Skip to main content

Víkurfréttir 17. tbl. 47. árg.

Page 1

Ég verð alltaf Njarðvíkingur í hjartanu 24

Sigríður Margrét Oddsdóttir flutti til Njarðvíkur þegar hún var tíu ára og eignast sínar bestu vinkonur. Hún tók nýlega við sem forstjóri Bláa Lónsins.

• Laugardagurinn 29. ágúst 2026 • 17. tölublað • 47. árgangur

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS

28

Lögreglan verður að ganga í takt við samfélagið sem hún þjónar

Ljósanótt 2026 Dagskrá í miðopnu

40

Bjartari framtíð á Suðurnesjum Sighvatur Gunnarsson fagnar brátt aldarfjórðungi hjá Íslandsbanka

44 Sérhönnuð tannlæknastofa sem mætir kröfum framtíðarinnar

Fjölbreytt og glæsileg dagskrá á 25. Ljósanóttinni Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, verður haldin hátíðleg dagana 3.–6. september næstkomandi. Þetta er 25. Ljósanóttin. Boðið verður upp á þétta og fjölbreytta dagskrá þar sem tónlist, myndlist, íþróttir og barnaskemmtun eru í fyrirrúmi. Hátíðin hefst formlega fimmtudaginn 3. september með setningarhátíð í Skrúðgarðinum kl. 10:30, ásamt opnun fjölda listsýninga og handverksmarkaða um allan bæ um kvöldið. Duus safnahús, Fischershús, Svarta Pakkhúsið og fjöldi annarra staða bjóða upp á fjölbreyttar sýningar. Föstudaginn 4. september hefst dagurinn á morgunsundi í Vatnaveröld. Síðdegis geta gestir

notið brekkusöngs í Njarðvík við Kamb, farið á tónleika eða sótt viðburði á borð við konukvöld og afmælistónleika. Sprell Tívolí og leiktæki verða opin á hátíðarsvæðinu fyrir yngri kynslóðina. Ekki má gleyma kjötsúpunni og tónleika við súpu-sviðið. Laugardagurinn 5. september er aðalhátíðardagurinn. Dagurinn hefst á alþjóðlegu pílukastmóti og viðburðum í Víkingaheimum. Í Skrúðgarðinum verður ókeypis barnadagskrá frá hádegi þar sem fram koma meðal annars Brúðubíllinn, BMX brós og Tufti risatröll, auk þess sem boðið verður upp á andlitsmálningu og hestateymingu. Hópakstur bifhjóla og glæsikerra heldur sinni hefðbundnu áætlun kl. 15:00 og árgangagangan leggur af stað kl.

13:30. Kvölddagskrá laugardagsins nær hámarki á Stóra sviðinu frá kl. 19:30. Þar stíga á stokk þekktir listamenn á borð við Hipsumhaps, Birgittu Haukdal, Kristmund Axel og Emmsjé Gauta. Klukkan 22:00 verður efnt til hinnar hefðbundnu og stórfenglegu flugeldasýningar yfir höfninni. Hátíðinni lýkur sunnudaginn 6. september með sögugöngum, minningartónleikum um Gunnar Þórðarson í Hljómahöll og helgistund í Keflavíkurkirkju. Frítt verður í Ljósanæturstrætó alla hátíðardagana til að tryggja að gestir komist auðveldlega á milli viðburða. Nánar má lesa um dagskrá Ljósanætur í miðopnu blaðsins og auk þess er ítarlega fjallað um aðra viðburði í blaðinu og á vf.is.

20 Ada Hafliðadóttir er 15 ára og hefur skrifað og gefið út þrjár skáldsögur á ensku

Rómantíkin hennar sterkasta hlið en spennusagan heillar Næsta blað kemur út 9. september

Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær

Snorri

Gylfi

Óskar

Sölvi

snorribs@valholl.is

gylfi@valholl.is

oskar@valholl.is

770 4040

691 1931

solvi@valholl.is

699 4407

618 0064

6 4 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0


2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Samningar við Ljósbera Ljósanætur undirritaðir Þakkarhóf Ljósanætur var haldið í Stapa síðastliðinn miðvikudag þar sem styrktaraðilum hátíðarinnar var þakkað fyrir stuðninginn og samstarfið. Í hófinu var jafnframt undirritun samninga við aðalstyrktaraðila hátíðarinnar í ár, svokallaða Ljósbera Ljósanætur. Hlutverki Ljósbera í ár gegna níu fyrirtæki: Landsbankinn, KEF Keflavíkurflugvöllur, Skólamatur, BUS4U, Blue Car Rental, Nettó, GTS, JeES og Reykjanes Investment. Auk þeirra styður mikill fjöldi fyrirtækja hátíðina, en á sjötta tug þeirra leggja Ljósanótt

lið með fjárframlögum, þjónustu og margvíslegu samstarfi. Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, lagði áherslu á samfélagslega þátttöku við undirritunina og sagði að Ljósanótt yrði ekki til hjá sveitarfélaginu einu heldur vegna þess að samfélagið allt legðist á eitt. Dagskrá hátíðarinnar er aðgengileg á vefnum ljosanott.is. Það var svo Saga Garðarsdóttir leikkona sem endaði hófið með Ljósberunum á stuttu uppistandi þar sem hláturtaugarnar voru kitlaðar.

Unnar Stefánsson skólastjóri Háaleitisskóla, Ísleifur Örn Guðmundsson viðskiptaþróunarstjóri Ofar og Styrmir Hafliðason framkvæmdastjóri Verne á Íslandi með hluta gjafanna sem voru afhentar. VF/hilmarbragi

Tæknifyrirtækin Verne og Ofar efla raungreinakennslu í Háaleitisskóla Tæknifyrirtækin Verne og Ofar hafa tekið höndum saman og fært Háaleitisskóla í Reykjanesbæ veglega gjöf til að efla tækni- og vísindakennslu eldri nemenda skólans. Gjöfin er liður í að auðvelda nemendum aðgengi að stafrænu námi og dýpka skilning þeirra á raungreinum með verklegri reynslu. Meðal þess búnaðar sem skólinn móttekur eru 3D-gleraugu, 3D-prentarar og fartölvur. Háaleitisskóli hefur á undanförnum misserum unnið að því að byggja upp aðstöðu til vélmennafræði, tvívíðs og þrívíðs prentverks ásamt öðrum tæknilegum námsgögnum og kemur nýi búnaðurinn til með að styðja þétt við þá vegferð. Verkefnið var unnið í samstarfi við tæknifyrirtækið Ofar, sem tók þátt í að safna saman þeim tækjabúnaði sem nýtist nemendum skólans í verklegu námi. „ Að styðja við menntun í nærumhverfinu er ein skilvirkasta leiðin til að leggja okkar

Yfir 500 þættir á vf.is

af mörkum til samfélagsins. Verkefnið kviknaði út frá því að hlusta á þarfir skólans og við erum ánægð að geta auðveldað nemendum aðgengi að stafrænum tækjum sem efla vísindaog tækninám,“ segir Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne á Íslandi. Ísleifur Örn Guðmundsson, viðskiptaþróunarstjóri Ofar, tekur í sama streng: „Hjá Ofar teljum við mikilvægt að styðja við nærsamfélagið og hjálpa ungu fólki að öðlast hagnýta reynslu af tækni. Við erum stolt af því að standa að þessu með Verne og leggja okkar af mörkum í starfi Háaleitisskóla.“


Ljósanæturtilboð

40%

afsláttur af öllum vörum nema tilboðsvöru

Annað par fylgir öllum margskiptum glerjum Tilboðið gildir til 5. september

Tímabókanir s. 421-3811

HAFNARGATA 45 OPTICALSTUDIO.IS REYKJANESBÆR


4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Ráðast í umfangsmikla hagræðingu og núllgrunnsskoðun – Minnihlutinn segir bruðlið hafa náð nýjum hæðum Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hef ja víðtæka greiningu á rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins þar sem innleidd verður svokölluð núllgrunnshugsun (e. zero-based budgeting) við fjárhagsáætlanagerð. Sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi hefur verið sett á laggirnar til að tryggja að breytingarnar skili mælanlegum árangri. Gunnlaugur Kárason, bæjarfulltrúi Miðflokksins, reifaði málið á fundi bæjarstjórnar og undirstrikaði að markmiðið væri ekki niðurskurður niðurskurðarins vegna.

„Markmiðið er að fara betur með fjármuni bæjarbúa, að hver króna nýtist eins vel og mögulegt er, að boðleiðir verði styttri, ferlar einfaldari og skilvirkari,“ sagði Gunnlaugur. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn voru hins vegar harðorðir í garð nýs meirihluta og sögðu áformin stinga í stúf við raunverulegar ákvarðanir síðustu vikna. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, benti á að á sama tíma og talað væri um hagræðingu hefði stjórnsýslan verið stækkuð. „Að móti þeim tíu milljónum sem er búið að spara [með fækkun nefnda] er búið að gera samning við ráðgjafa upp á allt að fjórar milljónir á mánuði og hækka laun kjörinna fulltrúa um fimmtán milljónir á ársgrundvelli. Við

Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á

vf is

Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu

HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //

erum strax komin sextán milljónir í mínus,“ sagði Halldóra Fríða og bætti við að um verulegt bruðl með skattfé væri að ræða. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri svaraði gagnrýninni og sagði að breytingarnar ættu að auka skil-

virkni og flýta þjónustu. Aðrir kostnaðaraukar hefðu verið færðir til innan kerfisins án þess að kallað væri eftir nýjum fjárheimildum af óráðstöfuðu fé.

Kvótaáramótin nálgast AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is

Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir

Rétturinn

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík

Opið:

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Ljúffengur heimilismatur í hádeginu

11-13:30

alla virka daga

Núna er orðið mjög stutt til áramótanna. Reyndar ekki áramótanna þar sem við skjótum upp tonnum af flugeldum og fögnum nýju ári, nei, þessi áramót eru aðeins öðruvísi og þeim kannski ekki fagnað eins mikið og hin áramótin, því að núna 1. september hefst nýtt ár, kvótaár, en fiskveiðiárin miðast við 1. september til 31. ágúst ár hvert. Það má seg ja að útgerðin á Suðurnesjum sé að komast í fullan gang aftur og dragnótabátunum hefur fjölgað því að núna er Maggý VE komin aftur til

VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG Verkís verkfræðistofa | Hafnargata 57 | 230 Reykjanesbær

Sandgerðis, en báturinn landaði síðast í Sandgerði í lok maí og fór síðan til Vestmannaeyja og fór þá í vélaskipti sem framkvæmd voru af starfsmönnum Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum. Reyndar um miðjan júlí þá kom upp smávegis eldur í vélarrúmi Maggýjar VE þegar báturinn lá við bryggju í Vestmannaeyjum, en slökkvilið var fljótt á staðinn og slökkti eldinn og reykræsti vélarrúmið á skömmum tíma. Skemmdir urðu ekki miklar en reykur var um allt. Allt gekk þá vel að lokum og hóf Maggý VE 20. ágúst, sem er mjög góður dagur, því að er afmælisdagurinn minn, en Maggý VE landaði þá 9,4 tonnum í Vestmannaeyjum og kom síðan til Sandgerðis með um 10 tonna afla. Maggý VE á sér reyndar nokkuð langa sögu á Suðurnesjum því að árið 2001 keypti útgerðarmaðurinn og skipstjórinn Tómas Sæmundsson, eða Tommi á Hafnarbergi eins og hann var iðulega kallaður, bátinn. Hann keypti þá bátinn og fær báturinn nafnið Hafnarberg RE. Kom sá bátur í staðinn fyrir gamla Hafnarbergið RE, en sá bátur hafði verið gerður út undir nafninu Hafnarberg RE síðan árið 1970, og þar á undan hét sá bátur Jón Gunnlaugs GK frá 1959. Þó svo að bátarnir báðir, það er að segja, Hafnarberg RE frá 1970 og Hafnarberg RE frá 2001, hafi verið RE, þá var það þannig að Tommi gerði alltaf út frá Sandgerði, var á netum yfir vertíðina og fiskaði alltaf vel og síðan á humri yfir sumarið, og honum gekk það vel á Hafnarbergi RE á humrinum að það kom fyrir að Hafnarberg RE (báturinn frá 1970) var aflahæsti humarbátur landsins. Frá 1970

og til 1997 þegar Miðnes ehf. var í Sandgerði þá landaði Hafnarberg RE öllum humarafla sínum hjá Miðnesi. Einn fallegasti báturinn sem hefur verið gerður út frá Suðurnesjunum og reyndar liggur sá bátur núna sokkinn við bryggju í Grindavíkurhöfn. Annars að Maggý VE, Tommi gerði út bátinn þegar hann hét Hafnarberg RE til ársins 2007, en þá kaupir Einar Magnússon bátinn og fær þá báturinn nafnið Ósk KE 5, og er með því nafni til ársins 2011 þegar Narfi ehf. í Vestmannaeyjum kaupir bátinn og fær nafnið Maggý VE. Ekki nóg með að báturinn eigi sér útgerðarsögu frá Suðurnesjunum því að skipstjórinn á Maggý VE er Karl Ólafsson sem á sér yfir 30 ára sögu sem skipstjóri að mestu á dragnótabátum frá Keflavík sem þó voru gerðir út frá Sandgerði, lengst af á Haferni KE sem var eikarbátur og síðan á Erni KE sem í dag heitir Ásdís ÍS. Annars þá hefur veiðin hjá dragnótabátunum verið nokkuð góð. Siggi Bjarna GK er með 77 tonn í 8 róðrum og mest 12,6 tonn. Benni Sæm GK 65 tonn í 8 róðrum og mest 12 tonn. Sigurfari GK 30 tonn í 5 og Margrét GK 50 tonn í 6 róðrum og mest 13 tonn. Enn sem komið er er enginn línubátur að róa dagróðra frá Suðurnesjunum en þeir eru svo til allir farnir í burtu. Í Grindavík hafa stóru línubátarnir tveir verið að veiðum og eru þeir að eltast við löngu og keilu. Þeir eru í því skaki þangað til nýtt fiskveiðiár byrjar og komast þeir þá í þorskinn. Páll Jónsson GK hefur landað 183 tonnum í 3 róðrum og Sighvatur GK 192 tonnum í 2 róðrum.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.


Tannlæknastofan Aðalbros við Aðaltorg á Aðalgötu 64, Reykjanesbæ

Hlökkum til að sjá ykkur Öll velkomin

Góða skemmtun

á Ljósanótt í Reykjanesbæ

adalbros.is

Tannlæknar u Benedikt Jónsson u Helena Ósk Árnadóttir u Jón Björn Sigtryggsson u Kristjana Benediktsdóttir u Mohammad Garmsiri u Sandra Rún Sigurðardóttir u Sunna María Einarsdóttir u Sæmundur Már Sæmundsson u Theódór Friðjónsson u Þórir Hannesson u Þorvaldur H. Bragason Tannsmiðir u Hjördís Harðardóttir u Ævar Pétursson


6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Ný lífræn fráveituhreinsistöð í Höfnum Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja lífræna fráveituhreinsistöð í Höfnum. Með tilkomu stöðvarinnar er stigið stórt skref í fráveitumálum sveitarfélagsins, en stöðin þjónustar um 80% fráveitu í Höfnum. Áður fór skólp frá svæðinu óhreinsað til sjávar en með nýju stöðinni fer það nú í gegnum lífrænt hreinsiferli áður en hreinsuðu frárennsli er veitt til sjávar. Hreinsistöðin hefur afkastagetu upp á um 22 m³ og er miðuð við um 100 persónueiningar (PE). Að lokinni hreinsun er vatnið um 98% hreint. Stöðin byggir á WPL HiPAFtækni þar sem hreinsunin fer fram í þremur meginþrepum. Fyrst eru föst efni og seyra skilin frá með botnfellingu. Því næst tekur við

lífræn hreinsun þar sem örverur brjóta niður lífræn efni í skólpinu með aðstoð loftunar. Að lokum fer fram lokabotnfelling áður en hreinsað vatnið er leitt til sjávar. Iðnver ehf. seldi Reykjanesbæ hreinsistöðina og búnað henni tengdan. Rekan ehf. var aðalverktaki við framkvæmdina og sá um uppsetningu og framkvæmdir á staðnum. Meginhluti hreinsistöðvarinnar er neðanjarðar og því eru sjónræn áhrif hennar lítil. Hreinsieiningin sjálf er um níu metrar að lengd og

tæpir þrír metrar á breidd, auk búnaðar fyrir loftun og stjórnun kerfisins. Heildarkostnaður við verkefnið, að meðtöldum búnaði og framkvæmdum, var um 50 milljónir króna. Framkvæmdum er nú lokið og stöðin komin í fullan rekstur. Verkefnið markar verulega breytingu frá fyrra fyrirkomulagi. Þar sem áður var engin hreinsun á frárennslinu fer það nú í gegnum lífræna hreinsun sem dregur verulega úr mengunarálagi áður en vatninu er veitt til sjávar. Með framkvæmdinni hefur því orðið mikil framför í fráveitumálum á svæðinu og um leið er verið að bæta umhverfisvernd og styrkja innviði sveitarfélagsins til framtíðar. Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri Reykjanesbæjar og Guðbergur Reynisson, bæjarfulltrúi við nýju hreinsunarstöðina.

Marinó Stefánsson ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Voga B æ j a r r á ð S v e i t a rfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 25. ágúst ráðningu Marinós Stefánssonar í starf sviðsstjóra umhverf is- og skipulagssviðs. Marinó mun hefja störf hjá sveitarfélaginu 1. október nk. Marinó kemur til Sveitarfélagsins Voga með víðtæka reynslu af stjórnun, framkvæmdum og sveitarstjórnarmálum. Hann starfar nú sem svæðisstjóri Austurlands hjá Kubbi ehf. en starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum. Á árunum 2014–2023 starfaði hann hjá Fjarðabyggð, þar af um árabil sem sviðsstjóri framkvæmdasviðs. Marinó er arkitekt með M.Sc.gráðu í sjálfbærri borgarhönnun frá Háskólanum í Lundi, auk þess að vera byggingafræðingur og húsasmíðameistari. Hann sameinar því reynslu af stjórnun og

opinberri stjórnsýslu við sterka þekkingu á framkvæmdum, skipulagi og uppbyggingu. „Það eru einstaklega spennandi tímar framundan í Sveitarfélaginu Vogum. Sveitarfélagið er í örum vexti og framundan eru stór verkefni í uppbyggingu innviða, skipulagsmálum og þróun samfélagsins. Við viljum sækja fram af krafti og ég tel að reynsla Marinós, þekking og breiður bakgrunnur falli einstaklega vel að þeim verkefnum sem bíða okkar. Ég hlakka mikið til samstarfsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Með ráðningu Marinós bætist öflugur liðsmaður í hópinn á spennandi tímamótum hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélagið Vogar býður hann hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins framundan, segir í tilkynningu.

Starfsfólk Sindra Reykjanesbæ óskar öllum gleðilegrar Ljósanætur.

Sími 575 0050 Bolafæti 1 Reykjanesbæ


KONUKVÖLD

Á LJÓSANÓTT MIÐVIKUDAGINN 2. SEPTEMBER KL. 20:00 • Uppistand með Snjólaugu Lúðvíksdóttur • Vínsmökkun frá Mekka Wines & Spirits • Súkkulaðikynning frá Circalo • Veglegur gjafapoki Skráning fer fram á kefspa.is

Fögnum Ljósanótt á KEF 2.-6. september Jazz tónleikar Ljósanæturmatseðill og bröns Tilboð á barnum

Skannaðu kóðann til að sjá nánari dagskrá

Frábær tilboð á gjafabréfum á KEF.IS

Vatnsnesvegur 12-14 / 230 Keflavík / 420 7000 / Móttaka er opin allan sólarhringinn


8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Skúlptúrnum „Glerfjöll“ fundinn nýr staður í opinberri stofnun Listakonan Gunnhildur Þórðardóttir hefur boðið SSS stórt útilistaverk, skúlptúrinn Glerfjöll, að gjöf. Verkið, sem er 1,7 x 1,4 x 0,9 metrar að stærð, var áður til sýnis í Menntaskólanum á Ásbrú. Stjórn SSS þakkaði höfðinglega gjöf og fól framkvæmdastjóra að finna verkinu viðeigandi stað í opinberri stofnun á Suðurnesjum í samráði við listakonuna.

Geymslurými í kjallara breytt í 9 íbúðir Nesvellir íbúðir ehf. hafa lagt fram erindi til skipulagsráðs Reykjanesbæjar þar sem óskað er eftir heimild til að breyta geymslurými í kjallara Njarðarvalla 6 í níu nýjar íbúðir. Málið hafði áður verið tekið fyrir á 382. fundi ráðsins, en nú voru lögð fram viðbótargögn ásamt þremur ólíkum tillögum að lausnum á útfærslu svæðisins. Eftir yfirferð á valkostunum samþykkti skipulagsráð að þeim hugnaðist best lausn þar sem nýjum bílastæðum verður komið fyrir við vesturenda hússins. Óskað hefur verið eftir því að umsækjendur skili inn nánari tillögu að þeirri útfærslu ásamt breyttri aðkomu að húsinu áður en lengra er haldið.

Grunnskólastarf hafið í Grindavík Ábyrgur undirbúningur og öruggt umhverfi á Ásabraut Grunnskólinn í Grindavík var settur að nýju í skólahúsnæðinu við Ásabraut sl. þriðjudag. Greint var frá farsælli opnun leikskólastarfs í Laut fyrr í mánuðinum og nú hefur næsta markvissa skrefið verið stigið í endurreisn grunnþjónustu sveitarfélagsins. Nemendur við skólann eru 26 á öllum skólastigum, segir í tilkynningu frá Grindavíkurbæ. Við skólasetninguna sagði Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri meðal annars: „Í fámenninu felast mörg tækifæri, til þess að kynnast betur, sjá hvert annað og standa saman. Og ég held að einmitt þar liggi einn af okkar styrkleikum. Við erum skólasamfélag þar sem allir skipta máli.“

Mikil og vönduð vinna hefur átt sér stað á síðustu mánuðum við að gera skólabygginguna við Ásabraut tilbúna. Lokið hefur verið við umfangsmiklar burðarþolsstyrkingar á vesturálmu skólans, ásamt því að gólf hafa verið endurnýjuð og loftræstikerfi bætt til að tryggja fyllsta rekstraröryggi. Utanhúss-

klæðningu skólans hefur einnig verið lokið. Allar sprunguviðgerðir á skólalóðinni og í nágrenni hennar eru fullfrágengnar og hættusvæði í bæjarlandinu eru tryggilega afgirt og vöktuð af slökkviliði bæjarins. „Við hlökkum mikið til að bjóða nemendur okkar velkomna, það verður yndislegt að fylla skólann lífi og gleði á ný,“ segir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri samrekins leik- og grunnskóla Grindavíkur. Allur undirbúningur hefur verið unninn af mikilli alúð og vandvirkni og það er okkur mikilvægt að taka á móti börnunum

í öruggu, hlýju og traustu umhverfi. Okkur er mjög umhugað um líðan barnanna og hvernig við getum stutt þau sem best í þessari endurkomu. Mesta áfallið fyrir mörg þeirra var að missa daglegt samband við vini, skólann og samfélagið sitt og er upphaf skólastarfs því mikilvægt skref til endurreisnar samfélagsins í Grindavík.“ Bæjaryfirvöld leggja áherslu á að skólahald í Grindavík er skipulagt og vaktað ferli. Öryggismál hafa verið samstillt í nánu samstarfi við almannavarnir og rýmingaráætlanir liggja fyrir og verða æfðar með starfsfólki og nemendum strax í upphafi skólaársins. „Þetta eru mikil vatnaskil í okkar málum og stórt skref fram á við í að fækka óvissuþáttum hjá okkar fólki, varða leiðina heim og tryggja framtíð Grindavíkur“, segir Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur. „Okkar afstaða er skýr: Þau börn sem dvelja í bænum eru öruggari og betur vöktuð inni í skipulögðu og faglega stýrðu skólastarfi heldur en í eftirlitslausum frítíma. Við erum að sýna að það er hægt að byggja upp samfélag á ábyrgan hátt í sátt og af virðingu við náttúruöflin.“

Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á

vf is


10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Fjölbýlishús með allt að 57 íbúðum í Vatnsholti 2 Nýtt mælaborð Reykjanesbær:

grunnskólastarfs í mótun Menntaráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt tillögu um að hefja vinnu við að yfirfara og þróa árangursmælingar í grunnskólum sveitarfélagsins. Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, kynnti verkefnið á fundi ráðsins. Markmiðið með mótun nýs mælaborðs er að koma á heildstæðri yfirsýn yfir lykilþætti skólastarfsins. Með því að nýta samræmd gögn og árangursmælikvarða með markvissari hætti er stefnt að því að styðja við sífelldar umbætur og efla skólastarf í öllum grunnskólum bæjarins. Sérstakur starfshópur innan stjórnsýslunnar mun leiða verkefnið, en hann verður skipaður sviðsstjóra menntasviðs, grunnskólafulltrúa, deildarstjóra skólaþjónustu og yfirsálfræðingi skólaþjónustu. Starfshópurinn mun vinna í nánu samráði við skólastjórnendur og aðra hagaðila eftir því sem vinnunni miðar áfram.

Nýtt deiliskipulag samþykkt á Iðavöllum 14b og Vatnsholt 2 Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að senda tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Iðavelli 14b og Vatnsholt 2 til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu. Tillagan var kynnt nágrönnum með bréfi og engar athugasemdir bárust frá íbúum. Umsagnir stofnana voru sömuleiðis án athugasemda og því var ekki tilefni til viðbragða af hálfu sveitarstjórnar. Í deiliskipulagstillögunni er lagt upp með að sameina lóðirnar Iðavelli 14b og Vatnsholt 2 í eina 5.496 m² lóð undir heitinu Vatnsholt 2. Á svæðinu er gert ráð fyrir byggingu 2–4 hæða fjölbýlishúss með allt að 57 íbúðum af mismunandi stærðum, frá 60 m² til 120 m². Auk íbúðarhúsnæðis verður gert ráð fyrir um 220 m² þjónustu- og verslunarrými á jarðhæð sem snýr að Aðalgötu. Heildarbyggingarmagn á svæðinu verður allt að 7.550 m². Megináhersla tillögunnar er að styrkja götumynd Vatnsholts og aðlaga nýju bygginguna að núverandi byggingarhæðum og -línum á svæðinu. Með þessu er sköpuð betri tenging á milli íbúðarbyggðarinnar og atvinnusvæðisins. Deiliskipulagið fer nú í endanlega afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun áður en það tekur gildi.

Helstu kennileiti skipulagsins eru: l Bílastæði og bílastæðahús: Bílastæði verða staðsett í innbyggðu bílastæðahúsi undir hluta fyrstu hæðar hússins sem og á yfirborði. Gera skal ráð fyrir 1,6 bílastæði á hverja íbúð. l Aðkoma og samgöngur: Ökutækjaaðkoma verður frá Aðalgötu og Vatnsholti. Þá er gert ráð fyrir göngu- og hjólastígum sem tengja svæðið betur við nærliggjandi hverfi. l Græn svæði og gróður: Rík áhersla er lögð á landslagshönnun, gróðurbelti og skjólveggi til að tryggja góð gæði íbúða og umhverfis.

Mynd unnin með gervigreind út frá teikningu af fyrirhugaðri hátæknibrennslustöð í kynningargögnum.

Fyrirhuguð hátæknibrennslustöð óljós Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, kallaði eftir skýrum svörum frá nýjum meirihluta Reykjanesbæjar um hvort til standi að reisa 140.000 tonna hátæknisorpbrennslustöð í Helguvík. Málið var nýlega samþykkt í drögum hjá stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við Kölku, Sorpu og umhverfisráðuneytið. Guðný Birna benti á að fyrirhuguð stöð yrði ellefuföld á við núverandi stöð Kölku og einungis um 1,7 kílómetra frá næstu byggð. „Nú er kominn nýr meirihluti í stjórn Reykjanesbæjar þar sem Miðflokkurinn setti í sín kosningamarkmið að byggja umrædda

stöð í Helguvík. Því vil ég bera fram fyrirspurn til nýja meirihlutans: Er hátæknibrennslustöð og uppbygging hennar í Helguvík ykkar markmið?“ spurði Guðný Birna og óskaði eftir skriflegum svörum. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri svaraði því til að verkefnið væri hvorki í málefnasamningi meirihlutans né væru uppi uppbyggingaráform af þeirra hálfu um stöðina. „Mér finnst þetta verkefni bara vera það óljóst og mikið á reiki þróun þess að það sé einhvern veginn hægt að fara að taka einhverja skýra afstöðu til þess strax,“ sagði Vilhjálmur og ítrekaði að ekkert yrði gert gegn vilja og hagsmunum íbúa sveitarfélagsins.


2. – 6. SEPTEMBER

VERIÐ VELKOMIN Á

LJÓSANÓTT 2026 FRÁBÆR LJÓSANÆTURTILBOÐ Í VERSLUNUM OG Á VEITINGAHÚSUM Í BETRI BÆ

LENGRI OPNUNARTÍMI Í VERSLUNUM www.betribaer.is Betri Bær - Reykjanesbær betribaer | A4 | Blómahús Mögdu | Blómaskúr Villu | Brons 230 | Byko | Corner Keflavík | Duus Handverk | Nettó | Galleri Keflavík | Olsen Olsen | | Optical Studio | Palóma, Föt & Skart | Fjóla gullsmiður | Hofsprettur | Hótel Keflavík | Hótel Keflavík Restaurant | Kappahl | | Library - Bistro Bar | Líndal | Marion Herrafataverslun | Reykjanesapótek Hólagötu og Fitjum | Reykjanes Optikk | | Skartsmiðjan | Skóbúðin í Reykjanesbæ | Sport24 | Tattoo Valensa | Tengdu.is | Urta Islandica | Viney | Víkurfréttir | Zolo & Co |


12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

r i t t e s æ b a j s e n r u ð u S í r a g a Vitad

Vitadagar í Suðurnesjabæ voru settir með viðhöfn í gærkvöldi þegar Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, lýsti hátíðina formlega setta eftir samverugöngu bæjarbúa frá Sandgerði og Garði að golfskálanum við Kirkjuból. Frá Sandgerði: Hópurinn lagði af stað frá Þekkingarsetrinu undir stjórn Ara Gylfasonar, formanns knattspyrnudeildar Reynis. Frá Garði: Hópurinn hóf göngu frá Víðisvelli undir stjórn Gísla Heiðarssonar, formanns knattspyrnudeildar Víðis. Þegar gangan náði áfangastað við Golfskálann tók við vegleg veisla. Gestir nutu grillaðra pylsa í boði Kjörbúðarinnar ásamt heitri kjötsúpu frá Skólamat. Sirkus Íslands sá um að skemmta viðstöddum með litskrúðugum atriðum við mikinn fögnuð viðstaddra. Dagskrá Vitadaga heldur áfram næstu daga með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna.


Gleðilega

LJÓSANÓTT

ÖLL LJÓS

-25% 29. ÁGÚST - 5. SEPTEMBER

Tilboð gildir aðeins í verslun BYKO Suðurnesjum


14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Anna Ósk mætir á Ljósanótt með nýja listsköpun Suðurnesjakonan og ljósmyndarinn Anna Ósk Erlingsdóttir er að koma heim á Ljósanótt með sýningu sem er talsvert frábrugðin því sem hún hefur áður gert. Anna Ósk, sem búið hefur í Gautaborg um árabil og starfað þar sem ljósmyndari og kennari, mætir til leiks í Fischershúsi með nýstárlega listsköpun þar sem hún rekur mörk ljósmyndunar og málverks saman, með því að prenta eigin ljósmyndir á striga og mála yfir þær með olíu og akrýl. Anna Ósk hefur lengi verið þekkt fyrir ljósmyndun sína og kennslu, en hún hefur búið í Svíþjóð síðan 2010 þar sem hún kennir m.a. við Folkuniversitetet í Gautaborg. Hugmyndin að því að tvinna saman ljósmyndun og málun hefur hins vegar legið í dvala hjá henni í tæpan áratug. „Ég er búin að vera í ljósmyndun svo lengi að það var kominn tími á að gera eitthvað annað og þróa þetta lengra. Mig var búið að langa til að prófa þetta í tíu ár,“ segir Anna Ósk. Eins og oft gerist vantaði tæknina og rétta tækifærið til að láta slag standa.

Fékk innblástur hjá Bergþóri Morthens og fór á námskeið

Njarðarbraut 15, 260 Reykjanesbær Sími 420 5000 www.ksteinarsson.is

Fyrir nokkrum árum fékk Anna Ósk að kíkja í heimsókn á vinnustofu Bergþórs Morthens í Gautaborg, en hann hefur náð góðum árangri í málverkinu ytra. „Hann gaf mér nokkur góð ráð og tips, en það var síðan ekki fyrr en nýlega sem ég lét verða af þessu. Þar sem ég kenni við háskólann fæ ég að fara á námskeið hjá þeim. Ég skráði mig einfaldlega á málunarnámskeið, mætti með málningardótið og sagði kennaranum að ég ætlaði kannski ekki að fylgja námskránni heldur prófa mína eigin hugmynd, að mála á ljósmyndastriga.“ Anna segir það hafa verið nauðsynlegt að fá pláss á vinnustofu fyrir subbuverkið. „Ég er svo mikill hrakfallabálkur að ég myndi

„Ég hata AI og vildi alls ekki fara þá leið. Ég vildi fara í handverkið og gera eitthvað raunverulegt með höndunum.“

Suðurnesjakonan og ljósmyndarinn Anna Ósk Erlingsdóttir mætir með sýningu á Ljósanótt.

mála allt heimilið mitt og gólfin í olíulitunum ef ég væri að gera þetta í íbúðinni hjá mér!“ segir hún og hlær.

Frábrugðið gervigreindinni og gefur miklu meiri dýpt Með því að prenta ljósmyndirnar á striga og mála síðan ofan í þær með olíu og akrýl fær hún allt aðra áferð og dýpt í myndirnar. „Þetta verður eins og 3D-áhrif. Maður fær miklu meiri áferð, dýpri liti og getur breytt bakgrunninum eða stemningunni algjörlega. En það sem er kannski skemmtilegast er vinnuferlið. Þegar ég er í stórri ljósmyndatöku þá þarf ég að stýra öllu, módelum, förðun, hári, hönnuðum og aðstoðarfólki. En í máluninni er ég bara ein með tónlist í heyrnartólunum að dunda mér í mínum eigin heimi.“ Í heimi þar sem gervigreind (AI) er farin að taka mikið pláss í stafrænni myndvinnslu vildi Anna Ósk fara í þveröfuga átt. „Ég hata AI og vildi alls ekki fara þá leið. Ég vildi fara í handverkið og gera eitthvað raunverulegt með höndunum.“ Aðspurð hvort margir séu að gera þetta segir hún listformið frekar óvenjulegt. „Fólk hefur verið að taka gamlar myndir eða tímaritamyndir og mála á þær, en það eru fáir sem nota eigin ljósmyndir og olíumála á þær á þennan hátt. Þegar ég var með pop-up sýningu í Gautaborg kom fólk og spurði: „Bíddu, tókst þú myndina líka?!“ Fólk var ekki alveg að fatta að ég væri bæði ljósmyndarinn og málarinn.“

Fjölbreytt úrval í Fischershúsi á Ljósanótt Anna Ósk verður til húsa í Fischershúsi á Ljósanótt. Hún mun sýna original málverk á striga í ýmsum stærðum, auk þess sem hún verður með ódýrari valkosti fyrir gesti og gangandi. „Það er dálítið mál að ferðast með mikið af stórri og innrammaðri list í ferðatöskum frá Svíþjóð, en ég verð með nokkur stór og glæsileg frummálverk, bókina mína, póstkort og ýmsan varning. Ég vil að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi sem kostar ekki handlegg og fót,“ segir Anna Ósk og hlakkar mikið til að hitta Suðurnesjamenn og aðra gesti Ljósanætur.


Gleðilega Ljósanótt Landsbankinn er einn aðalstyrktaraðila Ljósanætur


16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Viney fagnar eins árs afmæli á Ljósanótt — Suðurnesjafólk tilbúið að versla í heimabyggð þegar þjónustan og úrvalið er til staðar Snyrtivöruverslunin Viney á Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ fagnar um þessar mundir eins árs afmæli. Verslunin opnaði dyrnar á Ljósanótt í fyrra og hefur vöxturinn verið hraður. Á einu ári hefur vörumerkjum í versluninni fjölgað úr 11 í 26 og segja forsvarsmenn verslunarinnar viðtökurnar hafa sýnt að Suðurnesjafólk sé tilbúið að versla í heimabyggð þegar þjónustan og úrvalið er til staðar. Viney er f jölskyldufyrirtæki í eigu hjónanna Pálínu Guðjónsdóttur og Ívars Þórðarsonar. Þau segja flestar ákvarðanir teknar yfir eldhúsborðinu heima, allt frá því hvaða vörumerki séu tekin inn til þess hvernig verslunin er hönnuð.

þjónustu. Í versluninni er lögð áhersla á að bjóða vandaðar vörur fyrir alla hópa, þar á meðal sígild merki á borð við Estée Lauder og Clinique, íslenska framleiðslu eins og Andrea Maack og DrBragi, ásamt miklu úrvali af vinsælum kóreskum húðvörum.

Vildu bæta þjónustuna í heimabænum

Hlustað á viðskiptavinina og hafist handa

Hugmyndin að stofnun Vineyjar spratt af þörf sem Pálína og Ívar sáu í nærsamfélaginu. „Reykjanesbær er yfir 22 þúsund manna bæjarfélag, um tvöfalt fjölmennara en Selfoss þar sem heil flóra af sérverslunum þjónustar íbúana. Bæjarfélag af okkar stærð á að standa undir sínu eigin úrvali. Það á ekki að þurfa að keyra til Reykjavíkur til að fá almennilegt úrval af snyrti- og húðvörum, og enn síður til að fá ráðgjöf sem er eitthvað meira en „þessi er vinsæl núna“,“ segir Ívar. Fyrsta árið hefur gengið vonum framar og segja þau Pálína að reynslan hafi sýnt að íbúar á Suðurnesjum kunni vel að meta góða

Pálína og Ívar leggja mikla áherslu á að hlusta á óskir viðskiptavina. „Í desember í fyrra fengum við sérstaklega margar fyrirspurnir um hárvörur og karlmannavörur. Strax eftir áramót fórum við í málið og bættum við þremur hágæðamerkjum: K18, Design.me og Daimon Barber,“ segir Pálína. Á þessu ári tók fyrirtækið svo stórt skref þegar það hóf beinan innflutning og tryggði sér einkaumboð fyrir tvö vörumerki á Íslandi, Rom&nd og s.nature. „Þetta eru bæði merki sem margir hafa verið að kaupa erlendis, en nú eru þau fá-

anleg hjá okkur á Hafnargötunni og í vefversluninni okkar, viney.is,“ bætir Ívar við.

Veisluhöld og sérfræðingar á Ljósanótt Hringurinn lokast á Ljósanótt, en Ljósanótt í fyrra var einmitt fyrsta alvöru helgin í rekstri verslunarinnar. Í tilefni afmælisins verður slegið upp hátíð í versluninni alla hátíðina. Kvöldin 2. og 3. september mun Viney bjóða upp á léttar veitingar, vín og drykki á Hafnargötu 35. Þá mæta sérfræðingar frá nokkrum vörumerkjum og ilmhönnuðurinn Andrea Maack verður einnig á staðnum til að kynna ilmi sína. Einnig verður boðið upp á afslætti og kaupauka allt hátíðarhaldið. „Endilega kíkið við og spjallið við okkur. Við verðum þarna allan tímann og hlökkum mikið til að fagna með bæjarbúum,“ segir Pálína að lokum. Opnunartími Viney á Ljósanótt: Miðvikudagur: 11:00–22:00 Fimmtudagur: 11:00–22:00 Föstudagur: 11:00–20:00 Laugardagur: 11:00–20:00 Sunnudagur: 13:00–17:00 Verslunin er staðsett á Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ og vefverslun á www.viney.is

Helga Dís Jakobsdóttir nýr framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Helga Dís Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free. Helga Dís hefur starfað hjá félaginu frá því í febrúar og það er fyrirtækinu sérstakt ánægjuefni að ráða í starfið úr eigin röðum, segir í tilkynningu. Undir viðskiptasvið Ísland Duty Free heyra vörustýring, markaðsmál, aðfangakeðja og birgðastýring. Sviðið gegnir því lykilhlutverki í mótun vöruúrvals og upplifunar viðskiptavina. „Við erum afar ánægð að fá Helgu Dís í þetta lykilhlutverk. Ráðningarferlið var vandað og samkeppnin hörð en afar sterkir umsækjendur bæði innan fyrirtækisins og utan þess sóttu um. Það segir sína sögu að niðurstaðan hafi verið innanhússráðning,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free. Helga Dís hefur gegnt starfi vöruflokkastjóra snyrtivara og sérvöru hjá Ísland Duty Free undanfarna mánuði og þekkir því starfsemina, teymið og birgja félagsins vel. Áður starfaði hún hjá Samkaupum, fyrst sem þjónustu- og upplifunarstjóri, svo sem markaðsstjóri Nettó, þar sem hún stýrði markaðsmálum og þjónustuupplifun keðjunnar á landsvísu og loks sem vöruflokkastjóri. Þar

áður var hún rekstrarstjóri veitingastaðarins Hjá Höllu á Keflavíkurflugvelli og starfaði um árabil hjá Bláa lóninu. Helga Dís er með meistaragráðu í þjónustustjórnun og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún sat í bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á árunum 2018 til 2024. „Ég er full tilhlökkunar að taka við þessu spennandi hlutverki. Fram undan eru einstakir tímar hjá Ísland Duty Free og ég hlakka til að leiða áfram uppbyggingu á vöruúrvali og upplifun viðskiptavina ásamt frábæru samstarfsfólki,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir. „Helga Dís hefur á skömmum tíma sýnt í verki að hún er öflugur leiðtogi og viðhorf hennar og gildi samræmast einstaklega vel stefnu Ísland Duty Free. Það er okkur því sérstakt ánægjuefni að sjá leiðtoga vaxa innan okkar eigin raða,“ segir Liam.


að lýsa upp m a fr á m u ld ö h ið V ð Ljósálfum Reykjanesbæ me sakeðju Ljósálfar mynda ljó í Gróf í Keflavík i n in fn ö h ta á b á sm frá ni og með strandleiðin pp á Kamb. í Innri Njarðvík og u

Íslandshús lýsa upp Reykjanesbæ Ljósálfur er sterkbyggður ljósastöpull, hannaður og framleiddur á heimaslóðum til að takast á við veðurguði í vondu skapi en lýsir upp hina vinsælu strandleið í Reykjanesbæ svo fólki geti notið göngunnar eða hjólatúrsins á öruggan hátt. Þökkum starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir ánægjulegt samstarf í þessu skemmtilega og áhugaverða verkefni. Njótið hreyfingar og útiveru í okkar frábæra sveitarfélagi, Reykjanesbæ.

Gleðilega Ljósanótt!

Íslandshús


18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Starfsfólkið á Aðalbrosi í nýju húsakynnunum. VF/hilmarbragi.

Sérhönnuð tannlæknastofa sem mætir kröfum framtíðarinnar Bylting í tannlækningum á Suðurnesjum hjá Aðalbrosi sem opnaði á Aðaltorgi í Reykjanesbæ í vor. Ein öflugasta tannlæknastofa landsins. Tannlæknastofan Aðalbros opnaði í maí í nýju og glæsilegu sérhönnuðu húsnæði á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Með flutningum og sameiningu þriggja tannlæknastofa er Aðalbros orðin ein öflugasta tannlæknastofa landsins þar sem áhersla er lögð á nútímatækni, forvarnir og hlýlegt andrúmsloft. Við settumst niður með tveimur af eigendum stofunnar, þeim Þorvaldi H. Bragasyni og Benedikt Jónssyni, og ræddum um nýju stofuna, stökkbreytingu í tækni og þróun á tannheilsu landsmanna. Þriðji eigandinn er Theódór Friðjónsson tannlæknir og eiginkona hans María Guðjónsdóttir. Páll Ketilsson pket@vf.is

Fyrsta sérhannaða tannlæknastofan á svæðinu Þeir þremenningar hófu samstarf nýlega en höfðu allir haft starfsemi í Reykjanesbæ í all mörg

ár, Benedikt lengst en Theódór tók við rekstri Jóns Björns Sigtryggssonar tannlæknis fyrir nokkrum árum á Tjarnargötunni, sem hélt þó áfram hjá honum en er að hætta störfum. Þorvaldur hitti þá félaga á 3. hæðinni þar og fljótlega lágu leiðir og hugmyndir þeirra saman um nýtt framtíðar húsnæði. Eftir all nokkrar pælingar og umræður kom hugmynd sem fæddist í

stólnum hjá viðskiptavini Þorvaldar sem bauð þeim húsnæði á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. „Hvað mig varðar þá var ég í húsnæði á Skólavegi 10 sem var byggt fyrir 53 árum síðan sem íbúðarhúsnæði,“ segir Þorvaldur. „Það var svolítið takmarkað hvað var hægt að gera þar en ég var þar frá 2007 til 2022. En svo seldi ég húsnæðið og leigði á Tjarnargötu ská á móti Það er nóg að gera hjá aðstoðarkonum tannlæknanna.

Benna og Tedda. Þá fór boltinn að rúlla.“ Þegar ákveðið var að reisa nýtt hús á Aðaltorgi var húsið enn á teikniborðinu og aðeins búið að útlitsteikna það. Tannlæknarnir stukku á tækifærið og komu að hönnuninni frá grunni. „Ég held ég þori að segja að þetta sé fyrsta tannlæknastofan á Suðurnesjum og jafnvel bara á landinu öllu sem er í raun sérhönnuð sem slík frá grunni,“ segir Benedikt. „Yfirleitt þurfa tannlæknar að mæta með múrbrjót og byrja að brjóta fyrir lögnum. En hér er allt innbyggt frá upphafi.“ Þeir Þorvaldur og Benedikt fara fögrum orðum um samstarfið við Aðaltorg, eigendur hússins, og verktakana sem unnu við uppsetningu tannlæknastofunnar: „Þeir höfðu aldrei byggt tannlæknastofu áður en voru boðnir og búnir að mæta öllum okkar ýtrustu kröfum til að gera þetta vel úr garði. Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna.“

Öll þjónusta á einum stað Með nýja húsnæðinu hefur Aðalbros búið svo um hnútana að sjúklingar þurfa sjaldnast að leita annað eða aka til Reykjavíkur eftir þjónustu. „Við bjóðum upp á öll þau tæki og tól sem þarf til að sinna nútíma tannlækningum,“ útskýrir Benedikt. „Við sinnum nánast öllu því sem snýr að tannlækningum á stofunni, en einnig erum við með sérfræðinga á okkar snærum ef sérstök tilfelli koma upp.“

Á stofunni starfa tíu tannlæknar og reynslumikið starfsfólk, auk þess sem Ædent, tannsmíðaverkstæði Ævars Péturssonar, er staðsett á sama stað. „Það er mikill kostur að hafa tannsmiðina á ganginum,“ segir Þorvaldur. „Ef það þarf að bjarga einhverju snögglega þá sparast mikill tími fyrir sjúklinginn.“ Eitt af því sem benda má á er að aðgengi er til fyrirmyndar, auðvelt er fyrir fólk í hjólastól að komast inn og þá er lyfta í húsnæðinu.

Stafræna tæknibyltingin og 3D-röntgentæki Ykkar starfsævi spannar nokkra áratugi. Hversu mikið hefur tæknin breyst í faginu frá því þið hófuð störf ? Benedikt, reynsluboltinn á stofunni segir breytinguna gríðarlega. „Stutta svarið er að það er nánast ekkert í tannlækningum í dag eins og þegar ég byrjaði. Sérstaklega síðustu ár hefur stafræna tæknin verið algjör lúxus. Að taka mát er bara gjörbreytt ferli. Gömlu góðu mátin sem þurftu að harðna uppi í fólki eru kannski bara 10% af öllum máttökum í dag. Allt hitt er stafrænt, sem er gríðarlega þægilegt bæði fyrir okkur og sjúklinginn.“ Þorvaldur rifjar upp hvernig myndatökur á stofunni hafi verið. „Fyrir rúmlega tíu árum síðan var ég enn að framkalla röntgenmyndir sem voru settar í fixer, þurrkaðar og hengdar upp. Þetta voru litlar myndir, 3x4 sentimetrar. Myndatakan í dag er stafræn og gæðin allt önnur. Í nýja húsnæðinu fengum


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 19

Benedikt í nýju stofunni sinni. Hann hefur starfað hátt í fjóra áraugi í Keflavík.

Aðstaðan er glæsileg og þægileg og allt er gert til að viðskiptavinum, börnum og fullorðnum líði vel í Aðalbrosi.

Það fer vel um starfsfólkið á nýja staðnum og sömuleiðis viðskiptavinina í hlýlegri móttöku. Hér eru móttökuritararnir Fjóla Stefánsdóttir og Lilja Þ. Tómasdóttir.

„Það er nánast ekkert í tannlækningum í dag eins og fyrir nokkrum áratugum. Sérstaklega síðustu ár hefur stafræna tæknin verið algjör lúxus. Að taka mát er bara gjörbreytt ferli. Gömlu góðu mátin sem þurftu að harðna uppi í fólki eru kannski bara 10% af öllum máttökum í dag. Allt hitt er stafrænt, sem er gríðarlega þægilegt bæði fyrir okkur og sjúklinginn.“ við loksins pláss fyrir sneiðmyndatæki sem tekur þrívíddarmyndir og breiðmyndir. Það hjálpar okkur gríðarlega við flóknari aðgerðir eins og að setja niður implönt, skoða erfiða endajaxla eða rótfyllingar. Þetta getum við gert samstundis á staðnum án þess að senda fólk í örfá tæki á höfuðborgarsvæðinu.“

Mikil breyting fyrir barnafjölskyldur Sumum finnst enn ógnvekjandi að fara til tannlæknis og óttast stundum reikninginn. En að sögn Þorvaldar er staðan oft allt önnur en fólk heldur. Sjúkratryggingar koma inn hjá 18 ára og yngri, eldri borgurum og öryrkjum. „Það eru góðir samningar í gangi hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) fyrir eldri borgara, öryrkja og börn,“ segir Þorvaldur. „Fyrir eldri borgara greiða Sjúkratryggingar í flestum tilfellum um 75% af gjaldskrá. Fólk heldur stundum að þetta sé svo dýrt og fer jafnvel erlendis í meðferðir, en áttar sig kannski ekki á því að það er mjög vel komið til móts við það hér heima.“ Einnig náðist stór áfangi upp úr 2015 þegar ákveðið var að börn undir 18 ára aldri fengju tannlæknaþjónustu að fullu endurgreidda (að frátöldu árlegu komugjaldi). „Þetta breytti öllu fyrir barnafjölskyldur,“ bætir Benedikt við. „Kynslóðin sem er að eignast börn í dag, fólk á aldrinum 25 til 40 ára, hefur notið bestu mögulegu tannlæknaþjónustu og forvarna frá upphafi.

Sú kynslóð er með langbestu tennurnar og yfirfærir þær góðu venjur á börnin sín.“

Áhyggjuefnið flutt yfir á eldri hópana Hvernig hefur tannheilsa Íslendinga þróast yfir þá áratugi sem þið hafið starfað? Benedikt lærði í Svíþjóð og hann segir að hann hafi fengið pínulítið sjokk þegar hann kom heim fyrir 36 árum. „Þegar ég kom heim frá Svíþjóð árið 1990 fékk ég pínulítið sjokk. Það var ofboðslega mikið um tannskemmdir hér miðað við það sem ég hafði kynnst þar. En við tannlæknarnir í Reykjanesbæ, komum í sameiningu á kerfi með skólahjúkrunarfræðingum í bænum þar sem öll börn urðu að velja sér tannlækni og það voru yfir 90% heimtur. Það var mikið framfaraskref.” Þorvaldur segir að áhyggjuefnið hafi í raun færst til. „Áður fyrr voru það börnin og unga fólkið, en í dag er stór vandi færður yfir á eldri borgara sem eru að koma inn á hjúkrunarheimili og stofnanir. Ólíkt því sem var áður var er stór hópur aldraðra í dag með sínar eigin tennur en ekki falskar tennur. En mikið af þessu fólki hefur ekki líkamlega getu til að bursta sig sjálft. Vegna manneklu á stofnunum er þessum hluta oft ekki sinnt og tannlæknaþjónusta þar er nánast engin. Ef það er brotalöm í kerfinu varðandi tannheilsu á Íslandi í dag, þá er það virkilega þar.“

Á árum áður var algengt að fólk fengi falskar tennur. Er það enn við lýði? „Við þurfum enn að smíða góma, en stóri munurinn er sá að í dag er hægt að festa þá. Við setjum niður implönt sem virka sem akkeri fyrir gómana þannig að þeir smellast fastir. Það hefur gjörbreytt lífi fólks. Einnig reynum við alltaf að halda í þær tennur sem eftir eru, því þótt þú hafir bara tvær tennur eftir skiptir það öllu máli við að festa góm. Tannlækningar ganga út á lækningar en ekki niðurrif.“

Hlýleiki í fyrirrúmi Þegar gengið er inn á nýju stofuna á Aðaltorgi mætir gestum stórt fiskabúr, mjúk lýsing, góð hljóðvist og hlýlegt andrúmsloft. „Við lögðum mikla vinnu í útlit og upplifun. Okkur langaði að þetta væri þægilegur staður að koma á, frekar en köld stofnun,“ segir Þorvaldur. „Börnin dýrka fiskabúrið og við höfum fengið frábær viðbrögð frá viðskiptavinum síðan við opnuðum í vor.“ Að lokum inntum við þá eftir skilaboðum til íbúa á Suðurnesjum: „Öll okkar vinna byggist á forvörnum,“ segir þeir félagar. „Ráð okkar eru einföld: Það skiptir öllu máli að sinna daglegri tannhirðu með flúortannkremi og tannþræði, og fara reglulega í eftirlit. Þá verða aldrei nein stórslys. Og muna að það er pláss fyrir öll hjá okkur í Aðalbrosi – öll eru hjartanlega velkomin!“

Skipulag í Reykjanesbæ Deiliskipulag Iðjustígur Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti á fundi þann 25. júní 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Iðjustíg 1 skv. 1. mgr. 41. greinar skipulagslaga. Reiturinn afmarkast af Hafnargötu, Iðjustíg og Pósthússtræti. Inntak breytingar á deiliskipulagi er sameining lóða Iðjustígs 1 og hluta lóðar Hafnargötu 91, með tillögu að uppbyggingu hornhúss fyrir verslun, þjónustu og íbúðum á 4–7hæðum, auk bílakjallara. Önnur svæði innan skipulagssvæðisins haldast óbreytt. Gert er ráð fyrir verslun og þjónustu sem snýr að Hafnargötu og 91 íbúð í húsinu. Nýtingarhlutfall við Iðjustíg 1 verði 1,88 ofanjarðar en 0,57 neðan. Gert er ráð fyrir bílastæði á hverja 35m2 atvinnuhúsnæðis en 1,5 stæði á íbúð. Nánari upplýsingar eru í Skipulagsfátt, á heimasíðu Reykjanesbæjar og eru veittar um netfangið skipulag@reykjanesbaer.is. Umsagnir og athugasemdir berist í Skipulagsgatt málsnúmer 808/2026. Athugasemdafrestur er til og með 28. ágúst 2026.

Breyting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar Áform eru um uppbyggingu í miðbæ Keflavíkur á svæði sem tilheyrir miðsvæði M2Miðbærinn í Reykjanesbæ. Tilgangurinn með aðalskipulagsbreytingunni er annars vegar að gefa kost á fleiri íbúðum innan miðsvæðis M2 en gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir og einnig á frekari uppbyggingu atvinnuhúsnæðis. Breytingin er unnin í tengslum við nýtt deiliskipulag þar sem fyrirhuguð er uppbygging með íbúðum og verslunar og þjónusturými. Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar og í Skipulagsgátt HMS. Nánari fyrirspurnum er svarað í netfangi skipulag@reykjanesbaer.is Umsagnir eða athugasemdir skulu vera skriflegar og berast í Skipulagsgátt mál nr. 377/2026. Athugasemdafrestur er til og með 6. október 2026.

Séð inn í aðstöðu tannsmíðaverkstæðisins þar sem Ævar Pétursson er í forsvari.

Skipulagsfulltrúi

reykjanesbaer.is


20 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Ada Hafliðadóttir með bækurnar þrjár sem hún hefur gefið út. VF/hilmarbragi

Rómantíkin hennar sterkasta hlið en spennusagan heillar Ada Hafliðadóttir er 15 ára og hefur skrifað og gefið út þrjár skáldsögur á ensku Hún er aðeins 15 ára gömul, nemandi í Stapaskóla og þann 1. júní síðastliðinn gaf hún út heila bókaseríu, þrjár enskar skáldsögur í einu. Ada Hafliðadóttir er nafn sem vert er að leggja á minnið en hún fetar nú sín fyrstu skref sem sjálfstætt starfandi rithöfundur. Bækur hennar, Solved By You, Consumed By You og Hidden By You, mynda saman seríuna Beyond The Field. Sögurnar hafa vakið mikla athygli og ein þeirra náði meðal annars inn á topp þrjú í handritakeppni Storytel eftir að Ada þýddi fyrstu bókina yfir á íslensku. Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með þessum efnilega rithöfundi á Bókasafni Reykjanesbæjar til að ræða bækurnar, sköpunargleðina og það að skrifa á erlendri tungu samhliða skóla.

Hugmyndirnar normalísera nútímavandamál Ada segir að áhuginn á ritlistinni hafi fylgt henni lengi en hún byrjaði af alvöru að láta blekið flæða undir lok ársins 2024. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að lesa. Því eldri sem ég varð, því meira fór mig að langa til að prófa að skrifa mína eigin bók. Mér fannst svo mikill áhugi í því að segja sögur sem mér duttu í hug. Ég leyfði starfsfólki í skólanum að lesa það sem ég var með og fékk svo góð viðbrögð að ég ákvað bara að slá til og gefa hana út,“ segir Ada brosandi. — En um hvað fjalla þessar þrjár bækur? „Þetta eru nútímarómantískar sögur, svona nýrómantík. Bækurnar þrjár mynda eina seríu þar sem við fylgjumst með sama vinahópnum, en hver bók einblínir á ólíka karaktera. Þetta snýst í grunninn um að normalísera og segja frá krökkum sem eru að glíma við nútímavandamál eins og kvíða og erfiðleika innan vinahópsins eða í skólanum. Sem einstaklingur sem hefur gengið í gegnum slíkt þá langaði mig að segja svolítið frá því. Þetta er ekki beint mín saga, en ég kannast við þetta og vildi að fólk gæti tengt við karakterana.“

Betra að tjá sig á ensku Það vekur athygli að Ada skrifar sögur sínar á ensku. Aðspurð segir hún það eiga sér eðlilegar skýringar.

„Ég hef alltaf haft meiri áhuga á að lesa enskar bækur og mér fannst sögurnar mínar hreinlega meika meira sens á ensku. Svo er ég líka mjög vön því að tala ensku heima, til dæmis við frænku mína sem er að læra íslensku en er ekki alveg komin þangað. Mig langaði að hún gæti lesið bókina og eins á ég fullt af vinkonum erlendis sem geta þá notið þeirra líka.“ Það kom Ödu því skemmtilega á óvart þegar skrifstofustjórinn í skólanum benti henni á handritakeppni Storytel fyrir ungmenni á aldrinum 12 til 17 ára. Til þess að taka þátt þurfti handritið að vera á íslensku. „Mamma og stjúppabbi sögðu bara: „Jájá heyrðu, þú tekur þátt í þessu og sleppir ekkert þessu tækifæri“. Þannig að ég settist niður og þýddi Solved By You yfir á íslensku. Það var mjög sérstakt því það er ekki hægt að beinþýða allt og ég þurfti oft að orða hlutina öðruvísi, en mér fannst það skemmtilegt. Svo fékk ég þær fréttir að sagan hefði lent í einu af þremur efstu sætunum. Mér fannst það svo klikkað að ég trúði því varla sjálf!“

Skrifað í skólastofunni og inni á herbergi Ada fer hratt yfir sögu þegar innblásturinn lætur á sér kræla. Hún segir það taka um einn til tvo mánuði að móta hugmyndina og svo tvo til þrjá mánuði að skrifa hverja bók. En hvenær gefst tími til þess að skrifa heila bókaseríu á miðju skólaári? „Skólinn minn, Stapaskóli, er ógeðslega næs. Þegar ég er búin með verkefnin mín og hef lítið að gera þá leyfa kennararnir mér stundum að skrifa í tíma og ég er mjög þakklát fyrir það. Svo sér fólk mig ógeðslega oft bara með tölvuna úti um allt. Annars er ég bara heima inni í herbergi að skrifa í þrjá tíma í senn.“

Hún nýtur líka dyggs stuðnings vinkvenna sinna sem hún fær til að lesa yfir fyrstu uppköstin og gefa sér hugmyndir. „Fyrsta bókin breyttist ógeðslega mikið frá fyrsta eintaki yfir í það síðasta. Vinahópurinn minn hefur sýnt mér rosalega mikinn stuðning og umhyggju. Ég gæti ekki beðið um betri vini.“

Enginn bílskúr fullur af kössum Bækurnar þrjár eru sjálfsútgefnar í gegnum útgáfukerfi Amazon (KDP). Margir gætu haldið að slíku fylgdi mikill kostnaður og geymsluvesen, en tæknin hefur breytt miklu fyrir unga höfunda. „Það kostar mig í rauninni ekki neitt að láta prenta bækurnar, það kostar bara ef ég vil fá eintak sjálf,“ útskýrir Ada. „Bækurnar eru einfaldlega prentaðar jafnóðum og fólk kaupir þær. Þannig að ég er ekki með fullan bílskúr af kössum til að selja!“ Ada stefnir ótrauð á að halda áfram á rithöfundabrautinni og er strax byrjuð að vinna að nýrri bók. Þótt rómantíkin sé hennar sterkasta hlið viðurkennir hún að spennusaga eða leyndardómssögur (mystery) hafi kraumað í huganum.

Hvar er hægt að nálgast bækurnar? Fyrir þá sem vilja kynna sér verk þessa efnilega rithöfundar úr Reykjanesbæ eru bækurnar fáanlegar á eftirfarandi stöðum: •

Á Amazon: Hægt er að leita að nöfnum bókanna (Solved By You, Consumed By You, Hidden By You) ásamt nafni Ödu. Fáanlegar bæði sem rafbækur og kiljur.

•

Á bókasöfnum í Reykjanesbæ: Bækurnar hafa verið teknar inn á Aðalsafn Bókasafns Reykjanesbæjar og í Stapasafn í Stapaskóla, þar sem hægt er að nálgast útprentuð eintök.

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is


20% AF ÖLLUM VÖRUM FYRIR KLÚBBMEÐLIMI

Gildir aðeins í Reykjanesbæ 2. – 6. september

A4 REYKJANESBÆ HAFNARGÖTU 27A

Lengri afgreiðslutími á Ljósanótt: Miðvikudagur 2. september 9 – 22 Fimmtudagur 3. september 9 – 22 Föstudagur 4. september 9 – 22

Laugardagur 5. september 11 – 22 Sunnudagur 6. september 13 – 17


22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Glæsileg dagskrá í Hljómahöll á Ljósanótt:

Afmæli, perlur og stórhátíðarhlátur Fjölbreytt og glæsileg dagskrá verður í Hljómahöll á Ljósanótt í ár þar sem öllum ætti að finnast eitthvað við sitt hæfi. Afmælisbörn á borð við KK og rokksveitina Ensími munu fagna stóráföngum, Pétur Jóhann mætir til að kæta Suðurnesjamenn og stórtónleikar verða haldnir til heiðurs einu ástsælasta tónskáldi þjóðarinnar.

KK fagnar 70 árum í Bergi Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, eða KK eins og hann er jafnan kallaður, fagnar 70 ára afmæli sínu á árinu 2026. Af því tilefni heldur hann í tónleikaferðalag um landið allt og mætir í Berg í

Hljómahöll fimmtudagskvöldið 3. september kl. 20:00. Boðið verður upp á nærandi kvöld fullt af söng, gítarleik og skemmtilegum sögum þar sem klassísk lög eins og Vegbúinn, Lucky One, Hafðu engar áhyggjur og Bein leið fá að hljóma.

Ensími með 30 ára starfsafmæli Sama kvöld, fimmtudaginn 3. september kl. 20:00, verður annar stórafmælisviðburður í Hljómahöll þegar rokk- og indísveitin Ensími fagnar 30 ára starfsafmæli sínu. Sveitin, sem skipuð er þeim Hrafni Thoroddsen, Franz Gunnarssyni, Guðna Finnssyni, Arnari Gíslasyni og Þorbirni Sigurðssyni, hefur sent frá sér sex breiðskífur á blómlegum ferli. Á tónleikunum munu þeir stíga á stokk og flytja vel valin lög af öllum útgáfum sínum, auk þess sem óvíst er nema gestir fái að heyra eitthvað af nýmetisefni.

Pétur Jóhann mætir í Stapa í sinni bestu mynd Hlátur taugarnar fá svo sannarlega að f inna fyrir því föstudagskvöldið 4. september kl. 20:00 þegar Pétur Jóhann mætir í Stapa. Pétur hefur verið á yf irferð um landið með nýja uppistands-

Vilja heiðra Gunna Þórðar í hans heimabæ Ætluðu að halda eina tónleika en eru orðnir sex. Flytja helstu perlur Gunnars í lok Ljósanætur „Við höfum verið að heiðra Gunnar Þórðarson í tali og tónum undanfarin þrjú ár. Upphaflega ætluðum við bara að hafa eina tónleika en þeir eru nú orðnir sex og nú er komið að hans heimabæ og við erum mjög spennt að mæta í Stapann-Hljómahöll þar sem hann steig oft á svið,“ segir Hulda Jónasdóttir, viðburðarstjóri en tónleikarnir Himinn og Jörð verða á laugardagskvöldi á Ljósanæturhelginni.

Fyllum Hljómahöllina „Við viljum auðvitað fylla Hljómahöllina nú þegar þessi meistari kveður okkur og er farinn að semja tónlist á öðrum stað. Hann á það svo sannarlega

skilið,“ segir Hulda en á tónleikunum er feril Gunnars rekin í tali og tónum. „Við viðruðum þetta við Gunna og Toby konu hans í upphafi og þau tóku mjög vel í hugmyndina og hafa mætt á flesta tónleikana. Yndislegt fólk sem

við kynntumst örlítið í þessu ferli okkar.“

Úrval frá Gunna Þórðar Á tónleikunum flytur hópurinn lög frá Hljómum, Trúbroti, frá sólóferli Gunnar, Þú og ég og Eurovision auk laga af Vísnaplötunum. Þá nýtur hópurinn stuðnings barnakórs. Sögumaður er á tónleikunum sem fer yfir lífshlaup Gunnars.

sýningu þar sem markmiðið er einfalt: mikill og ómældur hlátur. Hann mætir sharp, skemmtilegur og í sínu besta formi til að kæta Suðurnesjamenn á stórhátíðinni.

Himinn og jörð: Dægurlagaperlur Gunnars Þórðarsonar Hátíðardagskránni í Hljómahöll lýkur svo með glæsibrag sunnudagskvöldið 6. september kl. 20:00 í Stapa með stórtónleikunum Himinn og jörð, þar sem dægurlagaperlum Gunnars Þórðarsonar eru gerð skil. Gunnar er án efa einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, en hann hefur samið yfir 800 lög ásamt því að semja kvikmynda- og klassíska tónlist. Fjölbreyttur hópur frábærra söngvara og tónlistarmanna

tekur þátt í tónleikunum. Meðal söngvara eru Arna Rún Ómarsdóttir, Daníel E. Arnarsson, Sigurlaug Vordís, Gísli Magna, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Kristján Gíslason og Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, ásamt sérstökum gestum úr söngleikjadeild Dansskóla Birnu Björns. Sögumaður kvöldsins er Valgerður Erlingsdóttir, Magnús Þór Sveinsson stýrir hljómsveit og Stefán Örn Gunnlaugsson sér um útsetningar. Gestir mega eiga von á að heyra perlur eins og Fyrsti kossinn, Bláu augun þín, Gull, Vetrarsól og mörg fleiri meistaraverk. Athugið að 18 ára aldurstakmark er á alla viðburðina. Miðasala er hafin á hljomaholl.is.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 23

Vitin fimm og minningarnar - Guðmundur Karl Brynjarsson:

Málverkasýning og helgistund á Ljósanótt

Gummi Kalli, listamaður og prestur. Til vinstri er ein mynda hans á sýningunni sem ber heitið: Pissubíllinn.

Listamaðurinn og presturinn Guðmundur Karl Brynjarsson býður upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá á Ljósanótt í ár undir yfirskriftinni Vitin fimm og minningarnar. Dagskráin fer fram í Kirkjulundi og Keflavíkurkirkju og samanstendur af málverkasýningu ásamt sérstakri helgistund. Guðmundur Karl hefur þjónað sem prestur í þrjá áratugi, lengst af í Kópavogi. Hann hefur dundað sér við myndlist frá unga aldri en á síðustu árum hefur listin leitað meira og meira á huga hans. Fyrir tveimur árum dvaldi hann í Flórens á Ítalíu þar sem hann stundaði nám í olíumálun. Verkin sem sýnd verða í Kirkjulundi eru að hluta til máluð í náminu á Ítalíu, en önnur tengjast æskuslóðunum í Keflavík og töfrum minninganna sem breyta

hversdeginum í ævintýri. Guðmundur Karl sýndi einnig á Ljósanótt í fyrra og var afar ánægður með viðtökurnar. „Það var virkilega gaman og ný reynsla sem kom pínu á óvart. Ég er vanur því að koma fram fyrir fólk og tala og svoleiðis, en gagnvart því að sýna myndirnar sínar verður maður pínu feiminn. En þarna var stöðugt rennerí af skemmtilegu fólki, gömlum sveitungum og öðrum sem var gaman að hitta og spjalla við,“ segir Guðmundur Karl. Hljómsveitin Þrír englar og þreyttir hestar.

Helgistund í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 6. september kl. 20:00: Sýningunni lýkur með dagskrá sem ber sömu yfirskrift, Vitin fimm og minningarnar. Dagskráin er í umsjón Guðmundar Karls og hljómsveitarinnar Þrír englar og þreyttir hestar. Hljómsveitina skipa að þessu sinni þau Bergþór Haukdal Jónasson, Birta Sigurjónsdóttir, Henning Emil Magnússon, Jón Ólafur Erlendsson og Örn Úlfar Sævarsson. Sveitin hefur getið sér gott orð fyrir flutning á lögum Bob Dylan.

Dagskrá og opnunartímar Málverkasýning í Kirkjulundi: Fimmtudagur 3. september: Kl. 17:00–22:00 Föstudagur 4. september: Kl. 17:00–20:00 Laugardagur 5. september: Kl. 14:30–18:0 Sunnudagur 6. september: Kl. 13:00–16:00

Kjötsúpan á Ljósanótt 4. september kl. 18-19:30 Skólamatur býður í kjötsúpu við skrúðgarðinn fyrir framan Tjarnargötu 12 Skólamatarlestin leggur af stað frá Iðavöllum kl 17:45 Grænkerasúpa fyrir þau sem vilja. FYLGDU OKKUR Á SAMFÉLAGSMIÐLUM @skolamatur @skolamatur_ehf @skolamatur skolamatur@skolamatur.is | S: 420-2500


24 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

VIÐTALIÐ Páll Ketilsson pket@vf.is

„Fyrstu mánuðirnir hafa verið bæði annasamir og skemmtilegir. Það sem hefur komið mér mest á óvart er tvennt, annars vegar hversu áþreifanlega falleg fyrirtækjamenningin er en það starfa yfir 800 manns hjá félaginu af 44 þjóðernum við mjög fjölbreytt störf, t.d. hönnun, þjónustu, rannsóknir og vísindi, tækni, framreiðslu, vöruþróun, sölu- og markaðssetningu,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir sem í vor tók við starfi forstjóra Bláa Lónsins í Grindavík, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis á Íslandi.

Ég verð alltaf Njarðvíkingur í hjartanu Sigríður Margrét Oddsdóttir flutti til Njarðvíkur þegar hún var tíu ára og eignast sínar bestu vinkonur. Hún tók nýlega við sem forstjóri Bláa Lónsins. Sigríður dvaldi á Suðurnesjum í all nokkur ár þegar hún var stelpa en hún fylgdi fjölskyldunni til Njarðvíkur þegar faðir hennar, Oddur Einarsson, tók við sem bæjarstjóri Njarðvíkurbæjar. Sigga Magga er því komin nálægt sínum æskuslóðum þegar hún stýrir málum í Bláa Lóninu í Grindavík. Þú hefur stýrt stórum vörumerkjum eins og Já og Lyfju og komst svo inn í Bláa lónið úr hringiðu atvinnulífsins hjá SA. Hvað var það sem dró þig að Bláa lóninu á þessum tímapunkti? Bláa Lónið hf. er einstakt félag, ekki bara á Íslandi heldur á heimsvísu. Fyrirtækið hefur verið byggt upp með langtímasýn og hugrekki

Sigga Magga á nýjum slóðum í Þjórsárdal.

að leiðarljósi. Hjá fyrirtækinu starfar framúrskarandi fólk og að baki því stendur framúrskarandi fólk. Grímur Sæmundsen hafði stýrt Bláa lóninu frá stofnun árið 1992 eða í rúm 33 ár. Hvernig er að taka við keflinu af forstjóra sem hefur verið svo samofinn sögu og ímynd fyrirtækisins? Grímur er svo sannarlega ekki hættur þó að hann hafi látið af störfum sem forstjóri, hann tók við sem stjórnarformaður félagsins og er stærsti einstaki eigandi þess. Grímur er mikil fyrirmynd fyrir alla sem hafa ástríðu fyrir viðskiptum. Það voru því ekki bara tímamót í sögu félagsins þegar

hann lét af störfum sem forstjóri, heldur tímamót í íslensku atvinnulífi. Það eru forréttindi að fá að vinna með Grími og við erum öflugt teymi. Hvað hefur komið þér mest á óvart við innviði og menningu Bláa lónsins? Þetta er magnaður hópur sem hefur mikla ástríðu fyrir því að veita góða þjónustu og ná árangri. Hitt er hversu skýr stefna fyrirtækisins er bæði í orði og framkvæmd, það er sjaldgæft að koma að félagi þar sem tækifærin eru jafn mörg og metnaðurinn jafn mikill. Seigla og útsjóBláa lónið hefur þurft að sýna ótrúlega seiglu í

gegnum eldsumbrot og raskanir á Reykjanesi á undanförnum árum. Hvernig hefur teymið tæklað þessa óvissu og hvernig horfir öryggis- og viðbragðsáætlun Bláa lónsins við þér í dag? Bláa Lónið er fyrirmynd þegar kemur að seiglu og útsjónarsemi og því hefur ítrekað tekist að snúa áskorunum upp í tækifæri. Eftir því hefur verið tekið og um það hefur verið skrifað, það er til dæmis kafli sem heitir „Building Resilience in Volatile Environments: The Case of the Blue Lagoon in Iceland“ í bókinni „Crisis in Context“ eftir Þröst Ólaf Sigurjónsson og Láru Jóhannesdóttur sem ég hvet alla til að lesa. Það eru fá þjónustufyrirtæki á Íslandi sem búa að jafn góðum öryggis- og viðbragðsáætlunum.

Hvernig hefur gengið að ná aftur til erlendra ferðamanna og endurreisa upplifunina á svæðinu eftir allar lokanirnar og fréttaflutninginn erlendis? Bláa Lónið hf. er mikilvægt fyrirtæki innan íslenskrar ferðaþjónustu, Bláa Lónið sjálft er eitt þekktasta vörumerki landsins og hátt hlutfall ferðamanna heimsækir þennan einstaka áfangastað. Tekjur félagsins jukust í fyrra um 36% frá fyrra ári, eiginfjárhlutfall félagsins er 52% og félagið stendur um þessar mundir að baki stærsta fjárfestingarverkefni innan íslenskrar ferðaþjónustu með uppbyggingu í Þjórsárdal. Ég myndi því segja að Bláa Lónið hafi náð vopnum sínum þó að við séum í raun bara rétt að byrja.

Okkar framtíðarsýn er heilsu- og vellíðunarlandið Ísland, við leggjum áherslu á fjárfestingar og uppbyggingu innviða fyrir upplifunar- og vellíðunarferðaþjónustu. Sú tegund af ferðaþjónustu fellur einstaklega vel að styrkleikum og sérstöðu Íslands og fer jafnframt ört vaxandi. Ferðavilji á heimsvísu hefur aldrei verið meiri og það skiptir mjög miklu máli að við nýtum vel þá innviði sem hafa verið byggðir upp með því að markaðssetja landið undir réttum formerkjum.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 25

Skýr stefna Bláa lónið er í dag miklu meira en baðstaður í Svartsengi — þar undir rekið þið hótelin Retreat og Silica, Highland Base í Kerlingarfjöllum, húðvörulínu og verkefni í Þjórsárdal og á Hoffelli. Hvert verður þitt helsta áherslumál í þessari víðtæku starfsemi? Stefna félagsins er skýr og við höfum kortlagt með hvaða hætti við munum skapa aukið virði á komandi árum. Við ætlum að gera það á þrjá vegu, í fyrsta lagi með því að halda áfram að þróa og bæta upplifun allra okkar gesta í Svartsengi og styðja við vöxt Blue Lagoon Skin Science, í öðru lagi með þróunarverkefnum og uppbyggingu annars staðar á landinu, og í þriðja lagi með ytri vexti en á dögunum var tilkynnt um fyrirhugaðan samruna okkar við Arctic Adventures og fjárfestingu í öðrum baðlónum en hvort tveggja er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Íslensk ferðaþjónusta hefur þroskast mikið. Hvernig á Bláa lónið að halda stöðu sinni sem eitt helsta vörumerki landsins á næstu árum? Alþjóðaviðskipti eru lífæð Íslands og íslensk ferðaþjónusta er í dag stærsta útflutningsgrein landsins. Að því sögðu þá eiga bæði ferðaþjónustan og Bláa Lónið mikið inni, sérstaklega utan háannar. Okkar framtíðarsýn er heilsu- og vellíðunarlandið Ísland, við leggjum áherslu á fjárfestingar og uppbyggingu innviða fyrir upplifunar- og vellíðunarferðaþjónustu. Sú tegund af ferðaþjónustu fellur einstaklega vel að styrkleikum og sérstöðu Íslands og fer jafnframt ört vaxandi. Ferðavilji á heimsvísu hefur aldrei verið meiri og það skiptir mjög miklu máli að við nýtum vel þá innviði sem hafa verið byggðir upp með því að markaðssetja landið undir réttum formerkjum. Hvernig samræmist frekari stækkun og vöxtur Bláa lónsins kröfum samtímans um sjálfbærni, náttúruvernd og ábyrga ferðaþjónustu? Bláa Lónið hefur alla tíð lagt mikla áherslu á sjálfbærni, náttúruvernd og ábyrga ferðaþjónustu. Vellíðan í sátt við náttúru og nærsamfélög. Bláa Lónið sjálft er gott dæmi um það hvernig hrakstraumur verður auðlind en það gerðist ekki af sjálfu sér heldur með áratugum rannsókna, þróunar, hönnunar og hugrekki til fjárfestinga. Við erum auk þess með fjölmargar gæðavottanir því til stuðnings.

Þú stýrðir stórum langtímakjarasamningum í störfum þínum hjá Samtökum atvinnulífsins. Hvernig nýtist sú víðtæka reynsla úr hringiðu atvinnulífsins inn í daglegan rekstur hjá stóru fyrirtæki eins og Bláa lóninu? Fyrir fólk með ástríðu fyrir viðskiptum eru Samtök atvinnulífsins einstakur starfsvettvangur, þar gefast tækifæri til þess að hafa áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja daglega. Öll verkefni veita manni dýrmæta reynslu, innsýn og tækifæri til þess að dýpka skilninginn á samtímanum. Fréttir hafa birst af uppsögnum starfsfólks. Hvað eru margir starfsmenn í fyrirtækinu í Grindavík og svo á öðrum stöðum þar sem þið eruð með eignarhald? Við fórum í skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum félagsins fyrr í sumar, en tilgangur þeirra var fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin, gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á söluog markaðssetningu með tækni og á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til að ná árangri í framtíðinni. Á Íslandi starfa yfir 800 manns hjá samstæðunni en með þeim þróunarverkefnum og þeim ytri vexti sem er á teikniborðinu hjá okkur þá mun störfum innan samstæðunnar fjölga mjög mikið á komandi árum. Hvernig myndi samstarfsfólk þitt lýsa þér sem leiðtoga — og hefur stjórnunarstíll þinn breyst eftir því sem þú tekur við stærri áskorunum? Ég ímynda mér að þau telji mig kröfuharða og árangursdrifna. Ég er meingölluð, allt of metnaðargjörn, hégómagjörn og á það til að vera góð við sjálfa mig, en veg gallana upp með lífsgildunum mínum, legg áherslu á góð samskipti, að taka ábyrgð og líta jákvæðum augum á verkefnin. Þú hefur opnað á að þú varðst nýverið amma. Hvernig heldurðu jafnvægi á milli þess að stýra einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og eiga gæðastundir með fjölskyldunni? Því fylgja fórnir að ná árangri, sama hvort um ræðir fyrirtækjarekstur, íþróttir, stjórnmál eða listir. Það nær enginn topp árangri án þess að leggja mikið á sig, það þýðir fjarveru frá fjölskyldunni. Ég er sem betur fer mjög vel gift og maðurinn minn hefur tekið leiðtogahlutverkið að sér þegar kemur að fjölskyldunni.

Njarðvíkurpían Þú ert með Suðurnesjatengingu eftir að hafa alið manninn þar þegar faðir þinn var bæjarstjóri í Njarðvík. Hvernig minnistu þess tíma og ertu enn með einhverja tengingu þangað? Ég verð alltaf Njarðvíkingur í hjarta, þegar ég var tíu ára gömul og flutti til Njarðvíkur kynntist ég mínum bestu vinkonum sem ég held enn tengslum við, þó að þær hafi vissulega þurft að víkja fyrir vinnunni eins og fjölskyldan þegar kemur að samvistum undanfarin misseri. Þegar þú færð gesti að utan eða vilt eiga góðan dag sjálf — hver er þinn uppáhaldskrókur í starfsemi Bláa lónsins og á Íslandi utan lónsins? Bláa Lónið sjálft, þessi einstaki áfangastaður með þessum einstaka jarðsjó sem þú finnur hvergi annars staðar og er eitt af undrum veraldar. Jarðsjór sem er ríkur af steinefnum, örþörungum og kísli sem yfir þrjátíu ár af rannsóknum sýna að hafa lækningamátt. Öll mómentin sem þú getur upplifað ofan í lóninu, hvort sem er með Blue Lagoon Seltzer í hönd, í nuddi, floti, gufu, eða bara kyrrðinni sem þú finnur í fjarlægasta kima lónsins. Þetta eru níu milljón lítrar af jarðsjó sem endurnýja sig á 40 klukkustunda fresti og það er engu líkt að heimsækja lónið. Utan lónsins þá eru Jarðböðin á Mývatni, Fontana á Laugarvatni og Sjóböðin á Húsavík í miklu uppáhaldi.

Að neðan má sjá yfir baðlónið í Svartsengi. Að ofan er mynd frá almyrkvadeginum. Símar á lofti þegar myrkrið skall á.


26 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Langar stundum að vera útilegutýpan en fór til Austurríkis og New York Kristín Þórarinsdóttir ökukennari og framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður á þönum með Keflvíkingum á Ljósanótt en ætlar líka að njóta viðburða og hefur tryggt sér miða á Heimatónleikana. Kristín Þórarinsdóttir, ökukennari og framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður eins og margir heimamenn á þönum á Ljósanótt. En hún hefur notið sumarsins og hlakkar til Ljósanætur þar sem hún á sínar góðu stundir með fjölskyldu og vinum. Kristín náði til dæmis að tryggja sér miða á hina vinsælu Heimatónleika verða að venju á hátíðinni. Hvernig varðir þú sumarfríinu? Ég náði að taka mér ágætis frí frá dagvinnunni og verja tíma með börnunum mínum og fjölskyldu. Ég er ökukennari líka þannig að það er erfitt að vera alveg í fríi en ég náði að tvinna þetta einhvern veginn saman. Hvað stóð upp úr? Tvær utanlandsferðir standa upp úr þetta sumarið. Í júlí fórum við systkinin og fjölskyldur ásamt mömmu til Austurríkis þar sem við dvöldum á dásamlega fallegum stað og nutum þess að eyða tíma saman. Ég tók svo skyndiákvörðun og

fór með börnin til New York um verslunarmannahelgina. Tvær mjög ólíkar ferðir þar sem í Austurríki var ekkert nema kyrrð og ró en New York algjör andstæða. Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Ég hef mjög gaman af því að fylgjast með íþróttum og hef lengi fylgst með fótboltaliðunum okkar og ef ég ætti að nefna eitthvað sem hefur komið á óvart í sumar þá er það kannski helst karlaliðið okkar í fótbolta en það hefur glatt mig síðustu tvö sumur. Það er einstaklega gaman að fylgjast með þeim spila þetta

tímabil og ég hvet Keflvíkinga til að mæta og fylgjast með þeim leikjum sem eftir eru. Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands? Ég er ekki beint útilegutýpan þó að mig langi stundum að vera það, sérstaklega þegar ég skoða samfélagsmiðlana. Ég tengi ekkert sérstaklega við ákveðinn stað en mér líður mjög vel í hinum ýmsu baðlónum og ef ég ætti að nefna einhvern stað þá væri það kannski Skógarböðin á Akureyri. Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur? Á veturna tekur körfuboltinn við, ég vinn í Blue-höllinni við að reka körfuknattleiksdeildina og það fer mikill tími í það á veturna. Börnin mín eru bæði að æfa körfubolta þannig að það

kemst lítið annað að á okkar heimili. Hvernig finnst þér Ljósanótt? Ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir mannmergð og þræði ekki útihátíðir en ég bít á jaxlinn á Ljósanótt. Það er ákveðin stemning sem myndast í bæjarfélaginu þessa helgi og það er gaman að sjá bæinn lifna við. Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Ég keypti miða á Heimatónleikana og við vinkonurnar ætlum að kíkja þangað, annað er nú ekkert skipulagt og verður bara tekin ákvörðun um það þegar nær dregur. Körfuknattleiksdeildin verður svo með sölu og viðburð á Ljósanótt sem ég tek þátt í að vinna við. Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? Við fjölskyldan höfum undanfarin ár labbað af hátíðarsvæðinu tímanlega á laugardagskvöldinu til að ná á hól rétt hjá heimili okkar og sest þar niður til að horfa á flugeldasýninguna. Af öllu sem gert er þessa helgi þá held ég bara að þessi stund á tilviljanakenndum hól með börnunum mínum sé besta minningin frá Ljósanótt. Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf ? Það er kannski helst það sem ég nefni hér að ofan, að horfa á flugeldasýninguna fjarri mannmergðinni með börnunum mínum. Annars höfum við vinkonurnar yfirleitt farið á tónleika á föstudagskvöldinu og það verður engin breyting á þessa Ljósanótt.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 27

Nína í Listasafni Reykjanesbæjar á Ljósanótt Hópakstur bifhjóla og Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna Nína, okkar kærasta Nína á Ljósanótt, fimmtudaginn 3. september kl. 18:00. Sýningin varpar nýju ljósi á líf, verk og arfleifð Nínu Sæmundsson (1892–1965), eins merkasta frumkvöðuls íslenskrar höggmyndalistar, og nálgast sögu hennar út frá hinsegin sjónarhorni. Nína var ein fyrst íslenskra kvenna til að leggja höggmyndalist fyrir sig sem ævistarf. Hún nam við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn og starfaði síðar í París og Bandaríkjunum, þar sem hún byggði upp farsælan feril. Eftir heimkomuna til Íslands árið 1955. Á sýningunni verða meðal annars sýnd brot úr Hafmeyjunni, einu umdeildasta verki íslenskrar listasögu. Höggmyndinni var komið fyrir í Tjörninni í Reykjavík árið 1959 en á nýársnótt 1960 var hún sprengd

í loft upp. Verkið hafði þá sætt harðri opinberri gagnrýni, og brotin má sjá á sýningunni. Verk Nínu eru sett í samtal við ný verk eftir Diljá Þorvaldsdóttur, Jo Pawlowska, Olgu Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens. Listafólkið tekur verk Nínu sem útgangspunkt og opnar þau fyrir nýjum túlkunum á meðal annars valfjölskyldu, nánd, sjálfsmynd, bernsku, náttúru og umbreytingu. Sýningarstýrur eru Viktoría Guðnadóttir og Dr. Ynda Eldborg. Sýningin stendur til 29. nóvember 2026.

Sýningin „Litið í bakglæsikerra niður Hafnargötu sýnisspegilinn“ opnar í Duus safnhúsum Bifhjólaklúbburinn Ernir og Akstursíþróttafélag Suðurnesja standa fyrir hinum ómissandi hópakstri á Ljósanótt laugardaginn 5. september á milli klukkan 15:00 og 15:30. Ökutækin hefja akstur frá Ægisgötu og aka niður Hafnargötu. Að akstri loknum verður tækjunum lagt þar sem gestir geta virt þau fyrir sér frá næsta grasi; bifhjólum verður lagt við smábátahöfnina fyrir aftan Duus safnhús og glæsikerrunum við Duusgötu og Gróf.

Listakaffihús Bjargarinnar:

Húsin segja söguna

Sköpun og notaleg samvera á Ljósanótt Björgin, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, býður gestum og gangandi á listakaffihús á Ljósanótt þar sem lögð verður áhersla á samveru, virkni og skapandi umhverfi. Á staðnum verður fjölbreytt handverk og vörur sem notendur Bjargarinnar hafa sjálfir skapað til sölu, ásamt því að boðið verður upp á ýmislegt góðgæti. Markmiðið er að opna dyrnar fyrir samfélaginu, sýna sköpunarkraft notenda og bjóða öllum upp á skemmtilega og hlýlega stund. Listakaffihúsið verður opið í húsnæði Bjargarinnar við Suðurgötu í Keflavík á fimmtudaginn 3. september frá klukkan 14:00 til 18:00 og föstudaginn 4. september frá klukkan 12:00 til 16:00.

Ný ljósmyndasýning verður opnuð á Ljósanótt þar sem staldrað er við helstu vörður bílvæðingar á Suðurnesjum og litið til skemmtilegra augnablika sögunnar. Sýningin dregur upp leikræna og fræðandi mynd af þeim miklu breytingum sem urðu á samgöngum, atvinnulífi og ferðalögum frá því að fyrsta bílferðin var farin frá Hafnarfirði til Keflavíkur árið 1913. Sýningaropnunin fer fram í Duus safnhúsum fimmtudaginn 3. september á milli klukkan 18:00 og 20:00 og eru allir velkomnir.

TÓNLISTARVEISLA Á KJÖTSÚPUSVIÐINU Á LJÓSANÓTT Skólamatur býður gestum Ljósanætur upp á hina hefðbundnu og gómsætu íslensku kjötsúpu við Tjarnargötu 12 í Keflavík. Dagskráin hefst með komu Skólamatarlestarinnar klukkan 18:00, en samhliða súpueldhúsinu verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Kjötsúpusviðinu í Skrúðgarðinum.

Á sviðinu stíga á stokk Skólamatarlestin, DansKompaní, Ungleikhúsið og Föruneytið, auk þess sem heimsmeistarar verða heiðraðir. Arnór Sindri Sölvason stýrir dagskránni sem kynnir. Viðburðurinn fer fram föstudaginn 4. september á milli klukkan 18:00 og 20:00 (kjötsúpan borin fram til kl. 19:30).

SAMTAKA

HÓPURINN

SAM VERA ER B ESTA F ORVÖRN IN !

Söfnum góðum fjölskylduminningum, höfum gaman saman á Ljósanótt.

Verum samferða heim

Byggðasafn Reykjanesbæjar býður upp á létta og fræðandi arkitektúrgöngu um elsta hluta Keflavíkur sunnudaginn 6. september frá klukkan 11:00 til 12:30. Jón Stefán Einarsson arkitekt leiðir gönguna sem hefst við Duus safnahús og liggur um Vallargötu og Hafnargötu. Þátttakendur fá tækifæri til að lesa sögu bæjarins úr húsunum, götunum og smáatriðum í umhverfinu. Inn í frásögnina fléttast skemmtilegar sögur af fólki og bæjarlífi, svo sem af bíói í gömlu salthúsi, húsum byggðum úr Jamestown-timbri og brunninum sem gaf Brunnstíg nafn sitt. Þátttaka í göngunni er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.


28 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Lögreglan verður að ganga í takt við samfélagið sem hún þjónar MARGRÉT KRISTÍN PÁLSDÓTTIR LÖGREGLUSTJÓRI Í VIÐTALI Margrét Kristín Pálsdóttir tók við embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum á tíma þegar áskoranirnar voru sjaldan meiri. Embættið stendur í eldlínunni, bæði bókstaflega í almannavarnamálum vegna jarðhræringa á Reykjanesi og við landamæravörslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk þess sem það tekur nú þátt í mótun nýrra úrræða á borð við brottfararmiðstöð fyrir einstaklinga sem fengið hafa lokasynjun um alþjóðlega vernd. Við settumst niður með Margréti og ræddum skyndilega innkomu hennar í embættið, draumana sem breyttust í lögfræði, vaxandi hörku gegn starfsfólki lögreglunnar og mikilvægi þess að huga að fólkinu á bak við einkennisbúninginn.

Skyndilegt kall og hringferð um réttarvörslukerfið Atburðarásin þegar Margrét Kristín tók fyrst við stjórn embættisins í maí árið 2025 var býsna hröð. Hún var þá aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þegar hún var með skömmum fyrirvara beðin um að stíga inn í nýtt hlutverk. „Þetta gerðist mjög skyndilega,“ rifjar Margrét upp. „Ég var bara beðin um að taka þetta að mér í stuttan tíma. Beiðnin kom svona um hádegisbil og morguninn eftir var ég mætt hingað á Suðurnesin. Ég þurfti eiginlega bara að standa upp frá mínum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu.“ Í júlí skipaði dómsmálaráðherra hana síðan í embætti lögreglustjóra. Þótt umskiptin hafi verið hröð var svæðið henni engan veginn framandi. Margrét gegndi stöðu aðstoðarlögreglustjóra á Suðurnesjum um tíma árið 2020 og hefur auk þess víðtæka reynslu úr ólíkum kimum réttarvörslukerfisins. Leið hennar þangað var hins vegar að nokkru leyti tilviljun. „Ég ætlaði mér alltaf í bókmenntafræði eða listfræði og stóri draumurinn var að stjórna listahátíðum. Svo ákvað ég að vera praktísk og taka BA-próf í lögfræði til að eiga forskot í slík störf. En það fór ekki betur en svo að sakamálaréttarfar og málefni tengd réttarvörslukerfinu tóku einfaldlega hug minn allan.“ Meðfram námi hóf hún störf hjá dómsmálaráðuneytinu á skrifstofu almanna- og réttaröryggis. Þar sinnti hún lögreglu- og landamæramálum og varð síðar virkur þátttakandi í viðbrögðum við slæmri niðurstöðu úr úttekt Schengen-nefndarinnar árið 2017. Í kjölfar þeirrar vinnu var landamærasvið embættis ríkislögreglustjóra sett á laggirnar og var Margrét í fararbroddi við að byggja það upp ásamt Suðurnesjamanninum Jóni Pétri Jónssyni. Hún talar afar hlýlega um það samstarf og þann tíma. Síðar starfaði

Margrét með nokkrum af félögum sínum á Ljósanótt í fyrra. hún sem settur aðstoðarríkislögreglustjóri, yfirlögfræðingur og aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. „Þannig að ég er búin að fara góðan hring og það er óskandi að sú reynsla nýtist vel í störfum mínum fyrir embættið á Suðurnesjum.“

Fjölskyldan, bækurnar og að hlaða batteríin Þegar lögreglustjórinn tekur af sér lögregluhúfuna og fer heim tekur við annað og ekki síður líflegt hlutverk. Margrét lýsir sér sem mikilli fjölskyldumanneskju sem reynir að hlúa vel að vináttuböndum og áhugamálum. „Ég er með svona dæmigerða íslenska nútímafjölskyldu,“ segir hún. „Maki minn kom með tvö börn inn í sambandið, ég á einn dreng úr fyrra sambandi og svo eigum við

saman eina litla sex ára skottu. Þannig að þetta er alveg eins og þetta á að vera.“ Í krefjandi stjórnunarstarfi, þar sem óvænt atvik geta auðveldlega raskað daglegri rútínu, segir hún gríðarlega mikilvægt að geta kúplað sig frá. „Stór hluti af lífi mínu er starfið og því verður ekki neitað. En ég reyni að finna jafnvægi með lestri bóka, áhuga á listum og með því að ferðast, ekki bara með fjölskyldunni heldur líka í vinkonuferðum til að hlaða batteríin. Sem stjórnandi reyni ég líka að vera fyrirmynd; ég forðast að senda starfsfólki tölvupósta á kvöldin eða í fríum. Fólk verður að fá að hvílast og taka ekki vinnuna með sér heim.“ Margrét segir þetta ekki síst mikilvægt vegna þess hversu krefjandi verkefni starfsfólk embættisins glímir við frá degi til dags. Hún leggur áherslu á að árangur embættisins sé fyrst og fremst verk fólksins sem þar starfar. „Það er ótrúlega öflugt fólk sem starfar hér, bæði lögreglumenn og borgaralegt starfsfólk. Verkefnin eru oft erfið og álagið mikið, en fólk mætir þeim af mikilli yfirvegun og metnaði. Það er auðvelt að vera stoltur stjórnandi þegar maður hefur svona gott fólk í kringum sig.“

Umsvifamikil landamæri og gífurleg þekking í almannavörnum

Það er ótrúlega öflugt fólk sem starfar hér, bæði lögreglumenn og borgaralegt starfsfólk. Verkefnin eru oft erfið og álagið mikið, en fólk mætir þeim af mikilli yfirvegun og metnaði.

Sérstaða lögregluembættisins á Suðurnesjum er ótvíræð. Þótt embættið þjóni þéttu nærsamfélagi er það jafnframt annað stærsta lögregluembætti landsins og sinnir verkefnum sem finnast hvergi annars staðar. Margrét bendir á að líklega megi rekja um 60 til 70 prósent heildarverkefna embættisins beint eða óbeint til Keflavíkurflugvallar, hvort sem horft er til almennrar löggæslu, landamæraeftirlits eða rannsókna. „Þótt helmingur starfsfólks okkar starfi í flugstöðinni eru afleidd verkefni þaðan stór hluti af vinnu rannsóknardeildar og almennu deildarinnar. Stóru fíkniefnamálin og mál sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi sem koma upp á flugvellinum kalla til dæmis á


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 29

mikla rannsóknarvinnu og viðamikla fangaflutninga. Á sama tíma setjum við nærsamfélagið okkar í forgang. Þetta er mjög sérstök dýnamík.“ Þá hefur svæðið staðið í ströngu frá árinu 2020 vegna síendurtekinna jarðhræringa og eldgosa. Margrét Kristín undirstrikar að sú reynsla og þekking sem samfélagið og viðbragðsaðilar hafa öðlast sé gríðarleg. „Það gerir það að verkum að hér býr yfirgripsmikil þekking hjá almannavörnum svæðisins, sveitarfélögunum og viðbragðsaðilum. Ég leyfi mér að fullyrða að þetta embætti, ásamt samstarfsaðilum okkar, sé í fremstu röð í almannavarnamálum. Við rýnum hvern einasta atburð til að bæta okkur, uppfærum áætlanir, hvort sem um er að ræða eldgos eða hópslys, og lærum stöðugt. Samstarf okkar við sveitarfélögin um almannavarnafulltrúa hefur sannað gildi sitt margfalt.“

Brottfararmiðstöðin: „Öfgarnar í báðar áttir eru hættulegar“ Nýverið var tilkynnt að lögreglustjórinn á Suðurnesjum muni fá það hlutverk að annast rekstur nýrrar brottfararmiðstöðvar fyrir einstaklinga sem fengið hafa lokasynjun um alþjóðlega vernd. Verkefnið er nýmæli á Íslandi og hefur kallað á líflegar umræður í samfélaginu. „Þetta er algjörlega nýtt úrræði sem við höfum aldrei rekið áður,“ segir Margrét. „Þótt við séum leiðandi í landamæra- og útlendingamálum er það að halda úti lokuðu úrræði með sólarhringsþjónustu allt annar flötur. Það þarf að tryggja að umhverfið sé öruggt en á sama tíma eins heimilislegt og mannúðlegt og kostur er.“ Margrét Kristín leggur áherslu á að fólk átti sig á eðli miðstöðvarinnar til að draga úr óþarfa ótta í nærsamfélaginu. „Þetta er algjörlega lokað úrræði og á ekki að hafa neina röskun eða áhrif á öryggi íbúa

Það sem mér þótti ótrúlega skemmtilegt að upplifa þegar ég kom hingað var nándin og umhyggjan fyrir nærsamfélaginu. hér á Suðurnesjum. Umræðan á samfélagsmiðlum verður stundum mjög heit en mér finnst öfgarnar í báðar áttir hættulegar. Við eigum auðvitað að sýna mannúð og mildi og aðstoða þá sem eiga rétt á því. En það er líka nauðsynlegt að ákvarðanir sem stjórnvöld taka séu virtar og að hægt sé að fylgja þeim eftir. Vistun í brottfararmiðstöð er hugsuð sem hinsta úrræði þegar öll önnur og vægari úrræði hafa verið reynd.“ Hún nefnir að Ísland hafi verið eina ríkið innan Schengen-svæðisins án slíks úrræðis, sem hafi í erfiðustu tilfellunum leitt til þess að fólk væri vistað í fangelsum, þótt það sæti ekki afplánun refsingar.

Aukin harka og hótanir Önnur áskorun sem lögreglan á Íslandi stendur frammi fyrir er aukin harka gagnvart starfsfólki hennar. Samhliða vexti skipulagðrar brotastarfsemi og öðrum breytingum í samfélaginu hafa hótanir og áreiti í garð lögreglumanna og borgaralegs starfsfólks færst í aukana. „Það hefur því miður færst í aukana að starfsfólki okkar, bæði lögreglumönnum og borgaralegum starfsmönnum, sé hótað vegna starfa sinna. Jafnvel hefur komið til skemmdarverka á einkaeignum þeirra. Þetta er algjörlega ólíðandi í lýðræðislegu samfélagi og eitthvað sem við lítum mjög alvarlegum augum.“ Margrét segir embættið taka þessu af fyllstu alvöru. Gripið hafi verið til sértækra

aðgerða til að gæta öryggis starfsfólks, lögð áhersla á öflugan félagslegan stuðning og þess gætt að málin séu rannsökuð af þar til bærum aðilum. „Það skiptir mig miklu máli að starfsfólkið okkar finni að við stöndum með því. Fólk á ekki að þurfa að sætta sig við hótanir eða áreiti vegna þess eins að það sinnir starfi sínu. Þetta er fólk sem tekst á við mjög krefjandi aðstæður fyrir samfélagið okkar og það á skilið bæði virðingu og stuðning.“ Þá lýsir hún því hvernig lögreglan komi oftar en ekki að samfélagslegum vanda sem ætti í raun að leysa annars staðar. „Verkefnin almennt í samfélaginu hafa þyngst. Málefnum fólks með alvarlegan geðrænan vanda hefur fjölgað mikið vegna þess að það vantar úrræði í félags- og heilbrigðiskerfinu til að sinna okkar veikasta fólki. Lögreglan verður oft fyrsti snertiflöturinn vegna þessa úrræðaleysis. Það sama á við um fíkniefnavandann í samfélaginu. Hann er allt of mikill og við förum svo sannarlega ekki varhluta af því.“

Nándin í nærsamfélaginu og draumur um eitt þak Þrátt fyrir þungar áskoranir leggur Margrét ríka áherslu á að starf lögreglunnar snúist um meira en viðbrögð og löggæslu; lögreglan sé virkur þátttakandi í samfélaginu og að hún verði að ganga í takt við það samfélag sem hún þjónar. Verkefni á borð við Öruggari

Suðurnes, þolendamiðstöðina Suðurhlíð, forvarnir í skólum og forystuhlutverk í Farsæld barna eru dæmi um þetta þverfaglega starf. „Það sem mér þótti ótrúlega skemmtilegt að upplifa þegar ég kom hingað var nándin og umhyggjan fyrir nærsamfélaginu,“ segir Margrét. „Það er svo stutt í samstarfið við HSS, sveitarfélögin, barnavernd og félagsþjónustuna. Það eru margir leiðtogar hér sem vilja gera vel fyrir samfélagið sitt.“ Einnig er reynt að halda úti miklum sýnileika og byggja upp traust, eins og þegar lögreglan opnaði nýverið glæsilegar vistarverur sínar fyrir almenningi. En hvað með framtíðina? Hvar sér lögreglustjórinn embættið fyrir sér eftir fimm ár? „Vonandi bara enn öflugra og sterkara embætti. Mannauðurinn er ein mesta auðlind embættisins og að honum þarf að hlúa vel. Svo er það draumur okkar flestra hér að fá nýja lögreglustöð þar sem við getum haft útkallslið og rannsóknardeild undir einu þaki. Við verðum alltaf með tvo staði vegna flugstöðvarinnar, en eftir því sem starfsstöðvarnar eru fleiri, því meiri áskorun er að tryggja samfellu. Það er búið að leggja mikla vinnu í að teikna upp örugga og nútímalega stöð og við horfum bjartsýn til ráðuneytisins um að sá draumur verði að veruleika.“ Þegar samtalið víkur að Ljósanótt og samfélagsanda Suðurnesjamanna geislar af lögreglustjóranum. „Mér fannst upplifunin á Ljósanótt í fyrra alveg æðisleg. Það var svo mikil samkennd og gleði í loftinu. Sama má segja um þegar fólk kom saman til að fylgjast með almyrkvanum á Garðskaga – maður fann bara í líkamanum hvað við erum lítil og hvað samstaðan er mikilvæg. Ef við höldum í þessa samstöðu, þá getum við tekist á við hvaða áskorun sem er,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir að lokum.

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is


30 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Skref í rétta átt fyrir börn og fjölskyldur Mikilvægt skref hefur verið stigið í þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra í Reykjanesbæ. Bæjarráð hefur samþykkt rúmlega 8,3 milljóna króna framlag til tímabundinnar fjölgunar plássa í skammtímavistun og þar með tryggt að hægt sé að halda áfram þeirri vinnu sem hófst fyrr á árinu. Ákvörðunin felur í sér aukna þjónustu við börn sem bíða eftir skammtímavistun og þau sem þegar nýta úrræðið en þurfa meiri þjónustu. Um leið er þetta mikilvægur stuðningur við fjölskyldur sem margar hverjar hafa búið við mikið og langvarandi álag. Um 20 börn eru á biðlista eftir skammtímavistun og um helmingur þeirra er frá Reykjanesbæ. Það sýnir með skýrum hætti hversu brýn þörfin er og hversu mikilvægt er að bregðast við henni.

Vinna sem hófst fyrr á árinu Að baki ákvörðuninni liggur vinna sem hófst fyrr á árinu við að finna leiðir til að efla skammtímavistun fatlaðra barna.

Í mars var kallað eftir tillögum að aukinni þjónustu og í maí samþykkti bæjarráð að bæta við 25% stöðugildi í Heiðarholti. Sú viðbót gerir kleift að fjölga þjónustudögum og taka fleiri börn inn í þjónustuna. Bæjarstjóra var jafnframt falið að vinna áfram með aðrar tillögur sem fram komu. Sú ákvörðun sem nú hefur verið tekin er því næsta skref í þeirri vinnu. Reykjanesbær og Suðurnesjabær hafa um árabil átt samstarf um rekstur skammtímavistunarinnar í Heiðarholti og sveitarfélagið Vogar kemur nú einnig að þeirri tímabundnu lausn sem unnið er að. Lausnin felur í sér að húsnæði Suðurnesjabæjar í Skerjaborg verði nýtt tímabundið sem hluti af starfsemi Heiðarholts. Þar verður hægt að þjónusta börn með miklar umönnunarþarfir og um leið skapa svigrúm til að fjölga skammtímadvölum í Heiðarholti. Suðurnesjabær leggur til húsnæðið og ber kostnað vegna framkvæmda við það. Rekstrarkostnaður skiptist milli samstarfssveitarfélaganna eftir íbúafjölda,

líkt og í öðrum sameiginlegum þjónustuúrræðum á Suðurnesjum. Hlutdeild Reykjanesbæjar á árinu 2026 er 8.325.005 krónur. Samstarf ið sýnir vel hversu miklu sveitarfélögin á Suðurnesjum geta áorkað þegar þau leita lausna saman og nýta sameiginlega þekkingu, starfsfólk og innviði í þágu íbúa svæðisins.

Tímabundin lausn og skýr framtíðarsýn Þótt þessi ákvörðun sé mikilvæg er hún ekki endapunktur. Hún er tímabundið svar við brýnni þörf. Samhliða henni er unnið að þarfagreiningu sem á að leggja grunn að framtíðarsýn og stefnumörkun Reykjanesbæjar í þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Við þurfum að geta gert tvennt í einu: brugðist við þörfum þeirra fjölskyldna sem bíða eftir þjónustu í dag og um leið byggt upp heildstæða þjónustu til framtíðar. Hversu mikil er þörfin? Hvernig er hún að þróast? Hvaða úrræði vantar? Hvar getum við gert betur?

Og hvernig tryggjum við að börn og fjölskyldur fái rétta þjónustu á réttum tíma? Þessar spurningar þurfa að leiða næstu skref.

Sameiginlegt verkefni Í velferðarráði finn ég fyrir skýrri samstöðu um það meginmarkmið að gera betur. Þar situr fólk með ólíkan bakgrunn og ólíkar stjórnmálaskoðanir en sameiginlegan

vilja til að bæta þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar. Á bak við verkefnið stendur jafnframt starfsfólk sem hefur greint stöðuna, unnið tillögur að úrbótum og leitað lausna í samstarfi við nágrannasveitarfélögin. Árangur af þessu tagi verður ekki til fyrir tilstilli eins einstaklings. Hann verður til þegar fólk leggur saman krafta sína og vinnur að sameiginlegu markmiði. Við sem sitjum í velferðarráði vorum kjörin af fólki til að vinna fyrir fólk. Verkefni okkar næstu fjögur árin er að hlusta, greina þarfir, setja skýr markmið og fylgja ákvörðunum eftir. Nú hefur mikilvægt skref verið stigið. Fjármagnið hefur verið samþykkt, þjónustan verður aukin og vinna við framtíðarskipulag er hafin. Okkar sameiginlega ábyrgð er að tryggja að þeirri vinnu verði fylgt eftir af festu og virðingu með þarfir barnanna og fjölskyldna þeirra ávallt í forgrunni. Ólöf Steinunn Lárusdóttir Höfundur er formaður velferðarráðs Reykjanesbæjar

Stórfelld skattalækkun í Reykjanesbæ Kæru bæjarbúar, Það er einstaklega ánægjulegt fyrir mig sem formann skipulagsráðs að segja frá því að á föstudaginn samþykkti ráðið eina umfangsmestu skattalækkun á íslensku sveitarstjórnarstigi til margra ára. Núna fer málið til bæjarstjórnar til samþykktar. Byggingarréttargjöld á landi Reykjanesbæjar hafa verið lækkuð niður í 0 krónur á fermetra í öllum flokkum. Fyrir þá sem vilja byggja í Reykjanesbæ getur þetta þýtt milljóna króna lækkun á kostnaði við uppbyggingu. Markmiðið er skýrt: að auðvelda fólki að komast inn á fasteignamarkaðinn, gera Reykjanesbæ að eftirsóknarverðasta sveitarfélagi landsins til uppbyggingar og leggja okkar af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu. Byggingarréttarg jald vegna íbúðarhúsnæðis hefur numið 35.000 krónum á hvern fermetra í Reykjanesbæ síðan að samþykkt um innviðagjöld tók gildi 4. júní 2024. Fyrir 150 fermetra íbúðarhúsnæði nemur gjaldið því 5.250.000 krónum. Með breytingunni fellur sá kostnaður niður. Byggingarréttargjald vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og á athafnasvæðum hefur numið 6.000 kr./m² en gjaldið er einnig lækkað í 0 kr./m² Eins og fyrr segir ná byggingarréttargjöld sveitarfélagsins til uppbyggingar á landi í eigu sveitarfélagsins og væntir meirihlutinn þess að aðrir landeigendur í Reykjanesbæ fylgi fordæmi sveitarfélagsins. Með þessari ákvörðun tekur Reykjanesbær stórt og mikilvægt skref í þá átt að lækka álögur á uppbyggingu, ryðja úr vegi hindrunum og skapa skýrari hvata til fjárfestingar og framkvæmda í sveitarfélaginu. Ákvörðunin endurspeglar jafnframt skýra séreignarstefnu meirihlutans. Við viljum að

sem flestir hafi raunhæft tækifæri til þess að eignast eigið heimili og byggja upp eign fyrir sig og fjölskyldu sína.

aukinni verðmætasköpun í sveitarfélaginu.

Aukin gjaldtaka = hærra húsnæðisverð

Ekki má líta fram hjá því hvernig þessi skattalækkun gjörbreytir leiknum fyrir minni uppbyggingaraðila og fjölskyldur. Þegar milljónir króna þarf að greiða áður en framkvæmdir eru komnar almennilega af stað eykst fjármagnsþörf verkefna og aðgangur að uppbyggingu verður erfiðari. Stór fyrirtæki með sterka fjárhagslega bakhjarla eiga auðveldara með að mæta slíkum kostnaði en minni aðilar. Við viljum ekki samfélag þar sem aðeins stærstu verktakarnir hafa bolmagn til að taka þátt í nýrri uppbyggingu. Við viljum að minni verktakar geti byggt, að iðnaðarmenn geti ráðist í eigin verkefni, að fjölskyldur geti byggt sér hús og að fleiri geti tekið þátt í verðmætasköpun innan sveitarfélagsins. Afnám byggingarréttargjaldsins er því einnig aðgerð til að fækka aðgangshindrunum og búa til sanngjarnt samkeppnisumhverfi

Á undanförnum árum hefur gjaldtaka vegna uppbyggingar aukist víða og gatnagerðar- og byggingarréttargjöld orðið sífellt stærri kostnaðarliður við nýbyggingar. Það skýtur skökku við í ljósi allrar umræðunnar um mikilvægi þess að tryggja nægt framboð af hagkvæmu húsnæði. Við getum ekki gert húsnæði hagkvæmara með því að gera það dýrara að byggja það. Sífellt aukin gjaldtaka hins opinbera á húsnæðisuppbyggingu um land allt hefur átt stóran þátt í að hækka byggingarkostnað og þar með fasteignaverð. Hækkandi fasteignaverð hefur síðan ýtt undir verðbólgu, sem aftur hefur kallað á hærri vexti og gert bæði uppbyggingu og húsnæðiskaup enn dýrari. Þannig hefur myndast vítahringur sem bitnar fyrst og fremst á heimilum landsins. Reykjanesbær ætlar að gera það sem í hans valdi stendur til að rjúfa þennan vítahring og sýna gott fordæmi með því að lækka álögur verulega á uppbyggingu í stað þess að hækka þær. Ákvörðunin skapar jafnframt ný tækifæri til atvinnuuppbyggingar. Byggingarréttargjöld vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða lækka úr 6.000 krónum á fermetra í 0 krónur. Lægri álögur styrkja samkeppnisstöðu Reykjanesbæjar þegar kemur að því að laða að ný fyrirtæki og skapa fyrirtækjum í örum vexti betri skilyrði til að byggja hér upp. Með lækkuninni fækkum við aðgangshindrunum og leggjum grunn að fjölgun starfa, fjölbreyttari atvinnutækifærum og

brigðum hætti þarf því að hugsa lengra en til þeirra tekna sem hægt er að innheimta við úthlutun lóðar. Það mun alltaf reynast hinu opinbera auðvelt að finna ný verkefni sem kalla á aukin útgjöld og nýjar leiðir til gjaldtöku. Erfiðara er að taka meðvitaða ákvörðun um að forgangsraða, gæta aðhalds og láta almenning og atvinnulíf halda eftir stærri hluta þeirra verðmæta sem þau skapa. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks velur síðari leiðina.

Sanngjörn samkeppni

Innviðir eru sameiginlegt verkefni samfélagsins Því hefur verið haldið fram að byggingarréttargjöld við nýbyggingar séu nauðsynleg til að standa undir uppbyggingu innviða. Meirihlutinn telur eðlilegt að þeirri röksemd sé svarað. Reykjanesbær hefur vaxið ört á undanförnum árum og því hefur verið haldið fram að byggingarréttargjöld séu nauðsynleg til að mæta kostnaði sem fylgir slíkum vexti. Meirihlutinn tekur undir að vöxtur sveitarfélagsins hafi verið óhóflega hraður, en þar hefur sú uppbyggingarstefna sem rekin hefur verið undanfarin ár, með mikilli áherslu á fjölbýlishús, haft veruleg áhrif. Sérbýlisstefna meirihlutans, með aukinni áherslu á

Rétti tíminn til að stíga skrefið einbýlishús, parhús, raðhús og tvíbýli, mun stuðla að hóflegri og sjálfbærari vexti Reykjanesbæjar til framtíðar. Reykjanesbær, líkt og önnur sveitarfélög, hefur þegar fjölmarga tekjustofna sem standa undir lögbundinni þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins. Þar má meðal annars nefna útsvar, fasteignaskatta, lóðarleigu, gatnagerðargjöld og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Innviðir sveitarfélags eru sameiginleg verðmæti. Skólar, leikskólar, götur, íþróttamannvirki og önnur þjónusta nýtast samfélaginu í heild og til langs tíma. Meirihlutinn telur ekki sanngjarnt að kostnaðar við almenna innviði sveitarfélagsins sé færður sérstaklega yfir á þá sem eru að byggja ný heimili eða atvinnuhúsnæði. Slík gjaldtaka getur orðið sjálfstæð hindrun gegn þeirri uppbyggingu sem sveitarfélagið þarf á að halda og þeirri verðmætasköpun og framtíðartekjum sem nýjum íbúum og fyrirtækjum fylgja. Meirihlutinn telur að sveitarfélög eigi frekar að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu heldur en að líta á hana sem sérstakan skattstofn. Sveitarfélag sem vill vaxa með heil-

Ákvörðunin er tekin að vel ígrunduðu máli. Ekki er gert ráð fyrir tekjum af byggingarréttargjöldum á yfirstandandi ári og hefur breytingin því ekki áhrif á fyrirliggjandi rekstraráætlun sveitarfélagsins vegna ársins. Afnám byggingarréttargjaldanna endurspeglar þá sýn okkar að sveitarfélagið eigi að greiða götu uppbyggingar í stað þess að leggja óþarfa hindranir í veg þeirra sem vilja byggja og fjárfesta. Við viljum skapa umhverfi þar sem það borgar sig að bygg ja heimili, stofna fyrirtæki og ráðast í ný verkefni. Það gerum við meðal annars með því að draga úr álögum, tryggja gott framboð lóða og einfalda samskipti við sveitarfélagið. Tækifærin í Reykjanesbæ eru gríðarleg. Verkefni okkar er að skapa skilyrðin svo einstaklingar og fyrirtæki geti nýtt þau. Lækkun byggingarréttargjaldanna er mikilvægt skref í þá átt. Gunnar Felix Rúnarsson Formaður skipulagsráðs Reykjanesbæjar

Öll tölublöð Víkurfrétta frá 1980 og til dagsins í dag eru aðgengileg á

timarit.is


Aftur í skólann Krossmói 4, Reykjanesbær


Saman með ljós í hjarta á ljósanótt

Allt um hátíðina á ljosanott.is

3.-6. SEPTEMBER

Frítt í Ljósanæturstrætó Dagskráin er lifandi og er birt með fyrirvara um villur og breytingar Fleiri viðburði, nánari upplýsingar um dagskrá og miðaverð má finna á ljosanott.is

Miðvikudagur 2. sept 16:00–17:30 18:30–19:30 19:00–20:00 20:00–21:30 20:00–00:00 21:00–23:00

Relluföndur í Bókasafni Ljósanæturhlaupið Landamærabörnin, leikverk í Andrews Ljósanæturgospel í Ytri-Njarðvíkurkirkju Konukvöld KEF SPA Pub Quiz GS9 og co á Paddy’s

Fimmtudagur 3. sept 10:30–11:30 13:00–16:00 14:00–18:00 16:00–22:00 17:00–22:00 18:00–20:00 18:00–22:00 18:00–21:00 20:00–01:00 20:00–22:00 20:00–22:00

Setning Ljósanætur 2026 í skrúðgarðinum Opið hús hjá Sjálfsbjörg á Suðurnesjum Listakaffihús Bjargarinnar geðræktarmiðstöð Sprell Tívolí Opnun listsýninga um allan bæ Opnun sýninga í Duus safnahúsum Handavinnuhittingur á Víkurbraut 13 Jazzbandið Þríó á KEF Restaurant Konukvöld með Jóni J og Friðrik Dór á Brons 30 ára afmælistónleikar Ensími í Hljómahöll KK 70 ára í Hljómahöll

Föstudagur 4. sept 07:00–10:00 12:00–16:00 13:00–13:30 13:30–15:30 14:00–16:00 15:00–20:00 16:00–22:00 16:30–17:30 20:00–21:00

Morgunsund gefur gull í mund í Vatnaveröld Listakaffihús Bjargarinnar geðræktarmiðstöð Afhjúpun á söguskilti við Njarðvíkurhöfn Hjartans mál og Sögur af Vellinum á Nesvöllum Opið hús á Hæfingarstöðinni Kastalar: leik- og tívolítæki Sprell Tívolí Lalli töframaður, ókeypis í skrúðgarðinum Brekkusöngur í Njarðvík við Kamb

Kjötsúpusviðið

við Tjarnargötu 12

18:00–19:30 Skólamatur býður í kjötsúpu 18:00–20:00 Skólamatarlestin mætir Deisí DansKompaní Heimsmeistarar heiðraðir Ungleikhúsið Föruneytið 20:00–22:00 20:00–22:00 20:00–22:00 21:00–23:00 21:00–00:00 21:30–23:00 22:00–02:30

Björn Thoroddsen Tríó á LiBRARY Pétur Jóhann í Hljómahöll Heima í Höfnum með Hipsumhaps Heimatónleikar á Ljósanótt Metal tónleikar í Bítlabæ Ingó Veðurguð á Bjarnaróló Hr. Hnetusmjör á Brons

Laugardagur 5. sept 09:30–21:00 10:00–12:00 10:00–14:00 12:00–22:00 13:00–23:00 13:30–16:30

Alþjóðlegt Pílukastmót í Ljónagryfjunni Krakkamót í Taekwondo Fjölbreytt dagskrá í Víkingaheimum Kastalar: leik- og tívolítæki Sprell Tívolí DJ Ragga Holm á Hafnargötunni

13:30–14:30 Árgangagangan 13:30–14:30 Flamingoknapar 13:30–14:30 Rokkhljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar 14:15–14:20 Karamelluflug yfir aðalsviði 14:00–16:00 DansKompaní á hátíðarsvæðinu 14:00–16:00 Njarðvík - Afturelding, Lengjudeild karla 14:00–16:00 Tækjasýning og spjall Melrakka 15:00–15:30 Hópakstur bifhjóla og glæsikerra


Ókeypis barnadagskrá í skrúðgarðinum

11:30–12:00 11:30–17:00 13:00–16:00 14:00–16:00 14:00–16:00 14:00–17:00 14:20–14:30 14:30–16:30 16:00–16:30

Brúðubíllinn Hoppukastalaland Skynjunarleikir með Plánetu Andlitsmálning Hestateyming Veltibíllinn í boði Sjóvá Karamelluflug yfir skrúðgarðinn Tufti risatröll BMX brós

15:00–17:00

Syngjandi sveifla í Duus safnahúsum 15:00 Kvennakór Suðurnesja 15:30 Karlakór Keflavíkur 16:00 Kór Njarðvíkurkirkju 25 ára afmælismót HFR Ungleikhúsið á hátíðarsvæðinu Keflavík - Valur, Besta deild karla Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson á Library Birnir og Kristmundur Axel á Brons Ljósanæturball Nostalgíu á Paddy‘s

15:00–17:00 16:00–17:00 16:30–18:30 20:00–21:30 22:00–03:00 23:30–03:00

Sunnudagur 6. sept 09:30–17:00 Alþjóðlegt Pílukastmót í Ljónagryfjunni 11:00–12:30 Söguganga: Arkitektúrganga 12:00–14:00 Paddington bókabíó í Bókasafni

STÓRTÓNLEIKAR

og bjartasta flugeldasýning landsins

19:30 WE WILL ROCK YOU 20:00 ALASKA1867 20:30 HIPSUMHAPS 21:10 BIRGITTA HAUKDAL KRISTMUNDUR AXEL & BANDMENN 22:00 FLUGELDASÝNING 22:05 EMMSJÉ GAUTI

13:00–16:00 14:00–16:00 14:00–17:00 16:00–17:30 16:30–18:30 19:30–21:30 20:00–21:00

Ókeypis hoppukastalaland í skrúðgarðinum Keflavík – FHL, Lengjudeild kvenna Sprell Tívolí Valdimar og Elíza Newman, Kirkjuvogskirkju Grindavík/Njarðvík–Valur, Besta deild kvenna Ljósanætur Gusa, Stóra Hólmi í Leiru Helgistund sr. Guðmundar Karls Byrnjarssonar ásamt hljómsveit í Keflavíkurkirkju 20:00–23:00 Minningartónleikar Gunnar Þórðarson í Hljómahöll

Listsýningar og handverk Frekari upplýsingar um hverja sýningu og opnunartíma er að finna á ljosanott.is

Duus safnahús

Park Inn by Radisson

- Nína, okkar kærasta Nína - Litið í baksýnisspegilinn

- Sigurdís Gunnarsdóttir, Að rótum - Marta Eiríksdóttir, Bækur sem byggja þig upp - Orðakast! - GeoSilica - ICE Design By Thora, Íslensk hönnun - Undur vörur - Feima gallerý, Leirbollar - Kósýföt - Orðablik - samverustundir og málþroski - Fluga design - Sigga Dís, Leikið með liti - Ingvar Thor, Málað í beinni - Katrín Þórey, Gullsmiður - Maju Men, heklað skart - Kerti byKrummi - Ryk, íslensk hönnun - Saja Design - TÍRA, reflective accessories - Varðveisla - Elísabet Ásberg, List, ilmur,upplifun - EliteBeautyLashes, Pop-up - Brá Verslun, Pop-up

Fischershús - Anna Ósk Erlingsdóttir, ljósmyndir og málverk - Stefán Jónsson, málverk - Snorri Þór Sævarsson, málverk - Rúnar Ástvaldsson, tálgaðir fuglar - Ágúst Kristinn Eðvarðsson, EGÓ ilmvötn

Svarta Pakkhúsið - Karen Kjerúlf Björnsdóttir - Bragi Einarsson - Bjarnveig Björnsdóttir - Þóra Gunnarsdóttir

Handverksmarkaður á Hafnargötu 22 Fjölmargir söluaðilar selja spennandi handverk og annan varning

- Tan.is - Krabbameinsfélag Suðurnesja - Bam Bam, Pop-up

Gleði í Grófinni, Oddfellowhúsinu - Ásmundur Friðriksson, Rithöfundur - Dagmar Róbertsdóttir, Myndlist - Hendrikka Waage, Myndlist og skartgripir - Hlín Reykdal, Skartgripir - Jollington Handverk, Tréhandverk - Katla María, Myndlist - Krósk - Kristín Ósk, Fatahönnuður - Leirbakarið - María Kristín, Leirlist - Neskja, Handgert konfekt - Jónsdóttir & co, Hönnun - Reynir Valbergsson, Myndlist - Urð, Vörumerki

Annað - Rokksafn Íslands í Hljómahöll - Sól og tungl, stígavélagarður - Galleriskart.is, Tjarnargötu 7 - Dr. Konopka’s, Tjarnargötu 7

- Dagbjört Magnúsdóttir, Hulduverur, Tjarnargötu 7 - Bland í poka, myndlistarsýning - Myndlistasýning Svandísar og Maju Líndal, Estilo - JustByMe Handverk, Hafnargata 42 - Jenný K. ArtGallery, Hafnargötu 69 - Eldur á Reykjanesskaga, Bókasafn - Töfrandi himinn Íslands, Bókasafn - Friðrik Bergmannsson, KæRBoX, Heiðarholti 3 - Larz, KANNSKI, ljósmyndir, Hafnargata 27 - Eygló Ósk og Ísabella, Veraldir, Hafnargötu 31 - Opin vinnustofa Sossu, Mánagötu 1 - Solla Magg, myndlistarsýning, Framsóknarsalnum - Órofin tengsl, myndlistarsýning, Dalsbraut 36 - Gummi Kalli, Vitin fimm og minningarnar, Keflavíkurkirkju - Lína Rut, opin vinnustofa - Duus handverk - Prjónasystur


34 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Axel Jónsson, stofnandi Skólamatar gefur kjötsúpu á Ljósanótt. Á myndinni til vinstri eru matreiðslumeistarar Skólamatar við störf að morgni fyrsta skóladags í vikunni.

Skólamatur þjónustar um 125 leik- og grunnskóla og um 18 þúsund nemendur og starfsfólk á hverjum degi. degi.

Ljósanæturkjötsúpa í upphafi skólaárs Ágúst er alltaf annasamur mánuður hjá starfsfólki Skólamatar. Samhliða því að nemendur snúa aftur í skólana eftir sumarfrí stendur yfir undirbúningur fyrir hina árlegu Ljósanæturkjötsúpu. Eftir góðar viðtökur undanfarin ár býður Skólamatur gestum Ljósanætur á ný upp á þennan þjóðlega og kjarngóða rétt. Ljósanæturkjötsúpan er fyrir löngu orðin fastur liður í hátíðinni og einn af hápunktum dagskrár á föstudeginum. Samkvæmt dagskrá Ljósanætur leggur Skólamatarlestin af stað frá höfuðstöðvum fyrirtækisins klukkan 18:00 og í kjölfarið hefst skömmtun á súpunni við Tjarnargötu 12. Á sama tíma og hátíðarundirbúningurinn stendur sem hæst er nýtt skólaár farið af stað hjá fyrirtækinu. Skólamatur þjónustar í dag um 125 leik- og grunnskóla á suðvesturhorni landsins og sér daglega um skólamáltíðir fyrir um 18 þúsund nemendur og starfsfólk. „Upphaf skólaársins er alltaf stór áfangi hjá okkur. Á sama tíma og börn og starfsfólk skólanna hefja

sitt skólaár erum við að koma af stað umfangsmikilli starfsemi sem snertir daglegt líf þúsunda barna og starfsmanna á hverjum degi,“ segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar. „Haustið byrjar alltaf hjá okkur í byrjun ágúst þegar við höldum fræðsludaga fyrir starfsfólk. Þar komum við saman og förum yfir reglur, verklag og nýjungar sem tengjast meðal annars matvælaöryggi, sérfæði, þjónustu og gæðamálum,“ segir Jón. Jón segir jafnframt að ýmsar nýjungar séu fyrirhugaðar á komandi skólaári. „Við ætlum meðal annars að breyta framsetningu vegan-máltíða, efla meðlætisbarinn með

ICELAND

OPEN

Silfur

auknu úrvali og bæta upplýsingagjöf sem tengist sérfæði. Markmiðið er að gera þjónustuna enn betri fyrir nemendur, foreldra og skóla.“ Einn þeirra þátta í starfsemi Skólamatar sem hafa vaxið hvað mest á undanförnum árum er afleysingaþjónusta í leik- og grunnskólum. Með henni getur fyrirtækið brugðist hratt við þegar upp koma tímabundnar áskoranir, til dæmis vegna veikinda starfsfólks eða framkvæmda í skólahúsnæði.

Frekari uppbygging Til að mæta áframhaldandi vexti stendur nú yfir frekari uppbygging á höfuðstöðvum Skólamatar á Iðavöllum í Reykjanesbæ. Þar er verið að taka í notkun nýja viðbyggingu og bæta við framleiðslutækjum sem styrkja framleiðslugetu fyrirtækisins og skapa aukið svigrúm til þróunar og framleiðslu á fjöl-

breyttum og hollum skólamáltíðum. Þegar framkvæmdum lýkur er áætlað að framleiðslugeta fyrirtækisins aukist um allt að helming og styrki þannig enn frekar getu þess til að mæta vaxandi eftirspurn eftir skólamáltíðum.

Um 250 starfsmenn Hjá Skólamat starfa nú um 250 manns og er undirbúningur haustsins eitt stærsta og umfangsmesta verkefni ársins. Markmiðið er að tryggja að nemendur og starfsfólk skóla fái næringarríkar,

öruggar og góðar máltíðir frá fyrsta degi skólaársins. „Við erum stolt af því að vera hluti af skólasamfélaginu og hlökkum bæði til að taka þátt í Ljósanótt og hefja nýtt skólaár með okkar viðskiptavinum. Ljósanótt er jafnframt frábært tækifæri til að hitta foreldra, nemendur, starfsfólk skóla og aðra íbúa svæðisins á sama tíma og við undirbúum eitt mikilvægasta verkefni okkar, að sjá þúsundum barna fyrir góðum skólamáltíðum á hverjum degi,“ segir Jón Axelsson.

ICELAND

MASTERS

4. - 6. september – Ljónagryfjunni á Ljósanótt Íslenska pílukastsambandið (ÍPS) og Pílufélag Reykjanesbæjar (PR) bjóða upp á píluveislu í Ljónagryfjunni á Ljósanótt.

ICELAND OPEN WDF - silfur Riðlakeppni og útsláttur

ÞÁTTTÖKUGJALD 5000 KR VERÐLAUNAFÉ

1.080.000 kr

Sigurvegari í opnum flokki fær 240.000 kr. Sigurvegari í kvennaflokki fær 120.000 kr.

SKRÁNINGU LÝKUR

3. september kl 18:00

Á föstudagskvöldið mun PR bjóða upp á tvímennings upphitunarmót, þar sem dregið verður blint hverjir spila saman.

Húsið opnar kl 09.00 lau-sun. Vertu velkomin!

ICELAND OPEN WDF - brons Riðlakeppni og útsláttur

ÞÁTTTÖKUGJALD 4500 KR VERÐLAUNAFÉ

353.050 kr

Sigurvegari í opnum flokki fær 71.500 kr. Sigurvegari í kvennaflokki fær 50.000 kr.

SKRÁNINGU LÝKUR

3. september kl 18:00

Skráning: open.dart.is Skráningu lýkur 3. september kl. 18:00

Brons


36 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

Í ár eru liðnir tveir áratugir frá því að bandaríski herinn kvaddi Keflavíkurflugvöll og Ísland. Af því tilefni hefur Ásmundur Friðriksson sent frá sér 420 síðna stórvirki, Sögur af Vellinum, þar sem dregin er upp litrík, mannleg og oft og tíðum stórkallaleg mynd af samskiptum Suðurnesjamanna og Varnarliðsins. Við hittum Ásmund og ræddum um ævintýralegar sögur af smygli, jólaljósum, ómenntuðum hálaunamönnum og áhrifunum sem herstöðin hafði á samfélagið á Suðurnesjum.

„Þeir brettu niður hettuna í strætó af því að menn voru á ráðherralaunum uppi á Velli“ Hugmyndin sem varð að 420 síðna verki Hvað varð til þess að þú réðst í að skrifa þessa bók einmitt núna? „Það var nú þannig að ég var búinn að hvetja marga hérna í Keflavík til þess að fara út í að skrifa svona bók og taka saman þessar sögur. Það var oft rætt að þetta þyrfti að gera. Ég sagði gjarnan við menn að ef þetta hefði verið í minni gömlu heimabyggð, í Vestmannaeyjum, þá væri örugglega búið að skrifa nokkrar bækur um þetta. Svo lét ég bara verða af því. Ég var búinn að gefa út bækur á hverju ári og langaði að halda taktinum. En þegar ég var kominn af stað áttaði ég mig á því að árið 2026 yrði 20 ára brottfararafmæli hersins. Því fannst mér tilheyra að minnast þessara tímamóta með því að bókin kæmi út þá.“ Gekk vel að fá fólk til að opna sig og deila frásögnum sínum? „Það gekk vonum framar. Ég var með tuttugu viðmælendur í bókinni og það var bara einn maður sem sagði nei! Flestir voru mjög hispurslausir og létu bara vaða, enda er ekki verið að skemma neinn. Það er fyrst og fremst verið að halda til haga þeirri sögu sem gerðist þarna og hvernig Suðurnesjamenn upplifðu herinn. Ég á meira að segja efni í hálfa aðra bók í viðbót sem ég gat ekki komið fyrir, þó að þessi bók sé yfir 400 blaðsíður með fjölda ljósmynda.“

Hrikalegar tekjur og fólk sem fór huldu höfði í strætó Þú kemur mikið inn á fjárhagsleg áhrif hersins á svæðinu. Hversu gríðarleg var þessi umbylting?

„Hún var rosaleg. Þegar völlurinn var að byggjast upp í upphafi bjuggu hér kannski rúmlega tvö þúsund manns, en það unnu tæplega 6.000 manns við uppbyggingu vallarins. Þetta var alveg ógnardæmi og breytti samfélaginu gríðarlega. Það voru til dæmis svokallaðir M-menn sem voru hálaunaðir hjá hernum. Eftir því sem ég kemst næst voru þeir allir algjörlega ómenntaðir en voru á ráðherralaunum. Það var meira að segja haft á orði við mig að þeir sem stunduðu langskólanám á þessum tíma hefðu farið huldu höfði í strætóskýlunum og brett niður hettuna á úlpunum þegar þeir tóku strætó í bæinn, því það þótti hreinlega ekkert til þess að vera í langskólanámi þegar fólk gat farið á Völlinn og komið sér mjög vel fyrir fjárhagslega.“

Baðmottur, bjór og „Miðnesheiðarrjúpur“ Bókin geymir mikið af gamansögum af vöruúrvali hersins sem barst niður í bæ. Hvernig var sú upplifun? „ Ma ð u r m i n n , Magnús Jón Kjartansson tónlistarmaður, hefur mjög skemmtilega sýn á þetta. Kanarnir komu með sjónvörp, steríógræjur, ristavélar o g m e i ra a ð segja baðmottur, nokkuð sem enginn þekkti á Íslandi. Fólk keypti þetta uppi á Velli og svo var þessu

smyglað í gegnum hliðið. Það var ákveðið leikrit sem mjög breiður hópur tók þátt í. Ég sat oft hérna einn á morgnana við skrifin og var bara í hláturskrampa yfir aðförunum og hvað menn lögðu á sig. Svo voru það jólasiðirnir. Flestir erlendir jólasiðir okkar Íslendinga komu í gegnum Keflavík frá Kananum. Risastóru jólaljósin sem bræddu hug og hjörtu landsmanna, einn viðmælandi minn, Jón Newman, setur 800 perur á jólatréð sitt. Svo var það kalkúnninn, sem var óþekktur á Íslandi og var kallaður Miðnesheiðarrjúpa á matseðlum veitingastaða í Reykjavík.“

Var lögreglan eitthvað að skipta sér af þessu smygli? „Lögreglan stóð sig bara ákaflega vel en menn litu líka í gegnum fingur sér, vegna þess að þetta var flest gert á litlum mælikvarða. Eins og einn fyrrverandi lögreglumaður sagði svo ágætlega við mig: hann var nú ekkert sveittur við að hlaupa upp úr stólnum í hliðinu. Flestir voru bara venjulegt launafólk sem var að næla sér í smá búsílag, eina nautalund eða einn bjór í ísskápinn þegar bjór var enn bannaður á Íslandi.“

Dökkir tónar, fordómar og 57 ára saga einnar fjölskyldu Bókin snýst þó ekki eingöngu um gamanmál. Þú fjallar líka um erfiðari hliðar samfélagsins? „Já, það var mér mjög mikilvægt. Ég ræddi til dæmis við eina konu sem kemur fram í bókinni og segir frá sínu lífi. Hún varð ástfangin af erlendum manni, eignaðist barn, flutti út en kom svo aftur heim og mætti mikilli andúð og fordómum frá samfélaginu. Þegar ég hlustaði á hennar sögu fékk ég gríðarlega samúð með henni. Konur fóru mjög halloka út úr þessari umræðu á sínum tíma, en það er náttúrulega nákvæmlega ekkert rangt við það að verða ástfanginn af erlendum einstaklingi. Svo er það saga Newman-fjölskyldunnar sem rakin er í löngu máli. Raymond Newman kom hingað mjög snemma, stjórnaði byggingarframkvæmdum og kvæntist Huldu Karlsdóttur úr Höfnum. Hulda dó ung frá börnunum þeirra, en Raymond og börnin bjuggu áfram í Höfnum og unnu á Vellinum. Samtals var

Newman-fjölskyldan á launaskrá hjá hernum í 57 ár. Þetta sýnir hversu samofnir þessir tveir heimar voru.“

Frá gömlum Velli til nýrra tækifæra Þegar þú lítur yfir söguna í heild sinni, voru Suðurnesjamenn í öfundsverðri stöðu? „Ég er algjörlega sannfærður um að þetta samfélag væri mikið fátækara ef hersins hefði ekki notið við. Það var alltaf öðruvísi að koma til Keflavíkur í gamla daga, maður kom bara inn í annan heim. Þegar herinn var svona stór og sterkur dró hann líka vinnuafl úr sjávarútveginum. Gamla útgerðarsagan niðri í bæ hvarf smám saman af því að vinnan á Vellinum var betur launuð og vel þokkuð. En í dag er nýtt skeið að byrja. Áður voru öll eggin í sömu körfunni og þegar flugvöllurinn tók dýfu fór allt í skrúfuna. Núna eru gagnaverin, landeldið og vaxtarbroddarnir í kringum flugvöllinn mættir. Það er nýi „herinn“. Ef ég væri ungur maður í dag myndi ég læra iðn – því Suðurnesin eru orðin Gosenland iðnaðarmanna.“

Hjartans mál á Nesvöllum Bókakynning á Sögum af Vellinum verður á föstudeginum á Ljósanæturhelginni á Nesvöllum á dagskránni Hjartans mál. Þar munu fimm viðmælendur úr bókinni stíga á stokk, þar á meðal Jón Newman, Óskar Þórmundsson fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, Kári Rúnar Viðarsson og Kjartan Steinarsson. Þeir deila sögum sínum í styttri útgáfu þar sem Ásmundur lofar að fólk muni „gráta úr hlátri“.


Krossmói 4a, Reykjanesbæ Til leigu skrifstofu- & þjónustubygging

Til leigu í þessari eign Skrifstofu- & þjónusturými á 2. og 5. hæð Skrifstofuhúsnæði 604 m² Afhending eftir samkomulagi Skrifstofu- & þjónusturými á 5. hæð Einstakt útsýni Skrifstofuhúsnæði 249 m² Afhending eftir samkomu Skrifstofu- & þjónusturými á 2. hæð

Ertu að leita að húsnæði til leigu? Hafðu samband við okkur fyrir nánari upplýsingar. 421-5460 Mánudaga - föstudaga Sendu okkur póst eignir@ksk.is

78 fm verslunarrými við Krossmóa 4 – Frábær staðsetning í hjarta Reykjanesbæjar Afhending eftir samkomulagi

Krossmóa 4a | 260 Reykjanesbæ | 421-5460 | eignir@ksk.is

https://www.kskeignir.is/


38 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Sveitin er ljúf og golfið sló í gegn María Guðmundsdóttir og Unnar maður hennar féllu fyrir golfíþróttinni en eru líka mikið í bústaðnum í Bláskógabyggð. María Guðmundsdóttir og Unnar Ragnarsson maður hennar, eigendur HUG verktaka, eru ekki bara að smíða hús og íbúðir. Þau hafa verið dugleg að sækja sumarbústað sinn í Bláskógabyggð, þau fóru austur í blíðuna í júlí og svo kynntust þau nýlega golfíþróttinni sem heillaði þau upp úr skónum.

C M Y K

50% 0% 100% 0%

C M Y K

0% 90% 85% 0%

R G B

120 198 62

R G B

239 64 54

C M Y K

58% 0% 4% 0%

C M Y K

84% 41% 26% 2%

R G B

81 200 235

R G B

31 125 157

Font : Athelas Regular

Firmamerki

Hvernig varðir þú sumarfríinu? Við hjónin erum búin að eignast nýtt og skemmtilegt áhugamál sem er golfið. Við höfum stundað það af kappi í sumar þegar færi hefur gefist. Við fórum líka í skemmtilegt ferðalag um Austfirðina í veðurblíðunni sem var þar og auðvitað nýttum við tækifærið til að kíkja á golfvellina. Við náðum þarna skemmtilegri stund með systur minni og mági. Hvað stóð upp úr? Við verjum miklu af frítímanum í sveitasælunni okkar í Bláskógabyggð en þar höfum við byggt notalegt athvarf þar sem okkur líður vel. Í sveitinni er afskaplega gott samfélag og gott fólk í kringum okkur og alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi. Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Það sem kom mér skemmtilega á óvart var hvað golfið náði að heilla mig. Það er næstum sama hvernig viðrar, alltaf erum við til í að fara einn hring. Við fórum líka alveg óvænt vestur til Suðureyrar á æskuslóðir tengdapabba og nutum þar einleikjahátíðarinnar Act alone með góðum vinum. Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands? Fyrir nokkrum árum fórum við Unnar í ógleymanlega gönguferð um Borgarfjörð eystri og Stórurð heillaði okkur. Við erum ákveðin í að fara þangað aftur. Einnig fórum við í skemmtilega göngu í Jökulfjörðunum og Hesteyri er staður sem við munum heimsækja aftur. Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur? Eitt stærsta hlutverkið mitt er að ég er amma átta yndislegra barna og þykir mér dýrmætt að fá að njóta samveru með þeim. Við Unnar höfum lagt mikið upp úr því að eiga gæðastundir saman í sveitasælunni og njóta hvers dags eins og hann kemur. Hvernig finnst þér Ljósanótt? Ljósanótt er mjög skemmtileg bæjarhátíð og þar hittir maður mikið af fólki sem maður

hittir sjaldan annars. Ljósanótt er í raun miðpunktur menningarlífs í Reykjanesbæ.

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Við höfum alltaf reynt að fara í bæinn á fimmtudagskvöldinu og skoða hinar fjölbreyttu listsýningar sem í boði eru og njóta mannlífsins og stemningarinnar. Einnig finnst mér árgangagangan skemmtileg hefð sem gaman er að taka þátt í.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 39

Oddfellowhúsið aftur fullt af lífi á Ljósanótt Á Ljósanótt verður Oddfellowhúsið í Keflavík enn á ný opnað gestum bæjarhátíðarinnar og húsið fyllt af list, hönnun, tónlist og góðri stemningu. Þetta er annað árið sem Oddfellowhúsið er nýtt með þessum hætti á Ljósanótt. Frábærar viðtökur í fyrra hvöttu okkur til að endurtaka leikinn og skapa aftur lifandi vettvang fyrir list og menningu í hjarta hátíðarinnar. Í ár kemur saman einstaklega fjölbreyttur hópur sýnenda: • • • • • • • • • • • •

Ásmundur Friðriksson – rithöfundur Dagmar Róbertsdóttir – myndlist Hendrikka Waage – myndlist og skartgripir Hlín Reykdal – skartgripir Jollington Handverk – Eyjólfur Sverrisson – tréhandverk Katla María Brynjarsdóttir – myndlist Krósk – Kristín Ósk Halldórsdóttir – fatahönnun Leirbakaríið – María Kristín Óskarsdóttir – leirlist Neskja – handgert konfekt Ragnhildur Jónsdóttir – Jónsdóttir & Co – hönnun Reynir Valbergsson – myndlist URÐ – Erla Gísladóttir – íslenskt vörumerki

Við opnun sýningarinnar fimmtudaginn 3. september kl. 17 verður einnig líf og fjör þegar hljómsveitin Krummafótur leikur fyrir gesti. Oddfellowstúkan Eldey sér um veitingasölu meðan á sýningunni stendur og rennur allur ágóði af veitingasölunni til líknarmála. Þannig sameinast list, samfélag og góðgerðarmál undir einu þaki. Okkur þykir sérstaklega vænt um að geta opnað þetta frábæra hús fyrir bæjarbúum og gestum Ljósanætur á ný og sýnt hversu skemmtilegur vettvangur Oddfellowhúsið getur verið fyrir menningu og mannlíf. Við hvetjum fólk til að líta við, hitta listafólkið og hönnuðina og njóta veitinga og stemningar í okkar frábæra húsi. Oddfellowhúsið í Keflavík – 3.–6. september 2026. Komdu og upplifðu sköpun, stemningu og samfélag í hjarta bæjarins.

Ljósanæturtilboð 20%

afsláttur af húðvörum, vítamínum og bætiefnum í Reykjanesapóteki að Hólagötu og Fitjum

Verið hjartanlega velkomin Opnunartími á Fitjum: 10–19 virka daga og laugardaga 11–15.

Opnunartími á Hólagötu: 9–20 virka daga og 12–19 laugardaga og sunnudaga.

Reykjanesapótek: Vaktsími: 821-1128

Hólagötu 15 260 Reykjanesbæ Sími: 421-3393

Fitjum 2 260 Reykjanesbæ Sími: 421-3383

ÖLL SAGAN FRÁ 1980 ER Á TIMARIT.IS


40 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Bjartari framtíð á Suðurnesjum SIGHVATUR GUNNARSSON FAGNAR BRÁTT ALDARFJÓRÐUNGI HJÁ ÍSLANDSBANKA Suðurnesin hafa í gegnum tíðina boðið upp á hvort tveggja: ævintýralegan vöxt og krefjandi áskoranir. Hvort sem um er að ræða miklar sveiflur í ferðaþjónustu, heimsfaraldur eða náttúruhamfarir, hefur samfélagið á Reykjanesskaganum sýnt af sér einstaka seiglu. Í miðju þessarar atburðarásar stendur Íslandsbanki í Reykjanesbæ, sem á sér meira en 60 ára sögu á svæðinu, allt frá því að einn af forverum hans, Verslunarbankinn, opnaði dyrnar á Hafnargötunni árið 1963.

Við stjórnvölinn í útibúinu heldur Sighvatur Gunnarsson, sem fagnar brátt aldarfjórðungsstarfi hjá bankanum. Hann hefur upplifað gjörbreyttan veruleika í bankaþjónustu – frá því að afgreiða einfaldar millifærslur við afgreiðsluborðið yfir í að veita sérhæfða ráðgjöf um húsnæðiskaup, rekstur og kynslóðaskipti í atvinnulífinu. Þrátt fyrir að stafrænar lausnir og öpp hafi tekið yfir flest dagleg verkefni leggur Sighvatur ríka áherslu á mikilvægi persónulegra tengsla. Sú nálgun virðist skila sér en útibúið í Reykjanesbæ hefur síðustu ár mælst hæst allra eininga bankans í þjónustumælingum. Í þessu viðtali fer Sighvatur yfir stöðuna á Suðurnesjum í dag, fjölbreyttari undirstöður atvinnulífsins með tilkomu gagnavera, fiskeldis og aukinnar uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli, ásamt þeim tækifærum sem framtíðin ber í skauti sér. Hann deilir einnig persónulegri sýn á lífið fyrir utan bankann – mætingu á fótboltaleiki hjá Keflavík og Njarðvík, golfhringi á Leirunni og mikilvægustu fjármálaráðunum fyrir unga fólkið á svæðinu.

rúmlega það. Fleira fólk flytur á svæðið og fyrirtækin eru að stækka. Það sjáum við á hverjum degi í útibúinu.   Á sama tíma hefur starfið sjálft gjörbreyst. Þegar ég byrjaði árið 2001 var fólk að koma til okkar til að millifæra, taka út pening og greiða reikninga. Í dag gerir fólk þetta meira og minna allt í gegnum appið í símanum.“ Í dag sest fólk niður með okkur til að ræða húsnæðiskaup, rekstur og ýmis flóknari málefni, til dæmis þegar það stendur“ til að afhenda næstu kynslóð fyrirtækið. „Þá búum við að því að vera með sterkt teymi með mikla reynslu sem þekkir svæðið vel.“

Staða atvinnulífsins Suðurnesin hafa gengið í gegnum miklar sveiflur (Covid19, náttúruhamfarir o.fl.). Hvernig er staðan á atvinnulífinu og íbúum á svæðinu í dag út frá sjónarhóli bankans? Við getum tekið Grindavík út fyrir sviga en þar er staðan mjög erfið og snúin að mörgu leyti. Þar

eru einhver fyrirtæki sem hafa náð að halda dampi þrátt fyrir miklar áskoranir á meðan önnur fyrirtæki hafa átt mjög erfitt. Ef við horfum á Suðurnesin almennt þá er staðan ágæt þrátt fyrir að atvinnuleysi sé í hærri kantinum hérna hjá okkur. Það sem gerir mig bjartsýnastan er að undirstöðum í atvinnulífinu hér er beinlínis að fjölga. Ferðaþjónustan er áfram burðarás en við hana eru að bætast greinar sem varla voru til á svæðinu fyrir nokkrum árum. Það er heilmikil uppbygging á Keflavíkurflugvelli og svo eru komin gagnaver, fiskeldi og stór bætt orkumannvirki. Þetta eru ólíkar greinar sem sveiflast ekki allar í takt. Í því felst mikill styrkur fyrir atvinnulífið á Suðurnesjum.

Flugvöllurinn og ferðaþjónustan Keflavíkurflugvöllur og stóru tækifærin í kringum hann eru gríðarlega mikilvæg fyrir svæðið. Hvernig finnið þið fyrir uppbyggingunni í ferða-

Umsvif og vöxtur

Páll Ketilsson pket@vf.is

Starfsemi Íslandsbanka hefur stækkað mikið á Suðurnesjum á undanförnum árum. Hvað hefur drifið þennan vöxt áfram og hvernig hefur starfsemi bankans breyst á þessum tíma? Vöxturinn á Suðurnesjum hefur verið ævintýralegur á undanförnum árum og okkar hlutverk hefur einfaldlega verið að fylgja samfélaginu eftir og styðja við vöxtinn, og kannski aðeins

Okkar helsta markmið er að vera hreyfiafl í samfélaginu. Það gerum við t.d. með því að veita framúrskarandi þjónustu og það gerum við einnig með því að styðja við og fjárfesta í verkefnum og hugmyndum sem eru samfélaginu okkar til framdráttar.

þjónustu og tengdum greinum í bankanum? Umsvif á flugvellinum hafa aukist mikið, bæði vegna ferðaþjónustunnar og svo einnig vegna aukinna varnarumsvifa. Við finnum vel fyrir þessu í bankanum. Fyrirtæki sem hafa lengi verið í viðskiptum hjá okkur eru að vaxa á sama tíma og fyrirtækjum í greininni er að fjölga. Við sjáum einnig að hótel- og gistibransinn hefur vaxið undanfarið. Gistirýmum hefur fjölgað og gistimöguleikarnir eru orðnir fjölbreyttari, sem er mjög jákvætt fyrir ferðaþjónustuna hér á svæðinu.

Húsnæðismarkaðurinn Það hefur verið mikill vöxtur í íbúafjölda og íbúðauppbyggingu á Suðurnesjum. Ertu að merkja breytingar á eftirspurn eftir húsnæðislánum eða samsetningu kaupenda (t.d. ungt fólk að flytja af höfuðborgarsvæðinu) eða er eftirspurnin núna í lágmarki út af háum vöxtum? Samhliða kólnun á fasteignamarkaði hefur eftirspurn eftir nýjum lánum vegna fasteignakaupa dregist saman. Þrátt fyrir það hefur húsnæðislánasafn bankans vaxið síðustu misseri og við finnum vel fyrir eftirspurn hjá fólki sem vill m.a. endurfjármagna húsnæðislánin sín. Ég ætla samt ekki að halda því fram að eftirspurnin sé eitthvað meiri hér á Suðurnesjum en á svæðunum í kringum okkur. Þróunin hér er í raun svipuð og annars staðar á suðurvesturhorninu. Vaxtastigið hefur sömu áhrif á fólk hvar sem það býr.

Stafræn þjónusta Bankaþjónusta hefur færst mikið yfir í öpp og stafrænar lausnir. Hver er staða og mikilvægi þess að vera með öflugt og sýnilegt útibú á staðnum á tímum þar sem allt er að verða stafrænt? Það er rétt að bankarnir hafa lagt mikla áherslu á stafrænar lausnir og hafa framfarir verið gríðarlega miklar. Þó að langflestir geti sinnt mestu af sínum bankaviðskiptum á netinu þá er það einfaldlega ekki þannig með alla. Þess vegna leggjum við mikið svo mikið upp úr því að vera með öflugt starfsfólk, svo fólk og fyrirtæki geti fengið sérhæfða og persónulega þjónustu þegar á þarf að halda. Bankinn gerir árlega þjónustukönnun meðal fyrirtækja sem eru í viðskiptum. Útibúið í Reykjanesbæ hefur mælst hæst allra eininga bankans í ánægju viðskiptavina síðustu ár. Við virðumst því vera að gera eitthvað rétt.

Íslandsbanki og samfélagið á Suðurnesjum Sighvatur Gunnarsson með Jónu Björgu Antonsdóttur, einum elsta starfsmanni útibús Íslandsbanka í Keflavík.

Íslandsbanki á sér langa sögu á svæðinu. Hversu mikilvægt er það fyrir bankann að taka þátt í samfélaginu hér, t.d. með stuðningi við íþrótta- og menningarlíf ?


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 41

Alltaf fundist gaman að grúska í tölum Sighvatur Gunnarsson Aldur: 50 ára Fjölskylda: Kvæntur Þóru Kristínu Sveinsdóttur, grafískum hönnuði, og eiga þau fjögur börn saman. Tvo stráka sem eru Ingi Þór, sem er 26 ára, og Viktor Logi, sem er 19 ára, og svo tvær stelpur, Steinunni Ástrós, sem er 23 ára, og Evu Dís, sem er 15 ára. Þú hefur starfað lengi hjá Íslandsbanka. Hvað er það sem heldur þér við efnið og gerir starfið enn þá skemmtilegra á hverjum degi? Ég hef starfað í Íslandsbanka frá maí 2001. Ég starfaði fyrst sem lánastjóri og viðskiptastjóri fyrirtækja en tók svo við sem útibússtjóri árið 2008. Mér hefur alltaf fundist gaman að grúska í tölum og mér gefst tækifæri til þess á hverjum degi í bankanum. Stór hluti starfsins eru samskipti við fólk. Það er eitthvað sem mér leiðist alls ekki og ég hlakka því til að koma til starfa á hverjum degi. Svo hef ég verið gríðarlega heppinn með samstarfsfólk í gegnum tíðina sem hjálpar mikið til. Þegar þú lítur til baka yfir þinn feril hjá bankanum, hver eru stærstu verkefnin eða áskoranirnar sem standa upp úr? Það voru klárlega stærstu verkefnin sem ég hef komið að í kjölfar bankahrunsins árið 2008. Þá tóku við mjög erfið og flókin verkefni og margar mjög erfiðar ákvarðanir sem þurfti að taka. Það var líka mikil áskorun fyrir mig á sínum tíma að taka við sem útibússtjóri en það hefur verið gríðarlega skemmtilegt verkefni. En það stendur alltaf upp úr hvað ég hef unnið Okkar helsta markmið er að vera hreyfiafl í samfélaginu. Það gerum við t.d. með því að veita framúrskarandi þjónustu og það gerum við einnig með því að styðja við og fjárfesta í verkefnum og hugmyndum sem eru samfélaginu okkar til framdráttar. Það er okkur gríðarlega mikilvægt að vera í tengslum við samfélagið. Við styðjum við íþróttafélögin og ýmis menningarmál hérna á svæðinu. Til að mynda ætlum við að bjóða bæjarbúum frítt á leiki hjá stelpunum í fótboltanum um ljósanæturhelgina bæði hjá Keflavík og Grindavík/ Njarðvík. Hvetjum alla til þess að mæta og styðja stelpurnar. Svo reynum við líka að leggja okkar af mörkum í fræðslu. Fjármálalæsi ungs fólks er til dæmis eitthvað sem bankinn leggur mikla áherslu á. Hvernig sérðu Suðurnesin þróast á næstu 5–10 árum og

hvert verður hlutverk Íslandsbanka í þeirri vegferð? Ég sé Suðurnes halda áfram að vaxa og ég held að vöxturinn verði fjölbreyttari en hann hefur verið. Áframhaldandi fólksfjölgun og uppbygging í atvinnumálum. Grindavík mun byggjast aftur upp og vonandi þurfum við ekki að bíða of lengi eftir því að það raungerist. Hlutverk Íslandsbanka verður það sama og það hefur alltaf verið. Við ætlum að fjármagna uppbygginguna og standa með fólki og fyrirtækjum, líka þegar á móti blæs. Það er svo sem ekkert nýtt. Við höfum verið hér frá 1963, þegar Verslunarbankinn opnaði á Hafnargötunni í Keflavík, en hann var einn af forverum Íslandsbanka. Á þeim rúmu sextíu árum hafa komið bæði góð ár og erfið. Við ætlum að vera hér næstu sextíu líka. Ég er heilt yfir mjög bjartsýnn fyrir hönd Suðurnesja.

með mikið af frábæru fólki og hvað ég er búinn að eignast mikið af vinum í bankanum. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á Suðurnesjum þegar þú tekur niður „bankastjóraglerógun“ og átt frí? Mér finnst mjög gaman að kíkja út á golfvöll og spila golf í góðum félagsskap en þar er Leiran minn heimavöllur. En ég reyni nú samt að spila reglulega aðra velli á svæðinu. Ég er mjög duglegur að sækja fótboltaleiki hérna í Reykjanesbæ og reyni aðallega að sjá bæði strákana og stelpurnar í Njarðvík og Keflavík. Svo finnst mér voðalega gott að rölta um göngustíga Reykjanesbæjar á góðviðrisdögum. Það mættu samt vera fleiri góðir göngustígar í Reykjanesbæ og líka fleiri góðviðrisdagar. Ef þú ættir að gefa ungu fólki á Suðurnesjum eitt gott ráð varðandi fjármál og framtíðina, hvert væri það? Það eru mörg ráð sem mér detta í hug. Ekki eyða meira en þú aflar. Það er alltaf gott að spara og eiga fyrir hlutunum og jafnvel einhvern varasjóð. Forðist að fjármagna neyslu með yfirdrætti eða öðrum dýrum neyslulánum. Yfirdráttur í banka á að vera neyðarúrræði.

Ljósanæturtilboð 20% afsláttur af öllum silfurvörum 10% afsláttur af öllum öðrum vörum Valdar vörur á 50% afslætti Afsláttur gildir ekki af handsmíðuðu Líndal skarti

Ég sé Suðurnes halda áfram að vaxa og ég held að vöxturinn verði fjölbreyttari en hann hefur verið. Áframhaldandi fólksfjölgun og uppbygging í atvinnumálum. SKARTGRIPIR OG ÚR • HAFNARGATA 49 • KEFLAVÍK


42 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Kolfallin fyrir golfíþróttinni

Birgitta Rún Birgisdóttir gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í sumar, nýbyrjuð í íþróttinni. Hún er klár í Ljósanótt 2026.

Bleiki golfboltinn rataði í holu í draumahöggi Birgittu á golfvellinum að Hraunborgum. Hraunborgum í Grímsnesi. í

Birgitta Rún Birgisdóttir er ein af mörgum sem hafa fallið fyrir golfíþróttinni en hún og kærasti hennar eru nýbyrjuð í íþróttinni. Unga konan gerði sér síðan lítið fyrir og fór holu í höggi í sumar. Birgitta er virk á Ljósanótt þar sem hún sækir viðburði og nýtur hátíðarinnar. Sumarið hefur verið skemmtilegt hjá henni í golfi, göngum, veiði og fleiru. Hvernig varðir þú sumarfríinu? Þrátt fyrir blautt sumar hér á suðvestur horninu þá er það búið að vera dásamlegt hjá okkur fjölskyldunni. Við Toni kærastinn minn byrjuðum að læra golf svo við höfum reynt að koma því sem mest fyrir í sumar. Við fórum líka að veiða með fjölskyldunni og nutum þess að vera í sveitinni okkar í Grímsnesi. Fótbolta- og körfuboltamót hjá strákunum okkar voru stór partur af sumrinu og ég endaði sumarfríið svo á frábærri ferð með Fjallagellunum mínum á Borgarfjörð eystri þar sem við áttum skemmtilega daga og gengum m.a. að Stórurð í grenjandi rigningu. Ég held að lærdómur sumarsins sé klárlega sá að í góðum félagsskap skiptir veðrið engu máli. Hvað stóð upp úr? Klárlega allir golfhringirnir og veiðiferðirnar með fólkinu mínu.

Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Ætli ég verði ekki að nefna það að ég fór holu í höggi um verslunarmannahelgina þegar ég fór í golf með pabba og strákunum mínum. Ég sá kúluna ekki fara ofan í holuna og leitaði að henni í dágóða stund eða þangað til Tómas sonur minn kallaði á mig og benti mér á að hún væri ofan í holunni. Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands? Sumarbústaðurinn sem foreldrar mínir eiga hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá okkur strákunum mínum. Annars er fátt sem toppar útiveru í fallegri íslenskri náttúru á góðum sumardegi, óháð staðsetningu. Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur? Það er yfirleitt nóg að gera hjá mér á veturna en þennan vetur ætla ég að gefa mér Í Fjallagellugönguferð að Stórurð í Borgarfirði eystra.

tíma í að æfa mig í golfi og mæta vonandi með aðeins betri færni í Leiruna næsta vor. Hvernig finnst þér Ljósanótt? Við íbúar Reykjanesbæjar megum vera stolt af þeim menningarhátíðum sem bæjarfélagið okkar stendur fyrir og hef ég alltaf haft mjög gaman af Ljósanótt. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að sjá hvað lifnar yfir öllu bæjarfélaginu og allir tilbúnir að taka höndum saman svo hátíðin verði sem glæsilegust. Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Ég reyni yfirleitt að koma við á sem flestum listasýningum og mun ég halda því áfram. Ég stefni svo á að hitta vinkonur mínar, fá mér kjötsúpu frá Skólamat, mæta í árgangagönguna og á kvöldtónleikana á laugardagskvöldinu með fólkinu mínu. Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? Ég á erfitt með að nefna eina sérstaka minningu því ég á svo margar góðar frá þessari helgi en ætli það sé samt ekki fyrir ca. 4 árum síðan, þegar við fengum bongóblíðu á laugardeginum. Ég held að ég hafi aldrei séð jafn mikið af fólki í miðbæ Reykjanesbæjar og það verður eitthvað svo skemmtileg stemning þegar veðurguðirnir eru með okkur í liði. Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf ? Ég reyni alltaf að komast yfir sem mest af dagskránni á laugardeginum og fer á kvöldtónleikana með fjölskyldunni en það hefur líka verið skemmtileg hefð að fara á röltið á opnun listasýninga á fimmtudagskvöldinu með góðum vinkonum og starta þannig frábærri helgi.


44 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

„Svona lítið sveitarfélag skapar ótrúlegt frelsi“ Björg Ásta Þórðardóttir tók nýverið við embætti bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Vogum. Hún á að baki fjölbreyttan og farsælan feril. Hún er lögfræðingur með meistarapróf frá Háskóla Íslands, hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2015 og hefur meðal annars starfað sem yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins, lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda, hjá lögreglunni á Suðurnesjum og sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Þá á hún að baki glæsilegan knattspyrnuferil með íslenskum liðum og landsliðinu og hefur reynslu úr félagsstarfi, meðal annars sem formaður MS-félags Íslands og í dómstólum íþróttahreyfingarinnar.

Ég tók oddvitasætið og ég er bara ótrúlega þakklát og auðmjúk að hafa fengið það tækifæri og þurft að spreyta mig í fyrsta skipti sem stjórnmálamaður.

Björg Ásta er fædd og uppalin á Suðurnesjum. Hún flutti ásamt konu sinni, Ósk Laufeyju Breiðfjörð, og þremur börnum þeirra úr Reykjavík yfir í Voga fyrir um þremur árum. Í viðtali við Víkurfréttir ræðir hún ákvörðunina um að flytja í Voga, stjórnmálin, vaxtarverki sveitarfélagsins og stóru verkefnin sem framundan eru. Byrjaðu nú á að segja fólki hver þú ert. „Ég er Suðurnesjamær, alin upp hérna á Suðurnesjum og er núna bæjarstjóri í Vogum þar sem ég hef búið síðastliðin þrjú ár.“ Hvað kom til að þú ákvaðst að setjast að í Vogum? „Ég og fjölskylda mín bjuggum í Reykjavík og okkur langaði til að fara út á Reykjanesið aftur. Mig langaði að fara aðeins nær heimahögum. Konan mín á fjölskyldu í bænum, þannig að við ákváðum að fara svona hálfa leið og vissum svo sem ekkert út í hvað við værum að fara. Ég held ég hafi farið þrisvar sinnum í Voga þar á undan.“

Það keyra flestir fram hjá þéttbýlinu í Vogum? „Ég segi reyndar að það keyra allir í gegnum Voga. Því að fólk áttar sig ekki á því þegar það keyrir á landi Voga hérna langleiðina inn í Reykjavík eða höfuðborgarsvæðið. En jú, ég keyrði oft fram hjá Vogum og auðvitað þekkti fólk en er svo sem ekki með neinar rætur hingað nema bara á sjálft Reykjanesið. Svo átta ég mig á því þegar maður flytur að það eru sterkari rætur þarna heldur en maður kannski gerði sér grein fyrir. Maður þekkir fleiri og er fljótur að koma sér inn í samfélagið.“ Þannig að það er kannski ekkert stór ákvörðun að ákveða að setjast að í Vogum? „Jú, það er stórt skref að fara úr borginni og í svona lítið sveitarfélag. En svo auðvitað það sem maður fattar ekki og maður fattar heldur ekki þegar maður er í Reykjanesbæ, sem ég kalla Keflavík því ég er nú upphaflega Keflvíkingur, er að svona lítið sveitarfélag skapar alveg ótrúlegt

Nýkjörin bæjarstjórn; f.v. Kristinn Björgvinsson, Birgir Örn Ólafssonar, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Gunnar J. Helgason, Björg Ásta Þórðardóttir, Hulda Birna Helgadóttir Blöndal og Guðmann Rúnar Lúðvíksson.

Frá tónleikum við upphaf 30. fjölskyldudaga í Sveitarfélaginu Vogum. Tónleikarnir voru haldnir í Háabjalla, fallegu útivistasrsvæði sveitarfélagsins. frelsi fyrir börn. Það var það sem við höfum séð að er alveg æðislegt.“ Takturinn er allt annar í Vogum heldur en í Reykjavík. „Hann er allt annar og rólegri og okkur líður alveg ótrúlega vel. Þetta eru algjörlega dásamleg þrjú ár og við bara erum í skýjunum með það.“ Fórstu strax að skipta þér af pólitíkinni í Vogunum? „Já... Nei, ekki alveg strax. Ég fór hins vegar að skipta mér frekar fljótlega af félagsmálum og starfsemi þarna; ég skráði mig í Kvenfélagið og endaði í stjórn ungmennafélagsins Þróttar. Svo fór ég svona að velta hlutunum fyrir mér og það var svo sem ekkert langt að sækja þennan pólitíska bakgrunn. Ég var þarna á þessum tíma aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Þannig að ég fór að velta fyrir mér hlutum sem snúa að okkar nærsamfélagi, ekki síst út af því að hraunið rann hér í bakgarðinum og þetta mæddi mjög mikið á þessu svæði og reyndi mikið á í mínu starfi í dómsmálaráðuneytinu. Þannig að ég velti þessu mjög mikið fyrir mér á tímabili og svo svona ágerðist þetta bara eftir því sem tíminn leið.“ Blunda stjórnmálin alltaf einhvers staðar þarna undir? „Já, stjórnmál eru líka svo víða. Þau eru auðvitað í þessum samfélagsmálum en svo er pólitík í íþróttahreyfungunni, það er pólitík í MS-félaginu þar sem ég var formaður. Þetta snýst auðvitað

bara um það að hafa áhrif á samfélagið sitt og það eru alls konar tæki og tól til þess. Ein leið er að fara í bæjarstjórnarpólitíkina og þar finnst mér skemmtilegt að vera.“ Og þú tókst bara stefnuna beint á toppinn. Þú tókst fyrsta sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Vogum? „Já, ég gerði það. Ég tók oddvitasætið og ég er bara ótrúlega þakklát og auðmjúk að hafa fengið það tækifæri og þurft að spreyta mig í fyrsta skipti sem stjórnmálamaður. Mér þótti það mjög skemmtilegt og þetta er svona einhver baktería sem ég skil alveg af hverju fólk ílengist í. Mér þótti kosningabaráttan ótrúlega skemmtileg, lífleg og jákvæð, og svo auðvitað uppskárum við vel og fyrir vikið enduðum við í meirihluta og ég síðan sem bæjarstjóri.“ Pólitíska landslagið í Vogum er að breytast. „Já, það bætist við flokkur. Það eru fjórir listar sem buðu fram, sem er alveg svolítið mikið og hafði ekki gerst í langan tíma í svona litlu samfélagi. Og það enda fjórir listar inni í bæjarstjórn. Það einkenndi kosningabaráttuna, en við einsettum okkur auðvitað bara að vera hress og skemmtileg og opin og eiga mörg samtöl. Ég sá að öll framboðin fóru svolítið þá leið. Þetta var líflegri kosningabarátta og meira samtal, og það er líka svolítið það sem íbúar hafa verið að kalla eftir: meiri upplýsingar, meira


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 45

Mér líst bara vel á veturinn fram undan. Ég einset mér að leysa þessi leikskólamál og ég veit alveg að það eru áskoranir þar fyrir þær fjölskyldur sem fá ekki pláss, þannig að það á hug minn nánast allan þessa dagana. En það er verkefni sem fer í eðlilegan farveg og við einsetjum okkur að leysa hratt og vel.

Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarsjóri í Vogum. samtal og meiri tengingu við kjörna fulltrúa.“ Hvernig er svo að taka við bæjarstjórastarfinu í Vogum? Þetta er mjög ört stækkandi sveitarfélag? „Mjög. Og ef áætlanir ganga eftir þá munum við stækka um 100% á átta árum. Það er ótrúlega margt í pípunum, þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt og það eru gríðarleg tækifæri í Vogum. Það eru áskoranir, sérstaklega í tengslum við skóla- og leikskólamál og það fer mikill tími í þau mál hjá okkur núna. Svo auðvitað eru bara tækifæri að sækja fleiri fyrirtæki og auka við þjónustuna við íbúa. Þannig að maður er bara rétt að byrja.“ Leikskólamálin eru búin að koma sterkt inn núna strax eftir kosningar og það voru allir svo sem að tala um leikskólamál í kosningabaráttunni. Þið eruð bara að taka þau á fullri ferð áfram? „Já. Og það er alveg ástæða fyrir því. Það var vegferð sem var hafin á síðasta kjörtímabili og síðan höfum við bara tekið við því kefli. Verkefnið snýst um það í fyrsta lagi að stækka leikskólann. Það er biðlisti og við viljum ekki

hafa biðlista, þannig að við erum að vinna í því núna að byggja vel við leikskólann, gera það af fagmennsku og tryggja að þetta sé hagkvæm uppbygging. En á sama tíma erum við auðvitað að horfa til framtíðar. Þegar við stækkum svona sem samfélag þá þurfum við að huga að innviðum, og leikskóla- og skólauppbygging er stór hluti af því.“ Eru einhverjir vaxtarverkir í Vogum? „Já, þeir eru alveg komnir. Það var ákveðinn slaki í innviðunum hjá okkur til að byrja með en núna er komið að þolmörkum og svona rúmlega það. Þannig að það eru alls konar hlutir eins og skólamálin, viðhald á gatnakerfi og uppbygging á atvinnusvæðum og þjónustu. Það vantar alveg gríðarlega atvinnuhúsnæði í sveitarfélagið og nýta betur það húsnæði sem nú þegar er fyrir hendi. Síðastliðna tvo mánuði hefur verið samtal um allt þetta.“ Hvernig svona líst þér á veturinn sem er fram undan? „Mér líst bara vel á hann. Ég einset mér að leysa þessi leikskólamál og ég veit alveg að það eru áskoranir þar fyrir þær fjölskyldur sem fá ekki pláss, þannig að það á hug minn nánast allan

þessa dagana. En það er verkefni sem fer í eðlilegan farveg og við einsetjum okkur að leysa hratt og vel. Svo eru mörg önnur verkefni, eins og að fara að skoða uppbyggingu við höfnina og sjá hvað við getum gert þar. Það eru stór verkefni framundan eins og atvinnuuppbygging á Keilisnesi. Því eftir leikskóla- og skólamálin þá er atvinnuuppbygging, að fjölga störfum, fjölga fyrirtækjum og auka við þjónustu í heimabyggð, stóra málið. Við erum það sveitarfélag á Suðurnesjum þar sem íbúar sækja hvað minnstu þjónustuna inn í sveitarfélagið sitt. Það er staða sem mér finnst ekki hægt að una við og við erum að vinna í því.“ Þið hafið verið svefnbær og íbúar sótt vinnu annað. Það kannski vantar fleiri atvinnutækifæri í sjálfu sveitarfélaginu? „Ég er nú með Reykjanesbrautina fyrir aftan mig og hef verið fastagestur á henni frá því ég var barn; keyrt fram og til baka á fótboltaæfingar, í skóla og fleira. Það eru ákveðin gæði í því að eiga svona góðar samgöngur, en það eru enn meiri gæði í því að geta labbað í vinnuna. Það er eitt af

því sem ég held að fleiri Vogabúar eigi að geta upplifað. Það er alltaf þannig að við munum sækja atvinnu að hluta út fyrir sveitarfélagið, en við viljum líka halda í það að vera rólegur lítill bær þar sem flestir þekkja flesta og börnin okkar geta hlaupið um án þess að vera í hættu. Þannig að þetta öryggi og þessi rólegheit skipta okkur líka máli. Að finna þetta jafnvægi á milli þessara tveggja þátta er alveg kúnst, en við erum að vinna í því.“ Hvernig er svona venjulegur vinnudagur hjá þér og hvernig eru þessir tveir fyrstu mánuðir búnir að vera? „Það er mjög mikið um fundi og að setja okkur inn í hlutina. Ég er að kynnast starfsfólkinu og fólkinu í sveitarfélaginu á annan hátt. Svo er ég að setja mig inn í öll þessi verkefni. Það er líka búið að vera sumarfrí þannig að ég á nokkra fundi inni, en fundahöldin eru stærsti pósturinn.“ Þannig að hveitibrauðsdagarnir, þeir eru alls ekki liðnir? „Nei, nei, nei! En það er samt að líða að því að maður þurfi að koma hlutum í gang. Við erum búin að vera að undirbúa margt í sumarfríinu og vonumst til að

geta klárað að setja hluti af stað núna strax í lok þessa mánaðar og byrjun næsta. Það er margt í pípunum. Tækifærin til að gera breytingar og bæta starfsemina innan bæjarskrifstofunnar eru líka mikil, þannig að við erum að vinna í því líka.“ En að reka 2.000 manna sveitarfélag, þetta er náttúrulega svolítið samt allt í föstum skorðum, það er ekkert mikið af aukafé til þess að vera með eitthvað dekur? „Nei, við erum ekkert með eitthvað dekur á mörgum stöðum. Þetta snýst frekar um það að við erum með litla stjórnsýslu. Við þurfum að vera í mörgum verkum, auka framleiðni og skilvirkni, og bæta þjónustu og upplýsingagjöf. Þessi umbótaverkefni eru oft smá en sum stór, eins og aukin stafræn þróun. Þetta eru verkefni sem flest sveitarfélög eru að takast á við.“ Og þið eruð að vinna helling með Suðurnesjabæ í ýmsum málaflokkum? „Já, við erum með góða samninga við Suðurnesjabæ og reyndar líka við Reykjanesbæ. Við erum mjög miklir talsmenn samstarfs og höfum þrifist á því í gegnum áratugina að vera í miklum og góðum samskiptum við nágranna okkar. Það er eitthvað sem við ætlum bara að bæta í og halda áfram.“ Svo erum við núna hérna í upphafi fjölskyldudaga í Vogum, hvernig er það, ertu búin að vera að heilsa upp á fólk? „Já, það er búið að vera mjög gaman. Nú erum við á tónleikum í náttúruperlunni okkar í Háabjalla. Þetta er bara veisla á hverjum einasta degi í heila viku! Svo er það almyrkvinn. Það eru 30 ár síðan við héldum fyrst fjölskyldudag og að fá almyrkvann inn í miðja afmælisviku er einhvers konar gjöf frá almættinu.“

Séð yfir hluta Voga á bæjarhátíðinni.

Og þú ert bara bjartsýn á framhaldið hérna í Vogum? „Já, mjög! Það er ekkert annað hægt að gera. Við erum öll að takast á við alls konar áskoranir, en það er miklu meira jákvætt heldur en neikvætt.“


46 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

REYKJANESHÖFN

Minnisstætt þegar kveikt var á Berginu á fyrstu Ljósanóttinni Fullt af ferðalögum hjá Grétari Má Garðarssyni og fjölskyldu í sumar. Ásbyrgi fallegasti staðurinn á Íslandi. Það hefur verið nóg um að vera hjá Grétari Má Garðarssyni og fjölskyldu á liðnu sumri. Sumarfríið var fullt af ferðalögum, bæði innanlands sem erlendis, ásamt því að stór áfangamarkmið náðust á golfvellinum. Nú tekur haustið við og fram undan er Ljósanótt, sem á sér stóran sess í hjarta Grétars. Grétar þarf að vera talsvert á ferðinni starfa sinna vegna sem forstöðumaður hjá Isavia þar sem hann sinnir flugfélögum og markaðsmálum. „Við fjölskyldan byrjuðum sumarið á að fagna 75 ára afmæli mömmu minnar í Toscana á Ítalíu í ógleymanlegri ferð. Þá stukkum við Sonja eiginkona mín til Toronto á tónleika með Post Malone. Við fórum í útilegur, spiluðum golf, fórum með strákana í langa helgarferð til Chicago og enduðum svo sumarfríið á Spáni í Los Alcazares í húsi tengdaforeldra minna. Alveg frábær staður til að hlaða batteríin fyrir komandi haust og vetur.“ Grétar segir að það sem hafi staðið upp úr í sumar hafi klárlega verið að ná loksins, eftir margra ára vinnu, að fá Sonju til að draga fram golfsettið að nýju. Nú geta þau spilað golf saman á sumrin og skíðað á veturna, sem honum finnst einfaldlega ekki geta verið betra.

Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Við Sonja getum ekki alltaf planað langt fram í tímann vegna vinnu og því komu þrjár af þessum fjórum utanlandsferðum óvænt inn en okkur finnst skyndiákvarðanir að mörgu leyti bestar. Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands? Grétar er að hálfu ættaður að norðan og hefur eytt mörgum stundum í Kelduhverfinu. Ásbyrgi stendur hjarta hans næst og er í hans augum fallegasti staður landsins. Þá nefnir hann einnig að alltaf sé gaman að heimsækja Snæfellsnesið. Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur? Halda áfram að rækta líkama og sál og búa til minningar með fjölskyldunni. Einnig ætlum við að skíða eins mikið og við getum bæði hérlendis og erlendis með fjölskyldu og vinum. Hvernig finnst þér Ljósanótt? Ljósanótt er frábær viðburður sem hefur fastan stað í tilveru okkar sem búum hérna á svæðinu. Það er alltaf stemming sem myndast í kringum Ljósanótt og gaman að sjá hvað er margt í boði fyrir fjölskyldur.

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Fastir liðir eru náttúrulega að fara í tívolítækin og hoppukastalana með strákana, kíkja á nokkrar listasýningar og kjötsúputónleikana. Þá er hápunkturinn á laugardagskvöldinu þegar Ljósanótt nær hámarki. Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? Fyrsta Ljósanóttin þegar ljósin á Berginu voru kveikt. Ég man að það fannst mér ótrúlega fallegt og magnað að sjá og upplifa. Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf ? Tengdaforeldrar mínir hafa alltaf boðið fjölskyldunni til sín á laugardagskvöldið í mat og síðan förum við öll saman niður í bæ. Þá er það ómissandi þáttur af Ljósanótt þegar amma Jóna fer með barnabörnin og kaupir eitthvað dót sem gefur frá sér óhemju skemmtileg hljóð og allir gleðjast.

Grétar með Sonju á golfvellinum í Leirunni og strákunum þeirra á Spáni.


Íslandsbanki býður á völlinn á Ljósanótt Styðjum stelpurnar til sigurs.

Keflavík - FHL Kl. 14:00 HS Orku vellinum Keflavík

Grindavík/Njarðvík - Valur Kl. 16:30 JBÓ vellinum Njarðvík

Boðið verður upp á andlitsmálningu fyrir leik bæði í Keflavík og í Njarðvík. Íslandsbanki


48 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

flandi umhverfi

G óða skemmtun á Ljósanótt

kóli, Urriðaból, opnar í Garðabæ í haust

x deilda . er um 20

ykjavík.

eilsuarfsfólks og

þroska þar eyfigetu.

rí leiðarljósi

mi

ólksins sem

Taktu þátt í að byggja upp nýjan skóla fyrir yngstu Garðbæingana Leikskólinn tekur mið af nýjustu lögum um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla og verður í samræmi við menntastefnu bæjarfélagsins. Við þurfum allt að 38 starfsmenn til að starfa í sex deildum. Störfin eru eftirfarandi: – Leikskólastjóri – Aðstoðarleikskólastjóri – Deildarstjórar fyrir sex deildir – Fagstjóri í hreyfingu – Fagstjóri í sköpun – Sérkennslustjóri – Matráður – Aðstoðarmatráður – Leikskólakennarar – Leiðbeinendur Allar nánari upplýsingar um störfin eru á alfred.is og um skólann á skolar.is

innu við starfsfólks uvernd. u en styður

HEIL BRIG Ð S Á L Í HR AUS T UM L ÍK A M A

AÐALSKOÐUN

Á ferð og flugi í fríinu - í loftbelg yfir sveitum Póllands Tryggvi Þór Bragason mætir alltaf í árgangagönguna til að hitta skólafélagana úr kærleiksárganginum 1967 Tryggvi Þór Bragason, leiðsögumaður og verkefnastjóri, fór á flug í sumarfríinu í orðsins fyllstu merkingu og toppaði það með því að skella sér í loftbelg yfir sveitir Póllands. Hann flaug líka til Tene en náði sér niður á jörðina í sumar með göngum um Reykjanesið og góðum tímum í Borgarfirði.

Miðvikudagsgöngurnar með Garðarssystrum um Reykjanesið hittu í mark hjá okkur hjónum og þá sérstaklega ein gangan, en ekki má segja frá því hvað var gert þar að beiðni leiðsögusystranna. Svo er smá sumarfrí rétt fyrir Ljósanótt þar sem við hjónin fórum í aðra boðsferð, en þá til Vancouver í Kanada.

Hvernig varðir þú sumarfríinu? Sumarfríið var tekið í nokkrum pörtum. Í byrjun sumars fórum við hjónin í viku boðsferð til Póllands sem var alveg einstakt. Við vorum þrjá daga í Varsjá og fjóra daga í sveitum Póllands og okkur leið eins og hefðarfólki; móttökurnar voru þannig. Þar gerðum við líka eitthvað sem ég hélt að ég myndi ekki gera, en það var að fara í loftbelg. Farið var í 1200 metra hæð í 1,5 klst. flugferð, sem kom skemmtilega á óvart. Í júlí var farið með fjölskylduna, börn, barnabörn og tengdason í tíu daga ferð til Tenerife. Þvílíkur gæðatími sem það var, dýragarður, vatnsrennibrautagarður, ströndin, sundlaugin og bara að njóta þess að vera saman. Hápunktur sumarsins. Þá var líka eytt nokkrum dögum á Grjóti í Borgarfirði, bæði til að dytta að húsakosti og líka til að njóta með vinum.

Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja á Íslandi? Þar sem ég starfa m.a. sem leiðsögumaður hefur maður kannski þau forréttindi að fá að heimsækja hina ýmsu staði. Ferðir í Landmannalaugar eru alltaf geggjaðar. Bæði staðir sem stoppað er á sem og góður göngutúr um Landmannalaugar. Maður gæti haldið að maður sé staddur í litabók á þessum stað. Einnig eru fjórhjólaferðir upp í Fljótshlíðina einstaklega skemmtilegar. Þessar ferðir eru farnar með Óbyggðaferðum sem gerir þetta að frábærri upplifun. Verkefnalisti vetrarins? Vonandi fótboltaferð á Emirates í London. Eitthvað „gæderí“ og einhverjar fleiri utanlandsferðir og jú, ekki má gleyma pólitíkinni þar sem ég er í atvinnu- og hafnarráði.

Hvernig finnst þér Ljósanótt? Ég er alveg heillaður og held að ég hafi tekið þátt í þeim öllum. Passa að setja Ljósanótt inn á dagatalið um leið og það er uppfært þannig að ekkert annað þvælist inn á þessa daga. Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Heimatónleikar og árgangagangan (þar sem ég tilheyri þeim einstaka árgangi 1967) eru alltaf á „to do“-listanum en svo er maður bara líflegur þátttakandi og sækir sýningar og er bara á röltinu um bæinn þessa daga. Hver er besta minningin frá Ljósanótt? Mig langar bara að segja fyrsta Ljósanóttin, ég man mjög vel eftir henni og svo er bara frábært að sjá hvað þetta hefur stækkað og dafnað og já, líka hvað það koma margir að þessu. Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf ? Meðan foreldrar mínir voru á lífi þá vorum við alltaf með finnska kjötsúpu á laugardeginum en eftir að þau kvöddu þennan heim höfum við breytt aðeins og reynum að troða okkur inn á einhverja sem sjá aumur á okkur. Það sem ég hef alltaf gert er árgangagangan, gaman að geta hitt krakkana úr kærleiksárganginum allavega einu sinni á ári.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 49

Karen Jóna stefnir á meistaratakta í þverflautuleik Var meðal fárra Íslendinga sem komust inn í hina virtu sinfóníuhljómsveit Orkester Norden Þverflautuleikarinn ungi og efnilegi úr Reykjanesbæ, Karen Jóna Steinarsdóttir, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir glæsilegan árangur á tónlistarsviðinu. Nýverið stóð hún á sviði Eldborgar í Hörpu ásamt ungu og metnaðarfullu tónlistarfólki í meistaraflokki, en hún var meðal fárra valinna Íslendinga sem komust inn í hina virtu sinfóníuhljómsveit Orkester Norden. Í viðtali við Víkurfréttir ræddi Karen um krefjandi tónlistarnám, lífið í meistaranámi í Danmörku, hversdagslegan aga og stóru framtíðardraumana.

Á stóra sviðinu með Orkester Norden Fyrir skömmu lauk Karen átta daga ströngu námskeiði og tónleikaferðalagi með Orchestra Norden, en það er sinfóníuhljómsveit skipuð efnilegustu ungu hljóðfæraleikurum Norðurlanda og Eystrasaltslandanna. Aðeins fjórir Íslendingar náðu inntökuprófi í hópinn að þessu sinni og var Karen eini fulltrúi Suðurnesja. Verkefnið var f jölbreytt og krefjandi, en flutt voru stórvirki á borð við áttundu sinfóníu Schuberts, Pulcinella eftir Stravinsky, Sinfóníska rapsódíu Nielsens og sjöttu sinfóníu Beethovens. Hápunkturinn var án efa að spila fyrir fullum sal í Hörpu. „Þetta er bara mjög skemmtilegt. Það er virkilega flott að spila þar. Maður þarf að vita hvenær maður kemur inn og allt þarf að vera mjög nákvæmt.“

„Ég held ég hafi bara valið hana af því að mér hafi fundist hún falleg og hljómaði fallega.“ Námsárin voru krefjandi hjá Karen. Hún stundaði krefjandi nám á raunvísindabraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og fór oft beint eftir langan skóladag í tónlistarskólann og á stífar flautuæfingar. Tónlistarnámið kenndi henni aga sem nýtist í öllu öðru námi og lífi.

Árósar, meistaranám og hversdagsleiki Eftir stúdentspróf og eins árs dvöl sem au pair í Bandaríkjunum innritaðist Karen í Listaháskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist með bakkalárgráðu. Í dag er hún flutt til Danmerkur þar sem hún stundar meistaranám í þverflautuleik við Konunglega tónlistarháskólann í Árósum, skóla sem krefst strangs inntökuferlis. Daglegt líf Karenar snýst aukið um stöðuga ræktun á tækninni. Hún mætir snemma á morgnana í æfingaherbergi og mætir í einka og hóptíma hjá kennurum sínum. Til að framfleyta sér í Danmörku heldur hún tveimur boltum í lofti: „Ég er náttúrulega mjög heppin með fjölskyldu sem hefur stutt mig

í gegnum þetta líka og svo er ég líka að vinna á spænskum bar. Það er ágætis tilbreyting frá náminu og ég næ mér í aukapening.“

Byrjaði átta ára í tónlist

Fórnir, fyrirmyndir og draumur um Berlín

Tónlistaráhugi Karenar kviknaði snemma, sem er kannski fullyrðing sem kemur fáum á óvart þar sem faðir hennar er Steinar Guðmundsson, organisti og píanóleikari. Hún hóf nám átta ára gömul í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hjá Berglindi Stefánsdóttur og æfði af kappsamri stundvísi. Þegar hún er spurð af hverju þverflautan varð fyrir valinu er svarið einfalt:

Árangur í tónlist kemur ekki af sjálfu sér. Karen viðurkennir að hún hafi þurft að fórna þó nokkrum böllum og samverustundum með vinum í gegnum tíðina til að sinna æfingum. „Það er alveg erfitt. Maður þarf alltaf að æfa sig á hverjum degi og hafa metnað til þess og halda fókus.“ Karen á sér stórar fyrirmyndir í faginu, meðal annars Stefán

Ragnar Höskuldsson, sem er yfirflautuleikari hjá hinni heimsþekktu Berlínarf ílharmóníu. Draumur Karenar sjálfrar er skýr: Hún vill komast að sem fastamaður í stórri sinfóníuhljómsveit. Þrátt fyrir harða samkeppni og ströng inntökuferli hefur hún trú á verkefninu. Því oft er talað um inntökuferli sem inntökupróf ef um hljómsveit er að ræða. Samhliða framtíðarsýninni á stóra sviðinu hefur hún líka gaman af kennslu og útilokar ekki að miðla af reynslu sinni til komandi kynslóða tónlistarnema á heimaslóðum í Reykjanesbæ. Páll Ketilsson pket@vf.is

Spegla söguna eins og þau sjá hana Í Andrews Theatre á Ljósanótt verða ungmenni og ástandið í forgrunni í nýstárlegu leikverki Í Andrews Theatre á Ljósanótt verða ungmenni og ástandið í forgrunni í nýstárlegu leikverki í leikstjórn Jönu Maríu Guðmundsdóttur. Leiksýningin Landamærabörn er verk sem Jana María skrifaði fyrir leikhópinn sem er skipaður ungmennum af Suðurnesjum á aldrinum 13–16 ára. Hópurinn er hluti af tilraunaverkefni á vegum Vinnuskóla Reykjanesbæjar og er uppsetningin á Ljósanótt verk í vinnslu. Leikhópurinn hefur lagt hart að sér á æfingatímanum og aðspurð segir Jana María það vera mjög sérstaka upplifun að sjá þau uppgötva þennan tíma í sögunni. „Þau kveiktu fljótt á viðfangsefninu og áttu raunar frekar auðvelt með að setja sig í spor ungmenna á svæðinu á stríðsárunum. Það sem kom mér kannski mest á óvart var hve mikla hluttekningu og áhuga þau sýndu tímabilinu. Þegar ungmenni nútímans kveikja á sögunni, tengja við hana og eru tilbúin að miðla því til bæjarbúa — þá er markmiðinu með verkefninu okkar náð“.

Gríðarleg menningarleg áhrif Landamærabörnin sækir sér innblástur í ástandssögur og frásagnir fólks sem upplifði þá tíma í Keflavík og nágrenni þegar Kaninn tók sér bólfestu við bæjardyrnar í og eftir seinna stríð. Suðurnesjamenn upplifðu gríðarleg menningarleg áhrif í formi tónlistar, tísku, kvikmynda og aðgengi að

matvörum, áfengi og tækjum sem höfðu aldrei sést hér á landi. Með Kananum komu nýir straumar sem síðar skipuðu m.a. keflvískum tónlistarmönnum í fremstu röð tónlistarmanna hér á landi. Verkið fjallar um unga stúlku af Suðurnesjum sem fer í Kanann, sögu sem margir kannast við en sögupersónur verksins eru byggðar á raunverulegum frásögnum kvenna frá þessum tíma. Leikhópurinn hefur þó haft ríkan atkvæðisrétt við mótun sýningar-

innar, því þau segja söguna með sínum augum.

Verkefni sem tengir kynslóðir saman Leikstjórinn og höfundurinn Jana María hefur komið víða við á ferli sínum sem leik- og söngkona og handritshöfundur en hefur á undanförnum árum einbeitt sér meira að skrifum, þróun og leikstjórn. Verkið er hluti af stærra markmiði hennar, að nota ólíka miðla til að þróa sama efniviðinn áfram. Þar má m.a. nefna tónleika undir yfirskriftinni Eftirstríðsárin í Hljómahöll og svo hlaðvarp sem ber sama nafn sem kom út í fyrra og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Í ár var komið að því að miðla þessari vitneskju og áhuga til ungmenna á Suðurnesjum, sem kom í ljós að sum hver þekktu ekki þennan anga af sögu Keflavíkur. Þó nokkur rannsóknarvinna fór fram í tengslum við verkefnið og að sögn Jönu Maríu fengu flestöll í leikhópnum sögur frá eldri ættingjum sem tengdust Vellinum og lífinu og spunnust út frá því líflegar samræður. „Mér þykir mikilvægt að unga kynslóðin vinni með efniviðinn og miðli því með sínum augum — á Suðurnesjum og ég viðurkenni fúslega að við erum lukkunnar pamfílar að sviðsetja

verkið í Andrews Theatre, þar sem sagan gerðist í raun og veru“.

Hvaðan kemur titillinn Landamærabörn? „Magnús Kjartansson gaf mér hugmyndina að titlinum, en hann er einn fjölmargra heimildarmanna minna um þessa tíma í bænum. Að hans sögn voru þau fyrsta kynslóðin sem ólst upp við landamæri. Hinum megin við girðinguna var Ameríka og Ameríka var handan við girðinguna og þau ótvírætt landamærabörn þessarar þjóðar.“ „Í titlinum felst heilmikil saga og ekki síst spurningar. Hver eru landamærabörn þjóðar sem á sér

engin áþreifanleg landamæri? Hvert fóru þau og snéru þau nokkurn tíma aftur? Það var æskan í Keflavík sem upplifði Varnarliðið beint í æð og leitast leiksýningin við að spegla þessa atburði með augum ungmenna nútímans sem og þeirra sem lifðu þessa tíma.“ Leiksýningin Landamærabörnin er gerð með stuðningi Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja og Reykjanesbæjar og verður sýnd miðvikudaginn 2. september kl. 19. Aðgangur er ókeypis en sætaframboð er takmarkað. Athugið að aðeins ein sýning er laus, örfá sæti laus. Miðapantanir á piparmynta@ gmail.com


50 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Árgangagangan mætir á Hafnargötuna Árgangagangan, einn ástsælasti hápunktur Ljósanætur, verður á sínum stað laugardaginn 5. september. Í ár færist mætingarstaður hvers árgangs niður um 20 húsnúmer við Hafnargötu (til dæmis mæta þeir sem fæddir eru 1950 við Hafnargötu 30), en árgangur 2001 og yngri hittist við 88-húsið. Gangan hefst klukkan 13:30 og endar við aðalsviðið þar sem Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri flytur íbúum kveðju sína, auk þess sem listflugmaðurinn Snorri Bjarnvin Jónsson sýnir listir sínar á lofti yfir svæðinu.

Óvissa um skólaframkvæmdir Beðið ákvörðunar um áframhald í Myllubakkaskóla og Holtaskóla Áætlun um gagngerðar endurbætur á Myllubakkaskóla og Holtaskóla var til umræðu undir lið umhverfis- og framkvæmdaráðs á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Verktakar hafa lokið við samþykkta verkhluta ársins 2026 mánuði á undan áætlun og liggur nú fyrir ósk um að flýta verkþáttum sem áttu að fara fram á árinu 2027. Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, hafnaði ásökunum um að framkvæmdirnar hefðu verið vanfjármagnaðar af fyrri meirihluta og sagði að forgangsraðað hefði verið af varkárni út frá því fjármagni sem bærinn réði við hverju sinni. „Í fjárfestingaráætlun þessa árs voru 1.850 milljónir og það var lögð lykiláhersla á þrjú verkefni sem

þurfti að teygja. Við framkvæmum miðað við það fjármagn sem við höfum á árinu,“ sagði Guðný Birna. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, bætti við að minnihlutinn styddi að flýta framkvæmdunum ef reksturinn bæri það: „Komi það í ljós á þessum tímapunkti að rekstur sveitarfélagsins beri aukið fjármagn í uppbygg-

Hipsumhaps heldur heimatónleika í Höfnum

MEÐ LJÓS Í HJARTA Á LJÓSANÓTT Kæru íbúar Reykjanesbæjar og gestir. Ljósanótt í Reykjanesbæ árið 2026 fer fram dagana 3.–6. september nk. Við hvetjum alla til að skemmta sér fallega og fara varlega. Mikilvægt er að sýna hvert öðru virðingu og umhyggju – þannig stuðlum við að því að allir geti átt góða og örugga stund saman. Munið að ef eitthvað kemur upp sem ekki á að gerast er alltaf hægt að hringja í 112.

ingarverkefni umræddra grunnskóla, munum við að sjálfsögðu samþykkja það.“ Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði að gagnrýni meirihlutans lyti ekki að skólastarfinu sjálfu heldur vinnubrögðum við áætlanagerð. „Málið snýst einfaldlega um það að það er ekki hagkvæmt í neinni framkvæmd að vita ekki í upphafi, áður en lagt er af stað, hver heildarkostnaðurinn er og hvernig framkvæmdin er fjármögnuð til enda. Þar er peningunum að blæða og það skapar óvissu,“ sagði Vilhjálmur.

Þar er aðstoð ávallt innan seilingar. Mikill viðbúnaður verður á hátíðinni, meðal annars hjá lögreglu, Flotanum – flakkandi félagsmiðstöð – og barnavernd Reykjanesbæjar. Við legg jum öll okkar af mörkum til að skapa öruggt og hlýlegt samfélag. Verum með ljós í hjarta – og látum gleðina, öryggið og virðinguna leiða okkur.

Hljómsveitin Hipsumhaps býður til heimafundar í Höfnum á Ljósanótt þar sem öll þeirra vinsælustu lög verða flutt í notalegu og einstöku umhverfi. Viðburðurinn fer fram í garðinum að Djúpavogi 1 í Höfnum föstudaginn 4. september. Garðurinn verður opnaður klukkan 19:00, tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og er áætlað að þeim ljúki um 21:30. Miðasala á tónleikana fer fram á tix.is.

HEILRÆÐI SIGURBJÖRNS Bíltúralögin í ár: „Ísland er land þitt“ og „Vertu þú sjálfur“. Í Elvisdeildinni eru live-útgáfur af „Suspicious Minds“ líka alltaf frábærar – ALLTAF! Fullkominn frídagur í blíðu: „Hvalfjörður, Borgarfjörður, Skorradalur, Meðalfellsvatn, Húsafell og það allt saman.“ Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Ef ég er að vinna þá vinn ég bara. Annars geri ég ósköp lítið og hangi stundum jafnvel bara inni, sem er auðvitað ekki til eftirbreytni. En sund, rúntur og labb koma oft og þá er gaman.“ Faldi gimsteinninn: „Leiðin á milli Sandgerðis og Hafnavegar, sérstaklega fyrri hlutinn. Stafnesið er mjög vanmetin paradís og þessi leið er einstaklega skemmtileg að keyra.“ Í sólbaðinu/útilegunni: „Það er svo mikið til af góðu hlaðvarpi að maður veit ekki hvar á að byrja. Bækur eru farnar að rykfalla heima hjá mér, því miður.“ Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Njóta þess að það er allavega ekki hálka! Hálkuhræðslan ágerist hjá mér á hverju ári. Annars er best að njóta samveru við vini og vandamenn, hvort sem það er innan- eða utandyra. Þegar félagsskapurinn er góður skiptir blessað veðrið svo miklu minna máli.“

„Ég tók með mér vídeóspólu í útileguna“ Sigurbjörn Arnar Jónsson hefur unnið mikið á sumrin síðustu ár, en hann starfaði lengi við rútuakstur og minnist þess með hlýju að keyra um bjartar og vinalegar sumarnætur. Hann viðurkennir fúslega að hann eigi ekkert grill og mæti frekar með frosnar búðarpizzur til leiks, enda hefur hann ekki gist í tjaldi síðan árið 1994 þegar vinir hans kunnu ekki að meta húmorinn hans.

Munaðarnes, ekkert grillgen og sérfræðingur í búðarpizzum Þegar Sigurbjörn rifjar upp uppáhalds sumarminningarnar úr æsku standa tíðar ferðir í sumarbústaði í Munaðarnesi upp úr. Á síðari árum fannst honum hins vegar rútuaksturinn hafa sinn sérstaka sjarma. „Á mínum rútuferli var akstur um bjarta nótt án umferðar alltaf dásamlegur og vinalegur,“ segir hann. Margir tengja íslenska sumarið við reykinn úr grillinu, en Sigurbjörn fer sínar eigin leiðir þar.

„Ég hef aldrei átt grill, en pylsur og hamborgarar eru klassískir réttir. Það vantar einfaldlega grillgenið í mig en ég er hins vegar sérfræðingur í að afþýða frosnar búðarpizzur,“ segir Sigur-

björn og glottir. Ef hann fær hins vegar grillmat annars staðar þarf ekki að flækja hlutina: „Bakaðar kartöflur og piparsósa, það þarf ekkert meira.“

Versta útilegusagan: Tjöld eru híbýli þess í neðra Sigurbjörn er enginn mikill áhugamaður um útilegulífið og segist ekki hafa gist í tjaldi í rúm þrjátíu ár, eða síðan árið 1994 þegar hann fór í ferðalag með tveimur vinum sínum. „Ég hef ekki farið í útilegu síðan ég var nítján ára, enda eru tjöld hýbýli þess í neðra,“ segir hann léttur. „Í þessari síðustu útilegu minni tók ég með mér eina vídeóspólu og spurði félagana í tjaldinu hvort þeir vildu ekki kíkja á eina mynd.

Ég vippaði spólunni fram en það fékk vægast sagt lítinn hlátur. Ég hef reyndar ekki ennþá fyrirgefið

þeim þetta algjöra áhugaleysi á aulahúmor mínum!“


TIL HAMINGJU KALKA MEÐ GLÆSILEGAN NÝJAN eACTROS 400. Það er okkur sönn ánægja að fylgja ykkur á þessari vegferð.

LANDFARI / 593 7500 / Landfari.is

UMBOÐSAÐILI MERCEDES-BENZ VÖRU- OG HÓPFERÐABÍLA


52 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Tónlist og sjónræn náttúruupplifun Verkið Magical Sky Iceland / Töfrandi himinn Íslands verður sýnt á Ljósanótt, en um er að ræða áhrifamikið tónverk og kvikmynd sem dregur áhorfendur inn í einstaka veröld íslenskrar náttúru, sólmyrkva og norðurljósa. Samspil flæðandi hljóma, strengja og stórbrotinna myndskeiða af dimmum vetrarnóttum og víðáttumiklum himni skapar hugleiðslukennda og dýpstu upplifun þar sem áhorfendur skynja tengingu milli lands og innri tilfinninga. Sýningin fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar í Hljómahöll og er opin föstudaginn 4. september og laugardaginn 5. september, báða daga frá klukkan 15:00 til 17:30.

Handverk hjá Sjálfsbjörg á Suðurnesjum

Sjálfsbjörg á Suðurnesjum býður gestum og gangandi til opins húss á Ljósanótt þar sem starfsemi félagsins verður kynnt. Gestir geta kynnt sér fjölbreytt handverk sem unnið er innan félagsins, svo sem postulínsmálun, kortagerð, silkimálun og margt fleira. Sjálfsbjargarfólk hlakkar til að taka á móti gestum og verður heitt á könnunni. Viðburðurinn er öllum opinn og fer fram fimmtudaginn 3. september á Iðavöllum 9 á milli klukkan 13:00 og 16:00.

Minningar á vf.is

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,

ELÍN ÞÓRÐARDÓTTIR

Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ lést á Hrafnistu Nesvöllum, föstudaginn 14. ágúst.

Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 31. ágúst klukkan 11. Sigurlín Högnadóttir Þórður Karlsson Guðbjörg M. Sveinsdóttir Oddgeir E. Karlsson Demetris Hadjipanayis Inga Karlsdóttir Óli J. Færseth Jóhanna M. Karlsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.

Elskulegi faðir minn, afi, langafi og fyrrverandi eiginmaður,

EIRÍKUR ÁRNI SIGTRYGGSSON tónskáld, myndlistamaður og kennari,

lést miðvikudaginn 12. ágúst á Hrafnistu Nesvöllum. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.

Eyrún Eiríksdóttir Stefnir Húni Kristjánsson Sigrún Þóra Sveinsdóttir Brynhildur Vestmann Elíasdóttir Bryndís Bianca Michel og barnabarnabörn

Hilmir Ásberg gefur gestum ís frá Gaeta í samstarfi Arolé og Gaeta á Menningarnótt.

Ilmur og list mætast í Keflavík

Íslenska ilmmerkið Arolé heldur sýningu ásamt listakonunni Elísabetu Ásberg á Park Inn by Radisson Keflavík við Hafnargötu 57, þar sem ilmur og myndlist mætast í sameiginlegri upplifun. Arolé er í eigu og uppbyggingu þeirra Hilmis Ásbergs Björnssonar, Elíasar Uche Elíassonar og Hilmars Goða Hilmarssonar. Þeir hafa unnið saman að þróun merkisins, ilmanna og heildarhugmyndarinnar á bak við Arolé. Fyrir Hilmi hefur sérstaka þýðingu að kynna Arolé í Keflavík. Hann ber Ásberg-nafnið, sem á sér sterkar rætur á Suðurnesjum, og verður sýningin haldin ásamt frænku hans, listakonunni Elísabetu Ásberg. „Það er mjög gaman fyrir mig að fá að koma með Arolé til Keflavíkur. Ég er stoltur af tengingunni minni hingað og því að bera Ásberg-nafnið. Að fá svo að gera þetta með Elísabetu og tengja saman hennar list og það sem við þrír höfum verið að byggja upp með Arolé gerir sýninguna sérstaklega persónulega,“ segir Hilmir Ásberg Björnsson. Arolé hélt sinn fyrsta viðburð á Menningarnótt í Reykjavík, þar sem gestum gafst tækifæri til að kynnast merkinu, prófa ilmina og

kaupa þá í forsölu. Viðtökurnar fóru fram úr björtustu væntingum þeirra félaga og margir gestir tryggðu sér ilmina strax í forsölu. „Við vissum ekki alveg hverju við áttum von á fyrir fyrsta viðburðinn okkar, en viðtökurnar fóru langt fram úr okkar björtustu væntingum. Það var ótrúlega gaman að sjá áhugann, fá fólk til að prófa ilmina og sjá hversu margir vildu tryggja sér þá í forsölu. Það gaf okkur enn meiri trú á því sem við erum að byggja upp með Arolé,“ segja Elías, Hilmar og Hilmir. Arolé er íslenskt ilmmerki sem vinnur með ilm sem hluta af daglegum stíl og upplifun. Ilmir merkisins eru framleiddir í Grasse í Suður-Frakklandi, sem hefur lengi verið þekkt sem ein helsta miðstöð ilmgerðar í heiminum. Merkið hefur þróað þrjá einkennisilmi í formi roll-on ilmolíu sem borin er beint á húð. Olíurnar eru húðvænar og koma í ferðavænum umbúðum sem auðvelt er að hafa með sér. Á sýningunni verður hægt að kynnast öllum þremur ilmunum og verða olíurnar jafnframt í forsölu þar. Arolé hefur einnig þróað reykelsi sem sækja nótur úr hverjum ilmi fyrir sig. Þannig er ilmheimur hverrar lyktar færður yfir í annað form og verður hægt að upplifa

bæði ilmolíurnar og reykelsin á sýningunni. Reykelsin verða einnig til sölu þar. Á sýningunni verður hægt að upplifa ilmi Arolé samhliða verkum Elísabetar. Hugmyndin er að skapa rými þar sem ólík skynfæri vinna saman og þar sem ilmur og myndlist geta kallað fram stemningu, tilfinningar og minningar. „Okkur langaði að gera eitthvað sem væri meira en hefðbundin vörukynning. Ilmur getur haft mjög sterk áhrif á tilfinningar og minningar og okkur fannst því spennandi að setja hann í samtal við myndlist. Með sýningunni viljum við búa til upplifun þar sem fólk getur bæði skoðað verkin og kynnst ilmheimi Arolé á sama tíma,“ seg ja Elías, Hilmar og Hilmir. Elísabet Ásberg hefur um árabil unnið að fjölbreyttri myndlist og skúlptúrgerð og sýnt verk sín bæði hér heima og erlendis. Á sýningunni í Keflavík mætast því tveir ólíkir skapandi heimar – myndlist Elísabetar Ásberg og ilmheimur Arolé – í sameiginlegu rými. Sýningin verður haldin á Park Inn by Radisson Keflavík, Hafnargötu 57 í Keflavík.

Hafna erindi Sólborgar vegna Rockville Svæðið ekki ætlað gististarfsemi og gæta verður jafnræðis

Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,

ÁSTRÍÐUR JÓNSDÓTTIR lést á Hrafnistu, Nesvöllum laugardaginn 15. ágúst. Útför hennar fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 1. september kl. 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. G. Snorri Guðmundsson Ómar Jón Árnason Krystyna Katarzyna Árnason Sigurjón Már Guðmundsson Magnea Vattnes Hallgrímsdóttir Ragnhildur Ásta Guðmundsd. Sveinn Pálmi Hólmgeirsson Hilmar Þór Guðmundsson Þórunn Jóna Þórarinsdóttir Pálmar Örn Guðmundsson Ellen Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samhljóða hafnað erindi Sólborgar ehf. um milligöngu um afnot af athafnasvæðinu í Rockville ásamt vilyrði fyrir breyttu deiliskipulagi. Bæjarráð vísar til gildandi aðalskipulags, kostnaðar og þess að gæta verði jafnræðis í opinberu útboði. Málið var áður til umfjöllunar á 93. fundi bæjarstjórnar þann 15. júlí síðastliðinn þar sem því var vísað samhljóða til afgreiðslu í bæjarráði.

Íbúðir og gististaðir ekki heimilir Í bókun bæjarráðs kemur fram að Rockville-svæðið hafi skýrt afmarkað hlutverk samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Þar er gert ráð fyrir landfrekri, þrifalegri og umhverfisvænni starfsemi með óverulega mengunarhættu vegna nálægðar við vatnsverndarsvæði. Bæjarráð bendir á að íbúðir, hótel og gististaðir séu ekki heimil á svæðinu. Erindið feli því í sér

breytingu á aðalskipulagi en ekki einungis deiliskipulagi, sem kallaði á formlegt ferli og óráðstafaðan kostnað fyrir sveitarfélagið.

Gæta verður jafnræðis í útboðsferli Þá vekur bæjarráð athygli á því að verkefnið sé hluti af opinberu útboði þar sem umsækjandi er á meðal þátttakenda. Af þeim sökum telur sveitarfélagið sér ekki fært að veita einstökum þátttakanda

jákvætt vilyrði umfram aðra eða hafa milligöngu í málinu. „Jafnræðis og gagnsæis verður að gæta gagnvart öllum þeim sem koma að útboðsferlinu,“ segir í bókun ráðsins. Þá telji sveitarfélagið það nokkrum vandkvæðum bundið að ganga í milligöngu varðandi leigusamning um landsvæðið. Afgreiðsla bæjarráðs var skýr og var erindi Sólborgar ehf. hafnað samhljóða.


„Ég vinn mín bestu verk í skammdeginu“

Velkomin í vöfflukaffi á Ljósanótt Við bjóðum þér í vöfflukaffi á þjónustuskrifstofu VÍS, Hafnargötu 57, laugardaginn 5. september kl. 13–15. Kíktu í vöfflur og nældu þér í endurskinsmerki fyrir veturinn í leiðinni.


54 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

Gott slútt á sumri og gefur tóninn inn í haustið og rútínuna Atli Geir Júlíusson er einn af fáum Íslendingum sem hafa ekki farið til Tenerife en hann er á leiðinni Atli Geir Júlíusson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurnesja, varði sumarfríinu í faðmi fjölskyldunnar. Atli Geir er Njarðvíkingur en hefur búið lengst af í Grindavík og er einn af „brottfluttum“ íbúum Grindavíkur eftir goslætin þar við bæinn. Hvernig varðir þú sumarfríinu? Ferðalög erlendis og góðar helgar í búðstaðnum okkar á Flúðum. Hefði reyndar viljað eyða meiri og betri tíma „heima“ í Grindavík en það bíður vonandi betri tíma. Ég notaði líka tímann til að hlaupa þar sem ég hljóp hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu og stefni á að taka þátt í Grindavík Ultra og fleiri hlaupum núna í lok sumars og í haust. Hvað stóð upp úr? Ferð með fjölskyldunni til Króatíu stóð upp úr, frábær ferð í alla staði. Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Tónleikar Kaleo á Þingvöllum, en þangað fór ég með konunni og mömmu og pabba. Veðrið var eins og best verður á kosið, frábær tónlist og góður félagsskapur. Þá kom sólmyrkvinn mér skemmtilega á óvart, magnað náttúrufyrirbæri.

Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands? Stykkishólmur, fer alls ekki nógu oft þangað en Hólmurinn heillar. Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur? Við hjónakornin ætlum til Tenerife í eina viku en ég er líklega einn af fáum Íslendingum sem hafa ekki komið til eyjunnar. Svo mun maður fylgja börnunum eftir í því sem þau taka sér fyrir hendur, syninum í körfunni og svo dótturinni í leikhúsinu en hún ætlar að stíga á stóra svið Þjóðleikhússins og fara með hlutverk í jólasýningu Þjóðleikhússins, „Hetjur hafsins“, sem verður frumsýnd á annan í jólum. Hvernig finnst þér Ljósanótt? Mér finnst Ljósanótt stórskemmtileg bæjarhátíð, ein af þessum stóru og hefur sinn sjarma. Tímasetningin á henni finnst mér góð því hún svona slúttar sumrinu og gefur tóninn inn í haustið og rútínuna.

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Ég stefni á að mæta á gospeltónleika hjá Kór Njarðvíkurkirkju á miðvikudeginum og í kjötsúpuveislu Skólamatar á föstudagskvöld. Svo tekur maður árlega röltið niður Hafnargötuna til að kíkja í verslanir og skoða þær sýningar sem eru í boði. Ég hef líka undanfarin ár mætt í árgangagönguna sem mér finnst einstaklega skemmtileg hefð og svo er það að sjálfsögðu hápunkturinn að njóta tónleikanna og flugeldasýningarinnar á laugardeginum með

fjölskyldunni. Mér finnst líka líklegt að ég eigi eftir að kaupa töluvert af miðum í tívolítæki fyrir dótturina. Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? Erfitt að velja einhverja eina, en það sem stendur alltaf upp úr er samvera með fjölskyldu og vinum. Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf ? Matur hjá mömmu og pabba, yfirleitt súpa.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 55

Enn vinna Grindavíkurþættirnir til verðlauna Íþróttaheimildaþættirnir Grindavík unnu stærstu verðlaunin á Summer League Film Festival, einni virtustu kvikmyndahátíð heims sem helguð er íþróttum. Hátíðin fór fram dagana 16.–18. júlí í Las Vegas samhliða NBA Summer League. Verðlaunin voru fyrir „Best Documentary Feature“ eða Besta heimildarmyndin. Þættirnir hafa núna í sumar unnið til tveggja verðlauna í Bandaríkjunum á stuttum tíma en þáttaröðin hefur unnið til sextán verðlauna, þar af fjórtán erlendis. Keflvíkingurinn Garðar Örn Arnarson er framleiðandi og leikstjóri. Sigurður Már Davíðsson er kvikmyndatökumaður og einnig framleiðandi. Þeir hafa framleitt nokkrar seríur undanfarin ár. Hátíðin í ár var haldin í þriðja sinn og er samstarfsverkefni NBA, framleiðslufyrirtækis fyrrverandi NBA-meistarans Kevin Garnett, framleiðslufyrirtækis leikarans Mark Wahlberg og kvikmyndaframleiðandans Deon Taylor. Markmið hennar er að draga fram áhrif íþrótta á samfélagið og heiðra framúrskarandi heimildaog kvikmyndagerð. „Að komast í opinbert val hátíðarinnar telst því mikill heiður

og að vinna eiginlega enn ótrúlegara, enda er samkeppnin gríðarlega sterk. Meðal myndanna sem valdar voru í ár eru þrjú verk þar sem Michael Jordan er í hlutverki viðmælanda. Þá er Charles Barkley framkvæmdaframleiðandi einnar myndarinnar og leikstjóri annarrar er jafnframt einn af framleiðendum hinnar margverðlaunuðu Netflix-seríu The Last Dance um Jordan. Heimildarmynd Amazon Prime um Lakers goðsögnina Jerry West var enn ein myndin í hópnum. Samkeppnin í flokknum var því gríðarleg.

Garðar Örn, Ólafur Ólafs, ein aðal söguhetjan í seríunni og Sigurður Már, brosmildir á sviðinu í Las Vegas og að neðan í viðtali.

Ljósanæturgospel í Ytri-Njarðvíkurkirkju Kór Njarðvíkurkirkju heldur gospeltónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 2. september kl. 20:00 í tilefni Ljósanætur. Þetta er þriðja árið í röð sem kórinn býður upp á Ljósanæturgospel og er aðgangur ókeypis og öll velkomin. Kórinn, sem er að sigla inn í fjórða starfsárið, hefur stækkað hratt á skömmum tíma og vakið mikla athygli á síðustu misserum. Fyrir þremur árum mættu 8 manns á fyrstu kóræfinguna en nú telur hópurinn yfir 40 söngvara og ásamt því að taka þátt í helgihaldi í Njarðvíkursókn syngur kórinn einnig í útförum, tónleikum og ýmsum viðburðum yfir árið. Á síðasta starfsári var gríðarlega mikið lagt í að byggja upp starfið. Kórinn hefur fjárfest í búnaði, unnið að skýrari umgjörð utan um

starfið og nýverið tekið í notkun nýtt merki (logo) sem endurspeglar betur þann kór sem hefur orðið til á síðustu árum. Síðastliðið vor hélt kórinn vortónleika með yfirskriftinni „Leyfðu ljósi að streyma inn“ þar sem hann kom fram ásamt hljómsveit og flutti blöndu af gospel, poppi, kirkjutónlist og íslenskum lögum. Tónleikarnir voru vel sóttir og mörgum eftirminnilegir, ekki síst vegna þess að þar sást vel hvað kórinn hefur þróast mikið. Þetta er ekki lengur bara hópur sem mætir og syngur í messu, heldur kór sem hefur fundið sinn eigin hljóm og hefur kjark til að flytja ýmis konar tónlist og stíga út fyrir þægindarammann. „Við erum ótrúlega stolt af því hvað kórinn hefur vaxið og hvernig starfið hefur þróast. Þetta er ekki

lengur bara hópur sem kemur saman og syngur nokkur lög. Kórinn er gríðarlega samheldinn og það er mikil orka í hópnum, mikill metnaður. Við erum fyrst og fremst fólk sem hefur gaman af því að syngja saman og gefa af sér,“ segir stjórn kórsins.

Kórinn hefur skapað sér sérstöðu í Reykjanesbæ með flutningi á gospel og rytmískri kirkjutónlist og á Ljósanæturgospel verður sú hlið kórsins í forgrunni. Á efnisskránni verða lög í gospelanda og trúarleg tónlist í kraftmiklum útsetningum.

Markmiðið er einfalt: að fylla kirkjuna af góðri tónlist, sönggleði og þeirri orku sem hefur einkennt kórinn á síðustu misserum. Ljósanæturgospel fer fram í YtriNjarðvíkurkirkju miðvikudaginn 2. september kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis.


56 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

G óða skemmtun á Ljósanótt

„Bestu gimsteinana ljóstra ég ekki upp!“ Kristján Jóhannsson notar sumarið óspart í að lifa og njóta, enda er hann öllu vanur þegar kemur að íslenskri náttúru. Sem leiðsögumaður hefur hann rekist á marga falda gimsteina um allt land, en þeim ætlar hann að halda út af fyrir sig. Uppáhaldsstaðurinn hans á góðviðrisdegi er hins vegar enginn leyndardómur – það er Þórsmörk og hann fer þangað eins oft og hann mögulega getur.

Gítarspil í Þórsmörk og grillaðir Krillaborgarar Þegar Kristján rifjar upp uppáhalds sumarminningarnar standa árlegar ferðir í Þórsmörk upp úr. „Í mörg ár var það fastur liður hjá okkur að fara með góðum hópi í Þórsmörk aðra helgi í ágúst. Það var mikið ævintýri, sérstaklega fyrir börnin þegar þau voru ung að árum. Gönguferðir, grillaðir sykurpúðar og gítarspil,“ segir hann. Kristján heldur matseldinni einfaldri þegar alvöru sumarveður skellur á. „Það

fer eftir stemmningu og hvað margir eru í mat – kjúlli eða grísahnakki. Svo koma grillaðir Krillaborgarar alltaf sterkir inn,“ segir Kristján og bætir við að meðlætið þurfi ekki að flækja: „Bakaðar kartöflur, heill maís, gott salat og köld sósa.“

sérstaklega eftirminnileg – þó af allt öðrum ástæðum. „Það var ansi eftirminnilegt þegar allir stólarnir gleymdust á planinu heima. Þá var bara setið á berri jörðinni og matast alla helgina!“ segir hann léttur í bragði. En það stoppar hann ekki í að njóta útilegulífsins: „Ég tek alltaf með mér bók í útileguna, svo er bara spurning hvað maður les mikið.“

Versta útilegusagan: Stólarnir gleymdust á planinu heima Sumar útilegur Kristjáns hafa bókstaflega drukknað í rigningu, en ein ferð er honum

HEILRÆÐI KRISTJÁNS

REYKJANESBÆ

Bíltúralögin í ár: „Meðalmannsins ég með Hipsumhapps er eyrnakrækja þessa sumars. Svo kemur Jónas Sig með Dansaðu alltaf í gott skap.“ Fullkominn frídagur í blíðu: „Þórsmörk! Ég er búinn að fara einu sinni í sumar og á eftir að fara oftar.“ Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Sest út í garð og fer kannski í sund.“ Faldi gimsteinninn: „Hef uppgötvað nokkra slíka í ferðum mínum sem leiðsögumaður... en þeir væru ekki faldir ef maður færi að ljóstra þeim upp!“ Sumarhefðir: „Engar fastar reglur – bara lifa og njóta!“ Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Við Íslendingar erum snillingar í að elta veðrið. Höldum áfram að massa það.“

Suðurnesjafréttir lest þú á vef Víkurfrétta


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 57

Tengdu komið á fulla ferð í gamla símstöðvarhúsinu Tengdu er nútíma fjarskiptafyrirtæki, byggt á grunni Kapalvæðingar Fjarskiptafélagið Tengdu hefur undanfarið ár verið að festa sig í sessi í Reykjanesbæ. Félagið er til húsa í gömlu símstöðinni við Hafnargötu 40 þar sem nú er unnið að því að hressa verulega upp á húsið. Á Ljósanótt verður mikið um að vera hjá Tengdu – og þegar dimma tekur á laugardagskvöldið hyggjast þau koma bæjarbúum á óvart. Fyrir ári sögðum við frá því að Kapalvæðing væri að taka upp nafnið Tengdu og flytja starfsemina í gamla símstöðvarhúsið. Síðan þá hefur ýmislegt gerst. Verslun Tengdu er komin í fullan gang og undir sama þaki er nú byggð upp fjölbreytt fjarskiptaþjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki. „Við höfum farið frekar rólega af stað með nýja nafnið og leyft starfseminni að vaxa inn í það. Nú finnst okkur hins vegar vera kominn tími til að láta aðeins meira fyrir okkur fara,“ segir Brjánn Jónsson hjá Tengdu en með honum í rekstrinum eru þeir Bjarki Elíasson og Börkur Birgisson sem hafa verið í áratugi í Kapalvæðingu. Hvað hefur helst breyst frá því þið fluttuð hingað fyrir ári? „Kannski fyrst og fremst að nú er þetta allt orðið mjög áþreifanlegt. Tengdu er ekki bara nýtt nafn á Kapalvæðingu heldur erum við að byggja hér upp alhliða fjarskiptafélag og verslun. Við getum þjónustað heimili og fyrirtæki með fjarskipti og á sama tíma boðið síma, tölvur, sjónvörp, netbúnað og ýmis raftæki í versluninni. Okkur finnst sérstaklega mikilvægt að fólk hér á Suðurnesjum geti komið inn, hitt okkur og fengið persónulega þjónustu. Það

er ákveðin sérstaða í dag að geta einfaldlega gengið inn og rætt við fólkið sem sér um þjónustuna.“ Svo gamla símstöðin er í raun aftur orðin símstöð? „Já, það er eiginlega skemmtilegasti hlutinn við þetta,“ segir Brjánn og hlær. „Það er ákveðinn hringur sem lokast þegar alhliða fjarskiptafélag er aftur komið með starfsemi í gamla símstöðvarhúsið. Við erum líka farin að flikka talsvert upp á húsið. Það hefur mikla sögu og stendur á áberandi stað í

bænum, þannig að okkur langar að gera því svolítið hátt undir höfði.“ Og framkvæmdirnar munu ekki fara fram hjá gestum Ljósanætur. „Það verður eitt atriði á laugardagskvöldinu sem við ætlum ekki að segja frá fyrirfram. Fólk verður bara að fylgjast með þegar dimma tekur,“ segir Brjánn. Það verður greinilega meira en bara opin verslun hjá ykkur á Ljósanótt? „Já, við ætlum að gera svolítið úr þessu. Við verðum með DJ og danstjald, matartjald þar sem hægt verður að kaupa sér eitthvað gott, andlitsmálningu fyrir krakkana og gefum börnum ljósastafi á meðan birgðir endast.

Brjánn Jónsson í verslun Tengdu. Svo verðum við með lukkuleik sem okkur finnst sérstaklega skemmtilegur – þar er 100% vinningshlutfall á meðan vinningar endast. Það eiga sem sagt allir sem taka þátt að fá eitthvað.“ Markmiðið, segir Brjánn, sé ekki síður að fólk komi einfaldlega inn og kynni sér hvað sé að gerast í húsinu. „Það vita enn ekki allir hversu mikið er í raun komið hér undir einn hatt. Fólk kannast kannski við Kapalvæðingu, einhverjir þekkja

Gamla símstöðvarhúsið fékk góða andlitslyfingu.

okkur fyrir net- og fjarskiptavinnuna og aðrir hafa komið í verslunina. Nú viljum við tengja þetta allt betur saman undir Tengdu.“ Hvað er svo næst hjá Tengdu? „Við ætlum áfram að stækka þjónustuna skref fyrir skref. Við erum með net-, síma- og farsímaþjónustu og mikla reynslu af fjarskiptum fyrir fyrirtæki, auk verslunarinnar. Svo er sjónvarpsstöðin Tengdu TV hluti af þessu og þar eru spennandi breytingar fram undan þegar hún færist í auknum mæli yfir á netið. En fyrst og fremst viljum við vera fjarskiptafyrirtæki sem fólk hér á svæðinu þekkir og veit að það getur leitað til. Við erum hér, dyrnar eru opnar og það er eiginlega kominn tími til að tengja,“ segir Brjánn. Tengdu verður með opið hús og dagskrá í Hafnargötu 40 á Ljósanótt. Þar verður meðal annars tónlist, danstjald, matur til sölu, andlitsmálning, ljósastafir fyrir börnin og lukkuleikur þar sem allir vinna á meðan vinningar endast. Og svo er bara að fylgjast með gamla símstöðvarhúsinu þegar dimma tekur á laugardagskvöldið.


58 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Hámundur Örn Helgason, framkvæmdastjóri UMFN og fjölskylda fóru um landið í sumar. Aðalvík í uppáhaldi.

Missir ekki af kjötsúpunni og G óða flugeldasýningu Ljósanætur n u t m m e sk

á Ljósanótt Hjólbarðaverkstæði Suðurnesja

Hámundur Örn Helgason, framkvæmdastjóri UMFN er eins og starfstitillinn gefur til kynna mikill Njarðvíkingur og fylgir sínum liðum í gegnum súrt og sætt. Það verður stórleikur hjá karlaliði félagsins á laugardegi á Ljósanótt þar sem mikið er í húfi. Kappinn fór með fjölskyldu um landið í sumar og á Ljósanótt ráða börnin í fjölskyldunni ferðinnHvernig varðir þú sumarfríinu? Við ferðuðumst innanlands í sumar og vorum mest fyrir vestan, meðal annars á Ísafirði. Við fórum einnig í fimm daga í fjölskylduhús á Látrum í Aðalvík. Þá fórum við norður á Blönduós á vel heppnaða bæjarhátíð, Húnavöku. Annars nýttum við bara þá sólardaga sem gáfust hér fyrir sunnan. Hvað stóð upp úr? Vikan í Aðalvík stóð klárlega upp úr. Við reynum að fara þangað á hverju ári og hún stendur alltaf fyrir sínu. Það er svo gott að kúpla sig alveg frá öllum tækjum og áreiti. Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? Það var líklega sólardagurinn 15. ágúst, þegar við ákváðum að skella okkur með stelpurnar okkar í rúnt um Suðurlandið. Við fórum í fjölskyldugarðinn Slakka og svo í Fontana á Laugarvatni. Fontana er nýuppgert baðlón sem er virkilega vel heppnað og kom skemmtilega á óvart.

Áttu þér uppáhalds stað til að heimsækja innanlands? Já, það er Aðalvík, ekki spurning. Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur? Það er alltaf nóg að gera. Yngri stelpan er að byrja í leikskóla og allt að detta í ágætis rútínu. Ætli ég finni mér ekki eitthvað skemmtilegt verkefni heima fyrir ef gefst einhver tími til þess utan vinnu.

Hvernig finnst þér Ljósanótt? Mér finnst Ljósanótt frábær. En eins og með allar þessar bæjarhátíðir þá skiptir veðrið allt of miklu máli. Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt? Það er stórleikur á JBÓ-vellinum klukkan tvö á laugardeginum sem ég hlakka mest til. Ég hvet alla Njarðvíkinga til að mæta í þá veislu! Svo eru það auðvitað Kjötsúpan og flugeldasýningin. Annað er kannski óákveðið, ég leyfi börnunum að ráða ferðinni. Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt? Ég á reyndar mjög góðar minningar frá Ljósanótt 2019. Þá fórum við á frábæra útitónleika á laugardagskvöldinu og nutum óvenju glæsilegrar flugeldasýningar. Seinna um nóttina missti Anna, konan mín, vatnið og tveimur sólarhringum síðar eignuðumst við okkar fyrsta barn. Ljósanótt það árið er því ansi eftirminnileg! Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf ? Nei, ég hef nefnilega haft þetta mjög opið. Það er mikið í gangi og ekkert mál að breyta til. Það hefur þó verið fastur liður að Njarðvík spili fótboltaleik þessa helgi og af því missi ég ekki.

Veðrið lék við bæjarbúa og ungmennin blómstruðu í sumar Góður rómur var gerður að afrekum ungs fólks í Reykjanesbæ á sviði íþrótta og menningar síðustu mánuði þegar bæjarstjórn Reykjanesbæjar kom saman til fyrsta fundar eftir sumarleyfi. Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar opnaði fundinn á að óska unga fólkinu innilega til hamingju með glæsilegan árangur í sumar. Meðal þess sem forseti nefndi var: Körfubolti: Arnar Freyr Elvarsson, Davíð Breki Antonsson og Sigurður Karl Guðnason úr Keflavík unnu brons með U-16 landsliði

karla á Norðurlandamótinu. Sex stúlkur úr Keflavík og Njarðvík urðu í 2. sæti á Eurobasket með U-16 landsliðinu og þrjár stúlkur úr Njarðvík unnu silfur á Nordic Open með U-15. Dans: Keppnislið Danskompaní vann til fjölda verðlauna á Dance World Cup – samtals 9 heimsmeistaratitla, fern silfurverðlaun, fimm bronsverðlaun og fjóra Galatitla. Sund og menning: Sundfélagið ÍRB varð í 2. sæti á Íslandsmeistaramóti aldursflokka og Ungleikhúsið stóð fyrir miklu og öflugu starfi.

Isavia áformar 200 herbergja hótel við Keflavíkurflugvöll Isavia ohf. hefur kynnt áform um byggingu nýs 3–4 stjörnu hótels á flugvallarsvæðinu. Um er að ræða rúmlega 20.000 fermetra byggingu á fjórum hæðum með um 200 herbergjum, auk veitinga-, funda- og þjónustuaðstöðu í beinum tengslum við flugstöðina. Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur brugðist við með því að kalla eftir formlegu samráði áður en lengra er haldið. Þá er farið fram á að gert verði heildstætt mat á áhrifum framkvæmdarinnar á þróun áfangastaðarins, byggðaþróun og samkeppnisstöðu þeirra hótel- og þjónustufyrirtækja sem fyrir eru á Suðurnesjum.


VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 59

Að rótum: Sigurdís Gunnarsdóttir með einkasýningu á Park-Inn á Ljósanótt Listakonan Sigurdís Gunnarsdóttir heldur sína fimmtu einkasýningu, en þá fyrstu á Ljósanótt, á Park-Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Sýningin ber heitið Að rótum og hefur ríka tengingu við æskuslóðir hennar í Njarðvík. Sigurdís á sér fjölbreytta sögu en hún er Njarðvíkingur í húð og hár, fædd í heimahúsi í Grænási þar sem amma hennar, sem var ljósmóðir, tók á móti hennar. Faðir hennar starfaði hjá Loftleiðum og bjó hún því ytra á Bahamaeyjum og í Bandaríkjunum fram á unglingsár. Eftir heimkomuna flutti fjölskyldan aftur í Njarðvík þar sem hún æfði körfubolta og hún átti síðan frumburð sinn í Keflavík. „Ég bjó þar um tíma en flutti síðan

búferlum til Akureyrar og síðan til Reykjavíkur þar sem ég bý nú,“ segir Sigurdís en síðar lá leiðin til Akureyrar og loks Reykjavíkur þar sem hún býr núna. „Það er eitthvað við staðinn sem maður kemur frá sem fylgir manni alla ævi. Þótt leiðin liggi víða, leitar hugur og hjarta oft aftur að rótunum. Með þessari sýningu finnst mér eins og ég sé að snúa heim — heim til að heimsækja minningarnar og finna tengsl við staðinn og fólkið,“ segir Sigurdís. Verkin á sýningunnbi eru draumkenndar abstract landslagsmyndir málaðar á árinu 2026 með olíu á striga og við. Sigurdís er með vinnustofu við sjóinn á Eyrarbakka sem gefur hennar

endalausan innblástur, en verkin einkennast af kyrrð, hlýju og ró þar sem náttúran leikur stórt hlutverk. Sigurdís hefur stundað mikið nám síðastliðin 30 ár, meðal annars í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Kópavogs og Mosfellsbæjar, auk Central Saint Martin’s í London og kennslu og leiðsögn hjá fjölda listamanna. Verk hennar hafa verið til sýnis í Gallery Art 67 á Laugavegi, en hægt er að fylgjast með list hennar á Instagram (sigurdis_ gunnars) og Facebook (Sigurdis Art).

Fjölbreytt barnadagskrá og ókeypis skemmtun í Skrúðgarðinum Fjölskyldur geta hlakkað til líflegs dagskrárliðar á Ljósanótt þar sem boðið verður upp á fjölbreytta barnadagskrá í Skrúðgarðinum í Keflavík. Öll afþreying í garðinum verður börnum að kostnaðarlausu, svo næg tækifæri verða fyrir yngstu kynslóðina til að skemmta sér allan háskallann. Dagskráin dreifist yfir þrjá daga í Skrúðgarðinum við Tjarnargötu: Fimmtudagur 3. september: kl. 16:30–21:00 Föstudagur 4. september: kl. 11:00–17:00 Laugardagur 5. september: kl. 13:00–16:00

Sími, net, sjónvarp og verslun Útvegum öll raftæki!

Hafnargata 40, Reykkjanesbær • Sími: 422 2200 • tengdu@tengdu.is • tengdu.is


60 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Sextíu og fimm ára afmæli Ellerts Skúlasonar ehf. fagnað með stæl í Stapanum!

Eitt elsta starfandi fyrirtæki á Suðurnesjum, Ellert Skúlason ehf. fagnar á þessu ári 65 ára afmæli. Af því tilefni var boðið til fagnaðar snemm sumars í Stapanum. Boðið var upp á veitingar og glæsilega skemmtidagskrá þar sem nokkrir af okkar helstu skemmtikröftum landsins komu fram auk hljómsveitar. Fjöldi ættingja og vina auk starfsfólks fagnaði með eigendum á skemmtilegu kvöldi í Stapanum í Njarðvík en eigendurnir og stofnendur eru þaðan. „Það er gaman að ná svona áfanga og því ber að fagna sem við og gerðum. Þetta var frábært kvöld. Reksturinn gengur vel og það hafa verið næg verkefni undanfarin ár. Við eigum auðvitað langa sögu og erum hvergi nærri hætt, síður en svo, erum að bæta við,“ segir Viðar Ellertsson, framkvæmdastjóri en foreldrar hans stofnuðu fyrirtækið fyrir 65 árum. Ingó veðurguð og félagar í fjöri á sviðinu.

Viðar Ellertsson ávarpaði afmælisgesti í Stapanum.

Fyrirtækið hefur alla tíð verið vel tækjum og tólum búið. Nokkur voru fyrir utan Stapann á afmælisfagnaðinum.

Sveppi kann að skemmta fólki og hann var í stuði í Stapanum.

Njarðvíkingarnir Óli Thord, Hreiðar og Viðar á góðri stundu að fagna á heimavelli!


Til hamingju með 65 árin, Ellert Skúlason ehf. Með þökk fyrir áralangt traust og samstarf — Rúko vinnuvélar. Rúko hf er umboðs- og þjónustuaðili fyrir Liebherr, Yanmar og Putzmeister ásamt ýmsum öðrum framleiðendum.

VINNUVÉLAR LEIGA / SALA

Traust fyrirtæki velja traustar vélar 534 6050

|

ruko.is

|

ruko@ruko.is


62 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

Jordan Smylie tryggði Reynismönnum sigur með flottu skallamarki. Mínútu áður hafði Eyþór Örn Eyþórsson skorað glæsimark langt utan af velli. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

G óða skemmtun á Ljósanótt www.viney.is Hafnargata 35, 230 Reykjanesbær

sport

Reynir hafði betur gegn toppliðinu í bæjarslagnum Það var boðið upp á stórleik og mikla spennu á Bronsvellinum á fimmtudag þegar Reynir tók á móti toppliði Víðis í 20. umferð 3. deildar karla. Yfir 600 áhorfendur (631) mættu á leikinn og sáu heimamenn snúa leiknum sér í hag á tveimur leiftursnöggum mínútum í síðari hálfleik. Spennustigið var hátt fyrir leikinn þar sem Reynismenn þurftu á sigri að halda og stigin þrjú sem fengust í kvöld því gríðarlega mikilvæg. Helstu atvik leiksins voru þessi: • 19. mínúta: Ísak John Ævarsson kom gestunum í Víði yfir snemma leiks en gestirnir höfðu sótt stíft. • 75. mínúta: Eyþór Örn Eyþórsson jafnaði metin fyrir Reyni S. með óverjandi langskoti langt utan af velli. Þetta var algjörlega

óverjandi fyrir markvörð Víðismanna sem kastaði sér hátt í loft upp til að reyna að handsama knöttinn. • 76. mínúta: Aðeins mínútu síðar fullkomnaði Jordan Smylie endurkomuna með því að skora sigurmark Reynismanna. Bæði lið sóttu stíft en fleiri urðu mörkin ekki og montrétturinn er því í Sandgerði nú á Vitadögum en leikurinn var hluti af yfirgripsmikilli dagskrá bæjarhátíðarinnar. Veðrið lék við áhorfendur. Sigurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Reyni S., en liðið rífur sig upp úr 4. sætinu og stendur nú í 2. sæti deildarinnar með 39 stig. Víðismenn sitja áfram á toppnum með 42 stig þegar tveimur umferðum er ólokið. Innbyrðis saga þessara grannaliða varð enn jafnari eftir leik kvöldsins. Liðin hafa nú unnið 12 leiki hvort gegn öðru ásamt því að hafa gert 9 jafntefli.

Ísak John Ævarsson skorar mark Víðismanna í leiknum og kemur gestunum yfir í fyrri hálfleik.

Sögulegur árangur hjá Njarðvík Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur tryggt sér sæti í umspili Lengjudeildar karla um laust sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Úrslit í leik Aftureldingar og Gróttu réðu því að Njarðvíkingar geta ekki endað neðar en í 5. sæti deildarinnar í ár. Þetta er í annað sinn á eins mörgum árum sem liðið fer í umspilið. Með því að fylgja eftir besta árangri í sögu félagsins frá því í fyrra með næstbesta árangrinum í ár festir Njarðvík sig í sessi í fremstu röð næstefstu deildar. Lokasprettur deildarinnar: Tveir leikir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni — útileikur gegn Leikni í Reykjavík þann 29. ágúst og heimaleikur gegn Aftureldingu á Ljósanótt. Framhaldið: Eftir lokaleikina skýrist hvaða sæti Njarðvík tekur og hverjir verða andstæðingar þeirra í undanúrslitum umspilsins, þar sem leikið verður heima og að heiman um pláss í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Stelpurnar í bikarúrslit: Mikill stígandi er hjá félaginu, en sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur í kvennaflokki leikur einnig til úrslita í bikarkeppninni á Laugardalsvelli þann 12. september næstkomandi. Stjórn knattspyrnudeildarinnar skorar á alla Njarðvíkinga að mæta á pallana og styðja liðið í þeirri mikilvægu baráttu sem fram undan er, segir í tilkynningu.


64

ÍRISAR VALSDÓTTUR

Sól fyrir austan, stuð fyrir sunnan

27. ágúst - 6. september

Kíktu á heimasíðu Nettó fyrir frábær tilboð á hollum og góðum heilsuvörum!

Opnunartímar í Nettó Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00

Við létum veðrið ekki stoppa okkur og örkuðum niður í skrúðgarð til að berja hinn heimsfræga almyrkva augum. Regnið dundi á regnhlífinni þar sem við stóðum forvitin og biðum eftir stystu nótt lífs okkar. Þrátt fyrir kunnuglegu skýjahuluna sem prýtt hefur himininn aðeins of oft þetta sumarið var upplifunin ólík öllu öðru. Það sem gerði hana þó enn betri var að fá að upplifa slíkt undur með stórum hópi fólks og heyra fólkið grípa andann á loft þegar myrkrið skall á. Þessi tími ársins býður einmitt upp á fleiri slík augnablik og samveru sem gefur gæsahúð og hlýju í hjartað. Bæjarhátíðirnar okkar á Reykjanesinu. Fjölskyldudagar, Vitadagar og Ljósanótt. Hver annarri betri. Viðburðir á hverju horni. Margra daga dagskrá, þéttskipuð okkar allra færasta fólki. Regnbogasleikjó á röltinu. Leiktæki og listaverk. Ljósin kvikna á berginu og þar með lýkur sumrinu. Það er stundum eins og bæjarbúar hafi aldrei gert annað en að halda slíka stórviðburði. Austurlandið fékk kannski sólina í sumar en við fáum flottustu bæjarhátíðirnar. Góða skemmtun!

Þarftu að auglýsa?

að l b a t s æ N ber! m e t p e s . 9 Mundi

Gleðilega bæjarhátíð!


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 17. tbl. 47. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu