Skip to main content

Víkurfréttir 14. tbl. 47. árg.

Page 1


Skúrinn hjá Boga

slær í gegn á Garðskaga

Hvers vegna stendur stelkurinn á einum fæti?

Á þessari mynd frá Stafnesi hefur stelkurinn tyllt sér á veðraðan vegvísi sem markar forna gönguleið í Ósabotna. Margir velta fyrir sér hvers vegna þessir vaðfuglar standa svo oft á öðrum fæti. Ástæðan er afar hagnýt. Með því að draga annan fótinn upp í dúninn helminga þeir hitatapið í köldum vindi og bleytu. Sérstakt sinakerfi læsir liðnum sjálfkrafa svo þeir geta hvílst eða sofið á einum fæti án þess að nota vöðvaorku. Stelkurinn er kallaður „varðhundur mýrarinnar“ og elskar að nota svona staura sem útsýnisstaði til að fylgjast með umhverfinu og vara aðra við gestum á gönguleiðinni. VF/hilmarbragi

Fimm heimsmeistaratitlar og verðlaunaregn til DansKompaní - sjá umfjöllun í miðopnu

Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær

Nýr brimvarnagarður rís úr sæ í Njarðvík

Framkvæmdir við nýjan 470 m langan brimvarnargarð á suðursvæði Njarðvíkurhafnar ganga vel. Garðurinn er farinn að taka á sig mynd en það eru mörg handtök eftir þar sem verklok eru ekki fyrr en í júní á næsta ári. Myndin var tekin í síðustu viku þar sem unnið var að því að hlaða stórgrýti í enda brimvarnagarðsins. VF/hilmarbragi

Mynd:

Fannar leiðir nýtt

umbóta- og hagræðingarteymi Reykjanesbæjar

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar umbóta- og ingarteymi.

Markmið teymisins er að auka skilvirkni stjórnsýslunnar, bæta tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best. Verkefnið er liður í stefnu nýs meirihluta um heildstæða endurskoðun á rekstri bæjarins.

Fannar leiðir lykilverkefni Reykjanesbær hefur gert verktakasamning við Fannar Jónasson, einn af reynslumeiri sveitarstjórnarmönnum landsins, til þess að leiða þetta verkefni. Fannar hefur áratugalanga reynslu af stjórnun sveitarfélaga og mun gegna lykilhlutverki við framkvæmd umbóta- og hagræðingarverkefna bæjarins. Meðal verkefna Fannars verður að: Stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun. Fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir. Leggja mat á frekari greiningar og leiða eftirfylgni umbótaverkefna. Veita kjörnum fulltrúum og stjórnendum ráðgjöf og styðja sveitarfélagið í samskiptum við stjórnvöld.

Þverfaglegt teymi skipað sérfræðingum

Umbóta- og hagræðingarteymið verður tímabundið og skipað starfsfólki og stjórnendum með ólíka sérþekkingu.

Fannar mun starfa í nánu samstarfi við bæjarstjóra. Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs, mun samræma samstarf við formenn ráða og nefnda. Andri Örn Víðisson mun leiða verkefni er snúa að þróun stjórnsýslunnar og stafrænni umbreytingu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, aðstoðarmaður bæjarstjóra, verður teyminu til aðstoðar ásamt fulltrúum fjármála- og mannauðssviðs.

Skýr sýn á framtíðina og þegar mælanlegur sparnaður

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að þegar hafi verið stigin mikilvæg skref í átt til sparnaðar á fyrstu vikum nýs meirihluta: „Við höfum þegar sýnt að við ætlum að fara vel með skattfé íbúa. Á fyrstu vikunum fækkuðum við pólitískum nefndum og ráðum og spöruðum sveitarfélaginu hátt í 10 milljónir króna á ári. Við höfum jafnframt lækkað laun bæjarstjóra sem skilar 4–5 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli og laun aðstoðarmanns bæjarstjóra eru um fjórum milljónum króna lægri á ári, að meðtöldum launatengdum gjöldum, en greidd voru fyrir aðstoðarmann bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili.“

Vilhjálmur segir þetta hafa verið fyrstu skrefin en nú taki við næsti áfangi þar sem áfram verður haldið að bæta reksturinn og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði. Markmiðið með vinnu teymisins er að einfalda stjórnsýsluna, stytta boðleiðir og byggja upp öflugra sveitarfélag þar sem fjármunum íbúa er ráðstafað af ábyrgð.

Ráðning aðstoðarmanns bæjarstjóra kostar 13,5 milljónir

þann 25. júní, eftir að fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar óskuðu skýringa.

Engin lagaskylda til að auglýsa

Meirihlutinn vísar til þess að um tímabundna ráðningu til eins árs og innri stjórnunarráðstöfun sé að ræða samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Ólíkt því sem á við um ríkisstarfsmenn sé ekki almenn skylda fyrir sveitarfélög að auglýsa öll störf. Við valið hafi verið gætt að hæfi, jafnræði og þörf bæjarstjóra fyrir stuðning og trúnað.

Fjármagnað með launum launafulltrúa

Mikið álag varð þess valdandi að starfið var stofnað, en ekki þótti raunhæft að dreifa verkefnunum á aðra starfsmenn. Ekki var gerð breyting á skipuriti en gerð er

Saka nýja meirihlutann um bruðl og að vera með „þrjá bæjarstjóra á launum“

Harka var á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar, þar sem tekist var á um umfangsmiklar skipulagsbreytingar, ráðningar sérfræðinga og launahækkanir til kjörinna fulltrúa. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks samþykkti röð tillagna sem minnihluti Samfylkingar og Framsóknarflokks segir að auki útgjöld sveitarfélagsins um tugi milljóna króna og stríði gegn loforðum um sparnað. Deilurnar urðu persónulegar þegar meirihlutinn sakaði oddvita minnihlutans um lygar og grínaðist með að „gervigreindarforrit“ stýrði málflutningi hennar.

Fannar Jónasson ráðinn sem verktaki við hagræðingu

sonar verða hækkuð frá og með 1. ágúst næstkomandi þannig að þau nemi 50% af þingfararkaupi. Breytingin er sögð vegna aukinna verkefna hans við að samræma störf nefnda og ráða. Gunnlaugur vék af fundi á meðan þetta var samþykkt.

Aðstoðarmaður bæjarstjóra og UT-deild: Færðar voru 7,2 milljónir króna af launadeild yfir á deild bæjarstjóra til að fjármagna tímabundna ráðningu aðstoðarmanns hans, Hermanns Nökkva Gunnarssonar, en fjármagnið átti upphaflega að fara í stöðu launafulltrúa sem ekki verður nýtt. Þá voru 5 milljónir króna fluttar til að breyta verkefnum deildarstjóra upplýsingatæknideildar (UT) og ráða nýjan starfsmann þangað inn.

Ragnarssyni og Gunnlaugi Kárasyni, svaraði fullum hálsi og sagði málflutning minnihlutans hvorki standast staðreyndir né einfalda skoðun. Þau bentu á að nú þegar væri búið að spara hátt í 10 milljónir á ári með því að fækka pólitískum nefndum, auk þess sem laun nýs bæjarstjóra og aðstoðarmanns væru lægri en áður. Þau sögðu beinlínis logið til um fjölda bæjarstjóra:

„Eina fólkið sem slær ryki í augu bæjarbúa eru þeir sem segja að við séum með þrjá bæjarstjóra. Hér er beinlínis logið og engu líkara en að gervigreindarforrit oddvita minnihlutans sé að leika þá grátt.“

krafa um háskólamenntun í verkefnastjórnun.

Kostnaðurinn, 13,5 milljónir króna, er fjármagnaður með tilfærslu innan fjárhagsáætlunar. Ónýtt fjármagn sem ætlað var í laun launafulltrúa mun dekka kostnaðinn og verður óskað eftir tilfærslu á milli deilda í sérstökum viðauka.

Á að skila rekstrarlegum ávinningi

Bæjaryfirvöld telja að ráðningin muni skila betri stjórnsýslu og rekstrarlegu hagræði fremur en beinum fjárhagslegum ávinningi.

Aðstoðarmaðurinn mun sinna fundarundirbúningi og upplýsingaflæði svo bæjarstjóri geti einbeitt sér að stefnumótandi verkefnum. Þetta á að draga úr álagi á aðra stjórnendur og skýra boðleiðir.

Meirihluti bæjarráðs samþykkti að gera verktakasamning við Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóra í Grindavík, sem mun stýra innleiðingu svokallaðrar núllgrunnsáætlunar sveitarfélagsins. Fannar á jafnframt að rýna fyrri stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir og veita bæjarstjóra og bæjarráði ráðgjöf um umbótamál.

Samhliða þessu var samþykkt af meirihlutanum að setja á laggirnar nýtt tímabundið teymi um hagræðingu og umbætur (HUteymið) þar sem Fannar mun sitja ásamt Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra, Gunnlaugi Kárasyni formanni bæjarráðs og fleiri embættismönnum. Ekki verður greitt sérstaklega fyrir þátttöku í teyminu sjálfu.

Laun formanns bæjarráðs hækkuð og aðstoðarmaður ráðinn

Auk þess að ráða Fannar samþykkti meirihlutinn tvær aðrar umdeildar breytingar á stjórnsýslunni:

Launahækkun formanns bæjarráðs: Laun Gunnlaugs Kára-

Minnihlutinn: „Tæpar 10 milljónir á mánuði í þrjá bæjarstjóra“

Fulltrúar minnihlutans, þær Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), sögðu málið allt hið mesta óreiðuverk og mótmæltu harðlega í bókun sinni. Þær sögðu heiti málsins („Úttektir á fjármálum“) slá ryki í augu íbúa þar sem verið væri að auka útgjöld og blása út stjórnsýsluna.

„Hér er nýr meirihluti að samþykkja að út árið 2026 verði þrír bæjarstjórar í vinnu hjá sveitarfélaginu sem kostar Reykjanesbæ tæpar 10 milljónir á mánuði. Þetta er að okkar mati óábyrg ráðstöfun á skattfé íbúa sveitarfélagsins,“ sögðu þær Guðný og Halldóra og vísuðu þar til núverandi bæjarstjóra, fyrrverandi bæjarstjóra á biðlaunum og nýja verktakasamningsins við Fannar.

Meirihlutinn vísar í gervigreind og sakar minnihlutann um gleymsku

Meirihlutinn, skipaður þeim Margréti Þórarinsdóttur, Alexander

Þá fullyrti meirihlutinn að fyrri meirihluti (þar sem Framsókn og Samfylking réðu för) hefði sjálfur „gleymt“ að gera ráð fyrir lögboðnum biðlaunum fyrrverandi bæjarstjóra í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

Nýjar deilur í uppsiglingu um almenna launahækkun bæjarfulltrúa

Áður en fundi lauk var ljóst að frekari átök eru í vændum. Minnihlutinn lagði fram formlega fyrirspurn til Sjálfstæðisflokks og Miðflokks vegna upplýsinga um að meirihlutinn hyggist afnema frystingu á launum bæjarfulltrúa og nefndarfólks (sem gilt hefur frá 2023) og taka inn hækkanir á þingfararkaupi fyrir árið 2026. Guðný og Halldóra fullyrða að þessi ákvörðun hafi verið tekin af „alvaldi bæjarstjóra“ án formlegrar kynningar í bæjarráði og áætla að hækkunin ein og sér fyrir bæjarstjórn nemi um tæpri milljón króna á mánuði. Þær krefjast svara á næsta fundi um hvernig eigi að fjármagna þær hækkanir á miðju ári.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar eins og hún er skipuð í dag. Bæjarstjórnin er í sumarleyfi en bæjarráð stendur vaktina. VF/pket

Almyrkvi á Garðskaga:

Auglýst eftir matarbílum og söluaðilum

Mikill fjöldi gesta er væntanlegur til Suðurnesjabæjar miðvikudaginn 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi á sólu verður sjáanlegur hér á landi. Búist er við að Garðskagi verði einn vinsælasti áningarstaðurinn til að fylgjast með þessum fágæta viðburði og af því tilefni auglýsir Suðurnesjabær nú eftir söluaðilum á svæðið. Íbúum og gestum verður boðið upp á þjónustu við Byggðasafnið

á Garðskaga þar sem matarbílum og sölubílum verður útvegað pláss yfir daginn til að skapa flotta stemningu.

Plássið á Garðskaga er takmarkað og eru áhugasamir söluaðilar því hvattir til að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér stæði. Stæðagjald er 30.000 krónur og er aðgangur að rafmagni innifalinn í gjaldinu, að því er segir á vef sveitarfélagsins.

Loftnet sett upp á Garðskagavita

Framkvæmda- og skipulagsráð

Suðurnesjabæjar hefur heimilað Mílu að setja upp farsímaloftnet á Garðskagavita. Markmiðið er að tryggja nægilega afkastagetu og bæta farsímaþjónustu á svæðinu vegna þess mikla fjölda fólks sem búist er við í tengslum við sólmyrkvann í ágúst.

Ráðið gerir ekki athugasemdir við uppsetningu búnaðarins

á vitanum, en setur þó þann fyrirvara að Vegagerðin samþykki framkvæmdina og að búnaðurinn muni ekki trufla annan tæknibúnað á svæðinu. Viðbúið er að mikill fjöldi innlendra og erlendra ferðamanna muni streyma á Garðskaga til að fylgjast með þessum sjaldgæfa náttúruatburði, sem setur mikla pressu á fjarskiptakerfi.

Hlakkar til að takast á við verkefnin í Suðurnesjabæ

Senn líður að því að Alexandra Jóhannesdóttir taki við starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Í kveðju til íbúa á vef sveitarfélagsins segir hún það mikinn heiður og ábyrgð að fá þetta tækifæri og hlakkar hún til að kynnast samfélaginu betur á næstu vikum og mánuðum. Alexandra segist í pistli sínum alla tíð hafa haft mikinn áhuga á samfélagsþróun og uppbyggingu innviða. Hún vísar meðal annars í nýlegan pistil sinn um mikilvægi hafna en bendir á að hugsunin þar að baki eigi við um samfélagið allt: að byggja á styrkleikum sínum og skapa forsendur fyrir verðmætasköpun og auknum lífsgæðum.

Hlakkar til að hitta íbúa og heimsækja fyrirtæki

Fram undan er tími kynninga en Alexandra stefnir á að hitta sem flesta á næstunni. „Á næstu vikum og mánuðum hlakka ég til að kynnast samfélaginu, hitta sem flesta og heimsækja starfsstöðvar, fyrirtæki og stofnanir. Hver sá sem býr og starfar í Suðurnesjabæ hefur mikilvæga sýn á sitt samfélag og á þá framtíð sem við viljum byggja,“ segir Alexandra.

Kaffi Skúrinn á Garðskaga heillar gesti upp úr skónum

Það er eitthvað magnað við Garðskagann. Í stórbrotnu umhverfi þar sem úthafið mætir landi, við hliðina á vitunum tveimur, hefur nýr áfangastaður litið dagsins ljós sem á eftir að ylja mörgum um hjartarætur í sumar. Þetta er Kaffi Skúrinn (eða Coffee Shack) við Hólavelli, lítið og dásamlega vinalegt fjölskyldukaffihús sem fékk starfsleyfi um miðjan júní og hefur fengið draumaviðtökur síðan.

Þegar blaðamann ber að garði tekur sjálfur vertinn, Bogi Jónsson, á móti honum með bros á vör. Bogi er mörgum kunnur, enda enginn nýgræðingur í bransanum. Það eru nefnilega heil 40 ár síðan hann hóf rekstur með hinum landsþekktu „Boga-Rúllum“ úr matarvangi. Síðan þá hefur hann rekið taílenska veitingastaði, vöruhús og heimaveitingahús á Álftanesi.

Eftir fjármálahrunið keyptu Bogi og eiginkona hans, Narumon Sawangjaitham, Hólavelli við Skagabraut 86 í Garðinum og hafa búið þar til margra ára. Bogi lét hendur standa fram úr ermum, reif eldri byggingar á landareigninni og reisti nýtt hús sem nú hýsir þetta líka dásamlega kaffihús ásamt vinnustofu hans.

Minningaveggurinn sem bjargað var úr geymslu

Telur sveitarfélagið eiga mikla möguleika

Að mati verðandi bæjarstjóra á Suðurnesjabær að vera í fremstu röð sveitarfélaga hér á landi. Til þess þurfi að nýta þá styrkleika sem þegar eru til staðar, vinna markvisst að sameiginlegum markmiðum og skapa umhverfi þar sem hugmyndir fá að verða að veruleika. „Þegar við byggjum á því sem sameinar okkur, tölum af metnaði fyrir hönd sveitarfélagsins og vinnum saman að skýrri framtíðarsýn, skapast bestu forsendurnar fyrir áframhaldandi sókn. Ég trúi því að sá tími sé núna,“ segir Alexandra að lokum og óskar íbúum gleðilegs sumars.

Kaffi Skúrinn er ekki bara staður til að fá sér kaffisopa; hann er lifandi safn og vitnisburður um litríkan starfsferil Boga. Inni á kaffihúsinu má skoða ýmsa muni og á vinnustofunni ber hæst merkilegan minningavegg sem á sérstaka sögu. Veggurinn stóð áður á einum af fyrri veitingastöðum Boga og á hann höfðu þjóðþekktir einstaklingar ritað nöfn sín og kveðjur. Þegar Bogi þurfti að gera breytingar á þeim stað vildi hann ómögulega að mála yfir þessar dýrmætu minningar. Hann tók því vegginn einfaldlega niður í heilu lagi, setti í geymslu, og nú, áratugum síðar, hefur veggurinn fengið nýtt líf og heiðurssess á

Megas, Björk, Jón Páll Sigmarsson og fjölmargir aðrir landsþekktir einstaklingar.

Kaffi og krúttlegur flóamarkaður Rómantíkin og samvinnan svífur yfir vötnum á Hólavöllum. Á meðan Bogi stendur vaktina og hellir upp á kaffið fyrir gesti og gangandi sér Narumon, eiginkona hans, um flóamarkað sem staðsettur er í nýlega uppgerðu húsi, sem áður var fjós og hlaða, rétt við hliðina á kaffihúsinu.

Þótt þau hjónin séu bæði komin á eftirlaun leyndist greinilega nóg af krafti í þeim og þau viðurkenna að þau hafi hreinlega of gaman af því að standa í svona rekstri til að sitja auðum höndum. Staðurinn er lítill og tekur fáa í sæti, sem er að sögn Boga alveg passleg stærð fyrir þau tvö til að halda utan um. Viðtökurnar hafa samt farið fram

Á vinnustofu Boga má sjá ýmsa muni og skilti sem tengjast

úr björtustu vonum og það hefur verið mun meira að gera en þau áttu von á.

Heimamenn eru strax farnir að dásama staðinn. Kristín Júlla Kristjáns, íbúi í Suðurnesjabæ, skrifaði nýverið dásamlega umsögn á Garðmenn og Garðurinn á fésbókinni þar sem hún útnefndi Kaffi Skúrinn sem nýja uppáhalds kaffihúsið sitt:

„Maður finnur svo vel ástina og kærleikann sem er lagt í þetta, andinn þarna er svo góður að þig langar ekki að yfirgefa staðinn og svo spillir ekki fyrir að það er líka lítill krúttlegur flóamarkaður á staðnum. Ég elska þetta!“

Sólmyrkvi í vændum og vetrarplön

Fram undan er spennandi sumar og Bogi segist strax farinn að búa sig undir mikið fjör þann 12. ágúst næstkomandi, en þá mun almyrkvi á sólu sjást einstaklega vel af Garðskaganum og búist er við miklum fjölda ferðamanna á svæðið. Hvað framtíðina varðar tekur Bogi lífinu með ró. Þegar hausta tekur og veturinn gengur í garð gerir hann ráð fyrir að það verði jafnvel bara opið um helgar, en það eigi allt eftir að koma betur í ljós á næstu vikum.

Fyrir þá sem vilja upplifa einstaka alúð, sögu, góðan kaffisopa og skemmtilegan flóamarkað í einu fegursta umhverfi Suðurnesja þá er Kaffi Skúrinn opinn alla daga á milli klukkan 12:00 og 20:00. Það er óhætt að mæla með bíltúr á Garðskaga.

starfsferlinum.
Bogi Jónsson er vertinn í Kaffi Skúrnum. Ofan í myndina hafa verið settar tvær áritanir af söguveggnum sem er í húsinu.
Kaffi Skúrinn er í þessu húsi á Garðskaga. VF/hilmarbragi

VÍKURFRÉTTA

Gistirými þegar uppselt vegna almyrkvans í ágúst

Hvetja fyrirtæki til að búa sig undir gestaganginn

Át 18 pylsur á sex klukkutímum

Ísak Þór Ragnarsson, starfsmaður flugvallarþjónustu Isavia, þurfti að taka út heldur óvenjulega refsingu

í dag eftir að hafa hafnað í neðsta sæti í Fantasy-deild vinnustaðarins. Refsingin hljóðaði upp á 24 klukkustunda viðveru á Bæjarins beztu á Fitjum í Njarðvík, en Ísak fann fljótt smávegis glufu í kerfinu.

Fyrir hverja pylsu sem hann borðaði styttist refsingin um eina klukkustund. Ísak mætti á svæðið klukkan átta í morgun, beint eftir næturvakt, og hófst handa við að vinna sig inn í frelsið.

„Mér finnst pylsur fínar en ástæðan fyrir þessu er að ég tapaði í Fantasy. Við erum í deild í vinnunni og refsingin var sú að ég þarf að vera hérna í 24 tíma. En hver pylsa tekur klukkutíma af,“ sagði Ísak í samtali á meðan hann maulaði á fimmtándu pylsunni. Eingöngu tómatsósu og sinnep

Til að auðvelda átið fékk hann sér eingöngu tómatsósu og sinnep á pylsurnar „til þess að hafa smá blautt í þessu.“ Starfsfólk Bæjarins beztu sýndi verkefninu mikinn skilning og styrkti átakið, en Ísak áætlaði að hann væri að innbyrða á bilinu 6.500 til 7.000 hitaeiningar auk gríðarlegs magns af salti.

Þrátt fyrir að átið hafi þyngst til muna þegar leið á daginn hélt Ísak ótrauður áfram, studdur af vinnufélögum sem kíktu við til að hlæja og hvetja hann áfram. Svo fór að hann náði markmiði sínu; hann innbyrti 18 pylsur á sex klukkustundum og gat því yfirgefið staðinn saddur og sæll klukkan tvö og því náð að leggja sig áður en haldið væri á næturvakt.

Ætlar ekki að tapa aftur

Ísak játar að það verði langt þangað til hann fái sér pylsu á ný og stefnir ótrauður á að tapa ekki aftur á næsta tímabili, enda stutt í stóra daginn: „Ég er að fara að gifta mig í ágúst þannig að þetta er pínu skellur fyrir það líka. Ég vona bara að ég verði ekki geðveikt útsprengdur af bjúg þegar ég fer í fötin!“

Allt skráð gistirými á Reykja nesi er þegar uppselt fyrir 12. ágúst næstkomandi þegar al myrkvi á sólu verður sýnilegur frá Íslandi. Búist er við gríðar legum fjölda ferðamanna og innlendra gesta á svæðið, enda er Reykjanesskagi einn eftir sóttasti áfangastaður landsins til að fylgjast með náttúru viðburðinum. Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hvetur staðbundin fyrirtæki til að bregðast við og undirbúa mönnun og opnunartíma fyrir þennan stóra dag. Málið var tekið fyrir á fundi atvinnu- og hafnarráðs, sem haldinn var fimmtudaginn 25. júní síðastliðinn.

Einstakur viðburður

Sýnum gestrisnina sem einkennir Reykjanes

Atvinnu- og hafnarráð hvetur fyrirtæki, stofnanir og aðra þjónustuaðila í Reykjanesbæ og nágrenni til að nýta tímann vel fram að ágúst og skipuleggja sig með tilliti til þessa mikla aðstreymis.

Almyrkvinn þann 12. ágúst

„Ráðið hvetur þjónustuaðila

Svansvottuð pallaolía

Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, fósturfaðir, afi og langafi,

EINAR HÖRÐUR ÞÓRÐARSON

Háteigi 6, Keflavík

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 29. júní. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13

Steinunn Unnur Pálsdóttir

Óli Arelíus Einarsson Ágústa Ágústsdóttir

Haukur Stefánsson Berglind Bjarnadóttir

Helga Maren Hauksdóttir

Kristel María Matthea Móey

Karítas Mist Hauksdóttir Thomas R. Mayubay

Tristan Elí, Embla Nótt og Thomas Atlas

Skipulag í Reykjanesbæ

Deiliskipulag Iðjustígur

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti á fundi þann 25. júní 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Iðjustíg 1 skv. 1. mgr. 41. greinar skipulagslaga. Reiturinn afmarkast af Hafnargötu, Iðjustíg og Pósthússtræti. Inntak breytingar á deiliskipulagi er sameining lóða Iðjustígs 1 og hluta lóðar Hafnargötu 91, með tillögu að uppbyggingu hornhúss fyrir verslun, þjónustu og íbúðum á 4–7hæðum, auk bílakjallara. Önnur svæði innan skipulagssvæðisins haldast óbreytt. Gert er ráð fyrir verslun og þjónustu sem snýr að Hafnargötu og 91 íbúð í húsinu. Nýtingarhlutfall við Iðjustíg 1 verði 1,88 ofanjarðar en 0,57 neðan. Gert er ráð fyrir bílastæði á hverja 35m2 atvinnuhúsnæðis en 1,5 stæði á íbúð. Nánari upplýsingar eru í Skipulagsfátt, á heimasíðu Reykjanesbæjar og eru veittar um netfangið skipulag@reykjanesbaer.is. Umsagnir og athugasemdir berist í Skipulagsgatt málsnúmer 808/2026. Athugasemdafrestur er til og með 28. ágúst 2026.

reykjanesbaer.is

Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.IS

„Hjarta

Ásbrúar“ fyllir Andrews Theater af lífi

Nýtt samfélagshús fyrir börn og fjölskyldur, Hjarta Ásbrúar, hefur formlega opnað dyr sínar í Andrews Theater. Hugmyndin að húsinu er einstök þar sem hún á rætur sínar að rekja beint til barnanna sjálfra, sem kölluðu eftir miðlægum samverustað í hverfinu sínu.

Vorið 2024 tóku um 400 börn í Háaleitisskóla þátt í samráðsverkefninu Börnin að borðinu. Þar mótuðu þau framtíðarsýn fyrir nærumhverfi sitt sem skilaði sér í þessu nýja samfélagshúsi. Verkefnið vakti mikla eftirtekt á landsvísu og hlaut meðal annars Hönnunarverðlaun Íslands á síðasta ári.

Brú á milli ólíkra menningarheima Ásbrú er eitt fjölbreyttasta samfélag landsins. Í Háaleitisskóla,

UNICEF og handhafi Íslensku menntaverðlaunanna, eru um 70% nemenda af erlendum uppruna og meirihluti þeirra talar annað móðurmál en íslensku á heimilinu. Þrátt fyrir öflugar forvarnastofn anir á Suðurnesjum sýndu gögn og rannsóknir að lægra hlutfall barna á Ásbrú tók þátt í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi en annars staðar.

„Nýlega var haldið samráðsverkefni þar sem börnin sjálf voru að kalla eftir því að hér vantaði

Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). „Stað sem þau gætu verið stolt af og komið saman á. Við hlustuðum einfaldlega á börnin og í dag erum

Júlímánuður er svo til orðinn hálfnaður og þetta er vægast sagt mjög rólegur mánuður, því mjög mörg fyrirtæki eru farin

í sumarfrí, til dæmis Vísir ehf. í Grindavík og þar með línubátarnir Sighvatur GK og Páll Jónsson GK. Enda er búið að vera ansi rólegt um að vera í löndunum á Suðurnesjunum núna það sem af er júlí. Lítum aðeins á.

Í Grindavík kom frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarsson GK með 497 tonn í land í einni löndun og var aflinn blandaður, mest af þorski 196 tonn, 149 tonn af ýsu og 93 tonn af karfa. Páll Jónsson GK landaði 102 tonnum og Sighvatur GK 63 tonnum og fóru svo í sumarfrí.

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Færabátarnir í Grindavík hafa aðeins komist í einn róður og er Hópsnes GK hæstur af þeim með 2,9 tonn í einni löndun, en hann var að veiða ufsa út á Boða, ansi langt frá landi. Ólafur GK hefur reyndar náð að fara í tvo róðra og landað 1,3 tonnum.

Í Njarðvík og Keflavík er búið að vera mjög rólegt, Ósk KE með 510 kíló í tveimur róðrum og

Kristín GK með 760 kíló í tveimur róðrum. Enginn netabátur hefur verið að landa í Keflavík/Njarðvík en í Njarðvík hefur Klettur ÍS verið að landa en hann er að veiða sæbjúgu og hefur verið við veiðar út frá Garðskagavitanum, og hefur gengið nokkuð vel, hefur landað 76 tonnum í 7 róðrum og mest 14,5 tonnum í einni löndun. Klettur ÍS er einn af tveimur bátum á landinu sem eru allt árið að veiða sæbjúgu, hinn báturinn er Jóhanna ÁR sem hét áður Sigurfari GK. Áður voru sæbjúguveiðar án kvóta en fiskveiðiárið 2022-2023 var sæbjúgan sett í kvóta. Þær fisktegundir sem eru í kvóta eru án takmarkana sem þýðir að bátar og togarar mega veiða allar tegundir um alla landhelgina fyrir utan að togararnir eru bundnir við fjarlægð frá landi, Sæbjúgan er öðruvísi því að kvótanum á henni er skipt niður í átta svæði. Svæðin átta eru: A, Vestfirðir, Norður- og í Aðalvík. B, Vestfirðir Miðsvæði, C, Vestfirðir Suðursvæði, D, Utanverður Breiðafjörður, E, Faxaflói. F, Austurland, Norðursvæði, G, Austurland, Mið-

svæði og H, Austurland Suðursvæði. Klettur ÍS er með heimildir á öllum þessum svæðum og er alls með 782 tonna sæbjúgukvóta, mest á svæði G, en þá hefur báturinn verið að landa að mestu á Breiðdalsvík. Í Faxaflóa er Klettur ÍS með 113 tonna kvóta af sæbjúgum. Hinn báturinn sem er með sæbjúgukvóta er Friðrik Sigurðsson ÁR en Jóhanna ÁR sér um að veiða sæbjúgukvótann. Hafnarnes Ver í Þorlákshöfn á báða bátana og er kvótinn sem báturinn er með 1020 tonn, og mest á svæði G, 484 tonn. Í Faxaflóa er Friðrik Sigurðsson ÁR með 197 tonna kvóta sem Jóhanna ÁR sér um að veiða. Reyndar var ansi miklu landað af sæbjúgum í Sandgerði á árunum 2009–2011, og mest 2010, en þá voru þrír bátar sem lönduðu þar sæbjúgum, en það var á þeim tíma sem sæbjúgan var utan kvóta og var veiðin nokkuð góð hjá þeim bátum.

Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is

VÍKURFRÉTTA

Markmiðið með Hjarta Ásbrúar er að þjóna sem samverustaður fyrir alla fjölskylduna, þvert á kynslóðir og tungumál, og mæta hverju barni á þess eigin forsendum.

Fjölbreytt og gjaldfrjálst sumarstarf

Til að tryggja að engir þröskuldar standi í vegi fyrir þátttöku er allt starf í húsinu algjörlega ókeypis í sumar og engar kröfur gerðar um skráningu. Dagskráin er sérsniðin að ólíkum hópum: Íþróttanámskeið: Íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík bjóða upp á gjaldfrjáls fótbolta- og körfuboltanámskeið við miðstöðina, sem gefur börnum tækifæri á að prófa sig áfram í skipulögðu starfi.

Fyrir fjölskyldur og foreldra: Boðið er upp á foreldramorgna á föstudögum fyrir þá sem eru í fæðingarorlofi. Á þriðjudögum og miðvikudögum eru sérstakar fjölskylduopnanir þar sem tilvalið er að mæta með mat á grillið og leika sér saman.

Menning og afþreying: Á laugardögum eru leiklistarsmiðjur fyrir

bæði eldri og yngri í samstarfi við Rauða krossinn undir merkjum Samfélags fyrir alla. Þá eru leikir HM í fótbolta sýndir á risaskjá í bíósal hússins. Fyrir eldri börnin (8. til 10. bekk) er boðið upp á opin hús í samstarfi við flakkandi félagsmiðstöðina Flotann. Sumarstarfið á að virka sem mikilvæg brú inn í skipulagt starf vetrarins. „Það er frábært að þessi flotta hugmynd sé að raungerast þar sem það er mikilvægt að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu starfi í sínu nærumhverfi,“ segir Guðni Erlendsson, framkvæmda stjóri Íþróttabandalags Reykjanes bæjar (ÍRB).

Ein í brúnni en með öfluga bakhjarla

Thelma Hrund Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjarta Ásbrúar, stýrir starfseminni ein og sér um daglegan rekstur og opnanir á húsnæðinu. Hún fagnar þó þeim fjölmörgu aðilum sem nýta aðstöðuna og lífga upp á húsið. „Í raun er það bara ég sem stýri þessu öllu,“ segir Thelma.

Hopp-hjól í Suðurnesjabæ í sumar

Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að verða við ósk um að starfrækja Hopp rafhlaupahjólaleigu í sveitarfélaginu í sumar. Um er að ræða reynsluakstur og prufukeyrslu fyrir sumarið 2026.

Erindið kom upphaflega inn á borð ferða-, safna- og menningarráðs í lok maí, sem vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Í kjölfar samþykktar bæjarráðs hefur starfandi bæjarstjóra verið falið að eiga samráð við forsvarsmenn Hopp um hvar stoppistöðvar hjólanna muni hljóta staðsetningu í bænum.

Hólmfríður tekur við sem skólastjóri Stapaskóla

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir hefur verið ráðin skólastjóri Stapaskóla og tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram á vef skólans. Hólmfríður er með B.Ed., M.Ed. í menntunarfræðum og meistaragráðu í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur jafnframt lokið Dipl.Ed. í námi og kennslu ungra barna frá Kennaraháskóla Íslands auk viðbótarnáms í kennslufræði fullorðinna frá Háskóla Íslands og fjarnámsfræðum frá Oxford. Hún býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og skólastarfi, meðal annars sem skólastjóri leik- og grunnskóla, auk reynslu af kennslu og stjórnunarstörfum innan háskólasamfélagsins og sveitarfélaga.

miðið er einfaldlega að skapa stað fyrir íbúa á Ásbrú til þess að koma saman og hafa það notalegt — sama hvort það sé bara til þess að fá sér kaffibolla, spjalla, spila eða sækja skipulagða viðburði. Þetta á að vera þvert á aldur og þvert á allt. Það er sko búin að vera þörf á slíku hérna.“

Vegna þess hve dagskráin er lif andi hvetur Thelma fólk til að kíkja inn á heimasíðuna hjartasbru.com til að sjá nýjustu opnunartímana.

Horft til framtíðar

Verkefnið er liður í innleiðingu farsældarlaganna á Suðurnesjum. Fjörheimar og ÍRB sjá um dag legan rekstur en á bak við verkefnið stendur breiður hópur bakhjarla. ÍRB og Njarðvík hlutu styrk frá ráðuneyti mennta- og barnamála, Kadeco styrkir reksturinn og veitir

við að húsgagna staðinn. Þá styðja Háaleitisskóli og SSS dyggilega við bakið á verkefninu. Fjármögnunin sem nú liggur fyrir dugar í um þrjá til fjóra

„Draumurinn okkar er að hér verði hjarta Ásbrúar um ókomna tíð,“ segir Hjördís Eva að lokum. „Við viljum sjá þetta hjarta slá hérna áfram.“

Nýjar íbúðir til leigu í Asparlaut

Fimm heimsmeistaratitlar og

Heimsmeistaramótið í dansi, Dance World Cup 2026, fer fram í Dublin á Írlandi dagana 8. til 18. júlí. Dansarar frá DansKompaní í Reykjanesbæ hafa heldur betur látið til sín taka á mótinu og unnið til fjölda verðlauna á stóra sviðinu.

Íslensku keppendurnir hafa sýnt fram á ótrúlegan metnað, tækni og listfengi sem á mánudagskvöld hafði skilað sér í heilum fimm heimsmeistaratitlum, auk silfur- og bronsverðlauna í hörkusterkum flokkum. Á mánudagskvöld höfðu 20 atriði frá DansKompaní verið sýnd og 16 atriði voru eftir hjá eldri þátttakendum.

Sögulegur sigur á lokakvöldinu: Gull á Grandfinal Best of the Best!

Til að kóróna þennan ótrúlega árangur fóru hóparnir á bak við Wonka’s Wonderland og Munchkins alla leið og tryggðu sér gullverðlaun í heildarkeppninni (overall) á sjálfu Grandfinal Best of the Best! Þetta er einn allra stærsti heiður sem dansarar geta hlotnast á mótinu og staðfestir að DansKompaní er í hópi þeirra allra bestu í heiminum.

Fimm heimsmeistaratitlar og boð á Grand Finals

Dansarar DansKompaní sýndu og sönnuðu að þeir standa á meðal þeirra bestu í heimi. Hér eru atriðin sem tryggðu sér efsta sætið á verð launapalli og titilinn Heimsmeistarar:

• Munchkins (Söngur og dans) – Höfundar: Helga Ásta Ólafsdóttir og Laufey Soffía Pétursdóttir. „Pínklarnir“ sungu og dönsuðu sig alla leið á toppinn, tryggðu sér boðsmiða á Grand Finals og gerðu sér lítið fyrir og unnu gullið í overall á Grandfinal Best of the Best!

• FartParty! – Höfundur: Helga Ásta Ólafsdóttir. Stelpurnar negldu sitt atriði, sigruðu flokkinn og fengu einnig boð á Grand Finals.

• Mr. & Mrs. Smith – Höfundur: Helga Ásta Ólafsdóttir. Glæsilegt atriði sem vann sinn flokk og tryggði sér sæti á Grand Finals.

• Wonka’s Wonderland – Höfundur: Helga Ásta Ólafsdóttir. Ævintýralegt atriði sem fór alla leið, landaði fyrsta sætinu og kórónaði svo ferðina með því að tryggja sér gullið í overall á Grandfinal Best of the Best!

Munchkins
FartParty!
Mr. & Mrs. Smith
Bruce
Funhouse
The Sanderson Sisters

verðlaunaregn til DansKompaní

Silfur- og bronsverðlaun í hörkukeppni

Auk gullverðlaunanna nældu keppendur DansKompaní sér í fjölda annarra verðlauna í flokkum þar sem samkeppnin var gríðarlega hörð: Silfurverðlaun (2. sæti)

• Bruce – Höfundur: Laufey Soffía Pétursdóttir. Súkkulaðisætt og kröftugt atriði sem nældi í annað sætið.

• The Sanderson Sisters – Höfundur: Laufey Soffía Pétursdóttir. Galdraði fram frábæra frammistöðu í mjög sterkum flokki.

• Funhouse – Höfundur: Laufey Soffía Pétursdóttir. Tryggði sér annað sætið eftir harða baráttu í gríðarstórum flokki með 33 keppnisatriðum.

Bronsverðlaun (3. sæti)

• Elísabet Rós (Sóló) – Reið á vaðið með stórglæsilegu sólóatriði. Hún fékk 92.1 stig í risastórum 40 atriða flokki og fékk að launum bronsverðlaun og sérstakan „Golden Ticket“-boðsmiða á dansnámskeið (workshop) í Sitges síðar á árinu.

Embla María (Sóló) – Höfundur: Helga Ásta Ólafsdóttir. Sýndi mikla fagmennsku á sviðinu og landaði þriðja sætinu í sínum flokki.

Revolting Children – Höfundur: Laufey Soffía Pétursdóttir. Skemmtilegt og kraftmikið atriði sem tók bronsið með trompi.

Danshöfundarnir á bak við árangurinn

Árangur eins og þessi verður ekki til af sjálfu sér. Á bak við tjöldin er öflugt teymi danshöfunda DansKompaní sem hefur samið og slípað þessi einstöku atriði. Það eru þær Helga Ásta Ólafsdóttir, Laufey Soffía Pétursdóttir, Hrafnhildur Una Magnúsdóttir og Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir sem eiga stóran þátt í að leiða þetta hæfileikaríka dansfólk til sigurs á stóra sviðinu.

Enn eru nokkrir dagar eftir á heimsmeistaramótinu og verður fylgst með á vef Víkurfrétta, vf.is.

Elísabet Rós
Embla María

„Lækkið væntingarnar til íslenska sumarsins“

Skúli Sig heldur ró sinni þegar spáð er tuttugu stiga hita og flettir upp

öllum veðurstöðvum norðan Afríku til að athuga hvort það geti örugglega staðist. Hann á epískar minningar úr Ásbyrgi, grillar humar frá Kobba og heldur fast í þá skemmtilegu sumarhefð að halda upp á afmælið sitt á hverju ári. Þegar rignir mælir hann með því að fólk setji sig í sérstakar stellingar.

Þjóðhátíð, humar frá Kobba og falinn staður í Ljónagryfjunni

Þegar Skúli er beðinn um að velja sína uppáhalds sumarminningu á hann erfitt með að nefna aðeins eina, en tvær ferðir standa þó upp úr í fljótu bragði.

„Það er Þjóðhátíð í Eyjum með alla fjölskylduna árið 2024. Og svo er það eftirminnileg útilega í Ásbyrgi hér um árið í góðra vina hópi. Það var epísk ferð, svo ekki sé meira sagt,“ segir Skúli. Ásbyrgi er einmitt staðurinn sem hann

myndi velja ef hann fengi einn dásamlegan frídag í sumar, enda telur hann það einn allra huggulegasta stað landsins.

Þegar það kemur að því að kveikja á grillinu í alvöru sumarveðri mætir hann vel undirbúinn: „Íslenska lambið fer alltaf á grillið og svo er humar frá honum Kobba í Humarsölunni alltaf ljúfur,“ segir Skúli og bætir við glettinn: „#ekkisamstarf.“ Meðlætið með grillsteikinni er einfalt og gott: „Hefðbundin grillbakarí kartafla, mögulega með bræddum osti eða bræddu hvítlaukssmjöri.“ Þegar Skúli er spurður út í faldan gimstein á Íslandi sem of fáir vita af, svarar hann því til að hann sé svo vel falinn að hann hafi hreinlega ekki fundið hann sjálfur ennþá. „En ég hef

Boða breytingar í stjórn hjá HS Veitum á hluthafafundi

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum, með þremur atkvæðum gegn tveimur, að fela Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að fara með atkvæði sveitarfélagsins á komandi hluthafafundi HS Veitna hf., sem haldinn verður 7. ágúst næstkomandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni og lögðu fram bókun þar sem vinnubrögð nýja meirihlutans voru harðlega gagnrýnd.

Minnihlutinn telur bæjarstjóra fara út fyrir valdsvið sitt Í bókun minnihlutans kemur fram að fulltrúar flokkanna furði sig á því að bæjarstjóri hafi óskað eftir því við forstjóra HS Veitna að boðað yrði til hluthafafundarins

Sjá

áður en fyrir lá samþykki eða bókun bæjarráðs þess efnis. „Enn og aftur kemur reynsluleysi nýs meirihluta fram þar sem bæjarstjóri hefur ekki heimildir til að taka slíkar ákvarðanir einn

og sjálfur frekar en aðrar í nafni bæjarstjórnar,“ segir í bókuninni. Þá vísar minnihlutinn til þess að lengi hafi verið í gildi samkomulag um að stjórn félagsins sitji fram að næsta reglulega aðalfundi, óháð sveitarstjórnar-

kosningum, og telja þeir ákvörðunina brjóta gegn þeirri hefð: „Slíkur gjörningur ber einungis merki um skort á heiðarleika og virðingu fyrir þeim hefðum sem í gildi hafa verið.“

Meirihlutinn vísar til lýðræðislegs umboðs kosninganna

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks hafnaði fullyrðingum minnihlutans í svofelldri svarbókun. Þar er á því byggt að samskipti við forstöðumenn fyrirtækja og stofnana sem sveitarfélagið á í samskiptum við falli undir daglegan rekstur og verksvið bæjarstjóra sem framkvæmdastjóra sveitarfélagsins. „Fullyrðing minnihlutans er því röng. Þar með hefur enn ein röng fullyrðing ratað inn í bókanir minnihlutans.“

Varðandi fyrirhugaðar breytingar á stjórn félagsins bendir meirihlutinn á að sveitarstjórnarkosningar hafi farið fram í maí síðastliðnum. Það samræmist grundvallarsjónarmiðum lýðræðisins að fulltrúar sveitarfélagsins í stjórnum félaga endurspegli þann vilja sem kjósendur lýstu í kosningunum sem fyrst:

„Það vekur því furðu að minnihlutinn telji eðlilegt að pólitískar skipanir, sem byggja á umboði frá sveitarstjórnarkosningunum árið 2022, vegi þyngra en það nýja umboð sem kjósendur veittu í kosningunum í maí 2026. Þegar kjósendur fela nýjum meirihluta ábyrgð á stjórn sveitarfélagsins er eðlilegt að það endurspeglist einnig í stjórnskipan þeirra félaga þar sem Reykjanesbær fer með eigendahlutverk.“

fram á mikil vatnaskil í lykilmálum Grindavíkur

Bæjarstjórn Grindavíkur telur stór skref vera stigin í átt að uppbyggingu og endurreisn bæjarins. Í nýjum pistli til íbúa dregur bæjarstjórn fram þrjá lykilþætti sem hún telur marka vatnaskil: nýjan bæjarstjóra, breyttan tón stjórnvalda og nýja aðferðafræði við gerð áhættumats sem kynnt er fyrir ríkisstjórninni síðasta föstudag. Í ávarpi sínu til Grindvíkinga lýsir bæjarstjórn yfir ríkri bjartsýni á framhaldið og segir samstarfið við ríkisvaldið og aðra lykilaðila vera að færast á nýtt stig.

Nýr bæjarstjóri og breyttur tónn forsætisráðherra

Pétur G. Markan hefur opinberlega tekið við starfi bæjarstjóra Grindavíkur og segir í pistlinum að hann hafi þegar hafið störf af miklum krafti. Bæjarstjórn væntir mikils af samstarfinu við hann á þessum viðkvæmu tímum.

Samhliða þessum breytingum vísar bæjarstjórn til þess að forsætisráðherra hafi slegið nýjan tón hvað varðar samstarf og framtíðarþróun í bænum, sem gefi góð fyrirheit fyrir áframhaldandi uppbyggingu.

Nýtt og lifandi áhættumat kynnt ríkisstjórn

Framgangur flestra mála í Grindavík veltur á faglægu áhættumati. Bæjarstjórn leggur áherslu á að vinna við endurskoðun þess sé í

algjörum forgangi og ný aðferðafræði sé nú í fullum gangi.

• Víðtækt samráð: Í júní fóru fram viðamiklar vinnustofur þar sem sjónarmið heimamanna, viðbragðsaðila og atvinnulífsins voru dregin saman.

• Alþjóðleg sérþekking: Við mótun gagnanna hefur verið notast við sérfræðinga frá Alþjóðabankanum ásamt innlendu vísindafólki.

• Lifandi stjórntæki: Markmiðið er að breyta áhættumatinu í gagnadrifið stjórntæki sem tekur raunhæft tillit til þeirra viðamiklu varna og viðgerða sem þegar hafa farið fram í bæjarlandinu.

Sérfræðingar kynntu nýja áhættumatið fyrir bæjarstjórn fimmtudaginn 9. júlí og föstudaginn 10. júlí var málið lagt fyrir ríkisstjórnarfund. Bæjarstjórn segir lykilatriði að halda vinnunni áfram af fullum þunga nú þegar skriður er kominn á málin.

Krefjast þess að hætt verði við skerðingu á dvalartíma

Bæjarstjórn átti jafnframt vinnufund með forsvarsmönnum Fasteignafélagsins Þórkötlu í vikunni þar sem farið var yfir húsnæðismál, gistináttasamninga og kröfur um endurkaupaáætlun.

„Það er sameiginleg sýn okkar að endurreisn bæjarins verði best tryggð með góðu samstarfi og að ríkið og Þórkatla styðji með virkum hætti við þá Grindvíkinga sem vilja snúa heim,“ segir í pistli bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn krefst þess að tillögur Þórkötlu að endurkaupum verði kynntar íbúum á allra næstu vikum. Þá telur hún að í ljósi nýjustu vendinga við gerð áhættumatsins séu komnar fram skýrar forsendur til þess að falla frá boðaðri skerðingu á dvalartíma íbúa í húsum Þórkötlu.

Bæjarstjórnin lofar að halda íbúum upplýstum jafnóðum og vinnunni miðar áfram á næstu vikum.

Þyngd: 5048 grömm

Lengd: 53 sentimetrar

Foreldrar: Eva Kristinsdóttir

og Guðmundur Alfreð Hjartarson. Þau eru búsett í Reykjanesbæ.

Ljósmóðir: Katrín Helga Steinþórsdóttir

SUMARRÁÐ SKÚLA

Bíltúralagið í ár: „Sólarsamba“ með GÓSS-inu.

Ómissandi sumarhefð: „Ég held mjög svo fast í þá hefð að halda upp á afmælið mitt á sumrin. Búinn að gera það frá fæðingu. Mjög skemmtilegt allt saman, blöðrur og læti!“

Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Ég held ró minni og skoða allar veður stöðvar. Ef þetta er að ganga eftir þá nýt ég þess í rólegheitum með góðum drykk og félagsskap.“

Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Lækkið einfaldlega væntingarnar til íslenska sumarsins. Þannig verða hverjar fimm mínútur án rigningar eins og lúxusfrí. Nú, ef rignir og er kalt, þá á maður bara að njóta þess að sitja í fullum vetrarklæðum með ís í brauði og ímynda sér að maður sé staddur í dramatískum íslenskum farsa í leikstjórn Baltasars Kormáks. Annars er það nú þannig að mér finnst rigningin bara góð...“

heyrt af þó nokkrum. Reyndar er ákveðinn hluti af Ljónagryfjunni falinn gimsteinn sem fáir vita af,“ segir hann leyndardómsfullur.

Engin hlaðvörp og leyndarmál sem þola ekki prentun

Skúli lætur alla tækni eiga sig þegar hann fer í frí og ætlar ekki að eyða tímanum í bækur eða snjallsíma í sumar. „Íslenska náttúran,

fjölskyldan og góðir vinir eru mitt hlaðvarp,“ segir hann ákveðinn. Hann viðurkennir að hann eigi engar slæmar minningar úr ferðalögum, en það sé þó ekki þar með sagt að allt hafi verið siðsamlegt. „Það eru vissulega til mjög fyndnar sögur úr ákveðinni útilegu, en þær þola því miður hvorki dagsins ljós né opinbera prentun!“

Samtal skapar traust

Fjórar komur skemmtiferðaskipa fram undan

Reykjaneshöfn horfir til stórra tækifæra í landamæraeftirliti

Fjögur skemmtiferðaskip munu hafa viðkomu hjá Reykjaneshöfn það sem eftir lifir sumars og hausts. Eitt skip, sem væntanlegt var í lok maí, afbókaði sig vegna óvæntra atvika en eftir standa fjórar bókanir; þrjár í ágúst og ein í september. Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar leggur ríka áherslu á að móttaka skipanna verði til fyrirmyndar og bendir á mikil tækifæri sem felast í nálægðinni við alþjóðaflugvöllinn. Staðan var reifuð á 309. fundi atvinnu- og hafnarráðs þann 25. júní síðastliðinn. Þar kom fram að tvær af þeim fjórum komum sem eftir eru munu reyna sérstaklega á innviði og þjónustu svæðisins, þar sem skipin eru að koma úr höfnum utan Schengensvæðisins. Viðeigandi yfirvöld hafa þegar verið upplýst svo hægt sé að tryggja fullnægjandi landamæraeftirlit við komu þeirra.

Einstök tenging við Keflavíkurflugvöll

Atvinnu- og hafnarráð telur mikilvægt að horfa til framtíðar og vanda sérstaklega til verka þegar kemur að skipum sem þurfa á landamæraeftirliti að halda. Samspilið á milli Reykja-

neshafnar og Keflavíkurflugvallar getur nefnilega skapað algjörlega einstök viðskiptatækifæri fyrir ferðaþjónustuna á Suðurnesjum.

Með því að bjóða upp á hnökra lausa og örugga landamæra þjónustu strax við höfnina opnast möguleikar á að skip skipti um farþega hér á landi (e. turnaround port), þar sem ferðamenn fljúga inn og út um flugvöllinn en hefja eða ljúka siglingunni í Reykjanes höfn.

Meinbugir gætu skaðað uppbygginguna

Ráðið varar við því í bókun sinni að hvers kyns hnökrar eða mein bugir á þessari þjónustu gætu haft alvarlegar afleiðingar og skemmt fyrir þessari mikilvægu framtíðaruppbyggingu.

„Meinbugir á slíkri þjónustu geta skaðað viðkomandi uppbygg ingu og er það trú atvinnu- og hafnarráðs að allir þeir aðilar sem þurfa að koma að þessu máli vilji ekki sjá það gerast,“ segir í bókun ráðsins.

Lögð er áhersla á öflugt sam starf allra viðkomandi hagsmuna aðila og yfirvalda svo tryggja megi að skipin fái þá fyrsta flokks þjónustu sem þau þurfa á að halda, svæðinu öllu til heilla.

Traust verður ekki til af sjálfu sér. Það byggist upp í samtali, með því að hlusta, útskýra og sýna ólíkum sjónarmiðum virðingu. Á þessum fyrsta mánuði nýs kjörtímabils hefur eitt komið mér sérstaklega á óvart sem forseta bæjarstjórnar. Það eru öll samtölin við íbúa Reykjanesbæjar. Stundum hringir einhver. Stundum berst tölvupóstur. Stundum stoppar íbúi mig á göngu minni um bæinn, á viðburðum eða þegar við hittumst fyrir tilviljun og vill ræða málefni sem honum eru hugleikin. Stundum snúast samtölin um stór skipulagsmál, stundum um litlu hlutina sem gera hverfið betra. Þessi samtöl eiga öll eitt sameiginlegt. Íbúar Reykjanesbæjar vilja finna að á þá sé hlustað.

Ég hef líka lært að bestu samtölin eru oft þau sem ekki eru skipulögð. Þau verða þegar íbúi hefur samband, sendir skilaboð eða hringir vegna máls sem skiptir hann máli. Fyrir mér er það traustsyfirlýsing og því trausti viljum við standa undir.

Traust byggist upp þegar íbúar upplifa að þeir geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri og að tekið sé mark á sjónarmiðum þeirra, jafnvel þótt niðurstaðan verði ekki alltaf sú sem þeir óskuðu eftir.

Við sem höfum fengið það traust að sitja í bæjarstjórn og berum ábyrgð á að taka ákvarðanir. Við

áformum um Akademíureit. Málin eru ólík, en þau minna okkur öll á sömu staðreynd. Góðar ákvarðanir verða til þegar við gefum okkur tíma til að hlusta, skoða málin frá fleiri en einni hlið og eiga opið samtal við íbúana.

Þetta snýst ekki um að vera á móti uppbyggingu. Þvert á móti. Við viljum að Reykjanesbær haldi áfram að vaxa og dafna. Við viljum að uppbygging byggist á góðu samráði, vandaðri undirbúningsvinnu og heildarsýn þar sem hagsmunir samfélagsins eru hafðir að leiðarljósi.

Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með vinnuskólanum leggja sitt af mörkum við að fegra bæinn okkar. Fallegt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það verður til þegar sveitarfélagið og íbúarnir vinna saman og bera sameiginlega ábyrgð á umhverfinu sem við köllum heima. Þess vegna viljum við leggja enn meiri áherslu á fegrun bæjarins, græn svæði, snyrtimennsku og gott umhverfi við gerð næstu fjárhagsáætlunar. Það er fjárfesting í lífsgæðum okkar allra. Við getum verið ósammála án þess að verða óvinir. Við getum tekist á um málefni af festu en jafnframt sýnt hvert öðru virðingu. Ég trúi því að þannig verði bestu lausnirnar til og þannig byggjum við sterkara samfélag.

Ég vona að íbúar Reykjanesbæjar finni á þessu kjörtímabili að það sé auðvelt að hafa samband við kjörna fulltrúa, auðvelt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að á þá sé hlustað. Við eigum ekki alltaf eftir að vera sammála, en ef við hlustum hvert

Garðarsdætur leiddu tugi manna um breyttar slóðir á Suðurnesjum í sumar:

„Alltaf

gott veður á miðvikudögum“

Eftir fimmtán ára farsælt starf við Reykjanesgönguferðir ætlaði

Rannveig L. Garðarsdóttir hálfpartinn að fara að hægja á sér. Í júní mættu hún og systir hennar, Þórey, hins vegar galvaskar til leiks á nýjan leik og leiddu fjölda fólks um breytt og magnað landslag á skaganum. Þráðurinn verður mögulega tekinn upp aftur í haust.

„Ég var búin að lofa mér að verða ekki níræð hlaupandi um Reykjanesskagann, en það stefnir allt í það,“ segir Rannveig í léttum tón þegar hún er spurð út í endurkomuna í júní.

Hún segir göngurnar fjórar hafa

gengið vonum framar en um 20 til 30 manns mættu í hverja ferð. Göngurnar voru skipu lagðar í samstarfi við Björgunar sveitina Suðurnes, sem átti dygga fulltrúa í hópnum. „Það var svo góð þátttaka hjá þeim, sem hvetur

vita nema við gerum þetta aftur í

Þjóðsögur og kaffisopi í nýju umhverfi

Þær Garðarsdætur leggja ríka áherslu á að göngufólk fái eitthvað fyrir sinn snúð þegar kemur að fræðslu, jarðfræði og sögu svæðisins.

„Við byrjum alltaf á að lýsa ferðinni, umhverfinu og örnefnum. Svo stoppum við tvisvar á leiðinni. Í fyrra kaffistoppinu segjum við sögur og lesum alltaf þjóðsögu, og svo er annað stopp á leiðinni heim. Fólk hefur ofsalega gaman af þessu,“

Hún bætir því við, með vísan í langa reynslu, að það klikki nánast aldrei að það sé blíðskaparveður þegar gengið er á miðvikudagskvöldum á Reykjanesskaganum. Júnímánuður hafi sannað þá reglu enn og aftur. Saknar gamla Skógfellsvegarins Náttúruöflin hafa látið rækilega á sér kræla á Reykjanesskaganum á undanförnum árum og hefur landslagið breyst mikið síðan systurnar leiddu fyrst hópa þarna reglulega. Rannveig segir nýju hraunin og risastóru varnargarðana gera svæðið jafnvel enn magnaðra en áður, þótt vissrar eftirsjár gæti að gömlum slóðum. „Ég sakna gamla Skógfellsvegarins mjög mikið, sem lá frá Grindavík með Sundhnúkagíga-

ÚTIVIST

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

röðinni og að Stóra-Skógfelli. Hann er farinn að stórum hluta undir hraun. Eins er umhverfið við Hagafell og Þorbjörn mikið breytt og mikið hrunið úr Gálgaklettunum. Það er alveg fullt af hlutum sem maður saknar, en á sama tíma er þetta nýja umhverfi alveg ótrúlega áhugavert.“

Baka rúgbrauð í Gunnuhver Þær systur eru samhentar í úti-

verið úr leiðsögunámi, tók meiraprófið og vinnur við að ganga með ferðamenn á Fagradalsfjall. Þá eru þær systur alltaf með eitthvað á prjónunum.

„Við erum alltaf í einhverjum pælingum. Við höfum verið að baka rúgbrauð úti í Gunnuhver og taka á móti sérstökum hópum þar. Það er bara virkilega gaman að bralla þetta saman,“ segir Rannveig að lokum.

Hækkaðu sumarlaunin

Þú færð hærri vexti þegar þú sparar í appinu. Þar getur þú einnig sett þér sparnaðarmarkmið og sett upp sjálfvirkan sparnað á einfaldan hátt.

Við erum betri saman

„Mér finnst ég ekkert vera gamall“

Níræður Hilmar Sölvason í sviflínu niður Kambana

Það er misjafnt hvað fólk tekur upp á þegar aldurinn færist yfir, en Hilmar Rafn Sölvason ákvað að fagna væntanlegu níræðisafmæli sínu með því að þjóta á sviflínu yfir Hveragerði. Blaðamaður hitti þennan spræka heiðursmann þar sem hann var nýlentur, fullur orku en hefði þó alveg viljað fá að fara aðeins hraðar.

Það er líf og fjör í Hveragerði þennan daginn. Stór hluti fjölskyldu Hilmars Rafns Sölvasonar er mættur til að hvetja kappann, en tilefnið er óvenjuleg afmælisgjöf sem hann fékk frá Hafsteini frænda sínum. Hilmar verður nítíu ára á annan í jólum, og sex mánuðum fyrir stóra daginn var skellt í sviflínuflug í svokallaðri „Súperman-stellingu“.

Við tókum Hilmar tali að afloknu sviflínufluginu.

Jæja, Hilmar. Þú ert að verða níræður og ert mættur hingað í sviflínuna. Það er nákvæmlega hálft ár í afmælið?

„Já, það er akkúrat hálft árið. Ég á afmæli 26. desember.“

Hvernig datt þér þessi vitleysa í hug? Þetta er dálítið öðruvísi en venjuleg skíðaferð.

„Já, heyrðu, ég sagði við Haf stein frænda minn: „Þegar ég verð níræður, þá ætla ég að fara í þetta Zip eða hvað það nú heitir hérna, í svifnökkvann þarna í Hvera gerði.“ En hann svaraði strax: „Nei, ég ætla að gefa þér það.“ Og hann gerði það, þetta var afmælis gjöfin.“

Og þetta vatt dálítið upp á sig, það er sko alvöru stuðningslið mætt hérna?

„Já, já, það er fullt af fólki mætt! Elsta langafabarnið var meira að segja með mér í ferðinni sjálfri. Það var rosalega gaman að þessu.“

Hvernig leið þér á leiðinni niður línuna?

„Ég fór ekki nógu hratt,“ segir Hilmar og glottir.

Ekki nógu hratt? En þú værir samt til í að fara í Súpermanstellinguna?

„Já, já! Ég fór miklu hægar en strákarnir. Starfsmennirnir hafa sennilega ekki þorað að láta sig fara alveg eins hratt,“ segir Hilmar léttur í bragði.

Við höfum áður sagt frá því hér í blaðinu að þú hafir verið

mikill skíðamaður. Fórstu kannski hraðar á skíð unum í gamla daga?

„Já, ég held ég hafi farið hraðar á skíðunum. Við fórum stundum yfir 100 kílómetra hraða þar. Við vorum í skíðahóp sem fór út í 45 ár á hverju einasta ári. Það var það sem hélt manni lifandi.“

En hvernig fannst þér tilfinn ingin í loftinu í dag? Útsýnið er fallegt hérna. „Útsýnið var flott, já, það sem maður sá í þessu.“

Páll Ketilsson pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
VÍKURFRÉTTA

Níu marka veisla og Njarðvíkursigur

Það var boðið upp á einn svakalegasta knattspyrnuleik sumarsins

á JBÓ-vellinum á föstudagskvöld þegar Njarðvík og Grindavík mættust í Lengjudeild karla. Fyrir leikinn mættust þarna tvö af sterkustu varnarliðum deildarinnar og hefði mátt búast við lokuðum og taktískum leik en það fór heldur betur út um gluggann. Áhorfendur fengu svo sannarlega mikið fyrir peninginn (þó svo það hafi verið frítt inn) í 5-4 sigri Njarðvíkur, þar sem staðan var 3-3 strax í hálfleik.

Spilað fyrir Ingvar

Leikurinn var sérstakur styrktarleikur fyrir Ingvar Jónsson sem berst við krabbamein. Bæði lið léku í sérstökum heiðurstreyjum Ingvars sem voru boðnar upp á Facebook-síðu Knattspyrnudeildar Njarðvíkur þar sem allur ágóði rennur til Ingvars og fjölskyldu. Fallegt framtak sem setti svip á kvöldið og uppboðið fór vel af stað þar sem hundruð

þúsunda hafa þegar verið boðnar í ákveðnar treyjur.

Markaveislan skref fyrir skref

Fyrri hálfleikur: Sex mörk og fullkomið brjálæði (3-3) Grindvíkingar mættu grimmir og opnuðu markareikninginn strax á 6. mínútu þegar Stefán Jón Friðriksson kom gestunum yfir. Njarðvíkingar svöruðu fljótt þegar Aron Einarsson jafnaði á

12. mínútu, en aðeins fimm mínútum síðar kom Rúnar Ingi Eysteinsson Grindavík aftur yfir, 1-2. Þá hófst sýning Leandro Fernandes hjá Njarðvík. Hann skoraði tvívegis, á 26. og 38. mínútu, og snéri taflinu við fyrir heimamenn. Grindvíkingar neituðu hins vegar að fara með forystu Njarðvíkinga inn í klefa og Gunnleifur Orri Gunnleifsson jafnaði metin í 3-3 á 42. mínútu.

Seint hálfleikur: Stangarskot, meiðsli og úrslitamarkið Síðari hálfleikurinn byrjaði af sama krafti. Oumar Diouck skaut í stöngina fyrir Njarðvík á 48. mínútu en tveimur mínútum síðar dró aftur til tíðinda. Björn

Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS

Björgvin Sigmundsson og Rut Þorsteinsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Suðurnesja 2022. Sigur Rutar var öruggur en það var mikil spenna fram á síðustu holu hjá körlunum.

Björgvin náði forystu í byrjun móts en lék illa á þriðja hring og þá færðist fjör í toppbaráttuna.

Róbert Smári Jónsson náði forystunni en Pétur Þór

Jaidee blandaði sér líka í hana og stutt var í þá Guð mund R. Hallgrímsson og Sigurpál Geir Sveinsson. Úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu níu holunum þar sem Björgvin lék best. Róbert Smári var ná lægt því að jafna við hann í lokapúttinu fyrir erni en boltinn fór ekki í og Björgvin fagnaði eins höggs sigri og sínum öðrum klúbbmeistaratitili.

Björgvin endaði á 296 höggum (73-70-80-73), Róbert Smári á 296 (74-7l2-74-77) og Pétur Þór Jaidee á 297 höggum (79-72-72-75).

Rut varð klúbbmeistari í fimmta sinn en hún hefur á löngum ferli sigrað á fjórum áratugum (1999, 2000,2001, 2019 og 2026). Hún lék 72 hol urnar á 327 höggum. Önnur varð Sólveig Björgvins dóttir á 383 höggum og þriðja Svandís Þorsteins dóttir á 401 höggi.

Það var spenna í fleiri flokkum. Davíð Jónsson vann 1. flokkinn með góðum endaspretti og var höggi betri en Óskar Halldórsson.

Í 2. flokki karla voru þrír jafnir og eftir bráðabana stóð Atli Karl Sigurbjartsson uppi sem sigurvegari, Sveinn Björnsson varð annar og Sigurður Þór Hall grímsson þriðji.

Friðrik Alexandersson var bestur í 3. flokki og Freyr Brynjarsson sigraði eftir mjög spennandi

keppni í opnum flokki karla. Eva Stefánsdóttir varð efst í opnum flokki kvenna. Kristján Björgvinsson vann í öldungaflokki 65+ og Hafsteinn Ögmundsson í punktakeppni karla 65+. Þar varð Anna Birna Árnadóttir efst hjá kvenfólkinu. Í nýliðaflokki kvenna sigraði Ingunn Rós Valdimarsdóttir.

Aron átti skot í slána og Arnleifur Hjörleifsson fylgdi vel á eftir og skoraði, 4-3 fyrir Njarðvík! Grindvíkingar voru þó lífseigir. Á 63. mínútu slapp Rúnar Ingi í gegnum vörn Njarðvíkur, sendi fyrir þar sem Valur Þór átti skot sem var varið, en Gunnleifur Orri var mættur í frákastið og skoraði sitt annað mark í leiknum, 4-4. Skömmu síðar varð Njarðvík fyrir áfalli þegar markvörðurinn Guy Smit þurfti að fara meiddur af velli og Daði Fannar Reinhardsson fór í markið. Sigurmarkið og lokamínúturnar Úrslitin réðust á 76. mínútu. Leandro Fernandes átti þá auka-

spyrnu inn á teiginn, Sigurjón Már Markússon náði að skalla boltann aftur fyrir markið og þar mætti Eiður Aron Sigurbjörnsson af harðfylgi og stangaði boltann í netið, 5-4.

Grindvíkingar lögðu allt í sölurnar undir lokin og miðvörðinn Damir var jafnvel kominn í fremstu víglínu. Þrátt fyrir sjö mínútna uppbótartíma og mikla pressu héldu Njarðvíkingar út, og voru raunar nær því að bæta við sjötta markinu þegar Oumar Diouck fékk dauðafæri á 96. mínútu. Lokatölur: Njarðvík 5, Grindavík 4.

Fleiri myndir úr leiknum má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is

Ingvar Ingvarsson og Andrea Ásgrímsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Sandgerðis 2026. Veðrið setti svip sinn á mótið en mikill vindur og rigning gerði keppendum erfitt fyrir.

Ingvar háði harða baráttu við klúbbmeistara síðasta árs, Hlyn Jóhansson. Ingvar vann að lokum með fimm högga mun, lék á 300 höggumen Hlynur á 305. Í 3.-4.sæti voru þeir Annel Jón Þorkelsson og Grímur S. Jensson á 313 höggum. Andrea Ásgrímsdóttir fékk ekki mikla keppni því hún var ein í meistaraflokki kvenna. Hún lék á 264 höggum.

Ari Gylfason sigraði í 1. flokki karla og Arnór Vilbergsson í 2. flokki. Steinunn Dröfn Ingibjörnsdóttir sigraði í opnum flokki kvenna og Daníel Einarsson í opnum flokki karla. Í öldungaflokki 70 ára og eldri vann Bergur Magnús Sigmundsson.

Rut og Björgvin, klúbbmeistarar GS 2026.
Níu mörk voru skoruð í leiknum en það er langt síðan annar eins leikur hefur farið fram í Njarðvík. VF/hilmarbragi
Njarðvíkingar höfðu ástæðu til að fagna í leikslok.

vínber

Suðrænar lambakótelettur

Kjarnafæði

Grísahnakkafille með black garlic Stjörnugrís

Hindber Driscoll's, 125g Tilboð gilda til 26. júlí

„Ég trúi ekki að það sé komið að þessu!“ sagði Lilja systir við mig í símann. Þetta var daginn áður en við áttum loksins að fljúga út til Króatíu í sumarfríið langþráða. Við vorum báðar búnar að vaða eld og brennistein síðan við pöntuðum miðana – að okkur fannst. Nútíma íslenskar húsmæður, ýmist í skóla eða með hreinlega allt á prjónunum samtímis. Við töldum niður dagana, mínúturnar og þvottavélarnar. Bara 16 þvottavélar þangað til við fórum. Svo urðu þær 15, svo 14...

Að morgni brottfarardags fæ ég annað símtal frá systur minni: „Íris! Ég finn ekki vegabréfið mitt!“ Það hafði gjörsamlega horfið. Við leituðum öll, hringdum í mann og annan og gerðum okkur ferð upp á hið fokdýra bílastæði flugstöðvarinnar í veikri von um að vegabréf systur minnar fyndist jafnvel í brottfararsalnum. Ekkert var hægt að gera fyrir okkur fyrr en klukkan 8 að morgni næsta dags en þá mættu starfsmenn tapað/fundið til vinnu í Leifsstöð. Við yrðum að bíða af okkur nóttina í óvissu og brottför staðfest klukkan 10:30!

Stóru systur kom ekki dúr á auga þessa nótt á meðan litla systir hennar hraut á milli hunds og barna í hjónarúminu, með vegabréfið sitt undir koddanum –svona til öryggis.

Lukkan var ekki hennar megin í þetta skiptið. Svo varð raunin að stóra systir varð eftir heima. Undirrituð og mágur lögðu af stað í sumarfríið góða með börnin fjögur. Glöð og sæl, með derhúfur og hatta, heimtandi M&M og leikföng úr Fríhöfninni.

Því er ég viss um að við hlæjum að þessu seinna. Í einhverju jólaboðinu kannski. En nú sitjum við mágur minn með börnin í tengiflugi, hávaðasöm og spennt á leið til Króatíu í sumarfrí og bíðum frétta að heiman. Misjöfn eru ævintýrin en ávallt enda þau vel, er það ekki annars?

Alltaf gott veður á miðvikudögum? Kanntu annan?

Rauð

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook