Meiri hagræðingu í rekstri og ekki fleiri hælisleitendur
Hátíðardagskrá
Stéttarfélögin í Reykjanesbæ bjóða íbúum til hátíðarog baráttufundar í Stapa, Hljómahöll, föstudaginn 1. maí. Dagskráin hefst formlega klukkan 14:00 en húsið opnar korteri fyrr, þar sem Blásturs sveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar tekur á móti gestum með hátíðlegum tónum. Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK, verður kynnir dagsins og stýrir gestum í gegnum fjöl breytta dagskrá þar sem samstaða og menning fara hönd í hönd.
Hátíðarræðu dagsins flytur Kristján Gunnarsson, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum, en hann á að baki áratuga starf innan verkalýðshreyf ingarinnar. Að loknum ræðuhöldum tekur við lífleg og fjölbreytt skemmtun þar sem listafólk á öllum aldri fær að njóta sín. Ungleikhúsið/PPU stígur á svið og Kósýbandið flytur nokkur vel valin lög, auk þess sem Guðmundur Hermannsson sér um létta tóna á milli atriða.
Einn af hápunktum dagsins verður þegar Leikfélag Keflavíkur sýnir atriði úr hinum kraftmikla söngleik We Will Rock You. Dagskránni lýkur svo með glæsilegum söng frá Kór Ytri Njarðvíkurkirkju. Ekki er gleymt þeim yngstu en boðið verður upp á sérstaka bíósýningu í Sambíóinu við Hafnargötu klukkan 12:00.
Stéttarfélögin minna á að allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Suðurnesjabær og Máni semja um reiðstíga
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Hestamannafélagið Mána um umfangsmikla uppbyggingu og viðhald reiðstíga. Markmiðið er að tryggja öruggar samgönguleiðir fyrir hestamenn og festa í sessi formlegt samstarf um þessa mikilvægu innviði.
Málið kemur í kjölfar jákvæðrar umsagnar
íþrótta- og tómstundaráðs, en með samningnum verður viðhald stíganna markvissara en áður.
Máni leggur til sérþekkingu sína á þörfum knapa
á meðan sveitarfélagið styður við framkvæmdirnar.
Hestamennska er fjölmenn íþrótt í Suðurnesjabæ og eru reiðstígarnir mikilvægur hlekkur í útivistarkerfi bæjarins. Auk þess að bæta
íþróttaaðstöðu er verkefninu
ætlað að auka almennt öryggi með því að skilja betur á milli hestaumferðar og annarrar umferðar í sveitarfélaginu.
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Ráðið tekur vel í hugmyndina og segir mörg tækifæri felast í því að þróa svæðið frekar. Skessan hefur verið ein síns liðs frá árinu 2008, en nú fer hugmyndin um nýjan félaga í nánari skoðun hjá bænum. 12
Er skessan að slá sér upp með kærasta?
til að annað tröll flytji inn í hellinn.
Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ
Arnar Páll Guðmundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjanesbæ
Lýsir
yfir þungum áhyggjum af uppsögn skólameistara FS
Öll bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur tekið höndum saman og lýst yfir miklum áhyggjum af fréttum um uppsögn skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS).
Á fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var þann 21. apríl, var lögð fram sameiginleg bókun allra kjörinna fulltrúa í sveitarfélaginu. Það gerist ekki oft að allir flokkar, Samfylking, Framsókn, Bein leið og Sjálfstæðisflokkur, standi að baki einni og sömu bókuninni, sem undirstrikar mikilvægi skólans og alvarleika málsins í augum bæjarfulltrúa.
Í bókuninni kemur fram að bæjarstjórn óski eftir því að málið verði sett á dagskrá bæjarráðs. Ljóst er að bæjaryfirvöld telja sig þurfa að fá skýrari svör við því hvað liggi að baki þessari ákvörðun og hvaða áhrif hún muni hafa á starfsemi þessarar mikilvægu menntastofnunar á Suðurnesjum. Undir bókunina rita allir ellefu bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er ein stærsta og mikilvægasta stofnun svæðisins og ljóst er að breytingar á stjórnskipan hans snerta hagsmuni íbúa og nemenda djúpt.
Öll börn fædd 2024 komin með leikskólapláss í Reykjanesbæ
Mikill árangur hefur náðst í uppbyggingu leikskólaplássa í Reykjanesbæ á yfirstandandi kjörtímabili. Á síðasta fundi bæjarstjórnar var tilkynnt að öll börn fædd árið 2024 hafi nú fengið úthlutað plássi, en það þýðir að börn niður í 18 mánaða aldur og yngri fá inni á leikskólum bæjarins.
Greint var frá þessu við yfirferð á fundargerð menntaráðs. Meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar lagði fram bókun þar sem fagnað var þeirri stefnu að forgangsraða fjárfestingum í þágu barnafólks.
Árangurinn er að stórum hluta rekinn til opnunar þriggja nýrra leikskóla í sveitarfélaginu: Asparlautar, Drekadals og Tjarnarlundar. Samkvæmt meirihlutanum hefur þessi fjölbreytni í leikskólastarfsemi ekki aðeins aukið afköst kerfisins heldur einnig eflt faglega
starfsemi og boðið upp á meira val fyrir fjölskyldur.
„Það er börnum í hag að komast á leikskóla fyrir félagsþroska þeirra, það er foreldrum í hag að komast á vinnumarkaðinn og það er fyrirtækjum í hag að Reykjanesbær sé öflugt sveitarfélag með góða grunnþjónustu,“ segir í bókun meirihlutans.
Nú þegar búið er að tryggja pláss fyrir 2024-árganginn er hafin vinna við að greina stöðu plássa fyrir næsta hóp. Markmiðið er að bjóða börnum fæddum á árinu 2025 pláss eins fljótt og auðið er. Í umræðum á fundinum kom fram að meirihlutinn teldi þetta merkan áfanga í sögu sveitarfélagsins. Þrátt fyrir pólitískar skylmingar í bæjarstjórnarsalnum var fundargerð menntaráðs, sem inniheldur þessar gleðifréttir fyrir barnafólk, samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Söluferli hafið á Akademíunni
VSÓ ráðgjöf fær verkefnið
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hefja söluferli á húsnæði Akademíunnar sem hluta af stærra þróunarverkefni á svokölluðum Akademíureit. Þá hefur verkfræðistofunni VSÓ verið falið að veita ráðgjöf við verkefnið. Á fund bæjarráðs mættu þau Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, og Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi til að fara yfir næstu skref á þessum eftirsótta reit.
Bæjarráð samþykkti einróma tillögu starfshóps um að setja húsnæði Akademíunnar í söluferli. Sú sala er þó ekki einangruð aðgerð heldur liður í heildarskipulagi og uppbyggingu
reitsins alls. Til að halda utan um þá vinnu var samþykkt tilboð frá VSÓ ráðgjöf upp á 4,6 milljónir króna, en fyrirtækið mun aðstoða sveitarfélagið við þróun verkefnisins.
Mikið kapp er lagt á að halda dampi í verkefninu og hafa bæjaryfirvöld sett fram skýra tímalínu. Miðað er við að öll gögn og forsendur fyrir áframhaldandi vinnu liggi fyrir í síðasta lagi þann 1. október næstkomandi.
Bæjarráð undirstrikaði á fundinum að vinna við nýtt skipulag fyrir svæðið væri órjúfanlegur hluti af þessu heildarverkefni, enda er Akademíureiturinn talinn ein af lykilmiðstöðvum framtíðaruppbyggingar í bænum.
Suðurnesjabær skoðar nýjar leiðir
í lóðamálum
Horft til góðs árangurs Braga Guðmundssonar við Báruklöpp í Garði
Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar stefnir að því að endurskoða úthlutunarreglur sveitarfélagsins til að mæta þörfum öflugra verktaka og tryggja áframhaldandi skilvirka íbúðauppbyggingu. Tilefnið er vilji ráðsins til að liðka fyrir framkvæmdum þar sem verktakar geta byggt upp heilu göturnar í einu.
Sem dæmi um þá gerð uppbyggingar sem ráðið horfir til má nefna verkefni þess verktaka sem nú sótti um lóðirnar. Hann er á lokametrunum við að ljúka uppbyggingu á Báruklöpp í Garði, þar sem hann byggði öll hús við götuna auk nokkurra húsa í næstu götu við hliðina.
Ráðið telur þessa tegund uppbyggingar hafa skilað góðum árangri og vill skoða hvernig megi styðja betur við slíka hagræðingu í rekstri og framkvæmdum í framtíðinni.
Þrátt fyrir ríkan vilja til að mæta óskum verktaka sem hafa sýnt fram á umtalsverða framleiðni þurfti
ráðið að hafna umsókn Braga Guðmundssonar um lóðir við Vitaklöpp og Ægisklöpp á þessum fundi. Ástæður höfnunarinnar eru tvíþættar:
• Ótímabært: Ekki er enn komið að úthlutun við þessar tilteknu götur og ákvörðun um hvenær uppbygging þar hefst liggur ekki fyrir.
• Gildandi reglur: Núverandi úthlutunarreglur leyfa ekki erindi af þessu tagi að svo stöddu.
Til að brúa bilið á milli gildandi reglna og þeirrar hagræðingar sem fylgir því að einn verktaki taki að sér heila götuhluta, hefur skipulagsfulltrúa verið falið að endurskoða reglurnar.
Markmiðið er að finna nýjar leiðir við úthlutun íbúðarhúsalóða sem mæta þörfum þeirra aðila sem hafa staðið að farsælli uppbyggingu í sveitarfélaginu á undanförnum árum.
Knattspyrnufólk kallar eftir úrbótum:
„Nauðsynlegt að bæta aðstöðuna strax“
Fulltrúar knattspyrnunnar í Reykjanesbæ mættu á fund íþrótta- og tómstundaráðs í síðustu viku til að lýsa yfir þungum áhyggjum af núverandi aðstöðuleysi íþróttarinnar. Ráðið tekur undir áhyggjurnar og segir brýnt að bregðast við án tafar.
Þau Sólrún Sigvaldadóttir, Ragnar Aron Ragnarsson og Birgir Már Bragason fóru yfir stöðuna á fundinum, en þar var dregin upp dökk mynd af aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í sveitarfélaginu. Skortur á æfingasvæðum og ástand þeirra mannvirkja sem fyrir eru hafa lengi verið til umræðu meðal iðkenda og forráðamanna í Keflavík og Njarðvík.
Eftir yfirferð fulltrúanna bókaði íþrótta- og tómstundaráð að það tæki heilshugar undir áhyggjur þeirra. Fram kom í máli ráðsins að það telji nauðsynlegt að ráðist verði í úrbætur strax til að mæta þeirri þörf sem ríkir í bæjarfélaginu.
Þessi háværa krafa um bætta aðstöðu kemur á sama tíma og bæjarráð hefur samþykkt undirbúning að stórframkvæmdum á Afreksbraut, þar sem m.a. stendur til að fjölga æfingavöllum um fimm. Ljóst er að þrýstingurinn frá knattspyrnuhreyfingunni er mikill og ljóst að forráðamenn íþróttarinnar telja að ekki megi bíða lengur með raunverulegar aðgerðir. Íþrótta- og tómstundaráð mun væntanlega fylgja málinu eftir inn í bæjarráð, en ljóst er að aðstaða til knattspyrnuiðkunar verður eitt af stóru málunum í uppbyggingu íþróttamannvirkja á næstu misserum.
Bragi Guðmundsson byggingaverktaki hefur síðustu ár unnið að uppbyggingu par- og raðhúsa við Báruklöpp í Garði.
Þessi mynd er tekin yfir framkvæmdasvæðið síðasta sumar þegar síðasta húsið í götunni var í byggingu. VF/hilmarbragi
1.MAÍ
2026
Stéttarfélögin á Suðurnesjum óska félagsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju
með baráttudag verkafólks þann 1. maí.
Hátíðardagskrá í Stapa
Á þessum degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn.
Dagskráin
Um leið og stéttarfélögin í Reykjanesbæ senda félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins óskir um gleðilegan baráttudag verkalýðsins bjóða þau á
Í tilefni að 50 ár eru frá kvennafrídegi munu konur vera áberandi í dagskrá baráttufundarins.
Stéttarfélögin á
Húsið opnar kl. 14 og tekur lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti fólki.
Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK, setur dagskrá og kynnir.
Ræðumaður dagsins er Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í Vinnumarkaðsmálum ASÍ.
baráttufund í Stapa,
Fríða Dís tekur nokkur vel valin lög.
Leikfélag Keflavíkur kemur með innslag og Kvennakór Suðurnesja slær botn í dagskrána.
Hljómahöll, 1. maí kl. 14.00
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir
Suðurnesjum bjóða félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund í Stapa, Hljómahöll, 1. maí kl. 14.00-16.00 og eru öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
13:45 Húsið opnar
Blásturssveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar tekur á móti gestum
Guðmundur Hermannsson leikur létta tóna fyrir dagskrá og á milli atriða
14:00 Opnun og kynning, kynnir Guðbjörg Krismundsdóttir formaður VSFK
14:10 Hátíðarræða; Kristján Gunnarsson formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum
14:30 Ungleikhúsið/PPU
14:50 Kósýbandið tekur nokkur lög
15:40 Leikfélag Keflavíkur með atriði úr Söngleiknum We will rock you
16:00 Kór Ytri Njarðvíkurkirkju lokar dagskrá með söng
Bíósýning verður fyrir ungu kynslóðina í Sambíóinu við Hafnargötu kl. 12:00
Konur í Reykjanesbæ fræðast um fjárfestingar
og er skemmst frá því að segja að konur af svæðinu fjölmenntu þannig að sækja þurfti stóla inn í geymslur og upp á háaloft.
Árið 2024 ýtti Arion banki úr vör langtímaátakinu Konur fjárfestum sem hefur að markmiði að efla konur þegar kemur að fjárfestingum og fyrirtækjarekstri.
Kveikjan að átakinu var einföld; í dag ríkir ekki jafnræði milli kynja þegar kemur að sparnaði, lífeyriseign eða þátttöku á fjármálamarkaði, sem skýtur skökku við enda Ísland rómað um víða veröld fyrir að vera í forvígissveit jafnréttismála.
Efla bæði tengslanet kvenna og fjármálalæsi þeirra
Á fundinum í Keflavík hélt Birna Rún Eiríksdóttir fjörlegt erindi um reynslu sína af því að starfa sem leikkona og uppistandari og halda
Arion banki opnar í Reykjanesbæ í byrjun maí.
dóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, talaði um stóru myndina í hagkerfinu. Erna Björg rýndi í stöðuna í efnahagsmálum á alþjóðavísu og spáði fyrir um þróunina á komandi misserum og sköpuðust líflegar samræður sem héldu áfram að dagskrá lokinni.
„Þetta var mjög skemmtilegt og við erum í skýjunum með mætinguna,“ segir Snædís Ögn.
„Þátttaka á fjármálamarkaði er svo mikilvæg leið til að hafa áhrif í samfélaginu og byggja upp eigin framtíð. Með því að fjárfesta tökum við virkan þátt í þróun sam félagsins. Því fleiri konur sem taka þátt, því meiri verða auðvitað áhrif þeirra.“
Snædís Ögn Flosadóttir er for stöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka. Hún segir að bankinn hafi staðið fyrir meira en hundrað Konur fjárfestum viðburðum víðs vegar um landið á síðustu tveimur
NORÐURÓP KYNNIR
brennandi áhuga á heimi fjárfest inga en þurfi kannski annars konar vettvang og eins fleiri fyrirmyndir á þessu sviði.
„Með því að búa til þessa um gjörð í kringum Konur fjárfestum, þar sem konur geta borið saman bækur sínar, eflum við bæði áhuga þeirra og kjark til að stíga næstu skref, inn í heim fjárfestinga og fyrirtækjareksturs,“ segir Snædís Ögn.
Arion banki opnar í Reykjanesbæ
GianniSchicchi
G amanópera ef tir G P uccini
15. 16. og 17. maí, 2026
Hljómahöll, Reykjanesbær
Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson
Konsertmeistari: Rozalia Miętus
Söngvarar eru:
Gissur Páll Gissurarson, , Kristinn Schram Reed, , Martyna Gesella, , Keith Reed, Áslákur Ingvarsson, Ragnar Pétur Jóhannsson, Bryndís Schram Reed, Jelena Raschke, Rósalind Gísladóttir, Birna Rúnarsdóttir, Magnús Guðmundsson, Jóhanna María
Kristinsdóttir, Guðrún Hildur Jóhannsdóttir, Linda Pálína Sigurðardóttir, Sigrún Lína Ingólfsdóttir, Guðríður Eva Halldórsdóttir, Ingi Eggert Ásbjarnarson, Ösp Birgisdóttir
Miðasala á tix is
Einar Hannesson (lengst til hægri) verður útibússtjóri Arion banka sem opnar á Aðaltorgi í Reykjanesbæ 5. maí nk.
Vor á Vatnsnesi
dagana 15.–17. maí 2026
frá helgina 15. til 17. maí.
Njarðarbraut í deiliskipulag:
Tekist á um forgangsröðun hringtorga
Mikilvægt skref var stigið í átt að bættu umferðaröryggi á Njarðarbraut þegar bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti forsendur fyrir nýju deiliskipulagi vegkaflans milli Fitja. Þótt allir séu sammála um mikilvægi framkvæmdanna greinir meirihluta og minnihluta á um hvar eigi að byrja. Nýja skipulagið, sem byggir á greiningu sérfræðinga Eflu, gerir ráð fyrir fjórum nýjum hringtorgum á Njarðarbraut: við Víknaveg, Vallarás, Bergás og Grænás. Markmiðið er að greiða fyrir umferð og tryggja öryggi allra vegfarenda á þessum annasama kafla. Meirihlutinn setur Bergás í fyrsta sæti
Meirihluti bæjarstjórnar ákvað að breyta forgangsröðun framkvæmda og setja hringtorg við Bergás í efsta sæti ásamt nýjum gönguleiðum. Með því á að bæta aðgengi íbúa í Ásahverfi að Njarðarbraut sem fyrst og tryggja örugga þverun yfir götuna.
„Við skuldum Ásahverfinu það að bregðast við fljótlega,“ sagði Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) í bókun meirihlutans. Hún benti á að hringtorgið við Bergás væri minni framkvæmd en sú við Grænás og gæti því hafist fyrr, jafnvel strax í sumar. Jafnframt er lagt til að sett verði hraðahindrun við Grænásbrekku til bráðabirgða þar til undirgöng verða tilbúin.
Sjálfstæðisflokkurinn vill byrja við Grænás
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðsluna. Þeir telja réttara að fylgja tillögu sérfræðinga Eflu sem settu hringtorg við Grænás/Njarðarbraut í fyrsta forgang. Flokkurinn lýsti yfir áhyggjum af því að íbúar í Ásahverfi þyrftu að bíða of lengi eftir varanlegum undirgöngum undir Grænásbrekku, sem áður hafði verið lofað að færu í gang.
„Hversu lengi eiga íbúar í Ásahverfi að bíða eftir undirgöngum undir Grænásbrekku?“ spurði Guðbergur Reynisson (D) í bókun minnihlutans og benti á að meirihlutinn virtist nú tala um undirgöng sem „fjarlæga framtíð“.
Tímaröð framkvæmda samkvæmt samþykkt meirihluta:
• Bergás: Hringtorg og gönguleiðir við Fitjabakka (Hefst sem fyrst).
• Grænásvegur: Hringtorg og undirgöng í Grænásbrekku.
• Víknavegur: Hringtorg.
• Vallarás: Hringtorg.
• Bolafótur/Sjávargata: Breyting í „hægri inn / hægri út“.
Hiti í bæjarstjórn vegna Myllubakkaskóla
Miklar umræður sköpuðust á síðasta fundi bæjar stjórnar Reykjanesbæjar um stækkun íþróttamannvirkja við Myllubakkaskóla. Þótt allir fagni bættri aðstöðu greinir bæjarfulltrúa á um hvernig haldið er utan um kostnaðartölur og hagræðingu í verkefninu.
Málið snýst um þá ákvörðun að stækka íþróttahús skólans um 64 fermetra og bæta við 74 fermetra geymslu. Þrátt fyrir þessa viðbót telur meirihlutinn að hægt sé að halda framkvæmdinni innan fjárhagsramma með því að leita hagkvæmari leiða í hönnun og innkaupum.
Sjálfstæðisflokkurinn spyr um „ósýnilegan“ sparnað Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram bókun þar sem þeir lýstu yfir undrun á því að auknum fermetrum fylgdi ekki kostnaðarauki. Margrét A. Sanders, bæjarfulltrúi flokksins, benti á að áætlaður heildarkostnaður við endurbætur skólans hefði hækkað úr rúmum 4 milljörðum í 6,3 milljarða frá upphafi.
Sjálfstæðismenn fögnuðu því að verið væri að leita hagkvæmni en sögðust eiga erfitt með að sjá hvernig svo mikill sparnaður gæti raungerst, sérstaklega þegar litið er til þess hve mikið heildarkostnaður verkefnisins hefur hækkað. Samkvæmt þeirra útreikningum, þar sem tekið er tillit til vísitölu og hönnunarkostnaðar, stendur eftir um 700 milljóna króna mismunur sem flokkurinn telur að sé umframáætlun.
Guðný Birna Guðmundsdóttir, fyrir hönd meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar, svaraði gagnrýninni fullum hálsi. Hún áréttaði að stækkun hússins yrði nýtt til að gera húsnæðið fjölbreyttara án þess að slaka á gæðum.
Meirihlutinn benti á að upphaflega áætlunin upp á 4,3 milljarða hefði aðeins náð yfir sjálft mannvirkið, en talan 6,3 milljarðar nái yfir allt verkefnið: lóð, búnað, hönnun og verkefnastýringu. Þá var ítrekað að óviðráðanlegir ytri þættir hefðu haft mikil áhrif. Heimsfaraldurinn og stríðið í Úkraínu hækkuðu efniskostnað umtalsvert, sem ekki var hægt að sjá fyrir í upphafi.
Treysta ekki tölum sveitarfélagsins?
Umræðan varð nokkuð hvöss þegar líða tók á fundinn. Meirihlutinn lýsti yfir undrun á því að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins drægju upplýsingar frá hagdeild og eignaumsýslu bæjarins í efa, sérstaklega þar sem flokkurinn ætti sjálfur þrjá fulltrúa í stjórn eignasjóðs. Sjálfstæðismenn vísuðu þessu á bug og sögðust einfaldlega vera að horfa til þess að upphaflegar forsendur hefðu breyst án þess að það væri nægilega gagnsætt. Þrátt fyrir þessar deilur um tölur liggur fyrir að verkið heldur áfram og stefnt er að því að Myllubakkaskóli fái bæði stærra og hagkvæmara íþróttahús en fyrstu teikningar gerðu ráð fyrir.
Fiskurinn kominn úr
Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
Þá er hrygningarstoppinu lokið og heldur betur hefur veiðin gengið vel hjá bátunum. Því strax eftir að hólfin næst landi voru opnuð kl. 10:00 á mánudaginn síðasta hafa línubátarnir frá Sandgerði heldur betur mokveitt og komið með vel yfir 20 tonn í land og það eftir eina lögn. Sem dæmi má nefna að Kristján HF er kominn með tæp 65 tonn í 3 róðrum eftir stoppið og mest um 26 tonn í einni löndun. Indriði Kristins BA með um 85 tonn í 4 róðrum og mest um 27 tonn í róðri, og báðir þessir bátar með þennan afla eftir aðeins eina löndun.
Særif SH er með 76 tonn í 4 róðrum og þar af 11 tonnum landað í Grindavík og restinni landað í Sandgerði. Margrét GK með um 80 tonn í 5 róðrum og mest 21 tonn í einni löndun, en Margrét GK er nokkuð minni bátur en hinir sem á undan eru nefndir, og 21 tonn er fullfermi hjá Margréti GK.
Óli á Stað GK var líka að mokveiða og var með 65 tonn í aðeins 3 róðrum og mest um 25 tonn í róðri. Allir þessir bátar voru að landa í Sandgerði.
Veiðin hjá bátunum sem lönduðu í Grindavík var nokkuð minni en hjá bátunum í Sandgerði og þar er til dæmis Gísli Súrsson GK með 64 tonn í 4 róðrum og mest 15,5 tonn. Vésteinn GK með 38 tonn í 3 róðrum. Dúddi Gísla GK með 29 tonn í 3 róðrum. Þegar þessi pistill er skrifaður er stutt eftir af aprílmánuði og þó svo að hrygningarstoppið hafi komið inn í, og þá stefnir í að mánuðurinn verði nokkuð góður aftur eftir mjög svo slæman marsmánuð. Þar sem að aprílmánuður er að verða búinn er mjög stutt í að maí byrji og þá hefst strandveiðitímabilið á þessu ári. Vegna þess að reglur um strandveiði eru þannig að það má ekki róa um helgar og ekki á föstudögum mega því bátarnir ekki hefja veiðar fyrr en eftir helgina, sem er 4. maí. Yfir 800 bátar hafa fengið strandveiðileyfi og flestir bátanna eru á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi og yfir til Vestfjarða, eða nánar tiltekið að bátar sem landa á Arnarstapa og yfir til Súðavíkur eru á svæði A. Suðurnesin eru aftur á móti á svæði D, sem er nokkuð langt, en það nær frá Akranesi og austur um til Hornafjarðar. Undanfarin ár hefur ein höfn á þessu svæði verið langstærsta strandveiðihöfnin á þessu svæði og stærsta eða næststærsta strandveiðihöfnin á Íslandi, og er það Sandgerði. Í fyrra var til dæmis Sandgerði stærsta strandveiðihöfnin rétt á undan Patreksfirði, og er ég þá að miða við hversu margir bátar landa í höfninni. Reyndar er munur á milli þessara svæða A og D nokkuð áberandi mikill, því að á svæði A er að langmestu leyti þorskur sem strandveiðibátarnir veiða, en á svæði D er töluvert mikið um ufsa í aflanum hjá bátunum og var þá helst um ufsa hjá bátunum sem réru frá Hornafirði, Sandgerði og Grindavík.
Veruleg fjölgun iðkenda í Reykjanesbæ:
Enn vantar upp á hjá börnum
með erlent ríkisfang
Iðkendum í íþrótta- og tómstundastarfi í Reykjanesbæ fjölgaði um rúm fimm prósent á milli áranna 2024 og 2025. Þótt þátttaka aukist jafnt og þétt hjá börnum með íslenskt ríkisfang virðist erfiðara að ná til barna með erlent ríkisfang en hlutfall þeirra sem stunda skipulagt starf lækkaði lítillega á milli ára. Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, fór yfir nýjustu tölur úr mælaborði þátttöku á fundi íþrótta- og tómstundaráðs í síðustu viku. Tölurnar sýna að árið 2025 stunduðu 4.723 börn í bænum einhvers konar íþrótt eða tómstund, sem er aukning frá því að vera 4.493 árið áður.
Almenn þátttaka eykst en bilið breikkar
Heildarhlutfall barna í Reykja nesbæ sem stunda skipulagt starf hækkaði úr 61% í tæp 64%. Þegar rýnt er í tölurnar sést hins vegar ákveðinn munur eftir ríkisfangi. Þátttaka barna með íslenskt ríkis fang hækkaði verulega, eða úr 67,1% í 72,4%.
Á sama tíma lækkaði hlutfall iðk enda með erlent ríkisfang úr 35,9% í 34%. Athygli vekur að þótt iðk endum í þessum hópi hafi fjölgað í tölum talið þá er sú fjölgun hlut fallslega minni en nemur fjölgun barna með erlent ríkisfang í sveit arfélaginu í heild. Þetta bendir til þess að íþróttahreyfingunni gangi hægar að innleiða nýja íbúa af er lendum uppruna í starfið en þá sem fyrir eru.
Drengir sækja fastar í starfið en stúlkur
Kynjahallinn er einnig merkjanlegur í mælaborðinu. Drengir í
Reykjanesbæ eru mun virkari en stúlkur og jókst þátttaka þeirra úr tæpum 62% í rúm 66%. Stúlkur bæta líka við sig, en hlutfall þeirra fór úr 60,1% í 61,7%.
Íþrótta- og tómstundaráð fagnaði aukinni þátttöku almennt en ljóst er að tölurnar verða nýttar til að rýna hvar þörf er á frekari sókn, sérstaklega gagnvart stúlkum og börnum af erlendum uppruna.
Fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar hefur Reykjanesbær opnað gagnvirkt mælaborð á vef sínum þar sem hægt er að rýna í þróunina eftir aldri, hverfum og kynjum.
Starfstækifæri á Fitjabraut 2, Reykjanesbæ.
Við leitum að söludrifnum og jákvæðum einstaklingi til starfa í verslun okkar í Reykjanesbæ.
Fjölbreytt og skemmtileg verkefni:
Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
Sala og afgreiðsla í verslun
Móttaka á vörum og frágangur
Slöngusmíði
Önnur tilfallandi störf
Nánari upplýsingar veitir Heiða Lára Heiðarsdóttir, mannauðsstjóri á netfangið heida.heidarsdottir@rubix.com
Traustur félagi í iðnaði
Þú getur hlustað á Oddvitasætið í Hlaðvarpi Víkurfrétta á vf.is
starfsstöð
Skoðaðu starfið og sæktu um á Alfreð
Sæktu um hér:
Vor á Vatnsnesi 16. maí
Í tilefni þess að Hótel Keflavík fagnar 40 ára starfsafmæli sínu, verður slegið upp einni metnaðarfyllstu vorhátíð ársins þann 16. maí næstkomandi undir yfirskriftinni „Vor á Vatnsnesi“. Við settumst niður með Lilju Karen Steinþórsdóttur, aðstoðarhótelstjóra, og Jakobi Frímanni Magnússyni, tónlistarmanni og menningarmiðlara, sem hefur það hlutverk að leiða tónlistardagskrána á útisviði við Vatnsneshúsið og ræddum þennan mikla viðburð þar sem sagan, nútíminn og framtíðin mætast á grasbakkanum við Vatnsnesið.
Gullöldin mætir nútímanum í Vori á Vatnsnesi
Vagga menningarbyltingarinnar
Jakob Frímann Magnússon þarf varla að kynna fyrir landsmönnum, en hann hefur að undanförnu kafað djúpt í tónlistarsögu svæðisins til að setja saman dagskrá sem hann kallar „skemmtimennt“. Jakob bendir á að á meðan Vor í Vaglaskógi sé þekktasta vísunin í íslenskri dægurlagasögu, þá eigi Vor í Vatnsnesi fyllilega erindi sem nýr fastapunktur. Hann rifjar upp hvernig það var þegar Steinþór Jónsson, hótelstjóri, sem leitaði til hans í fyrra með þá ósk að gefa af mælishátíðinni aukið vægi og sögulega dýpt. „Ég var fljótur að fá andgjöfina,“ segir Jakob og verður mikið niðri fyrir. „Við erum hér í vöggu hryntónlistarinnar á Íslandi. Það er engin tilviljun að Keflavík varð miðja alheimsins í íslensku Bítli, með stóru Béi. Hér mættust straumar frá herstöðinni og hljómplötur sem bárust yfir hafið. Hér var jarðvegurinn sem ól af sér fremstu tónlistarmenn og hljómsveitir þjóðarinnar; Hljóma. Óðmenn, Júdas, Elly Vilhjálms, Vilhjálm Vilhjálmsson og fjölmarga aðra. Í menningarbyltingu hippanna á síðustu öld hafnaði unga fólkið viðteknum venjum og hefðum, burstaklippingunni og jakkafötunum og fann frelsið í bítinu.“
Jakob rifjar upp þegar hann sjálfur, nýfermdur drengur, fann gæsahúðina hríslast um sig þegar hann sá hljómsveitina Óðmenn á sviði í Austurbæjarbíói í Reykjavík. Sú sveit, með Shady Owens í forgrunni, Magnús Kjartansson á Hammond-orgel, Val Einarsson á gítar, Jóhann G. Jóhannsson á sex strengja bassa og Pétur Östlund við trommurnar, flutti með sér nýjan bandarískan Tamla Motown fönktakt sem átti uppruna sinn í bílaborginni Detroit (Motor Town / Motown) og barst til Keflavíkur beint af herstöðvaböllunum í Keflavík. Hann bendir á að á þeim tíma hafi íhaldið í Reykjavík talið þessa tónlist vera „tónlist djöfulsins“ og varað við því að popparar fengju nokkurn tímann listamannalaun. Það gerðist hins vegar
Hápunktur hátíðarinnar þann 16. maí verður tveggja tíma tónlistardagskrá á útisviði þar sem sagan lifnar við. Jakob hefur fengið Óðmenn til að stíga aftur á svið, en í þetta skiptið með sögulegu ívafi.
stuttu síðar þegar Gunnar Þórðarson fékk sín listamannalaun.
Týndi sonurinn og arfleifð Hljóma Hápunktur hátíðarinnar þann 16. maí verður tveggja tíma tónlistardagskrá á útisviði þar sem sagan lifnar við. Jakob hefur fengið Óðmenn til að stíga aftur á svið, en í þetta skiptið með sögulegu ívafi. Ásamt þeim mun koma fram sonur Péturs Östlund, en það sem mun sennilega vekja mesta athygli er þátttaka sonar Jóhanns G. Jóhannssonar. Jakob segir söguna af því þegar Jóhann, rétt fyrir andlát sitt, kynntist þessum „týnda syni“ sínum sem hefur nákvæmlega sömu rödd og faðir hans. Það verða því miklar tilfinningar í loftinu þegar hann flytur lög föður síns með hans gömlu hljómsveit.
Einnig verður tónlist Hljóma gerð rækileg skil. Meðal þeirra sem fram koma eru nokkrir eftirlifandi og fullfrískir með-
limir sveitarinnar, m.a. fyrrum forsöngvari Hljóma, Karl Hermannsson Erlingur Björnsson gitarleikari og trommarinn Eggert Kristinsson. Þeim til halds og trausts verða synir Rúnars Júlíussonar, þeir Baldur og Júlíus. Þess má geta að forsöngvarinn Karl Hermannsson, sem samdi Léttir í lundu, sem Einar og félagar í Pónik gerðu svo landsKeflvíkingarnir Valdimar og Ásgeir stíga svo á svið og verða með læti la-la-la-la-læti þegar flueldasýningin hefst.
„Bláu augun“ hefðu orðið stærri en „Yesterday“ væru þau á ensku
Jakob rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar hann fór með Hljóma til Liverpool árið 2008 og hitti þar fyrsta umboðsmann Bítlanna, sem táraðist þegar þeir sungu fyrir hann „Bláu augun þín“ og sagði sá ágæti umboðsmaður að hefði það lag verið með enskum texta, hefði það getað orðið stærra en „Yesterday“.
Jafnframt verður tónlist Magnúsar og Jóhanns fagnað, en Jakob lék stórt hlutverk í að koma þeim félögum á samning á sínum tíma.
Frá morgun„Rave“i til flugeldasýningar á Vatnsnesi
Lilja Karen Steinþórsdóttir markaðsstjóri Hótel Keflavík, hefur umsjón með skipulagningu dagsins og hún leggur áherslu á að þetta sé hátíð fyrir alla bæjarbúa. Dagskráin er fjölbreytt og hefst hún með krafti strax klukkan tíu um morguninn.
Fyrsti liður dagsins er hið svokallaða KEF Moët Kampavínshlaup, fimm kílómetra skemmtihlaup meðfram sjónum. Til að hita hópinn upp mætir plötusnúðurinn DJ Sakki til að tryggja að takturinn sé réttur strax í byrjun dags. Eftir fimm kílómetrana tekur við stutt en snörp keppni, 40 metra KEF kampa-
vínsspretthlaupi til heiðurs 40 ára afmæli hótelsins, þar sem markmiðið er að klára hlaupið með sem mest í glasinu. Lilja segir að í kjölfarið fylgi skemmtilegt danspartý eða „Apré Run Rave“ með DJ Sakka á túninu þar sem allir eru velkomnir að dansa og njóta dagsins, óháð því hvort þeir hafi tekið þátt í hlaupinu eða ekki. Eftir hádegið færist áherslan yfir á fjölskylduna en þá mætir Leikhópurinn Lotta með sýningu fyrir börnin, Hoppukastalar verða á svæðinu og Lúðrasveit Reykjanesbæjar þeytir lúðra sína. Götubitar verða í boði við Vatnsneshúsið og fólki er boðið að skoða þær miklu endurbætur sem gerðar hafa verið á húsinu. Auk þess að verða herramannssetur og móttökuhús, rekið af Hótel Keflavík, er Vatnsneshúsið sannkallað menningarsetur með einstökum listaverkum til framtíðar og listasýning í sjálfu sér um leið og heiður hússins frá 1934 fær fulla virðingu. Samhliða þessu verður mikið um að vera í miðbænum. Verslanir í Betri bæ munu bjóða upp á sérstök tilboð og ókeypis verður inn á söfn bæjarins í Duus-húsum. Lilja Karen nefnir að hún hafi fundið fyrir miklum velvilja hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu sem vilji öll leggja sitt af mörkum til að gera þetta að árlegum viðburði. Hátíðin nær svo hámarki þegar kvöldtónleikarnir, undir stjórn Jakobs, hefjast klukkan hálfníu.Tónleikunum lýkur, klukkan 22:40, en sú tímasetning vísar aftur til 40 ára afmælisins. Þá mun Björgunarsveitin Suðurnes skjóta upp glæsilegri flugeldasýningu rétt þegar sólin sest. Með því verður settur lokapunktur við dag sem Lilja og Jakob vona að verði upphafið að nýrri hefð á Vatnsnesi, þar sem saman mætast tónlistarsaga bítlabæjarins og nútímaleg vorhátíð. Upplýsingar um alla dagskrána er að finna á vef hótelsins, kef. is, og eru allir hvattir til að flagga íslenska fánanum og taka þátt í gleðinni.
Viðtal og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Vor á Vatnsnesi
dagana 15.–17. maí 2026
Söngsveitin Víkingar í 30 ár:
„Tókum
Söngsveitin Víkingar fagnar þessa dagana stórafmæli, en liðlega 30 ár eru liðin frá því að hópur söngvissra karla kom saman og ákvað að stofna sönghóp sem væri laus við stífni hefðbundinna karlakóra. Fram undan eru afmælistónleikar í Njarðvíkurkirkju og Sandgerðiskirkju þar sem blásið verður í glæðurnar undir stjórn nýs stjórnanda, Arons Axels Cortes.
SUÐURNESJABÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Stofnað í heimahúsi milli jóla og nýárs
Sagan hófst formlega þann 29. desember árið 1994 á Lyngbraut 1 í Garðinum. Guðmundur Jens Knútsson rifjar upp að forsprakkar hópsins hafi verið nokkrir karlar sem Guðmundur hóaði saman en um hafi verið að ræða átta karla sem hann vissi að myndu hafa áhuga á að sameinast í söng. „Okkur langaði einfaldlega til að stofna góðan hóp og við vildum ekki kalla þetta kór, hvað þá karlakór. Við tókum okkur ekki það alvarlega í byrjun,“ segir Guðmundur Jens. Í upphafi voru Víkingarnir aðeins átta talsins, allir úr Garðinum eða Sandgerði, en þegar mest lét voru þeir 27 eða 28. Talið er að yfir 70 karlar hafi komið við sögu í sveitinni á þessum þremur áratugum. Af þessum átta sem stofnuðu söngsveitina eru sex ennþá starfandi og syngjandi. En söngsveitin stjórnar sér ekki sjálf svo á þessum 30 árum hafa ýmsir stjórnendur komið við sögu og kann sveitin þeim bestu þakkir fyrir en ber þar sérstaklega að nefna bræðurna Jóhann Smára og Sigurð Sævarssyni sem stýrðu söngsveitinni á sitthvorum tíma um árabil með miklum sóma.
Vítt og breitt um tónlistarsviðið Þrátt fyrir að Víkingar syngi mikið af hefðbundnum karlakórslögum þá hafa þeir aldrei látið raddirnar einskorðast við það. Sveitin hefur flakkað um popptónlist, syrpur eftir heimsþekkta tónlistarmenn og sérútsett lög eftir Vigni Bergmann sem dæmi.
„Við höfum farið vítt og breitt. Karlakórslögin, sérstaklega þau fjórrödduðu án undirleiks, henta okkur samt alltaf vel,“ nefnir Guðmundur Jens sem dæmi.
Sveitin er þekkt fyrir að syngja við ýmis tækifæri: í afmælum, á jólum, í verslunum eins og BYKO,
félagsskapinn fram yfir sönginn“
Nettó og Húsasmiðjunni, og fyrir eldra fólkið á svæðinu. Einn af hápunktunum í sögu sveitarinnar var þátttaka í Fiskideginum mikla á Dalvík, þar sem þeir sungu fyrir tugþúsundir manna. Sveitin hefur einnig í nokkur skipti lagt í víking til annarra landa, svokallaðar menningarferðir. Sveitin fór t.d. í menningarferð til Svíþjóðar og Danmerkur 2017 og söng í Svíþjóð með karlakórnum Nybro Man skör, og svo með kvennakórnum Dóttir í Kaupmannahöfn. Í þeirri heimsókn söng söngsveitin einnig í Jónshúsi svo Jón Sigurðsson hefur eflaust tekið undir. Á síðasta ári heimsótti sveitin Dublin á Írlandi og skemmti sér og öðrum með söng m.a. meðal gangandi vegfarenda á götum Dublin. Að ógleymdu hefur söngsveitin um árabil sungið á bæjarhátíðum á Suðurnesjum.
Þá er mjög minnistætt þegar söngsveitin tók þátt í keppn inni Kórar Íslands á Stöð 2 fyrir nokkrum árum, sjónvarpsseríu sem tekin var upp í Atlantic Studios á Ásbrú. Jafnframt hefur söngsveitin tekið þátt í Kötlumóti og hefur fengið kóra í heimsókn til sín sem og farið í heimsókn til kóra sem hefur ávallt tekist vel.
En Söngsveitin Víkingar er meira en bara að hittast og syngja saman. Félagsskapurinn er svo dýrmætur og þá með fólkinu sínu, mökum og börnum. Sveitin hefur ávallt komið saman í útilegu á hverju sumri og þá iðulega í Laugalandi í Holtum. Þar er að sjálfsögðu tekið lagið en líka farið í leiki og grillað saman. Einnig hefur Víkingar haft
Einn af hápunktunum í sögu sveitarinnar var þátttaka í Fiskideginum mikla á Dalvík, þar sem þeir sungu fyrir tugþúsundir manna. Sveitin hefur einnig í nokkur skipti lagt í víking til annarra landa, svokallaðar menningarferðir.
til þess að halda sjálfstæðinu, að
Í fyrrahaust var því ákveðið að reyna að ná þessu upp aftur. Við fengum nýjan stjórnanda og það er eins og það hafi verið blásið í glæðurnar,“ segir Ólafur Eyjólfsson, sem í dag er forseti Söngsveitarinnar Víkinga. Sveitinni þykir viðeigandi að vera ekki með formann, heldur fara beint í forsetanafnbótina og því er Ólafur forseti.
Nýr stjórnandi sveitarinnar er Aron Axel Cortes, búsettur í Garðinum. Hann er sagður mikil búbót fyrir sveitina, hörkusöngvari og tónlistarmaður sem hefur náð að rífa hópinn upp.
Afmælistónleikar í maí
Víkingarnir munu halda tvenna afmælistónleika nú í maí:
• Þriðjudaginn 5. maí í Njarðvíkurkirkju kl. 20:00.
• Fimmtudaginn 7. maí í Sandgerðiskirkju kl. 20:00.
Á efnisskránni er að mestu gamalt og gott efni úr fórum sveitarinnar. Sérstök áhersla er lögð á að tónleikarnir séu opnir öllum og ekkert er rukkað inn, en sveitin leitar jafnan styrkja hjá fyrirtækjum á svæðinu til að standa straum af kostnaði og kann söngsveitin þeim miklar þakkir fyrir. Þá fékk söngsveitin nýverið styrk úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar til að halda afmælistónleikana. Söngsveitin stendur nú á tímamótum og leitar logandi ljósi að yngri mönnum til að bætast í hópinn. „Eins og einhver sagði: þeir mega bara ekki vera leiðinlegir og þeir þurfa að geta sungið,“ segir forsetinn kíminn að lokum.
Gunnlaugur Kárason leiðir Miðflokkinn sem býður fram í fyrsta skipti í Reykjanesbæ. Tilbúinn í bæjarstjórastólinn komi það tækifæri upp og telur sig vera með þekkingu og reynslu í það verkefni.
Meiri hagræðingu í rekstri og ekki fleiri hælisleitendur
Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ, segir flokkinn mættan til leiks til að vera virkur þátttakandi í öllu pólitísku starfi bæjarins en ekki bara láta sjá sig á fjögurra ára fresti. Hann treystir sér vel til að setjast í bæjarstjórastólinn, vill loka á móttöku hælisleitenda og telur að ríkið eigi að afhenda bænum þá starfsemi sem Kadeco sinnir.
Gunnlaugur, eða Gulli eins og hann er gjarnan kallaður, er enginn nýgræðingur í bæjarmálum þótt hann leiði nú nýtt framboð. Hann sat sem varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 2010 til 2014 en segist hafa fundið sjálfan sig í stefnuskrá Miðflokksins.
„Þegar ég las stefnuskrána fannst mér hún nánast eins og ég hefði skrifað hana sjálfur. Þar ríma áherslur á rekstur, menntamál og íþróttir fullkomlega við mínar skoðanir,“ segir Gunnlaugur. Hann segist brenna fyrir því að gera Reykjanesbæ að eftirsóknarverðasta staðnum á Íslandi. „Ég er 49 ára, fæddur og uppalinn hér, og hef tekið þátt í öllum innviðum sveitarfélagsins. Mér fannst þetta rétti tíminn til að koma að borðinu og hjálpa til.“
Sjálfstæðisflokkurinn í baksýnisspeglinum
Hafði Miðflokkurinn samband við þig eða komst þú sjálfur? Hefur þú ekki verið viðloðandi pólitík áður?
„Jú, það er ekkert launungarmál að ég var í Heimi, félagi ungra sjálfstæðismanna, og var varabæjarfulltrúi 2010 til 2014. Ég hef ekkert starfað þar síðan því mér þótti það ekki við hæfi á meðan ég vann í Landsbankanum og hjá HS Veitum. Svo var tékkað á manni hvort maður hefði áhuga. Þegar ég las stefnuskrá Miðflokksins var hún nánast eins og ég hefði skrifað hana sjálfur. Þar voru hlutir sem ég hafði verið að ræða; ég hef mikinn áhuga á rekstri, menntamálum og íþróttamálum og það rímar vel við þeirra stefnu. Þetta var því mjög auðvelt.“
Eigum að sækja fyrirtækin
Gunnlaugur leggur mikla áherslu á að bærinn sé lipur í samskiptum við atvinnulífið. Hann
telur að sveitarfélagið eigi ekki að „þvælast fyrir“ heldur liðka fyrir með hröðum skipulagsbreytingum og skýrum svörum. Hann nefnir landeldið á Reykjanesi sem dæmi um risavaxið verkefni þar sem bærinn verður að vera vakandi fyrir afleiddum störfum.
Hvernig sérð þú fyrir þér þróunina í Helguvík eftir sögu kísilversins?
„Það er gott að verið sé að rífa kísilverið, það var sorgarsaga. Við þurfum að hugsa 10 ár fram í tímann. Þarna er að koma NATOgarður og ný bryggja. Við megum ekki troða öllu einhvers staðar; ef við ætlum að vera með matvælavinnslu getum við ekki verið með eitthvað annað þar sem truflar hana. Við erum stolt af flugstöðinni og bílaleigunum, en ég hef áhyggjur af því að við séum ekki nógu tilbúin. Það er ekki nógu mikið fjallað um þetta til að láta okkur vita að þetta sé allt í lagi.“
Hann lýsir sömuleiðis miklum
áhuga á hátæknisorpbrennslu:
„Þetta getur skapað 40 ársverk og yfir 100 afleidd störf, auk þess að skila hita og rafmagni. Miðflokkurinn er mjög hrifinn af þessu; þetta eru speglaverkefni úr Evrópu eins og í Kaupmannahöfn.“
Rekstur og innviðir undir smásjánni
Þótt rekstur Reykjanesbæjar hafi skilað hagnaði undanfarið varar Gunnlaugur við því að bókfærður hagnaður sé ekki það sama og góður rekstur ef handbært fé vantar. Hann boðar aukið eftirlit kjörinna fulltrúa með hverri krónu
og telur að hægt sé að hagræða í stjórnsýslunni.
Hvaða hagræðingu sérðu fyrir þér í stjórnkerfinu?
„Ég sé hagræðingu í því að fækka nýlegum ráðum eins og sjálf bærniráði og lýðheilsuráði; þessi mál eiga heima í hefðbundnum ráðum. Svo þarf meira eftirlit með framkvæmdum sem fara fram úr áætlun. Við eyðum 52–53% í menntamál á meðan aðrir eyða innan við 50%. Við þurfum að velta við öllum steinum. Kjörnir fulltrúar verða að bera ábyrgð á eftirlitinu og tryggja að farið sé vel með hverja krónu af skattfénu.“
Varðandi húsnæðismál vill hann gæta þess að fórna ekki sérbýlum fyrir fjölbýli: „Okkur vantar raðhús og sérbýli í kringum 160–170 fer metra fyrir millitekjufólk og barna fjölskyldur. Við þurfum að laða að okkur fagstéttir, t.d. flugfólk hjá Icelandair, og þá þurfum við að eiga húsnæði sem hentar þeim.“
Innviðirnir sprungnir
Málefni hælisleitenda eru Gunn laugi hugleikin og hann gagnrýnir bæjarstjórnina fyrir að hafa gert samninga við ríkið um móttöku á svo mörgum einstaklingum þegar innviðir bæjarins voru þegar undir miklu álagi.
Miðflokkurinn hefur farið mikinn í útlendingamálum. Hver er staðan hér í Reykjanesbæ?
„Við verðum að passa okkur á að rugla ekki saman harðduglegu vinnandi fólki af erlendum uppruna, sem við þurfum á að halda í ferðaþjónustunni, og svo hælisleitendadæminu. Innviðirnir okkar eru sprungnir. Ég er ekki sammála bæjarstjórninni um að hafa gert samninga við ríkið um móttöku á svo mörgum hælisleitendum. Þetta fór að hafa áhrif á öryggistilfinningu barna sem vildu sum ekki fara í strætó. Okkar stefna er skýr: við viljum ekki taka við einum einasta hælisleitanda næstu fjögur árin.
Við þurfum að láta ríkið vita að við getum ekki meira.“
Frekari sameining og Kadeco í Reykjanesbæ
Gunnlaugur er einlægur talsmaður þess að Suðurnesjabær og Vogar sameinist Reykjanesbæ sem fyrst og krefst þess einnig að hlutverk Kadeco verði endurskoðað.
Hvað segirðu um frekari sameiningu sveitarfélaga?
„Ég er rosalega hlynntur sameiningu. Sameining Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna tókst mjög vel. Mér finnst engin spurning að Suðurnesjabær og Vogar eigi að sameinast Reykjanesbæ sem fyrst. Við værum miklu sterkari saman, t.d. gagnvart ríkinu í vegaframkvæmdum. Ef við komumst í bæjarstjórn munum við leggja til strax að leitað verði eftir sameiningu. Þá vil ég skoða tilveru Kadeco.“
Hvað áttu við með því?
„Kadeco tók yfir eignir varnarliðsins en nú spyrjum við: er ekki kominn tími til að Kadeco verði bara partur af Reykjanesbæ? Af hverju þarf að vera þarna eitthvað ríki í ríkinu uppi á Ásbrú? Okkur finnst að bærinn eigi að stýra þessu svæði sjálfur. Við viljum fá umræðu um þetta og sjá tækifæri í því að Reykjanesbær taki við þessu.“
Nýjar áherslur fyrir eldri borgara Gunnlaugur vill sjá róttækar breytingar í málefnum eldri borgara og að samfélagið nýti krafta þessa hóps.
„Við viljum opna á að nota hvatagreiðslur eldri borgara í fleiri verkefni, t.d. andlegar eða líkamlegar meðferðir. Svo viljum við bjóða eftirlaunaþegum, s.s. kennurum, að
... Þetta fór t.d. að hafa áhrif á öryggistilfinningu barna sem vildu sum ekki fara í strætó. Okkar stefna er skýr: við viljum ekki taka við einum einasta hælisleitanda næstu fjögur árin. Við þurfum að láta ríkið vita að við getum ekki meira ...
koma inn í skólana og hjálpa til við lestur. Það vinnur gegn einmanaleika og manneklu. Við viljum að fólk geti verið heima hjá sér sem lengst en svo þurfum við að skoða hvort við getum byggt fleiri íbúðir eins og við Kirkjuveg í Keflavík, þar sem fólk hefur félagsskap hvert af öðru.“
Gunnlaugur segist að lokum klár í bæjarstjórastarfið ef kjósendur treysta honum: „Ég er bæjarstjóraefni Miðflokksins. Ég hef þekkingu, reynslu og brjálaðan áhuga á að gera vel og halda uppi krafti og gleði í bænum.“
Páll Ketilsson, ritstjóri ræddi við Gunnlaug.
Brennur fyrir málefnum bæjarins
„Ég hef brunnið fyrir málefnum bæjarins. Ég er fæddur og uppalinn hér, búinn að ala hér upp fjórar dætur og tekið þátt í öllum innviðum sveitarfélagsins. Mitt markmið er að þessi bær sé bærinn á Íslandi; staðurinn þar sem allir líta til og vilja vera og öfunda okkur. Mér fannst þetta ágætis tími, 49 ára gamall og búinn að fara í gegnum ýmislegt hér, og hugsanlega get ég bara komið og hjálpað til við að gera bæinn áfram góðan.“
Laga rekstur og fjölskylduvænt samfélag
„Okkar áherslur eru klárlega rekstur, yfirþyrmandi sprungnir innviðir sökum t.d. hælisleitenda, leik- og grunnskólar og sterkt atvinnulíf. Við viljum ræða stjórnsýsluna og svo íþrótta- og tómstundamál. Við viljum fjölskylduvænt samfélag og ábyrg fjármál. Þar sem við erum ný spyrjum
Hefur reynt á þolrifin
Hefur uppbygging skólamála haldið í við fjölgun íbúa?
„Þetta hefur reynt á þolrifin. Grunnskólar hér eru hannaðir sem 400 manna skólar en við höfum þurft að bæta við kálfum og stækka. Í InnriNjarðvík var sérbýli breytt í fjölbýli sem gerði það að verkum að Stapaskóli er nú með þrjá 60 manna bekki í röð, sem er of mikið. Varðandi leikskólana þá er agalegt að biðlistar hafi farið í 2,8 ár. Markmiðið verður að vera að 12 mánaða börn komist beint inn á leikskóla eftir fæðingarorlof. Ég spyr líka: Voru allir grunnskólar fullir? Hefðum við getað verið með eina stofu með fimm ára börnum í grunnskólunum til að hjálpa til í stað þess að láta biðlistana vaxa svona?
Fornleifar endurvaktar í Höfnum:
Merkilegt verkefni er í burðarliðnum í Höfnum á Reykjanesi þar sem fyrirhugað er að endurhlaða hrundna grjóthleðslu við Réttarveg í sumar. Framkvæmdin er hluti af verklegu grjóthleðslunámskeiði þar sem sögulegar minjar verða endurvaktar.
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar tók nýlega fyrir erindi frá Sveini Enok Jóhannssyni sem óskar eftir tímabundnum afnotum af bæjarlandi við Réttarveg. Þar er ráðgert að koma fyrir lítilli vinnuaðstöðu, kaffiskúr og salerni fyrir þátttakendur námskeiðsins, á meðan uppbygging verkefnisins Fornverk í Höfnum stendur yfir.
Gamlar minjar fá nýtt líf
Um er að ræða grjóthlaðna veggi gamallar réttar sem einnig var nýtt sem matjurtagarður á sínum tíma. Á loftmyndum frá árinu 1954 má
sjá að hleðslurnar voru þá uppistandandi en síðan þá hafa þær hrunið. Minjastofnun Íslands hefur lagt blessun sína yfir verkefnið og telur það góða leið til að varðveita þessar strandminjar. Námskeiðið verður undir handleiðslu Kristínar Kelddal skrúðgarðyrkjumeistara og munu þátttakendur læra hið forna handbragð grjóthleðslu við að reisa veggina á ný. Minjastofnun leggur áherslu á að hleðslan sé unnin undir handleiðslu reynds hleðslumeistara og að haft verði samráð við fornleifafræðing ef ráðast þarf í jarðrask.
Skipulag á vinnusvæðinu
Vinnuskúrinn sem um ræðir er lítill bárujárnsklæddur kaffiskúr sem verður staðsettur vestan vegarins, gegnt gömlu fjárréttunum. Staðsetningin þykir heppileg þar sem stutt er í skólpbrunn og nýlegar endurbætur á varnargarði á svæðinu hafa skapað grófjafnað plan sem nýta má sem bílastæði fyrir þátttakendur. Ráðið samþykkti tímabundin afnot af landinu í þrjú ár með fyrirvara um nágrannasamþykki. Þetta framtak þykir áhugaverð viðbót við menningarlíf og varðveislu sögunnar í Höfnum, þar sem sögulegt handbragð fær að njóta sín í verklegri kennslu.
... Við viljum halda áfram með faglega ráðinn bæjarstjóra, eins og hefur verið gert síðustu 12 ár með Kjartan Má. Kosturinn er sá að hann er bæjarstjóri allrar bæjarstjórnarinnar, ekki bara meirihlutans, og hann er óháður flokkapólitík. Þótt ég muni ekki skorast undan ...
Markvissari vinnu við að fjölga atvinnutækifærum
Arnar Páll Guðmundsson leiðir nýjan lista Viðreisnar í Reykjanesbæ. „Mætum með nýja sýn og ferska vinda.“
Arnar Páll Guðmundsson leiðir nýjan lista Viðreisnar í Reykjanesbæ í kosningunum í vor. Hann boðar ferska vinda í bæjarpólitíkina og leggur áherslu á að nýta meðbyr flokksins á landsvísu til að hafa áhrif á heimavelli. Hann vill sjá skilvirkari stjórnsýslu, aukna áherslu á velferðarmál og faglega ráðinn bæjarstjóra sem starfar þvert á flokka. Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur í húð og hár. Hann hefur verið ötull í starfi Viðreisnar frá stofnun flokksins og segist stoltur af því að leiða lista sem er skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn. „Meðalaldurinn á listanum er um 35 til 40 ár. Þetta er nýtt fólk sem vill láta til sín taka í samfélaginu og kemur með nýja sýn á hlutina,“ segir Arnar Páll.
Viðreisn og arfleifð Beinnar leiðar
Nú hefur Bein leið verið við stjórnvölinn í þrjú kjörtímabil. Er Viðreisn hreinlega framhald af því samstarfi eða er þetta nýr kafli?
„Nei, Bein leið rann ekki inn í framboðið okkar. Það var hugmynd árið 2022 að skoða sameiginlegt framboð en það gekk ekki eftir á þeim tímapunkti. Viðreisn hefur verið öflugur talsmaður fyrir frjálslyndi í samfélaginu og okkur fannst tími kominn á að flokkurinn færi fram undir eigin merkjum í Reykjanesbæ. Við erum opinn flokkur og bjóðum okkar eigin stefnu.“
Velferð og vaxtarverkir: „Lofum ekki því sem er ekki ábyrgt“
Arnar Páll ræðir mikið um þá gríðarlegu fólksfjölgun sem verið hefur í bænum, en sveitarfélagið hefur stækkað um 64% á rúmum áratug. Hann segir þennan öra vöxt hafa skapað mikla vaxtarverki, sérstaklega í leikskóla- og menntamálum.
Leikskólamálin hafa verið í brennidepli. Hver er ykkar áhersla þar, sérstaklega varðandi aldur barna við innritun?
„Við viljum að sjálfsögðu að leikskólapláss taki beint við af fæðingarorlofi, sem eru 12 mánuðir. En við viljum vera heiðarleg og ekki lofa einhverju sem er ekki ábyrgt. Staðan í dag er sú að 18 mánaða börn komast inn í haust. Við þurfum að vera með raunhæfa áætlun um hvernig við náum niður í 12 mánuði án þess að mönnunar-
vandi sligi kerfið. Við þurfum að fá alla að borðinu, efla starfsumhverfið og laða að leikskólakennara.“
Þið talið líka um að fækka nemendum í bekkjum í grunnskólum?
„Álagið á kennarana okkar er orðið rosalega mikið, stundum með allt að 30 börn í bekk. Með því að fækka í bekkjum bætum við námsárangur og vinnuaðstöðu. Já, það þýðir fleiri bekki og meiri kostnað, en við teljum að það megi mæta því með því að taka til í stjórnsýslunni
og forgangsraða fjármunum í þágu mannauðsins frekar en steypu.“
Fjölga atvinnutækifærum
Arnar Páll vill sjá markvissari vinnu við að fjölga atvinnutækifærum og minnka háð svæðisins við flugvöllinn. Hann leggur áherslu á svokallaðan „viðbragðsflýti stjórnsýslunnar“.
Hvernig getur bæjarfélagið stutt betur við nýsköpun og stærri verkefni frá fyrirtækjum eins og landeldi eða hóteluppbyggingu sem eru þegar á borðinu?
„Við höfum verið mjög háð flugvallarþjónustu sem er sveiflukennd. Landeldið og önnur nýsköpun skilar heilsársstörfum og hærra útsvari sem skiptir máli fyrir tekjur bæjarins. Við viljum byggja þetta upp með fyrirtækjunum, skoða fasteignaskatta og lóðaleigu og einfalda alla ferla. Í samtölum við atvinnurekendur heyrum við að viðbragðstími leyfisveitinga og
er peningar. Við viljum innleiða „eina snertingu“ innan stjórnsýslunnar til að gera ferlið skilvirkara og gera okkur samkeppnishæfari.“
Ábyrgari kostnaðaráætlanir
Varðandi rekstur bæjarins bendir Arnar Páll á að þótt tekjustreymið sé gott hafi Reykjanesbær nú þurft að fara í lántökur vegna mikilla framkvæmda. Hann vill sjá aukinn aga í kostnaðaráætlunum.
Hvað með skipulagsmál og lóðir? Á bæjarfélagið að stýra því hvað er byggt?
„Við viljum láta markaðinn ráða för að miklu leyti. Það eru t.d. lausar lóðir í Ásahverfi fyrir stærri einbýli sem hafa ekki farið, svo það er spurning hvar þörfin liggur. Við þurfum líka að horfa til fyrstu kaupenda og byggja litlar og meðalstórar íbúðir. Jafnframt viljum við gera gangskör í að auka búsetuúrræði fyrir fatlað fólk. Þetta er hópur sem hefur verið út undan
Sameining og stóra myndin Er sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum eitthvað sem Viðreisn styður?
„Já, alveg klárlega. Þetta er framtíðin. Sameinuð erum við miklu sterkari og Suðurnesin eru í raun eitt atvinnusvæði í dag. Við sjáum hvernig Suðurnesjabær hefur blómstrað eftir sameiningu og við eigum að horfa til svipaðra gilda. Reykjanesbær og Vogar eru t.d. nánast vaxin saman og það væri mikil hagræðing í því að reka þessi sveitarfélög sem eina heild.“
Faglegur bæjarstjóri og samstarf Arnar Páll segir Viðreisn geta unnið með öllum flokkum og leggur áherslu á að stefnumál ráði för frekar en flokkadrættir.
Þú segist vilja faglega ráðinn bæjarstjóra. Af hverju er það betra en pólitískur bæjarstjóri?
„Við viljum halda áfram með faglega ráðinn bæjarstjóra, eins og hefur verið gert síðustu 12 ár með Kjartan Má. Kosturinn er sá að hann er bæjarstjóri allrar bæjarstjórnarinnar, ekki bara meirihlutans, og hann er óháður flokkapólitík. Þótt ég muni ekki skorast undan ábyrgð ef til mín verður leitað, þá teljum við þetta farsælustu leiðina fyrir samfélagið.“
Hvernig er stemningin í hópnum nú þegar stutt er til kosninga?
„Stemningin er frábær. Við opnuðum kosningaskrifstofu okkar nýlega og finnum að fólk er áhugasamt um eitthvað nýtt. Þetta verður fjörugur og skemmtilegur tími fram að kosningum og við erum rosalega bjartsýn á að ná góðum árangri.“
Arnar Páll annar frá vinstri.
Páll Ketilsson, ritstjóri ræddi við Arnar Pál.
Langaði að taka þátt
Hver er Arnar Páll?
Fjórðung ævinnar í Viðreisn
Hvað kemur til að þú ákveður að skella þér í bæjarpólitík og hvernig stendur á því að þú endar sem oddviti Viðreisnar?
Rekstur Reykjaneshafnar í miklum blóma og skilar 89 milljóna
Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur, heimamaður. „Ég er búinn að vera hér alla mína tíð og hjartað mitt nátt úrulega slær með Reykjanesbæ og mannlífinu hér. Ég er búinn að sjá bæinn minn þróast í þennan tíma og þá langar manninn svolítið að stíga inn á völlinn núna og taka þátt. Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fagnar kröftugum ársreikningi Reykjaneshafnar fyrir árið 2025, en rekstrartekjur hafnarinnar námu 450 milljónum króna á árinu. Það er rúmlega 18% hækkun frá fyrra ári. Í bókun meirihlutans, sem Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) kynnti, kemur fram að höfnin sé á góðri leið með vaxandi tekjur og fjölmörg stór verkefni í pípunum sem munu styrkja stöðuna enn frekar á komandi misserum.
„Við náttúrulega erum búin að vera hérna með félag starfandi frá 2018. Ég er búinn að vera formaður Viðreisnar í Reykjanesbæ og formaður kjördæmisráðs flokksins. Svo bara þegar við fórum af stað núna í vor, þegar við ákváðum að breyta félaginu í Viðreisn á Suðurnesjum, komu áskoranir úr ýmsum áttum og ég ákvað að láta slag standa. Ég er búinn að vera í flokknum frá 2016 og ég er stundum að grínast með það að ég sé búinn að vera 25% ævi minnar í Viðreisn. Ég er bara mjög ánægður og stoltur af því að fá að leiða þennan góða lista sem við erum með. Við erum með framboðslista með nýju fólki og allir geta hoppað inn hvenær sem er. “
Ferskir vindar
Hvernig gekk að fá fólk til starfa og telja, til þess að taka sæti á listanum?
„Það gekk mjög vel. Samkvæmt skilaboðum frá uppstillingarnefndinni vildu fleiri taka þátt en komust fyrir á lista. Við finnum fyrir miklum meðbyr. Við erum með svona ferska vinda, við erum með fólk sem hefur ekki tekið þátt í pólitík áður. Við erum með mikla dreifni á okkar lista. Ég held að aldursdreifingin, eða meðalaldurinn á listanum, sé á milli 35 og 40 ára. Þetta er nýtt fólk sem vill láta til sín taka í samfélaginu. Það er margt búið að gera margt vel í Reykjanesbæ, en stundum þarf að endurskoða hlutina og koma með nýja sýn á ferska vinda sem við viljum gera.“
Hagnaður ársins nam 88,8 milljónum króna og rekstrarafgangur (EBITDA) var 182 milljónir. Helstu kennitölur bera vott um heilbrigðan rekstur en eiginfjárhlutfall hafnarinnar er nú 53,6% og eignir hennar metnar á 2,7 milljarða króna. Handbært fé frá rekstri hækkaði um tæp 20% milli ára sem gefur höfninni svigrúm til frekari uppbyggingar.
Umsvifamiklar framkvæmdir og nýir samningar
Árið 2025 einkenndist af miklum fjárfestingum sem námu alls 210 milljónum króna. Þar vógu dýpkunarframkvæmdir í Njarðvíkurhöfn þyngst en einnig var
króna
afgangi
boðin út uppbygging skjólvarnargarða þar sem Landhelgisgæslan mun hafa framtíðaraðstöðu. Meðal annarra stórverkefna sem meirihlutinn nefnir í bókun sinni eru:
Uppbygging í Helguvík: Undirritað var samkomulag við utanríkisráðuneytið um byggingu 25
Skemmtiferðaskip í Keflavík: Nýr samstarfssamningur við Nordic Port Group miðar að því að markaðssetja Keflavíkurhöfn sem áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Þrátt fyrir að almennur rekstrarkostnaður hafi hækkað um 46% á milli ára skýrist það að stórum hluta af auknum söluverðmætum á orku og vatni til viðskiptavina, auknum umsvifum vegna tíðari skipakoma og nauðsynlegu viðhaldi á mannvirkjum hafnarinnar. Meirihlutinn lýsir yfir mikilli ánægju með þróun mála og telur ljóst að Reykjaneshöfn sé mikilvægur hreyfiafl í atvinnulífi svæð
Vegagerðin leggst gegn auglýsingaskilti við Seylubraut
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur hafnað umsókn um byggingarleyfi fyrir nýju auglýsingaskilti við Seylubraut 1 í Reykjanesbæ. Ástæðan er neikvæð umsögn Vegagerðarinnar sem telur skiltið brjóta gegn umferðarlögum. Sótt hafði verið um leyfi til að setja upp skilti á suðausturenda lóðarinnar við Seylubraut 1, en það er húsnæðið sem áður hýsti starf-
semi Ramma og hafði síðustu ár verið nýtt sem geymsla fyrir muni Byggðasafns Reykjanesbæjar og slökkviliðsminjasafnsins. Samkvæmt teikningum átti skiltið að standa á horni lóðarinnar og vísa út að Reykjanesbraut. Fyrir fundi ráðsins lá umsögn frá Vegagerðinni þar sem fram kemur að stofnunin heimili ekki uppsetningu skiltisins. Er þar vísað
til 90. gr. umferðarlaga, en hún kveður meðal annars á um bann við því að setja upp merki eða skilti við vegi sem geta dregið að sér athygli ökumanna á þann hátt að það valdi hættu eða skert öryggi í umferðinni.
Með hliðsjón af afstöðu Vegagerðarinnar hafnaði umhverfis- og skipulagsráð erindinu á 387. fundi sínum.
Við óskum Hótel Keflavík
Eigendur Langbest buðu vinum og velunnurum í afmælisveislu á veitingastað sínum síðasta vetrardag. Veitingastaðurinn fagnar fertugsafmæli á árinu og í tilefni tímamótanna var ákveðið að bjóða upp á nýjan matseðil.
Hjónin Ingólfur Karlsson og Helena Guðjónsdóttir hafa síðustu þrjá áratugina staðið í brúnni og rekið staðinn af myndarbrag, oft í ólgusjó. Axel Jónsson, sem þá rak veitingahúsið Glóðina, opnaði Langbest árið 1986 en hann hóf rekstur Glóðarinnar 1983 og staðurinn var sá fyrsti á Suðurnesjum sem fékk vínveitingaleyfi. Ingó fékk nasaþefinn af veitingamennsku þegar hann fór í starfskynningu hjá honum 13 ára gamall við að smyrja samlokur. Gunnar Friðriksson keypti Langbest af stofnandanum og rak hann í tæpan áratug þegar Ingólfur og Helena tóku við keflinu. Langbesthjónin hafa því staðið í brúnni í rétt tæp þrjátíu ár sem eigendur. „Það er gaman að breyta einhverju á svona stórum tímamótum og nýr matseðill er stærsti þátturinn. Við fluttum á Aðaltorg fyrir þremur árum og sá flutningur gekk vel og við innréttuðum nýjan veitingastað sem fékk strax mjög góðar viðtökur á nýjum stað,“ sagði Ingólfur.
Fjölskylda, vinir og fleiri skáluðu fyrir þeim hjónum í veislunni en gestirnir fengu að smakka á nýjum réttum sem eru komnir á matseðilinn og fengu góðar móttökur. Hægt er að sjá þá á heimasíðu staðarins, langbest.is. Hér eru nokkrar myndir úr afmælispartýinu.
Stofnendur og eigendur Langbest saman komin í 40 ára afmælinu.
Langbest bauð í 40 ára afmæli
Ingólfur og Helena með fjölskyldunni.
BARÁTTUKVEÐJUR
TIL VERKAFÓLKS 1. MAÍ
BARÁTTUKVEÐJUR
TIL VERKAFÓLKS 1. MAÍ
REYKJANESBÆR
Jöfnuður er réttlæti!
Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu kveðjur!
Það er nóg til. Jöfnuður er réttlæti!
Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu kveðjur!
Ü bæjarmálin og umræðan eru á vf.is/adsent
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR nálgast óðfluga, en gengið verður að kjörborðinu þann 16. maí. Þetta er sá tími þar sem samfélagið á Suðurnesjum tekur virkan þátt í að móta framtíð sína til næstu fjögurra ára. Umræðan er þegar komin á fullt skrið og undanfarna daga hefur vefur Víkurfrétta, vf.is/adsent, iðað af lífi þar sem frambjóðendur úr öllum áttum hafa stigið fram. Ekki er pláss fyrir greinarnar í prentútgáfu blaðsins og því er fólk sem hefur áhuga á að kynna sér það sem frambjóðendur hafa að segja hvatt til að fara á vf.is og smella á liðinn „Aðsent“.
Lykillinn að andlegri heilsu ungmenna í Reykjanesbæ
sóknar í Reykjanesbæ, á að þótt rætt sé um áhrif skjátíma og samfélagsmiðla þurfi fókusinn að færast yfir í uppbyggingu áþreifanlegra úrræða.
Á síðustu árum hefur starfsemi á vegum Framsóknar eflt stuðningskerfi sveitarfélagsins til muna. Þórarinn nefnir fjölgun félagsmiðstöðva og stofnun úrræðisins Hlýjunnar sem dæmi um verkefni sem hafa gert ungmennum auðveldara að nálgast fagaðila í öruggu umhverfi. Þar
fá þau stuðning og skilning án þess að þurfa sjálf að leita svara í flóknu kerfi. Þórarinn leggur áherslu á að hefðbundin fræðsla og fyrirlestrar um skjátíma skili oft takmörkuðum árangri þar sem ungmenni þekki þessi vandamál þegar. Þess í stað þurfi að leggja aukna áherslu á:
Örugg rými: Félagsmiðstöðvar sem starfa sem forvörn en ekki bara afþreying.
Félagsauður: Myndun tengsla og trausts milli ungmenna og fullorðinna.
Félagsfærni: Efling sjálfsmyndar sem vörn gegn vanlíðan og ofbeldi.
„Við megum ekki stoppa hér,“ segir Þórarinn og áréttar að ábyrgð samfélagsins sé að halda áfram á þeirri braut að tryggja að hvert barn í Reykjanesbæ hafi aðgang að stuðningi og samfélagi sem eflir andlega heilsu þeirra til frambúðar.
Óhagkvæmur rekstur vatnsveitu bitnar á íbúum í Sandgerði
Vatnsveita Sandgerðis, sem er í eigu Suður nesjabæjar, glímir við rekstrarerfiðleika og skuldasöfnun sem leiðir til þess að íbúar í Sandgerði greiða mun hærra vatnsgjald en nágrannar þeirra í Garði. Sigursveinn Bjarni Jónsson, formaður bæjarráðs, segir núverandi stöðu óhagkvæma og kallar eftir lausnum til að jafna gjaldtöku milli byggðarlaganna. Ástæðan fyrir gjaldamuninum liggur í ólíku fyrirkomulagi: Í Garði: HS Veitur eiga og reka vatnsveituna. Vegna stærðarhagkvæmni og faglegrar þekkingar er gjaldskrá þeirra lægri.
Í Sandgerði: Bærinn á veituna og kaupir vatn af HS Veitum til endursölu. Gjaldið þar dugar varla fyrir rekstri, hvað þá nauðsynlegu viðhaldi.
Krefst
gerði nýtir aðeins lítill hluti þeirra 350 eldri borgara í bænum sér hefðbundið félagsstarf. Ásgeir hefur þungar
áhyggjur af félagslegri ein-
Kallað eftir úrbótum í Vogum
„Aðgengi eru ekki forréttindi – þau eru grunnþörf,“ segir Jó hanna Brynja Ólafs dóttir, frambjóðandi XA í Sveitarfélaginu Vogum, í nýrri grein. Hún telur brýnt að bærinn ráðist í mark vissar úrbætur til að tryggja að náttúruperlur og almennings svæði séu opin öllum, óháð hreyfigetu.
Jóhanna bendir á að mörg vinsæl svæði í Vogum séu í dag nánast óaðgengileg þeim sem nota stoðtæki eða eiga erfitt um gang. Hún nefnir tvö skýr dæmi: Fjaran: Hún sé falleg en torfær. Jóhanna leggur til að settir verði upp rampar svo allir geti notið samvista við sjóinn.
Hundagerðið: Göngustígurinn að svæðinu sé það erfiður yfirferðar að hann útiloki hluta íbúa frá því að nýta aðstöðuna.
Auk líkamlegs aðgengis gagnrýnir Jóhanna skipulag ferða þjónustu fatlaðra. Hún bendir á að þjónustan sé oft of takmörkuð við ákveðin svæði, svo sem Reykjanesbæ. Þetta skapi mikla erfiðleika þegar íbúar þurfa að sækja sér fræðiþjónustu til Reykjavíkur,
Að mati Jóhönnu snýst þetta um meira en bara rampa; þetta snýst um fulla þátttöku í sam félaginu. Hún leggur áherslu á að aðgengismál eigi að vera hluti af skipulagsferlinu frá upphafi en ekki eftiráskýring.
Milljónir taldar hafa runnið til fólks erlendis
„Ef við ætlum að byggja samfélag fyrir alla þá verðum við að tryggja aðgengi fólks,“ segir hún og kallar eftir meira jafnræði og sanngirni í Vogum.
Reykjanesbær á að vera miðstöð menningar
Reykjanesbær á að vera meira en bara sveitarfélag í ná grenni höfuðborgar innar; hann á að vera blómstrandi menn ingarbær sem íbúar eru stoltir af. Þetta er skoðun Brynju Ýrar Júlíusdóttur, frambjóðanda Viðreisnar, sem hvetur til þess að tónlistararfleifð bæjarins og vörumerkið „Bítlabærinn“ séu nýtt sem drifkraftur fyrir framtíðina.
Að sögn Sigursveins getur munað tugum þúsunda króna á ári á vatnsgjaldi sambærilegra eigna í Garði og Sandgerði. Samkvæmt lögum verður vatnsgjaldið að standa undir rekstri og fjárfestingum hvers kerfis fyrir sig, sem kemur niður á
Meirihluti bæjarstjórnar hefur kannað möguleikann á því að HS Veitur taki við rekstri og eignarhaldi vatnsveitunnar í Sandgerði. Með slíkum samruna myndi Suðurnesjabær auka hlut sinn í HS Veitum (sem er nú 0,1%) gegn því að fagaðilar tækju við kerfinu. Sigursveinn tekur fram að þessi vinna sé enn á könnunarstigi og verðmat liggi ekki fyrir, en markmiðið sé skýrt: Að tryggja íbúum hagkvæmara og réttlátara kerfi til framtíðar.
angrun og andlegri heilsu
þeirra sem út undan verða. Vogar er eitt fárra sveitarfélaga sem enn hefur ekki sett á laggirnar öldungaráð, þrátt fyrir lagaákvæði þess efnis. A-listinn krefst þess að ráðið verði stofnað strax í haust til að tryggja formlegan samráðsvettvang.
Tillaga A-listans er að ráðið verði skipað fulltrúum frá:
• Sveitarfélaginu
• Félagi eldri borgara
• Heilsugæslunni
Markmiðið er að tryggja fjölbreytta þjónustu, virðingu og öryggi fyrir alla eldri íbúa og tryggja að enginn verði skilinn út undan á efri árum.
Brynja bendir á að nálægðin við Reykjavík sé ákveðin áskorun. Margir sæki menningu og afþreyingu til höfuðborgarinnar vegna þess að framboðið þar sé sýnilegra. Til að sporna við þessu þurfi að efla menningarlíf í heimabyggð markvisst.
Hún leggur áherslu á að málið snúist ekki eingöngu um að halda staka stórviðburði, heldur að skapa:
Vettvang fyrir listafólk: Stað þar sem skapandi fólk fær tækifæri til að vaxa og dafna. Aðkomu ungmenna: Að börn og unglingar fái rými til að njóta og taka þátt í menningarsköpun. Sjálfsmynd og stolt: Að menningin verði samofin ímynd bæjarins. Að mati Brynju er öflugt menningarlíf grunnur að sterku samfélagi. Með því að efla menningu í „Bítlabænum“ eykst aðdráttarafl svæðisins bæði fyrir íbúa og gesti. Menning á ekki að vera útflutningsvara eða eitthvað sem sótt er annað, heldur á hún að vera hluti af daglegu lífi í Reykjanesbæ. Brynja segir tækifærin liggja í þeim ríka mannauði og sögu sem bærinn býr yfir og hvetur til þess að menningarlífið verði gert sýnilegra og aðgengilegra öllum íbúum.
Egill Rúnar kallar eftir jákvæðni og hugrekki
„Mig langar til þess að leggja mitt af mörkum í þágu samfélagsins sem ég bý í,“ segir Egill Rúnar Sigurðsson, ökukennari og stjórn málafræðingur, sem skipar 3. sæti S-lista
Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ. Egill, sem er nýr á vettvangi sveitar stjórnarmála, kveðst vilja nýta krafta sína til að efla sveitarfélagið og bæta pólitíska menningu þess.
Egill leggur áherslu á að gott samfélag byggist bæði á skilvirkum grunninnviðum og öflugu velferðarkerfi. Hann nefnir að: Grunnþjónusta: Sorphirða og snjómokstur þurfa að vera í lagi.
Velferð: Hlúa þarf vel að börnum og eldri borgurum og tryggja öflugan stuðning við skólastarf.
Uppbygging: Fjölga þarf lóðum og hvetja til atvinnusköpunar svo Suðurnesjabær verði eftirsóknarverðari búsetukostur.
Eftir að hafa búið í Garðinum síðastliðin fjögur ár segist Egill hafa orðið var við óþarfa
ágreining sem einkennt hefur sveitarfélagið. Hann segist eiga erfitt með að staðsetja sig í þeim skotgröfum og vill í staðinn innleiða nýja
„Mér finnst fólk stundum hlaupa á sig að ástæðulausu. Ég vil meiri jákvæðni og hugrekki til ákvörðunartöku,“ segir Egill í grein sinni. Sem menntaður stjórnmálafræðingur og sannfærður jafnaðarmaður telur Egill að lykillinn að góðu samfélagi sé að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum. Hann telur mikilvægt að nýta krafta markaðarins til að gera fólki auðveldara að stofna fyrirtæki og byggja upp framtíð, en samhliða þurfi öflugt öryggisnet sem grípur þá sem á þurfa að halda. Egill skorar á íbúa að sýna S-listanum traust í kosningunum 16. maí og heitir því að vera öflugur liðsfélagi í þeirri vegferð að gera Suðurnesjabæ að fjölbreyttara og betra samfélagi.
Mikil lækkun á útgjöldum
stoðar á milli áranna 2023 og 2025 hefur
Sveinn Ívarsson, frambjóðandi grein að verulegir fjármunir hafi áður runnið til einstaklinga sem dvöldu erlendis, í boði útsvarsgreiðenda í Reykjanesbæ. Heildarkostnaður vegna fjárhagsaðstoðar fór úr 564 milljónum króna árið 2023 niður í 224 milljónir árið 2025. Brynjólfur bendir á að áður hafi vantað skýr ákvæði í reglur bæjarins um að umsækjendur þyrftu að dvelja hér á landi eða mæta í viðtöl til að sanna á sér deili.
Í greininni vísar hann í úrskurð velferðarnefndar þar sem bærinn var gerður afturreka með kröfur um að fólk mætti á „kontórinn“, einfaldlega vegna þess að reglur sveitarfélagsins kváðu ekki á um slíkt á þeim tíma.
Það var ekki fyrr en í lok árs 2025 sem nýjar reglur voru settar sem gerðu kröfu um búsetu hér á landi. Brynjólfur telur nærtækt að álykta að 340 milljóna króna sparnaður skýrist að miklu leyti af því að lokað hafi verið á greiðslur til „óprúttinna aðila“ erlendis. Helstu gagnrýnispunktar Miðflokksins: Tómlæti: Seint hafi verið brugðist við augljósum annmörkum á reglum.
Fjárhagslegt tjón: Skortur á eftirliti hafi bitnað harkalega á fjárhag bæjarins.
Gagnsæi: Skorað er á meirihlutann að leggja spilin á borðið og upplýsa um umfang þessara greiðslna.
Brynjólfur segir það ólíðandi að sveitarfélagið hafi um árabil rekið „velferðarkerfi í útlöndum“ og krefst svara um hvers vegna ekki var gripið fyrr í taumana.
Miðflokkurinn vill ný vinnubrögð í Suðurnesjabæ
Í opnu bréfi leggur Miðflokkurinn til að kjörnir fulltrúar í Suðurnesjabæ leggi hefðbundna skiptingu meirihluta og minnihluta til hliðar. Flokkurinn kallar eftir því að hætt verði að vinna í skotgröfum og að samvinna íbúum til heilla verði látin ganga framar pólitískri blokkamyndun. Miðflokkurinn telur að flestir séu sammála um grunnmarkmiðin: góða þjónustu, fjármálalega skynsemi og virkt samfélag. Fjölbreytt sjónarmið eigi að nýta til að styrkja ákvarðanir fremur en að valda sundrungu. Eftir kosningar hvetur flokkurinn alla fulltrúa til að setjast niður og kanna hvort grundvöllur sé fyrir nýju mynstri þar sem hagsmunir íbúa eru alltaf í fyrirrúmi.
BARÁTTUKVEÐJUR
TIL VERKAFÓLKS 1. MAÍ
BARÁTTUKVEÐJUR
TIL VERKAFÓLKS 1. MAÍ
Gleðilega hátíð!
REYKJANESBÆR
vinalegur bær
Óskum starfsfólki okkar og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Það er nóg til. Jöfnuður er réttlæti!
Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu kveðjur!
Það er nóg til. Jöfnuður er réttlæti!
Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu kveðjur!
MELEYRI
Ü bæjarmálin og umræðan eru á vf.is/adsent
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR nálgast óðfluga, en gengið verður að kjörborðinu þann 16. maí. Þetta er sá tími þar sem samfélagið á Suðurnesjum tekur virkan þátt í að móta framtíð sína til næstu fjögurra ára. Umræðan er þegar komin á fullt skrið og undanfarna daga hefur vefur Víkurfrétta, vf.is/adsent, iðað af lífi þar sem frambjóðendur úr öllum áttum hafa stigið fram. Ekki er pláss fyrir greinarnar í prentútgáfu blaðsins og því er fólk sem hefur áhuga á að kynna sér það sem frambjóðendur hafa að segja hvatt til að fara á vf.is og smella á liðinn „Aðsent“.
Metfjölgun leikskólaplássa í Reykjanesbæ
Íbúafjöldi Reykja nesbæjar hefur vaxið um tæp 18% frá árinu 2022 og eru íbúar nú orðnir um 24.500. Til að mæta þessari hröðu þróun hefur verið ráðist í umfangsmikla uppbyggingu innviða.
Sighvatur Jónsson, varafor maður menntaráðs og fram bjóðandi Framsóknar, segir að á yfirstandandi kjörtímabili hafi leikskólaplássum í bænum fjölgað um samtals 216.
Sighvatur nefnir fjögur lykilverkefni sem hafa gjörbreytt stöðunni í leikskólamálum á síðustu fjórum árum:
Leikskólinn Holt: Stækkaður um tvær deildir árið 2022, sem bætti við 36 plássum.
Tjarnarlundur: Ný deild verður opnuð árið 2024 í hinu sögufræga húsnæði Gamla barnaskólans með 25 nýjum plássum.
Drekadalur í Innri-Njarðvík: Nýr leikskóli sem hóf starfsemi í bráðabirgðahúsnæði en flutti í nýtt glæsilegt húsnæði sem var vígt í febrúar 2026. Þar verða plássin orðin 120 næsta haust.
Asparlaut í Hlíðarhverfi: Opnuð í mars 2025. Hún leysir Gamla Garðasel af hólmi og stækkar rýmið um 35 pláss, auk þess sem aðstaða batnar til muna. Uppbyggingin hefur ekki verið án áskorana, en Sighvatur nefnir að bærinn
kvæmdir við Drekadal vegna vanefnda verktaka til að tryggja framgang málsins. Hann minnist þess einnig að eldra húsnæði Garðasels hafi upphaflega verið gjöf frá Svíþjóð til Keflavíkur eftir
Heimaeyjargosið 1973, en nú sé tími kominn á nýja og nútímalegri aðstöðu. Sighvatur leggur áherslu á að þessari vinnu sé hvergi nærri lokið. Markmið Framsóknar sé að gera Reykjanesbæ að besta staðnum til að ala upp börn og því verði áfram haldið í markvissa uppbyggingu leikskólakerfisins á næsta kjörtímabili.
„Það er nauðsynlegt að ábyrg stjórn sveitarfélagsins haldi í við hraða fjölgun íbúa varðandi innviði og þjónustu,“ segir Sighvatur að lokum.
Menntun sem grunnur
að framtíðinni
„Menntun er ein mikil vægasta fjárfesting sem samfélag getur gert,“ segir Ásta Kristín Guð mundsdóttir, kennari og frambjóðandi Við reisnar í Reykjanesbæ. Í grein sinni leggur hún þunga áherslu á að skólakerfið þurfi að þróast í takti við ört vaxandi og fjöl breyttara samfélag til að tryggja að hvert barn fái tækifæri til að blómstra. Reykjanesbær stækkar hratt og skólar bæjarins endurspegla þann fjölbreytileika sem því fylgir. Ásta Kristín telur slagorð bæjarins, „í krafti fjölbreytileikans“, eiga að vera leiðarljós í skólastarfi. Hún bendir á að börn með ólíkan bakgrunn og tungumál þurfi skýra sýn og sterkt stuðningsnet til að ná árangri.
Eitt af aðaláherslumálum Ástu er að nýta betur lög um farsæld barna til að bæta þjónustu. Hún telur að samfélagið þurfi að:
Efla stoðþjónustu:
Tryggja að fagfólk sé til staðar innan skólanna.
Auka samstarf: Brúa bilið milli skóla, félags þjónustu og heilbrigðis
Grípa börn fyrr: Vinna forvarnarstarf og grípa inn í áður en vandamál verða að
„Enginn á að detta á milli kerfa,“ segir Ásta og undirstrikar mikilvægi þess að vellíðan barna sé alltaf í forgrunni. Sem kennari þekkir Ásta vel það álag sem hvílir á starfs fólki skóla. Hún leggur áherslu á að skapa þurfi vinnuumhverfi þar sem kennarar hafa tíma og svigrúm til að sinna hverjum og einum nemanda. Sterkt starfsfólk sé forsenda fyrir sterkum skólum.
Uppbygging Akademíureits byggð á staðreyndum en ekki flýti
Oddvitar meirihlutans í Reykjanesbæ, þær Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Helga María Finnbjörnsdóttir, hafa sent frá sér yfirlýsingu til að leiðrétta það sem þær kalla ýkjur og ósannindi varðandi uppbyggingu á Akademíureitnum. Þær leggja áherslu á að verkefnið sé afrakstur tveggja ára vinnu en ekki flýtiákvörðun fyrir kosningar.
Í greininni benda oddvitarnir á að fullyrðingar um 200 íbúðir á svæðinu eigi ekki við rök að styðjast. Hið rétta sé að gert er ráð fyrir 120–150 íbúðum með hóflegu nýtingarhlutfalli upp á 0,6.
Áhersla: Litlar og meðalstórar íbúðir sem henta ungu fólki og pörum.
Útlit: Fjölbreytt byggð, mishá hús og mikið lagt í lita- og efnisval.
Bílastæði: Gert er ráð fyrir bílakjallara og mögulegu bílastæðahúsi, en útfærslan verður endanlega ákveðin í deiliskipulagi.
Meirihlutinn hafnar því að verið sé að þrengja að íþróttastarfi. Þvert á móti er verið að byggja upp „hjarta íþróttanna“ við Afreksbraut, vestan við Reykjaneshöll. Þar hefur bæjarráð þegar samþykkt fyrsta fasa sem inniheldur:
• Nýtt fimleikahús.
• Fimm æfingavellir fyrir knattspyrnu. Samhliða þessu er lagt til að hámarkshraði í hverfinu verði lækkaður til að tryggja öryggi þeirra fjölmörgu barna sem iðka íþróttir á svæðinu daglega. Oddvitarnir gagnrýna málflutning þingmanns kjördæmisins og telja það ámælisvert að treysta ekki kjörinni bæjarstjórn til að leiða verkefni til lykta. Þær ítreka að ferlið hafi verið opið; íbúafundir hafi verið haldnir og verkefnið kynnt reglulega í bæjarráði og á vef sveitarfélagsins.
„Við skulum tala um staðreyndir, ekki bara það sem hentar hverju sinni,“ segja oddvitarnir að lokum og hvetja íbúa til að kynna sér hinar raunverulegu teikningar og áætlanir sem nú liggja fyrir.
Vill fresta ákvörðun um Akademíureitinn
að keyra í gegn á lokametrum kjörtímabilsins og vill að málið verði lagt í dóm kjósenda í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Að mati Ástu er fjárfesting í menntun fjárfesting í framtíð Reykjanesbæjar. Með því að gera góða skóla enn betri og tryggja farsæld nemenda megi tryggja að samfélagið allt blómstri til lengri tíma litið.
Vilhjálmur lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri framtíðarsýn sem kynnt hefur verið fyrir reitinn, sem liggur á milli Krossmóa og Reykjaneshallarinnar. Hann telur að með því að reisa þar á annað hundrað íbúðir í fjölbýli sé verið að fórna einu verðmætasta svæði bæjarins.
Helstu athugasemdir Sjálfstæðisflokksins: Samgöngur: Teikningar sýni hvorki raunhæf bílastæði né gott umferðarflæði; þrengt sé að götum eða þeim lokað.
Einsleitni: Vilhjálmur segir meirihlutann virðast halda að bæjarbúar vilji nær eingöngu búa í fjölbýli. „Við búum í Reykjanesbæ en ekki Reykjavík,“ segir hann og kallar eftir fjölbreyttari byggð. Landnotkun: Í stað íbúða telur hann að reiturinn ætti að nýtast undir íþróttir, menningu og þjónustu í hjarta bæjarins.
Oddvitinn telur að vitneskja bæjarbúa um þessi áform sé ekki nægilega almenn. Hann telur það beinlínis ólýðræðislegt að festa skipulag á jafn mikilvægu svæði rétt fyrir kosningar án þess að íbúar fái að taka um það upplýsta afstöðu á kjördag.
„Þetta er reitur til að hafa skýra framtíðarsýn á til að byggja upp
enn betri bæ,“ segir Vilhjálmur og ítrekar að sanngjarnt sé að gefa ferlinu meiri tíma. Hann segir boltann nú vera hjá meirihlutanum; hvort hann velji að þvinga ákvörðuninni í gegn eða leyfa íbúalýðræðinu að njóta sín.
Við óskum Bílbót innilega til hamingju með 40 árin!
kemi ehf | Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík | 415 4000 | kemi@kemi.is | kemi.is
Arnar Páll Guðmundsson og Gunnlaugur Kárason eru í Oddvitasætinu í Sjónvarpi Víkurfrétta í þessari viku
Oddvitasætin með Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni eru á vf.is
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
Nýtt fimleikahús og fimm knattspyrnuvellir á Afreksbraut
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur gefið grænt ljós á metnaðarfullar áætlanir um uppbyggingu íþróttamannvirkja á svokallaðri Afreksbraut. Um er að ræða nýtt fimleikahús og verulega fjölgun æfingavalla fyrir knattspyrnudeildir bæjarins, en verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við Keflavík og Njarðvík. Á 1561. fundi bæjarráðs í síðustu viku var tillaga stýrihóps um uppbyggingu á svæðinu lögð fram og samþykkt samhljóða. Í ákvörðun
Skipulag
ráðsins felst að undirbúningur hefjist formlega við byggingu á nýju fimleikahúsi með tilheyrandi stoðrýmum. Þá er gert ráð fyrir að samtals fimm nýir æfingavellir rísi á svæðinu sem munu þjóna knattspyrnudeildum Keflavíkur og UMFN. Ein af lykilforsendum verkefnisins er áframhaldandi gott samstarf við íþróttahreyfinguna. Samkvæmt bókun bæjarráðs verður endanleg staðsetning vallanna ákveðin í nánu samráði við félögin
í Reykjanesbæ
Deiliskipulag Suðurbraut
Bæjarstjórn samþykkti á fundi þann 7. apríl að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr 123/2010. Af2 arkitektar fh Stofnhús leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir
Suðurbrautarreit, 3,3ha reitur kenndur við Suðurbraut 765. Á reit er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á 3-5 hæðum með allt að 270 íbúðum af fjölbreyttri gerð. Sérstakir byggingarreitir eru ætlaðir sérstakri notkun annarri en fyrir íbúðir, t.d. samkomuhús, garðskála o.fl. Umsagnir berist í Skipulagsgátt mál nr.379/2025 en umsagnarfrestur er til og með 30. maí 2026. Fyrirspurnir berist á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is en nánari gögn eru í skipulagsgátt HMS og á heimasíðu Reykjanesbæjar
Breyting á aðalskipulagi svæði M3
Bæjarstjórn samþykkti á fundi þann 7. apríl að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr 123/2010. skipulagslýsing og vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir reit M3. Breytingin felst í að íbúðum er fjölgað úr 100 í 220 og byggingarmagn fer úr 50.300 m2 í 62.400 m2. Umsagnir berist í Skipulagsgátt mál nr. 407/2026 en umsagnarfrestur er til og með 6. maí 2026. Fyrirspurnir berist á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is en nánari gögn eru í skipulagsgátt HMS og á heimasíðu Reykjanesbæjar.
reykjanesbaer.is
tvö. Innan íþróttahreyfingarinnar er mikill hugur í fólki og þrýst á að framkvæmdir hefjist sem fyrst, enda þörfin á bættri aðstöðu sýnileg.
Hagkvæmni og ábyrgð í fyrirrúmi
Þótt viljinn til að hefjast handa sé mikill leggur bæjarráð áherslu á að farið sé fram með ábyrgum hætti. Framgangur og tímasetning verkefnisins mun taka mið af þeim tekjuöflunarþáttum sem áætlunin hvílir á til að tryggja sem hagkvæmasta nýtingu á fjármunum bæjarbúa.
Verkefnið hefur nú verið fært í hendur stjórnar eignasjóðs. Næstu skref eru fullnaðarhönnun og gerð nákvæmrar kostnaðaráætlunar. Þá er þess gætt að framkvæmdin fái sinn stað í langtímaáætlunum
fjárfestingaráætlunar fyrir árin 2027–2032. Bæjarráð segist fagna því að vinna við fimleikahúsið og æf-
Heilbrigðiseftirlitslaus fiskvinnsla
Við Brekkustíg 22 í Njarðvík starfar fiskvinnslan Premium of Iceland og hefur gert um nokkurra ára skeið. Umgengni í og við húsið hefur lengi verið ábótavant og oft á tíðum til verulegrar óprýði fyrir nærumhverfið. Í vindasömum veðrum hefur borið á því að umbúðir og annað rusl fjúki frá svæðinu, dreifist um hverfið og endi gjarnan í görðum nágranna, jafnvel langt frá upprunastað eftir styrk og átt vinds. Þá hefur ítrekað orðið vart við leka á fiskblönduðu vatni frá húsinu og út á götu, sem hefur í för með sér óþef og laðar að fugla, einkum máva, auk annarra meindýra sem setjast þar að.
Undirritaður, ásamt fleiri íbúum að því er best er vitað, hefur ítrekað sent kvartanir til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja á undanförnum árum, án þess að svör bærust fyrr en nýverið. Samkvæmt upplýsingum frá Ásmundi Þorkelssyni framkvæmdastjóra HES kom þá fram að umrædd starfsemi væri ekki með, og hefði aldrei haft, starfsleyfi frá eftirlitinu.
Þegar óskað var eftir frekari skýringum á málinu kom fram að það væri „langt og flókið“ af hálfu eftirlitsins, án þess að nánari útskýringar fengjust. Þetta vekur sérstaka athygli í ljósi þess að samkvæmt HES sjálfu er „starfsemin skráningarskyld í samræmi við reglugerð nr. 830/2022“.
Af framangreindu verður ekki annað ráðið en að eftirlitið hafi brugðist hlutverki sínu. Þá hefur þeirri beiðni verið hafnað að starfsemi fyrirtækisins verði stöðvuð tímabundið þar til tilskilin leyfi liggja fyrir og umgengni hefur verið bætt þannig að hún standist eðlilegar kröfur. Slík staða er óásættanleg og ætti ekki að bitna á nágrönnum með þessum hætti. Að mati undirritaðs er þetta áfellisdómur á Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og ber vott um alvarlegt aðgerðarleysi af hálfu stjórnenda þess.
Ólafur Gunnarsson Höfundur er íbúi við Brekkustíg í Njarðvík
Við þökkum fyrir rausnarlegt og farsælt samstarf á liðnum árum, þar sem metnaður, gæði og einstök upplifun hafa ávallt verið í fyrirrúmi. Við hlökkum til að halda áfram uppbyggingu sameiginlegra viðburða, ekki síst KEF hjóna- og paramótsins í júní, þar sem golfið í Leirunni og gestrisni Hótels Keflavíkur mætast með glæsilegum hætti.
Bestu kveðjur, Golfklúbbur Suðurnesja
skrið og ítrekar mikilvægi þess að standa vörð um öflugt íþróttastarf í Reykjanesbæ með bættri aðstöðu til framtíðar.
„Mér fannst við hreinlega eiga skilið að vinna þennan leik,“ segir Gylfi Tryggvason, þjálfari sameinaðs liðs Grindavíkur og Njarðvíkur, eftir svekkjandi en afar lofandi frumraun liðsins í Bestu deildinni gegn Val á laugardag. Þrátt fyrir 2–1 tap á Hlíðarenda geislaði Gylfi af stolti yfir frammistöðu sinna kvenna.
Nýliðarnir byrjuðu leikinn af krafti, þótt Gylfi viðurkenni að það hafi tekið örfáar mínútur að hrista af sér mesta hitann.
„Við þurftum aðeins að vinna okkur inn í leikinn fyrstu tíu mín úturnar, en eftir það fannst mér við ná stjórn. Við héldum þeirri stjórn í 80 mínútur. Það eina sem vantaði í dag voru úrslitin, en frammi staðan var frábær. Liðið sýndi svo um munaði að við eigum klárlega
sem er í boði. Það hjálpar allt þegar maður stýrir liði á þessu stigi.“
Stuðningurinn ómetanlegur
Þrátt fyrir að leikið hafi verið á útivelli í Reykjavík fann Gylfi vel fyrir stuðningnum úr stúkunni. Hann hlakkar nú til að fá liðið „heim“ á grasið í Njarðvík í næstu umferð. „Það var ómetanlegt að heyra stuðninginn í dag, fólkið var eins og aukaleikmaður með okkur. Núna tekur bara við næsta viðureign gegn Þór/KA. Þær koma í heimsókn á græna grasið í Njarðvík og við hlökkum mikið til að taka á
„Við
sýndum að við eigum heima hérna“
„Mér líst mjög vel á hópinn; hann er sterkur og gæðin eru mikil,“ segir Sigríður Emma F. Jónsdóttir, fyrirliði Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir frumraun liðsins í Bestu deildinni á laugardag. Þrátt fyrir naumt tap gegn Val á Hlíðarenda er sjálfstraustið mikið í herbúðum nýliðanna.
Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur mætti til leiks gegn
Val með það markmið að sýna að þær ættu fullt erindi í efstu deild. Sigríður Emma segir að þrátt fyrir svekkjandi 2:1-tap hafi leikurinn gefið þeim dýrmæta staðfestingu.
Vildu öll þrjú stigin
„Við vorum ákveðnar, héldum trú á okkur allan tímann og hættum ekki að berjast,“ sagði Sigríður í samtali við Víkurfréttir eftir leik. Hún segir liðið alls ekki hafa verið lakara en mótherjinn í leiknum.
„Við vorum bara mjög sterkar og flottar. Ég hefði í raun viljað fá öll þrjú stigin út úr þessu og við áttum alveg séns í það. Þetta voru bara klaufamörk hjá okkur sem kostuðu,“ segir Sigríður, en hún var jafnframt ómyrk í máli vegna rauðs spjalds sem liðið fékk undir lok leiks og taldi þann dóm ómaklegan.
Hópurinn hefur vaxið mikið í vetur
Undirbúningstímabilið hjá nýliðunum hefur verið markvisst og segir Sigríður að stígandinn í liðinu sé augljós þegar flautað er til leiks á Íslandsmótinu.
„Undirbúningurinn er búinn að vera mjög fínn. Við erum búnar að vaxa mikið sem lið og mér líst ótrúlega vel á sumarið. Við sáum það bara í þessum fyrsta leik; við getum alveg átt heima í þessari deild.“
Sigríður segir að liðið taki mikið
leiknum sem þær muni byggja ofan á í næstu umferðum. „Við tökum kraftinn úr þessum leik og komum með hann inn í næsta verkefni.“
„Hópur með mikil gæði“
Aðspurð um leikmannahópinn sem Suðurnesjaliðið teflir fram í sumar segist fyrirliðinn vera mjög bjartsýn. Samstarf félaganna hafi búið til breidd og gæði sem eigi eftir að nýtast vel í baráttunni sem fram undan er.
„Þetta er flottur hópur, sterkur og það eru mikil gæði í þessum stelpum. Við erum klárar í þetta
Mæta Val öðru sinni, nú í bikarnum
Dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ á þriðjudag og ljóst er að sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur stendur frammi fyrir einu stærsta verkefni sumarsins. Lukkan var ekki beint með liðinu í drættinum hvað varðar styrkleika andstæðingsins, því stelpurnar okkar drógust gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Vals á útivelli.
Þetta verður í annað sinn á stuttum tíma sem liðin mætast, en bikarkeppnin hefur þann einstaka eiginleika að þar getur allt gerst. Þrátt fyrir að Valur sé skipað mörgum af sterkustu
leikmönnum landsins, fer lið Grindavíkur/ Njarðvíkur óhrætt til leiks með það markmið að valda usla á Hlíðarenda og tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum. Leikirnir í 16-liða úrslitunum verða háðir föstudaginn 15. maí og laugardaginn 16. maí næstkomandi. Nákvæmur leiktími verður auglýstur um leið og niðurröðun liggur fyrir. Stelpurnar leika fyrsta heimaleikinn í Bestudeildinni gegn ÞÓR/KA á fimmtudag á grasvellinum í Njarðvík kl. 17.30. Af öðrum leikjum í 16 liða úrslitum má nefna að Keflavík tekur á móti Víkingi.
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Sigríður Emma F. Jónsdóttir, fyrirliði Grindavíkur/Njarðvíkur.
Natasha Anasi er gengin til liðs við Grindavík/Njarðvík.
Gylfi Tryggvason, þjálfari.
Byrjunarlið Grindavíkur/Njarðvíkur í fyrsta leiknum gegn Val um nýliðna helgi. VF/myndir: Hilmar Bragi
Hrútabókin
Gilda 30. apríl - 10. maí
Max dós
Klassískur krydd kjúklingur
Heill ferskur 16% afsláttur
Ég hef átt það til í gegnum tíðina að koma mér í alls konar vandræði með alls konar spurningum um hluti sem ég hef ekki vitað neitt um. Sum þessara vandræða hafa verið mér gagnleg og opnað sýn mína á lífið í kringum mig. Ísland er ekki stórt, bara nokkrir kílómetrar á milli helstu þéttbýlisstaða, en auðvitað er hægt að lengja leiðina með alls konar útúrdúrum um sveitir landsins. Það er þar sem maður getur lent í vandræðum fari menn að spyrja spurninga um alls konar sem maður skilur ekki. Þar er „lingóið“ annað og takturinn markvissari. Þar snýst lífið um líðandi stund og það sem skiptir máli. Því lenti ég í nýverið. Við hjónin höfðum sem sagt valið að fara ekki stystu leiðina á milli þéttbýlisstaða og ferðast eftir sveitavegum, svipað og í Kópavogi forðum, en það var erfitt að finna leiðina til baka svo við ákváðum að setjast að í sveitinni þar sem við vorum stödd. Slíkt kallar á mannfagnaði og allt í einu vorum við stödd í einum slíkum. Við sátum til borðs með stórbændum sem höfðu gerólíka sýn á lífið og vandamál dagsins. Þeir töluðu um Hrútabókina og steinhleðslur. Magnaðir leiðarar um vandamál heimsins mega sín lítils þegar umræða um Hrútabókina á sér stað. Þar erum við að tala um matvælaöryggi og íslensku sauðkindina sem hefur staðið vörð um líf okkar allt fram til þessa dags. Hrútabókin eru vísindi sem segja okkur hvernig best er að rækta sauðkind sem er sem lausust við sjúkdóma og með góða vöðvabyggingareygileika, hafi ég skilið málið rétt. Nú um stundir er T137 Skörðungur flaggskip sæðingarstöðva hér á Suðurlandi, en ARR171 á uppleið. Þar eru nokkrir hrútar sem koma stöðugt sterkar inn, enda lausir við riðu. Að öllum þessum upplýsingum fengnum fór ég að hugsa, sem líka hefur oft komið mér í vandræði. Hvað ef við hefðum svona hrútabók sem gæti leiðbeint okkur þegar kæmi að stjórn landsins og kosningum. Að það væri búið að skilja allt bullið og málalengingar út, við þyrftum ekki að sitja ár eftir ár undir málþófi um alls konar skrýtið sem stæðist ekki skoðun. Við gætum bara flett upp í „Hrútabókinni“ og séð hverjir hefðu skilað best í þágu almannahagsmuna og hverjir það væru sem eingöngu hugsuðu um eigin hagsmuni.
Ég hef nú alltaf verið svolítið skotinn í skessunni ...