• Miðvikudagurinn 19. ágúst 2026 • 16. tölublað • 47. árgangur
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • DAGLEGAR FRÉTTIR Á VF.IS
12
Alexandra er með ferska sýn á Suðurnesjabæ
Magnús Stefánsson lýsir því þegar síminn og tölvupósturinn þögnuðu við starfslok:
Upplifði svolítinn
Hátíð í Vogum
„Mr. Nobody“
22
Ljósanæturblað Víkurfrétta í lok næstu viku
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Hafa merkt 250 hús í Garði og Sandgerði Nú er verið að merkja síðustu húsin í Sandgerði í átaki sem félagsskapurinn Merkir menn hóf fyrir nokkrum árum. Verkefnið hófst í Garði með því að merkja hús sem eru byggð fyrir árið 1960. Húsin eru merkt nafni hússins og hverjir fyrstu ábúendur voru. Alls hafa Merkir menn merkt um 250 hús í Garði og Sandgerði. Þegar lokið var við að merkja húsin í Garði var farið yfir í Sandgerði og haldið áfram með verkefnið þar. Í báðum byggðakjörnum Suðurnesjabæjar hefur verið reynt að fá sem upprunalegasta mynd af viðkomandi húsi. Það hefur reyndar ekki alltaf tekist. Skiltin eru upplýsandi og mikilvæg fyrir söguna þar sem í eina tíð höfðu öll hús sitt nafn en í dag tilheyra húsin bara götum og götunúmeri. Myndin til hliðar var tekin þegar Baldurshagi var merktur. Baldurshaga þekkja flestir í dag sem Suðurgötu 1 í Sandgerði. Að ofan má svo sjá Merka menn við höfuðstöðvar hópsins í Oddshúsum í Garði með skilti Fuglavíkur.
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
Snorri
Gylfi
Óskar
Sölvi
snorribs@valholl.is
gylfi@valholl.is
oskar@valholl.is
770 4040
691 1931
solvi@valholl.is
699 4407
Víkurfréttir gefa út veglegt Ljósanæturblað í lok næstu viku. Ljósanótt er dagana 2. til 6. september. Víkurféttir verða hins vegar tímanlega með blaðið fyrir hátíðina. Í Ljósanæturblaðinu verður dagskrá hátíðarinnar birt og vegleg umfjöllun tengd hátíðinni. Nú stendur yfir vinna við blaðið á ritstjórn Víkurfrétta. Auglýsendur eru hvattir til að vera í sambandi við auglýsingadeild á póstfangið andrea@vf.is. Þið sem viljið koma að efni eða ábendingum um áhugavert efni í Ljósanæturblaðið getið sent okkur tölvupóst á vf@vf.is. Við hvetjum einnig til þess að efni og auglýsingar berist tímanlega þar sem blaðið er stórt og myndarlegt og tekur tíma í vinnslu.
618 0064
2 4 S Í Ð U R • S TÆ R S T A F R É T T A - O G A U G LÝ S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M F R Á 1 9 8 0
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fjölbreytt dagskrá Vitadaga í Suðurnesjabæ Bæjarhátíðin Vitadagar verður haldin hátíðleg í Suðurnesjabæ dagana 24. til 30. ágúst næstkomandi. Óhætt er að segja að dagskrá hátíðarinnar sé með allra glæsilegasta móti þetta árið, en undir kjörorðinu „Hátíð milli vita“ er boðið upp á fjölbreytta og yfirgripsmikla dagskrá sem sniðin er að öllum aldurshópum. Íbúar og gestir Suðurnesjabæjar fá því kærkomið tækifæri til að hittast, njóta samveru, tónlistar, íþrótta og menningar í hinu einstaka umhverfi Garðs og Sandgerðis.
Samvera, hreyfing og útivist fyrir alla fjölskylduna Hátíðarhöldin hefjast á mánudaginn af fullum krafti þar sem þemað er litagleði. Íbúar eru hvattir til að hittast í sínu nærumhverfi og skreyta götur og hverfi saman til að skapa hátíðlega stemningu. Yfir alla vikuna er boðið upp á margs konar skemmtilega dagskrárliði fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess sem börn og fullorðnir geta tekið þátt í er sandkastalagerð í Garðskagafjöru, fjölskylduquiz á bókasafninu og samveruganga þar sem gengið verður frá bæði Þekkingarsetrinu í Sandgerði og Víðisvelli í Garði að Golfskálanum. Að göngu lokinni verður boðið upp á dýrindis grill í boði Kjörbúðarinnar, ljúffenga kjötsúpu í boði Skólamatar og frábæra skemmtun frá Sirkus Íslands. Hreyfing og leikur leika sömuleiðis stórt hlutverk á Vitadögum. Hlaupaáhugafólk getur spreytt sig í hinu vinsæla Vitahlaupi þar sem
í boði eru tvær hlaupaleiðir ásamt sérstöku krakkahlaupi fyrir yngstu kynslóðina. Fyrir þá sem vilja öðruvísi áskorun verður boðið upp á bjórhlaup Litla brugghússins. Einnig verður efnt til dorgveiðikeppni við Sandgerðishöfn, samhjóls með Team Rynkeby á milli Garðskagavita og Sandgerðisvita og þrautabrautar fyrir yngstu börnin í íþróttahúsinu. Fyrir knattspyrnuáhugafólk er nágrannaslagur Reynis og Víðis á Bronsvellinum hápunktur, auk þess sem hið hefðbundna og skemmtilega fótboltamót milli Norðurbæjar og Suðurbæjar fer fram. Þá verður boðið upp á sjósund við Bæjarskersfjöru og pottakvöld í sundlaugum bæjarins með léttum veitingum og skemmtikröftum á borð við Evu Ruzu og Hjálmar.
Saga, menning og tónlist í öllum hornum Menning, saga og handverk skipa sömuleiðis veglegan sess í dag-
Sjósund við Bæjarskersfjöru verður í boði á Vitadögum. skránni. Efnt verður til fróðlegra söguganga um merkingar gamalla húsa í Sandgerði og Garði undir leiðsögn Merkra manna, ástarsögugöngu Hjalta Óla í vitunum og göngu eftir nývígðum stíg að Prestvörðunni í Leiru undir leiðsögn Helgu Ingimundardóttur. Einnig verður sagnakvöld í Efra-Sandgerði í umsjón Lionsmanna, prjónakaffi í Auðarstofu og handverksmarkaður með kaffi- og vöfflusölu í Miðhúsum. Í Ráðhúsinu í Garði verður glæsileg listasýning opnuð með léttum veitingum og tónlist frá Kósýbandinu. Tónlistardagskrá hátíðarinnar er sérstaklega fjölbreytt og metnaðarfull. Hljómsveitin GÓSS
heldur tónleika í Útskálakirkju og á Lopapeysukvöldi ungmennaráðs koma fram listamenn á borð við Elísu Tan, Ólaf Pétur og Fosteii. Þá verður einnig alvöru þungarokk á milli vita þegar hljómsveitirnar Aesculus og Frostborn spila í porti Vélsmiðju Sandgerðis.
Frábær hápunktur á laugardegi Laugardagurinn 29. ágúst er sjálfur hápunktur hátíðarinnar en þá verður gríðarleg dagskrá á hátíðarsvæðinu við Sandgerðisskóla. Á dagskránni er fjölskylduskemmtun þar sem Hvolpasveitin, Bjössi brunabangsi, leikskólabörn og fleiri koma fram, og um kvöldið
stíga á stokk þekktir listamenn á borð við KK, Kristmund Axel, Stebba Hilmars ásamt tvíeykinu Audda og Steinda. Hátíðardagskránni lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Sigurvonar við Sandgerðishöfn og stórdansleik með hljómsveitinni Nostalgíu í Samkomuhúsinu í Sandgerði fram á rauða nótt. Dagskránna í heild sinni má lesa á síðu 3 í Víkurfréttum. Tekið er fram að breytingar geta orðið á dagskrá og því er fólk hvatt til að fylgjast með vef Suðurnesjabæjar þegar nær dregur hátíðinni varðandi mögulegar breytingar á dagskrá.
Sérstaða Suðurnesja krefst sjálfstæðs embættis Bæjarráð Reykjanesbæjar og SSS gegn sameiningu lögregluembætta Krafa um heildstætt áhrifamat
Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur heilshugar undir afgerandi bókun stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) þar sem eindregið er lagst gegn áformum stjórnvalda um að sameina embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum öðru lögregluembætti. Sveitarfélögin á Suðurnesjum telja varhugavert að leggja niður sjálfstæða stjórnun embættisins og færa ákvarðanatöku í burtu frá svæðinu. Fjallað var um málið á 1574. fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þar sem tekin var fyrir umsögn SSS í samráðsgátt stjórnvalda vegna áforma um skipulagsbreytingar hjá lögreglunni. Í bókun SSS er lögð rík áhersla á að þótt mikilvægt sé að efla samstarf lögregluembætta og nýta innviði betur megi þau markmið ekki verða til þess að litið sé fram hjá þeirri miklu sérstöðu sem starfsemi lögreglunnar á Suðurnesjum hefur fyrir öryggi landsins alls.
Keflavíkurflugvöllur og almannavarnir skapa sérstöðu Í umsögninni er bent á að Suðurnes gegni einstöku hlutverki í landamæragæslu, löggæslu og þjóðaröryggi. Á svæðinu er Keflavíkurflugvöllur, langstærsta alþjóðlega samgöngugátt landsins, auk mikilvægra innviða sem tengjast öryggis- og varnarmálum Íslands.
Áður en nokkrar ákvarðanir verða teknar um framtíð embættisins krefjast sveitarfélögin á Suðurnesjum þess að gert verði sérstakt mat á áhrifum mögulegrar sameiningar á meðal annars:
Verkefni embættisins séu því frábrugðin flestum öðrum lögregluembættum þar sem þau spanna alþjóðlegt samstarf, landamæraeftirlit, viðbrögð við náttúruvá og almannavarnir samhliða almennri löggæslu í ört vaxandi samfélagi. Ekki sé hægt að beita sama skipulagslíkani yfir allt landið án þess að taka tillit til þessara staðreynda.
Ákvarðanataka verði áfram á svæðinu SSS og bæjarráð Reykjanesbæjar hafna þeim hugmyndum að staðbundinn aðstoðarlögreglustjóri geti komið í stað sjálfstæðs lögreglustjóra með fullt stjórnunarumboð og beina aðkomu að stefnumótandi ákvörðunum. „Því fjær sem yf irstjórn og endanlegt ákvörðunarvald færist frá Suðurnesjum, þeim mun meiri verður hættan á að sérþekking svæðisins fái minna vægi við
30%
• • • • ákvarðanatöku og að viðbragðsgeta og sveigjanleiki skerðist,“ segir í bókuninni. Þá er bent á reynsluna af langvinnu almannavarnaverkefni vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga. Þar hafi staðbundin þekking, skjót viðbrögð og náið samstarf lögreglu, sveitarfélaga og annarra viðbragðsaðila skipt sköpum. Slíkt samstarf og traust byggist upp yfir langan tíma og verði ekki mælt í stærð stjórnsýslueininga.
Kalla eftir nýrri lögreglustöð frekar en óvissu Í stað þess að skapa óvissu um yfirstjórn og skipulag telur SSS að forgangsverkefni stjórnvalda eigi að vera að tryggja lögreglunni á Suðurnesjum viðunandi starfsaðstöðu, en embættið hefur þurft að búa við ófullnægjandi húsnæði og lengi hefur staðið til að byggja nýja lögreglustöð í Reykjanesbæ.
•
Öryggi, viðbragðsgeta og þjóðaröryggi. Landamæraeftirlit og starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Almannavarnir vegna náttúruvár á Reykjanesskaga. Stjórnun, boðleiðir og hraða ákvarðanatöku við neyðaraðstæður. Varðveislu sérþekkingar og þjónustu við íbúa og fyrirtæki.
Bæði bæjarráð Reykjanesbæjar og SSS telja ljóst að sameining muni hvergi bæta þjónustu eða auka öryggi. Því sé brýnt að halda áfram að byggja upp öflugt og sjálfstætt lögregluembætti á Suðurnesjum og að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélögin á svæðinu áður en lengra er haldið.
LJÓSANÆTUR AFSLÁTTUR 10. ágúst til 5. september
Annað par af glerjum fylgir margskiptum gleraugum
Erum byrjuð að bóka í sjónmælingu á Noona reykjanesoptikk.is og í síma 420-0077
Hátíð milli vita
agar d a t i V 24.–30. ágúst í Suðurnesjabæ
Mánudagur 24. ágúst
Miðvikudagur 26. ágúst
Föstudagur 28. ágúst
Sunnudagur 30. ágúst
15:00 Kaffi Gola Syngjum saman hver með sínu nefi. Veitingasala og gleði.
18:00-20:00 Hverfagrill Við hvetjum íbúa í öllum hverfum að koma saman, grilla og njóta – þar sem þið skipuleggið ykkar eigin hitting í götu, garði eða opnu rými í hverfinu.
20:00 Lopapeysukvöld á vegum ungmennaráðs Suðurnesjabæjar Í brekkunni við Tónlistarskólann í Garði (Sæborg). Fram koma: Elísa Tan, Ólafur Pétur, Fosteii/Steini, Óli Torfa trúbador, Aron Kristinn. Öll velkomin.
12:00-13:00 Þrautabraut fyrir yngstu börnin 2-5 ára börn velkomin með forráðamönnum í íþróttahúsið í Sandgerði.
16:30 Sandkastalagerð í Garðskagafjöru Skreytum fjöruna með hinum ýmsu kastölum. Börn í fylgd með forráðamönnum. Munið eftir skóflu og fötu. 16:30 Fjölskyldu Quiz Fróðleg og skemmtileg stund á bókasafninu. 18:15 Samveruganga Gengið frá Þekkingarsetrinu í Sandgerði kl. 18:15 og frá Víðisvelli í Garði kl. 18:30 að Golfskálanum. Grill í boði Kjörbúðarinnar og kjötsúpa í boði Skólamatar. Sirkus Íslands skemmtir.
Þriðjudagur 25. ágúst 13:00-15:00 Boccia og kaffi í Skjólgarði, dagdvöl aldraðra, Garðbraut 85 16:30 Uppskeruhátíð sumarlestursins á Bókasafni Suðurnesjabæjar
19:00 Sjósund Bylgja og Kristbjörg leiða sjósund. Mæting við Bæjarskersfjöru. 20:00-22:00 Pottakvöld kvenna í sundlauginni í Sandgerði Eva Ruza og Hjálmar, Blush, léttar veitingar o.fl. 20 ára aldurstakmark.
Fimmtudagur 27. ágúst
Brúðubíllinn skemmtir leikskólabörnum á Gefnarborg
13:00-15:00 Fjölskylduskemmtun á sviði Kynnar eru Birkir Frosti og Halla úr Ungleikhúsinu. • Leikskólabörn Suðurnesjabæjar syngja. • Hvolpasveitin • Birkir Frosti • Bjössi brunabangsi • DJ Ragga Holm-Rögguvísur
16:00-18:00 Opið hús í Tónlistarskólanum í Garði Öll velkomin að kíkja í kaffi, skoða skólann, prófa hljóðfæri og spjalla við starfsfólk.
18:00 Vitahlaupið Tvær hlaupaleiðir í boði og barnahlaup. Skráning og nánari upplýsingar á netskraning.is/vitahlaupid.
17:30 Söguganga í Garði Söguganga Merkra manna um merkingu gamalla húsa í Suðurnesjabæ. Gengið um Garð. Mæting við Garðbraut 35.
20:00-22:00 Pottakvöld karla í sundlauginni í Garði Léttar veitingar, trúbador, verðlaun fyrir litríkasta sundfatnaðinn o.fl. 20 ára aldurstakmark.
Miðvikudagur 26. ágúst 14:00 Auðarstofa - félagsstarf aldraðra Tónlistaratriði og veitingar. 16:30 Fjölskyldubingó í Gerðaskóla Í umsjón barna- og unglingaráðs Reynis/Víðis. Sjoppa á staðnum. Bingóspjald: 1.000 kr. 17:30 Söguganga í Sandgerði Söguganga Merkra manna um merkingu gamalla húsa í Suðurnesjabæ. Gengið um Sandgerði. Mæting við Suðurgötu 1.
Hátíðarsvæði við Sandgerðisskóla Hoppukastalar, fussball, andlitsmálning, sölubásar o.fl.
16:30 Veitingasala og gleði við Brons völlinn
20:00 Sagnakvöld í Efra-Sandgerði í umsjón Lions manna og kvenna Skemmtilegar frásagnir og gestum boðið að taka til máls um eftirminnilegar minningar úr sveitarfélaginu. Fríða Dís og Smári flytja tónlist. Veitingasala.
Laugardagur 29. ágúst
Hádegisskemmtun hjá grunnskólum Suðurnesjabæjar fyrir nemendur
18:00 Ganga að Prestvörðunni í Leiru eftir nývígðum stíg Helga Ingimundardóttir leiðir gönguna. Mæting við golfskálann í Leiru. Korters ganga hvor leið.
19:00-22:00 Prjónakaffi í Auðarstofu – Öll velkomin „Pop-up“ frá Handavinnubarnum og Handbragð.
Stórdansleikur með hljómsveitinni Nostalgíu Ball í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Miðaverð við hurð: 5.000 kr.
17:30 Reynir - Víðir á Brons vellinum Frítt á leikinn í boði velunnara Reynis.
21:00 Quiz með Nabblanum í Samkomuhúsinu í Sandgerði Fjáröflunarviðburður í umsjón barnaog unglingaráðs Reynis/Víðis. Veitingasala, lukkumiðar o.fl. Hámark 4 saman í liði. 1.500 kr. þátttökugjald.
Föstudagur 28. ágúst Brúðubíllinn skemmtir leikskólabörnum á Grænuborg 13:00-17:00 Hoppland við Sandgerðishöfn Hægt að leigja blautbúninga. Pallar, trampólín og mikil gleði. 15:00-17:00 Opið hús í Tónlistarskóla Sandgerðis Öll velkomin að kíkja í kaffi, skoða skólann, prófa hljóðfæri og spjalla við starfsfólk. 15:30 Norðurbær-Suðurbær Fótboltamót sem fer fram á Brons vellinum. Skráning og nánari upplýsingar nordursudurbaer.is/skraning. 18:00-21:00 Opnun listasýningar í Ráðhúsinu í Garði Léttar veitingar og Kósýbandið. 20:00 Þungarokk á milli vita Hljómsveitirnar Aesculus og Frostborn frá Suðurnesjabæ spila í portinu við Vélsmiðju Sandgerðis.
20:00-22:00 Kvöldskemmtun á sviði • Kynnir: Árni Árna • Guðjón Þorgils • KK • Kristmundur Axel • Stebbi Hilmars • Auddi og Steindi 22:15 Flugeldasýning í umsjá Björgunarsveitarinnar Sigurvonar Staðsetning: Sjávargata við Sandgerðishöfn. Dagskrá utan hátíðarsvæðis 09:00 Golfklúbbur Sandgerðis - Opna Icewear mótið Skráning og nánari upplýsingar á golf.is/golfbox. Glæsilegir vinningar. 10:30-12:00 Ástarsöguganga Söguganga bókarinnar: Ástarsaga í vitunum. Sögumaður er höfundur verkefnisins: Hjalti Óla. Gangan hefst við gamla Garðskagavita. 11:00 Dorgveiðikeppni við Sandgerðishöfn 12:30 Körfuboltadeild Reynis Körfuboltafjör fyrir alla á vellinum við Sandgerðisskóla. 14:00-17:00 Handverksmarkaður í Miðhúsum Kaffi og vöfflusala. 14:00-17:00 Efra Sandgerði Kaffi og vöfflusala Lionsklúbbsins Eldeyjar. 16:00 Bjórhlaup Litla brugghússins Forskráning og nánari upplýsingar á Facebook-síðu Litla brugghússins. 22:30 Brim Bistro Tómas Helgi trúbador spilar eftir flugeldasýningu, opið til kl. 01:00.
13:00 Samhjól með Bergnýju úr Team Rynkeby Hjólað verður frá Sandgerðisvita að Garðskagavita og til baka. 20:00 GÓSS Tónleikar í Útskálakirkju Miðasala á tix.is.
Aðrir viðburðir Sjólyst/Unuhús Opið laugardag og sunnudag frá 13:00-17:00. Vöfflukaffi o.fl. Eva K. Einarsdóttir, nemandi Tónlistarskólans í Garði spilar og syngur á laugardag kl. 15:00. Ratleikur – Reykjanes jarðvangur Listasýning í Ráðhúsinu, Sunnubraut 4 Föstudagur: 18:00-21:00. Laugardagur: 13:00-18:00. Sunnudagur: 13:00-16:00. Bragginn, safn frá gamla tímanum, Skagabraut 17 Opið 13:00-17:00 þriðjudag og 12:30-16:30 miðvikudag. Byggðasafnið á Garðskaga Opið alla daga vikunnar frá kl. 10:00-17:00. Frítt inn. Vitagusa í Leirunni Miðvikudag og sunnudag kl. 17:00. Skráning á Facebook: Steinunn saunagus. Léttar veitingar. Verð: 5.500 kr. Þekkingarsetur Suðurnesja Opið mán-fös frá 10:00-16:00 og lau-sun frá 13:00-17:00. Frítt inn yfir helgina. Sýningar: Fróðleiksfúsi (á íslensku og pólsku), Heimskautin heilla, Huldir heimar hafsins-Þangálfarnir. Hvalavöktun á Garðskaga: auglýst síðar. Wipeout braut í sundlaugum Suðurnesjabæjar Nánar auglýst á samfélagsmiðlum.
Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar um fleiri viðburði og opnanir má finna á heimasíðu Suðurnesjabæjar. Athugið að dagskráin getur tekið breytingum og því hvetjum við fólk til að fylgjast með uppfærslum á heimasíðu Suðurnesjabæjar og Facebook-síðu Vitadaga.
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Almyrkvi á Reykjanesi 12. ágúst 2026
Samvinna sem skilaði árangri Fjöldi fólks safnaðist saman á Garðskaga fyrir almyrkvann. Myndir: Magnús Orri.
Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, og Sigrún Svafa Ólafsdóttir frá Reykjanes Unesco Global Geopark með sjónaukana.
Grunnskólar á Suðurnesjum fá snjallsjónauka að gjöf Reykjanes Unesco Global Geopark hefur, í samstarfi við Kadeco og atNorth, ákveðið að færa grunnskólum á Suðurnesjum Seestar S30 Pro snjallsjónauka að gjöf. Sjónaukarnir verða nýttir í náttúrufræðikennslu á svæðinu. Verkefnið er liður í metnaðarfullu fræðslustarfi sem unnið hefur verið að í tengslum við sólmyrkvann. Markmið framtaksins er að glæða áhuga ungmenna á vísindum og vekja forvitni þeirra um sólina, tunglið og stjörnurnar. Í tilkynningu Reykjanes Unesco Global Geopark eru sérstakar þakkir eru færðar Sævari Helga Bragasyni, betur þekktum sem Stjörnu-Sævari, fyrir hans mikilvæga framlag til verkefnisins. Hluti af fjármagni sem safnaðist við sölu á sólmyrkvagleraugum hans rann beint til fræðslustarfs fyrir börn og ungmenni og gerði kaup á sjónaukunum möguleg. Aðstandendur verkefnisins vonast til þess að nýi tækjabúnaðurinn eigi eftir að nýtast vel í skólastarfinu og kveikja fjölmargar spurningar hjá framtíðarvísindamönnum svæðisins.
Ljósanæturblað Víkurfrétta kemur út í næstu viku. Verið tímanlega með efni og auglýsingar. Póstfangið er vf@vf.is
Þann 12. ágúst 2026 varð Reykjanes vettvangur eins merkasta náttúruviðburðar sem Ísland hefur upplifað í áratugi. Almyrkvi á sólu dró þúsundir gesta á svæðið og vakti athygli um allan heim. Þrátt fyrir skýjahulu sem skyggði á atburðinn þá upplifðu íbúar og gestir magnað myrkur í rúma mínútu. Þegar horft er til baka stendur þó eitt upp úr, sá árangur sem náðist var ekki tilviljun. Hann var afrakstur rúmlega árs undirbúnings og einstaks samstarfs fjölda fólks sem lagði verkefninu lið. Almyrkvinn 2026 var ekki aðeins einstakur náttúruviðburður – hann er eitt stærsta sameiginlega samfélagsverkefni sem unnið hefur verið að á Reykjanesi. Frá því undirbúningur hófst vorið 2025 var markmiðið skýrt: að tryggja öryggi íbúa og gesta, skapa jákvæða upplifun og nýta tækifærið til að kynna Reykjanes sem áfangastað. Fljótlega varð ljóst að verkefnið yrði mun stærra en hefðbundið ferðaþjónustuverkefni. Það þróaðist yfir í samfélagsverkefni þar sem sveitarfélög, ríkisaðilar, viðbragðsaðilar, atvinnulíf og íbúar unnu saman að sameiginlegu markmiði. Á þessum 15 mánuðum voru haldnir reglulegir stýrihópsfundir, fjölmargir vinnu- og samráðsfundir og ótal kynningar fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðaþjónustuna. Yfir 100 einstaklingar komu beint að undirbúningnum og á bak við þá stóð enn stærri hópur starfsfólks, fyrirtækja og sjálfboðaliða sem vann að einstökum verkefnum. Fræðslan var stór þáttur verkefnisins. Allir ellefu grunnskólar á Suðurnesjum tóku þátt í fræðsluverkefni um sólmyrkva og stjörnufræði. Skólarnir fengu ellefu sólar- og stjörnusjónauka með sólarsíum, 5.700 sólmyrkvagleraugu voru afhent grunnskólabörnum og viðbragðsaðilum og sjö stór sólmyrkvagleraugu voru sett upp á safn- og áningarstöðum í sveitarfélögunum þannig að sem flestir gætu notið viðburðarins á öruggan hátt. Samhliða þessu var unnið að umfangsmikilli kortlagningu á útsýnisstöðum, bílastæðum, þjónustu, salernisaðstöðu, lokunum og umferðarstýringu. Tvær upplýsingasíður voru settar upp á Visit Reykjanes, á íslensku og ensku, auk þess sem öll sveitarfélögin héldu úti eigin upplýsingasíðum og Facebook-viðburðum. Upplýsingagjöf var unnin í nánu samstarfi við island.is, ráðuneyti, Ferðamálastofu, Íslandsstofu, Sævar Helga Bragason, Vegagerðina, Víkurfréttir og fjölmarga aðra samstarfsaðila.
Einn mikilvægasti þáttur verkefnisins var öryggis- og viðbragðsvinnan. Almannavarnafulltrúi Lögreglustjórans á Suðurnesjum leiddi sérstakan öryggisvinnuhóp þar sem lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar unnu saman að því að tryggja öryggi allra sem voru á svæðinu. Á sjálfum almyrkvadeginum voru um 130-140 viðbragðsaðilar á vakt víðs vegar um Reykjanesskagann og lögðu sitt af mörkum til að dagurinn færi fram með öruggum og skipulögðum hætti. Verkefnið byggir á samvinnu opinberra aðila, atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka og íbúa með það sameiginlega markmið að skapa örugga, vel skipulagða og eftirminnilega upplifun fyrir bæði íbúa og gesti sem heimsækja Reykjanes í tilefni almyrkvans. Þegar dagurinn rann upp sáum við afrakstur þessarar vinnu. Gestir dreifðust vel um svæðið, upplýsingaflæði gekk vel, samstarf milli aðila var öflugt og viðbragðskerfið reyndist sterkt. Þó að álagið væri mikið sýndi samfélagið á Reykjanesi hvers það er megnugt þegar allir leggjast á eitt. Við viljum nota þetta tækifæri til að færa öllum sem komu að verkefninu okkar bestu þakkir. Við þökkum sveitarfélögunum fjórum á Reykjanesi fyrir öflugt samstarf og framsýni. Við þökkum starfsfólki þeirra sem vann ótal verkefni á bak við tjöldin, allt frá skipulagi og upplýsingamiðlun til framkvæmda og þjónustu.
Við þökkum lögreglu, almannavörnum, björgunarsveitum, slökkviliðum, HSS, Vegagerðinni, Náttúruverndarstofnun, HS Orku, ISAVIA og öllum öðrum viðbragðsaðilum sem tryggðu öryggi svæðisins. Við þökkum Reykjanes UNESCO Global Geopark, Geocamp Iceland og Sævari Helga Bragasyni fyrir ómetanlegt framlag til fræðslu og miðlunar. Við þökkum ferðaþjónustunni, fyrirtækjum, veitingastöðum, söfnum, félagasamtökum, landeigendum og öllum þeim sem tóku þátt í að taka á móti gestum og skapa einstaka upplifun. Við þökkum einnig fjölmiðlum, ekki síst Víkurfréttum, sem fylgdu verkefninu eftir af miklum metnaði frá upphafi og miðluðu upplýsingum reglulega til íbúa og gesta. Og síðast en ekki síst viljum við þakka íbúum Reykjaness fyrir þolinmæðina, skilninginn, hugmyndirnar, þátttökuna og þann jákvæða hug sem einkenndi samfélagið allt á meðan undirbúningurinn stóð yfir. Almyrkvi 2026 verður lengi í minnum hafður. Ekki aðeins vegna hins einstaka náttúruviðburðar heldur vegna þess hvernig samfélagið á Reykjanesi sameinaðist um að gera hann að öruggri og eftirminnilegri upplifun fyrir alla. Það er árangur sem við getum öll verið stolt af. Þuríður H. Aradóttir Braun Forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness / verkefnisstjóri Almyrkva á Reykjanesi 2026 Arnar Steinn Elísson Almannavarnafulltrúi Lögreglustjórans á Suðurnesjum og ábyrgðarmaður öryggisvinnuhóps Almyrkva 2026
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Blómlegt sumar í Suðurnesjabæ:
Um 200 ungmenni fegruðu bæinn í sumar Frábæru sumri er nú lokið hjá Vinnuskólanum og sumarstörfum 17 ára og eldri í Suðurnesjabæ. Alls tóku um 200 ungmenni þátt í starfinu hjá sveitarfélaginu í sumar og lögðu sitt af mörkum við að gera umhverfið snyrtilegra og fegra bæinn.
Mættu með bros á vör þrátt fyrir rigningu og vind Ungmennin sinntu fjölbreyttum verkefnum víðs vegar um Suðurnesjabæ, svo sem slætti, garðyrkju, hreinsun, gróðursetningu og almennri umhirðu opinna svæða. Á bak við vel hirt leiksvæði, göngustíga og blómabeð í bænum liggja ótal vinnustundir hjá duglegum hópi sem lét bleytu og rok ekki á sig fá. Þrátt fyrir að júlí hafi einkennst af talsverðri rigningu og hvassviðri sáust gulu vestin víða um bæinn. Starfsandinn var til fyrirmyndar, samvinnan góð og gleðin var aldrei langt undan hjá krökkunum, segir á vef Suðurnesjabæjar.
Suðurnesjabær leggur ríka áherslu á að bjóða opið aðgengi að sumarstörfum fyrir ungmenni, en slík tækifæri efla sjálfstæði þeirra, veita dýrmæta starfsreynslu og styrkja tengsl þeirra við nærumhverfið. Sveitarfélagið þakkar öllum ungmennum, flokkstjórum, leiðbeinendum og starfsfólki kærlega fyrir frábært framlag og góða leiðsögn í sumar og óskar þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem haustið ber í skauti sér.
Dýrmæt reynsla fyrir framtíðina Fyrir mörg ungmennanna voru þetta fyrstu kynnin af vinnumarkaðnum. Hjá Vinnuskólanum og í sumarstörfum 17 ára og eldri snýst sumarið ekki einungis um verkefnin sjálf, heldur einnig um að læra ábyrgð, stundvísi og samvinnu.
Það er viðbúið að það þurfi mun öflugri tæki en þetta sem Samúel heldur hér á - til að fjarlægja það efni, búnað og tæki sem er í mörgum tilfellum á Tæknivöllum utan lóðamarka.
Kadeco í meiriháttar tiltekt á Tæknivöllum – frestur til loka september Kadeco á Ásbrú hyggst fara í mikið átak í tiltekt á Tæknivöllum í haust. Að sögn Samúels Torfa Péturssonar, þróunarstjóra Kadeco mun tiltektin ná til opins landsvæðis sem er utan skráðra lóða og þar sem ekki er til staðar þinglýstur leigusamningur. „Allt efni, búnaður, tæki og úrgangur sem geymdur er án skriflegs leyfis frá Kadeco verður fjarlægður í haust. Aðilar sem hafa verið að geyma efni án leyfis hafa fengið frest út septembermánuð til að fjarlægja það sem þeim tilheyrir. Að þeim fresti loknum mun Kadeco, í samstarfi við hreinsunaraðila, fjarlægja allt það efni og úrgang sem eftir situr og farga því með tilhlýðilegum hætti,“ segir Samúel en sérstakt ferli verður í gangi vegna númerslausra bílflaka. Þeim verður komið fyrir á sérstöku
söfnunarsvæði þar sem eigendur geta vitjað þeirra. Verði þeirra ekki vitjað verður þeim komið í formlegt afskráningarferli og endanlega förgun hjá viðurkenndri móttökustöð í samstarfi við viðeigandi yfirvöld.
Slá tóninn fyrir framtíðarþróun svæðisins Þessi tiltekt tengist áformum Kadeco og Reykjanesbæjar um framtíðarþróun Tæknivalla sem fyrirmyndar athafnasvæðis.
Svæðið er vel staðsett nærri Keflavíkurflugvelli og í einungis um 20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Nýverið var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir svæðið og auglýst til sölu lóðarréttindi á alls 19 lóðum af fjölbreyttri stærð og lögun. Á næsta ári verður hafist handa við endurnýjun fráveitu og fleiri lóðir gerðar byggingarhæfar. „Með þessari tiltekt vilja Kadeco slá tóninn fyrir framtíðina. Félagið vill gjarnan vinna þetta átak með þeim góðu aðilum sem eru með starfsemi sína á Tæknivöllum í dag og hvetja alla til að hafa snyrtilegt í kringum sig,“ segir Samúel.
Bjössi lét nú ekki eitthvað leiðindaveður stöðva sig AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
vf is
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
Rétturinn
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
Opið:
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Ljúffengur heimilismatur í hádeginu
11-13:30
alla virka daga
Jæja, þá er lengstu strandveiðivertíð landsins lokið, en veiðar voru stöðvaðar þann 13. ágúst og þeir bátar sem réru alla þá daga sem mátti róa gátu mest farið í 42 róðra. Reyndar voru ekki margir færabátar frá Suðurnesjunum sem náðu 42 róðrum því að júlí var frekar leiðinlegur gagnvart veðri. Bjössi skipstjóri á Dímon GK lét nú ekki eitthvað leiðindaveður stöðva sig, en hann náði að harka af sér og fór í 41 róður. Var hann líka sá bátur á Faxaflóasvæðinu og alveg að Hornafirði sem fór í flesta róðrana, sem er ansi vel af sér vikið því eins og áður segir var veðurfarið í júlí frekar leiðinlegt og það kom fyrir að Bjössi var aleinn á sjónum. Úr þessum 41 róðri landaði báturinn 25 tonnum. Annars er aðeins að færast líf í hafnirnar og reyndar fengum við smá línuafla af minni bátunum því að Fjölnir GK kom með 7,8 tonn í einni löndun til Grindavíkur og var langauppistaðan í aflanum 5,5 tonn. Fjölnir GK fór síðan til Neskaupstaðar og þangað er líka komin Margrét GK frá Sandgerði. Fjölnir GK hefur landað 42 tonnum þar í fjórum róðrum og
Margrét GK hefur landað um 70 tonnum í 7 róðrum. Ég var nú reyndar í Neskaupstað núna 14. ágúst því að ég fór ásamt tveimur öðrum bílstjórum á þremur 9 manna bílum með fótboltastráka sem voru að spila í Neskaupstað og á meðan á leiknum stóð þá sigldi fyrst Margrét GK fram hjá og síðan Fjölnir GK fram hjá vellinum. Fiskinum af Margréti GK er ekið alla leið til Sandgerðis til vinnslu og er þetta vægast sagt ansi löng leið eða um 750 kílómetra löng, en Eimskip sér um að aka fiskinum suður. Ef við færum okkur á Suðurnesin þá eru báðir stóru línubátarnir frá Vísi, Sighvatur GK og Páll Jónsson GK, komnir á veiðar og eru báðir bátarnir að mestu að eltast við löngu og keilu. Það gekk ansi vel
hjá Sighvati GK en hann kom til Grindavíkur með 124 tonna afla og af því var keila 42 tonn og 58 tonn af löngu. Þorskur var aðeins rúm 8 tonn. Páll Jónsson GK kom líka til Grindavíkur en hann var með töluvert minni afla, enda voru bátarnir á veiðum ekki á sömu slóðum. Sighvatur GK var að mestu austur út frá Vestmannaeyjum en Páll Jónsson GK var vestur út frá Eldey. Páll Jónsson GK kom með 58 tonna afla og af þeim afla var keila 22 tonn og langa 26 tonn. Dragnótabátarnir frá Sandgerði eru líka byrjaðir og hefur Sigurfari GK sem var að koma úr slipp landað 8,4 tonnum í 2 róðrum. Siggi Bjarna GK 27 tonn í 3 og mest 12 tonn, Margrét GK 26 tonn í 3 róðrum og Benni Sæm GK 22 tonn í 3 róðrum og mest 12 tonn.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Hólmbergsbraut 13, (bil 1), 230 Keflavík, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Prentun: Landsprent.
Afmælisveisla Landsbankans og Landsbankans og TM TM
Í tilefni af tvöföldu stórafmæli Landsbankans og TM er landsmönnum boðið í afmælisveislu fimmtudaginn 20. ágúst nk. Hátíðarhöldin fara fram samtímis í útibúum Landsbankans um allt land kl. 14. Kynntu þér afmælisdagskrána nánar á landsbankinn.is
8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundi í Reykjanesbæ um ESB-kosningarnar:
„Samningsmarkmiðin eru skýr – það vaknar enginn óvart í Evrópusambandinu“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að þjóðaratkvæðagreiðslan þann 29. ágúst næstkomandi um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið sé aðeins fyrsta skrefið af löngu og ströngu ferli. Á opnum fundi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í gærkvöldi undirstrikaði hún að samningsmarkmið Íslands væru skýr, hagsmunir þjóðarinnar varðandi auðlindir og orkumál yrðu varðveittir og að þjóðin fái síðasta orðið í öðrum kosningum þegar samningur liggur fyrir. Á fundinum kom fram að breyttar alþjóðlegar aðstæður, aukin spenna í viðskiptamálum og miklar sviptingar í heimsstjórnmálum hafi orðið til þess að flýta því að málið var sett á dagskrá. Kristrún benti á að staða Íslands á alþjóðavettvangi væri umhugsunarverð og að opnast hafi gluggi til að leita eftir stórum og afgerandi svörum um framtíðarhagsmuni landsins. Fyrsta skref af mörgum og lokaniðurstaða hjá þjóðinni Aðspurð um ferlið og hvort „já“ í kosningunum 29. ágúst þýddi sjálfkrafa fulla aðlögun að regluverki ESB, ítrekaði forsætisráðherra að um tvöfalda atkvæðagreiðslu væri að ræða. „Það þarf rosalega mikið að gerast áður en við göngum í Evrópusambandið. Þessi atkvæða-
greiðsla er fyrsta skref af mjög mörgum. Það mun enginn vakna óvart í Evrópusambandinu án þess að það hafi farið í gegnum mjög mikla umræðu,“ sagði Kristrún. Verði niðurstaðan „já“ verður haft samband við ESB til að virkja viðræðurnar að nýju. Skipuð verður samninganefnd með fulltrúum atvinnulífs, verkalýðshreyfingar og hagsmunaaðila. Náist samningar þarf að breyta stjórnarskrá, rjúfa þing, boða til alþingiskosninga og loks halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfan samninginn. Kristrún áætlar að ferlið allt gæti tekið um þrjú til fjögur ár.
Ekki samþykkt að leggja sæstreng Orkumál og auðlindir voru áberandi í umræðum fundargesta. Kristrún var afgerandi varðandi
áhyggjur af mögulegri tengingu íslenska raforkukerfisins við Evrópu. „Það verður ekki lagður sæstrengur nema með okkar leyfi. Við á Íslandi tökum ákvörðun um það,“ sagði forsætisráðherra. Sæstrengur er ekki hluti af samningsmarkmiðum ríkisstjórnarinnar og
STYRKTU ÞIG Í STARFI FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ FYRIR HEILBRIGÐISSTARFSFÓLK MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM
HAUST 2026
20. ÁGÚST KL. 17:00-22:00
HINSEGIN HEILBRIGÐI
Hagnýtt námskeið um hinsegin heilbrigði – lærðu að veita örugga og faglega þjónustu af virðingu og skilningi. 22. SEPTEMBER KL. 17:00-22:00
BRÁÐAHJÁLP FULLORÐINNA FYRIR SJÚKRALIÐA Verklegt námskeið fyrir sjúkraliða þar sem farið er yfir hvernig bregðast má við bráðum aðstæðum af öryggi og yfirvegun. 5., 6. OG 8. OKTÓBER KL. 17:00-21:00
SÁR OG SÁRAMEÐFERÐ
Námskeið þar sem unnið er með helstu tegundir sára, gróningu og meðferð, ásamt verklegri kennslu í umbúðalögum. 27. OG 29. OKTÓBER KL. 17:00-21:00
VIÐSPYRNA-AÐLÖGUN OG UPPBYGGING EFTIR HEILSUFARSBREYTINGAR Námskeið um sálfélagsleg áhrif heilsufarsbreytinga og leiðir til að styðja við aðlögun og jafnvægi í daglegu lífi. 3. OG 5. NÓVEMBER KL. 17:00-21:00
SYKURSÝKI OG NÆRING
Námskeið sem fjallar um mismunandi tegundir sykursýki og hlutverk næringar í daglegu lífi og meðferð. 24. OG 26. NÓVEMBER KL. 13:00-17:00
HJÚKRUN SJÚKLINGA VIÐ LOK LÍFS
Námskeið um líknar- og lífslokameðferð, með áherslu á umönnun, einkennameðferð og stuðning við sjúklinga og aðstandendur. 1. DESEMBER KL. 17:00-22:00
HEILABILUN
Námskeið um heilabilun með áherslu á orsakir, einkenni, framvindu og umönnun.
Nánari upplýsingar: Hafið samband í síma 421‑7500 eða með tölvupósti á namskeid@mss.is
krafa Íslands verði sú að forræði yfir orkumálum og nýtingu þeirra verði áfram alfarið í höndum Íslendinga. Sama gildi um sjávarútveginn og aðrar auðlindir. Kristrún benti á að ESB ásækist ekki eignarhald á auðlindum aðildarríkja sinna og að Ísland, sem stærsta einstaka fiskveiðiþjóðin, mæti til viðræðna úr sterkri stöðu. „Það er íslenska þjóðin sem á þennan fisk og það er aðalatriðið að verðmætin sitji eftir á Íslandi.“
Vextir, verðbólga og staða krónunnar Kristrún ræddi mikið um efnahagslegu hliðina og mögulega upptöku evru til lengri tíma litið. Hún sagði sjálfstæða mynt fela í sér talsverðan kostnað og gjaldeyrisálag sem bitni sérstaklega á heimilum og smærri fyrirtækjum, á meðan stórfyrirtæki geti oft uppfært sín viðskipti í erlendri mynt. Hún varaði þó við því að fólk héldi að aðild myndi færa Íslendingum 1% stýrivexti í einni svipan eins og gerðist á Covid tímum á Íslandi. „Við hefðum átt að nýta tækifærið þá og afnema verðtrygginguna,“ sagði hún en ítrekaði að heilbrigt vaxtastig í stöðugu hagkerfi með um 2,5% verðbólgu væri nær 4,5% til 5%. Með aðild og upptöku evru mætti hins vegar eyða gjaldeyrisálaginu, auka samkeppni á fjármálamarkaði, draga úr sveiflum í gengi og skapa meiri fyrirsjáanleika. Varðandi verðtrygginguna sagði Kristrún að hún væri í mörgum Evrópulöndum talin allt of flókin eða jafnvel ólögleg neytendalöggjafar vegna. Hún undirstrikaði hins vegar að Íslendingar þyrftu ekki ESB til að draga úr eða afnema verðtryggingu og að fjármálaráðherra mun kynna frumvarp á haustþingi sem tekur skref til að minnka vægi hennar í hagkerfinu.
Lífeyrissjóðirnir og staða EES-samningsins Lífeyrissjóðakerfið var einnig til umræðu, en Kristrún fullvissaði fundargesti um að ESB skipti sér ekki af uppbyggingu eða eignarhaldi á félagslegum velferðarkerfum eða lífeyrissjóðum aðildarríkja. Aðild gæti frekar opnað tækifæri fyrir sjóðina til að dreifa áhættu á stærri mörkuðum án þess að hreyfa við gengi krónunnar hér heima.
Í lokin vék forsætisráðherra að EES-samningnum, sem hún sagði gríðarlega mikilvægan en áréttaði að Íslendingar mættu ekki taka honum sem sjálfsögðum hlut til frambúðar. Noregur stendur straum af um 95% af kostnaði við samninginn og breytingar á stjórnmálaviðhorfum ytra gætu haft áhrif á stöðu Íslands.
Niðurstaðan verður virt Kristrún sagði að heimurinn væri ekki sá sami og hann var. „Við erum bara komin á annan stað. Ég get ekkert sagt fólki til um það nákvæmlega hvað mun gerast. En það er ástæða fyrir því að við ákváðum að setja þetta á dagskrá núna fyrr en við ætluðum og það er vegna þess að við sáum sáum glugga. Talandi um að þekkja tímann, lesa aðstæður og ég veit að það eru kannski ekki allir Íslendingar sem sáu þann glugga og það eru margar ástæður fyrir því að það eru skiptar skoðanir. Evrópusambandið er líka að átta sig á því að bandalög eru að breytast og það getur borgað sig að vera sveigjanleg núna til þess að koma sér í sterkari stöðu seinna. Og við höfum nú áður verið sniðug í svona aðstæðum. Við gripum tækifærið þegar við gengum í NATO á sínum tíma. Í dag erum við líklegast sú NATO-þjóð sem er með hvað mestan stuðning við Atlantshafsbandalagið, eitthvað í kringum 75%. Það var alls ekki óumdeilt og ekki frekar en að það var óumdeilt að ganga inn í EES á sínum tíma. Ég held að við fáum besta mögulega samninginn núna. Ég get ekki verið fullviss, það er bara mín tilfinning núna.“ Kristrún sagði niðurstöðu kosninganna þann 29. ágúst verða virta, hvort sem meirihluti atkvæða hallast til já eða nei, og að 50,1% meirihluti feli í sér lýðræðislegt umboð þótt afgerandi niðurstaða væri alltaf óskandi. „Við munum þurfa að vinna úr þessari niðurstöðu 29. ágúst, sama hvernig hún fer. Það skiptir mig og okkur sem stýrum landinu máli að skilja hvaðan fólk er að koma, vegna þess að við munum þurfa að lifa hér saman í sátt og samlyndi, hvort sem niðurstaðan verður já eða nei,“ sagði Kristrún Frostadóttir að lokum.
Páll Ketilsson pket@vf.is
ABC Barnahjálp Addisons Samtökin ADHD samtökin Áfangaheimilið Óla hús Áfram besta kona Afstaða til ábyrgðar AHC samtökin Alzheimersamtökin AMSIS Arnarskóli, styrktarsjóður Ás Styrktarfélag Astma- og ofnæmisfélag Íslands Ástusjóður Augnlækningasjóður Landspítalans Bakvarðasveit Ingva Barnaspítalasjóður Hringsins Bati góðgerðarfélag/ Sollusjóður Bergið headspace Bjarkarhlíð Björgunarsveit Hafnarfjarðar Björt sýn - styrktarfélag Blindrafélagið Blóðbanki Landspítala Blóð- og krabbameinslækningadeild Börn með krabbamein Brakkasamtökin Bumbuloní góðgerðafélag CCU samtökin CLF á Íslandi CMT4A Styrktarsjóður Þórdísar CP félagið Diabetes Ísland Downs félagið Dropinn Duchenne vöðvarýrnun á Íslandi Dýrahjálp Íslands Einhverfusamtökin Einstök börn Ekki gefast upp! Eldtaugar styrktarsjóður Empower Nepali Girls - Íslandsdeild Endósamtökin FC Sækó - Geðveikur fótbolti Félag CRPS á Íslandi Félag flogaveikra Félag fósturforeldra Ferðasjóður Guggu Foreldrajafnrétti Framþróunarsjóður skilunardeildar á Landspítala FSMA á Íslandi Fuglavernd Geðhjálp Gigtarfélag Íslands Gjafa- og styrktarsj. Heilaog taugaskurðdeildar LSH Gleðistjarnan Gleym-mér-ei styrktarfélag Gló Æfingastöð Góðgerðarfélag Léttum þeim lífið Góðvild Göngum Saman Grænahlíð fjölskyldumiðstöð Grænn dagur - Minningarsjóður Jökuls Frosta Grensásdeild Landspítalans
Haven Rescue Home - Styrktarfélag HD-samtökin á Íslandi Heyrnarhjálp Hjálparstarf kirkjunnar Hjaltastaðir Hjartaheill Hjartavernd Hlíðabær Hollvinasamtök SAk Hollvinir Grensásdeildar Hugarafl Íslenska barnahjálpin Íslensk ættleiðing Kattavinafélag Íslands Konukot Korpúlfar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis Krabbameinsfélag Árnessýslu Krabbameinsfélag Austfjarða Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins Krabbameinsfélagið Krabbameinsfélagið Sigurvon Krabbameinsfélag Snæfellsness Krabbameinsfélags Suður Þingeyinga Krabbameinsfélag Suðurnesja Krabbavörn Vestmannaeyja Kraftur Krýsuvíkursamtökin Kvennaathvarf Landvernd Lífgrös Líf styrktarfélag Lilja Dögg - Styrktarsjóður Lipoedema Ísland Ljónshjarta Ljósið Lungnasamtökin Málefli Matthildur - samtök um skaðaminnkun ME félag Íslands MG félag Íslands Mia Magic Minningar- og styrktarsj. blóðog krabbameinslækningadeilda LSH Minningarsjóður Arnars Gunnarssonar Minningarsjóður Baldvins Rúnarssonar Minningarsjóður Bryndísar Klöru Minningarsjóður Egils Hrafns Minningarsjóður Elmars Péturssonar Minningarsjóður Gunnars Karls Minningarsjóður Gunnars Unnsteins Minningarsjóður Hjalta Þórs Ísleifssonar Minningarsjóður hjartadeildar Minningarsjóður Hlyns Snæs Minningarsjóður Hróars Minningarsjóður Ibrahim Shah Minningarsjóður Jennýjar Lilju Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns Minningarsjóður Líknardeildar og Heimahlynningar HERA Minningarsjóður Magnúsar Más Kristjánssonar Minningarsjóður Mikaels Rúnars Minningarsjóður Ölla
Minningarsjóður Svavars Péturs Eysteinssonar MND á Íslandi MS-félag Íslands Neistinn Nýrnafélagið OCD Félag Íslands Okkar heimur Örninn - Minningar og styrktarsjóður Parkinsonsamtökin Píeta samtökin Rannsóknarsjóður þvagfæraskurðdeildar Rauði krossinn - Hjálparsíminn 1717 Rauði krossinn - Skaðaminnkun Reykjadalur Reykjalundur endurhæfing Rótin, félagasamtök Samband íslenskra kristniboðsfélaga Samhjálp SÁÁ Samtökin '78 Samtök um POTS á Íslandi SFO, samtök fólks með offitu og aðstandendur þeirra Sigurboginn, styrktarfélag Sigurbjörns Boga Sjálfsbjörg Sjóðurinn Blind börn á Ísland Ský - Félag fólks með Long Covid Sorgarmiðstöð Stígamót Styrktarfélagið Broskallar Styrktarfélag Klúbbsins Geysis Styrktarfélag Magnúsar Mána Styrktar- og rannsóknarsjóður v/líffæragjafa Styrktarsjóður bráðasviðs Styrktarsjóður geðsviðs Styrktarsjóður gjörgæslu LSH Styrktarsjóður Ingvars og fjölskyldu Styrktarsjóður Katrínar Bjarkar Styrktarsjóður Landspítala Styrktarsjóður lyflækninga LSH Styrktarsjóður öldrunar LSH Styrktarsjóður skurðlækningadeildar Styrktarsjóður vegna ristilkrabbameins hjá Landspítalasjóði SUM - samtök um áhrif umhverfis á heilsu Sveinssjóður, minningarsjóður um Svein Zoëga Sveinusjóður - til styrktar Ölveri sumarbúðum KFUM og KFUK Tabú - feminísk fötlunarhreyfing TeamTinna Tilvera - samtök um ófrjósemi Trans Ísland Umhyggja - félag langveikra barna UNICEF á Íslandi UN Women á Íslandi Villikettir Vinir Bjarka Daða Vonarbrú Von Það er Von Þorláksskóli Þroskahjálp
S I . I M R
i n f e l á m t t o g a j k r y t s ð a l i t
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fjölmennur fundur Áfram Ísland í Reykjanesbæ
Við erum best í heimi í að bretta upp ermar og vinna vinnuna Halldór Benjamín Þorbergsson fór yfir landsbyggðarferðir Áfram Íslands og þann mikla meðbyr sem hreyfingin finnur fyrir.
Yfir 300 manns mættu á opinn fund samtakanna Áfram Ísland á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Ræðumenn voru sammála um að Íslendingar ættu sjálfir að bera ábyrgð á sinni framtíð frekar en að framselja vald til embættismanna í Brussel fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Góð mæting var á opnum fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Park Inn by Radisson hótelinu í Reykjanesbæ. Samtökin berjast gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst. Hermann Nökkvi Gunnarsson stýrði fundinum og benti á að baráttan snúist ekki um fulltrúa auðvaldsins heldur þverskurð af samfélaginu, allt frá iðnaðarmönnum og kennurum til ungs fólks. Hann benti á að kaupmáttur ungs fólks á Íslandi væri 35% hærri og atvinnuleysi helmingi lægra en í flestum ESB-ríkjum.
Grasið er ekki alltaf grænna hinum megin Berglind Ragnarsdóttir, formaður menntaráðs Reykjanesbæjar og verkfræðingur, deildi reynslu sinni af því að búa og starfa í Svíþjóð. Hún líkti upphafi dvalarinnar við að vera áhrifagjarn ferðamaður sem hreifst af reglu og almenningssamgöngum, en sagði raunveruleikann fljótt hafa bankað á dyrnar. „Það er nefnilega mjög auðvelt að verða ástfanginn af samfélagi sem maður heimsækir, en maður
BÍLAÞJÓNUSTA
Þarf bílinn þinn athygli?
sér ekki mikið af húsnæðisvanda í helgarferð,“ sagði Berglind. Hún bent á að þrátt fyrir lága vexti í Svíþjóð væru laun töluvert lægri en á Íslandi og fastur framfærslukostnaður hár. Þá tók hún dæmi um hversu erfitt var fyrir fólk að eignast eigið húsnæði ytra. Berglind undirstrikaði að ESBaðild væri engin töfralausn á íslenskum áskorunum: „Er allt fullkomið? Nei. En erum við virkilega þjóð sem trúir því að við þurfum að láta aðra leysa vandamálin okkar? Ég held ekki. Við erum best í heimi í að bretta upp ermar og vinna vinnuna.“
árinu 1900. Ingvar benti á hvernig framtíðarsýn Hannesar um sjálfstæða þjóð, sem nýtti eigin orku og auðlindir, hefði ræst á síðustu 126 árum. Ingvar ítrekaði að nei-afstaða snúist ekki um að loka sig af eða hafna samstarfi við aðrar þjóðir, heldur um ábyrgð og lýðræðislegt vald. „Ég fagna góðu samstarfi við aðrar þjóðir og ESB, en ég treysti þjóðinni betur til að varðveita framtíð okkar. Ég er ekki á móti Evrópusambandinu, ég bara trúi meira á dugnað og þrautseigju íslensku þjóðarinnar,“ sagði Ingvar.
Óttast andlitslaust vald
Valdið haft af verkafólki
Halldór Benjamín Þorbergsson fór yfir landsbyggðarferðir Áfram Íslands og þann mikla meðbyr sem hreyfingin finnur fyrir. Hann fór yfir þær röksemdir sem komið hafa fram á fundum samtakanna og varaði við því að framselja löggjafar-, dóms- og framkvæmdavald til „efnislega framandi, nafnlauss yfirvalds í Brussel“. Halldór Benjamín vitnaði meðal annars í málflutning verkalýðsforystunnar og lagði áherslu á hættuna á auknu atvinnuleysi. Með því að taka upp evru og festa gengið glatist íslenska krónan sem mikilvægur þrýstilosari í efnahagslífinu. Þegar áföll ríði yfir færist þrýstingurinn í staðinn yfir á vinnumarkaðinn í formi atvinnuleysis – eitthvað sem komi sér sérstaklega illa fyrir ungt fólk. Að lokum hvatti Halldór fundargesti til að muna að Ísland hafi nú þegar tryggt sér aðgang að fjórfrelsinu í gegnum EES-samninginn og spyrja sig hvað væri raunverulega í boði með fullri aðild: „Við höfum lítið að sækja, en við höfum hins vegar mjög margt að verja.“
Sólveig Anna Jónsdóttir talaði af hörku fyrir hönd íslensks verkafólks. Hún hélt því fram að ESBaðild snúist í grunninn um völd og að innri markaður sambandsins sé saminn á forsendum fjármagns og atvinnurekenda en ekki félagslegs réttlætis. „Þegar togstreita verður mikil á milli félagslegra réttinda og svokallaðrar samkeppnishæfni er alveg ljóst að hagsmunir verkafólks verða látnir víkja. Og þetta getum við séð um alla Evrópu,“ sagði Sólveig og benti á dæmi um niðurskurðarstefnu og veikingu stéttarfélaga í Suður- og Austur-Evrópu. Hún nefndi að há stéttarfélagsaðild á Íslandi væri stærsta vörn launafólks gegn misskiptingu. Með því að færa ákvörðunartöku til Brussel muni faglegur og stjórnmálalegur þrýstingur aukast á að „aga vinnumarkaðinn“ á kostnað réttinda verkafólks. Sólveig neitaði því að nei-atkvæði sé óttaslegið eða einangrunarsinnað. Það sé þvert á móti virk lýðræðisleg afstaða til að verja íslenska velferðarmódelið og halda valdinu hjá fólkinu í landinu. Hún brýndi fundarmenn til að mæta á kjörstað og segja skýrt „nei við Evrópusambandinu“.
Samstarf á eigin forsendum Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs í Reykjanesbæ, hóf sína ræðu á því að lesa brot úr ljóðinu Aldamót eftir Hannes Hafstein frá
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Smurþjónusta fyrir bæði stóra og smáa bíla á Flugvöllum í Keflavík. Bókaðu tíma í appinu!
Þú sérð alla þættina á ve
f Víkurfrétta, vf.is
k a a ð s r t O
Málörvunarspil fyrir börn sem eykur orðaforða og eflir málþroska barna
Undirbúðu þig fyrir haustið! Kynntu þér málið á vefsíðu okkar og samfélagsmiðlum
www.ordakast.is
@ordakast
12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Ráðhús Suðurnesjabæjar í Garði.
Með ferska sýn í Suðurnesjabæ Alexandra Jóhannesdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Suðurnesjabæ Alexandra Jóhannesdóttir, nýr bæjarstjóri og hafnarstjóri í Suðurnesjabæ. Hún sér óþrjótandi tækifæri á svæðinu en hún kemur til starfa eftir átta ára farsælan feril sem sveitarstjóri og hafnarstjóri á Skagaströnd. Hún mætir í nýtt samfélag af mikilli bjartsýni, reynslu og einbeittum vilja til að draga fram það besta í bæjarlífinu. SUÐURNESJABÆR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Óvænt innkoma í sveitarstjórnarmálin Alexandra er í grunninn borgarbarn, alin upp í Grafarvogi. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Eftir að hafa starfað sem lögfræðingur hjá Listahátíð í Reykjavík, Fiskistofu og í einkageiranum dró til tíðinda þegar staða sveitarstjóra á Skagaströnd var auglýst. „Það var nokkuð óvænt. Því hafði verið gaukað að mér að sækja um en ég var í góðri vinnu og gerði ekkert í því í fyrstu. En þegar staðan var auglýst aftur hugsaði ég: „Þetta gæti verið gaman!“ Ég sótti um á síðustu stundu, fór í viðtal og fékk starfið. Það var engin stór pæling á bak við það að fara í pólitík eða sveitarstjórnarmál, þetta bara æxlaðist svona hálf óvart.“ Flutningarnir norður voru talsvert stökk fyrir Alexöndru sem viðurkennir með brosi á vör að hún hafi hvorki þekkt til á svæðinu né verið sérlega ratvís: „Ég verð bara að segja þér alveg eins og er: Ég er svo agalega léleg í áttum og allir sem þekkja mig vita það. Ég þurfti að setja GPS-tækið í gang til að rata af því að ég vissi varla hvort ég var að fara vestur,
norður eða austur! Ég hafði aldrei komið á Skagaströnd áður en ég mætti í viðtalið. En svo tók ég þessa ákvörðun nokkuð hratt, gerði nauðsynlegar ráðstafanir – og var svo bara flutt.“
Dýrmætur skóli: „Þú þarft að vera með breitt bak“ Upphaflega stóð til að prófa starfið í eitt ár en úr urðu átta viðburðarík ár á Skagaströnd. Alexandra segir reynsluna úr litlu samfélagi vera ómetanlega en jafnframt krefjandi. „Þetta er ekki fyrir hvern sem er. Það getur verið erfitt að vera einn á nýjum stað í svona stöðu þar sem stór hluti bæjarbúa vinnur með þér og nándin er mikil. Þú þarft að vera með svolítið breitt bak. En samfélagið tók dásamlega á móti
Nýjasta hverfið í Garði rís við Sandgerðisveg.
Séð yfir byggðina í Sandgerði. mér, mér leið alltaf eins og ég ætti heima þar og ég eignaðist vinafólk til lífstíðar.“
Á Skagaströnd sinnti Alexandra margvíslegum hlutverkum. Hún var bæði sveitar- og hafnarstjóri auk þess að gegna ýmsum trúnaðarstörfum á landsvísu, m.a. sem varaformaður Hafnasambands Íslands og Samgönguráðs og formaður Almannavarnarnefndar Austur-Húnavatnssýslu. „ Á Skagaströnd var stjórnsýslan á skrifstofunni í rauninni bara ég, bókari og fjármálastjóri. Þannig að sveitarstjóri þar þarf að vera „hands-on“ í öllum verkefnum. Hvort sem það var að vera með bráðabirgðalöggildingu á hafnarvog, vera yfir öllum verklegum framkvæmdum eða standa bakvakt í barnavernd, þetta var allur skalinn. Hér í Suðurnesjabæ er ég hins vegar með öflugan sérfræðihóp og fleiri hendur til að vinna verkin, sem er frábær
stuðningur og gefur tækifæri til að vinna að góðum og uppbyggilegum hlutum fyrir samfélagið.“
Sótti bara um í Suðurnesjabæ Þegar breytingar urðu í sveitarstjórn á Skagaströnd ákvað Alexandra að tími væri kominn til að færa sig nær fjölskyldunni og foreldrum sínum í Reykjavík. Suðurnesjabær var eina sveitarfélagið sem hún sótti um hjá. „Þegar þú ferð í svona starf þarftu að ganga með samfélagið í hjartanu. Verkefnin verða að vera spennandi og krefjandi og þú þarft að sjá að þú getir gert gagn. Ég mátaði mig inn í Suðurnesjabæ og mér leist mjög vel á. Ég kem á sama núllpunkti hingað og ég gerði fyrir norðan, þekki engan og kem alveg hlutlaus inn.“
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 13
Höfnin í Sandgerði.
Frá Garðskaga. Alexandra sér stór tækifæri í að koma ný inn í samfélag þar sem umræða hefur verið hávær um sameiningarferlið síðan 2018 sem og einstök deilumál sem leiða þarf í jörð: „Ég kem hingað án sögu og án tengsla, bara með kaldan haus: „Hvert er verkefnið og hvernig leysum við það?“ Í grunninn vilja langflestir byggja upp og sækja fram og mjög mörg deilumál snúast einfaldlega um það að taka
ákvörðun, annaðhvort að hefjast handa eða taka mál af borðinu. Við þurfum bara að anda okkur í gegnum verkefnin og einbeita okkur að öllu því jákvæða sem er að gerast hér í sveitarfélaginu.“
Býr í „Risaeðluhúsinu“ og fylgist með út um gluggann Móttökurnar á bæjarskrifstofunni og í samfélaginu hafa verið hlýjar og Alexandra og ungur sonur hennar hafa komið sér vel fyrir í Garðinum. „Við búum í „risaeðluhúsinu“ eins og sonur minn kallar það, frábæru grænu húsi í Teiga- og Klappahverfinu sem byggt er af heimamönnum hjá Braga Guð-
mundssyni. Okkur líður dásamlega vel. Sonur minn er byrjaður á leikskólanum Gefnarborg og ég get meira að segja fylgst aðeins með honum út um skrifstofugluggann hjá mér, sem eru forréttindi.“ Fyrstu dagarnir í vinnu hjá nýjum bæjarstjóra buðu upp á talsverða eldskírn í tengslum við skipulagningu á sólmyrkvanum mikla þar sem starfsfólk sveitarfélagsins þurfti að bregðast við af festu. „Dagarnir voru langir en starfsfólkið stóð sig ótrúlega vel án nokkurrar forskriftar. Þetta sýndi mér strax hvað hér er öflugur og samheldinn starfsmannahópur. Ég stóð fyrir utan heimili mitt þegar myrkvinn sjálfur skall á.
Ljósanæturtilboð
Það var magnað og næstum dálítið óhuggulegt að hlusta á fuglana, mávarnir trylltust alveg.“
Björt framtíð og sóknarhugur Þegar horft er til framtíðar segir Alexandra tækifærin í Suðurnesjabæ vera óþrjótandi og svæðið afskaplega vel sett landfræðilega. „Við erum nálægt öllum helstu flutningsleiðum, með einn öflugasta og mikilvægasta vinnustað landsins á flugvallarsvæðinu, rótgróin sjávarútvegsfyrirtæki eins og Nesfisk og Samherja, frábæra höfn sem við getum nýtt enn betur, og tækifæri til uppbyggingar á grænum iðnaði á Bergvíkursvæðinu og víðar. Við þurfum að
skapa hagstæð skilyrði fyrir atvinnulífið og koma í veg fyrir sóun í kerfinu. Gervigreindin er komin til sögunnar og með henni eru að opnast tækifæri til að nútímavæða opinbera þjónustu. Það er tækifæri sem við verðum að grípa til að tryggja skilvirkni í kerfinu og einfalda íbúum lífið.“ Ég er afskaplega bjartsýn og tilbúin í samstarf við bæjarbúa og kjörna fulltrúa um að gera gott samfélag enn betra. Verðmætasköpun er grundvöllur hagvaxtar og við þurfum bæði að hlúa að því sem fyrir er og skapa aðlaðandi forsendur fyrir ný sóknarfæri. Núna er rétti tíminn til að vera upplitsdjörf, jákvæð og sækja fram.“
40%
afsláttur
af öllum vörum
nema tilboðsvöru.
Annað par fylgir öllum margskiptum glerjum.
Tilboðið gildir til 5. september.
HAFNARGATA 45 OPTICALSTUDIO.IS REYKJANESBÆR
Tímabókanir s. 421-3811
14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Heimilislegt Bistro við Garðskaga Fjölskyldan sem stökk af stað og opnaði Brim Bistro Nýjasti veitingastaður Suðurnesjabæjar, Brim Bistro á Lighthouse Inn við Garðskaga, hefur farið frábærlega af stað. Það sem byrjaði sem hálfgert grín í maí varð að veruleika tveimur mánuðum síðar. Veitingastaðurinn er rekinn af hjónunum Arnari Má Halldórssyni og Birnu Ármey Þorsteinsdóttur ásamt syni þeirra, Ármanni Guðna.
Fyrst þurfti ekkert að bóka borð, en núna verður fólk helst að bóka. Það er búið að vera fullt hjá okkur næstum alla daga frá verslunarmannahelgi og við höfum þurft að vísa fólki frá.“
á hótelið. Hann kom með tilboð og við byrjuðum strax að safna leyfum og koma okkur í gang.“ Stórir skammtar og sósur sem fólk skrapar upp til síðasta dropa
Hvað getið þið tekið á móti mörgum? „Það eru sæti fyrir 55 manns, en við miðum yfirleitt við 50 manns á kvöldi. Þetta er enn þá aukavinna hjá okkur, við mætum hingað beint eftir okkar venjulegu vinnu, þannig að 50 aðalréttir á kvöldi er alveg hæfilegt álag fyrir okkur í eldhúsinu eins og er.“
SUÐURNESJABÆR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Við tókum Arnar Má tali um hvernig ævintýrið hófst, matseðilinn sem matgestir bóna diskana eftir og framtíðaráform fjölskyldunnar.
Hálfgert djók sem varð að veruleika Hverjir standa á bak við Brim Bistro og hvernig kviknaði hugmyndin? „Það er ég, Arnar Már Halldórsson, konan mín Birna Ármey Þorsteinsdóttir og strákurinn okkar, Ármann Guðni. Það hefur verið draumur hjá konunni minni í langan tíma að prófa að reka veitingastað. Við komum hingað í góðu veðri í maí, sátum hérna frammi og heyrðum í þeim sem reka hótelið. Þau sögðu okkur að veitingastaðurinn sem var hérna væri nýlokaður. Við spurðum í hálfgerðu djóki hvort við mættum taka við en áður en við vissum af var farið yfir málin og við boðin velkomin að reyna!“ Og þið stukkuð á tækifærið? „Konan mín vildi hoppa á þetta strax. Ég sagði að við þyrftum aðeins að sofa á þessu, en tveimur dögum seinna hringdi ég í Gísla Heiðarsson, sem
Hvers konar matseðil bjóðið þið upp á? „Staðurinn heitir Brim Bistro og við bjóðum upp á heimilislegan mat. Við erum með mjög stóran matseðil: panini, smørrebrød, hamborgara, pastasalöt, fiskrétti, plokkfisk og lambafillé. Flestar uppskriftirnar eru frá konunni minni og allar sósur gerir hún alveg frá grunni. Við erum líka í samstarfi við Týnda bakaríið sem gerir allt okkar brauðmeti, hamborgarabrauðin, panini-brauðin og rúgbrauðið hjá þeim er alveg sér á báti.“ Hvernig hefur fólk verið að taka í matinn? „Ekkert nema vel. Sérstaklega lambafilléið, saltfiskurinn, kjötsúpan og þorskurinn á pönnunni hafa slegið í gegn. Ég hef meira að segja séð að fólk er farið að biðja um auka-
Enskt boltatilboð og pizzur á næsta leiti skeiðar til að geta klárað sósuna sem kemur með þorskinum. Meginreglan okkar er að hafa sanngjarnt verð og stóra skammta. Við viljum ekki að fólk fari svangt héðan. Maður hefur farið á veitingastaði þar sem búið er að skera allt niður, en við viljum frekar hafa þetta vel útilátið.“
Fjölskyldan í eldhúsinu Hver er það sem stendur við pönnurnar? „Birna, konan mín, á fimm börn og hefur alltaf verið frábær kokkur. Við erum ekkert lærð í þessu, en hún elskar að elda og finnst gaman í eldhúsinu. Flestar uppskriftirnar eru hennar, fyrir utan saltfiskréttinn sem er uppskrift frá mömmu minni og heitir í höfuðið á henni.
Í dag er konan mín yfirkokkur og stýrir öllu, en Ármann sonur okkar sér um grillið, ofninn og alla aðalréttina.“
Uppselt næstum alla daga frá verslunarmannahelgi Hvernig hefur gengið frá því þið opnuðuð? „Við opnuðum 16. júlí. Við vorum með „soft opening“ á laugardeginum áður sem gekk misvel en við höfðum aldrei unnið í veitingaeldhúsi áður. En við lærðum rosalega mikið af því og þegar við opnuðum opinberlega á sunnudeginum gekk allt mjög vel og enginn kvartaði.
Hver eru framtíðaráformin hjá Brim Bistro? „Eldhúsið er opið frá 17:00 til 21:00 á virkum dögum fyrir aðalréttina. En um helgar ætlum við að sýna enska boltann og opna fyrr, allt eftir því hvenær leikirnir byrja. Þá verðum við með sértilboð á drykkjum og hamborgurum. Í byrjun september fáum við svo pizzuofn og þá bætast pizzur við matseðilinn; bakaríið ætlar líka að gera pizzudeigið fyrir okkur. Hugmyndin í framtíðinni er svo að bjóða upp á hlaðborð öðru hvoru, eins og pizzuhlaðborð eða almennan heimilismat eins og kótilettur í raspi eða Cordon Bleu. Það er margt skemmtilegt á teikniborðinu,“ segir Arnar Már Halldórsson að endingu.
Óskum íbúum í Suðurnesjabæ og gestum góðrar skemmtunar á Vitadögum - hátíð milli vita
24. til 30. ágúst 2026 í Suðurnesjabæ
16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Suðurnesjabær semur við Skólamat um skólamáltíðir
Frá útför Gunnars Þórðarsonar. Skjáskot úr útsendingu Sjónvarps Símans.
Suðurnesjabær hefur lokið útboðsferli vegna kaupa á skólamáltíðum fyrir nemendur og starfsfólk grunnskóla sveitarfélagsins. Skólamatur ehf. mun áfram annast þjónustuna samkvæmt nýjum samningi sem gildir til ársins 2030, með heimild til framlengingar. Consensa innkaupaþjónusta og ráðgjöf hafði umsjón með útboðsferlinu fyrir hönd Suðurnesjabæjar. Eitt tilboð barst, frá Skólamat ehf., sem uppfyllti skilyrði útboðsins og var tilboðið samþykkt. Samningurinn var undirritaður í síðustu viku af Axel Jónssyni, stjórnarformanni og eiganda Skólamatar ehf., og Árna Gísla
Árnasyni, sviðsstjóra og starfandi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. „Það er ánægjuleg niðurstaða að semja við Skólamat sem hefur sinnt þessari þjónustu fyrir Suðurnesjabæ og forvera sveitarfélagsins um árabil með góðum árangri. Það er einnig kostur að semja við fyrirtæki sem er með sína aðalstarfsstöð á Suðurnesjunum. Við hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við Skólamat, hér eftir sem hingað til,“ sagði Árni Gísli við undirritun samningsins. Samstarf Skólamatar við sveitarfélagið og forvera þess nær rúma tvo áratugi aftur í tímann. „Við hjá Skólamat fögnum því að hafa verið valin til að sinna áfram
þessari mikilvægu þjónustu fyrir Suðurnesjabæ. Samstarf okkar við sveitarfélagið og forvera þess hefur staðið yfir í rúma tvo áratugi og á þeim tíma hafa myndast sterk tengsl og gagnkvæmt traust. Markmið okkar hefur ávallt verið að bjóða upp á góðar, næringarríkar og fjölbreyttar máltíðir fyrir nemendur og starfsfólk skólanna. Við erum stolt af því að vera fyrirtæki með rætur á Suðurnesjunum og hlökkum til að halda áfram að vinna með Suðurnesjabæ að því að styðja við vellíðan og námsumhverfi barna og ungmenna á komandi árum,“ segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar ehf.
Gunnar Þórðarson lagður til hinstu hvílu Einn ástsælasti tónlistarmaður og tónskáld þjóðarinnar, Gunnar Þórðarson, var lagður til hinstu hvílu fimmtudaginn 13. ágúst síðastliðinn, en hann lést þann 29. júlí, 81 árs að aldri. Útför hans var gerð frá Hallgrímskirkju og var það séra Hjörtur Magni Jóhannsson sem jarðsöng. Gunnar var í fararbroddi íslensks tónlistarlífs um áratugaskeið og samdi fjöldann allan af tónlistarperlum sem orðnar eru órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni.
til þess að bærinn varð þekktur sem Bítlabær Íslands. Árið 1992 var hann útnefndur bæjarlistamaður Keflavíkur í viðurkenningu fyrir ómetanlegt framlag sitt til menningarlífsins. Sýndur var virðingarvottur við Gunnar hjá stofnunum Reykjanesbæjar á útfarardegi hans þar sem flaggað var í hálfa stöng. Í kveðju frá bæjarfélaginu var fjölskyldu og aðstandendum hans vottuð innileg samúð og Gunnari þakkað fyrir sitt einstaka ævistarf. Líkmenn við athöfnina í Hallgrímskirkju voru Sigurjón Sighvatsson, Jónas R. Jónsson, Egill Eðvarðsson, Óttar Felix Hauksson, Karl B. Herman Gunnarsson, Zakarías Herman Gunnarsson, Jakob Frímann Magnússon og Unnar Helgi Daníelsson.
Sterk tengsl við Keflavík Tengsl Gunnars við Reykjanesbæ voru allt frá æsku hans mjög sterk. Hann fluttist ungur til Keflavíkur og átti stóran þátt í þeirri miklu tónlistarvakningu sem síðar varð
Frá vinstri: Fanný S. Axelsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Skólamatar ehf., Jón Axelsson forstjóri Skólamatar ehf., Axel Jónsson stjórnarformaður Skólamatar ehf., Árni Gísli Árnason starfandi bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og Heiða Ingólfsdóttir sviðsstjóri mennta- og tómstundarsviðs Suðurnesjabæjar.
Andlát: Jóhann R. Benediktsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, angamma og langalangamma,
ELÍN ÞÓRÐARDÓTTIR
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ lést á Hrafnistu Nesvöllum, föstudaginn 14. ágúst.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 31. ágúst klukkan 11. Sigurlín Högnadóttir Þórður Karlsson Guðbjörg M. Sveinsdóttir Oddgeir E. Karlsson Demetris Hadjipanayis Inga Karlsdóttir Óli J. Færseth Jóhanna M. Karlsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
REGÍNA RAGNARSDÓTTIR Skólabraut 11, Innri-Njarðvík
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 27. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragnar Geir Júníusson Tryggvi Rúnar Júníusson Anna María Júníusdóttir
Andrea Karlsdóttir Sigrún Lína Ingólfsd. Hakakian Salvador Orellana Roncero
barnabörn og barnabarnabörn
Jóhann Ragnar Benediktsson (Jói Ben) málarameistari, lést þann 6. ágúst síðastliðinn, 95 ára gamall. Jói Ben fæddist 14. nóvember 1930 á Þórkötlustöðum, Grindavík. Foreldrar hans voru Benedikt Benónýsson, útvegsbóndi og Magnúsa Aðalveig Ólafsdóttir, húsfreyja, bæði fædd í Þórkötlustaðahverfi. Jói ákvað snemma að læra málaraiðn og flutti til Keflavíkur aðeins 16 ára gamall, og fór að læra málaraiðnina ári síðar hjá Jóni Páli Friðmundsyni. Jói stofnaði ásamt öðrum Málaravertaka Keflavíkur árið 1957 og sat í stjórn þess lengi vel. Hann var formaður félagsins 1978-1990, forstjóri 1990-1997, og framkvæmdastjóri frá 1997, þangað til hann fór á eftirlaun. Jói gekk ungur í Ungmennafélag Keflavíkur og var um tíma framkvæmdastjóri félagsins og sá um rekstur á Ungó, húsi félagsins. Þar hitti hann stúlku sem hét Kristín sem varð síðar eiginkona hans til 49 ára. Jói var ekki aðeins við stjórn Ungmennafélagsins, heldur var hann líka íþróttamaður sjálfur og mikill keppnismaður. Fyrst var hann í frjálsum íþróttum og vann til ýmissa verðlauna, þar á meðal var hann annar í hástökki á Íslandsmóti. Síðar byrjaði Jói að spila golf af miklum áhuga. Hann fékk sín fyrstu verðlaun 1966 sem voru fyrir
mikil framför. Það sýnir hversu ákafur hann var í golfinu að hann var komin til Spánar aðeins 4 árum seinna með þremur öðrum golfurum sem valdir voru til að keppa fyrir Íslands hönd í Eisenhower-móti. Ferðin varð enginn frægðarför enda völlurinn miklu lengri en þeir voru vanir, sandglompur út um allt og hitabylgja á Spáni. En Jói hafði samt gaman af þessu öllu saman. Hann var í landsliði Íslands 1970 og 1974, öldungalandsliði 55 ára og eldri, 1986-1997, og öldungalandsliði 70 ára og eldri, 20002001. Hann var landsliðseinvaldur karla í golfi 1988-1993, og urðu þeir Norðurlandameistarar 1992 undir hans stjórn. Hann sagði oft skemmtilegar sögur frá öllum mótum sem hann tók þátt í, innanlands sem utan. Hann mundi mörg skorin, vellina, og hverjir voru í hvaða ferð alveg til síðasta dags. Jói var alltaf félagi í Golfklúbbi Suðurnesja og var gerður að heiðursfélaga 2009. Jói varð á sínum ferli tvisvar klúbbmeistari GS, og starfaði í mótanefnd í 20 ár. Jóhann Ragnar lætur eftir sig þrjú börn: Benedikt, Kristbjörgu og Jóhönnu. Barnabörnin eru 7 talsins og barnabarnabörnin 14. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 19. ágúst og hefst athöfnin klukkan 13:00.
Ljósanæturblað Víkurfrétta kemur út í næstu viku! Verið tímanlega með efni og auglýsingar. Póstfangið er vf@vf.is
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 17
Sandgerðingurinn Björgvin þróar Jarðvakt – Nýr gagnvirkur mælaborðsvefur um jarðhræringar á Íslandi Björgvin Guðjónsson, Sandgerðingur sem búsettur er í Danmörku, hefur nýverið hleypt af stokkunum nýjum gagnvirkum vef sem ber heitið Jarðvakt (https://jardvakt.snilld.dk). Vefurinn samþættir og birtir opinber gögn um jarðskjálfta- og eldvirkni á Íslandi á einum stað á mjög aðgengilegan og sjónrænan hátt. Björgvin, sem áður hefur komið fram í Víkurfréttum vegna gervigreindarverkefna sinna hjá fyrirtækinu Snilld í Danmörku, segir hugmyndina hafa kviknað vegna þess hve opinber upplýsingaöflun getur verið sundurleit. „Ég er Íslendingur en bý í Danmörku á meðan fjölskyldan mín býr á Íslandi. Ég hef fylgst með jarðskjálftum, óróa, landbreytingum og eldvirkni í mörg ár, að hluta til af áhuga og að hluta til vegna þess að þessir atburðir geta haft áhrif á fólkið sem stendur mér næst,“ segir Björgvin. Hann bendir á að réttu upplýsingarnar séu vissulega aðgengilegar, en þær séu oft dreifðar yfir mismunandi kort, skjálftalista, óróalínurit og landbreytingamælingar. Markmiðið með Jarðvakt er að safna þessum opinberu gögnum saman á einum tvítyngdum vef (á íslensku og ensku), ásamt fræðandi útskýringum sem hjálpa almenningi að skilja gögnin betur. Á vefnum er meðal annars hægt að stúdera: Staðsetningu, dýpi og stærð jarðskjálfta. Skjálftahrynur og þyrpingar. Línurit yfir óróa og virkni. Landbreytingamælingar (GPS/InSAR). Takmarkanir þess hvað einstök mælitæki og merki geta sagt okkur. Björgvin tekur skýrt fram að Jarðvakt sé ekki ætlað að spá fyrir um gos, gefa út hættumat eða koma í stað Veðurstofu Íslands, Almannavarna eða annarra opinberra vísindastofnana. Tilgangurinn sé frekar að auðvelda forvitnu fólki að lesa úr gögnunum og skilja samhengið betur. Þá óskar Björgvin eftir endurgjöf frá sérfræðingum og öðrum áhugamönnum um útskýringar, hugtakagrunn og framsetningu á vefnum til að hægt sé að gera hann enn betri. Slóðin á vefina er: jardvakt.snilld.dk
Ellefu ára Sandgerðingur vann söngvakeppnina á Þjóðhátíð Hjörtur Leó Hildarson, ellefu ára Sandgerðingur vann söngvakeppni barna á Þjóðhátíð í Eyjum. Hjörtur flutti hið vinsæla lag „Kominn heim“ eftir Kristmund Axel. Greint er frá úrslitunum á lokakvöldi hátíðarinnar en keppt er í yngri og eldri flokki. Sigurvegararnir flytja svo lagið á stóra sviðinu við upphaf lokakvöldsins í dalnum. Hjörtur gerði það mjög vel, söng lagið og lék á gítar og hvatti þjóðhátíðargesti til að taka undir. Ungi Sandgerðingurinn hagaði sér á sviðinu eins og hann hefði oft verið þar. Hann hefur lært sjálfur á gítarinn og nokkuð ljóst að hann eigi eftir að munda hann oft í framtíðinni. „Þeir sem fóru á Akureyri missa af mér. Þjóðhátíð er alltaf þjóðhátíð,“ sagði ungi söngvarinn á sviðinu þegar hann var kynntur til leiks. Þetta er í annað sinn í röð sem Suðurnesjamaður sigrar í Söngvakeppninni. Í fyrra vann Birkir Frosti Kjartansson í eldri flokki.
Fyrirhuguð tiltekt á landi utan lóðamarka á Tæknivöllum Kadeco beinir þeim tilmælum til fasteignaeigenda, rekstraraðila og einstaklinga að fjarlægja hið fyrsta efni, búnað, tæki, og úrgang sem tilheyrir þeim og er án heimildar á Tæknivöllum og nágrenni þeirra og koma í tilhlýðilega geymslu eða förgun eftir tilfellum. Um er að ræða landsvæði og lóðir án þinglýstra eða gildra lóðaleigu- eða afnotasamninga. Frestur til að fjarlægja muni er til 1. október 2026.
Að þeim fresti liðnum verður svæðið hreinsað og munir fjarlægðir. Flutningur, geymsla og eftir atvikum förgun fer fram á ábyrgð og kostnað eigenda þeirra. Samhliða þessu hvetur Kadeco fasteignaeigendur og rekstraraðila á Tæknivöllum með gildandi lóðaleigusamninga að farga úrgangi innan lóða sinna og halda þeim snyrtilegum. Nánari upplýsingar má finna á vef Kadeco: www.kadeco.is
Kadeco - Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf., Skógarbraut 946, 262 Reykjanesbær
18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Fjölskyldudagar í frábæru veðri Árlegir fjölskyldudagar voru haldnir í 30. sinn í Vogum á Vatnsleysuströnd alla síðustu viku. Hátíðin náði hámarki á laugardaginn þegar fram fór fjölbreytt dagskrá víða um bæinn en hátíðarsviðið var í Aragerði. Veðrið lék við gesti eins og sést á þessum myndum sem Hilmar Bragi tók á hátíðinni.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 19
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Reykjanesbæ Laugardaginn 29. ágúst - Opið frá 9:00-22:00 Í Reykjanesbæ verða þrír kjörstaðir. Skipting íbúa eftir kjörstöðum er eftirfarandi: Keflavík og Njarðvík - Kjördeildir 1-5 verða í Fjölbrautaskóla Suðurnesja Ásbrú og Hafnir - Kjördeild 6 verða í Ráðhúsi Reykjanesbæjar, Grænásbraut 910 Innri Njarðvík - Kjördeildir 7-8 verða í Stapaskóla
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag – stofa 221 í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Símanúmer yfirkjörstjórnar 894-6700
reykjanesbaer.is
20 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Helga Ingimundardóttir, Kristjana Kjartansdóttir og Natalie Kruse á bekk sem settur hefur verið upp við Prestvörðuna. Til hliðar klippi Kristjana á borða og opnar Prestvörðustíginn formlega.
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Prestvörðustígur í Leiru vígður Hvatning, samfélagskraftur og týnd ættartengsl handan Atlantshafsins Nýlega lauk lagningu nýs göngustígs og uppsetningu söguskiltis við Prestsvörðuna í Leiru eftir viðamikinn undirbúning og farsælt samstarf ólíkra aðila. Stígurinn var hátíðlega vígður við sumarmessu sunnudaginn 16. ágúst síðastliðinn.
Verktakafyrirtækið Younes sá um sjálfa stígagerðina. Þá hannaði og prentaði Markaðsstofa Reykjaness söguskilti við stíginn og Menningarsjóður Suðurnesjabæjar styrkti verkefnið um 500.000 krónur. Ásamt framlögum fleiri velunnara er stígurinn nú fullgreiddur.
FRÁ HVATNINGU TIL FRAMKVÆMDA
GAGNKVÆM TENGSL YFIR HAFIÐ
Aðdragandi verkefnisins á sér nokkra sögu. Helga S. Ingimundardóttir leiðsögumaður kynntist sögu séra Sigurðar B. Sívertsen á námskeiði og skrifaði grein í Skiphól árið 2020 þar sem hún hvatti til þess að aðgengi að vörðunni yrði bætt. Á sama tíma hafði Kristjana H. Kjartansdóttir mikinn áhuga á sögu séra Sigurðar, en faðir hennar var vel fróður um líf hans. Kristjana nýtti þann fróðleik meðal annars í þemaviku í Gerðaskóla á kristnitökuhátíðinni árið 2000, þar sem nemendur lærðu um stofnanda skólans og gengu að vörðunni. Þær Helga og Kristjana bundust í kjölfarið samtökum um að auðvelda aðgengi að þessum merka stað, sem mörgum er mikilvægur vitnisburður um trú og bænheyrslu.
Stígurinn er um 600 metra langur og nokkuð greiðfær. að grunnfótfestu undir framkvæmdina. Sú fjáröflun opnaði á frekari stuðning, en Uppbyggingarsjóður Suðurnesja veitti 1.800.000 króna styrk til verksins. Þær stöllur leituðu þá til Golfklúbbs Suðurnesja sem tók að sér að vera framkvæmdaraðili, enda töldu forsvarsmenn hans brýnt að gera sögu Leirunnar og vörðunnar betri skil.
Saga vörðunnar teygir sig einnig alla leið til Bandaríkjanna. Natalie Kruse, búsett í Wisconsin, er langa-langa-langafabarn séra Sigurðar. Ættartengslin höfðu tapast í meira en þrjár kynslóðir eftir að langamma hennar, Hrefna Pálsdóttir Eggerz, varð munaðarlaus sex ára gömul í Chicago árið 1891 og var ættleidd inn í bandaríska fjölskyldu. Eftir áralangar ættfræðirannsóknir náði Natalie sambandi við Kristjönu á Facebook. Þegar Natalie heimsótti Ísland ásamt fjölskyldu sinni árið 2022 kynntist hún Helgu og kviknaði þá hugmyndin um að safna einnig fé meðal afkomenda séra Sigurðar í Bandaríkjunum. Margir ættingjar
ÓVÆNTUR LIÐSAUKI OG SAMFÉLAGSKRAFTUR Verkefnið fékk mikinn meðvind í sumarmessu við vörðuna í ágúst 2024 þegar viðstaddur gestur heillaðist af málstaðnum. Hann lét endurprenta 100 eintök af útfararminningarriti um séra Sigurð og gaf til styrktar verkefninu. Salan skilaði 350.000 krónum sem urðu
þar ytra lögðu verkefninu lið og hafa sumir þeirra komið til Íslands að sjá staðinn. Natalie heimsótti Leiru aftur nýverið ásamt eiginmanni sínum Jamie, þar sem þau sátu á bekk við vörðuna ásamt Kristjönu og Helgu – á sama stað og séra Sigurður upplifði kraftaverk á sínum tíma. Kristjana og Helga færa öllum þeim sem stunduðu verkefnið með áhuga, velvild og fjárframlögum sínar bestu þakkir og bjóða alla velkomna á vígsluna.
150 ÁR FRÁ ATUBRÐINUM Í Suðurnesjaannáli er eftirfarandi frásögn sr. Sigurðar Br. Sívertsen: „Sunnudaginn 2. janúar 1876 gjörði mesta ofsaveður á landsunnan sem varaði alla nóttina. Fuku skip og brotnuðu. Annað veður þvílíkt datt á laugardagskvöldið þann 22. janúar með fjarskalegri rigningu upp úr útsynnings éljagangi og frosti. Þá um kvöldið, er ég kom frá Keflavík, er ég skírt hafði þar barn, varð ég viðskila við samferðamann minn við Bergsenda, en af því að ég sá ekki lengur til vegar, fór ég afleiðis suður fyrir veginn fyrir ofan Leiru. Treysti ég mér þá ekki til að halda áfram, ef ég kynni að villast suður í heiði. Var og hesturinn hlaupinn frá mér. Lagðist ég þá niður og ætlaði að láta fyrirberast, en um nóttina var gerð leit að mér af sóknarfólki mínu, fyrir tilstilli sonar míns. Leið svo hin óttalega nótt, að enginn gat mig hitt, þar til um morguninn, að tveir heimamenn mínir hittu mig og var ég enn með rænu og nokkru
fjöri, þó að nokkuð væri af mér dregið. Hugði enginn maður að ég þá nótt mundi hafa afborið lífið og var það augsjáanlega Drottins almættis dásemdarverk, að ég skyldi lifa svo lengi í því veðri, en mér leið vel og mér fannst eins og yfir mig hefði verið tjaldað og vissulega var ég undir hlífðartjaldi með föðurlegri varðveizlu. Guði sé lof fyrir þessa lífgjöf. Þessu tilfelli í lífi mínu vil ég ekki gleyma að minnast á og gefa Guði dýrðina.“ Séra Sigurður lét stuttu síðar hlaða upp vörðu á þessum stað og klappa vers í stóra steinhellu sem sett var upp við vörðuna. Á hellunni er vers úr 4. Davíðssálmi, 9 versi, ritað eins og hér: 1876 21. Jan. Í FRIÐI LEGST ÉG FY RIR Í FRIÐI SEF ÉG ÞVÍ ÞÚ EINN DROTTINN ERT ÞAÐ SEM LÆTUR MIG BÚA ÓHULTANN
Um 70 manns tóku þátt í sumarmessu við Prestvörðuna á sunnudagskvöld. Hér má sjá hluta messugesta og svo göngustíginn í baksýn.
Upplýsingaskilti um Prestvörðuna sem sett hefur verið upp við vörðuna og nýja stíginn.
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 21
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA laugardaginn 29. ágúst 2026 Kjörskrá og kjörstaðir í Suðurnesjabæ Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer þann 29. ágúst nk., liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði fram að kjördegi.
Kosningarréttur Íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag eiga kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Einnig er bent á skra.is þar sem hægt er að finna sinn kjörstað. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár.
Kjörfundur Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði er í leikskólanum Grænuborg við Byggðaveg í Sandgerði. Víðismenn fagna einu af fjórum mörkum sínum úr síðasta leik í Garðinum.
Suðurnesjabæjarliðin á toppi 3. deildar - Munar einu stigi á Víði og Reyni Víðismenn sitja á toppi 3. deildar karla þegar 17 umferðir hafa verið leiknar. Víðismenn hafa unnið 11 leiki í sumar, gert þrjú jafntefli og tapað þremur leikjum. Liðið er með 36 stig. Hitt Suðurnesjabæjarliðið í 3. deildinni, Reynir, fylgir fast á hæla Víðismanna. Þeir eru með 35 stig eftir 17 umferðir, hafa eins og Víðir unnið 11 leiki, gert tvö jafntefli og tapað fjórum leikjum. Þeir eru sem sagt með einum jafnteflisleik minna. Víðir er með 26 mörk í plús en Reynir 19 mörk.
Reynir og Víðir eiga bæði leik í dag, miðvikudaginn 19. ágúst. Reynir tekur á móti KH í Sandgerði en Víðismenn fara í höfuðborgina og leika á móti Árbæ. Árbær er á botni deildarinnar á meðan KH er í 3. sæti með 34 stig. Það er því mikil spenna í deildinni og án efa fylgjast Suðurnesjabæjarliðin vel með gengi hvors annars. Þegar bæjarhátíðin Vitadagar fer fram munu Reynir og Víðir mætast í hreinum nágrannaslag fimmtudaginn 27. ágúst á Bronsvellinum í Sandgerði kl. 17:30.
Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 250 og 251 Garður er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjördagur þjóðaratkvæðagreiðslunnar er 29. ágúst 2026.
Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00. Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í leikskólanum Grænuborg, sími 899-6317. Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 29. ÁGÚST 2026 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 27. júlí 2026 Kosning utan kjörfundar Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis. Hver má kjósa? Íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag. Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðslu og geta því ekki kosið.
l Keflavík er í 6. sæti Bestu deildar karla þegar 19 umferðir hafa verið spilaðar. Keflavík vann sigur í síðasta leik gegn Þór norður á Akureyri, 2-0. Næsti leikur Keflavíkur er gegn ÍBV í Eyjum þann 23. ágúst. l Í Bestu deild kvenna er Grindavík/Njarðvík í 5. sæti deildarinnar. Þær töpuðu síðustu viðureign sinni en eiga næsta leik í Njarðvík þann 20. ágúst kl. 18 á móti Fram. l Í Lengjudeild kvenna var Keflavík í 8. sæti deildarinnar fyrir viðureign sína við KR, sem fram fór á HS Orkuvellinum í Keflavík í gærkvöldi en blaðið var farið í prentun áður en leik lauk. l Í Lengjudeild karla eru Njarðvíkingar í 5. sæti með 32 stig og Grindvíkingar í 10. sæti með 21 stig. Njarðvík tekur á móti Völsungi laugardaginn 22. ágúst í Njarðvík kl. 16 en sama dag fer Grindavík á Fylkisvöll kl. 14. l Í 2. deild karla er Þróttur Vogum í 10. sæti með 19 stig. Þeir eru bara með sex sigra í sumar, hafa tapað þremur af fimm síðustu leikjum og unnið tvo. Næsti leikur Þróttar Vogum er gegn Víkingi í Ólafsvík í kvöld, miðvikudagskvöld.
Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2, gengið inn frá leikvelli Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00 Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Magnús Stefánsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Garði, í viðtali um uppbyggingu, átakamál og lífið eftir stjórnmálin
„Meiri slagkraftur og meiri möguleikar“ Að baki eru 14 viðburðarík ár í sveitarstjórnarmálum á Suðurnesjum. Magnús Stefánsson hóf störf sem bæjarstjóri í Garði árið 2012, stýrði sveitarfélaginu í gegnum stórstígar samfélagsbreytingar og leiddi síðar sameiningu Garðs og Sandgerðis í Suðurnesjabæ árið 2018. Nú hefur hann stigið til hliðar og kveður sveitarstjórnarstigið, í bili að minnsta kosti. Í þessu viðtali lítur hann til baka yfir ferilinn, uppbygginguna, átakamál, samstarfið við ríkið og það frelsi sem tekur við þegar tölvupóstarnir hætta allt í einu að berast. Við settumst niður með Magnúsi yfir kaffibolla og tertusneið í nýju kaffihúsi á Garðskaga sem heitir því vinalega nafni Kaffi Skúrinn.
SUÐURNESJABÆR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Ótraustasta starfið og mæting á miðju kjörtímabili Ef þú lítur til baka yfir þessi 14 ár í sveitarfélaginu, hvað stendur upp úr sem þitt stærsta og mikilvægasta framlag? „Það er rosalega erfitt að draga eitthvað eitt, tvö eða þrjú atriði fram í því öllu. Það er svo rosa mikil breyting búin að gerast á þessum fjórtán árum. Mér finnst þetta hafa verið gríðarleg samfélagsbreyting. Það hefur verið mikil fjölgun á fólki og mikil uppbygging. Þegar ég kom hérna fyrst árið 2012, svona upp úr hruninu og því öllu, þá áttu Íbúðalánasjóður og bankarnir mjög margar eignir í Garðinum og reyndar ennþá fleiri í Sandgerði. Þetta voru vel á annað hundrað eignir samtals. Sumt af þessu voru kannski bara húsgrunnar eða sökklar, og allt upp í eitthvað fullbúið eða gamalt, bara öll flóran af eignum. Þannig að það var mjög skrýtin staða sem blasti við og mikið stóð af auðum íbúðum.“ Hvernig stóð á því að þú komst til starfa á Suðurnesjum á sínum tíma? „Ég hætti á Alþingi árið 2009 og ákvað í aðdraganda kosninganna í apríl það ár að gefa ekki kost á mér lengur. Þá voru einmitt liðin 14 ár frá því ég tók fyrst sæti á þingi. Þannig að þetta er skemmtileg 14 ára tölfræði hjá mér núna. Þetta var í kjölfar hrunsins og vinnumarkaðurinn var frekar dapur. Ég hafði verið í hálfgerðu harki í verkefnaleit þegar einhver hnippti í mig og benti mér á auglýsingu um bæjarstjórastöðu í Garði. Ég vissi í raun ekkert um Garðinn og þekkti kannski tvo til fjóra einstaklinga sem bjuggu þar. Langt var síðan ég hafði komið á staðinn, líklega síðast þegar ég var
að keppa í fótbolta við Víði í Garði með Víkingi Ólafsvík fyrir mörgum árum. Þannig að ég ákvað bara að stökkva til og prófa að senda inn umsókn. Einhverjir vinir mínir spurðu mig hvað ég væri eiginlega að hugsa, því þarna hafði allt verið í „tómu rugli“ og veseni. En ég sagðist bara ætla að sjá til.“ Þú kemur þarna inn eftir talsverðan pólitískan umbrotatíma? „Já, ég kem inn á miðju kjörtímabili í júlí 2012. Meirihlutinn hafði slitnað um vorið þar sem Ásmundur Friðriksson var bæjarstjóri. Ásmundur fór frá störfum og staðan var auglýst. Fyrstu tvö árin flutti ég ekki suður, heldur bjó á höfuðborgarsvæðinu og keyrði á milli. Það var í raun vegna þess að bæjarstjórastarf, líkt og þingmennska, er eitt ótraustasta starf sem hægt er að finna og ég var ekki alveg tilbúinn að leggja í flutninga fyrir tveggja ára tímabil. Svo eftir kosningarnar 2014 leituðu fulltrúar þáverandi meirihluta til mín og spurðu hvort ég væri ekki til í að halda áfram. Ég sló til og fór þá að leita mér að húsnæði. Þá einmitt skoðaði ég töluvert af þessum hruneignum. Það voru enn hátt í 60 eignir í eigu sjóða og banka í Garðinum og yfir hundrað á skrá í Sandgerði.“
Hraður umsnúningur og stórstígar framkvæmdir En það átti eftir að rætast hratt úr málum? „Já, það breyttist ótrúlega fljótt. Umsnúningurinn varð í kjölfar þess að Eyjafjallajökull gaus og ferðaþjónustan tók flugið. Það fór allt á fleygiferð uppi á flugvelli. Á skömmum tíma fóru allar þessar eignir úr eigu bankanna og Íbúðalánasjóðs og fólk fór síðan að byggja nýtt íbúðarhúsnæði. Það tók enga
Mesta breytingin sem ég finn fyrir núna er að ég fæ enga tölvupósta. Þegar maður var í fríi áður fyrr var maður endalaust að gjóa á póstinn og síminn var aldrei kyrr. Það var mikilvægt en líka mikið áreiti. Nú hringir enginn og engir póstar berast. Maður upplifir sig bara eins og svolítinn „Mr. Nobody“ og finn fyrir miklu frelsi. stund að fylla allt ónotað húsnæði af fólki.“ Hvernig gekk að koma sér fyrir í stjórnsýslunni og hver voru fyrstu stóru verkefnin? „Upplifunin að koma var mjög góð. Þrátt fyrir að meirihlutar hefðu slitnað áður varð ég aldrei var við neina erfiðleika, mér var frábærlega tekið og við hjónin eignuðumst fljótt góða vini í Garðinum. Þó urðu síðan aftur meirihlutaskipti um áramótin 2012–2013 en ég hafði fljótt skynjað að svo færi en hafði engar áhyggjur af því að vinna með öllu þessu góða fólki. Þetta kláraðist allt með ágætis anda. Eitt fyrsta stóra verkefnið okkar eftir að ég kom til starfa hjá Sveitarfélaginu Garði var undirbúningur og framkvæmd við stækkun Gerðaskóla, en hann var í raun orðinn alveg sprunginn. Það lá fyrir gróf hönnun að tveggja hæða viðbyggingu. Upphaflega voru jafnvel pælingar um að byggja bara neðri hæðina fyrst, setja á hana bráðabirgðaþak og klára efri hæðina
síðar. En sem betur fer ákvað bæjarstjórnin að ráðast í að reisa alla bygginguna á tveimur hæðum strax. Neðri hæðin var innréttuð fyrir almenna kennslu og verkgreinar eins og handavinnu og fært var til í húsinu, en efri hæðin var skilin eftir sem borð fyrir báru. Þótt þetta hafi kostað meira á sínum tíma varð þetta miklu hagkvæmara til lengri tíma og skólinn er enn vel settur í dag.“
Sameiningin í Suðurnesjabæ og „súpuboðin“ Hvernig kviknaði hugmyndin að því að sameina Garð og Sandgerði? „Það hafði verið í gangi mikið og gott samstarf milli sveitarfélaganna. Sandgerðisbær var leiðandi í félagsþjónustunni þar sem Garður og Vogar keyptu þjónustu, sem gekk ljómandi vel. Þá var sami byggingarfulltrúi á báðum stöðum og sami forstöðumaður var yfir íþróttamiðstöðvunum. Svo var það á aðalfundi Sambands sveitarfélaga kringum 2016 að við fórum eitthvað að gantast
með þetta mjög óformlega fyrir kvöldverðinn. Upp frá því ákvað bæjarstjórnin í Garðinum að bjóða bæjarstjórninni í Sandgerði í súpu til að ræða málin, bjóða þeim upp í dans! Sandgerðingar mættu, öllum leist vel á að skoða þetta, og svo buðu þau bæjarstjórninni í Garði í súpu á móti. Ákveðið var að fara í óformlegar pælingar sem leiddi til formlegra sameiningarviðræðna. Við Sigrún Árnadóttir, sem þá var bæjarstjóri í Sandgerði, ásamt Róberti Ragnarssyni og fleirum lögðum í mikla vinnu við alls konar greiningar og undirbúning, haldnir íbúafundi o.fl. Þegar farið var í atkvæðagreiðslu var sameiningin samþykkt í báðum sveitarfélögum, meira afgerandi í Garðinum en líka var öruggur meirihluti í Sandgerði.“ Nú eru liðin rúmlega átta ár frá sameiningu 2018. Stóðust væntingarnar? „Svo sannarlega. Þar sem ég var bæjarstjóri í Garði áður og varð svo bæjarstjóri í Suðurnesjabæ eftir sameiningu hef ég mjög góðan samanburð. Það er bara að mörgu leyti ólíkt. Það er miklu meiri slagkraftur í Suðurnesjabæ. Öll umsvif eru meiri, möguleikarnir meiri og fjármagn til framkvæmda meira í heildina séð. Það er auðveldara að forgangsraða og klára stóra hluti. Gott dæmi er leikskólinn Grænaborg í Sandgerði. Það var ákveðið að fara í hann fljótlega eftir sameiningu og heildarkostnaðurinn varð nálægt einum og hálfum milljarði króna þegar framkvæmdum var lokið. Hvorugt gömlu sveitarfélaganna hefðu haft burði í svona framkvæmd eitt og sér, en sameinað sveitarfélag gat það. Síðan má nefna baráttuna um að fá aftur heilsugæsluþjónustu í sveitarfélagið, í þeirri baráttu skipti stærð og slagkraftur sveitarfélagsins miklu máli en mikil samstaða var
VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM // 23 með kjörnum fulltrúum um málið allt frá sameiningu. Ellert Eiríksson sagði eitt sinn að það tæki þrjár kynslóðir að sameina sveitarfélög. Það er ýmislegt til í því. Fólk er oft að naggast í hinu og þessu og það er bara hluti af kúltúrnum og mannlegu eðli. Það er ekki hægt að mæla svona breytingar á einu eða tveimur kjörtimabilum , það verður að horfa til mun lengri tíma, kannski 20 til 30 ára.“ Svo má ekki gleyma því hve mikilvægt er að skapa samstöðu meðal íbúanna, sameina þá í eitt samfélag sem allir finna sig vera hluta af.
Íþróttamálin, gervigrasið og pólitíkin Hvað með íþróttamálin? Það hefur stundum verið mikill hiti í umræðunni um gervigrasvöll og íþróttamannvirki. „Mér fannst mjög sorglegt hvernig allt fór í skrúfuna varðandi þennan íþróttavöll. Þarna rekast saman hagsmunir tveggja íþróttafélaga og íbúa á tveimur stöðum. Í mörgum sveitarfélögum hafa íþróttafélögin ótrúlega mikil ítök inni í bæjarmálunum. Fólk sem fer í sveitarstjórnir kemur oft úr félagsstarfi og íþróttahreyfingunni. Sumir í þessum bransa segja að það sé meira að segja mest „töff “ að eiga við pólitíkina í kringum íþróttafélögin. Félögin eru mikið til upp á sveitarfélögin komin og auðvitað leggja sveitarfélög mikið fjármagn í þetta vegna þess að þjónustan er gríðarlega mikilvæg fyrir bæði yngri og eldri.“ Hver var staðan á málinu með gervigrasið þegar þú yfirgafst sveitarfélagið nú í sumarbyrjun? „Málið er bara staðsett á núllpunkti í dag. Það var farið í valkostagreiningu árið 2022 að mínu frumkvæði þar sem fimm valkostum var stillt upp. Nú síðast hafa þrjár staðsetningar verið skoðaðar sérstaklega. Það liggja öll gögn fyrir, það eina sem vantar er að taka ákvörðun.“ Hver er þín persónulega skoðun á því hvar eigi að reisa mannvirkin? „Ég hef haft mína hugmynd um hvað væri skynsamlegast og hagkvæmast frá upphafi, en ég hef meðvitað haldið aftur af mér og ætla ekki að kasta henni inn í umræðuna núna. Ef ég myndi segja núna að völlurinn ætti að vera í Garði eða í Sandgerði, fengi ég bara að heyra það næst þegar ég hitti fólk eða á Facebook! Ég tel að það þjóni engum tilgangi að fyrrverandi bæjarstjóri fari að skipta sér af því á þessum tímapunkti. Mín skoðun hefur samt alltaf verið sú að það vanti nauðsynlega heilsársæfingaaðstöðu, svo krakkar og meistaraflokkar þurfi ekki að keyra annað á „offseason“ tímabilum. En ég hef hins vegar dregið mörkin við að byggja upp rándýran gervigras-keppnisvöll sem uppfyllir allra hæstu kröfur. Þörfin liggur fyrst og fremst í því að byggja upp góða æfingaaðstöðu sem getur nýst allt árið.“ Í miðju ferlinu var farið í að skoða möguleika á stofnun nýs íþróttafélags á grunni Reynis og Víðis. Voru það mistök? „Á sínum tíma fór líka af stað umræða um að sameina íþróttafélögin tvö, en eftir á að hyggja held ég að umræðan um staðsetningu vallarins hafi truflað það ferli. Það fór einfaldlega ekki saman á þeim tímapunkti.“
Glíman við ríkið: Fylgdarlaus börn og milljarðakostnaður Samskiptin við ríkisvaldið geta verið krefjandi fyrir stækkandi sveitarfélög. Hvernig var sú reynsla?
„Það hefur lengi verið barátta að fá sanngjarnan hlut til svæðisins og stofnanir hér hafa dregist aftur úr miðað við íbúafjölgun síðastliðin 10 ár. Þó verð ég að segja að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er að gera frábæra hluti í dag. En eitt af þeim verkefnum sem ég er hvað stoltastur af er hvernig við tókum á móti fylgdarlausum börnum. Samstarfið við ríkið og ráðuneytið í því verkefni var til fyrirmyndar. Starfsmenn ríkisins hafa meira að segja verið að kynna þetta verkefni erlendis sem fyrirmyndardæmi um hvernig vel tekst til.“ En það voru líka aðrir og krefjandi málaflokkar, eins og málefni fatlaðra barna? „Já, varðandi börn með fjölþættan vanda er staðan allt önnur og verri. Ég fór til dæmis á fund með þáverandi fjármálaráðherra og ráðherra barnamála og benti þeim á að kostnaður Suðurnesjabæjar vegna barna með f jölþættan vanda væri kominn í um 300 milljónir króna á ári. Á sama tíma vorum við að reka leikskóla í Garðinum fyrir 100 börn og nettórekstrarkostnaðurinn við hann var um 360 milljónir. Svarið sem ég fékk frá ríkinu var einfaldlega að ríkið ætti ekki fjármuni í að dekka þetta. Ég spurði þá á móti: „Haldið þið að 4.000 manna sveitarfélag hafi þá fjármuni? Hvar eigum við að ná í þá?“ Þetta er eins og á heimilum: ef þig vantar pening þarftu að spara annars staðar. Eigum við að loka einum leikskóla til þess að eiga fyrir lögbundinni þjónustu sem ríkinu ber í raun að borga? Ég fékk náttúrulega engin svör við því. Þótt gert hafi verið samkomulag fyrir tveimur til þremur árum óttast ég að ríkið reyni smám saman að draga sig út úr þessu með reglugerðarbreytingum og flokkunum, þannig að stór hluti af reikningnum sitji eftir hjá sveitarfélögunum. Ég verð mjög ósáttur ef það verður niðurstaðan.“
„Mr. Nobody“ og nýtt líf í Kópavogi Nú ertu stiginn til hliðar og ert fluttur í Kópavoginn. Hvað tekur við hjá Magnúsi Stefánssyni? „Hann veit það einfaldlega ekki. Það er ekkert á borðinu sem hægt er að tala um enn þá. Ég hef bara verið að sinna mínum eigin málum síðasta mánuðinn eða svo. Ég á fjögur ár í sjötugt og gæti alveg tekið ákvörðun um að fara á eftirlaun, en ég hef ekki áform um að hætta að vinna heldur vil ég mjög gjarnan halda störfum áfram ef tækifæri bjóðast og einhvers staðar er þörf fyrir mann með mína reynslu og þekkingu. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Aðalmálið er bara að njóta lífsins, hvort sem maður er í starfi eða ekki. Mesta breytingin sem ég finn fyrir núna er að ég fæ enga tölvupósta. Þegar maður var í fríi áður fyrr var maður endalaust að gjóa á póstinn og síminn var aldrei kyrr. Það var mikilvægt en líka mikið áreiti. Nú hringir enginn og engir póstar berast. Maður upplifir sig bara eins og svolítinn „Mr. Nobody“ og finn fyrir miklu frelsi. Og með flutningunum í Kópavoginn erum við nær börnum og barnabörnum.“ Þú kveður Suðurnesjabæ sáttur og án baksýnisspegils? „Algjörlega. Ég kveð með miklu þakklæti. Ég átti frábært samstarf við bæjarfulltrúa úr öllum flokkum og framboðum. Einar Jón Pálsson, sem var forseti bæjarstjórnar lengst af, var sá eini sem var með mér allan tímann frá 2012. Svo hef ég og mín kona kynnst mörgu góðu fólki og eignast vini, ekki má svo gleyma öllu starfsfólkinu sem ég
hef átt svo gott samstarf við öll árin. Suðurnesjabær býr vel að frábæru starfsfólki. Svo hjálpaði það auðvitað mikið til nánast á hverjum degi að geta horft yfir flóann og á Snæfellsjökulinn minn heima.“ Magnús segir Suðurnesjabæ eiga glæsilega framtíð fyrir höndum. „Það eru gríðarleg tækifæri t.d. í Bergvík fyrir atvinnuuppbyggingu og sömuleiðis í kringum flugvöllinn og í sjávarútveginum. Ef tekst að spila úr spilunum á réttan hátt verður spennandi að fylgjast með svæðinu og Suðurnesjabæ blómstra á næstu árum.“
Viðtalið við Magnús var tekið í Kaffi Skúrinn á Garðskaga og þar fá frægir að árita veggi kaffihússins.
Sérfræðingar í heimilislækningum Lausar eru til umsóknar stöður sérfræðilækna í heimilislækningum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Mikil uppbygging er á HSS og innleiðing á stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingunni. Á HSS er lögð áhersla á mennsku, myndugleika og góða menningu.
Helstu verkefni og ábyrgð Móttaka sjúklinga á heilsugæslu, þátttaka í kennslu og þjálfun ásamt umbótavinnu í samvinnu við yfirlækni. Vaktir í boði.
Hæfniskröfur • Íslenskt lækningaleyfi • Sérfræðileyfi í heimilislækningum • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð • Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum • Geta til að starfa í þverfaglegu teymi • Íslenskukunnátta • Góð enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026 Sótt er um starfið á heimasíðu HSS: www.hss.is Umsókn fylgi ítarleg náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf, ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum, viðtölum við umsækjendur og/eða umsögnum. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Starfshlutfall er 50-100% Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
24
HANNESAR FRIÐRIKSSONAR
Hitum
upp!
Heilsudagar nálgast og við hitum upp með orkugefandi tilboðum sem gilda til 27. ágúst!
Valdar vörur frá BioTech
Próteinstykki, 7 teg. Fulfil
Effer-Hydrate NOW
Orkugel BODY FUEL
Opnunartímar í Nettó Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
Hvenær kom hjólið til Íslands? Sumar veðrinu hefur verið nokkuð misskipt. Varla hundum út sígandi á tímabilum og lítið annað að gera en að leggjast á netið og velta fyrir sér stóru spurningunum. Af hverju er himinninn blár? Af hverju er sjórinn blautur? Og hvenær var hjólið fundið upp? Samkvæmt velflestum heimildum var hjólið fundið upp fyrir um það bil 5-6000 árum og þótti fljótlega snjallt til alls konar notkunar sem létti mönnum og skepnum verkin. Fyrir tíma hjólsins þurftu vinnudýr (eins og uxar eða hestar) og menn að bera eða draga allt á bakinu eða á sleðum. Með vögnum gátu sömu dýr flutt allt að tífalt meiri þunga á sama tíma án þess að örmagnast. Allt fram á seinni hluta nítjándu aldar var hjólið nánast óþekkt fyrirbæri á Íslandi. Samkvæmt bestu heimildum er það ekki fyrr en árið 1874 sem hjólið í sinni eiginlegu mynd kemur til Íslands, sama ár og íslenska krónan er tekin upp. Hjólið hefur sannað gildi sitt, en krónan í sinni upphaflegu mynd hefur fallið um 99, 97%. Sagt er að það hafi verið Vestur-Íslendingar sem flúið höfðu vistarbönd bænda og útgerðarmanna sem sent hafi hjólið til Íslands. Ástæða þess að hjólið kom ekki fyrr til landsins er sögð vera að hér væru engir vegir og miklar brekkur, auk fólksfæðar. Betra væri að bera bara hlutina eða hengja þá á hesta. Engum datt í hug að hægt væri að nota hjólið til þess að byggja vegi eða ferðast á milli landshluta. Í dimmustu moldarkofum afturhalds og íhalds var sami söngurinn sunginn: Við þurfum ekki hjólið, við getum gert þetta sjálf. Við höfum sem betur fer náð að stíga út úr moldarkofunum og erum byrjuð að sjá að ekki er allt slæmt sem kemur að utan. Við fengum símann, þrátt fyrir hörð mótmæli bændasamtakanna, við fengum okkar fyrstu virkjanir með dyggri hjálp Marshall-aðstoðarinnar og við fengum meira að segja litasjónvarpið þrátt fyrir hávær mótmæli þeirra sem sögðu að litirnir væru ljótir. Tímarnir hafa breyst. Senn kjósum við um hugsanlegt framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ekki um aðild, ekki um sjálfstæði, og ekki um fullveldi, eða hvort fjölskyldur tali saman eins og einn formaður þeirra sem eru á móti aðild virðist halda. Þar verður hver að gera það upp við sjálfan sig hvað hver vill. Það er ekki verið að finna upp hjólið eða hvernig eigi að nota það. Það er bara verið að leggja fyrir þjóðina hvort hún vilji taka upp viðræður. Svona svipað og þegar við spyrjum okkur sjálf hvort við eigum að tala við nágrannann um að mála grindverkið. Við skulum ekki halda áfram að syngja fortíðarsönginn í skuldahöllunum.