, staðsetning milli Evrópu og Norður-Ameríku, endurnýjanleg orka og öflugir innviðir skapa samkeppnisforskot sem mörg önnur svæði heimsins gætu aðeins óskað sér. Þetta sagði Mark O’Connell, ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu OCO, á 20 ára afmælisráðstefnu Kadeco í Hljómahöll. OCO vinnur með Kadeco að því að laða að innlenda og erlenda fjárfestingu. O’Connell, sem er Íri, sagði að Suðurnesin byggju yfir afar sterkri samsetningu auðlinda og innviða. „Ef þið gætuð gert það sama í viðskiptum og fjárfestingum og þið hafið gert í ferðaþjónustu síðustu tuttugu ár, guð minn góður, þá yrði landið óstöðvandi,“ sagði Mark.

Myndir Ozzo og pket.

Mikil bjartsýni í framtíð Suðurnesja í pallborðsumræðum

Milljarðauppbygging og stór tækifæri á Suðurnesjum Uppbygging gagnavera, landeldis, ferðaþjónustu og orkuinnviða á Suðurnesjum var í brennidepli í líflegum pallborðsumræðum á 20 ára afmælisráðstefnu Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, í Hljómahöll. Þar kom meðal annars fram að Verne undirbýr 120 megavatta gagnaver, Samherji fiskeldi er kominn í gang með byggingu 36 þúsund tonna laxaframleiðslu á Reykjanesi og Bláa lónið vinnur að frekari uppbyggingu í Svartsengi. Þátttakendur voru sammála um að mikil tækifæri fælust í því að tengja saman ólíkar atvinnugreinar og nýta betur auðlindir svæðisins. Í pallborðinu sátu Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Halla Hrund Logadóttir alþingismaður, Páll Erland, forstjóri HS Veitna, Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, og Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne. Bergur Ebbi stýrði umræðunum.

Kísildalur norðursins að verða að veruleika Halla Hrund Logadóttir rifjaði upp hugmyndir sínar um Suðurnesin sem „Kísildal norðursins“ og sagði að þróunin á svæðinu sýndi að sú framtíðarsýn væri að mörgu leyti þegar farin að verða að veruleika. Hún sagði að einstakt samspil orkuauðlinda, innviða, nýsköpunar og öflugra fyrirtækja skapaði forsendur fyrir frekari vexti. „Við erum að tala um hitaveituna, við erum að tala um allt sem hefur verið byggt ofan á hana, sama hvort það er Bláa lónið eða gagnaverin eða allt annað sem hefur gert það að verkum að við erum á þessum stað í dag.“ Halla sagði mikilvægt að halda áfram að byggja ofan á þá starfsemi sem þegar væri til staðar. Þar væru meðal annars tækifæri í fullnýtingu hráefna, orku og hliðarafurða atvinnulífsins. „Ég held við séum í dauðafæri að sækja þessa sýn í raun og veru,“ sagði hún og lagði áherslu á mikilvægi menntunar, nýsköpunar og öflugra innviða. Hún nefndi meðal annars fyrirtækið Kerecis sem dæmi um hvernig hægt væri að skapa verðmæti úr hráefni sem áður hefði verið lítils metið.

Verne hefði byggt upp starfsemi sína á Suðurnesjum frá árinu 2008 og hygðist halda áfram að fjárfesta á svæðinu. „Við erum að fara af stað núna með líklega stærsta verkefni í sögu fyrirtækisins, 120 megavatta gagnaver, sem er sirka þreföldun á okkar núverandi stærð,“ sagði Styrmir. Hann sagði fyrirtækið hafa sterkar rætur á svæðinu og mikinn áhuga á áframhaldandi uppbyggingu. „Svæði fyrir gagnaver er hér og hér viljum við vera. Hér erum við með ræturnar.“ Styrmir sagði jafnframt að tækifæri fælust í að nýta glatvarma frá gagnaverum til annarrar atvinnustarfsemi. Verne hefði um árabil skoðað slíka möguleika og nú væri áhugi á þeim að aukast. „Við erum búin að vera í fjölmörgum samtölum bara í þessari viku við ólíka aðila sem eru með hugmyndir uppi um nýtingu á þessum varma.“ Slík starfsemi þyrfti að vera í nágrenni gagnaveranna þar sem erfitt væri að flytja varmann langar leiðir. Það skapaði sérstök tækifæri fyrir Kadeco og atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Styrmir sagði mikinn áhuga vera á framkvæmdum fyrirtækisins. Á kynningarfundi sem Verne hélt í

Hljómahöll fyrir rúmum mánuði hefðu mætt 250 manns frá 115 fyrirtækjum. „Svarið sem við fáum frá mjög mörgum sem við erum að tala við er að þeir tala um að Reykjanes sé heitt. Það er rosalega mikið af spennandi verkefnum í gangi.“

Hann sagði jafnframt að Samherji fiskeldi liti á verkefnið sem langtímafjárfestingu. „Við ætlum að vera í 100 ár,“ sagði Jón Kjartan og lagði áherslu á að fyrirtækið hygðist verða virkur þátttakandi í samfélaginu á Suðurnesjum.

