• Miðvikudagurinn 9. september 2026 • 18. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS
10
Stórkostleg tækifæri og miklar áskoranir hjá FS
Fjölbraut 50 ára
Víðismenn upp! 22-23
Vegleg íþróttaumfjöllun í blaði vikunnar.
Þúsundir á vel heppnaðri Ljósanótt
Ljósanótt 2026 tókst frábærlega með góðri samvinnu bæjarbúa, þátttakenda á hátíðinni og yndislegu framlagi veðurguðanna sem voru í sínu besta skapi alla hátíðisdagana. Jón Steinar Sæmundsson, ljósmyndari, tók þessa glæsilegu mynd fyrir Víkurfréttir snemma á laugardagskvöld yfir stórhátíðarsvæðið og sýnir á skemmtilegan hátt stemmningu í blíðunnni. Fjöldi fólks var mættur til að njóta tónlistardagskrár á vel heppnaðri hátíð sem haldin var í tuttugasta og fimmta skipti.
Næsta blað kemur út 23. september
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Snorri
Gylfi
Óskar
Sölvi
snorribs@valholl.is
gylfi@valholl.is
oskar@valholl.is
770 4040
691 1931
solvi@valholl.is
699 4407
618 0064
2 4 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Aukið fjármagn samþykkt til skammtímavistunar fatlaðra barna Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var samþykktur samhljóða viðauki við fjárhagsáætlun til að fjármagna aukið pláss og breytta framkvæmd á skammtímavistun fatlaðra barna í Heiðarholti. Úrræðið er rekið á grundvelli samkomulags við Suðurnesjabæ og Sveitarfélagið Voga og er fullfjármagnað með samþykktinni. Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fagnaði samstöðunni og benti á að á bak við hvert pláss og hvern biðlista væru raunveruleg börn og fjölskyldur sem búið hefðu við mikið og langvarandi álag. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar, tók í sama streng og undirstrikaði að úrræðið væri framhald af vinnu síðasta kjörtímabils. Hún minnti á að oft gleymdust systkini fatlaðra barna í umræðunni og að örugg skammtímavistun væri lífsnauðsynleg öllum heildarstigum fjölskyldunnar. Þótt öll væru sammála um brýna þörf úrræðisins varð nokkur ágreiningur um hvernig mæta ætti kostnaðinum. Minnihlutinn (Framsókn og Samfylking) lagði til að launahækkanir kjörinna fulltrúa
yrðu dregnar til baka og sá sparnaður nýttur til að mæta viðaukanum, þar sem upphæðirnar væru nánast á pari. Fulltrúar minnihlutans greiddu engu að síður atkvæði með viðaukanum sjálfum enda um mikilvægt velferðarmál að ræða. Bæjarstjóri gagnrýnir að pólitík hafi verið blandað í velferðarmál Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri gagnrýndi minnihlutann harðlega fyrir að tengja launamál kjörinna fulltrúa við skammtímavistunina. Bæjarstjóri sagði að vinnslan hefði gengið hratt og örugglega fyrir sig eftir kosningar og allir í velferðarráði og bæjarráði hefðu verið sammála um að klára málið. Vilhjálmur sagði að vegna málflutnings minnihlutans héldu margir íbúar og aðstandendur enn að úrræðið hefði ekki verið samþykkt eða fjármagnað, og að þetta hefði skapað „fallega fjölmiðlaumfjöllun á forsíðum“ sem drægi upp ranga mynd. Hann brýndi bæjarfulltrúa til að halda umræðu um laun kjörinna fulltrúa í réttum farvegi undir viðeigandi dagskrárliðum en rugla fólk ekki í rammann þegar kemur að mikilvægri þjónustu við fötluð börn.
Reykjanesbær gerir ekki nýja samninga við ríkið um flóttafólk Stefna meirihlutans varðandi málefni flóttafólks var staðfest á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í svörum við fyrirspurn Samfylkingarinnar. Bærinn mun hvorki gera nýja samninga um samræmda móttöku flóttafólks né þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Bæjarstjóri upplýsti að fram undan væri fundur með félagsmálaráðherra til að klára lokauppgjör vegna þeirrar þjónustu sem bærinn veitti áður en samningar runnu út. Bæjaryf irvöld hafa komið þeim skilaboðum skýrt á framfæri við ríkið að dregið skuli úr opnum búsetuúrræðum ríkisins innan sveitarfélagsins. Lögð voru fram skrifleg svör við sjö spurningum Samfylkingarinnar varðandi stefnu meirihlutans í málefnum flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þar kom fram skýr staðfesting á því að bærinn mun hvorki gera nýjan samning um samræmda móttöku né um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Afstaða meirihlutans nær til tveggja ólíkra samninga Í svörum Vilhjálms Árnasonar bæjarstjóra kom fram að ákvörðunin um að gerast ekki aðili að nýjum samningum við ríkið náði jafnt til samræmdrar móttöku flóttafólks og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Sú stefna var formlega samþykkt með málefnasáttmála meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks og hefur engin tilraun verið gerð af hálfu bæjarins til að leita eftir nýjum samningum.
Óbeinn kostnaður náðist ekki inn í fyrri samninga Þótt rekstrarniðurstaða þeirrar deildar velferðarsviðs sem sinnti þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi verið jákvæð flest árin frá 2004 til 2025 (með
undantekningu árið 2021), benti bæjarstjóri á að sú mynd væri ófullkomin. Beinn samningur tók aðeins til afmarkaðs hluta starfseminnar, en umframálag, óbeinn kostnaður og röskun á öðrum innviðum sveitarfélagsins – svo sem í skólakerfi, félagsþjónustu og stjórnsýslu – náðust aldrei inn í heildarstærðirnar eða voru metnar heildstætt.
Athugasemdir við opin úrræði Vinnumálastofnunar Fram kom að þótt þjónustusamningi Reykjanesbæjar og Vinnumálastofnunar hafi lokið þann 31. júlí 2025 voru enn 145 umsækjendur um alþjóðlega vernd í tveimur búsetuúrræðum Vinnumálastofnunar innan sveitarfélagsins um miðjan júlí 2026. Bæjaryfirvöld hafa gert alvarlegar athugasemdir við að ríkið reki slík opin úrræði í bænum þegar samningar eru ekki til staðar, þar sem fólk myndar tengsl í samfélaginu án þess að sveitarfélagið fái fjármagn til að veita þá framhaldsþjónustu sem þarf. Meirihlutinn telur að samningsleysið eigi að hvetja ríkið til að fækka einstaklingum í þessum úrræðum á svæðinu.
Uppgjörssamkomulag og áframhaldandi samráð Nýr samningur kemur aðeins til greina ef hann fylgir því markmiði að draga úr opnum úrræðum í sveitarfélaginu. Bæjarstjóri undirstrikaði að þótt samningar væru ekki til staðar væri samráð og samtal við félagsmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun gott. Fram undan er fundur bæjarstjóra og fulltrúa velferðarsviðs með félagsmálaráðherra þar sem unnið verður að uppgjörssamkomulagi vegna þess starfsmannakostnaðar og stjórnsýslukostnaðar sem féll til áður en samningar runnu út, en ríkið endurgreiðir eins og er aðeins beina fjárhagsaðstoð.
Bæjarfulltrúi leiður á pólitísku tuði Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, lýsti yfir megnri óánægju með andrúmsloftið og stílinn á umræðum bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á síðasta fundi. Fundurinn hafði einkennst af átökum milli meiri- og minnihluta um tilfærslur verkefna, launakjör og vinnubrögð. Hjörtur sagði umræðuna á báða bóga vera „drepleiðinlega“ og gagnrýndi lágkúruleg skot og tilgangslaust tuð sem bitnuðu á störfum bæjarstjórnar. Hann sagðist ekki nenna fjórum árum af slíku fasi.
Með vísan til langrar reynslu sinnar í stjórnmálum kom Hjörtur með skilaboð til beggja fylkinga. Hann minnti á að hlutverk minnihlutans væri að rýna til gagns og að gagnrýni á vinnubrögð væri ekki það sama og að tala bæinn niður. Til meirihlutans sagði hann að versti óvinur minnihlutamannsins væri skortur á upplýsingum og ákvarðanataka á lokuðum fundum, sem eyðilagði traust. Hann nefndi að í sinni formannstíð hefði hann aldrei haldið sérstaka meirihlutafundi fyrir nefndarfundi.
Hjörtur benti á að síðasta kosningabarátta hefði verið sú harðasta sem hann hefði upplifað og sló á létta strengi með því að stinga upp á „kitlukeppni“ til að hressa hópinn við. Hann brýndi bæjarfulltrúa til að muna að þau væru kjörin til að þjóna sama fólkinu, stöðva neikvæðnina og vinna saman að spennandi verkefnum bæjarins. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók undir orð Hjartar og fagnaði kalli hans eftir meiri samvinnu, málefnalegri umræðu og gagnsæi.
Brimvarnargarður í Njarðvík að klárast og skemmtiferðaskipum fjölgar Málefni Reykjaneshafnar voru reifuð á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Brimvarnargarður í Njarðvíkurhöfn er nú 80% tilbúinn og er áætlað að verkinu ljúki í október, en skemmtilegt ankeri sem kom upp við dýpkun hefur verið sett á garðinn til skreytingar. Þá kom fram að komur skemmtiferðaskipa hefðu gengið vel og skapað mikið líf í bænum, en tveggja skipa er enn vænst í september. Þá var tilkynnt að Reykjanesbær muni hýsa landshlutaþing Hafnasambandsins í október næstkomand
Hraðað verður uppbyggingu sérbýla í Ásbrú og Keflavíkurborgum Skipulagsmál og aukið framboð á sérbýlislóðum voru mikið til umræðu á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Unnið er að flýtingu á viljayfirlýsingu vegna Suðurbrekku í Ásbrú þar sem gert er ráð fyrir 43 einbýlishúsum í samstarfi við Kadeco og ríkið. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar voru fundargerðir skipulagsráðs teknar til umfjöllunar þar sem sérbýlisstefna nýs meirihluta var í forgrunni. Skýr áhersla er lögð á að flýta úthlutun einbýlis-, par- og raðhúsalóða og breyta fyrra skipulagi sem mikið byggðist á fjölbýlishúsum.
43 einbýlishús í Suðurbrekku í Ásbrú Stefnt er að undirbúningi á viljayfirlýsingu og samstarfi við Kadeco, fjármálaráðuneytið og íslenska ríkið um uppbyggingu í Suðurbrekku (einnig nefnd Brekkubyggð) í Ásbrú. Þar er gert ráð fyrir 43 einbýlishúsum á svæði sem býður upp á eitt besta útsýni bæjarins. Bæjarfulltrúar úr bæði meiri- og minnihluta fögnuðu verkefninu og bentu á að það fylgdi gildandi húsnæðisáætlun bæjarins.
Keflavíkurborgum skipt upp í áfanga til að flýta úthlutun Ítarlegar umræður urðu um Keflavíkurborgir. Upphaflega var gert ráð fyrir heildstæðu hverfi með 130 einbýlishúsum ásamt fjöl-
býlishúsum, þar sem úthlutun átti ekki að hefjast af alvöru fyrr en um árið 2030 (20 hús á ári til 2035). Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri upplýsti að til að flýta uppbyggingunni verði deiliskipulaginu skipt upp í áfanga. Byrjað verður á efstu götunum til að koma einni til tveimur götum af sérbýlum fyrr í úthlutun, samhliða því sem unnið verður að heildarskipulagi svæðisins í samvinnu við aðra landeigendur. Róbert Jóhann Guðmundsson bæjarfulltrúi Framsóknar spurði um fjölda sérbýla í fyrsta áfanga og skýrleika gagna, en Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fagnaði því ef hægt væri að flýta framkvæmdum frá því sem gert var ráð fyrir í húsnæðisáætlun.
Breytingar í Ásahverfi til að selja 40 tómar lóðir Þá var samþykkt að veita heimild til að vinna að breytingu á deili-
skipulagi Ásahverfisins. Um 40 sérbýlislóðir hafa staðið tómar og óseldar í hverfinu vegna þess að þær hafa þótt of dýrar eða óaðlaðandi í núverandi skipulagi. Bæjaryfirvöld ætla að breyta skipulaginu og reyna að bæta samgönguaðgengi svo auðveldara verði að útdeila lóðunum og klára hverfið, sem hefur verið í uppbyggingu allt of lengi.
Úthlutun í Trönudal og Aspardal Einnig var fjallað um lóðaúthlutun við Trönudal og Aspardal (10 einbýlishús og 2 parhús). Róbert Jóhann vakti athygli á því að aðeins tvær af tíu lóðum væru tilbúnar til úthlutunar strax þar sem gatnagerð væri ólokið. Bæjarstjóri svaraði því til að samþykkið í bæjarstjórn væri grundvöllur til að setja gatnagerðina í forgang og koma henni af stað eins hratt og auðveldlega og kostur er.
VIÐ ERUM EINS ÁRS! AFMÆLISTILBOÐ Á FITJABRAUT 9. - 14. SEPTEMBER
-20%
-22%
-22%
-30%
GROHE ELDHÚSTÆKI
DUMAWALL BAÐPLÖTUR
ALLT FYRIR FLÍSALÖGNINA
FLÍSAR
-22%
-20%
-20%
-20-30%
LJÓS OG LAMPAR
HARÐPARKET
MAKU HEIMILISVÖRUR
GROHE HANDLAUGARTÆKI
Einhell verkfærasett
Ryobi borvél
25.899
27.999
36.999
39.999
Vnr. 66370570
-30%
Vnr. 7133003821
-32% Einhell ryksuga/ vatnsuga
8.839 12.999
Vnr. 7482342500
-30%
Birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Tilboð gilda bara í verslun Fitjabraut.
Í VERSLUN KÖKUR OG KAFFI MÁNUDAG LAUGARDAG OG
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Myndarlegur hópur frá Reykjanesbæ, atNorth og Crusoe við upphaf gróðursetningar á Njarðvíkurheiði í síðustu viku. VF/hilmarbragi
Rúmlega 210 þúsund plöntur á Njarðvíkurheiði Öflugt skógræktarverkefni til framtíðar í Reykjanesbæ Framtíðarútivistarsvæði íbúa Reykjanesbæjar fékk fljúgandi start þegar ráðist var í víðfeðma gróðursetningu á Njarðvíkurheiði 1. september síðastliðinn. Skógræktarverkefnið er á forræði Reykjanesbæjar en unnið í nánu samstarfi og með fjárhagslegum styrk frá tæknifyrirtækjunum atNorth og Crusoe. Dagurinn hófst með kaffi og kleinum klukkan níu um morguninn þar sem fólk kom saman og sagt var stuttlega frá verkefninu. Í kjölfarið var hafist handa við gróðursetninguna í frábæru veðri. Um 300 skólabörn ásamt kennurum, fulltrúum og starfsfólki Reykjanesbæjar mættu á svæðið til að taka þátt í að gróðursetja framtíð sína. Heildaráætlun verkefnisins gerir ráð fyrir að gróðursettar verði rúmlega 210.000 plöntur til ársins 2030, en þar af munu atNorth og viðskiptavinur þeirra, Crusoe, standa straum af 65.000 plöntum á næstu fimm árum. Markmiðið er að stuðla að vistheimt, græða upp móa og uppblásin svæði og búa til öflugan „gróðurtrefil“ fyrir ofan bæinn sem veitir bæði skjól og betri náttúru.
Samfélagsleg ábyrgð og þekking sem flæðir til Norðurlanda Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá atNorth, segir samstarfið við Reykjanesbæ eiga sér nokkurra ára sögu og að grunnurinn að þessu skógræktarverkefni hafi verið lagður í fyrra þegar fyrstu 2.000 plöntunum var komið í jörðu.
„Við erum búin að vinna til fjölda ára með Reykjanesbæ í uppbyggingu gagnavers okkar á Fitjum, sem heitir ICE02,“ segir Erling og undirstrikar að þátttaka í samfélaginu skipti fyrirtækið og viðskiptavini þess öllu máli: „ Alveg frá fyrsta degi þegar Crusoe kom til landsins, fyrir tæpum þremur árum, var alveg ljóst að það vildi vinna með nærsamfélaginu. Það er hjartað hjá atNorth. Þess vegna skipti það okkur miklu máli að gera þetta verkefni, að ákveða að planta 65.000 plöntum á Njarðvíkurheiðinni.“ Erling benti á að starfsemi gagnaversins hefði víðtæk og jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Yfir helmingur starfsfólks gagnaversins býr í nokkurra mínútna fjarlægð og hundruð verktaka hafa unnið á svæðinu á síðustu árum. Þá hefur uppbyggingin styrkt innviði á borð við raforku og fjarskipti, auk þess sem fjórði sæstrengurinn er væntanlegur til landsins vegna svona starfsemi. Að sögn Erlings er staðbundin þekking starfsfólks á svæðinu farin að vekja athygli út fyrir landsteinana: „Starfsfólkið sem býr í Reykjanesbæ er farið að kenna fólki á Norðurlöndunum hvernig
við vinnum í kringum þennan gervigreindarbúnað, tökum sem dæmi þennan gervigreindarbúnað.“
Stórt skógarbelti sem tengir saman svæði Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fagnaði frumkvæði fyrirtækjanna og sagði þau skaffa plönturnar en bærinn muni halda utan um svæðið og sjá til
þess að það vaxi og dafni. Verkefnið sé eitt af mörgum jákvæðum samfélagsverkefnum öflugra fyrirtækja á svæðinu. „Þetta er svolítið að frumkvæði fyrirtækjanna að þau vilja láta gott af sér leiða í því samfélagi sem þau eru í,“ segir Vilhjálmur og undirstrikar mikilvægi þess að fá yngri kynslóðina með í ferlið: „Hér koma 300 leikskóla- og skólabörn í dag og taka þátt í
þessum vexti og þau munu fá að njóta þess í sinni framtíð og með sínum börnum svo að hér verður öflugt og fallegt útivistarsvæði.“ Bæjarstjóri benti á að til framtíðar væri horft til þess að tengja saman Njarðvíkurskóg og Sólbrekku í eitt samfellt skógarbelti. Þótt það taki tíma fyrir trén að vaxa mun skógurinn skapa stórt útivistarsvæði og veita bænum mikilvægt skjól um ókomna tíð.
Saga og framtíð Njarðvíkurhafnar dregin fram í dagsljósið Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafnar og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar sem klippti á borða og opnaði útsýnispallinn með söguskiltinu formlega. VF/hilmarbragi
Sögu- og framtíðarskilti Reykjaneshafnar var formlega afhjúpað í Njarðvíkurhöfn föstudaginn 4. september sl. Á skiltinu eru sögu hafnarinnar gerð góð skil frá upphafi síðustu aldar til dagsins í dag, bæði í texta og með fjölbreyttu myndefni. Auk þess að
rýna í fortíðina er sjónum beint að framtíðinni, en á skiltinu er einnig sýnd myndræn framsetning á því hvernig höfnin gæti þróast allt til ársins 2035. Þetta er fyrsta skiltið af þessari gerð sem sett er upp, en til stendur að koma upp sambærilegum sögu-
skiltum við allar hafnir á svæði Reykjaneshafnar á komandi misserum. Markmiðið er að halda sögu hafnanna til haga og gera hana aðgengilega íbúum og gestum svæðisins.
Íslandshús
Landfari
REYKJANESBÆR
Merki KSK eignir fyrir 4lita offsetprentun Litur: CMYK: C 100 - M 55 - Y 0 - B 55
Hjólbarðaverkstæði Suðurnesja
www.viney.is Hafnargata 35, 230 Reykjanesbær
R EYK JA NESHÖ FN
! r u k k o r i r y f m u Þökk Sendum okkar bestu þakkir til fyrirtækja, stofnana
og félaga, á annað hundrað aðila, sem studdu útgáfu tveggja síðustu tölublaða Víkurfrétta, fyrir Vitadaga og Ljósanótt, og eins við önnur tækifæri á undanförnum árum. Þetta skiptir rekstur fjölmiðilsins miklu máli og framtíð hans og hvetur okkur áfram á sömu braut. Við höldum áfram að fjalla um menn og málefni á Suðurnesjum í blaði, á vf.is og í Sjónvarpi Víkurfrétta. Þetta gengur með ykkar hjálp og fyrir það viljum við þakka! Heilsueflandi umhverfi
Nýr sex deilda heilsuleikskóli, Urriðaból, opnar í Garðabæ í haust Skólar ehf. hafa samið við Garðabæ um rekstur á nýjum sex deilda leikskóla í Urriðaholti sem opnar í september nk. Skólar ehf. er um 20 ára gamalt félag sem rekur nú þegar fjóra heilsuleikskóla í sveitarfélögunum Reykjanesbæ, Grindavík, Kópavogi og Reykjavík. Allir leikskólarnir innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda Heilsustefnunnar sem kjarnast um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins. Leikurinn, hreyfingin, næringin og sköpunin er okkar Áhersla er lögð á öruggt og hlýlegt umhverfi fyrir leik og þroska þar sem öll börn fá að upplifa leikskólann á sama hátt óháð hreyfigetu. Skólar ehf. ætla sér að verða leiðandi á sviði heilsueflingar í leikskólastarfi á Íslandi þar sem Heilsustefnan er höfð að leiðarljósi og viðmið fyrir faglegt starf og rekstur heilsuleikskóla. Á góðum vinnustað er líkamleg og andleg heilsa í fyrirrúmi Það er ekki nóg að börnin séu heilsuhraust, heilsa starfsfólksins sem annast þau þarf líka að vera í fyrirrúmi.
Taktu þátt í að byggja upp nýjan skóla fyrir yngstu Garðbæingana Leikskólinn tekur mið af nýjustu lögum um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla og verður í samræmi við menntastefnu bæjarfélagsins. Við þurfum allt að 38 starfsmenn til að starfa í sex deildum. Störfin eru eftirfarandi: – Leikskólastjóri – Aðstoðarleikskólastjóri – Deildarstjórar fyrir sex deildir – Fagstjóri í hreyfingu – Fagstjóri í sköpun – Sérkennslustjóri – Matráður – Aðstoðarmatráður – Leikskólakennarar – Leiðbeinendur Allar nánari upplýsingar um störfin eru á alfred.is og um skólann á skolar.is
Skólar hafa markvisst byggt upp heilsustefnu sína í samvinnu við starfsfólk og sérfræðinga. Til að vinna að betra heilsufari starfsfólks var unnin sérstök Heilsufarsáætlun í samstarfi við Heilsuvernd. Viðverustefna umbunar starfsmönnum fyrir góða viðveru en styður þá sem eitthvað bjátar á hjá.
Til hamingju með 65 árin, Ellert Skúlason ehf.
HEIL BRIG Ð S Á L Í HR AUS T UM L ÍK A M A
Með þökk fyrir áralangt traust og samstarf — Rúko vinnuvélar. C M Y K
50% 0% 100% 0%
C M Y K
0% 90% 85% 0%
R G B
120 198 62
R G B
239 64 54
C M Y K
58% 0% 4% 0%
C M Y K
84% 41% 26% 2%
R G B
81 200 235
R G B
31 125 157
Rúko hf er umboðs- og þjónustuaðili fyrir Liebherr, Yanmar og Putzmeister ásamt ýmsum öðrum framleiðendum.
Font : Athelas Regular
Firmamerki
vinalegur bær
AÐALSKOÐUN VINNUVÉLAR LEIGA / SALA
Traust fyrirtæki velja traustar vélar REYKJANESBÆ
534 6050
|
ruko.is
|
ruko@ruko.is
Njarðarbraut 15, 260 Reykjanesbær Sími 420 5000 www.ksteinarsson.is
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Ljósanæturmyndir á vf.is Á vef Víkurfrétta má sjá fjölmargar myndir og myndskeið frá Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Störf í boði á Hlévangi í Reykjanesbæ Heilbrigðisstofnun Suðurnesja opnar nýja hjúkrunardeild á Hlévangi í október fyrir einstaklinga sem bíða eftir dvöl á hjúkrunarheimili Við erum að byggja upp öflugt teymi starfsfólks sem vill taka þátt í að móta fyrirmyndar þjónustu við skjólstæðinga
Við leitum eftir: Aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar Hjúkrunarfræðingum Sjúkraliðum með framhaldsmenntun Sjúkraliðum Umsóknarfrestur starfa er til 21. september 2026 Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu HSS undir laus störf: www.hss.is Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum
Lalli er ekkert unglamb lengur, en það er harka í honum Núna er ég staddur utan við Borgarnes á þessum síðasta degi fiskveiðiársins 2025–2026. Allir bíða spenntir eftir nýju kvótaári og allt fer á fullt. Reyndar gerðist líka eitt núna 1. september, því að þá opnaðist fyrir dragnótaveiðar í Faxaflóanum, eða bugtarveiðar eins og þær eru kallaðar. Það er leyfilegt að stunda veiðar með dragnót þar á tímabilinu 1. september til 20. desember, og reyndar eru reglur þannig að það eru aðeins bátar sem eru yfir 24 metrum sem mega stunda veiðar í Faxaflóa. Á Suðurnesjunum og þá aðallega í Sandgerði eru núna fimm bátar á dragnót og aðeins tveir þeirra mega stunda veiðar með dragnót í Faxaflóa. Það eru Siggi Bjarna GK og Benni Sæm GK, en það var aðeins tekið framan af stefninu á þeim til þess að þeir kæmust inn fyrir 24 metrana. Hinir bátarnir eru Sigurfari GK, Margrét GK og Maggý VE sem allir eru lengri en 24 metrar. Auk Sigga Bjarna GK og Benna Sæm GK er í Reykjavík Aðalbjörg RE sem er með lengstu söguna við dragnótaveiðar í Faxaflóa, en saga bátsins í flóanum er orðin um 40 ára. Líka hefur Stapafell SH komið en eigandinn af þeim báti gerir líka út bátinn Bárð SH, en hann er lengri en 24 metrar. Hafdís SK, Esjar SH og Ásdís ÍS hafa líka komið í Faxaflóann, og reyndar á Ásdís ÍS frá Bolungarvík á sér allmikla sögu við dragnótaveiðar í Faxaflóa því að báturinn var gerður út frá Keflavík og Sandgerði frá 1999 til 2017, og hét þá Örn KE 14. Annars eins og kom fram í síðasta pistli þá eru strandveiðarnar búnar, og ansi margir færabátar hafa verið í Sandgerði að fara út á
Boðann og þar lengra að eltast við ufsann, þeir hafa verið í kringum 10 bátarnir og eru þá til viðbótar nokkrir bátar úr Grindavík, en þeir hafa ekki verið margir, helst Ólafur GK. sem hefur landað 2 tonnum í 4 róðrum. Grindjáni GK 2,1 tonn í 2. Annars af bátunum í Sandgerði er Ragnar Alfreðs GK með tæp 19 tonn í 6 róðrum. Addi Afi GK með tæp 23 tonn í 6 róðrum og mest 5,4 tonn. Guðrún GK 14 tonn í 5 róðrum og mest 5 tonn. Elley GK 6,4 tonn í 4 róðrum og Edda GK 6,3 tonn í tíu túrum, og þar af eftir strandveiðarnar 3,3 tonn í 5 róðrum. Edda GK vekur nokkra athygli því að hún er mun minni bátur en hinir bátarnir sem hafa verið þarna á veiðum, og fullfermi hjá bátnum í körum eru tæp 1,2 tonn. En sá sem gerir út Edduna er enginn nýgræðingur í þessu, því að eigandinn og skipstjórinn á bátnum er Lárus Óskarsson, eða Lalli eins og hann er kallaður, hann gerði út nokkra báta hér fyrir nokkrum árum síðan sem hétu Baddý GK, og var þá helst að veiða á línu og yfir sumarið á færum. Fór hann þá iðulega alltaf á Boðann og á það svæði. Lalli er ekkert unglamb lengur, en það er harka í honum, sem dæmi þá var hann þarna lengst úti á Eddunni og hann hætti ekki fyrr en allt var orðið fullt hjá honum. Held við munum reyndar ekki sjá mikið af Lalla í haust og vetur því að hann fer erlendis og kemur aftur næsta vor og fer þá á Eddunni að róa á færunum.
AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Rétturinn
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
Opið:
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
11-13:30
alla virka daga
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
Störf í boði hjá Verne Global Forstöðumaður viðskiptaog samningsmála (Senior Commercial Manager)
Verkefnastjóri framkvæmda / Verkstjóri framkvæmda / Staðarstjóri
Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í stöðu forstöðumanns viðskipta- og samningsmála sem mun leiða viðskiptalega, samningslega og fjárhagslega stjórnun umfangsmikillar uppbyggingar gagnavers. Viðkomandi mun starfa á framkvæmdastað og felur starfið í sér stefnumótandi ábyrgð á innkaupum, samningsumsýslu, kostnaðareftirliti, breytingastjórnun, kröfum, áhættustýringu og uppgjöri verkefnisins með það að markmiði að tryggja að hagsmunir verkkaupa séu ávallt í fyrirrúmi.
Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn verkefnastjóra framkvæmda til að leiða og hafa yfirumsjón með verkstjórn umfangsmikillar og hraðrar uppbyggingar gagnvers Verne sem unnið er samkvæmt “FIDIC Yellow Book” hönnunar- og verktakasamningi.
Um er að ræða lykilhlutverk í yfirstjórn verkefnisins þar sem tækifæri gefst til að hafa veruleg áhrif á viðskipalegan árangur og verðmætasköpun gagnaversins í flóknu og hröðu verkefnaumhverfi.
Gæðaeftirlitsstjóri (QA/QC Manager) Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn gæðaeftirlitsstjóra til að leiða gæðaeftirlit í umfangsmikilli uppbyggingu gagnavers sem unnið er samkvæmt „FIDIC Yellow Book“ hönnunar- og verktakasamningi. Viðkomandi verður leiðandi fulltrúi fyrirtækisins í gæðamálum á framkvæmdastað og ber ábyrgð á að hönnun, innkaup, framkvæmdir, prófanir, gangsetning og afhending uppfylli samningsbundnar kröfur, tæknilegar þarfir, viðeigandi staðla og væntingar viðskiptavinar. Um er að ræða lykilhlutverk í að tryggja vandaða, rekstrarörugga og afhendingarhæfa aðstöðu ásamt því að styðja við markmið verkefnisins hvað varðar framvindu og viðskipalegan árangur.
Viðkomandi ber ábyrgð á að hönnun, tæknileg skil, innkaup, framkvæmdir, gangsetning og afhending gagnaversins samræmist kröfum og markmiðum verkefnisins, stöðlum viðskiptavina og lögbundnum skyldum. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem áhersla er lögð á tæknileg gæði, samhæfingu flókinna verkþátta og farsæla afhendingu afkastamikillar gagnaversaðstöðu.
Cost Controller Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í starf sérfræðings á fjármálasviði til að styðja við fjárhagslega og viðskiptalega stjórnun gagnaversframkvæmdar sem unnin er samkvæmt „FIDIC Yellow Book“ hönnunar- og verktakasamningi. Viðkomandi mun sjá um kostnaðareftirlit á framkvæmdastað og halda utan um fjárhagsáætlanir, kostnaðarspár, sjóðstreymi, breytingar, kröfur og fjárhagslega áhættu á öllum stigum verkefnisins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi hefur yfirsýn yfir fjárhagsstöðu, kostnaðaröryggi og öflugri fjármálastýringu í hröðu umhverfi.
Umsóknir og nánari upplýsingar Umsókn óskast send til victorias@verne.co og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Nánari upplýsingar veitir Victoria Solodovnychenko (victorias@verne.co).
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Hermannahýbíli verða að fullkomnu hjúkrunarheimili:
Teikningar af nýja hjúkrunarheimilinu en þar verður boðið upp á allt það besta fyrir vistfólk.
90 rýma hátækni hjúkrunarheimli opnar á Ásbrú sumarið 2028 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun sjá um rekstur nýja heimilisins. Opnar sumarið 2028. Framkvæmdir eru að hefjast við nýtt og glæsilegt 90 rýma hjúkrunarheimili á Ásbrú. Verkefnið felst í því að endurbyggja tvö eldri fjölbýlishús við Keilisbraut, stækka þau og tengja saman í eina 6.500 fermetra heild. Icelandic Home ehf. hefur gert leigusamning við íslenska ríkið um húsnæðið og er hönnun verkefnisins á lokastigi samhliða undirbúningi framkvæmda. Á upplýsingafundi um verkefnið fögnuðu frummælendur því að framtak einkaaðila, hönnuða, ríkisins og sveitarfélagsins hafi mæst til að svara brýnni þörf fyrir stóraukið svigrúm í öldrunarþjónustu á Suðurnesjum.
Svörðu brýnni þörf framtíðarinnar Sigurður Garðarsson, verkfræðingur og verkefnisstjóri sagði brýna þörf samfélagsins fyrir aukinn fjölda hjúkrunarrýma og fagnaði því að stjórnvöld hafi kallað einkaaðila að borðinu. Það opni ný tækifæri til hraðari uppbyggingar. „Þörfin fyrir fleiri hjúkrunarrými er býsna mikil og eitt af stóru verkefnum næstu árin og áratugina. Og sú þörf er brýn í dag. En við vitum að hún á eftir að aukast verulega þegar næstu kynslóðir koma hérna,“ sagði Sigurður. „Þess vegna eru verkefni eins og það sem
við kynnum hér ekki bara æskileg, þau eru nauðsynleg ef við ætlum að vera tilbúin fyrir það sem framundan er.“ Sigurður benti á að á næstu tveimur áratugum muni hlutfall elstu aldursflokkanna hækka úr 10–12% í um 20% af þjóðinni. Áætlanir ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir að bæta við 400 rýmum á næstu fimm árum, og eru þessi 90 rými á Ásbrú inni í þeirri tölu.
Eldri byggingar breytast í hátæknilegt heimili Þorleifur Björnsson, aðalhönnuður og hönnunarstjóri hjá Glóru, kynnti hönnunarlausnina sem fengið hefur vinnuheitið Ásvellir. Hann fór yfir hvernig 5.000 fermetra fyrrum hermannabyggingar verða nýttar og stækkaðar um 1.500 fermetra með nýrri tengibyggingu milli húsanna.
Þorleifur eyddi óvissu um ástand eldri bygginganna og benti á að steyptir útveggir væru allt að 30 cm þykkir – helmingi þykkri en gengur og gerist – og að mannvirkin stæðu traust á klöpp. Með því að varðveita og klæða steypta burðarvirkið frekar en að rífa og byggja nýtt næst umtalsverður umhverfis- og kolefnissparnaður. Íbúðarrýmin verða um 28 fermetrar að stærð, öll með einkasnyrtingu, og búin nýjustu tækni: Gálgabrautir í loftum: Brautarkerfi sem liggja yfir herbergjum og inn á salerni auðvelda flutning íbúa og gera einum starfsmanni kleift að aðstoða í stað tveggja. Rafhækkanleg salerni: Tækni sem hjálpar íbúum að viðhalda sjálfstæði sínu lengur. Aðstaða fyrir fjölskyldur: Í kjallara verður sérstakt rými með útsýni út í garð þar sem heimsóknir aðstandenda geta farið fram utan sjálfra deildanna.
HSS tekur við rekstrinum og eflir bráðaþjónustuna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun annast þjónustu og rekstur
hjúkrunarheimilisins. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS, sagði að nýja heimilið muni ekki einungis bæta öldrunarþjónustu heldur einnig efla sjúkrahúsið í heild sinni: „Með því að byggja hér upp hjúkrunarheimili erum við um leið að styrkja heilbrigðisstofnunina sem sjúkrahús, þannig að við getum losað hjúkrunardeildina hjá okkur og eflt hana sem bráðasjúkrahús fyrir Suðurnesjafólk,“ sagði Guðlaug Rakel. Hún bætti við að HSS hefði lagt mikla vinnu í rýni teikninga til að tryggja að útkoman yrði raunverulegt heimili þar sem fólki liði vel en ekki stofnun. Stefnt er að því að opna heimilið sumarið 2028.
Herstöðin að íbúabyggð Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði daginn marka merkileg tímamót. Hann hrósaði heimafólki og atvinnulífinu fyrir að sýna frumkvæði og fylgja verkefninu eftir. Vilhjálmur benti sérstaklega á táknrænt gildi framkvæmdarinnar á Ásbrú:
„Ég held að þetta sé eitt skýrasta merkið og eitt stærsta skrefið í að þróa þetta af hersvæði yfir í venjulega íbúabyggð. Ég efast um það, þótt margt sé hér nú frá því að herinn var hér, að hann hafi einhvern tímann hugsað sér að byggja hjúkrunarheimili. Þannig að þetta eru alveg skýr umskipti.“ Hann nefndi einnig að Ásbrú væri að þróast hratt í öflugt og fjölbreytt samfélag þar sem saman fara blómlegt atvinnulíf, hótelrekstur, samkomustaðir og starfsemi sveitarfélagsins á borð við hæfingarmiðstöðina við Keili. Framkvæmdaundirbúningur er kominn vel á veg. Grenndarkynningu er lokið og skipulagsnefnd hefur samþykkt verkefnið. Niðurrif á millibyggingum er hafið og gröfur bíða þess að hefja jarðvinnu fyrir sökkla tengibyggingarinnar. Reiknað er með að bjóða út uppsteypu á næstu vikum og hefja innanhússframkvæmdir fljótlega eftir áramót.
Páll Ketilsson pket@vf.is
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á spjali við Sighvat Gunnarsson, útibússtjóra Íslandsbanka.
Þorleifur Björnsson, hönnuður sagði frá hönnun og gerð nýja hjúkrunarheimilisins.
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar sagði það tímamót að hjúkrunarheimilil rísi á Ásbrú.
AFMÆLISTÓNLEIKAR Í HLJÓMAHÖLL 11. SEPTEMBER KL. 18.00
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI DEEP JIMI DEMO GUÐJÓN ÞORGILS GLEÐILEGT FOKKING ÁR HINIR GUÐDÓMLEGU NEANDERDALSMENN KLASSART PANDORA SIGURÐUR GUÐMUNDSSON VALDIMAR GUÐMUNDSSON Aðgangur ókeypis og ekkert aldurstakmark. Kynnar eru: Hallbjörn Valgeir „Halli Valli” Fríðhólm Rúnarsson og Ingi Þór Ingibergsson.
Opið hús í FS 12. september frá 12.00 til 14.00 Formleg hátíðardagskrá með kaffiveitingum frá 14.00 til 16.00 á sal skólans. Öll velkomin.
Velkomin á hátíðardagskrá 50 ára afmælis Fjölbrautaskóla Suðurnesja
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Kristján Ásmundsson skólameistari síðustu tvo áratugi hætti störfum eftir síðustu önn. Hér er hann með Guðlaugu við útskrift á vorönn 2026.
Guðlaug Pálsdóttir er nýtekin við sem skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún þekkir stofnunina betur en flestir enda búin að starfa þar í þrjá áratugi. Í viðtali við Víkurfréttir ræðir Guðlaug um nýja hlutverkið og ábyrgðina, rekstrarniðurskurð, fordæmalausa aðsókn í verknám, áform um nýbyggingu, nýstárlegar námsbrautir og komandi hálfrar aldar afmælishátíð skólans.
Stórkostleg tækifæri og miklar áskoranir hjá FS Guðlaug Pálsdóttir tók við starfi skólameistara nú í upphafi skólaárs en hefur verið við stjórn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í áratugi. Hún er bjartsýn á framtíð skólans þrátt fyrir stöðugar áskoranir. VIÐTALIÐ Páll Ketilsson pket@vf.is
Guðlaug á sér langan starfsferil innan veggja Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún hóf störf sem kennari í líffræði, efnafræði og stærðfræði árið 1996. Hún varð snemma millistjórnandi, varð áfangastjóri árið 2005 og tók síðan við starfi aðstoðarskólameistara, starfi sem hún gegndi um 18 ára skeið í nánu samstarfi við Kristján Ásgeirsson, fyrrverandi skólameistara.
Þrátt fyrir að þekkja skólann eins og handarbakið á sér segir Guðlaug að það sé töluverð breyting að taka við æðstu stöðu skólans. „Það er bara heilmikil ábyrgð. Það er öðruvísi af því að lokasvarið kemur frá skólameistara. Hann á lokaorðið, endanlegt svar. Sjálf þurfti hún að hugsa sig vel um áður en hún ákvað að sækja um stöðuna þegar hún losnaði. „Ég var ánægð sem aðstoðarskólameistari og ég hefði alveg séð mig þar áfram. En það skipti mig máli hver er í brúnni og þess vegna ákvað ég að sækja um. Og ég lét starfsmenn mína vita... ég sagði líka við þau í bréfi að ég yrði ekki
sár ef mjög hæfur einstaklingur kæmi og tæki við.“ Þó að ábyrgðin sé meiri leggur Guðlaug áherslu á að sambandið við starfsfólkið hafi ekkert breyst. „Fólkið tekur mér mjög vel og ég hef ekkert breyst. Þó að ég kannski taki lokaákvörðun í einhverjum málum, þá hef ég ekkert breyst og ég sit bara með fólkinu mínu á kaffistofunni eins og alltaf.“
Niðurskurður og húsnæðisskortur hamlar inntöku nemenda Fyrstu vikurnar í nýju starfi hafa verið líflegar og fullar af áskorunum. Upphaf skólaársins felur
Hér má sjá húsakynni Fjölbrautaskóla Suðurnesja í góðu nágrenni við íþrótta- og skólamannvirki í Reykjanesbæ.
í sér gríðarlega skipulagningu, mönnun, stundatöflugerð og samskipti við stjórnvöld. Eitt stærsta verkefnið sem blasir við er boðaður rekstrarniðurskurður. Aðspurð staðfestir Guðlaug að um rúmlega 7% niðurskurður sé framundan hjá framhaldsskólum. „Við erum auðvitað farin að vinna eftir því. Við þurfum að finna alls staðar leiðir til þess að spara. Það er áskorun af því að það er bara ótrúlega lítið svigrúm í framhaldsskólum. Af því að þetta eru mín fyrstu skref þá er ég bara
... Bóknámið er alltaf vinsælast, en mér finnst verknámið hafa tekið stakkaskiptum. Einu sinni vorum við kannski með einn hóp í rafvirkjun eða einn og hálfan. Núna stútfylltum við þrjá hópa í grunnnámi. Við hefðum getað tekið enn fleiri. Nú er verknámið mjög vinsælt...
ennþá svolítið að finna út hvernig við getum gert þetta en ég er með frábært fólk sem er líka farið að hugsa með mér.“ En það er ekki bara fjárhagslegur niðurskurður sem þrengir að skólanum heldur einnig alvarlegur húsnæðisskortur. Skólinn þjónustar nú yfir 1.300 nemendur í dagskóla, síðdegisnámi og valfögum fyrir grunnskólanema. Þótt skólinn tryggi alltaf inngöngu nýnema og ungmenna undir 18 ára aldri hefur sprenging í ásókn í verknám orðið til þess að mörgum var hafnað í haust. „Við erum með verknám sem er löngu sprungið og þar fengu margir nei núna í haust. Við þurftum að segja nei í rauninni bara út af aðstöðuleysi. Við getum ekki boðið fleirum nám, því miður. Það er ekki gott. Við viljum auðvitað bjóða öllum sem vilja læra nám, en við höfum ekki pláss.“ Dæmi um greinar þar sem aðsóknin var meiri en skólinnn gat komið til móts við eru húsasmíði, rafvirkjun og fótaaðgerðafræði.
Bylting í verknámi og baráttan við fjármögnun Guðlaug rifjar upp breytingarnar sem orðið hafa á námsframboði frá því hún var sjálf nemandi í FS. Þá færði hún sig yfir í MH í Reykjavík vegna þess að námsframboðið kom ekki til móts við hennar óskir. Í dag sé staðan allt önnur og skólinn geti boðið fjölbreyttan grunn.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 11
... Við réðum fyrir ári tómstundafulltrúa og það var stórt skref, að vera með fastan starfsmann sem sér um að halda utan um félagslíf nemenda.... Sérstaklega hefur viðhorf og ásókn í verknám breyst stórkostlega á síðustu árum. „Bóknámið er alltaf vinsælast, en mér finnst verknámið hafa tekið stakkaskiptum. Einu sinni vorum við kannski með einn hóp í rafvirkjun eða einn og hálfan. Núna stútfylltum við þrjá hópa í grunnnámi. Við hefðum getað tekið enn fleiri ef við hefðum tekið alla sem hefðu sótt um hjá okkur. Þannig að verknámið er orðið mjög vinsælt.“ Á sama tíma er skólinn að glíma við það að fá minna fjármagn úr ríkissjóði á hvern nemanda en margir aðrir skólar, þrátt fyrir að verknám sé gríðarlega kostnaðarsamt í tækjum og minni hópum. „Það sem við fáum fyrir hvern nemanda í þessum skóla er lægra heldur en gengur og gerist og við höfum verið að berjast fyrir því í gegnum árin og jafnvel áratugina. Við erum að bera okkur saman við skóla sem eru kannski hreinir bóknámsskólar og erum samt lægri. Á meðan þetta nám sem við erum að bjóða upp á, af því að við erum fjölbreyttur skóli með mjög mikið verknám, þá er það auðvitað miklu dýrara. Hóparnir eru miklu minni og síðan er það tækjakostur og fleira.“ Hún ber aðstöðuna saman við suma aðra framhaldsskóla sem bjóða upp á verknám. „Það er bara ekkert sambærileg aðstaða til dæmis. Kennararnir — við viljum helst ekki senda kennarana okkar þangað til þess að skoða aðstæður. Þá sjá þeir mun. En við eigum von á að það lagist.“ Aðspurð út í muninn á skólanum í dag og þegar hún hóf nám fyrir meira en þrjátíu árum síðan segir hún helst vera fjölbreytnina í námsframboði fyrir utan tækni og fleira sem hefur breyst mikið. „Það er miklu meira í boði í dag og skólinn hefur stækkað mjög mikið. Þá voru nemendur kannski 500600 en eru nú yfir 1300.“
Tekur sveitarfélagið að sér framkvæmdir? Varðandi framtíðarhúsnæði og viðbyggingu við skólann er nú áhugaverð lausn í sjónmáli. Ríkið hefur lagt til að Reykjanesbær taki að sér framkvæmdina við nýbygginguna og er fundur áætlaður milli skólans og bæjaryfirvalda um málið. „Ég er að fara á fund í næstu viku með Reykjanesbæ, þar sem ríkið er búið að óska eftir viðræðum við sveitarfélagið um að taka að
Skemmtileg mynd tekin á sal FS fyrir nokkrum árum. sér þessa byggingu. Það tók að sér að byggja nýtt hjúkrunarheimili Nesvalla og það gekk vel það samstarf ríkis og bæjarfélags. Þannig að þeir eru að skoða þá hugmynd hvort það gæti gengið með þessa viðbyggingu.“
þeir nota frekar Strætó en einkabílinn. Þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að bílastæðin séu stútfull. Og allir framhaldsskólar á Stór-Reykjavíkursvæðinu og á Akureyri tala um það, þetta er eitt mikilvægasta atriðið — að Strætó stoppi beint fyrir utan. Það er mjög víða þannig og við þurfum að ná því hér.“
Nám tengt gagnaverum og sterkari tengsl við atvinnulífið Guðlaug leggur mikla áherslu á að FS eigi að vera í beinu samtali við atvinnulífið á Suðurnesjum og mæta þörfum svæðisins. Skólinn hefur áður sýnt frumkvæði með því að hefja kennslu í pípulögnum árið 2023 og endurvekja Meistaraskólann eftir þrýsting frá nærsamfélaginu. Næsta stóra verkefnið gæti orðið nýtt tækninám sem hannað er í samstarfi við gagnaver svæðisins, líkt og Verne. „Núna erum við að taka okkar fyrstu skref í því hvort við getum boðið upp á nám hérna sem tengist gagnaverum. Við stefnum á að fara á þessari önn til Finnlands og heimsækja skóla sem er með slíkt nám. Þetta gæti kannski verið diplómanám eftir rafvirkjun eða vélstjórn. Það er mjög spennandi.“
Sérstakt utanumhald um erlenda nemendur og tómstundafulltrúi gegn einmanaleika Í skólanum er stór hópur nemenda af erlendum uppruna. Skólinn rekur sérstaka námsbraut og litla hópa í ÍSAN (íslenska sem annað tungumál) fyrir þá sem eru nýkomnir til landsins. Guðlaug bendir á að þótt það kosti skólann mikið fjármagn sé þjónustan nauðsynleg. Erfitt sé hins vegar að mæla hlutfallið nákvæmlega, þar
Hálfrar aldar afmæli: Vikulöng hátíðahöld Ein af nokkrum skóflustungum hjá FS. sem margir nemendur með erlend nöfn séu fæddir á Íslandi og tali fullkomna íslensku. Til að tryggja að öllum nemendum líði vel og þeir eigi sér félagslegan vettvang og stuðning réð skólinn tómstundafulltrúa í fullt starf fyrir ári. „Við réðum fyrir ári tómstundafulltrúa og það var stórt skref, að vera með fastan starfsmann sem sér um að halda utan um félagslíf nemenda. Við erum líka með frábæra stoðþjónustu. Það eru nemendur hérna innanhúss sem eru einmana, og hvernig getum við náð til þeirra og búið til eitthvað umhverfi þar sem þau verða ekki einmana, að þau eignast vini.“
„Ég myndi vilja fá að Strætó myndi stoppa við skólann. Það er hagsmunamál bæði nemenda og ég held að ef Strætó stoppar beint hérna fyrir utan þá myndu
Það er ávallt líf á sal FS.
Hagsmunamál dagsins: Strætó fyrir utan skólann Að lokum nefnir skólameistarinn eitt mjög praktískt baráttumál sem myndi létta á stóru bílastæðavandamáli við skólann: staðsetningu strætóstoppistöðva.
Útskriftir fara fram tvisvar á ári. Hér er Oddgeir Karlsson, ljósmyndari að mynda dúx.
Skólameistarar á miklum uppbyggingarárum, f.v. Jón Böðvarsson, fyrsti skólameistari FS, Hjálmar Árnason og Ólafur Jón Arnbjörnsson.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar 50 ára afmæli sínu og verður slegið upp mikilli hátíð: Vikuna alla: Ýmsir viðburðir og dagskrá tengd nemendum daglega. Föstudagur: Afmælisdagurinn sjálfur! Sérstakur matur í hádeginu og afmæliskaka fyrir nemendur. Um kvöldið klukkan 18:00 verða stórtónleikar í Stapa sem
eru ókeypis og opnir öllum. Fram koma landsþekktir tónlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að vera allir fyrrverandi nemendur FS. Laugardagur: Opið hús í skólanum fyrir alla bæjarbúa, velunnara og fyrrverandi nemendur. Hátíðardagskrá þar sem menntaog barnamálaráðherra mun halda ávarp, fylgt eftir með kökuveislu og starfsmannafagnaði um kvöldið. Guðlaug skorar á alla velunnara skólans að mæta: „Vonandi hefur afmælisboðið dreifst þannig að við fáum þetta fólk í hús á þessum laugardegi. Við viljum endilega sýna þeim hvernig skólinn er í dag.“
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður til veislu á 50 ára starfsafmæli Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar 50 ára starfsafmæli dagana 11. og 12. september nk. og býður nemendum sínum, fyrrum nemendum, íbúum, velunnurum, gestum og gangandi til veislu. Aðgangur er með öllu ókeypis og aldurstakmark ekkert. Á föstudag mun rjómi þess tónlistarfólks sem sótt hefur skólann í gegnum árin og jafnvel hafið sinn feril þar innan, stíga á svið Hljómahallar. Þar verður öllu tjaldað til og reynt að gefa einstakri tónlistar-
sögu skólans gaum á þriggja klukkustunda tónleikum. Þar koma m.a. fram Kolrassa krókríðandi, Valdimar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og nýstirnið Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem er fyrstur nemenda til að bera sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldskólanna. Tónleikar hefjast á slaginu 18.00 og standa til 21.00 og er aðgangur ókeypis og aldurstakmark ekkert.
Á laugardag býður skólinn gestum á opið hús kl. 12.00 sem stendur til 14.00 þegar við tekur hátíðlega athöfn með tónlistaratriðum, ávörpum ráðherra, skólameistara og fleiri tengdra aðila auk kaffiveitinga. Við hvetjum unga sem aldna til að láta sjá sig. Meðfram afmælinu kemur út glæsilegt afmælistímarit þar sem farið er yfir söguna í myndum og máli þar sem gefst mikil innsýn inn í líf og störf innan Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðastliðna hálfa öld.
Guðmundur Jón Bjarnason - Flottir kennarar og sögurnar af Ægi og Maju
RÝNT Í SÖGU FS
Undirritaður á margar skemmtilegar minningar frá námsárunum í FS, 1984–1987. Skólinn skartaði virkilega flottum kennurum og má þar m.a. nefna Ægi Sigurðsson raungreinakennara, Maju Loebell þýskukennara, Gísla Torfason stærðfræðikennara, Björn Örvar líffræðikennara sem kom að stofnun Orf líftækni síðar, og Unni Þorsteinsdóttur sem kenndi efnafræði og er núna framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu og hefur verið talin ein áhrifamesta vísindakona Evrópu. Ég efast um að nokkur annar framhaldsskóli á þessum tíma hafi haft annan eins hóp úrvalskennara.
Ingvar Eyfjörð var formaður NFS:
Tesopi eftir skóflustungu Fréttir úr langri sögu Víkurfrétta verða oft og iðulega verðmætari eftir því sem lengra líður frá þeim. Þessi, sem fréttastjóri Víkurfrétta bað mig um tjá mig um, er frá árinu 1992 þar sem við Hjálmar Árnason, þáverandi skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurnesja og ég, þáverandi formaður nemendafélagsins NFS, sjáumst á mynd drekka te í nýrri viðbyggingu við skólann. Hjálmar hafði falið mér sem fulltrúa nemanda að vígja þessa nýju byggingu með því að drekka fyrsta tesopann en hann hafði lofað opinberlega við fyrstu skóflustunguna að hann myndi efna til teboðs þegar byggingin yrði vígð, einu ári
áður. Og Hjálmar stóð við það og bauð auðvitað nemanda í boðið! En að sjá þessa gömlu frétt minnir mig enn fremur á samskipti okkar Hjálmars. Ég strunsaði oft og iðulega inn á skrifstofu skólameistara með eitthvert, að mér fannst, brýnt hagsmunamál nemenda og málið þoldi enga bið! Alltaf tók Hjálmar á móti mér! Við ræddum erindið, en samtalið fór oftast fljótlega út um víðan völl, yfir í stjórnmál, Njálu eða samfélags- og heimspekileg viðfangsefni. Hann hefur einstaka frásagnargáfu og
smitandi þekkingargleði og ákafi nemendaformaðurinn fór oftar en ekki dáleiddur út af þessum hagsmunafundi. En það sem situr eftir í mér frá þessum árum er virðingin sem Hjálmar bar fyrir nemendum sínum og skólanum. Allir áttu greiða leið að honum en í staðinn gerði hann ríkar kröfur til okkar til baka eins og hann orðaði sjálfur við víxluna að gerðar yrðu „kröfur um árangur og eðlilegan húsaga en þó með sanngirni að leiðarljósi. Skólinn er vinnustaður“. Þessi orð lýsa Hjálmari vel. Er ekki rétt, við þetta tækifæri, nú 34 árum síðar, að bjóða Hjálmari upp á dýrindis te og framhaldsspjall á Aðaltorgi
Sumir þessara kennara höfðu getið sér orð fyrir sérstaka nálgun í kennslu og maður hafði heyrt þeirra getið löngu áður en maður fór í fyrsta tímann til þeirra. Ægi Sigurðsson hitti ég á fyrstu önn í fyrsta tíma í Eðlisfræði 103 en ég hafði margoft heyrt hann nefndan. Við höfum komið okkur fyrir á fremsta bekk nokkrir busar þegar Ægir þusti inn aðeins seinn en samt einhvern veginn á undan sjálfum sér eins og hann kom okkur á stundum fyrir þegar hann stormaði áfram. Hann lagði frá sér blöð á borðið og flétti í þeim fram og til baka án þess svo mikið sem að líta upp. Loks leit hann
Ægir spyr nemendur í FS fyrir all mörgum árum síðan.
upp og horfði á okkur busana á fremsta bekk og sagði: „Þið eigið ekki að vera hér“, bætti svo við „Þið eruð ekki búnir með stærðfræði 103“. Hann varð svo aðeins hugsi og sagði með sínu skemmtilega brosi – glotti: „Jæja, þið komið þá bara aftur í þennan kúrs á næsta ári“. Þetta var hans leið til að láta okkur vita að við þyrftum að hafa aðeins fyrir þessu ef við ætluðum að ná. Skilaboðin náðu í mark enda þorðum við ekki öðru en að leggja okkur alla fram og þurftum vel að merkja ekki að hefja leik aftur á næsta ári. Ægir hafði einstakt lag á því að gera eðlisfræðina skemmtilega.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13
Hvar er Litla ljót?
Guðrún Guðmundsdóttir - Litla Ljót kom í stórum og stæðilegum Bjarna Haustið 1985 fengum við vinkonurnar þá skyndihugdettu að koma með atriði á árshátíð skólans næsta vor sem haldin yrði í Félagsbíó, því þetta væri síðasta önnin sem við værum allar saman í skólanum. Við létum vita af því og svo þegar það fór að nálgast árshátíð þá var haft samband við okkur og við rukkaðar um atriði. Við ákváðum að standa við gefið loforð og bjuggum til okkar útgáfu af ævintýrinu um Litlu Ljót. Ein okkar, hún Hlín, hafði þá nýlega tekið þátt í fegurðarsamkeppni og var hún því sett í hlutverk Litlu Ljótar og við hinar vorum vondu stelpurnar sem sungu til hennar hvað hún væri ljót. Svo fór Litla Ljót djúpt inn í skóginn og þvoði sér úr töfralindinni og varð þá falleg, en í stað þess að Litla Ljót (Hlín) risi upp eftir baðið í lindinni þá hvarf Hlín af sviðinu og upp reis ný og falleg Litla Ljót í líkama stórs og stæðilegs Bjarna Thors sem klæddur var í ballerínupils með slaufu í hárinu og með rauðan varalit. Vakti atriðið mikla lukku. Svo mikill atgangur var í atriðinu að Kollý missteig sig og þurfti að fara á slysó eftir atriðið en það fór þó vel og mætti hún með hækjur um kvöldið á ballið í Stapa. Einnig voru dansarar með okkur í atriðinu sem áttu að túlka skóginn sem Litla Ljót fór til, það voru þeir Sigurður Ingimundarson, Ingólfur Haraldsson og Kristjón Grétarsson. Þeir voru berir að ofan og dönsuðu um sviðið með afklipptar trjágreinar úr skrúðgarðinum okkar. Á myndinni talið frá vinstri eru: Hlín Hólm, Anna Lilja Lárusdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Hallfríður Benediktsdóttir og Kolbrún Garðarsdóttir. Fremst er Bjarni Thor Kristinsson.
Rúnar Hannah - nemandi í FS
NEMENDUR FS Í 50 ÁR
Byrjaði í FS 1986 og útskrifast um næstu jól
Maja Loebell kíkti í galleríið hjá Arnbjörnu Drífu Káradóttur, konu Bjarna sem spurði hana: „Ert þú Maja Loebell?“ Fyrstu tímarnir hjá Maju Loebell voru einnig minnistæðir enda höfðum við verið vöruð við því að hjá henni ríkti sannkallaður þýskur agi, áfram gakk og ekkert kjaftæði. Í Þýsku 103 var í hópnum piltur sem var sannarlega klár og skýr en var skulum við segja ekkert sérstaklega ötull námsmaður þegar kom að heimavinnu og verkefnaskilum, við skulum kalla hann Jón hér. Það má leiða líkum að því að ýmsir kennarar hafi reynt að ramma Jón inn áður án mikils árangurs. Maja hafði þann sið að í hverjum tíma ávarpaði hún alla nemendur, hvern fyrir sig, og spurði út í eitthvað það sem lagt hafði verið fyrir í síðasta tíma. Þegar hún spurði Jón fyrsta sinni þá sagði hann pass og gaf einfaldlega þá skýringu að hann hefði ekki lært heima. Maja lét ekki á neinu bera og vék athygli sinni að næsta nemanda. Það sama gerðist í næsta tíma og þar næsta og tímanum þar á eftir. Við vorum aðeins farin að pæla í þessu og töldum að líkast til væri þessi meinti þýski agi eitthvað orðum ofaukinn. Þegar kom að fimmta tíma og Jón hafði sem fyrr lýst sig algjörlega ólesinn, þá staðnæmdist hún, þagnaði aðeins, horfði á Jón á einhvern þann máta að okkur fannst sem það snarkólnaði í kennslustofunni og sagði honum einfaldlega að það væri óþarfi fyrir hann að koma eitthvað frekar í þýskutíma enda væri það tímasóun fyrir hana, okkur hin og hann sjálfan. Tíminn hélt svo áfram og kláraðist en ég gaf því gaum að Jón dokaði við þegar við hin fórum. Hvað þeirra fór á milli veit ég ekki, en hitt veit ég að eftir þetta þá var erfitt að finna samviskusamari þýskunemanda en Jón og ég áttaði mig á því að henni hefði tekist á 30 sekúndum það sem mögulega engum kennara hafði tekist til þessa, þ.e.a.s. að fá fulla athygli Jóns í kennslustofunni og út fyrir hana í heimavinnu- og verkefnavinnu. Það væri langt mál að tiltaka fleiri af hennar árangursríku kennsluaðferðum, einhvern
Guðmundur Jón Bjarnason var í FS 1984-1987. veginn man ég til dæmis enn þá hvaða forsetningar í þýsku taka með sér þágufall þó svo ég hafi ekki fengið tækifæri til að taka þýskuna mína lengra og hafi í raun lítið gagn af þessari vitneskju sem Maja plantaði þarna fyrir mörgum árum. Ég hef þó af og til sagt konunni minni frá hinu og þessu sem frá Maju kom. Konan mín er leirlistakona og rekur ásamt fleirum gallerí í Reykjavík. Í fyrra sagði hún mér eitt kvöldið að hún hefði þann daginn hitt konu í galleríinu sem ég kannaðist við. Ég kváði við og hún sagði mér frá því að viðskiptavinur hefði gefið sig á tal við hana og spurt m.a. hvaðan hún væri og þannig komist að því að hún væri frá Keflavík. Konan hafði þá látið þess getið að hún hefði búið þar um skeið og verið kennari. Konan mín spurði þá hvað hún hefði kennt og það var jú þýska í FS. Mín kona var ekki lengi að leggja saman tvo og tvo og spurði: „Ert þú Maja Loebell?!“ Hún svaraði aðeins hissa að jú, hún væri vissulega Maja Loebell og við það hló konan mín og sagði henni sem væri að hún væri búin að heyra fleiri tugi sagna af henni frá mér og það allar af góðu einu. Það gladdi mig mikið að fá svo að sjá mynd af þeim saman, sem og það gleður mig jafnan að hitta mína fyrrverandi FS kennara en allnokkrir og of margir hafa þó þurft frá að hverfa fyrr en maður hefði ætlað.
Ég byrjaði í FS 1986 fyrir akkúrat 40 árum og stefni á að útskrifast núna um jólin. Reyndar tók ég fyrst stúdentspróf á síðustu öld, svo meista ra s k ó l a n n í kvöldskóla rétt eftir aldamótin og er núna í þriðja sinn í skólanum og útskrifast sem rafvirki um jólin úr s í ð d e g i s s kó l a sem ég skellti mér í til gamans. Hvað hefurðu ver ið að gera síðan þú útskrifaðist úr FS? Vann í verslunum og á flugvellinum eftir útskrift og flutti svo til Danmerkur í fjögur ár þar sem ég fór í danska úrsmiðaskólann. Rak svo verslun á Laugarveginum og réð mig svo á flugvöllinn í 6 mánuði fyrir 20 árum er þar enn. Fyrst sem öryggisvörður og varðstjóri og starfa í dag sem landamæravörður. Hvernig fannst þér FS búa þig undir það nám sem þú fórst í? Ég var ungur og vitlaust og ekkert mikið sem festist í hausnum. Það sem helst hefur setið í mér og ég hef endurspeglað heiminn í eru þeir félagsfræði og sálfræði áfangar sem ég tók hjá Tótu og Konráði. Einnig var eftirminnilegt að taka þátt í leiklistaráföngum hjá Bogga. Ég var með litla dönsku úr FS þegar ég flutti út en það held ég að hafi frekar skrifast á áhugaleysi hjá mér. Var mjög fljótur svo að læra dönsku í Danmörku þegar ég komst að því að það þarf að innbyrða hana með bjór. En ásamt úrsmíði útskrifaðist ég í Danmörku í bjórdrykkju og er afreksmaður á því sviði. Hvernig skóli er FS í þínum augum? Mér er afar hlýtt til FS og finnst gaman að labba þar enn um gangana en lít líklegast út fyrir að vera risaeðla í augum samnema í skólanum. Skemmtileg tilviljun að í dag erum við öll á heimilinu í FS. Ég í síðdegisnámi, Gabríel og Nói synir mínir í dagskólanum og
Ösp konan mín að taka nokkra áfanga líka. Viltu deila með okkur eftirminnilegum minningum úr gamla skólanum þínum? Það er kannski eftirminnilegast að það var mikið djammað og þegar ég var á fyrstu önn einungis 16 ára þá var ung snót sem þá var einungis 15 ára sem blikkaði mig og höfum við verið saman í 40 ár núna 15. Nóv. Var virkur í starfi leikfélagsins og þær sýningar sem við settum upp eru sterkar í minningunni. Settum upp leikritið Eftirlitsmaðurinn og við vorum um 12 krakkar að setja þetta upp og 10 af þeim hafa látið að sér kveða í listum eftir það. Gefið út hljómlist, skrifað bækur, leikið, leikstýrt og ofl. Mér finnst það magnað. Hver var eftirminnilegasti kennarinn?
Það voru fjölmargir eftirminnilegir kennarar en ég held að ég nefni Gísla Torfa en ég var aldrei sérstaklega mikið fyrir stærðfræði en lenti einu sinni í því að leiðrétta dæmi hjá honum og hann sá að það var rétt en þá hélt móðir mín að helvíti vari frosið yfir þegar ég væri farinn að leiðrétta stærðfræðikennara. Þessi (rassa)mynd er tekinn í busavígslunni haustið 1986. Sé að þarna eru Steindór Bjarni Róbertsson, Sigurður Pálmason, Skúli Skúlason, (held ég), Jón Einar Sverrisson, ég, Guðmundur Hreggviðsson. Þeir sem eiga þessar kinnar er nú í virðulegum störfum í samfélaginu og vil ég ekki gefa upp nöfn þeirra.
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Björn er í miðjuröð annar frá hægri við útskrift í FS.
Björn Vilhelmsson tók húsasmíði og viðskipti í FS
NEMENDUR FS Í 50 ÁR
Eftirminnilegir og góðir kennarar Mín skólaganga í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hófst haustið 1980. Ég ákvað að læra húsasmíði. Námið gekk bara nokkuð vel og ég tók sveinsprófið árið 1985. Síðan hélt ég áfram í FS og fór á viðskiptabraut og útskrifaðist sem stúdent árið 1987. Þegar ég hugsa til baka og rifja upp hvernig skólagangan í FS hafi verið þá eru það jákvæðar og góðar minningar. Íþróttatímarnir og frjálsir tímar í íþróttahúsinu voru sérstaklega skemmtilegir, þar sem áhuginn og ákefðin var mikil og tekist á í fótbolta, körfubolta og fleiri greinum. Einnig var útskriftarferðin til Acapulco í Mexíkó mjög skemmtileg og eftirminnileg. Síðast en ekki síst er það félagsskapurinn og allt það góða fólk sem maður kynntist og þar myndaðist kunningsskapur og vinskapur sem lifir enn.
Það voru góðir kennarar sem kenndu mér og hafa haft áhrif á mig í gegnum tíðina. Vil ég sérstaklega minnast á Sturlaug Ólafsson sem kom mikið að kennslunni í húsasmíðinni, góður maður sem hvatti mann áfram. Sturlaugur Björnsson var einnig frábær kennari sem kenndi grunn- og fagteikningu. Í tímum hjá honum sköpuðust oft skemmtilegar umræður um lífið og tilveruna. Gísli Torfason kenndi stærðfræði, mjög góður kennari sem nálgaðist kennsluna á sérstakan hátt, var þolinmóður og útskýrði dæmin ótrúlega vel. Þar sem ég hef kennt stærðfræði í Gerðaskóla í nokkuð mörg ár, hef ég reynt að hafa hann sem fyrirmynd í stærðfræðikennslunni. Guðni Kjartansson kenndi íþróttir, skemmtilegur og góður kennari, oft að tala um fótbolta og þar sem ég var að spila með Víði á þessum tíma þá komu
leiðbeiningar og hans viska um fótbolta sér að góðum notum hjá mér. Einnig vil ég minnast á Gunnar Þórarinsson sem kenndi viðskiptagreinar og þjóð- og rekstrarhagfræði og tókst honum að vekja áhuga minn á þessum greinum. Eftir skólagönguna í FS vann ég við húsasmíði í nokkur ár. Íþróttir hafa alltaf heillað mig og ég átti þann draum að fara í Íþróttaskólann á Laugarvatni og þangað fór ég og útskrifaðist vorið 1995. Ég réði mig svo í kennslu við Gerðaskóla haustið 1995 og hef verið þar síðan. Ég fór svo í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík með vinnu og útskrifaðist þaðan árið 2006. Nám í FS gefur virkilega góðan grunn og mikla möguleika á fjölbreyttu námi í framhaldinu. Ég hugsa með hlýhug til skólans á þessum tímamótum og vil senda kærar afmæliskveðjur.
Una Steinsdóttir - ævintýraleg árin í FS
Veigar Margeirsson - á sjúkrahús eftir jarðfræðiferð
Fjölbrautarárin voru hreint út sagt stórskemmtileg og ævintýraleg um leið. Ég var mjög virk í félagslífinu, hvort sem það var í stjórn nemendafélagsins, leikfélaginu, íþróttakappleikjum, ræðukeppnum o.fl. Það sem var samt eftirminnilegast voru allir þessir snilldarkennarar sem voru við skólann og þegar ég byrjaði 1982 var skólinn bara 6 ára, en maður upplifði sannarlega engan byrjendabrag, bara grósku, gleði og kraft. Allt eðalkennarar og eftirminnilegir. Ég hef í gegnum tíðina verið talsmaður og stoltur fyrrverandi nemandi Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Skólinn hefur skilað af sér fjölbreyttum hópi einstaklinga út í lífið sem hefur látið taka til sín á öllum sviðum mannlífsins. Fyrir það ber að þakka og ærin ástæða til að fagna 50 ára afmælinu. Takk fyrir mig.
Ég á afar góðar minningar frá FS. Námskerfið hentaði mér mjög vel og ég náði að sameina raungreinar og tónlist á mjög hagkvæman hátt. Félagslífið var mjög blómlegt en stærsta minningin tengist ansi dramatísku óhappi. Vorið 1991 var jarðfræðinemaferð með Ægi kennara á hverasvæðið á Reykjanesi. Við vorum á troðnum stíg að ganga um svæðið og allt í einu steig ég niður í gegnum jarðveginn og með vinstri fótinn í hver. Vatnið hafði fundið sér leið og myndað lítinn hverapoll með leirskán yfir, þannig að ég sá að pollurinn sást ekki. Sársaukinn var ógurlegur og ég hoppaði um á hinum
fætinum og lagðist á grasbala og var rifinn úr skónum. Ég var svo keyrður á sjúkrahúsið í Keflavík og reyndist vera með 4. stigs bruna. Þetta endaði í 4 vikna legu á Landspítala. Ég þurfti síðan að þreyta jarðfræðiprófið í júní langt á eftir hinum bekkjarfélögunum. Stóðst prófið með prýði en ákvað að láta allt jarðfræðitengt eiga sig eftir þetta. Reyni að forðast
hverasvæði að mestu enn þann dag í dag.
Fréttamennskan kviknaði hjá Magnúsi Hlyni í FS:
Frábær og skemmtilegur tími Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður til margra ára, rifjar upp skemmtilega tíma í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem grunnurinn að fjölmiðlaferli hans var lagður. Hann skipaði stóran sess í félagslífinu, var útvarpsstjóri Útvarps Suðurnes sem sett var upp í skólanum og sat síðar í skólanefnd FS. Magnús Hlynur er fæddur á Sjúkrahúsinu í Keflavík 4. september árið 1969 og ólst upp í Vogum. Faðir hans er Hreiðar
Guðmundsson úr Vogum en móðir hans var Anna Halldóra Snorradóttir, kölluð Bíbí, fædd og uppalin í Njarðvík, en hún lést árið 1986. Magnús á einn bróður, Snorra, en elsti bróðir þeirra, Ómar Snorri, lést af slysförum aðeins tíu ára gamall árið 1975. Að loknum grunnskóla í StóruVogaskóla lá leið Magnúsar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég fór strax á fjölmiðlabrautina í FS. Það var virkilega skemmtilegur tími,“ segir Magnús. Hann lét mikið að sér kveða í félagslífinu og var meðal annars útvarpsstjóri Útvarps Suðurnes árið 1988 á meðan hann stundaði námið, en hann útskrifaðist sem stúdent vorið 1989.
Öflugir kennarar og ógleymanleg skólaböll Þegar Magnús er spurður út í kennarana úr FS koma tvö nöfn strax upp í hugann. „Það voru þau Borgþór Arngrímsson, alltaf kallaður Boggi, sem kenndi dönsku, og Guðrún Erla Sigurðardóttir, alltaf kölluð Gerla, sem kenndi þýsku. Viðar Oddgeirsson heitinn, sem vann hjá RÚV á þessum tíma, var líka töluvert með okkur á fjölmiðlabrautinni auk margs annars góðs fólks.“
Skólinn tengdist líka einkalífinu á skemmtilegan hátt því kona Magnúsar, Anna Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur, flutti í Vogana til fjölskyldu hans og var með honum í FS tvo síðustu veturna. Magnús rifjar skólaárin upp af mikilli hlýju: „Ég á mjög góðar minningar úr skólanum, ekki síst af skólaböllunum í Stapanum sem voru frábær. Ég var líka duglegur í félagsmálum og sat í ýmsum nefndum og ráðum, meira að segja í skólanefnd skólans sem fulltrúi Voga árin 1990 til 1994.“
Fjölbreyttur ferill og víðfeðm fréttamennska Þótt fjölmiðlabrautin í FS hafi kveikt neistann tók við nokkuð fjölbreytt náms- og starfsævi. Magnús fór í Bændaskólann á Hvanneyri árið 1991 og ætlaði að verða bóndi en breytti um stefnu og lærði garðyrkju í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi þaðan sem hann útskrifaðist 1996. Hann starfaði í kjölfarið í áratug sem endurmenntunarstjóri skólans. Síðar bætti hann við sig BA-gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri árin 2014–2017. Ljóst er þó að fjölmiðlaáhuginn sem kviknaði í FS hefur alltaf fylgt honum. Magnús var fréttaritari RÚV á Suðurnesjum ásamt Viðari Oddgeirssyni tökumanni, var fréttamaður á Stöð 2 og RÚV til skiptis, ritstjóri og blaðamaður Dagskrárinnar á Suðurlandi í um
15 ár og hefur skrifað í Bændablaðið í tvo áratugi. Í dag býr Magnús á Selfossi ásamt eiginkonu sinni. Þau eiga fjóra stráka og fjögur barnabörn. Hann starfar í hálfu starfi sem fréttamaður hjá RÚV á Suðurlandi og í hálfu starfi í Frístund í Stekkjarskóla á Selfossi, auk þess að vera virkur í Rótarýklúbbi Selfoss og Karlakór Hveragerðis. „Mér fannst fjölmiðlanámið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja mjög
gott og skemmtilegt og það varð örugglega til þess að ég hélt áfram í fréttamennsku. Ég óska skólanum að sjálfsögðu til hamingju með afmælið og vona að framtíð hans verði björt,“ segir Magnús Hlynur að lokum.
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Til hamingju FS Reykjanesbær óskar Fjölbrautaskóla Suðurnesja hjartanlega til hamingju með 50 ára afmælið. Skólinn hefur í gegnum tíðina staðið fyrir metnaðarfullu og faglegu starfi og gegnir mikilvægu hlutverki í menntun og samfélagi á Suðurnesjum.
16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Helga Sigrún Harðardóttir
RÝNT Í SÖGU FS
NEMENDUR FS Í 50 ÁR
Sigga kenndi mér að pikka sjúklega hratt
Nemendur með stuð á sviði.
Stjórn Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir all mörgum árum. Hér eru kunn andlit að ræða mikilvæg mál.
Skrúðganga á Hafnargötunni í Keflavík.
Skólagangan var eftirminnileg að því leyti að ég tilheyrði þéttum vinahópi úr Njarðvík sem var virkur í félagslífinu og nemendafélaginu. Þessi hópur fékk m.a. Helga heitinn Eiríksson, sögukennara, til að leiðsegja sér í göngu yfir Fimmvörðuháls þegar Þórsmerkurferð var í aðsigi, sennilega haustið 1988. Gangan var tekin í tvennu lagi og gist í Baldvinsskála um nóttina. Sjálf var ég nú enginn göngugarpur á þessum tíma, í lánsskóm og með allt of þungan bakpoka. Ég fékk hælsæri eftir hálftíma göngu sem Helgi bjó um með því að setja smokk yfir blöðruna og plástra svo allt í drasl, sem bjargaði því sem eftir var af hælnum á mér. Þá komst upp um hinn ofurþunga bakpoka seinni daginn þegar heljarmenni úr Öræfunum sem hafði ákveðið að slást í för með okkur ákvað að skipta um bakpoka við mig á niðurleiðinni og kvartaði sáran undan þyngslunum. Ég lærði mína lexíu og hef síðan gengið glöð á fjöll með hæfilega þyngd á bakinu í tilgengnum skóm! Við Anna Karlsdóttir Taylor rákum bóksöluna í skólanum um tíma og fórum reglulega „í bæinn“ að sækja bækur og selja í frímínútum. Það er gaman að segja frá því að í fyrravetur var ég svo í leikfimi hjá Guðbjörgu Finns úr Sandgerði sem var líka í FS. Einn viðskiptavina hennar er Anna María Sigurjónsdóttir úr Njarðvík og í einum tímanum áttuðum við okkur á því að allar höfðum við rekið bóksöluna í FS á einhverjum tímapunkti sem var skemmtileg tilviljun.
Sigga Bílddal var á þessum tíma námsráðg jaf i í FS. Hún reyndist mér mjög vel og stendur upp úr hvað varðar starfsmenn og kennara, alltaf boðin og búin og svo endalaust almennileg við stelpu sem mætti ólétt í skólann og eignaðist barn á annarri önninni. Ég þurfti nú kannski ekki miklar tilslakanir þess vegna en það var ómetanlegt að eiga Siggu að sem kenndi mér líka fingrasetningu og að pikka sjúklega hratt á lyklaborð. Það er kunnátta sem ég hef notið æ síðan. Þess utan eru Gísli heitinn Torfa og Þórunn Friðriks eftirminnilegust fyrir hvað þau voru alltaf með okkur krökkunum í liði, Gísli með stærðfræðiútskýringar á heimsmælikvarða, alltaf svo hlýr og styðjandi með sitt óræða bros og Þórunn með félagsfræðilegar, heimspekilegar og siðfræðilegar pælingar sem vöktu forvitni og spurningar. Ég var líka svo heppin að fá að gegna stöðu formanns NFS síðasta árið mitt í skólanum sem var frábært þó að það skólaár hafi endað á sex vikna kennaraverkfalli. Þann tíma áttum við í samstarfi við aðra framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu sem skipulögðu sameiginlega viðburði þennan tíma svo vorönnin færi ekki til spillis í skemmtanalífinu. Þar kynntist ég „kollegum“ sem margir hverjir hafa fetað velgengnibrautina og orðið forstjórar, stjórnmálamenn og framámenn í viðskiptalífinu. Ég tók hlutverk mitt mjög alvarlega sem formaður því á einu skólaballinu fann ég nemanda grátandi inni á klósetti eftir að hún hafði
lent í leiðinda samskiptum við fyrrverandi kærasta. Ég fór með hana heim til hennar, málaði hana upp á nýtt og fór með hana aftur á ballið. Daginn eftir heimsótti ég hana til að vita hvort hún hefði jafnað sig og upp úr því eignaðist ég vinkonu fyrir lífstíð. Þessi ár í FS einkenndust annars af tíðum verkföllum kennara sem voru á þessum tíma í harðvítugum kjaradeilum. Þess naut ég síðar þegar ég var búin að klára kennó og bæta við mig námsráðgjöf þótt þau laun dygðu samt ekki einni fyrirvinnu til að kaupa íbúð yfir hausinn á sér og dóttur sinni tíu árum síðar. Og enn duga kennaralaun líklega skammt undir slíkum kringumstæðum, því miður. Skólagangan í Fjölbrautaskóla Suðurnesja undirbjó mig ljómandi vel undir frekara nám sem ég hef stundað af kappi síðan bæði hér heima og erlendis. Fyrir það er ég þakklát og óska þess að FS megi dafna og þroskast á komandi árum, vonandi undir nýju þaki hið allra fyrsta.
Sendum nemendum og starfsfólki Fjölbrautaskóla Suðurnesja hamingjuóskir á 50 ára afmæli skólans
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrenn
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 17
„Við erum að reyna að einbeita okkur að því að auka jákvæðar fréttir af Reykjanesbæ“ Hressilegar umræður urðu á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þegar bókanir minnihlutans (Framsóknar og Samfylkingar) voru ræddar. Tilefnið var tilfærsla íþrótta- og tómstundamála undir skrifstofu bæjarstjóra, sem meirihlutinn segir gert til að auka vægi málaflokksins, en minnihlutinn sagði í bókunum sínum vera einkamál bæjarstjóra. Kristján Pétur Kristjánsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi orðbragð minnihlutans í opinberum bókunum þar sem talað var um „alvalda bæjarstjóra Reykjanesbæjar“ og að ákvarðanir væru teknar í „reykfylltu bakherbergi sparnaðarteymis“. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri brást af hörku við og sagði DV-bókanir minnihlutans rugla umræðuna. „Við erum að reyna að einbeita okkur að því að auka jákvæðar fréttir af Reykjanesbæ,“ sagði hann meðal annrs og sagðist
þola gagnrýni á óformlegum vettvangi en að sér væri misboðið þegar slíkur málflutningur fari í opinber skjöl sveitarfélagsins. Síðar sagði hann á léttari nótum að hann þyrfti kannski að vera með beina útsendingu frá skrifstofu sinni til að fyrirbyggja misskilning, en undirstrikaði að hann þyrfti eðlilegt svigrúm til að undirbúa mál með starfsfólki. Kristján Pétur hafnaði einnig fullyrðingum minnihlutans. Hann benti á að Sjálfstæðisflokkurinn ætti enga skrifstofu í ráðhúsinu heldur væri hún í Grófinni 8. Meint bakherbergi væri í raun opið vinnurými frammi á gangi þar sem umbóta- og hagræðingarteymi bæjarins starfar, en ekki sparnaðarteymi. Vilhjálmur kallaði eftir málefnalegri gagnrýni og virðingu í umræðum og ítrekaði að meirihlutinn myndi halda áfram að vinna að skilvirkni og uppfylla stefnuskrá sína.
Eldisgarður – Vélstjóri og rafvirki Taktu þátt í rekstri tæknivædds landeldis á Reykjanesi. Eldisgarður er landeldisstöð Samherja fiskeldis á Reykjanesi í auðlindagarði HS orku. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum vélfræðingi/vélstjóra og rafvirkja til að taka þátt í rekstrinum.
Helstu verkefni og ábyrgð • Daglegur rekstur, standsetning, eftirlit með vélbúnaði og tæknikerfum. • Þátttaka í uppbyggingu og þróun tæknikerfa. • Skráning og eftirfylgni með viðhaldsverkefnum í viðhaldskerfi fyrirtækisins.
Vélfræðingur/Vélstjóri • Vélstjórnarmenntun- 4 stig er kostur. • Starfsreynsla af störfum vélstjóra er kostur. • Reynsla af vélgæslukerfum er kostur. • Frumkvæði og metnaður til að taka þátt í uppbyggingu. • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta.
Rafvirki
Gatnaframkvæmdir við Ásahverfi bíða eftir tekjum af gatnagerðargjöldum Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var farið yfir skrifleg svör við fyrirspurn Samfylkingarinnar varðandi umferðaröryggi og tafir á gatnaframkvæmdum tengdum Ásahverfi. Spurt var sérstaklega um hringtorg við Bergás og Grænás, undirgöng og göngustíg frá Fitjum að Olís, ásamt þverun á Njarðarbraut. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri leiðrétti þá uppfærslu að umræddum framkvæmdum hefði þegar verið tryggt fjármagn. Framkvæmdirnar voru vissulega settar á fjárfestingaráætlun ársins 2026 af fyrri meirihluta, en sú áætlun var algerlega háð tekjum í formi gatnagerðargjalda sem ekki hafa skilað sér á árinu. Þá upplýsti bæjarstjóri að 50 milljónir króna, sem til stóð að færa af gatnagerðarlið ársins 2025 yfir á árið 2026, hefðu af óútskýrðum ástæðum ekki skilað sér á milli ára. Því væri staðan sú að fjármagn skorti, en starfsfólk umhverfis- og framkvæmdasviðs væri alveg klárt í að hefja framkvæmdir um leið og tekjur af gatnagerðargjöldum bærust. Í svörunum var tekið fram að heitið „bráðabirgðahringtorg“ við Bergás væri mögulega rangnefni. Átt væri við að hringtorgið yrði minna í sniðum en tvöfalda hringtorgið á gatnamótum Njarðargötu og Fitjabakka. Í skýrslu frá verkfræðistofunni Eflu var mælt með því að þessi gatnamót yrðu alveg aflögð í framtíðinni, en bæjaryfir-
völd hafa tekið ákvörðun um að fylgja þeirri ráðgjöf ekki. Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, lýsti yfir miklum áhyggjum af töfunum og sagði umferðaraðstæður í Ásahverfi vera orðnar brjálæði á háannatímum. Hjörtur líkti því að keyra inn í hverfið við að „landa í geitungagildru“ – auðvelt væri að komast inn en fólki gengi vel að komast út aftur, sérstaklega þar sem lokun norðanverðs Bergáss hefði þrengt enn frekar að tengingum. Guðbergur Reynisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, svaraði því til að Bergási hefði verið lokað norðanmegin vegna öryggis barna á svæðinu. Hann hvatti íbúa og aðra til að nýta frekar Vallarásinn suður úr hverfinu til að komast á Fitjar á meðan unnið er að deiliskipulagi Njarðarbrautar og hringtorgsgerð við Bergás. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar, gagnrýndi svör meirihlutans og sagði stjórnsýsluna rugla saman almennum framkvæmdalínum og gatnagerð. Hún benti á að tekið hefði verið fram í gögnum að 1.850 milljónir hefðu farið í framkvæmdir á árinu og að gatnagerðargjöld ættu alltaf að fara í gatnagerð. Bæjarstjóri svaraði því að heildarliður umferðar- og gatnamála hljóðaði upp á um 500 milljónir króna og að allt fjármagn þar væri þegar uppurið í aðrar malbikunar- og gatnaframkvæmdir fyrr á árinu.
• Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun. • Reynsla af rekstri og viðhaldi rafkerfa er kostur. • Reynsla af sjálfvirknikerfum, PLC-stýringum eða iðnaðarkerfum er kostur. • Reynsla af vélgæslukerfum er kostur. • Frumkvæði og metnaður til að taka þátt í uppbyggingu. • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta.
Við bjóðum • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu eins stærsta landeldisverkefnis Evrópu. • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í ört vaxandi atvinnugrein. • Öflugt teymi sérfræðinga og spennandi starfsumhverfi. • Framtíðarstarf.
Um Samherja fiskeldi Samherji fiskeldi hefur yfir tveggja áratuga reynslu af landeldi á laxi og bleikju. Fyrirtækið leggur áherslu á sjálfbæra framleiðslu og ábyrga nýtingu. Eldisgarður á Reykjanesi er ný og metnaðarfull landeldisstöð í uppbyggingu sem mun nýta jarðsjó, ylsjó og endurnýjanlega orku til framleiðslu á laxi frá seiði til slátrunar. Markmiðið verkefnisins er að byggja upp hagkvæma landeldisstöð sem framleiðir hágæða afurðir fyrir kröfuharða neytendur.
Nánari upplýsingar Umsóknarfrestur er til 22. september 2026 Nánari upplýsingar veitir Gunnar Dagur Darrason, rekstrarstjóri Eldisgarðs, gdd@samherji.is Sótt er um starfið á heimasíðu Samherja, samherji.is
18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Einstök Ljósanótt í Reykjanesbæ:
„Sjaldan eða aldrei séð annað eins“ Ljósmyndir:
Páll Ketilsson Hilmar Bragi Bárðarson Guðmundur Ibsen Jón Steinar Sæmundsson
Mikill mannfjöldi lagði leið sína til Reykjanesbæjar um helgina en Ljósanótt var haldin dagana 3. til 6. september. Hátíðin náði hámarki á laugardeginum og er það mál manna að sjaldan eða aldrei hafi eins mikið af fólki verið saman komið í bænum. Hafnargatan var stútfull af glöðum gestum þegar hin hefðbundna árgangaganga liðaðist niður götuna og á hátíðarsvæðið, en gangan er jafnan góður mælikvarði á þátttöku í hátíðarhöldunum. Alla dagana var boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allan bæ. Listsýningar, tónleikar, tilboð í verslunum og á veitingastöðum ásamt ótal öðrum viðburðum glæddu bæinn lífi og gæddu bæinn einstakri stemningu. Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar og verkefnastjóri Ljósanætur, segir skipuleggjendur vera ótrúlega ánægða með hvernig til tókst í ár.
„Það er auðvitað alltaf erfitt að leggja nákvæmt mat á fjöldann, en það var alveg ljóst að gríðarlega margt fólk var í bænum og stemningin var einstök. Á köflum held ég að við höfum sjaldan, ef nokkurn tímann, séð jafn mikinn mannfjölda á Ljósanótt,“ segir Guðlaug.
„Að sjá bæinn fullan af lífi, fólk á öllum aldri úti að njóta saman og þessa miklu Ljósanæturstemningu sem myndast hér er eiginlega besta umbunin fyrir alla vinnuna sem liggur að baki.“
Öflug samfélagshátíð Guðlaug undirstrikar að það sem standi mest upp úr sé hversu öflug samfélagshátíð Ljósanótt er orðin, en hún verði aðeins til með samvinnu heils samfélags. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og ótal sjálfboðaliðar hafi lagt sitt af mörkum, auk starfsfólks og samstarfsaðila sem unnið hafi hörðum höndum bak við tjöldin. Þótt áskoranir fylgi hátíð af þessari stærðargráðu og alltaf sé eitthvað sem læra má af, segir Guðlaug stolt og þakklæti vera efst í huga:
Sjötugur KK tróð upp í Stapanum.
Páll Óskar var leynigestur við setningu Ljósanætur.
Mögulega var þetta fjölmennasta árgangagangan.
Anna Ósk Erlingsdóttir mætti með sýningu á listaverkum í Fishershúsi. Boðið var uppá brekkusöng í Innri Njarðvík þangað sem stór hópur fólks mætti og skemmti sér.
Tveir bæjarstjórar, Vilhjálmur Árnason og Sigurbjörn Arnar Jónsson.
Mikill fjöldi fólks mætti í kjötsúpu til Skólamatar .
Gunnar Jónsson, 103 ára, er mögulega elsti þátttakandi Ljósanætur. Hér er hann með dætrum sínum í kjötsúpuveislu Skólamatar.
Unga fólkið lét ljós sitt skína á kjötsúpusviðinu á föstudagskvöldinu.
Myndskeið og fleiri ljósmyndir frá Ljósanótt eru á
Sýningar og uppákomur voru um allan bæ. Hér er Nýja bíó við Hafnargötu nýtt sem sýningarrými.
vf is
Lögregla og aðrir viðbragðsaðilar voru mjög sýnilegir á hátíðinni.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 19
Fjölmenni var á tónleikum Ljósanætur á hátíðarsviðinu á laugardagskvöld eins og þessi drónamynd sýnir.
Árgangur 1966 er sextugur í ár og lét sig ekki vanta í árgangagönguna.
Árgangur 1976 er 50 ára árgangurinn að þessu sinni.
Frá hátíðarsviði föstudagsins við ráðhústorgið.
Snorri Sævars , 15 ára myndlistarmaður úr Keflavík sýndi verk sín.
Nýtt ilmvatn var kynnt í einu elsta húsi bæjarins.
ÁHUGAVERÐUR REKSTUR Á ÁSBRÚ TIL SÖLU
Verksmiðja Massífra Húsa ehf til sölu með tækjum og tólum, kennitala og fyrirtækið Massíf Hús ehf. fylgir ekki með. Verksmiðjan er til húsa í leiguhúsnæði að Kliftröð 5 Ásbrú Reykjanesbæ, og er framleigjanlegt. Góð aðstaða er fyrir hendi, verksmiðja, lager, skrifstofa, kaffistofa, gestaherbergi, möguleiki á tveimur herbergjum til viðbótar. Húsnæðið er hannað með það í huga að framleiða ákveðnar húsagerðir inni á mörgum byggingastigum ásamt því að vera alveg tilbúin með öllu allt eftir óskum kaupandans. Verksmiðjan er staðsett á góðum stað, þar sem stutt er í alla vöruþjónustu bæði frá Byko og Húsasmiðjunni og fl. Húsagerðir sem falla vel að framleiðslu inni, neðangreind 3D hönnun fylgir með verksmiðjunni.
www.massifhus.is 1. 15 m2 smáhýsi sem passar vel í garðinn og víðar. 2. 45 m2 Funkishús 3. 65 m2 Funkishús 4. 85 m2 Funkishús Hús framleidd í einingum. 5. Alba Sumarhús 170m2 6. Katla Einbýlishús 204m2 7. Lóa sumahús 92m2 8. Aþena einbýli á tveimur hæðum 680m2 Sjá teikningar og 3D af húsunum. Verð kr. 20.000.000 greitt innan tveggja ára með 65m2 sumarhúsi samkvæmt nánara samkomulagi. Kjartan Ragnarsson kjartan@massifhus.is 7705144.
20 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Karen á sviðinu í Stapa með tónlistarfólkinu sem fagnaði með henni.
Stórfenglegir afmælistónleikar:
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
ÁSMUNDUR S. JÓNSSON rafvirki
lést mánudaginn 17. ágúst á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur þakka starfsfólki sjúkradeildar og heimahjúkrunar HSS fyrir góða umönnun. Bryndís Sveinsdóttir Örvar Ásmundsson Þórdís Friðbergsdóttir Brynjar Ásmundsson Hanna Birna Valdimarsdóttir og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,
SIGRÚN BERNHARÐ ÞORLÁKSDÓTTIR Framnesvegi 20, Keflavík
lést á Hrafnistu Nesvöllum, laugardaginn 15. ágúst. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Flosi Már Jóhannesson Arna Berharð Þorlákur Bernharð Smári Friðriksson Sigrún Björgvinsdóttir Odda Friðriksdóttir Sigurbjörg Einarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Karen Sturlaugsson heiðruð á 70 ára afmælinu Tónlistarlífið á Suðurnesjum ljómaði af hlýju og gleði á dögunum þegar efnt var til viðamikilla afmælistónleika til heiðurs Karen Sturlaugsson í Stapa í Hljómahöll. Karen fagnaði nýverið 70 ára afmæli sínu og átti von á mörgu, en tónlistarfélagar hennar og fyrrum nemendur höfðu undirbúið óvæntu tónleikana í meira en tvö ár án þess að hún vissi af. Á tónleikunum var Karen heiðruð á margvíslegan hátt fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu tónlistareflingar og samfélagsins. Meðal annars var hún gerð að heiðursfélaga SÍSL, Sambands íslenskra skólalúðrasveita, auk þess sem henni voru færðar ýmsar aðrar gjafir og þakkir. Tónleikagestir fengu að njóta fjölbreyttrar og efnismikillar dagskrár sem endurspeglaði breiddina í tónlistarlífi svæðisins. Tónleikarnir hófust á sameiginlegri afmæliskveðju allra viðstaddra í útsetningu Ellerts Karlssonar. Því næst steig bjöllukór á stokk og flutti lögin Hopp-í-polla með Sigur Rós og Sweet Caroline eftir Neil Diamond, áður en allir flytjendur sameinuðust á ný í einkennislagi
Hogan's Heroes og hinu þekkta útilegumannalagi Á Sprengisandi. Því næst tók Lúðrasveit Verkalýðsins við sviðinu og flutti hátíðleg lög og syrpur, meðal annars Barnum and Bailey's Favorite, syrpu með lögum hljómsveitarinnar Eagles, tónlist úr Galdrakarlinum í Oz og þekkta smelli Bítlanna. Eftir hlé var dagskráin tekin upp aftur með glæsilegu trompetsamspili þar sem flutt var lagið Maid of the Mist. Í kjölfarið tók stórsveit við og bauð upp á öfluga sveifludagskrá. Fram komu nokkrir af fremstu söngvurum landsins: Marína Ósk Þórólfsdóttir söng Orange Colored Sky, Valdimar Guðmundsson flutti Almost Like Being in Love, Birta Rós Sigurjónsdóttir
söng Caught a Touch of Your Love og Jón Marinó Sigurðsson kynnti til leiks Harðsnúnu Hönnu. Tónleikunum lauk með mikilli lokasyrpu þar sem allir tónlistarmennirnir sameinuðust á sviðinu. Flutt voru lögin Give My Regards to Broadway og að lokum hið vinsæla lag Nakinn, þar sem Jón Jósep Snæbjörnsson (Jónsi) fór á kostum í söngnum, en hann gegndi jafnframt hlutverki kynnis kvöldsins. Fjöldi tónlistarfólks kom að flutningnum og fór stjórnun tónleikanna í hendur nokkurra aðila. Heimir Ingi Guðmundsson stýrði Lúðrasveit Verkalýðsins og heildaratriðum, Veigar Margeirsson stýrði stórsveitinni, Arnar Freyr Valsson hélt utan um bjöllukórinn og Sandra Rún Jónsdóttir stýrði trompetsamspilinu, á meðan Þórhallur Arnar Vilbergsson sá um hljóðstjórn. Stemningin í Stapa var rafmögnuð allt kvöldið og var þakklæti og virðing til Karenar í fyrirrúmi hjá öllum viðstöddum.
Karen var gerð að heiðursfélaga í SÍSL, Sambandi íslenskra skólalúðrasveita. Hún fékk að gjöf mynd eftir Ethorio, myndlistarmann.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona, amma, langamma og langalangamma,
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR Norðurgötu 23, Sandgerði
lést 24. ágúst á Hrafnistu, Nesvöllum. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þakkir til starfsfólks Hrafnistu Nesvöllum fyrir einstaka umönnun. Ingi Rúnar Sigurðsson Þóra Björg Guðjónsdóttir Pétur Helgi Guðjónsson ? Óskar Þór Guðjónsson Júlía Guðný Hreinsdóttir Auðbjörg Laufey Guðjónsd. Vidar A. Johnsen Lilja Guðjónsdóttir Þórir Hrafnkellsson Ragnar Pétursson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Bjöllukórinn var að sjálfsögðu með afmælistónlist í tilefni dagsins.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 21
Framtíð Bókasafnsins í Hljómahöll til endurskoðunar – Kostnaður og lærdómsaðstaða til skoðunar Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var lagt fram skriflegt svar við fyrirspurn Samfylkingarinnar um hvort stæði til að flytja Bókasafn Reykjanesbæjar úr Hljómahöll. Svörin og umræðurnar á fundinum leiddu í ljós að meirihlutinn telur rétt að staldra við og meta framtíðarstaðsetningu safnsins.
Verkefninu í Hljómahöll enn ólokið og kostnaður mikill Í svari stjórnsýslunnar kom fram að verkefninu við flutning og frágang bókasafnsins í Hljómahöll væri í raun enn ólokið. Enn á eftir að ráðast í miklar breytingar, svo sem að bæta geymsluaðstöðu, setja upp útdraganlega stúku í salnum Bergi og klára annan frágang. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri benti á að um verulegan kostnað væri að ræða ef áætlaðar framkvæmdir ættu að ganga eftir.
Gagnrýni á fyrri ákvarðanir og vandamál í núverandi húsnæði Bæjarstjóri áréttaði að bæði Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hefðu verið mótfallnir flutningi bókasafnsins í Hljómahöll á sínum tíma og kölluðu staðsetninguna „vanhugsaða“. Fram kom að ýmis hagnýt vandamál hefðu komið upp
vegna staðsetningarinnar og að verulegu skattfé hefði þegar verið varið í breytingar sem ekki sér fyrir endann á. Meirihlutinn telur því nauðsynlegt að meta hvort áframhaldandi fjárfesting í Hljómahöll leysi raunverulega þau vandamál sem uppi eru eða hvort betra sé til lengri tíma að finna safninu annan stað.
Skortur á lærdómsaðstöðu en ánægja með samfélagsstarfið Í umræðunum á fundinum tók Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, til máls og sagðist sjálfur hafa nýtt safnið mikið og verið ánægður með það sem samfélagsmiðstöð, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk og eldri borgara í nærumhverfinu. Hann benti hins vegar á að verulega vantaði upp á lærdómsaðstöðu fyrir námsfólk (sérstaklega háskólanema í staðarnámi) og von-
Byggingarréttargjöld í núll krónur Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var endanlega staðfest breyting á gjaldskrá samkvæmt 3. grein samþykktar um innviðagjöld. Lækkun gjaldayfirlitsins í 0 krónur á fermetra náði til allra flokka: íbúðabyggðar, iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu ásamt athafnasvæðum. Tillaga minnihlutans um að vísa málinu aftur til bæjarráðs var felld með sex atkvæðum gegn fimm. aðist til að góð lausn fyndist á því. Vilhjálmur bæjarstjóri tók undir að mikið og gott starf færi fram á safninu, en ítrekaði að stóra málið varðaði fjármögnun, framkvæmdir og heildarstefnu.
Samtal við starfsfólk fram undan Bæjarstjóri undirstrikaði að engin lokaákvörðun hefði verið tekin um hvort flutningur ætti sér stað strax eða síðar. Gefinn verður góður tími í framhaldinu, m.a. í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu bæjarins, til að fara yfir alla möguleika í þéttu samtali við starfsfólk Bókasafnsins og Hljómahallar.
Sameiginleg ábyrgð á góðu skólasamfélagi Börnin eru mikilvægust. Þessi orð úr menntastefnu Reykjanesbæjar eiga að endurspegla allt skólastarf bæjarfélagsins. Þau eiga að vera leiðarljós í daglegu starfi og hafa áhrif á ákvarðanir, samskipti, kennsluhætti og skipulag skólastarfs. Í Stapaskóla er lögð áhersla á að skapa skólasamfélag þar sem öllum börnum er mætt af virðingu, að þau fái tækifæri til að nýta styrkleika sína og áhuga og þann stuðning og þær áskoranir sem þau þurfa til að ná árangri. Verkefnið er ekki að gera öll börn eins, heldur að skapa þeim góðar aðstæður til náms, þroska og félagslegra tengsla. Slíkt krefst sameiginlegrar ábyrgðar starfsfólks, nemenda og heimila.
Menning skiptir máli Skólastarf snýst ekki eingöngu um kennslu og n á m s á ra n g u r. Börn læra einnig af samskiptum, viðhor fum og þ e i r r i m e n ningu sem einkennir skólasamfélagið þeirra. Þau læra af því hvernig fullorðnir bregðast við mistökum, hvernig ágreiningur er leystur og hvernig komið er fram við aðra. Þess vegna skiptir máli að skapa umhverfi þar sem börn upplifa öryggi, tilheyra hópi og vita að á þau sé hlustað. Slíkt umhverfi styður við nám og gerir börnum auðveldara að taka þátt, takast á við áskoranir og þróa sjálfstæði. Í Stapaskóla er unnið eftir hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar, þar sem áhersla er lögð á ábyrgð einstaklinga á eigin ákvörðunum og framkomu. Þar er einnig lögð áhersla á að einstaklingurinn hafi val um hvernig hann bregst við aðstæðum þó að oft þurfi æfingu og aðstoð. Allt þetta er mikilvæg nálgun í skólastarfi. Börn þurfa að læra að bera ábyrgð á gjörðum sínum en þau þurfa jafnframt að fá tækifæri til að læra af mistökum því mistök eru hluti af námi og þroska. Mikilvægast er að geta viðurkennt þau, lært af þeim og fundið betri leið næst.
Gildi sem eiga að sjást í verki Gildi Stapaskóla eru gleði, vinátta, samvinna og virðing. Gildi hafa þó lítið vægi ef þau eru eingöngu sýnileg á veggjum eða í stefnumótun, þau þurfa og verða að birtast í daglegu skólastarfi. Gleði skapar jákvætt andrúmsloft og eykur vellíðan. Hún má og á að eiga sinn stað í skólastarfi án
þess að dregið sé úr kröfum eða fagmennsku. Vinátta og góð félagsleg tengsl eru mikilvæg til að skapa öryggi og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Börn þurfa að fá leiðsögn í samskiptum, læra að leysa ágreining og taka þátt í að skapa góðan skóla. Samvinna er svo forsenda þess að við náum árangri. Nemendur þurfa að læra að vinna með öðrum, starfsfólk þarf að vinna saman að sameiginlegum markmiðum og fjölskyldur og samfélagið allt að styðja við starfið. Gott skólastarf verður ekki til með einstaklingsframtaki einnar manneskju heldur með samstilltu starfi margra. Virðing felur í sér að sjá hvert annað, hlusta og taka tillit. Í orðinu virðing felst orðið virði. Hver einstaklingur þarf að upplifa að hann skipti máli og að framlag hans hafi gildi, sé einhvers virði. Á sama hátt þarf hvert og eitt okkar að sýna öðrum þá virðingu sem við sjálf viljum njóta.
Faglegt starf og sameiginleg sýn Góður skóli verður ekki til af sjálfu sér heldur mótast af fagmennsku starfsfólks, skýrri stefnu, markvissri stjórnun og sameiginlegri sýn. Starfsfólk Stapaskóla hefur sýnt mikinn metnað í uppbyggingu skólastarfsins og áherslan á þarfir nemenda er skýr. Verkefnið fram undan er að halda áfram að þróa starfshætti, styrkja teymisvinnu, nýta fjölbreytta kennsluhætti og skapa góðar aðstæður fyrir bæði nemendur og starfsfólk. Framúrskarandi skólastarf snýst ekki um að allt sé fullkomið heldur snýst það um stöðugar umbætur, faglega umræðu og vilja til að spyrja reglulega hvort hægt sé að gera betur. Þar þarf einnig að vera svigrúm til að gera mistök, læra af þeim og breyta því sem ekki virkar.
Hlutverk og samstarf heimila og skóla Uppeldi til ábyrgðar leggur meðal annars áherslu á að einstaklingar þurfi að þekkja sitt hlutverk og bera ábyrgð á því. Hlutverk heimilis og skóla eru ólík en þau styðja hvort annað. Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir barna sinna og bera meginábyrgð á uppeldi þeirra. Þeir veita börnum öryggi, umhyggju og leiðsögn og kenna þeim grundvallargildi og reglur samfélagsins. Hlutverk skólans er að mennta, efla og styðja nemendur í námi og félagslegum þroska. Skólinn á að veita þeim þekkingu og fjölbreytt verkfæri til að takast á við verkefni samtímans og framtíðarinnar. Nám fer að stórum hluta fram í samskiptum við aðra og börn læra bæði með og af öðrum börnum, undir leiðsögn kennara og annars starfsfólks. Þess vegna er gott samstarf heimila og skóla ein mikilvægasta forsenda farsæls skólastarfs. Það samstarf þarf að byggjast á trausti, virðingu og hreinskilnum samskiptum. Þegar eitthvað má betur fara þarf að vera hægt að ræða það af yfirvegun og leita lausna. Markmiðið á alltaf að vera það sama, að tryggja börnum góðar aðstæður til náms og velferðar.
Hvað þýðir þetta í krónum og aurum? Innviðagjöld á íbúðarhúsnæði höfðu numið 35.000 krónum á fermetra frá því samþykktin tók gildi í júní 2024. Með breytingunni sparar uppbyggingaraðili eða fjölskylda 5.250.000 krónur við byggingu á 150 fermetra íbúðarhúsnæði. Bæjarstjóri sagði þetta eina umfangsmestu skattalækkun á sveitarstjórnarstiginu á síðustu árum. Gjöld vegna atvinnuhúsnæðis (iðnaðar-, verslunar- og athafnasvæða) lækka á sama hátt úr 6.000 krónum á fermetra í 0 krónur. Rök meirihlutans: Séreignarstefna, fordæmisgildi og minni aðgangshindranir Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri las upp bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks þar sem ákvörðunin er sögð endurspegla skýra séreignarstefnu. Helstu rök meirihlutans voru: Vítahringur verðbólgu rifinn upp: Ekki sé hægt að gera húsnæði hagkvæmara með því að gera það dýrara að byggja. Opinberar álögur hafi hækkað fasteignaverð og þar með drifið upp verðbólgu og vexti. Fordæmi fyrir aðra landeigendur: Sveitarfélagið vill senda skýr skilaboð til ríkisins og annarra landeigenda í bænum um að gera það sama og hækka ekki kostnað við uppbyggingu. Jafnari staða fyrir minni verktaka og fjölskyldur: Hærri gjöld í upphafi framkvæmda hafi hyglað stórum verktökum með sterka fjárhagslega bakhjarla, en minni verktakar og fjölskyldur hafi dregist aftur úr. Sjálfbær vöxtur með sérbýli: Með því að leggja áherslu á sérbýlisuppbyggingu frekar en fjölbýli verða þrýstingur og hraði á innviðafjárfestingum hófsamari. Tekjur sveitarfélagsins munu skila sér til lengri tíma í formi útsvars, fasteignaskatta og lóðaleigu. Engin áhrif á fjárhagsáætlun ársins: Bæjarstjóri benti á að ekki
hefði verið gert ráð fyrir tekjum af byggingarréttargjöldum á yfirstandandi ári og ákvörðunin raski því ekki rekstraráætlun. Gagnrýni minnihlutans: 60 milljarða innviðakostnaður og óttast „volume tvö“ af leiguleiðum Fulltrúar minnihlutans (Framsókn og Samfylking) lögðu fram ítarlega bókun þar sem ákvörðunin var kölluð óðagotsleg og popúlísk: Lækkað úr 0 í 0 krónur hjá sumum: Minnihlutinn benti á að enginn hefði enn greitt þessi gjöld í bænum og engar tekjur hefðu verið færðar inn í áætlanir, þannig að verið væri að lækka úr „0 krónum í 0 krónur“ í bili en afsala sér framtíðartekjum. Tugmilljarða innviðaþörf: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Róbert Jóhann Guðmundsson bentu á að innviðaþörf sveitarfélagsins næstu árin nemi um 60 milljörðum króna vegna fólksfjölgunar (skólar, leikskólar, íþróttamannvirki o.fl.). Það sé óábyrgt að afsala sér hlutdeild í þeim verðmætum sem skapast við uppbyggingu. Afsalið rennur í vasa annarra: Minnihlutinn benti á að stór hluti lands í sveitarfélaginu sé í eigu ríkisins eða einkaaðila sem innheimti byggingarréttargjöld. Bærinn hafi náð tímamótasamkomulagi við ríkið um að fá hluta þeirra gjalda til sveitarfélagsins, en með þessari ákvörðun sé sá ávinningur færður í hættu. Óttast leiguleiðir fasteignafélaga: Halldóra Fríða lýsti yfir áhyggjum af því að án innviðagjalda neyðist bærinn aftur í að leigja grunninnviði af fjárfestum eða byggingarfélögum („Fasteign volume 2“). Ekki víst að afsláttur skili sér í fasteignaverði: Minnihlutinn benti á að uppbyggingaraðilar selji vöruna sína á markaðsverði og óvíst sé hvort niðurfelling á gjaldi skili sér í lægra verði til kaupenda.
Sameiginlegt verkefni Nýtt skólaár felur í sér ný tækifæri til að halda áfram að þróa skólasamfélagið. Það kallar á opinn huga, fagmennsku, ábyrgð og samvinnu. Stapaskóli er og á ætíð að vera öruggt, metnaðarfullt og lifandi skólasamfélag þar sem öll börn tilheyra, fá að njóta sín og fá tækifæri til að ná árangri. Að tryggja það er sameiginlegt verkefni nemenda, starfsfólks, heimila og samfélagsins alls. Það er daglegt verkefni, í kennslustofum, á göngunum, í frímínútum, í samskiptum og í öllum þeim litlu ákvörðunum sem teknar eru daglega og saman móta skólamenninguna. Saman getum við gert svo ótal margt og komið alls konar góðu til leiðar. Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, menntunarfræðingur og skólastjóri Stapaskóla leik- og grunnskóla
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
HÖSKULDUR BJÖRNSSON Hafdal 12, Innri- Njarðvík
lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Lungnalækningadeild Landsspítalans í Fossvogi og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Linda Björk Kvaran Gunnlaugur Höskuldsson Atli Þór Höskuldsson Hannes Þór Kvaran Hildur Rún Kvaran Ragnar Heiðar Júlíusson Sunna Lervik Kevin Lervik barnabörn og systkini hins látna
22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Njarðvík í úrslitakeppni en Grindvík er fallið
Kvennalið Grindavíkur/Njarðvíkur mætir Þrótti Reykjavík í bikarúrslitaleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli nk. laugardag.
Njarðvíkingar enduðu í 5. sæti Lengjudeildar eftir 2-1 sigur á toppliði Aftureldingar og leika í úrslitakeppni um laus sæti í Bestu deild karla. Grindvíkingar eru fallnir í 2. deild karla eftir jafntefli gegn lang neðsta liði Lengjudeildar, Ægi síðasta laugardag. Völsungur skaust upp fyrir Grindvíkinga og slapp við fall. Njarðvíkingar leika gegn Þrótti í undanúrslitunum og er fyrri leikurinn miðvikudaginn 9. september kl. 17 í Njarðvík. Seinni leikurinn er í höfuðborginni á sunnudag kl.16.15. Þetta er annað árið í röð sem UMFN er í undanúrslitum Lengjudeildar en liðið tapaði fyrir Keflavík í fyrra og nágrannarnir fóru síðan alla leið upp í Bestu deild.
„Komum á fljúgandi siglingu inn í þennan leik“ Þróttur í erfiðri stöðu Þróttur úr Vogum situr enn í mjög erfiðri stöðu í 11. og er í næstneðsta sæti 2. deildar karla eftir 1-1 jafntefli gegn Fjölni á Extra-vellinum í 21. og næstsíðustu umferð deildarinnar. Vogamenn fá heimaleik gegn Magna í síðustu umferðinni næsta laugardag. Þróttur ermeð 20 stig en geta bjargað sér frá falli með sigri og að KFG, sem er með 22 stig, tapi sínum leik.
Kvennalið Grindavíkur/Njarðvíkur mætir Þrótti Reykjavík í bikarúrslitaleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli nk. laugardag. Þetta er í fyrsta sinn sem samstarfsliðið kemst í bikarúrslit og ljóst er að nýtt nafn verður ritað á bikarinn, en hvorugt liðið hefur unnið hann áður. Leikurinn er því sögulegur fyrir Suðurnesjakonurnar í Grindavík/Njarðvík. Gylf i Tr yggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, segir stemninguna í hópnum vera mjög góða fyrir stóra leiknum, þrátt fyrir að biðin hafi verið löng síðan liðið tryggði sér sætið með 0-3 útisigri á Fram í lok júlí. „Það leggst bara mjög vel í okkur. Við erum búin að bíða lengi eftir leiknum og liðið er mjög spennt. Við komum á fljúgandi siglingu inn í þennan leik og hlökkum mikið til að fá að upplifa þetta,“ segir Gylfi.
Miklar mannabreytingar í sumar
Keflavík vann 3–1 sigur gegn FHL í 17. umferð Lengjudeildar kvenna á HS Orku vellinum í Keflavík í dag.Eftir leikinn situr FHL í 6. sæti deildarinnar með 24 stig en Keflavík fylgir fast á hæla þeirra í 7. og sæti með 21 stig. Þær eru ekki í fallbaráttu og leika gegn KR í síðustu umferðinni.
Tímabilið hjá liðinu hefur verið nokkuð sérstakt en mikil hreyfing hefur verið á leikmannahópnum. Um 12 til 13 leikmannabreytingar hafa átt sér stað á tímabilinu og telur Gylfi það skýra ákveðinn óstöðugleika í leik liðsins, sem hefur átt mjög stóra sigra en líka leiki þar sem mikið hefur verið skorað gegn því. „Við vorum með unga leikmenn sem fóru í háskóla í Bandaríkjunum, meidda leikmenn, lánsmenn sem voru kallaðir til baka og leikmenn sem við seldum. Sumt af þessu var undirbúið en annað ekki,
eins og meiðslin. En okkur tókst að púsla saman samkeppnishæfu liði, tryggja okkur áfram í deildinni og komast í bikarúrslitin. Nú þurfum við bara að klára þetta á laugardaginn.“
sínum árangri sem nýliðar í efstu deild: „Ég held að við séum búin að sýna fullt af fólki að við getum alveg spilað í efstu deild. Við erum að spila skemmtilegan fótbolta og gera flotta hluti.“
Hörkuleikir gegn Þrótti
Mætum gul, græn og bleik!
Mótherjarnir í Þrótti R. eru vel þekktir en liðin hafa mæst fimm sinnum á tímabilinu ef vetrarmótin eru talin með. Gylfi býst við hörkuleik. „Það er alltaf gaman að spila við Þrótt. Þetta hafa alltaf verið hörkuleikir og ég held að þetta verði mjög áhugaverður leikur að mörgu leyti.“ Natasha Anasi, sem skoraði eitt af mörkunum í undanúrslitaleiknum gegn Fram, sagði eftir þann leik að liðið væri stolt af
Fram undan er því sögulegur dagur fyrir knattspyrnuna í Grindavík og Njarðvík. Hvetja forráðamenn liðsins alla Suðurnesjamenn til að mæta gulu, grænu og bleiku á Laugardalsvöll á laugardaginn og öskra stelpurnar áfram til sigurs. Miðasala er í fullum gangi á midasala.ksi.is. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
VÍÐIR UPP Í 2. DEILD – Reynir á enn möguleika Víðismenn tryggðu sér í dag meistaratitilinn í 3. deild karla og sæti í 2. deild á næsta tímabili með frábærum 5-1 sigri á KV á Nesfisk-vellinum. Á sama tíma misstigu nágrannar þeirra í Reyni sig í toppbaráttunni og töpuðu 2-0 gegn Ými í Kórnum. Með sigrinum komst Víðir í 45 stig þegar ein umferð er eftir af mótinu og getur ekkert lið náð þeim að stigum. Næstu lið geta ekki lengur brúað bilið á toppnum og því er ljóst að Víðismenn leika í 2. deild á næsta ári. Reynismenn eru í 4. sæti og eru einu og tveimur stigum á eftir KH og Tindastóli fyrir síðustu umferðina. Reynismenn leika þá heima gegn KÁ sem er í næst neðsta sæti.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 23
„Stoltir af árangrinum en hungraðir í meira“ Haraldur Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga í Bestu deild karla er ánægður með fótboltasumarið en liðið keppir í efri hluta úrslitakeppninnar. Stefnt á 4. sætið í deildinni. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá gerði ég mér kannski ekki vonir um efri hlutann í vor. Stefnan okkar var fyrst og fremst að halda okkur í deildinni. En þegar leið á tímabilið sáum við að það var góður séns og við tókum hann,“ segir Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkinga en liðið tryggði sér sæti í efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu, en liðinu var spáð neðsta sæti deildarinnar af sérfræðingum og fleirum, fyrir tímabilið. Víkurfréttir heyrðu í Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflvíkinga, og ræddu um vegferð sumarsins, leikmannaveltuna, nýja stefnu félagsins og komandi úrslitakeppni.
Efri hlutinn staðreynd – Viðsnúningur tímabilsins Það ríkir mikil ánægja meðal stuðningsmanna liðsins eftir að Keflavík tryggði sig á meðal sex efstu liða Bestu deildarinnar fyrir úrslitakeppnina. Eftir 22 leiki stendur liðið í 6. sæti deildarinnar – árangur sem mörgum þótti fjarlægur í vor. Haraldur segir að þrátt fyrir smá mótbyr undir lok reglulegs tímabils hafi markmiðið náðst. „Þrátt fyrir að við höfum tapað síðustu tveimur leikjunum í deildinni og þetta hafi kannski ekki lengur verið alveg í okkar höndum á lokasprettinum, þá tókst þetta. Við erum náttúrulega gríðarlega ánægðir með það.“
Þegar hann er spurður um lykilinn að þessum árangri segir Halli: „Það eru fyrst og fremst leikmennirnir. Við náðum að búa til mjög þéttan hóp og fengum inn rétta leikmenn sem pössuðu fullkomlega við það sem við vildum standa fyrir.“
Frábær stökkpallur fyrir unga leikmenn Árangur Keflavíkur hefur vakið athygli og margir leikmenn staðið sig vel. Unnið hefur verið markvisst í að gefa ungum leikmönnum tækifæri, sem hefur skilað sér í stórum félagaskiptum síðsumars. Lykilmenn á borð við Davíð Helga Aronsson (fór til Lyngby
að hafa fyrir því að komast í liðið því hinir hafa verið að standa sig vel,“ bætir Haraldur við.
í Danmörku) og Breka Baxter (seldur til Egersund í Noregi) eru farnir á erlenda grundu, auk þess sem Eiður Orri Ragnarsson hefur verið seldur til meistara Víkings en klárar tímabilið á láni í Keflavík. „Það eru tveir ungir og efnilegir leikmenn sem koma til Keflavíkur, fá sénsinn, blómstra og fá verðlaun í kjölfarið með því að taka næsta skref á ferlinum. Það er frábært fyrir okkur sem félag. Við getum sýnt ungum leikmönnum fram á að þeir geti komið hingað og tekið næsta skref í sínum ferli,“ segir Haraldur.
Breiddin prófuð: „Veiktumst ekki við breytingarnar“ Að missa stóra hlutverka- og lykilmenn um miðja vertíð getur reynst mörgum liðum erfitt. Ásamt sölu ungra leikmanna fækkaði enn frekar í leikmannahópnum þegar tveir leikmenn hættu. „Allt í einu fór að fækka svolítið mikið mannskapnum á æfingum. En við vorum með góða breidd og holla samkeppni. Þegar einhver
Samskiptin við bæjarbúa og vallaraðstæður
datt út eða fór, þá veiktist liðið lítið sem ekkert – stundum styrktist það jafnvel bara. Leikmenn eins og Nacho og Marín náðu að mynda mjög gott hafsentapar, og við náðum að hreyfa menn til án þess að missa taktinn.“ Á lokadegi félagaskiptagluggans bætti Keflavík við sig tveimur sterkum leikmönnum, þeim Elvis og Matej, til að tryggja breiddina fyrir lokasprettinn. „Það eru tveir mjög góðir leikmenn en þeir þurfa
Aðspurður um stemninguna í bænum segir Haraldur að áhuginn á liðinu sé gríðarlegur, þó svo að mætingin á heimaleikina megi stundum vera betri. „Það er mikill áhugi á liðinu í bænum en mætingin var á köflum slök. Við þurfum kannski að horfa í vallaraðstæðurnar hjá okkur – völlurinn er orðinn svolítið lúinn og það mætti fara að gera eitthvað í þeim málum. Mörgum finnst líka auðveldara að sitja heima og horfa á leikinn í sjónvarpinu. Við þurfum að finna leiðir til að fá fleira fólk á völlinn, en við finnum að bærinn stendur við bakið á okkur og fólk fylgist vel með,“ segir þjálfarinn að lokum. Páll Ketilsson pket@vf.is
Varnarveggur og eiturhraðar skyndisóknir Keflavíkurliðið hefur fundið leikskipulag sem hentar hópnum afbragðsvel. Liðið byggir leik sinn á öflugum og agaðri varnarleik og snörpum hröðum umskiptum í sóknina. Tölfræðin talar sínu máli: Keflavík er með næstfæstu mörkin á sig í allri deildinni eftir 22 leiki, næst á eftir toppliði Víkings. Margir leikmenn hafa tekið stór stig á tímabilinu: Stefán Ljubicic: Er að eiga sitt langbesta tímabil í mörg ár á toppnum og hefur skorað tíu mörk. Ásgeir Orri: Frábær á milli stanganna í markinu og hefur sýnt mikinn stöðugleika. Bakverðirnir og varnarlínan: Axel Ingi á hægri vængnum, Ásgeir Páll vinstra megin og öflug mið-
Keflvíkingar hafa fagnað oft í sumar.
varðapar hafa staðið vaktina vel í vörninni.
Fara pressulausir í úrslitakeppnina – stefnt á 4. sætið Fram undan eru fimm krefjandi leikir í efri hlutanum, þar sem Keflavík mætir bestu liðum landsins. Fyrstu leikirnir eru gegn toppliðum Víkings og Fram. „Við förum fyrst og fremst í þetta til að njóta. Við erum pressulausir. Það er kannski full langt upp í 3. sætið sem gefur Evrópusæti beint, en það er alveg raunhæfur möguleiki á að ná 4. sætinu. Við ætlum að setja stefnuna þangað og reyna að ná Breiðabliki og ÍA sem eru með 30 stig (tveimur meira en Keflavík),“ sagði Haraldur Guðmundsson, þjálfari.
Ásgeir hefur staðið sig frábærlega í marki Keflavíkur í sumar.
Bakvörðurinn Axel Ingi er hluti af sterkri vörn Keflavíkur.
Blue og Keflavík. Á leik Keflavíkur og Vals var greint frá áframhaldandi styrktarsamningi Blue Car og félagsins. Á myndinni eru Böðvar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar, bræðurnir Þorsteinn og Magnús Sverrir og þeirra börn.
PÁLS KETILSSONAR
Ljósanóttin góða Það var ekki bara líf og fjör á tuttugustu og fimmtu Ljósanóttinni heldur voru veðurguðirnir í sínu besta skapi og svei mér þá, líklega er þetta mesti fjöldi sem hefur sótt hátíðina heima frá upphafi. Einhverjir tugir þúsunda.
Tilboð gilda til 20. september
Lambahryggur Kjötborðið
Íslenskt grænmeti Margar tegundir
SS lambasvið Frosið
Kjúklingaleggir Ísfugl
Opnunartímar í Nettó Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
Ritstjórinn sem þetta ritar getur rifjað upp bernskubrek Ljósanætur þegar við gengum með Steinþóri Jónssyni, sem fékk viðurnefnið Ljósálfur, niður Hafnargötuna í Keflavík fyrir fyrstu Ljósanóttina og hvöttum verslanir og aðila til að bjóða upp á tilboð og gera eitthvað meira á nýrri bæjarhátíð. Steini átti frumkvæðið að lýsingu Bergsins og var í framlínu hátíðarinnar mörg fyrstu árin en hann fékk góða aðila til að hjálpa til í lýsingarverkefninu sem við getum sagt að sé risastórt umhverfislistaverk á heimsmælikvarða sem hefði átt að verðlauna. Við njótum þess að horfa á ljósin kvikna á meðan flugeldasýning dynur í loftinu og síðan lýsa ljósin á Keflavíkurbjargi upp myrkrið yfir níu mánuði ársins eða um það bil. Hátíðin stækkaði fljótt fyrstu árin og dregur nú að tugi þúsunda manns, heimafólk á Suðurnesjum og aðra. Fjöldi heimamanna sýndi margs konar listir sínar, hvort sem það er listmálun eða önnur menning, og ég gerði mér far um að ræða við nokkra sem voru að sýna sín verk á þessari Ljósanótt og langflestir voru mjög ánægðir með hvað margir keyptu verk. Þar voru eldri og ungir listamenn, allt niður í 15 ára myndlistarpeyja sem sýndi málverk í einu elsta húsi bæjarins. Þar var líka aðeins eldri strákur með sýningu á nýju ilmvatni. Nýju ilmirnir hans ilmuðu vel og þessi frumraun hans á þessu sviði hefur tekist vel og fengið frábærar viðtökur en vissulega tekið nokkur ár. Frábært úrval tónleika var í boði á flottum stöðum eins og Hljómahöll, í Duus húsum en líka í heimahúsum og nú var í fyrsta sinn boðið upp á slíkt í minnsta hverfi Reykjanesbæjar, Höfnunum, þar sem var uppselt. Það er ekki hægt að minnast á Ljósanótt öðruvísi en hrósa Axel Jónssyni og hans fólki í Skólamat sem færði okkur ljúffenga kjötsúpu fyrir framan ráðhús Reykjanesbæjar en það hafa þau gert í áratugi. Árgangagangan er líklega skemmtilegasta atriðið á Ljósanótt. Það var algerlega magnað að ganga niður Hafnargötuna með þúsundum manna, kvenna og barna. Það var líka magnað að vera fyrir framan stóra sviðið á laugardagskvöldi innan um allan þennan mannfjölda. Tónlistarfólkið hélt uppi stemmningu og það vel fram á kvöld. Vissulega sá maður nokkur ungmenni við skál en langflest þeirra höguðu sér vel og skemmtu sér eins og við hin. Ekki skal gert lítið úr áhyggjum af slíku og kannski þarf að auka gæslu og aðstoð við ungmennin. Það kom þó á óvart að stærstu landsfjölmiðlarnir fjölluðu nær eingöngu um það á sunnudegi að ölvun ungs fólks hafi verið áberandi. Fréttakollegar okkar í höfuðborginni sögðu lítið og sumir ekkert frá vel heppnaðri tuga þúsunda hátíð í stærsta sveitarfélaginu utan höfuðborgarsvæðisins. Við á Víkurfréttum gáfum út næststærsta blað ársins, 64 blaðsíður, og við vonum að þið lesendur hafi notið þess. Bestu þakkir til yfir hundrað aðila sem studdu okkur í útgáfunni.
Mundi Hvað er ritstjórinn að vilja upp á dekk?