Skip to main content

Víkurfréttir 7. tbl. 46. árg.

Page 1

8 110 ára afmæli Keflavíkurkirkju

Miðvikudagur 19. febrúar 2025 // 7. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Reykjanesbær í skammtímafjármögnun Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum 13. febrúar 2025 að óska eftir skammtímafjármögnun að höfuðstól allt að einn milljarður króna , með lokagjalddaga þann 15. janúar 2026. Þá er óskað eftir framlengingu á lánasamningi sem er á gjalddaga 28. febrúar 2025. Er fjármögnunin ætluð til að brúa bil þar til jafnvægi kemst á dreifingu fjárstreymis en fasteignagjöld eru innheimt frá febrúar til nóvember ár hvert og kemur því fall í fjárstreymi í desember og janúar um 700 milljónir. Bókanir vegna málsins voru lagðar fram á bæjarstjórnarfundi í gær. Meira á vf.is.

Settir verða upp um sjö kílómetrar af öryggisgirðingum í Grindavík til að girða af hættuleg og sprungin svæði í bænum. Hér er unnið að uppsetningu girðingar við Suðurhóp. VF/Hilmar Bragi

Gengur hratt á þriggja milljarða handbært fé Grindavíkurbæjar Handbært fé Grindavíkurbæjar var ríflega 3,3 milljarðar króna um síðustu áramót að meðtöldum tjónabótum frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands, NTÍ. Hratt mun ganga á fjármunina samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir fyrir árin 2025 til 2028. Í árslok 2028 er gert ráð fyrir að handbært fé verði 51 milljón króna. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2025 til 2028 var lögð fram til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar í lok janúar.

Áætlunin ber þess merki að starfsemi Grindavíkurbæjar er í algjöru lágmarki út áætlunartímabilið. Áætlun um tekjur byggir á mjög

óljósum forsendum en ljóst er að mikið tekjufall verður hjá Grindavíkurbæ. Gert er ráð fyrir samdrætti í launum og öðrum rekstrarkostnaði en þrátt fyrir það verður verulegur rekstarhalli öll árin. Áætluð rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum Aog B-hluta gera ráð fyrir rekstrarhalla upp á tæpar 1.364 milljónir

króna á þessu ári. Rekstrarhallinn er svo ráðgerður tæpar 553 milljónir króna árið 2026, á árinu 2027 er hann ráðgerður ríflega 523 milljónir og árið 2028 er rekstrarhalli áætlaður 545 milljónir króna. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun.

Leigubifreið valt og tvennt á sjúkrahús Ökumaður leigubifreiðar missti skyndilega stjórn á bifreið sinni og endaði utan vegar á Miðnesheiðarvegi á laugardagskvöld. Ökumaður og farþegi voru flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítalann. Farþeginn var síðan fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann dvaldi eina nótt en ökumaður dvaldi á Landspítala í tvær nætur vegna rannsóknar á meiðslum hans.

4 Suðurnesjabær sendir neyðarkall til stjórnvalda Úrræði fyrir íbúa með flóknar þjónustuþarfir

Bæjarráð Suðurnesjabæjar sendir neyðarkall til stjórnvalda um að taka sér tak, bæta nú þegar úr því úrræðaleysi sem ríkir í málaflokknum um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda og koma til framkvæmda tillögum nokkurra starfshópa sem hafa fjallað um þá nauðsynlegu þjónustu sem viðkomandi einstaklingar þurfa á að halda.

Á borði velferðarsviðs Suðurnesjabæjar er búsetuúrræði fyrir

tvo einstaklinga í einkareknum úrræðum og er áætlað að kostnaður

vegna þeirra fyrstu fimm mánuði ársins 2025 verði 136,50 milljónir króna. Samkvæmt erindinu til velferðarsviðs má reikna með að á árinu 2025 gæti umræddur kostnaður alls orðið nálægt kr. 330.000.000. „Það er algerlega augljóst að þetta dæmi getur ekki með nokkru móti gengið upp,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar. Nánar á síðu 2 í blaðinu í dag.

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 7. tbl. 46. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu