14 Sólbrekkuskógur 70 ára • Miðvikudagurinn 24. júní 2026 • 13. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS
Ástríður dúxaði í FS án þess Davíð hitti Golíat í Grindavík 9 Miðopna að missa af félagslífinu
„Þegar líkaminn segir stopp, þá byrjar æfingin“ - SJÁ SÍÐU 15
Milljarða framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
Ungviði við Melaberg á Jónsmessu
Isavia undirbýr risavaxnar framkvæmdir undir merkjum KEF+. Næsta stóra verkefnið er 10.000 fermetra tengibygging á miðju hlaðinu sem áætlað er að kosti 22 milljarða króna. Þá er í hönnun nýtt, 12 milljarða króna afísingarsvæði. Framkvæmdirnar munu stórbæta afkastagetu, rekstraröryggi og upplifun farþega. Sjá nánar í blaðinu í dag.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Gagnaverin hiti upp gróðurhús í Reykjanesbæ Gagnaversfyrirtækið atNorth stefnir að því að tengja starfsemi sína við matvælaræktun á Suðurnesjum. Fyrirtækið, sem er á meðal þeirra fremstu í Evrópu í uppbyggingu gervigreindarklústra, kallar eftir samstarfi við heimamenn um að nýta afgangsvarma frá gagnaverunum til að rækta tómata eða þörunga.
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, kynnti þessi áform á fundi hjá KADECO. Hann bendir á að hertar evrópskar reglugerðir munu líklega banna byggingu gagnavera án varmanýtingar eftir árið 2030. Fyrirtækið er þegar með hliðstætt verkefni í gangi í Danmörku þar sem afgangsvarmi nýtist í heilsárstómataræktun.
Eyjólfur svaraði jafnframt gagnrýni um flata atvinnusköpun og líkti gagnaverum við La Sagrada Familia kirkjuna í Barcelona – þau séu í stanslausri uppbyggingu. Hjá fyrirtækinu starfa nú 120 manns á Íslandi en að lágmarki 200 verktakar eru á svæðinu á hverjum degi, þar sem helmingurinn er af Suðurnesjum.
Þótt stjórn fyrirtækisins undirbúi nú 18 MW stækkunarfasa í Reykjanesbæ, varar Eyjólfur við því að Ísland sé að missa af lestinni í gervigreindinni vegna skorts á raforku og flutningsgetu. Fyrir fimm árum var öll starfsemin á Íslandi, en í dag er hlutfallið komið niður í 15% þar sem vöxturinn hefur færst erlendis. Sjá nánar í blaðinu í dag.
Algalíf á meðal þeirra stærstu í heiminum Líftæknifélagið Algalíf á Ásbrú hefur meira en þrefaldað framleiðslugetu sína á andoxunarefninu astaxanthin eftir risavaxna stækkun verksmiðju sinnar. Framleiðslan fer fram innandyra við fullkomlega stýrðar aðstæður. Félagið stefnir á að verða stærsti framleiðandi heims og hefur þegar tryggt sér forleigurétt á lóð fyrir frekari vöxt. Sjá nánar í blaðinu í dag.
Næsta blað kemur út 8. júlí nk.
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Snorri
Gylfi
Óskar
Sölvi
snorribs@valholl.is
gylfi@valholl.is
oskar@valholl.is
770 4040
691 1931
solvi@valholl.is
699 4407
618 0064
1 6 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Hér má sjá myndarlegan hóp sem mætti prúðbúinn til messunnar en myndin var tekin að lokinni athöfninni og áður en farið var til kaffisamsætis í sjóhúsi á landareign Minna-Knarrarness.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi
Þorsteinn Ólafsson látinn Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fv. landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, lést þann 5. júní, 75 ára gamall. Útför hans fór fram frá Bústaðakirkju sl. mánudag. Þorsteinn fæddist í Keflavík 15. mars 1951. Foreldrar hans voru Ólafur A. Þorsteinsson framkvæmdastjóri og Hallbera Pálsdóttir húsmóðir. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og síðar prófi í efnafræði frá Lundarháskóla í Svíþjóð árið 1977. Hann starfaði sem efnafræðingur hjá lyfjafyrirtækinu AB Hässle í Gautaborg og eftir heimkomu frá Svíþjóð hóf hann störf hjá Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri. Þegar yngsta dóttir Þorsteins greindist með hvítblæði 1988 söðlaði Þorsteinn um og kom að stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) ásamt öðrum foreldrum barna með krabbamein. Hann varð fyrsti formaður og framkvæmdastjóri félagsins. Starfsferlinum lauk Þorsteinn hjá Olís en þar starfaði hann til fjölda ára. Þá var Þorsteinn meðlimur Oddfellowreglunnar um árabil og allt til aldursloka. Þorsteinn hóf ungur að stunda knattspyrnu og hóf hann feril sinn sem markvörður hjá ÍBK / Keflavík og í framhaldinu hjá
Perstorps SK. Atvinnumannaferill Þorsteins hófst árið 1980 með samningi við IFK Göteborg og endaði sviplega með slæmu fótbroti í æf ingaleik fyrir keppnistímabilið 1981. Þorsteinn átti stutt tímabil með IFK Trollhättan áður en hann gerði samning við Þór á Akureyri og var þá alkominn heim. Í lok ferilsins snéri Þorsteinn sér að þjálfun, var spilandi þjálfari með Þór Akureyri, þjálfari ÍF Magna, Keflavíkur, Hauka og Víðis í Garði. Hann lauk ferlinum 1992 sem spilandi þjálfari með Víði. Þorsteinn varð Íslandsmeistari með gullaldarliði ÍBK árin 1969, 1971 og 1973 og síðar bikarmeistari árið 1975. Á ferlinum spilaði Þorsteinn á móti stærstu félögum í Evrópu, eins og Real Madrid, Arsenal og Everton svo eitthvað sé nefnt. Aukinheldur átti Þorsteinn að baki 16 landsleiki á árunum 1971 – 1980. Eftirlifandi eiginkona Þorsteins er Guðný Eiríksdóttir fædd 1953. Með fyrri eiginkonu, Katrínu S. Guðjónsdóttur, átti Þorsteinn dæturnar Sólveigu, Höllu, Stellu Maris og Söndru. Synir Guðnýjar og stjúpsynir Þorsteins eru Guðbjörn og Bjarki. Barnabörn Þorsteins eru 15 og barnabarnabörnin 7.
Okkar elsku besti
ANDRI PÉTUR TORFASON Greniteigi 35, Keflavík
lést þann 16. júní sl.
Útför fer fram fimmtudaginn 2. júlí kl. 13 frá Keflavíkurkirkju.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgina, geðræktarmiðstöð. Hrafn Orri Andrason Kolbrún Jóna Pétursdóttir Torfi Þór Torfason Stefanía Torfadóttir Juan Carlos Malatesta López Hekla Óðinsdóttir Tinna Torfadóttir Sigurjón Óli Vignisson Stefanía Jónsdóttir og Pétur Sigurðsson
Glæsileg þjóðbúningamessa á kvenréttindadaginn í Knarrarneskirkju Sannkölluð hátíðarstemning ríkti í Knarrarneskirkju á kvenréttindadaginn, þann 19. júní síðastliðinn, þegar þar var haldin sérstök þjóðbúningamessa. Knarrarneskirkja er við Minna-Knarrarnes á Vatnsleysuströnd og er heimakirkja sem þau Birgir Þórarinsson og Anna Rut Sverrisdóttir eiga en þau vonast til þess að um árlegan viðburð verði að ræða í framtíðinni. Í samtali lýsa þau Birgir og Anna Rut því að hugmyndin hafi kviknað í gegnum starf þeirra í Þjóðbúningafélagi Íslands, en stefna félagsins er einmitt að standa fyrir þjóðbúningamessum í hinum ýmsu sveitakirkjum landsins. Fjölmargir félagsmenn mættu til messunnar prúðbúnir í glæsilegum klæðnaði og var hópurinn afar samheldinn, en mörg þeirra fóru saman í eftirminnilega ferð til Kanada á síðasta ári í tilefni af 150 ára afmæli Íslendingadagsins þar. Anna Rut segir áhuga sinn á þjóðbúningum hafa kviknað á námskeiði hjá Annríki í Hafnarfirði, undir handleiðslu Guðrúnar Þórhildar Rosenkjær. Þar saumaði hún fyrst 19. aldar upphlut á sjálfa sig og í framhaldinu dugaði ekkert minna en að klæða bóndann upp líka, svo hann yrði jafn fínn við hlið hennar. Það var séra Kristján Valur vígslubiskup, héraðsprestur Knarrarneskirkju, sem sá um messuhaldið og flutti hann frábæra prédikun þar sem fjallað var um þjóðrækni, þjóðbúninga og konur, sem hæfði deginum einstaklega vel. Að sögn Birgis eru tveir fastir messudagar í Knarrarneskirkju; þjóðbúningamessan á kvenréttindadaginn og svokölluð Nikulásarmessa þann 6. desember. Hann hvetur alla þá sem eiga þjóðbúninga til að mæta í messuna í framtíðinni, „á meðan húsrými leyfir.“ Að ofan má sjá myndarlegan hóp sem mætti prúðbúinn til messunnar en myndin var tekin að lokinni
athöfninni og áður en farið var til kaffisamsætis í sjóhúsi á landareign Minna-Knarrarness. Þar er mikið kríuvarp og eru kríurnar mjög aðgangsharðar. Ljósmyndari Víkurfrétta kynntist einni kríunni nokkuð vel og varð þeim vel til vina eins og sjá má. Krían settist á hatt ljósmyndarans og það ekki einu sinni, heldur tvisvar. Kría á kolli blaðamanns.
Framkvæmdir standast áætlun en bæjarstjóri óttast framkvæmdastopp í haust Nýtt mælaborð yfir sjö stærstu framkvæmdir Reykjanesbæjar sýnir að öll verkefni eru innan fjárhagsáætlunar. Þrátt fyrir gleði minnihlutans á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar yfir þeim tíðindum lýsir nýr bæjarstjóri yfir þungum áhyggjum af því að framkvæmdirnar muni stoppa vegna fjárskorts í haust. Mælaborðið tekur til framkvæmda við Myllubakkaskóla, Holtaskóla, Drekadal, leikskólann Velli, íþróttavallarhús Njarðvíkur, Hljómahöll og leikskólann Heiðarsel. Minnihlutinn fagnaði stöðunni og sagði mælaborðið sanna að fullyrðingar Sjálfstæðisflokksins í kosningabaráttunni um fjárhags-
lega framkvæmdaóreiðu hefðu verið innantómar. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók hins vegar dræmt í fagnaðarlætin og benti á að mælaborðið sýndi aðeins raunstöðu eftir fyrsta
ársfjórðung. Hann fullyrðir að framkvæmdirnar hafi ekki verið fullfjármagnaðar út árið í upphaflegri fjárhagsáætlun fráfarandi meirihluta. „Þær lifa yfirleitt bara í þrjá ársfjórðunga, sá fjórði hefur ekki verið fjármagnaður,“ sagði Vilhjálmur og bætti því við að það stefndi í að framkvæmdirnar myndu hreinlega stoppa í haust ef ekki yrði brugðist við. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, fulltrúi Framsóknar, mótmælti þessu og sagði framkvæmdirnar fullfjármagnaðar en að þær hefðu einfaldlega gengið hraðar og betur en áætlað var og því væri eðlilegt að sækja um viðbótarheimildir ef menn vildu gera enn meira.
Tækifæri á Tæknivöllum Kadeco í samvinnu við Reykjanesbæ auglýsir byggingarrétt á 20 atvinnulóðum á Tæknivöllum á Ásbrú.
Um er að ræða 15 lóðir undir almennt atvinnuhúsnæði þar sem stærðir lóða eru 2.100–7.500 m², ásamt 5 lóðum undir lífræna ræktun, t.d. gróðurhús, þar sem stærðir lóða eru 7.400–10.500 m². Afsláttur er veittur af söluverði byggingarréttar til fyrirtækja með vottaða umhverfisstefnu eða ef byggt er húsnæði með viðurkennda umhverfisvottun. Tæknivellir á Ásbrú eru einstaklega spennandi svæði til uppbyggingar á hverskonar atvinnustarfsemi, með aðgengi að sterkum innviðum og steinsnar frá Keflavíkurflugvelli. Fyrirhuguð er endurnýjun fráveitukerfa árið 2027 og áframhaldandi gatnagerð á næstu árum samhliða uppbyggingu. Frekari upplýsingar, þ.á.m. söluskilmálar og rafrænt umsóknarform eru á vef Kadeco: www.kadeco.is/atvinnulodir. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið: lodir@kadeco.is.
Kadeco | Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. Skógarbraut 946, Ásbrú, 262 Reykjanesbær. www.kadeco.is.
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Jón Ólafur Jónsson varð þess heiðurs aðnjótandi að draga hátíðarfánann að húni í skrúðgarðinum á þjóðhátíðardaginn 2026.
Jóhann Helgason, Margrét Þórarinsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Magnús Þór Sigmundsson en þeir Magnús og Jóhann voru útnefndir listamenn Reykjanesbæjar 2026-2030. VF-myndir: Hilmar Bragi
Listin heiðruð á 17. júní
Jón Ólafur ásamt fjölskyldu sinni á þjóðhátíðardaginn.
Ástríður Auðbjörg var fjallkonan í ár. Hér er hún ásamt skátanum Guðmundi Sölva.
Íbúar og gestir í Reykjanesbæ fögnuðu þjóðhátíðardeginum, 17. júní, með fjölbreyttri dagskrá í blíðskaparveðri. Hápunktur á hátíðarhöldunum í Skrúðgarðinum í Keflavík var þegar tónlistarmennirnir Jóhann Helgason og Magnús Þór Sigmundsson voru útnefndir Listamenn Reykjanesbæjar fyrir tímabilið 2026–2030. Bæjaryfirvöld ákváðu að veita nafnbótina sameiginlega að þessu sinni til að heiðra einstakt samstarf þeirra og framlag til tónlistararfleifðar bæjarins. Vilhjálmur
Árnason bæjarstjóri og Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar afhentu þeim viðurkenninguna og listmuninn Lífanga eftir Arnbjörgu Drífu Káradóttur. Hátíðarhöldin hófust með því að gulldrengurinn og fyrrum bæjarfulltrúinn Jón Ólafur Jónsson dró þjóðhátíðarfánann að húni. Í kjölfarið flutti Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, hátíðarræðu dagsins. Í ræðu sinni tengdi hún saman kraftmikla jarðsögu svæðisins og sterkan samfélagsanda íbúanna. Hún benti
Tölvugerðar myndir af húsnæðinu við Keilisbraut á Ásbrú. Grunnurinn eru fjölbýlishús sem byggð voru fyrir Varnarliðið en verður nú breytt í 90 rýma hjúkrunarheimili.
Nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verður opnað á Ásbrú Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins en ríkið leigir húsið með leigusamningi til 25 ára af Icelandic Home ehf. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum. Fyrir skemmstu var annað hjúkrunarheimili opnað í Reykjanesbæ og stendur það við Nesvelli. Þegar bæði hjúkrunarheimilin verða komin í gagnið mun hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum hafa fjölgað um tæp 80% frá því í janúar sl. Til viðbótar munu 24 skammtímahjúkrunarrými bætast við í bænum í haust þegar hjúkrunarheimilið Hlévangur opnar á nýjan leik og verða þau starfrækt fram að opnun hjúkrunarheimilisins við Keilisbraut.
Framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum „Við höfum sett málefni eldra fólks í forgang og látum verkin tala. Stjórnvöld eru í stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarheimila vítt og breitt um landið og nýja hjúkrunarheimilið við Keilisbraut verður mikilvægt framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum og fjölskyldur þeirra. Með þessu fjölgar hjúkrunarrýmum verulega á svæðinu og fleiri fá þá þjónustu og það öryggi sem þeir eiga skilið,“ segir Inga Sæland sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila. „Stundum gerast góðir hlutir hratt og óhætt að segja það um uppbyggingu hjúkrunarrýma um þessar mundir. Þetta er óendanlega mikilvægt, auðvitað fyrst og fremst gagnvart öldruðu fólki í brýnni þörf fyrir slíka búsetu
Íbúar á hjúkrunarheimilinu við Keilisbraut verða alls 90 talsins. Frá vinstri til hægri: Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS, Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra sem fer jafnframt fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila, og Karl Finnbogason, eigandi Icelandic Home ehf. Ljósmynd: Sverrir H. Geirmundsson. en einnig fyrir heilbrigðiskerfið í heild, ekki síst Landspítala og bráðamóttökuna þar - og raunar samfélagið allt. Það er grundvallaratriði í heilbrigðismálum að fólk
fái þá þjónustu sem það þarfnast á réttum stað og réttum tíma. Svo sannarlega er það mikil áskorun en við höfum ríka ástæðu til að gleðjast yfir þeirri kraftmiklu upp-
byggingu hjúkrunarheimila sem við sjáum nú víðsvegar um landið,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. „Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fagnar mjög þessum áfanga í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum. Aðstaðan á Keilisbraut býður upp á marga möguleika til að mynda fallega umgjörð fyrir íbúa heimilisins og móta þar fyrirmyndar samfélag. Með opnun nýja hjúkrunarheimilisins á Keilisbraut skapast einstakt tækifæri til að efla sjúkrahússtarfsemi HSS enn frekar og mun það hafa víðtæk áhrif á heilbrigðisþjónustu til framtíðar,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS. Hjúkrunarheimilið við Keilisbraut er hluti af framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026-2030 en þar er gert ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun á tímabili áætlunarinnar. Í dag eru alls 160 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ en með nýja hjúkrunarheimilinu verða þau orðin 250.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 5
Það er fátt þjóðlegra en stærsti fáni landsins!
Gestir í skrúðgarðinum á þjóðhátíðardaginn.
á nýjar rannsóknir sem sýna að grindvískum ungmennum sem fluttu á Suðurnesin líði mun betur en þeim sem fluttu lengra í burtu, sem sanni hve miklu máli opinn faðmur nærsamfélagsins skipti. Að lokum flutti Fjallkonan, Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir, ávarp sitt við mikinn fögnuð viðstaddra. Meðfylg jandi myndir voru teknar á þjóðhátíðardaginn.
Skrúðganga leggur af stað frá Keflavíkurkirkju með fánann í fararbroddi.
VF/hilmarbragi
Sjónvarp Víkurfrétta Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
a s s e m a g n i n ú b ð ó Þj d n ö r t s s y e á Vatnsl í Suðurnesjamagasíni vikunnar VELKOMIN Í SUÐURNESJABÆ
vinalegur bær
Horfðu á vf.is
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Þröstur Norðurlandameistari Þröstur Sigmundsson frá Reykjanesbæ, varð Norðurlandameistari í opnum flokki í eldsmíði sem fram fór dagana 11.-14. Júní í Tidaholm í Svíþjóð. Sex tóku þátt fyrir Íslands hönd, fimm keppendur og einn dómari. Beate Stormo, frá Eyjarfjarðarsveit og Guðmundur Sigurðsson, frá
Akranesi, náðu einnig mjög góðum árangri í sínum flokkum og unnu bæði 3. sætið. Norðurlandameistaramótin í eldsmíði eru haldin til skiptis á Norðurlöndum, annað hvert ár. Síðast var mótið haldið á Íslandi árið 2022, í Danmörku 2024 og nú í Svíþjóð.
Áform um allt að sjö hæða fjölbýlishús við Iðjustíg Miklar skipulagsbreytingar eru í bígerð í miðbæ Reykjanesbæjar eftir að skipulagsráð samþykkti, með þremur atkvæðum gegn tveimur, að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu á fundi sínum þann 19. júní síðastliðinn. Tillagan, sem JeES arkitektar unnu fyrir hönd Ásgarðs fasteignafélags ehf., boðar afgerandi breytingar á götumyndinni við Hafnargötu, Iðjustíg og Pósthússtræti þar sem stefnt er að uppbyggingu á allt að sjö hæða fjölbýlishúsi. Breytingin felur í sér að lóðir á svæðinu verða sameinaðar og stækkaðar, en stærsta stökkbreytingin lýtur að sjálfu byggingarmagninu. Heimilað verður að reisa 4–7 hæða fjölbýlishús með verslunar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð, íbúðum á efri hæðum og bílgeymslu neðanjarðar. Áætlað er að byggja allt að 94 íbúðir á reitnum. Bakhjarlar tillögunnar segja markmiðið vera að styrkja miðbæjarstarfsemina, þétta byggð á þegar röskuðu svæði og fegra götumyndina við Hafnargötu og Njarðarbraut, í samræmi við Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020–2035.
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Tillagan mætti hins vegar andstöðu minnihlutans í skipulagsráði. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins, þeir Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Birgir Már Bragason, greiddu atkvæði gegn því að auglýsa tillöguna og lögðu fram bókun þar sem þeir gagnrýna áformin. Í bókuninni benda þeir á að breytingin sé gríðarleg, enda verið að fara úr tveimur tveggja hæða byggingum yfir í eina stóra byggingu sem verður allt að sjö hæðir. Þá lýsa þeir yfir áhyggjum af umferðarmálum á svæðinu og velta upp samræmi við aðra nálæga reiti: „Iðjustígur nýtir sömu umferðarmannvirki og Akademíureiturinn en aðeins 250 metrar eru á milli reitanna tveggja og því tvísýnt hvernig yfirlýsingar um umferðarteppur gilda ekki til jafns á báðum stöðum,“ segir í bókun minnihlutans. Þá veltu fulltrúarnir tveir því upp hvort þetta skipulag endurspegli nýja „blokkastefnu“ hjá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í bænum. Deiliskipulagstillagan verður nú engu að síður auglýst og fær almenningur fljótlega tækifæri til að kynna sér áformin og segja sína skoðun á þessari fyrirhuguðu miðbæjaruppbyggingu.
Rétturinn
Gott verð fæst fyrir ufsa sem er ódýr í leigu Sumarið er komið. Já, það má með sanni seg ja það, því að veðurfarið núna síðustu daga og vikur er búið að vera vægast sagt mjög gott og sjórinn eins og spegill. Þessi vika, sem er síðasta heila vikan í júní, er líka síðasta vikan sem margir strandveiðibátarnir mega róa. Það er þannig í lögum um strandveiðibátana að þeir mega einungis róa 12 daga í hverjum mánuði og margir bátar eru komnir með 10 róðra og núna í júní eru eftir 6 virkir dagar sem bátarnir mega róa. Þeir bátar sem eru komnir með 10 daga fóru margir á sjóinn þann dag sem þessi pistill er skrifaður og það þýðir að þeir eiga einungis einn dag eftir. Þá fækkar töluvert í flotanum, en það eru einhverjir bátar sem munu ná að róa þessa daga út júní því ekki hafa allir bátarnir farið í 10 róðra. Annars hefur færabátunum sem fara á ufsa fjölgað smá og núna um helgina fóru fjórir bátar á ufsann frá Sandgerði, Addi afi GK fór í Röstina og Sindri GK, Ragnar Alfreðs GK og Dóra Sæm HF fóru allir út á Boða og Hrygginn en það er í um 45 mílna fjarlægð frá Sandgerði. Bátunum gekk nokkuð vel. Addi Afi GK kom með 2,9 tonn og þar
af var ufsi 2,4 tonn. Sindri GK kom með 2,9 tonn, Ragnar Alfreðs GK kom með 1,9 tonn og Dóra Sæm HF var aflahæstur með 3,8 tonn, og voru allir bátarnir einn dag á veiðum. Röstin er veiðisvæði sem hefur í gegnum áratugina verið ansi vinsælt veiðisvæði, og þá aðallega hjá færabátum og netabátum. Botninn er frekar grýttur þar sem og miklir straumar sem gera þetta svæði erfitt fyrir báta sem eru á togveiðum, t.d. trollbáta og dragnótabáta. Sigurfari GK er t.d. einn af fáum dragnótabátum sem hafa verið á dragnót í Röstinni því að hann er með mjög stóra vél og mikinn togkraft og hefur aflið til þess að stunda veiðar í Röstinni. Undanfarin ár hefur ekki verið mikið um að netabátar séu þar á veiðum yfir sumarið, en ég sjálfur var nú á netum þarna yfir sumartímann á Bergi Vigfúsi GK og var þá sá mikli aflakóngur Grétar Mar skipstjóri á Bergi Vigfúsi GK. Var þá Oddur Sæmundsson þarna á veiðum á Stafnesi KE og var ansi stíft sótt þarna á svæðið í kringum Eldey. Eins og segir þá hafa ekki margir netabátar verið á ufsaveiðum í Röstinni undanfarin sumur, þangað til núna, því að núna er Emma Rós KE byrjuð á netum en
AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
báturinn lagði netin sín í fyrsta skipti núna eftir helgi, en báturinn rær með 4 trossur. Það verður fróðlegt að sjá hvernig bátnum mun ganga, en báturinn sem er búinn að vera í Keflavík í vetur hefur verið að veiða fyrir Hólmgrím og er núna kominn til Sandgerðis og mun landa ufsanum á markað þar, en leiguverð á ufsa er mjög lítið og verð á fiskmarkaði er mjög gott. Ekki eru allir færasjómenn sáttir við að netabátur sé kominn í Röstina, en samstarf á milli manna þarna á þessu svæði ætti alveg að geta gengið upp. Þann tíma sem ég var á netum þarna á Bergi Vigfúsi GK ásamt Stafnesi KE þá var samtals trossufjöldi hjá báðum bátunum hátt í 20, og stíft róið. Þá voru þarna líka færabátar og þá helstir Stjáni á Skúmi RE og Svanur á Birgi RE, en þeir stunduðu færaveiðar í Röstinni lengst allra færabáta og rótfiskuðu þar. Eldri sjómenn sem lesa þennan pistil og voru á veiðum þarna í grennd ættu að muna vel eftir Stjána og Svani.
Ólafur og Þorsteinn heiðraðir á Bessastöðum Forseti Íslands sæmdi á þjóðhátíðardaginn 14 einstaklinga heiðursmerki fálkaorðunnar.��������������Tveir þessara einsaklinga eru frá Suðurnesjum. Ólafur Ólafsson fyrirliði og körfuboltaleikmaður og Þorsteinn Eggertsson textahöfundur. Ólafur Ólafsson, fyrirliði og körfuboltaleikmaður, fyrir þjónustu við heimabyggð á krefjandi tímum. Þorsteinn Eggertsson textahöfundur, fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar.����
Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
er á vf.is
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 7
Ný bæjarstjórn Voga kom saman til fyrsta fundar:
Frá fyrsta fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar í vor.
Leikskólamál eitt af stóru málunum Nýkjörin bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga kom saman til síns fyrsta fundar fimmtudaginn 11. júní, í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í síðasta mánuði. Á fundinum var nýr meirihluti formlega kynntur og gengið var frá helstu embættisverkum fyrir komandi kjörtímabil. Nýja bæjarstjórnin er skipuð sjö fulltrúum. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra er með þrjá fulltrúa, A-listi Fyrir samfélagið tvo, E-listi Strandar og Voga einn og L-listi Lista fólksins einn fulltrúa. Fyrir liggur málefnasamningur á milli D-lista, E-lista og L-lista sem munu mynda meirihluta á kjörtímabilinu 2026–2030. Í yfirlýsingunni kemur fram að samstarfið muni byggja á breiðum grunni þar sem áhersla verður lögð á traustan rekstur, öfluga
þjónustu, aukið gagnsæi og gott samtal við íbúa sveitarfélagsins. Á fundinum var Kristinn Björgvinsson kjörinn forseti bæjarstjórnar og Birgir Örn Ólafsson formaður bæjarráðs. Þá var einnig gengið frá skipan í fastanefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins, auk þess sem samþykktur var ráðningarsamningur við Björgu Ástu Þórðardóttur sem nýjan bæjarstjóra Voga fyrir kjörtímabilið. Eitt af fyrstu stóru verkefnum nýja meirihlutans snýr að leikskólamálum í sveitarfélaginu. Á fundinum var tekinn fyrir viðauki við fjárhagsáætlun vegna kaupa og uppsetningar á færanlegum kennslustofum fyrir Heilsuleikskólann Suðurvelli, en það er liður í vinnu við að fjölga leikskólaplássum. Málinu var vísað til frekari vinnslu í bæjarráði.
Ný bæjarstjórn Suðurnesjabæjar ætla að vinna áfram að sameiningunni:
Lækkaðar álögur, nýr gervigrasvöllur og hámarksverð á leikskólum í nýjum málefnasamningi Fulltrúar Samfylkingarinnar og óháðra (S-lista) og Sjálfstæðisflokksins og óháðra (D-lista) hafa náð samkomulagi um áframhaldandi samstarf í meirihluta bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Í nýjum málefnasamningi flokkanna er lögð rík áhersla á að lækka álögur á íbúa, bæta lífsgæði barnafólks, fatlaðra og eldri borgara, og vinna áfram að sameiningu byggðakjarnanna tveggja, Garðs og Sandgerðis, sem sameinuðust árið 2018. Hér eru helstu áhersluatriðin úr nýjum málefnasamningi meirihlutans:
Stuðningur við barnafólk og skóla
Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga.
Tekist á um laun formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar:
Tillaga um launalækkun formanns bæjarráðs felld Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins lögðu fram tillögu til hagræðingar í rekstri Reykjanesbæjar þess efnis að laun formanns bæjarráðs yrðu lækkuð. Tilefnið er að ábyrgðin á því að leysa bæjarstjóra af í fjarveru hans hefur verið færð yfir á embættismann. Nýi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks felldi tillöguna og segir hlutverk formannsins breytast en ekki minnka. Deilurnar hófust þegar verið var að ræða breytingar á samþykktum um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar. Ein af þeim breytingum sem nýi meirihlutinn lagði til var að gera embættismann sveitarfélagsins (bæjarlögmann) að staðgengli bæjarstjóra í fjarveru hans, í stað formanns bæjarráðs eins og venjan hafði verið á síðasta kjörtímabili. Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, rakti sögu málsins og minnti á að á síðasta kjörtímabili hefði bæjarmálasamþykkt verið breytt til að auka gagnsæi. Þá var ákveðið að formaður bæjarráðs myndi leysa bæjarstjóra af. „Í ljósi ábyrgðarstöðunnar og þess að taka einnig á sig að vera varamaður bæjarstjórans var tekin ákvörðun um að hækka laun formanns bæjarráðs úr 25% af þingfarakaupi í 32%,“ sagði Guðný Birna. Hún benti á að fyrst nýi meirihlutinn væri nú að færa þessa ábyrgð af herðum formannsins og yfir á bæjarlögmann, væri einungis eðlilegt að launin myndu fylgja með og lækka til baka í 25%.
„Hækkunin var talin eðlileg á þeim tíma þar sem formaðurinn varð að vera tilbúinn að leysa bæjarstjóra af. Nú er sú ábyrgð ekki lengur til staðar og því leggjum við þetta til sem hagræðingu í rekstri.“ Vilhjálmur Árnason, nýráðinn bæjarstjóri, steig í pontu og sagði tillögu minnihlutans ekki tæka. „Við erum að tala um pólitíska stefnumörkun og pólitíska forystu sem formaður bæjarráðs mun leiða, á meðan margt af því sem kemur í hlutverk staðgengils bæjarstjóra er stjórnsýslulega tengt. Við erum að reyna að hafa skýrari skil þar,“ sagði Vilhjálmur og benti á að verið væri að fækka nefndum í bænum til að auka skilvirkni og samleið og við það myndi hlutverk formanns bæjarráðs breytast töluvert. Hann myndi þurfa að vera enn meira í því að auka samvinnu á milli nefnda og leiða þær í pólitískri stefnumörkun. Hlutverkið væri því minna en vinna ekki, þótt staðgengilshlutverkið væri fært. Eftir nokkrar umræður var tillaga minnihlutans um launalækkunina borin upp til atkvæðagreiðslu en hún var felld með 6 atkvæðum meirihlutans gegn 5 atkvæðum minnihlutans. Í kjölfarið lagði Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins, til að málinu yrði vísað inn til bæjarráðs þar sem fram undan er heildaryfirferð og umræða um kaup, kjör og erindisbréf í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Vilhjálmur bæjarstjóri tók undir að sjálfsögðu yrði sú umræða tekin þar þegar öll gögn lægju fyrir og var sú bókun samþykkt.
Hámarksverð á leikskólum: Tryggt verður að engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir fulla leikskólavistun, auk þess sem tekinn verður upp 100% systkinaafsláttur. Skólauppbygging: Hafnar verða framkvæmdir við stækkun Sandgerðisskóla og undirbúningur hafinn að byggingu nýs leikskóla í Garði. Þá verða niðurgreiðslur til dagforeldra endurskoðaðar. Íþróttir og heilsuefling Gervigrasvöllur og opnunartímar: Ákvörðun verður tekin sem allra fyrst um uppsetningu á heilum gervigrasvelli í sveitarfélaginu. Einnig á að rýmka opnunartíma sundlauga svo almenn-
ingur geti nýtt íþróttamannvirkin betur. Efling íþróttastarfs: Frístundastyrkjakerfið verður endurskoðað og fagfólk ráðið til að styðja við barna- og unglingastarf íþróttafélaganna.
Innviðir, skipulag og atvinnumál Tenging byggðakjarnanna: Mótun heildstæðrar sýnar á svæðið á milli Garðs og Sandgerðis verður sett í forgang, með það að leiðarljósi að nýta landið undir íbúabyggð, atvinnu, íþróttir og útivist. Samgöngur og stígar: Þrýst verður á að Garðskagavegur verði endurbættur sem fyrst. Þá verður kraftur settur í gatna- og stígagerð, bættar almenningssamgöngur milli kjarnanna og hafin vinna við útivistarsvæðið Gryfjuna í Sandgerði. Atvinnulíf og hafnir: Atvinnustefna verður mótuð til að hámarka
tækifærin í K64 (Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar) og Hringrásariðngarðinum. Einnig á að auka samkeppnishæfni Sandgerðishafnar með nýrri þjónustustefnu og endurskoðuðu skipulagi.
Opin stjórnsýsla og ferðaþjónusta Gagnsæi og opið bókhald: Meirihlutinn ætlar að innleiða opið bókhald og gera fundargögn og fundargerðir nefnda aðgengilegri fyrir íbúa, auk þess sem fjölga á íbúafundum. Eins og þegar hefur verið tilkynnt verður staða bæjarstjóra auglýst laus til umsóknar. Garðskagi og sögulegar minjar: Garðskagi verður markaðssettur sem lykiláfangastaður fyrir ferðamenn og haf ið verður átak í markaðssetningu á Suðurnesjabæ í heild. Einnig verður hafinn undirbúningur að endurgerð Bæjarskersréttar. Að lokum lýsa fulltrúar S- og D-lista yfir vilja til að eiga gott samstarf við alla bæjarfulltrúa í minnihlutanum og tryggja gott upplýsingaflæði íbúum sveitarfélagsins til heilla.
Frá fyrsta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Saka meirihlutann um tvöfalt siðgæði og stefnubreytingu Miklar skylmingar áttu sér stað á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fyrir sumarleyfi. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks var sakaður um algjöra stefnubreytingu og tvöfalt siðgæði eftir að hafa gagnrýnt há laun í minnihluta en samþykkt þau svo sjálfur. Minnihlutinn fullyrðir að heildarlaun nýs bæjarstjóra slái við launum forsætisráðherra og að nýráðning aðstoðarmanns brjóti hreinlega gegn sveitarstjórnarlögum. Bæjarstjórnarfundurinn var sá síðasti fyrir sumarfrí. Ljóst er að „hveitibrauðsdagar“ nýja samstarfsins eru liðnir, ef þeir byrjuðu þá nokkurn tímann, því fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar sóttu fast að nýjum bæjarstjóra, Vilhjálmi Árnasyni. Mesta púðrinu var eytt í nýjan ráðningarsamning bæjarstjóra.
Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar, rýndi í tölurnar og fullyrti að með grunnlaunum upp á 2,6 milljónir, auk fastra launa sem kjörinn fulltrúi og nefndargreiðslna, væru heildarlaun hans um 3,2 milljónir á mánuði. Sagði hún launin hærri en hjá forsætisráðherra og málflutning meirihlutans um sparnað vera sýndarmennsku. Fulltrúar meirihlutans vísuðu þessu á bug sem rangfærslum. Þeir bentu á að fundarseta væri innifalin í grunnlaunum og að Vilhjálmur hefði afþakkað laun í bæjarráði. Kostnaður bæjarins væri í raun að lækka um 250 þúsund krónur miðað við fráfarandi bæjarstjóra. Til að tryggja gagnsæi verður samningurinn birtur opinberlega á netinu. Snerpan jókst enn frekar þegar Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, odd-
viti Framsóknar, lagði fram bókun þess efnis að Vilhjálmur hefði brotið sveitarstjórnarlög með því að ráða sér aðstoðarmann í hálft starf. Minnihlutinn bendir á að staðan sé ófjármögnuð í fjárhagsáætlun og því óheimil án viðauka. Vilhjálmur svaraði því til að stjórnsýslan kallaði á aðstoðarmann og að ráðningin rúmaðist innan fjárheimilda ráðhússins. Hann skaut til baka á minnihlutann og sagði þá hafa skilið eftir sig fjárhagslega „óreiðu“, svo sem ófjármögnuð biðlaun fráfarandi bæjarstjóra. Að lokum var hart tekist á um skipulagsmál en meirihlutinn hefur ákveðið að endurskoða uppbyggingu á Akademíureitnum. Bæjarstjórn samþykkti að lokum að leggja niður vopnin og fara í sumarleyfi til 12. ágúst.
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Ástríður dúxaði í FS án þess að missa af félagslífinu Ég var alltaf að hugsa um blaðið þetta seinasta ár og kom það stundum fyrir að ég valdi það yfir í að læra en á endanum náði ég samt alltaf að halda markmiðum mínum hvað varðar námið. Það getur nefnilega verið fólkið að reyna að standa sig í NFS, halda góðum einkunnum og njóta einkalífsins (ræktin og aðrar tómstundir og áhugamál) allt á sama tíma. Annars var ekki mikið sem mér fannst krefjandi eða neitt sem mér dettur í hug, því maður skilaði öllu vel af sér og allt það sem kom í hendurnar til mín leysti ég prýðilega.
Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir, nýútskrifaður dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja á vorönn 2026, útskrifaðist af raunvísindabraut með glæsilega meðaleinkunnina 9,64 og hlaut verðlaun fyrir frammistöðu sína í efnafræði, stærðfræði, spænsku og íslensku. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
FS er þekktur fyrir öflugt og líflegt félagslíf og Ástríður lét sitt ekki eftir liggja þar; hún mætti á öll skólaböll, stýrði ritnefnd skólablaðsins sem ritstýra og ræktaði vinskapinn í matsalnum af lífi og sál. En hvernig fer maður að því að brúa bilið á milli þess að halda einbeitingu í kröfuhörðu námi, vinna með skóla og taka fullan þátt í skólalífinu og tómstundum án þess að brenna út? Við fengum Ástríði, sem einnig prýddi hlutverk Fjallkonunnar í Reykjanesbæ á ágætum þjóðhátíðardegi á dögunum, til að svara nokkrum spurningum um skólaárin, skipulagið, framtíðina í hjúkrunarfræðinni og mikilvægi þess að halda í vonina. FS er þekktur fyrir öflugt félagslíf. Hvernig fórst þú að því að brúa bilið á milli þess að halda einbeitingu í náminu og taka þátt í skólalífinu eða hitta vini? Með frábæru skipulagi er allt hægt. Ég setti námið alltaf í fyrsta sæti en ég passaði að njóta samt inn á milli því að sjálfsögðu fær maður þennan dýrmæta tíma aldrei aftur. Ég vann öll verkefni strax ef ég gat og reyndi að skipuleggja mig vel. Öll árin mín í FS vann ég aðra hvora helgi auk þess að vera í bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, stunda líkamsrækt af fullum krafti, vera partur af NFS, þá í ritnefnd skólablaðsins á öðru ári og síðan sem ritstýra á því þriðja. En það sem mér fannst hjálpa var allur vinahópurinn minn. Við vorum flestallar á raunvísindabraut og þær voru allar mjög duglegar að sinna náminu og fannst mér það mikil hvatning að sinna þessu vel. Að vera umkringd fólki sem er jafn duglegt og þú hefur mikið að segja. Hvað er það minnisstæðasta sem þú gerðir utan skólastofunnar á þessum árum í FS? Það sem mun alltaf standa upp úr hjá mér alla skólagönguna er ritnefndin. Að fá að taka þátt í henni og seinna meir sem ritstýra var ómetanlegt. Ég eignaðist góða vini og kynntist mörgum sem ég hefði líklegast aldrei kynnst ef ég hefði ekki farið í nefndina. Allur lærdómurinn sem ég mun búa að hvað varðar skipulag, útdeilingu verkefna og að setja saman texta mun fylgja mér til lengri tíma. En það sem ég mun sakna mest eru þessar dýrmætu stundir sem ég átti með vinkonunum í matsalnum. Oft vanmeta allir það að sitja með vinum í matsalnum á milli tíma eða í mat og spjalla um hitt og þetta eða jafnvel ekki neitt. Ég saknaði þess alveg seinasta árið mitt að fara í matsalinn (var í svo fáum áföngum þannig ég fór alltaf heim). Svo verða böllin alltaf seint toppuð. Það eru aðeins letingjar sem sitja heima og læra eða gera ekki neitt sem mæta ekki á böllin en ég tilheyri svo sannarlega ekki þeim hópi. Ég mætti auðvitað á öll böllin alla skólagönguna, þó voru þau misgóð en alltaf stemming að mæta samt.
Hvernig slakarðu best á þegar þú þarft að taka þér pásu frá formúlum og glósum? Gamli góði síminn. Maður datt alveg í hann stundum þegar maður var að læra fyrir próf eða gera einhver verkefni. Annars nýtti maður pásurnar í að fara á æfingar eða hitta vini. Ef maður datt í eina góða bók verðlaunaði ég mig í að lesa einn kafla í pásu. Stundum var ég þó að vinna með það að læra á kvöldin sem þýddi að ég gat ekki verið að taka margar pásur ef ég ætlaði að ná góðum svefni. Hver eru helstu áhugamálin þín fyrir utan skólann? Helstu áhugamálin mín eru að rækta líkama og sál, vera með vinum og fjölskyldu, hlusta á tónlist og lesa góðar bækur. Mér finnst fátt betra en að setja tónlistina í botn, fara í bílinn og finna einhvern nýjan stað á Íslandi til að skoða og njóta náttúrunnar. En til að gera mér glaðan dag hef ég gaman af því að kíkja í gamlar búðir og finna einhverja góða gersemi og gramsa tímunum saman. Svo klikka sjaldan góð spilakvöld með mínum nánustu. Mér finnst allavega ekki gaman að láta mér leiðast, ég vil alltaf hafa eitthvað að gera svo að ég viti að ég sé alltaf að nýta hvern dag vel. Þannig næ ég að heyra í flestum vinum mínum og skyldfólki og þannig passa ég að halda góðum tengslum við fólkið mitt. Því að skapa minningar er það besta sem ég geri. 9,64 í meðaleinkunn á raunvísindabraut er rosalegur árangur. Hvert er leyndarmálið á bak við svona góðan námsárangur? Ertu með einhverja sérstaka tækni eða rútínu? Nei, það er engin sérstök tækni, maður þarf bara að vera skipulagður. Leyndarmálið á bak við þetta allt saman fyrir mér er að halda í vonina. Ef þú vonast til að standa þig vel og þú leggur þig eins vel fram og þú getur þá stoppar þig ekkert. Fyrir mér hefur þetta alltaf snúist um það að ná sem bestum einkunnum. Ég verð oftast voða vonsvikin ef ég fæ ekki 10, þó að það sé mjög óraunhæft markmið. En það má alltaf reyna að hafa einhver markmið sem maður vill stefna á. Fyrir próf finnst mér oft best að glósa allt niður og fara svo vel yfir það. Það hjálpar líka mjög mikið ef ég næ að hitta á vinkonu sem fer með mér yfir glósurnar, þá sérstaklega í líffræði og að spyrja hver aðra út í efnið. Eða renna yfir tímaverkefni úr áföngum og finna hvað ég kann best og hvað vinkona mín kann og við útskýrum hvor fyrir annarri til að fá betri skilning. Að byrja að læra nokkrum dögum fyrir próf er líka eitt lykilatriði en það er mjög misjafnt hvernig ég læri. Þetta fer allt eftir því hvort ég hafi mikinn metnað eða hvernig stuði ég er í. En að glósa er það besta sem fólk gerir þegar það er að læra eða að kenna sér efnið sjálft. Stundum sat ég ein inni í herbergi að tala við sjálfan mig um t.d. eldgos eða eitthvað slíkt til að reyna að muna betur efnið. Ég þarf alltaf að hreyfa mig, þannig að ná góðri hreyfingu á
hverjum degi er gott fyrir heilann til að hann fái smá hvíld frá lærdómnum. En eitt sem ég hef tekið eftir er að flestallir sem ég þekki sem standa sig gríðarlega vel eru oftast mjög uppteknir. Það er mjög skrítið en ég held líka að það sé einn lykillinn í þessu. Því um leið og þú ert með planaðan dag, að fara á æfingu eða hitta vini þá þarftu alltaf að koma lærdómnum inn í sem lætur þig alltaf læra. Þannig ertu að tryggja að þú gefir þér ákveðinn tíma í að læra og þá þarftu líka að standa við þann tíma. Drifkrafturinn er oftast að vera nógu upptekin og þá geturðu allt með smá skipulagi inn í! Þú fékkst verðlaun fyrir efnafræði, stærðfræði, spænsku og íslensku. Þetta er mjög fjölbreytt flóra af fögum. Áttirðu þér eitthvað uppáhaldsfag eða finnst þér bara jafn gaman að dýpka þig í öllu? Stærðfræði mun alltaf vera mitt uppáhaldsfag. Þó að ég sé á raunvísindabraut valdi ég samt alltaf stærðfræði í staðinn fyrir að taka fleiri líffræði eða svipaða áfanga. Ég hef samt alltaf verið þannig í öllu sem ég geri að ef ég set metnað í það og sýni einhvern áhuga þá gengur mér yfirleitt alltaf vel. Maður þarf að vera opinn fyrir öllu því allt getur verið spennandi ef þú leyfir því að vera spennandi. Það er alltaf eitthvað sem leynist í þessum óspennandi fögum sem þú lærir eitthvað af. Kom það þér á óvart að vera dúx skólans, eða var þetta meðvitað markmið sem þú stefndir að í vetur? Það kom mér verulega á óvart þegar það var tilkynnt að ég væri dúx skólans, af því að ég vissi að það voru margir duglegir nemendur að útskrifast. Þetta var mjög sterkur hópur. Innst inni langaði mig samt að verða það því það er alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir að standa sig vel. Ég get svo sem ekki sagt að þetta hafi verið markmið sem ég endi-
lega stefndi að því mér fannst ég ekki leggja nógu mikið á mig enda naut ég lífsins á meðan ég lærði þessi ár. Mér finnst einhvern veginn vera smá staðalímynd fyrir þann sem dúxar og fannst mér ég ekki passa þar inn. Hvað fannst þér erfiðasta eða mest krefjandi verkefnið á þessari vegferð í FS? Mest krefjandi var líklegast að vera ritstýra, að bera alla ábyrgðina og passa að skila af mér tveim blöðum á réttum tíma en á sama tíma að dreifa verkefnum á milli allra. Mér fannst aðalatriðið að allir myndu leggja sig fram um að gera blaðið saman og að skapa eitthvað nýtt en á sama tíma læra á það hvernig við ættum að hanna það. Ég lagði mikla áherslu á að reyna að fá sem flesta í blaðið því mér finnst blaðið kjarna þær minningar sem við sköpum í FS. Þannig að vera ritstýra var krefjandi en samt svo gefandi á sama tíma. Það tók stundum á að hugsa um námið í leiðinni þegar hugur minn var annars staðar.
Hvaða máli hefur stuðningurinn að heiman skipt fyrir þig í gegnum námið? Allur stuðningur skiptir gríðarlega miklu máli, sama hvort hann sé stór eða smár. Ég fékk oft hjálp við ýmislegt, hvort sem það voru ráð, verkefni eða yfirlestur og var alltaf hjálp að finna heima. Yfirleitt var það mamma sem sat með mér að lesa yfir fyrir mig verkefni eða ritanir en það er aðeins
Eftir fimm ár verð ég vonandi orðin hjúkrunarfræðingur og farin að vinna við það starf eða mögulega að mennta mig meira. Og eftir tíu ár verð ég vonandi að njóta lífsins með mínum nánustu vinum og fjölskyldu og kannski búin að stofna mína eigin ef maður er það heppinn.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 9
Helga Árnadóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir frá Bláa lóninu ásamt þeim Ívari Kjartanssyni og Chidaphu Kruasaeng frá Neskju. Með þeim á myndinni er Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur, sem leiddi fyrirtækin saman. VF/hilmarbragi
Þuríður Ingibjörg Elísdóttir, Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir, Elís Einar Halldórsson og Halldór Einarsson. heppni að hafa einhvern að til að hjálpa sér því ekki eru allir eins heppnir. Svo þegar ég skrifaði lokaritgerðina mína var ég heppin að geta stuðst við frænku mína líka og fengið álit hennar og mömmu til að hjálpa mér. Foreldrar mínir eru þannig að þau vilja að manni gangi vel í skóla. Það voru engar fjarvistir eða neitt skróp enda fannst mér fátt leiðinlegra að sjá þegar prósentan á mætingu lækkaði. Ég hef aldrei skilið það þegar fólk beilar á tíma, af hverju ekki að mæta og hitta þá vinina í leiðinni? En ég kem úr fjölskyldu þar sem hugsun þeirra er að menntun sé máttur og að maður eigi að mennta sig vel til að vera undirbúinn lífinu. Mamma og pabbi höfðu yfirleitt engar áhyggjur af mér tengt náminu því þau vissu að ég myndi alltaf sinna því vel. Ef þú myndir lýsa sjálfri þér með þremur orðum, hvaða orð yrðu fyrir valinu? Réttlát, hjálpsöm og lífsglöð. Er einhver einn kennari eða starfsmaður í FS sem á sérstakan þátt í því hve vel þér gekk eða sem hafði mikil áhrif á þig? Enginn sérstakur kennari eða starfsmaður, allir voða yndislegir og hvetjandi. Maður lærði margt af mörgum sem mun fylgja mér alla tíð. Ég var mjög heppin með alla þá kennara sem kenndu mér alla skólagönguna í FS og sömuleiðis allt starfsfólkið við skólann sem maður kynntist. Öll góðu spjöllin verða geymd í minningarbankanum. Þú labbar út úr skólanum með flotta námsstyrki. Ertu búin að ákveða hvað á að gera við peningana, eða fara þeir beint í „framtíðarsjóðinn“? Ég borgaði fyrsta árið í HÍ með styrkjunum (þó að mamma og pabbi hafi ákveðið að leggja svo inn á mig því þau vildu styrkja mig í náminu – mamma var ekki alveg ánægð með að ég vildi borga sjálf ) og svo fór restin beint í framtíðarsjóðinn. Maður er alltaf að huga að framtíðinni og get ég þá nýtt styrkina í frekara nám eða einhverja fjárfestingu í framtíðinni. Hvað tekur við núna eftir útskrift? Er stefnan sett á háskólanám í haust? Stefnan er sett beint á hjúkrunarfræði við HÍ í haust! Ég komst inn þannig að nú er bara að hlakka til í sumar fyrir næsta kafla og nýjum ævintýrum sem þeim fylgja. Svo í vetur mun ég þá taka klásus og vonast ég til að ég nái honum svo ég geti þá haldið náminu áfram.
Ég valdi hjúkrun af því að í tvö ár hef ég starfað á hjúkrunarheimili og langaði mig að prófa þetta nám af því það hefur upp á mörg tækifæri að bjóða í framtíðinni. Hjúkrun er gefandi og veitir ánægju þegar maður getur glatt aðra og hjálpað öðrum og fyrir mér skipta þessir hlutir mig gríðarlega miklu máli. Auk þess hef ég mikinn áhuga á að læra um allt sem tengist þessu starfi því það er magnað hvað líkaminn og sálin eru samtvinnuð og hvað allt getur gerst í lífinu. Hvar sérðu sjálfa þig fyrir þér eftir fimm eða tíu ár? Eftir fimm ár verð ég vonandi orðin hjúkrunarfræðingur og farin að vinna við það starf eða mögulega að mennta mig meira. Og eftir tíu ár verð ég vonandi að njóta lífsins með mínum nánustu vinum og fjölskyldu og kannski búin að stofna mína eigin ef maður er það heppinn. Annars er mottóið bara að lifa í núinu, njóta og sjá hvert lífið leiðir mann áfram. Sama hvað þá verð ég þakklát fyrir allt, því að fá að lifa eru forréttindi og hver dagur á að færa manni hamingju og gleði. Þú stóðst þig vel í hlutverki fjallkonunnar á þjóðhátíðardaginn í Reykjanesbæ. Ljóðið sem þú fluttir, hvers vegna varð það fyrir valinu? Ég hef oftast nær viljað fara öðruvísi veg en aðrir og velja það sem ekki allir myndu líklegast velja (oftast tek ég lengri leiðina, kann ekki að fara þá styttri). Í ljóðabókinni sem ég fékk að glugga í voru frekar þung gömul ljóð sem mér fannst ég ekki ná að tengja mig við. Ég vildi velja ljóð sem myndi vekja athygli og ná til allra, ekki bara eldri kynslóðarinnar. Í mínum huga vildi ég reyna að vekja yngri kynslóðina og vona að þau myndu fatta að ljóðin hafa svo margt upp á að bjóða. Ljóðið fangaði mig af því mér finnst það fanga margt. Það er með tengingu við landið sjálft og náttúruna, mömmur, samfélagið og vonina. Mín setning undanfarið er „að halda í vonina” Ef þú heldur í vonina og segir það upphátt er líklegt að það rætist. Eða það hefur allavega virkað nokkrum sinnum fyrir mig. En að halda í vonina er mikilvægt því þá gerirðu eitthvað sem þú vonast til að muni leiða gott af sér. Uppáhalds setningin mín úr ljóðinu er einmitt „Vonin er viðleitni Von er vinna”.
Þegar Davíð hitti Golíat í Grindavík Stjórnendur Bláa lónsins, stærsta fyrirtækis Grindavíkur, heimsóttu minnsta fyrirtæki bæjarins og smökkuðu súkkulaði sem er hreinlega ávanabindandi Það voru sérstakur og ansi bragðgóður fundur sem fór fram í Grindavík á dögunum. Í kjölfar stórs fundar Samtaka atvinnulífsins á Bryggjunni, ákvað stjórnendateymi Bláa lónsins, stærsta fyrirtækis Grindavíkur, að skella sér í óvænta heimsókn til þess minnsta: Handverkskonfektgerðarinnar Neskju við Hafnargötu. Það var sjálfur bæjarstjórinn, Fannar Jónasson, sem kom heimsókninni á og leiddi hópinn til súkkulaðismökkunar. Neskja er nýtt sælkerafyrirtæki sem stofnað var af hjónunum Ívari Kjartanssyni og Chidaphu Kruasaeng, sem betur er þekkt sem Kung. Kung er enginn nýgræðingur í bransanum en hún er menntuð frá hinum virta French Pastry School í Chicago, starfaði um árabil við hlið Hafliða Ragnarssonar, fremsta súkkulaðimeistara landsins, og á að baki þrjár ferðir með íslenska kokkalandsliðinu – meðal annars þegar liðið nældi í þriðja sætið á Ólympíuleikunum árið 2020.
„Vildum vera hluti af uppbyggingunni í Grindavík“ Þrátt fyrir jarðhræringar og erfiða tíma á svæðinu voru þau Ívar og Kung aldrei í vafa um hvar þau vildu opna draumafyrirtækið sitt. „Við sáum tækifæri í Grindavík, með alla þessa uppbyggingu að fara af stað, og við vildum vera hluti af henni. Okkur fannst til-
valið að koma hingað,“ sögðu þau skötuhjú þegar þau sýndu stjórnendum Bláa lónsins litlu en tæknilegu aðstöðuna sína. Opnun nýrra fyrirtækja eins og Neskju gefur samfélaginu mikið móralskt stökk, að sögn Fannars bæjarstjóra, sem mætti galvaskur með í heimsóknina. Neskja framleiðir hágæða húðað konfekt (dragee) og karamellur úr fyrsta flokks hráefni frá Belgíu, Frakklandi og Ítalíu, blandað íslenskum aðalbláberjum, lakkrís og karamellum ýmis konar. Vegna þess að fyrirtækið er enn að stíga sín fyrstu skref er nánast allt gert í höndunum, en afkastageta þeirra tveggja er um 200 konfettdósir á dag en molarnir kallast Völur.
Súkkulaðikúlur í litum Bláa lónsins? Í heimsókninni voru stjórnendur lónsins fljótir að gæða sér á handverkinu og fóru Fannar bæjarstjóri og Sigríður Margrét Oddsdóttir,
forstjóri Bláa lónsins, á kostum við að smakka hinar ýmsu tegundir, s.s. saltkaramellu-, og lakkríssúkkulaðikúlur. Fljótlega fór fólk að velta fyrir sér mögulegu samstarfi á milli þessa stærsta og minnsta fyrirtækis í bænum. Neskja framleiðir þegar sérsniðið Benz-konfekt fyrir bílaumboðið Öskju sem fylgir nýjum bílum, og var sú hugmynd reifuð á staðnum hvort Kung gæti hannað sérstakar lúxussúkkulaðikúlur í bláum kísillit lónsins. Spurð út í það hvort hún sæi tækifæri í samstarfi við Neskju stóð ekki á svörum hjá forstjóra Bláa lónsins: „Þetta súkkulaði er auðvitað hreinlega ávanabindandi, þannig að ég þarf aðeins að jafna mig! Þetta var svo stórkostleg upplifun,“ sagði Sigríður Margrét sæl í bragði með körfu af konfekti í hönd. „Við erum að sjálfsögðu í samstarfi við fullt af fyrirtækjum og það er frábært að vera hér og fá tækifæri til að skoða þetta. Fyrsta skrefið er náttúrulega að fara með þessa ótrúlegu gjöf sem ég fékk til fólksins okkar sem velur vörur í búðirnar okkar og leyfa því að smakka. Þetta er alveg einstök gæðavara.“
GRINDAVÍK Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Sumarfagnaður Kadeco á Ásbrú:
Erindi um uppbyggingu og ljúfir tónar Þróunarfélagið Kadeco blés til sumarfagnaðar fyrir samstarfsaðila sína á dögunum. Hátíðin fór fram á skrifstofu félagsins þar sem gestum gafst tækifæri til að eiga góða stund saman og fá innsýn í fjölbreytt verkefni tengd uppbyggingu og þróun á áherslusvæðum K64. Á dagskrá fagnaðarins voru stutt og áhugaverð erindi frá helstu samstarfsaðilum þar sem fram komu Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, og Kári Guðmundsson, forstjóri Algalíf.
Auk fróðlegra erinda var boðið upp á léttar veitingar ásamt ljúfum tónum í sumarblíðunni og þótti viðburðurinn heppnast afar vel. Í opnunni eru fréttir unnar upp úr þeim erindum sem voru flutt. Texti: Hilmar Bragi Bárðarson
Milljarða fjárfestingar fram undan á Keflavíkurflugvelli „Við tengjum heiminn í gegnum Ísland,“ sagði Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia, á fundi hjá KADECO á dögunum. Hún kynnti þar viðamikil áform um áframhaldandi uppbyggingu flugvallarins undir merkjum KEF+, en fram undan eru risavaxnar framkvæmdir sem munu breyta upplifun farþega og stórbæta afkastagetu og rekstraröryggi. Maren fór yfir farþegaþróunina síðustu ár og benti á að flugið leiti alltaf jafnvægis. Reynslan sýni hins vegar að á fimm til sex ára fresti komi dýfur í bransanum sem þurfi að vera tilbúin að takast á við. Í farþegaspánni hefur það áhrif að gert er ráð fyrir minni flugumferð vegna falls flugfélagsins Play. Þessar breyttu forsendur hafa áhrif á fjármögnun og uppbyggingaráætlunina og svaraði Maren því til að Isavia hefði hliðrað til og breytt röð verkefna vegna þessa. Í stað þess að þurfa að byggja fjarstæði í miklum flýti og treysta á rútustarfsemi á flughlöðum líkt og gert var í harðri samkeppni Icelandair og WOW air hér áður fyrr er núna hægt að setja fullan fókus á tengibygginguna á miðju hlaðinu milli norður- og suðurbyggingar flugstöðvarinnar, sem mun vaxa jafnt og þétt. Þá fagnaði hún því sérstaklega að áherslubreytingar hjá Icelandair séu að skila sér í betri nýtingu innviða. Í stað þess að keyra starfsemina upp í tveimur risastórum „flugbönkum“ (snemma morguns og síðdegis) stefnir flugfélagið á að byggja upp fjóra til fimm
rekstraröryggi og mæta framtíðarvexti, en helsti flöskuhálsinn í dag er að kerfið þykir viðkvæmt ef upp koma bilanir. Framtíðarplön Isavia gera ráð fyrir að farangurskerfi vallarins verði staðsett í risastórum kjallara undir nýrri byggingu á austurvæng flugstöðvarinnar, en sú stækkun er áætluð í kringum árið 2031.
Ný tækni í handfarangursleit
Risafjárfesting á miðju hlaðinu
Maren Lind Másdóttir. banka innan dagsins. Það þýðir að Isavia þarf síður að hanna innviði og auka afkastagetu út frá stærsta og erfiðasta álagstímanum, heldur nýtist núverandi aðstaða jafnar og þéttar yfir allan daginn. Markviss markaðssetning hefur sömuleiðis skilað því að umferðin dreifist nú mun betur yfir vetrarmánuðina en áður. Í dag eru 27 flugfélög að nýta sér Keflavíkurflugvöll í áætlanakerfum sínum.
Næsta stóra verkefnið á uppbyggingaráætlun Isavia er svokölluð tengibygging sem tengir saman ólíka hluta flugstöðvarinnar. Um er að ræða 10.000 fermetra byggingu og nemur áætluð fjárfesting um 22 milljörðum króna. Verkefnið er komið á hönnunarstig fjögur og útboð fyrir undirbúningsverkefni hafa verið opnuð. Maren segir mikilvægt að hafa í huga að þarna er um flókið framkvæmdaverkefni að ræða sem skýri hluta verðmiðans. Það sé flókið að ráðast í stór framkvæmdaverkefni á flugvelli í fullum rekstri. Breyta þarf m.a. flugvélastæðum í kringum bygginguna og uppfæra eldsneytiskerfi á stæðunum sem gerir framkvæmdina dýrari en ef
Nýja byggingin verður frábrugðin þeim eldri, mun hærra til lofts, og mun hún endurspegla hönnun, gæði upplifunar og þjónustu líkt og í austurvæng og nýrri bygginarhlutum.
einungis væri verið að reisa hús. Ólíkt víða annars staðar sé ekki hægt að loka flugvellinum til að framkvæma heldur þurfi að byggja samhliða daglegum rekstri. Það sé flækjustig sem flugvallarrekendur um allan heim þekki. „Þetta er á miðjum flugvellinum, þannig að það verður smá bras að koma farþegum á milli á meðan á framkvæmdum stendur,“ sagði Maren. Gerður verður tímabundinn, lokaður göngugangur á hlaðinu til að tryggja að starfsemi flugvallarins verði órofin á byggingartímanum. Nýja byggingin verður frábrugðin þeim eldri, mun hærra til lofts, og mun hún endurspegla hönnun, gæði upplifunar og þjónustu líkt og í austurvæng og nýrri bygginarhlutum.
Nýtt 12 milljarða afísingarsvæði og stærra farangurskerfi Isavia áformar einnig stórfelldar breytingar á útisvæðum vallarins. Í hönnun er nýtt afísingarsvæði og akbraut sem mun telja um 185.000 fermetra og kosta um 12 milljarða króna. Í dag eru flugvélar af ísaðar uppi við flugstöðina sjálfa, sem tefur fyrir á stæðunum. Með nýja svæðinu verður afísingin færð fjarri flugstöðinni, sem einfaldar alla þjónustu og flýtir fyrir. Maren benti á að þarna gætu skapast tækifæri fyrir samfélagið og einkaaðila til að taka að sér þessa sérhæfðu þjónustu í framtíðinni. Þá stendur til að stækka farangursflokkunarkerfið til að tryggja
Maren ræddi einnig nýlega gagnrýni á að vopnaleit á Keflavíkurflugvelli nýtti ekki nýjustu tækni (þar sem farþegar þurfa ekki að taka tölvur og vökva úr töskum). Hún útskýrði að Isavia hefði forgangsraðað fjármagni í að uppfylla strangar og bindandi Evrópureglugerðir varðandi gegnumlýsingarvélar fyrir innritaðan farangur. Hvað handfarangurinn varðar hefur slíkt bindandi tímatakmark ekki verið sett og því hafi Isavia getað beðið átekta. Nú sé hins vegar rétti tímapunkturinn að skipta búnaðinum út. Útboðsgögn fara út í næsta mánuði og er stefnt að því að ný og mun þægilegri skimunartækni fyrir handfarangur verði tekin í gagnið í lok árs 2027.
Demantssvæðið og hóteluppbygging Að lokum nefndi Maren að áherslur Isavia varðandi hið svokallaða „Demantssvæði“ og uppbyggingu á Ásbrú hefðu ekki breyst, þótt hlutirnir tækju aðeins lengri tíma en áætlað var fyrir nokkrum árum. Unnið er að því að skoða hvort hægt sé að minnka ýtrasta haftasvæði flugvallarins til að rýma fyrir fjölbreyttari starfsemi. Eins þurfi að færa eldsneytislögn í jörðu áður en stórframkvæmdir hefjast þar. Isavia leitar nú þegar að samstarfsaðilum til að reisa nýtt 200400 herbergja flugvallarhótel á svæðinu og hvetur Maren áhugasama til að kynna sér málið á vefnum kefplus.is, þar sem hægt er að fylg jast náið með öllum teikningum og framtíðaráformum flugvallarins. n
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11
Meira en þrefaldað framleiðslugetuna á „töfraefninu“ astaxanthin „Það er alveg hægt að segja að fáir viti nákvæmlega hvaða starfsemi fari fram hjá Algalíf, en við erum örþörunga-, nýsköpunar- og líftæknifélag sem hefur stækkað mjög hratt á Ásbrú frá árinu 2014,“ sagði Kári Marís Guðmundsson, sem tók við starfi forstjóra Algalíf undir lok síðasta árs. Á fundi hjá KADECO á dögunum kynnti hann starfsemi fyrirtækisins, sem nýlega lauk við risavaxna stækkun á verksmiðju sinni og stefnir enn lengra. Algalíf ræktar örþörunginn Haematococcus pluvialis, en úr honum er unnið andoxunarefnið astaxanthin, sem Kári kallar réttilega ákveðið „undraefni“. Efnið er öflugasta náttúrulega andoxunarefni sem hægt er að rækta á iðnaðarskala í dag og er notað í hágæða fæðubótarefni fyrir menn og í vaxandi mæli fyrir gæludýr.
Einstök tækni og gríðarlegur þrýstingur Framleiðsluferlið á Ásbrú tekur um sex vikur og byggir á lokuðu rörkerfi sem fyrirtækið hefur sjálft þróað en það þykir eitt það fullkomnasta í heiminum. Upphafið má rekja til tveggja Norðmanna með reynslu úr fæðubótageiranum, en í dag er Algalíf á meðal stærstu framleiðenda í heiminum á náttúrulegu astaxanthini og það fyrirtæki í geiranum sem hefur vaxið hvað hraðast og mest undanfarin ár. Tæknin og umfangið á Ásbrú er magnað en hér eru nokkrar staðreyndir úr verksmiðjunni eftir stækkun:
Húsnæðið er orðið um 14.000 fermetra. 400 kílómetrar af glerrörum liggja um verksmiðjuna þar sem þörungurinn er ræktaður undir þúsundum LED-ljósa sem loga allan sólarhringinn. 1.000 bara þrýstingur er notaður í sérhæfðu ferli með koltvísýringi
til að draga olíuna (astaxanthinið) út úr lífmassanum. „Þetta jafngildir því að kafað sé niður á tíu kílómetra dýpi og það er ekki á mörgum stöðum á jörðinni sem menn ráða við svona krefjandi ferli,“ segir Kári. Framleiðslan er afar verðmæt en eitt kíló af hreinu, náttúrulegu astaxanthini kostar um eina milljón króna. Ólíkt helstu samkeppnisaðilunum, sem margir hverjir rækta þörunga utandyra, sem og í opnum tjörnum (þar sem hætta er á mengun og smithættu), fer öll framleiðsla Algalífs fram innandyra við fullkomlega stýrðar aðstæður. Þá fullvinnur Algalíf alla sína vöru hér á landi í mismunandi styrkleika af astaxanthin olíu , sem gefur félaginu mikið samkeppnisforskot.
Hjá Algalíf starfa nú um 70 manns af 17 mismunandi þjóðernum. Um 70% starfsfólksins er heimafólk með búsetu í Reykjanesbæ. starfsfólkinu sérstaklega: „Margir hverjir eru ansi duglegir að læra íslenskuna og hreyknir af því. Þetta fólk er búið að setjast hér að með fjölskyldur og börn og er mjög mikilvægur innviður í sveitarfélaginu.“
Horfa til frekari stækkunar á Ásbrú
Íslenskir lífeyrissjóðir inn sem eigendur Algalíf lauk nýverið við mikla stækkun sem hófst árið 2021. Við það meira en þrefaldast framleiðslugetan, fer úr 1.500 kílóum af hágæðaafurð á ári í allt að 5.000 kíló. Samhliða þessari uppbyggingu urðu mikil tímamót í eigendahópnum síðasta haust þegar framtakssjóðurinn Aldir keypti 50% hlut í félaginu á móti tveimur norskum stofnendum þess. Á bak við Aldir standa sterkir íslenskir fjárfestar og margir stærstu lífeyrissjóðir landsins. Kári segir að nýir fjárfestar komi með gríðar-
Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalíf. legan styrk og fjármagn inn í félagið sem veiti gott svigrúm fyrir frekari uppbyggingu. Hjá Algalíf starfa nú um 70 manns af 17 mismunandi þjóðernum. Um 70% starfsfólksins er heimafólk með búsetu í Reykjanesbæ. Þá eru um 40% starfsmanna sérfræðingar og vísindafólk og hlutfall kvenna er sömuleiðis um 40%. Kári hrósar erlenda
Sérstaða Íslands og Suðurnesja spilar stórt hlutverk í velgengni Algalífs. Hreina vatnið, kalda loftslagið sem heldur smitum í lágmarki, og ekki síst stöðug endurnýjanleg raforka í gegnum langtímasamninga skipta sköpum. Verksmiðjan notar um 7 megavött (MW) af raforku í dag, sem framleidd er í jarðvarmavirkjunum HS Orku og afhent af HS Veitum. Fyrirtækið er þegar með tryggan orkusamning upp á 10,5 MW til ársins 2037. Þrátt fyrir að ætla að taka því aðeins rólega í ár á meðan nýja byggingin er keyrð upp í full afköst er Algalíf þegar farið að plana næstu skref. Markaðurinn úti í heimi vex um 10% á ári og 95% af framleiðslunni fer til útflutnings.
Framtíðarmarkmiðið er að Algalíf verði stærsti og öflugasti astaxanthin framleiðandi í heimi sem og sækja fram í ræktun og nýtingu á öðrum örþörungum sem henta okkar framleiðslu aðferðum og þekkingu innanhúss. Eins geta falist mikil tækifæri að koma astaxanthini inn í lækninga- og lyfjabransann (líkt og omega-lýsisolíur eru þegar orðnar að uppáskrifuðum lyfjum víða erlendis), og gangi það eftir þyrfti fyrirtækið líklegast að fimmfalda stærð sína. Algalíf hefur þegar tryggt sér forleigurétt frá KADECO fyrir lóð til að stækka áfram í suðvesturátt út frá núverandi nýbyggingu á Ásbrú. Upphaflegt húsnæði félagsins var þar sem áður var hlaupabraut og vélaverkstæði hersins). Þar sem nýja byggingin var hönnuð með stóran lager, fullvinnslu og skrifstofur í huga munu næstu stækkanir einungis snúa að framleiðslukerfunum sjálfum, sem gerir áframhaldandi vöxt mun fljótlegri og hagkvæmari. n
atNorth vill tengja gróðurhús við gagnaverin í Reykjanesbæ „Það eru alveg merkilega fáir sem vita hvað atNorth er, en við erum fyrirtæki sem á kannski ekkert endilega erindi inn á einstaklingsmarkaðinn,“ sagði Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri gagnaversfyrirtækisins atNorth, á fundi hjá KADECO á dögunum. Fyrirtækið, sem hóf starfsemi sína í Reykjanesbæ árið 2014, gekk nýlega í gegnum eigendaskipti sem Eyjólfur segir að hafi verið ein þau stærstu í Íslandssögunni. atNorth hefur ekki náð að kynna sig eins vel fyrir íbúum á Suðurnesjum, ólíkt því sem gerist á Akureyri þar sem mun fleiri þekkja starfsemina. Í Reykjanesbæ starfar fólk bæði af svæðinu og af höfuðborgarsvæðinu og vill Magnús kynna fyrirtækið betur fyrir heimamönnum og auka nándina við samfélagið.
Það eru mjög fáir, ef einhverjir, fremri okkur í Evrópu í uppbyggingu á svona stórum gervigreindarklösterum.
Stanslaus uppbygging líkt og dómkirkjan í Barcelona Magnús svaraði þeirri gagnrýni sem oft heyrist að gagnaver skapi fá störf miðað við aðra stóriðju. Hann benti á að hjá atNorth á Íslandi starfi 120 manns í dag en að sú tala verði nær 150 fyrir árslok, sem þýðir um fimm bein störf á hverju megavatti (MW) miðað við 25 MW raforkunotkun. „Flest stóriðja á sér eitt byggingartímabil sem tekur tvö til þrjú ár, en gagnaver eru hins vegar svolítið eins og La Sagrada Familia (Gaudi) kirkjan í Barcelona – þau eru í stanslausri uppbyggingu,“ sagði hann. Líftími tölvubúnaðar er aðeins 3–5 ár og því fylgi viðvarandi vinna við endurnýjun á kæli- og rafkerfum. Vegna þessa hefur fyrirtækið verið með að lágmarki 200 verk-
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth. taka í vinnu á svæðinu á degi hverjum síðustu fjögur ár, og sér Magnús það ekki breytast á næstunni. Fyrirtækið leggur áherslu á að að lágmarki 50% verktaka séu af því svæði þar sem starfað er og hefur sú tala oft verið mun hærri á Suðurnesjum. Þá eru 85–90% starfsmanna með sérfræðimenntun, ýmist iðn- eða háskólamenntaðir, oft á verk- og tæknisviði. Til marks um áframhaldandi vöxt er atNorth nú að byggja um 2.000 fermetra skrifstofuhús-
næði á svæði sínu í Reykjanesbæ, sem mun hýsa fasta starfsmenn á vegum atNorth og viðskiptavina þess, en gagnaverið virkar að mörgu leyti eins og skrifstofuhótel fyrir tölvubúnað.
Fremstir í Evrópu í gervigreind en Ísland að missa af lestinni Viðskiptavinir atNorth eru um 100 talsins, þar af um 25 íslenskir. Innlendu viðskiptavinirnir telja þó aðeins um 1–2% af veltu félagsins, en yfirgnæfandi meirihluti viðskiptavina kemur frá Bandaríkjunum. Þá eru um 80% af nýjum viðskiptavinum síðustu tvö ár tilkomnir vegna gervigreindar. „Það eru mjög fáir, ef einhverjir, fremri okkur í Evrópu í uppbyggingu á svona stórum gervigreind-
arklösterum,“ sagði Magnús. Hann viðurkennir þó að Ísland sé aðeins að missa af lestinni vegna skorts á raforku og flutningsgetu í raforkukerfinu. Fyrir fimm árum var 100% af starfsemi atNorth á Íslandi en í dag er hlutfallið komið niður í c.a. 15% þar sem vöxturinn hefur færst erlendis. Stjórnarfundur fyrirtækisins mun á næstunni samþykkja stækkunarfasa upp á 18 MW til viðbótar í Reykjanesbæ, en frekari vöxtur veltur á samningum við flutningsaðila raforku og KADECO, sem útvegar land undir starfsemina.
Vilja rækta tómata eða þörunga með afgangsvarma í Reykjanesbæ
nýtingu á afgangsvarma. Erlendis endurnýtir fyrirtækið stóran hluta af umfram varma, meðal annars til húshitunar og í framtíðinni matvælaræktunar, en það hefur gengið erfiðlega hér á landi þar sem heitt vatn er ódýrt. Evrópskar reglugerðir munu hins vegar líklega takmarka byggingu gagnavera án varmanýtingar eftir árið 2030. atNorth er nú þegar í stóru verkefni í Danmörku þar sem afgangsvarmi gagnaversins verður nýttur í heilsárstómataræktun til að minnka kolefnisfótspor vegna innflutnings. Eyjólfur kallar eftir samstarf i við heimamenn og sveitarfélagið um svipuð verkefni á Suðurnesjum.
Ein stærsta áskorun atNorth á Íslandi snýr að umhverfismálum og
n
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
NÆRMYND Aðeins 21 árs og orðinn rekstrarstjóri á flugvellinum:
Elskar að lesa ársreikninga Hinn 21 árs gamli Leó Máni Quyen Nguyén er nýr rekstrarstjóri MAIKA’I á Keflavíkurflugvelli, einu stærsta og hraðasta vinnuumhverfi landsins. Hér er á ferðinni sannur og metnaðarfullur Keflvíkingur sem stofnaði eigin skyndibitastað, Parma, samhliða því að vera formaður nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Leó, sem játar það af hreinskilni að elska fyrirtækjaskrá og ársreikningalestur, situr hér fyrir svörum í Nærmyndinni þar sem hann ræðir rekstraráhugann, fyrirmyndirnar, Kyrie Irving og hið fullkomna egg. Nafn: Leó Máni Quyen Nguyén Árgangur: 2005 Búseta: Keflavík Hverra manna ertu og hvar uppalinn? Ég er fæddur og uppalinn í Keflavík og er sannur Keflvíkingur í hjarta. Starf: Rekstrarstjóri MAIKA’I Hvað er í deiglunni: Reyna að sanna mig eins mikið og ég get í minni nýju vinnu og sýna eigandanum að hann hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum með að hafa ráðið mig inn. Hvernig nemandi varstu? Ég tel mig bara fínan nemanda á blaði en átti hjarta hjá mörgum kennurum og samnemendum alla mína skólagöngu. Einnig var ég formaður bæði í grunnskóla (Myllubakkaskóli) og framhaldsskóla (Fjölbrautaskóli Suðurnesja), sem ég tel vera með mínum stærstu afrekum í lífinu. Ps: Ég er eini formaðurinn í FS sem hefur ekki endað á syni eða dóttur heldur ungum syni, mjög stoltur af því. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Sem barn ætlaði ég að verða lögfræðingur, en með tímanum fór markmiðið meira að snúast um að ná árangri í því sem ég tek mér fyrir hendur. Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Fyrirmyndirnar mínar breytast mjög oft, t.d. þegar lokaritgerðin mín var um Elon Musk þá var hann fyrirmyndin mín en eftir að hafa verið mikið í kringum Áka, sem er eigandi MAIKA’I, horfi ég mjög mikið upp til hans. Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki? Fjarstýrður bíll. Besti ilmurinn? Rakspíri sérstaklega, Prada paradigme, Á hvernig bíl lærðir þú fyrir bílprófið? Hondu Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Toyota CHR og með mínum helstu vinum.
Hvernig slakarðu á? Elda eða baka. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Missi af öllu. Uppáhaldsvefsíða? rsk.is – fyrirtækjaskrá Ég elska að lesa ársreikninga. Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Svona 8 tímar. Besta bíómyndin? Eins og er þá er Avatar fire and ash enda á toppnum hjá mér. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Kyrie Irving körfuboltamaður kallaði mig alltaf sjálfur Asian Kyrie. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Elda. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Tomahawk-steik með leynikryddinu mínu. Hvert er hættulegasta helgarnammið? Pass, borða ekki nammi Hvernig er eggið best? Soðið með pítusósu, káli og skinku. Klikkar seint. Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun? Hver vegur að heiman er vegurinn heim. Notaði þessa línu í útskriftarræðunni minni. Hver er elsta minningin sem þú átt? Fékk mynd með fyrrum forseta Ólafi Ragnari Grímssyni og tók í hendur hans þegar ég var 5 ára. Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Mjög leiðinlegt svar en vill prófa að vakna sem Elon Musk og prófa bara að lifa hans lífi í einn dag. Er orð eða frasi sem þú notar mikið? Jæja. Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Ég er fjölskyldumaður, tek mömmu, bróður og systur mína. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Algjör Leó og leitin að framtíðinni.
Kristjana Arnarsdóttir stjórnandi pallborðs, Páll Erland forstjóri HS Veitna, Bjarni Benddiktsson framkvæmdastjóri SA, Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður VFSK, Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis hf og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri í Reykjanesbæ. VF/hilmarbragi
Fundur Samtaka atvinnulífsins í Grindavík:
„Við veljum yfirleitt ófriðinn ef hann er í boði“ „Við erum náttúrulega bara þrjóskir eyjaskeggjar í gegnum aldirnar og að víkingasið þá veljum við yfirleitt ófriðinn ef hann er í boði,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins (SA), þegar hann sleit fjölmennum og kröftugum fundi samtakanna í Grindavík á dögunum. Fundurinn, sem bar yfirskriftina „Rjúfum vítahringinn“, er hluti af hringferð SA árið 2026. Hann dró fram djúpa og oft og tíðum beitta greiningu á stöðu íslensks efnahagslífs, kjarasamningsmódelinu og þeim innlendu flöskuhálsum sem kynda undir verðbólgubálinu.
ATVINNULÍFIÐ Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Það var táknrænt að fundurinn skyldi haldinn á Brygg junni í Grindavík. Jón Ólafur lýsti því í upphafi fundar hversu áhrifaríkt hefði verið að keyra inn í bæinn, horfa inn í tóm hús og sjá afleiðingar náttúruhamfaranna, en mæta svo því ótrúlega lífi og seiglu sem einkennir atvinnulífið og starfsemina niðri á höfn. Hann varaði við því að þótt undanfarin ár hafi verið tiltölulega góð þá væru teikn á lofti um að myndin væri að verða dekkri. Útflutningsgreinar eins og stóriðjan glíma við áföll og hægt hefur á bókunum í ferðaþjónustu. „Verðbólguvæntingarnar hjá okkur fara versnandi. Fólk er svartsýnna og það er eins og við sjáum ekki alveg ljósið fyrir enda ganganna. Þegar svo er, þá breytum við hegðun okkar. Við förum að verja okkur, og verðlag hækkar,“ sagði Jón Ólafur og kallaði eftir samstilltu þríhliða samtali ríkis, atvinnulífs og verkalýðshreyfingar sem ýtt var formlega af stað í maí sl.
Vinnumarkaðslíkanið kallað kjarni vítahringsins Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði SA, leiddi
fundargesti í gegnum gögnin og benti á að Ísland búi við mun meiri sveiflur og meiri verðbólgu en önnur þróuð ríki. Hann lagði ríka áherslu á að verðbólga væri ekki náttúrulögmál heldur niðurstaða kerfa sem vinna í mismunandi áttir. Hann nefndi hin Norðurlöndin sem dæmi, en þau glímdu við svipaðan óstöðugleika á síðustu öld en byggðu upp kjarasamningslíkan þar sem samkeppnishæfar útflutningsgreinar leiða tóninn og gefa merki inn í hagkerfið. „Á Íslandi hafa engar umbætur átt sér stað á vinnumarkaðslíkaninu. Líkanið okkar er kjarni vítahringsins,“ fullyrti Arnar Birkir. Hann benti á að laun á Íslandi séu með þeim hæstu sem þekkjast, sem sé fagnaðarefni, en þegar launahækkanir fara langt umfram framleiðni eyðileggist samkeppnishæfnin og verðbólgan éti ávinninginn jafnóðum upp. Samkvæmt Seðlabankanum eru almennar umsamdar hækkanir sem samrýmast langtímamarkmiðinu um 2% á ári, en allt umfram það kallar á viðbrögð peningastefnunnar í formi hærri vaxta. „Vítahringurinn er afdrifaríkur: Háar verðbólguvæntingar leiða til hærri launakrafna. Það ýtir undir verðbólgu, vextir hækka, fjárfesting verður erfiðari, kaupmátturinn veikist og þá koma fram nýjar kröfur. Við förum hring eftir hring.“
Verkalýðshreyfingin vísar sökinni á bug: „Ekki launalægsta fólkinu að kenna“ Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis (VSFK), tók til máls í pallborðinu og andmælti þeirri söguskýringu að verkafólk bæri ábyrgð á verðbólgunni. „Mér fannst svolítið þegar ég var að horfa á þetta eins og öll vandamál heimsins væru launafólki að kenna og eina leiðin til að leysa þau væri að grípa þar inn,“ sagði Guðbjörg. Hún minnti á hóflega lífskjarasamninga árið 2019 sem gerðir voru út frá ráðleggingum seðlabankastjóra og skiluðu einu besta verðbólgutímabili sögunnar. „Ég tek þetta ekki til mín vegna þess að fólkið í mínu félagi er á töxtum sem fær bara taxtahækkanir. Þessar aukahækkanir sem eru tilkomnar koma einhvers staðar annars staðar frá. Það er ekki launalægsta fólkið sem er að hafa áhrif á verðbólguna.“ Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, var í salnum og tók undir með Guðbjörgu og lýsti sig 100% ósammála SA varðandi norræna módelið. Hann sagði kerfin á Norðurlöndunum hundrað sinnum síðri en það íslenska en benti á að þau lönd byggðu á sterkari félagslegum innviðum. Hann skoraði á menn að rýna frekar í hvernig fyrirtæki í smásölu og bankar hefðu verið að auka arðsemi sína og stækka sinn hlut í kökunni.
Opinberi geirinn og stakar stéttir sagðar sprengja kerfið Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, svaraði þessari
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13 gagnrýni og sagði að enginn væri að barma sér yfir góðum kaupmætti einkamarkaðarins, en kerfið væri hreinlega brotið þar sem samningar héldu ekki. „Laun í dag eru langt fyrir ofan það sem um var samið síðast. Langt fyrir ofan,“ sagði Bjarni og bætti við að hann hefði í sífellt meiri mæli fengið ábendingar frá atvinnurekendum um að þeir gætu ekki keppt við hið opinbera (ríki og sveitarfélög) um starfsfólk. Hann nefndi sem dæmi að launavísitala opinberra starfsmanna hefði hækkað um 11% á einu ári vegna þess að stökum hópum eins og kennurum, læknum eða hjúkrunarfræðingum væri leyft að segja sig frá almennum stöðugleikasamningum og krefjast sérstakra leiðréttinga. „Hverjum dettur í hug að það sé hægt að vera með 2,5% verðbólgumarkmið ef laun á einu ári hækka um 11% hjá einhverjum hópum? Á Norðurlöndunum er þetta ekki látið viðgangast. Þegar við höfum fundið niðurstöðu þá verður hún að gilda fyrir alla.“ Bjarni kastaði því fram að hugsanlega þyrfti ríkissáttasemjari eða Félagsdómur rýmra agavald til að úrskurða vinnustöðvanir stakra hópa ólögmætar ef þær rjúfa heildarsamkomulag á vinnumarkaði.
Ríkisvaldið harðlega gagnrýnt: Tvöföldun á jöfnunargjaldi og nýir skattar Páll Erland, forstjóri HS Veitna, ræddi áhrif stjórnvalda á rekstrarumhverfi innviðafyrirtækja og lýsti yfir miklum áhyggjum af auknum álögum. Hann upplýsti fundargesti um að hið svokallaða jöfnunargjald á raforku, sem dreifiveiturnar innheimta fyrir ríkið, hefði hækkað um 30% um síðustu áramót og boðað væri að gjaldið myndi hreinlega tvöfaldast núna 1. júlí. „HS Veitur hafa ekki hækkað sinn hluta rafmagnsreikningsins síðan 2022 fyrir íbúa á þessu svæði. En rafmagnsreikningurinn er hins vegar að hækka um tæp 10% til notenda vegna þessara ríkisgjalda, og fólk mun kenna okkur um það,“ sagði Páll. Hann nefndi einnig boðaðan nýjan skatt á fasteignir orkuframleiðenda upp á 5 til 10 milljarða á næsta þingi: „Hvert haldið þið að þeir milljarðar verði sóttir? Þeir fara beint á reikninga fólks og fyrirtækja í landinu.“ Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, tók undir og sagði ríkið virka eins og „einstefnuloka“ sem tæki til sín fjármagn en slakaði aldrei á klónni. Hann benti á að fyrsti ársfjórðungur ársins hefði verið sá besti í sögu sjávarútvegsins vegna mikillar veiði og hás verðs, en fyrirtækin sæju fram á 20% til 40% hækkun á öllum aðföngum, auk nýrrar auðlindarentu (veiðigjalda).
Lóðabransinn á höfuðborgarsvæðinu kallaður „verðbólguskrímsli“ Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar, ræddi um
HS Veitur hafa ekki hækkað sinn hluta rafmagnsreikningsins síðan 2022 fyrir íbúa á þessu svæði. En rafmagnsreikningurinn er hins vegar að hækka um tæp 10% til notenda vegna þessara ríkisgjalda, og fólk mun kenna okkur um það. skort á fyrirsjáanleika og óvissu í innviðauppbyggingu. Hann vakti sérstaka athygli á því að húsnæðisliður verðbólgunnar væri að miklu leyti heimatilbúið vandamál sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Lífeyrissjóðirnir og fjárfestingarverktakarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa horft á lóðabrask sem sína ávöxtun. Þar hefur verið verið að mjólka peninginn og enginn borgar þetta nema heimilin,“ sagði Vilhjálmur. Hann benti á að í Grindavík hefði aldrei verið seld lóð heldur aðeins tekin hefðbundin gatnagerðargjöld, sem skilaði því að bærinn væri skuldlaus en fasteignaverð lágt. „Þetta ætlum við að gera í Reykjanesbæ líka, afnema þessi innviðagjöld strax til að komast út úr þessum vítahring.“ Pétur Hafsteinn tók undir þetta og sagði það með ólíkindum að Reykjavíkurborg skyldi hafa breytt lóðasölu í rekstrarfé og búa þannig til verðbólgu á meðan fundargestir sætu í skuldlausum bæ (Grindavík) með skuldlausa höfn þar sem lóðir voru aldrei seldar í braski.
Þungar áhyggjur af kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair Undir lok fundarins var opnað fyrir spurningar úr sal og stóð Kjartan Steinarsson upp og lýsti þungum áhyggjum af ástandinu sem væri að skapast í samfélaginu vegna yfirvofandi óvissu og harðra kjarakrafna flugmanna hjá Icelandair.
„Það er að skapast mjög mikil óvissa í flugfélaginu núna, sem smitast út í ferðaþjónustuna,“ sagði Kjartan. „Þar eru flugmenn sem krefjast gríðarlegrar hækkunar á launum. Svo birtist það að þessir menn eru kannski með þrjár milljónir í mánaðarlaun og ég veit ekki alveg hvert fólk er eiginlega að fara stundum. Ég hef miklar áhyggjur.“ Bjarni Benediktsson tók undir þetta og sagði marga deila þessum áhyggjum, enda tæki of langan tíma að fá lendingu í deiluna. Hann benti á að oft væri horft fram hjá því hvað fylgdi miklum og óvæntum launahækkunum stakra stétta, svo sem gífurlegar lífeyrisskuldbindingar. Hann nefndi dæmi frá Ísafirði og Reykjavík þar sem uppgjör vegna lífeyrisskuldbindinga starfsmanna árið 2025 hefði sett fjárhagsáætlanir og jafnvægi sveitarfélaganna algjörlega á hliðina.
Horft til framtíðar: Öflug verkefni fram undan á Suðurnesjum Þrátt fyrir þungan tón varðandi verðbólgu og ríkisálögur lýstu pallborðsmenn yfir mikilli bjartsýni á framtíð Suðurnesja. Guðbjörg kallaði eftir því að ríkið sýndi svæðinu meiri virðingu, enda hefði íbúafjöldi tvöfaldast á nokkrum árum án þess að innviðir á borð við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) eða Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) hefðu fengið viðeigandi fjármagn eða stækkun rýma. Vilhjálmur og Páll Erland bentu hins vegar á risavaxin tækifæri á svæðinu sem munu keyra næsta sóknarskeið áfram. Stórfelld uppbygging í landeldi er í gangi, HS Orka stækkar og Bláa lónið hefur byggt stanslaust þrátt fyrir jarðhræringarnar. Þá munu stækkanir á flugstöðinni, framkvæmdir NATO og stækkun gagnavera á borð við Verne og atNorth kalla á mörg hundruð starfsmenn á næstu misserum. Páll Erland minnti á að þessi vandamál væru þegar öllu er á botninn hvolft lúxusvandamál ríkrar þjóðar. Ísland notar 85% innlenda orku og verður því lítt fyrir barðinu á eldsneytishækkunum vegna stríðsátaka í heiminum, auk þess sem HS Veitur bjóða upp á ódýrustu raforkudreifinguna á landinu. „Við erum algjörlega tilbúin með öflugt kerfi til að taka á móti fleiri fyrirtækjum,“ sagði Páll að lokum. n
Góð mæting var á fundinn sem fram fór á veitingahúsinu Bryggjunni við Grindavíkurhöfn.
Fyrstu einstaklingarnir teknir inn á Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, fór fram hátíðleg athöfn í Gjánni þar sem fyrstu fjórir einstaklingarnir voru formlega teknir inn á Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík. Verkefnið er samstarf Grindavíkurbæjar, UMFG, Golfklúbbs Grindavíkur og Hestamannafélagsins Brimfaxa. Markmiðið er að heiðra þær merku fyrirmyndir sem hafa skarað fram úr og mótað öflugt íþróttastarf í sveitarfélaginu í gegnum tíðina. Á næstu misserum verður veggurinn settur upp í íþróttamannvirkjum bæjarins til að varðveita þessa ríku arfleifð fyrir komandi kynslóðir. Hér á eftir er farið yfir ævistarf þeirra fjögurra brautryðjenda sem hlutu þessa virtu viðurkenningu. Ítarlegri texti er á vf.is:
Helga Guðmunda Emilsdóttir Helga Guðmunda Emilsdóttir (f. 1937) skipar sérstakan sess sem helsti brautryðjandi kvennaíþrótta í Grindavík. Þegar hún fluttist til bæjarins árið 1963 var hún þegar í hópi fremstu handknattleikskvenna landsins og margfaldur meistari. Helga flutti íþróttina bókstaflega með sér og hóf að kenna handbolta við afar frumstæðar aðstæður, þar sem fyrstu æfingarnar fóru fram á túnum. Starfið vakti mikinn áhuga og strax árið 1965 urðu grindvískar stúlkur Íslandsmeistarar í sínum flokki. Helga opnaði dyrnar fyrir grindvískar konur inn í íþróttaheiminn á tímum þegar það þótti langt frá því sjálfsagt og sýndi að konur áttu fullt erindi í keppni og forystu.
Jóhannes Haraldsson (Jói júdó) Jóhannes Haraldsson (f. 1942), betur þekktur sem Jói júdó, er einn áhrifamesti frumkvöðull íþrótta á Suðurnesjum. Hann flutti til Grindavíkur árið 1971 og stofnaði þá júdódeild UMFG, þá fyrstu á svæðinu, og keypti fyrstu dýnurnar úr eigin vasa. Jói varð fyrsti Íslandsmeistari
Grindavíkur í júdó árið 1972 og varð síðast Íslandsmeistari 48 ára gamall. Hann leit ávallt á uppeldishlutverkið sem sitt mikilvægasta verkefni og vildi halda ungmennum frá óreglu. Í áratugi þjálfaði hann, dæmdi og keyrði iðkendur um land allt. Árið 1990 átti hann jafnframt frumkvæði að því að koma fimleikastarfi á laggirnar í bænum.
Jónas Karl Þórhallsson Jónas Karl Þórhallsson (f. 1956) er réttilega kallaður guðfaðir grindvískrar knattspyrnu. Hann fluttist til Grindavíkur árið 1974 og lék með meistaraflokki þar til alvarleg meiðsli bundu enda á ferilinn árið 1984. Það varð upphafið að glæsilegum forystuferli en hann tók við formennsku í knattspyrnudeildinni árið 1986. Undir hans stjórn voru Gula húsið og fyrsti grasvöllurinn tekin í notkun og metnaðurinn aukinn til muna. Jónas leiddi félagið úr grasrót upp í efstu deild, til úrslita í bikarkeppni og í Evrópukeppni. Hann sinnti öllu frá fjáröflun til leikmannamála, var gerður að heiðursfélaga UMFG og hefur hlotið gullmerki KSÍ og ÍSÍ.
Ólafur Jóhannsson Ólafur Jóhannsson (1954–2025) átti ómetanlegan þátt í að leggja grunninn að öflugri körfuboltahefð í Grindavík. Hann lék með meistaraflokki frá 1975 og átti stóran hlut í að tryggja liðinu sæti í efstu deild í fyrsta sinn árið 1987. Það er söguleg staðreynd að Ólafur skoraði fyrstu körfuna í nýja íþróttahúsinu. Hann var fjölhæfur íþróttamaður og varð einnig Íslandsmeistari og landsliðsmaður í blaki. Eftir keppnisferilinn starfaði hann lengi sem sjálfboðaliði og stjórnarmaður fyrir UMFG og sat sem varaformaður KKÍ á árunum 1996 til 2001. Hann var sæmdur gullmerki beggja samtaka og mótaði menningu grindvíska körfuboltans til frambúðar.
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Mikil uppbygging og blómlegt barnastarf hjá Vélhjólaíþróttafélagi Reykjaness Það er mikið um að vera á svæðinu upp af Sólbrekkuskógi þessa dagana. Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness hefur lagt í gríðarlega vinnu við að endurbæta motocrossbraut félagsins, sem og að stórefla allt klúbbstarfið. Við fengum Sigurð Stefánsson, einn af forsvarsmönnum félagsins, í spjall um þá miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað, blómlegt barnastarf og framtíðarsýn klúbbsins. fyrstu keppnirnar voru haldnar í kringum 1981.“
Það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu hjá ykkur undanfarið. Geturðu lýst því sem átt hefur sér stað? „Já, það er búið að vera gríðarlega mikil uppbygging núna. Tvær jarðýtur voru á fullu í samtals um fimm daga við að laga til brautina. Í grunninn er þetta sama gamla brautin en við höfum gert miklar lagfæringar á beygjum og stökkpöllum. Stærsta breytingin er samt sú að við höfum gert svæðið öruggt á ný með því að hreinsa allt grjót í kringum brautina, og það á við um barnabrautina líka. Þetta var orðið ansi hættulegt en er nú komið í lag.“
Barnastarfið í algjörum blóma
— Hvað er þessi braut eiginlega löng og hvað teygir saga hennar sig langt aftur? „Hún er 1,6 kílómetrar, þannig að þetta er með lengstu brautum á landinu og jafnframt ein sú hraðasta. Sagan á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1980. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið frá eldri mönnum í sportinu var byrjað að forma brautina þá og
Klúbburinn var í svolitlum dvala fyrir nokkrum árum. Hvernig lítur félagsskapurinn út í dag? „Við byggjum þetta rosalega mikið á barnastarfinu. Fyrir þremur árum var klúbburinn nánast óvirkur en við ákváðum að rífa þetta upp. Fyrsta árið mættu kannski þrír til fimm krakkar á æfingar, en í dag erum við með 25 til 30 krakka á hverri einustu æfingu og samtals í kringum 50 til 55 börn sem æfa hjá okkur. Þetta byggist mikið á ötulum foreldrum sem hafa sjálfir hjólað og eru með börnin sín í þessu.“
Texti og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Ein lengsta og hraðasta braut landsins gerð örugg á ný
Framtíðin er björt í Sólbrekkum
Þið fenguð líka nýja klúbbaaðstöðu nýlega, er það ekki? „Jú, við fengum sex gámahús í gegnum ÍRB og Reykjanesbæ sem stóðu áður við malarvöllinn í Keflavík. Þar er komin eldhúsaðstaða, salerni og rotþró. Eins og er keyrum við allt á rafstöðvum þegar við erum á svæðinu, en næstu stóru baráttumálin okkar eru að fá rafmagn og vatn á svæðið. Það er um 1,5 kílómetri í næstu spennistöð en það
á að vera hægt að bora eftir vatni hjá okkur. Þetta er unnið í góðu samráði við aðra á svæðinu, eins og skógræktina í Sólbrekkuskóli og flugklúbbinn.“
Frábær árangur á Íslandsmótinu — Þið hélduð fyrstu keppnina í Íslandsmótaröðinni á dögunum. Hvernig gekk það? „Það gekk hreinlega vonum framar. Við erum búin að sækja um það í tvö ár að fá að halda Íslandsmót og fengum það loksins í vetur. Keppendur voru gríðarlega ánægðir. Við vorum heppnir með veður en það var dálítið þurrt,
þannig að við þurftum að vökva brautina jafnóðum á meðan keppni stóð. Við fengum lánaðan traktor og haugsugur frá góðum mönnum og sóttum vatn í Seltjörnina. Þetta var hálfgert neyðarúrræði en gekk frábærlega þökk sé öflugum félagsmönnum.“ Sástu til þess að bæjarstjórinn mætti á svæðið? „Jú, það er mikill áhugi hjá bæjaryfirvöldum á þessari uppbyggingu. Bæjarstjórinn mætti og mundaði startflaggið, sem var virkilega gaman. Það gaf okkur gott tækifæri til að kynna fyrir
Líf í lundi í Sólbrekkuskógi Nýtt og glæsilegt skógarskýli opnað Það ríkti mikil hátíðarstemning í Sólbrekkuskógi um nýliðna helgi þegar þess var minnst að 70 ár eru liðin frá því að skógrækt hófst á svæðinu. Í tilefni af þessum merka áfanga var nýtt og glæsilegt skógarskýli, sem fengið hefur nafnið Brekkusel, formlega tekið í notkun. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, afhjúpaði nafn nýju byggingarinnar í fallegu sumarveðri, en verkefninu er ætlað að auka gildi svæðisins til útiveru, náttúruupplifunar og náms. Fjöldi fólks lagði leið sína í skóginn og var mikið líf í lundi; börn gróðursettu trjáplöntur á svæðinu, gæddu sér á grilluðum pylsum og fengu að grilla sykurpúða yfir opnum eldi við mikla hrifningu.
Byggt úr íslenskum efnivið Forsaga Brekkusels teygir sig til ársins 2019 þegar Skógræktarfélag Íslands sótti um styrk til hönnunar á skógarskýli fyrir einn af 17 Opnum skógum landsins. Sólbrekkuskógur, sem hefur verið hluti af því verkefni frá 2005, varð fyrir valinu eftir samkomulag við Skógræktarfélag Suðurnesja og Reykjanesbæ. Arkís arkitektar hönnuðu húsið og Efla sá um burðarþolsteikningar eftir að 4,7 milljóna króna hönnunarstyrkur fékkst árið 2020. Vorið 2021 fékkst svo tæplega 44 milljóna króna framhaldsstyrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til sjálfrar byggingarinnar. Húsið er búið eldstæði, ytri kennsluaðstöðu og þurrklósetti. Húsið á sér einstaka sögu þar sem það er að öllu leyti byggt úr íslenskum efnivið. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Árnessýslu lögðu hönd á plóg, felldu tré í sínum eigin skógum og unnu allt timbur, bæði burðar-
viði og klæðningu, sem fór í bygginguna.
Seinkaði vegna jarðelda á Reykjanesi Framkvæmdir hófust af krafti haustið 2021 þar sem fjöldi heimamanna og verktaka kom að máli. Jarðvinnu lauk fljótt en snemma árs 2022 urðu verktakaskipti þegar Húsagerðin í Reykjanesbæ tók við verkinu. Undir lok þess árs var burðargrindin risin. Verkið gekk hins vegar hægt á árunum 2023 og 2024 vegna mikilla verkstoppa sem tengdust eldvirkni og jarðeldum í nágrenni Grindavíkur, en Grindavíkurvegi var ítrekað lokað og vinnusvæðið því algjörlega lokað á tímabili. Haustið 2025 tókst Húsagerðinni loks að ljúka allri vinnu.
Reykjanesbær tekur við keflinu Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, flutti ávarp við opnunina og rakti þessa ströngu en farsælu byggingarsögu. Hann benti á að það hafi aldrei verið ætlunin að landssamtökin ættu húsið. Með samkomulagi sem gert var sumarið 2025 hefur Reykjanesbær nú tekið alfarið við skýlinu til eignar og fullra umráða. Bærinn mun sjá um alla umhirðu, eftirlit og salernisaðstöðu á svæðinu til frambúðar. „Það er von okkar og trú að þetta glæsilega skógaskýli muni verða til heilla og nýtast öllum
íbúum Reykjanesbæjar og öðrum gestum sem sækja Sólbrekkuskóg heim,“ sagði Jónatan í ávarpi sínu og þakkaði öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við þessa vandasömu framkvæmd. Með tilkomu Brekkusels hefur Sólbrekkuskógur fengið glæsilega innviði sem eiga án efa eftir að laða enn fleiri fjölskyldur, skólahópa og útivistarfólk á svæðið á komandi árum. Í Sólbrekkuskógi er í dag unnið að grisjun en hæstu tré skógarins eru komin yfir 20 metra. Í skóginum á einnig að leggja nýja göngustíga sem mynda hringleið og verða 4-5 km þegar þeir verða fullbúnir. Í nánasta umhverf i skógarins eru svæði fyrir vélhjólaíþróttir, auk svæðis fyrir flugmódel og fjarstýrða bíla. Þá er Seltjörnin ávallt vinsæl til útivistar.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 15
„Þegar líkaminn segir stopp, þá byrjar æfingin“ honum þetta mikla starf sem hér er í gangi. Við eigum marga virkilega öfluga hjólamenn og það er ánægjulegt að sjá að fólk er farið að sækja sérstaklega í klúbbinn til okkar af því að það spyrst út hversu öflugt starfið er,“ bætir Sigurður við stoltur.
brekkur að breytast í öflugt útivistarsvæði Þetta svæði í Sólbrekkunum virðist vera að breytast í heilmikið útivistarsvæði fyrir fjölskyldur? „Já, þetta er orðið stórkostlegt svæði. Hér eru gönguleiðir, braut fyrir fjarstýrða bíla, flugklúbburinn og ný aðstaða í skóginum. Hjá okkur erum við með mótorkrossbrautina, tvær barnabrautir og enduróhringi (enduro). Það er mikið af fjölskyldufólki sem sækir hingað og það er dásamlegt að fylgjast með lífinu hérna, til dæmis að horfa á flugvélarnar taka á loft á meðan við erum að hjóla.“ En hvernig er með aðgang? Það er gjaldskylda í brautina
en svæðið er opið allan sólarhringinn. Gengur það upp? „Því miður hefur borið svolítið á því að fólk mæti og hjóli án þess að borga. Það er mjög kostnaðarsamt að reka svona svæði þar sem allar lagfæringar krefjast vinnuvéla. Við erum með myndavéla- og eftirlitskerfi og höfum rætt við fólk í gegnum það. Við treystum samt enn þá á gamla skólann – að fólk gangi vel um og sýni þessu virðingu. Við erum með salernisaðstöðu (kamar) á svæðinu svo fólk þurfi ekki að gera þarfir sínar úti á víðavangi eða í næstu beygju.“ Þannig að þú ert brattur fyrir framtíðina? „Mjög brattur og framtíðin er björt. Við erum með gríðarlega flotta og öfluga þjálfara og það eru tveir til þrír þjálfarar á hverri einustu barnaæfingu. Ég hvet fólk eindregið til að koma og kynna sér starfið hjá okkur á þriðjudögum milli kl. 18-20, mæta með krökkunum og sjá hvað er um að vera.“ Aðgengi að brautinni er í gegnum Seltjörn og Sólbrekkuskóg en vegurinn á svæðið er greiðfær fyrir fólksbíla.
Sandgerðingurinn Óskar Marinó Jónsson stundar ofurhlaup og stefnir á Járnkarlinn í Portúgal Margir fyllast andagift þegar þeir klára heilt maraþon eða hjóla nokkra tugi kílómetra. Sandgerðingurinn Óskar Marinó Jónsson, 27 ára múrari og flísalagningarmaður, gerir þetta hins vegar gjarnan á sama deginum – og það sem upphitun fyrir enn stærri áskoranir. Hann fann sig í CrossFit á sínum tíma en í dag eru það ofurhlaup, þríþraut og hrikalegir andlegir þröskuldar sem heilla hann mest. Á næsta ári stefnir hann á sinn fyrsta fulla Járnkarl (Ironman) í Portúgal. Óskar Marinó, sem er uppalinn í Sandgerði, ræddi um þessa jákvæðu „geðveiki“ sem drífur hann áfram við blaðamann Víkurfrétta, hvernig ofvirknigreining varð að ofurorku og af hverju hann hjólaði Suðurströndina til Hveragerðis bara til að mæta í 26 kílómetra fjallahlaup.
Byrjaði í algjörri maníu eftir Spartan Aðspurður hvar þetta hafi allt byrjað segir Óskar að boltinn hafi fyrst rúllað fyrir alvöru á síðasta ári. „Þetta byrjaði á síðasta ári þegar ég fór í Spartan-keppni með félögunum úr Keflavík,“ segir Óskar. „Út frá því þróaðist þetta bara út í algjöra maníu. Ég var aðallega í CrossFit til að byrja með og keppti í því um allan heim; í Svíþjóð, Miami og Bretlandi. En svo vildi ég meira.“ Næsta stóra markmið er risavaxið: Fullur Járnkarl (Ironman) í Portúgal í júní á næsta ári. Þar bíður hans 3,9 km sund í opnu hafi, 180 km hjólreiðar og heilt maraþon (42,2 km) í blálokin. „Það er endamarkmiðið,“ segir hann ákveðinn.
Texti og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Bilaður bíll breyttist í 108 km hjólatúr og fjallahlaup Sögurnar af æfingum Óskars hljóma eins og fjarstæða fyrir venjulegt fólk. Nýlega ætlaði hann að taka þátt í Hengill Ultra (26 km fjallahlaupi). Þegar bíllinn hans bilaði á fimmtudagskvöldi ákvað hann einfaldlega að grípa hjólið. „Ég ákvað bara að hjóla til Hveragerðis til að taka þátt í hlaupinu. Svo ætlaði ég bara að hjóla heim aftur. Mamma sagði þá stopp og bauðst til að sækja mig eftir hlaupið, svo ég þyrfti ekki að hjóla líka til baka,“ segir hann og hlær. Hann hjólaði Suðurströndina, frá Sandgerði til Grindavíkur um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg, svo Suðurstrandarveginn austur í Hveragerði, alls 108 kílómetra leið á fjórum og hálfum tíma. „Ég var alveg lúinn í lærunum eftir það en svo hljóp ég fjallahlaupið í tvo og hálfan tíma á eftir. Þetta voru um sjö tímar í heildina og maður brenndi svona 6.000 til 7.000 kaloríum á þessum eina degi. En þetta er bara æfing fyrir Járnkarlinn, enda vantaði enn 70 kílómetra upp á hjólið þar.“ Ekki nóg með það, heldur ákvað hann helgina eftir að skella sér í „Esju-maraþon“. Það þýddi rúmlega fimm ferðir upp og niður fjallið þar til maraþonvegalengdinni var náð, með heilum þremur kílómetrum í hækkun. „Svo ætla ég að prófa að taka 80 kílómetra á Esjunni næst,“ bætir hann við eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Vaknar korter í fimm og hjólar við hliðina á rúminu Óskar æfir á bilinu 16 til 20 tíma á viku (1.000 til 1.200 mínútur) og það samhliða fullri vinnu í múrverki og flísa-
lögnum. Hann segir vinnuna líkamlega erfiða en ofvirknin hjálpi sér gríðarlega að halda þessu skipulagi gangandi. „Ég var greindur með ofvirkni í 10. bekk og prófaði öll lyf en svo fann ég að ég náði miklu betri stjórn á þessu með hreyfingu. Maður er einhvern veginn í gangi frá fimm á morgnana til ellefu á kvöldin.“ Til að láta dæmið ganga upp þarf strangan aga. „Í morgun vaknaði ég til dæmis korter í fimm og hjólaði 50 kílómetra heima á trainer. Ég er með hjólið við hliðina á rúminu, svo ég stíg bara beint á það þegar ég vakna. Svo mæti ég til vinnu hálf níu og fer á næstu æfingu beint eftir vinnu.“ Ásamt hlaupunum og hjólinu æfir hann nú sund af miklum móð, en vinkona hans er að kenna honum réttu tæknina í skriðsundi. „Við þurfum að synda í opnu hafi í Portúgal. Það þýðir ekkert að taka bringusund í öldunum, þá færðu þær bara beint í smettið,“ útskýrir hann.
Einstaklingssport og friður í hausnum Þótt Óskar sé nánast „útkrotaður“ af húðflúrum, sem hann byrjaði að safna (og gera sum sjálfur á lappirnar) vegna ákveðinnar maníu sem hann fær reglulega fyrir hlutunum, er hann einstaklega hógvær þegar kemur að afrekunum. Hann æfir að mestu einn og auglýsir sig lítið. „Ég er rosalega hógvær með þetta og er ekkert að segja fólki frá þessu. Ég bara hverf út í fjóra eða fimm tíma. Á síðasta ári gekk ég í gegnum ákveðna erfiðleika í einkalífinu og þessi ofurhlaup þróuðust dálítið út frá því. Þetta snýst um að finna frið í hausnum.“ Aðspurður um hvað það sé sem dragi hann í þessi gríðarlegu líkamlegu átök, leynir sér ekki ástríðan fyrir andlegu hliðinni. „Ég hreinlega elska svona áskoranir. Mér finnst gaman að líða illa og halda áfram – að komast yfir þröskuldinn. Einhvern tímann segir líkaminn stopp, en það er þá sem æfingin byrjar í raun og veru. Þegar líkaminn er búinn, þá tekur hausinn við. Það er einhver sálfræði eða smá geðveiki þarna á bak við sem heillar mig. Mér hefur hreinlega aldrei liðið jafn vel,“ segir þessi magnaði Sandgerðingur að lokum, áður en hann drífur sig á næstu æfingu dagsins.
„Einhvern tímann segir líkaminn stopp, en það er þá sem æfingin byrjar í raun og veru. Þegar líkaminn er búinn, þá tekur hausinn við.“
Hola í höggi í Sandgerði Guttormur Pálsson náði draumahögginu í þriðja skiptið um helgina á Kirkjubólsvelli. Hann náði þessu fína höggi 2. holu og að sögn Guttorms var höggið fullkomið frá byrjun og endaði í holu.
Lifum
vel
Tilboð gilda til 28. júní
Keflavík um miðja deild n Keflvíkingar eru í harðri baráttu í Bestu deildinni í knattspyrnu. Þeir gerðu jafntefli við Valsmenn á útivelli í vikunni. Valsmenn komust í 1-0 og voru miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik. Bítlabæjarliðið hresstist í síðari hálfleik og léku betri fótbolta. Þeir uppskáru jöfnunarmark þegar Marin Mudrazija jafnaði leikinn á 71. mínútu og tryggði Keflvíkingum eitt stig. Keflvíkingar eru í 7. sæti með 11 stig þegar mótið er hálfnað. Seinni umferðin hefst í vikunni og Keflavík á heimaleik gegn KR á sunnudaginn á HS Orku vellinum kl. 17.
Grindavík-Njarðvík í undanúrslit n Samstarfslið Grindavíkur og Njarðvíkur tryggði sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu eftir framlengdan leik gegn Stjörnunni í Grindavík 18. júní. Það var Ása Björg Einarsdóttir sem reyndist hetja heimakvenna þegar hún skoraði sigurmarkið í framlengingunni og tryggði liðinu 2:1 sigur. Stjarnan náði forystu en Emma N. Phillips jafnaði fyrir Grindavík/Njarðvík en liðið mætir Fram í undanúrslitum.
Southern Fried kjúklinga strips 475g, Iceland
Sweet chilli kjúklingaspjót 340g, Iceland
Nautalund Frosin, nýsjálensk
Stórsigur Víðis gegn Reyni n Víðir vann burstasigur á Reyni S., 5–0, í 3. deild karla á Nesfisk-vellinum. Dominic Lee Briggs fór á kostum og skoraði þrennu í leiknum en Ísak John Ævarsson og Marc Mcausland gerðu sitt hvort markið. Öruggur og verðskuldaður sigur heimamanna í fjörugum nágrannaslag. Víðismenn eru í efsta sæti 3. deildar eftir níu umferðir með 22 stig.Reynir er í 4. sæti með 16 stig.
Njarðvík fagnaði sterkum heimasigri
Southern Fried kjúklinga strips 475g, Iceland
Vatnsmelóna Í lausu
n Njarðvík fagnaði dýrmætum 1–0 sigri gegn Leikni R. í 10. umferð Lengjudeildar karla á JBÓ vellinum. Valdimar Jóhannsson skoraði eina mark leiksins á 34. mínútu. Gestirnir pressuðu stíft í seinni hálfleik en vörn Njarðvíkinga stóð vaktina vel og tryggði liðinu öll þrjú stigin. Njarðvík er í 7. sæti Lengjudeildarinnar með 14 stig eftir 10 leiki.
Grindvíkingar með jafntefli n Leik HK og Grindavíkur í Lengjudeild karla lauk með 2–2 jafntefli eftir miklar sveiflur í Kórnum. HK leiddi 2–1 í hálfleik eftir mörk frá Atla Þór Gunnarssyni og Arnþóri Ara Atlasyni. Lárus Orri Ólafsson skoraði fyrra mark Grindavíkur og Rúnar Ingi Eysteinsson tryggði liðinu stig með jöfnunarmarki á 72. mínútu.
Opnunartímar í Nettó Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
Þróttur í fallsæti n Kári sótti sannfærandi 1–4 sigur gegn Þrótti V. í 2. deild karla á Vogaídýduvelli. Gestirnir leiddu 0–1 í hálfleik en skoruðu þrjú mörk í þeim síðari. Finnbogi Laxdal, Marínó Hilmar, Benedikt Ísar og Matthías Daði skoruðu fyrir Kára en Danny De Lorijn minnkaði muninn fyrir heimamenn undir lokin. Þróttur er í 11. sæti 2. deildar karla með 7 stig eftir níu umferðir.