• Miðvikudagurinn 7. október 2026 • 20. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS SÍÐA 24
„Hefðum séð eftir því að láta þetta ógert“
Sáu tækifæri í tómum húsum
ÁSBRÚ 20 ÁRA
SÍÐA 26
Meirihlutinn fallinn í Suðurnesjabæ Samfylkingin og óháðir hafa slitið meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og óháða vegna trúnaðarbrests. D-listinn segir ágreining um knattspyrnuvallarmál hafa leitt til slitanna og hvetur til þess að staðan dýpki ekki gjána milli Garðs og Sandgerðis. Óráðið er hvernig nýr meirihluti verður myndaður. Aðal- og varamenn S-listans Samfylkingar og óháðra tóku ákvörðun um að slíta samstarfinu. Í yfirlýsingu framboðsins segir að ákvörðunin sé til komin vegna trúnaðarbrests sem ekki hafi verið hægt að líta fram hjá. Fulltrúar S-listans fara nú yfir stöðuna með baklandi sínu. Ekki liggur fyrir hvort þeir muni hefja meirihlutasamstarf með öðru framboði. S-listinn fékk rúmlega 34 prósent atkvæða í síðustu sveitarstjórnarkosningum og þrjá bæjarfulltrúa kjörna. „Fulltrúar S-listans harma þá stöðu sem upp er komin en vilja jafnframt taka fram að nú er mikilvægt að varða næstu skref vel og vandlega,“ segir í yfirlýsingunni. Þar er bent á að mikilvæg fjárhagsáætlunarvinna sé fram undan, meðal annars vegna málefna fatlaðs fólks og eldri borgara. D-listinn og óháðir harma einnig slit samstarfsins. Í yfirlýsingu þeirra segir að ágreiningur um knattspyrnuvallarmál hafi leitt til þess að meirihlutinn féll. Þeir telja áhyggjuefni að meirihluti í bæjar-
stjórn falli í annað sinn vegna þess málaflokks. Framboðið vill reisa eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni, milli Sandgerðis og Garðs, og telur þá leið best til þess fallna að sameina byggðakjarnana. Vísað er til skýrslu Verkís sem að sögn D-listans styður að sú staðsetning skapi mest jafnvægi milli kjarnanna. Fulltrúar D-listans studdu sameiginlega tillögu allrar bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs 9. september. Í yfirlýsingunni segja þeir að fljótlega hafi komið í ljós að tillagan skapaði ekki það jafnvægi sem þeir höfðu vænst. Því hafi þeir viljað endurskoða ákvörðunina, en ekki hafi verið vilji allra til að vinna úr stöðunni. D-listinn lýsir samstarfinu sem að mestu jákvæðu og farsælu þótt það hafi staðið stutt. Framboðið beinir jafnframt hvatningu til bæjarfulltrúa og íbúa: „Við hvetjum kjörna fulltrúa jafnt sem íbúa til að láta þessa stöðu ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna og sameinast undir merkjum Suðurnesjabæjar í orði og á borði.“
Varðskipið Þór hefur legið við bryggju í Njarðvík síðustu daga og þar nota menn blíðviðrið til að sinna viðhaldi skipsins. VF/hilmarbragi
20%
Afsláttur ef þú bókar í Noona appinu Annars alltaf velkomið að renna við!
Næsta blað kemur út 21. október
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Snorri
Gylfi
Óskar
Sölvi
snorribs@valholl.is
gylfi@valholl.is
oskar@valholl.is
770 4040
691 1931
solvi@valholl.is
699 4407
618 0064
3 2 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Stefna á að safna 50 milljónum fyrir nýju tæki til brjóstaskimunar á Suðurnesjum HEILBRIGÐISMÁL Hilmar Bragi Bárðarson
Skoða frístundaakstur fyrir börn í Suðurnesjabæ Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar vill kanna leiðir til að auðvelda börnum og ungmennum að komast í íþrótta- og tómstundastarf. Málið var tekið fyrir að fengnu erindi frá barnaog unglingaráði Reynis/Víðis. Ráðið óskar eftir að skoðaðar verði mismunandi útfærslur á frístundaakstri. Þar á meðal verði kannað hvort hægt sé að aðlaga núverandi almenningssamgöngur og hvað það myndi kosta að niðurgreiða strætókort. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um að hefja frístundaakstur eða niðurgreiða kortin.
Leita að samstarfsaðilum til að nýta afgangsvarma Gagnaversfyrirtækið atNorth ráðgerir að halda áfram miklum vexti sínum í Reykjanesbæ, en gagnaverið á Fitjum er í dag eitt stærsta gervigreindarský á Norðurlöndunum. Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, aðstoðarforstjóri atNorth, kynnti umsvif og framtíðaráform félagsins á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Fyrirtækið, sem á uppruna sinn að rekja til svæðisins, rekur í dag sjö gagnaver á Norðurlöndunum og fjárfestir fyrir um 200–250 milljarða króna á ári, þar af umtalsverðan hluta í Reykjanesbæ.
Hámarkssjálfbærni og milljarða verðmætasköpun í nærsamfélaginu Vegna hagstæðs veðurfars og kælingar á Fitjum er orkunýtni gagnaversins með því lægsta og besta sem gerist á heimsvísu. atNorth óskar nú eftir samstarfsaðilum til að nýta afgangsvarma sem myndast við reksturinn, en tækifærin felast meðal annars í uppbyggingu í gróðurhúsaræktun eða annarri starfsemi í nærumhverfinu. Það væri meira að segja hægt að hita upp baðlón með varmanum sem verður til í gagnaverinu. Verkefnið hefur umtalsverð efnahagsleg áhrif, en óháð úttekt KPMG sýnir að fyrir hvert starf hjá atNorth verða til um 12 afleidd störf. Áætlað er að efnahagsleg verðmætasköpun félagsins í nærsamfélaginu í Reykjanesbæ nemi um 76 milljörðum króna á næstu árum, auk þess sem umtalsverðar fjárhæðir munu renna í samfélagsverkefni á svæðinu. Eva Sóley undirstrikaði að mikill metnaður ríkti hjá félaginu og viðskiptavinum þess til að halda áfram uppbyggingu í Reykjanesbæ og vera virkur og samfélagslega ábyrgur þátttakandi á Suðurnesjum.
hilmar@vf.is
Stefnt er á að safna 50 milljónum króna fyrir brjóstaskimunartæki og uppsetningu þess hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Söfnunin hefst 18. október og stendur til 18. nóvember. Um er að ræða samstarf heilbrigðisstofnunarinnar, Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) og kirkjunnar. Markmiðið er að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð og að fleiri konur fari í skimun. „Þetta snýst um að aðgengi verði meira heldur en það hefur verið,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS. Hún segir þátttöku kvenna í brjóstaskimun á Suðurnesjum hafa verið þá lægstu á landinu. Með árvekni og bættu aðgengi hafi þó tekist að þoka henni upp á við. „Þátttakan var 42 prósent og með svona árvekni þá erum við komin upp í 55. En landsmeðaltalið er 65 prósent og við eigum dálítið langt í land með að ná því.“ Vonir standa til að varanlegt brjóstaskimunartæki hjá HSS geti breytt þessari stöðu. Ferð til Reykjavíkur vegna skimunar geti tekið drjúgan hluta úr vinnudegi en með þjónustunni í heimabyggð verði auðveldara að komast frá vinnu og öðrum skyldum, það verði sem sagt hægt að „skreppa í skimun“. Guðlaug Rakel segir sjálfa skimunina aðeins taka um tíu mínútur. Með góðu skipulagi eigi heimsóknin því að geta gengið hratt fyrir sig.
Atvinnurekendur hvattir til að greiða leiðina Ingvar Eyfjörð, frá Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi, segir verkefnið bæði snúast um fjáröflun og vitundarvakningu. Samtökin vilja hvetja atvinnurekendur til að gera konum kleift að fara í skimun á launuðum vinnutíma. Samstarf ið við HSS hófst í fyrra þegar samtökin sendu félagsmönnum sínum hvatningu um þátttöku í skimun. Síðar kom Guðlaug Rakel á fjölmennan hádegisfund og kynnti uppbyggingu og breytingar hjá stofnuninni. Ingvar segir kynninguna hafa vakið sterkan vilja til að leggja sitt af mörkum. „Það var hópur sem kom saman eftir fundinn og sagði: „Heyrðu, við bara klárum þetta mál.“ Samtökin taka að sér umsjón og ábyrgð á söfnuninni, þar á meðal söfnunarreikning. Einnig er unnið að greiðslugátt svo auðvelt verði að leggja verkefninu lið. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag framlaga verða kynntar þegar nær dregur. Stefnt er að því að safna 50 milljónum króna, þ.e. til kaupa á tækinu en til viðbótar þurfi að standa straum af uppsetningu og aðstöðu. „Okkur skiptir hvert einasta framlag máli,“ segir Ingvar. Hann segir viðbrögðin við verkefninu hafa verið afar jákvæð. Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafi sýnt vilja til að taka þátt. Verkefnið sé jafnframt hvatning til áframhaldandi uppbyggingar HSS sem kjarnastofnunar í samfélaginu.
Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur í Keflavíkurkirkju, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS og Ingvar Eyfjörð frá SAR. Konráð Lúðvíksson forfallaðist í myndatökunni en sést hér til vinstri.
Söfnunin hefst í bleikri messu Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur í Keflavíkurkirkju, segir kirkjuna taka þátt í verkefninu með því að hefja söfnunina formlega í bleikri messu sunnudaginn 18. október. „18. október er dagur heilbrigðisþjónustunnar í Þjóðkirkjunni. Jafnframt verður bleik messa og Margrét Sturlaugsdóttir, starfsmaður Krabbameinsfélagsins, verður hjá okkur og segir nokkur orð um félagið,“ segir Erla. Hún segir daginn teng jast Lúkasi guðspjallamanni, sem var læknir, og þeirri hefð kirkjunnar að biðja fyrir sjúkum og þeim sem sinna heilbrigðisþjónustu. Messur af þessu tilefni séu haldnar sem næst 18. október, en í ár beri daginn upp á sunnudag. „Við biðjum fyrir fólkinu okkar sem er að þjóna okkur og sinna sinni köllun á þessum vettvangi, öllum þeim sem tilheyra heilbrigðisþjónustunni okkar.“ Þannig verður upphaf söfnunarinnar fyrir brjóstaskimunartæki hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja jafnframt tilefni til að þakka fyrir störf heilbrigðisstarfsfólks og sýna því stuðning. Erla segir hugmyndina hafa þróast í samtölum um uppbyggingu HSS og hvernig samfélagið gæti stutt við hana. Kynning Guðlaugar Rakelar á fundi Rótarýklúbbs Keflavíkur haf i meðal annars vakið stolt af stofnuninni og áhuga á að endurvekja þá hefð að fólk, fyrirtæki og félagasamtök taki höndum saman um tækjakaup. Hún bendir á að bæði heilbrigðisstofnunin og kirkjan eigi ríka sögu samfélagslegs stuðnings. Fólk hafi lagt fram fé, vinnu og tíma til uppbyggingar. „Ef þú áttir ekki aur til að gefa þá gafstu henni tíma,“ segir Erla um uppbyggingu kirkjunnar. Sama hugsun geti átt við um heilbrigðisstofnunina. Þátttaka fólks styrki tengsl þess við stofnunina og auki stoltið af þjónustunni í heimabyggð. „Hún er stofnun fólksins.“
Forvarnir og lífsgæði í forgrunni Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi lækningaforstjóri HSS, talar fyrir mikilvægi þess að efla forvarnir samhliða framförum í meðferð
sjúkdóma. Hann telur ástæðu til að beina aukinni athygli og fjármunum að því að fyrirbyggja sjúkdóma og greina þá fyrr. „Það er óumdeilt markmið góðrar heilbrigðisþjónustu að lengja lífið og um leið auka verðmæti hvers dags sem lifað er,“ segir Konráð. Í þeirri nálgun skipti lífsgæði ekki síður máli en fjöldi æviára. Hann leggur áherslu á að nýta þau verkfæri sem þegar eru tiltæk til að greina sjúkdóma áður en þeir valda alvarlegum veikindum. Konráð tengir söfnunina fyrir brjóstaskimunartækinu við þessi markmið. Með tæki á HSS sé ætlunin að auka samfellu í þjónustunni, stytta ferðalög og draga úr þeim tíma sem konur þurfi að verja í að sækja skimun. Hann lítur á verkefnið sem lið í því að efla HSS sem stofnun þar sem gott sé að sækja þjónustu og starfa.
Aðstaða og þjálfun undirbúin Guðlaug Rakel segir þegar hafa verið valinn staður fyrir tækið á myndgreiningardeild HSS. Fyrirhugað sé að nýta rýmið þar sem tölvusneiðmyndatæki stofnunarinnar er til staðar. Tækið sem safnað er fyrir verður af sömu gerð og brjóstaskimunartæki á Landspítala, jafnframt er gert ráð fyrir að geislafræðingar HSS fái þjálfun á Landspítala. Guðlaug Rakel leggur áherslu á að þjálfun starfsfólks og gæði rannsóknanna verði í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru annars staðar. Úrlestur myndanna verði áfram hjá sömu miðlægu þjónustu sem les úr öðrum brjóstaskimunarmyndum.
Vonir standa til að hægt verði að taka tækið í notkun á næsta ári, helst í byrjun árs. Ingvar tekur þó fram að tímasetningin ráðist meðal annars af árangri söfnunarinnar, afhendingu tækisins og undirbúningi aðstöðunnar.
Verkefninu lýkur ekki með tækjakaupunum Viðmælendurnir leggja áherslu á að fylgja þurfi verkefninu eftir þegar söfnuninni lýkur. Tækið eitt og sér dugi ekki; hvatning, upplýsingar og gott aðgengi þurfi að haldast í hendur. Guðlaug Rakel segir mikilvægt að ná til allra hópa samfélagsins. Hún telur aðgengi skýra hluta lítillar þátttöku og að jafnframt þurfi að huga sérstaklega að því að ná til kvenna af erlendum uppruna. Í síðasta árvekniátaki hafi þátttaka þeirra aukist, sem gefi góð fyrirheit. Ingvar segir atvinnurekendur geta gegnt mikilvægu hlutverki til lengri tíma, bæði með upplýsingagjöf á vinnustöðum og því að auðvelda starfsfólki að sækja þjónustuna. „Þetta er ekki bara söfnun. Við ætlum að taka þátt í umbreytingu í samfélaginu,“ segir hann. Söfnunin stendur frá 18. október til 18. nóvember og er markmiðið skýrt: að færa brjóstaskimun nær konum á Suðurnesjum og auka þátttöku í henni. Söfnunin mun fara fram á vefnum sar.is en þar verður sett upp aðgengileg greiðslugátt til að legg ja málstaðnum lið.
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Þjóðminjasafnið safnar frásögnum tengdum Grindavík Þjóðminjasafn Íslands safnar nú frásögnum af reynslu og upplifun fólks af jarðhræringunum á Reykjanesskaga frá árinu 2020. Söfnunin fer fram í samstarfi við Grindavíkurbæ og Minjaog sögufélag Grindavíkur. Grindvíkingar og öll þau sem tengjast Grindavík og atburðum síðustu ára eru hvött til að taka þátt. Sérstök áhersla er lögð á tímabilið fyrir og eftir rýmingu Grindavíkur 10. nóvember 2023. Markmiðið er að varðveita fjölbreyttar heimildir um þá sérstæðu atburði sem samfélagið hefur gengið í gegnum og tryggja að reynsla fólks verði hluti af sögu Grindavíkur. Í spurningaskrá safnsins er meðal annars spurt um tengsl fólks við bæinn, jarðskjálfta og eldgos, rýminguna og tímann eftir hana. Einnig er leitað eftir frásögnum af viðbrögðum samfélagsins og sýn fólks á stöðuna í Grindavík í dag. Spurningaskráin er ítarleg en þátttakendur þurfa ekki að svara öllum spurningum. Hægt er að velja þær sem höfða til hvers og eins og vista svör til að halda áfram síðar. Nánar er fjallað um söfnun heimildanna á vef Grindavíkurbæjar, þar sem einnig má nálgast spurningaskrá Þjóðminjasafns Íslands.
Engin af 21 umsókn frá Suðurnesjum fékk styrk úr Lóunni Engin umsókn frá Suðurnesjum hlaut styrk úr Lóunni, nýsköpunarsjóði landsbyggðarinnar, árið 2025. Alls bárust sjóðnum 97 umsóknir það ár og voru 21 þeirra frá Suðurnesjum, samkvæmt ársskýrslu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS. Umsóknir af svæðinu voru því rúmlega fimmtungur allra umsókna, en árangurshlutfall þeirra var núll. Í ársskýrslunni kemur ekki fram hversu margar umsóknir hlutu styrk á landsvísu eða hvernig umsóknirnar voru metnar. SSS hefur jafnframt bent á að Suðurnes fái lág framlög á hvern íbúa til atvinnu- og byggðaþróunar. Í skýrslunni er því haldið fram að svæðið glími við sérstakar áskoranir vegna fólksfjölgunar, atvinnuþróunar og afleiðinga náttúruhamfara í Grindavík. Niðurstaðan úr Lóunni bætist við þá mynd sem sambandið dregur upp af aðgengi Suðurnesja að opinberu þróunarfé.
Bókasafnið í Grindavík opnað á ný:
Bókasafn Grindavíkur hefur verið opnað að nýju í húsnæði Grunnskóla Grindavíkur. VF/hilmarbragi
„Svona vörðum við leiðina heim“ Bókasafn Grindavíkur hefur opnað dyr sínar á ný eftir að hafa verið lokað frá rýmingu bæjarins í nóvember 2023. Við opnunina fléttuðust saman saga ungrar grindvískrar stúlku af síðasta deginum heima, vonir um lifandi samkomustað og orð bæjarstjórans um vörðurnar á leiðinni heim.
GRINDAVÍK Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Það var ástæða til að staldra við þegar gestir komu saman í Bókasafni Grindavíkur á mánudag. Bókahillurnar voru aftur aðgengilegar, kaffið og kökurnar biðu og fram undan var upplestur úr nýrri bók sem tengist bænum með óvenju persónulegum hætti. Anna María Cornette forstöðumaður safnsins bauð gesti velkomna og minnti á að bókasafnið hefði verið lokað allt frá rýmingunni. Að geta loksins opnað dyr þess aftur væri „kærkominn áfangi í félagslegri endurreisn Grindavíkur“.
Staður til að hittast og vera saman Í ávarpi sínu lýsti Anna María bókasafninu sem meira en stað þar sem bækur eru geymdar. Hún vill að það verði öruggur og óformlegur samkomustaður utan heimilis, skóla og vinnu; staður þar sem bæjarbúar geta hist, notið samvista og ræktað samheldni. „Mig langar að bókasafnið verði staður þar sem við ræktum samheldni, eflum lestrargleði og finnum samfélagslega vellíðan á tímum endurreisnar,“ sagði hún. Safnið verður opið nemendum fjóra daga í viku í vetur og almenningi á fimmtudögum frá klukkan 13 til 17. Anna María kvaðst vona að hægt yrði að lengja almennan opnunartíma áður en langt um liði. Hún hlakkaði til að kynnast bæjarbúum betur og byggja með þeim upp lifandi safn.
Anna María Cornette, forstöðumaður safnsins, bauð gesti velkomna
Frá blaði í ritsmiðju til verðlaunabókar Sérstakir gestir opnunarinnar voru rithöfundarnir Matthildur Yrsa Sigurðardóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir. Þær kynntu bók sína Síðasti dagurinn, sem hlaut Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2026, og Matthildur las úr henni fyrir gesti. Þórunn Rakel sagði frá því hvernig þær kynntust í ritsmiðju í Stóru-Vogaskóla í janúar 2024. Matthildur var þá komin þangað til skólagöngu eftir að fjölskylda hennar hafði þurft að yfirgefa Grindavík og leita sér að nýjum samastað. Í ritsmiðjunni hvatti Þórunn Rakel nemendur til að skrifa frá eigin brjósti. Þegar hún gekk að Matthildi og spurði hvað hún væri að skrifa um kom svarið: „Ég er að skrifa um síðasta daginn.“ Þórunn Rakel sagðist hafa orðið snortin strax við lestur fyrstu línanna. Þar hófst samstarf þeirra. Þær skrifuðu saman og leituðu að réttu orðunum til að segja frá reynslu Matthildar. Þórunn Rakel ræddi líka hversu dýrmætt það væri að geta komið slíkri sögu á framfæri. Fólk á flótta fengi ekki alltaf tækifæri til þess, en þarna gætu höfundarnir og gestirnir hist á bókasafni til að fagna orðinu og bókmenntunum.
jólin og fjölskylduna, á meðan jörðin skalf undir fótum þeirra. Matthildur las einnig úr síðari hluta bókarinnar, þar sem fjölskyldan hafði komið sér fyrir annars staðar. Það fylgdi því bæði léttir og söknuður að eignast nýtt heimili nær Grindavík. Hún saknaði gamla bæjarins síns, verslunarinnar og bakarísins, lífsins við höfnina og íssins í Skeifunni. Í þeim minningum birtist það sem erfitt er að setja í eina ferðatösku: kunnuglegt líf á kunnuglegum stað.
Æfing, pakkað í tösku og útsýnið til Þorbjarnar
„Hversdagurinn í Grindavík“ sóttur til baka
Síðasti dagurinn segir frá 10. nóvember 2023 og vikunum eftir að fjölskylda Matthildar Yrsu þurfti að flýja Grindavík. Í kaflanum sem hún las fann hún strax um morguninn að dagurinn yrði ekki venjulegur. Skjálftarnir höfðu vakið ótta og þótt hún vonaði að lífið héldi einfaldlega áfram byrjaði hún að pakka til öryggis: fötum, bangsa, myndum af vinum og hleðslutæki fyrir símann. Áhyggjurnar snerust ekki aðeins um það sem gæti gerst úti í bæ. Hún horfði um eigið herbergi og velti fyrir sér hvort hún þyrfti að kveðja það. Hún myndi sakna þess að sjá Þorbjörn út um gluggann. Samt fór hún á íþróttaæfingu. Þar voru vinkonurnar, boltinn og spjallið, og um stund var lífið eins og hún vildi hafa það: hversdagslegt og fyndið. Síðan komu skjálftarnir aftur. Í upplestrinum urðu þessar litlu andstæður áþreifanlegar: löngunin til að hugsa um
Pétur G. Markan bæjarstjóri tók einmitt upp orð úr bókinni um það „hversdagslega og fyndna“. Hann sagðist hafa lesið bókina fyrir dóttur sína kvöldið áður og að hún hefði spurt hann spurninga á meðan. Orð Matthildar Yrsu tengdi hann við það verkefni sem blasti við Grindvíkingum dag frá degi.
Sérstakir gestir opnunarinnar voru rithöfundarnir Matthildur Yrsa Sigurðardóttir (t.h.) og Þórunn Rakel Gylfadóttir. Þær kynntu bók sína Síðasti dagurinn, sem hlaut Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2026.
Pétur G. Markan, bæjarstjóri.
„Það sem okkur vantar og það sem við erum að sækja til baka er náttúrulega hversdagurinn í Grindavík,“ sagði Pétur. Fólk væri að koma aftur í húsin sín og íþróttahúsið og nú væri komið að bókasafninu. Þannig væri leiðin heim vörðuð, stað fyrir stað. Hann sagði opnun skóla hafa verið stóra og mikilvæga ákvörðun og kallaði opnun bókasafnsins einnig mikilvægt skref. Bókasafn skipti máli fyrir samfélag sem vildi bjóða upp á góð lífsgæði og rými til að kafa dýpra. Pétur þakkaði jafnframt fyrir vinnuna sem lögð hefði verið í að gera safnið tilbúið. Bæjarstjórinn vék ekki undan því að bakslag og erfiðar fréttir gætu orðið á leiðinni. Þá þyrfti að minna sig á markmiðið: að vinna Grindavík til baka.
Hjartað slær á fleiri en einum stað Í lok ávarps síns sagði Pétur að samfélög ættu sér mörg hjörtu. Í Grindavík slægi hjartað við höfnina, í íþróttahúsinu, í skólanum og á bókasafninu. Þetta væru staðirnir sem gerðu bæinn að samfélagi. Opnun safnsins var því meira en endurkoma bóka í útlán. Þennan dag komu bæjarbúar saman, hlustuðu á unga manneskju segja sögu sína og nutu þess að vera aftur á einum af sínum stöðum. Þar var hægt að fá Síðasta daginn áritaðan, fá sér kaffi og köku og halda samtalinu áfram — enn ein lítil, en mikilvæg varða á leiðinni heim.
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Hvað í $%&&$# er eiginlega í gangi í Reykjanesbæ? AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Þá er október kominn í gang, og jú, það er smá fjölgun á línubátunum hérna á Suðurnesjunum, því að Dúddi Gísla GK kom til Grindavíkur eftir að hafa verið hluta af september á Skagaströnd. Báturinn hefur engum afla landað, en var reyndar á sjó sama dag og þessi pistill var skrifaður, en aflatölur voru ekki komnar. Margrét GK er í Sandgerði og hefur leitað víða fyrir sér, en hefur verið að fara suður frá Sandgerði og gengið nokkuð vel, var með um 19 tonn í fjórum róðrum í september og núna í október hefur báturinn farið tvisvar út og landað um 10 tonnum. Tíðarfarið hefur verið frekar erfitt fyrir færabátana en þó náðu Guðrún GK og Dímon GK að fara út núna eftir helgi og í Röstina, var Dímon GK með rúmlega 300 kíló og Guðrún GK með rúmlega 400 kíló, mest af ufsa. Þá er aflafréttum lokið, en þessi pistill verður aðeins með öðruvísi sniði, og kannski verður þetta leiðinlegasti pistill sem ég hef skrifað í þau mörgu ár sem ég hef skrifað pistla. Annars þegar þessi pistill er skrifaður þá má segja að leiðinlegar fréttir séu að gerast á Suðurnesjum og sérstaklega í mínum heimabæ, Sandgerði. Kosningar nýbúnar og varla komnir 5 mánuðir í samstarf þegar meirihlutinn sem var myndaður af Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki sprakk. Ég held að það sé orðið svo til langfullreynt að reyna að halda þessu áfram, komin tæp 8 ár síðan Garður og Sandgerði voru sameinuð og stríðið á milli bæjarhlutanna hefur bara versnað.
Þetta er leiðindamál, en það er annað ennþá leiðinlegra mál og jafnframt mjög furðulegt mál sem var að gerast í Keflavík, Njarðvík. Á árum áður var mikið um fiskvinnslur í Keflavík og Njarðvík, t.d. Brynjólfur, Ísver, Hraðfrystihús Keflavíkur og Sjöstjarnan, svo dæmi séu tekin. Öll þessi fyrirtæki eru hætt og fiskvinnslur í Keflavík og Njarðvík eru orðnar fáar. Í raun eru aðeins í dag fimm vinnslur, það er Saltver og Hólmgrímur sem báðar eru með saltfiskvinnslur, Saltver við Njarðvíkurhöfn og Hólmgrímur á Vatnsnesi í Keflavík. Á Vatnsnesi, ekki langt frá Hótel Keflavík, er Eric The Red, en þeir eru líka í Sandgerði. Mitt á milli þessara tveggja staða er svo Bakkastígur og þar eru tvær fiskverkanir, Selnes Seafood, og síðan Premium og Iceland. Premium of Iceland er í húsnæði sem var smíðað árið 1986 og hefur hýst margar verkanir, til að mynda verkun Hilmars og Odds, sem gerðu út Vatnsnes KE og Stafnes KE, síðan var Bakkvör þarna, Ísver og líka rækjuvinnsla Saltvers. Sem sé saga hússins er löng sem fiskverkun og hefur í gegnum tíðina rekstur fyrirtækja sem þarna hafa verið gengið vel, en núna er komið svo til allt annað viðhorf,
því að fyrirtækinu hefur verið gert að loka vegna þess að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur ítrekað synjað fyrirtækinu um starfsleyfi á þeim grundvelli að starfsemin samræmist ekki aðalskipulagi Reykjanesbæjar. Þetta er í raun alveg ótrúlegt, og ég má víst ekki bölva í þessum pistlum, en hvað í $%&&$# er eiginlega í gangi í Reykjanesbæ, þegar heilu fyrirtæki er gert að loka og 20 til 30 manns missa vinnuna. Í raun gæti þetta sama gerst á Vatnsnesi þar sem Hólmgrímur er með sína vinnslu, en búið er að teikna á Vatnsnesi þessar fínu blokkir með fínu útsýni, en það þýðir að Hólmgrímur þarf þá líka að loka sínu, en reyndar er herdeildin í Reykjanesbæ ekki komin svo langt í ferlinu að ýta Hólmgrími út, þó svo að hún hafi ýtt Premium of Iceland út. Mér skilst að Gylf i eigandi Premium of Iceland ætli ekki að láta þetta stoppa sig og við Gylfa vil ég bara segja að þú ert alltaf velkominn til Sandgerðis. Það eru ein eða tvö hús rétt við Sandgerðishöfn og við Fiskmarkaðinn sem þú ættir að kíkja á. Það er engin herdeild í Sandgerði heldur er vel tekið á móti fiskvinnslum þar í bænum.
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Daglega á vf.is
Risastækkun hjá Verne á Ásbrú:
Tugþúsundir fermetra og yfir þúsund störf á framkvæmdatíma Gagnaverið Verne á Ásbrú stendur fyrir stórfelldri stækkun á næstu árum, en hefja á jarðframkvæmdir á svæðinu á næstu vikum. Styrmir Hafliðason, forstjóri Verne, kynnti þetta umfangsmikla verkefni í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Gagnaverið, sem hefur starfað í 15 ár á svæðinu, hyggst reisa rúmlega 20.000 fermetra byggingu sem er miðuð við allt að 120 megavatta raforkuþörf. Áætlað er að allt að 1.280 störf skapist á hápunkti framkvæmda, en áætluð lok á fyrsta fasa verkefnisins eru á fyrsta ársfjórðungi 2028. Beinum störfum hjá
Verne á Íslandi mun fjölga úr tæplega 50 í um 120 þegar verkefninu lýkur, auk þess sem gert er ráð fyrir að afleidd störf í nærsamfélaginu verði á bilinu 300 til 600. Umsvifin á Suðurnesjum eru gríðarleg, en á opnum kynningarfundi um verkefnið mættu yfir 250 manns frá 115 ólíkum fyrirtækjum í íslenskum iðnaði. Styrmir sagði mikinn hug og spennu vera fyrir framkvæmdunum og undirstrikaði að Verne ætti dýpri rætur í Reykjanesbæ og liti björtum augum til áframhaldandi uppbyggingar á Ásbrú.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
GRÖFUR HJÓLASKÓFLUR SKOTBÓMULYFTARAR LYFTARAR KRANAR
VÉLAR TIL SÖLU OG LEIGU
LEIGUVELAR.IS
ELFOSS EHF. Flugvallarbraut 731, Reykjanesbær Símanúmer 893-4020 Póstfang elfoss@elfoss.is
SANY.IS
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Íslandshús með fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Nónvörðu
Reykjanesbær er fyrsta sveitarfélag landsins til að taka í notkun nýja forsteypta hraðahindrun frá Íslandshúsum. Hindrunin hefur verið sett niður í götunni Nónvörðu og er afrakstur þriggja ára þróunarvinnu. Verkefnið hlaut viðurkenninguna Nýsköpun ársins á sýningunni Verk og vit 2026. Þróun hraðahindrunarinnar hófst í janúar 2023 í samtali Íslandshúsa og Reykjanesbæjar um þörfina fyrir endingargóða og staðlaða lausn. Að sögn feðganna Óskars og Brynjars Húnfjörð hjá Íslandshúsum hafa tugir milljóna króna farið í þróunarstarfið. „Þróunarferlið hefur verið ansi langt en það er mjög ánægjulegt að sjá árangurinn kominn í malbikið. Við erum búin að liggja yfir hönnun og þrívíddarteikningum en annað er að sjá þetta verða að veruleika. Ég er virkilega stoltur af útkomunni,“ segir Óskar Húnfjörð, stofnandi Íslandshúsa og hönnuður nýrra lausna fyrirtækisins. Hann segir vonir standa til að lausnin geti orðið fyrirmynd að stöðluðum hraðahindrunum í sveitarfélögum um allt land.
Hönnuð eftir norskum leiðbeiningum Óskar segir að fyrirtækið hafi leitað að samræmdum íslenskum forsendum um hvernig hraðahindranir ættu að vera hannaðar en
ekki fundið nægilega skýrar leiðbeiningar. Því hafi verið leitað út fyrir landsteinana. Hönnun hindrunarinnar byggist á rannsóknum og leiðbeiningum norsku Vegagerðarinnar. Unnið var út frá þremur meginþáttum: hæð hindrunarinnar, sveigjunni sem ekið er yfir og lengd hennar miðað við þann hámarkshraða sem gildir á hverjum stað. Hindrunin í Nónvörðu er hönnuð fyrir götu þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Hún er tíu sentímetra há en lengd bungunnar er miðuð við fyrirhugaðan yfirferðarhraða. Sama grunnhönnun getur nýst fyrir hraðahindranir við mismunandi hraðatakmarkanir. Lengd sveigjunnar yrði þá breytt þannig að sambærileg yfirferð næðist hvort sem hámarkshraðinn væri 30 eða 50 kílómetrar á klukkustund. „Hraðahindrun á að vera skilaboð til ökumanns um að líta á hraðamælinn og draga úr hraða. Það á ekki að vera óþægilegt að aka
yfir hana á þeim hraða sem hún er hönnuð fyrir,“ segir Óskar. Kjörorð þróunarinnar hefur því verið „Öryggi án óþæginda“.
Fyrirsjáanleg fyrir strætisvagna og viðbragðsaðila Við hönnunina var sérstaklega horft til strætisvagna, hópferðabifreiða og annarra stórra ökutækja. Hindrunin á að vera þannig úr garði gerð að farþegar, meðal annars þeir sem sitja aftast í strætisvagni, verði ekki fyrir óþarfa höggum þegar ekið er yfir hana á réttum hraða. Stöðluð lögun getur einnig skipt miklu máli fyrir viðbragðsaðila. Ef sams konar hindranir verða notaðar víða geta lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn betur metið hvaða álag verður á ökutæki og farþega þegar farið er yfir þær. „Þegar viðbragðsaðilar koma að staðlaðri hraðahindrun þekkja þeir hana og vita hverju þeir eiga von á. Þeir geta þá metið á hvaða hraða þeir geta farið yfir hana,“ segir Óskar. Hraðahindrunin er gegnlituð rauð. Hugmyndin er að liturinn og lögunin gefi vegfarendum skýr skilaboð og að ökumenn læri að þekkja hvernig aka skuli yfir hindrunina.
Á að koma í veg fyrir polla og holur Sérstök áhersla var lögð á að leysa vandamál sem gjarnan myndast við hefðbundnar hraðahindranir. Með tímanum getur malbik slitnað við brúnir þeirra þannig að holur og pollar myndast beggja vegna. Lausn Íslandshúsa felst meðal annars í 50 sentímetra breiðum innkeyrsluflötum við báða enda hindrunarinnar. Þeir liggja á sama plani og malbikið. Þannig lendir álagið frá hjólbörðum ökutækja á steyptri einingunni sjálfri en ekki á malbikskantinum framan við hindrunina. Engar hvassar brúnir eru á milli innkeyrsluflatarins og bungunnar. Hraðahindrunin er sett saman úr forsteyptum einingum sem eru 115 sentímetrar á breidd og fimm metrar á lengd. Einingunum er raðað saman eftir breidd götunnar.
Endurskin steypt inn í yfirborðið Hvítar yfirborðsmerkingar eru steyptar inn í hverja einingu samkvæmt forskrift Vegagerðarinnar. Þær eru gerðar úr hvítri hágæðasteypu sem blönduð er glerkurli. Glerkurlið endurkastar ljósi frá aðalljósum bifreiða og eykur þannig sýnileika hindrunarinnar í myrkri.
Þar sem bæði rauði liturinn og hvítu merkingarnar ganga inn í steypuna á ekki að þurfa að endurmála hindrunina. Yfirborðsmerkingarnar eiga því að vera viðhaldsfríar. Undir hindruninni er jafnframt sérstakur stýriprófíll sem heldur einingunum í réttri stöðu. Hann getur einnig nýst sem lagnaleið þvert yfir götuna fyrir ljósleiðara, rafmagn eða aðrar veitulagnir. Sveitarfélög geta því nýtt framkvæmdina til að útbúa lagnaleið undir götu um leið og hraðahindruninni er komið fyrir.
Framkvæmdin tekur um tvo daga Einn helsti kostur forsteyptrar lausnar er að lögun og gæði hindrunarinnar ráðast í verksmiðju en ekki af aðstæðum eða vinnubrögðum á hverjum framkvæmdastað. Brynjar Húnfjörð, framkvæmdastjóri Íslandshúsa, segir mikilvægt að færa hönnunina framar í ferlið og komast hjá því að þurfa að finna upp nýja útfærslu í hvert sinn sem hraðahindrun er gerð. Forsteyptu einingarnar eiga einnig að stytta þann tíma sem loka þarf götunni. Miðað við reynsluna af uppsetningunni í Nónvörðu telja forsvarsmenn Íslandshúsa að verkið geti tekið um tvo daga frá því framkvæmdir hefjast þar til gatan er opnuð að nýju.
Fyrsti veturinn verður mikilvægt próf Hraðahindrunin í Nónvörðu verður nú prófuð við raunverulegar íslenskar aðstæður. Fylgst verður með því hvernig hún þolir frost, vatn, salt, nagladekk og snjómokstur. Samhliða því verður þróunarvinnunni haldið áfram. Á teikniborðinu eru meðal annars upphækkaðar gangbrautir með innsteyptum sebramerkingum, hraðahindranir fyrir götur með 50 kílómetra hámarkshraða og minni upphækkanir fyrir botnlanga og önnur svæði þar sem draga þarf sérstaklega úr umferðarhraða. Íslandshús er nýsköpunarfyrirtæki með aðsetur á Ásbrú í Reykjanesbæ og hannar og framleiðir forsteyptar steypueiningar. Óskar Húnfjörð og Brynja Sif Ingibersdóttir stofnuðu fyrirtækið árið 2012 og hefur vöruþróun og nýsköpun verið stór þáttur í starfseminni frá upphafi.
UMFERÐARMÁL Frá formlegri opnun á fyrstu forsteyptu hraðahindruninni sem staðsett er á Nónvörðu. Myndir: Íslandshús.
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Ný hraðahindrun í Nónvörðu í Keflavík
Óskum Reykjanesbæ til hamingju með fyrstu forsteyptu hraðahindrunina frá Íslandshús
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Pöntun á einni gröfu varð að blómlegum rekstri á Ásbrú Þegar bóndi bað Bóas Eðvaldsson að útvega sér gröfu grunaði hann ekki að sú fyrirspurn yrði upphafið að nýjum kafla í rekstrinum. Rúmum þremur árum síðar selur Elfoss vinnuvélar um allt land og hefur komið sér fyrir á Ásbrú, þar sem gömul hús varnarliðsins hafa fengið nýtt hlutverk. Bóas segir að gott athafnarými, greiðar samgöngur og jákvæðar móttökur heimamanna hafi ráðið miklu um að fyrirtækið festi þar rætur.
ATVINNULÍFIÐ Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Bóas Eðvaldsson hafði fengist við ýmislegt í innflutningi, meðal annars nýja og notaða vörubíla, vinnuvélar, hjólhýsi og húsbíla, þegar bóndi hafði samband og spurði hvort hann gæti útvegað sér gröfu. Fyrirspurnin virtist í fyrstu ekki boða neinar stórar breytingar á rekstrinum, en þegar Bóas fór að kanna markaðinn sá hann fljótt að verð á notuðum vinnuvélum var hátt og fór að leita annarra leiða. Við þá leit rakst hann á kínverska vinnuvélaframleiðandann SANY, sem þá var lítt þekktur hér á landi, þótt fyrirtækið væri þegar einn af stærstu vinnuvélaframleiðendum heims. Hann ákvað að láta reyna á viðskiptin og niðurstaðan kom honum á óvart. „Ég seldi honum eina nýja SANY-gröfu á svona um það bil sama verði og notaða vél sem ég gat flutt erlendis frá.“ Þessi eina vél varð upphafið að mun stærri þætti í starfsemi Elfoss. Fyrirspurnum fjölgaði, fleiri vélar voru fluttar inn og smám saman breikkaði úrvalið. Í dag
nær það frá litlum gröfum upp í stórar vinnuvélar og krana, auk skotbómulyftara, lyftara og ýmissa rafknúinna tækja. Fyrsti rafknúni SANY-dráttarbíll fyrirtækisins er væntanlegur á næstu dögum.
okkur traust og kunnað að meta tækin og þjónustuna.“ Bóas segir að á þessum tíma hafi orðið greinileg breyting á því hvernig íslenskir kaupendur líta á SANY. „Núna koma menn bara og kaupa. Þeir eru búnir að sjá, heyra af og/eða prófa tækin og þekkja einhvern sem er búinn að kaupa. Það er mjög gott fyrir mig sem sölumann. Ein setning sem ég heyri líka oft frá tilvonandi viðskiptavinum þegar þeir koma og prófa er: „Kemur virkilega á óvart.““ Hann segir reynsluna undanfarin ár hafa styrkt trú sína á bæði tækin og framleiðandann. „Eftir þennan tíma get ég sagt að SANY-tækin séu traust og góð, rétt eins og framleiðandinn sjálfur. Tækin halda líka áfram að batna. Á gröfunum er fimm ára ábyrgð samkvæmt ábyrgðarskilmálum SANY.“ Þess má geta að hér á landi er enn í fullu fjöri 23 tonna SANYbeltagrafa sem var flutt inn árið 2007, rétt fyrir hrun. Hún hefur því verið hér á landi í um 19 ár.
Tæplega 300 skráningarskyld tæki „Fyrstu vélarnar komu til landsins í byrjun ágúst 2023 og síðan höfum við flutt inn tæplega 300 skráningarskyld tæki á rúmum þremur árum. Það hefur verið ánægjulegt að sjá starfsemina vaxa og árið 2026 er þegar orðið langbesta árið okkar. Það má fyrst og fremst þakka okkar góðu og skynsömu viðskiptavinum sem hafa sýnt
Skotbómulyftarar og gröfur á sýningarsvæði Sany á Ásbrú.
Bóas Eðvaldsson framkvæmdastjóri Elfoss ehf. VF/hilmarbragi
Vöxtur kallað á meira húsnæði Vöxturinn kallaði fljótlega á meira húsnæði og ekki síður rúmt athafnasvæði. Bóas er frá Egilsstöðum og hafði einnig verið með starfsemi fyrir austan, en þegar hann fór að leita að hentugum stað á suðvesturhorninu skiptu
flutningsleiðir til landsins miklu. Keflavík hafði lengi verið ofarlega í huga hans og þar á hann bæði ættingja og önnur tengsl. Áður en Ásbrú varð fyrir valinu skoðaði hann meðal annars iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Þar varð honum hins vegar fljótt ljóst að hefðbundið iðnaðarsvæði hentaði illa starfsemi þar sem stórar vinnuvélar og flutningabílar þurfa að komast greiðlega að. „Þegar maður gat ekki lagt bílnum fyrir utan iðnaðarhúsnæðið sá ég mína sæng upp reidda. Hér er nóg pláss enda byggt af bandaríska hernum.“ Á Ásbrú fann Bóas það rými sem starfsemin þurfti. Þar skipti ekki aðeins máli að geta komið vélunum fyrir heldur einnig að stórir bílar ættu auðvelt með að athafna sig og að möguleikar væru á frekari uppbyggingu. Hann segir þó að annað hafi ekki síður haft áhrif á ákvörðunina. „Það er gott fólk hérna í Keflavík, jákvætt, og það er vel tekið á móti manni. Hér koma menn og hrósa manni fyrir fyrirtækið. Þeir hafa skilning á því að það þurfi fyrirtæki.“ Saga Elfoss fellur vel að þeirri breytingu sem orðið hefur á Ásbrú frá því að varnarliðið fór. Hús sem áður gegndu hlutverki í starfsemi hersins hafa smám saman verið tekin undir nýja atvinnustarfsemi og í húsnæði Elfoss eru ummerki fortíðarinnar enn sýnileg. Bóas segir að þar sem fyrirtækið starfar nú hafi áður verið tölvubúnaður hersins og öryggisgæsla með vopnuðum mönnum. Í dag eru þar vinnuvélar sem verið er að undirbúa fyrir verkefni víðs vegar um landið.
Heldur áfram að stækka Starfsemin hefur haldið áfram að vaxa og Elfoss keypti í nóvember 2025 1.880 fermetra húsnæði við hliðina, með góðum bílastæðum allt í kring. Þar stendur yfir vinna
Hér er Bóas í vinnulyftu sem má leigja af leiguvelar.is
Rafmagnsvörubíll frá Sany.
400 tonna SANY skoðuð í einni Kínaferðinni með viðskiptavini.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11
Fyrirtækið selur talsvert af lyfturum. við að laga að nýjum þörfum. Fjarlægðar voru innréttingar, settar stærri hurðir og rýmin gerð þannig úr garði að hægt sé að koma þar fyrir vélum og búnaði. Hluti húsnæðisins er leigður öðrum fyrirtækjum en annað verður nýtt undir starfsemi Elfoss. Sérstaklega skiptir máli að geta geymt rafmagnstæki, lyftur og annað innandyra yfir vetrartímann. Þótt vinnuvél geti virst tilbúin til notkunar þegar hún kemur til landsins segir Bóas að töluverð
vinna geti verið eftir áður en hún fer til kaupandans. Kröfur hafa breyst og búnaðurinn orðið sífellt flóknari. Tiltrótatorar, gripklær, fleygar og GPS-graftarkerfi, ljós, smurkerfi, Oilquick-búnaður þar sem menn þurfa ekki út úr vélinni til að setja vökvafleyg á bara sem dæmi ppl er meðal þess sem margir kaupendur vilja fá á vélarnar. „Þetta er orðið flóknara en þegar ég og þú vorum yngri. Þá var bara skófla og þótti gott“ Elfoss hefur frá upphafi lagt áherslu á að eiga vélar á lager. Bóas segir að frá því að grafa er pöntuð þar til hún er komin til landsins geti liðið að minnsta kosti fjórir mánuðir, en verktaki sem fær verkefni vill sjaldnast bíða svo lengi eftir vélinni. Því þurfi að reyna að sjá eftirspurnina fyrir og eiga tæki tiltæk þegar kaupendur þurfa á þeim að halda. Stundum ganga sendingarnar hratt út. Bóas nefnir sem dæmi nýlega sendingu sem kom með þrettán gröfum og átta skotbómulyfturum sem hafi farið fljótt til viðskiptavina. Samhliða sölunni rekur Elfoss tækjaleigu (Leiguvélar.is) og segir hann næg verkefni vera fyrir vélarnar.
Rafmagnstækjum fjölgar Rafmagnstæki eru einnig orðin stærri hluti af framboðinu. Þar nefnir Bóas meðal annars rafmagnsgröfur, lyftara, vörubíla og námutrukka og segir íslenska viðskiptavini þegar hafa tekið slík tæki í notkun. Hann leggur þó áherslu á að rafmagn henti ekki endilega öllum verkefnum. Kostirnir séu mestir þar sem tækin vinna á afmörkuðu svæði, stutt er í hleðslu og hægt er að nýta lægri orkukostnað. „Ég er svo sem ekki að halda því fram að rafmagnstæki henti í allt, en þau eru góður kostur þar sem það á við og geta sparað mikið í rekstrarkostnaði.“ Fjórir starfa hjá Elfoss að sögn Bóasar. Sjálfur sér hann um söluna ásamt pöntunum og ýmiss konar umsýslu og segir mikilvægt að láta yfirbygginguna ekki vaxa hraðar en starfsemina sjálfa. Hann segir fyrirtækið vera með gott starfsfólk, en ljóst sé að bæta þurfi við fólki þar sem álagið sé mikið. „Við erum að reyna að halda yfirbyggingunni í lágmarki en við þurfum náttúrulega að veita þjónustu.“
Elfoss selur gröfur og hjólaskóflur í ýmsum stærðum og útfærslum.
BYGGJUM TRAUSTARI HEIMABYGGÐ Ný steypustöð BM Vallár á Ásbrú styður við ört vaxandi uppbyggingu á svæðinu. Með framleiðslu nær verkefnunum getum við veitt enn betri þjónustu, styttri viðbragðstíma og tryggt gæði fyrir verktaka, fyrirtæki og einstaklinga á Suðurnesjum. Hafðu samband og fáðu tilboð í næsta verkefni.
Byggt upp skref fyrir skref Bóas leggur jafnframt áherslu á að eigendur Elfoss séu þrír og uppbyggingin sé sameiginlegt verk þeirra. „Þetta hefði ekki verið hægt án meðeigenda minna. Þeir eru miklir prinsippmenn sem leggja áherslu á heiðarleika, að standa við sitt og að hlutirnir séu gerðir almennilega. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa þá með mér í þessu.“ Þegar horft er yfir starfsemina á Ásbrú í dag er langt frá fyrstu fyrirspurn bóndans um eina gröfu. Bóas segir þó að vöxturinn hafi ekki orðið samkvæmt fyrir fram gerðri áætlun. Reksturinn hafi fremur þróast með því að bregðast við verkefnum þegar þau komu upp, kanna nýja möguleika og láta á þá reyna. „Við höfum byggt fyrirtækið upp skref fyrir skref og gripið tækifærin þegar þau hafa komið.“
Það hugarfar virðist hafa fylgt fyrirtækinu frá upphafi vinnuvélasölunnar. Ein beiðni leiddi til fyrstu gröfunnar, hún leiddi til fleiri viðskipta og eftir því sem starfsemin óx þurfti meira húsnæði, stærra svæði og fleiri tæki. Á Ásbrú fann Elfoss svigrúmið til þess.
Fengið góð viðbrögð á Ásbrú Sjálfur segist hann hafa fundið fyrir góðum vilja frá því fyrirtækið kom á Ásbrú. „Við erum bara þakklátir. Við höfum fengið svakalega góð viðbrögð.“ Og þegar haustlægðirnar ganga yfir Reykjanesið er að minnsta kosti eitt sem veldur honum minni áhyggjum en áður. Eftir árin í innflutningi hjólhýsa og húsbíla er lagerinn nú heldur þyngri. „Ég sef alveg rólegur með gröfurnar, þær fjúka ekki,“ segir Bóas og hlær.
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
„Þarna þurfti að byrja algjörlega frá grunni“ Þegar varnarliðið fór stóð eftir heilt hverfi án íbúa og starfsemi. Verkefnið snerist um miklu meira en að koma fasteignum í notkun. Það þurfti að skapa nýjan atvinnugrundvöll, opna fólki leiðir til menntunar og byggja upp samfélag. Kjartan Eiríksson, fyrsti framkvæmdastjóri KADECO, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, lítur yfir tuttugu ára þróun á Ásbrú og segir mörg stærstu verkefni svæðisins eiga rætur í þeirri vinnu sem unnin var í upphafi. ÁSBRÚ 20 ÁRA Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
„Þetta er gríðarlega flókið þróunarverkefni,“ segir Kjartan þegar hann rifjar upp fyrstu skrefin í umbreytingu gamla varnarsvæðisins í borgaralegt samfélag. Annars vegar hafi staðið eftir mikið magn af tómu húsnæði. Gæta hafi þurft að því að eignirnar færu ekki allar inn á fasteignamarkaðinn í einu og hefðu þar neikvæð áhrif. Hins vegar hafi samfélagslegi þátturinn verið ekki síður flókinn. Fólk hafði misst atvinnu sína og finna þurfti nýjan farveg fyrir þekkingu þess og reynslu. Kjartan segir um 2.800 manns hafa búið á svæðinu áður en varnarliðið fór. Með brotthvarfinu hafi bæði íbúarnir og sú starfsemi sem samfélagið byggðist á horfið.
„Þarna þurfti að byrja algjörlega frá grunni.“ Til að lýsa umfangi verkefnisins nefnir hann samanburð við Grindavík. Það sé eitt að endurbyggja samfélag þar sem fyrirtæki og atvinnugrundvöllur geti snúið aftur, en annað að þurfa jafnframt að finna því nýja undirstöðu.
„Ef þú ættir að byggja Grindavík aftur upp mætti ekki vera neinn sjávarútvegur þar,“ segir hann og lýsir þannig þeirri áskorun að byggja upp Ásbrú eftir brotthvarf varnarliðsins.
Atvinna og menntun áttu að skapa eftirspurn Í stað þess að byrja á húsnæðinu einu var ráðist í ítarlega greiningu á samkeppnisstöðu Íslands og svæðisins. Leitað var svara við því hvaða atvinnustarfsemi gæti haft raunverulegan hag af staðsetningu þar. Kjartan segir hugsunina hafa verið að ný starfsemi skapaði eftirspurn eftir húsnæði og legði þannig grunn að samfélagi til framtíðar. Menntun var annar lykilþáttur þeirrar stefnu. „Keilir er fyrsta þróunarverkefni Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar,“ segir hann. Að baki stofnun Keilis haf i meðal annars verið þörfin fyrir að skapa ný tækifæri fyrir fólk sem hafði unnið hjá varnarliðinu. Margir hafi búið yfir verðmætri þekkingu og starfsreynslu án þess að hafa hefðbundnar prófgráður sem opnuðu þeim leið inn í háskólanám. Háskólabrúin hafi orðið mikilvæg leið fyrir þennan hóp en
einnig aðra sem vildu hefja nýjan kafla í lífinu. Kjartan segir fólk hafa getað byggt á reynslu sinni, farið í háskólanám og sótt sér ný starfstækifæri. Samhliða hafi verið lögð áhersla á að skapa fjölbreytt störf, þar á meðal störf fyrir háskólamenntað fólk. Slík tækifæri yrðu að vera til staðar svo fjölbreytt samfélag gæti þróast á svæðinu til lengri tíma.
Gagnaverin komu ekki af sjálfu sér Kjar tan nefnir gagnaversiðnaðinn og líftæknifyrirtækið Algalíf sem dæmi um starfsemi sem grunnur var lagður að á fyrstu árum þróunarverkefnisins. Mikil vinna hafi farið í að finna fyrirtæki, greina þarfir þeirra og sýna fram á hvernig staðsetning á svæðinu gæti skapað þeim meira virði en aðrir kostir. Það hafi síðan þurft að móta aðstöðu og fyrirkomulag sem hentaði starfseminni. Verne hafi verið fyrsta stóra gagnaversverkefnið sem komið var á fót á svæðinu. Kjartan segir alls ekki hafa verið sjálfgefið að fyrirtækið veldi Ísland. „Það var ekkert sjálfgefið í fyrsta lagi að þeir kæmu hingað eða myndu byggja upp á Íslandi yfirhöfuð.“ Hann telur að kaup fyrirtækisins á húsnæði hafi skipt máli fyrir
! k k Ta
Kjartan Eiríksson, fyrsti framkvæmdastjóri KADECO, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. VF/hilmarbragi framhaldið. Verkefnið hafi síðar þurft að takast á við fjármálahrunið, eldgos og aðrar áskoranir. Hefði það enn verið á undirbúningsstigi þegar þær dundu yfir væri óvíst að það hefði orðið að veruleika. Svipuð hugsun hafi legið að baki því að laða Algalíf að svæðinu. Horft hafi verið til nýrrar atvinnustarfsemi sem nýtti kosti staðsetn-
ingarinnar og skapaði jafnframt störf fyrir menntað fólk. Kjar tan segir árangurinn byggjast á því að raunveruleg rök séu fyrir staðarvalinu. Trúi fyrirtæki því að þau séu betur sett á svæðinu, og innistæða sé fyrir því, aukist líkurnar á að starfsemin nái að festa rætur.
Kærar þakkir færum við öllum sem komu á sýningar á heimildarmyndinni Ár í Miðhúsum um liðna helgi. Þakkir fá Byggðasafnið á Garðskaga og Hljómahöll sem buðu upp á ókeypis sýningar á myndinni . Þakkir fá öll þau fyrirtæki og einstaklingar sem lagt hafa verkefninu lið með margs konar stuðningi. Án ykkar væri þetta ekki mögulegt. Fleiri sýningar eru fyrirhugaðar í vetur. Fyrirspurnir um myndina má senda á hilmar@vf.is
Algalíf horfir til alþjóðlegrar samkeppnishæfni Hátæknifyrirtækið Algalíf á Ásbrú hefur staðið í miklum fjárfestingum á síðustu árum þar sem framleiðsla félagsins á verðmætu astaxanthini úr örþörungum hefur meira en þrefaldast. Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalífs, fór yfir vaxtarsögu og framtíðarsýn félagsins í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Algalíf hóf starfsemi sína í gömlu húsnæði varnarliðsins árið 2014 en réðst í stórfellda stækkun árið 2021. Fjárfest hefur verið fyrir um fimm milljarða króna á síðustu fimm árum, en heildarfjárfesting félagsins frá upphafi nemur um 10 milljörðum króna.
Kjöraðstæður á Ásbrú og alþjóðleg samkeppni
Heimildarmynd eftir Hörð Gíslason og Hilmar Braga Bárðarson
Ár í Miðhúsum hlaut styrk úr Sóknaráætlun Suðurnesja vorið 2026
Staðsetningin á Ásbrú býður upp á stöðugt aðgengi að hreinu vatni, endurnýjanlegri orku og öflugum innviðum. Þá skiptir nálægðin við Keflavíkurflugvöll og fjölbreytt mannlíf miklu máli til að laða að sérhæft starfsfólk og erlenda sérfræðinga. Kári benti á að þótt stórir geirar eins og gagnaver og fiskeldi séu fyrirferðarmiklir á svæðinu sé nauðsynlegt að rækta fjölbreytileika í atvinnulífinu, en þörungaræktun Algalífs skapar hátæknistörf sem styrkja efnahagslegan grunn svæðisins. Þar sem um 95% af framleiðslu Algalífs fara á erlenda markaði undirstrikaði Kári að Reykjanesbær og Ísland í heild sinni væru í beinni alþjóðlegri samkeppni. Því þyrftu stjórnvöld og sveitarfélög að tryggja samkeppnishæft starfsumhverfi og markaðssetja svæðið af krafti til framtíðar. Kári sagði félagið hvergi nærri hætt og útilokaði ekki frekari stækkanir á Ásbrú á komandi árum enda stæðu mörg tækifæri enn fyrir dyrum.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13
Staðfesta og þolinmæði skiptu sköpum Þegar Kjartan er spurður hvernig tekist hafi að umbreyta gömlu herstöðinni segir hann niðurstöðuna að sínu mati vera góða. Hann rifjar upp samskipti við fulltrúa bandaríska sendiráðsins sem hafi lýst verkefninu sem einu af betri dæmum um umbreytingu herstöðvar sem Bandaríkjamenn hefðu yfirgefið. Sjálfur leggur hann áherslu á að skoða árangurinn í samhengi við stærð íslenska hagkerfisins og samfélagsins á Suðurnesjum. Verkefnin hafi verið stór á þeim mælikvarða og kallað á mikla vinnu. „Það gerðist ekkert af sjálfu sér.“ Frá fyrstu viðræðum við áhugasamt fyrirtæki og þar til endanleg ákvörðun væri tekin gætu liðið mörg ár. Jafnvel undirritun samninga þýddi ekki að framkvæmdir hæfust strax. Þess vegna hafi staðfesta og þolinmæði verið lykilatriði. Hann segir þó ekki allt hafa verið fullkomið. Eftir á megi finna ákvarðanir sem hefði verið hægt að taka öðruvísi. Mikið framboð af ódýru húsnæði og þrýstingur á að nýta það hafi skapað flókna stöðu. Að hans mati hafi besta leiðin verið að skapa markvisst eftirspurn meðal þeirra hópa sem gætu lagt grunn að samfélaginu til framtíðar.
Mikilvægt að fá líf á svæðið Kjartan segir verkefnið hafa heillað sig frá upphafi. Hann hafði áður komið að samningum um viðhald eignanna og í námi sínu unnið með hugmyndir um hvernig nýta mætti flugvöllinn og tengda innviði til að skapa ný tækifæri. Hann hafi því komið að starfinu með mótaðar hugmyndir, þótt áskorunin væri mikil. Fjármála-
Horft yfir íbúðabyggðina á Ásbrú í Reykjanesbæ að hausti 2026. VF/hilmarbragi hrunið hafi síðan gert verkefnið enn erfiðara þegar fasteignamarkaðurinn stöðvaðist. Þá hafi þurft að finna leiðir til að halda uppbyggingunni áfram þótt lítið væri hægt að selja af eignum. „Það var svo mikilvægt hjá okkur líka að fá líf inn á svæðið eins fljótt og kostur var.“ Kjartan segir um 300 fjölskyldur hafa flutt á svæðið strax sumarið eftir að starfið hófst. Það hafi verið mikilvægur áfangi, en áfram hafi
þurft að laða að bæði íbúa og fyrirtæki.
Tengslin við Ásbrú eru enn sterk Kjartan tengist enn uppbyggingu og þjónustu á Ásbrú, meðal annars með rekstri mathallar. Hann segir hana vera viðbót við þjónustuna fyrir íbúa hverfisins og Suðurnesjamenn almennt. Jafnframt vinnur hann að stóru fasteigna- og atvinnuþróunarverk-
efni í byggingum sem áttu að hýsa álver í Helguvík/Bergvík þar sem beitt er sömu nálgun og mótuð var á fyrstu árum KADECO: að finna nýja atvinnustarfsemi sem getur haft hag af því að koma til Íslands. Hann vonast til að hægt verði að kynna ný alþjóðleg verkefni sem eru að koma sér þar fyrir fljótlega og telur að það geti haft veruleg efnahagsleg áhrif til lengri tíma, ekki síður en hin stóru verkefnin á Ásbrú.
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is
ÞAR SEM FJÖLBREYTTIR VEITINGASTAÐIR SAMEINAST UNDIR EINU ÞAKI
Opið alla daga frá 11.00-21.00 GRÆNÁSBRAUT 920, ÁSBRÚ
Sporthúsið á Ásbrú
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Ari Elíasson, eigandi og framkvæmdastjóri Sporthússins.
Heilsumiðstöð sem vex með samfélaginu Þegar Sporthúsið opnaði á Ásbrú haustið 2012 var það ekki sjálfgefið að stór líkamsræktarstöð á fyrrum varnarsvæði myndi verða einn af föstum þjónustukjörnum Reykjanesbæjar. Í dag, rúmum áratug síðar, hefur Sporthúsið fest sig í sessi sem fjölbreytt heilsu- og líkamsræktarmiðstöð fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti á svæðinu.
á Ásbrú, hefur reynst mikilvægur styrkleiki. Þjónustan eykst enn frekar Að sögn Ara eru fram undan ný skref í uppbyggingu Sporthússins. „Við erum að stækka húsnæðið og munum bæta við padelvelli nú í byrjun október og þremur golfhermum frá Trackman sem áætlað er að verði klárir seinnipart október mánaðar.“ Með þessum viðbótum er þjónustan breikkuð enn frekar og Sporthúsið styrkir stöðu sína sem fjölbreyttur áfangastaður fyrir hreyfingu, heilsu og afþreyingu.
Öll heilsutengd þjónusta undir sama þaki Starfsemi Sporthússins snýst í grunninn um heilsu, hreyfingu og þjónustu við fólk á öllum aldri. Þar má finna stóran tækjasal, fjölda hóptíma, ss. spinning, jóga, heitan sal, infrared sal, einkaþjálfun, CrossFit, SportHiit, ÞittForm, Hyrox og ýmsa stoðþjónustu tengda heilsu og endurhæfingu. Í húsinu starfa einnig aðilar sem bjóða upp á þjónustu við stoðkerfismeðferð, ss. osteopatík, kírópraktík og aðra heilsutengda þjónustu. „Markmiðið er að fólk geti fundið sem flest undir sama þaki, hvort sem það er að hefja heilsuferðalagið, viðhalda formi eða leita sér sérhæfðari aðstoðar,“ segir Ari Elíasson, eigandi og framkvæmdastjóri Sporthússins.
Uppbygging Sporthússins fellur vel að þeirri þróun sem nú á sér stað á Ásbrú.
Sögufrægt húsnæði Húsnæði Sporthússins á sér langa sögu. Á árum áður var þarna íþrótta- og æfingaaðstaða bandaríska hersins, auk sundlaugar og búningsaðstöðu og þar fóru meðal annars fram stórir körfuboltaleikir á árum áður. Þegar rekstur Sporthússins hófst var ákveðið tækifæri fólgið í því að gefa þessu sögulega húsnæði veigamikið hlutverk í ört vaxandi samfélagi. Ari útskýrir að hugmyndin hafi kviknað vegna þess að ákveðið gat hafi verið á markaðnum og mikil tækifæri til að gera góða hluti tengt heilsueflingu á svæðinu. Ásbrú var að þróast sem hverfi og Reykjanesbær að stækka, en
margir töldu þó óvíst að fólk myndi sækja slíka þjónustu upp á Ásbrú. „Reynslan hefur sýnt annað. Með fjölbreyttri þjónustu og skýrum áherslum hefur Sporthúsið sýnt að Ásbrú er ekki afskekktur staður heldur hluti af einu og sama samfélagi,“ segir Ari.
Þjónar fjölbreyttum hópi fólks Í dag þjónar Sporthúsið ekki aðeins íbúum svæðisins heldur einnig fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Þar á meðal eru viðbragðsaðilar Landhelgisgæslunnar, aðilar á flugvallarsvæðinu og erlendar sveitir sem dvelja tímabundið hér á landi. Sú staðsetning, nálægt Keflavíkurflugvelli og miðsvæðis
Mikilvægur þjónustukjarni Uppbygging Sporthússins fellur vel að þeirri þróun sem nú á sér stað á Ásbrú. Með aukinni íbúabyggð, þjónustu, atvinnustarfsemi og betri tengingum verður þörfin fyrir sterka þjónustukjarna sífellt meiri. Sporthúsið er þegar orðið slíkur kjarni; staður þar sem fólk kemur saman, hreyfir sig, byggir upp heilsu og verður hluti af samfélagi. Þegar horft er til næstu tíu ára sér Sporthúsið fyrir sér að vera áfram í fremstu röð á sviði líkamsræktar og heilsutengdrar þjónustu á Suðurnesjum. „Markmiðið er skýrt: að vera fyrsti valkostur fólks á svæðinu þegar kemur að hreyfingu, heilsu og almennri vellíðan,“ segir Ari að lokum.
16 // VÍKURFRÉTTIR
KADECO Í TUTTUGU ÁR
TUTTUGU ÁRA UPPBYGGING OG NÝ TÆKIFÆRI Tuttugu ár eru liðin frá brottför varnarliðsins af Keflavíkurflugvelli. Þar sem áður var lokað varnarsvæði hefur þróast opið samfélag íbúa, fyrirtækja og menntastofnana. Kadeco hefur frá upphafi gegnt lykilhlutverki í þessari umbreytingu og leiðir nú samstarf um áframhaldandi þróun lands við flugvöllinn undir merkjum K64. Varnarliðið fór frá Keflavíkurflugvelli þann 30. september 2006 og þá fór fram táknræn athöfn þegar bandarískir hermenn drógu niður bandaríska fánann og íslenskir lögreglumenn drógu á sama tíma þann íslenska að húni. VÍKURFRÉTTAMYND: ELLERT GRÉTARSSON
Þegar tilkynnt var vorið 2006 að bandaríska varnarliðið myndi hverfa frá Keflavíkurflugvelli blasti mikil óvissa við Suðurnesjamönnum. Fjölmargir höfðu byggt afkomu sína á störfum hjá varnarliðinu eða þjónustu við það. Brottförin hafði því áhrif langt út fyrir girðingar varnarsvæðisins. Um haustið stóðu íslensk stjórnvöld jafnframt frammi fyrir umfangsmiklu verkefni. Íbúðir, skólar, verkstæði, skrifstofur og önnur mannvirki þurftu að fá nýtt hlutverk. Húsakosturinn og innviðirnir fólu í sér verðmæti og möguleika, en framtíð svæðisins var óskrifað blað. Þann 24. október 2006 stofnaði íslenska ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Félaginu var falið að koma þeim eignum sem því voru afhentar í skipuleg og hagfelld borgaraleg not, með jákvæð áhrif á nærsamfélagið að leiðarljósi.
Nýtt líf í gömlum húsum Fyrstu verkefnin voru bæði hagnýt og viðamikil. Tryggja þurfti umsjón og viðhald mannvirkja, greina mögulega nýtingu þeirra og skapa aðstæður fyrir fólk og fyrirtæki til að koma sér fyrir. Svæði sem hafði verið skipulagt utan um þarfir varnarliðsins þurfti að aðlagast íslensku atvinnu- og samfélagslífi. Menntun varð snemma mikilvægur þáttur í þeirri vegferð. Með tilkomu Keilis árið 2007 fluttu námsmenn og fjölskyldur þeirra á svæðið. Íbúðir sem áður höfðu hýst bandarískar herfjölskyldur urðu heimili nýrra íbúa og kennsla og önnur starfsemi tók við í húsum sem áður höfðu þjónað varnarliðinu. Svæðið fékk heitið Ásbrú og ný sjálfsmynd tók smám saman að mótast. Fyrirtæki og frumkvöðlar sáu tækifæri í húsnæðinu, stað-
setningunni og nálægðinni við flugvöllinn. Hús fengu ný hlutverk og tengsl mynduðust milli fólks sem kom úr ólíkum áttum. Umbreytingin varð ekki á einni nóttu. Hún byggðist á mörgum ákvörðunum, fjárfestingum og framtaki þeirra sem kusu að setjast að, hefja nám eða byggja upp starfsemi á svæðinu. Samfélag verður til Á tveimur áratugum hefur Ásbrú þróast í fjölbreytt íbúða- og atvinnusvæði. Menntun, þjónusta, iðnaður og tæknistarfsemi hafa þar fundið sér stað samhliða daglegu lífi fjölskyldna. Uppbygging fyrirtækja á borð við Algalíf og gagnavera á svæðinu sýnir hvernig ný starfsemi getur byggst á þeim aðstæðum sem fyrir eru og þróast áfram með fjárfestingu og sérhæfðri þekkingu. Verslun,
Tilkynnt um stofnun Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar fyrir 20 árum.
HELSTU VÖRÐUR Á LEIÐ KADECO FRÁ ÁRINU 2006 TIL 2026
2006 – Varnarliðið yfirgefur Keflavíkurflugvöll. Kadeco er stofnað 24. október til að leiða umbreytingu fyrrum varnarsvæðis í borgaraleg not. Þjónustusamningur við ríkið er undirritaður í desember. Kjartan Þór Eiríksson ráðinn framkvæmdastjóri.
2008 – Nafnið Ásbrú er tekið upp fyrir varnarliðssvæðið. Kadeco semur við Verne um húsnæði og lóð fyrir gagnaver. Frumkvöðlasetrið Eldey tekur til starfa og Háaleitisskóli opnar í endurbættu húsnæði. Félagið beinir aukinni athygli að nýsköpun þegar fasteignamarkaður veikist.
2007 – Fyrstu stóru skrefin í eignasölu og nýtingu húsnæðis eru tekin. Háskólabrú Keilis tekur til starfa í ágúst og leggur grunn að mennta- og þekkingarstarfsemi á svæðinu.
2010 – Félagið heldur áfram að gera húsnæði hæft til nýrrar notkunar. Kortlagningu mengunar á svæðinu er lokið í samráði við eftirlitsaðila og rafbúnaður bygginga í notkun er lagaður að íslenskum stöðlum. 2009 – Í kjölfar efnahags-hrunsins heldur Kadeco áfram uppbyggingu Ásbrúar sem samfélags frumkvöðla, fræða og atvinnulífs. Unnið er að aðstöðu fyrir smærri fyrirtæki og verkefnum á sviði orku og heilsu.
2011 – Uppbygging gagnavers Verne heldur áfram. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Heklan flytja starfsemi sína á Ásbrú. Í árslok eru þar yfir 80 fyrirtæki og stofnanir með um 500 starfsmenn.
VÍKURFRÉTTIR // 17 Þann 15. mars 2007 undirrituðu Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, viljayfirlýsingu um stofnun félags um háskólarekstur á Keflavíkurflugvelli.
Frá framkvæmdasvæði Verne Global á Ásbrú árið 2012. veitingastaðir, gististarfsemi og íþrótta- og tómstundastarf eiga jafnframt þátt í að gera svæðið að stað þar sem fólk býr, starfar og sækir þjónustu. Saga Ásbrúar er því einnig saga fólksins sem hefur mótað hverfið. Íbúar, starfsfólk skóla, rekstraraðilar og félagasamtök hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins sem þar hefur vaxið. Kadeco hefur unnið að því að skapa skilyrði fyrir þessa þróun í samstarfi við sveitarfélög, ríkið, fyrirtæki og fjárfesta. Árangurinn byggist á framlagi margra aðila og vilja þeirra til að sjá möguleika í svæði sem stóð á tímamótum. Víðara hlutverk og sameiginleg framtíðarsýn Eftir því sem leið á vegferðina og sölu þeirra húseigna sem Kadeco hafði til umsjónar lauk breyttust verkefni félagsins. Áherslan færðist yfir á langtímaþróun lands við Keflavíkurflugvöll og hvernig nýta mætti betur nálægðina við stærstu alþjóðlegu samgöngugátt landsins. Haustið 2019 undirrituðu íslenska ríkið, Isavia, Reykjanesbær og Suðurnesjabær viljayfirlýsingu
um samstarf að heildstæðri stefnu og framtíðarsýn fyrir nágrenni flugvallarins. Kadeco var falið að leiða þá vinnu. Úr samstarfinu varð K64, heildstæð efnahags- og skipulagsleg þróunaráætlun Keflavíkurflugvallarsvæðisins, sem kynnt var í mars 2023. Áætlunin tengir saman atvinnuuppbyggingu, íbúðarbyggð, samgöngur og þjónustu. Fjögur meginsvæði eru í forgrunni: Helguvík–Bergvík, Ásbrú, Aðalgata og forgarður flugstöðvar. Þau gegna ólíkum hlutverkum en mynda saman grunn að fjölbreyttri uppbyggingu í nágrenni flugvallarins. Með K64 er komin sameiginleg sýn sem getur stutt ákvarðanir sveitarfélaga, fyrirtækja og fjárfesta og hjálpað þeim að vinna að samræmdum markmiðum. Frá áætlunum til framkvæmda Verkefni Kadeco í dag snúast meðal annars um að undirbúa land til uppbyggingar, vinna að skipulagi með sveitarfélögum, markaðssetja tækifæri og tengja saman aðila sem geta komið verkefnum í framkvæmd.
Á Ásbrú er áfram unnið að fjölgun íbúða og þróun hverfisins. Þar skiptir máli að húsnæði, þjónusta, samgöngur og samfélagslegir innviðir þróist í takt. Uppbygging hverfis felst jafnt í nýjum heimilum og góðum aðstæðum fyrir daglegt líf, samveru og atvinnu.
K64 þróunaráætlunin vann til verðlauna hjá The Plan Awards. Um er að ræða alþjóðleg verðlaun á sviði arkítektúrs, innanhúshönnunar og borgarskipulags og eru veitt árlega.
Samkomulag milli Kadeco, ríkisins og Reykjanesbæjar um framtíðaruppbyggingu Ásbrúar undirritað árið 2024
2012 – Gagnaver Verne opnar formlega og Sporthúsið tekur til starfa á Ásbrú. Fyrirtækjum á svæðinu fjölgar í um 115 og störfum í um 600.
2014 – Fyrsta nýbyggingin á Ásbrú rís þegar Advania byggir gagnaver við gamla Patterson-flugvöllinn. Örþörungaverksmiðja Algalífs er opnuð. Í árslok höfðu um 67% eigna í umsjá Kadeco verið komin í nýtingu, þar af um 60% seld. 2013 – Vöxtur atvinnulífs heldur áfram: um 130 fyrirtæki eru á Ásbrú með um 700 starfsmenn. Allt iðnaðarhúsnæði Kadeco er í útleigu í árslok og fleiri eldri byggingar fá ný hlutverk, meðal annars fyrir gistirekstur.
Á atvinnusvæðunum felast tækifæri meðal annars í starfsemi sem nýtur góðs af nálægð við flugvöll og höfn, í tæknifyrirtækjum og í iðnaði þar sem samnýting auðlinda og innviða getur skapað verðmæti. Til að þau tækifæri verði að veruleika þarf vandaðan undirbúning og skýra mynd af
þörfum fyrirtækja, aðgengi að innviðum og forsendum fjárfestingar. Næsti kafli Á tuttugu ára afmæli Kadeco er tilefni til að líta yfir farinn veg. Eignir sem misstu fyrra hlutverk sitt hafa fengið nýtt líf. Fólk hefur eignast heimili, sótt sér menntun og byggt upp fyrirtæki á svæði sem áður var lokað almenningi. Sú reynsla nýtist í þeim verkefnum sem nú taka við. Fram undan er áframhaldandi vinna við að skapa aðstæður fyrir fjölbreytt atvinnulíf, góð íbúðarhverfi og fjárfestingu sem styrkir Suðurnes til lengri tíma. Saga Kadeco sýnir hversu miklu máli skiptir að hafa skýra sýn, þolinmæði og getu til að leiða ólíka aðila saman. Næsti kafli byggist á sama grunni og umbreytingin sem hófst árið 2006: samvinnu, trausti og vilja til að ná árangri.
Árið 2021 skrifuðu sveitarstjórar og fyrirtæki á svæðinu undir viljayfirlýsingu um hringrásargarð á Suðurnesjum.
2016 – Stórt ár í eignasölu: um 111 þúsund m² íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis eru seldir. Þar með höfðu um 93% húsnæðisins sem félagið fékk til umsýslu 2006 komist í almenna borgaralega eigu. Kadeco heldur upp á tíu ára afmæli. 2015 – Eftirspurn eftir eignum á Ásbrú eykst og KADECO leggur meiri áherslu á sölu. Á árinu selur félagið um 1.700 m² iðnaðarhúsnæðis og 1.500 m² íbúðarhúsnæðis. Algalíf tekur ákvörðun um að stækka starfsemi sína.
2017 – Félagið einfaldar rekstur sinn eftir eignasöluna og undirbýr aukna áherslu á landþróun við flugvöllinn. Samráð um framtíðarþróun flugvallarsvæðisins fer af stað. Marta Jónsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri í ágúst.
18 // VÍKURFRÉTTIR
KADECO 20 ÁRA
NÆSTI KAFLI SUÐURNESJA Frá umbreytingu fyrrum varnarsvæðis að nýjum tækifærum fyrir fyrirtæki og íbúa.
Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, horfir til framtíðar þar sem fjölbreytt atvinnulíf, ný heimili og öflugt samfélag vaxa saman. Á tuttugu árum hafa verkefni Kadeco tekið miklum breytingum. Í upphafi var viðfangsefnið að koma húsnæði og öðrum eignum á fyrrum varnarsvæðinu í borgaralega notkun. Nú leiðir félagið samstarf um þróun lands við Keflavíkurflugvöll, með atvinnuuppbyggingu, fjárfestingar og framtíð byggðar á Suðurnesjum í sjónmáli. Sameiginlega þróunaráætlunin K64 markar þá sýn. Þar mætast alþjóðlegar tengingar flugvallarins og tækifæri til að byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf. En hvernig verða áætlanir að fyrirtækjum, störfum og heimilum? Og hvað á fólk á Suðurnesjum að fá út úr næsta kafla? Tækifærin þurfa að verða framkvæmanleg Kadeco stendur á tuttugu ára tímamótum. Hvert á félagið að stefna á næstu árum? „Við viljum að fleiri fyrirtæki sjái Suðurnes sem stað þar sem þau geta byggt upp starfsemi til langs tíma. Til þess þurfum við að geta svarað spurningum þeirra um land, skipulag og innviði og hjálpað þeim að finna réttu samstarfsaðilana. Verkefni okkar er að gera tækifærin skýr og vinna að því að þau verði framkvæmanleg. Árangurinn birtist síðan í fyrirtækjum sem fjárfesta hér og fólki sem finnur sér störf og framtíð á svæðinu.“ Hvernig hefur hlutverk Kadeco breyst frá stofnun? „Upphaflega snerist starfið að miklu leyti um að koma húsnæði og öðrum eignum í borgaralega notkun. Það var gríðarlegt verkefni sem margir lögðu hönd á plóg við. Í dag horfum við á stærra svæði og lengra fram í tímann. Við leiðum samstarf um landþróun, undirbúning atvinnusvæða og íbúðarbyggðar og kynnum tækifærin fyrir fyrirtækjum og fjárfestum. Sú vinna byggir á samstarfi ríkisins, Isavia og sveitarfélaganna.“
valkosti. Við þurfum að vera sýnileg þar sem þær ákvarðanir eru undirbúnar og geta útskýrt hvaða starfsemi hentar hér. Með Íslandsstofu og öðrum samstarfsaðilum kynnum við svæðið og byggjum upp tengsl. Það sem skiptir máli er eftirfylgnin: að skilja þarfir fyrirtækis og sjá hvort hér séu raunhæfar forsendur fyrir verkefninu.“ Hvaða tækifæri viljið þið sækja? „Ég sé spennandi möguleika í starfsemi sem nýtir alþjóðlegar tengingar svæðisins, sérhæfðri framleiðslu og samstarfi um betri nýtingu auðlinda. Þar geta meðal annars verið flugvallartengd þjónusta, líftækni, matvælaframleiðsla og tæknistarfsemi. Við þurfum að velja verkefni af kostgæfni og horfa til þess hvernig þau styrkja atvinnulífið sem fyrir er.“
Tuttugu ár og þrír vendipunktar Ü 2006 Umbreytingin hefst. Kadeco er stofnað til að leiða umbreytingu fyrrum varnarsvæðis í borgaraleg not. Ü 2019 Samstarf um næsta kafla. Ríkið, Isavia, Reykjanesbær og Suðurnesjabær móta samstarf um þróun lands við flugvöllinn. Ü 2023 Sameiginleg sýn með K64. K64 er kynnt sem sameiginleg þróunaráætlun fyrir Keflavíkurflugvallarsvæðið. Hvað á íbúi á Suðurnesjum að fá út úr þessari vinnu? „Fleiri möguleika. Ungt fólk á að geta séð fyrir sér fjölbreytt störf hér heima og fyrirtæki eiga að geta vaxið á svæðinu. Sam-
hliða þarf að vera hægt að eignast heimili og njóta góðrar þjónustu. Þess vegna verður atvinnuuppbygging að haldast í hendur við húsnæði, samgöngur og samfélagslega innviði. Við þurfum að hugsa þetta saman frá upphafi.“
Suðurnes á alþjóðlegum markaði Hvers vegna leggið þið áherslu á alþjóðlega markaðssetningu? „Fyrirtæki sem leita að nýrri staðsetningu bera saman marga
K64 tengir svæðið við ný tækifæri Keflavíkurflugvöllur tengir Suðurnes við erlenda markaði. Með K64 er sett fram sameiginleg sýn á hvernig nálægðin við flugvöllinn getur stutt atvinnulíf og byggð. Til að fyrirtæki og íbúar njóti ávinningsins þurfa landþróun, þjónusta og samgöngur að styðja hvert annað. Á vefsíðunni invest.K64.is eru upplýsingar ætlaðar fjárfestum sem hafa áhuga á að hefja starfsemi á svæðinu við Keflavíkurflugvöll. Þróunarsvæðin gegna ólíkum hlutverkum innan þeirrar heildar: Ü Helguvík og Bergvík: Hringrásariðnaður og samstarf um auðlindanýtingu. Ü Tæknivellir: Léttur iðnaður, framleiðsla og þjónusta við atvinnulífið. Ü Aðalgata og Aðaltorg: Verslun, þjónusta og tenging við flugvöllinn. Ü Aðkomusvæði flugstöðvar: Þjónusta og þróun við alþjóðlega samgöngugátt.
Hvað þarf helst að ganga upp til að þessi tækifæri verði að veruleika? „Fyrirsjáanleiki. Fyrirtæki þurfa að vita hvaða skref bíða þeirra og hver ber ábyrgð á hverju. Skipulag, orka og aðrir innviðir þurfa að vera skoðuð út frá hverju verkefni. Okkar hlutverk er að leiða þá vinnu áfram með viðeigandi aðilum. Við eigum að vera metnaðarfull og jafnframt skýr um hvað er tilbúið og hvað þarf að undirbúa.“ Ásbrú vex með atvinnulífinu Ný störf og ný heimili þurfa að fylgjast að. Á Ásbrú er unnið að þróun hverfis þar sem íbúðir, þjónusta og útisvæði styðja daglegt líf. Nýr vefur, asbru.is, gefur yfirsýn yfir uppbyggingarreiti og framtíðaráform. Suðurbrekka er hluti þeirrar heildar. Í september undirrituðu ríkið, Reykjanesbær og Kadeco viljayfirlýsingu um hraðari undirbúning sérbýlauppbyggingar þar. Næstu skref og tímasetningar ráðast af rannsóknum, skipulagi og innviðum. Daglegt líf gefur uppbyggingunni gildi
Ü Ásbrú: Heimili, atvinnulíf og samfélagslegir innviðir.
Gildi góðs hverfis kemur fram í hversdagslífinu: að geta gengið
HELSTU VÖRÐUR Á LEIÐ KADECO FRÁ ÁRINU 2006 TIL 2026 2018 – Síðustu eignirnar úr safninu sem KADECO tók við 2006 eru seldar. Samhliða hefst vinna við rammaskipulag Ásbrúar með Reykjanesbæ og áframhaldandi mótun samstarfs um þróun lands við Keflavíkurflugvöll.
2019 - nýtt hlutverk Kadeco formgert með samkomlagi hagaðila. Íslenska ríkið, Isavia, Suðurnesjabær og Reykjanesbær undirrita samkomulag um þróun lands.
2020 - Pálmi Freyr Randversson ráðinn framkvæmdastjóri, undirbúningur samkeppnisútboðs. Greiningarvinna og samráðsfundir.
2022 Ráðgjafateymi undir forystu KCAP ráðið til að leiða vinnu við mótun þróunaráætlunar. Vinna við gerð þróunaráætlunar, samráðsferli og hönnun. Útboðsferli tilnefnt til verðlauna. 2021 - Alþjóðleg kynning á útboði, forval auglýst, 5 aðilum boðið að taka þátt, niðurstaða samkeppni kynnt í desember.
2023 - K64þróunaráætlunin kynnt og vefsvæði opnað. Kynning innanlands og erlendis. Starfshópur um grænan iðngarð í Helguvík og Bergvík settur á laggirnar. K64 hlýtur alþjóðleg skipulagsverðlaun The Plan Award.
VÍKURFRÉTTIR // 19
Þróunarsvæði á Ásbrú Ü Suðurbrekka: Fjölbreytt íbúðabyggð og grænar tengingar. Ü Suðurbrautarreitur: Fjölbýli og raðhús með sameiginlegum görðum. Ü Breiðbraut: Viðbót við núverandi byggð og tenging við útivist. Ü Grænásbraut og Skógarbraut: Íbúðir, fyrirhugaður grunnskóli og samkomusvæði. Ü Spítalareitur: Ný íbúðabyggð tengd eldri húsum, meðal annars spítalanum og Andrews-leikhúsinu. Áformin verða útfærð og unnin í áföngum. Á asbru.is má finna upplýsingar um svæðin og fylgjast með framvindu.
Starfsfólk Kadeco. Frá vinstri, Pálmi Freyr Randversson, Gunnar Kr. Sigurðsson, Bryndís Lúðvíksdóttir, Elín Guðnadóttir, Samúel Torfi Pétursson og Sverrir Bergmann Magnússon.
út, hreyft sig, sótt þjónustu og hitt annað fólk. Íbúðir, þjónusta og útisvæði þurfa að skapa umgjörð um það líf. Þegar íbúum fjölgar skiptir jafnframt máli að hlúa að þeim stöðum og tengslum sem gefa hverfinu karakter. Sú hugsun á að fylgja uppbyggingu Ásbrúar, svo ný heimili verði hluti af samfélaginu sem fyrir er. Þar mætast líka markmiðin um næsta kafla Suðurnesja: fjölbreytt störf, tækifæri fyrir fyrirtæki og heimili þar sem fólk sér framtíð sína. Kynntu þér tækifærin Fyrirtæki og fjárfestar geta kynnt sér þróunarsvæðin á kadeco.is og haft samband við info@kadeco.is. Upplýsingar um framtíð Ásbrúar og framvindu uppbyggingar eru á www.asbru.is.
Framtíðarsýn fyrir uppbyggingu Ásbrúar.
Uppbygging hringráðsariðngarðs í Helguvík og Bergvík er hluti af K64 þróunaráætluninni.
2024 - K64 kynnt á alþjóðavettvangi og innanlands; Mipim, Verk og vit, Expo Real, Smart Airports and Regions o.fl. Fyrsta sala byggingarréttar á Ásbrú gengur í gegn og samningur undirritaður milli Kadeco, Reykjanesbæjar og íslenska ríkisins um uppbyggingu íbúða og samfélagslegra innviða á Ásbrú. Kadeco og sveitarfélögin boða til opins fundar um hringrásariðngarð í Helguvík og Bergvík.
2026 - 20 ára afmæli Kadeco. Haustviðburður, asbru.is, sala lóðarréttinda á Tæknivöllum, fundir með frambjóðendum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þátttaka í erlendum og innlendum viðburðum.
2025 Deiliskipulagstillögur á Ásbrú kynntar. Forseti Íslands heimsækir Kadeco, þátttaka í erlendum viðburðum og kynningum.
Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar á ráðstefnu í Hljómahöll 14. október Tækifæri til uppbyggingar á Suðurnesjum, erlend fjárfesting og samkeppnishæfni Íslands verða í brennidepli á ráðstefnu sem Kadeco stendur fyrir í Hljómahöll í Reykjanesbæ miðvikudaginn 14. október. Ráðstefnan hefst klukkan 14 og er haldin í samstarfi við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“. Þar verður fjallað um hvernig markviss uppbygging á svæðinu og auknar erlendar fjárfestingar geta stuðlað að verðmætasköpun og styrkt stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni. Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, opnar ráðstefnuna. Bergur Ebbi er fundarstjóri og leggur línurnar fyrir daginn með inngangi undir yfirskriftinni „Af hverju Suðurnesin – af hverju núna?“. Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, fjallar um sögu, seiglu og alþjóðlega framtíð Suðurnesja. Í erindi hans verður sjónum beint að innviðum svæðisins og tækifærum til uppbyggingar fjölbreytts iðnaðar. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, ræðir síðan hlutverk Keflavíkurflugvallar í sam-
Mark O’Connell. félaginu og efnahagslífinu, verðmætasköpun hans og mikilvægi sem grunninnviðar og gáttar til Íslands. Eftir kaffihlé tekur Mark O’Connell, stofnandi og stjórnarformaður OCO Global, til máls. Hann fjallar um hvernig Suðurnes og Ísland geta aukið möguleika sína á að laða að erlenda fjárfestingu í heimi sem tekur stöðugum breytingum. O’Connell hefur á síðustu 25 árum byggt upp OCO Global, alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki á sviði viðskipta, útflutnings og fjárfestinga, sem er með skrifstofur víða
um heim og yfir 100 sérfræðinga í vinnu. Hann hefur unnið með fyrirtækjum, útflutningsstofnunum og fjárfestingastofnunum um allan heim og gaf nýlega út bókina The Great FDI Hustle, sem fjallar um beina erlenda fjárfestingu. Klukkan 16 hefjast pallborðsumræður um tækifæri Suðurnesja og hvernig lykilaðilar geti unnið saman að næsta vaxtarskeiði svæðisins. Þátttakendur eru Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Suðurkjördæmis, Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne gagnaversins, Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, og Páll Erland, forstjóri HS Veitna. Bergur Ebbi stýrir umræðunum. Að pallborði loknu dregur Bergur Ebbi saman helstu þemu dagsins og varpar fram sýn á framtíðina. Frá klukkan 16:50 verður boðið upp á drykki og léttar veitingar í tilefni af 20 ára afmæli Kadeco. Hljómsveitin Þríó leikur tónlist við það tækifæri. Skráning á ráðstefnuna er á www.kadeco.is
20 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Sér fyrir sér Keilisbraut sem „Laugaveg Ásbrúar“ ÁSBRÚ
Hönnuðir hafa kastað fram hugmyndum um lífsgæðakjarna við Keilisbrautina. Hér sést í Sporthúsið lengst til vinstri og nýtt hjúkrunarheimili lengst til hægri. Að neðan er svo drónamynd sem sýnir sama svæði.
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Það er stöðugur straumur fólks á skrifstofu Icelandic Home á Ásbrú. Þar vilja starfsmenn að leigjendur geti komið inn og rætt málin augliti til auglitis. Fyrirtækið hefur vaxið úr fimm húsum í níu frá ársbyrjun 2022 og er nú með um 650 leigueiningar. Ómar Örn Sævarsson framkvæmdastjóri segir breytingarnar á svæðinu slíkar að þeir sem hafi ekki komið lengi ættu að taka rúnt. Sjálfur sér hann fyrir sér að Keilisbrautin geti orðið „Laugavegur Ásbrúar“. Viðtalið við Ómar er rétt komið af stað þegar samtöl og erindi á skrifstofunni minna á það sem hann er að lýsa. Fólk kemur og fer og hann víkur sér að málum þess áður en spjallið heldur áfram. Þannig vilja þau hafa þetta hjá Icelandic Home. „Við viljum hafa þetta persónulegt. Fólk getur labbað inn á skrifstofuna og talað við okkur ef það er eitthvað,“ segir hann. Ómar segir þessa nálgun hafa gefist betur en hann bjóst við. Stundum sé einfaldlega fljótlegra að leysa málin með stuttu samtali en tölvupóstum fram og til baka. Þess vegna séu höfuðstöðvarnar mitt á meðal íbúanna.
Úr fimm húsum í níu Icelandic Home varð til í núverandi mynd við sameiningu þriggja félaga í ársbyrjun 2022. Þau höfðu verið með leiguhúsnæði á Ásbrú og í Njarðvík. Ómar hefur verið með
Þótt upphaflega hafi fremur verið horft til tímabundinnar dvalar hefur reynslan orðið fjölbreyttari. Til eru dæmi um fólk sem hefur verið hjá okkur í fjögur til fimm ár sem dæmi. Ástæðurnar séu mismunandi. Sumir séu að safna eða byggja upp annars staðar, aðrir búi einir og kjósi minni og hagkvæmari kost.
Ferðataskan með — og sængin frá upphafi og segir vöxtinn hafa orðið meiri og hraðari en hann sá fyrir sér. „Þegar ég byrjaði voru þetta fimm hús en þau eru orðin níu núna.“ Leigueiningarnar eru um 650 og fyrirtækið sérhæfir sig í smærri rýmum. Þar eru meðal annars herbergi með sameiginlegri eldun-
araðstöðu og íbúðir þar sem tveir leigjendur hafa sitt hvort herbergið. Við endurbætur hafi jafnframt verið lögð áhersla á að útbúa stúdíóíbúðir. Félagið hefur einnig horft til þess að geta vaxið með leigutökum sínum, þ.e.a.s. að fólk byrji í smærri einingum og færi sig svo í stærri einingar og íbúðir með breyttu fjölskyldumynstri er eitt-
hvað sem þeir hafa lengi velt fyrir sér á þróunarreitum. Húsnæðið hentar fólki sem kemur til lengri eða skemmri tíma til starfa á Íslandi, hvort sem er í byggingariðnaði, við flugvöllinn eða hjá öðrum fyrirtækjum á svæðinu. Fyrirtæki leigja einnig rými fyrir starfsfólk sem kemur vegna ákveðinna verkefna.
Ómar segir markmiðið vera að fólk geti komið sér fyrir án þess að þurfa fyrst að kaupa húsgögn og heimilistæki. Rúm, ísskápur og örbylgjuofn séu til staðar og hiti, rafmagn og internet innifalin í leigunni. „Þú getur eiginlega komið með ferðatöskuna þína og byrjað að vinna á Íslandi.“
Nýtt hjúkrunarheimili
rís við Keilisbraut í Reykjanesbæ
Nýja heimilið verður um 6.500 m² að stærð, á þremur hæðum auk kjallara, og mun rúma 90 hjúkrunarrými. REYKJANESBÆ
Tvær blokkir fá nýtt hlutverk Eitt stærsta verkefnið fram undan tengist nýju hjúkrunarheimili á Ásbrú. Ómar segir tvær þriggja hæða blokkir, sem hafa verið í útleigu hjá fyrirtækinu, eiga að fá þar nýtt hlutverk. Unnið sé að því að færa íbúana í annað húsnæði á vegum Icelandic Home. Hann lýsir áformum um að teng ja húsin saman og breyta þeim í hjúkrunarheimili með hátt í hundrað rýmum. HSS muni taka við rekstrinum, eins og áður hefur verið greint frá í Víkurfréttum. „Þetta er alveg einstaklega spennandi verkefni.“ Ómar telur heimilið geta orðið mikla lyftistöng fyrir Ásbrú. Framkvæmdirnar skapi vinnu og þegar heimilið taki til starfa bætist stór vinnustaður við svæðið. Um leið komi annars konar starfsemi inn í hverfið. Félagið sjái einnig fyrir sér að geta boðið nýju starfsfólki upp á þá leigukosti sem félagið hefur yfir að ráða.
d ei l i s ki p ul a g s mö r k
Öryggissvæði utan deiliskipulags
Hvetur fólk til að taka rúnt H el g u ví k ur v e g ur
„Ég myndi alveg mæla með því að fólk prófaði að taka einn rúnt ef það hefur ekki komið lengi. Það er alveg fullt í gangi hérna.“ Framtíðarsýn Icelandic Home sé að vaxa áfram með atvinnulífinu í kring. Þegar fyrirtæki ráðist í framkvæmdir og ráði starfsfólk þurfi húsnæði og þar telji hann Icelandic Home geta komið til móts við eftirspurnina. „Markaðurinn ræður víst. Það er eftirspurn eftir þessu og við höfum reynt að mæta henni eftir bestu getu með kaupum á nýjum eignum nú þegar við erum að umbreyta tveimur fasteignum að Keilisbraut í hjúkrunarheimili“ Félagið standi á tímamótum nú þegar það hefur haslað sér völl við uppbyggingu hjúkrunarheimilis og hafi jafnframt áhuga á því, þegar fram í sækir og ríkið kallar á fleiri hjúkrunarrými, að bjóða upp á aukinn fjölda rýma t.d. með því að breyta næstu tveimur húsum við Keilisbraut með sama hætti. Enn fremur horfi félagið til þess að byggja upp lífsgæðakjarna í tengslum við uppbyggingu hjúkrunarheimilis á svæðinu á milli hjúkrunarheimilisins við Keilisbraut og Sporthússins. Þar sjáum við fyrir okkur að byggja upp fjölbreytta búsetukosti í formi öryggisog þjónustuíbúða, mögulega námsmannaíbúða, ýmis konar þjónustu, heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt. Þetta er hugmynd sem við eigum eftir að ræða betur við sveitarfélagið og fleiri sem að koma,“ segir Ómar að lokum. Allt verði þetta gert í góðri sátt við samfélagið sem sé aðalmálið og þakkar hann að lokum sérstaklega fyrir mikinn stuðning sveitarfélagsins, fulltrúa ríkisins, HSS, Kadeco og nágranna við uppbyggingaráform félagsins.
H ól mb e r g s ki r k j u g a r ð u r
1
1A
3
5
7
Ber g hól a br a ut
Ómar dregur áherslur fyrirtækisins saman í þrjú orð. „Ódýrt, öruggt og hreint.“ Þau séu leiðarljósið í rekstrinum og endurbótunum. Frá upphafi hafi verið unnið að því að taka húsin fyrir hvert af öðru, bæta sameiginleg rými og uppfæra öryggis- og eldvarnarkerfi. Nýjar innréttingar, gólfefni og málning séu hluti af þeirri vinnu, ásamt því að bæta ásýndina utandyra. „Við vitum að við erum að bjóða minni einingar en ef við tikkum í þessi þrjú box erum við mjög ánægð.“ Hjá fyrirtækinu starfa um ellefu manns við skrifstofustörf, þrif, eftirlit og viðhald. Ómar segir það skipta máli að hafa eigið fólk sem þekki húsin og íbúana. Við stærri framkvæmdir sé hins vegar leitað til verktaka og iðnaðarmanna, nær eingöngu úr nágrenninu. „Það er rosalega mikið af sterkum og góðum fyrirtækjum hérna á svæðinu sem við höfum átt góð samskipti við.“
d ei l i s ki p ul a gs mör k
„Ódýrt, öruggt og hreint“
Breytingarnar muni líka sjást á húsunum og umhverfi þeirra. Hann sér fyrir sér snyrtilega garða og fallegri götumynd þegar framkvæmdum lýkur. „Þessi gata ætti að verða Laugavegur Ásbrúar,“ segir hann um Keilisbrautina. Ómar segir endurbætur á Ásbrú ekki einskorðast við hús Icelandic Home. Víða sé verið að vinna að byggingum og umhverfi þeirra og hann telur að sumir beri enn með sér mynd af svæðinu sem eigi síður við í dag. Góð samskipti séu við þá aðila sem reki fyrirtæki á svæðinu og nefnir hann í því sambandi Konvin hótel og Sporthúsið sem eigi fasteignir við Keilisbraut. Allir þessir aðilar vilja stórbæta ásýnd Keilisbrautarinnar og nærumhverfis.
G a r ð s k a g a v e g u r
Þegar blaðamaður líkir þessu við að ganga inn á hótelherbergi kemur þó í ljós eitt atriði sem þarf að muna. „Nema þú þarft að taka sængina með þér,“ segir Ómar. Hann segir fyrirkomulagið líka létta undir með fyrirtækjum sem þurfa að útvega starfsfólki húsnæði. Leigjendur geti haft beint samband við Icelandic Home um það sem upp kemur. Auk þjónustu á skrifstofutíma sé sólarhringssímanúmer og útkallsþjónusta vegna brýnna mála fyrir íbúa.
G a r ð s k a g a v e g u r
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 21
Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ Aðalskipulag Suðurnesjabæjar – Breyting á iðnaðarsvæði I5, I7 og strandsvæði Bergvík - Kynning tillögu. Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 15. júlí 2026 að kynna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 skv. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðfangsefni aðalskipulagsbreytingar er að laga stefnu og ákvarðanir aðalskipulags að nýjum forsendum um uppbyggingu í Bergvík. Breytingin felst í uppfærðum skilmálum, auknu byggingarmagni fyrir iðnaðarsvæði, stækkun iðnaðarsvæðis I5 til austurs, niðurfellingu iðnaðarsvæðis I7 í Selvík og aðlögun strandsvæðis að þeirri breytingu, auk þess sem sett er inn tenging fyrir rafveitu/jarðstreng inn á iðnaðarsvæðið. Nýir jarðstrengir eru 220 kV og eru sett inn ákvæði um helgunarsvæði þeirra. Dregin eru þéttbýlismörk um iðnaðarsvæðið í Bergvík og næsta nágrenni þess og landnotkun sýnd á þéttbýlisuppdrætti. Aðalskipulagsbreytingin er unnin í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir Bergvík. Tilgangurinn með breytingunni er að uppfæra stefnu aðalskipulags Suðurnesjabæjar þannig að hún endurspegli þá framtíðarsýn sem lögð er til grundvallar í K64 hringrásariðngarði og þróun nærsvæðis Keflavíkurflugvallar. Með breytingunni er samræmi milli fyrirhugaðrar uppbyggingar í Bergvík og gildandi skipulagsáætlana sveitarfélagsins og nærliggjandi svæða. Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt HMS, mál nr. 1040/2025.
Bergvík – heildarendurskoðun deiliskipulags - Kynning tillögu. Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 15. júlí 2026 að kynna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Bergvík skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í Bergvík er gert ráð fyrir að skapist tækifæri til að byggja upp iðnaðar- og athafnasvæði sem hefur verkefnaheitið K64 Hringrásariðngarður. Deiliskipulagið er heildarendurskoðun á gildandi deiliskipulagi Iðnaðarlóðar við Berghóla (álver við Helguvík) frá 2008 m.s.br. sem fellur úr gildi við staðfestingu þessa deiliskipulags. Deiliskipulagið er unnið á vegum íslenska ríkisins/Kadeco í samráði við skipulagsyfirvöld Suðurnesjabæjar og Landhelgisgæslu Íslands. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir stærri og minni lóðum fyrir fjölbreytta starfsemi með áherslu á nýsköpun, grænan iðngarð, hringrásarhagkerfið og framleiðslu-, rannsóknar- og þróunarfyrirtæki. Ef fram kemur áhugi á starfsemi sem tengist sorporkustöð eða eldsneyti fyrir orkuskipti þá er horft til þess að slík starfsemi gæti komið til á norðurhluta svæðisins. Umhverfismál eru lykilatriði við undirbúning, hönnun, byggingu og rekstur iðnaðarstarfsemi á svæðinu. Grænar jarðvegsmanir eru við Garðskagaveg og grænir geirar með skjólbelti eru dregnir inn á iðnaðarsvæðið með megin aðkomugötunum; Helguvíkur- og Bergvíkurvegi. Gert er ráð fyrir stígum og slóðum meðfram strandlengjunni og á náttúruríku hverfisvernduðu svæði við Bergvötn. Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt HMS, mál nr. 1042/2025. ---Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í skipulagsgátt HMS á https://skipulagsgatt.is/ Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026 Jón Ben. Einarsson, Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar
Ómar Örn Sævarsson framkvæmdastjóri Icelandic Home í sameiginlegu eldhúsi í einni af íbúðablokk fyrirtækisins. VF/hilmarbragi
22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MINNSIVARÐI UM VERU VARNARLIÐS F-4E Phantom II þotan sem stendur á stalli við ein fjölförnustu gatnamótin á Ásbrú og minnir á veru Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hún ber merkingar Svörtu riddaranna, 57. orrustuflugsveitar bandaríska flughersins, en þessi tiltekna vél var aldrei í þjónustu hér á landi. Hún var sett upp á Ásbrú árið 2017. Á myndinni er þotan hins vegar á leiðinni á sýningu sem haldin var í tilefni af Ásbrúardeginum og þurfti að lyfta henni yfir hlið við austurhlað Keflavíkurflugvallar. Þetta er því ein af síðustu „flugferðum“ þotunnar.
Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Tuttugu árum síðar er Ásbrú ekki lengur fyrst og fremst „gamla varnarsvæðið“. Þar eru nú nær 70 fyrirtæki, þúsundir manna eiga þar heimili og á svæðinu hefur byggst upp fjölbreytt samfélag menntunar, atvinnulífs, hátækni, íþrótta og menningar. Það var langt frá því sjálfgefið að þannig færi. Nú eru aðeins fáeinir dagar þar til tuttugu ár verða liðin frá einum stærstu tímamótum í sögu Suðurnesja á síðari tímum. 30. september 2006 var bandaríski fáninn dreginn niður í síðasta sinn á Miðnesheiði. Þar með lauk 55 ára fastri viðveru bandaríska varnarliðsins á Íslandi. Fyrir Suðurnesjamenn var þetta gríðarlegt áfall. Hundruð starfa hurfu á skömmum tíma og fjölmargar fjölskyldur stóðu frammi fyrir óvissu. En um leið hófst eitt stærsta umbreytingarverkefni sem íslenskt sveitarfélag hefur staðið frammi fyrir.
Við höfðum undirbúið okkur Brottförin kom hratt til framkvæmda en möguleikinn á breytingum hafði lengi verið fyrir hendi. Við í Reykjanesbæ höfðum því áður hafið vinnu við að skoða hvernig önnur samfélög erlendis hefðu brugðist við lokun herstöðva og hvernig mætti fjölga stoðum atvinnulífsins á Suðurnesjum. Þegar endanleg ákvörðun Bandaríkjamanna lá fyrir í mars 2006 þurftum við að bregðast hratt við. Þann 19. mars lögðum við fram þríþætta nálgun: að tryggja sem best stöðu fólksins sem missti vinnuna, sækja fram með ný atvinnutækifæri og undirbúa framtíðarnýtingu þess mikla lands, húsnæðis og innviða sem yrðu eftir.
Daginn eftir, 20. mars, hittum við starfsmenn og fjölskyldur þeirra í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þar var óvissan mikil. Fólk hafði unnið á vellinum í áratugi og margir höfðu gert ráð fyrir að ljúka þar starfsævinni. Við settum fljótt á laggirnar sérstaka ráðgjöf og aðstoð við þá sem misstu vinnuna. Meginmarkmiðið var að fólk kæmist aftur til starfa sem fyrst. Við lögðum jafnframt áherslu á eitt grundvallaratriði: Suðurnesjamenn voru ekki að biðja um ölmusu. Við vildum fá tækifæri til að byggja upp ný störf, nýja menntun og nýja atvinnustarfsemi á grunni þeirra verðmæta sem fyrir voru á svæðinu.
Samfélagslegt umbreytingarverkefni Þann 8. maí fórum við yfir stöðuna með Geir H. Haarde, þá utanríkisráðherra, á fjölmennum fundi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Krafa okkar var skýr: það yrði að líta á verkefnið sem stórt samfélagslegt umbreytingarverkefni, ekki eingöngu sem ráðstöfun fasteigna sem herinn skildi eftir.
Menntun varð eitt fyrsta svarið Eitt mikilvægasta verkefnið sem spratt úr þessari vinnu var Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sem stofnaður var á Ásbrú vorið 2007. Þar var ekki aðeins um að ræða nýja menntastofnun. Menntunarstig á Suðurnesjum hafði lengi verið lægra en í öðrum landshlutum. Ein skýringin var sú að á svæðinu höfðu um árabil verið næg störf, meðal annars hjá varnarliðinu, þar sem fólk gat farið snemma út á vinnumarkað, fengið góða starfsþjálfun og unnið sig upp án þess að ljúka formlegu framhaldsnámi. Háskólabrú Keilis varð því sérstaklega mikilvæg. Hún opnaði fullorðnu fólki, sem ekki hafði lokið stúdentsprófi, leið til að undirbúa sig fyrir háskólanám og
sækja inn í ný tækifæri á vinnumarkaði og í samfélaginu. Árangurinn er mælanlegur. Við útskrift Háskólabrúar í júní 2026 höfðu 2.771 nemendur lokið náminu frá upphafi. Þetta er ein skýrasta birtingarmynd þess hvernig umbreytingin á Ásbrú snerist ekki aðeins um ný fyrirtæki og ný störf heldur einnig um að byggja upp mannauð svæðisins til framtíðar. Hugmyndin var frá upphafi að nýta mannvirki og aðstöðu á gamla varnarsvæðinu til uppbyggingar þekkingar og menntunar og tengja hana atvinnulífinu. Þetta var táknrænt fyrir þá hugsun sem lá að baki umbreytingunni: herstöðin ætti ekki að verða minnisvarði um liðna tíð heldur vettvangur fyrir nýtt samfélag.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, síðar Kadeco, fékk það stóra verkefni að taka við, þróa og markaðssetja svæðið. Ásbrú varð smám saman til. Svo skall annað áfall á. Það tókst betur en margir óttuðust að koma stórum hluta þeirra sem misstu störfin árið 2006 aftur út á vinnumarkað. Þegar brottflutningi lauk 30. september voru um eitt hundrað fyrrverandi starfsmenn varnarliðsins enn atvinnulausir og 137 höfðu meðal annars verið ráðnir til starfa við áframhaldandi flugvallarrekstur. En aðeins tveimur árum síðar skall fjármálakreppan á. Fyrir samfélag sem hafði rétt áður gengið í gegnum eitt stærsta atvinnuáfall á Suðurnesjum var það þungt högg. Margir sem höfðu rétt náð fótfestu í nýjum störfum stóðu aftur frammi fyrir óvissu. Uppbyggingin á gamla varnarsvæðinu varð hægari en menn höfðu vonað. En hún stöðvaðist ekki.
Nær 70 fyrirtæki á Ásbrú Nú, tuttugu árum síðar, er myndin allt önnur. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Kadeco eru nær 70 fyrirtæki starfandi á Ásbrú. Þar er ekki lengur eitt ráðandi atvinnufyrirtæki eða ein starfsemi heldur fjölbreytt flóra fyrirtækja, menntunar, tækni, þjónustu, heilsu og nýsköpunar. Þar má meðal annars nefna fyrirtæki eins og Verne, sem hefur byggt upp umfangsmikla gagnaversstarfsemi á Ásbrú, Algalíf, sem hefur orðið leiðandi í hátækniræktun örþörunga, Íslandshús og fjölmörg önnur fyrirtæki af ólíkum toga. Á Patterson-svæðinu, gamla Patterson-flugvellinum austan Ásbrúar, hefur jafnframt orðið til merkilegur tæknikjarni. Þar er meðal annars umfangsmikil gagnaversstarfsemi og svæðið hefur verið skilgreint sem mikilvægt atvinnu- og þróunarsvæði til framtíðar. Þetta er athyglisverð umbreyting. Á svæði sem áður var hluti af hernaðarinnviðum Atlantshafsbandalagsins er nú alþjóðleg stafræn starfsemi knúin íslenskri endurnýjanlegri orku.
Ekki aðeins vinnustaður – heldur samfélag Ásbrú hefur ekki aðeins þróast sem atvinnusvæði. Þar hefur byggst upp samfélag. Íbúðarhúsnæði gamla varnarsvæðisins fékk nýtt hlutverk og síðar hófst ný íbúðauppbygging, meðal annars í Hlíðarhverfi og Vesturhlíðum. Samhliða hafa samfélags-, íþrótta- og menningarstarfsemi fest þar rætur. Þar má nefna Sporthúsið, Ungleikhúsið, dansstarfsemi og Hjarta Ásbrúar. Þetta skiptir máli. Hverfi verður ekki til með því einu að fylla gömul hús af fyrirtækjum eða íbúum. Það verður til þegar fólk fer að lifa þar daglegu lífi – börn ganga í skóla, fólk stundar
íþróttir, menningu og þjónustu og ný kynslóð tengir sjálfsmynd sína við staðinn.
Næsti kafli er þegar hafinn Árið 2024 gerðu ríkið, Reykjanesbær og Kadeco samkomulag um næsta stóra áfanga uppbyggingarinnar þar sem meðal annars var gert ráð fyrir 800 nýjum íbúðum ásamt samfélagslegum innviðum og almenningsrýmum. Og nú í september 2026 var stigið enn eitt skrefið. Þann 16. september undirrituðu ríkið, Reykjanesbær og Kadeco viljayfirlýsingu um að hraða uppbyggingu Suðurbrekku. Þar er gert ráð fyrir um 200 íbúðum, meðal annars einbýlishúsum, raðhúsum og lágreistum fjölbýlishúsum. Það eitt gæti þýtt nýtt samfélag upp á um 500–600 íbúa þegar svæðið er fullbyggt, eftir því hver meðalstærð heimila verður. En langtímasýnin er miklu stærri. Samkvæmt núverandi framtíðarsýn Kadeco gæti íbúðum á Ásbrú fjölgað um 4.500 til ársins 2050 og þar orðið samfélag með allt að 14.000 íbúum. Þá verður gamla varnarsvæðið í raun orðið einn stærsti bæjarhluti Reykjanesbæjar.
Tuttugu ár Þegar horft er til baka yfir þessi tuttugu ár er auðvelt að sjá það sem nú hefur orðið. Erfiðara er að rifja upp óvissuna eins og hún var vorið og haustið 2006. Við vissum ekki hvernig sagan myndi enda. Við vissum aðeins að við yrðum að bregðast við. Stór áföll kalla á skjót viðbrögð, en raunveruleg samfélagsbreyting tekur tíma. Ásbrú er kannski besta dæmið um það. Árni Sigfússon Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 23
Retreat við Bláa Lónið hlýtur annan Michelin-lykil The Retreat við Bláa Lónið hefur hlotið tvo Michelin-lykla í vali ársins 2026 og er þar með eina hótelið á Íslandi með tvo lykla. Highland Base í Kerlingarfjöllum heldur jafnframt sínum Michelin-lykli sem staðurinn hlaut á síðasta ári. Michelin-lyklar eru veittir hótelum sem skara fram úr þegar kemur að heildarupplifun gesta. Matið nær til dvalarinnar í heild, þar á meðal gæða þjónustunnar, hönnunar og þess hvernig sérkenni staðarins njóta sín. Hjá Retreat mótast upplifun gesta af nálægðinni við náttúruna, rólegu umhverfi, einstakri þjónustu þar sem vellíðun og þarfir gesta eru í forgrunni. Hönnunin tekur mið af umhverfinu og þjónustan af þörfum hvers gests. „Við erum ákaflega stolt af þessari viðurkenningu. Hún er fyrst og fremst mikið hrós til
starfsfólksins okkar sem tekur svo vel á móti gestum og leggur sig fram um að gera dvöl þeirra einstaka. Það er hlýjan, umhyggjan og fagmennskan, í stóru sem smáu, sem gerir dvölina einstaka. Viðurkenning sem þessi er einnig jákvæð fyrir íslenska ferðaþjónustu í heild og styrkir enn frekar orðspor Íslands sem áfangastaðar“, Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Bláa Lóninu Highland Base í Kerlingarfjöllum heldur sínum Michelinlykli. Þar njóta gestir dvalar í einstöku umhverfi miðhálendisins þar sem náttúruupplifun, kyrrð og vönduð þjónusta fara saman. Viðurkenningarnar eru staðfesting á því góða starfi sem unnið er á báðum stöðum og hvatning til að halda áfram að þróa þjónustuna og skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti.
BÓLUSETNING GEGN ÁRLEGRI INFLÚENSU 2026 Áhættuhópum sem eru skráðir á HSS er boðið upp á inflúensu bólusetningu á eftirtöldum stöðum: Kirkjulundi,
safnaðarheimili Keflavíkurkirkju á Kirkjuvegi Athugið að gengið inn á framan, frá Kirkjuvegi. Mánudaginn 26. október frá kl. 9-12 Mánudaginn 16. nóvember frá kl. 9-12 Einstaklingar í forgangshópum fá sms boðun á Heilsuveru. Athugið að ef búið að bóka tíma þá á að halda þeirri tímasetningu.
Heilsugæslu í Vogum
Þriðjudaginn 27. október. Bókið tíma. Þriðjudaginn 10. nóvember Bókið tíma.
Heilsugæslu Suðurnesjabæjar
Miðvikudaginn 28. október. Bókið tíma. Miðvikudaginn 4.nóvember. Bókið tíma.
Ungbarnavernd HSS
Börnum boðið upp á inflúensubólusetningu í Ungbarnavernd valda daga. Bókið tíma.
Reykjanesapótek
er í samstarfi við HSS og er að bólusetja við inflúensu alla virka daga eftir 2. nóvember.
Hægt er að bóka tíma á Heilsuvera.is eða í síma 422-0500 á milli kl. 8-16.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
Frá tómum herstöðvarhúsum til nýsköpunar Þegar herinn fór árið 2006 stóð eftir svæði fullt af byggingum sem enginn vissi hvað yrði um. Fáir sáu þá fyrir sér að þar myndi verða til samfélag nemenda, fjölskyldna og frumkvöðla. Fjölskyldan mín var meðal fyrstu íbúa Ásbrúar. Ég var meðal fyrstu nemenda Háskólabrúar Keilis og síðar í fyrsta árgangi orku og umhverfistæknifræði á vegum Háskóla Íslands, sem kennd var á Ásbrú. Börnin mín voru meðal fyrstu nemenda Háaleitisskóla, leikskólans Vallar og Bryn Ballet Akademíunnar. Við vorum að byggja upp nýtt líf á sama tíma og svæðið sjálft fékk nýtt hlutverk. Á Ásbrú kviknaði hugmyndin um að nýta kísil úr jarðhitavatni, efni sem fram að því hafði helst verið talið vandamál í virkjunum. Árið 2012 stofnuðum við GeoSilica og hófum rekstur í frumkvöðlasetri á Ásbrú. Nálægðin við skólann, að-
gangur að efnafræðistofu og verkstæði og fólk sem trúði á nýsköpun gerðu okkur kleift að taka fyrstu skrefin. Í dag vinnur GeoSilica með íslenskum orkufyrirtækjum og erlendum rannsóknaraðilum, og GeoStep® tæknin okkar hlaut nýlega verðlaun í Kísildalnum. Höfuðstöðvarnar eru enn á Suðurnesjum, og það er meðvituð ákvörðun. Ásbrú mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta fjölskyldunnar okkar. Þar byggðum við okkur heimili, þar fæddist hugmyndin að GeoSilica og þar eiga rætur okkar enn heima. Tuttugu árum síðar heldur sagan áfram. Til hamingju með 20 árin, Kadeco! Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica.
• Allir einstaklingar 60 ára og eldri (Influvac). • Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu (bóluefni í samræmi við aldur). • Öll börn sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Meta þarf frábendingar Fluenz á einstaklings grundvelli og eftir atvikum má nota Influvac þess í stað. • Allir fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum (Influvac). • Barnshafandi (eingöngu Influvac jafnvel þótt hafi ekki náð 18 ára aldri). • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan (Influvac). • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu sbr. frétt í okt. 2023 (Influvac).
Kostnaður vegna inflúensubólusetninga fyrir forgangshópa: Bóluefni gegn inflúensu er forgangshópum að kostnaðarlausu. Um komugjöld í heilsugæslu vegna inflúensubólusetningar gildir 8. gr. reglugerðar nr. 1495 frá 2025 Kveðja, Heilsugæsla HSS
24 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
„Hefðum séð eftir því að láta þetta ógert“ Þau prófuðu að hætta að vinna en fundu fljótt að það átti ekki við þau. Nú reka hjónin Kristinn Skúlason og Drífa Dan Public Deli á Ásbrú, þar sem þau hafa í rúm tvö ár tekið á móti heimafólki og ferðamönnum. Hádegismaturinn hefur orðið fastur liður hjá mörgum og heimsóknir gamalla kunningja orðið að endurfundum.
ÁSBRÚ Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
„Mér finnst eins og ég sé að koma heim þegar ég kem hérna í hádeginu til ykkar.“ Þessi orð viðskiptavinar, sem Drífa Dan rifjar upp úr spjalli fyrr um daginn, segja kannski meira um Public Deli á Ásbrú en upptalning á réttum og hráefnum. Þau Kristinn Skúlason hafa lagt áherslu á að fólk fái góðan mat en líka að því líði vel, að það þekki andlitin sem taka á móti því og langi að koma aftur. Fyrir Kristin, eða Kidda Skúla eins og margir Suðurnesjamenn þekkja hann, hefur staðurinn líka orðið vettvangur endurfunda. „Það koma margir að heimsækja mig og til að spjalla. Þetta er búinn að vera voða skemmtilegur tími,“ segir hann. Drífa hefur sína lýsingu á því: „Þetta er svona eins og endurfundir alla daga fyrir hann.“ Að hitta fólk, heyra sögur þess og vera hluti af samfélaginu í Reykjanesbæ er stór hluti af ánægjunni sem þau hafa af rekstrinum. Þau vilja að staðurinn sé líka vettvangur samveru, þar sem fjölskyldur og vinir geti sest niður yfir góðum mat, fagnað áföngum eða einfaldlega notið hversdagsins saman.
Litla Skúlabúðin Þegar Kristinn og Drífa undirbjuggu opnun Public Deli á sínum tíma lýsti hann hugmyndinni sem nútímalegri hverfisverslun. Veitingastaður og verslun undir sama þaki áttu að auðvelda fólki hversdaginn; hægt yrði að setjast niður og borða eða grípa með sér mat og nauðsynjar. Hugmyndin átti sér þó eldri rætur í lífi Kristins. Hann ólst upp í Keflavík og steig sín fyrstu skref í verslunarrekstri í Skúlabúð,
verslun foreldra sinna við Lyngholt. „Ég byrjaði snemma að hjálpa til í búðinni hjá pabba og mömmu,“ segir hann. Reyndar stóð til að starfsferillinn yrði allt annar. Ungur ætlaði Kristinn að verða rakari og var á leið á samning á stofu í Reykjavík þegar hann kynntist konunni sem síðar varð eiginkona hans. Leiðin lá þess í stað inn í matvöruverslunina, fyrst í Víði, síðan Nóatún og loks Krónuna, þar sem hann stýrði rekstri og uppbyggingu um árabil. Nú er hringurinn að einhverju leyti lokaður. Eftir áratugi á höfuðborgarsvæðinu er hann aftur kominn með verslun í sínum gamla heimabæ. „Ég kalla búðina alltaf litlu Skúlabúðina,“ segir hann.
Nú reka hjónin Kristinn Skúlason og Drífa Dan Public Deli á Ásbrú, þar sem þau hafa í rúm tvö ár tekið á móti heimafólki og ferðamönnum.
„Þetta er öll flóran. Við eigum mikið af góðum og traustum viðskiptavinum sem halda tryggð við okkur,“ segir hún.
Of ung til að hætta Eftir tæp átján ár sem rekstrarstjóri Krónunnar tók Kristinn að sér að vinna að uppsetningu flugeldhúss í gamla messanum á Ásbrú. Þar í nágrenninu sá hann húsnæðið sem áður hafði hýst Langbest og stóð þá autt. Þau hjón höfðu lengi gengið með hugmynd að eigin stað. Þau höfðu meðal annars skoðað möguleika í Kópavogi, en þar hefði þurft að byggja starfsemina upp frá grunni. Á Ásbrú var tækifærið annað. Fyrirmyndina höfðu þau séð í Svíþjóð: verslun og veitingar sem löguðu sig að stærð og þörfum hverfisins. „Okkur langaði kannski að taka síðasta dansinn í lífinu. Við settum okkur fimm ára markmið og settum þetta upp hérna,“ segir Kristinn. Að setjast í helgan stein hafði nefnilega verið prófað. Tilraunin gekk ekki sérstaklega vel. „Okkur fannst við bara vera of ung til að hætta að vinna,“ segir Drífa. „Við prófuðum það en það
Samloka með ferðasögu
hentaði okkur alls ekki. Við erum svo orkumikil.“ Golfið eitt og sér dugði ekki til, þótt þau hefðu bæði gaman af því. Eftir að reksturinn hófst hefur raunar gefist heldur minni tími til að sveifla kylfunum. Börnin voru ekki alveg sannfærð í upphafi. „Þau héldu að við hefðum hreinlega dottið á hausinn,“ segir Drífa og hlær. „En í dag sjá þau hvað við höfum gaman af þessu.“
Hverfið hafði sínar eigin hugmyndir Reynsla Kristins úr matvöruversluninni var mikil, en Ásbrú átti eftir að koma honum á óvart. Þau höfðu séð fyrir sér meiri eftirspurn frá fjölskyldum. Í upphafi urðu þau hins vegar vör við stóran hóp fólks sem vann á flugvellinum, hjá bílaleigum og víðar á svæðinu. Margir sóttu einfaldar lausnir í verslunina en nýttu veitingastaðinn síður en þau höfðu búist við. Þá þurfti að hlusta. „Við byrjuðum með meiri ferskvöru, ávexti og grænmeti, en það var ekki að virka eins og við höfðum hugsað okkur. Við einfölduðum þetta bara og fórum í það sem hverfið var að biðja um,“ segir Kristinn. Mjólk, brauð, tannbursti, tannkrem og aðrar hversdagslegar nauðsynjar fengu sitt pláss. Gestir af hótelinu í næsta húsi og gistiheimilum í nágrenninu hafa líka nýtt sér verslunina. Sama þróun varð á veitingastaðnum. Heimilismatur í hádeginu var ekki hluti af upphaflegu
áætluninni en viðskiptavinirnir hjálpuðu þeim að finna þá leið. „Þeir hafa líka hjálpað okkur að aðlagast umhverfinu,“ segir Kristinn. Nú koma iðnaðarmenn, verktakar og starfsfólk fyrirtækja á svæðinu reglulega í hádegismat. Drífa nefnir einnig lögreglu, slökkvilið, Landhelgisgæslu og hermenn meðal gesta.
Í hádeginu er boðið upp á heimilismat ásamt opnum matseðli. Þau leggja áherslu á að hafa val, meðal annars fyrir þá sem vilja fisk og þá sem kjósa kjötrétt. Súpan er gerð frá grunni, brauð og kökur bökuð og sósurnar lagaðar á staðnum. Súrdeigspítsurnar hafa verið vinsælar, en samlokur úr pítsadeigi hafa líka eignast sinn aðdáendahóp. Ein þeirra hefur meira að segja farið í töluvert ferðalag. Drífa segir frá gestum sem keyptu samloku til að taka með í flug til Alicante. Þau borðuðu hins vegar á staðnum áður en lagt var af stað og samlokan beið því fram á kvöld. „Hún var borðuð í kvöldmat með góðu rauðvínsglasi á Alicante. Ég fékk meira að segja senda mynd,“ segir Drífa, augljóslega ánægð með þessa óvæntu ferðasögu. Á matseðlinum eru meðal annars salöt, vefjur, steikur, grillaður lax og rif með viskígljáa sem þau útbúa sjálf. Nú stendur til að endurnýja hluta matseðilsins.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 25
Á matseðlinum eru meðal annars salöt, vefjur, steikur, grillaður lax og rif með viskígljáa sem þau útbúa sjálf. Nú stendur til að endurnýja hluta matseðilsins.
„Við erum ekki að bylta öllu. Við ætlum aðeins að koma með nýjungar fyrir viðskiptavinina okkar,“ segir Kristinn. Ferðahópar eru einnig orðnir hluti af starfseminni. Gestir hafa komið frá Ítalíu, Kína, Bandaríkjunum og Indlandi, auk íslenskra hópa á ferð um Suðurnes. Drífa segir ánægjulegt þegar ein heimsókn leiði af sér þá næstu og hópar bendi öðrum á staðinn. Þótt erindin séu ólík leggja þau sömu áherslu á hlýjar móttökur og notalegt umhverfi, hvort sem gestir eru á ferðalagi, að fagna áfanga eða
koma við í hádeginu. Í kynningu staðarins draga þau þá hugsun saman með orðunum: „Public Deli, þar sem gott fólk, góður matur og góðar stundir mætast.“
Hann á morgnana, hún á kvöldin Þau hjón eru sjálf á staðnum alla daga en skipta með sér tímanum. Kristinn er morgunmaðurinn og mætir fyrstur. Hann heldur yfirleitt heim á milli fjögur og fimm og Drífa sinnir síðari hluta dagsins. Þau reyna að eiga frí saman á sunnudögum. Að öðru leyti snýst
þetta mikið um staðinn, starfsfólkið og gestina. Drífa segir fólk stundum velta fyrir sér hvernig það fari að því að vinna saman dag eftir dag. „Við erum búin að vinna saman svo lengi að við þekkjum hvort annað og leyfum hvort öðru að njóta sín. Hann er í sínu og ég í mínu.“ Hún sinnir meðal annars skrifstofuverkefnum auk þess að vera frammi meðal gesta. Þau segja nærveru eigendanna skipta máli en eru jafnframt fljót að nefna starfsfólkið. „Við erum með frábært starfsfólk,“ segir Drífa. „Vaktstjórarnir okkar hafa verið með okkur frá byrjun.“
„Eigum við?“ Þótt þau hafi upphaflega sett sér fimm ára markmið hafa komið fyrirspurnir um hvort þau vilji opna sambærilegan stað annars staðar.
„Við höfum alveg litið hvort á annað og sagt: Eigum við?“ segir Drífa. Kristinn viðurkennir að hugmyndin freisti. „Ef maður væri fimmtán árum yngri hefði maður ekki hikað.“ Þegar Drífu var nýlega bent á laust húsnæði niðri í Keflavík var svarið þó skýrt: „Nei, við erum hérna uppi á Ásbrú.“ Þau sjá breytingar í hverfinu, hús fá nýtt hlutverk og fleiri íbúar eru farnir að nýta sér staðinn. Drífa hafði frá upphafi lagt áherslu á að húsið yrði tekið í gegn að utan og gluggarnir bættir svo meiri birta kæmist inn. Nú horfa þau ánægð á umhverfið taka breytingum. En þegar þau eru spurð hvort þau sjái eftir því að hafa ráðist í reksturinn þarf ekki langan umhugsunartíma. „Ég held að við hefðum séð eftir því að hafa ekki gert þetta,“ segir Kristinn. „Þetta var draumur.“
26 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Séð yfir húsakost þeirra Konvin-félaga við Keilisbrautina. Konvin hótelið næst.
„Við sáum tækifæri þar sem aðrir sáu tóm hús“ Viðskiptafélagarnir Kristján Pétur Kristjánsson og Heiðar Heiðarsson kynntust fyrir tilviljun árið 2015. Nú reka þeir hótel og bílaleigu á Ásbrú, leigja út skrifstofur og eru að breyta fyrrverandi hóteli í 64 íbúðir. Í kringum reksturinn eru um 17 þúsund fermetrar af húsnæði — og þeir segjast hvergi nærri hættir.
Tilviljun sem vatt upp á sig
ÁSBRÚ Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Morgunverðurinn á Konvin hótelinu hefst klukkan fjögur. Þá eru fyrstu gestirnir þegar farnir að hugsa um flugið, bílinn eða næsta áfangastað. Þegar líður á morguninn hafa margir þeirra yfirgefið hótelið og nýr hópur er væntanlegur síðdegis. „Þetta er bara endurnýjun á hótelinu á hverjum einasta degi,“ segir Kristján Pétur. Félagi hans, Heiðar, bætir við að snemmbúinn morgunverður sé orðinn mikilvægur hluti þjónustunnar. Fyrir gesti sem eiga morgunflug getur skipt sköpum að fá að borða áður en lagt er af stað. Það er erfitt að sjá þessa iðandi starfsemi fyrir sér þegar þeir lýsa fyrstu kynnum sínum af húsinu. Það hafði staðið autt árum saman eftir brottför varnarliðsins. Lagnir voru úr sér gengnar, vatn hafði komist inn og veggirnir báru þess merki að enginn hefði haft áhyggjur af því hvernig þar væri umhorfs. Þeir félagar sáu hins vegar að herbergin og gangarnir gætu hentað fyrir hótel. „Við sáum tækifæri í að stækka reksturinn og flytja hann hingað.“
Kristján Pétur starfaði í bankageiranum og Heiðar í fasteignageiranum þegar leiðir þeirra lágu saman árið 2015. Þeir þekktust ekki áður en fundu fljótt sameiginlegan áhuga á fasteignum og framkvæmdum. Fyrstu verkefnin voru meðal annars íbúðarbyggingar í Mosfellsbæ og hótelverkefni á höfuðborgarsvæðinu. Tækifærið á Ásbrú kom þegar þeim bauðst að kaupa rekstur gistiheimilis við Valhallarbraut. Um svipað leyti keyptu þeir húsið sem nú hýsir Konvin hótelið. Þeir ráku um tíma gistingu í báðum húsunum, en færðu síðan meginreksturinn yfir í það stærra. „Þetta var svolítið djarft á sínum tíma,“ segir Heiðar um ákvörðunina að fjárfesta á svæðinu. Kristján Pétur segir starfandi gistirekstur hafa verið lykilatriði: „Við sáum að þetta virkaði og að það væri hægt að byggja ofan á það.“ Endurbæturnar urðu umfangsmiklar. Að sögn þeirra hafa lagnakerfi og rafmagn verið endurnýjuð, húsið tekið breytingum að utan og ný sameiginleg rými orðið til. Hótelið er nú með 134 herbergi, mörg þeirra rúmgóð þriggja og fjögurra manna herbergi. Þeir áforma að fjölga herbergjunum lítillega.
Viðskiptafélagarnir Kristján Pétur Kristjánsson og Heiðar Heiðarsson kynntust fyrir tilviljun árið 2015. Ný viðbygging á að bæta aðkomuna og færa veitingastað, bar og morgunverðaraðstöðu niður á jarðhæð. Núverandi morgunverðarsalur tekur um 60 til 70 manns í sæti, að þeirra sögn, en nýi salurinn verður mun stærri. Það kemur sér vel þegar hundruð gesta þurfa að komast í gegnum morgunverðinn á skömmum tíma. „Þetta er líka andlitið á húsinu,“ segir Heiðar um breytingarnar. Þeir viðurkenna þó fúslega að útlitið hafi kostað sitt. „Þetta eru dýrustu fermetrarnir sem við höfum farið í,“ segir hann og hlær.
og þeir gista. Þaktjöldin má taka af bílunum yfir veturinn og nýta þá áfram sem venjulega bílaleigubíla.
Frá keilusal að bílaleigu
Bílaleigan er m.a. með svona gistibíla.
Hótelið er aðeins hluti af starfseminni. Í fyrrverandi keilusal varnarliðsins er nú aðstaða bílaleigunnar Konvin Car Rental. Þar eru meðal annars hefðbundnir bílaleigubílar, húsbílar og bílar með þaktjöldum. Tengingin við hótelið lá beint við, segja þeir. Margir gestir þurfa bíl þegar þeir koma til landsins og geta nú nálgast hann á sama svæði
Hótelherbergi á Konvin hótelinu.
Í nærliggjandi húsi hafa þeir jafnframt komið upp Konvinsetrinu, með lokuðum skrifstofum,
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 27 sameiginlegri kaff iaðstöðu og fundarherbergjum. Þar eru ellefu skrifstofur auk aðstöðu fyrir háskólastarfsemi. Kristján Pétur segir að þar hafi myndast samfélag þótt hvert fyrirtæki hafi sitt eigið rými: „ Á föstudögum hittast allir og skiptast á að halda kaffiboð.“ Þeir segja ákvarðanir sínar um nærliggjandi hús líka hafa snúist um götuna sjálfa. Þegar hótelið tók að breytast vildu þeir sjá umhverfið þróast með því. „Þetta skiptir máli fyrir heildarmyndina,“ segir Heiðar. „Við vildum að það væri fallegt að koma hingað.“
Næsta stóra verkefni er annars eðlis. Fyrrverandi hótelhúsi við Valhallarbraut er nú breytt í 64 íbúðir, aðallega stúdíóíbúðir og tvegg ja herberg ja íbúðir. Þeir hyggjast eiga þær áfram og leigja út. Hluti þeirra gæti einnig nýst starfsfólki, enda sé húsnæði mikilvægt þegar mannaflafrekur rekstur stækkar.
Fólkið á bak við reksturinn Kristján Pétur áætlar að á bilinu 70 til 80 þúsund manns gisti á hótelinu á ári. Margir dvelja aðeins eina nótt. Gestir sem eiga snemmt
flug geta fengið morgunverð frá klukkan fjögur, farið með morgunrútu á flugvöllinn og, ef þeir koma á eigin bíl, skilið hann eftir við hótelið meðan þeir eru erlendis. Að sögn félaganna starfa um 80 til 100 manns við fyrirtækin eftir árstíðum. Sumt starfsfólkið var þegar á staðnum þegar þeir tóku við rekstrinum og hefur verið þar áfram. Aðrir hafa færst í aukna ábyrgð í gegnum árin. „Okkur hefur tekist vel að halda í gott fólk,“ segir Kristján Pétur. Heiðar tekur undir: „Fólk hefur fengið að vinna sig upp hjá okkur.“ Á bak við breytingarnar á húsunum er líka fastur hópur iðnaðarmanna. Þeir segja eigin smiði hafa unnið að endurbótum á svæðinu árum saman, auk fjölda verktaka og þjónustuaðila sem þeir kaupa vinnu af.
„Ásbrú á svo mikið inni“ Þegar þeir komu fyrst á Ásbrú upplifðu þeir svæðið sem hálftómt. Nú benda þeir á íbúa, skóla, íþróttastarf, gistingu og fyrirtæki sem fylla hverfið lífi. Þeir telja að starfsemin þar sé meiri en margir átta sig á við fyrstu sýn.
Konvin setrið er skrifstofuhótel við Keilisbraut þar sem nokkur fyrirtæki og Háskóli Íslands hafa komið sér fyrir.
„Ásbrú er hverfi í Reykjanesbæ, alveg eins og Keflavík, Njarðvík og Hafnir,“ segir Kristján Pétur. Honum finnst umræðan stundum taka of lítið mið af því hversu margir búi, vinni og dvelji þar á hverjum degi. Þeir sjá enn rými fyrir meiri þjónustu á svæðinu og eiga sjálfir húsnæði sem bíður næsta verkefnis. Þeir vilja velja starfsemi sem
hæfir staðnum og þeirri ásýnd sem þeir hafa verið að byggja upp. Samstarf þeirra félaga sem hófst með tilviljunarkenndu spjalli er því orðið að samfelldu verkefni við að endurnýja hús, skapa rekstur og móta hluta af Ásbrú. Þegar þeir eru spurðir hvort nú fari að hægjast um svarar Kristján Pétur án þess að hika: „Við erum hvergi nærri hættir.“
64 íbúðir verða innréttaðar við Valhallarbraut.
Þessu húsi er verið að umbreyta úr hóteli í smáíbúðir.
NÝJUSTU ÞÆTTIRNIR ERU Á VF.IS
Samhliða uppbyggingu okkar á Ásbrú sýnum við samfélagslega ábyrgð
28 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Upplýsingar um hættuna forsenda þess að halda stöðunni grænni Lögreglustjóri vill skýrari upplýsingar um ákvarðanir og endurkomu eftir mögulegan atburð Góð upplýsingagjöf er ein af forsendum þess að niðurstaða áhættumats Grindavíkur geti áfram verið græn. Þetta sagði Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, á opnum fundi í Gjánni með Grindvíkingum. Hún minnti á að óvissustig almannavarna væri enn í gildi og að áfram þyrfti að tala skýrt um þá hættu sem væri til staðar. Margrét sagði vinnuna við áhættumatið hafa einkennst af aukinni samvinnu og því að ólík sjónarmið hefðu fengið að heyrast. Öryggi Grindvíkinga væri sameiginlegt verkefni samfélagsins og viðbragðsaðila.
Stöðuupplýsingar á sex klukkustunda fresti Í umræðum eftir erindin lagði Margrét áherslu á að íbúar, gestir og þeir sem færu um Grindavík þyrftu að vita hver staðan væri, hvaða leiðir væru í boði og hvernig rýming færi fram. Upplýsingar um áhættuna væru hluti af örygginu, þótt niðurstaða núverandi mats væri græn. Hún sagði jafnframt mikilvægt að viðbragðsaðilar útskýrðu betur ákvarðanir sínar þegar til atburðar kæmi. Markmiðið væri að birta stöðuupplýsingar á um sex klukkustunda fresti, einnig þegar engar stórar breytingar hefðu orðið, svo fólk vissi hvað væri verið að gera og hvaða gögn væru til skoðunar.
Endurkoma eftir atburð ræðst af aðstæðum Margrét ræddi einnig hvers fólk gæti vænst eftir nýjan atburð og rýmingu. Að hennar sögn gæti tekið um sólarhring að afla þeirra gagna sem þyrfti til að leggja heildstætt mat á aðstæður. Fólk ætti því almennt ekki að gera ráð fyrir að ákvörðun um endurkomu lægi fyrir fyrr en eftir þann tíma. Undantekningar gætu þó orðið, til dæmis ef aðstæður leyfðu fyrr aðgang til verðmætabjörgunar. Þá nefndi hún um 12 til 14 klukkustundir sem mögulegan tíma en undirstrikaði að slíkt færi alfarið eftir hverjum atburði. Fyrirtæki þyrftu jafnframt að hafa áætlanir um hvaða verðmætum yrði forgangsraðað. Margrét sagði unnið að því að gera upplýsingar um þrepaskipt ferli eftir atburði aðgengilegar á vef almannavarna. Með skýrari upplýsingum um ferlið væri hægt að draga úr óvissu og byggja upp traust þegar mest reyndi á.
„Núna er færi“ til að varða Grindvíkingum leiðina heim Bæjarstjóri vill að niðurstaða áhættumatsins leiði til framfara í húsnæðismálum Niðurstaða nýrrar vinnu við áhættumat Grindavíkur markar tímamót fyrir bæinn, að mati Péturs Markan bæjarstjóra. Í erindi sínu á opnum fundi í Gjánni á dögunum sagði hann næsta stóra verkefni vera að skapa Grindvíkingum raunhæfa leið til að snúa heim. „Núna er færi,“ sagði Pétur og líkti stöðu bæjarins við báta sem hefðu legið í vari meðan óveður gekk yfir en sæju nú tækifæri til að halda áfram. Það tækifæri þyrfti að nýta af skynsemi. Pétur sagði þrjú markmið hafa verið sér ofarlega í huga þegar hann tók til starfa í júlí: að opna skólann, nýta nýtt áhættumat og koma húsnæði í eigu Þórkötlu aftur
í notkun fyrir Grindvíkinga. Þessi verkefni tengdust öll því að „varða leiðina heim“. Hann sagði eftirspurn eftir húsum í Grindavík og lagði áherslu á að markmið bæjarins væri að fá fólkið sitt heim. Áhættumat og skólahald væru mikilvæg skref í þeirri vegferð, en lausnir í húsnæðismálum skiptu sköpum fyrir endurreisn samfélagsins.
Bæjarstjórinn sagði niðurstöðu matsins byggjast á viðamikilli vinnu sérfræðinga og á því að hlustað hefði verið á heimamenn. Hún væri ekki fyrir fram ákveðin. Grindavíkurbær myndi fylg ja matinu eftir, vakta forsendur þess og uppfæra eftir því sem bærinn og aðstæður þróuðust. Í umræðum eftir erindin sagði Pétur að tillögur um húsnæðiskaup þyrftu að endurspegla fjölbreyttar aðstæður Grindvíkinga. Lausnirnar yrðu að vera aðgengilegar og taka mið af þeim veruleika sem fólk byggi við. Hann taldi mikilvægt að
hugmyndir og tillögur lægju fyrir í október. Pétur kallaði jafnframt eftir betri upplýsingum til íbúa um þá skilmála sem kynnu að fylgja kaupum á húsnæði meðan náttúruvá væri enn til staðar. Hann nefndi sem dæmi að ræða þyrfti hvort kaupendur ættu að hafa einhvers konar skilarétt í tiltekinn tíma. Slík ákvæði hafa ekki verið ákveðin, en að hans mati þurfa sérstakir og skýrir skilmálar að liggja fyrir áður en fólk tekur ákvörðun um kaup.
Öryggi, skólahald og húsnæði metin græn í Grindavík Dóra Hjálmarsdóttir segir niðurstöðuna byggja á virkri vöktun, viðbúnaði og áætlunum um rýmingu Öryggi fólks í Grindavík, skólahald og húsnæði til búsetu eru öll metin græn í nýrri vinnu við áhættumat bæjarins. Niðurstaðan er háð því að nauðsynlegum öryggisaðgerðum sé viðhaldið og að brugðist verði við ef forsendur breytast. Dóra Hjálmarsdóttir verkfræðingur hjá Verkís fór ítarlega yfir matið á opnum fundi í Grindavík.
Þá er einnig gengið í hús til að ná til þeirra sem kunna að missa af boðunum.
„Það er hægt að búa við þessa áhættu, það er hægt að mæta henni með aðgerðum,“ sagði Dóra í lok erindis síns. Hún lagði jafnframt áherslu á að náttúruváin væri enn til staðar og að matið þyrfti að þróast með aðstæðum.
Í mati á skólahaldi var bæði horft til daglegs starfs og þess hvernig tryggja mætti samfellu í námi ef rýma þyrfti bæinn um skemmri eða lengri tíma. Dóra sagði einnig þurfa að tryggja örugga rýmingu barna á skólatíma og samfelldan stuðning við þau. Hún nefndi að boðið væri upp á valkvætt félags- eða íþróttastarf utan skólatíma meðan foreldrar væru enn við vinnu. Með því væri hægt að mæta þeirri áhyggju sem kom fram í fyrra áhættumati um börn án eftirlits í bænum. Við mat á húsnæði var meðal annars litið til ástands bygginga og
Rýmingargeta og daglegt öryggi Vinnan beindist fyrst og fremst að öryggi innan varnargarðanna: öryggi fólks í daglegu lífi, við rýmingu og við endurkomu. Dóra nefndi meðal nauðsynlegra aðgerða vöktun sprungna og annarra hættusvæða, viðhald girðinga
og merkinga, greiðar flóttaleiðir, skýrar upplýsingar og æfingar. Viðbragðsaðilar fóru yfir fyrri atburði og rýmingar og mátu getu sína til að rýma bæinn ef nýr atburður verður. Að sögn Dóru er niðurstaðan sú að unnt sé að rýma Grindavík innan þess tíma sem talinn er tiltækur, að því gefnu að lykilþættir viðbúnaðar virki og tekið sé mið af fjölda og samsetningu fólks í bænum. Hún nefndi rýmingartíma upp á um eina klukkustund til eina klukkustund og fimmtán mínútur. Viðvaranir bygg jast meðal annars á SMS-boðum og flautu.
Sérstaklega hugað að börnum
lóða, afmörkunar hættulegra svæða og þess hvort veitur gætu sinnt íbúum. Dóra sagði tímabundna dvöl í húsi án vatns eða rafmagns aðra stöðu en búsetu; virkar veitur væru grunnforsenda hennar.
Mat sem breytist með aðstæðum Dóra lýsti áhættumatinu sem lifandi verkfæri. Fylgst verði með stöðu einstakra aðgerða og vísað í umferðarljósakerfi. Öryggið er þar forsenda hinna málaflokkanna: fari það á gult verður heildarniðurstaðan gul, jafnvel þótt skólahald og húsnæði séu enn metin græn. Hún sagði þetta fyrstu niðurstöður vinnunnar. Frekari skoðun þyrfti meðal annars að beinast að starfsemi fyrirtækja, rýmingaráætlunum þeirra og reglum um starfsemi þegar hætta steðjar að.
„Óhætt að vera, starfa og búa í Grindavík“ Skarphéðinn Berg Steinarsson segir nýtt áhættumat skapa grundvöll fyrir næstu skref í endurreisn bæjarins Niðurstaða endurskoðaðs áhættumats er að óhætt sé að vera, starfa og búa í Grindavík. Hætta er þó enn til staðar og óvissustig almannavarna gildir áfram. Þetta kom fram í erindi Skarphéðins Bergs Steinarssonar, verkefnisstjóra í málefnum Grindavíkur hjá forsætisráðuneytinu, á opnum fundi í Gjánni. Skarphéðinn sagði áhættumatið eiga að vera leiðarljós um hvernig samfélagið umgengst þá hættu sem enn er fyrir hendi. Öryggi fólks verði að vera í fyrirrúmi, en hægt sé að mæta hættunni með vöktun, viðbúnaði og öðrum mótvægisaðgerðum.
Reynslu heimamanna gefið aukið vægi Skarphéðinn rifjaði upp gagnrýni Grindvíkinga á fyrra áhættumat og
hvernig það var unnið. Það hefði ekki notið trausts heimamanna. Við endurskoðunina hefði því ekki aðeins verið farið yfir niðurstöðurnar heldur einnig breytt vinnulaginu. Reynslu þeirra sem dvelja og starfa í bænum hefði verið gefið aukið vægi. Hann sagði vel á annað hundrað manns hafa komið að vinnunni með einum eða öðrum hætti. Þar á meðal væru fulltrúar Grindavíkurbæjar, lögreglu, almannavarna og sérfræðingar á ýmsum sviðum.
Dóra Hjálmarsdóttir hjá Verkís hefði haldið utan um vinnuna. Niðurstöðurnar sem kynntar voru á fundinum varða fyrst og fremst daglegt öryggi í Grindavík, skólahald og búsetu. Þær verða grunnur að heildstæðu áhættumati sem ráðgert er að ljúka í október eða nóvember.
Undirbúningur að kaupum á húsnæði Skarphéðinn greindi frá því að ríkisstjórnin hefði fjallað um niðurstöðurnar fyrr um daginn. Hún teldi forsendur fyrra mats síns um skólahald, frá 10. apríl, hafa breyst. Áfram þyrfti þó að fylgjast náið með þróun mála og tryggja að
vöktun, viðvörunarkerfi og rýmingaráætlanir væru virk. Sérstaklega yrði að gæta að hagsmunum og velferð barna við ákvarðanir um búsetu og skólahald. Að sögn Skarphéðins skapa niðurstöðurnar einnig grundvöll til að hefja markvissan undirbúning, í áföngum, að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum kjósi þeir það. Útfærsla kaupanna liggur þó ekki fyrir. Hann sagði meðal annars þurfa að ákveða verð, kjör, tímasetningar og hvort fólk gæti keypt annað hús en það sem það bjó í áður. Vonast væri til að hægt yrði að kynna tillögur um fyrirkomulagið þegar liði á október.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 29
Hvernig er að vera ungmenni í Suðurnesjabæ í dag? Við erum hópur ungmenna úr bæði Garði og Sandgerði. Við höfum alist upp hér, gengið í skólana hér, æft íþróttir hér, eignast vini hér og tekið þátt í samfélaginu okkar. Suðurnesjabær er heimilið okkar og okkur þykir vænt um það. Að vera ungmenni í Suðurnesjabæ getur verið frábært. Hér er gott fólk, öflugt íþrótta- og tómstundastarf og samfélag sem við vitum að getur verið ótrúlega sterkt ef allir standa saman. En vá, hvað við erum orðin þreytt. Þreytt á rígnum. Þreytt á niðurtalinu. Þreytt á því að heyra Garð og Sandgerði sett upp hvort á móti öðru. Og kannski mest þreytt á því hvernig fullorðið fólk talar stundum hvert við annað og hvert um annað þegar kemur að málefnum sveitarfélagsins. Alltaf er verið að hjóla í manninn en ekki málefnið. Við erum eitt sveitarfélag. Það eru liðin átta ár frá sameiningu Garðs og Sandgerðis. Í sveitarstjórnarkosningunum í maí var mikið talað um samstöðu og framtíð Suðurnesjabæjar. „Tvær rætur – eitt samfélag“, „Saman mótum við framtíðina“, „Sterkari saman“ og „Saman til sóknar“ voru kjörorð flokkanna í kosningunum. Falleg orð. En falleg orð skipta litlu máli ef þeim fylgja ekki gjörðir. Nú stendur sveitarfélagið frammi fyrir stórri ákvörðun um framtíð íþróttaaðstöðu. Ákvörðun sem snýst ekki bara um hvar eigi að setja gervigras. Hún snýst um miklu meira en það. Hún snýst um hvernig Suðurnesjabær á að líta út eftir 20 eða 30 ár. Við viljum lokaða gervigrashöll á svæðinu milli byggðakjarnanna. Við vitum vel að slík framkvæmd kostar meira í dag. Við erum ekki að halda öðru fram. En stundum þarf að þora að horfa lengra en bara til dagsins í dag. Bæjarstjórn má ekki bara horfa til næstu fjárhagsáætlunar eða næsta kjörtímabils. Hún þarf líka að horfa
Af hverju ekki í miðjunni?
til næstu 20, 30 og 40 ára, því eftir 30 ár verðum það við sem búum hér. Við sem erum ung í dag verðum þá fólkið sem rekur fyrirtækin, vinnur í skólunum, þjálfar börnin, situr í stjórnum félaganna, kaupir húsnæði, greiðir gjöld til sveitarfélagsins og elur mögulega upp næstu kynslóð Suðurnesjabæjar. Við munum erfa þær ákvarðanir sem eru teknar í dag.
Þetta er meira en fótboltavöllur Lokuð gervigrashöll væri ekki bara hús fyrir fótbolta. Fótbolti er stór hluti af íþróttastarfi í Suðurnesjabæ og með lokaðri höll væri hægt að æfa allt árið óháð veðri. Við sem búum hér vitum hvernig íslenskur vetur er: rok, rigning, kuldi og snjór. Við vitum líka að barn sem mætir þrisvar í viku á fótboltaæfingu fyrst og fremst af því að því finnst gaman er ekki endilega að fara að mæta á gervigrasvöllinn til að fara á æfingu úti í kulda og roki í janúar. Það eru einmitt börnin sem við megum ekki gleyma. Ekki bara þau sem stefna á afreksíþróttir, heldur líka barnið sem mætir til að hitta vini sína. Barnið sem þarf hreyfinguna. Barnið sem finnur sína félagslegu tengingu á æfingu. Barnið sem þarf einfaldlega einhvers staðar að tilheyra. Íþróttir snúast um miklu meira en bara árangur. Og höllin þyrfti ekki bara að þjóna börnum eða fótboltafólki. Hún gæti nýst fólki á öllum aldri og með ólík markmið með hreyfingu, hvort sem fólk æfir til keppni, heilsu, félagslífs eða einfaldlega sér til ánægju. Þar væri einnig hægt að skapa aðstöðu sem gæti nýst fólki með fötlun til íþróttaiðkunar og hreyfingar. Ávinningurinn myndi heldur ekki stoppa við dyrnar á höllinni. Með því að færa stóran hluta knattspyrnunnar þangað myndi losna um pláss í íþróttahúsunum okkar. Það gæti skapað meira svigrúm fyrir
körfubolta, handbolta, júdó og aðrar íþróttir sem þurfa á húsunum að halda. Íþróttahúsin okkar eru mikið nýtt. Það er í raun frábært vandamál að glíma við, fólk vill hreyfa sig. En hugsið ykkur hvað við gætum gert ef við hefðum meira pláss. Fleiri æfingar, fleiri íþróttir, meira framboð, aðgengilegri hreyfing, fleiri möguleikar fyrir börn, ungmenni, fullorðna, eldra fólk og fatlað fólk. Höllin væri því ekki bara fjárfesting í fótbolta. Hún væri fjárfesting í heilsu, hreyfingu og samfélaginu öllu.
Hvar eigum við að sameinast ef ekki í miðjunni? Fyrir okkur snýst hugmyndin um að byggja á milli byggðarkjarnanna líka um eitthvað miklu stærra, sameiningu. Ef markmiðið er í alvörunni að Garður og Sandgerði verði eitt samfélag þurfum við einhvern tímann að byrja að byggja eitthvað sem tilheyrir ekki öðrum kjarnanum, eitthvað sem er okkar allra. Við getum haldið áfram næstu áratugina að rífast um hvor byggðakjarninn fær hvað eða við getum ákveðið að einhvers staðar þurfi nýja Suðurnesjabæjarsamfélagið að byrja.
Við viljum geta séð framtíðina okkar hér Það er kannski erfiðasti hlutinn fyrir okkur að skrifa þetta: Það er ekki alltaf auðvelt að vera ungmenni í Suðurnesjabæ og hlusta á umræðuna um sveitarfélagið okkar þessa dagana. Við erum ekki beint að kafna úr jákvæðni. Þegar umræðan einkennist af rifrildi, ríg og neikvæðni verður tilhugsunin um að vera hér til framtíðar ekki jafn spennandi og hún ætti að vera. Við viljum búa hér. Við viljum geta hugsað okkur að kaupa okkar fyrsta húsnæði hér, stofna fjölskyldu hér, ala börnin okkar upp hér, sjá þau ganga í sama skóla og við, æfa íþróttir og taka þátt í samfélaginu. En þá þurfum við að sjá að sveitarfélagið sé líka að hugsa um okkar framtíð. Við gerum okkur grein fyrir því að fólk getur haft ólíkar skoðanir á því hvernig best sé að byggja upp sveitarfélagið. En þegar teknar eru ákvarðanir sem móta samfélagið til áratuga skiptir máli að horfa til þeirra sem eiga eftir að búa við afleiðingar þeirra lengst. Við erum unga fólkið sem mun lifa með þeim ákvörðunum sem eru teknar í dag. Þess vegna vonumst við til að þegar horft er til framtíðar verði líka hlustað á þá sýn sem við höfum á samfélagið sem við viljum búa í. Við erum úr Garði og Sandgerði. Sum okkar hafa sterkar rætur öðrum megin, önnur hinum megin. En það sem við eigum sameiginlegt er: Við erum unga fólkið í Suðurnesjabæ. Við viljum ekki erfa ríginn. Við viljum erfa samfélag sem hafði hugrekki til að horfa lengra en til næstu kosninga. Samfélag sem ákvað að fjárfesta í börnum og ungmennum. Samfélag sem hætti að spyrja: „Hvorum megin á þetta að vera?“ og byrjaði að spyrja: „Hvað er best fyrir Suðurnesjabæ til framtíðar?“
Því framtíðin sem þið eruð að taka ákvörðun um í dag er framtíðin okkar. Heba Lind Guðmundsdóttir, 20 ára úr Garði Lárus Einar Ólafsson, 17 ára úr Sandgerði Hafþór Ernir Ólason, 20 ára úr Garði Amelia Rún Fjeldsted, 22 ára úr Sandgerði Bjarni Dagur Jónsson, 17 ára úr Garði Elfar Þór Sæmundsson, 19 ára úr Sandgerði Stefanía Lind Guðmundsdóttir, 18 ára úr Garði Gunnlaugur Yngvi Elínarson, 18 ára úr Sandgerði Hafdís Birta Hallvarðsdóttir, 22 ára úr Garði Aleksandra Szymajda, 17 ára úr Sandgerði Friðrik Smári Bjarkason, 23 ára úr Garði Thelma Sif Róbertsdóttir, 17 ára úr Sandgerði Brynjar Ægir Freysson, 18 ára úr Garði Gunnar Karl Þorgeirsson, 18 ára úr Sanderði Hafþór Örvar Sveinsson, 21 árs úr Garði Emilía Ósk Guðmundsdóttir, 18 ára úr Sandgerði
Til leigu
Skrifstofur • Vinnustofur • Geymslur Ásbrú fasteignir ehf. kynnir til leigu við Flugvallarbraut 752 Ásbrú Reykjanesbæ Um er að ræða ýmsar stærðir af skrifstofum eða frá 17,7 m² til 200 m². Tilvalið fyrir einyrkja eða smærri fyrirtæki. Innifalið í leigu er aðgengi að eldhúsi með kaffi, þrifum á sameign, hiti, rafmagn og jafnvel interneti og húsgögnum. Pool borð er t.d. í sameiginlegu rými. • MJÖG HAGSTÆÐ LEIGA Í BOÐI. • NÆG BÍLASTÆÐI.
Upplýsingar í info@235.is
30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fúll á móti sendir grein í Víkurfréttir Í vor og sumar birtu Víkurfréttir tvær aðsendar greinar um fiskvinnslu okkar við Brekkustíg 22–24 í Njarðvík. Sú fyrri birtist 7. maí undir fyrirsögninni „Heilbrigðiseftirlitslaus fiskvinnsla“, sú seinni 30. júní. Þar sagði að rusl fyki frá vinnslunni um hverfið, að fiskblandað vatn læki út á götu og að vinnslan hefði starfað árum saman án leyfis. DV skrifaði svo frétt upp úr greinunum 5. júlí. Greinarnar voru fullar af rangfærslum og fullyrðingum sem enginn hafði kannað. Samt birtust þær tvisvar, án þess að nokkur athugaði hvort fótur væri fyrir þeim. Svo einfalt virðist það vera. Sá sem er fúll og pirraður út í nágrannann þarf hvorki að tala við hann né kynna sér málið. Hann hugsar bara með sér: „Ég er fúll á móti, ég ætla að senda inn grein í Víkurfréttir.“ Hann fær útrás fyrir reiðina og ber enga ábyrgð á neinu. Blaðið birtir rausið athugasemdalaust. Þó var ekkert smámál á ferðinni: fyrirtæki í bænum, með tugi manna í vinnu, var sakað um að starfa án eftirlits. Í bæjarblaði, þar sem stutt er á milli fólks, hefði ritstjórnin átt að kynna sér málið áður en greinin fór í birtingu. Ég ákvað á sínum tíma að svara ekki. Við áttum þá í viðræðum við embættismenn um lausn á málinu og ég vildi ekki að hún réðist í blaðagreinum. Það var mitt val og ég hefði hvenær sem er getað sent inn svar. En viðræðurnar skiluðu ekki árangri og nú er kominn tími til að okkar hlið heyrist.
Hvað gerðist svo? DV hafði ekki heldur samband við okkur og það gerði greinarhöfundurinn ekki heldur. Hann segist hafa kvartað ítrekað til heilbrigðiseftirlitsins „ásamt fleiri íbúum að því er best er vitað“. Hann vissi það sem sagt ekki. Til okkar barst aldrei bein kvörtun, hvorki frá honum né öðrum nágranna. Kvörtunin barst okkur að lokum frá heilbrigðiseftirlitinu, löngu síðar. Við vitum satt að segja ekki hver Ólafur Gunnarsson, höfundur greinanna, er. Í þjóðskrá finnum við engan með hans nafni með lögheimili við Brekkustíg. Hann hefði hvenær sem er getað kíkt við og rætt málin. Í upphafi ársins störfuðu 38 manns hjá Premium of Iceland, allt fólk sem býr hér á Suðurnesjum og langflest í Reykjanesbæ. Síðan hefur starfsfólki fækkað mikið vegna umfjöllunarinnar og óvissunnar sem henni fylgdi, og áhrifin komu strax fram. Nú hefur okkur verið gert að loka vinnslunni og starfsfólkinu hefur verið sagt upp. Víkurfréttir birtu fréttatilkynningu frá okkur um það 1. október og fyrir það þakka ég. Fram að því hafði enginn á blaðinu spurt um okkar hlið.
Um hvað snýst málið? Fiskvinnsla þarf ekki starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti. Síðan 2022 nægir að skrá starfsemina og eftirlitinu ber að staðfesta skráninguna sé starfsemin í lagi. Við sóttum um skráningu og fengum synjun. Ástæðan var hvorki hreinlæti, mengun né umgengni. Skipulagsfulltrúi bæjarins taldi að húsið stæði á svæði sem samkvæmt aðalskipulagi á einhvern tímann að fá aðra notkun. Það
er svipað og ef bifreiðaskoðun neitaði bíl um skoðun af því að bærinn hygðist einhvern tímann breyta götunni sem bíllinn stendur við í göngugötu. Ekkert slíkt skilyrði er að finna í reglugerðinni. Fyrir tveimur árum felldi úrskurðarnefnd úr gildi nákvæmlega sams konar ákvörðun sama eftirlits, um fiskvinnslu í sama bæ. Á lóðinni okkar hefur fiskur verið unninn í hálfa öld og á reitnum í kring í að minnsta kosti hundrað ár. Heilbrigðiseftirlitið staðfestir það sjálft: þar hefur „um áratugaskeið verið rekin fiskvinnsla“. Byggðin óx af vinnslunni, ekki öfugt. Sumt í greinunum var rétt. Fráveitubrunnur við húsið stíflaðist og úr honum lak út á Bakkastíg. Það var ekki í lagi og það var lagað eins fljótt og hægt var. Við höfum alltaf lagt okkur fram um að umbúðir og annað rusl berist ekki frá okkur. Í verstu veðrum hefur vissulega eitthvað fokið, rétt eins og rusl úr tunnum nágrannanna hefur fokið yfir til okkar. En „heilbrigðiseftirlitslaus“ var vinnslan aldrei. Við höfum öll þau leyfi og vottanir sem Matvælastofnun krefst af matvælavinnslu, og raunar fleiri en þörf er á. Um 85% framleiðslunnar fara til Evrópu, aðallega Frakklands, og enginn selur matvæli þangað án strangs opinbers eftirlits. Allt þetta hefði komið fram í einu símtali.
Hver ber ábyrgðina? Aðsend grein er á ábyrgð höfundar. En það er ritstjórnin sem ákveður að birta hana og með birtingunni lánar blaðið greininni trúverðugleika sinn. Lesandinn spyr ekki hvort greinin hafi verið aðsend. Hann les einfaldlega í bæjarblaðinu að fiskvinnslan sé eftirlitslaus og trúir því. Sé ekkert athugað getur hver sem er, af hvaða hvötum sem er, sent inn hvað sem er um hvern sem er. Þá ræður sá ferðinni sem er reiðastur, ekki sá sem hefur rétt fyrir sér. Greinarnar loka ekki vinnslunni, en þær eiga sinn þátt í tjóni sem nú nemur hundruðum milljóna króna. Þær mótuðu þá mynd sem bæjarbúar, viðskiptavinir og aðrir fengu af okkur, og það bitnaði ekki síst á starfsfólkinu okkar, sem nú hefur allt fengið uppsagnarbréf. Þögnin var mín ákvörðun og á henni ber ég ábyrgð. En hún breytir ekki því að blaðið birti einhliða ásakanir, tvisvar, án þess að spyrja okkur nokkurn tíma. Því fylgir ábyrgð að gefa út bæjarblað. Í litlu samfélagi getur ein grein haft mikil áhrif og þá skiptir máli að blaðið leiti eftir báðum hliðum áður en ásakanir eru birtar. Allt sem hér stendur má sannreyna og dyrnar að Brekkustíg 22–24 standa opnar hverjum þeim sem vill kynna sér málið áður en hann skrifar um það. Gylfi Þór Markússon Höfundur er framkvæmdastjóri Premium of Iceland ehf.
Liggja næstu sóknarfæri Íslands í heilbrigðismálum í forvörnum? Í Morgunblaðinu föstudaginn 25. september sl. birtist grein eftir doktor David Barzilai, lækni og kennara við læknadeild Harvard-háskóla. Tilefnið var fyrirlestur hans í Hörpu þann sama dag: „Heilsan til framtíðar“ þar sem hann hugleiddi svör við spurningunni hér að ofan. Leið mín lá því þangað. Gæði íslenskrar heilbrigðisþjónustu á meðhöndlun sjúkdóma þegar þeir koma fram eru óumdeild, greining þeirra og nánd við starfsfólk hennar af sama meiði. Við lifum lengur en flestir og virðumst býsna hamingjusöm þjóð, tökum höndum saman þegar á reynir og sýnum hvert öðru alla jafna mannkærleika. Kjör þessarar þjóðar eru því almennt eftirsóknarverð, auðlindir í náttúru og víðátta óumdeild og aðstæður til langlífis því ákjósanlegar. Læknisfræðinni fleygir stöðugt fram í meðhöndlun sjúkdóma. Það sem áður lagði fólk að velli er nú meðhöndlað með inngripum sem þóttu óg jörleg eða skildu eftir sig aukaverkanir sem leiddu til verulegrar skerðingar lífsgæða. Stærstu landvinningarnir í meðhöndlun sjúkdóma felast þó í því að koma í veg fyrir þá eða greina á því stigi þar sem þeir eru auðlæknanlegir með sem minnstri fórn á lífsgæðum. Bætt næringarástand þjóðar, bólusetningar við smitsjúkdómum og áskoranir lýðheilsumarkmiða eru allt þættir sem fleytt hafa okkur þangað sem við erum stödd í dag. Sem dæmi um áhrifamátt breyttra lífsvenja á heilsu má nefna að á árunum 1981-2006 dróst dánartíðni vegna kransæðasjúkdóma saman um nær 80% meðal Íslendinga á aldrinum 25-74 ára. Greining vísindamanna sýndi að 73% lækkunarinnar mátti rekja til lækkunar helstu áhættuþátta þjóðarinnar, hás kólesteróls, hás blóðþrýstings og reykinga. Meðferð þeirra sem þegar voru með hjartasjúkdóm skýrði um fjórðung lækkunarinnar. Hins vegar hafa efnaskiptatengdir áhættuþættir eins og offita og sykursýki, sem þróast á löngum tíma, fengið aukið vægi í heilbrigðisþjónustunni. Staðreyndin er óumflýjanlega sú að við deyjum öll að lokum þrátt fyrir allt. Lífið er ævintýraferð, þar sem við fáum happdrættismiða afhentan strax í móðurkviði, sumir eru heppnari en aðrir og öðrum tekst betur en hinum að ávaxta þau verðmæti sem í miðanum leynast, auðnu hvers og eins. Það er óumdeilt markmið góðrar heilbrigðisþjónustu að lengja lífið og um leið auka verðmæti hvers dags sem lifað er. Um 2,1% heilbrigðisútgjalda á Íslandi renna til forvarna, samanborið við 3,4% að meðaltali í OECD-ríkjunum. Sé svo, sem haldið er fram, að við höfum náð lengra en nokkru sinni í að meðhöndla greinda sjúkdóma, með tilheyrandi kostnaði og þolmörkum sé þar náð, þá má með rökum halda því fram að kominn
sé tími til að færa meiri fjármuni til þeirra þátta sem geta gefið vísbendingar um þróun sjúkdóma sem leynast í okkur án augljósra einkenna og bregðast við þegar vísbendingarnar kalla á slíkt. Orðið „skimun“ hljómar hátt í þeirri viðleitni, þar sem leitað er eftir einstaklingsviðmiðuðum vísbendingum sem bregðast skal við. Bent var á í viðtali við þá félaga David Barzilai og Thor Aspelund í Kastljósi kvöldsins 1. október að við hefðum hugsanlega möguleika á að nýta gervigreindina til að safna nokkurs konar vísbendingabók um einstaklinginn, byggða á erfðamengi hans og lífsmynstri. Íslendingar eiga þar góðan arf í þeim lífssýnum sem þegar hefur verið safnað og geymd eru í gagnagrunni. En á meðan við bíðum tækninnar er gott að horfa til þeirra verkfæra sem við þegar höfum til að greina þá sjúkdóma sem ómeðhöndlaðir leiða til ótímabærs dauðdaga. Á þeirri vogarskál vegur greining á krabbameini hátt. Á vef Landlæknis má lesa að tæpur þriðjungur þjóðarinnar deyr úr illkynja æxlum. Það er einnig ófrávíkjanleg staðreynd að þeim mun fyrr sem slík æxli greinast er líklegra að hægt sé að fjarlægja þau með brottnámi, eyða þeim með geislum eða lyfjameðferð, án þess að sú meðferð leiði til verulegrar skerðingar lífsgæða. Á þessu byggir öll hugmyndafræði um skimanir fyrir illkynja æxlum, þegar tekin eru blóð- og vefjasýni eða teknar röntgenmyndir til að komast að hinu sanna. Rétt er að hafa í huga að á árum áður leiddi illkynja æxlisvöxtur í leghálsi margar ungar konur á barneignaaldri til dauða, en með skipulögðum forvarnarskimunum, sem hófust 1964 með stofnun Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands, hefur tekist að fækka dauðsföllum af völdum þessarar meinsemdar um 90%. Forsenda þessa árangurs er að krabbameinið á sér aðdraganda í frumubreytingum, mislangt gengnum þegar þær greinast og hægt er að fjarlægja þær áður en breytingar verða illkynja, án lífsgæðaskerðingar fyrir viðkomandi. Auk þess hefur uppruni þeirra verið rakinn til veirusýkingar sem verður til við kynmök og hægt er að fyrirbyggja með bólusetningu áður en til slíkra kynna er stofnað. Þá er einnig aðgengi að sýnatöku tiltölulega auðvelt, þótt hún geti falið í sér neikvæða upplifun fyrir einstaklinginn sem á í hlut. Af svipuðum meiði eru skimanir fyrir illkynja æxlisvexti í ristli. Einnig hér á krabbameinið sér forsögu í myndun sepa í slímhúð ristilsins, sem geta þróast í krabba-
mein ef ekkert er aðhafst, en tiltölulega auðvelt er að fjarlægja þau með ristilspeglun og brottnámi áður en illkynja vöxtur myndast. Vandamálið hér er hins vegar flóknara aðgengi að sýnatökustað. Því hafa heilbrigðisyfirvöld auðveldað sér skimunarferlið með því að skima eftir blóði í hægðum, tengdu sáramyndun í yfirborðsþekju slímhúðarinnar. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna. Árlega greinast 260 konur hér á landi með brjóstakrabbamein, mislangt gengið. Í flestum tilfellum eru konur eldri en 50 ára við greiningu, en konur á öllum aldri eftir kynþroska geta þó greinst. Konur á aldrinum 40–70 ára fá í dag boð um skimun fyrir brjóstakrabbameini, þar sem teknar eru tvær myndir af hvoru brjósti með sérútbúnum röntgenmyndavélum. Þess á milli eru konur hvattar til sjálfsskoðunar í forvarnarskyni. Talið er að með slíkum aðgerðum megi draga úr dánartíðni meðal kvenna vegna brjóstakrabbameins um 30%. Finnist meinsemdin á byrjunarstigi, án þess að valda einkennum, er líklegt að fjarlægja megi hana án viðameiri aðgerða eins og brjóstnáms, geislunar og/ eða krabbameinslyfjagjafar. Á undanförnum árum hefur dregið úr mætingu kvenna í skimun bæði fyrir legháls- og brjóstakrabbameini. Kennt er um færslu verkefnisins frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til heilsugæslunnar, auk Covid. Í dag þurfa konur af Suðurnesjum að leita til höfuðborgarinnar í skimun fyrir brjóstakrabbameini, þar sem tregða til að ferðast með myndgreiningartækin um landið er staðreynd. Í ljósi dræmrar mætingar kvenna í skimanir, þar sem Suðurnesin skera sig úr með lægsta mætingarhlutfall á landsvísu, 40% miðað við 55% á höfuðborgarsvæðinu og ívið hærra í öðrum landshlutum, hyggst forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, nú skera upp herör gegn þessari þróun og snúa henni við. Liður í því átaki er að safna fjármagni meðal einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka til kaupa á sérhæfðu myndgreiningartæki til skimunar fyrir brjóstakrabbameini og koma fyrir á HSS. Markmiðið er að auka samfellu í þjónustunni og stytta vegalendir og þar með tíma sem tekur fyrir konur að sækja sér þessa þjónustu. Úrlestur myndanna verður áfram í miðlægri greiningarmiðstöð Landspítala. Átak þetta, sem brátt verður blásið til með kynningu og áhlaupi, er enn einn liður forstjóra í að bæta ímynd HSS og gera að framúrskarandi heilbrigðisstofnun þar sem gott er að sækja þjónustu og starfa við. Konráð Lúðvíksson, f.v. lækningaforstjóri HSS
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 31
Njarðvík og Grindavík spáð efstu sætunum í Bónusdeild kvenna Njarðvík er spáð sigri í Bónusdeild kvenna í körfuknattleik tímabilið 2026–2027 samkvæmt spá formanna, fyrirliða og þjálfara. Grindavík er í öðru sæti og því eru tvö Suðurnesjalið efst í spánni. Keflavík er spáð sjötta sæti. Njarðvík fékk 233 stig í spánni, Grindavík 218 og KR 202. Munurinn á Njarðvík og Grindavík er 15 stig. Stigin sýna niðurstöðu spárinnar, ekki stig sem liðin hafa unnið sér inn í deildinni.
Njarðvík meistari meistaranna eftir sigur á Keflavík Álftanesi spáð efsta sæti í Bónusdeildinni Álftanesi er spáð efsta sæti í Bónusdeild karla í körfubolta á tímabilinu 2026–2027 samkvæmt spá formanna, fyrirliða og þjálfara deildarinnar. Tindastóll kemur næstur og KR er spáð þriðja sæti. Álftanes fékk 354 stig af 363 mögulegum og er því aðeins níu stigum frá fullu húsi. Tindastóll fékk 334 stig, eða 20 stigum minna en Álftanes. KR varð í þriðja sæti með 279 stig, tíu stigum á undan Grindavík. Stjörnunni er spáð fimmta sæti og Keflavík því sjötta. Þar á eftir koma Valur og Njarðvík. ÍR er spáð níunda sæti, Höttur er í tíunda sæti spárinnar og Sindri í því ellefta. Ármann rekur lestina með 40 stig, en lægsti mögulegi stigafjöldi var 33.
vf is Vogar ætla að sækja um FIFA Arena-knattvöll Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt tillögu A-listans um að sveitarfélagið sæki um FIFA Arena-knattspyrnuvöll. Bæjarstjóra hefur verið falið að undirbúa umsóknina og skila henni innan umsóknarfrests. Bæjarráðið tekur fram að vegna skamms undirbúningstíma hafi málið ekki farið í hefðbundna málsmeðferð innan sveitarfélagsins. Allar forsendur sem æskilegt væri að lægju fyrir séu því ekki komnar fram. Samþykktin felur aðeins í sér að sótt verði um völlinn. Endanleg afstaða til staðsetningar, fjármögnunar og annarra mögulegra skuldbindinga verður tekin síðar. Staðsetning vallarins verður einnig háð viðeigandi skipulagsmeðferð.
Njarðvík tryggði sér fyrsta titil tímabilsins með sigri á Keflavík, 83: 78, í Meistarakeppni kvenna í körfuknattleik í IceMar-höllinni á dögunum. Íslandsmeistararnir höfðu betur gegn bikarmeisturunum í spennandi nágrannaslag fyrir framan 698 áhorfendur en leikurinn markar upphaf körfu-
boltavetrarins sem er framundan. Heimakonur leiddu 30:24 eftir fyrsta leikhluta, en Keflavík minnkaði muninn í eitt stig fyrir hálfleik, 40:39. Njarðvík náði aftur undirtökunum í þriðja leikhluta og var fimm stigum yfir fyrir síðustu tíu mínúturnar, 67:62. Keflavík
hélt spennunni til loka, en bæði lið skoruðu 16 stig í lokaleikhlutanum. Brittany Dinkins var stigahæst hjá Njarðvík með 19 stig. Ásta Júlía Grímsdóttir skilaði öflugri frammistöðu með 14 stig, 11 fráköst og sex stoðsendingar. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 27 stig fyrir Keflavík og Emelía Ósk Gunnarsdóttir 20.
Njarðvík hafði yfirburði í fráköstum, 46 gegn 35. Varamenn heimakvenna skoruðu jafnframt 22 stig en aðeins sex stig komu frá bekk Keflavíkur. Njarðvík fagnaði því titli meistara meistaranna á heimavelli að loknum hörkuleik þessara sterku Suðurnesjaliða.
KR stakk Grindavík af í seinni hálfleik
Valur Orri skoraði 17 stig gegn KR. Nokkra af lykilmönnum síðasta tímabils vantaði í leikmannahóp UMFG.
Vilja sjá breytta tillögu fyrir Hafnargötu 101 áður en afstaða er tekin Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga hefur óskað eftir kynningu á breyttri hugmynd að uppbyggingu við Hafnargötu 101 áður en hún tekur afstöðu til deiliskipulagstillögu fyrir svæðið. Framkvæmdaraðili vill skipta fyrirhugaðri byggingu í þrjár aðskildar byggingar og hafa öll tilskilin bílastæði á yfirborði lóðarinnar í stað þess að hluti þeirra verði í bílageymslu. Heildarfjöldi bílastæða myndi ekki breytast. Einnig er óskað eftir að bílskúrar verði staðsettir á bílastæðum.
Við áframhaldandi vinnslu þarf að bregðast við umsögn Vegagerðarinnar um meðal annars sjávarflóðahættu og hæðarsetningu mannvirkja. Þá þarf að taka mið af athugasemdum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja um samspil fyrirhugaðrar íbúðabyggðar og athafnastarfsemi á nærliggjandi svæðum. Tillagan er nú unnin á grundvelli gildandi aðalskipulags sveitarfélagsins. Nefndin hefur óskað eftir að sjá uppfærða útfærslu bygginganna, bílastæðanna og bílskúranna áður en málið fær frekari afgreiðslu.
B i k a r m e i s t a ra r K R u n n u Meistarakeppni karla í körfubolta með öruggum sigri á Íslandsmeisturum Grindavíkur, 106-79, í Grindavík síðastliðinn laugardag. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en gestirnir tóku öll völd eftir hlé. KR leiddi 22-17 eftir fyrsta leikhluta en Grindvíkingar minnkuðu muninn í öðrum leikhluta. Staðan í hálfleik var 47-44 fyrir KR og útlit fyrir spennandi framhald. Þriðji leikhlutinn réð hins vegar úrslitum. KR skoraði 31 stig gegn tólf stigum heimamanna og hafði
því 22 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 78-56. Grindvíkingar náðu ekki að ógna þeirri forystu og KR jók muninn frekar undir lokin. Roberts Berzins og Friðrik Anton Jónsson voru stigahæstir hjá KR með 21 stig hvor. Linards Jaunzems bætti við 17 stigum og Þorvaldur Orri Árnason skoraði 13. Mirza Bulic fór fyrir Grindavík með 20 stig og 16 fráköst. Valur Orri Valsson og Arnór Tristan Helgason skoruðu 17 stig hvor, en Nökkvi Már Nökkvason bætti við tíu stigum.
Hjördís Kristinsdóttir ráðin sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Vogum Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 29. september að ráða Hjördísi Kristinsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Hjördís hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri í menntaog velferðarmálum. Hún var framkvæmdastjóri Hjálpræðishersins á Íslandi og sá þar um stefnumótun, rekstur, mannauðsmál og uppbyggingu þjónustu. Hún hefur einnig starfað í grunnskóla sem umsjónarkennari, sérkennari og deildarstjóri. Hjördís er með meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst, með áherslu á mannauðsstjórnun og verkefnastjórnun. Hún er einnig með B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og diplómu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands. „Við höfum metnað fyrir þjónustu sem fylgir íbúum í gegnum lífið, allt frá leikskóla til málefna eldri borgara. Fjölskyldusvið gegnir þar lykilhlutverki og það eru mikil tækifæri
til að efla samstarf og tengja þjónustuna betur saman. Með reynslu Hjördísar af skólastarfi, velferðarmálum og stjórnun fáum við öflugan liðsmann til að vinna með okkur að þeim verkefnum. Ég býð hana hjartanlega velkomna og hlakka mikið til samstarfsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga.
ÍRISAR VALSDÓTTUR
Kasper, Jesper og Jónatan
Lækkað verð á 1.100 vörum Opnunartímar í Nettó
Nokkuð hefur verið um það í fréttum að undanförnu að þjófar hafi sótt í sig veðrið. Ekki sama veður og við höfum upplifað þessa síðustu viku en álíka hvimleitt þó. Innbrotsþjófar á ferli í skjóli nætur, þjófóttar krumlur í vösum ferðamanna og tölvupóstar frá ríkum prinsum í fjarlægum löndum. Óhugnalegt svo ekki sé meira sagt. En óhugnalegri eru þó annars konar þjófar sem starfa yfir hábjartan daginn. Þeir lifa og hrærast á heimilum manna, helst þá á sófanum. Fyrstur er það gleðiþjófurinn. Hann nærist aðallega á samanburði. Í skrolli á föstudagskvöldi, þegar allir eru að gera eitthvað hoppandi skemmtilegt nema skrollarinn, nýtur hann sín best. Eða þegar fullkomna skandinavíska stofan hjá áhrifavaldinum skellur á skjánum, börnin fallega greidd og bíllinn tandurhreinn, skríkir gleðiþjófurinn af kæti. Hann heldur okkur uppteknum af öllu því sem aðrir gera og eiga og beinir sjónum okkar markvisst frá öllu því sem prýðir okkar eigið líf. Næstur er það þroskaþjófurinn. Hann elskar þegar ungu fólki er pakkað í bómul. Hann vill hvorki að unnið sé með orsök né afleiðingar, sjálfstæði eða ábyrgð. Bróðir hans, æskuþjófur, er hinn mesti stuðningsmaður óþrjótandi skjátíma barna. Hugmyndaflug, ævintýri og samvera eru hans erkióvinir. Tímaþjófurinn er sá fjórði. Pró max plús. Rétt eins og frændi hans æskuþjófur er hann ötull talsmaður skjátíma. Skjátíma hinna fullorðnu. Skroll, skroll, klikkeríklikk eru hans einkunnarorð. Hann þolir hvorki framtakssemi né elju, hvað þá dugnað! Sá síðasti er friðþjófur, skúrkurinn sá. Hann heldur mikið upp á ærslagang heimsins og eltir okkur mannfólkið yfirleitt alla leið á koddann á kvöldin. Áhyggjur eru hans fyrsta val. Þar á eftir koma deilur og ósætti. Ef hann mætti ráða myndum við aldrei ná að lifa í sátt og samlyndi. Af því tilefni langar mig að bjóða ykkur ókeypis þjófavörn! Varan samanstendur af samveru, samtölum, minningasköpun og núvitund. Læsið EKKI að ykkur því slík gæðavara verndar það sem skiptir okkur öll mestu máli. Látið þetta tilboð ekki fram hjá ykkur fara! #Auglýsing #Samstarf
Mundi
Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
Væntanlega rangstaða í bæjarstjórninni ...