Samherji stefnir að 36 þúsund tonna laxaframleiðslu

Bláa lónið stækkar og endurhannar upplifun gesta

Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, sagði að uppbygging landeldisstöðvar fyrirtækisins á Reykjanesi gengi samkvæmt áætlun. Fyrirtækið hefði frá upphafi stefnt að því að byggja stöðina í þremur áföngum með framleiðslugetu upp á 36 þúsund tonn af laxi á ári. „Við erum búin að reisa 18 af 22 körunum í fyrsta áfanga sem eiga að framleiða tíu þúsund tonn,“ sagði Jón Kjartan. Hann sagði stefnt að því að setja fyrsta fiskinn í stöðina næsta vor og hefja slátrun um ári síðar. „Við erum bara á okkar vegi og hlaupandi eins og brjálæðingar.“ Jón Kjartan sagði aðgang að orku og auðlindum hafa ráðið miklu um staðarvalið. Þar skipti samningur við HS Orku um nýtingu á heitum vökva úr orkuvinnslu fyrirtækisins sköpum. Hann sagði um 280 megavött af varmaorku standa að baki þeirri nýtingu sem fyrirhuguð væri. „Fyrir mér er það stærsta umhverfisverkefni á Íslandi, að við tökum 280 megavött og breytum þeim í fiskiprótín sem við seljum til útlanda.“

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, sagði mikla uppbyggingu vera fram undan hjá fyrirtækinu, bæði á Suðurnesjum og annars staðar á landinu. Hún sagði sögu Bláa lónsins sýna vel hvernig hægt væri að umbreyta því sem áður hefði verið talið úrgangur eða hliðarafurð í verðmæta auðlind. „Þetta er í rauninni hrakstraumur sem breytt er í auðlind.“ Sigríður sagði að metnaður, rannsóknir, vísindi og fjárfestingar hefðu verið lykilþættir í uppbyggingu fyrirtækisins. Hún greindi frá því að nú væri unnið að endurhönnun og uppbyggingu á upplifun gesta í Bláa lóninu sjálfu. „Við erum líka bara núna þessa dagana að endurhanna og byggja upp alla vegferð viðskiptavina í Bláa lóninu sjálfu.“ Þá hefði verið hönnuð stækkun á Silica-hótelinu í Svartsengi. Hún sagði nýtingu hótelsins hafa verið 94% að meðaltali á síðasta ári. „Þetta er örugglega eitt af fáum hótelum á Íslandi sem er uppselt allt árið,“ sagði Sigríður. Hún lagði jafnframt áherslu á að Ísland ætti ekki að stefna að fjöldaferðamennsku heldur nýta sér sérstöðu sína í heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu. „Við verðum aldrei massatúrismaland,“ sagði hún og nefndi jarðhitann, hreina orku, vatnið, loftið og öryggi sem mikilvæga styrkleika Íslands.

HS Veitur þurfa að byggja innviði til næstu 50 ára

Verne undirbýr 120 megavatta gagnaver Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne, sagði gagnaveraiðnaðinn vera kominn inn í mikið vaxtarskeið, meðal annars vegna örrar þróunar gervigreindar.

Á kynningarfundi sem Verne hélt í Hljómahöll nýlega hefðu mætt 250 manns frá 115 fyrirtækjum.

Páll Erland, forstjóri HS Veitna, sagði að framsýni fyrri kynslóða við uppbyggingu Hitaveitu Suðurnesja hefði lagt grunninn að þeirri atvinnustarfsemi sem nú væri á svæðinu. Hann nefndi Albert Albertsson sérstaklega sem einn þeirra frum-

kvöðla sem hefðu haft mótandi áhrif á þróunina. „Hann var með plan. Ég held að við höfum nú ekkert endilega þekkt planið en ég held að það sé orðið að veruleika,“ sagði Páll. Hann sagði að margir þeirra innviða sem byggðir hefðu verið fyrir áratugum nýttust enn í dag, þrátt fyrir mikla fólksfjölgun og aukin umsvif atvinnulífsins. Nú væri hins vegar komið að því að endurnýja og styrkja hluta kerfanna. „Það verður líka þá tækifæri og ábyrgð okkar að byggja upp innviði sem duga fyrir alveg næstu 50 ár.“ Páll sagði að við uppbygginguna þyrfti einnig að taka mið af náttúruhamförum og breyttum veðuraðstæðum.

Þekkingin verði eftir á Íslandi Í umræðunum kom einnig fram að mikilvægt væri að nýta uppbyggingu gagnavera og gervigreindar til að skapa ný fyrirtæki og þekkingarstörf á Íslandi. Styrmir tók undir mikilvægi þess að gagnaveraiðnaðurinn ætti gott samtal við samfélagið og skýrði betur hvernig starfsemin nýttist almenningi. Hann sagði að gagnaver notuðu nú um 3,5% af þeirri orku sem framleidd væri á Íslandi en að hlutfallið gæti aukist með áframhaldandi vexti iðnaðarins. Undir lok umræðnanna var rætt um mikilvægi þess að kynna Suðurnesin betur, ekki aðeins fyrir erlendum fjárfestum heldur einnig Íslendingum sjálfum. Halla Hrund fékk síðasta orðið og sagði að næstu tuttugu ár gætu orðið tímabil þar sem fyrirtæki á Suðurnesjum og ný starfsemi sem byggði á grunni þeirra myndu vaxa mun meira en fólk gerði sér nú grein fyrir. Hún sagði eitt stærsta sameiginlega verkefnið vera að tryggja að menntun ungs fólks þróaðist í takt við nýjar atvinnugreinar. „Við þurfum að passa að hjálpa þessum fyrirtækjum að láta sína sýn virka, innviði og allt svoleiðis,“ sagði Halla Hrund og lagði áherslu á að ungt fólk þyrfti bæði að geta nýtt og skapað tækifæri framtíðarinnar. Páll Ketilsson pket@vf.is


12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Vel heppnað Landsmót Samfés Landsmót Samfés fór fram í Reykjanesbæ nýlega og sóttu það rúmlega 450 ungmenni frá yfir 80 félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu. Frá hverri félagsmiðstöð komu að jafnaði fimm til sex ungmenni sem tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá helgarinnar. „Viðburður af þessu tagi og þessari stærðargráðu verður ekki til í tómarúmi heldur krefst hann óteljandi klukkutíma í undirbúningi, skipulagi og svo í aðgerð á viðburðinum sjálfum. Starfsfólk Fjörheima á risa stórt hrós skilið fyrir aðkomu sína að þessum viðburði og standa sem stærsta og sterkasta stoðin í þeirri staðreynd að Landsmótið fór eins vel fram og það gerði,“ segir Valgeir Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Samfés. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri, setti mótið og bauð ungmennin velkomin. Meðal viðburða á föstu-

dagskvöldinu var kosning í ungmennaráð Samfés þar sem kosið var um 22 sæti til eins til tveggja ára í tíu kjördæmum. Þá sá fráfarandi ungmennaráð um hina árlegu kvöldvöku sem heppnaðist mjög vel. Laugardagurinn var helgaður fjölbreyttum smiðjum þar sem ungmennin fengu tækifæri til að prófa nýja hluti, afla sér þekkingar og taka þátt í umræðum. Meðal þess sem var í boði voru kynni af störfum lögreglunnar, nælugerð og fræðsla um fjármálalæsi. Fulltrúar Netvís tóku einnig þátt og ræddu við ungmennin um gervigreind og samfélagsmiðla. Samhliða Landsmóti Samfés fór Landsmót lúðrasveita fram og voru mótin sameinuð með sameiginlegu balli í Hljómahöllinni á laugardagskvöldinu. Þar steig

Herra Hnetusmjör á svið og hélt uppi fjörinu. Á sunnudeginum lauk dagskránni með Landsþingi Samfés sem Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri setti einnig. Ungmennaráð Samfés hafði veg og vanda af skipulagningu þingsins og leiddi vinnu þátttakenda, sem skipt var í hópa til að ræða málefni ársins. Þema þingsins að þessu sinni var fjölbreytileiki. Á þinginu gafst ungmennunum tækifæri til að deila sjónarmiðum sínum og ræða framtíðarsýn sinnar kynslóðar. „Við viljum þakka Reykjanesbæ kærlega fyrir að hafa boðið Samfés sveitarfélagið sitt og sinn starfskraft fram til þess að láta þennan viðburð verða að veruleika. Holtaskóli, Myllubakkaskóli og sundlaugin voru nýtt til fulls alla helgina,“ segir Valgeir Þór Jakobsson.

Um 300 manns á Landsmóti lúðrasveita í Reykjanesbæ léku lög eftir Gunnar Þórðarson Um 300 manns mættu til Reykjanesbæjar 9.-11. október til að blása í lúðra í orðsins fyllstu merkingu en um var að ræða Landsmót lúðrasveita á landinu. Lúðrasveitarfólk frá öllu landinu mætti til æfinga í tvo daga en þeim lauk með tónleikum. VF ræddi við Ragnheiði Eir Magnúsdóttur frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og kíkti á æfingu í Íþróttahúsi Njarðvíkur, ljónagryfjuna þar sem oftar er leikinn körfubolti en nú ómuðu fallegir tónar um íþróttasalinn. Sjá viðtal og hljóðbrot í myndskeiði á vf.is

Strákarnir syngja saman í Sandgerðiskirkju

VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG Verkís verkfræðistofa | Hafnargata 57 | 230 Reykjanesbær

Næsta blað kemur út 4. nóvember

Laugardaginn 31. október nk. kl. 14 fær söngsveitin Víkingarnir til sín góða gesti þegar Karlakór Grafarvogs kemur í heimsókn á ferð sinni um Suðurnes. Piltarnir munu syngja saman og sitt í hvoru lagi létt og skemmtileg lög við allra hæfi í Sandgerðiskirkju. Kórarnir hafa áður tekið lagið saman, báðir tóku þeir þátt í keppninni Kórar Íslands auk þess sem þeir sungu saman á Kötlumóti karlakóra sem haldið var í Reykjanesbæ. Karlakór Grafarvogs var stofnaður 2011 af Írisi Erlingsdóttur

sem stjórnar kórnum og fagnar því 15 ára afmæli um þessar mundir. Kórinn hefur getið sér gott orð fyrir létta og skemmtilega tónleika þar sem blandað er saman dægurlögum, rokki og hefðbundnum karlakóraperlum. Söngsveitina Víkinga þarf vart að kynna fyrir heimamönnum eftir rúmlega 30 ára starf en sveitin var stofnuð 1994 og þar fara síungir, síkátir snillingar með sönggleðina að vopni og gleði, vináttu og samveru í fyrirrúmi. Enginn aðgangseyrir – bara gaman!


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13

KARLAR TRUFLA STELPUHELGINA

LEIKFÉLAG KEFLAVÍKUR

Stelpuhelgi er leikrit haustsins hjá Leikfélagi Keflavíkur, gamanleikrit eftir Karen Schaeffer í upphaflegri þýðingu Harðar Sigurðssonar. Stelpuhelgi er fjörlegur farsi þar sem þrjár vinkonur, tvær fráskildar og ein að reyna að verða ólétt, og svo dóttir einnar þeirra, hittast í sumarbústað eina helgi, með fullt af hvítvíni og tilheyrandi fjöri. Maggý (Sólrún Steinarsdóttir) og Dódó (Jenný Jónsdóttir) eru báðar nýfráskildar og stofnuðu bókaklúbb til að hitta nýtt fólk. Þær auglýsa eftir fleiri meðlimum. Aðeins ein sækir um, Karen (Soffía Huld Ævarsdóttir), og fær auðveldlega inngöngu. Þær ætla sér að eiga góða stundir saman í bústaðnum, skála, skiptast á sögum, borða góðan mat og ræða næstu bók, auðvitað karlalausar. Sem sagt: góð uppskrift að góðri stelpuhelgi. En það fer á annan veg þegar hvítvínið flæðir of mikið og körlum og strákum er boðið á staðinn, sem var ekki hugmynd gestgjafans. Vetrarveður, eiturlyf og konusjúkir karlar koma inn í spilið. Eftir frekar rólega byrjun á leikritinu fyrstu tuttugu mínúturnar fer að færast fjör í leikinn. Óvæntir hlutir gerast eins og oft vill verða þegar karlpeningur hittir konur og það í bústað og úr verður

hin besta skemmtun. Karlarnir Bubbi (Daði Freyr Þorgeirsson), Tómas (Jóhann Helgi Hilaríius Gíslason) og Stefán, sem er sonur

Dódóar (Mikael Örn Hilmarsson), koma skemmtilega inn í rólegu stelpuhelgina, eða þannig. Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Björn Guðmundsson og hefur hann leikstýrt Stelpuhelgi fyrir fleiri aðila. Á sviðinu má sjá nokkra nýliða en líka vant fólk úr fyrri verkum Leikfélags Keflavíkur. Stelpuhelgi er skemmtileg. Eflaust eiga margir sögur og reynslu úr bústaðaferðum sem hafa endað alls konar. Því er tilvalið að skella sér í Frumleikhúsið og njóta fyndinnar og skemmtilegrar sýningar.

Páll Ketilsson pket@vf.is

„Það á enginn að missa af þessu“ Opnunarviðburður Óperunnar víða allt land - 36 manna sinfóníuhljómsveit, einsöngvarar, stór kór og leikarar úr Þjóðleikhúsinu flytja Undir sömu stjörnu í Hljómahöll 1. nóvember Nýstofnuð Ópera hefur starfsemi sína með glæsilegri tónleikadagskrá undir yfirskriftinni Undir sömu stjörnu. Fimm sýningar verða haldnar víða um land og sú þriðja verður í Hljómahöll í Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember. Þar mun Keflvíkingurinn Jóhann Smári Sævarsson stjórna 36 manna sinfóníuhljómsveit og á sviðinu verða einnig einsöngvarar, stór kór og leikarar úr Þjóðleikhúsinu.

Frá Monteverdi til Gunnars Þórðarsonar Tónleikarnir Undir sömu stjörnu verða að sögn Jóhanns Smára sannkölluð veisla fyrir tónlistarunnendur, hvort sem þeir þekkja óperubókmenntirnar vel eða eru að kynnast þeim í fyrsta sinn. „Þetta verður alveg stórglæsilegur viðburður. Við verðum með 36 manna sinfóníuhljómsveit, stóran hátíðarkór, fjóra unga og mjög góða einsöngvara úr nýju Óperunni og tvo leikara úr Þjóðleikhúsinu, þau Örn Árnason og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur.“ Sérstakur gestasöngvari á tónleikunum í Hljómahöll verður Martina Giselle, pólsk söngkona sem búsett er á Suðurnesjum og hefur áður komið fram með Jóhanni Smára. „Hún söng meðal annars með okkur í Janis Joplin-tónleikunum og er gríðarlega flott söngkona,“ segir hann. Dagskráin spannar nokkrar aldir í sögu óperunnar og leiðir áhorfendur í ferðalag frá barokktímanum til íslenskra samtímaópera. „Við byrjum fyrir hlé á eldgamalli óperu eftir Monteverdi og förum síðan í gegnum tónlist eftir meðal annars Mozart, Beethoven, Wagner og Verdi. Einnig

heyrum við perlur úr Carmen og fleiri þekktum óperum.“ Eftir hlé verður íslensk óperutónlist í sviðsljósinu. „Þá koma verk eftir íslensk tónskáld, meðal annars Jórunni Viðar og Jón Ásgeirsson, og síðan aría úr óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson. Í uppklappinu verður svo drykkjuvísan fræga úr La Traviata.“

Skipta tíu sinnum um búninga Jóhann Smári leggur áherslu á að þótt óperutónlist sé í forgrunni verði viðburðurinn langt frá því að

vera hefðbundnir og formfastir tónleikar. Leikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leiða áhorfendur í gegnum sögu óperunnar með leikþáttum, frásögnum og húmor. „Mér skilst að þau skipti allt að tíu sinnum um búninga. Á milli tónlistaratriðanna verða þau með litla sketsa og segja sögur af tónskáldunum og þeim tímabilum sem tónlistin kemur frá. Þannig að þetta á að vera mjög fjörugt og skemmtilegt,“ segir Jóhann Smári.

Metnaðarfullt samstarf um allt land Alls verða sýningarnar fimm. Sú fyrsta fór fram á Akureyri, síðan liggur leiðin til Eskifjarðar áður en komið verður í Hljómahöll 1. nóvember. Að því loknu verður

sýnt í Skálholti og loks í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík. Það sem gerir verkefnið sérstakt er að á hverjum stað er unnið með heimafólki í tónlistarlífinu. Hér á Suðurnesjum setjum við saman okkar eigin hljómsveit og erum með okkar kór.“ Jóhann Smári segir þetta afar metnaðarfulla nálgun enda sé umtalsvert flóknara að skipuleggja tónleikaröð þar sem ólíkar hljómsveitir og kórar taka þátt á hverjum stað. Jóhann Smári hefur um árabil verið ötull í óperu- og tónlistarstarfi á Suðurnesjum. Hann segir stofnun nýrrar Óperu innan Þjóðleikhússins marka mikil tímamót fyrir íslenskt óperulíf. „Þetta er arftaki Íslensku óperunnar sem var lögð niður fyrir um tveimur árum. Nú er óperan orðin að stofnun innan Þjóðleikhússins og þetta hefur lengi verið mikið baráttumál okkar listafólks sem störfum í þessum geira. Við höfum viljað koma starfseminni á fastari grunn þannig að íslenskir óperulistamenn geti fengið fasta vinnu við það sem þeir gera,“ segir Jóhann Smári. Hann segir fyrstu skrefin þegar hafa verið tekin með ráðningu fjögurra einsöngvara á fasta samninga og að

tveir til viðbótar bætist við eftir áramót. „Þetta verður mun burðugri stofnun en Íslenska óperan var og vonandi skapar það ný og spennandi tækifæri fyrir íslenskt óperulíf.“

Einstakt tækifæri fyrir Suðurnesjamenn Jóhann Smári segir tónleikana í Hljómahöll einstakt tækifæri fyrir Suðurnesjamenn til að upplifa glæsilegan óperuviðburð í heimabyggð. Þar sameinist kraftar nýrrar þjóðleikhússtofnunar og öflugs tónlistarfólks af svæðinu. Tónleikarnir Undir sömu stjörnu verða í Hljómahöll í Reykjanesbæ sunnudaginn 1. nóvember. Aðeins verður um eina sýningu að ræða á Suðurnesjum. Söngvara Óperunnar: Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson. Leikarar Þjóðleikhússins: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason Óperustjóri: Finnur Bjarnason. Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson Tónlistarstjóri: Richard Schwennicke.


14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður skrifar

Þetta hefði alltaf átt að vera sjálfsagt Eitt af því sem er mest gefandi við þátttöku í stjórnmálum eru tækifærin sem hún gefur til að eiga samtöl við íbúa kjördæmisins og almenning í landinu almennt. Ekki stórir og fjölmennir fundir eða umræða í þingsölum heldur samtöl við fólk á förnum vegi, í versluninni, sundlauginni eða yfir kaffibolla einhvers staðar. Það er í þessum samskiptum sem ég er reglulega minntur á hvað skiptir mestu máli í lífi fólks. Hér í Reykjanesbæ hef ég hitt fólk sem þarf að velta fyrir sér hverri krónu. Fólk sem hefur kannski unnið langa starfsævi og lagt sitt af mörkum til samfélagsins en hefur samt fjárhagsáhyggjur um hver mánaðamót og hvernig það eigi að ná endum saman fyrir þau næstu. Ég hef rætt við fjölda fólks sem hefur misst starfsgetuna vegna veikinda eða slysa og þarf að treysta á almannatryggingar þar sem greiðslur hafa ekki alltaf fylgt almennri launaþróun í samfélaginu. Sumt af þessu fólki kaus mig til Alþingis og treysti mér og Flokki fólksins þar með til að vinna að breytingum til batnaðar. Frá því að Flokkur fólksins hóf þátttöku í ríkisstjórn höfum við þingmenn og ráðherrar flokksins náð fram mikilvægum kjarabótum fyrir það fólk sem stendur höllustum fæti í þjóðfélaginu.

Um næstu áramót er komið að mikilvægum áfanga í þeim efnum. Frá og með 1. janúar hækka greiðslur almannatrygginga í fyrsta skipti samkvæmt þróun launavísitölu, eða um 7,3 prósent. Þetta baráttumál Flokks fólksins varð loks að lögum á síðasta þingi með stuðningi samstarfsflokka okkar í ríkisstjórn en mætti harðri andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins. Þetta hefði alltaf átt að vera sjálfsagt. Það ætti auðvitað ekki að kosta margra ára baráttu að tryggja að eldra fólk, öryrkjar og fatlað fólk dragist ekki stöðugt aftur úr launaþróun annarra. Afkomuöryggi og mannsæmandi kjör eiga að vera sjálfsagður hluti af okkar samfélagi. Hækkunin um næstu áramót er ekki einstök því lögin tryggja að greiðslur almannatrygginga taki framvegis mið af launaþróun launavísitölu. Það er ekki þar með sagt að baráttunni fyrir bættum kjörum og stöðu aldraðra og öryrkja sé lokið. Því fer fjarri. Flokkur fólksins og ríkisstjórnin eru hvergi hætt í því verkefni að jafna kjörin í landinu. Á endanum snúast stjórnmál ekki um loforð heldur efndir og bætt kjör og aðstæður þeirra sem treystu okkur til góðra verka.

Fjöldi ungmenna kynntu sér fjölbreytt störf Starfsgreinakynning grunnskólanema í 8. og 10. bekk á Suðurnesjum var haldin í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ í síðustu viku. Um 800-900 nemendur komu og kynntu sér hin ýmsu störf en yfir 100 fyrirtæki og stofnanir voru með kynningu á störfum sínum. Kynningin er liður í sóknaráætlun Suðurnesja og er öflugt verkfæri til að hvetja ungt fólk í landshlutanum til að tengjast og kynnast ýmsum tækifærum á vinnumarkaði.

Áhugavert!

Safnahelgi á Suðurnesjum sett í hlöðu á Kálfatjörn Fjölmargir áhugaverðir viðburðir voru í boði á Safnahelgi á Suðurnesjum 17. og 18. október. Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum setti Safnahelgina í hlöðunni Skjaldbreið á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd með ávarpi þar sem hún sagði verkefnið skemmtilegt og samstarf um það meðal Suðurnesjamanna og sveitarfélaganna væri ánægjulegt og gott. Við setningu Safnahelgar fluttu hjónin Þorvaldur Örn Árnason

og Ragnheiður Jónsdóttir, Heiða, kona hans þulu um Geirfuglasker og sungu hana við lagið Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn eftir Sigvalda Kaldalóns. Gestir við opnun Safnahelgar skoðuðu við það tækifæri skólasafnið Norðurkot en það er í aldargömlu skólahúsnæði í næsta húsi við hlöðuna. Í þessu litla húsi fór fram á sínum tíma grunnskólakennsla fyrir allt að nítján börn og kennarinn bjó í íbúð á efri hæð. Í Norðurkoti má sjá gömul leikföng,

skóladót, húsgögn og fleira frá því í gamla daga. Safnið hefur verið opið reglulega undanfarin ár og er virkilega áhugavert en þar er hægt að sjá húsgögn og gamla muni sem tengjast skólahaldi fyrir öld síðan. Skólahúsið gamla og hlaðan eru í næsta nágrenni við Kálfatjarnarkirkju og golfvöllinn á Kálfatjörn. „Hér á Kálfatjörn kemur saman þrennt sem auðgar andann; trúin, hreyfingin og menningin,“ sagði Björg Ásta bæjarstjóri.

Gamla skólahúsið Norðurkot sem nú er skólasafn. Þarna sátu 19 nemendur við nám í gamla daga og kennarinn bjó á efri hæðinni. Til hliðar má sjá Þorvald Örn og Heiðu konu hans flytja þuluna um Geirfuglasker við setningu Safnahelgarinnar. VF/pket.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 15

Nýr samstarfssamningur og nýtt merki RKVN Nýlega undirrituðu Keflavík, Njarðvík, Reynir og Víðir nýjan samstarfssamning um RKVN-samstarfið sem gildir næstu 4 árin og nær til 5., 4., 3. og 2. flokks kvenna í knattspyrnu. RKV-samstarfið var stofnað árið 2013 og var því 10 ára árið 2023 þegar Njarðvík gekk inn í samstarfið og styrkti það enn frekar og RKVN hefur því verið til í 3 ár. Á þessum þremur árum hefur samstarfið gengið mjög vel og RKVN er nú meðal fjölmennustu félaga landsins í þessum flokkum og fjöldinn hefur haldist stöðugur. Í sumar kom fyrsti Íslandsmeistaratitill RKVN en stelpurnar í A-liði 5. flokks kvenna urðu Íslandsmeistarar í byrjun september. Árangur samstarfsins er þó ekki mældur í titlum eða bikurum heldur fyrst og fremst í fjölda stelpna sem eru að æfa, metnaði í þjálfun, framförum og gleði iðkenda og þeirri tengingu sem hefur

myndast milli stelpna frá mismunandi svæðum Suðurnesja. Í tilefni undirritunar á nýja samningnum var kynntur nýr búningur RKVN og nýtt merki sem hannað var af Halldóri Smára Sigurðssyni. Það er skýr vilji allra félaganna að skapa flotta ímynd RKVN sem styrkir þeirra sérstöðu en þó með sterka tengingu í öll félögin sem standa að baki. Halldór Smári fékk innblástur að hönnun merkisins frá gömlu lógói Sportvíkur sem var íþróttavöruverslun sem þjónustaði Suðurnesjamenn um árabil. Lógóið samanstendur af 19. aldar leðurbolta og fjögurra tinda kórónu sem táknar liðin fjögur sem standa að baki RKVN. „Félögin eru virkilega stolt af nýrri ásýnd RKVN og hlakka til að halda áfram að gera vel fyrir fótboltastelpur á Suðurnesjum,“ segir í tilkynningu frá RKVN.

Bræðurnir Arnór Ingvi og Viktor Árni í leik Keflavíkur og KR.

Bræðurnir börðust í Keflavík 14 ár á milli Arnórs Ingva og Viktors Árna „Þetta var ótrúlega falleg stund að mæta Viktori. Ég gat ekki ímyndað mér að ég myndi ná því í fótboltaleik, hann er fjórtán árum yngri en ég,“ segir Arnór Ingvi Traustason, leikmaður KR en Viktor Árni, bróðir hans var í Keflvíkurbúningnum. Eldri bróðirinn hafði betur því KR marði 2-3 sigur í skemmtilegum leik í úrslitakeppni Bestudeildar karla í knattspyrnu. Arnór Ingvi gekk til liðs við KR eftir atvinnumennsku fyrr á þessu ári og hefur verið í lykilhlutverki í liðinu í sumar sem endar í 2. sæti í deildinni. Vikor Árni hefur verið í Keflavíkurhópnum í sumar og verið í byrjunarliðinu í síðustu tveimur leikjum. „Ég var að reyna að passa hann allan leikinn. Það var erfitt. Jafntefli hefði verið sanngjarnt. Við vorum miklu betri í síðari hálfleik en þeir voru sterkari í þeim fyrri,“ sagði Viktor Árni í stuttu spjalli við

VF eftir leikinn. „Þetta er búið að vera ágætt tímabil. Okkur var ekki spáð góðu gengi en það var gott að enda í efri hluta deildarinnar þó svo við hefðum getað gert betur þar.“ „Keflavík hefði alveg getað stolið þessu sigri eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Þeir komu mjög sterkir inn í síðari hálfleik og hefðu getað unnið leikinn. Þetta er búið að vera gott tímabil hjá okkur KR-ingum og ég er líka sáttur með hvernig mér hefur gengið í sumar,“

sagði Arnór en spjall við þá bræður á sjá í myndskeiði á vf.is.

Góð endurkoma dugði ekki Keflvíkingar lentu tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik en Stefan Ljubicic og Dagur Ingi Valsson skoruðu fyrir Keflavík á fyrstu fimm mínútum síðari hálfleik og jöfnuðu leikinn. Þetta var tólfta mark Stefans á leiktíðinni. KR stal sigrinum á næst síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Keflavík hefur aðeins fengið eitt stig úr úr úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar. Þeir leika síðasta leikinn gegn ÍA um næstu helgi. Páll Ketilsson pket@vf.is

Goðsögn kveður sviðið Natasha Anasi-Erlingsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir glæsilegan knattspyrnuferil en hún lék nú síðast hjá Grindavík/Njarðvík. Hún var á hliðarlínunni þegar félagar hennar í liðinu unnu sigur á ÍBV í Bestu-deildinni á gervigrasinu í Reykjanesbæ á föstudagskvöld 2-1. „Ég ætlaði að hætta eftir þetta tímabil en náði ekki alveg að klára alla leikina í ár. Það munaði litlu,“ sagði hún brosandi en Natasha er barnshafandi og af þeim ástæðum gat hún t.d. ekki tekið þátt í verkefnum landsliðsins nýlega en hún var valin í hópinn. Natasha skilur eftir sig stór spor í íslenskri kvenna knattspyrnu en hún kom fyrst til Íslands árið 2014 eftir háskólaferil hjá Duke. Natasha lék 276 leiki á vegum KSÍ í sex félagsliðum. Hún byrjaði hjá ÍBV en lék einnig með Keflavík, Breiðablik og Val og nú síðasta Grindavík/Njarðvík, og skoraði í þeim 68 mörk. Þá lék hún með Brann í Noregi. Hún á einnig 9 A landsleiki með íslenska landsliðinu og skorað þar 1 mark. Fyrir leik Grindavíkur/Njarðvíkur og ÍBV afhentu þeir Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV og

Gylfi Tryggvason, þjálfari UMFG/ UMFN henni heiðursgjöf en Jón Óli var einmitt þjálfari ÍBV þegar

Natasha hóf sinn atvinnumannaferiI með IBV sumarið 2014.

Góð byrjun hjá körlum í Keflavík og konum í Grindavík Natasha Anasi með Rúnari Inga Erlingssyni, eiginmanni sínum og dóttur þeirra, hinni 9 ára Harper Eyju.

Karfan er komin á fleygiferð og gengi Suðurnesjaliðanna er misjafnt í Bónus-deildum karla- og kvenna. Keflvíkingar hafa farið vel af stað hjá körlunum og unnið tvo fyrstu leikina en sömu sögu er ekki að segja af Grindavík og Njarðvík sem hafa tapað báðum. Þá tapaði Grindavík í byrjun vikunnar fyrir 1. deildarliði Blika í VÍS bikarnum en UMFN vann lið Víðis. Hjá kvenfólkinu er Grindavík í toppsætinu með þrjá sigra, Grindavík með tvo og Keflavík einn. Meðfylgjandi mynd var tekin í leik Keflavíkur og Sindra nýlega en þar sigruðu heimamenn nokkuð örugglega.


HANNESAR FRIÐRIKSSONAR

Uppvakningar

Lækkað verð á 1.100 vörum

Uppvakningar eru undarleg fyrirbrigði sem fylgt hafa mannkyninu í aldaraðir og hægt er að rekja til þjóðsagna frá Haíti. Galdralæknar eru sagðir geta vakið upp fólk frá dauðum og stjórnað því eins og viljalausum þrælum og fengið það til að gera nánast hvað sem er. Stundum er þeim stjórnað með einföldu flauti: eitt flaut, beygja til vinstri, tvö flaut, beygja til hægri o.s.frv. Þetta eru sem sagt algjörlega viljalausar verur sem gera eins og þeim er sagt. Ég fór sem sagt að hugsa um uppvakninga þegar við hjónin keyrðum niður Evrópu nýlega. Hvar sem maður fór um virtist eitt helsta persónueinkenni fólks vera að það laut höfði og horfði í farsíma sína. Algjörlega ótengt umhverfi sínu en mænandi á símann í leit að næstu skipun alnetsins. Svolítið eins og uppvakningar. Tæknin sem gera átti líf okkar auðveldara er farin að gera lífið á margan hátt svolítið snúnara. Við verðum stöðugt háðari alls konar öppum og lykilorðum. Auðvitað eru öpp og lykilorð að langmestu leyti af hinu góða, við verðum öruggari með aðgerðir okkar á netinu. En samt, fyrir marga þá sem eldri eru, er þetta ekki alltaf alveg svona einfalt. Við hjónin erum til að mynda mjög samrýmd. Notum eina tölvu og einn Ipad. Skynseminnar vegna höfum við notast við hennar einkenni þegar kemur að aðgengi að hvort heldur Ipadnum eða tölvunni. Hún man betur en ég og hefur stjórn á hlutunum. En þetta er ekki skynsamlegt. Því komst ég að um daginn. Frúin hafði sem sagt brugðið sér frá stutta stund, rétt áður en að fékk þá hugmynd að skrifa einhvern stórmerkilegan texta sem mér hafði dottið í hug. Ekki seinna heldur núna. Settist með Ipadinn, brosandi og hugðist slá inn eina lykilorðið sem ég mundi, en nei ó nei, Ipadinn bað um fingrafar, ekki mitt heldur hennar. Var bara slakur og hugðist fara í tölvuna en sama saga þar, lykilorðið mitt virkaði ekki, en beðið um augnauðkenningu frúarinnar. Blóðþrýstingurinn, sem er of hár, hækkaði meira. Hvers á ég eiginlega að gjalda og hvers konar misþyrmingar er eiginlega verið að biðja um? Ímyndar alnetið sér virkilega að maður sé orðinn svo mikill viljalaus uppvakningur að með fjórum flautum geti það beðið mann um að plokka úr öðrum augunum og skera í burtu putta til að geta skrifað einfaldan texta? Nei, mér sýnist þróun alnets og gervigreindar vera á stórhættulegri leið.

Opnunartímar í Nettó Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00

Mundi

Hannes ... viltu senda mér lykilorðið þitt...?


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 21. tbl. 47. tbl. by Víkurfréttir ehf - Issuu