• Miðvikudagurinn 23. september 2026 • 19. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS SÍÐA 10
Sérhannaðir ljósastólpar lýsa upp strandleið og stíga
BM Vallá fær fljúgandi start í Reykjanesbæ
Umhverfisverðlaun í Reykjanesbæ
VIÐTAL SÍÐU 9
SÍÐA 14
Tugmilljarða framkvæmdir fram undan á Suðurnesjum Mikil uppbyggingaralda er fram undan í Reykjanesbæ og víðar á Suðurnesjum samkvæmt áformum sem kynnt voru á Atvinnu- og framkvæmdaþingi sveitarfélagsins. Fjárfestingar fyrirtækja og opinberra aðila nema tugum milljarða króna og geta skapað hundruð starfa. Samherji reisir 40 milljarða króna fyrsta áfanga landeldisstöðvar á Reykjanesi en fullbyggð stöð á að framleiða 30.000 tonn af laxi árlega. Fjallað er nánar um þá framkvæmd á síðu 2. Verne undirbýr rúmlega 20.000 fermetra stækkun gagnaversins á Ásbrú, þar sem allt að 1.280 störf gætu skapast á hápunkti framkvæmdanna. atNorth hyggur einnig á frekari vöxt á Fitjum. Isavia áformar að verja tæpum 15 milljörðum króna árlega í uppbyggingu og viðhald Keflavíkurflugvallar. HS Veitur ætla jafnframt
að tvöfalda fjárfestingar sínar í fjóra milljarða á ári næstu fimm árin. Reykjanesbær undirbýr milljarðaframkvæmdir í fráveitu, endurbætur og stækkanir skóla og nýjan 120 barna leikskóla. Tugir atvinnu- og íbúðalóða eru tilbúnar eða í undirbúningi, auk áforma um hundruð íbúða í Grófinni, Suðurbrekku, Keflavíkurborg og á Ásbrú. Þá eru uppi hugmyndir um baðlón og nýjan þjónustukjarna á Vatnsnesi. Reykjanes Investment stefnir jafnframt að uppbyggingu 200 íbúða í Grófinni og þróun gamla kísilverssvæðisins í Helguvík. Algalíf útilokar ekki frekari stækkun á Ásbrú. Samhliða þessum áformum er kallað eftir hraðari tvöföldun Reykjanesbrautar og traustum samgöngum sem styðja við vöxtinn fram undan.
138 tonna skip dregið um götur Reykjanesbæjar Gamalt fiskiskip, Maron GK 522, hefur fengið nýtt hlutverk. Skipið verður notað á æfingasvæði slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja við Hafnaveg. Maron GK hafði staðið í slippnum hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og þaðan þurfti að flytja hann landleiðina á æfingasvæði slökkviliðsins. Sigurður Stefánsson kafari annaðist skipulag flutninganna og fékk til liðs við sig menn með öflug tæki
þar sem Maron GK er engin léttavara. Þegar kranar lyftu skipinu kom í ljós að það vegur heil 138 tonn. Það var sett á vagn og dregið á áfangastað. Loka þurfti fyrir umferð um stund en flutningurinn gekk eins og í sögu og vandræðalaust. Á myndinni má sjá skipið á vagninum þegar komið var að fyrsta hringtorginu á leiðinni, en þau voru nokkur sem þurfti að fara um. VF/hilmarbragi
20%
Afsláttur ef þú bókar í Noona appinu Frá pallborði á Atvinnu- og framkvæmdaþinginu. VF/hilmarbragi
Næsta blað kemur út 7. október
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Snorri
Gylfi
Óskar
Sölvi
snorribs@valholl.is
gylfi@valholl.is
oskar@valholl.is
770 4040
691 1931
solvi@valholl.is
699 4407
618 0064
1 6 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
40 milljarða fiskeldisverkefni Samherja tekur á sig mynd á Reykjanesi Sextíu og sex eldisker taka sama flatarmál og 110 fimmtíu metra langar keppnissundlaugar Áætlað er að taka á móti fyrstu laxaseiðunum í nýrri laxeldisstöð Samherja á Reykjanesi í apríl næstkomandi. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um sjö ár og er eitt það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Framleiðslugeta mun verða þegar framkvæmdum lýkur 30 þúsund tonn af laxi á ári. Í fullbyggðri stöð verða 66 eldiskeri sem taka svipað pláss og 110 keppnislaugar. Gunnar Dagur Darrason, framkvæ m d a s t j ó r i hjá Samherja Landeldi, kynnti verkefnið á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar og upplýsti að framkvæmdir við Eldisgarð, risavaxið landeldisverkefni Samherja fiskeldis í Auðlindagarði HS Orku á Reykjansi gangi vel og séu samkvæmt áætlun.
Uppbygging í þremur áföngum og 110 keppnissundlaugar af eldisrými Stærðargráða verkefnisins er gríðarleg, en í fullbyggðum eldisgarði verður framleiðslugetan um 30.000 tonn af laxi. Það er tæplega tífalt stærri framleiðsla en núverandi laxeldisstöð Samherja, Silfurstjarnan, býr yfir. Til að halda vel utan um framkvæmdina er verkefninu skipt upp í þrjá áfanga þar sem hver áfangi um sig hefur framleiðslugetu upp á um 10.000 tonn af slægðum laxi, eða um 12.000 tonn af óslægðum fiski. Í fullbyggðri stöð verða samtals 66 eldisker og mun heildareldisrýmið mælast um 273.000 rúmmetrar, sem jafngildir rúmmáli 110 keppn-
issundlauga. Mannvirkin samanstanda af stoðbyggingum, þremur löngum áframeldisbyggingum og sláturaðstöðu en hver áframeldisbygging verður um 500 metra löng og flæðir fiskurinn í gegnum allt ferlið frá vinstri til hægri.
Risaáfangi upp á 40 milljarða og steypubíll á hverri klukkustund Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður um 40 milljarða króna og er um að ræða mikla innviðafjárfestingu á áður ósnertu svæði. Í þeim áfanga einum verða steyptir um 15.000 rúmmetrar af steypu og lagðir 12 kílómetrar af lögnum. Til að setja hraða framkvæmda í samhengi steypti fyrirtækið úr 300 steypubílum í ágústmánuði einum, sem jafngildir því að einn steypubíll hafi farið út í eldisgarðinn á hverri einustu vinnustund allt tímabilið.
Hundrað störf í rekstri og ný tækifæri í nærumhverfinu Framkvæmdin hefur þegar haft mikil efnahagsleg áhrif á Suðurnesjum og skapar um 100 störf að jafnaði á byggingartímanum fyrir iðnaðarmenn og verkfræðinga í vaxandi iðnaði. Þegar stöðin verður
komin í fullan rekstur munu um 60 manns starfa beint við eldið í stöðinni og um 40 manns við úrvinnslu afurða. Gunnar Dagur benti á að vinnustaðurinn verði mjög tæknivæddur og að tæknistig og framleiðni verði há til að tryggja að framleiðslan verði fyllilega samkeppnishæf á alþjóðamarkaði. Aðalástæða staðarvalsins í Auðlindagarði HS Orku er aðgengi að hlýsjó, ferskvatni og raforku í návígi við Reykjanesvirkjun. Samherji stefnir að því að nýta þessa strauma en líka að búa til nýjar hliðarafurðir og strauma sem aðrir aðilar í nærumhverfinu geta nýtt til frekari verðmætasköpunar á svæðinu.
Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar var vel sótt en það fór fram í Stapa í Hljómahöll. Eins og fram kemur á forsíðu eru milljarða framkvæmdir í farvatninu á Suðurnesjum og bjartir tímar framundan. Á vef Víkurfrétta er greint ítarlega frá öllumn erindum sem flutt voru á þinginu. VF/hilmarbragi
Gervigrasið í Sandgerði og ráðhúsið í Garðinn . Lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara í Vörðuna
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar sameinast um metnaðarfulla framtíðarsýn
Stefnumarkandi ákvarðanir um íþróttamannvirki, stjórnsýslu og aðstöðu fyrir eldri borgara skapa ný tækifæri til uppbyggingar í Suðurnesjabæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarráði Suðurnesjabæjar sem samþykkti á 197. fundi sínum stefnumarkandi tillögur sem lagðar voru fram sameiginlega af öllum bæjarfulltrúum sveitarfélagsins, fulltrúum S-lista, D-lista, B-lista og M-lista. Tillögurnar marka mikilvægt skref í uppbyggingu Suðurnesjabæjar og fela í sér skýra framtíðarsýn fyrir íþróttastarf, stjórnsýslu og þjónustu við eldri íbúa. Jafnframt skapa þær svigrúm til að nýta fjármagn og aðstöðu með markvissari hætti og beina kröftum sveitarfélagsins að verkefnum sem efla samfélagið og bæta lífsgæði íbúa.
Fjárfest í börnum, ungmennum og öflugu samfélagi Lagt er til að gervigrasvöllur verði staðsettur á aðalvelli Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði og að knattspyrnuaðstaða fyrir börn og ungmenni í Garði verði bætt. Áfram verði jafnframt lögð áhersla á stuðning við íþróttafélög í sveitarfélaginu. Markmiðið er að skapa börnum og ungmennum enn betri tækifæri til íþróttaiðkunar og styrkja um leið það öfluga félagsstarf sem er mikilvægur hluti af samfélaginu í Suðurnesjabæ. Jafnframt verður lögð áhersla á að efla samgöngur milli byggðakjarna sveitarfélagsins þannig að íbúar njóti góðs af sterkari tengingu milli byggðakjarna Suðurnesjabæjar, Garðs og Sandgerðis.
Hugmyndasamkeppnir móta framtíðina Til að tryggja metnaðarfulla og vandaða framtíðarsýn verður ráðist
í hugmyndasamkeppnir á tveimur mikilvægum sviðum. Annars vegar verður mótuð heildstæð framtíðarsýn fyrir uppbyggingu á svokallaðri Miðju milli Garðs og Sandgerðis þar sem móta á raunhæfa framtíðarsýn og gert er ráð fyrir starfsemi fyrir íþróttir og útivist. Hins vegar verður efnt til hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag og uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Sandgerði. Með þessu er horft lengra en til einstakra framkvæmda og lögð áhersla á að skapa heildstæða, vandaða og framsækna uppbyggingu sem mun þjóna næstu kynslóðum.
Skilvirkari stjórnsýsla og nýr lífsgæðakjarni Tillögurnar gera ráð fyrir að ráðhús Suðurnesjabæjar verði sameinað á einum stað, í núverandi ráðhúsi sveitarfélagsins í Garði. Samhliða því verði lagður grunnur að lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Sandgerði á því svæði þar sem hluti stjórnsýslu sveitarfélagsins er nú til húsa. Hugmyndin er að skapa þar lifandi og öflugt umhverfi þar sem þjónusta, félagsstarf og fjölbreytt úrræði fyrir eldri íbúa geta þróast og dafnað. Með sameiningu stjórnsýslunnar skapast jafnframt tækifæri til hagræðingar og skilvirkari nýtingar húsnæðis og fjármuna.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar. F.v: Anton Guðmundsson áheyrnarfulltrúi, Haraldur Helgason, Svavar Grétarsson formaður, Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri og Daði Bergþórsson.
Sterk samstaða um framtíð Suðurnesjabæjar
„Við viljum skapa skilyrði fyrir áframhaldandi uppbyggingu“
Undanfarnar vikur hafa bæjarfulltrúar unnið markvisst að því að ná sameiginlegri niðurstöðu um þessi mikilvægu verkefni. Sú vinna hefur skilað samkomulagi um megináherslur sem allar fylkingar í bæjarstjórn standa að.
Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, segir samstöðuna í bæjarstjórn mikilvægan styrk fyrir sveitarfélagið. „Þetta eru stórar og mikilvægar ákvarðanir sem marka skýra stefnu fyrir framtíðaruppbyggingu Suðurnesjabæjar. Það er ekki sjálfgefið að ólík sjónarmið nái saman um verkefni af þessari stærðargráðu og þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að bæjarstjórn hafi sameinast um þessar megináherslur. Við erum að horfa til framtíðar og taka ákvarðanir sem þjóna samfélaginu öllu til lengri tíma. Ég er stolt af mínu fólki.“ Alexandra segir að tækifærin í Suðurnesjabæ séu mikil og mikil-
Tillögurnar verða staðfestar á bæjarstjórnarfundi í byrjun október Þótt ólík sjónarmið geti eðlilega komið fram um einstaka þætti er mikilvægt að bæjarstjórn geti sameinast um stóru línurnar og tekið ákvarðanir sem hafa áhrif á framtíð sveitarfélagsins. Sérstaklega skiptir máli að horft sé til þarfa barna og ungmenna, eldri borgara og samfélagsins í heild.
vægt sé að sveitarfélagið nýti þau af ábyrgð og framsýni. „Suðurnesjabær er sveitarfélag með óþrjótandi möguleika. Hér er gott að búa, hér er sterkt samfélag og fjölmörg tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar og sóknar. Við þurfum að vera tilbúin til þess að hugsa stórt, nýta þau tækifæri sem gefast og forgangsraða þannig að fjármunir sveitarfélagsins nýtist sem best í þágu íbúa.“ „Með sameiningu stjórnsýslunnar skapast jafnframt tækifæri til aukinnar skilvirkni og hagræðingar. Það getur gefið okkur meira svigrúm til að sinna öðrum mikilvægum verkefnum, bæta þjónustu og fjárfesta í samfélaginu. Þetta snýst því ekki aðeins um húsnæði eða skipulag heldur um það hvernig við viljum byggja upp sveitarfélagið okkar til framtíðar.“
Samstarf sem skapar tækifæri Bæjarstjórn fagnar því að tekist hafi að ná sameiginlegri niðurstöðu og leggja áherslu á mikilvægi þess að vinna saman að framtíð sveitarfélagsins. Það er styrkur fyrir Suðurnesjabæ að bæjarstjórn geti sameinast um mikilvægar langtímaáherslur, horft fram á veg og unnið að lausnum sem þjóna hagsmunum íbúa. „Við erum ekki alltaf sammála um leiðina að markmiðunum en við deilum þeirri sýn að Suðurnesjabær sé gott sveitarfélag til að lifa og starfa í. Þær ákvarðanir sem verið er að taka hér í dag sýna að með góðu samstarfi er hægt að ná utan um stór og mikilvæg verkefni samfélaginu okkar til heilla,“ segja oddvitarnir.
Viltu díla við bíla? Askja Reykjanesbæ leitar að bifvélavirkja í fullt starf.
Askja Reykjanesbæ sem er hluti af Bílaumboðinu Öskju óskar eftir færum bifvélavirkjum til starfa í nýrri starfsstöð í Reykjanesbæ. Í boði eru spennandi störf hjá öflugu þjónustufyrirtæki í fremstu röð. Nánari upplýsingar á askja.is
Askja Reykjanesbæ • Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbæ • 590 2190
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Valhöll opnaði útibú í vor við Hafnargötu í Keflavík. „Mikil sóknarfæri og uppbygging á Suðurnesjum.“
Þurftu ekki að hugsa sig lengi um að opna fasteignasölu í Reykjanesbæ „Það eru mikil sóknarfæri og uppbygging í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum og því vorum við fljótir að taka ákvörðun um að opna útibú á svæðinu eftir að sú hugmynd kom upp,“ segja eigendur Valhallar fasteignasölu, fasteignasalarnir og lögmennirnir Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson, sem opnaði við Hafnargötu 91 í Keflavík síðastliðið vor.
förnum árum. Mikil uppbygging á Suðurnesjum og möguleikar hafi haft áhrif en vissulega hafi margir flutt á svæðið þegar verðið á eignum var nokkuð lægra en á höfuðborgarsvæðinu.
Gylfi Þór Gylfason fasteignasali er útibússtjóri Valhallar í Reykjanesbæ en hann hefur búið í Reykjanesbæ í fimmtán ár. Gylfi, sem hefur starfað hjá Valhöll í nokkur ár, mætti með hugmyndina um að opna útibú í Reykjanesbæ inn á borð Óskars og Snorra og leist þeim strax mjög vel á hugmyndina.
Þurfa að hugsa út fyrir boxið
Þrjátíu ára fasteignasala Í viðtali við Víkurfréttir seg ja þeir Óskar og Snorri að Valhöll sé þrjátíu ára gömul fasteignasala en þeir hafi tekið við rekstrinum árið 2023. Þeir segja að Reykjanesbær og nágrenni hafi vaxið sem ákjós-
Meira en 80% fækkun á fjárhagsaðstoð Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um meira en 80% á tveimur árum. Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð, en í júlí á þessu ári voru þeir 70. Í sama mánuði í fyrra voru 118 einstaklingar á fjárhagsaðstoð. Þróunin var rædd í bæjarstjórn, þar sem starfsfólki velferðarsviðs var þakkað fyrir árangurinn. Hann er rakinn til markvissra virkjunarúrræða og samstarfs við Vinnumálastofnun, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Björgina og MSS. Áhersla hefur verið lögð á að koma fólki í virkni, tryggja því stuðning og greiða leið þess aftur út á vinnumarkað. Bæjarfulltrúar fögnuðu þróuninni og vilja halda áfram á sömu braut.
anlegt búsetu- og atvinnusvæði að undanförnum árum og mikil uppbygging og íbúafjölgun hafi verið í nokkurn tíma. „Við höfum mikla trú á Suðurnesjum og sjáum mörg sóknarfæri þar. Við þurftum því ekki að hugsa okkur lengi um að opna skrifstofu í Reykjanesbæ þegar hugmyndin kom á okkar borð, ekki er verra að vera með heimamann í okkar liði en Gylfi Þór hefur verið lengi á svæðinu og því vel tengdur þar.“ Aðspurðir segja þeir að fasteignaverð á Suðurnesjum og sérstaklega í Reykjanesbæ hafi hækkað mikið í samanburði við höfuðborgarsvæðið á undan-
Valhöll opnaði í vor í Reykjanesbæ og Gylfi Þór segir að þrátt fyrir áskoranir á fasteignamarkaði á þessum tíma hafi gengið vel. „Munurinn er vissulega sá að núna tekur lengri tíma að selja eignir en þegar markaðurinn var hagstæðari í vöxtum og aðstæður betri í þjóðfélaginu. Það þarf að hafa meira fyrir sölunni núna. Íslendingar eru vanir því að eignir seljist frekar hratt, ólíkt því sem gerist víða erlendis þar sem algengt þykir að taki 6-12 mánuði að selja eignir. Núna þarf að hugsa út fyrir boxið og skoða ýmsa möguleika eins og
íbúðaskipti. Við höfum selt talsvert af atvinnuhúsnæði hér á svæðinu en einnig íbúðir og sérbýli í flestum hverfum. Framboðið á fjölbreyttu íbúðarhúsnæði er mjög gott og við erum t.d. að selja fyrir BYGG sem er með vandaðar íbúðir í Reykjanesbæ.
Kaupendamarkaður Núna má segja að það sé nokkur kaupendamarkaður og verð hefur staðið í stað í alllangan tíma. Það eru því mörg ágæt kauptækifæri um þessar mundir því markaðurinn á til að fara aftur upp eins og sagan hefur sýnt. Aðstæður fyrir fyrstu kaupendur að kaupa íbúðir í dag eru ágætar þar sem þeim stendur til boða að kaupa íbúðir með 95% veðsetningu í gegnum HMS á íbúðum sem falla þar undir og þá lána sumir bankar fyrstu kaupendum allt að 90% af kaup-
verðinu. Þó að vextir séu háir núna þá er leiga líka há. Markaður fyrir fyrstu kaupendur getur því verið hagstæðari núna en margir halda. Framboð íbúða er gott, t.d. í Innri Njarðvík, Ásbrú, Keflavík og víðar á Suðurnesjum.“ Þeir félagar segja að það muni hafa jákvæð áhrif að Reykjanesbær ákvað að afnema byggingarréttargjöld og eftir þá ákvörðun hafi áhugi verktaka á lóðum aukist mikið. Gylfi Þór segir að staðsetning fasteignasölunnar í Reykjanesbæ sé mjög góð. Undir það taka þeir Snorri og Óskar og segja að stefnan sé að bæta við starfsfólki þegar fram líða stundir til að veita sem besta þjónustu.
Páll Ketilsson pket@vf.is
Öryggi í Grindavík talið ásættanlegt með virkum viðbúnaði Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að daglegt öryggi fólks sem dvelur eða starfar í bænum sé ásættanlegt, að því gefnu að mikilvægar öryggis- og viðbragðsaðgerðir haldist virkar. Matið nær einnig til rýminga, skólahalds, velferðar barna og öryggis húsnæðis. Í niðurstöðunum eru aðstæður í Grindavík taldar sambærilegar við aðstæður í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá. Sérstaðan er þó sú að jarðhræringa- og eldgosaváin er viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið. Óvissustig almannavarna er enn í gildi, landris heldur áfram í Svartsengi og þar hefur nú safnast meiri kvika en áður hefur mælst. Frá haustinu 2023 hefur gosið níu sinnum í nágrenni Grindavíkur og bærinn verið rýmdur tíu sinnum. Síðasti atburður varð í júlí 2025 og ekki er hægt að ganga út frá því að næsti atburður verði sambærilegur þeim fyrri. Forsenda ásættanlegs öryggis er að vöktun og viðvaranir Veðurstofunnar, starf slökkviliðs, eftirlit
með hættusvæðum og sprungubeltum, viðhald varnargarða og greiðar flóttaleiðir séu tryggð. Boðkerfi þarf jafnframt að vera virkt, meðal annars með SMSskilaboðum, viðvörunarflautu og húsgöngu. Sérstök áhersla er lögð á stuðning við börn og aðra viðkvæma einstaklinga. Talið er unnt að viðhalda samfelldu skólahaldi og stuðningi við börn, bæði við daglegar aðstæður og ef til rýmingar kemur. Í matinu kemur fram að umfangsmiklar aðgerðir séu þegar virkar. Sprungur hafa verið lagfærðar, hættusvæðum lokað og ónýt hús rifin. Þá hefur farið fram jarðkönnun til að finna holrými og sprungur sem ekki sjást á yfirborði. Bent er á að langvarandi
óvissa geti dregið úr áhættuvitund fólks. Því skipti regluleg upplýsingagjöf og viðbúnaður vegna rýmingar með skömmum fyrirvara miklu máli. Áhættumatið verður lifandi og reglulega uppfært. Fram undan
er frekari vinna þar sem önnur starfsemi í Grindavík verður tekin til skoðunar og staðfest reglulega hvort skilyrði ásættanlegrar áhættu séu áfram uppfyllt. Matið gildir fyrir byggð svæði innan varnargarðanna.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 5
Sharon Stone ljáir Grindavíkurmynd rödd sína
Grindavíkursaga 11 ára stelpu hlýtur barnabókaverðlaunin
Hin heimsþekkta bandaríska leikkona Sharon Stone er sögumaður í erlendri útgáfu heimildarmyndarinnar Ó góða gamla Grindavík sem sýnd var fyrr á þessu ári hér á landi. „Hún var að klára að lesa inn fyrir ensku útgáfuna og við erum að byrja að senda myndina á kvikmyndahátíðir,“ segir Margrét Hrafnsdóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar. Margrét segir upphafið að samstarfi við leikkonuna hafa verið þannig að þegar myndin Ó góða gamla Grindavík var að verða tilbúin hafi hún sent á hana á til þess að fá viðbrögð. Í framhaldinu beðið hana að styðja við myndina og Grindvíkinga ef henni líkaði hún með því að gerast meðframleiðandi
og viðbrögðin komu hratt til baka: „Það væri mér mikill heiður“ (I would be honored“). „Svo þegar við fórum að vinna að erlendu útgáfunni bað ég hana um að gerast líka sögumaður og það var hún strax til. Á milli þess sem hún ferðast um heiminn fær hún boð á ótrúlegustu viðburði auk þess að leika í vinsælustu sjónvarpsseríunum í dag eins og Euphoria á HBO Max. Við fundum stund og tókum hana upp. Hún vildi ólm bera fram öll íslensku orðin og bað mig hátt og skýrt að fara með þau hátt og skýrt áður en hún gerði það. Hún sagði einfaldlega um Grindvíkinga: „Þeir hafa gengið í gegnum svo margt“ („They have gone through so much“.)
Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026. Frásögn ellefu ára gamallar stelpu úr Grindavík, Matthildar Yrsu Sigurðardóttur er efni verðlaunabókar íslensku barnabókaverðlaunanna 2026. Bókin heitir Síðasti dagurinn. Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að dómnefnd hafði rýnt í keppnisgögn var hún sammála um að Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlyti Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026. Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar
í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir að jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Didda Flygenring, teiknari og grafískur hönnuður, myndlýsir söguna. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Textinn er knappur og blátt áfram en einlæg rödd barnsins skín í gegn og gerir lesendum kleift að setja sig í spor Grindvíkinga. Með persónulegum teiknistíl og markvissri litanotkun fangar Didda
Flygenring í senn skelfinguna sem fylgdi náttúruhamförunum sem og öryggið og hlýjuna sem ástrík fjölskyldan veitir á erfiðum tímum. Síðasti dagurinn er einstakt verk um þýðingu þess að eiga heimili, tilheyra samfélagi og upplifa öryggi, bók sem vekur samkennd og eykur skilning á málefnum sem varða okkur öll.“ Að Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið, sem gefur sigurhandritið út á bók að keppni lokinni. Í dómnefnd sátu Anna Cynthia Leplar, Guðrún Lára Pétursdóttir og Sölvi Sveinsson.
Margrét Hrafnsdóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar Ó góða gamla Grindavík og Sharon Stone, meðframleiðandi og sögumaður erlendrar útgáfu í hljóðstúdíói. Stone las inn á myndina.
Þín Vild
Betri kjör á tryggingum Í Vild færðu betri kjör, meiri fríðindi og fleiri Aukakrónur. Þú finnur þína Vild í appinu.
Nánar á landsbankinn.is/vild
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
FORFALLAKENNSLA Í STÓRU-VOGASKÓLA Forfallakennari óskast tímabundið í Stóru-Vogaskóla.
• Sérkennslu
NÝBURAR
• Umsjónarkennslu Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfisbréf til kennslu • Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla á teymiskennslu æskileg • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum • Góð tölvukunnátta, góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður • Ábyrgð og stundvísi • Áhugi á að starfa með börnum Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð sbr. 11. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.
Stúlka fæddist á ljósmæðravakt HSS þann 6. september 2026 Þyngd: 4390 grömm Lengd: 51,2 sentimetrar Foreldrar: Björk Lind Snorradóttir og Vilmar Ben Hallgrímsson Þau eru búsett í Keflavík. Ljósmóðir: Ingibjörg Finndís Sigurðardóttir og Katrín Ísbjörg Aradóttir ljósmóðurnemi
Drengur fæddist á ljósmæðravakt HSS 6. ágúst 2026. Þyngd: 3360 grömm Lengd: 51 sentimetri Foreldrar: Esraa Mohammad Sabri Barbour og Hussein Ahmad Hussein Þau eru búsett á Akureyri. Ljósmóðir: Katrín Helga Steinþórsdóttir
Drengur fæddist á ljósmæðravakt HSS þann 8. ágúst 2026 Þyngd: 3526 grömm Lengd: 51 sentimetri Foreldrar: Lovísa Ósk Davíðsdóttir og Davíð Guðlaugsson Þau eru búsett í Keflavík. Ljósmóðir: Ingibjörg Finndís Sigurðardóttir
Stúlka fæddist á Ljósmæðravakt HSS 12. ágúst 2026 Þyngd: 3442 grömm Lengd: 50 sentimetrar Foreldrar: Andri Snær Henningsson og Sylwia Sienkiewicz Þau eru búsett í Reykjanesbæ Ljósmóðir: Rebekka Saidy
Stúlka fæddist á ljósmæðravakt HSS þann 29. ágúst 2026 Þyngd: 3720 grömm Lengd: 51 sentimetri Foreldrar: Dagbjört Rut Tryggvadóttir og Haukur Ingi Júlíusson Þau eru búsett í Keflavík. Ljósmóðir: Thelma Guðlaug Arnarsdóttir
Umsóknum skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, afrit af leyfisbréfi og kynningarbréf.
Af brælu og handfærarúlluþjófum
Umsóknir skulu berast á netfangið hilmar@vogar.is
AFLAFRÉTTIR
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri.
NÝJUSTU ÞÆTTIRNIR ERU Á VF.IS
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Rétturinn
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
Opið:
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
11-13:30
alla virka daga
Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Septembermánuður er búinn að vera mjög góður, veðurfarslega séð. Ekki mikið um brælur en þar kom að því að fyrsta brælan kom og hún kom sama dag og þessi pistill er skrifaður. Ansi oft sem brælur eru þá daga sem ég skrifa pistla. Reyndar er þónokkur fjöldi báta frá Suðurnesjum á línu fyrir austan og þar fékk hann að finna fyrir fyrstu alvöru lægðinni sem gekk þar yfir, en vitlaust veður var fyrir austan og fór vindur upp í 48 metra á sekúndu í Neskaupstað þar sem meðal annars Fjölnir GK, Gísli Súrsson GK, Margrét GK og Auður Vésteins SU hafa verið á veiðum. Það hefur nú verið þannig síðan í sumar að enginn minni bátur hefur verið á línuveiðum frá Suðurnesjunum, þangað til núna, en Særif SH, sem var búinn að vera með línuna norðvestur út frá Sandgerði og landaði þá á Arnarstapa, hefur núna komið tvisvar til Sandgerðis með afla, samtals um 20 tonn í tveimur róðrum. Særif SH var meðal annars með línuna í Röstinni þar sem báturinn var að veiða löngu, og gekk nokkuð vel, kom með 11,1 tonn í land og þar af var langa rúm 8 tonn. Og Margrét GK sem var í Neskaupstað er komin suður og hefur náð einum róðri í Sandgerði og kom með tæp 5 tonn í land. Fyrst ég er að tala um Austurland þá er rétt að líta aðeins á bátana frá Suðurnesjunum þar, en veiðin hefur gengið nokkuð vel hjá þeim. Að mestu eru bátarnir að veiða þorsk en hafa reyndar líka verið að leita að ýsu, en lítið er um ýsu á línumiðunum fyrir austan. Fjölnir GK er kominn með 153 tonn í 15 róðrum og mest 20,6 tonn í einni löndun, Gísli Súrsson
GK 65 tonn í 7. Auður Vésteins SU 150 tonn í 15 og mest 18,2 tonn. Og ef við kíkjum norður, en þar er Stakkavík með alla sína báta, nema Hemma á Stað GK. Óla á Stað GK hefur gengið best bátanna sem eru fyrir norðan, og hefur hann landað 149 tonnum í 15 róðrum og mest 20,3 tonnum, en hann landar á Siglufirði. Guðbjörg GK er líka komin á Siglufjörð, en báturinn byrjaði á Skagaströnd og hefur landað 91 tonni í 13 róðrum og mest 14,6 tonnum. Hópsnes GK er með 77 tonn í 16 róðrum og mest 7,7 tonn. Geirfugl GK byrjaði í Sandgerði en fór síðan til Skagastrandar og hefur landað 21 tonni í 6 róðrum. Gulltoppur EA 31 tonn í 7 róðrum og mest 6,2 tonn. Aftur heim, en nokkrir bátar hafa verið á færum og þá að mestu að fara í Röstina að veiða ufsa. Einn af þeim bátum sem þangað hafa farið til veiða er Dímon GK sem Bjössi er skipstjóri á. Hann rær frá Sandgerði, en fór með bátinn í Grófina í Keflavík, því að báturinn þurfti að fara í smá viðgerðir þar. Einn morguninn þegar Bjössi var að fara í bátinn tók hann eftir því að það var bor fastur í hliðinu sem er inn á flotbryggjuna sem Dímon GK var við. Ekki var hægt að opna hliðið og tók hann líka eftir því að það vantaði handfærarúllur í bátinn.
Kom þá í ljós að um nóttina höfðu tveir menn reynt að bora út lásinn á hliðinu, en brutu borinn og klifruðu þeir meðfram hliðinu og inn á bryggjuna, fóru í Dímon GK og klipptu þar á burtu þær fjórar DNG-handfærarúllur sem voru í Dímon GK. Einnig eyðilögðu þeir hurðina inn í brúnna á bátnum, en einhver styggð kom að þjófunum og skildu þeir eftir eina DNG-rúllu og fóru ekki inn í bátinn. Tjónið er um 4 milljónir króna, en Bjössi þarf að fá nýjar DNGrúllur ásamt því að fá nýja hurð í brúnna á bátnum. Nokkurt bras reyndist vera að komast á bryggjuna því að kalla þurfti út hafnarvörð í Keflavíkurhöfn til þess að reyna að opna læsinguna og líka svo að lögreglan kæmist í bátinn. Myndavélar eru við bryggjuna en þær sýndu ekki nægilega vel og til að mynda sást ekki hvernig bíl þessir þjófar voru á. En Bjössi ætlar ekki að láta þetta stoppa sig í að halda áfram og á hann von á að fá nýjar DNGrúllur og mun hann því geta haldið áfram að veiða ufsa í Röstinni í haust og vetur, en hann er einn af þeim færabátum hérna á Suðurnesjunum sem hafa róið allt árið á færin.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fjórir skólameistarar FS, f.v.: Ólafur Jón Arnbjörnsson, Kristján Ásmundsson, Guðlaug Pálsdóttir og Hjálmar Árnason.
Frá hátíðardagskránni á 50 ára afmæli FS á sal skólans.
Hátíðardagskrá og opið hús á 50 ára afmæli FS Haldið var upp á 50 ára afmæli Fjölbrautaskóla Suðurnesja með opnu húsi og hátíðardagskrá laugardaginn 12. september. Gestir gátu skoðað skólann og aðstöðuna og reynt sig í ýmsum námsgreinum í kennslustofum. Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék á sal og tók nokkur lög áður en hátíðardagskrá hófst. Dagskráin hófst á því að Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra flutti ávarp og bar skólanum afmæliskveðju. Guðlaug Pálsdóttir skólameistari ávarpaði síðan sam-
komuna. Þá var komið að Benóný Einari Færseth Guðjónssyni sem söng frumsamið lag og lék undir á píanó. Atli Þorsteinsson flutti ávarp fyrir hönd kennara skólans
og Sveindís Valdimarsdóttir fyrir hönd fyrsta árgangs stúdenta frá skólanum. Þeir sem voru viðstaddir úr þeim hópi komu síðan á svið og var vel fagnað. Guðbrandur Einarsson settist við píanóið og leiddi salinn í afmælissöngnum til heiðurs FS. Sveindís tilkynnti síðan að hópurinn hyggst stofna nýsköpunarsjóð Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Honum er ætlað að styrkja
nýsköpun í skólastarfinu og er ætlunin að fá fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu til að styðja við sjóðinn. Það var Kjartan Már Gunnarsson sem kynnti dagskrána og sagði um leið nokkrar skemmtilegar sögur frá veru sinni í FS. Við lok dagskrárinnar undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, viljayfirlýsingu um stækkun verknámsaðstöðu skólans. Að því loknu var boðið upp á kaffi, afmælistertu og fleira bakkelsi. Gestir áttu góða stund og á meðan lék Djassbandið Þríó létta tónlist. Þríó skipa þau Birta Rós Sigurjónsdóttir, Jón Böðvarsson og Sigurður Baldvin Ólafsson en þau eru öll fyrrum nemendur skólans. Inga Sæland og Vilhjálmur Árnason munduðu pennann.
Fjöldi núverandi og fyrrverandi nemenda og starfsmenn á afmæli skólans.
Viljayfirlýsing um stækkun verknámsaðstöðu FS
Núverandi og fyrrverandi nemendur tóku lagið og léku á afmælistónleikum í Stapa.
Nemendur úr fyrsta árgangi stúdenta frá FS sem mættu í afmælið.
Á 50 ára afmælishátíð Fjölbrautaskóla Suðurnesja undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar fyrir hönd sveitarfélaga á Suðurnesjum, viljayfirlýsingu um stækkun verknámsaðstöðu skólans. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum við 1.800 fermetra stækkun sem mun fyrst og fremst hýsa aðstöðu fyrir kennslu í verknámi. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Reykjanesbær fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa umsjón með framkvæmdunum. Á vef ráðuneytisins er haft eftir mennta- og barnamálaráðherra: „Við þurfum að tala verk- og starfsnám upp og líka sýna það í verki. Þessi stækkun er einmitt slíkt skref, fjárfesting í unga fólkinu, atvinnulífinu og framtíð Suðurnesja. Ég fagna sérstaklega því hversu myndarlega sveitarfélögin á svæðinu koma að verkefninu. Þegar ríki, sveitarfélög og skólarnir taka höndum saman þá getum við látið hlutina gerast.“
Hér má m.a. sjá fjóra nýja bæjarstjóra á Suðurnesjum á afmæli FS.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 9
BM Vallá fær fljúgandi start í Reykjanesbæ
...Við höfum horft mjög lengi til Reykjanesbæjar og má segja að þessi fjárfesting eigi sér talsverðan aðdraganda. Hér hefur verið alveg ótrúlega kröftug uppbygging á undanförnum áratugum...
ATVINNULÍFIÐ Páll Ketilsson
Þorsteinn og hluti af hans starfsfólki fyrir framan steypustöðina í Reykjanesbæ. VF/pket.
pket@vf.is
„Löngu tímabært að setja hér niður sterka stöð“ Ný steypustöð BM Vallár á Ásbrú í Reykjanesbæ hefur komið af fullum krafti inn á markaðinn á Suðurnesjum frá því hún var gangsett undir lok síðasta árs. Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins (móðurfélags BM Vallár), lýsir yfir mikilli ánægju með viðtökurnar og segir stórverkefni á svæðinu og kröftuga uppbyggingu gera komuna til Reykjanesbæjar að lykilskrefi í framtíðarstefnu fyrirtækisins. BM Vallá, sem fagnar 70 ára afmæli sínu á árinu, hefur fjárfest fyrir mörg hundruð milljónir króna í stöðinni á Ásbrú. Stöðin, sem kemur frá þýska framleiðandanum Nisbau, er sérstaklega hönnuð með tilliti til staðbundinna aðstæðna, svo sem vindálags og jarðskjálftahættu. Þá er hún búin háþróaðri endurvinnslustöð sem endurnýtir alla afgangssteypu og útskolunarvatn.
Sjötíu ára saga Saga BM Vallár nær aftur til ársins 1956 þegar Benedikt Magnússon frá Vallá hóf að moka möl í fjörunni á Kjalarnesi og selja í steypu. Í dag er BM Vallá hluti af samstæðu Hornsteins, sem er í meirihlutaeigu alþjóðlega steypurisans Heidelberg (53%) ásamt hópi innlendra fjárfesta (47%). Stöðin í Reykjanesbæ er sú þriðja í eigu BM Vallár en fyrir er félagið með steypustöðvar í Reykjavík og Akranesi og í samstarfi við Möl og Sand á Akureyri. Hjá BM Vallá starfa um 160 manns og þremur tugum meira í samstæðunni.
Hann segir að móttökurnar hjá bæjaryfirvöldum og starfsmönnum bæjarins hafi verið til fyrirmyndar: „Stuttar boðleiðir og fólk á tánum við að koma hlutum áfram, sem er alltaf gaman að sjá. Ég held að þetta sé augljóst merki þess að hér sé fólk í raunhagkerfinu sem veit hvernig verðmætasköpun verður til og að hún er virði í tíma. Það er mikilvægt að hlutir gangi hratt og örugglega fyrir sig.“
Frá upphfi framkvæmda á Ásbrú.
Ótrúlegur vöxtur og stór tækifæri Aðspurður um ástæðu þess að ráðist var í þessa stóru fjárfestingu á Suðurnesjum segir Þorsteinn að umhverfið á svæðinu hafi breyst gríðarlega á undanförnum áratugum. „Við höfum horft mjög lengi til Reykjanesbæjar og má segja að þessi fjárfesting eigi sér talsverðan aðdraganda. Hér hefur verið alveg ótrúlega kröftug uppbygging á undanförnum áratugum. Ótrúleg umbreyting sem svæðið hefur gengið í gegnum frá þeim tíma sem herinn fór og sú niðursveifla sem því fylgdi.“ Þorsteinn bendir á að íbúafjölgun á Suðurnesjum hafi tekið til sín drjúgan hluta af vexti suðvesturhornsins síðasta aldarfjórðunginn. Þá séu mikilvægir innviðir og stórframkvæmdir á svæðinu stór ástæða fyrir komu BM Vallár: „Við horfðum til þess þegar maður horfir fram á veginn að það er auðvitað mikil innviðauppbygging fram undan, bæði í kringum flugvöllinn, í kringum raforkuframleiðslu og síðan sjáum við þetta metnaðarfulla landeldisverkefni sem Samherji er kominn
af stað með á Reykjanesi. Við töldum orðið löngu tímabært að setja hér niður sterka stöð.“ BM Vallá náði samningum við Ístak um steypusölu í landeldi Samherja og hefur stöðin fengið „fljúgandi start“ frá því hún var gangsett af fullum krafti undir lok síðasta árs.
Hluti af framtíðarstefnu Koma BM Vallár til Reykjanesbæjar er einnig stór hluti af framtíðarstefnumótun félagsins, en fyrirtækið hefur gert samkomulag við Reykjavíkurborg um að rýma athafnasvæði sitt á Höfðanum eigi síðar en árið 2032. Þorsteinn útskýrir að breytingar á skipulagi í Reykjavík þýði að grófari atvinnustarfsemi þurfi að færa sig um set. „Höfðinn er einstaklega þægileg staðsetning fyrir starfsemi eins og okkar, en við fáum hvergi þar
nálægt pláss aftur. Við sáum fyrir okkur að í framtíðinni yrðu það tvær stöðvar sem myndu þjóna suðvesturhorninu að lágmarki. Þessi fjárfesting í Reykjanesbæ var náttúrulega liður í þeirri framtíðarstefnumótun.“
Stuttar boðleiðir og skilningur á verðmætasköpun Eitt af því sem stendur upp úr í samtalinu er reynsla BM Vallár af samskiptum við stjórnsýsluna í Reykjanesbæ. Þorsteinn leyfir sér að bera vinnubrögðin saman við það flækjustig sem oft mætir fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. „Eftir að hafa verið í talsverðum samskiptum við flókið regluverk víða þá var mjög frískandi að koma hingað. Það var gengið hratt og örugglega í hlutina og við lentum ekki í neinum tilf innanlegum vandræðum.“
Umhverfismálin í fyrirrúmi Steypuiðnaðurinn hefur breyst mikið á síðustu áratugum og eru umhverfismál nú í brennidepli. Þorsteinn nefnir að tæknilega sé verið að gera svipaða hluti og Rómverjar gerðu fyrir 2.000 árum, en kröfurnar og vinnsluaðferðirnar séu allt aðrar. „Megináherslan á síðastliðnum tíu til tuttugu árum er umhverfisáhrifin. Kolefnisspor sementsiðnaðar er nokkuð hátt á heimsvísu, en við höfum verið í fararbroddi hér á landi í þeirri vegferð. Heilt yfir í okkar starfsemi höfum við náð nærri þriðjungs lækkun á kolefnisspori frá 2020.“ Með nýju stöðinni í Reykjanesbæ, vistvænni steypu og aukinni nýtingu endurunninna hráefna telur Þorsteinn að BM Vallá sé vel í stakk búið til að þjóna kröfuhörðum markaði á Suðurnesjum til framtíðar.
BM Vallá hóf starfsemi á Suðurnesjum fyrir um ári síðan.
Séð yfir athafnasvæði steypustöðvar BM Vallár á Ásbrú.
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gönguleiðin sem um ræðir í Innri-Njarðvík liggur með ströndinni og upp á Stapann.
Sérhannaðir ljósastólpar lýsa upp strandleið og stíga Feðgarnir Óskar og Brynjar Húnfjörð hjá Íslandshúsum hafa í samstarfi við Reykjanesbæ þróað nýja gerð ljósastólpa, ljósálfa, sem ætlaðir eru fyrir krefjandi íslenskar aðstæður. Stólparnir hafa þegar verið settir upp á göngustígum meðfram sjávarsíðunni í Keflavík og Njarðvík og hafa vakið áhuga sveitarfélaga víða um land.
REYKJANESBÆR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Göngustígarnir meðfram strandlengjunni í Reykjanesbæ eru mikið notaðir allt árið. Þar mætast hins vegar vindur, salt, frost og sjógangur og því getur reynst erfitt að halda lýsingu og rafbúnaði í góðu ástandi. Óskar Húnfjörð, stofnandi Íslandshúsa, segir að þróun ljósastólpanna hafi tekið um tvö ár. Verkefnið hafi orðið til í samtali við Reykjanesbæ vegna þeirra áskorana sem bærinn stóð frammi fyrir við lýsingu á göngustígum við sjóinn. „Það þurfti að hanna stólpa sem væri fallegur, sterkur og gæti staðist þessar erfiðu aðstæður. Við vildum jafnframt komast hjá hefðbundinni járnbendingu vegna þess að stólparnir eru nálægt sjó og við vildum ekki eiga á hættu að tæring kæmi upp til lengri tíma,“ segir Óskar.
Sérstök steypublanda fyrir erfiðar aðstæður Íslandshús unnu með danska sementsframleiðandanum Aalborg Portland við að finna rétta steypublöndu fyrir stólpana. Að sögn Óskars er steypan mun sterkari en sú sem almennt er notuð í húsbyggingum. Rafkerfið þurfti einnig að vera sérstaklega vel varið enda getur sjór gengið yfir hluta mannvirkjanna. Þá þurftu stólparnir að þola seltu, frost og veðurálag, auk þess sem horft var til þess að þeir væru
nægilega traustir til að draga úr hættu á skemmdarverkum. Framkvæmdin við strandlengjuna reyndist þó ekki aðeins snúast um stólpana sjálfa. Eldri lagnir undir göngustígunum voru víða illa farnar og höfðu sumar verið fullar af sjó árum saman. Á köflum þurfti því að brjóta upp steypta stétt, endurnýja lagnir og útbúa nýjar undirstöður. „Þetta er aðferð sem kostar sitt en við erum að horfa til langs tíma. Ég segi gjarnan að menn eigi ekki að spyrja hvað þetta kosti heldur hvað þetta kosti á ári. Það er það sem skiptir sveitarfélögin máli,“ segir Óskar. Tilraunir með stólpana hafa staðið yfir í um tvö ár og fyrstu stólparnir við sjávarsíðuna í Keflavík hafa nú verið í notkun í rúmt ár. Að sögn Óskars hafa þeir staðist prófið með prýði.
Lýsingin færð lengra eftir strandlengjunni Fyrir síðustu jól voru sambærilegir stólpar settir upp við göngustíg á Kambi í Njarðvík. Þar var notuð sérhönnuð undirstaða sem grafin er í jarðveg við stíginn og stólpinn síðan skrúfaður ofan á hana. Í vor var verkefninu síðan haldið áfram eftir strandlengjunni í InnriNjarðvík og í átt að Stapa. Þar þurfti einnig að gera við eldri lagnir og endurnýja frágang á köflum. Ljósaröðin tengist meðal annars litlu útivistarsvæði við gamlan brunn við stíginn í Kópu í InnriNjarðvík. Þar er lýsingunni ætlað að draga fram sögulegt umhverfi staðarins og skapa ákveðna torgstemningu fyrir þá sem fara um svæðið.
Feðgarnir Óskar og Brynjar Húnfjörð hjá Íslandshúsum hafa þróað ljósálfinn.
Það þurfti að hanna stólpa sem væri fallegur, sterkur og gæti staðist þessar erfiðu aðstæður. „Þetta hefur tekist óskaplega vel. Það er gífurleg umferð um þessa göngustíga og mikil ánægja meðal fólks með að verið sé að bæta lýsinguna,“ segir Óskar. Hann segist sjálfur hafa upplifað hversu fjölbreyttur hópur nýtir stígana. Þegar hann var nýlega að prófa lýsinguna hafi hann hitt tvo unga menn sem höfðu hjólað stíginn og sest niður á bekk til að spjalla.
„Það er alveg ótrúlega skemmtileg stemning þarna. Fólk gengur, hjólar og fer með hundana sína. Það eru í raun allir að nýta þetta.“
Merki, listaverk og sögur í stólpunum Brynjar Húnfjörð, framkvæmdastjóri Íslandshúsa, segir hönnun stólpanna bjóða upp á ýmsa möguleika. Grunnurinn sé hvít steypa og því sé hægt að framleiða þá í mis-
Endurnýja lýsingu á 11 kílómetra strandleið Lýsingin sem nú er unnið að við strandleiðina í Njarðvík er framhald stærra verkefnis Reykjanesbæjar við endurnýjun lýsingar á hinni ellefu kílómetra löngu strandleið. Verkefnið hófst við strandleiðina í Keflavík en síðar var Kamburinn í Njarðvík lýstur upp með svonefndum ljósálfum. „Þessi framkvæmd nær til stórs hluta strandleiðarinnar í Njarðvík sem fékk ekki lýsingu þegar leiðin var upphaflega lögð,“ segir Aron H. Steinsson, veitustjóri Reykjanesbæjar. Ljósálfarnir eru um 60 sentímetra há steypt ljós sem Íslandshús á Ásbrú þróaði í samstarfi við Reykjanesbæ og Hildiberg ljósahönnun. Þeir voru sérstaklega hannaðir fyrir erfiðar aðstæður við sjávarsíðuna, þar sem salt, vindur, snjór og frost fara illa með hefðbundinn ljósabúnað. Fyrstu hundrað ljósálfarnir voru settir upp árið 2025. Ljósinu er beint niður á gönguleiðina til að draga úr ljósmengun og glýju. Mjúk birta fellur jafnframt á grjót og nærumhverfi stígsins. Ljós-
búnaðurinn er útskiptanlegur þannig að ekki þarf að skipta um sjálfa steypueininguna þegar ljósgjafinn hefur lokið líftíma sínum. Framkvæmdin fellur að nýsamþykktum leiðbeiningum Reykjanesbæjar um ljósvist. Þar er lögð áhersla á hlýja lýsingu, lágmarksbirtu og að ljósinu sé aðeins beint þangað sem þess er þörf. Sérstakrar varfærni skal gæta á strand- og náttúrusvæðum til að varðveita myrkurgæði og draga úr áhrifum á fugla og annað lífríki. Næsti áfangi verkefnisins er fyrirhugaður á næsta ári. Þá stendur til að lýsa upp strandleiðina á Vatnsnesi og gönguleiðina neðan Bakkastígs í YtriNjarðvík.
munandi litum eftir óskum hvers sveitarfélags. Stólparnir í Reykjanesbæ eru dökkgráir og merki bæjarins er steypt inn í þá. Brynjar segir merkið njóta sín sérstaklega vel þegar birtan fellur á það og skuggarnir draga það fram. Einnig hefur verið þróuð lausn þar sem hægt er að koma fyrir laserprentaðri plötu úr ryðfríu stáli á stólpunum. Þannig væri til dæmis hægt að setja myndir af bæjarlistamönnum, persónum úr Íslendingasögunum eða upplýsingar um sögu viðkomandi staðar á hvern stólpa. „Þetta gefur möguleika á að hafa ekki aðeins fallega lýsingu heldur líka einhvers konar sögugöngu eða upplýsingamiðlun eftir stígnum,“ segir Brynjar.
Áhugi víða um land Reykjanesbær er ekki eina sveitarfélagið sem hefur sýnt lausninni áhuga. Íslandshús hafa lánað sveitarfélögum víða um land stólpa og undirstöður svo hægt sé að prófa búnaðinn í raunverulegu umhverfi áður en ákvörðun er tekin um stærri framkvæmdir. Þannig geta sveitarfélög prófað mismunandi f jarlægð á milli stólpa, metið birtuna og fengið viðbrögð íbúa. Nýlega hóf Ísafjarðarbær til að mynda að setja upp stólpa af þessari gerð. Feðgarnir segja verkefnið við strandlengjuna í Reykjanesbæ gott dæmi um hvernig samtal fyrirtækis og sveitarfélags getur leitt til nýrrar íslenskrar vöru. „Við viljum gera hlutina vel frá upphafi,“ segir Brynjar og bætir við: „Góð ending skiptir gríðarlega miklu máli þegar horft er til framtíðar.“
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11
Saga um tengsl sem standast tímans tönn Í Miðhúsum í Garði hafa kynslóðir alist upp við búskap, sjó, fjöru og síki. Þar komu Torfi og Margrét sér fyrir um 1940 og ólu upp fjórtán börn. Á jörðinni ráku þau um árabil stærsta kúabú Garðsins, með um þrjátíu mjólkandi kýr og stundum allt að fimmtíu gripi með geldneytum. Börnin tóku frá unga aldri fullan þátt í störfunum, en fundu jafnframt frelsi og ævintýri í náttúrunni umhverfis bæinn. Heimildarmyndin Ár í Miðhúsum fylgir lífinu á þessum sérstaka stað í gegnum árstíðirnar. Myndin er eftir þá Hilmar Braga Bárðarson og Hörð Gíslason og er í senn persónuleg fjölskyldusaga, lýsing á íslenskum búskaparháttum og frásögn af sterkum tengslum fólks við jörðina, fortíðina og hvert annað. Myndin verður sýnd helgina 3. til 4. október næstkomandi. Þann 3. október er myndin sýnd á Byggðasafninu á Garðskaga á 86” skjá en þann 4. október er myndin til sýninga í Bergi í Hljómahöll á bíótjaldi. Sýningartímar eru kl. 14:00, 15:30 og 17:00 báða dagana.
Gamla fjósið varð hjarta ættarinnar Þótt hefðbundnum kúabúskap hafi lokið í Miðhúsum lifa húsin áfram. Systkinin tóku höndum saman, gerðu gamla fjósið og hlöðuna upp og breyttu þeim í félagsheimili og samverustað fjölskyldunnar. Þar eru haldin ættarmót, skötuveislur og aðrar samkomur. Húsin geyma jafnframt verkstæði, búvélar, ferðavagna og allt það sem fylgir lifandi athafnasemi. Ættin telur nú yfir 200 manns og á fjölmennum ættarmótum fyllist Miðhús af lífi. Þar er tjaldað, kveiktur varðeldur, börn
Sýnt er frá heimaslátrun í myndinni.
Bræðurnir Sigurgeir og Jón Gunnar Torfasynir. þegar allur barnahópurinn var kallaður út á tún með hrífur. Samt var alltaf tími fyrir gleði og leiki.
Kynslóð tekur við af kynslóð
Miðhúsafólk heldur ættarmót annað hvert ár.
Tækin í Miðhúsum eru 50-70 ára gömul. leika sér við fjöruborðið og tónlistarfólk úr fjölskyldunni heldur uppi gleðinni. Gamla fjósið, sem eitt sinn stóð undir lífsafkomu stórfjölskyldunnar, hefur öðlast nýtt hlutverk sem hjarta hennar og sameiningartákn. Minningin um Torfa og Margréti er ætíð nærri. „Þau eru sagan okkar,“ segir einn afkomendanna. Staðurinn er tileinkaður þeim og þeirri arfleifð sem þau skildu eftir sig.
Einn traktor á hverja rollu Í Miðhúsum eru um átta gamlir traktorar, flestir fimmtíu til sjötíu ára. Þeir eru ekki aðeins til sýnis. Hver einasti er gangfær og notaður við störfin. Traktor sem keyptur var til niðurrifs reyndist vera með svo góða vél að ekki kom til greina að fórna honum í varahluti. Hann var þess í stað gerður upp og bættist í hópinn. Þar eru einnig heyvinnslutæki, rúlluvél, pökkunarvél og mykjudreifari frá áttunda áratugnum, samsettur úr tveimur gömlum dreifurum. Tækin eru þrifin, lagfærð og varðveitt af natni. Í Miðhúsum er sjálfbærni ekki nýtt tískuorð heldur gamall
Jón Gunnar Torfason var síðasti bóndinn í Miðhúsum. Hann þekkir hvert tún, hvert hús og hvert handtak. Um leið og hann og bræður hans halda húsunum, tækjunum og jörðinni við vaknar óhjákvæmilega spurningin um framtíðina.
lífsmáti: að nýta það sem til er, gera við hlutina og láta þá endast. Búskapurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni. Heyjað er fyrir eigið fé og afurðirnar nýttar innan fjölskyldunnar. Eins og sagt er með bros á vör í myndinni er þar nánast „einn traktor á hverja rollu“.
Mun yngra fólkið halda merkinu á lofti?
Heilt ár í lífi staðarins Myndin fylgir bræðrunum og fjölskyldunni við dagleg störf. Á vorin er sauðburður og stundum þarf að hjálpa stórum lömbum í heiminn. Á sumrin eru túnin slegin og heyinu rúllað. Á haustin er slátrað til heimilisins og handtök sem lærðust í bernsku rifjuð upp. Þegar veturinn leggst yfir Miðhús standa gömlu húsin og vélarnar áfram vörð um söguna. Innan um störfin vakna minningar um bernskuárin: börnin sem ráku kýrnar á beit, smíðuðu sér leikföng, léku sér í fjörunni og skautuðu á frosnum síkjunum. Vinnan var mikil, sérstaklega á sumrin
Þetta myndarlega hrútlamb fæðist í myndinni.
Svarið er varfærnislega bjartsýnt. Afkomendurnir vilja ekki missa staðinn. Þeir vilja varðveita húsin, jörðina og tengslin sem þar hafa orðið til. Þekkingin, minningarnar og samheldnin ganga áfram milli kynslóða. Ár í Miðhúsum er hlý, einlæg og oft brosleg heimildarmynd um vinnusemi og hugvit, sterka fjölskyldu og stað sem heldur áfram að sameina fólk. Hún fjallar um verðmætin sem felast í því að þekkja uppruna sinn, nýta það sem til er og varðveita tengslin við fortíðina – án þess að gleyma að lifa í núinu. Sýningartími er um 60 mínútur.
Jón Gunnar lést 2024 þegar tökur stóðu enn yfir.
Ný íslensk heimildarmynd EFTIR HILMAR BRAGA BÁRÐARSON OG HÖRÐ GÍSLASON um árstíðirnar og lífið í Miðhúsum í Garði SÝNINGAR Á BYGGÐASAFNINU Á GARÐSKAGA Laugardagur 3. október kl. 14:00
Laugardagur 3. október kl. 15:30
Laugardagur 3. október kl. 17:00
50 SÆTI Í BOÐI Á HVERJA SÝNINGU Á GARÐSKAGA
SÝNINGAR Í BERGI Í HLJÓMAHÖLL ELDRI BORGARAR ERU SÉRSTAKLEGA BOÐNIR VELKOMNIR Á ÞESSAR SÝNINGAR.
Ókeypis aðgang
ur!
Sunnudagur 4. október kl. 14:00
Sunnudagur 4. október kl. 15:30
Sunnudagur 4. október kl. 17:00
100 SÆTI Í BOÐI Á HVERJA SÝNINGU Í BERGI
Kaffi skúrinn á garðskaga er opinn laugardaginn 3. október og tilvalið að kíkja í kaffi og kökusneið fyrir sýningu á myndinni
Ókeypis aðgangur • bókið sæti og sýningartíma með pósti á hilmar@vf.is • ATRIÐI í myndinni getA valdið óhug fyrir viðkvæma • sýnt er meðal annars frá slátrun Njarðarbraut 15, 260 Reykjanesbær Sími 420 5000 www.ksteinarsson.is
EignarhaldsfélagIÐ Miðhús í Garði ehf
MENNINGARSJÓÐUR SUÐURNESJABÆJAR
Háeyri ehf. Haraldur Helgason
BYGGÐASAFNIÐ Á GARÐSKAGA
Birna Petrína SigurgeirsdÓTTIR
viltu styrkja framleiðslu myndarinnar og fá nafnið þitt í lok myndar? • Hafið samband við hilmar Braga á hilmar@vf.is eða í síma 898 2222
Þorbjörg BergsdóttiR
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Nýstofnuð Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú í samstarfi við Reykjanesbæ
Kallað eftir hugmyndum íbúa um nýja nýtingu á tómum olíutönkum á Nikkelsvæðinu Hugmyndir um að nýta þá í fjölbreytta menningar- og listasýningarstarfsemi Skoðun og ástandsskýrsla á stóru olíutönkunum sjö á svokölluðu Nikkelssvæði í Reykjanesbæ hefur leitt í ljós að mannvirkin eru í góðu ástandi og mun betra standi en óttast var. Málið var tekið fyrir í umhverfis- og framkvæmdaráði og síðar rætt á bæjarstjórnarfundi, en tankarnir hafa lengi vakið spurningar meðal bæjarbúa um öryggi og framtíðarnýtingu. Í umræðum á fundi bæjarstjórnar upplýsti Guðbergur Reynisson, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, að farið hefði verið inn í og kafað ofan í stöðu tankanna. Miklar áhygg jur höfðu verið uppi um að í þeim leyndust hættuleg efni eða olíuleifar úr fortíðinni. Í ljós kom að tankarnir eru annaðhvort alveg tómir eða eingöngu
með hreinu vatni. Niðurstaða sérfræðinga er að stál- og steypuvirki þeirra séu það traust að þau geti staðið óhreyfð og örugg í 60 til 70 ár til viðbótar. Því er hvatt til þess í skýrslunni að mannvirkjunum verði ekki eytt heldur verði fundin skapandi og samfélagslega gagnleg nýting á þeim. Guðbergur hvatti menningarráð sveitarfélagsins og íbúa alla til
að láta ljós sitt skína og huga að möguleikunum sem búa í tönkunum. Hugmyndir hafa þegar kviknað um að breyta tönkunum í sýningarsali, söfn eða annan vettvang fyrir fjölbreytta menningarog listasýningarstarfsemi líkt og gert hefur verið með lík mannvirki erlendis. Guðbergur hvatti bæjarbúa, hvort sem þeir væru með skráð lögheimili í bænum eða ekki, til að nýta ábendingagátt Reykjanesbæjar og senda inn hugmyndir um hvernig mætti umbreyta Nikkelstönkunum í spennandi kennileiti fyrir samfélagið.
Fulltrúar nýstofnaðra Hagsmunasamtaka íbúa á Ásbrú mættu á síðasta fund umhverfis- og framkvæmdaráðs Reykjanesbæjar til að kynna samtökin og ræða helstu hagsmunamál hverfisins. Heimsóknin var tekin fyrir og rædd á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem bæjarfulltrúar úr öllum flokkum fögnuðu framtaki íbúa og sýndu samstarfinu mikinn velvilja. Katrín og Berglind, formaður og varaformaður samtakanna, kynntu vel unnin gögn og óskuðu eftir samstarfi við sveitarfélagið um nokkur afmörkuð verkefni á Ásbrú. Meðal þess sem samtökin lögðu áherslu á var: „Drop-off “ svæði við skólann: Úrbætur á losunarsvæði fyrir nemendur við skólann á Ásbrú til að tryggja öryggi barna og greiða úr umferð á morgnana, en samtökin kynntu heildstæða og hagkvæma lausn á því vandamáli. Faglega ráðg jöf skrúðgarðyrkjufræðings: Að fá skrúðgarðyrkjuf æðing sveitarfélagsins að láni til að leiðbeina sjálfboðaliðum úr
hverfinu sem vilja ráðast í gróðursetningu og fegrun á svæðinu. Upplýsingar um almenningssamgöngur: Að komið verði fyrir útprentuðum tímatöflum strætó á strætóskýlum í hverfinu til að bæta þjónustu við íbúa.
Fagna aukinni þátttöku og frumkvæði íbúa Guðbergur Reynisson, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi lýstu yfir mikilli ánægju með heimsóknina á bæjarstjórnarfundinn. Halldóra Fríða benti á að íbúar á Ásbrú væru almennt mjög ánægðir með þær framkvæmdir sem þegar hefðu átt sér stað en að það væri mikilvægt að taka utan um þessi minni smáatriði sem upp á vantaði. Bæjarfulltrúar lögðu áherslu á að stofnun hagsmunasamtaka af þessu tagi auðveldaði allt samtal milli bæjaryfirvalda og íbúa, sem gerði sveitarfélaginu kleift að bregðast hratt og vel við óskum um úrbætur í nærumhverfinu.
Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2023–2040 TILLAGA
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti á fundi sínum 29. júní 2026 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2023–2040 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Utanríkisráðuneytið hefur jafnframt samþykkt auglýsingu tillögunnar. Aðalskipulagið markar stefnu um framtíðarnotkun lands og þróun starfsemi innan skipulagssvæðis Keflavíkurflugvallar, sem skiptist í svæði A flugvallarsvæði og svæði
Frá nýliðinni Ljósanótt. Prúðir unglingar á þessari mynd.
B öryggissvæði. Tillagan er unnin í samstarfi Isavia ohf., Landhelgisgæslu Íslands, varnarmálasviðs í umboði utanríkisráðherra og skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar. Megintilgangur endurskoðunarinnar er að tryggja framtíðarþróun Keflavíkurflugvallar í samræmi við þróunaráætlun Isavia til ársins 2045 og að skapa svigrúm fyrir áframhaldandi uppbyggingu flugvallarstarfsemi. Jafnframt er tillögunni ætlað að tryggja að unnt verði að sinna öryggis- og varnarskuldbindingum Íslands með fullnægjandi hætti. Helstu breytingar frá gildandi aðalskipulagi felast meðal annars í: • Breytingum á flugbrautakerfi, þ.e. niðurfellingu flugbrautar 07/25 • Skilgreiningu nýs flugþjónustusvæðis (Demantssvæðis) • Endurskoðun landnotkunar og byggingarheimilda á flugvallar- og öryggissvæðum • Uppfærslu marka milli flugvallarsvæðis og öryggissvæðis • Afmarka legu helstu innviða • Afmörkun svæðis fyrir meðhöndlun og endurnýtingu jarðvegs Með gildistöku nýs aðalskipulags fellur Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2013–2030 úr gildi. Umhverfismatsskýrsla fylgir tillögunni í samræmi við lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Tillagan er aðgengileg í Skipulagsgátt HMS frá 11. september–23. október 2026, mál nr. 567/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að kynna sér tillöguna og senda inn athugasemdir gegnum Skipulagsgátt HMS eigi síðar en 23. október 2026. Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar Utanríkisráðuneytið
Áhyggjur af aukinni unglingadrykkju á Ljósanótt Kallað eftir forvörnum og bættu aðgengi að athvarfi Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fjallaði um framkvæmd Ljósanætur á síðasta fundi sínum í kjölfar þess að skýrsla barnaverndarþjónustunnar um hátíðina var lögð fram í velferðarráði. Þótt hátíðin hafi í heild sinni gengið vel og dregið að á milli 30 og 40 þúsund gesti í frábæru veðri, skyggði aukin ölvun ungmenna á hátíðarhöldin. Í skýrslu barnaverndar kom fram að viðbragðsaðilar og starfsmenn hefðu mætt mikilli ölvun og virðingarleysi meðal ungmenna á hátíðarsvæðinu. Umræðan í bæjarstjórn leiddi í ljós alvarleg dæmi þar sem börn allt niður í 7. bekk náðust undir áhrifum áfengis og þurftu aðstoð lögreglu. Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúi minnihlutans og framhaldsskólakennari, lýsti yfir áhyggjum af þróuninni. Hann sagði frá því að hafa gengið um bæinn með fjölskyldu sinni og séð ungmenni undir lögaldri fela áfengisflöskur og barn í 7. bekk í járnum hjá lögreglunni. Hjörtur benti á að unglingadrykkja hefði farið vaxandi á nýjan leik og hvatti til þess að samfélagið allt tæki höndum saman líkt og gert var í forvarnarstarfi um aldamótin.
Þá kom fram í skýrslu barnaverndar að staðsetning athvarfs fyrir ungmenni á hátíðinni hefði ekki verið nægilega góð vegna fjarlægðar frá þeim stað þar sem ungmennin héldu sig mest. Erfitt hafi reynst að koma ungmennum sem áttu í erfiðleikum í skjól vegna þessarar vegalengdar. Díana Hilmarsdóttir bæjarfulltrúi minnihlutans og Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar tóku undir mikilvægi þess að læra af reynslunni. Þær lögðu áherslu á að athvarfið yrði fært nær hátíðarsvæðinu og „unga planinu“ fyrir næstu Ljósanótt til að tryggja að öll ungmenni sem sækja hátíðina geti fengið skjóta og greiða aðstoð þegar á þarf að halda.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13
Þröstur í 2. sæti á Íslandsmótinu í eldsmíði Þröstur Sigmundsson, nýkrýndur Norðurlandameistari í opnum flokki í eldsmíði og íbúi Reykjanesbæjar, varð í öðru sæti á Íslandsmótinu í eldsmíði sem fram fór í Kristnesi 12. september. Alls tóku ellefu smiðir þátt í 14. Íslandsmeistaramótinu í eldsmíði að þessu sinni. Keppnisverkefnið var að smíða hnífapar ásamt skeið á þremur klukkustundum, þar sem reyndi á hugvit, fagurfræði og tæknilega kunnáttu keppenda. Margfaldur Íslandsmeistari, Beate Stormo, stóð uppi sem sigurvegari en Þröstur Sigmundsson hafnaði í öðru sæti. Daði Jóhannesson varð þriðji. Þröstur hefur vakið athygli innan greinarinnar á síðustu árum og bætti nýlega enn einum áfanganum við feril sinn þegar hann varð Norðurlandameistari í opnum flokki.
Eldsmíðin heillaði frá fyrstu kynnum Aðspurður segir Þröstur að áhuginn á eldsmíði hafi kviknað fyrir nokkrum árum og síðan hafi handverkið orðið stór hluti af lífi hans. „Það er eitthvað sérstakt við að taka járnstykki og móta það með eigin höndum. Maður hættir eiginlega aldrei að læra í þessari grein og það er alltaf hægt að gera betur. Það er það sem heillar mig mest,“ segir Þröstur. Hann segir keppnina í Kristnesi hafa verið bæði skemmtilega og krefjandi.
„Verkefnið var á yfirborðinu nokkuð einfalt, en þegar farið er að vinna innan ákveðinna tímamarka skiptir hvert smáatriði máli. Það þarf að hugsa bæði um form, virkni og frágang á sama tíma.“
Mikill metnaður meðal íslenskra eldsmiða Þröstur segir íslenska eldsmíði standa á sterkum grunni og að framtíð greinarinnar sé björt. „Það sem gladdi mig sérstaklega var hversu margir ungir keppendur voru með að þessu sinni. Það sýnir að ný kynslóð er að taka við og áhuginn á handverkinu er mikill. Það lofar mjög góðu fyrir framtíðina.“ Aðspurður um árangurinn segist hann ánægður með annað sætið, sérstaklega í ljósi sterkrar samkeppni. „Það er alltaf markmið að gera sitt allra besta. Ég er ánægður með útkomuna og tek dýrmæta reynslu með mér áfram í næstu verkefni og mót.“ Þrátt fyrir að keppnis- og meistaramót taki tíma leggur Þröstur áherslu á að Reykjanesbær sé heimabærinn. „Það er alltaf ánægjulegt að geta komið fram fyrir hönd Reykjanesbæjar og sýnt að hér eru handverksmenn sem geta staðið jafnfætis þeim bestu. Ég vona að árangurinn geti jafnvel hvatt fleiri til að kynna sér þetta skemmtilega fag.“
Eldisgarður – Vélstjóri og rafvirki Taktu þátt í rekstri tæknivædds landeldis á Reykjanesi. Eldisgarður er landeldisstöð Samherja fiskeldis á Reykjanesi í auðlindagarði HS orku. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum vélfræðingi/vélstjóra og rafvirkja til að taka þátt í rekstrinum.
Helstu verkefni og ábyrgð • Daglegur rekstur, standsetning, eftirlit með vélbúnaði og tæknikerfum. • Þátttaka í uppbyggingu og þróun tæknikerfa. • Skráning og eftirfylgni með viðhaldsverkefnum í viðhaldskerfi fyrirtækisins.
Vélfræðingur/Vélstjóri • Vélstjórnarmenntun- 4 stig er kostur. • Starfsreynsla af störfum vélstjóra er kostur. • Reynsla af vélgæslukerfum er kostur. • Frumkvæði og metnaður til að taka þátt í uppbyggingu. • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta.
Rafvirki • Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun. • Reynsla af rekstri og viðhaldi rafkerfa er kostur. • Reynsla af sjálfvirknikerfum, PLC-stýringum eða iðnaðarkerfum er kostur. • Reynsla af vélgæslukerfum er kostur. • Frumkvæði og metnaður til að taka þátt í uppbyggingu. • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta.
Við bjóðum • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu eins stærsta landeldisverkefnis Evrópu. • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í ört vaxandi atvinnugrein. • Öflugt teymi sérfræðinga og spennandi starfsumhverfi. • Framtíðarstarf. Frá vinstri: Þröstur, Beate og Daði.
Um Samherja fiskeldi
Hætt við blokkir á Akademíureitnum Víðfeðmara rammaskipulag tekur við Þó nokkrar umræður urðu á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um framtíð svokallaðs Akademíureitar, sem oft hefur verið kallaður Akkerið. Fyrri áform um mikla blokkabyggð á reitnum hafa verið slegin af og þess í stað ákveðið að fara í heildstæðara skipulagsferli fyrir mun stærra svæði í hjarta bæjarins. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri útskýrði á fundinum að skipulagsráð hefði samþykkt að unnið yrði nýtt og víðfeðmara rammaskipulag. Nýja afmörkunin nær yfir stórt svæði frá Nesvöllum allt að Slökkvistöðvarreit, Krossmóa, Sólvallagötu, Lögreglustöðvarreit og Faxabraut. Bæjarstjóri undirstrikaði að á sjálfum Akademíureitnum verði ekki gert ráð fyrir íbúðabyggð. Meginástæða þess er að koma í veg fyrir að þrengt verði um of að umferðaræðum og bílastæðum á þessum dýrmæta miðbæjarreit. Þess í stað er miðað við að reiturinn nýtist undir samgöngumiðstöð, menningarlíf og frekari uppbyggingu íþrótta- og tómstundastarfs.
Þótt hætt hafi verið við íbúðabyggð á Akkerinu sjálfu útilokar bæjarstjóri ekki að íbúðir rísi í nágrenninu innan nýja rammaskipulagsins. Hvernig íbúðabyggð rúmast á samliggjandi reitum mun koma í ljós í skipulagsferlinu, en megináherslan verður lögð á að tryggja góða heildarsýn og greitt umferðarflæði um Þjóðbraut. Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúar í minnihluta, og Guðbergur Reynisson, fulltrúi í skipulagsráði, ræddu málið einnig og fögnuðu því að dregin væri skýr lína. Ríkir almenn samstaða um að horfa heildstætt á svæðið frekar en að fara í bútasaum sem gæti valdið umferðarhnútum til framtíðar.
Samherji fiskeldi hefur yfir tveggja áratuga reynslu af landeldi á laxi og bleikju. Fyrirtækið leggur áherslu á sjálfbæra framleiðslu og ábyrga nýtingu. Eldisgarður á Reykjanesi er ný og metnaðarfull landeldisstöð í uppbyggingu sem mun nýta jarðsjó, ylsjó og endurnýjanlega orku til framleiðslu á laxi frá seiði til slátrunar. Markmiðið verkefnisins er að byggja upp hagkvæma landeldisstöð sem framleiðir hágæða afurðir fyrir kröfuharða neytendur.
Nánari upplýsingar Umsóknarfrestur er til 22. september 2026 Nánari upplýsingar veitir Gunnar Dagur Darrason, rekstrarstjóri Eldisgarðs, gdd@samherji.is Sótt er um starfið á heimasíðu Samherja, samherji.is
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Vallargata 23 – Litli Bær
Vallargata 23 – Litli Bær – Viðhald á eldra húsi Róbert Fisher og Bryndís Lúðvíksdóttir fá viðurkenningu fyrir mjög vel viðhaldið gamalt hús með snyrtilegum garði.
Hringbraut 79
Umhverfisviðurkenningar við hátíðlega heimsókn Um h v e r f i s v i ð u r k e n n i n ga r Reykjanesbæjar 2026 voru afhentar miðvikudaginn 2. september. Afhendingin var með breyttu og skemmtilegu sniði í ár þar sem verðlaunahafar voru
heimsóttir og viðurkenningarnar afhentar á hverjum stað fyrir sig. Ferðin hófst í Vatnsholti og þaðan var haldið víða um sveitarfélagið. Þetta nýja fyrirkomulag gaf gestum tækifæri til að sjá með
eigin augum þá miklu vinnu, alúð og umhyggju sem liggur að baki hverri viðurkenningu. Afhendingin gekk einstaklega vel og var tekið hlýlega á móti hópnum á öllum stöðum.
Fornverk í Höfnum – Fyrirtæki Sveinn Enok Jóhannsson fær viðurkenningu fyrir að auka kunnáttu á fornu verklagi með námskeiðahaldi og fyrir viðhald á fornum görðum í Höfnum.
Hringbraut 79 – Tilnefning frá íbúum
Skógræktarfélag Suðurnesja – Vatnsholt
Reykjanesvegur 44 – Einkagarður
Samfélagsviðurkenning í tilefni 20 ára uppbyggingar og starfs í Vatnsholti.
Vilborg Sævarsdóttir og Garðar Einarsson fá viðurkenningu fyrir fallegan og vel viðhaldinn einkagarð með fjölbreyttu plöntu- og gróðurúrvali.
Fræðslustund í Byggðasafninu á Garðskaga
Nýtt met í frístundastarfi í Reykjanesbæ
Við sjóinn - bátasmíði og strandmenning
Sunnudaginn 27. september klukkan 15:00
Viðurkenning fyrir snyrtilegan og vel viðhaldinn einkagarð. Anna Marie Kjærnested tók við viðurkenningu fyrir hönd íbúa.
26 prósenta aukning nemenda á einu ári Gríðarleg aukning hefur orðið í þátttöku barna í frístundaheimilum grunnskóla Reykjanesbæjar á þessu skólaári, en slegið var nýtt met í skráningum hjá nemendum í 1. til 4. bekk. Þetta kom fram í samantekt grunnskólafulltrúa sem kynnt var í menntaráði og tekin fyrir á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Yfir 700 börn á frístundaheimilum
Sigurbjörg Árnadóttir og Einar Jóhann Lárusson nýr áhugahópur um strandmenningu á Suðurnesjum
SÓKNARÁÆTLUN SUÐURNESJ A
Í upphafi núverandi skólaárs eru alls 743 nemendur skráðir á frístundaheimili sveitarfélagsins, samanborið við 591 nemanda á sama tíma á síðasta skólaári. Er það um 26 prósenta aukning á milli ára. Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi minnihlutans, vakti athygli á þessum stóra áfanga og benti á að mikil eftirspurn kallaði á að taka þyrfti mið af þessum vexti við komandi fjárhagsáætlunargerð.
Hún hvatti til þess að haldið yrði áfram að samþætta þjónustu frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþróttastarfs til að skapa samfelldan og öflugan skóladag fyrir börn og ungmenni.
Frístundaaksturinn slær í gegn Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjar fulltrúi minnihlutans, fagnaði sömuleiðis þessari þróun og þakkaði starfsfólki frístundaheimila fyrir öflugt og faglegt starf. Hún benti á að Reykjanesbær væri
ungt sveitarfélag með mikinn fjölda barna og að frábærar viðtökur skýrðust ekki síst af góðri þjónustu og farsælli innleiðingu á frístundaakstri. Með frístundaakstrinum eru börn sótt á frístundaheimilin og þeim ekið á æfingar hjá íþróttaog æskulýðsfélögum í bænum þar sem foreldrar sækja þau síðar um daginn. Sú þjónusta hefur létt til muna á álagi hjá barnafjölskyldum og aukið til muna þátttöku barna í tómstundastarfi. Bæjarfulltrúar lýstu yfir ánægju með árangurinn og lögðu áherslu á að standa vörð um faglegt frístundastarf í bænum.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 15
Besta tilfinningin að sjá boltann fara í markið Ása Björg Einarsdóttir, markaskorari Grindavíkur/Njarðvíkur, var svekkt með úrslitin en um leið afar stolt af liðinu eftir bikarúrslitaleikinn. „Ég er fyrst og fremst gríðarlega svekkt en samt ótrúlega stolt af liðinu. Það eitt að hafa komist hingað og fengið að spila þennan leik er stórkostlegur árangur,“ sagði Ása eftir leikinn. „Það var mikil spenna í okkur í byrjun en mér fannst þetta síðan verða ótrúlega skemmtilegur leikur. Við vorum mjög flottar í dag og ég er gríðarlega stolt af liðinu.“
„Göngum héðan með höfuðið hátt“ Natasha Moraa Anasi sagði tapið afar svekkjandi en að leikmenn Grindavíkur/ Njarðvíkur gætu engu að síður gengið frá úrslitaleiknum með höfuðið hátt. „Ég geng héðan með höfuðið hátt og með mikið stolt. Þetta lið er geðveikt og ég elska þennan hóp svo mikið. Ég gæti ekki verið stoltari af okkur og þeirri vegferð sem við höfum farið í,“ sagði Natasha. „Við eigum nokkra leiki eftir og höfum enn fullt að sýna. Fyrir ári vorum við að tryggja okkur sæti í Bestu deildinni en nú erum við í efri hlutanum og höfum komist í bikarúrslit. Fyrir nýliða er það stórkostlegur árangur.“
Silfrið var raunin hjá Grindavík/Njarðvík
Sigríður Emma F. Jónsdóttir, fyrirliði Grindavíkur/ Njarðvíkur, sagði liðið hafa verið inni í leiknum og jafnvel haft yfirhöndina lengi vel. „Þetta var geggjaður dagur en því miður fékk hann leiðinlegan endi. Við reyndum okkar besta og mér fannst við lengi vel vera með yfirhöndina í leiknum. Svona fór þetta bara,“ sagði Sigríður Emma eftir leikinn.
MJÓLKURBIKARINN Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Grindavík/Njarðvík varð að sætta sig við silfur eftir 2:1-tap gegn Þrótti í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á Laugardalsvelli. Ása Björg Einarsdóttir kom Suðurnesjaliðinu yfir á 69. mínútu eftir góðan undirbúning Sophiu Faith. Þróttur jafnaði úr vítaspyrnu sex mínútum síðar þegar Sæunn Björnsdóttir skoraði af öryggi. Unnur Dóra Bergsdóttir tryggði Þrótti síðan sigurinn á 82. mínútu.
Ása Björg Einarsdóttir horfir á eftir boltanum í netið þegar hún kom Grindavík/Njarðvík yfir í bikarúrslitunum. VF/hilmarbragi
Ásgeir Orri og Frans Elvarsson fagna ellefta marki Stefans Ljubicic í sumar. VF/hilmarbragi.
Fáir sáu Keflavík og Fram gera jafntefli verið vonbrigði,“ sagði Haraldur. Keflvíkingar verma áfram 6. sætið með 29 stig en Skagamenn eru í 5. sæti en þeir sigruðu Blika örugglega.
Stolt og þakklæti sterkara en vonbrigðin Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, sagði stoltið yfir liðinu og þakklætið fyrir að fá að taka þátt í ævintýrinu hafa verið sterkari tilfinningar en vonbrigðin eftir 2:1-tapið gegn Þrótti í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á dögunum. „Tilfinningarnar eru miklar og margar. Stærsta tilfinningin er stolt og þakklæti fyrir að vera hluti af þessu liði og hafa fengið að upplifa þennan dag með liði sem manni þykir svo vænt um,“ sagði Gylfi eftir leikinn í samtali við Víkurfréttir. „Ég hélt að sársaukinn yfir tapinu yrði ríkjandi en þetta er bara svo frábært lið að ég get eiginlega ekki annað en fundið fyrir stolti og þakklæti í miklu
magni. Auðvitað fylgir þessu samt svekkelsi yfir því að hafa tapað.“ Miklar breytingar hafa orðið á hópnum í sumar og að sögn Gylfa hafa meira en 40 leikmenn verið skráðir á leikskýrslu hjá liðinu á tímabilinu. „Það er eitthvað sem ég væri til í að endurtaka ekki. Við viljum halda áfram að byggja upp stöðugleika. Þetta er mjög ungt lið sem fór upp úr Lengjudeildinni í fyrra og er nú komið í efri hluta Bestu deildarinnar. Við erum að vaxa mjög hratt og það getur verið erfitt að halda jafnvægi þegar vöxturinn er svona mikill.“ Hluti breytinganna skýrist af meiðslum og því að leikmenn hafa haldið til náms í Bandaríkjunum. Gylfi segir mikilvægt að setjast niður í vetur og leggja línurnar fyrir næsta tímabil.
Guðjón Árni tekur við kvennaliði Keflavíkur Guðjón Árni Antoníusson hefur verið ráðinn þjálfari meista r a f l o k k s kv e n n a í knattspyrnu hjá Keflavík. Hann tekur við starfinu eftir að hafa undanfarin ár þjálfað yngri flokka félagsins. Guðjón Árni er öllum hnútum kunnugur hjá Keflavík og á að baki langan og farsælan feril með félaginu. Hann lék um árabil með meistaraflokki karla, var fyrirliði liðsins og varð tvívegis bikarmeistari í bláu treyjunni.
Ásgeir í 21 árs landsliðið
Keflvíkingar gerðu jafntefli við Fram í leik liðanna í úrslitakeppni efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á HS Orku vellinum í Keflavík síðasta sunnudag. Lokatölur 2-2 í mjög fjörugum leik en úrslitin sanngjörn því bæði lið áttu sín marktækifæri. Þetta var annar leikur bítlabæjarliðsins í efri hlutanum en liðið tapaði við Íslandsmeisturum Víkings í síðustu viku. Heimamenn komust yfir með flottu skallamarki Stefans Ljubicic sem fékk frábæra sendingu frá Eiði Orra Ragnarssyni. Framarar skoruðu næstu tvö mörk en Keflvíkingar svöruðu stuttu síðar með öðru glæsilegu skallamarki,nú frá Elvis Okello. Haraldur Guðmundsson var þokkalega sáttur með sína menn en ekki með aðsóknina sem hefur verið slök í sumar. Nú mættu innan við 400 manns á leikinn. „Við erum að spila við liðið í 2. sæti og ég átti satt að segja von á fleirum. Aðsóknin í sumar hefur
„Geggjaður dagur en leiðinlegur endir“
Ásgeir Orri Magnússon, aðal markvörður Bestu deildarliðs Keflavíkur í knattspyrnu hefur verið valinn í U21 árs landslið Íslands fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2027. Ísland leikur þrjá leiki, gegn Frakklandi, Sviss og Færeyjum.
Deildarmeisturum Víðis fagnað við komuna í Garðinn Víðismenn eru deildarmeistarar í 3. deild að loknu knattspyrnusumrinu 2026. Leikmenn Víðis fengu höfðinglegar móttökur þegar þeir komu í Garðinn eftir lokaleik Íslandsmótsins en þeir fóru norður á Sauðárkrók og mættu Tindastóli í 4:4 markaleik. Liðið kom svo í Garðinn í lögreglufylgd með deildarmeistarabikarinn og þegar honum var lyft brutust út mikill fagnaðarlæti. Sjá má myndskeið á vf.is frá því og í rafrænni útgáfu Víkurfrétta.
Íslandsmeistarar og taplausar í gegnum mótið Lið stúlkna í 5. flokki RKVN í knattspyrnu varð í dag Íslandsmeistari eftir sigur á Breiðabliki 3-1 en leikurinn fór fram í Njarðvík. Með þessum sigri fóru þær taplausar í gegnum mótið og voru lang bestar á tímabilinu. Lið RKVN Steina Björk Gunnarsdóttir Helga Kristín Guðmundsdóttir Auður Embla Viktorsdóttir
Guðný Anna Bjarnadóttir Margrét Kara Davíðsdóttir Kristrún Þóra Valberg Sara Lind Jónsdóttir Thelma Lind Henrýsdóttir Nanna Dís Valtýsdóttir Þjálfarar Sólrún Sigvaldadóttir Adam Sigurðsson Skúli Sigurðsson
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
107 Röggur
Haustið
byrjar vel
Tilboð gilda til 27. september
Nauta Tomahawk, frosið
Græn vínber, 500g
Grísabógur, ferskur
Lambi klósettpappís 24 rúllur
Opnunartímar í Nettó Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
Á þeim rúmum fimm árum sem við fjölskyldan höfum búið í París hef ég reynt að fara reglulega til Íslands – auðvitað til að hitta fjölskyldu og vini – en ekki síst til að hitta hárgreiðslumanninn minn og fara í klippingu. Jú, það eru vissulega hárgreiðslustofur í París, en ég er mjög trygglynd kona ( já, og íhaldssöm) og finnst engin ástæða til þess að breyta um klippara þegar ég er svo ánægð með minn. Þetta þýðir að ég hef verið að koma að jafnaði á 6-8 vikna fresti til að sinna þessu mikilvæga verkefni. Þetta sumar hefur verið undantekning og hef ég ekki náð að koma til Íslands síðan í júní – með þeim afleiðingum að það er ekki bara einn Lubbi á heimilinu – heldur einn Lubbi og ein með lubba. En við höfum verið svo heppin að þrátt fyrir að við höfum ekki náð að fara til Íslands, þá hefur Ísland sannarlega náð að koma til okkar því vinir okkar og fjölskyldur hafa verið dugleg að heimsækja okkur, átt með okkur dýrmætar gæðastundir og þannig slegið á söknuðinn. Við höfum ekki lengur tölu á fjöldanum sem rennur í gegn hjá okkur ýmist í mat eða gistingu og er frábært að ná að hitta okkar besta fólk hér. Í síðustu viku gerðist svo það að kvennaleynifélag sem ég á aðild að lagði land undir fót og hélt upp á 20 ára afmæli félagsins með ferð til Parísar. Þetta er félagsskapur sem leggur mikið bæði í fræðslu og skemmtilegheit í ferðum sínum og úr varð að ég tók að mér að skipuleggja viðburð í OECD – Efnahagsog framfarastofnuninni – þar sem ég starfa. Fundurinn, sem hafði á dagskránni háttsetta sérfræðinga frá OECD, sendiherra gagnvart stofnuninni og íslenska sérfræðinga úr hópnum, fjallaði um stöðu alþjóða- og efnahagsmála í heiminum með áherslu á hvernig Ísland getur sem best nýtt sér OECDaðild og aðra alþjóðasamninga til þess að ná sem bestum árangri. Enn fremur var sérstök áhersla lögð á að rýna nýútkomnar PISAniðurstöður við helsta sérfræðing OECD – sem ég kalla einfaldlega „Herra PISA“ – bæði almennt en auðvitað sérstaklega með tilliti til útkomu Íslands og rætt hvaða leiðir Ísland hefði til að snúa við þeirri alvarlegu þróun sem þar birtist. Þó ég segi sjálf frá heppnaðist fundurinn frábærlega og bæði íslensku gestirnir og aðrir ræðumenn lýstu ánægju sinni með þá athyglisverðu og gagnlegu umræður sem þarna fór fram. En það sem meira var, þá held ég að þarna hafi verið sett OECD met í fjölda Íslendinga sem hafa verið í aðalstöðvum stofnunarinnar á sama tíma – 107 íslenskar konur – og ekki síður mikilvægt er að þarna voru 107 íslenskar áhrifakonur með sterkar skoðanir. Þegar ég var, ásamt teyminu mínu, að undirbúa fundinn og reyna að lýsa þessum góða félagsskap bað ég þær að ímynda sér fullan sal af Röggum – 107 Röggur á einum stað! Ég er ekki frá því að þeim hafi brugðið dáldið við og ekki litist á blikuna! En OECD stóð þetta af sér og heimsóknin verður sannarlega lengi í minnum höfð.
Mundi Við á VF erum nú bara ánægð að hafa eina Röggu.