Skip to main content

Víkurfréttir 35. tbl. 46. árg.

Page 1

N ja r ða r b r au t 1 1 a Engar tímapantanir

in Stöndum vakt

a!

Miðvikudagur 17. desember 2025 // 35. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

Gle ðile ga há tíð!

DAGLEGAR FRÉTTIR

Baldur og Súlan

TÓNLIST ALLT UM KRING

56-58

Pétur á wembley 84-85 50-51

5 2 0 2 ð i ð a Jólabl 40-41

76-77

Halla hitti kónginn

Draumurinn rí heima að op na b aka

Jón Axelsson hjá Skólamat 24-25

Ástrós Skúladóttir

Agnar og UMFN

78-79

Ásgeir í Bragganum er safnari 70-71

64-65

Safnasystur í Vogum

20

Þröstur Jóh. flutti Bogart ogMonroe í Garðinn

36-37

44-46

Ólöf fór á suðurskautið

„Ef það drepur þig ekki – þá gerir það þig sterkari“

Hjördís Egilsdóttir

32-35

MIKIL ÞRÓUN OG NÝ VERKEFNI

96 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í 45 ÁR


2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Hjartans þakkirr til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu

SÓLVEIGAR GUÐBJARTAR GUÐBJARTSDÓTTUR frá Bjarmalandi í Grindavík, til heimilis að Mánasundi 7

Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu Nesvöllum í

Reykjanesbæ fyrir alúðlega umönnun, hlýju og stuðning. Agnar Guðmundsson Hanna Þóra Agnarsdóttir Jón Þórisson Svava Agnarsdóttir Anna Björgvinsdóttir Guðbjartur Agnarsson Lóa Björg H. Björnsdóttir Guðm. Birkir Agnarsson Valdís Helga Lárusdóttir Agnar Smári Agnarsson barnabörn og barnabarnabörn

Reykjanesbær er víðfemur, eins og sjá má. Sérstaklega er gagnrýnt að leið 55 hætti að stoppa í Ásbrú, 5.000 íbúa hverfi, sem og að íbúar geti illa nýtt sér strætó snemma morgna og seinnipart dags.

Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi

HRAFN SVEINBJÖRNSSON Vallarbraut 6, Njarðvík

lést sunnudaginn 30. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Marín Margrét Jónsdóttir Óli Kristinn Hrafnsson Ágúst Sigurður Hrafnsson Sveinbjörg Hrafnsdóttir Eysteinn Georgsson Kristín Hrafnsdóttir Guðni Gíslason Birna Hrafnsdóttir Svandís Þorsteinsdóttir Sveinn Björnsson barnabörn og barnabarnabörn

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mótmælir harðlega niðurskurði á þjónustu leiðar 55 Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum Vegagerðarinnar á leið 55 hjá Landsbyggðarstrætó sem skerða verulega þjónustu á milli Reykjanesbæjar, höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar. Í bókun sem bæjarráð hafði áður samþykkt og forseti bæjarstjórnar las upp á fundi 2. desember 2025 100% rafmagn. er lýst þungum vonbrigðum með Verðþar frá : 7.190.000 kr. breytingarnar, sem fjöldi stoppistöðva innan Reykjanesbæjar á að fara úr átta í tvær frá

IONIQ 5

og með 1. janúar 2026. Þá mun ferðum til og frá BSÍ fækka úr átta í fimm á virkum dögum. Sérstaklega er gagnrýnt að leið 55 hætti að stoppa í Ásbrú, 5.000 íbúa hverfi, sem og að íbúar geti illa nýtt sér strætó snemma morgna og seinnipart dags. Í bókuninni er bent á að kostnaður fyrir Reykjanesbæ við að bæta við morgunakstri kl. 06–07 nemi um 15 milljónum króna á ári, á sama tíma og tekjur sveitarfélagsins séu 13% lægri en meðaltal sjö stærstu sveitarfélaga landsins.

Bæjarstjórn bendir á að ákvörðunin fari gegn markmiðum stjórnvalda um áreiðanlegar almenningssamgöngur og að framlög til almenningssamgangna hafi hækkað um 2,3 milljarða milli áranna 2024 og 2025, þar sem megináherslan hafi verið á aukna þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Því sé ljóst að samfélög á landsbyggðinni, þar á meðal Reykjanesbær, sitji eftir. Að lokum tekur bæjarstjórn Reykjanesbæjar „heilshugar undir“ bókun bæjarráðs og standa allir bæjarfulltrúar að afstöðunni.

Reyndi að komast framhjá eftirlitspósti lögreglu

Nýr Nissan Qashqai Fullkominn borgarjepplingur magnaður með Mild Hybrid tækni Verð frá: 5.890.000 kr.

BÍLASALA REYKJANESS

SPENNANDI VALKOSTIR Í SALNUM Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Í sýningarsalnum okkar á Holtsgötu eru tveir af mest spennandi bílum haustsins: 100% rafdrifinn Hyundai IONIQ 5 og NISSAN Qashqai með Mild Hybrid tækni. Komdu, skoðaðu og reynsluaktu.

Umboðsaðili BL á Reykjanesi – Holtsgata 52 – 260 Reykjanesbær Sími: 547 9100 – info@bilasalareykjaness.is

Fylgist með á vf.is

Aðventueftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina gekk vel, að sögn lögreglu. Alls voru á annað hundrað bifreiðar stöðvaðar og 115 ökumenn látnir blása. Af þeim voru 13 ökumenn skoðaðir nánar. Í eftirlitinu var einn ökumaður stöðvaður og gert að hætta akstri.

Þá var ein áminning veitt vegna öryggisbúnaðar barns og önnur fyrir að reyna að aka framhjá ölvunarpósti á vegöxl. Lögreglan segist vera ánægð með útkomuna og þakkar ökumönnum fyrir gott samstarf, þolinmæði og ábyrgð í umferðinni.

Ganga til samninga við Kiwi veitingar ehf. um rekstur eldhúss á Nesvöllum Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur falið Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að ganga til samninga við Kiwi veitingar ehf. (Soho Catering) um rekstur eldhúss við Þjónustumiðstöðina á Nesvöllum. Málið var tekið fyrir á 1540. fundi bæjarráðs þann 27. nóv-

ember 2025 í Hljómahöll. Kristinn Þór Jakobsson innkaupastjóri sat fundinn og kynnti vinnugögn og fyrirliggjandi valkosti áður en ákvörðunin var tekin. Með þessu er stigið mikilvægt skref í átt að áframhaldandi öruggri og faglegri máltíðarþjónustu fyrir notendur Nesvalla.


Reykjanesbær 20.des. 11-18 Reykjanesbæ 21.des. 13-18 22.des. 11-22 23.des. 11-22 24.des. 10-12 Garðabær 20.des. 11-18 21.des. 13-18 22.des. 11-18 23.des. 11-18 24.des. lokað

Leynist jólagjöfin í Snúrunni?

MIÐHRAUN 24 - GARÐABÆR

TJARNARGATA 2 - REYKJANESBÆR


4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á

vf is Sendum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Íbúar fluttir af Hlévangi á nýtt hjúkrunarheimili Stór tímamót urðu hjá íbúum Hlévangs á sunnudaginn þegar þeir fluttu yfir á nýtt hjúkrunarheimili við Krossmóa. Flutningarnir gengu vel og voru allir íbúar komnir á nýja heimilið á innan við tveimur klukkustundum. Að sögn starfsfólks er húsið fallegt og vel hannað og er vonast til að bæði íbúum og starfsfólki muni líða jafn vel á nýja heimilinu og þeim leið á Hlévangi. Þá er aðbúnaður sagður mjög góður, bæði fyrir íbúa, starfsfólk og aðstandendur. Áætlað er að fyrir jólin flytji 40 íbúar inn á 3. og 4. hæð hússins, en í lok janúar verði búið að taka allar hæðir í notkun. Nýja heimilið skiptist í tvær 40 íbúa hjúkrunardeildir. Á 1. og 2. hæð verður hjúkrunardeildin Nes með fjórum einingum; Hvalsnes og Keilisnes á 1. hæð og Stafnes og Hópsnes á 2. hæð. Á 3. og 4. hæð verður hjúkrunardeildin Fell, þar sem einingarnar Lyngfell og Skógfell verða á 3. hæð og Hagafell og Stapafell á 4. hæð. „Við tókum góða Hlévangs-andann með okkur á nýja heimilið og vonum að við eigum öll eftir að eiga dásamlegar gæðastundir saman á nýja heimilinu,“ segir í færslu frá Hrafnistu–Hlévangi á fésbókinni.

Njótið góðra gönguferða á strandleiðinni í Reykjanesbæ undir lýsingu frá Ljósálfunum okkar.

Íslandshús

Framúrskarandi fyrirtæki 2024 2025

Hringtenging við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli Nýr vegur hefur verið tekinn í notkun við Keflavíkurflugvöll og er þar með hægt að aka nýja leið að flugvallarsvæðinu. Með þessum nýja vegi, eða vegbúti, skapast hringtenging frá flugstöðvarbyggingunni sem eykur bæði öryggi og flæði við flugstöðina til þess að mæta vaxandi umsvifum þar. Hingað til hefur vegurinn fyrir framan flugstöðvarbygginguna endað við komufarþegasvæði. Nýi vegbúturinn liggur frá þeim stað

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

og til norðausturs að Reykjanesbrautinni sem skapar þessa hringtengingu. Með þessari breytingu má draga úr umferð næst flugstöðinni og koma í veg fyrir þveranir ökutækja yfir akreinar. Þá mun öll þjónustuumferð, svo sem umferð vegna framkvæmda og flutninga með aðföng, fara fram um aðra aðkomu að flugstöðinni. Með opnuninni lýkur fyrsta fasa framkvæmda við hringtenginguna en þær hafa staðið yfir frá vorinu 2025.

Við óskum viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og velfarnaðar á komandi ári. Við þökkum kærlega fyrir ánægjuleg viðskipti og gott samstarf á árinu 2025. Við bjóðum nýja sem gamla viðskiptavini hjartanlega velkomna á nýja starfsstöð okkar að Hafnargötu 62, 2. hæð. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.


LOKSINS KAFFIHÚS Í KEFLAVÍK

KEF CAFÉ Nýbakað bakkelsi og hágæða kaffidrykkir

Opið alla daga 05:00–17:00

kef.is

JÓLATILBOÐ KEF Á GJAFABRÉFUM Hægt er nálgast gjafabréfin okkar á kef.is/is/shop og í móttökunni okkar sem er opin allan sólarhringinn að Vatnsnesvegi 12, 230 Keflavík


6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Bátarnir eru komnir suður Í síðasta pistli fór ég aðeins inn á bátana sem eru enn á veiðum fyrir norðan og austan. Mikið hefur breyst síðan síðasti pistill kom, því nú eru allir bátarnir komnir suður sem voru á Skagaströnd. Þegar þessi pistill er skrifaður er Geirfugl GK á leiðinni suður, en á undan honum komu Hópsnes GK og Óli á Stað GK og fóru þeir til Sandgerðis, eins og Geirfugl.

AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is

Fyrsti Einhamarsbáturinn er kominn suður og er það Gísli Súrsson GK sem kom til Grindavíkur. Hvernig hefur bátunum gengið? Jú, það hefur verið frekar rólegt hjá Gísla Súrssyni GK. Hann hefur farið í tvær landanir út frá Grindavík og landað tæpum 8 tonnum. Dúddi Gísla GK hefur verið bæði í Sandgerði og Grindavík og hefur landað alls um 31 tonni í 6 róðrum. Það er

svo jöfn skipting á milli róðra og afla í Sandgerði og Grindavík hjá bátnum, þrír róðrar og um 15,5 tonna afli á hvorum stað. Vel hefur gengið hjá Fjölni GK, en hann er kominn með 68 tonn í 11 róðrum og þar af er tæpum 11 tonnum landað í Grindavík, restinni í Sandgerði. Nýi báturinn Guðbjörg GK hefur verið í Sandgerði allan desember og hefur gengið nokkuð vel hjá bátnum. Báturinn er kominn með 52 tonn í 6 róðrum og þar af 17 tonn í einni löndun. Hópsnes GK kom suður rétt áður en þessi pistill var skrifaður og fyrsta löndun hans í Sandgerði var 4,8 tonn. Þar áður var báturinn búinn að landa 15

Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir

Rétturinn

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík

Opið:

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Ljúffengur heimilismatur í hádeginu

11-13:30

alla virka daga

Röstin og Húllið Talandi um Röstina, þá er Röstin mjög þekkt svæði í útgerðarsögu Suðurnesja og þá sérstaklega frá Sandgerði og Grindavík. Saga veiða þar er nokkuð löng, en þetta er svæði sem er oft kallað Húllið og liggur á milli Reykjaness, eða svo til við Reykjanesvita, og út að Eldey. Þetta er mjög straumótt svæði með grýttan botn og getur verið erfitt að stunda þar veiðar vegna straumanna sem þar eru. Í tugi ára hefur ufsinn reyndar gefið sig ansi vel í Röstinni, og þá helst á handfæri og í netin. Nefna má til dæmis tvo þekktustu handfærasjómenn landsins sem í hátt í 20 ár stunduðu handfæraveiðar þar, en það voru Kristján, eða Stjáni, sem átti Skúm RE og Svanur sem átti Birgi RE. Samhliða þeim voru þarna líka til dæmis Oddur Sæm (Stafnes KE), Guðjón Bragason (til dæmis Grímsnes GK, Vatnsnes KE og fleiri bátar), Grétar Mar Jónsson (Bergur Vigfús GK og Sæborg RE) og Tómas Sæmundsson á Hafnarbergi RE. Það áttu þeir allir sameiginlegt að stunda þarna netaveiðar og voru þá að eltast við ufsann. Veiðar með netum í Röstinni og veiðar með færum í Röstinni fara frekar illa saman. Vanur færasjómaður sagði meðal annars að oft legðu netabátarnir netin sín á milli færabátanna og vegna þess hversu mikill straumurinn er þá ráku færabátarnir oft þannig að þeir voru að festa króka sína í netunum. Í raun er ekki hægt að vera þar þegar netabátarnir eru þar. Mikið hefur breyst á undanförnum árum og netabátunum hefur fækkað mikið sem sækja í Röstina. Til að mynda er enginn netabátur í Grindavík, en þar voru til dæmis Geirfugl GK, Gaukur

GK, Þorsteinn GK og fleiri sem allir sóttu líka í Röstina. Núna árið 2025 er það aðeins einn bátur sem fer í Röstina og það er Sigvaldi á Friðriki Sigurðssyni ÁR, en hann kom síðast með um 31 tonn í land úr aðeins fimm trossum.

Færi og net fara illa saman En þó svo að báturinn hafi mokveitt, þá var sá galli á gjöf Njarðar að færabátarnir sem höfðu verið þarna, og þá sérstaklega Hawkerinn GK sem ég hef skrifað nokkuð um í þessum pistlum, áttu erfitt uppdráttar. Hann hefur sótt duglega í Röstina og náði til dæmis 1,8 tonna róðri áður en brælutíðin skall á, sem var í nokkra daga. En vegna þess að það var kominn netabátur í Röstina, þá var þetta vonlaust fyrir Hawkerinn GK að stunda þar veiðar með færum. Eins og maðurinn sagði við mig, sem hefur stundað veiðar í mörg ár

í Röstinni á færum, þá hefur þetta alltaf verið svona, að netabátarnir henda niður trossum þarna innan um færabátana. Einhverra hluta vegna er saga veiða í Röstinni, og þá sérstaklega ufsaveiða, mjög löng. Ufsanum líkar greinilega vel við þetta svæði því hann kemur alltaf þarna aftur og aftur og bátarnir geta alltaf sótt í ufsa þarna. Þó svo að færi og net fari ekki vel saman á þessu svæði þá er þetta kannski spurning, eins og einn sagði, að fyrstur kemur, fyrstur fær. Annars er þetta síðasti pistill fyrir jól og vil ég nota tækifærið og óska lesendum Víkurfrétta og lesendum þessara Aflafréttapistla gleðilegra jóla, með þökk fyrir árið. Ég hef verið í samskiptum við ansi marga sem lesa þessa pistla og það er ánægjulegt að finna að ykkur líkar við þetta sem ég er að gera, og fyrir það er ég mjög þakklátur.

ÁRAMÓTABLAÐ KEMUR ÚT 27. DESEMBER 2025 SKILAFRESTUR AUGLÝSINGA TIL 22. DESEMBER BÓKIÐ PLÁSS HJÁ ANDREA@VF.IS

Jólatréssala Kiwanis

Kiwanis er í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum í Njarðvík

Opið frá 6. desember:

mánudaga til föstudaga 17–20 laugardaga og sunnudaga 12–18 Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni - leiðiskrossar - skreyttar greinar

Allur ágóði a f sölunni rennur til lík narmála

Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á

vf is

tonnum í 4 róðrum á Skagaströnd. Óli á Stað GK kom til Sandgerðis líka en var ekki búinn að landa þegar þessi pistill var skrifaður, enda var báturinn að taka tvær lagnir. Margrét GK hefur verið í Sandgerði allan desember og hefur verið við veiðar bæði út frá Sandgerði og síðan í Röstinni. Margrét GK hefur landað 53 tonnum í 9 róðrum og mest tæpum 12 tonnum.

Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu

HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.


Jólaleg jól


8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Snjógæsir verpa í norðurhluta Kanada og Alaska og halda venjulega til í Ameríku á vetrum. Einstaka fuglar rata þó stundum til Evrópu með farfuglahópum og koma þeirra hingað til lands þykir ávallt tíðindum sæta.

Snjógæs sækir í félagsskap grágæsa í Grófinni Óvenjulegur gestur sækir nú næringuna í graslendi við Grófina í Keflavík. Þar hefur sést snjógæs, norðuramerísk tegund sem telst sjaldgæfur flækingsfugl á Íslandi, í félagi með hópi heiðagæsa síðustu daga. Fuglaáhugamenn tóku fyrst eftir gæsinni á þessum slóðum fyrir næstum mánuði síðan, þar sem hún kroppaði rólega í grasið með gráum félögum sínum. Hún var enn á svæðinu um nýliðna helgi og sýnir engin fararsnið, þrátt fyrir talsverðan umgang á svæðinu. Auðvelt er að þekkja snjógæsina á alhvítum búknum og svörtum ystu vængfjöðrum sem mynda skarpa andstæðu þegar hún lyftir

sér til flugs. Með henni í Grófinni eru grágæsir, algeng tegund á Íslandi, sem gera litamuninn enn meira áberandi. Snjógæsir verpa í norðurhluta Kanada og Alaska og halda venjulega til í Ameríku á vetrum. Einstaka fuglar rata þó stundum til Evrópu með farfuglahópum og koma þeirra hingað til lands þykir ávallt tíðindum sæta. Búist er við að fuglaáhugamenn leggi leið sína í Grófina næstu daga í von um að sjá þennan sjaldséða gest meðan hann dvelur enn í Keflavík. Þar til hann ákveður annað virðist hann fullkomlega sáttur við að kroppa í íslenskt gras með nýju, gráu félögunum.

Fuglaáhugamenn tóku fyrst eftir gæsinni á þessum slóðum fyrir næstum mánuði síðan, þar sem hún kroppaði rólega í grasið með gráum félögum sínum

Útsvar óbreytt 14,97% í Suðurnesjabæ Bæjarfulltrúar B-lista og bæjarfulltrúinn Magnús S. Magnússon lögðu fram tillögu við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar 2026–2029 um að fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði yrði óbreyttur árið 2026 frá fjárhagsáætlun 2025 og að það kæmi jafnframt fram í áætlunum fyrir 2027–2029. Fyrri umræða um fjárhagsáætlunina fór fram á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. Í greinargerð með tillögunni segir að markmiðið sé „að tryggja fyrirsjáanleika íbúa og milda áhrif ytri efnahagslegra aðstæðna“ og jafnframt „stuðla að áframhaldandi búsetuöryggi og samkeppnishæfni sveitarfélagsins“. Tillagan byggi á „sjónarmiðum um meðalhóf, stöðugleika í gjaldtöku og samfélagslega ábyrgð“. Sömu fulltrúar lögðu einnig fram tillögu um gjaldskrá vatnsveitu Suðurnesjabæjar í Sandgerði. Þar er lagt til að notaðir verði sömu reiknistuðlar og HS Veitur nota við verðlagningu á köldu vatni

í Garðshluta sveitarfélagsins. Í greinargerðinni segir að „með öllu óeðlilegt [sé] að ekki séu notaðir sömu reiknistuðlar“ og að „mikið misræmi [sé] í greiðslu á vatnsgjaldi“. Vakin er athygli á því að í fjárhagsáætlun 2019 hafi vatnsgjaldið í Sandgerði verið hækkað til að jafna álagningu við HS Veitur, en nú sé reiknistuðullinn í Sandgerði bundinn við fasteignamat eigna á meðan í Garði sé reiknað út frá rúmmetrum eigna. Samþykkt var samhljóða að vísa báðum tillögum til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2026. Þá var samþykkt með atkvæðum bæjarfulltrúa D-, O- og S-lista ásamt bæjarfulltrúa Magnúsi Sigfúsi Magnússyni að álagningarhlutfall útsvars 2026 verði óbreytt, 14,97%. Fulltrúar B-lista sátu hjá. Einnig var samþykkt með atkvæðum D-, O- og S-lista að vísa fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn. B-listinn og Magnús Sigfús Magnússon sátu hjá.


Auglýsing þessi er unnin af Markaðsdeild Húsasmiðjunnar með hjálp gervigreindar

Húsasmiðjan og Ískraft opna nýjar og glæsilegar verslanir á Fitjum árið 2026. Sjáumst á nýju ári. Starfsfólk Húsasmiðjunnar og Ískraft Reykjanesbæ


10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Lagt til að fasteignaskattar og vatnsgjöld á íbúðarhúsnæði lækki í Suðurnesjabæ Meirihluti bæjarráðs Suðurnesjabæjar (S- og O-listi) leggur til að fasteignaskattar og vatnsgjöld á íbúðarhúsnæði lækki á árinu 2026. Tillagan var tekin fyrir á fundi bæjarráðs 26. nóvember þar sem fjallað var um fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar fyrir árin 2026–2029. Í tillögu um gjaldskrá fasteignagjalda er lagt til að álagningarhlutfall fasteignaskatts á A-eignir, þ.e. íbúðahúsnæði, lækki úr 0,28% í 0,23%, sem samsvarar rúmlega 17% lækkun frá fyrra ári. Einnig er

lagt til að vatnsgjald á A-eignir í Sandgerði lækki úr 0,13% í 0,11%, sem er rúmlega 15% lækkun á álagningarhlutfalli. Gjaldskrá fyrir sorphirðu er óbreytt frá fyrra ári samkvæmt tillögunni, en þjónustugjaldskrá og aðrir liðir taka breytingum í takti við verðlagsbreytingar. Fulltrúar S- og O-lista í bæjarráði samþykktu að vísa tillögunni um gjaldskrár til afgreiðslu í bæjarstjórn en fulltrúi B-lista greiddi atkvæði gegn tillögunni.

jólagjöfina hennar færðu hjá okkur

keflavík Ert þú að hefja nýja lyfjameðferð? Þá er Lyfjastoð eitthvað fyrir þig!

Lyfjastoð Reykjanesapótek

Ný lyfjameðferð

Hvað þarft þú að vita um lyfin þín? Lyfið sjálft

Lyfjastoð samanstendur af tveimur viðtalstímum með lyfjafræðingi. Viðtölin fara fram á fyrstu vikunum eftir að þú hefur nýja lyfjameðferð. Svona virkar þjónustan: Samtalsmeðferð með lyfjafræðingi sem samanstendur af tveimur viðtölum í sérútbúnu viðtalsrými. Viðtölin taka u.þ.b. 15 mínútur þar sem farið er yfir eftirfarandi atriði: : góðar venjur í lyfjameðferð : helstu atriði tengd meðferðinni þinni : tæknileg atriði tengd lyfjunum þínum og þeim vandamálum sem gætu komið upp í lyfjameðferð

Reykjanesapótek: Hólagötu 15 Vaktsími: 821-1128 Sími: 421-3393 Opnunartími: 9–20 virka daga 12–19 um helgar

Pantaðu viðtalstíma á lyfjastod@reykjanesapotek.is eða í síma 421-3393

Hvers vegna og hversu lengi á ég að taka lyfið? Hversu langan tíma má ég gera ráð fyrir að taki lyfið að byrja að virka?

Tæknileg atriði Er erfitt að taka lyfið? Skiptir einhverju máli hvenær ég tek lyfið? Hvað geri ég ef ég gleymi að taka lyfið?

Óvenjulegar aðstæður

Fitjum 2 Sími: 421-3383 Opnunartími: 10–19 virka daga 11–15 laugardögum

Hverjar eru þekktar aukaverkanir lyfsins og er eitthvað sem ég get gert? Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga, eins og tengt mat, fæðubótarefnum eða öðrum lyfjum?

Mín framtíðarsýn fyrir Reykjanesbæ Líkt og fram he fur komið þá býð ég mig fram í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fer fram laugardaginn 31. janúar 2026. Ég geri það með skýra sýn fyrir framtíð bæjarins okkar, framtíð sem byggir á samfélagslegum styrk, fjölbreyttum tækifærum og skynsamlegri þróun þar sem allir íbúar eiga þess kost að blómstra. Reykjanesbær hefur vaxið hratt á undanförnum árum og stendur frammi fyrir nýjum tækifærum og áskorunum. Fjölgun íbúa kallar á aukna atvinnustarfsemi og þá möguleika að móta samfélag sem skapar lífsgæði fyrir alla. En til þess að sú þróun verði sjálfbær þurfum við skýra stefnu, framsýna áætlanagerð og þor til þess að taka ákvarðanir.

Reykjanesbær – framtíðarbær okkar allra

Reykjanesbær er í senn kraftmikið bæjarfélag og fagurt, það er okkar að sjá það. Hér búa rúmlega 22 þúsund manns sem deila sameiginlegri framtíðarsýn, að byggja upp sterkt og lífvænlegt samfélag þar sem allir bæjarbúar fá tækifæri til að vaxa og dafna. Orð hafa kraft og því er mikilvægt að vanda okkur, kæru bæjarbúar, þegar umræðan snýst um bæjarfélagið okkar. Þegar við lendum í umræðu um heimabæinn okkar þá skiptir máli hvernig við sjálf berum bæinn á lofti. Mál er manns hljómur og þegar við tölum jákvætt um Reykjanesbæ byggjum við upp jákvæða ímynd af bæjarfélaginu. Það þýðir ekki að ég ætli mér að hunsa þær áskoranir sem bíða heldur ákveð að tala ekki neikvætt um þær heldur jákvætt. Einblínum á hið jákvæða í orði og gjörðum. Reykjanesbær, líkt og önnur bæjarfélög sem standa við sjávarsíðu landsins, stendur á gömlum sjávarþorpsrótum þar sem forfeður okkar hafa í aldanna rás byggt upp samfélag þar sem gildi Sjálfstæðisflokksins hafa verið við lýði: dugnaður, metnaður og trú á eigin getu. Ég hef trú á að þessi arfur sigli áfram í gegnum kynslóðir og að uppbygging öflugs samfélags byggi á þessum grunngildum, sem hafa reynst okkur afar vel í gegnum tíðina. Þegar einstaklingar fá frelsi til að taka ákvarðanir um eigið líf þá blómstra viðskipti sem að samfélagið nýtur góðs af. En með þessu frelsi fylgir þó ávallt ábyrgð á einstaklingnum. Ábyrgð og frumkvæði eru hornsteinar þess að gera hlutina enn betur, að leggja sitt af mörkum samfélaginu til heilla. Líkt og ég vil gera þá hef ég trú á að íbúar Reykjanesbæjar vilji ekkert minna og að auki vilji láta gott af sér leiða. Íbúar Reykjanesbæjar hafa sýnt okkur í gegnum tíðina að þegar einstaklingurinn fær svigrúm til að njóta árangurs á eigin vegferð þá verður til drifkraftur sem engin stjórnsýsla getur búið til. Í bæjarfélaginu okkar má finna fjölskyldufyrirtæki, frumkvöðla og metnaðarfulla einstaklinga sem hafa skapað störf og tækifæri í bæjarfélaginu okkar. Það er þessi frjálsræðishugsjón, að einstaklingurinn fái sjálfur að ráða för sinni, sem hefur gert okkur að því bæjarfélagi sem við nú erum. Ég trúi því að framtíð Reykjanesbæjar byggi einmitt á styrk einstaklingsins fremur en að hanna flókna verkferla

sem mögulega heftir þessa þróun. Við þurfum í sameiningu að standa vörð um þetta frelsi, sem felst í því að skapa eigin kjör, reka fyrirtæki án óþarfa íhlutunar og að halda í það sem við vinnum fyrir. Það er ekki sérhagsmunagæsla að vilja njóta ávaxtar eigin vinnu, það er undirstaða öflugs samfélags. Stebba amma, mikill viskubrunnur, minnti mig statt og stöðugt á þá miklu visku; Unnar minn, þú skapar þína eigin vegferð. Orð hennar hafa fylgt mér í gegnum súrt og sætt og eru góð áminning fyrir okkur öll.

Reykjanesbær – bær tækifæranna Þegar við tölum um bæjarfélagið okkar þá er mikilvægt að leggja áherslu á það jákvæða sem er nú þegar til staðar og möguleikana sem Reykjanesbær býr við. Hér í næsta nágrenni er alþjóðaflugvöllur, vaxandi ferðaþjónusta, orkuauðlindir og gífurlega fallegt og litríkt landslag, svo fátt eitt sé nefnt. Reykjanesbær er staðsettur sem örfáir staðir á landinu geta keppt við. Menning bæjarfélagsins í blóma, hér ölum við börn okkar í öryggi, með aðgang að metnaðarfullum skólum og möguleikum á að stunda íþróttir og tómstundir. En þessi veruleiki verður ekki til af sjálfu sér. Við þurfum jákvætt viðhorf gagnvart bæjarfélaginu, jákvætt umtal til að draga að utanaðkomandi eins og t.d. leikskólakennara sem er svo sannarlega skortur á. Einnig að skapa aðstæður þar sem frumkvæði fær að njóta sín, þar sem árangur er metinn að verðleikum. Reykjanesbær á að vera bær þar sem allir fá tækifæri og með samstöðu sem byggir á sameiginlegum gildum um ábyrgð, dugnað og virðingu fyrir vinnuframlagi og hugmyndum annarra. Látum okkur vera umhugað um bæinn okkar. Leyfum okkur að tala jákvætt um bæjarfélagið, bera bæinn okkar á lofti með því að taka eftir því jákvæða sem gerist innan okkar bæjarmarka. Hér í Reykjanesbæ er margt jákvætt um að vera, öll sem eitt þurfum að vera dugleg að taka eftir því og tala um það því það gerir það enginn nema við sjálf.

Framtíðin er okkar Reykjanesbær á frábæra framtíð fyrir höndum en við þurfum að grípa tækifærin og vinna markvisst að því að móta samfélag sem er aðlaðandi fyrir alla núverandi íbúa bæjarins og þá sem hafa hug á búflutningum. Menntun og menning, íþróttir og tómstundir og sterkt atvinnulíf eru hornsteinar lífsgæða og framþróunar. Við, Reykjanesbær, eigum að vaxa á skipulagðan, sjálfbæran hátt og með framsýn að leiðarljósi. Með jákvæðu umtali gerist svo ótrúlega margt, þekki það af eigin raun. Ég bið ykkur, kæru sjálfstæðismenn, um stuðning og traust í komandi leiðtogakjöri. Saman getum við skapað Reykjanesbæ sem verður enn betri staður fyrir núverandi íbúa og komandi kynslóðir. Að lokum óska ég öllum lesendum geðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Unnar Stefán Sigurðsson, Skólastjóri í Háaleitisskóla og frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.

Gervigras á Miðjunni ekki raunhæft Meirihluti bæjarráðs Suðurnesjabæjar (S- og O-listi) telur að svokallaðir valkostir Miðjan 1 og Miðjan 2 séu ekki raunhæfir sem næsta skref í framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum, þó að svæðið sé talið vel fallið til þróunar og uppbyggingar til lengri tíma litið. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 26. nóvember þar sem lagt var fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og um-

hverfissviðs og deildarstjóra umhverfismála með greiningu á valkostinum Miðjan 1. Einar Friðrik Brynjarsson, deildarstjóri umhverfismála, sat fundinn undir þessum lið. Fulltrúar S- og O-lista samþykktu að fela bæjarstjóra að láta vinna áfram að því að skilgreina eignarhald lands á svæðinu, en fulltrúi B-lista greiddi atkvæði á móti. Málið var að lokum lagt fram.


20% afsláttur af öllum vörum frá Samsonite 17. – 24. desember

Verið velkomin í A4 Reykjanesbæ, Hafnargötu 27a. Opið virka daga 9 - 18, og laugardaga 10 - 17


12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Hápunkturinn að hitta Friðrik Danakonung Halla Benediktsdóttir í Jónshúsi í Kaupmannahöfn Keflvíkingurinn Halla Benediktsdóttir er forstöðukona í Jónshúsi í Kaupmannahöfn og hefur í sextán ár tekið á móti gestum frá Íslandi. Hápunktur ársins hjá henni var þegar hún hitti Friðrik konung og hann nældi riddaraorðu í barm hennar. Hún man eftir jólum sem lítil stelpa þegar faðir hennar mætti með kassa af jólaeplum í hús fyrir jólin. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Þetta er búið að vera gott ár. Við höfum fengið marga góða gesti í heimsókn, sem er alltaf gaman, og eins höfum við farið aðeins út fyrir landsteinana. Við hjónin fórum til dæmis í frábæra lestarferð frá Kaupmannahöfn suður eftir Þýskalandi og enduðum hjá góðum vinum í Sviss. Eins var stórskemmtilegt þegar við fórum með börnum okkar og tengdabörnum til Póllands til að fylgjast með Íslandi á Evrópukeppninni í körfubolta. Með góðu fólki tók ég á árinu þátt í að standa fyrir Þjóðhátíðarskemmtun Íslendinga í Tívolíi þann 17. júní og stærstu prjónahátíð Kaupmannahafnar í haust. Hvoru tveggja tókst mjög vel. Svo mun ég líklegast aldrei gleyma að hafa fengið tækifæri til að hitta sjálfan Friðrik konung og þakka honum fyrir að hafa veitt mér Dannebrog-riddaraorðuna í fyrra. Það er mikil upplifun að fara í Kristjánsborgarhöll, prúðbúin með hvíta hanska, vera kölluð upp, hitta kónginn og spjalla við hann.

Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Samvera með fjölskyldunni, leikir, hangikjöt og laufabrauð. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Skór sem ég fékk í jólagjöf frá Hrannari fyrir tæpum 40 árum.

Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Danskt jólalag með SOAP og Remee sem heitir Let love be love. Æðislegt lag. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Ég horf i alltaf á Love Actually sem er sannkölluð jólaklassík með öllum tilfinningaskalHalla og Hrannar í Póllandi. anum. Svo horfum við hjónin alltaf á Die Hard rétt fyrir jól á hverju ári. Hann eldist bara vel. Bruce Willis kemur öllum í jólaskap.

Hrannar, Helgi Benni, Halla, Helena Brynja, Morten og Telma.

Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Þetta er skemmtileg spurning, ég hef svo sem aldrei velt því fyrir mér. En heima er best. Gott að vera heima um jólin, vera með fjölskyldunni og geta stjórnað því hvað er á boðstólum og njóta þess að vera í fríi. Og núna eigum við heima í Kaupmannahöfn, svo ég vil hvergi annars staðar vera.

Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Nei, ég reyni eins mikið og í mínu valdi stendur að draga úr neyslu. Ef ég fæ gjafir þá er það helst eitthvað sem hægt er að borða eða drekka, eða gjafakort á einhverja upplifun. Gjafakort á upplifun með þeim sem gefur er í uppáhaldi. Hvað verður í jólamatnum hjá þér á aðfangadagskvöld? Líklegast rækjuréttur í forrétt, í aðalrétt verður önd með brúnuðum kartöflum, appelsínusósu og granateplasalati. Í eftirrétt verður væntanlega konfekt. Eru hefðir í mat? Undanfarin mörg ár höfum við haft önd á aðfangadagskvöld og hangikjöt á jóladag, svo náttúrulega klassískur danskur jólamatur, júlefrokost, nokkrum sinnum á aðventunni.

Ert þú mikið jólabarn? Já og nei, minn uppáhalds tími er aðventan, tíminn frá miðjum nóvember og fram að aðfangadegi. Kaupmannahöfn er mikil jólaborg sem skiptir um ham á þessum tíma.

Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Já, heilsurækt er í fyrirrúmi, en ég var reyndar duglegri að stunda líkamsrækt í ár en í fyrra og það verður kannski ekki auðvelt að gera betur. En ég stefni á að viðhalda því að fara að jafnaði fimm sinnum í viku í líkamsrækt. Ég á stórafmæli á næsta ári og ætla að nýta allt árið til að fagna þeim áfanga.

Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Bara rétt fyrir aðfangadagskvöld, undanfarin ár höfum við sett upp lítið jólatré sem auðvelt er flytja á hjóli. Tréð fær að standa nokkra daga, svo fer það út á þriðja degi jóla. Í Danmörku klárast jólin milli jóla og nýárs og flest jólatré fara út úr húsi 2. jóladag, þau standa ekki fram á þrettándann, eins og á Íslandi. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Nú finnst ég hljóma mjög gömul, en þegar ég var krakki fékk pabbi alltaf kassa með jólaeplum rétt fyrir jól sem ilmuðu og smökkuðust mjög vel. En eru skemmtilegar jólahefðir? Við erum búin að búa í rúmlega 16 ár í Kaupmannahöfn og höfum tileinkað okkur danskar jólahefðir, sem eru margar. Við fáum okkur jólaglögg og eplaskífur, sjá Hnotubrjótinn, fara í tívolí og á jólamarkaði. Svo er stórskemmtilegt að fara í júlafrokosta með vinum og fjölskyldu, leika pakkaleiki og borða góðan mat. Þar er mikið líf og fjör. Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Reyni að ganga frá öllum jólainnkaupum í byrjun desember.

Þetta voru skór með stórum pallíettum. Ég skilaði skónum en það féll ekki í góðan jarðveg hjá mínum manni, enda hef ég aldrei skilað gjöf sem ég hef fengið frá honum.

Halla í Kristjánsborgarhöll, nýbúin að tala við kónginn.

Hvernig hefur aðventan verið í Jónshúsi og Köben? Aðventan í Jónshúsi er bæði skemmtileg og annasöm. Auk fastra liða hafa verið bókakvöld, jólabingó, jólaföndur og á eftir íslenskri aðventustund í kirkju er boðið upp á heitt skúkklaði í húsinu. Á aðventunni koma margir íslenskir ferðamenn í húsið og fá leiðsögn um húsið og um heimili Ingibjargar og Jóns. Eins eru jólatónleikar kóranna sem æfa í Jónshúsi ómissandi á aðventunni. Aðventan í Kaupmannahöfn er alltaf stórskemmtileg, nú sem endranær. Jólatímabilið hefst eiginlega fyrstu helgina í nóvember með komu jólabjórsins og síðan er stanslaust líf og fjör um alla borg næstu sjö vikurnar. Það er sérlega skemmtilegur tími.


GLEÐILEGA HÁTÍÐ Við óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.


14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

„Ég tók sénsa sem ég myndi aldrei taka í alvörunni“ Alexander Logi Chernyshov Jónsson, 21 árs nemi í fjármálaverkfræði við Háskóla Reykjavíkur, bar sigur úr býtum í Fjárfestingakeppni háskólanna sem haldin var af Arion banka, í samstarfi við Dyngju, í október síðastliðnum. Keppendur fengu tíu milljónir króna í Dyngjuappinu og kepptust um að ávaxta peningana eins og kostur var.

Alexander Logi er alinn upp í Reykjanesbæ en hann var dúx í FS í vor. Hann var í viðtali á heimasíðu Arion banka.

Sendum íbúum Suðurnesja okkar bestu kveðjur með ósk um farsæld á nýju ári Hátíðarkveðja frá starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Bræður með keppnisskap sem hvetja hvor annan Hvað lærðir þú af þátttöku í keppninni? „Ég lærði til dæmis mjög mikið um Kelduna,“ segir Alexander Logi, en keldan.is er vefsíða sem safnar saman og birtir upplýsingar um fjármálamarkaðinn og viðskipti á Íslandi. „Maður þarf að vera vakandi fyrir öllu sem gerist á markaðnum og þá er gott að fylgjast vel með fréttum. Einnig er nauðsynlegt að sækja sér upplýsingar erlendis frá, en bæði bandaríski og evrópski markaðurinn hafa auðvitað sitt að segja um það sem gerist hér.“ Hvað varð til þess að þú ákvaðst að taka þátt? „Sko, þetta byrjaði sem keppni á milli mín og yngri bróður míns. Það kom mér í gang, sérstaklega þegar hann tók forskotið í menntaskólakeppninni. Allt í einu vorum við svo báðir á toppnum, hann þar, ég hjá háskólanemendum. Þá byrjuðum við að hjálpast að. Hann komst næstum á verðlaunapall – endaði í fimmta sæti í sinni keppni.“

Krefst þekkingar og fjármálalæsis Hvað var skemmtilegt? „Það er náttúrlega gaman að geta tekið stóra sénsa því að í Dyngju er ekki verið að sýsla með alvöru peninga. Ég tók sénsa sem ég myndi aldrei taka í alvörunni.“ Hvaða ráðleggingar myndirðu gefa ungu fólki sem hefur áhuga á fjárfestingum? „Ef þú veist lítið sem ekkert ættirðu frekar að fjárfesta í sjóðum. Þá er einhver á bak við sjóðinn

Fellum niður jafngildi virðisaukaskatts af

öllum bókum!

TAX FREE

Alexander Jónsson, nemi í fjármálaverkfræði við Háskóla Reykjavíkur. sem veit heilmikið um markaðinn. Hlutabréfamarkaðurinn er mjög áhugaverður staður – en það er nauðsynlegt að vera upplýstur, og með ákveðið fjármálalæsi, til að taka þátt í honum. Ef þú gerir það ekki borgar sig til dæmis frekar að setja peninga inn á íbúðarsparnaðarreikning.“

Strax kominn með talsverða reynslu í bankaheiminum Þess má geta að Alexander Logi hefur starfað meðfram námi hjá Arion banka undanfarin tvö ár. Hann hóf störf í þjónustuveri Arion banka á Keflavíkurflugvelli en hefur einnig verið í þjónustuveri bankans, í útibúi Arion í Vík, í áhættustýringu og nú síðast á svikavakt Arion. Hann útskrifaðist árið 2024 úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sem dúx, með hæstu einkunn í sögu skólans; 9,97. Inntur eftir framtíðaráformum sínum segir Alexander Logi markmiðið að halda áfram að standa sig vel í námi og sinna stör fum hjá Arion banka meðfram því.

TAX FREE

17.12. - 19.12.

*Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 11% virðisaukaskatt af sölu bóka. Öll verðlækkun (9,91%) er alfarið á kostnað Pennans. Gildir ekki með öðrum tilboðum. Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Tax free tilboð gildir til og með 19. desember eða meðan birgðir endast. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.

penninn.is 540-2000

540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is


Þökkum frábærar viðtökur á nýja staðnum okkar í Reykjanesbæ. PIZZAN.IS

578-8888

PIZZAN@PIZZAN.IS


16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Átti mjög erfitt með mjúku pakkana Brynja Ýr Júlíusdóttir, gift og verðandi tveggja barna móðir, starfar sem grunnskólakennari í Heiðarskóla og hefur verið stjórnarmeðlimur Leikfélags Keflavíkur síðastliðin sex ár. Hún segir uppáhaldsjólahefðina ekki hafa staðið tímans tönn, að bera út jólakortin fyrir foreldra sína á aðfangadag. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið 2025 var mjög skemmtilegt og líflegt eins og flest önnur ár. Það sem stóð upp úr var klárlega það að við komumst að því að við eigum von á öðru barni á næsta ári. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Það er erfitt að velja eitt uppáhalds, þau eru öll svo skemmtileg. Það sem á sérstakan stað í hjartanu er lagið Aleinn um jólin sem Stefán Karl söng svo eftirminnilega. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Það er hefð hjá mér að byrja aðfangadag á að horfa á How the Grinch Stole Christmas. Annars eru ekki jól nema ég horfi á Home Alone 1 & 2 og Christmas Vacation.

Hver er uppáhaldsjólahefðin þín og hvers vegna? Uppáhaldsjólahefðin hefur því miður ekki staðist tímans tönn en það var að bera út jólakortin með mömmu og pabba á aðfangadag. Það var eitthvað svo spennandi að rúnta um bæinn á aðfangadag og fá þá ábyrgð að koma kortunum á réttan stað. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Jólaseríur - þær lífga líka upp á skammdegið sem er mjög mikilvægt í desember. Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum – hvort sem það var sem þú gafst eða fékkst? Það er svo margt sem kemur upp í hugann. Ég fékk einu sinni karaokevél í jólagjöf frá mömmu og pabba. Það var ekkert smá spennandi fyrir mig en ég get ímyndað mér að það hafi reynst

Breytt leiðakerfi á Suðurnesjum 1. janúar 2026

straeto.is

fjölskyldunni mikil þolraun. Ég fékk líka einu sinni síma sem mamma og pabbi vöfðu inn í handklæði, sem ég átti nú þegar. Ég var ekkert sérstaklega ánægð að fá notað handklæði í jólagjöf. Við systkinin gáfum mömmu og pabba myndband fyrir u.þ.b. 16 árum þar sem við töluðum um uppáhaldsminningarnar okkar í tengslum við mömmu og pabba. Það var mjög dýrmæt og skemmtileg stund að horfa saman á það. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Ég er með svo lélegt minni að ég man ekki vel aftur í tímann. Mér hefur þó verið sagt að þegar ég var tveggja ára fengi ég bara mjúka pakka í jólagjöf, ekkert dót. Ég átti víst mjög erfitt með það, skiljanlega. Það er engin ein jólaminning sem stendur upp úr, jólin með fjölskyldunni þegar ég var barn voru alveg yndisleg. Það er líka dásamlegt að halda mín eigin jól með minni fjölskyldu. Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða það sem keypt er í búð? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? Ég er meira fyrir það sem er keypt í búð. Það er eitt jólaskraut sem fylgir mér frá því að ég var barn en ég tók það brotið upp úr kassanum þegar ég var að skreyta fyrir þessi jól. Það var mjög leiðinlegt.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? Smám saman hvarf þessi gleði sem fylgdi alltaf jólunum þegar maður var krakki en eftir að ég eignaðist barn sjálf þá hefur gleðin komið aftur því það er svo dásamlegt að upplifa jólin í gegnum börnin sín. Það er auðvitað meiri ábyrgð og meira stress sem fylgir jólunum núna, maður þarf að passa upp á að allt sé klárt en það er líka mikilvægt að sýna sér mildi. Það gerist ekkert þó svo að eldhússkáparnir séu ekki skipulagðir í desember. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Eru einhverjar ómissandi uppskriftir á þínu heimili? Ég er ekki mikið fyrir hamborgarhrygg og því er kalkúnn jólamaturinn á mínu heimili. Það er nauðsynlegt að vera með sveppasósuna hennar mömmu og auðvitað ljúffengt meðlæti með. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Ég er svo rosalega vanaföst og heimakær að ég get ekki ímyndað mér að vera ekki heima hjá mér um jólin. Það er þó eitthvað mjög heillandi við að vera í litlum skála í Englandi yfir jólatímann. Annars væri ég mjög til í að vera í New York í aðdraganda jólanna.

Trúir þú enn á jólaandann? Og hvað þýðir hann fyrir þig? Já, klárlega. Ég held að hann sé eitthvað sem þú þarft að finna hjá sjálfum þér. Fyrir mér er hann að reyna að njóta og vera í slökun með fjölskyldunni, borða góðan mat og reyna að brjóta upp á hversdagsleikann t.d. með ferðum í Aðventugarðinn, verslunarferðum í Reykjavík eða bara göngutúr að skoða jólaljósin. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Við erum að flytja eftir jólin þannig að eitthvað nýtt og fallegt á heimilinu væri æðislegt. Ef pabbi er að lesa væri líka algjör snilld ef hann vilji mála íbúðina fyrir mig. Ef þú gætir gefið eina gjöf sem myndi gleðja heiminn, hvað væri það? Mjög basic svar en auðvitað heimsfriður. Það er fátt mikilvægara en það. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Það eru nokkur ár síðan ég hætti að strengja mér áramótaheit þar sem ég stend aldrei við þau. Ég er að fara að taka þátt í næsta söngleik hjá Leikfélagi Keflavíkur núna í vor sem ég er mjög spennt fyrir, síðan ætla ég að leggja leiklistarskóna á hilluna í nokkur ár og einbeita mér að því að vera tveggja barna móðir en ég á von á mér í byrjun júní.


Gleðilega hátíð! Óskum starfsfólki okkar og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

MELEYRI


18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Freyjurnar Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, Guðbjörg Þórðardóttir og Eydís Eyjólfsdóttir ásamt þeim Þórunni Þórisdóttur frá Velferðarsjóði Suðurnesja, Herberti Eyjólfssyni frá Rauða krossinum Suðurnesjum og Pálma Hannessyni, sem tók við styrk til ungs manns sem nú sækir sér lækningu í London.

Skipulag í Reykjanesbæ Breyting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi 19. ágúst 2025 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mörk miðsvæðis M7 stækkar um 0,1ha til suðausturs, en hafnarsvæðið H4 dregst jafn mikið saman á móti. Fjöldi íbúða og byggingarmagn breytist ekki. Skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar 17. des 2025

reykjanesbaer.is

Freyjur styðja samfélagið L i o n s k l ú b b u r i n n Fr e y j a , Keflavík, afhenti styrki úr líknarog verkefnasjóði klúbbsins. Styrkirnir eru ágóði af sölu á jólasælgætiskrönsum sem Freyjur hnýttu og seldu. Lionskonur þakka bæjarbúum og fyrirtækjum fyrir góðar móttökur og við óskum ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar. Þeir sem fengu styrki eru Velferðarsjóður Suðurnesja, Rauði krossinn Suðurnesjum, Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma á Landspítala og ungur maður sem er í læknismeðferð í London. Þær Freyjur sem afhentu styrki í Keflavíkurkirkju væru þær Eydís B. Eyjólfsdóttir, Guðbjörg Þórðardóttir og Elsa Lilja Eyjólfsdóttir

Herbert Eyjólfsson, formaður Rauða krossins Suðurnesjum afhenti við sama tækifæri framlag til Velferðarsjóðs Suðurnesja. Framlagið er tilkomið þannig að Freyjur greiða fyrir aðstöð við sælgætiskransagerðina hjá Rauða krossinum Suðurnesjum og sú greiðsla fer óskipt til velferðarsjóðsins. Þórunn Þórisdóttir tók við framlaginu.

GÓÐAR GJAFIR n n a k k a ólap íj

HAFNARGATA 29. SÍMI 421-8585


Óskum Suðurnesjamönnum

Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Verne Iceland XCHG+7W Keflavík, Iceland


20 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

KEF Café opnar á Hótel Keflavík Nýtt kaffihús, KEF Café, hefur opnað á Hótel Keflavík og er hugsað sem samverustaður fyrir heimafólk jafnt sem gesti hótelsins. Kaffihúsið er opið alla daga frá kl. 05:00 til 17:00. „Það er óhætt að segja að KEF Café sé svar við kallinu frá bæjarbúum,“ segir Lilja Karen Steinþórsdóttir, aðstoðarhótelstjóri og markaðsstjóri á Hótel Keflavík. Hún segir að lengi hafi verið rætt um þörf fyrir notalegt kaffihús í bænum, þar sem fólk geti hist, stoppað við og fengið veitingar. Á matseðlinum eru kaffidrykkir, nýbakað bakkelsi og sætir bitar, auk þess sem gestum stendur til boða morgunverðarhlaðborð hótelsins. „Við byrjum einfalt og vel.

Við viljum gera einn hlut í einu af fagmennsku en planið er að stækka þetta skref fyrir skref,“ segir Lilja Karen.

Hugmyndir um „High Tea“ og frekari þróun Lilja Karen segir að næstu skref geti meðal annars falið í sér „High Tea“-upplifun, þar sem boðið yrði upp á te- og kaffisamsæti, og mögulega freyðivín, ásamt smurðu brauði, súpum, vöfflum, bakkelsi og smáréttum. „Við erum opin fyrir hugmyndum bæjarbúa og viljum vinna út frá því sem fólk vill. Þetta er kaffihús fyrir samfélagið – ekki bara fyrir okkur,“ segir hún.

Þá er einnig horft til þess að samræma starfsemi kaffihússins og Vatnsneshússins við hótelið til að rýmin geti nýst saman í fjölbreyttari rekstri. „Þetta eru hugmyndir á teikniborðinu en við ætlum að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér,“ segir hún.

Rými fyrir spjall, vinnu og stutt stopp Kaffihúsið er hannað með fjölbreytta notkun í huga, hvort sem fólk vill setjast niður í spjall, hitta vini, vinna í tölvu eða halda léttan fund. Lilja Karen nefnir einnig að glerskáli rýmisins geti hentað vel fyrir foreldra með barnavagn, þar

Lilja Karen Steinþórsdóttir segir nýtt kaffihús vera ákall frá bæjarbúum. sem hægt sé að sitja inni og hafa auga með vagninum fyrir utan. „Svo þjónustum við að sjálfsögðu líka þá sem vilja bara rétt stökkva inn, grípa kaffi og eitthvað með sér út í daginn,“ bætir hún við.

Morgunverður frá kl. 05:00 Morgunverðarhlaðborð hótelsins hefst kl. 05:00 og segir Lilja Karen að markmiðið sé einnig að hvetja bæjarbúa til að nýta sér það oftar. Hún nefnir að það sé meðal annars vinsælt hjá fólki sem nýtir aðstöðu KEF SPA.

Áhersla á samveru Að lokum sendir Lilja Karen jólakveðju og býður íbúa velkomna á staðinn. Hún rifjar jafnframt upp orð afa síns, Jóns William Magnússonar, sem stofnaði hótelið ásamt föður hennar: „Höfum gaman saman.“ „Það er einmitt stefnan okkar hér á KEF – að skapa fleiri tækifæri til að njóta samverunnar og hafa gaman saman,“ segir hún að lokum.

Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur Þökkum viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða


A L A S T Ú A L A S T Ú A L A S T Ú A L A S T Ú Jóladagatal Opnaðu glugga dagsins og þú gætir unnið glæsilega gjöf.

byko.is


22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

BOÐ HJÁ BYKO

BYKO í Reykjanesbæ hélt verktakakvöld í nýrri verslun sinni á Fitjabraut 5 í Njarðvík á dögunum. Eins og kunnugt er opnaði BYKO nýja og glæsilega byggingavöruverslun í Reykjanesbæ í húsnæði sem hýsir einnig stórverslanir frá Krónunni og Gæludýr.is. Sigurður Pálsson forstjóri BYKO ávarpaði gesti og boðið var upp á óformlegt spjall og veitingar. Meðfylgjandi myndir voru teknar í hófinu. VF/hbb

ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA. GLEÐILE

GT NÝ TT

ÁR!


24 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

„Þetta er í grunninn ævisaga og sjómannasaga, en sögð sem skáldsaga. Við fylgjumst með uppog niðursveiflum ævintýramannsins Bogarts og hans íðilfögru Monroe í gegnum frásögn sonar þeirra, hann er sögumaðurinn og hann dregur ekkert undan“.

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

Þröstur flutti Monroe og Bogart suður í Garðinn Ný sjómannasaga frá Þresti Jóhannessyni í jólabókaflóðið Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Þröstur Jóhannesson sendir nú frá sér sína þriðju skáldsögu, Elsku Monroe og Bogart. Þar mætir Bogart suður í Garð með Monroe „upp á arminn“ og af stað fer skáldsaga sem gerist suður með sjó, í Garðinum og Keflavík, laust fyrir aldamótin 1900. Á kápunni trónir mynd sem minnir á gamla Garðskagavitann og Suðurnesin leika stórt hlutverk í allri frásögninni. Segðu okkur frá nýju bókinni, Elsku Monroe og Bogart. Hvernig kviknaði hugmyndin? „Hún á svolítið óvæntan uppruna. Ég var að fylgjast með listamanni sem tók gamalt listaverk, styttu sem stóð úti á víðavangi, og færði hana inn í allt annað samhengi, inn í hús. Þetta fannst mér svo skemmtileg hugmynd að ég fór að hugsa: „Hvar gæti ég sjálfur tekið einhverjar persónur og skellt þeim í nýtt samhengi?“ Þá fæddist hugmyndin um Bogart og Monroe – að setja þau ekki í Hollywood heldur í Garðinn. Þaðan þróast sagan; þau koma suður í Garð, stofna heimili, fyrirtæki og útgerð og allt fer á flug út frá því. Í káputextanum er talað um „fyndna sögu með harmrænum undirtóni“ og sterka mynd af tíðarandanum suður með sjó. Hvernig myndirðu sjálfur lýsa bókinni?

„Þetta er í grunninn ævisaga og sjómannasaga, en sögð sem skáldsaga. Við fylgjumst með upp- og

niðursveiflum ævintýramannsins Bogarts og hans íðilfögru Monroe í gegnum frásögn sonar þeirra, hann er sögumaðurinn og hann dregur ekkert undan. Ég er mikið fyrir ævisögur og sjómannasögur, og hér er ég að leika mér bæði með hetjusögurnar og tíðarandann. Þetta er létt og gamansöm saga, en með alvöru undirtón, sem minnir okkur á hvað lífsbaráttan gat verið hörð.

Sögusvið um og eftir seinna stríð Hvenær gerist sagan? „Sagan er að gerast um og eftir seinna stríð. Sögusviðið í Garðin er ekki Garðurinn sem

fólk þekkir í dag, heldur samfélag sem er að mótast, með allt öðrum aðstæðum og kjörum. Garðskagavitinn, sem kápumyndin vísar í, er líka hluti af þessari ímynd og kápumyndin sjálf á sér sína sögu; hún er sprottin úr listaverki þar sem tengdadóttir mín gerði nokkra svona „klippimyndavita“. Eitt af þessum verkum hefur alltaf minnt mig á vitann í Garði og endaði svo sem kápumynd bókarinnar“.

Sjómannasaga, fjölskyldusaga og tíðarandamynd Hvernig byggirðu söguna upp? Hver er þessi sögumaður sem segir frá? „Sögumaðurinn er sonur Bogarts og Monroe, hann er í raun svolítið skrautlegur karakter, með sterkar skoðanir og eigin rödd. Í gegnum hann segi ég sögu fjölskyldunnar, sjómennskunnar og samfélagsins. Sagan byrjar í Garðinum, fer þaðan til Keflavíkur, síðan til

Reykjavíkur og víðar. Þetta er ekki beint nakin ævisaga mín, en ég byggi mikið á eigin reynslu, tengingum við mína ævi og því sem ég hef heyrt og lesið. Þannig verður til svona tíðarandamynd: hvernig hlutirnir voru, hvernig fólk talaði, hvernig það þurfti að bjarga sér.

Hetjur sjómennskunnar – og smá grín í bland Hvernig heldurðu að sjómannslífið hafi verið á þessum tíma sem sagan gerist? „Ég efast ekkert um að þetta hafi verið gífurlega erfitt líf. Ég er alinn upp við sögur úr Garðinum af því hverslags hetjur sjómenn voru og hvað þær hetjur voru oft líka bara fólk sem þurfti að lifa af. Í sjómannasögum og ævisögum er oft ákveðin upphafning: þar voru menn mestir og bestir, bráðnauðsynlegir og ómissandi. Mér finnst gaman að gera svolítið grín að því, leika mér með þennan stíl, án þess að gera lítið úr fólkinu.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 25 Við Íslendingar erum mikið „þetta reddast“-fólk, en í gamla daga var það bara staðreynd, þú varst að redda þér, annars lifðirðu ekki af “.

„Ég byggi mikið á eigin reynslu, tengingum við mína ævi og því sem ég hef heyrt og lesið. Þannig verður til svona tíðarandamynd: hvernig hlutirnir voru, hvernig fólk talaði, hvernig það þurfti að bjarga sér“.

Garðurinn, Keflavík og bókmenntalegar tengingar Þú talar um að sagan sé mikil Suðurnesjasaga. Hvernig nýtirðu þér Garðinn og Keflavík í frásögninni? „Mér finnst Garðurinn frábært svið til að velta lífsbaráttunni fyrir mér, hvað fólk þurfti að ganga í gegnum. Ég hef lesið heilmikið af sögum og ævisögum í kringum þetta, og þar finnur maður þessa nærveru við hafið og harðræðið. Svo tek ég líka inn Keflavík og tengi þetta við mitt eigið uppeldi. Ég nota Bogart og Monroe, vísa í setningar og minningar sem kallast á við þá sögu. Með því að blanda þessu saman verður til þessi tíðarandamynd sem mig langaði að skapa“.

2016. Árið 2020 gerði ég leikgerð fyrir svið upp úr þeirri sögu og samdi líka tónlist fyrir stuttmyndina Rán eftir Fjölni Baldursson. Elsku Monroe og Bogart er svo þriðja skáldsagan, sem kemur út nú árið 2025“.

Ísafjörður, sýslumaðurinn og fjögur börn

Frá Austurbraut í Keflavík til Ísafjarðar Þú ólst upp í Keflavík. Hvernig var sú æska? „Hún var bara mjög fín. Ég er fæddur 2. janúar 1969, sonur Ásdísar Óskarsdóttur húsmóður og Jóhannesar Gunnars Jóhannessonar útgerðarmanns. Ég ólst upp á Austurbraut í Keflavík, gekk þar í barna- og gagnfræðaskóla og síðan í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Samhliða skóla stundaði ég nám í Tónlistarskóla Keflavíkur og lærði klassískan gítarleik. Og eins og margir á Suðurnesjum vann ég í saltfiskverkun hjá pabba mínum allan námsferilinn“.

Tónlistin, pönkið og skáldskapurinn Þú hefur lengi verið að semja tónlist og texta, hvernig byrjaðirðu í því?

„Ég byrjaði mjög snemma að fást við laga- og ljóðasmíðar og önnur ritstörf. Fyrstu tækifærin voru að spila undir hópsöng á KFUM og K-fundum. Svo komu eftirmálar pönkbylgjunnar, blandaðir súrrealísku og Hank Williams og þá fór hugurinn annað. Ég fór að spila með ýmsum hljómsveitum: Trassarnir, Ofris, Vonlausa tríóinu, Texas Jesús, Hinir Guðdómlegu Neanderdalsmenn og Unaðsdalur. Það hafa komið út plötur með þessum

sveitum, sjö talsins, auk tveggja sólóplatna. Fyrstu ritsmíðar mínar birtust í ljóðaformi á plötunni Skjól í skugga með Ofris árið 1987.

Fyrri bækur og leikgerð Þetta er þriðja skáldsagan þín. Hvað kom á undan Elsku Monroe og Bogart? „Fyrst kom barnabókin Sagan af Jóa árið 2013. Svo gaf ég út barnabókina Bjalla og bæjarstjórinn sem gat ekki flogið árið

Í dag ertu búsettur fyrir vestan. Hvað dró þig á Ísafjörð? „Það er stutta svarið: konan. Hún er héðan að vestan en kom suður í Fjöbrautaskóla Suðurnesja. Við kynntumst í leikfélaginu í FS. Við byrjuðum á að búa saman fyrir sunnan en ég þurfti að borga til baka með því að flytja vestur og ég er eiginlega enn að borga, því ég er enn á Ísafirði! Það er mjög fínt að búa á Ísafirði. Hér er mikil náttúra sem er gaman að skoða. Hvað ertu að fást við í dag, fyrir utan skrifin og tónlistina? „Ég vinn hjá sýslumanninum. Síðan er ég alltaf að skrifa og tónlistin er ávallt þarna líka. Þannig að það er nóg að gera“.

Piparkökubakstur og nýjar hefðir Þegar Víkurfréttir heyrðu í Þresti var hann í piparkökubakstri með fjölskyldunni. Þröstur og eiginkona hans, Halla Magnadóttir,

Gleðilega hátíð

eiga fjóra stráka og tvö barnabörn. Strákarnir eru allir fluttir að heiman en búa bara í næstu götu, sem sé þægilegt. Þannig að þið eruð bara tvö í kotinu? „Já, og þetta er þvílíkur munur. Maður kaupir fimm pulsur í pakka og það er afgangur!“ Nú eru jólin fram undan. Eruð þið dugleg að halda í hefðir? „Já, við blöndum gömlum og nýjum hefðum. Litla fjölskyldan okkar er með sínar rútínur, þar á meðal piparkökubakstur. Það var ekkert endilega stór hefð í minni barnæsku, en það er eitthvað sem við höfum byggt upp. Við hittumst, bökum kökur, skreytum og eigum okkar stundir. Þetta er einmitt svona atriði sem endurspeglar það sem mig langar líka til að fanga í skrifum: fólkið, hláturinn, sögurnar og tíðarandann“.

Að lokum Þröstur hvetur fólk til að kynna sér bókina Elsku Monroe og Bogart, létta en djúpa sjómannasögu þar sem Bogart og Monroe birtast á þeirra allra ólíklegasta stað: í Garðinum, suður með sjó, á tímum þegar lífsbaráttan var hörð en húmorinn bjargaði oft miklu.

Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

www.skolamatur.is

@skolamatur

@Skólamatur ehf


Suðurnesjum á a kj tæ rir fy og na la rs ve og a Skafmiðaleikur Víkurfrétt

7000 Fylgist m e

ð í Víkur

fréttum og

r a g n i n n i v

2025 a tt é ré f fr r u ík V u k k lu la ó íJ

á vf.is

Vinsælustu bækurnar!

GLÆSILEGIR

Útdráttarvinningar

Við drögum út glæsilega vinninga þrisvar í desember, 12., 19. og 23. desember, þar á meðal fjögur sjónvarpstæki frá Nettó og glæsilegan vinning frá Bústoð. Skilaðu miðanum þínum (með engum vinningi á) í Nettó í Krossmóa eða Iðavöllum. Nöfn vinningshafa birtast á vf.is

2

Aðgangur fyrir tvo í KEF SPA

50 þús. kr. gjafabréf

2 NEGARA ILMOLÍULAMPI MEÐ FJARSTÝRINGU

25

Gisting á Courtyard by Marriott í Reykjanesbæ og morgunverður fyrir tvo.

Nóa & Síríus konfektkassar

2 2

LG 65“

ART TV LG UHD SM

10.000 kr. áskrift Nilfisk ryksuga Húsasmiðjan, Fitjum, Njarðvík

Gjafabréf kr. 20 þús. kr.30.000 gjafabréf

20

Nettó inneignir í appi 20 stk. 15.000 kr.

LG 75“

10.000 kr. inneign

FURNHOUSE - DELTA leður hægindastóll, koníaksbrúnn Verðmæti 230.000


Skafmiðaleikur Víkurfrétta , verslana og fyrirtækja á Suðurnesjum

a k k u l a l ó J ningar

n i v d n u s ú þ ö j S

JÓLALUKKA VF er boði hjá þessum aðilum w

Þú færð einn Jólalukku skafmiða þegar þú verslar fyrir 8.000 kr. (mest 5 miða) í þessum verslunum.

30%

Ljósanæturafsláttur af allri vöru. Gildir til 7. september. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10–18 LOKAÐ LAUGARDAGA. Tímapantanir í síma 420-0077 og á www.reykjanesoptikk.is

HÓLAGÖTU OG FITJUM

KROSSMÓA

IÐAVÖLLUM

Þú færð Jólalukku skafmiða þegar þú verslar fyrir 8 þús. kr. er mætt á Hafnargötu 40

KROSSMÓA

IÐAVÖLLUM

er mætt á Hafnargötu 40

Fjarskiptapakkar og vörur í

Fjarskiptapakkar og vörur í verslun á Ljósanæturtilboði verslun á Ljósanæturtilboði Léttar veitingar á fimmtudags- og laugardagskvöld

Léttar veitingar á fimmtudagsBörninog fá laugardagskvöld ljósabönd á laugardag á meðan birgðir endast Börnin fá ljósabönd á laugardag á meðan birgðir endast

Við drögum út glæsilega vinninga þrisvar í desember, 12., 19. og 23. des. Skilaðu miðanum þínum (með engum vinningi á) í Nettó í Krossmóa eða Nettó Iðavöllum. Fylgstu með á vf.is.

Tengdu.is/Kapalvæðing, býður alla Tengdu.is/Kapalvæðing, býður alla fjarskiptaþjónustu í heimabyggð fjarskiptaþjónustu í heimabyggð

Tengdu.is · Hafnargata 40 · Sími 415 1800 · tengdu@tengdu.is · www.tengdu.is

Tengdu.is · Hafnargata 40 · Sími 415 1800 · tengdu@tengdu.is · www.tengdu.is

a k k u l a l Jó Það er gaman að skafa! Skafmiðaleikur Víkurfrétta

2025


28 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Styrkþegar á sviðinu í Stapa.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja úthlutar 53 milljónum til 43 verkefna Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2026. Alls bárust 64 umsóknir um rúmlega 160 milljónir króna, en sjóðurinn úthlutar nú 53 milljónum króna til 43 menningar-, samfélags-, atvinnu- og nýsköpunarverkefna á Suðurnesjum. Úthlutunarhátíðin fór fram í Stapanum í Hljómahöll föstudaginn 21. nóvember þar sem

Kvennakór Suðurnesja flutti tvö lög við hátíðlega stemningu. Kórinn hlaut sjálfur styrk fyrir

Landsmót íslenskra kvennakóra sem haldið verður í Reykjanesbæ næsta sumar. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja er að styðja við fjölbreytt menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni í landshlutanum, í samræmi við markmið

Sóknaráætlunar Suðurnesja. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og voru umsóknir metnar út frá skýrum áherslum og markmiðum.

Stærstu styrkveitingarnar Meðal stærstu styrkja úthlutunarinnar má nefna: n Safnahelgi Suðurnesja – fær 3,5 m.kr. á öðru ári þriggja ára samnings sem eitt af lykilmenningarverkefnum svæðisins. n Nanókísill úr jarðhita – prófanir í landbúnaði (GeoSilica Iceland hf.) – fær 3,3 m.kr. til þróunar grænnar og sjálfbærrar lausnar fyrir íslenskan landbúnað. n Stóru sólmyrkvagleraugun (Reykjanes jarðvangur) – fær 2,7 m.kr. til undirbúnings fyrir almyrkva á sólu 12. ágúst 2026, þar sem lögð verður áhersla á öryggi og fræðslu fyrir íbúa og gesti. n Barnamenning í Reykjanesbæ – BAUN – fær 2,5 m.kr. til umfangsmikillar barnamenningarhátíðar í samstarfi menningarstofnana, leik- og grunnskóla. n Grindavíkurskip – tíróinn áttæringur (Hollvinasamtökin Áttæringurinn) – fær 2,5 m.kr. til að ljúka nýsmíði áraskips sem er mikilvægt menningar- og sjóminjasafn fyrir Grindavík. Auk þess hlutu fjölmörg verkefni 2 milljónir króna í styrk, þar á meðal: n Landsmót íslenskra kvennakóra í Reykjanesbæ Skelin – barnamenningarhátíð í Suðurnesjabæ n Hvar eru hvalirnir? – hvalarannsóknir Þekkingarseturs Suðurnesja n Aukin sóknarfæri – dósavél hjá Litla brugghúsinu n Sjódavatn (Urta Islandica) – framleiðsla á vistvænum steinefnadrykk úr jarðsjó n Ný kynslóð íslenskra dróna með opnum arkitektúr n Neskja ehf. – stofnun handverkskonfektgerðar í Grindavík

Gæði og þjónusta Gæðiogog þjónusta Gæði þjónusta 53 ár Gæðiíog þjónusta í 53 ár ár í 53 í 53 ár

Áratuga Áratuga reynsla er af gluggum á Íslandi reynsla er Westcoast af Westcoast gluggum á Íslandi Áratuga reynsla er af Westcoast gluggum á Íslandi Gluggar sem standast Íslenska veðráttu. Gluggar sem standast Íslenska veðráttu. Slagregnsvottaðir í 1200 Pa. Gluggar standast Íslenska veðráttu. Áratuga reynsla ersem af Westcoast gluggum Slagregnsvottaðir í 1200 Pa.á Íslandi Gluggar sem standast Íslenska veðráttu. Slagregnsvottaðir í 1200 Pa. Fyrirspurnir á husagerdin@husagerdin.is Slagregnsvottaðir í 1200 Pa. Nánar á www.westcoastwindows.com

Fyrirspurnir á husagerdin@husagerdin.is www.husagerdin.is Fyrirspurnir á husagerdin@husagerdin.is Nánar á www.westcoastwindows.com Fyrirspurnir á husagerdin@husagerdin.is Getum bætt við okkur verkefnum. Nánar á www.westcoastwindows.com Nánar www.husagerdin.is á www.westcoastwindows.com Húsagerðin hf. Síðan 1972 www.husagerdin.is

Gleðileg jól og farsælt HF. nýtt ár. HÚSAGERÐIN Þökkumhf •viðskiptin árinu sem er• 610472-0369 að líða! Husagerdin Iðavellir 14a •á 230 Reykjanesbær www.husagerdin.is

Húsagerðin hf. Síðan 1972 Húsagerðin hf. Síðan 1972 Húsagerðin hf. Síðan 1972

HÚSAGERÐIN HÚSAGERÐIN HF. HÚSAGERÐIN HF. HF.

Þessi verkefni bera með sér bæði sterka menningarlega slagsíðu og skýra áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, ferðaþjónustu og atvinnuþróun.

Fjölbreytt menningar- og samfélagsverkefni

Á sviði menningar- og samfélagsverkefna er styrkt víðfeðm flóra Husagerdin hf • Iðavellir 14a • 230 Reykjanesbær • 610472-0369 Husagerdin hf • Iðavellir 14a • 230 Reykjanesbær • 610472-0369 verkefna, allt frá varðveislu sögulegs minnis og menningararfs yfir í samtímalist og barnamenningu.

Husagerdin hf • Iðavellir 14a • 230 Reykjanesbær • 610472-0369

Þar má nefna: n Merking gamalla húsa í Sandgerði n Skrásetning munnlegra heimilda um rokksögu Reykjanesbæjar n Afmælisrit Kvenfélagsins Fjólu við 100 ára afmæli n Barnamenningarhátíðir, leiklistarnámskeið fyrir börn og Skálda-suð – ljóðahátíð á Suðurnesjum n Endurheimt listaverka Vilhjálms Bergssonar og enduruppbyggingu samkomuhússins Kirkjuhvols n Hlaðvarpið Táraborg um Skjaldarbrunann og þátttökuleiksýninguna Landamærabörnin sem varpa ljósi á sögu svæðisins Einnig eru styrktir fjölbreyttir tónlistar- og listsviðburðir, svo sem tónleikaröð í Hvalsneskirkju, tónleikar Márs Gunnarssonar með sinfóníuhljómsveit og ný verkefni á sviði kvikmyndagerðar og sagnamiðlunar.

Nýsköpun og atvinnuþróun í forgrunni Í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna er greinileg áhersla á grænar lausnir, staðbundnar vörur, nýja þjónustu og sértæka ferðaþjónustu. Þar má nefna: n Þróun jarðhita, nanókísils og varmaorkulausna í gegnum verkefnið Enabling at Sustainable Suðurnes n Nýjar leiðir í ferðaþjónustu með Saunagus Reykjanes, DroneTrails og Fjórhjólaævintýri Nýjar framleiðslulausnir í mat og drykk, svo sem handgert konfekt, sjódavatn og dósavél Litla brugghússins n Snjallar hraðahindranir í Reykjanesbæ og þróun íslenskrar drónatækni með opnum arkitektúr Úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja fyrir árið 2026 endurspeglar þannig öflugt og skapandi samfélag á Suðurnesjum, þar sem horft er bæði til varðveislu arfsins og djörfrar framtíðarsýnar á sviði menningar, nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar. Upplýsingar um alla styrki eru birtar á vef Víkurfrétta, vf.is

vf is


Gleðilega hátíð Samherji sendir landsmönnum hugheilar óskir um friðsæla og gleðiríka jólahátíð.


3 30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

ár af baráttu Bláa hersins

„Hafið er móðurlíf jarðar“ Það eru 30 ár síðan Tómas Knútsson tók þá ákvörðun að hætta að horfa þegjandi upp á drasl í hafinu og stofnaði Bláa herinn. Upphafið var ekki róleg hugleiðing heldur skellur. „Mér blöskraði náttúrulega bara hvernig var umhorfs,“ segir hann. Þá var hann að kenna köfun, meðal annars í Garði og Keflavíkurhöfn. Í hvert sinn sem hann fór með nemendur sá hann nýtt rusl á hafsbotni. Eitt kvöldið sá hann svo nóg. „Ég fann þarna tvö full bretti af fiskafurðum sem hafði verið sturtað af bíl úti í Garði, bara niðri á bryggju. Sólbráð í þessu, „product of Iceland“ á kössunum, plast, bretti og fiskleifar fljótandi um allt. Þá hugsaði ég bara: Nei, þetta gengur ekki.“ Þaðan er stutt í herferðina sem enn stendur yfir. „Hafið er móðurlíf jarðar,“ segir Tómas. „Að henda sjávarafurðum í hafið og ná svo aftur sjávarafurðum úr hafinu innan um allt draslið, ég get ekki séð það ganga upp.“

Frá einu köfunarliði í samfélagshreyfingu Umræðan um umhverfismál var ekki hávær á Íslandi um miðjan tíunda áratuginn. „Hún var ekki hátt skrifuð,“ rifjar hann upp. „Ég þurfti að taka það á mig að margir voru hundfúlir yfir því að ég skyldi vera að benda á hluti sem voru ekki í nógu góðum farvegi.“ En svo fóru tölurnar að tala sínu máli. Um eina helgina, við Garð, kafaði hann og félagar tóku upp 13 tonn af drasli. „Það sá hver heilvita maður

að þetta var algjörlega út úr kortinu,“ segir hann. Slys við köfun við Gerðabryggju, þar sem Rúnar Bárður Ólafsson vinur hans lést, varð til þess að Tómas helgaði baráttuna minningu hans. Þá fór fleira að gerast.

GMC-trukkurinn hans Tomma sem hefur komið Bláa hernum vel. Trukkurinn er nú í endurnýjun og bíður þess að vera settur saman eftir að hafa verið ryðbættur og málaður.

Hafnarstjórinn í Keflavík, Pétur, opnaði dyrnar. „Hann sagði bara: „Tommi, þú mátt hafa þetta eins og þú vilt, ég skal hjálpa þér eins og ég get.’“ Þegar Árni Sigfússon tók svo við sem bæjarstjóri var „blásið í herlúðra“, eins og Tómas orðar það, fyrirtæki, nefndir, bær og höfn tóku höndum saman.

„Þá var þetta ekki bara ég að nöldra. Þá spratt þetta út og varð alvöru samfélagsverkefni.“

Sjómennirnir, trukkurinn og „stríð við fjörurnar“ Stór vatnaskil urðu þegar sjómenn tóku upp plast og annað sorp um borð í stað þess að henda því fyrir borð. „Þetta var í gegnum LÍÚ og Hafnasambandið. Að taka á móti því sem féll til um borð, setja upp einhvers konar flokkunarkerfi í stað þess að henda sandi og sýnum út í heilagan sjó, það segir sig sjálft að það gengur ekki upp,“ segir Tómas og staðsetur þetta um 2000–2004. Svo kom trukkurinn frægi. Tómas hafði gengið fjörur Reykjanesskaga endilangar og séð netapoka, troll, loðnunætur og óhemjumikið drasl. „Ég hugsaði með mér: ef ég græja þennan trukk, þá fer ég bara í stríð við fjörurnar,“ segir Tómas og er þar að vísa í gamlan forláta GMC-hertrukk

„Það sá hver heilvita maður að þetta var algjörlega út úr kortinu“


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 31 með bómu í anda sams konar trukks sem Guðni Ingimundarson í Garði notaði við vinnu sína á Suðurnesjum í 50 ár. Samfélagið brást við. Verktakar tóku á móti draslinu að kostnaðarlausu, fyrirtæki studdu við bakið á Bláa hernum og átti hann „smá skotsilfur“ til að halda áfram. „Þarna var samfélagið að virka,“ segir Tómas. „Það var meiri og meiri samheldni um að vilja gera góðan hlut.“

Strandhreinsun á Garðskaga. Það kemur að jafnaði eitt tonn á ári upp úr Garðhúsavíkinni við gamla vitann.

Í ár hefur Blái herinn þrifið um 16 tonn, næstminnsta magn í 30 ára sögu hans. Minnst var það í fyrra, sjö og hálft tonn. „Ef 1.000 króna kílóið dæmið nær flugi fer ég í allar fjörurnar sem fólk er að biðja um að hreinsa úti á landi en veigrar sér við vegna kostnaðar,“ segir hann, og vísar þar til nýrrar hugmyndar: að fyrirtæki „kaupi“ hreinsun, eitt tonn, einn kílómetri, einn dagur, 1.000 krónur á kílóið. Tvö fyrirtæki hafa þegar keypt sitt tonnið hvort.

Litli herinn sem kveikti aftur neistann

Rusl eða hráefni – og hættan á slæmri ímynd

Eftir áratugi í baráttu, streitu við fjármögnun og svikin loforð var Tómas farinn að hugsa alvarlega um að hætta. Þá birtist níu ára stúlka. „Mamma hennar hafði samband við mig. Dóttirin, Una, hafði safnað dósum og flöskum og selt dót frá sér. Hún hafði lesið um að Blái herinn væri að berjast gegn plastmengun í hafi og þetta truflaði hana,“ segir Tómas. Útkoman: 25.100 krónur í styrk til Bláa hersins.

Í augum Tómasar er „rusl“ rangt orð. „Þetta er hráefni,“ segir hann. Hampiðjan tekur veiðarfæri og plast, þrífur og endurvinnur. Sokkar verða til úr veiðarfærum, plast sem verður að vörum erlendis, gamlir sorphaugar eru grafnir upp til að ná verðmætum. Allt eru þetta dæmi sem hann nefnir. „Við eigum að taka orðið rusl út og setja ‘endurvinnanlegt hráefni’ í staðinn. Þá berum við allt aðra virðingu fyrir hlutunum.“ En hann er líka alvarlegur þegar kemur að ímynd Íslands. „ ömurlegastasta sem samfélag getur fengið á sig er léleg ímynd vegna sóðaskapar,“ segir Tómas. „Það er svo stutt í að hægt sé að gera stuttmynd um sóðaskapinn og hún fari í spilun út um allan heim. Og það getur hver sem er gert þetta. Í dag er hver einasti einstaklingur fréttamaður með síma.“ Hann hefur margoft bent sveitarfélögum á lausnir, teygjur á tunnur, umbun fyrir þá sem skila inn hráefni og verkefni þar sem íþróttafélög og björgunarsveitir fá greitt fyrir að hreinsa svæði. „Þetta er ekkert flókið. Það kostar peninga að eiga hreina ímynd.“

„Ég var eiginlega búinn að vera með það í hausnum að fara að hætta. En þessi stelpa… hún kveikti í mér. Ég þurfti þessa stelpu.“ Daginn eftir heimsótti Tómas bekkinn hennar í skólanum. Hann kom með „góss úr sjónum“, hrúðurkalla, hákarlakjaft, krukkur og plast. Niðurstaðan lét ekki á sér standa. „Daginn eftir var hún búin að stofna Litla herinn og fór út að

„Umhverfismál eru bara orðin mjög neðarlega“ hreinsa skólalóðina,“ segir hann, greinilega hrærður enn. „Þetta var svo hjartnæmt.“ Nú hefur hann sótt um styrk til Úrvinnslusjóðs til að heimsækja 50 skóla, ræða við börn um það sem brennur á níu ára krökkum, og fara með þeim í fjöruferðir.

„Umhverfismál eru bara mjög neðarlega orðin“

Tómas og örlagavaldurinn Una, sem safnaði 25.100 krónum fyrir Bláa herinn, og bætti um betur og stofnaði Litla herinn sem hreinsaði skólalóðina.

Þrátt fyrir 30 ára starf og alþjóðlega viðurkenningu er fjármögnunin erfiðari en oft áður. „Umhverfismál eru bara mjög neðarlega orðin,“ segir Tómas. Hann nefnir 40% samdrátt í styrkjum og svikin loforð sem hafi tekið á. „Það er rosalega sorglegt að hitta gott fólk sem meinar vel, er tengt hagsmunum þess að hafið sé hreint, logar upp í ermina á sér – og svo er ekkert nema svik.“

„Við getum ekki lifað á ímyndinni einni“ – framtíð Bláa hersins Tómas er ekki bjartsýnn á hið opinbera sem fjárhagslegan bakhjarl. „Við eigum ekki að stóla á hið opinbera. Ég hef bara slæma reynslu af því,“ segir hann hreinskilinn. Hann talar um sjóði sem runnu í önnur verkefni, loforð sem gufuðu upp og fundi þar sem honum hafi verið „nánast vísað á dyr“. Lausnin að hans mati er samfélagssjóður, fyrirtæki og aðilar sem vilja sýna raunverulega samfélagslega ábyrgð. „Ég sé fyrir mér að Reykjanesskaginn, þessir 40 plús kílómetrar, þurfi 40–50 milljónir á ári. Skaginn tandurhreinn, besta auglýsing sem svæðið gæti haft.“ Framtíð Bláa hersins sér hann ekki endilega í eigin höndum. „Ég sé hann í höndum björgunarsveitanna og samfélagsaðila sem fá greitt fyrir að þrífa fjörur. Þau eiga tækin og tólin. Ég er alveg staðráðinn í að Blái herinn eigi eftir að lifa góðu lífi í höndum annarra – þegar sterkir aðilar taka sig saman og vilja halda ímyndinni okkar í toppi.“ Sjálfur hefur hann verið í sjálfboðavinnu í 25 ár og síðan verið „atvinnumaður í rusli“. „Ef ég fæ lítið af styrkjum er ég með léleg laun, ef ég fæ mikið vinn ég bara meira. Þetta er ekki flókið,“ segir hann og hlær. En undir lokin verður hann aftur alvarlegur. „Við höfum verið að selja ímynd hreinleikans. Við megum þakka Guði fyrir að fréttamenn séu ekki búnir að tæta okkur í spað. Besta auglýsingin er ekki blöðrur og hátalarar, hún er hreint land og hreint haf.“ Svo bætir hann við, eins og til að festa lokaorðin: „Áfram Ísland.“

Huldudalur, Innri Njarðvík. Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð með þakklæti fyrir gott samstarf og viðskipti á árinu sem er að líða.


32 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Eigendur Skólamatar heimsóttu nemendur og leikskólabörn í Stapaskóla. Hér eru þau f.v.: Fanný, Jón og Axel Jónsson, faðir þeirra og stofnandi Skólamatar. VF/pket.

Mikil þróun og ný verkefni Góður gangur hjá Skólamat sem fagnaði aldarfjórðungsafmæli í fyrra. Eitt stærsta fyrirtækið á Suðurnesjum. 240 starfsmenn. „Það er mikið að gerast, mikil þróun í gangi, ný verkefni og talsverðar breytingar hafa verið undanfarið hjá okkur í jákvæða átt, þannig að staðan í Skólamat er góð – bæði hjá okkur og á þessum markaði sem við störfum á,“ segir Jón Axelsson forstjóri Skólamatar en fyrirtækið er orðið eitt það stærsta og í hópi þeirra elstu á Suðurnesjum. Það fagnaði aldarfjórðungsafmæli í fyrra. Jón segir að breytingar hafi verið á markaðnum og líka hjá fyrirtækinu innanhúss. Þá hafi fyrirtækið verið í mikilli þróun. „Við höfum verið að bæta hjá okkur tækjakost sem auðveldar okkur að bjóða upp á aukið úrval af aðalréttum og meðlæti. Við höfum verið að bæta við tækjakost líka til að auka afköst því fyrirtækið er í vexti og við höfum verið svona að finna hvernig á að takast á við vöxtinn hjá okkur. Skólamatur hefur verið að vaxa um það bil 10% á ári í nokkuð mörg ár. Það kemur í svona þrepum hvar áskoranirnar eru í því.“ Jón segir nýjan tækjabúnað styðja við stefnu fyrirtækisins um hollustu. „Þetta eru sérhæfðar græjur sem samt gera það að verkum að við getum fylgt þessari stefnu að bjóða alltaf upp á hollasta kostinn sem mögulegt er.“

Samanburður við útlönd sýni að Íslendingar standi sig vel. „Það er mikill munur á því hvernig matseðlarnir eru fram settir, raðað saman og innihaldið á réttunum og við sjáum það í erlendum samanburði að við getum verið rosalega stolt af því sem við bjóðum okkar viðskiptavinum upp á. Og það er út af þessari þróun sem átt hefur sér stað á 25 árum.“

Frá 12.000 í hádeginu upp í 120 skóla og milljarða veltu Þið hafið vaxið mikið frá því að þið voruð 20 ára fyrirtæki. Hverjar eru helstu lykiltölurnar í dag – starfsmenn, veltan, umfang? „Þegar við voruð 20 ára fyrir, fyrir sex árum síðan, vorum við að ná 12.000 máltíðum í hádeginu og vorum að sinna 60-70 skólum og þá var það mestan part grunnskólar. Á þessu tímabili höfum við bætt við okkur gríðarlega mikið af

leikskólum og það er talsverður munur á þjónustu við leik- og grunnskóla. Leikskólarnir bjóða upp á morgunmat, ávaxtanesti, hádegismat og síðdegisnesti og það eru minni einingar í hvern skóla. Þannig að við höfum nálgast það talsvert öðruvísi.“ Rekstur Skólamatar hefur aukist á flestum sviðum, í veltu, fjölda starfsmanna og umfangi en ekki er langt síðan að fyrirtækið tók í notkun nýja viðbyggingu. „Við erum að velta 3,5 til 4 milljörðum á þessu ári og hjá okkur eru um 240 starfsmenn. Núna erum við komin upp í 120 útstöðvar, leikog grunnskóla og það eru aðeins fleiri leikskólar heldur en grunnskólar í þeim hópi.“ Þá bætast við heilmörg verkefni í einu, eins og nýlega í Reykjavík: „Frá 1. október vorum við að bæta við okkur í Reykjavík til dæmis 30 skólum, 25 leikskólum og fimm grunnskólum. Það hefur verið mikið verkefni að takast á við því kerfin okkar eru orðin það rútíneruð. Innviðirnir okkar hafa tekist á við þetta ágætlega.“

Jón leggur áherslu á að fólk misskilji stundum starfsemina þegar það sér bíla fyrirtækisins á ferðinni en þeir eru um tuttugu talsins. „Margir halda að bílarnir okkar keyri á staðina með heitan og tilbúinn mat, þannig er það ekki. Við erum með mat sem er tilbúinn til eldunar sem er búið að undirbúa, magntaka og svo á lokaeldun sér stað í skólanum.“ Meginlínan sé sú að Skólamatur sjái um bæði hráefni og vinnuafl, en eldamennskan fari fram í skólunum sjálfum. „Við erum með starfsfólkið í vinnu hjá Skólamat í leikskólanum eða grunnskólanum og það sér um matreiðsluna en fær bara tilbúinn „pakka“ sem hentar. Með þessu sparast mikið af sérhæfðu fólki sem kannski skortur er á. Með þessu þarf ekki að vera menntaður matreiðslumaður í öllum skólum. Þeir eru í miðlæga eldhúsi Skólamatar, tilbúnir í bakka upp fyrir fólkið sem vinnur í skólunum.“

Mikil sérhæfing – og stóra markmiðið Jón segir að á bak við reksturinn sé mikil fagmennska og sérhæfing.

„Þannig að þetta starfar sem ein heild og við náum mikilli sérhæfingu. Við erum með matvælafræðing eða starfsmann með menntun í næringarfræði, nokkra matreiðslumeistara og mjög sérhæft fólk sem fylgir eftir gæðaferlum til að ná stóra markmiði Skólamatar, sem er að ná matnum sem fer á diskinn upp í munn og ofan í maga á börnunum okkar. Og það þarf að vera hollur matur, góður matur og svo margt annað.“ Stóra verkefnið sé að tryggja hollustu og gæði – og fylgjast skipulega með. „Það er stóra verkefnið okkar sem við fylg jumst mikið með, með okkar mælitækjum, hvernig tekst til. Þannig að við erum meðal annars að þjónusta okkur foreldra, að börnin okkar borði hollan mat.“

Nýtt miðlægt eldhús – og spurning um næstu stækkun Þið stækkuðuð nýlega húsnæði og tókuð nýtt miðlægt eldhús í notkun. Gengur það upp miðað við tíu prósenta vöxt eða þurfið þið þegar að huga að frekari stækkun? „Við tókum í gagnið nýtt miðlægt eldhús 2023. Það var vegna þess að

Stór vinnuveitandi

Suðvesturhornið – og eldað á staðnum Ykkar starfsemi er fyrst og fremst á stór höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu, er það ekki? „Starfssvæðið er Reykjanesið, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Reykjavík og upp í Mosfellsbæ. Við höfum aðeins verið á Suðurlandi. Þannig að það er suðvesturhorn landsins sem er okkar starfssvæði. Það hentar alveg fyrir þetta konsept eins og það er hjá okkur, vegna þess að við erum að elda í hverjum leik- eða grunnskóla. Við erum alltaf með ofn, uppþvottavél og tæki og tól í öllum eldhúsum. Og við sjáum líka um starfsfólk í eldhúsinu, sérhæft starfsfólk.“

eldhúsið okkar var alveg sprungið. Við erum langt komin með að fylla þetta eldhús upp og við erum byrjuð að hugsa næstu skref af því að það tekur allt tíma. En við erum núna í 2.500 fermetrum í okkar húsnæði í Reykjanesbæ. Þar er sérstakt framleiðslueldhús sem framleiðir réttina okkar sem við gerum frá grunni sjálf. Við erum með sérstakt sérfræðieldhús sem er aðskilið frá öðrum, þar sem að við erum með mat fyrir þá sem eru með ofnæmi og óþol og þurfa sérþjónustu. Svo erum við með lager og starfsmannaaðstöðu og ýmislegt. Þetta hefur nú bara tekist mjög vel, þessi framkvæmd sem við fórum í með stækkun á húsnæðinu. Við höfum auðvitað lært ýmislegt af því, en við erum mjög ánægð hvernig til tókst.“ Samt sé fyrirtækið þegar farið að horfa fram á næstu skref. „Við erum svona á fyrstu skrefum í því að skoða hvað, hvernig maður vill stækka, hvort maður vilji bæta við núverandi húsnæði eða jafnvel að koma upp öðru eldhúsi ef að vöxturinn heldur áfram, sem maður veit aldrei. Svo þarf að taka varfærin skref í rekstri og passa að ekki sé farið of hratt og ekki of skammt heldur.“

Við fáum athugasemdir frá nemendum, en á hverjum einasta degi skráum við niður í öllum skólum sem við erum í, skráum niður ánægju með þann rétt sem var þann daginn.

Um þriðjungur viðskiptavina Skólamatar er á Suðurnesjum þar sem fyrirtækið er með aðsetur og því er stærri hluti viðskipta við fyrirtækið, eða tveir þriðju, utan Suðurnesja. Fyrirtækið er orðið stór atvinnuveitandi á svæðinu. „Við erum með allan skalann, frá ómenntuðu fólki upp í hámenntað fólk með háskólagráður í okkar hópi. Stjórnunarteymið er fólk sem býr á Suðurnesjum.“ Hann bendir á að þjónustuaðilar séu líka að mestu héðan af svæðinu. „Þetta er bara eins og atvinnulífið virkar og við finnum mikinn velvilja hér á svæðinu gagnvart okkar fyrirtæki, hjá þeim sem þjónusta okkur og við þurfum að eiga samskipti við. Það er mjög þægilegt og gott að reka þetta fyrirtæki í Reykjanesbæ, staðsett hér.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 33 Saddir og sælir nemendur brostu framan í ljósmyndara VF.

Það hefur gengið vel að byggja upp húsnæði og fá pláss og aðgengi að fólki er bara mjög gott.“ Þið hljótið að teljast meðal stærstu fyrirtækja á Suðurnesjum, sérstaklega miðað við fjölda starfsmanna? „Já, þetta er stórt hér á svæðinu og þegar ég segi 240 starfsmenn, það eru ekki mörg fyrirtæki þannig. Flugstöðin, eins og gefur að skilja, sker sig úr þar, en jú, við erum stór á Suðurnesjum. En að matseðli dagsins hjá börnunum, hvernig er hann ákveðinn? „Það er gert með því að hlusta,“ segir Jón og … með því að hlusta á viðskiptavinina, sem eru nemendur, starfshópar skólanna, foreldrar eða aðrir, og síðan er líka að fara eftir ráðleggingum færustu sérfræðinga hvað hollt er að bjóða upp á og kynna það, koma því í gegn.“ Jón segir að Skólamatur líti líka á sig sem þátttakanda í uppeldisstarfi. „Við erum líka í uppeldisstarfi að kenna börnunum okkar að læra að meta ýmsar gerðir af mat. Það er ekki bara það að börnin séu að biðja um eitthvað óhollt eða eitthvað þannig, það er bara alls ekki þannig. Börnin sjálf, nemendur, hafa mikinn metnað fyrir bæði hollustu og gæðum og eru frábærir viðskiptavinir af því að þau láta skoðanir sínar í ljós.“ Hann segir að kerfisbundið sé fylgst með ánægju nemenda: „Við fáum athugasemdir frá nemendum, en á hverjum einasta degi skráum við niður í öllum skólum sem við erum í, skráum niður ánægju með þann rétt sem var þann daginn. Og það gefur okkur mikinn mælikvarða á hvort það þurfi eitthvað að laga til næst þegar boðið er upp á þennan ákveðna rétt. Það eru margir þættir sem tekið er tillit til. Hollustuviðmið, ánægja, tíðni rétta – sumt má vera oft og sumt sjaldan – og hvernig reynslan er líka, hvað er nýtt í boði frá birgjum eða nýjar aðferðir sem við getum boðið upp á til þess að elda mat. En við mælum síðan árangurinn og förum eftir honum.“

Vinsælustu réttirnir – og ýsan Geturðu nefnt þrjá vinsælustu réttina? „Ég er ekki með þau fyrir framan mig en ég myndi segja kjúklingaborgari, tortilla og kannski grjónagrautur – hann er vinsæll hjá mörgum, ekki öllum. Ég ætla að skjóta á þetta,“ segir Jón og brosir. Hvað með gömlu góðu ýsuna, er hún í boði? „Hún er í boði og nokkuð oft en hún er ekki vinsælasti rétturinn. Það er ákveðin áskorun að bjóða upp á fisk, hvernig maður ber hann fram eða matreiðir eða hvernig hann er settur fram. Það er áskorun en við höfum náð ýmsum leiðum og þar skiptir líka samstarf

við fiskbirgjana eða fiskvinnslurnar miklu máli. Þannig að það er boðið upp á ýsu, já,“ segir Jón og jánkar líka þegar hann er spurður hvort hún sé stundum steikt í raspi, sem er þekktur og vinsæll réttur á Íslandi.

Unnin matvara og gagnrýni En hvað segirðu þá um kjúklingaborgara – myndi hann falla undir það að vera unnin matvara? „ Já, já, það, allur matur er unninn á einhvern hátt en ef við kannski skilgreinum það, unnin matvæli, þá eru þau mismikið unnin. Það sem kannski er verið svolítið að gagnrýna þar eru innihaldsefni sem eru í mat. Að vera ekki með mikið af viðbættum efnum sem eru notuð til bragðbæta eða lengja geymsluþol, til dæmis. Langt framleiðsluferli og mörg innihaldsefni eru blönduð saman í mat. Það er unnin matvara, já. Þið fenguð gagnrýni fyrr á þessu ári frá móður í Reykjavík vegna innihaldsefna. Hvernig tókuð þið á því máli? „Við fáum reglulega gagnrýni á matinn okkar, við köllum eftir því en þetta dæmi sem þú nefnir náði hátt í fjölmiðlum og við hlustum á það sem þessi áhugasama móðir hafði að segja.“ Hann segir að gagnrýnin snúist oft um innihaldslýsingar: „Stundum er um það að ræða að fólk sé að lesa innihaldslýsingarnar okkar, sem eru mjög nákvæmar á netinu, og við höfum verið í fararbroddi með að birta nákvæmar innihaldslýsingar. Fólk þarf kannski skýringar á hvað hentar og ef einhverjar innihaldslýsingar eða innihald matvæla hentar ekki fyrir ákveðna einstaklinga, þá bjóðum við upp á sérfæði.“ Annars er maturinn okkar hollur og góður að mati flestra. Þannig að þegar kemur gagnrýni á innihald matarins þurfum við kannski að standa okkur betur í því hjá Skólamat að skýra hvaða innihaldsefni eru og til hvers þau eru og hvernig þetta er gert. Við tókum þessari gagnrýni og hlustuðum eins og við gerum alltaf.

Við teljum að við höfum komið á framfæri því sem þurfti og vorum í beinu sambandi við þessa konu, beint eða óbeint, og við þennan hóp. Allavega hefur umræðan dottið niður en við hvetjum til umræðu um gæði skólamáltíða af því að við höfum verið í fararbroddi við að bæta gæði skólamáltíða og munum halda því áfram.“ Hann rif jar upp að síðasti vetur hafi verið erfiður af ýmsum ástæðum. „Veturinn í fyrra var erfiður líka vegna þess að það kom upp erfitt mál með mötuneyti í leikskóla sem við vorum ekki með. Það hafði áhrif á ímynd okkar allra gagnvart leikskólamötuneytum. Það var góð ábending um það hvað þetta er vandasamt að standa að þessu og þá þarf að vanda vel til verka. Og við fundum fyrir þeirri umræðu.“

Meðlætisbarinn vinsæll Landlæknir hefur bent á að Íslendingar borði ekki nægilega mikið af grænmeti og ávöxtum. Þið hafið verið með salatbar og ávexti lengi. Hvernig gengur það? „Við erum leiðandi í því að kenna ungu fólki að borða grænmeti og ávexti og höfum verið það í örugglega 20 ár. Það er búið að vera salatbar hjá okkur í langan tíma, mjög mörg ár.“ Jón segir að fyrirtækið hafi lært mikið um áhrif framsetningar. „Við höfum lært mikið og þróað salatbarinn. Við sjáum að framsetning á grænmeti og ávöxtum skiptir miklu máli, hvernig það er skorið niður og hvaða grænmeti og ávextir passa með sem meðlæti. Er það forréttur eða desert? Við höfum náð góðum árangri í að þróa meðlætisbarinn og erum í stóru átaki núna að auka úrvalið þar. Við erum að bjóða upp á bygg, salöt og svona meira úrval í meðlætisbarnum sem er nýja nafnið á salatbarnum. Meðlætisbarinn geti líka verið valkostur fyrir börn sem eru ekki hrifin af aðalréttinum. „Ef þú ert kannski ekki spenntur fyrir aðalréttinum er hægt að fara í meðlætisbarinn og fá sér alla vega eitthvað á móti.“

Við höfum náð góðum árangri í að þróa meðlætisbarinn og erum í stóru átaki núna að auka úrvalið þar. Við erum að bjóða upp á bygg, salöt og svona meira úrval í meðlætisbarnum sem er nýja nafnið á salatbarnum. Meðlætisbarinn geti líka verið valkostur fyrir börn sem eru ekki hrifin af aðalréttinum.. Hann nefnir sláandi dæmi um breytingu á neyslu þegar framsetningunni var breytt. „Það var þegar við fórum úr því fyrir mörgum árum að bjóða upp á meðlætisbar þar sem hver og ein tegund var aðskilin frá annarri, ekki blandað salat í stórri skál, þá þrefaldaðist magn á hvern einasta nemanda sem hann fékk sér. Þá lærðum við að framsetningin skiptir máli og þá fórum við að þróa skurð enn betur og höfum þróað það mjög vel.“ Niðurstaða hans er skýr: „Við teljum okkur kunna leiðir til þess að koma grænmeti og ávöxtum í börn þannig að þeim líki. Það er ekki okkar reynsla að það sé eitthvað erfitt. Það gengur bara mjög vel. Auðvitað misvel, misjafnt eftir aldri, en með því að prófa og athuga hvað virkar og hvernig, þá höfum við náð að finna leiðir til þess að koma grænmeti og ávöxtum að nemendum.“

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir – breytingin stóra Eftir síðustu Alþingiskosningar var ákveðið að skólabörn skyldu fá ókeypis, heita máltíð í grunn-

skólum. Sú ákvörðun hafði áhrif á Skólamat en hvernig hefur þessi breyting – gjaldfrjálsar skólamáltíðir – komið út fyrir fyrirtækið? „Þetta gerðist fyrir síðasta skólaár. Þannig að það kom inn heill vetur og síðan þessi vetur, reynsla á þetta og þetta gerist í samstarfi stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar. Þetta var mikil breyting fyrir okkur vegna þess að þetta var engin breyting í leikskólanum, en í grunnskólum var það þannig að foreldrar skráðu nemandann ef þau vildu fá skólamatinn og greiddu þá hluta verðsins og sveitarfélagið hluta.“ Jón segir að áður hafi skráning og greiðsla foreldra verið ákveðið „eftirlitskerfi“ í sjálfu sér. „Ef ykkur líkaði ekki skólamaturinn þá bara skráðuð þið ekki nemandann í matinn. Við breyttum talsvert kerfunum okkar við þessa breytingu. Við þurftum að breyta hvernig nemendur voru skráðir til þess að þeir sem ekki vilja nýta sér skólamatinn geti þá haft það þannig. Þá sé ekki verið að búa til mat fyrir þá og ekki verið að rukka fyrir hann og finna leiðir til þess að minnka svo þetta verði ekki bara matarsóun.“ Lausnin sem þeir fundu felur enn í sér skráningu. „Það er áfram skráning í grunnskólum. Foreldrar skrá nemandann þó að þau borgi ekki fyrir það. Ef nemandi mætir síðan ekki í ákveðið mikið, og nýtir sér ekki matinn nógu mikið, þá er hann strikaður út af þessum lista yfir þá nemendur sem eru með skólamat og ef hann síðan ákveður að vilja nýta sér það áfram, dettur hann inn á listann aftur. Við erum með ákveðin kerfi á þessu. Þessi breyting var áskorun fyrir okkur en við teljum okkur hafa leyst hana vel í samstarfi við skólana. Við erum mjög stolt að segja frá því að matarsóun hefur ekki aukist við þessa breytingu, eins og við vorum hrædd um. Þannig að við höfum náð að halda utan um mætingu og kerfið virkar bara fínt.“ Framhald á næstu síðu.


34 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Heimilismatur – hugtak á hreyfingu Getum við sagt að þetta sé heimilismatur í grunninn? „Sko, hugtakið heimilismatur hefur verið svolítið á flökti undanfarin ár. Í huga okkar flestra er heimilismatur maturinn hjá ömmu. Þannig að við bjóðum upp á heimilismat, já, en það er bara misjafnt hvernig heimilin eru, með hvaða mat þau bjóða upp á. Yngri kynslóðir eru að breyta og við sjáum það á ýmsu að það er að minnka að heimilin geri mat frá grunni. Við erum svolítið að taka meira og meira undirbúinn mat inn á heimilið.“ En hann leggur áherslu á að grunnhugsunin sé samt sú sama: „Þessi heimilismatur eins og við þekkjum hann er það sem virkar hjá okkur. Almennt er þetta venjulegur, góður heimilismatur.“

Mæting jókst Hversu hátt hlutfall nemenda nýtti sér skólamat áður – og hvernig er staðan núna? „Þetta var 80–85%. Einn til tveir nemendur sem voru ekki, af hverjum tíu. Nú er þetta komið

upp í 90–95%, þannig að skráning nemenda klárlega jókst. Í þeim skólum sem við vorum í, var bara mætingin mjög mikil. Í yngstu árgöngum grunnskóla eru allir skráðir og voru allir skráðir. Í leikskóla eru allir að borða. Þegar kemur inn á fermingaraldur og unglingsárin er meiri sjálfstæður vilji. Þau vilja stundum fara að gera eitthvað annað og síðan í elstu bekkjum grunnskóla eykst mætingin aftur. Þetta eru mælingar sem við höfum séð ár eftir ár í mjög langan tíma.“ Hvernig meturðu þessa pólitísku ákvörðun – jákvætt, neikvætt eða hlutlaust? „Við í Skólamat höfum sagt það lengi að við séum ekki pólitík. Þegar að pólitíkin er búin að taka sínar ákvarðanir gagnvart skólamat, þá mætum við og framkvæmum það þannig. Við tökum ekki afstöðu til þessa. En þetta var klárlega áskorun, okkar mælingar sýna að foreldrar eru ánægðir með þetta. Þó að þetta sé umdeilt í umræðunni, þá sjáum við það í okkar viðhorfskönnunum að foreldrar eru sáttir við þessa breytingu. Það er líka staðreynd að það eru fleiri að nýta sér skólamatinn, þannig að þetta er gott að því leyti.“

Aukinn kostnaður sveitarfélaga Veistu til dæmis hvað þetta er að kosta Reykjanesbæ á hverju skólaári? „Ég er ekki með það á hreinu en við sjáum það bara á umræðunni að bærinn hefur sagt, vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hefur kostnaður okkar aukist, en það lá alveg fyrir að ef þeir ætluðu að taka á sig hlut foreldra, þá væri það viðbótarkostnaður.“ Hvernig gekk þetta áður fyrir sig? „Bærinn var áður að borga hluta af máltíð. Þetta virkaði þannig að það var gerður þjónustusamningur sem byggði á útboði. Þá voru einingaverð fyrir hverja máltíð sem að við afhendum og þá er ekki verið að rukka á jólum og páskum og þegar þeir eru í fríi og svona. Það var ákveðið verð og síðan gaf sveitarfélagið út gjaldskrá og hún var hluti af þessu verði og mismunurinn var greiddur af sveitarfélaginu. Við breytinguna yfirtekur sveitarfélagið hlut foreldranna en þetta var umtalsverð aukning fyrir sveitarfélagið.“ Hver er framtíðarmúsíkin og helstu áskoranir hjá Skólamat á næstu árum? „Framtíðarmúsíkin gengur út á að halda áfram að hlusta á markaðinn, hvernig hann er að þróast,

hvað er að gerast í skólamat almennt, hvað markaðurinn er að biðja um, en vera leiðandi líka í að kynna nýjar lausnir,“ segir hann en eitt stærsta verkefnið sé baráttan gegn matarsóun. „Við höfum verið í miklu átaki í matarsóunarverkefni, að þróa tölvukerfin okkar þannig að við nýtum matinn betur og minna fari í ruslið, og þar höfum við náð gríðarlegum árangri.“

Hugmynd föðurins Í lokin er óhjákvæmilegt að spyrja um uppruna hugmyndarinnar. Axel Jónsson, faðir þinn, hóf þessa vegferð árið 1999. Hvernig kviknaði hugmyndin? „Viðskiptahugmynd pabba míns kemur þegar einsetning grunn-

skólanna átti sér stað. Nemendur hætta að fara heim í hádeginu og eru allan daginn í skólanum og þá þurfa þau að borða. Þannig kemur þetta til og þá þarf að fara að finna lausnir og síðan hafa lausnirnar þróast og batnað.“ Einsetning grunnskóla varð árið 1990. Níu árum síðar stofnaði hann Skólamat. „Hann þurfti aðeins að melta þetta, koma þessu í gang. Hann hugsaði hratt. Markaðurinn þurfti að melta hans hugmyndir. En markaðurinn er í rauninni mjög sáttur í dag. Allavega þannig að það er vöxtur í eftirspurn á okkar þjónustu. Við erum og verðum bjartsýn og tökumst á við áskoranirnar með gleði og ánægju í samstarfi við marga aðila,“ segir Jón.

Allir nemendur skrá sig inn áður en þau fara að borða.

Við höfum verið í miklu átaki í matarsóunarverkefni, að þróa tölvukerfin okkar þannig að við nýtum matinn betur og minna fari í ruslið, og þar höfum við náð gríðarlegum árangri.

Krakkarnir í Stapaskóla voru ánægð með skólamatinn þegar Víkurfréttir litu við og tóku myndir af þeim í hádegishléi.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 35

Samanburður við nágrannalönd – og Ísland fremst í flokki Skólamatur hefur litið út fyrir landsteinana til að leita fyrirmynda – en niðurstaðan kom þeim sjálfum á óvart. „Við erum búin að fara aðeins erlendis á sýningar eða skoða hjá kollegum okkar í Evrópu. Við héldum að við værum að fara að læra hvað væri hægt að gera, vorum að skoða þarna róbóta, færibönd og fleira í eldhúsum sem eru stærri en okkar. En við sáum það þegar við fórum að tala við kollega okkar að þar eru menn að færa sig úr því að vera með plastumbúðir sem eru sendar úr miðlægum eldhúsum, og síðan er umbúðunum hent, yfir í það að vera með margnota umbúðir sem við erum búin að vera með alla tíð.“ Skólamatur hafi til að mynda lengi notað margnota diska. „Við vorum með postulínsdiska og færðum okkur síðan að mestu yfir í plastdiska sem eru léttari fyrir alla en eru margnota.“ Í matarsóunarmálum telur hann Skólamat vera skrefi á undan mörgum Evrópuríkjum. „Kollegar okkar eru alveg á byrjunarreit gagnvart matarsóun. Þar er bara áætlað ákveðið magn og restin fer í ruslið. Við erum með kerfi sem hlustar í báðar áttir þannig að við sjáum hvað fór mikið og stillum magn sem sent er í skólann eða eldað út frá því. Og við erum líka með kerfi að ef það vantar mat, þá erum við með leiðir til þess að bæta í.

Með svona leiðum höfum við náð gríðarlega miklum árangri í matarsóun. Nú eru tveir aðilar sem bíða eftir að koma til okkar, annar frá Þýskalandi og hinn frá Frakklandi, sem vilja fá að skoða hvaða leið við hérna uppi á Íslandi erum að nota í að takast á við matarsóun, af því að menn sjá auðvitað kostn-

aðarsparnað, líka aukna ánægju þegar menn byggja svona tvíhliða kerfi. Þetta hefur komið okkur á óvart núna í vetur og síðastliðið vor þegar við vorum að fara út – þetta samstarf sem við höfum átt þarna – og ég sé að þetta er bara eitthvað sem er að þróast áfram og ég er mjög bjartsýnn gagnvart framtíð skólamáltíða á Íslandi.“

Komum vel út í samburði við útlönd Hvernig er staðan í leik- og grunnskólum í nágrannalöndum

okkar, til dæmis á Norðurlöndum? „Það er mjög misjafnt,“ segir hann. „Danir til dæmis, við sjáum það á fólki sem við þekkjum í Danmörku að þar eru allir foreldrar bara að senda börnin með nesti. Og við fáum stundum svona skilaboð hérna, hvort að við getum ekki komið til Danmerkur – ‘ég er mjög leiður á að gera þrjár samlokur á dag fyrir hvert barn og þrjú börn, á hverjum degi’.“ Í Noregi eru menn eitthvað að byrja með heitar máltíðir. Í Svíþjóð

Leikskólakrakkarnir í Stapaskóla voru dugleg að borða hakk og spaghettí þegar ljósmyndarar VF litu við.

er boðið upp á heitar máltíðir alls staðar o g s v e i t a rfélögin bjóða upp á það. Í Finnlandi er mikið talað um skólamáltíðir. Þar hefur það verið stór partur í góðu skólakerfi. Þar er alls staðar boðið upp á heita máltíð í leik- og grunnskóla. Í Þýskalandi er það svipað, það er boðið upp á á flestum stöðum, í Frakklandi og Bretlandi líka, þar er mikið um mötuneyti.“ Þannig að við erum bara framarlega, Íslendingar, miðað við þetta? „Ég sé það hvað við erum mjög framarlega í að bjóða upp á, ekki bara skólamáltíðir, heldur hvaða máltíðir er boðið upp á,“ segir hann. „Það sem boðið er upp á er að mínu mati – og það er auðvitað getur verið umdeilt og menn hafa allavega skoðanir á því – en að okkar mati í Skólamat eru gæði skólamáltíða og eldunaraðferðir sem við bjóðum upp á og samsetning matseðla mjög framarlega þegar við berum okkur saman við kollega okkar í Evrópu.“

Páll Ketilsson pket@vf.is

Fyrsta áfanga Hlíðahverfis í Reykjanesbæ lýkur í júlí 2020 ÍBÚÐIR Á SÖLU HJÁ FASTEIGNASÖLUM

GLEÐILEGA HÁTIÐ og farsælt komandi ár


36 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Ástrós Skúladóttir starfar hjá Amgen deCODE Genetics og er nýbúin að verja doktorsritgerð í erfðafræði.

Ástrós Skúladóttir er komin sjö mánuði á leið með sitt annað barn, nýbúin að verja doktorsritgerð í erfðafræði og hefur unnið í rúm tíu ár við rannsóknir á hreyfitruflunum og taugasjúkdómum. Hún er uppalin í Keflavík, dúxaði FS og vinnur í dag hjá Amgen deCODE Genetics, áður Íslenskri erfðagreiningu, þar sem hún leitar að lyfjatargetum og lífmerkjum sem gætu gjörbreytt greiningu og meðferð Parkinsons.

Rannsakar Parkinson og lífmerki framtíðarinnar Sjö mánuðir á leið og doktorsvörn, mest hrædd við að kasta upp Þegar við hittum Ástrós er stutt síðan hún gekk upp í pontu til að verja doktorsritgerðina sína, með ófædda dóttur númer tvö í maganum og margra mánaða ógleði að baki. „Ég var með ógleði fyrstu sex mánuðina og var að kasta upp á hverjum einasta degi,“ segir hún og hlær. „Mesti stressfaktorinn fyrir vörnina var eiginlega hvort ég myndi æla uppi á sviði. En sú litla, sem ég er með í maganum, sýndi sínar bestu hliðar og ég var alveg góð í vörninni..“ Ástrós á eina þriggja ára dóttur fyrir, svo þetta verða tvær litlar stelpur á heimilinu, samhliða kröftugum vísindaferli.

Tíu ár í hreyfitruflunum, stystu leiðina í doktorsnám Doktorsnámið var í raun bara formleg stimplun á starfi sem hún hefur þegar sinnt lengi. „Ég er búin að vinna við þetta sem ég skrifaði um í tíu ár,“ segir

hún. „Þetta var alltaf spurning um hvort ég ætti að skrá mig í doktorsnám, því ég var hvort sem er að gera vinnuna sem fer inn í svona verkefni.“ Hún ákvað að stökkva á tækifærið og skráði sig í doktorsnám, samhliða fullri vinnu. Hún var formlega skráð í tvö ár, sem er stysta mögulega tímalengd í slíku námi. Almennt er miðað við 3-5 ár. Ritgerðin snerist um erfðir hreyfitruflana og lífmerki, með sérstakri áherslu á Parkinson. Hvað veldur Parkinson, heilinn fer að skjóta á röngum tímum Parkinson er taugahrörnunarsjúkdómur þar sem ákveðnar taugafrumur í heilanum, sem framleiða taugaboðefnið dópamín, skemmast og deyja. „Það sem er í raun að gerast er ákveðin próteinupphleðsla á próteini sem heitir alfa-sýnúklein,“ útskýrir Ástrós. „Það gerist eitthvað sem veldur því að ekki er lengur hægt að flytja þetta prótein út úr taugafrumunum, það safnast upp og skemmir dópamín taugar sem stýra hreyfingu.“

Lyfin sem til eru í dag miða að því að bæta upp skort á dópamíni. Þau virka yfirleitt vel í byrjun, en ekki til lengri tíma. „Þú ert í raun að gefa aukaskammt af taugaboðefninu,“ segir hún. „Það getur orðið til þess að heilinn fer að skjóta þessum boðum á röngum tímum, fólk fær aðrar hreyfitruflanir sem það vill alls ekki, svo þarf stærri og stærri skammta þar til lyfið hættir að virka. Þess vegna er gríðarlega brýn þörf á að finna ný lyfja-„target“ og líka að geta greint sjúkdóminn miklu fyrr.“

Lífmerki í blóði geta flýtt greiningu um mörg ár Eitt af því sem Ástrós vinnur að er að finna lífmerki sem segja til um að sjúkdómsferli sé hafið, löngu áður en hreyfieinkenni sjást. „Lífmerki eru bara mælanleg merki um að eitthvað sé að gerast í líkamanum,“ segir hún. „Það þekkja allir kólesteról, hækkað kólesteról er lífmerki. Við erum að leita að próteinum, til dæmis í blóði, sem gefa vísbendingar um að Parkinson ferlið sé byrjað.“

...Við höfum náð að vinna rosalega vel saman og það skilar árangri,“ segir hún. „Það er mikið af kláru fólki sem ætlar sér langt, en líka mikið af nördum, á góðan hátt. Ég er ekkert undanskilin þeim hópi...

Í dag getur einstaklingur verið með ýmis ósértæk einkenni allt að tuttugu árum áður en hreyfitruflanir hefjast, eins og svefntruflanir, hægðatregða eða skert lyktarskyn. „Enginn tengir þetta við Parkinson,“ segir hún. „Fólk kemur yfirleitt fyrst til taugalæknis þegar það er farið að skjálfa. Þá horfir læknirinn á sjúklinginn, metur hann út frá ákveðnum skala, svo kemur viðkomandi aftur sex mánuðum seinna og ferlið heldur áfram. Það getur tekið allt að tíu ár að fá staðfesta greiningu.“ Í þriðju og síðustu vísindagrein doktorsverkefnisins skoðuðu þau prótein í mænuvökva og blóðvökva Parkinson-sjúklinga, með aðgang að einstöku gagnasafni frá Norður Svíþjóð. „Við vorum með sýni allt að 15 árum fyrir greiningu, við greiningu og svo árlega í átta ár eftir greiningu,“ segir hún. „Við fundum lífmerki í mænuvökva, sem er sterkt, en líka í blóði, og það er risastórt. Það er miklu minna inngrip að taka blóðprufu heldur en mænuvökva, sérstaklega hjá fólki sem er ekki komið með hreyfieinkenni. Þetta gæti gert læknum kleift að greina sjúkdóminn miklu fyrr og grípa inn í áður en heilinn verður fyrir miklum skaða.“

Skjálfti, sjaldgæfir erfðabreytileikar og yngsti sjúklingur 27 ára Doktorsverkefnið byggði á þremur aðskildum rannsóknum sem svo spunnust saman í einn boðferil. Í fyrstu rannsókninni skoðaði Ástrós skjálfta, bæði þann sem margir þekkja í stressi og álagi og svo hjá einstaklingum með varanlegan skjálfta. Þar fundust ákveðnir „leikmenn“, prótein og sameindir í boðferli sem tengdist skjálftanum.

Í annarri rannsókninni voru sjaldgæfir erfðabreytileikar í Parkinson í brennidepli. „Það er búið að rannsaka algengari breytileika mjög mikið,“ segir hún. „Við vildum skoða þessa sjaldgæfu, sem hafa oft miklu meiri áhrif á sjúkdóminn. Þeir eru gjarnan sjaldgæfir af því að þeir valda einhverju alvarlegu.“ Í þeirri rannsókn fundu þau erfðabreytileika í einu geni þar sem yngsti einstaklingurinn greindist með Parkinson aðeins 27 ára. „Til samanburðar er algengast að fólk greinist 60-70 ára,“ segir hún. Það sem gerði niðurstöðurnar sérlega áhugaverðar var að þessir sjaldgæfu breytileikar tengdust sama boðferli og kom fram í skjálftarannsókninni. Í þriðju rannsókninni, próteinrannsókninni, var sama boðferli svo staðfest út frá mælingum í mænuvökva og blóði. „Þetta er mjög sérstakt,“ segir Ástrós. „Að sjá mismunandi rannsóknartegundir, erfðabreytileika, prótein og ólík einkenni, allt benda á sama kerfið í líkamanum. Þá ertu bæði að útskýra hvernig ákveðin gerð af sjúkdómi verður til og finnur lyfja-„target“ sem hægt er að miða lyf við.“

DeCODE, nýtt nafn og samstarf við risa lyfjafyrirtæki Fyrirtækið sem flestir þekkja enn sem Íslenska erfðagreiningu hefur fengið nokkrar nafnabreytingar í gegnum tíðina. „Það var stofnað sem Íslensk erfðagreining,“ segir Ástrós. „Svo kaupir bandarískt lyfjafyrirtæki fyrirtækið árið 2012 og við notum heitið deCODE Genetics út á við. Það er auðveldara fyrir útlendinga en að segja Íslensk erfðagreining, þetta er svolítið Eyjafjallajökuls vandamál.“


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 37

...„Við fundum lífmerki í mænuvökva, sem er sterkt, en líka í blóði, og það er risastórt. Það er miklu minna inngrip að taka blóðprufu heldur en mænuvökva, sérstaklega hjá fólki sem er ekki komið með Ástrós er hér í háloftunum í flugvél innanlands með myndavél um hálsinn en þegar hún var um tíma leið á náminu tók hún sig til og hreyfieinkenni. Þetta gæti gert breytti til í lífi sínu. Eftir lestur á mjög svo áhugaverðri bók ákvað hún að sama og höfundur hennar - að gera reglulega eitthvað skemmtilegt læknum kleift að greina sjúkdóminn gera og áhugavert, á hverjum degi í heilt ár. Það var ýmislegt sem hún tók sér fyrir hendur á þessum tíma - en eitt af því var að ráða sig sem ljósmyndara miklu fyrr og grípa inn í áður en í háloftunum. Hún hafði öðlast smá þekkingu á myndavélum eftir að hafa setið oft fyrir sem módel og svo náði hún sér í meiri kunnáttu. Ástrós heilinn verður fyrir miklum skaða. .. fór hinum megin við myndavélina og myndaði ferðafólk sem keypti sér þyrlu- og flugferðir yfir Íslandi.

Í júní síðastliðnum varð breyting á stjórn og þá var heitinu breytt í Amgen deCODE Genetics, eftir móðurfyrirtækinu Amgen. Ástrós leggur áherslu á að hún tali sem starfsmaður, ekki fyrir hönd fyrirtækisins. En hún útskýrir samt vel hvaða hlutverki það gegnir gagnvart lyfjafyrirtækjum. „Við erum svolítið eins og akademísk stofnun innan lyfjafyrirtækis,“ segir hún. „Þau geta komið með hugmynd að „targeti“, spurt hvort við sjáum eitthvað í okkar gögnum sem styður það. Við skoðum gögn frá allt að fjórum milljónum einstaklinga. Stundum segjum við, nei, ekkert styður þetta, þið ættuð kannski ekki að eyða milljörðum í að prófa þetta í klínískum rannsóknum. Stundum segjum við, jú, þetta lítur mjög vel út.“ Lyfjafyrirtækin fá þó aldrei beinan aðgang að persónugreinanlegum gögnum. Þau fá aðeins úrvinnslu, niðurstöður og skýrslur.

Harður, karllægur, en skemmtilegur heimur Vísindaheimurinn sem Ástrós starfar í hefur lengi verið karllægur. „Þessi vísindi hafa verið svolítið karllæg,“ segir hún. „Það er enginn að fara að taka strax mark á tvítugri ljóshærðri stelpu sem segir ekki neitt. Þú þarft að hafa bein í nefinu, segja skoðanir þínar og standa á þínu.“ Hún segir samkeppnina mikla, sérstaklega þegar kemur að lyfjaþróun, þar sem allir vilja vera fyrstir á markað. En innanhúss sé stemningin allt önnur.

„Við höfum náð að vinna rosalega vel saman og það skilar árangri,“ segir hún. „Það er mikið af kláru fólki sem ætlar sér langt, en líka mikið af nördum, á góðan hátt. Ég er ekkert undanskilin þeim hópi,“ bætir hún brosandi við.

Gögnin eru geymd á lokuðum innri vef, ekki tengdir netinu Íslendingar hafa áratugum saman gefið sýni til erfðarannsókna og margir muna eftir munnstroksátaki í framhaldsskólunum. Ástrós segist muna sjálf eftir því átaki. „Við getum einangrað erfðaefni úr nær hvaða vef sem er, við höfum meira að segja fengið táneglur,“ segir hún. „En við megum ekkert gera með þessar upplýsingar nema fólk hafi skrifað undir leyfi. Þetta er eingöngu notað í rannsóknir, ekki fyrir lögreglu eða neitt slíkt.“ Til að samkeyra erfðagögn með sjúkraskrám þarf svo sérstakt leyfi frá Vísindasiðanefnd og Persónuvernd. Gögnin eru kóðuð og þriðji aðili heldur utan um tenginguna milli kóða og kennitalna. „Ég get ekki flett upp neinum einstaklingi,“ segir hún ákveðin. „Og við vinnum bara með gögnin á innri vef sem er ekki tengdur netinu. Ég get ekki tekið þau með mér heim. Þegar Amgen kom fyrst og fór yfir okkar öryggismál voru þau hreinlega hissa á því hvað öryggið er mikið, það er meira en hjá þeim sjálfum.“

Frá leiðinlegum erfðafræðikúrsi í FS í fremstu vísindi í heiminum Það er nokkuð skemmtileg kaldhæðni í því að Ástrós, sem í dag vinnur við erfðafræði og tauga-

vísindi, fannst erfðafræði leiðinleg í framhaldsskóla og háskóla. „Erfðafræðiáfanginn í FS var algjörlega leiðinlegasti áfanginn sem ég fór í,“ segir hún og hlær. „Í HÍ var erfðafræðikúrsinn líka verstur á einkunnablaðinu. Ég ætlaði aldrei að fara í þetta.“ Hún fór í lífefnafræði í Háskóla Íslands, útskrifaðist og fékk starf hjá Nýsköpunarmiðstöð. Eftir þrjá mánuði fékk hún símtal frá Íslenskri erfðagreiningu með boði um viðtal og hærri laun. Hún heillaðist af skipulögðum rannsóknarstofum og hreinu vinnuumhverfi og skipti um starf. „Svo fann ég fljótt að ég þurfti meira krefjandi verkefni,“ segir hún. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á heilanum, fór að gúgla hvaða staðir væru bestir til að rannsaka heilann og taugasjúkdóma. Íslensk erfðagreining, taugadeild, var þar á toppnum með öðrum. Hún var bókstaflega við hliðina á rannsóknarstofunni minni. Ég labbaði bara yfir, bankaði upp á hjá yfirmanninum mínum og spurði hvort hann ætti verkefni handa mér.“ Síðan hefur hún verið þar, nú í ellefu ár, verkefnin breytast, áherslurnar færast til, en kjarni starfsins er sá sami, að skilja sjúkdóma betur og finna leiðir til að lækna þá.

koma og hitta þær. Þegar ég sé Keflvíking gera eitthvað flott hugsa ég alltaf, þessi er frá Keflavík.“ Hún á enn æskuvinkonur úr hverfinu og úr skólanum, fór í FS, spilaði körfubolta og dúxaði að lokum í skólanum. „Ég var eiginlega búin eftir þrjú ár, en vinkonur mínar voru allar að útskrifast eftir þrjú og hálft,“ segir hún. „Þannig að ég tók eina kósíönn í lokin, listaáfanga og íþróttir.“ Í dag býr hún í Garðabæ, eftir tíu ár í Vesturbænum, en tengingin við heimabæinn er enn sterk. „Ég sé ekki beint fyrir mér að flytja aftur í bráð, lífið og vinnan eru í Reykjavík,“ segir hún. „En alltaf þegar ég kem hingað og eyði degi eða kvöldi þá hugsa ég, já, mér væri alveg trúandi að búa hér aftur, hitta fólk í búðinni. Ræturnar eru mjög sterkar.“

Jólabarn sem elskar sörur Jólin eru stór hluti af lífi Ástrós og hún á margar uppáhaldshefðir. „Ég er rosalegt jólabarn,“ segir hún glaðlega. „Mér finnst rosalega gaman að baka sörur með systur minni og skreyta jólatréð með dóttur minni.“ Síðustu ár hefur fjölskyldan haldið jólin heima hjá sér. „Við erum komin með okkar eigin jólamatarhefðir og mér finnst skemmtilegt að standa í undirbúningi,“ segir hún. „Ég sé ekki endilega um að elda allt, stundum er það bara lyktin sem skiptir máli. En ég tek á mig eftirréttinn, það er mitt.“ Í ár verða jólin líka ákveðin bremsa eftir strembið ár. „Ég hlakka bara til að sitja með fjölskyldunni, setja fæturna upp, njóta og vera aðeins jarðbundin eftir alla þessa vinnu,“ segir hún.

Keflavíkurstoltið, FS og körfuboltinn Ástrós talar með mikilli hlýju um heimabæinn. „Mér finnst alltaf rosalega gott að keyra inn í Keflavík,“ segir hún. „Öll fjölskyldan mín er flutt þaðan, en vinkonur mínar eru hér enn og mér þykir ótrúlega vænt um að Ástrós sat fyrir svörum hjá Kristjönu Benediktsdóttur, tannlækni. Kristjana fór í fréttamannahlutverkið en hún var sjálf í VF viðtali í október. Við munum sýna „lifandi“ viðtalið í mynd og hljóði um hátíðirnar á vf.is.

Ástrós með eiginmanni sínum, Birki Má Árnasyni og dótturinni Dagbjörtu Rós, 2 ára og eiga þau von á öðru barni á nýju ári.

Ástrós með æskuvinkonum sínum úr Keflavík á góðri stundu.


38 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

SENDUM ÍBÚUM Í VOGUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR

Jólin hjá Ómari Davíð Ólafssyni, eiganda Vélsmiðju Grindavíkur

Óskin um að komast heim Þótt síðustu ár hafi verið þung fyrir Grindvíkinga segir Ómar Davíð Ólafsson, eigandi Vélsmiðju Grindavíkur, að 2025 hafi þó verið skárra en árið á undan, þegar eldgos og óvissa settu mark sitt á lífið. Hjá honum og fjölskyldunni snúast jólin um rólega samveru, heimsóknir og húmor – og þá stund þegar kveikt er á jólaljósunum í kirkjugarðinum og fjölskyldan tendrar sín ljós. Áður en hamborgarhryggurinn fer í ofninn og Eyþóri blastar „Dansaðu vindur“ fer Ómar ekki leynt með stóru óskina í ár: að eldsumbrotum á Reykjanesskaganum ljúki og Grindvíkingar fái að flytja heim á ný. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið 2025 hefur verið ágætt, betra en 2024 með tilheyrandi eldgosum og óvissu.

um jólin!

Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Ég blasta alltaf „Dansaðu vindur“ með Eyvör þegar líður að jólum.

Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.

Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Það mun vera Christmas Vacation. Hún klikkar aldrei. Hver er uppáhaldsjólahefðin þín og hvers vegna? Ætli það sé ekki þegar kveikt er á jólaljósunum í kirkjugarðinum, þá förum við fjölskyldan og tendrum ljós. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Ætli það sé ekki samvera fjölskyldunnar yfir hátíðirnar. Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum – hvort sem það var sem þú gafst eða fékkst? Það er alltaf gaman að fara í heimsókn til ættingja og lauma einni óæskilegri mynd í ramma á stofuborðið án þess að nokkur sjái til. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Úff, fyrstu jólin! Ég man nú ekki hvenær það var, en það kemur alltaf sterkt upp í hugann þegar byrjað var að skreyta á

OPNUNARTÍMAR UM JÓL OG ÁRAMÓT Starfstöðvar Kölku í Helguvík og Vogum verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Að öðru leyti verða starfstöðvar fyrirtækisins opnar eins og venjulega. Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins: www.kalka.is

mínu heimili. Skraut í öllum loftum og greni sett á allar myndir á veggjum. Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða það sem keypt er í búð? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? Við erum nánast eingöngu með keypt skraut í dag, fyrir utan það sem krakkarnir koma með heim úr skólanum. Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? Þetta er allt í frekar föstu formi. Ég hlusta á messuna kl. 18.00 á Rás 1 á meðan maturinn mallar í ofninum. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Eru einhverjar ómissandi uppskriftir á þínu heimili? Það er þessi klassíski hamborgarhryggur með brúnaðar kartöflum og heimagerða aspassúpu í forrétt. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Ég hef eytt jólunum á Tenerife og Kanarí og það er bara mjög fínt. Trúir þú enn á jólaandann? Og hvað þýðir hann fyrir þig? Já, ég hef trú á að jólaandinn sé hollur öllum. Mikilvægt er að geta sameinað fjölskyldu og slakað á í amstri dagsins. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Það væri óskandi að við Grindvíkingar fengjum þær fregnir að eldsumbrotum væri lokið á Reykjanesskaganum og gætum flutt heim. Ef þú gætir gefið eina gjöf sem myndi gleðja heiminn, hvað væri það? Er það ekki friður á jörð. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég strengi aldrei áramótaheit en geri klárlega eitthvað skemmtilegt á næsta ári.

Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða!

Víkurfréttir koma næst út 27. desember. Skilafrestur á efni og auglýsingum er 22. desember. Auglýsingar sendist á andrea@vf.is Efni til ritstjórnar sendist á vf@vf.is


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 39

„Jólin eru friður og mannréttindi“ Árið 2025 var viðburðaríkt hjá Gunnhildi Þórðardóttur og fjölskyldu hennar – ferðalög til Barcelona með lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, fjöldi listasýninga bæði heima og erlendis og útgáfa sjöundu ljóðabókar hennar, Vetrarmyrkurs. Hún blandar saman íslenskum og breskum jólahefðum, bakar mince pies og ensku jólakökuna, fer á jólatónleika og nýtur samveru með fjórum sonum sínum. Í þessu jólaviðtali rifjar Gunnhildur upp minningar frá bernskujólunum, talar um jólaandann sem boðskap friðar og mannréttinda og deilir draumum um fleiri ferðalög, Skáldasuð-hátíðina og gjöfina sem hún óskaði að heimurinn fengi – frið um allan heim. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið var viðburðaríkt, ég fór á Aldrei fór ég suður í fyrsta sinn með elsta syni mínum en hann var í Lýðskólanum á Flateyri í heilan dásamlegan vetur og útskrifaðist þaðan 2.maí. Ég útskrifaði næsta elsta soninn sem stúdent og ég fór með starfsfólk FS til Prag í maí. Næst yngsti sonur okkar var í körfuboltabúðum í Serbíu á meðan við fjölskyldan fórum til Barcelona í júní með yngsta soninn og dóttur okkar með frábæru lúðrasveitinni okkar í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem héldu 5 flotta tónleika á skemmtilegri þjóðalagahátíð. Ég hélt þrjár einkasýningar og tók þátt í þremur samsýningum bæði hér heima og erlendis. Ég gaf út mína sjöundu ljóðabók Vetrarmyrkur og við ferðuðumst mikið innanlands. Ég hélt líka skemmtilega lista - og ljóðahátíð í Duushúsum og sund-

Gunnhildur Þórðardóttir kennari, skáld og myndlistarmaður svarar jólaspurningum Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Já, ég elska jólin og hef alltaf verið jólabarn. Ég man örugglega eftir fyrstu jólunum þegar ég var fimm eða sex ára og að fá að setja jólastjörnuna efst á tréð og líka að ég fékk alltaf möndluna í grautnum systrum mínum til mikillar armæðu.

lauginni í mars og hef verið með amk 10 ljóðaupplestra. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Jólin jólin alls staðar með Ellý Vilhjálmsdóttur og jólasöngvum kórsins í Kings College Cambridge. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Love Actually

Hver er uppáhaldsjólahefðin þín og hvers vegna? Að baka breskar jólahefðir eins og mince pies og ensku jólakökuna sem ég vökva með sherry í nokkrar vikur. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Samvera með börnunum mínum og fara á jólatónleika með þeim og barnamessan á aðfangadag. Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum – hvort sem það var sem þú gafst eða fékkst? Já, allt sem börnin mín hafa búið til og gefið manni, sérstaklega það sem þau gera í leikskólanum en þegar ég var barn þá var það Barbie-húsið sem mamma og pabbi bjuggu til fyrir mig og systur mínar.

Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða það sem keypt er í búð? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? Ég elska heimagert og við eigum mikið af slíku skrauti, sérstaklega það sem maður hefur gert með börnum sínum. Ég á líka gamalt skraut frá því ég var lítil sem mér þykir mjög vænt um því maður fær svo mikla nostalgíu um jólin. Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? Þau breyttust þegar ég flutti til Englands þannig að nú gerum við svona blöndu af breskum og íslenskum jólahefðum. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Eru einhverjar ómissandi uppskriftir á þínu heimili? Að hafa hangikjöt og uppstúf á aðfangadag og breskan jólamat,

kalkún með brussel sprout og öllu saman á jóladag. Mér finnst uppskriftirnar hennar Nigellu Lawson æðislegar. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Það væri gaman fyrir krakkana að upplifa bresk jól aftur. Trúir þú enn á jólaandann? Og hvað þýðir hann fyrir þig? Já, ég trúi á að sannur jólandi sé boðskapur um frið og mannréttindi og það myndi hafa mikla þýðingu fyrir allan heiminn. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Meiri samvera með fjölskyldunni og fleiri ferðalög. Ef þú gætir gefið eina gjöf sem myndi gleðja heiminn, hvað væri það? Frið um allan heim, sérstaklega fyrir Frjálsa Palestínu, Úkraínu og fólkið í Súdan. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég geri aldrei áramótaheit en ég ætla að fara með Skáldasuð ljóða - og listahátíðina mína í útrás til Seyðisfjarðar næsta vor. Gleðileg jól!

GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR. ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA.


40 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Þjófurinn vildi ekki norska lambakjötið

Ólöf Einarsdóttir er flugfreyja og er því mikið í háloftunum og heimsækir mörg lönd. Hún kann því vel við sig heima á jólunum og hefðirnar eru allnokkrar hjá fjölskyldunni sem býr í Langholti í Keflavík. Ólöf segir okkur skemmtilega sögu af því þegar norska lambakjötið, sem er áramótamatur hjá fjölskyldunni, hvarf úr garðinum hjá þeim. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið 2025 var gott, mikið um ferðalög og ævintýri. Fyrstu íbúðarkaup og háskólanám hjá ungviðinu, golfferð til Marrakech, EM karfa í Katowice í Póllandi og ættarmót en ég verð að segja að Suðurskautið standi upp úr á árinu. Ég fór óvænt í byrjun árs í mánaðar vinnuferð til SuðurAmeríku. Vorum staðsett í Punta Arenas, syðstu borg í heimi, og flugum þaðan til Suðurskautsins með ferðamenn, vísindamenn og starfsfólk. Þessi ferð var búin að vera á „bucket“listanum mínum eða klára að heimsækja allar heimsálfurnar sjö. Þvílík forréttindi. Ert þú mikið jólabarn? Já, mjög mikið jólabarn og hef verið það alla tíð. Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Þegar börnin voru lítil settum við upp lifandi tré nokkrum dögum fyrir jól sem við völdum sjálf í Heiðmörk. Eftir að við fengum okkur gervitré við lítinn fögnuð heimasætunnar er tréð sett upp fyrstu aðventuhelgina.

Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Fyrstu jólin og minningarnar eru frá Tunguveginum í Njarðvík. Það er aðfangadagur, mikil tilhlökkun og gleði í loftinu. Pabbi er að koma heim og því mikill gestagangur. Við systurnar erum að horfa á teiknimyndir í Kanasjónvarpinu til að stytta okkur stundir. Mamma er á fullu í eldhúsinu, eflaust þreytt eftir jólatörnina í Kaupfélaginu, en alltaf tókst henni að gera jólin fullkomin. En eru skemmtilegar jólahefðir? Sörubaksturinn með systrum og æskuvinkonu á aðventunni og Þorláksmessurúnturinn niður í bæ er ómissandi. Þegar ég var yngri og bjó heima þá var það alltaf hefð hjá okkur systrum að fara í miðnæturmessu í Njarðvíkurkirkju, það er svo hátíðlegt og gaman að hitta alla vinina. Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Ég er yfirleitt frekar snemma í því og búin með mikið í byrjun desember en skil alltaf eina eða tvær gjafir eftir og klára þær rétt fyrir jól.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 41 orðið skemmtilegast að fá og gefa upplifanir með ástvinum. Hvað verður í jólamatnum hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Á aðfangadag má engum hefðum breyta á mínu heimili. Við höfum haft sama matinn síðan börnin fæddust, humarsúpa í forrétt, hamborgarhryggur í aðalrétt og Toblerone-ís í eftirrétt. Það er mjög skemmtileg hefð hjá okkur um áramótin.

Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Náttfatadagurinn á jóladag.

Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Christmas Vacation.

Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Ætli það séu ekki bara litlu fallegu gjafirnar sem börnin mín bjuggu til sjálf í skólanum og gáfu mér.

Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Heima í Langholtinu, ég ferðast svo mikið í vinnunni minni og gisti reglulega á hótelherbergjum þannig að heima um jólin með fjölskyldunni er best í heimi.

Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Last Christmas með Wham og Jólin eru okkar með Baggalút.

Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Það er ekkert sérstakt á óskalistanum fyrir þessi jól, mér finnst

Stórfjölskyldan kemur til okkar og fagnar nýju ári og afmælisdegi húsbóndans. Við höldum í norska hefð þar sem maðurinn minn er norskur í aðra ættina. Aðalréttur kvöldsins er Pinnekjött (Ribbe). Þetta er lambakjöt sem lagt er í saltpækil og látið hanga í tvo mánuði úti hjá okkur, síðan er það gufusoðið á birkikubbum og með þessu er geggjuð rófustappa og að sjálfsögðu þarf að vera bjór og Linie norskt ákavíti með. Það hafa ekki allir hætt sér í norska kjötið þannig að húsfreyjan hefur

haft kalkún fyrir gikkina en alveg ótrúlegt hversu margir eru búnir að færa sig yfir í norska! Þessu tengt langar mig að segja ykkur litla sögu. Eitt árið varð uppi fótur og fit þegar uppgötvaðist að kjötið var horfið úr garðinum. Það var sendur af stað leitarflokkur því þetta varð að finnast, annars væri úti um áramótin. Leitað var einnig til lögreglunnar en ekkert hafði fundist. Þegar öll von var úti tók húsbóndinn síðasta röltið með vonleysi og tárvot augu. Gleðin var mikil þegar þýfið fannst í plastpoka við göngustíg í nágrenninu. Líklega hefur sökudólgurinn orðið svekktur þegar hann sá hvað var í pokanum. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég er ekki vön að vera með nein sérstök áramótaheit önnur en þau að gera næsta ár betra en það fyrra og njóta hvers dags. Á næsta ári langar mig að ferðast og skapa minningar með fjölskyldu og vinum, svo má heldur ekki gleyma að rækta sál og líkama með útiveru og golfi.


42 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Bylgja Sverrisdóttir hársnyrtir heldur í jólahefðir

Alltaf farið á Villa á Þorlák og rauði dúkkuvagninn eftirminnilegur

Bylgja Sverrisdóttir er upptekin kona á aðventunni, greiðandi og klippandi fólk fyrir jólin. Ein af skemmtilegustu jólaminningum hennar er þegar hún fékk rauðan dúkkuvagn og líka skíði. Hún er með fastar hefðir á Þorláksmessu og á jólum og það er áhugavert að lesa um þær. Bylgja og Freyr bróðir hennar á jólum í gamla daga.

Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið var bara mjög gott og eftirminnilegast á síðasta ári þegar við hjónin fórum í siglingu um Miðjarðarhafið með saumaklúbbnum og mökum. Svo eyði ég alltaf miklum tíma með barnabörnunum mínum sem mér finnst mjög dýrmætt. Ert þú mikið jólabarn? Já, ég myndi segja það, mér finnst jólamánuðurinn alltaf notalegur tími.

Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Við setjum upp jólatréð svona kannski ca 2 vikum fyrir jól en þegar ég var barn var það alltaf sett upp á Þorláksmessu. Einu sinni kom ég heim og þá hafði pabbi verið að nota vaktarfríið og setti upp jólatréð alveg viku fyrir jólin og ég var ekki sátt. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Ég var örugglega orðin 5-6 ára gömul. Þá fékk ég rauðan dúkkuvagn og gat farið út að labba með mömmu, þá var Sverrir Þór bróðir nýfæddur í vagni.

Ein góð jólaminning frá barnæsku er þegar ég fór með mömmu í Sparkaup að kaupa jólaölið, þá fórum við með tvo tóma kassa af glerflöskum. Við fengum svo heilan kassa af kók í gleri, hálfan kassa af appelsíni og hálfan af Malti. Á þessum tíma fékk maður bara gos á hátíðisdögum. En eru skemmtilegar jólahefðir? Ein skemmtileg jólahefð sem við fjölskyldan höfum er að kvöldmaturinn á Þorláksmessu er alltaf tekinn á Villa. Svo eru hefðbundin jólaboð hjá fjölskyldunni. Svo hefur síðustu 10 árin verið hefð að við systkinin ásamt fjölskyldum og mömmu hittumst á aðfangadag við leiði pabba.

VIÐ SENDUM ÞÉR OG FJÖLSKYLDU ÞINNI OKKAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLD Á NÝJU ÁRI. ÞÖKKUM SAMSTARFIÐ Á ÁRINU SEM NÚ ER AÐ LÍÐA.

WE SEND YOU AND YOUR FAMILY OUR BEST WISHES FOR HAPPY HOLIDAYS AND A BRIGHT NEW YEAR. THANK YOU FOR A WONDERFUL YEAR OF COOPERATION


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 43 Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Heima á Íslandi, það er svo dýrmætt að vera með fjölskyldunni á þessum tíma.

Bylgja og Alexander með barnabörnunum á jólum.

Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Nei, ég er aldrei með neinn óskalista, mér finnst sælla að gefa en að þiggja.

Bylgja og Sverrir bróðir hennar í pakkaflóði.

Hvað verður í jólamatnum hjá þér á aðfangadagskvöld? Við erum með hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Eru hefðir í mat? Síðan ég byrjaði að búa 19 ára gömul þá höfum við haft hamborgarhrygg en ég ólst sjálf upp við rjúpur og sakna þess svolítið að fá þær ekki. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Rækta meira samband við vini og fjölskyldu. Í nútímasamfélagi eru allir svo uppteknir að það eru allir hættir að kíkja í heimsóknir.

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Ég er alltaf búin að kaupa jólagjafirnar mjög snemma því ég er hársnyrtir og alltaf nóg að gera hjá mér í vinnunni í desember. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Jólaísinn og malt og appelsín Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?

Fjölskyldan saman komin.

Ég verð að nefna skíðagræjur sem ég fékk frá mömmu og pabba og mér lá svo á að fara út að skíða og skíðaskórnir voru alltof litlir á mig. En auðvitað sagði ég ekki frá því, þá hefði ég ekki fengið að fara út að skíða. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Jólahjól. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? The Holiday.

Lítil dama að bíða spennt eftir jólum.

VIÐ SENDUM ÞÉR OG FJÖLSKYLDU ÞINNI OKKAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLD Á NÝJU ÁRI. ÞÖKKUM SAMSTARFIÐ Á ÁRINU SEM NÚ ER AÐ LÍÐA.

WE SEND YOU AND YOUR FAMILY OUR BEST WISHES FOR HAPPY HOLIDAYS AND A BRIGHT NEW YEAR. THANK YOU FOR A WONDERFUL YEAR OF COOPERATION


44 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Bakarastelpan Elenora Rós „Maður ársins á Suðurnesjum 2018“ nýtur bakaralífsins í London

Draumurinn rí heima

Elenora Rós vaknar um miðjar nætur til að fara í vinnuna. Hér er hún á fullu í Söderberg bakaríinu.

að op na b aka

„Jú, það er ennþá draumur að opna bakarí heima á Íslandi og kannski bara í mínum yndislega heimabæ, Keflavík, en þetta er búið að vera viðburðaríkt líf hjá mér undanfarin ár, mjög skemmtilegt en líka áskorun oft á tíðum,“ segir Elenóra Rós Georgesdóttir, bakari eða bakarastelpa úr Keflavík, en hún hefur undanfarin þrjú ár elt ævintýrin í stórborginni London og bakað ofan í gesti og gangandi í vel þekktum bakaríum. Nú vaknar hún um miðja nótt, hjólar í tíu mínútur og er komin í bakaríið og kaffihúsið Söderberg í austur Dulwich, í suðaustur London. Þar bakar hún og stjórnar bakstri í einu af tveimur bakaríum skandinavísku keðjunnar í stórborginni en keðjan rekur einnig sjö bakarí í Skotlandi. akarastelpan úr Keflavík var bara 17 ára þegar Víkurfréttir útnefndu hana „Mann ársins á Suðurnesjum“ í ársbyrjun 2018. Hún var þá í námi í Menntaskólanum í Kópavogi og vann samhliða í hinu þekkta Sandholt bakaríi í Reykjavík. Sem barn og unglingur hafði hún nýtt sér frábæra þjónustu á Barnaspítala Hringsins og til að sýna þakklæti sitt notaði hún mikið af frítíma sínum árið 2017 til að baka og selja bakkelsið til styrktar spítalanum. Þegar Víkurfréttaliðið mætti heim til foreldra hennar í Reykjanesbæ í janúarbyrjun 2018 komum við henni á óvart þegar hún var beðin um að setja nafn „Manns ársins“ á köku sem við höfðum pantað hjá henni. Hún vissi auðvitað ekki að við værum að fara að útnefna hana. Það kom henni því í opna skjöldu þegar við báðum hana um að setja nafnið sitt á kökuna. Síðan eru liðin sjö ár og þau hafa verið viðburðarík hjá Elenoru. „Jú, það er rétt. Ég hefði ekki getað ímyndað mér að ég væri tvöfaldur metsölubókahöfundur, búin að vinna í nokkrum af flottustu bakaríunum í London og búin að búa til mína eigin súkkulaðilínu með elsta súkkulaðifyrirtæki Íslands.“

Fljótt í sviðsljósið Það er hægt að segja að þegar unga konan var útnefnd „Maður ársins á Suðurnesjum“ hafi hún fyrst komið fram í sviðsljósið af alvöru en það sviðsljós stækkaði á næstu

árum Hún lauk bakaranáminu 2021, fékk tvenn verðlaun á námstímanum og var á samningi hjá Bláa lóninu. Auk þess starfaði hún á þeim tíma hjá bakaríinu Deigi. Á fyrsta Covid-árinu, 2020, gaf hún út bókina Bakað með Elenoru Rós sem fékk glimrandi móttökur og var ein af mest seldum bókum ársins. Hún bætti við annarri bók tveimur árum síðar, sem hún byggði m.a. upp á eldri köku- og tertuuppskriftum úr uppskriftabók móður hennar, Ragnhildar Ævarsdóttur. Bakstursáhuginn þeirrar stuttu kviknaði í eldhúsinu þegar mamma hennar var að baka þegar stelpan var ung að árum. Seinni bókin gekk líka mjög vel. Elenora var orðinn metsöluhöfundur. Hugurinn reikaði til útlanda og ekki liðu mörg ár þangað til hún var komin þangað en það gerðist í mars 2023, tuttugu og þriggja ára. Til höfuðborgar Englands, þar sem hlutirnir gerast og það mjög oft hratt. „Þetta er þriðja bakaríið sem ég starfa í hér í London en ég byrjaði hjá Buns From Home sem er mjög þekkt og orðin stór keðja í London. Ég mætti reglulega í bakaríið í ferðum mínum til borgarinnar og var að spjalla við bakarana en ég þekkti einn starfsmann þess. Svo sótti ég um í rælni og viti menn, ég var ráðinn og í mun hærri stöðu en ég reiknaði með. Áður en ég vissi af var ég farinn að stjórna hjá þeim og sá m.a. um að opna ný bakarí þegar fyrirtækið fór að stækka við sig og fjölga stöðum í borginni, alveg hreint ótrúlegt. Á tveimur árum voru bakaríin orðin tuttugu talsins

í stórborginni og keðjan orðin mjög stór og þekkt. Þetta var mjög magnaður og skemmtilegur tími og mikil reynsla en mig langaði líka að spreyta mig annars staðar. Næst lá leið mín í Fortitude sem er stórt heildsölubakarí og framleiðir mikið af þekktum klassískum vörum. Þegar ég var búinn að vera þar í smá tíma fékk ég óvænt tilboð frá eigendum sænsku keðjunnar Söderberg um að vinna fyrir hana. Þar hef ég verið síðustu mánuði og er mjög ánægð. Þetta er meira svona hverfisbakarí en þar er jafnframt mjög vinsælt kaffihús þar sem hægt er að fá kaffi, kökur og bröns-rétti, að ógleymdum sænsku kjötbollunum. Þetta er jú sænskt bakarí. Á kvöldin breytist það í pítsustað. Við græjum deigið að deginum til í bakaríinu. Hér eru margir fastakúnnar sem er aðeins öðruvísi en í hinum bakaríunum sem ég starfaði í hér í stórborginni - sem eru meiri túristabakarí.“

Bretar elska croissant Ritstjóri Víkurfrétta heimsótti Bakaranoru, eins og hún er oft kölluð, til Lundúna í nóvember. Þegar inn í Söderberg-bakaríið var komið var okkar unga kona að hamast fyrir innan glerið með hendur á fullu í bakkelsi, nánar tiltekið croissanti. „Bretar elska croissant enda er það gott, gert úr góðu smjöri og súru deigi. Það er ekki of sætt og ekki þungt í maga. Það er bara einhvern veginn svo gott að grípa í þetta og hægt að bjóða það fram á fjölbreyttan hátt. En… það er trix að gera gott croissant,“ segir El-

Ragnhildur Ævarsdóttir, móðir Elenoru hefur verið mikil stoð og stytta dótturinnar. Hér eru þær saman á aðventunni nýlega.

enora og brosir og er ekki lengi að svara þegar hún er spurð hvernig hún vilji hafa sitt croissant. „Ha.. ha.. Ég er í einföldu línunni og finnst það best með skinku og osti.“ Við fylg jumst áfram með Bakaranoru á fullu í framleiðslu á meðan myndavélin er á henni inni í bakaríinu (og þetta munu lesendur sjá í sjónvarpsviðtalinu). „Nú er ég að græja mjög þekkt franskt fyrirbæri sem heitir Kouign-amann og er eitthvað sem ég hafði ekki séð áður á Íslandi fyrr en ég kom hingað. En þetta er sem sagt í rauninni venjulegt sérbakað vínarbrauðsdeig sem er, í staðinn fyrir að setja bara smjör inn í það eins og í venjulegu vínarbrauðsdeigi þá erum við að græja salt og sykur inn í það líka. Svo bökum við það upp úr kanilsykri og þetta er alveg svakalega vinsælt hér, allavega hjá okkur. Við erum að selja ekkert smá mikið af þessu á hverjum einasta degi. Þannig að það er mjög mikið af svona franskri hefð, sem er mjög rík, finnst mér, hérna úti í Bretlandi. Mjög mikið af alls konar svona frönsku bakkelsi sem er mjög vinsælt hérna.“

Mikil þróun í bakstri Eru Íslendingar svolítið fastir í gömlum hefðum, vínarbrauðslengju og snúðum? „Já, við elskum gömlu vínarbrauðslengjurnar, grófu gömlu klassíkina. Þegar ég kem heim

fæ ég mér oft eitthvað slíkt, t.d. kúmenkringlu og kakó. Ekki má gleyma kleinunni eða flatkökunni með hangikjöti,“ segir okkar dama og hlær en bætir við: „Mér finnst einhvern veginn hér í London alltaf verið að þróa eitthvað nýtt.“ En hvernig hefur Bakaranora þróast í greininni og lært af vinnunni í þessum fínu bakaríum? „Maður er búinn að læra ansi margt þó að árin séu ekki mörg, en þó nokkur. Ég er búin að sanka að mér alls konar fróðleik, kynnast mörgu fólki, heima og í útlöndum, t.d. í Köben og á Ítalíu. Einn vinur minn vinnur í bakaríi sem heitir Lille og er í Köben. Hann er svakalegur brauðnörd og þegar ég kom hingað í þetta bakarí var ég aðeins að flækjast með brauðin hérna. Svo ég ákvað að hringja í hann og spyrja hann. Hann gaf mér góð ráð og allt í einu eru nýju brauðin farin að rokseljast. Það er gott að eiga góða tengiliði sem maður getur fengið ráð frá.“

Bolludagurinn ómissandi á Íslandi Elenora hefur síðustu þrjú ár komið heim í kringum bolludaginn og verið með „pop-up“ bollusölu. „Síðasta vetur toppaði ég mig algjörlega en ég hef komið heim undanfarin þrjú ár og verið með „pop-up“. Mig langaði að bjóða upp á eitthvað nýtt. Ég var til dæmis ekki með klassískar sulturjómaglassúrsbollur, heldur einhverjar

Þau boðuðu mig á fund og mér fannst þetta fáránlega spennandi og þau spyrja bara: „Heyrðu, þú bara tekur allar myndir sjálf og svona, er það ekki?“ og mig langaði svo svakalega í þetta og samþykkti. Ég fann mér einhverja myndavél og leitaði mér svo ráða hjá ljósmyndara sem ég þekkti heima ...


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 45

svaka fyllingar sem ég var búin að fá hugmyndir frá héðan úti, öðruvísi en við erum vön heima og það gekk mjög vel. En svo var ég með bollu sem ég kallaði Íslendinginn, sem átti að vera svona mín útgáfa af þessum klassísku bollum sem ég elska umfram allt. Þá var ég með kardimommumjólk og heimagerða sultu, dýfða ofan í súkkulaði í staðinn fyrir súkkulaðiglassúr, og hún seldist blússandi fyrst af öllum tegundunum sem ég gerði. Þótt ég hafi haft allar þessar spennandi hugmyndir og þær voru allar mjög vinsælar og það seldist allt upp - var þ a ð samt þessi

klassíska sem seldist fyrst. Það fannst mér áhugavert. En hver er hugmyndin á bakvið þessa bolluheimsókn til Íslands? „Mér finnst það bara gaman. Ég græði ekki neitt á þessu, sko. Ég er yfirleitt í mínus þegar það er búið að borga fyrir flugið og allt saman en ég get bara ekki hugsað mér að sleppa bolludeginum heima. Þetta er svona íslensk hefð sem er bara ómissandi, finnst mér, sérstaklega fyrir bakara. Þetta er bara besti dagur í heimi. Þannig að ég, já, mér finnst gaman að koma heim og gera eitthvað fyrir fólkið heima. Af því, þú veist, ég er ennþá að fá þvílíkan stuðning og meðbyr frá öllum heima. Mér finnst bara ótrúlega gaman að koma heim, hitta alla og spjalla við alla á meðan. Það er bara algjör stemning.“

Hvað segir svo metsöluhöfundurinn Elenora Rós? „Þetta var Covid-verkefni. Það voru náttúrulega allir að baka súrdeig í faraldrinum, Bretar elska súrdeig, borða nánast ekkert hvítt brauð. Ég var sjálf að baka súrdeig á samfélagsmiðlunum mínum í Covid og Edda útgáfufyrirtæki hefur samband við mig að fyrra bragði og þau sögðu: „Heyrðu, þetta gæti verið algjör negla akkúrat núna þegar allir eru bara heima hjá sér og hafa í rauninni ekkert mikið annað að gera. Og mig hafði lengi dreymt um að gera eitthvað svona en sá kannski ekki fyrir mér að vera nítján ára að skrifa bók. Þau boðuðu mig á fund og mér fannst þetta fáránlega spennandi og þau spyrja bara: „Heyrðu, þú bara tekur allar myndir sjálf og svona, er það ekki?“ og mig langaði svo svakalega í þetta og samþykkti. Ég fann mér einhverja myndavél og leitaði mér svo ráða hjá ljósmyndara sem ég þekkti heima á Íslandi, bað hann um að lána mér einhverjar græjur og svoleiðis, sem hann og gerði. Las mig til um ljósmyndun á netinu. Dagsbirtan var besta vinkona mín í myndatökunum, mamma var sveitt að vaska upp eftir mig í eldhúsinu heima, þannig að úr varð skemmtilegt verkefni í Covid. Viðtökurnar fóru fram úr öllum vonum og bakarastelpan úr Keflavík var orðin metsöluhöfundur, græddi fullt af peningum sem komu sér vel í kaupum á fyrstu íbúðinni. „Bókin seldist upp á á viku hjá útgáfunni og ég var í 2. sæti á eftir Arnaldi,“ segir Elenora og hlær. Tveimur árum síðar kom önnur bók hjá okkar konu. Þar kom mamma aftur við sögu. „Þetta var meira upp úr uppskriftabókinni hennar mömmu. Það voru gamlar góðar brauðtertur í henni og svo var kafli sem hét Ísland. Þar voru íslenskar pönnukökur, lagterta og kleinur og alls konar kökur, tertur og marens og svona, meira svona gamaldags íslenskt sem við elskum öll. Hún varð líka mjög vinsæl en forsíður bókanna voru ekki eins, önnur meira svört en hin meira bleik, blóm og glimmer. Mér fannst það flott.“

Samstarf við Freyju Elenora hefur ekki bara gefið út tvær metsölubækur, það er ekki langt síðan Súkkulaðigerðin Freyja fékk hana í samstarf. „Ég er búin að vera að baka með Freyju súkkulaði mjög lengi. Mamma var oft með gömlu góðu dropana frá þeim og þau vissu af því eftir að hafa séð það á samfélagsmiðlunum mínum. Þau höfðu samband við mig fyrir þremur árum síðan og sögðust vera að fara í að búa til baksturslínu fyrir Freyju og vantaði einhvern til að koma inn í það með sér, gera uppskriftir aftan á pakkningarnar og svona. Það var algjör heiður að fá þetta boð en ég sem sagt, hannaði allar uppskriftir aftan á nýju umbúðirnar þeirra, tók allar myndir sem eru framan á umbúðunum líka og svo erum við í föstu samstarfi þar sem ég geri mánaðarlegar uppskriftir fyrir þau. Við erum við núna þriðju jólin í röð að gefa út uppskriftabækling eftir mig með margvíslegum alls konar uppskriftum þar sem ég bæði mynda uppskriftirnar, bý þær til og sé um eiginlega allt bara frá A til Ö.

...Einn vinur minn vinnur í bakaríi sem heitir Lille og er í Köben. Hann er svakalegur brauðnörd og þegar ég kom hingað í þetta bakarí var ég aðeins að flækjast með brauðin hérna. Svo ég ákvað að smella símtali og spyrja hann. Hann gaf mér góð ráð og allt í einu eru nýju brauðin farin að rokseljast. Það er gott að eiga góða tengiliði sem maður getur fengið ráð frá. .. Elenora á fullu að afgreiða bollur heima á Íslandi.

Þetta hlýtur að vera skemmtilegt en hvenær í sólarhringnum ertu að gera þetta? Okkar kona brosir en svarar svo að bragði: Umm…. á frídögunum mínum. Ég er einmitt að fara heim núna til að græja einhverja jólauppskrift fyrir þau. Við vorum að gefa út bæklingana okkar í vikunni með 10 glænýjum, mjög spennandi uppskriftum. Svolítið svona klassískum í ár, klassískum sörum, heitu súkkulaði, súkkulaðibitakökum, bara því sem við elskum öll yfir jólin. Svo er hátíðarís og áramótaeftirréttur. Það er svona það sem ég ákvað að láta duga svolítið í ár af því að við erum búin að gefa út nýjar vörur síðustu tvö ár, en við ætluðum svolítið að leyfa vörunum sem við erum búin að gefa út að njóta sín í ár og einblína frekar á þær uppskriftirnar.

f f o e k a b h s i t i r B t a e r Boðið í G Ég var beðin af lesanda VF að spyrja þig hvort við gætum átt von á því að sjá þig í vinsælu bresku bakaraþáttunum í sjónvarpinu. „Heyrðu, heldur betur. Ég kíkti á það þegar ég var búin að vera hérna í svona rúmt ár, en þú mátt sem sagt ekki vera menntaður bakari eða búinn að vinna sem bakari þegar þú sækir um að koma í þættina. Þetta eru allt áhugabakarar, sem er magnað því þeir gera virkilega flotta hluti. Svo var verið að byrja með Great British Bake Off

- The Professionals. Þá eru oft mjög þekktir einstaklingar í bransanum sem fá boð í það og núna fyrir síðustu seríu buðu þau mér að koma og taka þátt, en það var bara aðeins of stuttur fyrirvari fyrir mig, þannig að ég því miður gat ekki stokkið á það. En ef ég fæ það boð aftur, þá væri mjög skemmtilegt að taka þátt og þá má ég taka sem sagt einhvern einstakling með mér sem ég þekki og við myndum gera eitthvað geggjað skemmtilegt í því. Það væri mjög spennandi.“


46 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

...Það er allt rosalega hratt hérna og, og það er alveg búið að taka svolítið á, en að mestu leyti þá er þetta búið að vera ofboðslega skemmtilegt. Ég er búin að þurfa að læra rosalega mikið inn á lífið allt upp á nýtt. Ég er í svo miklum bómull heima á Íslandi.. ..

Hvernig gengur svo lífið í stórborginni? „Upp og niður. Það er alveg krefjandi að koma ein út og þetta er ofboðslega stór borg og mikill hraði, miklu, miklu meiri heldur en heima og þá sérstaklega í Keflavík. Og ég fór beint í stórt starf með mikla ábyrgð og það er rosaleg pressa í bransanum hérna. Lífið hér er svolítið öðruvísi. Það er engin rótgróin einhvern veginn neins staðar og þegar til dæmis fyrsti eigandinn á bakaríinu sem ég vann hjá seldi bakaríið, þá vorum við bara öll látin fara líka. Ég lenti í smá vandræðum í húsnæðismálunum. Ég var búin að vera hér í ár í algjörri draumaíbúð í frábæru hverfi þegar leigusalinn minn sagði að hann væri að láta íbúðina fara. Ég stóð bara uppi húsnæðislaus en svo reddaðist það. Það er allt rosalega hratt hérna og, og það er alveg búið að taka svolítið á, en að mestu leyti þá er þetta búið að vera ofboðslega skemmtilegt. Ég er búin að þurfa að læra rosalega mikið inn á lífið allt upp á nýtt. Ég er í svo miklum bómull heima á Íslandi. Ég er bara mjög heppin með fjölskylduna mína heima og stuðninginn og ég kem bara úr mikilli forréttindastöðu þar og búin að fá alls konar tækifæri. Hér er búið að vera aðeins meira hark heldur en ég var í áður en ég kom hingað. Þannig að það er búið að vera mikill lærdómur að koma hingað út, mjög þroskandi.“

Heilsan mikilvæg Þegar VF valdi Elenoru „Mann ársins á Suðurnesjum“ fyrir sjö árum, hafði hún bakað mikið til styrktar Barnaspítala Hringsins því hún hafði þurft að leita þangað oft sem barn og unglingur. Hún segir að hún þurfi að huga að heilsunni. „Fyrir þremur árum var ég búin að vera í fríi í Köben og hneig niður á flugvellinum án nokkurs fyrirvara og þá byrjaði svolítið hjartavesen hjá mér. Það voru mikil viðbrigði þegar hjartað fer allt í einu að gefa sig. Ég er búin að fara í þrjár aðgerðir á hjartanu, að láta aðeins lagfæra það hér og þar. En ég er líka bara að læra svolítið að hægja á mér. Það er ekki alltaf hægt að ganga bara fram af sér, vinna og vinna og afreka og afreka og búast við því að líkaminn sé alltaf í sama standi, sérstaklega af því að ég er ekki alveg í toppstandi. Ég fæddist veikburða og er búin að vera svolítið að kljást við veikindi í gegnum tíðina. Þannig að ég þarf svolítið að virða mörkin sem líkami minn setur mér. Mér finnst það erfiðara heldur en ég þori að viðurkenna en ég er held ég að ná ágætum tökum á því núna.“

Gott að vera í Keflavíkinni Hvað með svona félagslíf og vini og annað? Hvernig er það? „Ég á ofboðslega góðan vinahóp af yndislegu fólki hérna úti og við erum búin að vera mjög dugleg að hittast og gera alls konar mismunandi hluti. Mamma talar oft um hvað það sé skemmtilegt, hvað við séum bara dugleg að hittast og fara í laugardagsferðir á sumrin. Núna ætlum við öll að hittast hjá mér fyrir jólin og búa til skraut saman, gera piparkökuhús og eitthvað svona. Það er mikið um félagslíf hérna og ég missi mjög mikið af mjög mörgu af því að ég er ekki alveg að fara út á lífið þegar ég er að mæta í vinnuna á þessum tíma. Almennt erum við mjög dugleg að hittast og bara brönsa saman. Manni leiðist ekki í London, sko, og ég á góðan vinahóp hér úti.“ Sérðu kannski fyrir þér að opna bakarí í stórborginni, frekar en heima. Er ekki bakarí í þínum gamla heimabæ til sölu? „Sko… þegar ég var í grunnskóla var ég búin að ákveða að verða bakari. Ég fór í starfskynningu í Sigurjónsbakaríi þegar ég var í tíunda bekk. Svo vann mamma í Nýja bakaríinu á Hafnargötunni. Ég hef alveg hugsað um að opna heima í Keflavík, einhvern tíma. Ég hugsaði kannski meira í draumum mínum um eitthvað stærra þegar ég var unglingur en svo er ég orðin rosalega heimakær núna og mér finnst svo gott að vera í Keflavíkinni. Ég myndi alltaf vilja samt vera bara í einhverju litlu, rólegu. Mig langar ekki í neina fjöldaframleiðslu, mig langar bara að búa til gott bakkelsi, búa til góða vöru. Og það skiptir mig meira máli en einhver framleiðsla eða eitthvað orðspor. Mig langar bara að búa til góða vöru og hafa gaman af því sem ég geri. Eins og ég var að tala um, að þá finnst mér gaman að þekkja fólkið sem er að koma í bakaríið til mín og það einhvern veginn skiptir meira máli. Ég er ekki orðin gömul en maður eldist fljótt og lærir margt á sama tíma. Ég er orðin rosalega, rosalega heimakær í Keflavíkinni og finnst gott bara að geta labbað yfir til Glódísar minnar og skutlað sér í sund með litlu frænku minni. Maður metur þessa hluti meira heldur en maður kannski gerði hér áður fyrr.“

Líf Elenoru hefur verið viðburðaríkt eins og lesa má og sjá á þessum myndum. Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta ræddi við Elenoru og um hátíðirnar birtum við sjónvarpsviðtal við hana á vef Víkurfrétta, vf.is.

r u t t é r r i t f e r a ð í t á h Fullkomin

Hráefni Marengs: l 4 eggjahvítur l 200 g sykur l 1 tsk hvítvínsedik l 1 tsk kartöflumjöl

Hindberja compote: l 250 g frosin eða fersk hindber l 50 g sykur l safi úr hálfri sítrónu Rjómafylling: l500 ml rjómi, þeyttur l 1 poki Freyju djúpur kurl l 100g Freyju draumur , smátt saxað l 50 g Freyju súkkulaðispænir eða saxað súkkulaði Aðferð 1. Þeytið eggjahvítur þar til þær verða léttar og stífar. Bætið sykrinum smám saman út í á meðan þið hrærið stanslaust. Þegar blandan er glansandi og marengsinn er farin að stífna bætið þið ediki og kartöflumjöli við, Mótið litlar hringlaga pavlovur á bökunarplötu og bakið við 120°C í 1,5 klst. 2. Gerið næst hindberja compote. Sjóðið hindber, sykur og sítrónusafa í 5–7 mínútur þar til blandan þykknar, leggið til hliðar og kælið alveg. 3. Létt þeytið svo rjómann og blandið Djúpur kurli, drauma bitunum og súkkulaðispæni varlega saman við með sleif. 4. Setjið næst smá compote í miðju pavlovunnar, þar næst smá af rjómanum toppið með meiri compote og ferskum hindberjum.

Hindberja og lakkrís pavlovur


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 47

77% Suðurnesjamanna búa í Reykjanesbæ Íbúum á Suðurnesjum fjölgar um 14,6% á sama tímabili Frá árinu 2019 og til 1. nóvember 2025 hefur íbúum á Suðurnesjum fjölgað úr 27.825 í 31.879. Heildaraukningin nemur 4.054 manns, eða um 14,6 prósent. Nýjustu tölur Þjóðskrár sýna þó að þróunin er afar ólík milli sveitarfélaga: þrjú þeirra vaxa hratt, en Grindavíkurbær hefur misst um þrjá fjórðu íbúa sinna frá 2019. Reykjanesbær er langstærsta sveitarfélag Suðurnesja og hefur verið drifkraftur íbúafjölgunar á svæðinu undanfarin ár. Fjöldi íbúa fer úr 19.423 í lok árs 2019 í 24.640 þann 1. nóvember 2025. Það jafngildir fjölgun um 5.217 manns, eða um 26,9 prósent. Á hverju einasta ári á tímabilinu bætast við íbúar og hlutur bæjarins í heildaríbúum Suðurnesja fer úr um 70 prósentum í rúm 77 prósent. Þannig hefur Reykjanesbær orðið sífellt ráðandi í byggðamynd svæðisins. Í Grindavík var hæg og stöðug fjölgun íbúa árin 2019–2023. Íbúum fjölgaði þá úr 3.508 í 3.720; aukning um ríflega 6 prósent. Þann 10. nóvember 2023 urðu hins vegar þáttaskil þegar bærinn var rýmdur vegna náttúruhamfara og yfirvofandi eldgoss. Síðan þá hefur Grindavík ekki náð vopnum sínum. Samkvæmt tölum Þjóðskrár fellur íbúafjöldi úr 3.720 í lok árs 2023 niður í 1.408 í lok árs 2024 og áfram í 894 íbúa 1. nóvember 2025. Heildarfækkun frá 2019 nemur um 2.614 manns, eða 74,5 prósent. Hlutur Grindavíkur af heildaríbúum Suðurnesja hefur þar með hrunið úr um 12,6 prósentum í aðeins um 2,8 prósent. Bærinn, sem áður var meðalstór á svæðinu, er nú orðinn eitt fámennasta bæjarfélag landsins. Sveitarfélagið Vogar hefur á sama tíma gengið í gegnum mikinn vöxt. Þar fjölgar

íbúum úr 1.308 í lok árs 2019 í 1.961 íbúa 1. nóvember 2025, aukning um 653 manns, sem jafngildir nær 50 prósenta fjölgun. Fyrstu árin er vöxturinn hægur, en eftir 2022 tekur hann verulega við sér. Á milli 2022 og 2023 bætast við rúmlega 170 íbúar og frá 2023 til hausts 2025 um 395 íbúar til viðbótar. Hlutur Voga af heildaríbúum Suðurnesja fer úr 4,7 prósentum í rúm 6 prósent. Suðurnesjabær sýnir jafnframt stöðuga fjölgun allan tímann. Íbúar voru 3.586 í lok árs 2019 en eru orðnir 4.384 í byrjun nóvember 2025. Það er fjölgun um 798 manns, eða rúm 22 prósent.

Engin ár á tímabilinu sýna samdrátt; bærinn bætir við sér íbúum á hverju ári. Hlutur Suðurnesjabæjar í heildaríbúum svæðisins hækkar úr um 12,9 prósentum í um 13,8 prósent. Sé litið á Suðurnes í heild kemur fram skýr saga: 2019–2023: Stöðug og sterk fjölgun í öllum sveitarfélögum, heildaríbúar fara úr 27.825 í 32.613. 2023–2024: Snögg lækkun íbúa, úr 32.613 í 31.732, að mestu leyti vegna rýmingar Grindavíkur. 2024–1. nóvember 2025: Ör lítil heildaraukning upp í 31.879 íbúa, þar sem Reykja-

nesbær, Vogar og Suðurnesjabær halda áfram að vaxa, á meðan Grindavík heldur áfram að tapa íbúum. Þrátt fyrir það áfall sem náttúruhamfarirnar í Grindavík hafa valdið heldur Suðurnesjasvæðið áfram að vaxa í heild. Vöxturinn dreifist þó nú á færri byggðarkjarna; Reykjanesbær, Vogar og Suðurnesjabær taka við æ stærri hluta íbúa svæðisins á meðan framtíð Grindavíkur sem fullburða bæjarfélags ræðst af því hvernig tekst að mæta afleiðingum náttúruvárinnar á komandi árum.


48 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Lit skrúðug jólasýning


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 49

r u ík v a fl e K r a d il e d a ik le im F

s i . f v á r i d n y Fleiri m Hin árlega jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur fór fram sunnudaginn 14. desember og var að þessu sinni stærri í sniðum en áður í tilefni 40 ára afmælis deildarinnar. Sýningin bar heitið „Bréf til Grýlu“ og var haldin í Íþróttaakademíunni, þar sem gestir fengu að upplifa jólastemningu í bland við fimleika og tónlist. Í sýningunni var snúið aftur að íslenskum jólahefðum og var mikið um íslensk jólalög sem settu sterkan svip á stemninguna og komu áhorfendum í rétta jólaskapið. Atriðin voru fjölbreytt og

þátttaka iðkenda endurspeglaði bæði metnað og samheldni innan deildarinnar á þessum tímamótum. Í tilefni afmælisins fékk deildin einnig sviðs- og sýningahöfundinn Alonu til liðs við sig en hún var höfundur og sýningastjóri „Bréfs til Grýlu“. Með hennar aðkomu var uppsetningin heildstæð og metnaðarfull, þar sem fimleikar og frásögn fléttuðust saman í skýra og jólalega heild. Jólasýningin var þannig sannkölluð afmælissýning, bæði hátíðleg og skemmtileg, og markaði eftirminnilega stund fyrir deildina og alla þá sem mættu.


50 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Hjördís Rós Egilsdóttir, tónmenntakennari í Myllubakkaskóla, lifir og hrærist í tónlist, í kennslustofunni, á sviðinu, í stúdíói og jafnvel á TikTok. Hún segir tónlistina vera sitt „líf og yndi“ og drauminn nú vera að semja og gefa út eigin lög.

„Að hlusta á börn syngja er algjör vítamínsprauta“ Hjördís Rós er fædd og uppalin í Keflavík og gekk alla hefðbundnu skólagönguna þar: Litla skóla, Myllubakkaskóla, Holtaskóla og að lokum Heiðarskóla þar sem hún útskrifaðist í fyrsta 10. bekk skólans. Áhuginn á íþróttum var lítill en listirnar tóku fljótt yfir. „Það hefur alltaf verið leiklist og tónlist. Við vorum alltaf að búa til leikrit og dansa og syngja, ég söng eiginlega öllum stundum,“ segir hún og hlær. Mikilvæg fyrirmynd í barnaskóla var umsjónarkennarinn Marta Eiríksdóttir sem sá strax að Hjördís var listræn og fékk hana til að blómstra í söng, ljóðalestri og bekkjarsýningum. Í 7. bekk fór Hjördís í stúlknakór Tónlistarskóla Keflavíkur hjá Gróu Hreins, söng með honum í nokkur ár og fór meðal annars til Bandaríkjanna á kóramót og tóku upp plötu. Um 15 ára aldur tók hún þátt í söngvakeppni Fjörheima, vann þá keppni og fór áfram á Samsuð og Samfés. „Í kjölfarið skráði mamma mig í söngnám hjá Hjördísi Einars. Ég var í klassísku námi hjá henni í nokkur ár, lærði að lesa nótur og byggja upp röddina. Það gaf mér ótrúlega góðan grunn,“ segir hún.

„Ég fann mig í djassi og blús – þar mátti ég vera pínu krumpuð.“ Eftir klassíska námið fór Hjördís að leita meira að sínum eigin hljómi. Hún fann hann loks þegar hún fór í rytmískt söngnám hjá Birtu Rós. „Þar kynntist ég djassi og blús og fann að þar voru áhrif sem hentuðu mér. Ég kem frá tíma þar sem þú áttir eiginlega að vera eins

og Celine Dion eða Mariah Carey eða þú varst ekki neitt,“ segir hún. „Í djassi og blús máttu vera pínu krumpuð, leika þér að nótunum og ráða hvernig lagið

flæðir. Það var rosalegt frelsi og þar fann ég styrkleikana mína.“ Hjördís gekk svo til liðs við kórinn Vox Felix og þar fann hún sjálfstraustið eflast enn frekar. „Rafn Hlíðkvist fyrrum kórstjóri Vox Felix leyfði mér ekki að vera með neinar efasemdir um sjálfa mig. Ég fékk lög sem ég hélt að ég gæti aldrei sungið, meðal annars stór og mikil gospellög. Þá verður maður bara að treysta röddinni og þegar það small hugsaði ég: Já, þetta verður bara lífið mitt, á meðan ég hef rödd.“

Tónmenntakennari sem kennir „allt í gegnum tónlist“ Í dag starfar Hjördís Rós sem tónmenntakennari í Myllubakkaskóla, hún rekur einnig lítinn

söngskóla hér í bæ undir nafninu Söngskóli Hjördísar og samhliða því að vera í Masters-námi í Háskóla Íslands til að ljúka kennsluréttindum. „Ég er að kenna tónmennt en í raun kenni ég bara allt í gegnum tónlist,“ útskýrir hún. Hún kennir 4.–7. bekk tónmennt og heldur söngstundir fyrir alla nemendur í 1. til 7. bekk einu sinni í viku. Yngstu börnin fá fjölbreytt úrval af íslenskum lögum en á miðstigi er farið í alls konar ferðalög um íslenska og erlenda tónlist: Bubba, Bítlana, Eurovision-lög og vinsæl nútímalög til að nefna nokkur dæmi. „Börnin eru bara eins og svampar,“ segir hún. „Þau elska lög eins og Horfðu til himins, Stál og hnífur, Danska lagið og svo

mætti lengi telja. Að hlusta á þau syngja hástöfum er algjör vítamínsprauta.“ Í kennslunni notar hún mikið svokölluð Orff-hljóðfæri – Xylophon-a, trommur, hristur, málmspil og fleira og nemendur sem eru í hljóðfæranámi mega koma með sín eigin hljóðfæri inn í tímana. „Svo erum við að búa til tónlist í GarageBand. Þar get ég látið þau semja, hlaða upp lögum og prófa sig áfram. Þar læt ég þau finna að þau geti sjálf skapað tónlist, ekki bara endurtekið það sem einhver annar samdi og skrifaði.“ „Söngskólinn er svo lítið hliðarverkefni en fyrir 3 árum síðan fékk ég ábendingu um að slíka þjónustu vantaði í bæjarfélagið okkar. Mér þótti það tilvalið verkefni fyrir mig og hefur það fengið að vaxa og blómstra nú í þrjú ár og er ég hvergi nærri hætt.“

TikTok sem gluggi inn í söngstundirnar Til að leyfa fólki að heyra hvað er í gangi í söngstundunum byrjaði Hjördís að setja myndbönd á TikTok, fyrst undir sínu nafni, síðan undir nafni Myllubakkaskóla þar sem hún starfar. „Oftar en ekki voru það bara ég, nemendurnir og umsjónarkennararnir sem heyrðu það sem er í gangi í tímunum. Ég hugsaði: Fólk verður að heyra þetta, þetta er svo ótrúlega fallegt,“ segir hún. Eitt myndbandið, þar sem krakkarnir syngja Róa með Væb rétt fyrir Eurovision, tók sérstakt flug og var kommentað og deilt frá ólíkum áttum. „Ég er samt engin samfélagsmiðlastjarna,“ bætir hún við og hlær. „Helstu áhorfendur eru


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 51

nemendur mínir en það er líka bara dásamlegt.“

Kósíbandið og jólin sem vara allt árið Samhliða kennslu og námi syngur Hjördís í Kósíbandinu, sem hún stofnaði ásamt samstarfsfélögum úr Myllubakkaskóla, þeim Arnóri Sindra, Birnu og Hildi Bjarney. „Bryndís Guðmundsdóttir, fyrrum skólastjóri Myllubakkaskóla, bað okkur um að setja saman prógram til að kveðja samstarfsfólk sem var að hætta. Við vissum öll að við gátum sungið, svo við hentum í dagskrá og úr varð hljómsveitin Sumarfrí. Svo þróaðist það yfir í Kósíbandið,“ útskýrir hún. Bandið syngur mestmegnis í tveimur til þremur röddum, stundum fjórum, og kemur fram á árshátíðum, brúðkaupum, jarðarförum, partíum, á Ljósanótt og síðast en ekki síst í Aðventugarðinum þar sem þau eru nú að fara í fjórðu jólin. „Þetta er heilsársverkefni, ekki bara jólaprógram,“ segir

hún. „En okkur langar að gera miklu meira, ekki bara vera ljúft og gott kósýband. Okkur langar að gefa út eitthvað af ábreiðunum okkar ásamt því að fara út í frumsamið efni líka.“

Afmælisgjöfin sem varð fyrsta útgáfulagið Þótt draumurinn sé að semja meira sjálf er fyrsta lagið sem Hjördís gaf út í eigin nafni ábreiða. Mamma hennar varð 70 ára í september og hún vildi gefa henni eitthvað sem ekki væri hægt að kaupa í búð. „Mamma er svo ótrúlega nægjusöm, hún á allt og biður aldrei um neitt. Þá hugsaði ég: Ég ætla að gefa henni lag,“ segir Hjördís. Hún leitaði til Hlyns Þórs Valssonar og Óla Þórs, sem hafa verið henni miklir stuðningsaðilar, og bað þá um að taka upp uppáhaldslag mömmu hennar, Teach Your Children. Upptakan fór fram í Stúdíó Paradís með úrvalshljóðfæraleikurum. „Ég var svo stressuð að púlsinn var í 112 þegar ég mætti,“ segir hún brosandi. „En þegar við byrjuðum að taka upp og lagið fór að

myndast sá ég fljótt að ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur. Það voru fagmenn með mér í liði og vildu gera allt til að gera þetta að fallegri gjöf til mömmu.“ Svo bjó hún til myndband með myndum af mömmu í gegnum árin og myndböndum frá barnabörnum sem komust ekki í afmælið. „Lagið vakti mikla lukku og mátti sjá tár á hvarmi gesta í afmælisveislunni,“ segir hún. „Ég hef alveg fengið að heyra að þetta hafi verið besta afmælisgjöfin.“ Fyrir áhugasama má finna lagið inni á Spotify.

Fjölskylda, nám og framtíðardraumar Það er nóg að gera hjá Hjördísi. Hún á þrjár dætur, ellefu, tólf og fimmtán ára, með manninum sínum Ara Lár Valssyni. Það virðist allt stefna í að dæturnar ætli að feta sama farveg og njóta foreldrarnir þess til hins ýtrasta að fylgjast með þeim vaxa og dafna í gegnum listina. „Eftir ár verð ég vonandi búin að klára námið og get þá nýtt orkuna mína í fleiri sköpunarverkefni,“ segir hún. „Mig langar

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

langbest.is

að gera miklu meira með Kósýbandinu og gefa út fleiri lög.“ Draumurinn um eigið efni er alls ekki langt undan. „Ég hef lengi verið svolítið hrædd við að semja sjálf,“ viðurkennir hún. „Ég verð samt að breyta því hugarfari, því þegar öllu er á botninn hvolft, hverju hef ég þá að tapa? Ég held að það verði næsta skref, að láta bara vaða,“ sagði Hjördís að lokum.

Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is


52 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

„Ég hef mjög gaman af heimagerðu skrauti og skrauti með sögu.“

„Fékk andarteppu af spenningi og átti mjög bágt …“ Arna Þórunn Björnsdóttir er heimavinnandi, gift Erlendi Sævarssyni sjómanni. Þau eiga 20 ára son, 29 ára dóttur og hundinn Fríðu, tíu ára fjórfætling. Hún á minningu tengda jólum frá því hún var 7 eða 8 ára. Hún segist hafa verið gríðarlega spennt fyrir pökkunum. Þrátt fyrir að hafa horft á barnaefni í sjónvarpinu og fengið að opna einn pakka um klukkan 15 fékk ég andarteppu af spenningi og átti mjög bágt. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið 2025 hefur verið viðburðaríkt og að mestu leyti gott. Við héldum síðustu jól á Tenerife í fyrsta skipti og fannst það alveg æðislegt, þannig að árið byrjaði í raun á „Tene“. Jólunum þar áður eyddum við í Ölfusborgum en öll önnur jól höfum við hingað til haldið í Grindavík. Við keyptum fallega íbúð hér í Innri-Njarðvík og gerðum hollvinaog gistisamning um heimilið sem við áttum í Grindavík, sem var mikill léttir. Við ferðuðumst líka aðeins um landið með hjólhýsið okkar og náðum meðal annars í frábært veður fyrir austan. Dóttir okkar útskrifaðist með B.Ed. í leikskólafræðum og sonur okkar er að skoða lífið og stunda nám í lýðháskóla í Danmörku. Sjálf byrjaði ég í kór Njarðvíkurkirkju, sem hefur verið bæði lærdómsríkt og gefandi, og við höfum líka sótt flesta viðburði sem haldnir hafa verið í Grindavík. Það er kannski ekkert eitt sem stendur sérstaklega upp úr en það var yndislegt að vera í viku á Austurlandi í yfir 20 stiga hita. Mikilvægast finnst mér samt að allir séu heilbrigðir og líði vel. Við höfum aðeins verið minnt á það, og það er aldrei of oft sagt: andleg og líkamleg heilsa er það allra dýrmætasta, allt annað er aukaatriði þegar upp er staðið. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Tónlist er stór hluti af hátíðleika og stemningu jólanna og aðventunnar. Mér finnst gott að sækja kirkjuviðburði á aðventunni og nú tek ég sjálf þátt í þeim líka með kórnum mínum. Mér finnst jólalögin og sálmarnir eiginlega allir fallegir en Heims um ból, Frá ljósanna hásal og Driving home for Christmas með Chris Rea koma fyrst upp í hugann. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Hmm… er Love Actually ekki jólamynd? Hún er alltaf krúttleg og fyndin og mér finnst hún mjög jólaleg.

Hver er uppáhaldsjólahefðin þín og hvers vegna? Það eru nokkrar jólahefðir sem mér þykir vænt um en síðustu ár hafa svolítið breytt sýn minni. Aðalmálið er að fjölskyldan sé saman. Almennt hef ég oftast bakað með krökkunum mínum, sérstaklega stráknum mínum. Mér finnst nánast ómissandi að hafa útiþurrkuð hrein rúmföt á Þorláksmessu og við hjónin förum alltaf í kirkjugarðinn á Stað um jólin, oftast á jóladag. Við höfum nánast alltaf verið með foreldrum mínum á aðfangadag, framan af hjá þeim en síðari ár heima hjá okkur. Oftast höfum við haft hamborgarhrygg með tilheyrandi og ómótstæðilega rjómarönd með karamellusósu „ala mamma“ í eftirrétt. Þá mega jólin alveg koma. Jólaundirbúningur og jólahald hefur líka orðið afslappaðra eftir að börnin urðu stór, minni væntingar til gjafa og meiri spenna fyrir mat, samveru og slökun. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Við stórfjölskyldan höfum oftast verið í boði hjá foreldrum mínum og þá er yfirleitt boðið upp á dýrindis kalkúnabringu með amerískri kjöt- og brauðfyllingu og heimsins bestu sósu, líka „ala mamma og pabbi“. Það er uppáhaldsmaturinn minn, þar er ekkert til sparað og þetta er algjör veisla. Þessi máltíð er alveg toppurinn. Ég hef eldað hana sjálf og tek það kannski upp aftur einn daginn, hver veit. Það þarf sko aðstoðarkokk og pottastráka í svona matargerð og við fáum seint þakkað foreldrum mínum fyrir allan góða matinn sem þau hafa framreitt fyrir okkur systkinin og fjölskyldur okkar. Það er ómetanlegt sá sem býður, sá sem eldar og opnar heimilið, og að allir hittist. Það er jólaandinn í hnotskurn: góður matur sem alúð er lögð í, samvera fjölskyldu og vina, að enginn sé einn og að alltaf sé pláss fyrir einn disk í viðbót. Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum? Mér þykir sérstaklega vænt um það sem er gefið frá hjartanu, eins og það sem krakkarnir mínir


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 53 stærri hluti. Væntingarnar um „mikið af pökkum“ hafa minnkað og fókusinn færst meira yfir í samveru, góðan mat og rólegheit. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Þegar ég var lítil, líklega 7 eða 8 ára, var ég gríðarlega spennt fyrir pökkunum. Þrátt fyrir að hafa horft á skrípó og fengið að opna einn pakka um klukkan 15 fékk ég andarteppu af spenningi og átti mjög bágt.

bjuggu til þegar þau voru lítil. Slíkar gjafir geyma svo miklar tilfinningar og minningar. Þá man ég vel eftir gullúri skreyttu demöntum sem maðurinn minn gaf mér þegar við vorum ennþá bara tvö. Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða það sem keypt er í búð? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? Ég hef mjög gaman af heimagerðu skrauti og skrauti með sögu. Ég held mikið upp á keramikjólatré sem amma Ella gaf okkur og útsaumaðar jólamyndir frá ömmu minni. Þetta skraut er hluti af fjölskyldusögunni og mér þykir ómetanlegt að taka það fram á hverju ári. Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? Í seinni tíð höfum við tekið praktíkina aðeins meira inn í gjafamálin og gefum frekar það sem vantar, eða pening upp í

Þetta er í dag mjög fyndin minning og eitt af því fyrsta sem ég man frá jólum, en á sínum tíma var þetta ekki sérlega skemmtilegt! Áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Ég veit ekki hvort þetta voru sömu jól, en ein jólin var pabbi eitthvað seinn að redda jólatrénu. Allt var nánast uppselt þegar hann komst í það og úr varð að keypt voru tvö lítil grenitré; annað var reyrt ofan á hitt, vel skreytt og gert að einu tré. Ég veit ekki hversu lukkuleg mamma var með þessa lausn, en sagan

er frábær og lifir góðu lífi í fjölskyldunni. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Ég gæti vel hugsað mér að vera á heitari slóðum yfir jól, til dæmis á Tenerife, Kanarí, Tælandi eða bara einhvers staðar þar sem er hlýtt og ljúft. En ég ætti svolítið erfitt með að hafa ekki börnin mín hjá mér yfir sjálfar bláhátíðirnar. Við héldum „litlu jólin“ með foreldrum mínum fyrir síðustu jól áður en við fórum til Tenerife. Ég held að ég eigi alveg eftir að prófa aftur að vera á hlýjum slóðum yfir jól og áramót, það er mjög gott frí. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég er ekki vön að strengja formleg áramótaheit. Ef eitthvað er, þá væri gott markmið að gleðjast meira, grípa augnablikin oftar, ferðast meira – og jú, borða minna nammi. Ef ég fengi einhverju ráðið um örlög heimsins myndi ég óska þess að enginn þyrfti að búa við stríð, hungur og ofbeldi og að allir gætu lifað lífi sínu í mannlegri reisn, nær og fjær. Gleðileg jól.

Fái val um hvort þeir kjósi í Grindavík Dómsmálaráðuneytið hefur birt áform um breytingar á kosningalögum, sveitarstjórnarlögum og lögum um lögheimili vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í Grindavík vegna jarðhræringa. Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar. Lagt er til að þau sem áttu lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 en hafa flutt lögheimili sitt, fái val um að kjósa annaðhvort í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þau búa í núna. Þau sem kjósa Grindavík verða tekin inn á kjörskrá með umsókn til Þjóðskrár Ís-

lands og skal hún berast eigi síðar en 40 dögum fyrir kjördag. Jafnframt er gert ráð fyrir að kjörgengi haldist í samræmi við þessar reglur út kjörtímabilið, og að tryggt verði að störf nefnda og ráð sveitarfélagsins raskist ekki. Áformin eru nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda eins og áður segir. Þar geta Grindvíkingar lesið nánar um fyrirhugaðar breytingar og sent inn umsagnir. Þetta er því tækifæri fyrir Grindvíkinga til að hafa bein áhrif á hvernig kosningarnar 2026 verða útfærðar.

Gleðilega hátíð og verðum í stuði á nýju ári

Gleðilega hátíð og verum í stuði á nýju ári


54 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Norræna félagið á Suðurnesjum stofnað – fyrsti viðburður í janúar Norræna félagið á Suðurnesjum var stofnað 20. september 2025. Félagið varð til við sameiningu félagsdeilda Norræna félagsins í Vogum, Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ og nær því nú yfir allt Suðurnesjasvæðið. Stjórn félagsins hefur þegar mótað þá stefnu að standa fyrir a.m.k. einum norrænum viðburði í hverjum bæ á starfssvæðinu á komandi ári. Áhersla verður lögð á mennta- og menningarmál og að kynna norrænt samstarf í nærsamfélaginu.

Leshringur hefst í Hljómahöll 14. janúar.

Sjúkraþjálfun að Reykjanesvegi 40 talin samræmast aðalskipulagi Umhverf is- og skipulagsráð Reykjanesbæjar telur að fyrirhuguð starfsemi sjúkraþjálfunar að Reykjanesvegi 40 geti samræmst aðalskipulagi svæðisins, að því gefnu að umsvif verði ekki meiri en lýst er í erindi eiganda. Reykjanesvegur 40 er á svæði sem í aðalskipulagi er skilgreint sem íbúðarsvæði og er ekki til deiliskipulag fyrir svæðið. Eigandi eignarinnar óskaði eftir afstöðu ráðsins til þess hvort rekstur sjúkraþjálfunar væri heimill á lóðinni eða hvort gera þyrfti breytingu

á skipulagi. Gert er ráð fyrir 3–6 starfsmönnum og um 30–50 viðskiptavinum á dag. Í skipulagsreglugerð kemur fram að íbúðarbyggð (ÍB) sé ætluð fyrir íbúðarhúsnæði og nærþjónustu sem tengist búsetu, auk minni háttar atvinnustarfsemi sem samrýmist íbúðarumhverfi. Það er mat umhverfis- og skipulagsráðs, á fundi þess 21. nóvember 2025, að fyrirhuguð starfsemi falli að þessum skilmálum svo lengi sem umfang hennar verði í samræmi við framsett áform.

Stöndum vaktina öll jólin á vf.is

Fyrsti viðburður nýja félagsins verður miðvikudaginn 14. janúar 2026 kl. 19:30 í Bókasafni Reykjanesbæjar í Hljómahöll. Þá hefur leshringur Norræna félagsins á Suðurnesjum göngu sína. Á fyrsta fundi leshringsins verður rætt um bókina Dánar konur fyrirgefa ekki eftir sænsku skáldkonuna Katarinu Wennstam. Bókin fjallar um líf kvenna af ólíkum stéttum í Stokkhólmi undir lok nítjándu aldar og er spennandi, lifandi frásögn. Hún var valin glæpasaga ársins 2024 í Svíþjóð. Ragnheiður Gunnarsdóttir mun segja frá höfundinum og leiða samtal um bókina. Ekki er nauðsynlegt að vera meðlimur í Norræna félaginu til að taka þátt í leshringnum og eru íbúar hvattir til að mæta.

Mýtur í samskiptum Íslands og Danmerkur Næsti viðburður félagsins verður í febrúar þegar Bogi Ágústsson fjallar um mýtur í sögu samskipta Íslands og Danmerkur. Þá er stefnt að viðburði með þingmönnum Íslands í Norðurlandaráði í mars. Verða þessir og fleiri viðburðir auglýstir nánar þegar nær dregur.

Markmiðið að efla norrænt samstarf og skilning Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur Norræna félagsins á Suðurnesjum að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins, efla frið og skilning á milli Norðurlandaþjóðanna sem og gagnvart öðrum þjóðum. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að stuðla að samskiptum milli einstaklinga, félagsdeilda og byggðarlaga og í samskiptum við systurfélög á Norður-

Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis sendir félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

löndum innan vébanda Sambands Norrænu félaganna, í samstarfi við Norræna félagið á Íslandi. Einstaklingar, skólar, bókasöfn og aðrar stofnanir, félög, félagasamtök og fyrirtæki geta gerst meðlimir í félaginu. Stjórn félagsins hyggst á næstu misserum kynna félagið sérstaklega fyrir íbúum, skólum og fyrirtækjum á Suðurnesjum og hvetja fleiri til þátttöku í starfinu.

Ný stjórn Norræna félagsins á Suðurnesjum Í stjórn félagsins sitja: Oddný G. Harðardóttir, formaður Jónína Holm, gjaldkeri Margrét I. Ásgeirsdóttir, ritari Johan D. Johansson, meðstjórnandi Eydís Hentze Pétursdóttir, meðstjórnandi Ivan Kay Frandsen, meðstjórnandi Varamenn í stjórn eru: Ragnheiður Gunnarsdóttir Þorvaldur Örn Árnason Stjórnin segir mikinn áhuga á því að byggja upp öflugt norrænt menningar- og fræðslustarf á Suður-


Ljósin skína skært um jólin Með flutningskerfi raforku sjáum við til þess að jólaljósin skíni skært. Við þökkum gott samstarf og jákvæð samskipti á árinu og óskum landsmönnum öllum bjartra jóla og spennandi nýs árs.


56 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Baldur Þórir Guðmundsson er alinn upp í tónlist en hann hlaut Súluna, Menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2025.

Sjálfur fór ég aldrei alla leið í það að verða bara tónlistarmaður. Það er kannski ákveðin gæfa að vera í fastri stöðu, einhverri dagvinnu, því bransinn kemur og fer. En ég hef alltaf verið að spila, alltaf haft músíkina með. Það er bara mjög gott.

Tónlist allt um kring „Það eru kannski einhverjir eftir. Það eru margir sem eru komnir með Súlu. Júlli bróðir er búinn að fá, Guðný mágkona, og Geimsteinn fékk sem fyrirtæki á sínum tíma. Svo á Björgvin sonur minn Súlu sem Paddy’s fékk á sínum tíma. Þannig að það eru nokkrar í fjölskyldunni,“ segir Baldur Þórir Guðmundsson þegar hann var spurður hvort hann væri síðastur í fjölskyldunni að fá Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar. Fjölskylda Baldurs hefur verið í framlínu tónlistar og menningar í Bítlabænum í áratugi og því hefur verið úr miklu að velja fyrir þá sem velja nýja Súluhafa á hverju ári. Nú var komið að eldri syni Rúnna Júll og Maríu Baldursdóttur og þegar hann tók við viðurkenningunni í Hljómahöll í nóvember, sagðist hann þurfa að þakka nokkrum sem hafa verið með honum á lífsleiðinni í tónlist og fjöri. „Ég finn að ég verð meirari með aldrinum og það er stundum stutt í tárin en vil nota tækifærið og þakka nokkrum fyrir samstarfið í gegnum tíðina,“ sagði Baldur sem settist niður með okkur í stúdíói Víkurfrétta. Við dúndruðum nokkrum spurningum á hann.

„Já, þetta var þetta „sixties“tímabil, og lengur reyndar. Eins og hann sagði sjálfur: hann átti aldrei „comeback“, hann fór aldrei. Stundum farinn á bak við tjöldin og stundum náði hann sér í fókus – svona er þessi bransi, hann er hverfull. Sjálfur fór ég aldrei alla leið í það að verða bara tónlistarmaður. Það er kannski ákveðin gæfa að vera í fastri stöðu, einhverri dagvinnu, því bransinn kemur og fer. En ég hef alltaf verið að spila, alltaf haft músíkina með. Það er bara mjög gott.“

Það er freistandi að byrja spjallið á því að tengja þig við föður þinn Rúnar Júl, sem var nánast heimsfrægur á Íslandi – landsþekktur rokkari og poppari og ein af stórstjörnunum á sínum tíma. Hvenær manstu eftir þér svona nálægt tónlist og honum, og allri þessari músík? „Það er eiginlega bara frá fyrstu tíð. Ég er frekar lánsamur að lenda sem afsprengi þeirra tveggja – pabba og mömmu. Pabbi er þekktari týpa, en mamma er ansi öflugur arfberi. Baldur afi minn var hafsjór af snilld. Hann spilaði á hljóðfæri, las engar nótur, hafði þetta bara í blóðinu. Fáir vissu kannski af því, hann var ekkert að

Tónlistarnám og fyrstu hljómsveitir

Baldur og fjölskylda og einn vina hans að spila þegar hann tók við Súlunni í Hljómahöll.

hampa þessu við mig. Hann er sá fyrsti sem byrjar að kenna mér eitthvað á píanó. Ég elst upp á Sunnubrautinni fyrsta árið, því mamma var frekar ung þegar hún eignaðist mig og það var ekki komið heimili. En um leið og þau stofna heimili, þá er tónlist alltaf allt umlykjandi. Ég dett inn í öll þessi viðtöl. Maður á gamlar blaðaúrklippur frá því ég var fimm og sex ára. Þorsteinn Eggertsson að taka við mig viðtal af því að ég var sonur þessara hjóna. Baldur er fæddur 1964 en á þeim tíma og næstu ár á eftir er faðir hans á hátindi ferils síns sem rokkstjarna Íslands en þetta ár var hann líka leikmaður með Íslandsmeisturum Keflavíkur í knattspyrnu.

Manstu eftir þér ungum – 5, 6, 7 ára – byrjaður að glamra eitthvað? „Já, já. Svo fór ég í tónlistarskóla átta ára, í Tónlistarskólann í Keflavík, og var svona af og til alveg til tvítugs, tuttugu og eitthvað. Svo kláraði ég eitt stigspróf löngu seinna. Í tónlistarskólanum var maður bara í klassíkinni. Það var ekkert verið að spila popp. Það var helst: „Þú mátt alveg spila það – en ekki hérna inni.“ Manstu hver kenndi þér fyrst? „Þeir voru margir. Ragnar Björnsson, tónlistarskólastjórinn,

Ein gömul hljómsveitarmynd, Baldur komin í sveit með foreldrum sínum.

kenndi mér á tímabili. Svo var spænskur kennari, mjög skemmtilegur, Antonio Corvairas. Seinna meir voru það Rögnvaldur Sigurjónsson og Guðmundur Magnússon, fleiri komu líka við sögu. Ég gerði þetta til að halda þessu við, en hætti á tímabili og tók upp gítarinn – ætlaði að reyna fyrir mér þar. Svo heyrði ég lag eftir Elton John á græjunum, settist við píanó og pikkaði það upp, og þá ákvað ég að píanóið yrði mitt hljóðfæri.“ Baldur segir að það hafi alltaf verið hljóðfæri á heimilinu, sama hvaða heimili hann hafi komið inn á – alltaf eitthvað hljóðfæri til að leika sér á. Þetta hafi því alltaf legið beinast við. Varstu farinn að spila með hljómsveitum ungur að árum? „Já, já, ég byrjaði strax á því. Þegar ég var 12–13 ára spilaði ég á jólaballi með jólasveinum – Ómari frænda og Gylfa Arnbjörns, fyrrverandi forseta ASÍ. Þeir voru jólasveinar, ég var Stúfur og spilaði líklega fyrir nammipoka eða eitthvað svoleiðis. Síðan var ég alltaf á árshátíðum og ýmsum viðburðum. Ég stofnaði nokkrar hljómsveitir bara til að geta stigið á svið. Í skólanum gekk yfir tískubóla með „hermihljómsveitum“ – við smíðuðum hljóð-

færin og lékum okkur. Ég var með hljómsveitina Pödduna, eins konar „Beatles“, þó að hún spilaði nú ekki mikið.“ Hvenær kemur svo fyrsta alvöru bandið? „Þegar ég kynnist Sigurði Sævarssyni náðum við vel saman, prófuðum okkur áfram á hljóðfærum og fórum að spila með aðeins eldri strákum – Vigga Daða og Edda trommara. Þannig verður til hljómsveitin Kjarnorkublúsararnir, fyrsta bandið sem lagði sig virkilega fram um að gera eitthvað. Við héldum meira að segja tónleika í Félagsbíói þegar ég var 16 ára. Þannig að þetta var bara tónlist allt um kring – mjög eðlilegt fyrir mig að vera alltaf að spila og koma fram.“

Box, pönksenan og hljómsveitir í Reykjavík Þú sagðir á afhendingu Súlunnar að þú hefðir verið að spila með hljómsveitum í Reykjavík. „Já, það kom mjög fljótt. Ég hætti með Kjarnorkublúsurunum og við stofnuðum Box. Við gáfum út tvær plötur og vorum inni í pönksenunni – gigg hér og þar; maður spilaði hálftíma sett, svo kom næsta hljómsveit. Svo vantaði hljómsveit á árshátíð Fjölbrautaskólans og þá bjuggum við til danshljómsveit. Ein útgáfan af þeirri hljómsveit hét Coda, æfði í gamla lögregluhúsnæðinu. Þetta var Coda með C. Þegar við hættum í þessu húsnæði kom fataverslunin Koda inn í sama húsnæði – svo það passaði vel í nafnaflækjunni.“ Og þá fór að spyrjast út að það væri einhver strákur í Keflavík sem gæti spilað á hljómborð? „Nákvæmlega. Þá var bara hringt í mig, oft einhverjir sem ég kannaðist ekkert við. Spurðu hvort ég væri til í að taka gigg næsta vetur á Klúbbnum. Ég fór þangað, stillti upp græjunum og var af og til þann vetur á


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 57 Flott mynd frá einum af 80 ára afmælistónleikum Rúnars Júl sem sést á mynd á bakvið.

Baldur með eiginkonu sinni, Þorbjörgu Guðnadóttur á afhendingu Súlunnar.

efstu hæð Klúbbsins, sem er núna Cabin hótel í Reykjavík. Við vorum í veseni með nafn – eins og allar hljómsveitir – en söngvarinn var úr Fjörefni. Þá fannst okkur sniðugt að kalla bandið Fjörorku. Það nafn entist ekki vel og var breytt yfir í Bogart seinna. Á þessum grunni hélt svo áfram að spyrjast út að ‘þarna er einhver strákur sem getur eitthvað’, og ég var farinn að spila tvítugur inni á Hótel Sögu með Magga Kjartan, að leysa Hjört heitinn Howser af.“ Þá ertu farinn að spila með gömlum félögum föður þíns úr bransanum? „ Já, já. Maggi Kjartans átti marga frasa; eitt var að hann væri bara að taka mig í uppeldi – síðan myndi pabbi launa honum með því að taka hans stráka í uppeldi seinna.“

Það hefur verið fréttnæmt: Sonur Rúnars Júl spilar gömlu dansana. „Já, það var svolítið þannig. En þetta var það sem afi var að gera. Hermann Ragnar Stefánsson var með útvarpsþátt þar sem hann kenndi dans – eins furðulegt og það er að kenna dans í útvarpi – og afi spilaði þá danstónlist: polka, ræl, og allt þetta.“

Að spila með Rúnari Júl og gömlu dansarnir

Bítlabærinn Keflavík og heimilislífið

Þið bræður, þú og Júlli, spiluðuð líka helling með pabba ykkar? „Það kemur samt seinna. Eitt leiðir af öðru: ég fór að spila með honum upp úr tvítugu í Hollywood þegar ‘Leitin að týndu kynslóðinni’ stóð yfir. Ég var þarna sem afsprengi kynslóðarinnar að spila með gamla settinu – ákveðinn skóli út af fyrir sig. Svo kemur áttan, „eighties“, sem var dálítið sérstök. Það fór smám saman að fjara undan hljómsveitunum; alltaf færri og færri í hverju bandi. Ég datt út og fór að spila með Mumma Hermanns á skemmtunum í smá tíma. Svo stofnaði Júlli bróðir hljómsveitir sem ég var ekkert endilega inn í, þetta var annað svið. Hann og félagar ákveða að fara til Bandaríkjanna og reyna að „meika það“. Þeir hétu þá Pandóra, en til að safna fyrir utanferðinni ákváðu þeir að „covera“ hljómsveitir og höfðu gaman af og Deep Jimi And The Zep Creams verða til. Ég var kallaður til að spila á Hammond – þeir hafa alltaf kallað mig Deep Jimi vegna þess. Síðan fóru þeir út; það

Hvernig upplifðirðu músíkina í kringum pabba þinn og hans hljómsveitir? Við tölum oft um Bítlabæinn Keflavík – hvernig var fyrir þig að vaxa upp þarna og síðan fara sjálfur að fikta í tónlist? „Þetta var aldrei falið fyrir mér. Ég var tekinn með á æfingar og man eftir að hafa farið að sjá Trúbrot spila í „Faust“ hjá Leikfélagi Reykjavíkur, sem var svona undanfari Lifunar. Hvort það var æfing eða sýning man ég ekki, en ég var inni í þessu. Ég var vinur strákanna, fór með í Saltvík um verslunarmannahelgi, man eftir að hafa hitt Pétur Kristjánsson þar. Þeir tóku mér ofboðslega vel, þannig að ég var bara hluti af genginu. Þetta var aldrei neitt vesen.

Síðasta myndin af Rúnari Júl áður en hann lést, - fjölskyldumynd tekin á sviðinu í Frumleikhúsinu.

Var það ekki skemmtilegt – feðgarnir saman á ferð? „Jú, honum þótti gríðarlega vænt um það. Hann sagði samt oft í gamni, þegar við ætluðum að taka túr: „Agalegt að vera að fara með ykkur hérna og rífa ykkur upp.“ Þetta var ekki alltaf skemmtilegt í undirbúningi, en þegar ballið byrjaði skemmtum við okkur vel.“

er saga út af fyrir sig hvernig það endaði, en ég fór ekki með í þá ferð. Þá datt ég inn í árshátíðarhljómsveit Birgis Gunnlaugssonar. Þar var annar skóli: ég spilaði út um allt land, á árshátíðum, þorrablótum og alls konar skemmtunum. Ég þurfti að læra gömlu dansana – einn, tveir og bingó – þannig að það skipti engu máli hvað var hent í mig, ég reyndi að spila það.“

Var þetta skemmtilegt, upplifðirðu þetta sem forréttindi? „Þetta var bara skemmtilegt. Ég upplifði þetta aldrei sem eitthvað sérstakt forréttindalíf – þetta voru bara vinir pabba og mömmu, áhugavert fólk, sumir skrítnari en aðrir.“

Geimsteinn, Rokksafnið og Rokkheimurinn á Skólavegi

Þegar þú ert enn heima hjá foreldrum þínum – var umræðan á heimilinu ofboðslega mikið um tónlist? Eða líka fótbolta, þar sem pabbi þinn var nú í boltanum? „Við ræddum líka mikið boltann. En það lágu alltaf frammi tímarit eða bækur um tónlist og alltaf var músík í gangi. Ég er enn þannig í dag – þegar Spotify sendir ársskýrslu um hvað ég hlusta mest á, þá spyr maður sig: „Hvað varstu eiginlega að hlusta á?“ Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Pabbi var líka þannig, safnaði plötum. Músíkin var alltaf nálæg. Við ræddum líka hvað væri gott og slæmt, hvað virkaði og hvað ekki. Pabbi var atvinnumaður í tónlist frá 19 ára aldri, í Hljómum, og fór aldrei í aðra vinnu eftir það. Hann var bara Rúnar Júlíusson.“

Stjarna, peningarnir og lífsstíllinn Þetta hefur oft verið sagt – hann var þekktasta poppstjarna landsins, í Íslandsmeistaraliði Keflavíkur í knattspyrnu og með fegurðardrottningu Íslands, Maríu Baldursdóttur. Þetta er ágætis pakki? „Já, það er einhver þrenna sem er ekki leikin eftir. George Best hefði kannski náð þessu í Bretlandi – nema hann gat ekkert spilað tónlist.“

Voru einhverjar dökkar hliðar á þessu tónlistarlífi fjölskyldunnar fyrir þig sem ungan mann? Upplifðirðu eitthvað neikvætt? „Nei, ekki þannig. Þetta var eins og gerist í kringum svona bransa. Það var mikið spilað á böllum, miklu meira en núna. Fólk var að dansa og drekka, og það fylgdu eftirpartí sem voru eftirminnileg fyrir ákveðnar uppákomur. En ég held að það hafi ekki verið meira vesen en hjá meðal-Jóni.“ Voru foreldrar þínir einhvern tíma ríkir af þessu? Upplifðirðu það? „Ég fann aldrei fyrir því, hvorki ríkidæmi né hitt – það var einhvern veginn alltaf sama ástand. Hljómar fóru gríðarlega vel af stað og hann náði að setja pening í fasteign – húsið á Skólaveginum. Trúbrotstíminn er listrænt stór, en það streymdi ekkert inn peningur og Lifun skilaði engum auði. Svo koma mjög mögur ár í áttunni, þetta var hark. Svo komu góð verkefni með Bubba og GCD; þá kom ágætis peningur inn. En svo var bara hark áfram. Hann breyttist aldrei: þegar hann átti pening leyfði hann sér eitthvað, þegar hann átti ekki peninga leyfði hann sér ekkert.“ Hugsaðirðu út frá þessu: „Ég ætla að tryggja mér aðra vinnu“ þegar þú varst að ákveða nám? „Nei, ég hugsaði þetta ekki með þeim hætti. Þetta bara gerðist. Ég átti auðvelt með nám, útskrifaðist úr fjölbraut 18 ára og fór beint í háskóla, það lá beinast við. Ég sá meira að segja fyrir mér að reka hljómplötufyrirtækið. En það var ekki nógu mikil velta til að vera með framkvæmdastjóra á launum, þannig að ég fann mér önnur verkefni. Ég sé ekki eftir neinu. Og varðandi spurninguna þína um að spila með pabba: Það kemur upp úr 2000. Þá er ég kallaður inn í nokkur verkefni með hljómsveitinni. Júlli er farinn að spila á trommur með pabba og síðustu fimm–sex árin spilaði hann eiginlega bara með okkur og fékk gítarleikara inn ef þurfti. Við fórum víða um land.“

Þið hafið haldið utan um gamla Geimstein – útbúið Rokksafn Rúnars heima hjá ykkur og verið með uppákomur á Ljósanótt. Nú síðast hélduð þið upp á stórafmæli Rúnars Júl. „Rokksafnið var upphaflega hugmynd pabba. Hann setti upp poppminjasafn fyrir Suðurnes á veitingastaðnum Glóðinni og seldi hugmyndina inn í bæjarfélagið og bæjarstjórunum – fyrst Ellerti Eiríkssyni, svo Árna Sigfússyni. Þetta varð að veruleika eftir að hann deyr – þar til þá var þetta á teikniborðinu. Hann fékk þó vinnu hjá Reykjanesbæ í lok ævinnar við að koma safninu á koppinn og vera húskarlinn sem tók á móti fólki. Hann tók skóflustunguna að Hljómahöll en náði ekki að klára. Þegar hann fellur frá klárum við skúrinn heima á Skólavegi 12 og setjum upp það sem til var af sýningunni á Glóðinni. Við búum til okkar eigin sýningu og köllum þetta Rokkheim Rúnars Júlíussonar. Það er ágætis pæling – rokkheimurinn hans var eiginlega bara 350 metrum frá fæðingarheimilinu, alltaf í Keflavík. Hann hélt tryggð við bæinn þó að „Bítlabæjar-strákarnir“ færu flestir í höfuðborgina.“ Svo komu minningartónleikarnir og afmælin? „Já. Strax eftir fráfall hans fórum við í minningartónleika í Laugardalshöll. Þeir heppnuðust gríðarlega vel og „Söngur um lífið“ varð vinsælasta lagið 2010 í flutningi Páls Óskars – upphaflega flutt í jarðarförinni. Svo héldum við upp á 70 ára afmælið með ungum „kanónum“ eins og Stebba Jak, Valdimar Guðmunds og Sölku Sól. Þegar 80 ára afmælið kom ákváðum við að gera þetta á allt öðrum forsendum – þá sungum við bræðurnir sjálfir, með litlu, þéttu bandi, miklu meiri sögustund, myndasýningar og frásagnir af ferlinum. Svo vildi Júlli bróðir nýta skúrinn – hann er ekki lengur safn í formlegum skilningi, en við tökum á móti smærri hópum til að segja söguna. Við fórum þá að segja sögur ekki bara af pabba heldur af fólkinu sem fór í gegnum skúrinn: Páll Óskar hóf ferilinn þar, Bjartmar Guðlaugsson, Stebbi Hilmars, Gylfi Ægis, Magnús Þór, Jói Helga, Hjálmarnir, Baggalútur og fleiri.“ Framhald á næstu síðu.


58 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Bræðurnir, Baldur og Júlíus með Maríu móður sína á milli sín.

Baldur í hörku sveiflu á sviði á afmælistónleikum fyrr á árinu - með nikkuna á lofti. Skemmtileg mynd frá Ástu Magnúsdóttur.

Voruð þið bræðurnir inni í þessu frá upphafi Geimsteins? „Já, já. Ég tók þátt í þessu öllu frá því Geimsteinn var stofnaður ’76 – 50 ára á næsta ári, þá verða frekari veisluhöld. Ég var að pakka póstsendingum út á land í sjoppur, búa til póstkröfur, rukka í búðum eins og Víkurbæ og Kyndli. Ég var 12 ára sendur niður í bæ að rukka Árna Sam og Jósafat Arngrímsson, aðalkaupmenn bæjarins. Svo var ég líka að skrifa bréf í Óskalagaþættina, Lög unga fólksins og Óskalög sjúklinga. Ég gat verið sjúklingur, sjómaður – allt mögulegt – bara til að biðja um lögin. Þetta var eini sénsinn til að fá spilun í útvarpi – það var bara ein útvarpsstöð og mikilvægt að fá spilun, Lög unga fólksins voru einu sinni í viku. Maður þurfti að vera kreatívur.“

Stafræn bylting, streymi og tekjur Tímar og tækni hafa breyst gríðarlega – nú koma tónlistarmenn oft einir með playback. Hvernig finnst þér stafræna byltingin hafa breytt bransanum? „Þetta gerist svo hratt að við verðum eiginlega bara að spila

með. Vínylplatan er til en eiginlega horfin sem massamarkaðsvara. Það er gaman að sjá plötuverslanir enn til – og jafnvel að þær poppi upp aftur – en það er ekki mikill peningur í þessu. Í dag gefur fólk ekki út tónlist til að selja plötuna. Platan er meira til að geta sagt: „Hérna er ég búinn að gera eitthvað,“ hafa hana í höndunum. Svo fer allt á streymisveitur og við köfnum í gríðarlegum fjölda titla. Við hér á Íslandi erum lítill fiskur í mjög stórri tjörn, ekki lengur stórfiskur í lítilli tjörn eins og áður. Þannig að höfundarlaun og tekjur af streymi eru fín sem viðbót, en það heldur engum uppi. Það eru frávik sem lifa á því, en það er undantekning. Í dag skiptir mestu máli að spila og koma fram – þar eru tekjurnar. Krakkarnir sem eru að koma upp núna eru á allt öðrum launum en þekktist áður.“

Menning, Reykjanesbær og Rokksafnið í Hljómahöll Þú fórst ekki leið atvinnumanns í tónlist, heldur menntaðir þig og hefur starfað víða – m.a. í stjórn-

málum hér í bænum. Hvernig upplifirðu sveitarfélagið sem þú býrð í í dag? „Síðustu sjö ár hef ég unnið í Reykjavík og er aðeins búinn að missa tengsl við daglegt líf hér í Reykjanesbæ, en mér finnst bæjarfélagið hafa byggst gríðarlega hratt upp á síðustu tíu árum og því fylgja alls konar vaxtarverkir. Það sem ég sakna helst er meira líf í bænum – meira gaman. Ég nenni ekki að veltast of mikið upp úr skuldastöðu og slíku, mér finnst miklu mikilvægara að við séum að byggja upp samfélag þar sem við getum haft gaman hvert af öðru.“ Þú vinnur nú í menningarráðuneytinu – hvernig horfir þetta við þér út frá þeirri sýn? „Ég vinn þar núna, sem tengiliður við Evrópuráðið. Í Evrópu er sífellt meira talað um að menning skipti miklu máli fyrir samfélög – og að hún sé ekki bara í höfuðborgum. Bretar, Danir og fleiri leggja áherslu á að tryggja menningu út um allt land. Í ráðuneytinu erum við mikið að hugsa um þetta – byggja upp menningu úti um allt land. Þess vegna skiptir það mig miklu máli

Svo var ég líka að skrifa bréf í Óskalagaþættina, Lög unga fólksins og Óskalög sjúklinga. Ég gat verið sjúklingur, sjómaður – allt mögulegt – bara til að biðja um lögin. Þetta var eini sénsinn til að fá spilun í útvarpi – það var bara ein útvarpsstöð og mikilvægt að fá spilun, Lög unga fólksins voru einu sinni í viku. Maður þurfti að vera kreatívur. að við gerum það líka héðan frá Suðurnesjum. Það verður að vera líf í bænum. Íbúakannanir sýna alltaf að leikskólar og skólar skipta miklu máli – en svo verður líka að vera menning og viðburðir, tónlist, sviðslistir. Íþróttirnar setjum við jafnvel undir sama hatt; þetta allt bindur samfélagið.“ Þú varst ósáttur við flutning og breytingu á Rokksafninu í Hljómahöll. Hvernig sérðu stöðuna í dag? „Afstaða mín er óbreytt, mér finnst þetta hafa verið mistök. Ég hef ekkert á móti bókasafninu – það heppnaðist mjög vel – en mér finnst undarlegt að eftir að íbúum fjölgar um 50% á tíu árum sé ákveðið að skerða þjónustu Tónlistarskólans, sem var búinn að vera í húsinu í tíu ár. Ég hefði viljað að við byggðum húsið upp sem tónlistarhús og hefðum haldið fast í arfleifð rokksins á Suðurnesjum. Við eigum fullt af íþróttahúsum, en þarna var hús sem var tileinkað tónlist – og við hefðum getað gert miklu meira úr því. Rokksafnið fór í gegnum erfiða tíma í Covid, enginn mátti fara á söfn og viljinn til að halda því við var ekki mikill þegar út úr því var komið. Nú er verið að vinna að nýrri sýningu, í miklu minni mynd, og það hefur ekki sama aðdráttarafl og áður. En lífið heldur auðvitað áfram.“

Neðri mynd: Baldur ungur að árum með tveimum Keflvíkingum, f.v. Sigurður Sævarsson, tónskáld og Óskar Nikulásson, nú starfsmaður RÚV.

Á afhendingu Súlunnar fékkstu nokkra fjölskyldumeðlimi með þér upp á svið – maður sá þar átta ára „Rúna Júl“ með gítarinn á lofti, söngkonur og fleiri. Eru allir í ykkar fjölskyldu með tónlist í blóðinu? Eða er þetta uppeldi – eða bæði? „Ég held að þetta sé bæði, og að ég sé ágætis arfberi. Öll börnin mín eru mjög færir tónlistarmenn og ég gat sett saman hljómsveit bara úr þeim við afhendingu Súlunnar. Ég varð að nota Júlla bróður á trommur, en sonur hans er nú farinn að spila á trommur líka. Við tveir bræður gátum stillt upp heilli hljómsveit á afmælistónleikunum, allar stöður mannaðar. Og þetta heldur áfram niður á afabörnin. Elsta afabarnið, Þorbjörg Eiríka, opnaði athöfnina með því að spila ansi vel á píanó – hún er 13 ára og í Tónlistarskólanum, ekki hjá afa. Bróðir hennar, Oddþór Guðni, er að læra á gítar og er með sviðsframkomuna á tæru, með takta langafa síns. Svo er Baldur Máni, nafni minn, tveggja ára, farinn að sýna að hann ætli sér eitthvað í bransanum. Lífið er tónlist, svolítið mikið. Maður pælir eiginlega aldrei í því – þetta er bara „true way of life“ hjá okkur. Páll Ketilsson pket@vf.is

Afmælistónleikar í tilefni 80 ára afmælis Rúnars Júlíussonar heppnuðust vel. Hér er bandið að þakka fyrir sig.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 59

Þú VERÐUR að ná þyrlunni, Eiríkur!

Í hamfarasjó í Noregshafi Nýjasta útkallsbókin er helguð minningu þriggja Íslendinga sem létust. Í janúar 2012 berst Eiríkur Ingi Jóhannsson, 37 ára, klukkustundum saman fyrir lífi sínu - einn í hamfarasjó í víðáttu Noregshafs. Í nýjustu Útkallsbók Óttars Sveinssonar er greint frá því slysi, frásögn Eiríks en alls ekki síður fólksins í norsku þyrlusveitinni, samtals 12 manns. Fólkið lagði líf sitt í hættu við að bjarga Íslendingnum og leita að þremur félögum hans, þar af tveimur sem voru búsettir á Suðurnesjum. Bókin er helguð minningu þremenninganna.

Í Útkallinu kemur fram að litlu munaði að þyrlubjörgunarsveitin, áhafnir tvegg ja þyrlna norska hersins, kæmust ekki aftur heim til Noregs úr björgunarleiðangrinum. Fólkið lenti í ófyrirséðum aðstæðum sem eiga sér enga hliðstæðu. Á svæðinu var hamfarasjór. Þegar fjórir Íslendingar eru að sigla litlum íslenskum skuttogara frá Siglufirði til Noregs brestur á foráttufárviðri með þeim afleiðingum að skipið sekkur um 400 kílómetra frá landi. Allir mennirnir

fara í sjóinn og öldurnar eru á við fimm hæða hús. Slysið á sér stað nánast utan flugdrægis björgunarþyrlna. Tvær vélar eru sendar af stað og þurfa áhafnirnar að bæta við eldsneyti á olíuborpöllum á leiðinni. Þegar þyrlurnar koma á slysstað á í raun enginn von á að finna menn á lífi – slíkt er ölduhafið og veðurhamurinn. Eiríkur, sem var búinn að berjast fyrir líf i sínu í þrjár og hálfa klukkustund, sér aðra þyrluna en áhöfnin kemur ekki auga á hann. Nú þarf hann að taka afdrifaríka ákvörðun – á hann að reyna að synda nokkur hundruð metra í áttina að vélinni og eyða síðustu kröftunum í að gera vart við sig? Myrkrið er að skella á. Í bókinni lýsa Eiríkur og þyrluáhafnirnar aðstæðum sem engan óraði fyrir. Gríðarlegt sjófok verður þess valdandi að þykkt saltlag safnast á þyrluspaðana með þeim afleiðingum að vélarnar hristast svo mikið að flugmennirnir hætta að geta séð á mælana. Og eldsneytisnotkunin eykst svo mikið að menn telja um tíma að vélarnar komist ekki til lands.

Hér er stuttur kafli úr bókinni - Ég er á lífi! Þrátt fyrir að Eiríkur haf i hugsað með sér að sundið til þyrlunnar tæki frá honum þá orku sem hann átti eftir fannst honum það samt vera sín eina von: „Þetta var minn síðasti séns. Ég átti engan veginn von á að skip gæti bjargað mér í þessum haugasjó. Hvernig á að vera hægt að draga mig upp í skip sem hoppar út um allt á öldunni? Það væri algjör lukka ef hægt yrði að draga mann um borð án þess að steinrotast þegar maður rækist utan í skipið. Ég hætti að synda í smástund og fylgdist með þyrlunni. Jú, hún er kyrr. En ljósin á henni eru agnarsmá að sjá. Hún er svo langt í burtu. En svo sá ég eitthvað annað ljós til vinstri sem ég hafði ekki séð áður og hugsaði: „Ókei, Eiríkur, ef þyrlan fer þá reynir þú alla vega að ná þessu ljósi þarna til vinstri.“ Þetta var bara eitt hvítt lítið ljós og gat verið eitthvað frá Hallgrími eða að þyrlan hefði sett niður einhverja merkjabauju. Hugur minn var á fleygiferð og ákvörðunin um að synda áfram eða ekki togaðist verulega á í mér. Það er allt of langt að þyrlunni. Ég á aldrei eftir að ná þessu. En svo gnísti ég tönnum og hrópaði: „Eiríkur, þú VERÐUR að ná þessari þyrlu!“ Og ég gargaði áfram: „Strákar, strákar. SJÁIÐ ÞIG MIG? Strákar, sjáið þið mig?“ Ég var staðráðinn í að ná sambandi við þá þótt ég vissi að þeir heyrðu ekki í mér. Ég ætlaði mér að ná til þeirra í gegnum andlega tengingu, lífstenginguna mína. „Strákar, strákar – sjáið þið mig!“ Svo æpti ég: „Jónas, Jónas!“ Ég hélt að þetta gæti jafnvel verið Jónas, vinur minn sem var að vinna á þyrlu sem flaug frá Bergen

til olíuborpallanna í Norðursjó. Ég bara skyldi einhvern veginn ná sambandi við þessa þyrlu.“ Um hálfri klukkustund síðar: Stormurinn hremmir sigmanninn Vebjørn var um það bil að reyna nokkuð sem hann hafði aldrei órað fyrir áður: „Þegar ég kom út úr þyrlunni og ætlaði að byrja að síga greip fárviðrið mig um leið. Þetta var án efa versta veður sem ég hafði sigið í og nú gerðist svolítið sem ég hafði aldrei lent í áður. Ég fór ekki niður heldur hreif vindurinn mig aftur með þyrlunni og utan í hana. Um leið hafði Johnny spilmaður stungið höfðinu út úr vélinni til að fylgjast með mér en þá festist vírinn í hjálminum hans. Ég missti jafnvægið og vissi að ég yrði að fara aftur inn í vél.“ Fred Stabell spilmaður varð ekki um sel þegar hann sá hvað var að gerast: „Venjulega stingur spilmaðurinn höfðinu út til að fylgjast með sigmanninum. Hann finnur líka spennuna á vírnum með hanskanum á meðan hann hefur hina höndina á handfanginu á spilinu. Hann var að líta út til að sjá hvernig stríkkaði á vírnum. En þar sem Vebjørn fór óvenju aftarlega lenti Johnny með hjálminn á milli vírs og dyrakarms.“


60 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Bæta þurfi stöðuna í leikskólamálum

Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!

Staðan í leikskólamálum er mun verri í Reykjanesbæ en í sambærilegum sveitarfélögum. Í byrjun nóvember voru 134 börn á biðlista eftir leikskólaplássi í sveitarfélaginu. Í bókunum minnihlutaflokkanna og meirihlutans er lagt til að gerð verði heildarúttekt á stöðu leikskólamála í Reykjanesbæ en málið var til umræðu á fundi menntaráðs 14. nóvember. „Markmið úttektarinnar á stöðu leikskólamála er að kanna möguleika á því að taka börn inn í leikskóla í Reykjanesbæ við 18 mánaða aldur en í dag er miðað við börn sem verða tveggja ára á árinu. Einnig verður skoðað á hvaða aldri börn hafa verið þegar þau hafa fengið úthlutað leikskólaplássi í sveitarfélaginu á yfirstandandi kjörtímabili,“ segir í bókun meirihlutans en jafnframt er bent á að nýr leikskóli í Drekadal hafi tekið

til starfa með 43 leikskólapláss og 30 verða til viðbótar á árinu 2026. Fullbúinn verður þessi nýi leikskóli í Innri-Njarðvík fyrir 120 börn. Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót segja í sinni bókun að Reykjavíkurborg hafi reglulega verið gagnrýnd fyrir slæma stöðu í leikskólamálum „en miðað við stöðu biðlista í leikskólum Reykjanesbæjar sem lagður var fram á fundi fræðsluráðs 14. nóvember virðast biðlistar í Reykjanesbæ vera hartnær helmingi lengri en í borginni ef miðað er við íbúafjölda,“ segir í bókun þeirra.

Ánægja með breytt fyrirkomulag í vetrarfríum og dymbilviku Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi kynnti niðurstöður kannana sem gerðar voru meðal foreldra og starfsfólks á leikskólum bæjarfélagsins, bæði

varðandi skráningardaga í dymbilviku, vetrarfríum og stöðu biðlista. Varðandi skráninguna í kringum hátíðir var 79% svarenda ánægð með fyrirkomulagið og fannst það skýrt og auðskilið, 69% fannst skráningarferlið auðvelt og 68% sögðust vera ánægð með fyrirkomulagið. 67% foreldra telja afslátt af leikskólagjöldum sanngjarna hvatningu til að nýta ekki þjónustuna á þessum tímabilum. Viðtökur voru almennt góðar en svigrúm er til úrbóta varðandi upplýsingagjöf þar sem um 10% svarenda vissi ekki af afslættinum. Meðal starfsmanna voru flestir svarendur á því að fyrirkomulagið væri árangursríkt og drægi úr álagi og mönnunarvanda. Meira en helmingur sagði fyrirkomulagið hafa jákvæð áhrif á starfsanda.

HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI SUÐURNESJA EHF

FITJABRAUT 12 • 260 REYKJANESBÆ • SÍMAR 421-1399 / 861-1379 / 862-6962

Hjólbarðaverkstæði Suðurnesja

Ríkisstjórnin ók fram hjá Suðurnesjum

Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

Ný samgönguáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins liggur nú fyrir. Hún átti að marka upphaf stórátaks í innviðauppbyggingu, enda héldu stjórnarflokkarnir því stöðugt á lofti í kosningabaráttu og stjórnarsáttmála að hér yrði hafist handa í stórum stíl. Þar að auki fullyrtu þau afdráttarlaust að skattar yrðu ekki hækkaðir á almenning. Nú sjáum við hins vegar annað: skattarnir hækka – en framkvæmdunum er frestað.

almenningssamgangna snýst í að verða samdráttur. Endurbætur á aðalleiðum inn í sveitarfélögin eru látnar bíða og þörfin fyrir auknar sjóvarnir ekki tekin alvarlega. Á sama tíma og ríkisstjórnin rukkar okkur um hærri skatta, þá skerðir hún þær framkvæmdir sem hún taldi brýnastar og notar sem réttlætingu fyrir skattheimtu. Þetta er öfugsnúin forgangsröðun og bitnar verst á Suðurnesjum.

Skattaloforðin brutu þau og innviðaloforðunum gleymdu þau

Samgönguáætlunin fer nú í þinglega meðferð. Þar er okkar tækifæri til að knýja fram breytingar, skila umsögnum og tala fyrir því að Suðurnesin verði ekki aftur skilin eftir í vegarkantinum. Við þurfum að standa saman, óháð því hvaða flokk við styðjum, um að löngu lofaðar framkvæmdir verði ekki bara orð á blaði. Íbúar Suðurnesja eiga rétt á sama öryggi og þjónustu og fólk annars staðar á landinu og við munum halda áfram að tala skýrt þegar ríkisstjórnin reynir að aka fram hjá okkur.

Íbúar Suðurnesja f inna hvað eftir annað fyrir þessari stefnubreytingu. Hækkanir á sköttum á ökutæki, þyngri álögur á ferðaþjónustu, afnám samsköttunar hjóna og 50% hækkun á skatti á leigutekjur eru allt hluti af pakkanum sem núverandi ríkisstjórn ætlar að innleiða. Þetta mun bitna sérstaklega á heimilum, atvinnulífi og lífsgæðum hér á svæðinu. En þegar kemur að loforðunum um auknar samgönguframkvæmdir? Þá er litlu sem engu fylgt eftir. Formaður samgöngunefndar Alþingis er úr Viðreisn og býr á Suðurnesjum. Flokkur fólksins á

Höfum verk að vinna – saman fyrsta þingmann Suðurkjördæmis. Samgönguráðherra kom hingað og talaði um metnaðinn og tækifærin. Ég studdi áform hans með opnu bréfi og lagði fram tillögur til að flýta framkvæmdum. En niðurstaðan í áætluninni sem nú var kynnt er skýr: Suðurnesin dragast aftur úr, enn einu sinni.

Frestanir og niðurskurður Tvöföldun Reykjanesbrautar, sem er ein allra mikilvægasta framkvæmd landsins, er frestað. Uppbyggingu Nesvegar, sem er mikilvægt öryggismál í ljósi jarðhræringa og aukinna umsvifa í atvinnulífinu, er frestað. Efling

Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins


Vínbúðin Reykjanesbæ

Opnunartímar um hátíðarnar Opening hours during the holiday season

22. desember Mánudagur

23. desember Þriðjudagur ÞORLÁKSMESSA

24. desember Miðvikudagur AÐFANGADAGUR

11–19

11–20

10–13

29. desember Mánudagur

30. desember Þriðjudagur

31. desember Miðvikudagur GAMLÁRSDAGUR

11–18

11–20

10–14

Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.

19. desember Föstudagur

20. desember Laugardagur

11–19

11–18

25. desember Fimmtudagur JÓLADAGUR

26. desember Föstudagur ANNAR Í JÓLUM

27. desember Laugardagur

Lokað

Lokað

1. janúar Fimmtudagur NÝÁRSDAGUR

2. janúar Föstudagur

Closed

Lokað Closed

vinbudin.is

Closed

11–19

11–18

21. desember Sunnudagur

Lokað Closed

28. desember Sunnudagur

Lokað Closed


62 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!

Heilög stund á Þorláksmessukvöldi Hildur María Magnúsdóttir, grunnskólakennari er mikið jólabarn Hildur María Magnúsdóttir, grunnskólakennari er mikið jólabarn og heldur í jólahefðir. Ein af þeim er að Þorláksmessukvöld er heilagt hjá fjölskyldunni sem sest þá saman fyrir framan sjónvarpið og horfir jólamynd. Óskalistinn hjá Hildi Maríu fyrir þessi jól er þunnur að hennar sögn en þá kemur eiginmaðurinn sterkur inn. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr?

upp á heitt súkkulaði og horfum á „Christmas Vacation“.

Hvað er ómissandi á jólunum? Möndlugrauturinn hjá mömmu á aðfangadag og gott spilakvöld með góðu fólki.

Óskalisti í ár? Hann er óvenju þunnur í ár, en maðurinn minn er snillingur í að velja fallegar gjafir, svo ég er mjög spennt.

Árið 2025 var mjög gott ár. Við fjölskyldan vorum á ferð og flugi, bæði innanlands og utan, og fylgdum börnunum okkar á ótal skemmtilega íþróttaviðburði. Það sem stendur upp úr er að Gabríel Aron útskrifaðist sem stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Heiðrún Lind var valin í U15 landsliðið í körfubolta og fylgdum við henni á mót í Finnlandi í sumar.

Eftirminnilegasta jólagjöfin? Dúkkurnar sem við systur fengum frá mömmu og pabba eitt árið. Ég skírði mína Maggý í höfuðið á pabba – hún er ennþá til og liggur uppi á háalofti.

Hvað verður í jólamatinn? Humar í forrétt (uppskrift frá tengdafjölskyldunni), hamborgarhryggur í aðalrétt og svo brownies með vanilluís og karamellusósu í eftirrétt.

Uppáhaldslagið? „Jólin eru okkar“ með Baggalút, Bríet og Valdimar.

Áramótaheit? Ég hef aldrei verið góð í hefðbundnum áramótaheitum, en ég reyni alltaf að vera aðeins betri útgáfa af sjálfri mér á nýju ári. Tökum því sem kemur – með gleði!

Ert þú mikið jólabarn? Já, algjörlega! Ég elska þennan tíma – kertaljós, jólatónlist og allt sem fylgir.

Tannlæknastofan Tjarnargötu 2

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Ég set mér alltaf markmið um að klára snemma… en það hefur aldrei tekist!

Ómissandi jólamynd? „Christmas Vacation“ – alltaf!

Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum? Ég myndi velja Ísland. Jólin eru bara best heima – með öllum mínum. Ef ég þyrfti að velja annað land þá þyrfti ég að taka ansi marga með mér.

Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Við höfum skapað okkur hefð fyrir lifandi jólatré, og síðustu ár höfum við verið með stafafuru sem er ótrúlega falleg. Yfirleitt setjum við tréð upp um annan í aðventu, en í ár fór það upp 10. desember.

Njarðarbraut 15, 260 Reykjanesbær Sími 420 5000 www.ksteinarsson.is

Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Ætli það séu ekki jólin 1986 þegar við bjuggum í Noregi – líklega líka af því að það eru til svo margar myndir frá þeim tíma! Hvaða jólahefð er í uppáhaldi? Þorláksmessukvöld er heilög stund hjá okkur. Þegar allt er klárt kveikjum við á kertum, hellum

Hveralykt af heita vatninu þegar álagið er mikið MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM

Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

Íbúar víða á Suðurnesjum hafa undanfarið tekið eftir meiri lykt af heitu vatni heimahúsum. Samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum er um tímabundið fyrirbæri að ræða sem tengist miklu álagi á hitaveitukerfinu í kuldakaflanum síðustu daga. Kuldinn hefur leitt til verulega aukinnar notkunar á heitu vatni og þar af leiðandi meira álags á framleiðslu HS Orku í Svartsengi. Til að mæta aukinni eftirspurn var tímabundið bætt litlu magni af jarðhitagufu inn í framleiðsluna. Sú breyting getur valdið því að sumir finni meiri lykt af vatninu en ella. HS Veitur taka fram að breytingin geti lækkað pHgildi vatnsins örlítið, en að öðru leyti hafi hún engin

áhrif á gæði þess. Heita vatnið sé áfram innan allra gæðamarka. Fram kemur að álag á kerfið hafi nú minnkað og samkvæmt HS Orku sé ekki verið að nota jarðhitagufu í framleiðslunni um þessar mundir. Stefnt er að því að halda slíkri notkun í lágmarki, en íbúar gætu þó fundið fyrir svipaðri lykt á löngum og ströngum kuldaköflum líkt og þeim sem gengið hafa yfir nýverið.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 63

Fjárhagsáætlun samþykkt í Reykjanesbæ Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar og sameiginlega rekinna stofnana 2026-2029 var samþykkt við síðari umræðu með á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku með sjö atkvæðum bæjarfulltrúa meirihlutans Bjarna Páls Tryggvasonar (B), Díönu Hilmarsdóttur (B), Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B), Helgu Maríu Finnbjörnsdóttur (Y), Hjartar Magnúsar Guðbjartssonar (S), Sigurrósar Antonsdóttur (S) og Sverris Bergmanns Magnússonar (S). Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Umbót, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Við samþykkt áætlunarinnar voru lagðar fram langar og miklar bókanir frá bæði meiri- og minnihluta. Hér að neðan er stiklað á stóru úr þeim.

Meirihluti samþykkir fjárhagsáætlun með stolti Meirihluti Framsóknar, Samfylkingar og Beinnar leiðar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir yfir ánægju með fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árin 2026–2029, sem samþykkt var í síðari umræðu. Í bókun meirihlutans segir að áætlunin sé afrakstur umfangsmikillar og markvissrar vinnu sem byggi á ábyrgri fjármálastjórn, skýrri forgangsröðun og traustum rekstri, í samhengi við ört vaxandi sveitarfélag. Áætlunin gerir m.a. ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu, stöðugri framlegð og áframhaldandi fjárfestingum í innviðum. Lögð er sérstök áhersla á að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,25% í 0,23%, ásamt frekari lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði, án þess að skerða grunnþjónustu. Meirihlutinn bendir á að 9 mánaða uppgjör ársins 2025 staðfesti heilbrigðan rekstur og að veltufé frá rekstri geri kleift að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir. Í f járfestingaáætlun 2026 er meðal annars gert ráð fyrir fullnuma opnun leikskólans Drekadals, áframhaldandi endurbyggingu Myllubakkaskóla og Holtaskóla, endurbótum á leikskólum, undirbúningi nýs leikskóla í Heiðarhverfi, opnun 80 rýma hjúkrunarheimilis við Nesvelli, auknu viðhaldi fasteigna og fjárfestingu í mennta-, íþrótta- og menningarmannvirkjum. Þá er áhersla lögð á eflingu félagsþjónustu, sértæk úrræði fyrir börn og fjölskyldur, stuðning við íþrótta- og tómstundastarf, bætta umferðaröryggisinnviði og aukinn strætisvagnaakstur. Meirihlutinn segir fjárhagsáætlunina bera vitni um trausta fjármálastjórn, framsækna uppbyggingu og sameiginlega framtíðarsýn fyrir ört stækkandi samfélag og þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir vandaða vinnu. Undir bókunina skrifa fulltrúar Framsóknar, Samfylkingar og Beinnar leiðar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Hærri skattar, litlar fjárfestingar, vanáætlaður rekstur Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Umbótar í Reykjanesbæ sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2026. Þau segja áætlunina byggja á hærri sköttum, litlum fjárfest-

ingum og vanáætluðum rekstri, en telja þó að hún innihaldi nokkur jákvæð atriði sem þau styðji. Meðal þess sem þau fagna eru 10% launalækkun sviðsstjóra og bæjarstjóra frá og með 2026, að leikskólinn Drekadalur verði loks tekinn í fulla notkun á næsta ári, aukinnar uppbyggingar félagsmiðstöðva í hverfum og framkvæmda við gangbrautir og innviði í Ásahverfi. Þá telja þau 4,1% hækkun fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði falla innan verðbólguspár, þrátt fyrir að það samræmist ekki þeirra markmiðum. Hins vegar gagnrýna þau meðal annars 15,4% tekjuaukningu af fasteignaskatti á fyrirtæki sem þau segja draga úr samkeppnishæfni atvinnulífsins, raunlækkun stuðnings við íþróttafélög og mikla hækkun launakostnaðar Bókasafns Reykjanesbæjar. Þá sé of lítið fjárfest í aðstöðu knattspyrnufélaganna í Keflavík og Njarðvík og ekki gert ráð fyrir bakvarðasveit í leikskólum þrátt fyrir fyrri samþykkt bæjarstjórnar. Fulltrúarnir telja rekstrarkostnað bæjarins verulega vanáætlaðan og benda á að vinna við fjárhagsáætlun hafi hafist seint og samráð verið takmarkað. Þau segja ábyrgð á áætluninni alfarið hjá meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar og vonast til að næsti meirihluti eftir sveitarstjórnarkosningar 2026 tryggi vandaðri og gagnsærri vinnu við gerð fjárhagsáætlana. Undir bókunina skrifa bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Umbótar.

Sendum íbúum allra sveitarfélaga á Reykjanesi okkar bestu jóla- og nýárskveðjur.

Gagnrýnir fjárveitingar til velferðarmála

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Umbótar í Reykjanesbæ, leggur þunga áherslu á að velferðarmál séu verulega vanfjármögnuð í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árin 2026–2029. Hún bendir á að einungis um 14% skatttekna renni til velferðarsviðs, sem sé mun lægra hlutfall en hjá sambærilegum sveitarfélögum, og komi nú fram í lengri biðlistum, manneklu og auknum áskorunum í þjónustu við börn og fjölskyldur. Í bókun hennar kemur fram að velferðarsvið hafi óskað eftir auknu fjármagni til að mæta raunverulegri þörf, meðal annars til málstjóra í barna- og fjölskylduteymi, meiri aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, innleiðingar Vináttuþjálfunar og uppbyggingar skammtímavistunar fyrir fötluð börn. Engin þessara tillagna rataði inn í drög að fjárhagsáætlun. Umbót telur það alvarlegt að ekki sé hlustað á fagfólk og varar við því að skortur á snemmtækri þjónustu og forvörnum geti leitt til meiri og dýrari vandamála síðar. Hún hvetur til endurskoðunar á fjárveitingum til velferðarmála með raunverulegar þarfir íbúa að leiðarljósi.

Hugheilar hátíðarkveðjur Takk fyrir samskiptin og samveruna á árinu sem er að líða.

Við sendum öllum á Suðurnesjum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár!

NÝTT EFNI UM HÁTÍÐIRNAR YOUTUBE-RÁS VÍKURFRÉTTA, HLAÐVARP VF OG VF.IS

www.algalif.is


64 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Systurnar Oktavía og Helga Ragnarsdætur í Kirkjuhvoli nú á aðventunni. VF: Hilmar Bragi

Kirkjuhvoll, gamla samkomuhúsið á Vatnsleysuströnd. Það voru Kvenfélagið Fjóla og Ungmennafélagið Þróttur sem stóður að byggingu hússins á sínum tíma. Það hefur undanfarna áratugi staðið sem geymsla og út úr því var mokað 70 tonnum af ýmiskonar rusli og fjölmargir safnmunir settir í geymslu áður en endurbygging hófst.

Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar er með mörg járn í eldinum

Skuldlaus í mikilli uppbyggingu Systurnar Helga og Oktavía Ragnarsdætur eru drifkrafturinn í Minjaog sögufélagi Vatnsleysustrandar. Við hittum þær í gamla samkomuhúsinu Kirkjuhvoli á Vatnsleysuströnd, þar sem þær standa nú í miðri endurbyggingu.

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

Helga og Oktavía Jóhanna eru saman í stjórn Minja- og sögufélags Vatnsleysustrandar og hafa þá tvo áratugi sem félagið hefur verið til varið ótal sjálfboðastundum í að bjarga húsum, munum og sögum sveitarfélagsins frá gleymsku.

Skólahúsið varð kveikjan Minjafélagið var stofnað árið 2005. „Félagið varð í raun til í kringum gjöf,“ útskýrir Oktavía. „Það var gamla skólahúsið í Norðurkoti. Þá átti að selja jörðina sem skólahúsið stóð á upprunalega og eigendurnir ákváðu að gefa húsið til félags sem hefði það hlutverk að varðveita það sem menningarminjar.“ Norðurkot er elsta uppistandandi skólahús sveitarfélagsins, reist árið 1903. Þar var eitt af þeim „útibúum“ skólans sem starfrækt voru á Vatnsleysuströnd til að auðvelda börnum skólagöngu á dreifbýlu svæðinu. „Í kringum Norðurkot og hlöðuna Skjaldbreið á Kálfatjörn safnaðist saman hópur fólks, skólastjóri, kennarar og við. Og úr varð Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar.“ Síðan hefur verið unnið markvisst að því að gera bæði skólahúsið og hlöðuna upp. Síðar hafa fleiri hús komið inn í myndina.

Uppeldi í sögunni Þrátt fyrir að verkefnin hljómi eins og klassískt „gömlu karlanna“ áhugamál eru það tvær konur á miðjum aldri sem sitja hér með lykla að nokkrum af mikilvægum m e n n i n g a r m i n j u m s v e i t a rfélagsins. „Það er oft spurt: Hvað rekur ungar konur í Vogunum út í þetta?“ segir Oktavía og hlær. „En þetta er líklega bara uppeldi. Við ólumst upp við að garfa í gömlu.“ „Amma og afi bjuggu í næsta húsi og við vorum mikið hjá þeim,“ bætir Helga við. „Systir mömmu bjó líka í gömlu húsi í Vogunum

Hvernig á að nota húsið?

og það var alltaf verið að tala um söguna. Sagan, sagan, sagan, það var alltaf sagan.“

Skuldlaus en fjárvana Öll stærri verkefni félagsins hafa tekið langan tíma. Það sést vel á Norðurkoti og Skjaldbreið og nú síðast Kirkjuhvoli. „Þetta gerist ekkert hratt,“ segir Helga. „Við erum að tala um 20 ár síðan við vorum að setja járn á þök og gera við skemmdir. Við vinnum þetta á þeim hraða sem peningarnir berast.“ „Félagið skuldar ekki neitt,“ undirstrikar Oktavía. „Við tökum ekki lán. Við gerum bara það sem við fáum styrki til. Það þýðir að þetta mjakast hægt, en það gerist.“ Helga bendir á að nær allt sem gert hefur verið sé unnið fyrir styrkfé: „Við höfum fengið styrki frá ríki og sveitarfélagi, Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Minjastofnun og fleirum. Svo koma einstaklingar líka sterkir inn, fólk sem á tengingu við húsin og söguna.“

Kirkjuhvoll – dulúðarhúsið við réttirnar Samkomuhúsið Kirkjuhvoll var byggt árið 1933 í sameiginlegu átaki Ungmennafélagsins Þróttar og Kvenfélagsins Fjólu. Þá var húsið hjartað í félagslífi hreppsins, þar voru samkomur, leiksýningar og jafnvel kennt. „Við erum svo gamlar að við munum eftir kindunum heima

Hlaðan á Kálfatjörn.

Að ofan má sjá gamla skólahúsið Norðurkot og Hlöðuna við Kálfatjörn en Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar hefur endurbyggt byggingarnar. og réttunum hér fyrir ofan,“ segir Helga. „Maður labbaði alltaf hér fram hjá Kirkjuhvoli á leið í réttirnar en ég man aldrei eftir húsinu í notkun.“ „Það var búið að byrgja fyrir alla glugga,“ segir Oktavía. „Það er einhver dulúð yfir húsinu. Mamma og hennar kynslóð fóru hér á skátafundi og á böll, en okkar kynslóð þekkti það bara sem lokað hús fullt af járnarusli.“ Minja- og sögufélagið eignaðist Kirkjuhvol árið 2019. Þá var húsið notað sem geymsla og nánast uppfullt af járnarusli. „Það voru um 70 tonn af járni hér inni,“ segir Helga. „Það þurfti að handtína út áður en við gátum byrjað.“

Gamall bátur sem er kominn í umsjón félagsins. Hann var upphaflega byggður fyrir útgerð á Ströndinni.

Endurbygging á hlutum fortíðar Húsið var upphaflega steypt á þremur mánuðum árið 1933 og vígt á jóladag. Það var á sínum tíma bylting að steypa húsið, þar sem margir bjuggust við timburhúsi. „Það er sagt frá því að þeim hafi nánast fallist hendur þegar hugmyndin kom upp um að steypa húsið,“ segir Helga. „En það var bara steypt í þessa hæð í dag og aðeins hærra á morgun, maður sér skilin í veggjunum.“ Húsið var þó frægt fyrir að vera kalt. „Það var kvartað mikið undan kulda,“ segir Oktavía. „Það var ekkert einangrað, bara ber steypa.“ Nú er verið að snúa þeirri sögu við. Húsið verður áfram steinsteypt að utan, í ljósgráum/hvítum lit, en einangrað að innan þannig að veggþykktin haldist sem næst upprunaleg. „Við erum að reyna að nýta allt sem tilheyrði húsinu,“ segir Helga. Yfir sviðið var upprunalega málað stórt „Ungmennafélagið Þróttur“ og systurnar eiga enn pappíra með stöfunum til að hægt verði að mála textann upp aftur í sama lit og leturformi.

Áformin með Kirkjuhvoli eru skýr: húsið á að verða lifandi samkomuhús aftur. „Það er fyrst og fremst markmiðið að Þróttur og Fjóla hafi hér aðstöðu,“ segir Oktavía. „Þetta er þeirra hús sögulega séð, þó að félagið okkar sé formlegur eigandi.“ „Svo sjáum við fyrir okkur að hægt verði að leigja það undir veislur og ýmsa viðburði,“ bætir Helga við. „Við erum þegar farin að fá fyrirspurnir um fermingar og samkomur, fólk bíður bara eftir því að húsið verði tilbúið.“ Á sama tíma vilja þær að húsið verði vettvangur fyrir yngra fólk í dag, ekki síður en áður. „Ungmennafélögin voru mikið í leiklist, ekki bara íþróttum,“ segir Oktavía. „Okkur langar að sjá leiksýningar hér aftur, upplestur, samkomur, hús sem er í notkun, ekki bara sýningagripur.“ Það er líka sýn Minjastofnunar, sem styrkt hefur verkefnið, að húsið hafi notagildi. Það er ekki komið á þann aldur að vera friðað en á ríkan sögulegan og menningarlegan þátt í Vogum og á Vatnsleysuströnd.

Sjálfboðaliðar – dýmætasta auðlindin Þrátt fyrir stóra drauma er félagið lítið. „Við erum bara fá,“ segir Helga hreinskilnislega. „Í raun er það bara fimm manna stjórn sem heldur þessu gangandi og svo foreldrar okkar og aðrir sem við köllum til þegar þarf.“ „Það er mikil samkeppni um fólk í dag,“ segir Oktavía. „Sjálfboðaliðamenningin hefur breyst. Kynslóðin sem er að taka við brennur ekki alltaf jafn mikið fyrir svona málum og var fyrir 20 til 30 árum.“ „Okkur vantar fleiri sjálfboðaliða,“ segir Helga. „Við bara önnum ekki öllum verkefnunum sjálfar.“

Bátar, bæjarhús og Ásláksstaðir Verkefnin eru fleiri en Kirkjuhvoll. Á Kálfatjörn á félagið m.a. Skólahúsið í Norðurkoti (1903), elsta skólahús sveitarfélagsins, endurgert að utan og unnið að innviðum. Hlöðuna Skjaldbreið, fjós og hlaða reist um 1850, sem hefur mikið menningarsögulegt gildi og er friðuð samkvæmt aldursákvæði.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 65 „Nýlega eignaðist félagið elsta hús sveitarfélagsins, Ásláksstaði,“ segir Oktavía. „Húsið tengist Jamestown-strandinu og er okkur mjög mikilvægt að halda því til haga en það er að grotna niður, svo þar er brýnt að grípa inn í.“ Svo eru það bátarnir. „Við fengum líka bara eitt stykki bát upp í hendurnar,“ segir Helga og hlær. „30 tonna bát, smíðaðan 1932 fyrir Útgerðarfélag Vatnsleysustrandar. Hann hafði síðast verið gerður út á Súðavík.“ Minjastofnun leitaði til félagsins og spurði hvort það vildi taka við bátnum. Félagið fékk styrk fyrir flutningi og báturinn er nú kominn suður, geymdur á Halakoti. Upphaflega var hugmyndin að gera hann svo upp að hægt væri að hafa hann á floti en það reyndist dýr og flókin leið. „Það væri algjör draumur að hafa hann í höfninni í Vogum,“ segir Helga. „En höfnin er ekki gerð fyrir svona varðveislubáta og kostnaðurinn er gífurlegur.“ Félagið á einnig minni bát, smíðaðan á Litlabæ, sem Haukur Aðalsteinsson hefur gert upp. Um hann og stóra bátinn hefur verið stofnað sérstakt hollvinafélag sem Þorvaldur Örn Árnason sér um, enda verða systurnar að forgangsraða verkefnum.

Helga og Oktavía í gamla skólahúsinu. Til hliðar má sjá hvernig húsið var þegar félagið tók við því og að neðan er risið í húsinu.

Sagnfræðingurinn í bakherberginu

Norðurkot, gamalt skólahús af Vatnsleysuströnd, er fyrsta verkefni félagsins.

„Fyrsta skrefið er að geta sagt: Nei takk, við eigum þegar fimm þvottarullur, við þurfum ekki sjöttu,“ segir Oktavía og hlær. „Þetta var mjög gagnlegt.“ Félagið hefur sett sér vinnureglur: „Í fyrsta lagi þarf hluturinn að hafa tengingu við svæðið,“ útskýrir Helga. „Í öðru lagi spyr maður: Er þetta eitthvað sem er svo sérstakt að það eigi erindi í varðveislu á landsvísu, þó að það sé ekki héðan?“

Félagið nýtur líka góðs af öflugu samstarfsfólki. „Haukur Aðalsteinsson hefur skrifað útgerðarsögu svæðisins í bókinni Út á brún,“ segir Oktavía. „Hann hefur fengið viðurkenningar frá Sagnfræðingafélagi Íslands og er eiginlega sjálfmenntaður sagnfræðingur.“ Hann hefur m.a. nýst þeim vel við endurgerð Skjaldbreiðar. „Þegar prestaskipti voru á Kálfatjörn fundust úttektir á húsinu og

Haukur fann alls konar heimildir sem við gátum notað við endurbygginguna,“ segir Helga.

Safnahelgi, epladagur og vitinn Minja- og sögufélagið heldur reglulega opna daga og viðburði í samstarfi við aðra aðila. „Fyrsti sunnudagur í aðventu er okkar dagur,“ segir Oktavía. „Það er messa í kirkjunni, kvenfélagið heldur kökubasar og við köllum þetta epladag, í höfuðið á því þegar

Óskum Suðurnesjamönnum og öðrum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar með ósk um gæfuríkt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðnum árum.

Tengslanet safnafólks

eplin komu í hús í gamla daga og lyktin fyllti allt.“ „Krakkarnir fá að gera sitt eigið kerti,“ bætir Helga við. „Það er alltaf góð stemning, þó að veðrið ráði stundum mætingunni.“ Félagið tekur þátt í safnahelgi á Suðurnesjum, tekur á móti hópum, starfsmannahópum, kennurum, gömlum nemendahópum og leiðir gönguferðir og fræðsluferðir um svæðið. „Við höfum verið með framsögu í kirkjunni og svo er fólk sent út til að skoða og upplifa,“ segir Helga.

Að segja nei – og já við réttu hlutunum Að vera minjafélag þýðir líka að þurfa að segja nei. „Fólk býður okkur oft hluti: Vantar ykkur ekki sófa? Viljið þið ekki þennan hlut?“ segir Helga. „En svo þarf að eiga pláss fyrir allt, og það er ekki hægt.“ Systurnar fóru á námskeið um grisjun á safnakosti, sem haldið er í samstarfi við Þjóðminjasafn og sveitarfélög á Suðurnesjum.

Systurnar leggja mikla áherslu á tengsl við annað safna- og minjafólk. „Við erum í mjög góðum samskiptum við fólk í Grindavík, Reykjanesbæ og víðar,“ segir Helga. „Við fórum t.d. á fund þegar Minjafélag Grindavíkur var að stofnast og sögðum frá okkar reynslu.“ Þær hafa fengið lánaða muni í sýningar, lært af öðrum hvernig skrá á muni og nýtt þá í kvikmyndagerð og menningarverkefni. „Það þarf líka að huga að því að við erum ekki launaðir starfsmenn sveitarfélags,“ segir Oktavía. „Við erum áhugamannafélag, eins og mörg önnur, og það skiptir miklu að geta treyst á samstarf.“

„Það er búið að taka sinn tíma – en það er hægt“ Þegar þær líta yfir Kirkjuhvol í dag sjá þær mikinn mun frá því þegar þær tóku fyrst við húsinu. „Núna sjáum við gömlu myndirnar sem við tókum og berum saman við það sem við sjáum í dag og segjum: Jú, þetta er hægt. Það er hellingur búinn.“ „Næsta skref er sviðið og veggirnir,“ segir Helga. „Og svo bara smátt og smátt, eftir því sem styrkir og hjálp berast.“


66 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Jól í anda samveru Árið 2025 var sannkallað viðburðaár hjá Unni Kristinsdóttur, íþrótta- og tómstundafulltrúa í Suðurnesjabæ, og fjölskyldu hennar. Það einkenndist af stórum tímamótum, fjölskylduhátíðum og ferðalagi sem gaf nýjar minningar, allt frá fermingu og Íslandsmeistaratitli til 60 ára afmælis og langt frís í Portúgal. Þegar líður að jólum tekur hún hins vegar meðvitað skref í rólegri takt: aðventan, hefðirnar, góðu stundirnar með sínum nánustu og þessi einstaka jólastemning sem verður til þegar tónlistin ómar og samveran fær að vera í forgrunni. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið 2025 hefur heldur betur verið viðburðaríkt bæði í lífi og starfi hjá okkur fjölskyldunni! Árið hófst á fermingarundirbúningi þar sem Ólöf Hlín, eldri dóttir okkar, var fermd 27. apríl og við héldum veislu í tilefni af því. Síðan varð fermingarstúlkan okkar Íslandsmeistari með liðinu sínu í 2. flokki í fimleikum. Mamma mín fagnaði 60 árum í byrjun júní og héldum við fjölskyldan upp á það með henni. Í júlí fórum við í langt og gott fjölskyldufrí til Portúgal og nutum þess að skoða og kynnast menningunni þar. Haustið hefur verið nýtt í að eiga góðar stundir með fólkinu okkar og njóta saman sem fjölskylda. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Jólin eru okkar með Baggalút, Valdimar Guðmundssyni og BRÍET, það er eitt af þessum jólalögum sem ég get hlustað á aftur og aftur en hátíðlegasta jólalagið er Heims um ból sungið í Keflavíkurkirkju á aðfangadagskvöld, þá koma jólin mín. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? The Holiday er algjörlega ómissandi í aðdraganda jólanna og það skemmir ekki fyrir ef það er jólakósýkvöld hjá okkur mæðgum þegar við horfum á hana.

Hver er uppáhaldsjólahefðin þín og hvers vegna? Ég á nokkrar uppáhalds jólahefðir: sörubakstur með vinkonum mínum, leitin að „rétta“ jólatrénu með fjölskyldunni minni og svo er það Ris ala mande grautur í hádeginu á aðfangadag heima hjá mömmu og pabba. Það sem einhver er svo heppinn að fá möndluvinninginn sem er nú oftast spil eða eitthvað til þess að stytta stundirnar í biðinni eftir jólunum. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Rólegheit, góður matur og samverustundir með fjölskyldu og vinum er það besta við jólin. Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum – hvort sem það var sem þú gafst eða fékkst? Ég gleymi því aldrei þegar ég fæ fyrstu jólagjöfina mína frá eldri dóttur minni, jólakúlu sem hún hafði málað sjálf á leikskólanum og þá aðeins tæplega tveggja ára. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Ég á margar skemmtilegar jólaminningar en minnisstæðustu eru jólin 2003 sem við héldum í skíðakofa í Wisconsin í Banda-

ríkjunum. Við bjuggum í Kanada á þessum tíma og ákváðu foreldrar mínar að við myndum verja jólunum þar. Við skíðuðum mikið, fórum í inni- rennibrautagarð og í jólamatinn var íslenskt KEA hangikjöt. Svo eru það auðvitað öll jólin sem ömmur mínar og afar hafa verið með okkur á aðfangadagskvöld, það eru dýrmætar jólaminningar. Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða það sem keypt er í búð? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? Mér finnst gaman að blanda saman gömlu og nýju jólaskrauti, ég hef í gegnum tíðina fengið í gjöf og erft nokkra georg jensen-óróa frá ömmum mínum og finnst mér mjög dýrmætt að hengja þá á jólatréið okkar á hverju ári. Jólaskrautið sem stelpurnar mínar hafa föndrað á líka alltaf sinn stað þegar við skreytum fyrir jólin. Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? Jólin breyttust mikið eftir að ég varð móðir, maður upplifir jólin í

gegnum börnin sín. Tilhlökkunin, spennan og eftirvæntingin er svo mikil hjá þeim og... Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Eru einhverjar ómissandi uppskriftir á þínu heimili? Hjá okkur eru engar fastar venjur hvað í matinn á jólunum en sænska jólaskinkan frá Kjörhöllinni er uppáhalds og er alltaf í boði í kringum jólin. Reyktur lax, grafið lamb, graflaxsósa, konfekt, malt og appelsín, smákökur, heitt súkkulaði, hangikjöt og alls konar ostar er svona eitthvað sem er alltaf til yfir hátíðirnar. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Í raun er mér alveg saman hvar ég er á jólunum svo lengi sem ég er með fjölskyldunni minni og það væri ekki verra ef stórfjölskyldan myndi vera þar líka. Trúir þú enn á jólaandann? Og hvað þýðir hann fyrir þig? Já, ég reyni að skapa sjálf fallegan jólaanda og rými til að njóta. Mér hefur alltaf þótt mjög vænt um aðventuna, að skreyta fyrir jólin, versla jólagjafir, eiga góðar samverustundir, baksturinn, borða góðan mat, mæta

Krossmóa 4a | 260 Reykjanesbæ | Sími: 421 5409

Sendum félagsmönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól, farsælt nýtt ár og þökkum samfylgdina í 80 ár.

í kirkjuna mína og njóta hversdagsins. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Að eiga friðsæl og góð jól með stelpunum og manninum mínum. Ef þú gætir gefið eina gjöf sem myndi gleðja heiminn, hvað væri það? Kærleika og að minna fólk á gullnu regluna: „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég set mér alltaf áramótaheit: árið 2026 ætla ég að rækta sjálfan mig, labba á fleiri fjöll og vera meira í náttúrunni. Mér finnst áramótin alltaf skemmtilegur tími, nýtt upphaf og svo spennandi að vita ekki hvað nýtt ár ber í skauti sér. Það er margt framundan sem við vitum af, þá má helst nefna fermingarferð, ferðalög erlendis, að fagna 100 ára afmæli afa míns og svo margt fleira. Annars tek ég fagnandi á móti nýju ári og hlakka til ársins 2026 og allra þeirra tækifæra sem það mun bjóða upp á!


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 67

Gunnar Kristinn Sigurðsson nýr markaðsstjóri Kadeco

Kjörbúðirnar lækka verð - 200 vörur á Prís verði Kjörbúðirnar tóku nýlega upp Prís verð og lækkuðu verð á 200 algengum nauðsynjavörum fram að áramótum. Þessar vörur verða fáanlegar í öllum 18 Kjörbúðunum um land allt, sem flestar eru staðsettar í minni bæjarfélögum. Þær eru þrjár á Suðurnesjum, í Keflavík, Garði og í Sandgerði. Í fréttatilkynningu frá Kjörbúðinni kemur fram að vörurnar í Kjörbúðunum verða á sama verði og í lágvöruverðsversluninni Prís á Smáratorg í Kópavogi sem hefur verið ódýrasta matvöruverslunin á landinu samkvæmt mælingum ASÍ frá því hún opnaði. Markmiðið með aðgerðinni sé að tryggja að fleiri hafi aðgang að nauðsynjavörum á Prís verði um

allt land. Einnig að hvetja fólk til að versla í sínu bæjarfélagi og styðja við öfluga verslun í heimabyggð. Kjörbúðirnar og Prís eru bæði í eigu Dranga hf. en Kjörbúðirnar eru í Samkaupskeðjunni. Viðskiptavinir Kjörbúðanna um allt land geta nú fundið vörur á Prís verði sérmerktar í hillum Kjörbúðanna.

Gunnar Kristinn Sigurðsson hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Gunnar hefur áralanga reynslu sem stjórnandi á sviði markaðsmála og viðskiptaþróunar. Hann kemur til Kadeco frá KPMG þar sem hann leiddi viðskiptaþróun og markaðsmál. Þar stýrði hann markaðsteymi fyrirtækisins og tók þátt í fjölmörgum verkefnum, meðal annars í tengslum við vöruþróun, stefnumótun, stafræna umbreytingu og sjálfbærni. Áður starfaði Gunnar sem markaðsstjóri hjá Isavia þar sem hann leiddi stefnumótun og framkvæmd markaðs- og samskiptamála fyrir Keflavíkurflugvöll og aðrar rekstrareiningar félagsins. Gunnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk meistaragráðu í alþjóðamarkaðsfræði í Strathclyde University í Skotlandi. „Um er að ræða nýja stöðu hjá Kadeco og það er frábært að fá inn mann eins og Gunnar til liðs við okkur. Gunnar býr yfir mikilli reynslu af markaðsmálum og viðskiptaþróun bæði innanlands og erlendis. Markmiðið er að auka sýnileika K64 þróunaráætlunarinnar og þeirra fjölmörgu tækifæra sem eru til staðar á svæðinu umhverfis Keflavíkur-

flugvöll. Síðustu ár hafa að miklu leyti farið í mikilvægt markaðsstarf og samráð við framfylgd K64 þróunaráætlunarinnar. Næsta ár verður viðburðaríkt og við hjá Kadeco hlökkum mikið til að fá Gunnar til liðs við okkur,“ segir Pálmi Freyr Randversson. „Það er spennandi að fá að taka við markaðsmálum Kadeco. Framtíðarsýnin er metnaðarfull og það eru gífurleg tækifæri í að efla og byggja upp svæðið í kringum Keflavíkurflugvöll,“ segir Gunnar Kristinn. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur það megin-

markmið að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll. Ný þróunaráætlun fyrir flugvallarsvæðið, K64, var kynnt í mars 2023. Kadeco hefur leitt vinnu við gerð áætlunarinnar í samstarf i við f jölda aðila bæði innlenda og erlenda. Þróunaráætluninni er ætlað að vera drifkraftur til aukinnar atvinnustarfsemi á svæðinu og styrkja Reykjanes sem aðlaðandi stað fyrir fólk til að búa á, starfa og heimsækja.

Gleðilega hátíð

Gleðilega hátíð Við færum þér og þínum hlýjar hátíðarkveðjur með ósk um farsæld á nýju ári


68 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

MARTA EIRÍKSDÓTTIR ER AFKASTAMIKILL RITHÖFUNDUR OG HEFUR GEFIÐ ÚT SJÖ BÆKUR FRÁ ÁRINU 2012

Keflvíkingur í húð og hár Marta Eiríksdóttir gaf út sína fyrstu bók í samstarfi við Víkurfréttir árið 2012. Það var bókin Mei mí beibísitt? - Æskuminningar úr bítlabænum Keflavík, sem er söguleg sjálfsævisaga Mörtu. Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!

NEMAR OG JÁRNIÐNAÐARMENN Getum tekið unga menn á námssamning í járniðnaði. NEMAR OG Einnig vantar okkur vana járniðnaðarmenn til starfa.

JÁRNIÐNAÐARMENN

Upplýsingar gefur Þráinn í síma 420 4810. Getum tekið unga menn á námssamning í járniðnaði. Einnig vantar okkur vana járniðnaðarmenn til starfa. Upplýsingar gefur Þráinn í síma 420 4810.

Sjávargötu 6-12Njarðvík - 260 Njarðvík --Sími 420- 4801 - Fax 420-4815 Sjávargötu 6-12 - 260 Sími 4204801 - Fax 420-4815

Hún ólst upp á þeim tíma sem langflestir amerískir hermenn og fjölskyldur þeirra leigðu húsnæði í Keflavík vegna húsnæðisskorts á Vellinum. Bókin þykir lýsa vel tíðaranda bæjarins á sjöunda áratugnum, þá sérstaklega út frá sjónarhorni barna og ungmenna en bókin hefur í raun menningarsögulegt gildi fyrir sögu Keflavíkur. Horfin er sú veröld í dag. Grunnskólar á Suðurnesjum eiga bekkjarsett af bókinni og hefur hún verið notuð í íslenskukennslu á mið- og unglingastigi. Bókina má einnig finna á bókasöfnum og á Storytel. Í dag er þessi fyrsta bók Mörtu löngu uppseld ásamt öllum öðrum útgefnum bókum hennar, nema sú nýjasta sem kom út í byrjun sumars og nefnist Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins. Marta Eiríksdóttir er afkastamikill rithöfundur og hefur gefið út sjö bækur frá árinu 2012. Hún og eiginmaðurinn, Friðrik Þór Friðriksson, rafvirkjameistari, standa saman að Bókaútgáfunni Dirrindí. Okkur lék forvitni á að vita hvort Marta væri eingöngu að sinna skriftum í dag? „Nei, nei, ég kenni einnig jóga fyrir konur og held fyrirlestra um kraft gleðinnar og jákvæðrar hugsunar. Stundum þegar mér finnst tilveran þurfa smá krydd þá bý ég einnig til viðburði sem gleðja konur,“ svarar Marta með bros á vör, enda stundum titluð gleðiþjálfi. Hvenær byrjaðir þú að skrifa? „Ég hef skrifað frá því að ég var lítil stelpa og vildi helst fá myndabækur svo ég gæti skáldað sjálf söguna í bókinni. Mamma mín var mikill áhrifavaldur minn í bernsku og hjálpaði mér af stað með að skrifa. Hún var einnig minn uppáhalds prófarkalesari þegar ég byrjaði að skrifa í blöðin á þrítugsaldri, til dæmis í Víkurfréttir. En það ævintýri varð til þegar ég fékk nóg af umfjöllun blaðanna um skrílslæti unglinga í bæjarfélaginu og þrammaði til Emils Páls Jónssonar, blessuð sé minning hans, og kvartaði. Hann tók mig á orðinu og bað mig um að skrifa eitthvað jákvætt í Víkurfréttir, sem ég og gerði næstu árin. „Lífið í bænum“ varð til, þar sem ég leitaði uppi hvunndagshetjur, venjulegt fólk sem var að gera góða hluti. Fleiri verkefni féllu mér einnig í skaut hjá blaðinu en allt í aukavinnu því ég var grunnskólakennari á þessum árum. Þetta varð allt til þess að þjálfa vel upp ritfærni mína.“ Hvers vegna ertu sjálf að gefa út bækur? „Það fylgir því mikið frelsi að gefa sjálf út þar sem ég ræð því algjörlega hvað ég skrifa um og segi í bókunum mínum. Það er svo margt sem ég vil segja sem kannski enginn annar hefur sagt í prentaðri bók. Ef ég finn að einhver skilaboð þurfa að berast til almennings þá læt ég það flakka. Ég skrifa nefnilega alls konar bækur, ekki eingöngu skáldsögur. Bækurnar mínar stíla inn á að skapa vellíðan hjá lesendum og stundum langar mig að fræða fólk sem er að leita að hjálp. Þær bækur getum við flokkað sem sjálfshjálparbækur en þær byggja á minni eigin lífsreynslu. Þar kem ég hreint til dyranna því einlægni gefur lesendum mest,“ segir Marta.

Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

Hvers vegna ertu að skrifa um þjáninguna núna? „Nýja bókin mín er eins konar þroskasaga keflvískrar stúlku. Þar skrifa ég um lífið og þegar okkur finnst það bregðast við í formi veikinda og erfiðleika. Þetta er samt alls ekki grenjubók heldur þvert á móti,

bók sem gefur lesendum von og bjartsýni þegar lífsins ólgusjór brýtur á bátnum okkar. Ég byrjaði að skrifa þessa bók haustið 2011 þegar við hjónin vorum nýflutt til Noregs en þar bjuggum við til ársins 2018. En það var einmitt í Noregi sem ég byrjaði að skrifa bækurnar mínar því þar hafði ég svo mikinn frið og tíma. Við þekktum fáa, vorum mikið ein í frístundum og ég vann aðeins hlutastarf í leikskóla. Þess á milli skrifaði ég. Í Noregi var ég að takast á við Lyme, erfiðan sjúkdóm vegna skordýrabits, og varð mjög veik. Þegar læknar kunnu engin ráð fór ég sjálf að leita að leiðum til að lækna mig og er frísk í dag. Bókin spannar nokkur ár frá barnæsku í Keflavík til fullorðinsára í gegnum alls konar lífsins verkefni, öll lærdómsrík. Líf ið er stundum þannig að við þurfum að f a r a í ge g n u m þjáninguna til að skilja hvað er í gangi. Oft sjáum við það ekki fyrr en eftir á.“ Eru fleiri bækur á leiðinni frá þér? „Þegar stórt er spurt. Nýjasta bókin mín hefur fengið mjög góða dóma frá lesendum. Fólk er duglegt að láta mig vita og það þykir mér mjög vænt um. Lesendahópurinn fer stækkandi sem les bækurnar mínar og það hvetur mig til að halda áfram að skrifa. Það er því aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér. Kannski fer ég af stað með nýtt námskeið fyrir fólk sem langar til að skrifa? Fólk sem jafnvel er komið með hugmynd að bók en vantar stuðning og hvatningu til að gefa sjálft út, vera frjálst undan áliti annarra og fylgja aðeins sínu eigin hjarta. Ég held að við eigum eftir að sjá fleiri svoleiðis bækur í framtíðinni, sem eru skrifaðar af venjulegu fólki, eins og þér og mér. Við höfum öll merkilega sögu að segja.“


Starfsemi Keflavíkurflugvallar er stöðugt að þróast til að bæta upplifun gesta og skapa sterkari tengsl við ferðalanga sem fara um völlinn. Gæði, góð þjónusta og sjálfbærni eru lykilþættir sem gera okkur kleift að skara fram úr í alþjóðlegu samhengi.


70 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Þegar 30 ára afmæli Byggðasafnsins á Garðskaga var fagnað nýlega var Ásgeir Magnús Hjálmarsson heiðraður fyrir áratugastarf við söfnun og varðveislu minja. Hann var meðal þeirra sem börðust fyrir því að byggðasafn yrði stofnað í Garði og veitti því forstöðu um árabil. Eftir að hann lét af störfum sem safnstjóri Byggðasafnsins á Garðskaga og fór á eftirlaun hefur hann byggt upp öflugt einkasafn í Bragganum í Garði þar sem líf og saga sjávarplássins lifir áfram á hverjum degi.

„Það er ekki sjens að segja nei“ Ásgeir Magnús Hjálmarsson, safnamaður í Garði, var nýlega heiðraður fyrir að koma byggðasafni á fót í Garðinum „Eftir þessa sýningu dreif ég í að prenta bréfið og senda það upp á skrifstofu. Hreppsnefndin tók vel í þetta og setti strax á laggirnar byggðasafnsnefnd.“ Í fyrstu safnnefndinni sátu Ásgeir, Sigurður Ingvarsson og Jóhann Þorsteinsson, ásamt sveitarstjóranum, Sigurði Jónssyni.

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

V

ið settumst niður með Ásgeiri í Bragganum hans til að fara yfir upphaf söfnunaráráttunnar, baráttuna fyrir byggðasafni á Garðskaga, félagsskapinn í kringum safnið og framtíðina sem hann vonast til að sjá.

Safnið á Garðskaga

Söfnunaráhuginn kviknar Ásgeir þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hann er spurður hvenær söfnunaráhuginn kviknaði. „Ég held að það sé eitthvað sem ég gleymi bara aldrei. Það er í kringum 1980 sem ég hef byrjað á þessu,“ segir hann. „En ástæðuna, því miður, hef ég ekki getað grafið upp enn þá, af hverju ég byrjaði á því.“ Hann man ekki nákvæmlega hver fyrsti gripurinn sem rataði í safnið var en telur líklegt að hann hafi tengst sjónum og gömlu sjómennskunni. „Þetta snerist mest um að safna munum í kringum gamla sjómennsku. Úr gömlum sjóhúsum í Gerðum sem stóð til að rífa bjargaði ég ýmsum gömlum munum sem tengdust sjósókn, gamlir tjörubelgir og ýmis veiðarfæri og dótarí.“

Hagamúsin. „Það stóð ekki á mér,“ segir hann. „Ég fékk Guðleif Sigurjónsson, forstöðumann Byggðasafnsins í Keflavík, til aðstoðar. Við settum upp flotta sýningu og ég held að hún hafi kveikt ljós hjá yfirvöldum.“ Á sýningunni voru meðal annars bátalíkön í láni hjá Grími Karlssyni og gamlar vélar sem Guðni Ingimundarson, tengdafaðir Ásgeirs, hafði byrjað að gera upp. Sýningin fékk mikla athygli og hvatti Ásgeir til að dusta rykið af bréfinu.

Bragginn og fyrstu gripirnir Um þetta leyti var Ásgeir nýbúinn að eignast húsin sem mynda í dag hjarta einkasafnsins. „Þarna 1980 er ég nýbúinn að eignast þessi hús hérna, Braggann og fiskhúsið hér við hliðina,“ segir hann. „Og það var söfnunarstöðin. Ég var búinn að fylla þetta meira og minna á stuttum tíma. Svo fór allt saman hingað inn í Braggann.“ Gripirnir komu aðallega úr heimabyggð og nágrenni. „Þetta var fyrst og fremst úr Garðinum en ekkert síður úr Sandgerði og Keflavík.“ Móðir Ásgeirs, Sigrún Oddsdóttir, átti óbeinan þátt í að ýta undir söfnunaráráttuna, þótt ekki hafi það endilega verið ætlunin. „Hún var grjóthörð á því að láta fjarlægja allt sem mátti kalla rusl úr náttúrunni og var meinilla við þessa gömlu, ljótu skúra í Gerðum,“ segir hann og brosir. Sjálfur hefur hann lengi séð eftir gömlum byggingum sem

Næsta skref var að finna hús undir safnið. Hugur Ásgeirs leitaði strax á Garðskaga. „Ég var lengi búinn að vera með það í huga að útihúsin á Garðskaga gætu hentað sem starfsvettvangur safnsins. Fjósið og hlaðan, þetta voru svakalega flottar og vandaðar byggingar,“ segir hann. „Við sendum Vitamálastofnun bréf og spurðum hvort þeir væru til í að lána okkur húsið. Það stóð ekki á svarinu. Þeir leyfðu okkur að vera þarna í næstum tíu ár án þess að borga neitt.“ Þá hófst gríðarlegt sjálfboðastarf við að gera húsakostinn hæfan fyrir byggðasafnið. „Það var enginn hiti og ekki neitt í húsinu,“ segir Ásgeir. „Við þurftum að hreinsa allt út, mála, steypa og laga gólf. Ég var þarna í tíu ár nánast í sjálfboðavinnu. Ég fór úr vinnunni minni og beint út á Skaga og var fram á kvöld að koma húsinu í stand.“ Fljótlega fylltist húsið af munum. Meðal muna á safninu var meðal annars skipið Heggviður, áttæringur sem gerður var út í Garðinum í áratugi og var siglt alveg fram undir síðustu aldamót úr Kothúsavörinni. „Heggviður er eina eintakið af svona skipi á Íslandi. Það tók alla hlöðuna og við gátum raðað sjómennskudótinu í kringum það.“

Ásgeir Hjálmarsson og Sigurjóna Guðnadóttir, eiginkona hans, í Hagamúsinni í mars 2017. Bílinn vann Sigurjóna í happdrætti þegar hún var þriggja ára. Bíllinn hefur verið í fjölskyldunni alla tíð og var gerður upp en þeirri viðgerð lauk 2017. hurfu, sérstaklega gamla skólahúsinu í Gerðum sem var rifið. „Það vantaði ekkert nema bara að smíða nýtt þak á þetta hús. Þá hefði það staðið enn.“

Bréfið sem aldrei var sent Árið 1989–90 var safnið orðið það mikið að Ásgeir fór að hugsa um formlegt byggðasafn. „Þá var ég kominn með helling af dóti hérna,“ rifjar hann upp. „Ég var búinn að skrifa heil-

mikið bréf sem ég ætlaði að senda hreppsnefnd og stinga upp á því að koma upp byggðasafni í kringum þetta dót sem ég var búinn að safna.“ Bréfið var handskrifað og móðir hans fór yfir textann, leiðrétti stafsetningu og annað. „En svo lagði ég aldrei í að senda það,“ segir hann og hlær. Árið 1992 átti Gerðaskóli 120 ára afmæli. Þá var Ásgeir beðinn um að lána muni á sýningu í tilefni afmælisins.

Vélasafn Guðna Ingimundarsonar á Byggðasafninu á Garðskaga er einstakt á heimsvísu.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 71

Guðni Ingimundarson tekur fyrstu skóflustunguna að safnahúsinu.

GMC-trukkurinn kominn á safnið ásamt áttæringnum sem er nú í geymslu og ekki til sýnis á Garðskaga.

Gestir á Safnahelgi á Suðurnesjum skoða einkasafn Ásgeirs í Bragganum fyrir nokkrum árum. VF-mynd: Hilmar Bragi

Frá formlegri opnun viðbyggingar við Byggðasafnið á Garðskaga árið 2005. F.v.: Ásgeir M. Hjálmarsson, Guðni Ingimundarson og Sigurður Jónsson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Garði.

Vélasafnið sem er „nánast einsdæmi á heimsvísu“ Á sama tíma safnaðist að vélasafnið sem tengdapabbi Ásgeirs, Guðni Ingimundarson, byggði upp. Hann safnaði gömlum vélum og gerði upp. Eftir hann liggja yfir 100 vélar sem nær flestar eru gangfærar. „Mér finnst vélasafnið vera langmerkilegasti hluturinn við safnið,“ segir Ásgeir. „Ég held að það sé nánast einsdæmi á heimsvísu að vera með hundrað vélar eða rúmlega það sem eru nær allar gangfærar.“ Guðni og Guðmundur bróðir hans björguðu meðal annars gufuvél úr strönduðu skipi og settu hana í lag. „Það var hægt að setja hana í gang með loftpressu. Þetta var alveg stórmerkilegt.“ Þegar nýja safnahúsið á Garðskaga var reist og vígt 2. júlí 2005 afhenti Guðni bæði vélasafnið og GMC-trukkinn sinn formlega til varðveislu. „Ég er enn í dag óskaplega stoltur af hreppsnefndinni fyrir að hafa látið verða af þessu húsi,“ segir Ásgeir. „Þetta var glæsilegt verkefni, húsið og allt umhverfið, bílastæði og vegur. Ég held að kostnaðurinn hafi verið um hundrað milljónir á sínum tíma.“ Ásgeir starfaði síðan við safnið sem launaður starfsmaður frá vígslu nýja hússins 2005 og þar til hann lét af störfum vegna aldurs.

Bæði áhyggjur og ánægja Ásgeir viðurkennir að hafa á tímabili haft áhyggjur af þróun mála á Garðskaga eftir að hann hætti. Hann vill þó ekki fara nánar út í það. „En síðustu ár hefur verið unnið þarna kraftaverk,“ segir hann. „Margrét Ásgeirsdóttir og fólkið sem hefur starfað með henni hafa lyft Grettistaki. Safnið er til sóma.“ Hann segist þakklátur fyrir að nýtt fólk sýni honum og starfi hans virðingu. „Þau hafa yfirleitt leitað til mín ef þau ætla að breyta einhverju, hvort þau megi það. Og ég hef alltaf verið sáttur við það sem hefur verið gert. Það má ekki ætlast til að safn verði alltaf eins og jarðfast hús, það þarf að breytast.“ Það sem særir hann þó enn er að stór hluti gripanna er í geymslu. „Það eru tveir merkilegir bátar í geymslu og helmingurinn af vélasafninu. Það er sárt að þetta skuli ekki vera til sýnis.“

sex og hálf sjö og sitja til átta eða hálf níu.“ Úr þessum hópi hefur sprottið merkilegt verkefni. Tíu manna hópur hefur merkt gömul hús í Garði og Sandgerði, sett upp skilti með nafni hússins, byggingarári og fyrstu ábúendum ásamt gömlum myndum. „Við ákváðum að merkja hús sem voru byggð fram undir 1960,“ segir hann. „Í Garðinum voru öll hús með nöfn, sem er alveg sérstakt. Í Sandgerði þurftum við oftar að nota götunöfn og húsnúmer.“ Í dag eru um tvö hundruð hús merkt og verkefnið heldur áfram með styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Nýjaland, Presthús og æskuár í salfiski

Mynd frá því þegar Ásgeir var heiðraður á 30 ára afmæli safnisins. F.v.: Margrét I. Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna í Suðurnesjabæ, Ásgeir M. Hjálmarsson og Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Suðurnesjabæ. VF-myndir: Hilmar Bragi

Áskorun til bæjaryfirvalda um viðbyggingu Á 30 ára afmæli safnsins nýtti Ásgeir tækifærið til að skora á bæjaryfirvöld að byggja við safnið. „Ég veit bara að það verður að byggja við safnið,“ segir hann ákveðinn. „Það er nóg pláss þarna til að byggja. Það hafa verið hugmyndir um þetta í nokkur ár en ekki farið lengra.“ Hann hefur skilning á því að bærinn hafi margt á sínu borði en minnir á að lausnir geti verið einfaldar. „Ef byggt er einfalt hús fyrir báta þarf ekki steypt gólf. Það er bara verra. Miklu betra er að hafa jarðveg, fína sjávarmöl undir bátana. Það sparar helling og leyfir þessu að anda.“

það er erfitt. Ég vil helst hafa allt þar sem fólk sér það, ekki hulið í einhverjum geymslum.“ Á hverju ári koma nokkur hundruð manns í Braggann. „Ég verð bara grútfúll ef menn hætta að koma. Þetta er svo mikils virði. Hálfur dagurinn fer stundum í kaffi og kjaftagang, og það er dásamlegt.“

Félagsskapurinn í Bragganum og merking húsa Í kringum Braggann hefur myndast sérstakur félagsskapur, Merkir menn. „Við hittumst hér lágmark einu sinni í viku,“ segir Ásgeir. „Ég mæti klukkan sex á föstudagsmorgni til að hella upp á kaffi. Svo koma menn milli korter yfir

Ásgeir er fæddur og uppalinn á Nýjalandi í Garði og á rætur í sterku sjávarplássi. Afi hans reisti bragga og fiskhús árið 1950 og þar var þurrkaður saltfiskur. „Ég byrjaði að vinna hjá afa sjö ára gamall,“ segir hann. „Það voru allir krakkar á vinnualdri í Útgarðinum sem komu í saltfisk.“ Hann eignaðist síðar Presthús sem ber nafn sitt af uppruna sínum. Húsið var upphaflega byggt sem heimili fyrir prestsekkjur í Útskálasókn. „Það var lengi ekki vitað,“ segir Ásgeir. „Prestur sem var í afleysingu gróf þetta upp og fann heimildir um að presthús hafi verið byggð fyrir prestsekkjur.“

Bílarnir, Hagamúsin og vörubíllinn á rúntinum Einkasafnið í Bragganum snýst ekki bara um báta og vélar heldur líka gamla bíla. Þar hefur Ásgeir unnið náið með syni sínum, Guðna. „Við erum búnir að gera upp fjóra traktora og að minnsta kosti þrjá bíla,“ segir hann. Nýjasta verkefnið er gamall vörubíll, af

„Það er ekki sjens að segja nei.“ Þótt Ásgeir hafi látið af störfum sem safnstjóri er söfnunin hvergi nærri hætt. Nú fer hún fram í Bragganum. „Það er eiginlega ekki hægt að hætta þessu,“ segir hann og hlær. „Það er ekki sjens.“ Hann segir sögu úr apóteki í Keflavík daginn áður en viðtalið var tekið. „Ég hitti gamlan skipsfélaga sem sagði við mig: Ég á eitt bátslíkan, viltu ekki fá það? Ég sagði auðvitað já. Það er ekki sjens að segja nei þó að plássið sé orðið takmarkað fyrir stærri muni.“ Gripirnir koma hvaðanæva að, ekki bara af Suðurnesjum heldur líka úr Reykjavík og víðar. Fólk hefur samband, býður gripi og vill að þeir lendi á réttum stað. „Ég hef reynt að segja nei við stærri hlutum, bara af því að ég hef ekki pláss,“ segir hann. „En

Ásgeir og Guðni sonur hans hafa gert upp þennan gamla vörubíl sem er sömu tegunar og bíll sem var á heimili Ásgeirs þegar hann var barn og unglingur. Á svona bíl fór Ásgeir í bíó í Keflavík og á rúntinn upp og niður Laugaveginn í Reykjavík.

sömu árgerð og sá sem faðir hans átti. „Ég er sjálfur ’46 módel,“ segir hann brosandi. „Pabbi átti svona vörubíl þegar ég fékk bílpróf 1960. Fyrsti bíllinn sem ég keyrði var svona. Við fórum á honum í bíó í Keflavík. Það var enginn annar bíll á Nýjalandi.“ Sérstakan sess í hjarta fjölskyldunnar á líka litli Renaultbíllinn, Hagamúsin, árgerð 1946, sem kona hans Sigga fékk þriggja ára gömul í happdrætti 1948. „Bíllinn hefur alltaf verið í fjölskyldunni,“ segir hann. „Þegar við kláruðum að gera hann upp 2016 þá komu blaðamenn og með úrklippu úr Alþýðublaðinu frá 1948 þar sem tilkynnt var að hún hefði unnið bílinn í happdrætti.“

Óvæntir gripir, Óðinsmenn og Haffari Ásgeir segir að stórir og smáir gripir hafi ratað í safnið með óvæntum hætti. Þar má nefna skipsklukku og skilti af varðskipinu Ægi sem Óðinsmenn komu með og hafa þeir meðal annars komið siglandi í heimsókn. Annan daginn rakst hann á grein í Morgunblaðinu um Njörð Jóhannesson á Siglufirði sem smíðar líkön af gömlum bátum. „Í restinni stóð að ef væri eitthvert safn á Suðurnesjum sem vildi varðveita bátinn Haffara væri hann falur fyrir eina krónu,“ segir Ásgeir. „Ég hringdi í hann og sagðist vera til í að varðveita gripinn.“ Að lokum mætti Njörður með bátinn til Garðs. „Ég mætti með tvær krónur, eina venjulega og eina flotkrónu, og spurði hvora hann vildi,“ segir Ásgeir hlæjandi. „Og hann valdi auðvitað flotkrónuna.“

Framtíðin er tryggð í góðum höndum Þegar spurt er um framtíð safnsins í Bragganum og á Garðskaga svarar Ásgeir án þess að hika. „Ég ætla að halda áfram á meðan ég get,“ segir hann. „En ég veit að Guðni, elsti sonur okkar, hefur fullan áhuga á að halda þessu gangandi.“ Hann segir að það rói sig að vita að safnið muni lifa áfram þegar hann sjálfur stígur til hliðar. „Ég hef sagt við hann að hann eigi að keyra mig á vörubílnum í kirkjugarðinn,“ segir Ásgeir og glottir. „Það væri fallegur endir.“ Þangað til verður Bragginn áfram lifandi miðstöð sagna, muna og menningar. Þar streyma gestir inn, kaffi er heitt og sögurnar margar. Og ef einhver býður Ásgeiri góðan grip til varðveislu er svarið enn hið sama. „Já, það er ekki sjens að segja nei.“


72 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Fyrirtækið sem óx upp úr gamla merkinu Það vakti athygli þegar Blue Car Rental, ein stærsta bílaleiga landsins, fór í umfangsmikla og kostnaðarsama endurmörkun varðandi ásýnd fyrirtækisins og kynnti nýtt vörumerki í haust. Fyrirtækið var stofnað fyrir fimmtán árum með aðeins þrjá bíla í upphafi, er nú með yfir 130 starfsmenn á háannatíma og þjónustar tugþúsundir ferðamanna ár hvert. Ólöf Lárusdóttir er vörumerkjastjóri hjá Blue Car og við spurðum hana: Þarf það virkilega? „Svarið er já. Vörumerkið okkar var hætt að endurspegla raunverulegt umfang og stefnu fyrirtækisins. Við höfðum einfaldlega vaxið langt út fyrir það sem gamla merkið gat staðið fyrir,“ segir Ólöf.

Stofnað í bílskúr í Keflavík Fyrir þá sem ekki vita var Blue stofnað í bílskúr í Keflavík. Magnús Sverrir og Guðrún Sædal settu af stað draum sinn með þremur bílum, logo sem frændi teiknaði og bláum lit sem táknaði heimabyggðina. Fimmtán árum síðar er fyrirtækið komið með yfir 130 starfsmenn á háannatíma og þjónustar tugþúsundir ferðamanna ár hvert. Af hverju endurmörkun? „Við fundum að vörumerkið hafði staðið kyrrt of lengi. Það skorti stefnu, stöðugleika og frásögn sem gæti leitt okkur inn í næsta kafla. Fyrirtækið hafði einfaldlega vaxið upp úr gamla merkinu. Markmiðið var að ná betra samhengi milli þess sem við gerum daglega og þess hvernig við birtumst út á við. Við vildum búa til ásýnd sem er jafn einstök og aðgreinandi eins og fyrirtækið sjálft.“ Ólöf segir að ráðast í þetta verkefni hafi ekki verið sjálfgefið. „Við þurftum að ræða, útskýra og sýna hvernig sterk vörumerkjahugsun getur hámarkað arðsemi fyrirtækisins. Hér skipti öllu máli að hafa stjórn sem trúði á breytinguna því svona verkefni er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt. Finna þessa mikilvægu tengingu á milli fjármáladeildar og markaðsdeildar.“ „Fyrsta skrefið var að fara í gegnum heildræna vörumerkjarýni með Brandr. Við tókum viðtöl, gerðum netkannanir og héldum vinnustofur með starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum. Úr varð stefna sem skilgreindi kjarna BLUE loforð, staðfærslu, persónuleika og framtíðarsýn. Hún gaf okkur skýra mynd af því hver við erum í dag og hver við viljum vera í framtíðinni, hvernig skörunin er á milli, hvernig við sjáum okkur og hvernig aðrir sjá og upplifa okkur. Eftir að við fengum stefnuna í hendurnar þá var ljóst að ásýndin var ekki í takt við hvernig starfsmenn, viðskipta-

vinir og samstarfsmenn upplifðu vörumerkið. Við fengum vörumerkjastofuna Saffron til að aðstoða okkur við að koma stefnu yfir í ásýnd. Samstarfið við Saffron í London leiddi okkur í gegnum nokkra möguleika en niðurstaðan var skýr. Við fundum að nýja ásýndin endurspeglar persónuleika BLUE.“

Tákn upphafs og enda ferðalags Ólöf segir að merkið sameini fyrsta og síðasta staf nafnsins, B og E sem eru tákn upphafsins og endans á ferðalaginu. Þar á milli er ferðalagið sjálft. „Þegar stafirnir mætast myndast stjarna sem lýsir veginn, rétt eins og við höfum gert fyrir milljónir ferðamanna í gegnum árin. Við bættum við mynstrum sem sækja innblástur úr íslenskri náttúru, árfarvegum, jöklum og eldsumbrotum. Nýr blár litur ásamt sérhönnuðu letri setur skýran og nútímalegan svip á allt sem við gerum. Þetta gefur okkur bæði stöðugleika og sterka aðgreiningu. Aðgreiningin var eitt af lykilmarkmiðunum í ferlinu. Við vildum losna undan þeirri mynd sem bílaleigur hafa lengi haft; málað bíl fyrir framan fjall eða foss. Þangað til núna hefði ég getað tekið hvaða auglýsingu sem er frá hefðbundinni bílaleigu, þar á meðal frá okkur, þannig það sé sagt, skipt út merkinu og fáir hefðu tekið eftir muninum. Nú hefur Blue sinn eigin svip, sína rödd og sína sögu sem enginn annar getur endurtekið.“

Með fólkinu frá fyrsta degi Svona umfangsmikið verkefni snýst um svo mikið meira en hönnun og myndmerki að sögn Ólafar. „Þetta sé menningarverkefni sem snýst um hvernig við hugsum, vinnum saman og teng jumst fólkinu okkar. Þar fær ný ásýnd sína raunverulegu merkingu. Við lögðum mikla áherslu á að kynna breytingarnar fyrst fyrir starfsfólkinu. Við héldum starfsmannafund í miðju ferli þar sem við kynntum nýja ásýnd og fórum vel yfir af hverju breytingin skipti máli og hvaða tilgangi hún myndi þjóna í framtíðinni.

Starfsfólkið sem fékk að sjá merkið á undan öllum öðrum, ekki sem áhorfendur, heldur sem lykilaðilar sem var treyst fyrir að geyma þetta hjá sér um hríð áður en það fór út í kosmósið. Við vildum að starfsfólkið upplifði að það væri ekki bara að fylgjast með breytingu, heldur að taka þátt í henni. Að þau væru fyrst til að sjá nýja vörumerkið, fyrst til að bera það og fyrst til að segja söguna af því. Þannig myndu þau bera stoltið út til viðskiptavina.“ Áður en nýtt vörumerki var kynnt fyrir alheiminum hélt fyrirtækið innanhússkynningu á sprautuverkstæði þess þar sem kynntar voru lokaniðurstöður, þróun merkisins sýnd og sagan á bak við breytingarnar fyrir starfsfólkinu, mökum þess og börnum. „Við dreifðum „Welcome to the new Blue“-gjafaöskjum með fatnaði og smávörum í nýju litasamsetningunni. Í framhaldi af því var merkið kynnt fyrir samfélaginu og þá er engin betri tími en á Ljósanótt þegar Keflavík og Njarðvík mættust í fótbolta. Það var táknræn stund, ekki bara vegna þess að tengingin við fótboltann í Keflavík er sterk, heldur líka vegna þess að þar á nafnið okkar sínar rætur. Þó að það hljómi vel að segja að Blue vísi í Blue Lagoon, þá var það í raun keflvíski blái liturinn sem skapaði nafnið.“

Menning og gildi Ólöf segir að innleiðingunni sé langt frá því lokið og enn séu fjölmörg verkefni eftir. „Eitt af fyrstu skrefunum okkar var að fá starfsfólkið til að anda að sér nýju gildunum ekki bara með því að kynna þau á blaði heldur með því að gera þau að sínum. Mér

Ólöf Lárusdóttir, vörumerkjastjóri hjá Blue Car Rental.

fannst þessi hluti sérstaklega fallegur og mikilvægur. Þetta var ekki bara kynning á nýju lógói heldur raunveruleg innleiðing á gildum í daglegt starf. Fyrir mér hefur þetta ferli sýnt að endurmörkun snýst um svo mikið meira en bara hönnun þó svo að út á við sé það það sem flestir taka eftir. Þetta er ferðalag sem snýst um menningu sem birtist í samskiptum okkar, gildunum sem við stöndum fyrir og upplifuninni sem við sköpum saman. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að vinna með teymi sem er hugrakkt, traust og með sköpunargleði sem flest fyrirtæki væru heppin með að hafa.“ Í vikunni var Blue Car tilnefnt sem eitt af bestu íslensku vöru-

merkjunum í flokki Vörumerki vinnustaðar. Þessi verðlaun eru veitt af Brandr og aðrir aðilar með því í flokki eru Íslandsbanki, Elko, Nox Medical, Nova og Sjóvá. „Í febrúar verður svo sigurvegarinn tilkynntur. Það að hljóta þessa tilnefningu er einstaklega mikilvæg viðurkenning og skýr staðfesting á því að öll sú vinna sem hefur farið fram hjá okkur síðustu tvö ár er að skila sér bæði út á við og inn á við,“ sagði Ólöf að lokum.

...Þegar stafirnir mætast myndast stjarna sem lýsir veginn, rétt eins og við höfum gert fyrir milljónir ferðamanna í gegnum árin. Við bættum við mynstrum sem sækja innblástur úr íslenskri náttúru, árfarvegum, jöklum og eldsumbrotum. Nýr blár litur ásamt sérhönnuðu letri setur skýran og nútímalegan svip á allt sem við gerum. ...


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 73

Hver fær bílinn í Jólahappdrætti Lionsklúbbs Njarðvíkur? Sala á jólahappdrætti Lionsklúbbs Njarðvíkur hófst 30. nóvember sl. í Nettó í Krossmóa. Af því tilefni voru veittir styrkir úr verkefna- og líknarsjóði klúbbsins. Í ár fengu eftirfarandi aðilar styrk: Öldrunar- og stuðningsþjónusta Nesvalla, Skammtímadvöl Heiðarholt, Njarðvíkurkirkja (styrkur til búnaðarkaupa), Krabbameinsfélag Suðurnesja, Björgin, Velferðarsjóður Suðurnesja, Tónlistarskóli Reykjanesbæjar, Líknar- og hjálparsjóður

Njarðvíkursóknar, ásamt því að veittir voru styrkir til einstaklinga. Samtals voru veittir styrkir fyrir um 3.000.000 kr. Lionsfélagar munu standa vaktina fyrir framan Nettó Krossmóa flesta daga fram að Þorláksmessu og geta gestir þar nálgast miða í happadrættið. Fyrsti vinningur er Kia Picanto, sjálfskiptur, og heildarverðmæti vinninga er 4.648.747 kr. Allur ágóði rennur til líknarmála.

Styrkþegar ásamt Lionsfélögum.

Gleðileg jól, farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

2025 Hafsteinn Ingibergsson formaður klúbbsins, Jakob Hermannsson formaður verkefna- og líknarnefndar og Gísli H. Jóhannsson formaður happdrættisnefndar.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Við hjá Landsvirkjun sendum landsmönnum öllum hlýjar jólakveðjur, með ósk um orkuríkt komandi ár.


74 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

„Íslensk jól eru alvöru jól – hitt bara eftirlíking“ Ásta Óskarsdóttir heldri borgari horfir yfir árið 2025 með þakklæti og hlýju. Fjölskyldan, börn og barnabörn, skipa stærstan sess í huga hennar og hún segir dýrmætustu sigra ársins felast í því að sjá þau vaxa, dafna og skapa nýjar minningar saman. Í þessu viðtali rifjar Ásta upp jólin í bernsku þegar allt var þrifið hátt og lágt, jólatréð skreytt á Þorláksmessu og stofunni svo læst fram á aðfangadag – og segir jafnframt frá því hvernig jólin hafa róast með árunum, hvers vegna íslensk jól eru „alvöru jól“ og hvað jólaandinn þýðir í hennar huga. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu – og hvað stendur upp úr? Árið 2025 hefur verið viðburðaríkt á marga vegu, fullt af bæði smærri og stærri sigrum og áföngum hjá fjölskyldunni. Þegar ég lít til baka er ég fyrst og fremst þakklát fyrir að sjá þau vaxa, dafna og þroskast, víkka út sjóndeildarhringinn og skapa nýja reynslu og minningar. Í mínum huga er það dýrmætast.

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Ég er næstum alæta á tónlist og á hverju ári bætast inn ný jólalög sem heilla mig. Þau taka jafnvel sæti eldri laga á „vinsældalistanum“ mínum, ef svo má segja. Það er erfitt að nefna bara eitt. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Ég hef aldrei verið mikil bíómanneskja en margar jólamyndir eru góðar. Mér finnst alltaf jafn skemmtilegt að sjá hvað Home Alone nær enn til fólks – bæði ungra og gamalla. Við „heldri“

skemmtum okkur alveg jafn vel og krakkarnir. Hver er uppáhaldsjólahefðin þín – og hvers vegna? Mér þykir sérstaklega vænt um að kenna börnum, og nú barnabörnunum, jólalög og raula með þeim. Það skapar alltaf ljúft andrúmsloft og fallegar minningar.

Hvað finnst þ é r ó m i s sandi á jólunum? Fyrir utan fjölskyldusamveruna, sem er algjörlega númer eitt, þá finnst mér fátt toppa jólatónleika á aðventunni. Yfir jólin vil ég líka eiga góðar bækur til að lesa. Svo tek ég mér alltaf stund til að muna eftir þeim sem minna mega sín, eða glíma við sorg og erfiðleika af einhverju tagi, og hugsa jafnframt til þeirra sem kvatt hafa á árinu og hafa snert líf mitt. Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum – hvort sem þú gafst eða fékkst? Ég hef fengið óendanlega margar yndislegar gjafir í gegnum árin og er yfirleitt bara virkilega þakklát. Ein sérkennilegasta minningin er þó þegar vinkona mín ruglaðist á pökkum og rétti mér pakka sem átti að fara til annarrar vinkonu. Í honum var hlutur í lit sem hún vissi að ég ætti frekar erfitt með að hafa í mínu umhverfi. Hin vinkonan lenti í hinu nákvæmlega sama. Við höfum oft hlegið mikið að þessu síðan.

Bestu jóla- og nýárskveðjur sendum við til ættingja og vina með þakklæti fyrir liðnar stundir

Íbúar og starfsmenn Hrafnistu Reykjanesbæ

Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Fyrstu jólin sem ég man eftir eru þegar ég var nýorðin fimm ára. Síðar áttaði ég mig á að svona voru jólin ár eftir ár og undirbúningurinn alltaf nokkurn veginn sá sami. Allt var þrifið hátt og lágt – loft, veggir, gluggar, skápar, kommóður, skrautmunir, silfrið fægt og dúkar pressaðir. Teppin voru þrifin áður en jólatréð var sótt og sett upp á Þorláksmessu. Ekki mátti setja upp jólaskraut nema þar sem búið var að þrífa undir. Jólatréð var skreytt um kvöldið eða fram á nótt og fengum við krakkarnir að taka þátt eftir því sem við réðum við, án þess að skemma eða slasast. Að því loknu var stofunni læst og ekki opnað inn aftur fyrr en seint á aðfangadag – og þá bara til að kíkja. Við vorum fimm systkini og fórum í jólabaðið í ákveðinni röð. Svo í ný jólaföt sem mamma hafði sjálf saumað. Pabbi kom oft seint heim úr búðinni – hann rak raftækjaverslun í miðbæ Reykjavíkur og var iðulega að redda einhverjum bilaðri seríu, batteríum eða síðustu jólagjöfinni. Maturinn var klukkan sex og hlustað á jólamessu á meðan. Svo var gengið frá og við krakkarnir máttum opna einn pakka eftir að hafa tekið þátt í fráganginum eins og við gátum, án þess að þvælast fyrir öðrum. Kvöldið var rólegt og ljúft, tónlist á fóninum og allir tiltölulega snemma í háttinn –

örþreyttir eftir massívan undirbúning. Mér finnst eiginlega að kynslóð foreldra minna eigi skilið orðu fyrir að standa í þessu, ár eftir ár. Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða keypt skraut? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? Bæði og – það fer svolítið eftir „þema“ ársins. Ég og dætur mínar erum miklar föndurkonur og höfum oft átt góðar stundir saman í jólaföndri. Það eru dýrmætar samverustundir. Ég á enn nokkuð af skrauti frá því ég var krakki en hef gefið megnið af því á góða staði, enda skreyti ég mjög lítið sjálf núorðið. Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? Þau urðu rólegri og undirbúningurinn miklu minni. Ég reyni að forðast stressið og haga mér næstum eins og prinsessa – megnið af álaginu er nú komið á herðar dætra minna og þeirra fjölskyldna. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Eru einhverjar ómissandi uppskriftir á þínu heimili? Hamborgarahryggur á aðfangadag og hangikjöt á jóladag – ef ég er með fjölskyldunni. Það er ákveðin hefð sem situr í mér. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera – og af hverju? Ég hef alltaf verið fyllilega sátt þar sem ég hef eytt jólunum hingað til. Ég er samt ein af þeim sem finnst íslensk jól vera svona „alvöru jól“ – annað eru eiginlega bara eftirlíkingar. Trúir þú enn á jólaandann? Hvað þýðir hann fyrir þig? Já, ég geri það. Fyrir mér er jólaandinn fyrst og fremst kærleikur sýndur í verki þegar enginn er að horfa. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Smá kraftaverk – en ekki í pakka með slaufu. Ef þú gætir gefið eina gjöf sem myndi gleðja heiminn, hvað væri það? Ég myndi losa mannkynið við græðgi í öllum sínum myndum. Ertu með áramótaheit – eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég hef aldrei verið mikið fyrir dramatísk áramótaheit, mér henta miklu betur skammtímaheit. Ég hef ekkert sérstakt planað fyrir næsta ár annað en að reyna að láta sem flesta daga enda með bros á vör.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 75

Töfraduft, jólaís og heimildarmyndir Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður og sjónvarpskynnir, átti ógleymanlegt ár 2025. Hann ferðaðist til Ítalíu og Kýpur til að gera heimildarmynd, lauk árinu með tveimur verðlaunum og sér nú fram á að sjá myndina Sigur fyrir sjálfsmyndina rata inn í íslensk heimili á RÚV 29. desember. Í þessu jólaviðtali ræðir hann um jólahefðirnar sem hann elskar, jólaandann sem hann trúir á, minninguna um litlu myndavélina sem kveikti kvikmyndaáhugann – og drauminn um að strá töfradufti yfir heiminn til að skapa frið á jörð. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? „Árið 2025 var algjörlega magnað hjá okkur. Ég fór til Ítalíu og Kýpur til að mynda heimildarmynd og endaði svo árið á því að vinna tvö verðlaun fyrir hana. Það er eitthvað sem ég er ótrúlega stoltur af og stendur mjög upp úr.“ Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? „Uppáhalds jólalagið mitt er Where Are You Christmas. Það nær einhvern veginn alveg utan um tilfinninguna sem jólin eiga að gefa.“ Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? „Væntanlega myndin mín, Sigur fyrir sjálfsmyndina, sem verður sýnd á RÚV 29. desember. Það verða eiginlega jólin mín í ár – að sjá hana loksins hjá landsmönnum heima í stofu.“ Hver er uppáhaldsjólahefðin þín og hvers vegna? „Besta jólahefðin er þegar mamma býr til jólaís og heita Marssósu. Ég enda alltaf á að klára það, það er bara eitthvað við þetta sem tengist bæði barnæsku og jólum fyrir mér.“ Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? „Það sem er algjörlega ómissandi er þegar fjölskyldan kemur saman til að eiga

notalega stund. Jólin eru ekki jólin án þess.“ Manstu eftir einhverjum ógleymanlegum jólagjöfum? „Það besta sem ég fékk í jólagjöf var lítil myndavél þegar ég var bara átta ára gamall. Það var svolítið þar sem þetta allt byrjaði hjá mér – áhuginn á myndbandsgerð og kvikmyndum.“ Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? „Fyrstu jólin sem ég man eftir voru þegar ég átti heima í Keflavík. Þar kom alltaf öll stórfjölskyldan saman og það var ótrúlega hlý og skemmtileg stemning.“ Ertu meira fyrir heimagert jólaskraut eða það sem keypt er í búð? Áttu eitthvað sérstakt skraut með sögu? „Ég er aðeins meira fyrir keypt jólaskraut, en mér finnst samt alltaf gaman að föndra eitthvað skemmtilegt. Það er svona barnalegi parturinn í manni sem lifnar við.“ Hvernig breyttust jólin hjá þér þegar þú varðst eldri? „Jólin breyttust þannig að ég fór meira að njóta þeirra. Þegar maður er krakki er maður oft upptekinn af pökkunum og spennunni, en núna snúast jólin miklu

meira um samveru, frið og það að stoppa aðeins.“

bara hægt. Að fólk fengi að lifa í friði væri stærsta gjöfin.“

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn á jólunum? Eru einhverjar ómissandi uppskriftir á þínu heimili? „Uppáhaldsmaturinn er bara klassískur hamborgarhryggur og svo ís í eftirrétt. Jólaísinn hennar mömmu með heitu marssósunni er þar algjörlega ómissandi.“

Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? „Áramótaheitið mitt er að reyna að skrifa handrit að annarri heimildarmynd og leggja mitt af mörkum til að vera góð fyrirmynd fyrir aðra. Mér finnst ég bera ákveðna ábyrgð sem skapandi manneskja og vil nýta það til góðs.“

Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? „Ég væri alveg til í að upplifa svona „amerísk’ jól, þar sem það er mikill snjór og allt í brjáluðu skrauti – bara einu sinni. En annars er svarið einfalt: Ísland. Það er eitthvað við íslensk jól sem er ólýsanlegt.“ Trúir þú enn á jólaandann? Og hvað þýðir hann fyrir þig? „Já, ég trúi klárlega á jólaandann. Fyrir mér þýðir hann friður og kærleikur, að fólk komi saman til að njóta og sýna hvert öðru umhyggju. Það er kjarni jólanna.“ Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? „Ég er ekkert með neitt sérstakt efnislegt á óskalistanum í ár, nema það að eiga góðar stundir með fólkinu mínu. Það er það sem skiptir mestu.“ Ef þú gætir gefið eina gjöf sem myndi gleðja heiminn, hvað væri það? „Ef ég gæti gefið eina jólagjöf til heimsins þá væri það töfraduft til að búa til frið á jörð – ef það væri

G L E Ð I L E G A H ÁT I Ð ! Nýsprautun ehf er bíla-, réttinga- og sprautuverkstæði. Bílakjarninn ehf. er bílasala en félögin eru samrekin bílaþjónustufyrirtæki í Reykjanesbæ, m.a. samstarfsaðilar Heklu hf.


76 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

„Ef það drepur þig ekki – þá gerir það þig sterkari“ Mario um stríðsárin, körfubolta, Njarðvík, fjölskylduna og erfiðustu (einu) meiðsl ferilsins Mario er fæddur í smábæ í Króatíu, ólst upp í skugga stríðs, fór frá hernaðarprestaskóla í Wisconsin í bandarískan fyrstu deildar háskóla – og endaði svo í Njarðvík, þar sem hann hefur verið lykilmaður í liði og samfélagi í sjö og hálft ár. Nú stendur hann frammi fyrir sínu stærsta verkefni: að koma til baka eftir slitið krossband. Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is

„Stríðsbarn“ úr Slavonski Brod Mario er fæddur 7. júlí 1993 í Slavonski Brod í Króatíu. „Bærinn er svona fimmti eða sjötti stærsti bærinn í Króatíu, með u.þ.b. 60–70 þúsund manns,“ segir hann. „Það búa um fjórar milljónir í Króatíu, þannig að miðað við Ísland er landið risastórt en á heimsvísu er þetta enn lítið land.“ Hann lýsir sér sjálfum sem „stríðsbarni“. „Stríðið í Júgóslavíu var frá 1991 til 1995 og ég fæddist í miðju stríðinu, n.t. árið 1993. Bæjarfélagið mitt slapp tiltölulega vel, aðalátök voru nær landamærum Króatíu og Serbíu, svona 45 mínútur til klukkustund frá okkur.“ Foreldrarnir fengu þó stríðið beint í fangið. Vinnulíf föðurins breyttist á einni nóttu. „Pabbi vann í verksmiðju. Þegar stríðið byrjaði fór verksmiðjan úr því að framleiða venjulegar vörur yfir í að búa til hluti fyrir herinn – skotfæri og annað sem þurfti. Nokkrir vinir foreldranna fóru beint í víglínuna. Ég var of lítill til að muna stríðið sjálft en ég man eftir herferðabílalestum og friðargæsluliðum þegar ég var í leikskóla.“

Íþróttagenin: maraþonmamma og markvarðarpabbi Heima hjá Mario var íþróttaumhverfi frá fyrsta degi. „Mamma mín var langhlaupari, hljóp maraþon og hálfmaraþon í 20–30 ár,“ segir hann. „Pabbi var markvörður í fótbolta í svona 30 ár. Þannig að íþróttir voru alltaf allt í kringum okkur.“ Hann á sex árum eldri bróður sem fór aðrar leiðir. „Hann spilaði aðeins körfubolta, hætti svo, kláraði mastersgráðu í rafmagnsverkfræði og kennir nú í framhaldsskóla og við háskóla heima. Foreldrarnir búa enn í Slavonski Brod.“

Fótbolti, handbolti – og svo veðmálið sem breytti lífinu Eins og svo margir drengir byrjaði Mario í fótbolta. „Ég spilaði í eitt til tvö ár sem krakki, en fann mig aldrei almennilega. Svo kom Ólympíuleikabólan. Árið 2004 vann Króatía gull á Ólympíuleikunum í handbolta og þá fór bókstaflega hvert einasta barn í Króatíu í handbolta – þar á meðal ég,“ segir hann. „Ég æfði í tvo til þrjá mánuði. Þegar hype-ið dofnaði hættu flestir krakkarnir – líka ég.“ Eftir það tók við nokkurra ára „táningsaldur“ án skipulagðra æfinga: útileikir, vinir og stelpur.

Körfuboltinn kemur inn með svolítið óhefðbundnum hætti – í gegnum veðmál. „Besti vinur minn byrjaði að æfa körfubolta. Við tókum eitthvert smá veðmál sem ég tapaði og „greiðslan“ var að mæta með honum á körfuboltaæfingu,“ segir Mario og hlær. „Það var upphafið. Hann hætti eftir nokkra mánuði en ég hélt áfram.“ Mario var þá 15–16 ára – seint að byrja miðað við flesta aðra. „En ég var alltaf sá hæsti, það hjálpaði.“

Eftir tvö ár þar fékk hann meiri leikmínútur með því að skipta um skóla. „Ég fór yfir í Sacred Heart University í Connecticut, líka Division 1, en í aðeins veikari deild. Þar fékk ég meira að spila,“ segir hann. Þar þurfti hann þó fyrra árið að sitja út – reglur D1 eru að ef skipt er um skóla í sömu deild er krafist eins árs biðtíma. „Ég æfði bara og lærði, spilaði ekki leiki. Svo spilaði ég tvö tímabil þar og kláraði gráðu í tölvunarfræði.“ Samtals var hann sex ár í Bandaríkjunum og lauk námi 2018, ný orðinn 25 ára.

„Nokkrum dögum fyrir meiðslin fékk ég símtal um að ég væri valinn með íslenska landsliðinu til að leika gegn Ítalíu og Bretlandi,“ segir hann. „Það var rosalegt augnablik fyrir mig.“ VF/sigurbjörn.

„Ég ætlaði bara að prófa – og er ennþá hér.“

Inn í meistaraflokkslið í heimalandinu Í heimabæ hans var sterkt meistaraflokkslið. „Bæjarliðið okkar spilaði í efstu deild í Króatíu og var oftast í topp 5–6 sætunum. Eftir fótbolta var körfubolti stærsta íþróttin í bænum,“ segir hann. „Eftir um tvö ár í æfingum, þegar ég var 17 ára, fengum við þrír yngri leikmenn að koma upp í meistaraflokk. Við spiluðum lítið til að

byrja með, fjórar–fimm mínútur í leik, en það var byrjunin.“ Á þessum tíma kynntist hann líka leikmönnum sem síðar léku á Íslandi. „Til dæmis var Igor Marić í liðinu þegar ég var 17 ára. Hann spilaði seinna með Keflavík og það var gaman að fá hann líka til Íslands.“ Þegar Mario kláraði menntaskóla í Króatíu opnaðist óvænt hurð til Bandaríkjanna. „2012 fór ég í prep-skóla í Wisconsin – hernaðarprepskóla í miðju engu, bara skógur í kring,“ segir hann. „Ég var seinn í ferlinu og var ekki með marga kosti í boði. Þessi skóli hringdi, bauð mér pláss og ég sagði strax já – fjölskyldan studdi mig 100%.“ Prep-skólinn var eitthvað mitt á milli framhaldsskóla og háskóla: körfubolti og enska nánast allan daginn.

„Þetta var herskóli, bara strákar. Sírena klukkan 5:30 á morgnana, sjö mismunandi einkennisbúningar og þú þurftir að vera í þeim sem var ákveðinn þann dag. Bara eins og í hernum – þú gerir það sem þér er sagt,“ segir hann. Var þetta erfitt? „Auðvitað var þetta erfitt, mikill kuldi, snjór og reglur, en í hausnum á mér var þetta bara: Þú þarft að klára þessi átta mánuði og allt eftir það verður auðveldara,“ segir Mario. „Í dag horfi ég á þetta sem frábæra reynslu. Mikið af sögum og minningum, og smá klassískt: „Ef það drepur þig ekki, þá gerir það þig sterkari.’“

Western Michigan, NCAA og leikur gegn Syracuse Eftir prepskólann fékk Mario nokkur tilboð og valdi Western Michigan University, Division 1-skóla í Mid-American Conference. „Fyrsta árið spilaði ég lítið, en við unnum samt deildina, fórum í NCAA-úrslitin og mættum Syracuse,“ rifjar hann upp. „Það var mögnuð upplifun að spila fyrir framan rúmlega 20 þúsund manns, fljúga í einkaþotu, allur pakkinn. Þetta eru hlutir sem maður gleymir ekki.“

Að loknu námi var plan Mario skýrt: prófa atvinnumennsku – og hafa alltaf menntunina í bakhöndinni. „Ég hugsaði: Ef þetta gengur þá er það frábært, ef ekki þá hef ég gráðu í tölvunarfræði,“ segir hann. Mjög snemma sumarið 2018 kemur tilboð frá Njarðvík. „Ég ákvað að koma í eitt tímabil. Fyrsta árið var bara körfubolti, ekkert annað,“ segir hann. Tímabilið gekk frábærlega. Einar Árni tók við liðinu, Jeb Ivey var á sínum stað og Elvar Már kom heim frá Frakklandi. „Við vorum með ótrúlega sterkt lið, líklega það besta í deildinni. Við komumst 2–0 yfir gegn ÍR í 8-liða úrslitunum en svo töpuðum við þremur leikjum í röð. Það særir enn,“ segir Mario hreinskilnislega. „En svona er fegurð – og grimmd – íþróttanna.“ Njarðvík vildi strax halda honum áfram og hann skrifaði undir árs framlengingu.

Vinnan með „erfiðu krökkunum“ Á öðru árinu fór Mario að vinna samhliða körfuboltanum. „Ég vann í Björkinni, við hliðina á Njarðvíkurskóla, með krökkum sem áttu í miklum hegðunarerfiðleikum,“ segir hann. „Ekki krakkar með sérþarfir – heldur þá sem slást mikið og eru erfiðir, geta ekki verið inni í bekk á meðan ástandið er hvað verst.“ Yfirleitt voru tveir til þrír starfsmenn með 2–4 börn. „Við bjuggum til dagskrá, hjálpuðum þeim í gegnum daginn og reyndum að koma þeim aftur inn í skólann,“ útskýrir hann. „Stundum þurftum við að halda aftur af þeim, svo það voru bara karlmenn að vinna þarna. Slagsmál gerðust ekki á hverjum degi – en það var hluti af starfinu


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 77 erum með frábært teymi. Ég er heppinn með að vera þar.“ Um árabil þjálfaði hann líka yngri flokka hjá Njarðvík, frá körfuknattleiksskóla upp í eldri árgangana, en hætti þegar sonurinn fæddist og verkleg vinna og úrvalsdeildarkörfubolti tóku restina af sólarhringnum.

Læknirinn vildi bíða í tvær vikur þar til bólgan færi niður. Núna er aðgerðardagur kominn – á mánudaginn.“ [Mánudagur 8. desember]

Íslenskur ríkisborgari – og landsliðshringing rétt áður en allt breytist

Mario hefur nánast aldrei verið meiddur áður og líkamsformið hefur alltaf verið hans styrkleiki.

Mario hefur verið á Íslandi í meira en sjö ár, í sama félagi og sama bæ. Í sumar fékk hann íslenskan ríkisborgararétt. „Því lengur sem þú ert hér, því fastari verða ræturnar,“ segir hann. „Lífið okkar er hér núna – við vinnum bæði hér, sonur okkar er á leikskóla og ég hef verið í sama liði og í sama bæ frá upphafi.“

„Vinirnir öfunda mig mikið,“ segir hann og hlær. „Ég hef alltaf átt í erfiðleikum með að þyngjast, ekki að léttast. Síðan ég meiddist hef ég lést um þrjú kíló.“ Hann hefur leikið nánast alla leiki, hvort sem er í móti eða æfingaleikjum, síðan hann kom árið 2018. „Einhver reiknaði þetta: frá því ég kom til Njarðvíkur hefur liðið spilað rúmlega 200 leiki í deild, bikar og æfingaleiki. Ég hafði misst af kannski þremur eða fjórum þar til núna,“ segir hann.

Ríkisborgararétturinn opnaði nýja dyr: landsliðið.

að taka á slíkum málum þegar þau komu upp.“

„Nokkrum dögum fyrir meiðslin fékk ég símtal um að ég væri valinn með íslenska landsliðinu til að leika gegn Ítalíu og Bretlandi,“ segir hann. „Það var rosalegt augnablik fyrir mig.“

Króatísk eiginkona, barn og lífið á Suðurnesjum

Meiðslin: „Ég fann hnéð fara út… og aftur inn“

Mario kom einn til Íslands, en ekki lengi. Hann fór alltaf heim til Króatíu yfir sumartímann og það var einmitt þar sem hann kynntist framtíðarkonu sinni, Valerija, og þau giftu sig í fyrra. „Við hittumst eitt sumarið, í gegnum sameiginlega vini, bara nokkrum dögum áður en ég flaug aftur til Íslands,“ segir hann. „Við héldum sambandi, ég kom heim um jólin, hún kom í heimsókn hingað. Smám saman fórum við að vera saman af alvöru.“ Þau stóðu svo frammi fyrir klassískri „gera eða gleyma“ákvörðun. „Við sögðum: Ef þetta á að vera alvara, þá þarf annað okkar að flytja. Hún flutti hingað fyrir um þremur og hálfu ári.“ Í dag vinna þau bæði á Íslandi, sonur þeirra er á leikskóla og lífið er komið í fastar skorður í Reykjanesbæ.

Svo kom dagurinn sem breytti öllu – leikur í október þar sem Mario sleit krossband. „13. október,“ segir hann. „Ég fann hnéð fara út og svo aftur inn. Þú finnur beinin hreinlega renna. Þá veit maður að þetta er alvarlegt. Ég er ekki fyrsti maðurinn sem lendir í þessu og ekki sá síðasti,“ segir hann. „Þetta er hluti af íþróttum. Spurningin er bara: hvernig bregst þú við?“ Hann vissi strax að um alvarleg meiðsl væri að ræða, þótt vonin lifði um stund. „Allir voru að segja: „Þetta er líklega krossbandið“, og heima hjá mér um kvöldið var ég enn að vona að það væri eitthvað minna.“ Daginn eftir fór hann í segulómun og tveimur dögum síðar var niðurstaðan ljós: fremra krossbandið var slitið, með smá tognunum og beinsárum ofan á. „Fyrstu dagana var ég mjög bólginn og gat varla gengið.

Sonurinn heitir Matias Már. „Í Króatíu er nafnið Matias til, þótt það sé ekki rosalega algengt. Við vildum króatískt eigið nafn en ákváðum að gefa honum íslenskt millinafn, þar sem hann fæddist hér og við búum hér, hann heitir því Matias Már Matasovic – þrefalt M,“ bætir hann brosandi við.

Sálfræðingur eftir meiðsli: „Fyrstu tvo dagana var þetta drulluerfitt.“ Mario felur ekki að þetta voru vonbrigði. „Fyrstu tvo dagana var þetta rosalega erfitt. Ég var í sársauka, síminn stoppaði aldrei – skilaboð og símtöl á nokkurra mínútna

Mario með Loga Gunnarssyni fagna bikarmeistaratitli.

fresti – og tilfinningarnar út um allt,“ segir hann. „En svo breytti ég um fókus. Nú hugsa ég bara: Ég vil klára aðgerðina, svo byrjar endurhæfingin.“ Hann segir að reynslan úr hernaðarprepskólanum, NCAA og erlendu flakki hjálpi núna. „Ég hef farið í gegnum erfiða hluti áður. Þú ferð bara aftur í sama gír: þetta er verkefni, þú klárar það.“

8–12 mánuðir – og „engin ástæða til að flýta sér“ Læknar tala um hefðbundinn 8–12 mánaða endurhæfingartíma eftir krossbandsslit.

„Maður sér stráka úti í Evrópu og NBA koma til baka eftir 6–7 mánuði, aðra eftir 12–13. Það fer eftir aðgerð, líkamsástandi, hversu vel þú vinnur og hvernig líkaminn bregst við,“ segir Mario. „Ég vona að allt sem ég hef gert í gegnum ferilinn – að passa líkamann, æfa vel – hjálpi mér núna.“ Þessi vetur er þó afskrifaður. „Tímabilið er 100% búið hjá mér, sem er í raun ákveðinn „lúxus“ – það er engin ástæða til að flýta sér,“ segir hann. „Ég mun hafa 10–11 mánuði fram að næsta tímabili. Markmiðið er að vera klár þá. Ef það gerist fyrr, er það frábært. Ef það verður nokkrum vikum seinna, þá er heimurinn samt ekki að farast.“

Njarðvík án Mario – „next man up“ Meiðsl Mario breyta væntingum til Njarðvíkur, en hann sér líka tækifæri. „Auðvitað lækkar fólk væntingar þegar einn af aðalleikmönnunum dettur út, það er bara eðlilegt,“ segir hann. „En fyrir hópinn er þetta líka tækifæri fyrir aðra til að stíga upp. Strákar eins og Julio fá meiri mínútur og yngri leikmenn bera meiri ábyrgð. Þetta er klassískt „next man up“.“ Meðan aðrir hugsa um titilbaráttu horfir Mario beint í spegilinn: aðgerð, endurhæfing og löng framhaldssaga í íslenskum körfubolta. „Planið er alveg skýrt,“ segir hann. „Aðgerð, endurhæfing – og svo koma sterkur til baka. Ef líkaminn leyfir, þá langar mig að spila 5–10 ár í viðbót í toppkörfubolta á Íslandi. Það er markmiðið,“ sagði Mario að lokum.

Sendum Grindvíkingum nær og fjær hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Konan hans starfar hjá Reykjanesbæ, vinnur í Icemar-höllinni og er samhliða í fjarnámi í sálfræði frá háskóla í Króatíu. Fyrsta árið á Íslandi spilaði hún í úrvalsdeild í blaki með Álftanesi, en hætti þegar hún varð ólétt.

Frá „erfiðu krökkunum“ í NOC hjá Verne Síðustu þrjú ár hefur Mario unnið hjá Verne, gagnaveri á Ásbrú. „Ég vinn í NOC – netrekstrarstjórn – með tíu stórar skjámyndir fyrir framan mig og vakta alls konar kerfi og innviði,“ segir hann. Starfið smellpassar við bakgrunn hans í tölvunarfræði og smá rafmagnsverkfræði. „Mér finnst þetta gaman. Það er alltaf einhver ný áskorun og við

„Ég tapa þyngd þegar ég hætti að æfa.“

Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson.


78 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is

AGNAR MAR GUNNARSSON er eitt kunnasta andlit Njarðvíkurkörfunnar – þó að hann hafi sjálfur aldrei fengið að klára þann leikmannsferil sem margir sáu fyrir sér. Slys á unglingsaldri breytti öllu, en í staðinn fékk Njarðvík þjálfara, barnakarl og félagsmann sem hefur í áratugi unnið endalausa sjálfboðavinnu fyrir félagið. Við settumst niður með Agnari og ræddum barnaþjálfun, skólakerfið, fyrirhugaðan háskólaferil dóttur hans, Huldu Maríu, og hvernig hann sér framtíð Njarðvíkur í heimi þar sem erlendir leikmenn skipa stór hlutverk í íslenskum körfuknattleik.

Lífsmottó að vinna fyrir klúbbinn LENTI Í SLYSI NÍTJÁN ÁRA OG BREYTTIST Í ÞJÁLFARA „Gjörsamlega grænn Njarðvíkingur.“ Byrjum á byrjuninni, hver er Agnar Mar Gunnarsson? „Ég er gjörsamlega grænn í gegn og algjör Njarðvíkingur, fæddur og uppalinn. Ég kem úr stórri Njarðvíkurfjölskyldu þar sem körfubolti var mjög fyrirferðarmikill. Mamma mín, Hulda, er úr sjö systkina hópi, Stulli, Teitur, Gunni, Krissa, Stebbi og Magga. Þetta er alvöru Njarðvíkurklanið og ef einhver er ekki búinn að kveikja, þá eru þetta Örlygsbörn,“ segir hann og brosir. Hann ólst upp við körfubolta og íþróttahúsalykt, eins og hann orðar það. Barnaskólinn var Njarðvíkurskóli, svo fluttist fjölskyldan tímabundið til Bandaríkjanna þar sem foreldrarnir fóru í nám, en þegar heim var komið tók Njarðvík strax aftur við. „Maður man varla eftir sér annars staðar en í íþróttahúsinu, annaðhvort á æfingu eða hlaupandi með brúsa eða blað í hendinni,“ segir hann.

Efnilegur í bæði fótbolta og körfu – þar til allt breyttist Agnar var efnilegur bæði í fótbolta og körfubolta. Hann æfði körfubolta og var markmaður í fótbolta.

skutlast út af skyggninu og dett sex–sjö metra niður. Nánast eins og af þriðju hæð.“ Hann lenti á fótunum og fótbrotnaði illa. „Ég tí-fótbrotnaði. Var rúmliggjandi í tvær til þrjár vikur og þurfti að fara í aðgerð á þriðja eða fjórða degi eftir að sérfræðingarnir voru búnir að skoða hvernig þeir gætu púslað fætinum á mér aftur saman. Læknirinn sagði mér fljótlega eftir það: „Þú getur bara gleymt íþróttum.“ Ég hef í raun ekki hlaupið í 25 ár. Ég er enn smá haltur, með pinna í fætinum sem halda þessu saman,“ segir hann.

tölfræði, ritaraborð, stjórnir og alls kyns sjálfboðastörf innan félagsins. „Ég hef prófað flest störf í kringum körfuboltann. Ég er mikill barnakarl og á auðvelt með að ná til krakka, bæði í skólanum og á æfingum.“

Boltaskólinn: Líf og fjör fyrir þau yngstu Agnar og eiginkona hans Svava, sem er aðstoðarleikskólastjóri, stjórna saman boltaskóla fyrir öll yngstu börnin.

„Það var ekkert í boði að setjast niður og grenja.“

Fjölskyldan fylgdi Huldu Maríu a EM-U18 í Litáhen. „Ég var kominn á meistaraflokksæfingar í fótbolta um 15 – 16 ára aldur,“ rifjar hann upp og í körfunni fórum við nokkrir strákar úr Njarðvík yfir til Reynis í Sandgerði og spiluðum í fyrstu deild.

En ferillinn tók skyndilega enda. „Ég lenti í slysi 19 ára gamall. Við vorum að þrífa sótið af þakinu á Fiskmarkaði Suðurnesja eftir eld. Ég fer upp til að losa líflínuna, tek eitt rassaskref, renn niður 12 metra af þakinu og

Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að átta sig á að svona skilaboð eru gríðarlegt högg fyrir 19 ára íþróttastrák. Agnar viðurkennir að þetta hafi verið þungt en hann ákvað fljótt að horfa fram á veginn. „Þetta var rosalegt högg fyrir alla fjölskylduna. En lífið er bara eins og það er. Það var ekki boðið upp á að setjast niður og grenja. Maður breytti bara um fókus,“ segir hann. Þaðan fór hann smám saman að færa sig yfir í önnur hlutverk í kringum íþróttir: þjálfun,

Sumarfrí á Spáni .


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 79 „Þeir eru oft ekki betri en heimamenn en fá samt hlutverk bara af því að þeim er borgað. Þá verður þrýstingur á að spila þeim, því þetta er „atvinnumaðurinn“ í liðinu.“ Spurt hvort þetta sé sjálfbært fyrir íslensk félög hristir hann höfuðið. „Nei, engan veginn. Við erum ekki í atvinnumannadeild, en samt eru félög að eyða tugum og hundruðum milljóna. Sjálfboðaliðar eru að safna dósum og styrkjum og vinna baki brotnu til þess að halda deildunum gangandi.

Sjálfboðaliðarnir – „fólkið sem gerir Njarðvík að Njarðvík“

Ferming Stefáns Loga í vor . „Við byrjuðum með boltaskólann fyrir rúmum 15 árum. Hann er fyrir 18 mánaða til fjögurra ára. Þetta er ekkert endilega „körfuboltaskóli“, heldur íþróttaskóli þar sem leikur og gleði er við Völu. Þar kynnast þau íþróttahúsinu á jákvæðan hátt, læra að hoppa, klifra, kasta og grípa, byggja upp sjálfstraust og líkamsvitund,“ útskýrir Agnar. Þau hafa sameinað leikskólafræði konunnar og íþróttareynslu Agnars. „Það þarf varla að orðlengja það, það er uppselt á nánast hvert einasta námskeið,“ bætir hann við.

Þjálfunin miklu betri – en aginn verri Agnar hefur þjálfað alla flokka í gegnum tíðina, bæði drengi og stúlkur. Hann segir þjálfun í dag á allt öðru plani en þegar hann byrjaði. „Þjálfunin í dag er miklu betri, frá sex ára aldri og alveg upp í meistaraflokk, æfingar eru betur skipulagðar, meiri þekking er til staðar, og krakkarnir eru einfaldlega betri tæknilega en fyrir 20 árum. Það er bara staðreynd,“ segir hann. En ekki er allt í nútímanum betra að hans mati. „Skólakerfið og aginn gagnvart fullorðnum er eitthvað sem ég hef áhyggjur af. Ég öfunda ekki kennara í dag. Krakkar tala öðruvísi við starfsfólk, það er minna um sjálfsagða virðingu. Á „okkar tíma“ var bara sagt: þú berð virðingu fyrir fullorðnum, sérstaklega kennurum.“ Agnar telur að hluti vandans tengist því hvernig krakkar verja tímanum. „Krakkar eru með símann upp í andlitinu allan daginn og horfa

Fjórir ættliðir á körfuboltaleik.

á alls konar efni sem þau eiga Hulda María – frá fimleikum í ekkert endilega að vera að horfa meistaraflokk og út í heim á. Áður fyrr var sjónvarp kannski tvisvar–þrisvar í viku, annars Elsta barn hans, Hulda María, vorum við úti að leika okkur,“ er þegar orðin eitt stærsta efni segir hann. kvennaboltans á Íslandi. Hún var Hann er harður á því að símar áður frábær í fimleikum og var eigi ekki heima í skólatalin ein efnilegasta fimstofum. leikastelpa landsins „Ég myndi bara áður en hún sneri banna símana sér alfarið að „Ég segi alltaf: í skólum. Þó körfubolta. að miðju„StyrkÉg sé mig á sama stað. barnið urinn sem mitt fari hún fékk Ég sé mig áfram þjálfa, með úr fimsímann leikum vinna með börnum og fyrir í skilaði skólann sér klúbbinn. Nema maður vona ég beint í að þegar körfuna. vinni í lottóinu og flytji til sá yngsti Hún fari á Spánar að spila golf,“ var mun elsta stig í sterkari en segir hann grunnskóljafnaldrar anum að við sínir þegar hún og hlær. sameinumst um byrjaði aftur,“ að geyma þá heima. segir Agnar. Ef eitthvað kemur upp Síðustu ár hafa hins á, þá hringir skólinn. vegar verið bæði upp og niður, þar sem hún m.a. sleit aftara Skóli og íþróttir að vinna saman? krossbandið. „Hún sleit aftara krossband í Agnar hefur einnig horft mikið æfingalandsleik. Það er galið að til Bandaríkjanna, þar sem þau hún spilaði sex landsleiki eftir bjuggu um tíma og þar sem dóttir meiðslin áður en við vissum hvað hans stefnir nú á háskólabolta. var að. Þegar við komum heim úr „Úti vinna skóli og íþróttir EM-U16 pantaði ég sneiðmynd mjög mikið saman. Ef þú stendur og þá kom slitið í ljós. Svo kom þig ekki í skólanum þá mætirðu hún ótrúlega sterkt til baka.“ ekki á æfingar. Ef þú elskar fótHann hrósar sérstaklega einkabolta eða körfu og veist að slæmt þjálfaranum Gunna Einars. gengi í skóla þýðir að þú missir „Hann á stóran part í því að af æfingum, þá verður skólinn hún sé á gólfinu í dag. Hún var skyndilega miklu mikilvægari,“ hjá honum allt að fjórum sinnum segir hann. í viku í byrjun og er enn að gera Slíkt kerfi gæti að hans mati frábærar styrktaræfingar hjá vakið marga upp hér á landi, þó honum.“ að aðlaga þurfi að íslenskum aðstæðum. Tilboð frá toppskólum í

Hjónin Svava og Agnar.

Námið skiptir þó ekki minna máli en boltinn. „Í dag langar hana að læra innanhússhönnun. Það getur breyst, en við erum að horfa á heildarpakkann: námið, körfuna, staðsetninguna, og svo það að hún fái alvöru hlutverk inni á vellinum. Það er ekkert gaman að vera í risaskóla og sitja bara á bekknum í fjögur ár.“ Svo er hún auðvitað frábær fyrirmynd fyrir yngri bræður sína, Stefán Loga og Gunnar Loga sem stefna langt í íþróttum eins og margir í fjölskyldunni. Svava Ósk, konan mín, er margfaldur Íslandsmeistari og fyrrverandi landsliðskona í körfubolta þannig að börnin hafa þetta í blóðinu,“ segir Agnar og brosir.

Erlendu leikmennirnir – „engan veginn sjálfbært“ Við snúum okkur að íslenska körfuboltanum og fjölda erlendra leikmanna í dag. Agnar er ekki sannfærður. „Mér finnst þetta orðið of mikið, bæði hjá körlum og konum. Þegar lið eru með fjóra erlenda leikmenn sem gera 90% af statinu, þá er lítið pláss eftir fyrir íslenska leikmenn,“ segir hann. Hann bendir á að það sé líka kominn „hellingur af lélegum útlendingum“.

Ef eitthvað er, þá er það sjálfboðaliðastarfið sem Agnar talar mest af hlýju um. „Ég mun alltaf reyna að gefa af mér tíma fyrir fánann, hvort sem það er stjórn, ritaraborð, miðasala eða hvaða verkefni sem þarf að sinna.” Hann leggur áherslu á mikilvægi sjálfboðaliðanna sem halda starfinu gangandi á leikdögum, bæði fyrir og eftir leiki, en að hans mati fá þeir alltof sjaldan þá viðurkenningu sem þeir eiga skilið. „Þetta er fólkið sem á stærsta klappið skilið. Þau sem sinna miðasölu, sjá um veitingar, setja upp auglýsingaskilti og ganga frá eftir leiki. Ef þessi hópur myndi hætta væri einfaldlega hægt að slökkva ljósin og þá væri enginn Njarðvíkurkörfubolti.“ Hann reynir að fá nýtt fólk inn reglulega, meðal annars með færslum á stuðningsmannasíðunni á Facebook. Stundum bætist einn og einn í hópinn en kjarninn er oftar en ekki sá sami.

„Ég sé mig enn í sama húsi, í sama salnum“ Þegar við spyrjum hvar Agnar sjái sig eftir svona þrjú ár kemur svarið hratt. „Ég segi alltaf: Ég sé mig á sama stað. Ég sé mig áfram þjálfa, vinna með börnum og fyrir klúbbinn. Nema maður vinni í lottóinu og flytji til Spánar að spila golf,“ segir hann og hlær. Þangað til ætlar hann að halda áfram að byggja upp Njarðvík fyrir næstu kynslóðir. Mitt lífsmottó er að vinna fyrir klúbbinn og krakkana í Njarðvík,“ sagði Agnar að lokum.

Bandaríkjunum

Hulda María er nú komin með fjölda tilboða frá bandarískum háskólum. „Hún er í símanum nokkrum sinnum í viku á Teams- og símafundi með þjálfurum. Hún er komin með tólf formleg tilboð og ég held að um 70 skólar hafi haft samband,“ segir Agnar. „Þetta eru að mestu leyti öflugir skólar í D1 í bandaríska kvennakörfuboltanum. Við höfum skoðað UCLA, Cal Berkeley og Pepperdine í Kaliforníu, og svo skóla eins og Iowa State, North Carolina og Minnesota. Þá erum við að tala um skólagjöld upp á hundruð þúsunda dollara. Það er peningur sem þú myndir aldrei geta borgað sjálfur,“ segir hann.

Feðgarnir elska að veiða.


80 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Fjölmenni við tendrun jólatrés í Aðventugarðinum Jólaljósin á jólatré Aðventugarðsins í Reykjanesbæ voru tendruð á fimmtudag að viðstöddum miklum fjölda gesta sem tóku þátt í Aðventuljósagöngu með Bjúgnakræki og Grýlu gömlu. Sama kvöld buðu verslanir í Betri bæ upp á Kósýkvöld og var opið fram á kvöld. Opið er í garðinum allar helgar til jóla kl. 14-17 og á Þorláksmessu kl. 18-21. Það er ýmislegt í boði, eins og Aðventusvellið þar sem hægt er að skella sér á skauta og þá eru nokkrir kofar í garðinum sem bjóða upp á ýmislegt.

Jólaljósin tendruð í Suðurnesjabæ Jólaljósin voru tendruð á jólatrjám Suðurnesjabæjar á fullveldisdaginn, 1. desember. Tréð í Sandgerði stendur nú við Vörðuna en í Garði er það á hefðbundnum stað á horni Garðbrautar og Gerðavegar. Það voru yngstu nemendur grunnskólanna í bænum sem kveiktu ljósin. Nemendur tónlistarskólanna í Garði og Sandgerði sungu og léku á hljóðfæri og jólasveinar komu í heimsókn með sprell og glaðning


Fólkið er okkur allt

Við sendum starfsfólki okkar, fjölskyldum þeirra og öllum Grindvíkingum bestu óskir um gleðileg jól.

Visirhf.is


82 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

TYRKJARRÁNIÐ Á LEIÐ Í HEIMILDARMYND sem verður sýnd á 400 ára afmælinu

„Við gáfum út fimm bækur á COVID-tímabilinu, m.a. um Tyrkjaránið og svo fæddist hugmynd að gerð heimildarmyndar um efnið,“ segir Adam Nichols, kanadískur prófessor við Maryland-háskólann í Bandaríkjunum. Hann kom á vegum skólans til Íslands árið 1987 og kenndi bandarískum hermönnum á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli og tók ástfóstri við Ísland og sögu landsins. Hann kynntist fljótlega Keflvíkingnum Karli Smára Hreinssyni og þeir hafa skrifað nokkrar bækur, m.a. um Tyrkjaránið svokallaða sem gerðist árið 1627. Hluti sögunnar gerðist í Grindavík og þar var Adam staddur síðastliðið haust þar sem gerð heimildarmyndar um Tyrkjaránið var hafin. Tveir Grindvíkingar voru með Adam á þessum söguslóðum í Grindavík, kvikmyndagerðarmaðurinn Óskar Kristinn Vignisson og Hallur Gunnarsson, formaður Minja- og sögufélags Grindavíkur.

GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is

Adam fannst hann vera kominn heim þegar hann steig fæti í Keflavík árið 1987. „Ég get ekki útskýrt þetta, ég fékk þessa tilfinningu með að vera kominn heim um leið og ég lenti í Keflavík. Ég hef alltaf haft áhuga á sögu og Íslendingar eiga heldur betur sína sögu frá örófi alda. Ég kom hingað til að kenna bandarískum hermönnum og fjölskyldum þeirra um Njálusögu, við gátum farið á þær slóðir þar sem sagan gerðist og þá kynntist ég Karli Smára Hreinssyni og við urðum góðir vinir. Hann var leiðsögumaður okkar í þessari ferð á Njáluslóðir, ég fékk hann sem gestafyrirlesara hjá mér og hann kom síðar með þá hugmynd að við ættum að þýða þessar gömlu sögur, m.a. söguna um Tyrkjaránið. Það sem er sérstakt við þá sögu er nákvæm lýsing Ólafs Egilssonar, prests í Vestmannaeyjum þegar hann var tekinn til fanga. Hann skrifaði bók um þessa atburði, Reisubók. Fyrsta bókin sem við Karl þýddum yfir á ensku kom út árið 2008 en þegar COVID skall á þá vorum við mjög afkastamiklir. Sá tími var erfiður fyrir flesta en fyrir okkur Karl reyndist tíminn vera blessun í dulargervi og við gáfum út fimm bækur á COVIDtímabilinu. M.a. kom bók út um Tyrkjaránið og svo fæddist hugmynd að gerð heimildarmyndar um efnið.“

Ráðist á Grindvíkinga Það voru tveir hópar sjóræningja sem réðust á þrjá staði á Íslandi fyrir þessum tæpu 400 árum sem liðin eru. Annar hópurinn, frá Alsír, kom við á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum og hinn hópurinn, sem var frá Marokkó, tók land við Grindavík, á Bessastöðum og á Snæfellsnesi. Adam lýsti hvernig ræningjarnir fóru að í Grindavík. „Danskt kaupskip var fyrir utan Grindavík í júní 1627 og voru viðskipti í gangi á milli Grindvíkinga og þessara Dana. Allt í einu birtist skip sem rifaði seglin og kastaði ankeri. Auðvitað hafði enginn hugmynd um hverjir þetta voru og þvert á það sem er haldið varðandi ofbeldið sem þessir sjóræningjar áttu að hafa sýnt, þá var ekkert slíkt í gangi. Þeir voru skynsamir og í stað þess að ráðast inn með látum sendu þeir nokkra menn á léttabát til að kanna aðstæður, þeir töluðu við skipstjórann á danska

skipinu og þóttust vera hvalveiðimenn. Þeir fengu upplýsingar og fóru til baka í sitt skip. Danski kaupmaðurinn ákvað að kanna hvað væri í gangi svo hann sendi átta menn út í ókunnuga skipið og það voru fyrstu fangarnir. Sjóræningjarnir komu svo í tugatali á land en þá var danska kaupmanninn farinn að gruna að eitthvað dularfullt væri í gangi fyrst þeir átta sem hann sendi út í skipið skiluðu sér ekki til baka. Hann náði að flýja með sitt fólk og varninginn út í hraunið og slapp en ræningjarnir réðust á þrjá bæi í Grindavík, m.a. Járngerðarstaði og náðu nokkrum tugum fanga. Stuttu síðar kom annað danskt kaupskip og ræningjunum tókst að plata þá til sín og tóku alla skipverjana til fanga og tóku líka það skip. Skipið sem var komið var hins vegar skilið eftir og ræningjarnir héldu til Bessastaða en náðu ekki miklu þar og réðust

„Danskt kaupskip var fyrir utan Grindavík í júní 1627 og voru viðskipti í gangi á milli Grindvíkinga og þessara Dana. Allt í einu birtist skip sem rifaði seglin og kastaði ankeri, auðvitað hafði enginn hugmynd um hverjir þetta voru og þvert á það sem er haldið varðandi ofbeldið sem þessir sjóræningjar áttu að hafa sýnt, þá var ekkert slíkt í gangi.“

Óskar Kristinn Vignisson og Hallur Gunnarsson með Adam Nichols.

svo á nokkra staði á Snæfellsnesi. Þeir náðu nokkrum breskum fiskveiðiskipum en fréttu af þeim af tveimur breskum herskipum sem voru fyrir vestan til að verja um 150 önnur fiskveiðiskip og sjóræningjarnir voru skynsamir, vildu ekki lenda í slag við herskip og héldu heim á leið,“ sagði Adam að lokum. Adam og Karl Smára vantaði einhvern til að sýna sér söguslóðir í Grindavík og Hallur Gunnarsson, formaður Minja- og sögufélags Grindavíkur, komst í kynni við þá. „Það er mjög gaman að taka þátt í þessu en ég hef mikinn áhuga á sögu okkar Grindvíkinga. Ég vissi lítillega um þessa atburði sem gerðust fyrir hartnær 400 árum og hef svo fræðst enn meira í gegnum verk þeirra Adams og Karls. Ég hafði aðeins lesið mér til um atburðina í bók sem var skrifuð um atburðina í Vestmannaeyjum, þar var minnst á það sem gekk á í Grindavík í nokkrum köflum og ég

bað þá félaga um að þýða bókina svo fólk gæti lesið um hvað gekk hér. Eftir þrjá mánuði höfðu þeir samband og vildu bæta um betur, þeir vildu skrifa nýja bók um það sem gerðist hér í Grindavík og það varð úr. Síðan þá er búið að þýða bækurnar á nokkur tungumál og mjög spennandi að verið sé að gera þessa heimildarmynd um Tyrkjaránið núna. Hún verður frumsýnd á 400 ára afmæli atburðarins árið 2027 og samhliða því stefnum við á að halda ráðstefnu um Tyrkjaránið. Við Óskar kvikmyndagerðarmaður erum síðan með ýmsar aðrar hugmyndir í kollinum, t.d. um sögu Grindavíkur,“ sagði Hallur. Óskar Kristinn Vignisson er ungur og upprennandi kvikmyndagerðarmaður frá Grindavík, hvernig kom til að hann var að mynda þennan hluta heimildarmyndarinnar í Grindavík? „Ég var búinn að kynnast Halli sem sagði mér frá þessu verkefni

Adams og Karls Smára. Mér fannst þetta áhugavert og vildi glaður kvikmynda þennan hluta viðtalsins við Adam. Hann er ótrúlega flottur, veit ofboðslega mikið um þessa atburði og er frábær sögumaður, svo þetta hefur verið mjög skemmtilegt og fræðandi fyrir mig. Það voru þrjú gengi sem tóku upp það sem gerðist hér á Íslandi, eitt tökulið á Austfjörðum og annað í Vestmannaeyjum. Ég er síðan búinn að mynda það sem gerðist hér og á Bessastöðum en ráðgert er að frumsýna myndina eftir tvö ár þegar stórafmælið ber upp. Það er því nægur tími til stefnu og án þess að vita nákvæmlega hvað höfundar myndarinnar ætla að gera þá skilst mér að þeir vilji kanna hvort íslenskt DNA sé að finna í þeim löndum þaðan sem ræningjarnir voru og í löndum þar sem vitað er að fólk fór, t.d. á Spáni. Það er mjög gaman að taka þátt í þessu og verður spennandi að sjá hvernig lokaútkoman verður. Annars er ég mest að vinna sem „freelance“, ræð mig í tímabundin verkefni en aðalvinnan mín þessa dagana er að skrifa handrit að bíómyndum sem ég mun gera í Danmörku, ég fékk styrk þaðan og hugmyndin er að gera þrjár bíómyndir út frá þessari hugmynd sem ég er að vinna að ásamt dönskum kvikmyndaframleiðanda. Ég er með fullt af öðrum hugmyndum í kollinum og m.a. erum við byrjaðir að mynda út frá hamförunum í Grindavík, ekki beint um atburðinn sem slíkan heldur vil ég fjalla um hann persónulega þar sem ég er frá Grindavík. Mig langar að ná utan um þessa grindvísku sál sem er löskuð eftir það sem hefur gengið á og okkur langar til að fylgja þessum atburðum eftir til lengri tíma svo það verður langtímaverkefni,“ sagði Óskar að lokum.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 83

Spjallbekkurinn er þétt setinn í Kvikunni í Grindavík Kvenfélag Grindavíkur fyrsta kvenfélagið til að afhenda spjallbekk „Hvetjum alla til að setjast á bekkinn, spjalla við náungann og taka sjálfu,“ segir formaður Kvenfélags Grindavíkur, Sólveig Ólafsdóttir en kvenfélagið afhenti Grindavíkurbæ spjallbekk í tilefni af viku einmanaleikans sem var í október. Afhendingin fór fram í Kvikunni, menningarmiðstöð Grindvíkinga og voru fjölmargir Grindvíkingar mættir til að hlýða á erindin sem voru flutt en fyrir utan Sólveigu sem afhenti bekkinn tóku Jenny Jóakimsdóttir, verkefnastjóri einmanaleikans, og Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, til máls en samkomunni lauk með erindi Önnu Steinsen frá KVAN en í því kom hún inn á jákvæð samskipti og hvernig samskipti kynslóðanna hafa breyst í aldanna rás. Þau voru ófá hlátrasköllin sem ómuðu í Kvikunni og fóru Grindvíkingar og aðrir glaðir heim.

GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is

Spjallbekkurinn byrjaði inni í Kvikunni, svo fyrir utan en er í dag fyrir utan íþróttamiðstöð Grindavíkur og mun færast þegar nýtt útivistarsvæði verður tekið í notkun. Solla, eins og hún er jafnan kölluð, var ánægð með viðburðinn og stefnir á að halda upp á 100 ára afmæli kvenfélagsins sem fyrst en búið var að plana heljarinnar afmælisveislu í íþróttahúsi Grindavíkur á afmælisdeginum 23. nóvember en rýmingin 10. nóvember frestaði þeim áformum. „Þessi spjallbekkur er að breskri fyrirmynd en það var Jenný Jóakimsdóttir, verkefnastjóri viku einmanaleikans, sem hafði samband við mig og athugaði hvort Kvenfélag Grindavíkur væri ekki til í að taka þátt. Við vorum strax til og erum ánægðar að afhenda Grindavíkurbæ bekkinn hér í dag, í viku einmanaleikans, en spjallbekkurinn er táknrænn fyrir það að fólk setjist niður og spjalli. Með því að setjast á svona bekk þá ertu að gefa færi á spjalli og jafnvel að biðja um það en mér skilst á Jenný að fjölmargir hafi lýst yfir áhuga á að setja upp svona bekk og erum við hjá Kvenfélagi Grindavíkur mjög ánægðar með að vera fyrsta kvenfélagið til að gefa svona bekk. Við erum búin að setja upp likesíðu á Facebook og hvetjum fólk til að setjast á bekkinn, spjalla og taka mynd af sér og setja á síðuna. Það er alltaf nóg í gangi hjá okkur hjá kvenfélaginu og vonandi getum við fljótlega haldið upp á 100 ára afmælið en það bar upp 23. nóvember 2023 og vorum við að skipuleggja stóra afmælisveislu þann dag í íþróttahúsi Grindavíkur. Við vitum öll hvað gerðist þrettán dögum fyrir afmælið svo afmælið bíður betri tíma. Við erum dreifðar út um allt en höfum náð

að halda úti talsverðri starfsemi og erum alltaf að gefa af okkur til samfélagsins. Við munum halda ótrauðar áfram og komumst vonandi sem fyrst alfarið heim til Grindavíkur, þar líður okkur best,“ sagði Sólveig.

Flutti til Grindavíkur á 30 ára afmælisdegi Kvenfélags Grindavíkur Ragna Fossádal var með þeim eldri sem mættu í Kvikuna þennan fagra miðvikudag. Hún var ánægð að hitta aðra en hún hefur saknað Grindavíkur. Hún flutti til Grindavíkur þegar Kvenfélag Grindavíkur fagnaði 30 ára afmæli, 23. nóvember 1953. „Ég hef verið frekar einmana síðan við þurftum að r ýma Grindavík og því var kannski táknrænt að koma hingað í dag, á degi einmanaleikans. Ég bý í dag á Njarðarvöllum í Njarðvík, þar er yndislegt fólk og gott að vera en ég sakna samt Grindavíkur, þar var ég búin að búa síðan ég var fjórtán ára gömul, árið 1953, og var því búin að búa þar í 70 ár þegar ég þurfti að yfirgefa bæinn vegna jarðhræringanna. Það er mjög trúlegt að ég snúi strax til baka þegar þjónusta eykst í Grindavík, tala nú ekki um þegar Víðihlíð opnar.

Ég hafði mjög gaman af þessu hér í dag, sérstaklega var gaman að hlusta á erindi Önnu Steinsen um hvernig samskipti kynslóðanna hafa breyst. Ekki þarf að fjölyrða mikið um hvað tæknin hefur breyst mikið síðan ég var unglingur og hér áður fyrr var ekki mikið að flagga ástarorðum, pabbar sögðu held ég aldrei að þeir elskuðu börnin sín en auðvitað gerðu þeir það. Í dag heyrum við endalaust „æ lov jú“ og kannski er ekki mikil meining á bak við það og kannski má fara einhvern milliveg en ég hafði mjög gaman af því að hlusta á Önnu, ég skellti oft upp úr,“ sagði Ragna.

Anna Steinsen og Sólveig Ólafsdóttir á spjallbekknum.

KVAN Anna Steinsen er einn stofnenda og eigenda KVAN og fór yfir hvað fyrirtækið gerir, hvað stendur til að gera fyrir Grindvíkinga og kom líka inn á samskipti kynslóðanna. „KVAN stendur fyrir Kærleikur, Vinátta, Alúð og Nám en fyrirtækið var stofnað árið 2016 og við erum því tíu ára á næsta ári. Þar áður hafði ég unnið við þjálfun á námskeiðum og inni í félagsmiðstöðvum og skólum. Ég hef unnið mjög lengi í þessum bransa. KVAN heldur fyrirlestra, m.a. um menningu, samskipti, gleði, liðsheild og leiðtogahæfni. Við erum að halda alls kyns námskeið, vináttuþjálfun og sjálfstyrkingu fyrir börn og höldum námskeið fyrir fólk á öllum aldri sem gefa verkfæri inn í lífið. Við vinnum með mörgum skólum þegar upp kemur til dæmis samskiptavandi eða einelti, erum með námskeið fyrir fagfólk í grunnskólum og leikskólum og erum í raun með mjög fjölbreytta starfsemi. Einnig erum

við með litla ferðaskrifstofu og bjóðum upp á endurmenntunarferðir fyrir alls kyns fagfólk, t.d. í grunn- og leikskólum. Við erum mjög spennt fyrir komandi verkefnum með Grindvíkingum í samstarfi við Rauða kross Íslands, Rio Tinto og Grindavíkurbæ. Þetta verða alls kyns námskeið og viðburðir, við viljum halda flotta hátíð og viljum þjóna Grindvíkingum á öllum aldri, allt frá eldri borgurum niður í börnin. Við viljum endilega heyra frá Grindvíkingum til að vinna þetta verkefni saman með bæjarbúum og hlökkum mikið til að aðstoða Grindvíkinga. Ég hvet alla til að fara inn á síðuna okkar, þar er einn flipinn merktur Grindvíkingum; Grindavík - með þér, þar er hægt að lesa allt um verkefnið. Einn af þeim fyrirlestrum sem ég held reglulega fjallar um samskipti á milli kynslóða og þar fæ ég venjulega flesta til að brosa eða jafnvel hlæja. Ég hef mjög gaman af því

að fara yfir þetta og er örugglega gaman fyrir eldra fólk að hugsa til baka þegar það var unglingar. Það voru allar kynslóðir hér í dag fyrir utan Greatest, þ.e. 98 ára og eldri. Meira að segja Beta-kynslóðin átti fulltrúa, eitt sjö mánaða gamalt barn. Það er pínu skondið að fara yfir hvernig samskiptin hafa breyst, hér áður fyrr var ekki mikið verið að tala um tilfinningar eða hrósa, en í dag snýst mikið um að fá læk á samfélagsmiðlum. Sumt er betra í dag, annað ekki og viljum við alltaf finna hinn gullna meðalveg. Þessi spjallbekkur sem hér er kynntur í dag er frábær fyrir hvað hann stendur. Fólk í dag, sérstaklega ungt fólk notar heyrnartólin mikið og þá er erfiðara að eiga samskipti. Þar sem einmanaleikinn er að aukast og kvíði og þunglyndi einnig þá hefur aldrei verið jafn mikilvægt að tengjast og eiga samskipti. Það hafa allir gott af því að eiga samskipti við aðra, þannig aukum við samkenndina og ég vona að þessir spjallbekkir muni verða til þess að fólk setjist niður og spjalli,“ sagði Anna að lokum.

óska okkur öllum gleðilegra og öruggra jóla Megi nýtt ár færa okkur farsæld og frið www.vpallar.is

Eðvald Júlíusson, útgerðar- og athafnamaður í Grindavík til margra ára, og séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í Grindavík settust á Spjallbekkinn og ræddu málin. VF-myndir: Sigurbjörn Daði Dagbjartsson


84 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Keflvíkingurinn sýndi flotta takta á Wembley Pétur Karl Ingólfsson upplifði draum margra knattspyrnumanna. „Það var viðskiptafélagi minn í London sem bauð mér að koma og spila fótbolta á Wembley, ég hélt að hann væri að grínast en svo var ekki. Ég fór þá að hugsa hvort ég gæti í raun og veru sparkað eitthvað og spurði nokkra félaga hvort það væri vit í þessu, það voru allir sammála. „Já! Auðvitað ferðu, þetta er Wembley!“ - ég var bara í engu leikformi, hvað þá í formi yfir höfuð og hafði meiri áhyggjur af því hvort ég kæmist sjálfur út af vellinum. Á endanum sló ég til, enda sjaldgæft tækifæri,“ segir Keflvíkingurinn Pétur Karl Ingólfsson en hann er einn fárra Íslendinga sem hafa fengið tækifæri til að leika knattspyrnu á Wembley vellinum í London.

Pétur Karl í eldlínunni á einum frægasta fótboltavelli í heimi, sjáfum Wembley.

„Ég bað pabba að skjótast með mér til London og upplifa þennan viðburð. Við vissum ekkert endilega hvernig þetta yrði áður við fórum út, allt rosalega leynilegt. Vissum bara að ég átti að spila 11-manna leik á Wembley og það væru einhver „legend“ frá Englandi sem myndu stýra þessu,“ segir Pétur Karl en hann lék knattspyrnu með Keflavík upp í 2. flokk. „Við mættum snemma á þriðjudegi og fengum okkur morgunmat á Wembley, þar voru helstu aðilar kynntir til leiks og farið yfir byrjunarliðin. Þjálfarar voru Glen Hoddle, Tottenham-maður og síðar m.a. landsliðseinvaldur - hann var með rauða liðið og David James með hvíta liðið, þeir voru svo með sitt eigið aðstoðar- og sjúkrateymi.

James var litríkur og góður markvörður og lék m.a. með Hermanni Hreiðarssyni hjá Portsmouth. Þá

var dómarinn líka nokkuð þekktur en það var Lee Evans sem dæmdi leikinn. Umgjörðin á öllu var alveg svakalega flott og ég sá ekkert nema unga stráka í toppformi. Ég var orðinn ansi stressaður að byrja að sparka í bolta og spretta upp kantinn á Wembley á þessum tímapunkti.“

Gaman í búningsklefanum Pétur segir magnað að hafa upplifað þetta en leikmenn beggja liða voru svo sendir í búningsklefann þar sem þjálfarinn kynntist leikmönnum og skipulagði leikinn. „Við fengum okkar eigin búninga og alla þá þjónustu sem líklegast alvöru fótboltamenn fá að upplifa. Þar kynntist ég liðsfélögunum aðeins betur og kom í ljós að þeir voru flestir svipaðir gæjar og ég, gátu sparkað en ekki hlaupið mjög mikið. Flestir voru þarna í boðsferð og vildu bara hafa gaman, sem var léttir fyrir mig, en Glenn Hoddle heimtaði samt baráttu og sigur. Menn gengu svo úr búningsklefanum og út í göngin. Þaðan lá leiðin beint út á völl með svakalegum tilbrigðum, þar sem Champions League-lagið var spilað og

Glanni glæpur eftirminnilegur Það eru ekki margir sem fá tækifæri til að fara í fótspor Glanna glæps í Latabæ en það gerðist hjá Keflvíkingnum Burkna Birgissyni. Hann segir að það sé eitt það eftirminnilegasta sem gerðist hjá honum á síðasta ári. Burkni lumar á nokkrum jólahefðum en kappinn á afmæli á jóladag en þá hittast systkini hans og gera sér glaðan jóla- og afmælisdag.

Jólaminning? Það var alltaf hefð þegar ég var yngri að fjölskyldan mömmu megin fór til ömmu og afa í Kópavoginn þar sem þau bjuggu og jóladeginum eitt þar.

Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Eitt eftirmynnilegasta fyrir mig sjálfan var þátttaka mín hjá LK í uppsetningu á Glanna Glæp í Latabæ, ég hafði ekki verið með í 10 ár hjá leikfélaginu og ákvað með stuðningi frá fjölskyldunni að vera með og leika Glanna Glæp sjálfan. Einnig ferð til Parísar í maí sem var skemmtileg.

En skemmtilegar jólahefðir? Það hefur haldist að systkinin hittist ásamt börnum á jóladegi (sem fyrir mér er meira afmælisdagurinn minn.)

Ert þú mikið jólabarn? Svona þokkalega mikið, ekkert yfir strikið, ætti sennilega að vera

meira jólabarn þar sem ég á afmæli á sjálfum jóladegi (25. des). Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Engin sérstök regla á því, þetta árið fór það upp 14. des. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir - áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Fyrstu jólaminningar eru sennilega þegar ég var um 4-5 ára og taka upp pakka (myndir frá þeim tíma hjálpa mér að muna það).

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Það vill oft klárasta síðustu daga fyrir jól, oftast fyrir Þorláksmessu. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Tvíreykt hangikjöt.

Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Ætli það sé ekki málverk sem mamma og pabbi gáfu mér af Charlie Chaplin sem þau höfðu keypt á Kúbu, þau ferðuðust með það til Íslands, svo yfir til Los Angeles þar sem ég bjó og þau voru ein jól hjá mér þar þar sem ég fékk verkið afhent. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Lagið: ‘Í desember’ með Stefáni Hilmarssyni. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Kerti og spil. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Lord of the Ring, Home Alone.

Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Hef varið nokkrum jólum erlendis og þykir það alveg skemmtileg tilbreytni. Væri alveg til að vera aftur í sól aftur um jól. Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Er ekki búinn að ákveða hvað verður í matinn, hef ekki verið með neinar sérstakar hefðir, finnst gaman að breyta til. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Er það ekki það klassíska, að vera duglegur að hreyfa sig og rækta samband með vinum og ættingjum?


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 85

Keflvíkingurinn þriðji frá vinstri í neðri röð. Heilsað upp á þjálfarann, Glen Hoddle.

F.v.: Faðir Péturs, Ingólfur, splæsti í „selfí“ með Hoddle og David James.

Gleðileg jól Rauða liðið í búningsklefanum ásamt Glen Hoddle.

menn klappaðir inn á miðjan völl af örfáum áhorfendum. Svo var stillt sér upp við enska þjóðsönginn og menn tókust svo í hendur. Um leið og flautað var til leiks voru allir bara skellihlæjandi og skælbrosandi enda menn mættir á Wembley að spila fótbolta á þriðjudegi í góðum aðstæðum. Mér tókst á að tóra 40 mínútur á vellinum en leikurinn var 60 mínútur í heildina. Menn settu allt í þetta, rennitæklingar, gul spjöld, vítaspyrna og fullt af mörkum með tilheyrandi fögnuði. Mínu liði (rauða liðinu) tókst að sigra 8-3 en leikurinn var nokkuð jafn framan af. David James, þjálfari hjá hvíta liðinu, var ekki par sáttur með þessi úrslit og ég sagði við hann eftir leik ‘Takk fyrir

leikinn’ á góðri íslensku en hann þóttist ekki skilja mig, tók bara í höndina og hristi hausinn. Ég vissi samt að hann kunni íslensku því pabbi hafði rætt við hann á íslensku fyrir leikinn, ætli að hann hafi ekki bara verið tapsár. Kannski mikilvægast af öllu er samt að menn gengu allir heilir af velli og þaðan svo upp Wembleytröppurnar. Þar tóku menn á móti verðlaunum á þrepi sem svo margir hafa gengið og lyft upp hinum ýmsu bikurum. Leiðin lá svo inn í klefa þar sem sigrinum var fagnað innilega.“ Feðgarnir ákváðu að nýta Londonferðina betur. Þeir höfðu ekki fengið nóg af fótbolta. „Fyrst við vorum komnir til Englands, þá ákváðum við að skjótast yfir

til Liverpool og sáum svekkjandi jafntefli við Sunderland. Það er samt alltaf gaman að koma til Liverpool og horfa á alvöru fótboltamenn spila.“

Draumur að rætast „Að spila á svona leikvangi var alltaf draumurinn þegar maður var yngri, ég þori nú alveg að viðurkenna að sá draumur hafði fjarlægst mér nú þegar ég nálgast fertugsaldurinn og búinn að leggja skóna á hilluna fyrir löngu. Þetta var frábær upplifun sem við feðgarnir gleymum ekki í bráð - en það er aldrei of seint að spila fótbolta á stóra sviðinu,“ sagði Pétur Karl að lokum.

VIÐ ÓSKUM ÞÉR OG FJÖLSKYLDU ÞINNI GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI. Við þökkum kærlega fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða hjá okkur í Sandgerði, á Keflavíkurflugvelli og á nýja veitingastaðnum okkar í Smáralind. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári. Jólakveðja, Starfsfólk Hjá Höllu

www.hjahollu.is

/hjahollu

Mynd: ÖBÍ / Ruth Ásgeirsdóttir

Magnús Orri hlaut Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2025

Magnús Orri Arnarson er handhafi Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka árið 2025. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti honum verðlaunin við hátíðlega athöfn á Hótel Reykjavík Grand á dögunum. „Mamma, ég gat þetta,“ voru fyrstu orð Magnúsar Orra eftir að niðurstaða dómnefndar var kynnt. Sagðist hann bæði ánægður og þakklátur. Verðlaunin séu mikill heiður fyrir sig sem kvikmyndaframleiðanda og þáttagerðarmann. „Þetta sýnir að fatlað fólk getur gert hvað sem er,“ sagði Magnús Orri og hélt áfram: „Ég byrjaði í kvikmyndagerð árið 2009 eftir að ég keppti á mínum

fyrstu heimsleikum, Special Olympics. Ég fékk tækifæri til að gera kynningarmyndband um leikana og þannig byrjaði boltinn að rúlla. Ég er ofboðslega þakklátur fyrir öll þau tækifæri sem ég hef fengið. Takk fyrir fatlað fólk. Við getum gert allt sem við viljum.“ Magnús Orri hefur komið víða við, þótt hann sé rétt að byrja á sínu sviði. Nú síðast gaf hann út heimildarmyndina Sigur fyrir sjálfsmyndina þar sem keppendum á heimsleikum Special Olympics er fylgt eftir. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir var kynnir hátíðarinnar en hún fékk verðlaunin fyrir ári, ásamt þeim Sigfúsi Sveinbjörnssyni og Agnari Jóni Egilssyni. Eftirfarandi voru einnig tilnefnd til verðlaunanna og fengu viðurkenningu: Hákon Atli Bjarkason. Fyrir að vera frábær fyrirmynd og stuðla að inngildingu ungs fatlaðs íþróttafólks. Listvinnzlan. Fyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra Sigurður Hólmar Jóhannesson. Fyrir að lyfta grettistaki í málaflokki fatlaðra barna og barna með sjaldgæfa sjúkdóma.

Félag stjórnenda sendir félögum sínum og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.


86 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM með franskri vinkonu minni sem var líka módel og við höfðum það voða gaman. Svo hringir Einar Jónsson í mig frá Íslandi og segir að ég verði að fara á Langasand (Long Beach) og taka þátt í Miss International-keppninni. Hann sagði mér að leyfa bara einhverjum öðrum stelpum að nota tækifærin í París. Þetta var um það bil ári eftir að ég var kosin Ungfrú Ísland. Áður höfðu stúlkurnar alltaf farið í þessa keppni sama ár en núna var þetta breytt og við höfðum meiri tíma til að undirbúa okkur. Margar stúlkur fóru t.d. í söng og fleira til þess að venja sig við að koma fram áður en í stóru keppnina yrði komið. Mér hafði gengið mjög vel sem ljósmyndafyrirsæta og ég er þannig að ég reyni alltaf að gera allt eins vel og hægt er. Þetta er öðruvísi í dag. Núna segja sumar stúlkur bara: „Rektu mig, ég er hvort sem er orðin fræg.“ Þær vilja verða frægar en þær vilja ekki hafa neitt fyrir því. Þetta er hörð vinna sem þarf að hafa fyrir. Það þýðir ekkert að vera að rífast við fólk, því þá ertu búin að missa kúnnann. Maður hefur ekki efni á því, hvar svo sem maður er, því þá færðu bara óorð á þig.“

Grúskað í gömlum tölublöðum

Jólablað Víkurfrétta 1992

Fegurst í heimi Guðrún Bjarnadóttir glæsileikinn holdi klædd

H

Stóra keppnin á Langasandi

ún er heimskona, á því er enginn vafi. Stórglæsileg er rétta orðið yfir Guðrúnu Bjarnadóttur, sem er fimmtug á þessu ári, en slær flestum öðrum konum við í unglegu og fersklegu útliti. Hún hefur kynnst því og býr í lúxusíbúð í París, auk þess sem hún á heimili í Genf og á Kanaríeyjum. Guðrún ólst upp í InnriNjarðvík og var þá sem hún kallar ósköp venjulegur krakki og unglingur. Henni gekk vel í skóla, hún lagði stund á leiklist og sótti kirkju með foreldrum sínum. Í dag er hún ekkja, á uppkominn son sem er á leið í háskólanám, og hún vinnur m.a. að störfum fyrir krabbameinssjúka. Guðrún var á heimaslóðum í sumar, þegar hún var viðstödd 50 ára afmæli Njarðvíkurbæjar og afhenti þar Forseta Íslands merki bæjarins að gjöf. Þrátt fyrir að Guðrún sé lítið fyrir að tala við fjölmiðla samþykkti hún að veita okkur viðtal og segja okkur frá lífi sínu sem fegurðardrottning, fyrirsæta, eiginkona og móðir. Byrjaði í tískuskóla Guðrún fór fyrst að koma fram þegar hún gerðist félagi í leikfélagi á Suðurnesjum og tók þátt í fjölda leikrita. Um nítján ára aldur dreif hún sig hins vegar í tískuskóla Sigríðar Gunnarsdóttur og þar kom fyrst upp sú hugmynd að hún tæki þátt í Fegurðarsamkeppni Íslands. „Þetta var fyrsti tískuskólinn á Íslandi og Sigríður bað mig um að koma í keppnina. Ekki það að mig langaði svona að fara í fegurðarsamkeppnina, heldur var ég að hugsa um hvað það væri nú flott að fá svona fínar ferðir erlendis. Ég hugsaði bara um ferðirnar, ekkert um það hvort það væri gaman að vera labbandi um á sundbolum eða annað þess háttar. Enda hef ég aldrei haft gaman af því að koma fram í sundbol, ekki heldur að láta mynda mig svoleiðis eftir að ég varð fyrirsæta. Ég er með svo ljósa húð og brenn

auðveldlega, svo ég hef engan áhuga á því að standa á baðströnd í átta tíma á dag.“ Guðrún sigraði í keppninni um Ungfrú Ísland og í kjölfarið fylgdi keppnin um Ungfrú Norðurlönd og Ungfrú Evrópu. Guðrún varð þar í einu af fjórum efstu sætunum og hlaut

Úrklippur úr Fax frá árinu 19 a 63

vikuferð til Parísar að launum. Þarna var tækifærið komið og Guðrún nýtti sér það til fullnustu. „Ég var auðvitað mjög ánægð að fá þarna viku í París með uppihaldi og öllu, þú getur rétt ímyndað þér. Ég dreif mig og talaði við konu sem var með umboðsskrifstofu í París og byrjaði að vinna þar. Ég var voðalega heppin, en þetta var ég allt búin að ákveða sjálf fyrir löngu. Ég ætlaði mér að gera þetta! Það er ekki eins og fólk banki upp á hjá manni og segi: „Þú ert svo sæt, viltu verða módel?“ Svoleiðis gerist þetta ekki. Þetta er hörð samkeppni og allir skilja það og þú getur þótt sæt á Íslandi en þegar út er komið eru kannski fjörutíu stúlkur sem eru miklu fallegri en þú að bítast um sama starfið. Samkeppnin er voðalega hörð og þetta er grimm vinna, það þarf grimmd til að ná áfram í þessu fagi. Því miður heldur margt fólk enn þá að þetta sé eitthvað lúxuslíf, en þetta er vinna eins og hvað annað.“

Hagaði sér eins og toppstjarna Guðrún fór á blað eitt og mætti þar þremur stúlkum sem allar voru með myndamöppu og biðu á undan henni. Sjálf átti Guðrún engar myndir í möppu svo hún greip til annarra ráða! „Það var annað hvort að duga eða drepast. Konan á skrifstofunni sagði: „Myndirnar þínar, takk!“ og þá svaraði ég: „Óh, ég er orðin svo leið á myndunum mínum, ég er ekki einu sinni með passamyndina mína.“ Auðvitað gat ég ekki farið að segja að ég ætti engar myndir! Ég hagaði mér því eins og ég væri toppstjarna frá Bandaríkjunum og þau tóku því. Seinna sagði ég vin-

... það er ekki eins og fólk banki upp á hjá manni og segi: „Þú ert svo svo sæt, viltu verða módel?“ Svoleiðis gerist þetta ekki. Þetta er hörð samkeppni ... konu minni sem var toppmódel og síðar einkaljósmyndari Brigitte Bardot frá þessu og hún fór að skellihlæja og spurði svo hvernig í ósköpunum ég hefði þorað þessu! Þá svaraði ég: „Ég hafði viku til umráða í París, það var ekki um annað að ræða!“ Ég hef alltaf látið svona, til dæmis einu sinni í Bandaríkjunum var ég að sækja um starf og maðurinn sagði að ég væri ekki hans týpa. Þá horfði ég beint á hann og sagði: „Ég er guðdómleg, ef ég er ekki þín týpa, hver er það þá?“ Viti menn, hann bókaði mig um allt. Svona er fólk, ef maður er öruggur með sig. Maður þarf ekki einu sinni að vera svo öruggur með sig, heldur láta þeim finnast þeir vera að missa af einhverju, að missa af því sem mun selja blaðið þeirra.“

Að selja sjálfan sig „Auðvitað er maður bara að selja, en þegar maður selur sjálfan sig þá má maður ekki taka sig of persónulega. Ég er ekki að selja sálu mína, ég er bara að selja útlit mitt. Útlitið er bara húsið, ég er ekki að selja það sem er fyrir innan gluggana.“ – Nú ert þú komin inn á Parísarmarkaðinn, hvað gerðist næst? „Ég tók mér íbúð á leigu

Þrátt fyrir að hugurinn lægi í fyrirsætustörfunum í París dreif Guðrún sig í keppnina á Langasandi. Hún segist hafa farið því ekki vildi hún svíkja loforð, auk þess sem pabbi hennar hafi skammað hana og sagt að hún yrði að klára það sem hún byrjaði. Aðstandendur keppninnar gengu meira að segja svo langt að hringja í vinkonu Guðrúnar og báðu hana um að reyna að hafa áhrif á hana. En Guðrún fór þrátt fyrir að þessar keppnir væru henni ekki að skapi. Og kannski var það þessi yfirvegun hennar sem gerði útslagið því heim kom hún með kórónuna. „Mig langaði ekkert til þess að gera þetta, og ég held að þess vegna hafi ég verið svona afslöppuð. Og mig langaði alls ekkert til þess að vinna, ég hugsaði ekki einu sinni út í það. En ég sigraði og því fylgdu að sjálfsögðu gjafir og annað þess háttar. Nema í þetta skiptið kom svolítið sérstakt atvik upp. Þannig var að fyrir keppnina voru allar stúlkurnar látnar skrifa upp á samning um að ferðast fyrir eitthvað ákveðið fyrirtæki bæru þær sigur úr býtum. Oft var þetta stórfyrirtæki á borð við Coca-Cola eða kannski einhverjir sundbolaframleiðendur og þessi fyrirtæki styrktu sigurvegarann til ferða um heiminn í heilt ár þeim til kynningar. Nema hvað, að það gleymdist að láta okkur skrifa undir þennan samning! Þegar að krýningunni var komið kemur formaður keppninnar og borgarstjórinn og þeir segja að nú eigi ég að skrifa undir. Þeim datt náttúrulega ekki í hug að ég, lítil stelpa, myndi fatta þetta og ég spurði: „Þarf ég að vinna fyrir þessum verðlaunapeningum, eða er þetta gjöf? Ef þetta er gjöf þá er það í lagi, þá skrifa ég ekki undir. Annars máttu láta stúlku númer tvö fá verðlaunin og hún skrifar undir og ferðast með ykkur.“ Þeir sögðu síðar að þeir hefðu varla trúað því hvað ég var hörð.“

Ekki fegurðardrottningartýpa – Þér hefur sem sagt ekki fundist þetta neitt spennandi? „Nei, ekki fyrir svona týpu eins og mig. Ég leit aldrei á mig sem neina fegurðardrottningu. Ég leit aldrei á mig sem einhverja fegurðardrottningartýpu, eða sexy Marilyn Monroe-týpu, ég


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 87 hugsaði bara aldrei út í svoleiðis. Mig langaði bara að ferðast, en þetta langaði mig ekki út í. Ef ég hefði skrifað undir hefði ég verið á flakki um heiminn í því að opna fyrirtæki og vera í veislum. Ef að ég hefði ekki verið byrjuð að starfa sem módel hefði málið kannski litið öðruvísi út. En ég var auðvitað voðalega heppin að það skyldi gleymast að láta skrifa undir!“

Í París og New York Guðrún sneri aftur til Parísar og hélt áfram að vinna sem fyrirsæta, nú með titilinn Miss International í farteskinu. Næstu þrjú árin skipti hún árinu á milli heimsborganna New York og Parísar. En hún fann sig ekki eins vel í Bandaríkjunum og í Evrópu þar sem fleiri ferðalög voru í boði, á móti mikilli inniveru á stofum í New York. En skyldi Ísland ekki hafa verið í huga hennar á þessum tíma? „Mér finnst í dag, og fannst þá, alveg yndislegt að búa á Íslandi, en bara í þrjá mánuði á ári. Hér er of kalt fyrir mig.“ – Hafðirðu alltaf ætlað þér að búa erlendis? „Já, og þess vegna fannst mér ekkert merkilegt við þessa hluti sem ég var að gera. Þetta hafði ég alltaf ætlað mér, ekki það að verða fegurðardrottning, hvað þá alheimsfegurðardrottning, það ætlaði ég aldrei. En sá góði árangur sem ég náði í fyrirsætustörfunum var nokkuð sem ég ætlaði mér frá upphafi.“

Var ekki í giftingarhugleiðingum Hvað með karlmenn? Gat fegursta kona heims nokkurn tímann fengið frið fyrir karlmönnum? Skyldi hún ekki hafa fengið tugi bónorða á viku? Tvítug, gullfalleg fyrirsæta í París, var hún ekkert á leið í hnapphelduna? „Nei, ég var ekki í neinum giftingarhugleiðingum. Mig langaði aldrei að vera gift, þó svo að ég gifti mig svo síðar. Það er gífurlega erfitt að vera gift og starfa sem ljósmyndafyrirsæta. Ég hætti að vísu fyrirsætustörfunum í smá tíma þegar ég átti Sigmar og ætlaði að breyta mínu lífi. En það slitnaði upp úr sambandinu við föður Sigmars, sem er franskur, og það varð til þess að ég ákvað að halda módelstörfunum áfram. Þetta var starf sem virtist henta mér vel og ég breytti bara um aðferð við vinnuna. Ég fór að vinna fimm mánuði á ári, á haustin og á vorin. Þarna var ég orðin það þekkt að ég gat gert það sem ég vildi. Ég var mikið á Íslandi og gifti mig svo seinna ítölskum manni og fór þá að búa á þremur stöðum, á Spáni, í Evrópu og París. Sigmar var mikið hjá foreldrum mínum, en alltaf á sumrin hjá mér. Hann var á Íslandi á veturna því ég vildi að hann næði algerlega tökum á íslenskunni. Hefði hann búið úti hefði hann orðið að algerlega frönsku barni. Tíu ára gamall kom hann út til mín alfarið. Það er góður aldur til að koma, upp á að læra tungumálið.“

Ekki ein af þessum kerlingum sem segja allan sannleikann Guðrún er ekki mikið fyrir að opinbera sitt einkalíf, það finnur maður strax. En hún er ófeimin við að segja frá því sem henni þykir mikilvægt í sínu lífi, en þegar hún er spurð út í framtíðina er hún óræð. „Ég er ekki ein af þessum kerlingum sem segja allan sannleikann. Ég er ekkja í dag, ég missti manninn minn úr krabbameini og ég bý enn þá erlendis. Ég hef í rauninni ekki tekið neinar ákvarðanir um hvað ég ætla að gera, ég er ekkert að flýta mér. Við bjuggum saman í tólf ár, ég og Bastiano Bergese. Ég varð ekkja fyrir tveimur árum og ég hafði hætt módelstörfum algerlega þegar ég gifti mig. Síðan þá eru fjórtán ár. Það varð að velja og hafna, því annað hvort hefði alltaf setið á hakanum. Við lifðum samt ekki venjulegu fjölskyldulífi. Sonur minn var í heimavistarskóla í Frakklandi og við hjónin bjuggum í þremur löndum. Maðurinn minn vann við kauphöllina, svo

Guðrún ásamt vinkonum sínum í saumaklúbbi. F.v. Ásdís Þorsteinsdóttir, Ólína Guðmundsdóttir, Guðrún, Þorbjörg Hermannsdóttir og Þórdís Þormóðsdóttir.

í raun og veru skipti það ekki máli í hvaða landi við vorum, hann þurfti bara síma og faxtæki. Ég fylgdi honum þangað sem hann fór.“ – Hvernig kunnirðu við það? „Ég get sagt þér það að þessi viðskipti áttu nú ekki við mitt taugakerfi. Ég lærði mikið og hann sagði að ég gæti þetta alveg ein, því ég kynni allt og þekkti alla, enginn gæti platað mig. En ég gæti ekki verið í þessu, fólk þarf að hafa sérstakt skap og taugar til að geta staðið í svona viðskiptum. Það er til mikið af mönnum sem fá hreinlega slag þegar stóra tapið verður! Það þarf að hafa stáltaugar. En okkur gekk vel og ég var hans hægri hönd í þessum málum.“

Guðrún Bja rn VF-myndir adóttir 1992. : pket

Ennþá á heimshornaflakki Bastiano lagði grunninn að stofnun Krabbameinsfélags á Spáni og þar starfar Guðrún í dag. Hún heldur sig þó úr sviðsljósinu og lætur öðrum eftir forstöðustörfin. Aðspurð segist hún þó líka hafa tíma til þess að „gera eitthvað skemmtilegt“. – Getum við sagt að þú lifir rólegu lífi í dag? „Já, en ég veit ekki alveg hvernig þetta verður. Ég var að hugsa um að fara út í innanhússarkitektinn, en ég hef enga ákvörðun tekið.“ – Þú ert samt ennþá á heimshornaflakki? „Já, og ég hef verið frá því ég var tvítug. Ég vinn smávegis, af því að ég er tilneydd, svo maður geti haldið því sem maður hefur. En það skiptir ekki máli hvar maður er í dag, maður notar bara símann. Það getur vel verið að ég fari út í eitthvað sérstakt, en ég hef ekki tekið neinar ákvarðanir um það, maður á aldrei að flýta sér með neitt.“

Ekki fara út í fyrirsætustörf of ung – Hvað finnst þér um fyrirsætustörfin í dag, getur þú ráðlagt þeim sem áhuga hafa á slíkum störfum eitthvað? „Ég myndi bara ráðleggja foreldrum að láta börnin sín ekki fara of ung út í eitt eða neitt. Það eru svo margar hættur í dag og æskuna fær maður aldrei aftur. Mér finnst að þau þurfi að vera nálægt foreldrum, vinum og skólafélögum alla vega til átján, nítján ára aldurs. Að fara að hugsa út í þetta fjórtán, fimmtán ára, finnst mér alveg agalegt! Það er orðið svolítið sorglegt að horfa upp á þetta í dag, þegar stúlkurnar eru teknar, málaðar og greiddar og svo látnar standa eins og litlar dúkkur. Þær geta ekkert sjálfar lengur, kunna ekkert sjálfar og þegar þær eru orðnar tuttugu og fimm, sex ára gamlar eru þær bara búnar! Í dag geta stúlkur ekki gert þetta að alvinnu sinni eins og það var á mínum tíma.“ – Er orðin meiri samkeppni og harka í þessu núna? „Ég myndi kannski ekki segja það, en stúlkurnar eru orðnar svo miklu yngri og það er hættulegt, því þetta er harður „bransi“. Það er allt í lagi að fara út í þetta, ef maður er tilbúinn til þess að finna sér eitthvað annað um 25–26 ára aldur. Lengur er ekki hægt að gera þetta að atvinnu. Það verður að undirbúa sig undir eitthvað

„Ég er ekki að selja sálu mína, ég er bara að selja útlit mitt. Útlitið er bara húsið, ég er ekki að selja það sem er fyrir innan gluggana.“ annað. Auðvitað má búast við því að stúlkur hafi áhuga á einhverju sem tengist fyrirsætustörfunum, hönnun, snyrtingu, leiklist eða sönglist til dæmis.“

Heilsan er fegurð En hvernig fer Guðrún að því að líta svona stórkostlega vel út? „Ég hef alltaf hugsað um heilsuna, því heilsan er fegurð. Matarræði og svefn skipta miklu máli. Auk þess fer ég alltaf í læknisskoðun á hverju ári og læt taka blóðprufur. Maður getur ekki skipt um líkama, það er ekki nóg að hugsa um fegurð að útliti, því fegurð kemur líka innan frá. Fólk sem hefur farið illa með sig, kannski eyðilagt í sér nýrun, það sér á því. Auðvitað sést það á útlitinu. Mér finnst það mjög áríðandi, fyrst og fremst að hugsa um heilsuna. Ég held að yngri kynslóðin geri mun meira af því í dag en eldri kynslóðin. Heilbrigði er undirstaða alls.“ Guðrún Bjarnadóttir er lýsandi dæmi um heilbrigði. Hún geislar af lífsgleði og hreysti. Hún er ein af þessum manneskjum sem öllum Íslendingum finnst þeir eiga eitthvað í. Hún segist enn þá vera Njarðvíkingur í eðli sínu og hún kemur reglulega heim. Samband hennar við fjölskylduna er náið þó að fjarlægðirnar séu miklar. Foreldrar hennar heimsækja hana og faðir hennar hefur meira að segja notað tækifærið og stundað listnám þegar til Parísar er komið. Hún hittir enn þá gömlu vinkonurnar úr gaggó þegar hún kemur heim, og er sjálfri sér samkvæm. Sonur hennar býr í næsta nágrenni við hana í París, en hann kemur til með að búa í bæði Tokyo og New York í tengslum við nám sitt. Hvað framtíðin ber í skauti sér er óráðið, Guðrún á enn þá heimili í þremur löndum og samkvæmt nýrri íslenskri bók er hún ein af auðugustu íslensku konunum. Hennar mesti fjársjóður hlýtur þó ávallt að verða hennar heilsteypti persónuleiki, heilbrigður lífsstíll og íslensk fegurð.


88 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Samið um byggingarrétt á Ásbrú Kadeco hefur skrifað undir samkomulag við Björtuvík ehf. um byggingarrétt og deiliskipulagsgerð á svokölluðum Spítalareit. Reiturinn er nefndur eftir gamla herspítalanum á Ásbrú og er tilgreindur í uppbyggingarsamningi Kadeco, íslenska ríkisins og Reykjanesbæjar frá október 2024 um uppbyggingu allt að 1.000 nýrra íbúða á Ásbrú ásamt uppbyggingu innviða. Á Spítalareit verða byggðar að lágmarki 200 nýjar íbúðir í randbyggð innan um eldri byggingar sem munu standa áfram, sem eru gamli herspítalinn á Ásbrú og Andrews Theatre. Tillaga að deiliskipulagi hefur verið til kynningar að undanförnu. Höfundar deiliskipulagsins eru Sen & Son arkitektar og Hille Melbye arkitekter í Noregi. Byggðar verða fjölbreyttar íbúðir á reitnum af ólíkri stærð og gerð og mikið er lagt upp úr vandaðri hönnun og fjölbreytni í húsagerðum og þakformum. Á svæðinu verða blágrænar ofanvatnslausnir og vönduð leiksvæði í bland við heilsustíg Ásbrúar sem liggur um svæðið.

Óttaðist höglin í rjúpunum Það er mikið af jólahefðum hjá Sigrúnu Gróu Magnúsdóttur en hún er tónlistarkennari í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Ein af þeim er t.d. að fara með pabba gamla að kaupa jólatré hjá Kiwanis. Önnur rík hefð er samvera hjá fjölskyldunni þegar kveikt er á kertunum á aðventukransinum. Þá er sunginn aðventusöngurinn í kósý birtu og rólegheitum. Svo á Sigrún Gróa sérstaka minningu frá því þegar hún var lítil að borða rjúpu á aðfangadag.

Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!

Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið var mjög viðburðaríkt, ég fór t.d. á alls kyns tónleika, horfði á marga fótboltaleiki, fór í þó nokkrar utanlandsferðir og átti margar góðar samverustundir með stórfjölskyldunni og vinum. Upp úr stendur ferð til London núna í lok ágúst þar sem fjölskyldan fór á tónleika með Coldplay. Alveg mögnuð upplifun! Ert þú mikið jólabarn? Já ég hef alltaf verið mikið jólabarn, en börnin mín eru eiginlega að taka við af mér, hér er byrjað að hlusta á jólalögin og telja niður til jóla fljótlega eftir að skólinn byrjar á haustin. Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Lengi vel var það sett upp 22. eða 23. des. en síðustu ár höfum við flýtt þessu aðeins og tekst það

oftast svona viku fyrir jól eða fljótlega eftir að það er keypt. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir - áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Fyrstu jólin sem ég man eftir eru í kringum 5 eða 6 ára aldurinn. Það voru rjúpur í matinn á aðfangadag og mamma sagði okkur að borða rólega og passa okkur því það gæti verið hagl í kjötinu. Ég fölnaði skyndilega og gat ekki borðað meir, held að ég hafi haldið að ég myndi deyja ef ég fengi hagl. Það tók nokkur ár að venjast rjúpunum. En skemmtilegar jólahefðir? Það er sko nóg af jólahefðum hjá okkur. Við systkinin ásamt fjölskyldum förum t.d. alltaf með pabba að kaupa jólatré hjá Kiwanis og höfum svo gaman á eftir. Svo er ómissandi að fá afganga af kalkúninum hjá tengdó í hádeginu á jóladag. En uppáhalds jólahefðin okkar er þegar við fjölskyldan kveikjum á kertunum á aðven-

tukransinum. Þá gefum við okkur tíma og syngjum Aðventusönginn og spjöllum og hlæjum í kósý birtu og rólegheitum. Það verða allir að vera heima þannig að stundum þurfum við að fresta þessu um einn eða tvo daga. Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Úff, ég hef mjög oft verið að vinna í þessu eftir að skólarnir fara í jólafrí, er svolítið mikið á haus fram að því í tónlistarskólanum. En síðustu ár höfum við verið að nýta afsláttardagana í nóvember. Það er nú mikið til dótturinni að þakka. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Malt og appelsín og smákökur, sem ég er farin að kaupa tilbúnar í búðunum frekar en að baka sjálf. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Hmm… ansi margar gjafir sem eru eftirminnilegar, en mér þykir

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 89

Sameind í Reykjanesbæ óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

mjög vænt um fyrstu gjöfina sem við hjónin fengum frá dóttur okkar, frumburðinum, árið 2003. En það var lófafarið hennar á leir, sem Óla, dagmamman hennar, bjó til. Já það var mjög falleg gjöf. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Nú er Gunna á nýju skónum með Hauki Morthens, það markaði yfirleitt byrjunina á jólahátíðinni í gamla daga, þar sem pabbi setti alltaf Hauk á fóninn upp úr kl.18. Annars elska ég lagið Það snjóar með Sigga Guðmunds.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum bestu jóla - og nýárskveðjur, þökkum fyrir viðskiptin á árinu

Við erum staðsett í Heilsugæslunni Höfða, Aðalgötu 60. Opið kl. 8-12 mánudaga til föstudaga Verið velkomin.

NÝTT EFNI UM HÁTÍÐIRNAR

YOUTUBE-RÁS VÍKURFRÉTTA OG VF.IS

Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Christmas Vacation er náttúrulega algjör klassík, en líka The Grinch með Jim Carrey, hún er í uppáhaldi. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Ég held að París yrði fyrir valinu, uppáhalds borgin mín, og allir í fjölskyldunni þyrftu að vera með. Annars vil ég bara vera heima hjá mér um jólin, en það er samt aldrei að vita. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Já ég er búin að óska þess að fá lítinn spegil með stækkunar fítus svo ég geti plokkað augabrúnirnar, maður er nú alveg að detta í fimmtugt. Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Rjúpur eru sko uppáhalds jólamaturinn minn en síðan við fórum að halda jólin heima hjá okkur hefur verið hamborgarhryggur í matinn. Ég held við séum ekki að fara að breyta neinu, ég er líka alveg að verða sérfræðingur í því. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Set mér yfirleitt ekki áramótaheit, nema kannski bara að halda áfram að hafa gaman af lífinu. En já, ég ætla í fyrsta sinn að fara til útlanda í skíðaferð með góðum vinahópi, hef ekki farið á skíði síðan ég var í framhaldsskóla. Það verður án efa ógleymanleg ferð. Ef allt gengur vel er aldrei að vita nema að við tökum börnin okkar með í næstu ferð.

JÓN AXELSSON ræðir við Pál Ketilsson um vasandi starfsemi.

SUÐURNESJABÆR sendir starfsfólki, íbúum, viðskiptavinum og velunnurum hugheilar jóla- og nýárskveðjur.


90 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Það hefur verið hefð hjá fjölskyldunni allt frá því að Arndís, dóttir, Ingvars að taka mynd þegar jólastjarnan er sett á jólatré. Arndís var 2-3 ára þegar stjarnan var sett upp í fyrsta skiptið. „Annað hvort hélt ég á henni eða mamma hennar og svo bættust strákarnir við, Andri og Alexander og svo Marel sonur Arndísar. Það eru til myndir af öllum þessum skiptum,“ segir Ingvar um þessa skemmtilegu hefð.

Keflvíkingurinn á Austurlandi:

Nýtt starf, nýjar áskoranir Árið 2024 varð Ingvari Georgs eftirminnilegt og á köflum óvenjulegt — en um leið fullt af spennandi breytingum. Eftir tæp 27 ár hjá Brunavörnum Suðurnesja tók hann stórt skref og réði sig sem slökkviliðsstjóra hjá slökkviliði Fjarðabyggðar, þar sem nýtt umhverfi, nýjar starfsstöðvar og stór hópur starfsfólks tók við. Á sama tíma stækkaði fjölskyldan um þrjú barnabörn, ferðir um náttúruperlur Austurlands urðu fastur liður og ógleymanlegar Arsenal-ferðir til London settu sinn svip á árið. Í aðdraganda jóla rifjar hann upp hefðirnar, minningarnar og það sem honum þykir ómissandi — gleðina í andlitum barnanna. Hvernig var árið 2024 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið var mjög skrítið að mörgu leyti en mjög skemmtilegt með fullt af nýjum áskorunum. Eftir að hafa starfað hjá Brunavörnum Suðurnesja í tæp 27 ár lét ég af störfum þar og réði mig sem slökkviliðsstjóra hjá slökkviliði Fjarðabyggðar sem er eitt af stærstu slökkviliðum

landsins með um 80 starfsmenn og konur í vinnu á 6 starfsstöðvum. Það voru fáir sem héldu að það væri hægt að taka mig úr Keflavík en það verður aldrei hægt að taka Keflvíkinginn úr mér. Svo fengum við Ása 3 barnabörn í hennar legg, tvo stráka og eina dömu; það er alltaf gleðiefni þegar það bætist í barnaskarann. Ég hef notað árið til þess að ferðast mikið um Aust-

urland sem er algjör náttúruperla, það er endalaust af fallegum stöðum sem hægt er að skoða, Austfirðingar segja að ég sé búinn að ferðast meira um firðina en þeir sjálfir. Veðrið þar er eitthvað annað og ég þurfti ekki einu sinni að huga að því að fara til sólarlanda, hér var þetta eins og á suðrænum slóðum. Svo hafa verið nokkrar ferðir til London á Arsenal-leiki með mínum bestu og eru það ógleymanlegar ferðir og verða fleiri í framtíðinni. Það var litið um sumarfrí en ég fékk margar góðar heimsóknir austur frá vinum og vandamönnum sem var mjög skemmtilegt. Einnig voru tímamót hjá okkur Sigurði Lárusi með Slökkviliðsminjasafnið þar sem því var lokað endalega eftir að hafa verið opið í 11 ár; það voru frekar döpur endalok á frábæru safni en nú hefur mikið af munum þaðan verið fargað, geymdir úti við eða í gömlum og jafnvel ónýtum geymslum og liggja undir skemmdum. Ert þú mikið jólabarn? Já, frekar svona. Mér finnst þetta mjög skemmtilegur tími og sérstaklega ef það er snjór, það er miklu jólalegra. Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Í barnæsku þá var það alltaf á Þorláksmessu en svo breyttist það þegar maður fór að búa sjálfur, þá fór þetta að gerast miklu fyrr en þar sem ég hef verið í vaktavinnu síðan 1989 þá var það misjafnt hvenær það fór upp. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir - áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar Í minningunni þá var það allt barnaefnið/teiknimyndirnar sem voru á aðfangadag, ég hafði mjög gaman af þeim. Svo var það líka að ég vildi aldrei vera í sparifötum á aðfangadag, var bara í nærbol einum fata og var það alveg til 4-5 ára aldurs en þá gaf ég mig fyrst og fór þá í sparifötin. Það er mjög skrítið að sjá myndir af þessu í dag.

En eru skemmtilegar jólahefðir? Já, börnin setja alltaf stjörnuna á jólatréð á Þorláksmessu og gera það saman, fyrst var það bara Arndís og ég þurfti að halda á henni en síðan bættust við Andri, Alexander og nú hefur litli afastrákurinn Marel bæst í hópinn. Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Úff er mjög lélegur í jólagjöfum og eitt árið kláraði ég síðustu jólagjöfina 5 mínútum fyrir lokun. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Að sjá gleðina sem skín úr andliti barnanna. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Þegar ég var unglingur og fékk Casio-tölvuúr frá mömmu og pabba, það spilaði lög þegar vekjaraklukkan hringdi. Svo eru það allar gjafirnar sem börnin mín hafa gefið mér í gegnum tíðina, bæði stórar sem smáar. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Þau eru mörg, ég elska jólalög og byrja að spila þau mjög snemma: Snjókorn falla, Ef líða fer að jólum, Ekki um jólin, Ef ég nenni, White christmas, Jólin eru að koma og mörg fleiri. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Home alone, Die Hard, Miracle on 34th street svo þarf ég að fara að klára Harry Potter myndirnar en ég hef byrjað á seríunni nokkrum sinnum fyrir jólin en aldrei náð að klára hana. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Ég myndi vilja vera í London yfir jól og áramót og taka inn alla jólastemmninguna sem er þar ásamt því að fara á alla leiki

í enska boltanum með Arsenal og fara í Ally Pally og horfa á píluna þar. Það yrðu geggjuð jól og áramót. Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Bara það hefðbundna að það verði rólegt hjá öllum viðbragðsaðilum, starfið er mjög oft krefjandi en það er alltaf erfiðara þegar slæmir atburðir gerast um jólin. Hvað verður í jólamatnum hjá þér á aðfangadagskvöld? Það er hefð sem kemur frá mömmu sem hún lærði í húsmæðraskólanum þegar hún var ung en það er „falskur héri“ mömmu style. svolítið sérstakt en þetta er búið að smitast niður til barna, barnabarna og barnabarnabarna mömmu. Svo geri ég að sjálfsögðu brúnaðar kartöflur eins og mamma kenndi mér að gera þær. Eru hefðir í mat? Falskur héri og grjónagrautur með möndlu í eftirrétt (möndlugjöf ). Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Er stutt að plana langt fram í tímann en það sem er búið að plana eru tvær ferðir á Emirates og svo verður eitthvað sniðugt gert í sumarfríinu; ég ætla að fá mér fjórhjól og/eða bát og halda áfram að skoða Austfirði.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 91

Erla segir að mig langi í lampa Sveinn Ólafur Magnússon, kennari í Myllubakkaskóla, fagnaði fimmtugsafmæli á árinu og gerði það með ýmsum hætti. Hann er kvæntur Erlu Guðmundsdóttur, sóknarpresti Keflavíkurkirkju og þau búa nánast í næsta húsi. Þau halda í jólahefðir og eru dugleg að sækja kirkju og Sveinn hefur boðið frúnni ráðgjöf í jólagjafainnkaupum sem hann segir lítið nýtta. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? Árið hefur verið mér farsælt. Ég varð 50 ára í sumar og hélt nokkrar veislur af því tilefni. Vinir mínir eru enn að fagna mér með óvæntum 50 ára glaðningi, síðast núna á aðventunni. Við fórum nokkrar ferðir yfir hafið með mörgum vinum. Fjölskyldan varð ríkari þegar lítill frændi, Guðjón Óli, fæddist síðsumars. Margir halda reyndar að hann sé afabarnið mitt. Svona er að vera fimmtugur. Ert þú mikið jólabarn? Já, við fjölskyldan gerum mikið úr aðventu og jólahátíð og viljum kalla fram jólaanda á heimilið svo börnin finni það sérstaka sem fylgir þessari árstíð. Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Jólatréð er skreytt þegar örfáir dagar eru í aðfangadag. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Einstök jólaminning er þegar við Erla urðum foreldrar kl. 19:09 á aðfangadagskvöld 2002 í Danmörku. Önnur eftirminnileg jól voru þegar við Erla vorum nýflutt til Kaupmannahafnar. Jólagjafirnar týndust í sendingu, maturinn misheppnaðist og við enduðum svöng á að horfa á þátt í danska ríkissjónvarpinu sem fjallaði um kosningabaráttu Guðrúnar Pétursdóttur til forsetakosninga á Íslandi 1998. En eru skemmtilegar jólahefðir? Okkur hjónunum finnst ánægjulegast að bjóða vinum og fjölskyldu heim á Brunnstíg í margvíslegan mat á aðventu. M.a. smörrebrödskvöld, hádegisskötu, möndlugraut og gjafir fyrir alla krakkana. Svo er alltaf gott að fara til mömmu og pabba á Þorláksmessu og fagna afmæli föður míns. Sterkasta hefðin síðustu 23 ár er sú að við hjónin vöknum kl. 06 á aðfangadagsmorgun, undirbúum afmæli frumburðarins sem byrjar með heitu súkkulaði kl. 11. Það þarf svo að vera búið að ganga frá áður en

Erla fer í vinnu. Jólamessurnar eru okkar sérstakar. Að fara saman í kirkju og með börnunum er okkar hefð. Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Konan mín klárar þær alltaf tímanlega. Ég veiti þó ráðgjöf, sem er sjaldan þegin. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Skata og hangikjöt. Ég sýð sjálfur skötu úti á palli fyrir vini mína. Erla hitar eplaskífur með hindberjasultu. Eftir uppvask fer hangikjötið í pott til að ná skötulykt í burtu. Síðan er eitthvað heilagt við kirkjuklukkur og Heims um ból þegar jólin ganga í garð. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Það er Guðsgjöfin hún Helga. Við Erla áttum engan pening til að kaupa jólagjöf handa hvort öðru árið sem hún fæddist. Vorum að undirbúa komu barns með öllu tilheyrandi. Ég gleymi ekki þegar Erla sagði: „Guð gefur okkur eitthvað gott.’ Helga átti að fæðast í lok janúar þannig að ekki var í plönum að koma með jólabarn. Næstbest er Kraftgallinn sem Erla gaf mér. Hún á það til að senda mig oft út að þvo glugga, hús, bíla og brasa. Þá er gott að eiga Kraftgalla.

E r e i tt hva ð á óskalistanum fyrir jólin í ár? Mig langar í bókina Helförina. Erla segir að mig langi í fallegan lampa. Hvað verður í jólamatnum hjá þér á aðfangadagskvöld? Svínahamborgarhryggur, ár eftir ár. Eru hefðir í mat? Við erum mjög fastheldin á matar- og eftirréttahefðir yfir jólahátíðina.

Hjónin á leið á tónleika.

Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég strengi aldrei heit en hugsa oft hvert ég vil stefna með fjölskyldu og vinum. Við Erla ætlum m.a. til Færeyja og Mauritius. Síðan ætlum við að ferma örverpið, þjálfa miðlunginn á bíl og útskrifa frumburð og tengdason úr háskólanámi.

Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? Það má vera þegar Skrámur skrifar jólasveininum. Ég meira að segja kann það utan að. Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Fjölskyldan horfir alltaf saman á Christmas Vacation og Home alone 1/2. Við feðgarnir horfum saman á Die hard. Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Ég gæti ekki hugsað mér annað en að vera heima um jólin og halda í hefðir með fjölskyldunni.

Skírn í nærfjölskyldunni. Presturinn aldrei langt undan.

Fjör í sumar með stór fjölskyldunni.

Stjórn og starfsfólk Dýralæknastofu Suðurnesja óskar viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða.


92 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Rósmarý og Thelma Hrund með hlaðvarpið Tvær úr Tungunum:

Óskum Suðurnesjamönnum öllum

gleðilegra jóla, árs og friðar

með þökk fyrir árið sem er að líða

Blái herinn sendir öllum Suðurnesjamönnum kærar jóla- og nýárskveðjur og þakkar stuðninginn í 30 ár.

„Viljum fyrst og fremst veita fólki gleði“ Í september ákváðu vinkonurnar Rósmarý og Thelma Hrund að láta sex ára gamlan draum verða að veruleika og stofna sitt eigið hlaðvarp. Úr varð Tvær úr Tungunum, létt og líflegt spjallhlaðvarp sem þær segja að snúist fyrst og fremst um að gleðja fólk og gefa því stutta pásu frá amstri dagsins. „Rósmarý kom í raun með þessa hugmynd aftur í ár eftir að pælingarnar um að halda úti hlaðvarpi höfðu legið í dvala í sirka sex ár,“ segir Thelma. „Tveimur vikum seinna var fyrsti þátturinn kominn í loftið,“ bætir Rósmarý við.

Tvær vinkonur í tveimur löndum Hlaðvarpið þeirra er frábrugðið mörgum öðrum að því leyti að þær búa ekki í sama landi. Rósmarý býr á Íslandi en Thelma í Danmörku. Þrátt fyrir fjarlægðirnar seg ja þær þetta ekki hafa verið hindrun heldur fyrst og fremst skemmtilega áskorun. „Við þurfum aðeins að skipuleggja okkur betur en það hefur bara gengið ótrúlega vel,“ segja þær og taka fram að tæknin geri þeim kleift að hittast „í loftinu“ þó að þær séu hvor í sínu landinu.

Nafnið úr æskuminningum

Kafað í sögu Bláa hersins um jólin á vf.is

Aðspurðar hvaðan nafnið Tvær úr Tungunum kemur, segja þær báðar að það sé tilkomið úr æskuminningu tengdri Halla og Ladda. „Við erum miklir aðdáendur Halla og Ladda og hlustuðum mikið á lagið Tvær úr Tungunum þegar við vorum börn,“ segir Thelma. „Þeir sem hlusta á þættina vita líka vel að nafnið er viðeigandi þar sem við tökum hlutunum ekki of alvarlega,“ bætir hún við.

Létt spjall og skemmtilegar umræður Þættirnir byggja að mestu á léttu og skemmtilegu spjalli vinkvenn-

anna, þar sem þær taka fyrir eitt ákveðið málefni í hverjum þætti. Þær hafa til dæmis fjallað um nágranna, misskilning og svindl – alltaf með húmorinn í fyrirrúmi. „ Allir þættirnir eru léttir og skemmtilegir, okkur langar að

gefa fólki tækifæri til að gleyma sér og fá pásu frá daglegu amstri,“ segir Rósmarý. „Eða hamstri, eins og Rósmarý er gjörn á að segja,“ skýtur Thelma inn hlæjandi.

Viðbrögðin fram úr björtustu vonum Rósmarý og Thelma segja viðbrögðin við þáttunum hafa farið langt fram úr væntingum. Þær fá reglulega skilaboð frá hlustendum og segja það líka gerast æ oftar að fólk stoppi þær á förnum vegi til að spjalla um hlaðvarpið. „Það gefur okkur mjög mikið að heyra hvað fólki finnst, við erum mjög þakklátar fyrir það,“ segir Rósmarý. „Við reynum líka að eiga í samræðum við hlustendur á samfélagsmiðlunum okkar, það skiptir miklu máli, bæði fyrir okkur og hlustendurna,“ segir Thelma.

Framhald í kortunum

R EYK J A N E S H Ö F N

Sendum starfsmönnum okkar, viðskiptavinum og bæjarbúum öllum okkar bestu jólakveðjur og óskum þeim farsældar á nýju ári.

Vinkonurnar segjast spenntar fyrir framhaldinu og eiga ýmislegt eftir óunnið í Tvær úr Tungunum. „Við höldum áfram að gefa út vikulega þætti og það er margt skemmtilegt fram undan,“ segir Thelma. „Við eigum von á nokkrum viðmælendum í þætti á næstunni, þið viljið ekki missa af því,“ segir Rósmarý að lokum.


Ert þú með hugmynd? • Fundaherbergi

• Samfélag

• Ráðgjöf

Eldey frumkvöðlasetur býður vinnuaðstöðu fyrir sprota sem vilja þróa hugmynd áfram í raunverulegt viðskiptatækifæri. Eldey frumkvöðlasetur Keilisbraut 773 — Ásbrú eldey@heklan.is

• Kaffistofa


a n n a t r o k a l ó j r S akna 94 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Dagmar Rós Skúladóttir á margar góðar minningar frá jólum og rifjar það upp þegar hún læddist um nótt til að sjá hvort jólasveinninn væri búinn að koma með eitthvað í skóinn. Hún saknar hefðarinnar að setjast niður á aðfangadagskvöldi að lesa jólakortin. Fjölskyldan átti gott sumarfrí og fór um landið til að njóta íslenskrar sveitasælu og náttúrunnar. Hvernig var árið 2025 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr? 2025 var virkilega ljúft og gott hjá okkur fjölskyldunni. Það voru stór tímamót hjá yngsta barninu þar sem það settist á skólabekk. Stór áfangi fyrir foreldrana líka að eiga ekkert barn í leikskóla lengur. Það sem stendur mest upp úr þegar ég horfi yfir síðastliðið ár er sumarfríið okkar fjölskyldunnar saman. Það einkenndist af ferðalögum um landið þar sem krakkarnir nutu þess að hlaupa um og leika sér í yndislegri sveitasælu og íslenskri náttúru. Ert þú mikið jólabarn? Já, ég myndi alveg segja að ég væri jólabarn. Jólin voru einn besti tíminn minn sem barn og ég legg mikið upp úr því að gefa börnunum mínum það sama og foreldrar mínir gáfu mér. Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili? Við Einar, unnusti minn, ólumst bæði upp með

lifandi jólatré og höfum haldið í sömu hefð. Jólatréð fer yfirleitt upp í kringum 20. desember en við vorum ögn villtari þetta árið og settum það upp viku fyrr. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir, áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar? Ég á erfitt með að átta mig á hversu gömul ég var á fyrstu jólunum sem ég man eftir en þau voru í æskuhúsinu mínu. Ætli ég hafi ekki verið um 7 ára, jólatréð var á efri hæðinni við hliðina á skorsteininum. Í mörg ár þegar sungið var „ég sá mömmu kyssa jólasvein“ sá ég alltaf fyrir mér jólasveininn kyssa mömmu við jólatréð okkar á efri hæðinni. Það er oft gaman að hugsa til baka og rifja upp þessar barnæsku minningar. Í ófá skipti læddist maður fram um nóttina til þess að kíkja hvort jólasveinninn væri búinn að setja í skóinn. Tilfinningin sem maður fékk í magann þegar maður sá móta fyrir einhverju ofan í skónum sínum í myrkrinu

Ef þú gætir varið jólunum hvar sem er í heiminum, hvar myndir þú vera og af hverju? Mörgum finnst æðislegt að vera erlendis á jólunum en ég er ein af þeim sem myndu alltaf velja að vera heima. Það er yndislegt að ferðast og við getum gert það alla aðra daga ársins en enginn staður í heiminum gæti fangað jólaandann jafn vel og akkúrat hér. var einstök og er það einstaklega gaman að upplifa þessa jólagleði aftur í gegnum börnin sín. En eru skemmtilegar jólahefðir? Við erum nokkuð hefðbundin þegar kemur að jólunum myndi ég segja. Krakkarnir fá alltaf að opna einn pakka fyrir matinn og við hlustum á kirkjuklukkurnar hringja inn jólin klukkan sex. Jólahefð sem mér þótti ofboðslega vænt um og gaman að þegar ég var yngri var hefð sem foreldrar mínir áttu. Á aðfangadagskvöldi, eftir að allir pakkarnir höfðu verið opnaðir og allt komið í ró, settust mamma og pabbi upp í sófa með jólakortin. Þau skiptust á að giska frá hverjum hvert og eitt jóla-

kort væri út frá skriftinni á umslaginu áður en kortin voru opnuð og lesin. Við Einar héldum í þessa hefð líka en með árunum fór jólakortum fækkandi og verð ég að segja að ég syrgi það nokkuð að jólakortin séu liðin tíð. Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar? Það er ofboðslega misjafnt. Stundum hef ég verið mjög tímanlega með gjafainnkaupin en ætli ég sé ekki yfirleitt að taka síðustu gjafirnar rétt fyrir Þorlák. Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum? Ætli það séu ekki sörurnar hennar mömmu. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið? Þær hafa verið margar fallegar gjafirnar í gegnum árin, þær sem krakkarnir búa til eru yfirleitt þær allra dýrmætustu. En ætli sú eftirminnilegasta sé ekki sú sem Einar gaf mér þegar ég var um 17 ára. Það fór alveg fram hjá mér þegar hann sagði mér að eina gjöfina ætti ég að opna í einrúmi, en ég opnaði hana fyrir framan alla fjölskylduna og elsku ömmu. Ég fer ekkert nánar út í innihaldið en sem 17 ára unglingstáta hafði ég sjaldan verið jafn vandræðaleg. Hvert er uppáhaldslagið þitt sem tengist jólunum? „Það snjóar’ er mitt uppáhalds jólalag.

Gleðilega hátíð FIT.IS

Hvaða kvikmynd er ómissandi um jólin? Hér áður fyrr horfðum við Einar alltaf á Lord of The Rings-myndirnar um jólin, það hefur minna farið fyrir því síðustu ár, en það er hefð sem við þurfum klárlega að taka upp aftur. The Holiday og The Christmas Carol eru hins vegar alltaf settar í tækið.

Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár? Ég get ekki sagt að ég sé með neinn eiginlegan óskalista. Jólin fyrir mér snúast um að gera jólin fyrir krakkana sem ánægjulegust, svo ætli það sé ekki efst á mínum lista, eins klisjukennt og það getur nú hljómað, að sjá gleðina í augum krakkanna yfir hátíðarnar. Hvað verður í jólamatnum hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Við erum með hamborgarhrygg á aðfangadag. Þetta var eitt af því sem við Einar þurftum að mætast á miðri leið með. Ég ólst upp við villibráð en Einar ólst upp við hamborgarhrygg. Við vorum samróma með forréttinn en það var humarsúpan hans pabba. Þetta er eitt af þeim hlutum þar sem fótsporin eru of stór til að feta í. Sömu sögu má segja um ísinn hennar mömmu. Hann bragðast einhvern veginn alltaf miklu betur þegar þau

útbúa hann (börnin okkar geta einnig staðfest það). Þau hafa því ekkert um annað að velja en að mæta með súpuna og ísinn með sér til okkar á aðfangadag. Áramótaheit eða eitthvað sem þú ætlar að gera skemmtilegt á nýju ári? Ég ákvað fyrir einhverjum árum að setja mér ekki eiginleg áramótaheit, eða réttara sagt ég ákvað að bíða ekki til áramóta til þess að setja mér markmið. Sama á við með mánudaga. Maður var alltaf að byrja ‘næsta mánudag’ eða ‘á nýju ári’. Allir dagar eru verðugir til betrumbóta eða nýrra heita. Mér finnst samt ofboðslega gott að taka núllstillingu í janúar, borða vel og hreyfa mig og koma mér í góða rútínu fyrir bæði sál og líkama. Heitið mitt á hverju ári síðustu ár er að vera þakklát fyrir allt það sem ég hef, þakklát fyrir góða heilsu og hraustan líkama, þakklát fyrir fjölskylduna mína og allt yndislega fólkið sem ég á í kringum mig og að halda áfram að minna mig á að finna þakklætið í hversdagsleikanum. Maður gleymir sér svo oft í amstri dagsins og dagarnir einhvern veginn líða bara áfram, en það er svo ofboðslega mikið í hversdagsleikanum sem við getum verið þakklát fyrir. Ætli þetta séu ekki meira „lífsheit“ frekar en „áramótaheit’? Þessi heit munu fylgja mér inn í nýtt ár.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 95

BIRTA OG BERKLAR Vatnsleysuskóli, Litla-Hvammsskóli og bjartar skólabyggingar

Á myndinni er Vatnsleysuskóli, byggður 1911, fimmta skólabygging í Vatnsleysustrandarhreppi. Fyrst var byggt 56 fermetra skólahús í Suðurkoti í Brunnastaðahverfi 1872, það stækkað í 86 fermetra 1886, síðan engurbyggt frá grunni í sömu stærð og mynd 1907 og notað til 1944. Norðurkotsskóli í Kálfatjarnarhverfi var byggður 1903 og starfræktur til 1910, en þá lagður niður og Vatnsleysuskóli byggður árið eftir, 1911. Vatnsleysuskóli var steinsteypt hús með mörgum, stórum gluggum, á þess tíma mælikvarða. Hér er birt mynd af líkani, sem Guðmundur Jónsson gerði og Jón Mar, sonur hans, varðveitir og tók mynd af. Glæsilegt lítið hús! Það líkist skólahúsum sem byggð voru víðar um þetta leyti, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni, fyrsta arkitekt Íslands. Með fræðslulögunum 1907 fór ríkið loks að taka þátt í kostnaði við byggingu skólahúsa. Þegar ég var að glugga í sögu Skógasafns tek ég eftir að LitlaHvammsskóli úr Mýrdal (byggður 1901), sem er til endurbyggður við Skógasafn, er sláandi líkur, með mörgum og stórum gluggum. Gæti það verið sama teikning? Skýringin gæti verið önnur, en í ritgerð Vigdísar Finnbogadóttur um Þórð Tómasson segir

(bls.28): „Þetta skólahús er mjög góður fulltrúi skólahúsa á þessum tíma og þótti hátt til lofts og vítt til veggja á þeim tíma sem það var byggt. Gluggar voru í upphafi ekki eins stórir og þeir eru í dag en í kringum 1910 voru þeir stækkaðir talsvert og þá helst til að reyna að sporna við berklaveiki sem þá geisaði um landið. Birta og sólarljós áttu að hafa mikið að segja til að fólk héldi heilsu.“ https://skemman.is/bitstream/1946/13575/1/RitgerdinBa-pdf.pdf Þessi mynd af LitlaHvammsskóla á Skógum birtist í grein Vigdísar. Berklar gátu hafa valdið því hve mikilli birtu var hleypt inn í litlu Vatnsleysuskólabygginguna. Sá faraldur geisaði grimmt þegar það hús var hannað og byggt. Þá var dánarhlutfall berklasjúklinga á Íslandi eitt það hæsta

ð í t á h a g e l i Gleð Áramótablað Víkurfrétta kemur út 27. desember. Tekið á móti auglýsingum til 22. desember Bókið birtingu á andrea@vf.is

Fyrsta tölublað á nýju ári kemur út 14. janúar 2026 Stöndum vaktina á vef Víkurfrétta, vf.is, alla daga!

í Evrópu og berklar ein algengasta dánarorsökin, ollu um fimmtungi allra dauðsfalla á landsvísu. Lyf við Berklum komu ekki til sögunnar fyrr en undir miðja 20. öld. Fram að því var reynt að hindra smit og hjúkra þeim sjúku, m.a. með byggingu berklahæla á Vífilstöðum, Kristnesi og víðar. Heilbrigt líferni, hreinlæti og hreysti var mikilvægt til að verjast berklabakteríunni. Kennarinn Ólafur Guðjónsson var gagnfræðingur frá Flensborg 1897 og hafði áður kennt í heimasveit sinni, Grímsnesi, er hann hóf kennslu í Suðurkotsskóla í Vatnsleysustrandarhreppi um 1907. Ólafur fékk berkla 1909, varð að hætta kennslu um veturinn og lést þá um vorið. Sótthreinsa þurfti hús og búnað og voru bækur Lestarfélagsins Baldurs, sem var til húsa í skólanum, pakkað niður í kassa, af ótta við smit, og ekki pakkað upp aftur fyrr en tæpri öld síðar! Var þá ekki einmitt ráð að hafa stóra glugga á næstu skólabyggingu?

Meira um Vatnsleysuskóla Í 23. þætti 150 ára skólasögu Vatnsleysustrandarhrepps segir: „Í 19. þætti segir frá því að 1910 var kennslu í litla Norðurkots-

skólanum í Kálfartjarnarhverfi hætt, húsið selt og hafin kennsla á Vatnsleysu, en þá voru þar um slóðir barnmörg, fátæk heimili. Árið eftir var byggt lítið steinsteypt skólahús og kennt þar, jafnframt Suðurkotsskóla, í 3 ár, til 1914. Kennari var Kristmann Runólfsson, Hlöðversnesi og síðan Ingvar Gunnarsson frá Skjaldarkoti (kennarapróf 1911). Þá lagðist kennsla af í Vatnsleysuskóla í 11 ár, því þá voru þar færri börn og var 1920 rætt um að selja húsið, en ekki varð að því. Ingvar flutti til Hafnarfjarðar, var frumkvöðull i skógrækt og sá m.a. um Hellisgerði 1925-’56.“ Í þessum

þætti átti að birtast mynd af líkaninu af skólanum, en hún hefur fallið niður, en birtist í prentvænu útgáfunni á vef Stóru-Vogaskóla 150-ara-skolasaga-voga--i-heild.prentvaen-utg.4a.pdf Myndin er birt bls. 352 í bók Guðmundar Björgvins, Mannlíf og mannvirki, frá 1987. Eftir áratugs hlé var kennt nær samfellt í Vatnsleysuskóla árin 1925 til 1943, en þá hófst skólaakstur í hreppnum og eftir það var öllum börnunum kennt á einum stað, í Brunnastaðahverfi og síðar Vogum. Enda þótt um sérstakt hús væri að ræða talaði Viktoría kennari oft um Vatnsleysufarskóla, í einkunnabók skólans. Skólahús þetta var síðan selt bændum á Vatnsleysu og notað sem fjárhús, uns það var rifið. Á bak við hestinn sést fjárhúsið, en þá mátti það muna fífil sinn fegri. Hafði verið steypt upp í neðri hluta glugganna og þeir minnkaðir mikið, enda lögðust berklar síður á sauðfé og því minni þörf á birtu – og ekki lengur þörf á að hafa lesbjart þar inni. Heimildaskrá er birt með viðeigandi tenglum í vefútgáfu þessarar greinar á vf.is um jólin.

Gleðileg jól Njótið hátíðanna Davíð Jónsson Eva Dögg Sigurðardóttir


Víkurfréttir 17.des-Jólabækur-Baksía 203x345.pdf

1

16.12.2025

10:32

RAGNHEIÐAR ELÍNAR

Minnisstæðar jólagjafir

C

M

Y

CM

MY

CY

CMY

K

Undrarútan Bók eftir Jakobs Martin Strid í þýðingu Jón St. Kristjánssonar

Skólastjórinn Bók eftir Ævar Þór Benediktson

Sagan segir frá Takú og vinum hans sem smíða risarútu og leggja af stað í ævintýralegt ferðalag til Balanka til að bjarga Tímósi litla. Bókin hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024.

Salvar, 12 ára vandræðagemlingur, sækir í gríni um starf skólastjóra og fær það. Skólastjórinn er sprenghlægileg og hjartnæm þroskasaga, ríkulega myndlýst af Elínu Elísabetu Einarsdóttur. Fullkomin fyrir alla sem hafa einhvern tímann verið í skóla.

Lára fer á hestbak og Atli fer í tívolí

Birtingur og símabannið mikla

Bók eftir Birgittu Haukdal

Bók eftir Gunnar Helgason

Í þessum skemmtilegu og hlýju barnabókum fylgjumst við með Atla og Láru takast á við ný ævintýri í hversdeginum. Sögurnar fjalla á léttan og aðgengilegan hátt um tilfinningar, áskoranir og gleðina sem fylgir því að prófa eitthvað nýtt.

Foreldrar Birtings eru komnir í uppeldisátak og banna síma og tölvu í sumar. Algjörlega galið! Þau segja að hann geti bara keypt sér síma sjálfur. Birtingur leggst því í símasöfnun, selur dót, safnar dósum og beitir bæði smá lygum og smá prettum.

Í fyrsta sinn á ævinni er staðan þannig hjá okkur fjölskyldunni, rúmri viku fyrir jól, að næstum allar jólagjafir hafa verið keyptar og afhentar. Og það gerðist meira að segja fyrir rúmum tveimur vikum! Þetta er þó nokkuð afrek finnst okkur þar sem Þorláksmessu- og aðfangadagsreddingar hafa oftar en ekki verið normið með tilheyrandi stressi. Ég er mikið jólabarn og er fyrst til að viðurkenna að mér finnst gaman bæði að gefa og fá jólagjafir – velja af kostgæfni eitthvað sem vonandi fellur í kramið hjá viðtakendum – og sjá þegar mitt fólk hefur líka lagt sig fram um að velja eitthvað fallegt handa mér. Jólagjafakaup voru einfaldari hér áður fyrr. Ef ég lít til baka til þess þegar ég var barn þá til dæmis fékk ég til dæmis nánast eingöngu bækur í jólagjöf. Ein jólin minnir mig að ég hafi fengið ellefu bækur, þar af þrjár um brúðustrákinn Pál Vilhjálmsson. Ég var alsæl. Þorgrímur bróðir minn var alltaf svolítið séður í sínum jólagjöfum. Hann til dæmis gaf mér Tinnabækur ár eftir ár – löngu áður en ég var byrjuð að geta flett bókum! En þær geymdust vel og ég naut þeirra síðar. Og fyrst ég er byrjuð að tala um Þorgrím þá held ég að besta jólagjafamóment hans hafi verið þegar hann gaf mömmu okkar forláta Marantz-heyrnartól til að tengja við plötuspilarann í stofunni. Hann hafði lengi haft augastað á þessum heyrnartólum sjálfur en mamma hafði ekki leyft honum að kaupa þau – en þarna fann hann snilldarlausn! Mamma notaði heyrnartólin auðvitað aldrei en ég held að Þorgrímur eigi þau enn þá sem sýnir óneitanlega hversu framsýnn hann var. Sumar jólagjafir varðveitast betur en aðrar, eins og til dæmis gjöfin sem langafi minn Sigurður Þ. Jónsson gaf langömmu minni, og alnöfnu mömmu minnar, Hólmfríði Guðmundsdóttur, árið 1894, þegar þau voru í tilhugalífinu. Fyrir valinu varð bókin „Ljóðmæli“ eftir Steingrím Thorsteinsson, sem prentuð var árinu áður í Kaupmannahöfn. Bókin var falleg, innbundin í lit ástarinnar, slegin með gylltu letri og í hana hafði verið teiknuð falleg blómamynd og þar skrautrituð orðin: „Jólagjöf 1894 til Hólmfr. Guðmundsdóttur frá Sig Þ Jónssyni”. Ég fékk þessa fallegu bók að foreldrum mínum látnum og þykir afar vænt um hana. Ekki síst þegar við grúsk eiginmanns míns komu í ljós skemmtileg tengsl móður- og föðurfjölskyldna minna sem ég hafði ekki vitað af. Þannig að það má sanni segja að þessi fallega jólagjöf hafi verið sannkallaður örlagavaldur í fjölskyldunni. Blessuð sé minning þeirra. Ég sendi lesendum Víkurfrétta mínar allra bestu jóla- og nýársóskir.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 35. tbl. 46. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu