Skip to main content

Víkurfréttir 15. tbl. 47. árg.

Page 1


Láta til skarar skríða gegn meindýrum og ránfuglum á Vatnsleysuströnd:

Vargur herjar á kríuvarp á Ströndinni

Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga vill láta til skarar skríða gegn meindýrum og ránfuglum sem herja af auknum þunga á kríuvarpið á Vatnsleysuströnd. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að kallaðir verði til minkaveiðimenn og

refaskyttur til að stöðva þessa þróun, ásamt því að eyrnamerkja til þess sérstakt fjármagn í fjárhagsáætlun.

Aðgerðirnar eru viðbragð við ábendingu um að kríuvarpi við ströndina fari óðfluga hnignandi og að fuglinn verpi nú á umtalsvert

Reykjanesbær

færri stöðum en áður. Ástæðan er talin vera vaxandi fjöldi vargs á svæðinu, en meindýrin virðast hafa haft greitt aðgengi að æti á ákveðnum stöðum meðfram ströndinni.

Tekið er skýrt fram í afgreiðslu nefndarinnar að úrbóta sé þörf

án tafar til að vernda varpsvæðin. Ásamt því að efla veiðar hefur um hverfis- og skipulagssviði verið falið að taka fast á ætisframboðinu og eiga samtal við íbúa og rekstrar aðila á svæðinu svo að meindýrin finni ekki lengur lífsviðurværi við ströndina.

Hola í höggi í Grindavík

Grindvíkingurinn Friðrik Franz Guðmundsson, tæplega tvítugur kylfingur í Golfklúbbi Grindavíkur, fór holu í höggi á 7. braut Húsatóftarvallar nýlega.

Friðrik Franz notaði 48° fleygjárn í högginu fína og sagði að höggið hefði verið frábært!

Þetta er annað draumahöggið hjá kylfingnum unga en hann náði hinu fyrra 20. september 2023 á fjórtándu holu.

Heitar umræður um starfskjör bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ

Minnihlutinn vildi afnema sérstakar fundargreiðslur forseta og formanns

Ný samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa og nefndarlaun í Suðurnesjabæ var samþykkt með meirihluta atkvæða á stormasömum fundi bæjarstjórnar í vikunni. Málið vakti mikla athygli og hleypti illu blóði í bæjarfulltrúa, en minnihlutinn gagnrýndi harðlega sérstakar fundarþóknanir ofan á þegar ríflegar álagsgreiðslur sem fylgja embættum forseta bæjarstjórnar og formanns bæjarráðs.

Málið kom inn á borð bæjarstjórnar frá bæjarráði. Árni Gísli Árnason, starfandi bæjarstjóri, fór yfir breytingarnar og útskýrði að óveruleg breyting hefði orðið á mánaðarþóknunum frá fyrra kjörtímabili, fyrir utan eðlilegar uppfærslur í takt við vísitölu.

Helsta nýjungin sneri að því að setja skýrari reglur og ramma í kringum þóknun til kjörstjórna og þeirra sem starfa á kjörstöðum, þar sem tekinn var millivegur miðað við önnur sveitarfélög og horft til kjarasamninga við Starfsgreinasambandið.

Það voru hins vegar greiðslur til æðstu manna bæjarstjórnarinnar sem urðu að eldfimu deiluefni.

„Ekki eðlilegt að fólk fái sérstakt álag fyrir fundasetu“

Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins (M-lista), steig fram og lagði fram breytingartillögu fyrir hönd Miðflokksins sem laut að því að fella brott liði B og C í grein 2.2 í hinni nýju samþykkt.

Þessir liðir kveða á um að forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs fái sérstaka aukagreiðslu eða álag fyrir hvern einasta fund sem þeir sitja.

Daði sagði slíka fundarsetu vera sjálfsagðan hluta af þeim verkefnum sem fylgja því að vera kjörinn í bæjarstjórn og það ætti ekki að leiða til viðbótargreiðslna umfram það sem aðrir bæjarfulltrúar fá fyrir sömu fundarsetu.

Hann benti á að í 1. grein samþykktarinnar væri þegar gert ráð fyrir myndarlegum álagsgreiðslum ofan á fasta þóknun: forseti bæjarstjórnar fær 60% álag á föst laun sín og formaður bæjarráðs fær 40% álag.

„Að okkar mati er sú viðbótarþóknun þegar tekin til greina með því álagi á fasta þóknun sem þessum embættum er ætlað... Ekki verður því séð að rök standi til þess að greiða sérstaka viðbótarþóknun fyrir fundarsetu umfram það sem aðrir bæjarfulltrúar fá. Mér finnst óeðlilegt að mönnum sé mismunað fyrir að sitja fundinn,“ sagði Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi M-lista.

Daði bætti því við að hann gæti skilið ef greitt væri álag fyrir undir-

búning funda en þá þyrfti að orða hlutina öðruvísi í plöggunum.

Tillagan felld og tekist á um atkvæði Framsóknar

Forseti bæjarstjórnar setti tillögu Miðflokksins í atkvæðagreiðslu en hún var felld með atkvæðum meirihluta D- og S-lista. Eftir atkvæðagreiðsluna kom upp ágreiningur um fundarstjórn þar sem Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins (B-lista), steig upp og gerði athugasemd. Hann krafðist þess að forseti tilgreindi nákvæmlega hvernig atkvæði hefðu fallið og að skráð yrði að fulltrúar B-lista hefðu setið hjá við breytingartillögu Miðflokksins. Til þess að hafa allt „eftir bókinni“ ákvað forseti að endurtaka atkvæðagreiðsluna þar sem það var staðfest: Með tillögu Miðflokksins (2 atkvæði): Miðflokkurinn (M-listi).

Gegn tillögu Miðflokksins (5 atkvæði): Meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks (S- og D-listi).

Hjáseta (2 atkvæði): Framsóknarflokkurinn (B-listi).

Breytingartillagan var því formlega felld.

Endanleg afgreiðsla reglna kallaði á nýja bókun

Þegar gengið var til atkvæða um reglurnar í heild sinni, með áðurnefndar fundargreiðslur inni, lögðu Daði Bergþórsson og Sigrún Harpa Sigurlásdóttir Heide (M-lista) fram bókun þar sem þau ítrekuðu rétt kjörinna fulltrúa til hæfilegrar þóknunar en mótmæltu aftur þessari tvígreiðslu til forseta og formanns. Þau sögðu engin rök standa til þess að greiða aukalega fyrir fundarsetuna sjálfa þegar ábyrgðin væri þegar metin til álags í föstum launum.

Að lokum fóru atkvæði þannig að samþykktin um starfskjör kjörinna fulltrúa og nefndarlaun var samþykkt með atkvæðum B-, D- og S-lista, en fulltrúar M-lista greiddu atkvæði gegn henni. Nýju reglurnar tóku gildi afturvirkt frá 1. júní 2026.

Nýtt útlit á Skerjahverfi og metn-

aðarfull framtíðarsýn í Bergvík

Stórtækar skipulagsbreytingar og uppbygging samþykkt

Fram undan eru miklar framkvæmdir og breytingar á ásýnd Suðurnesjabæjar. Á fundi bæjarstjórnar í vikunni voru samþykktar stórar ákvarðanir í skipulagsmálum sem varða nýtt og fjölbreyttara íbúasvæði í Skerjahverfi og gífurlega metnaðarfulla uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu í Bergvík.

Málunum hafði verið vísað til bæjarstjórnar frá framkvæmdaog skipulagsráði og ríkti almenn ánægja með þær áherslur sem þar eru lagðar, enda kallar markaðurinn eftir breytingum og nýjum tækifærum.

Skerjahverfi stækkar: Nýjar húsagerðir og minni íbúðir

Ein stærsta skipulagsbreytingin varðar íbúasvæðið sunnan Sandgerðisvegar, hið svokallaða Skerjahverfi. Samþykkt var að stækka afmarkað skipulagssvæði austur fyrir Skerjabraut og fjölga þar með íbúðum í hverfinu.

Með breytingunni er verið að mæta kalli markaðarins eftir minna og hagkvæmara húsnæði.

• Golfvöllurinn í Leiru.

Gert er ráð fyrir nýrri húsagerð, svokölluðum K-fjölbýlishúsum á tveimur hæðum austan Skerjabrautar. Þá er par- og raðhúsum í gildandi skipulagi skipt út fyrir nýja gerð rað- og parhúsa (J-hús) sem munu hýsa minni íbúðir án bílskúrs. Gatna- og stígakerfi helst að mestu óbreytt en stígar verða framlengdir til að tryggja öruggar tengingar yfir Skerjabraut.

Magnús Sigfús Magnússon, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins (B-lista), fagnaði þessu máli sérstaklega og sagði það sýna mikla framtíðarsýn:

„Þetta er ákall markaðarins um öðruvísi byggð og miklu meiri nýtingu á svæðinu. Maður er búinn að kalla eftir deiliskipulagsbreytingu á þessu svæði og það er loksins

• Iðnaðarsvæðið Bergvík •Garðvegur

• Hólmbergskirkjugarður

til Bergvíkur, framtíðar iðnaðarsvæðis Suðurnesjabæjar. VF/hilmarbragi

komið. Mér leið alveg afskaplega vel þegar ég sá að það voru vörubílar og gröfur farnar að vinna þarna allt í einu eftir eitt og hálft ár í hléi.“

Breytingin á deiliskipulaginu var samþykkt samhljóða og hefur skipulagsfulltrúa verið falið að senda tillöguna til staðfestingar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og Skipulagsstofnun. Bergvík verður „lyftistöng“ fyrir sveitarfélagið

Annað stórt skipulagsmál sem fékk brautargengi á fundinum var nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi fyrir iðnaðar- og athafnasvæðið í Bergvík. Forseti bæjarstjórnar fór yfir málið og benti á að íbúar og hagsmunaaðilar hefðu fengið kynningu á vinnslutillögu í maí síðastliðnum. Þótt það ferli sé ekki lögbundið þótti rétt að kynna tillöguna snemma vegna þess hve umfangsmiklar breytingar og ný áform er um að ræða á svæðinu. Fjölmargar góðar ábendingar bárust á vinnslustigi sem búið er að taka tillit til. Forseti sagði þetta gífurlega metnaðarfulla vinnu sem gæti orðið gríðarleg lyftistöng fyrir atvinnulíf og uppbyggingu í Suðurnesjabæ í framtíðinni. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa og kynna tillöguna formlega í samræmi við skipu-

HSS 15. júlí 2026

3.060 grömm

50 sentimetrar

Foreldrar: Joulya Chalghin Chalghin

og Fared Mezher

Þau eru búsett í Reykjanesbæ

Ljósmóðir: Thelma Guðlaug Arnarsdóttir

Þau eru búsett í Höfnum. Ljósmóðir: Thelma Guðlaug Arnarsdóttir

Blása til átaks um fegrun Voga

Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga hefur hrint af stað átaki til að fegra ásýnd bæjarins. Lögð er áhersla á virka þátttöku íbúa og hagsmunaaðila. Bráðlega verður sett upp víðtæk íbúakönnun þar sem öllum gefst kostur á að senda inn ábendingar og hugmyndir að betri ásýnd sveitarfélagsins. Umhverfis- og skipulagssvið mun vinna úr tillögunum í samstarfi við nefndina. Jafnframt verða veitt hvatningar- og umhverfisverðlaun til þeirra sem skara fram úr í sínu nærumhverfi. Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðu sveitarfélagsins.

Séð yfir Skerjahverfið í Sandgerði nú í byrjun vikunnar. VF/hilmarbragi
Horft

Verum vel undirbúin og förum varlega island.is/almyrkvi

Heima er (víðast hvar) best

Fylgjumst með viðburðinum að heiman. Víðast hvar á vestanverðu landinu er hægt að upplifa almyrkvann frá heimilum eða í nærumhverfi fólks. Íbúar í öðrum landshlutum munu geta séð deildarmyrkva. Förum ekki í stutt erindi að nauðsynjalausu meðan á viðburðinum stendur.

Mætum snemma og dveljum lengur

Fólk sem hyggst ferðast til að sjá almyrkvann er hvatt til að mæta snemma og dvelja lengur. Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkvanum lýkur má draga úr umferðar töfum og stuðla að öruggari umferð.

Verum

vel undirbúin

Verið vel undirbúin fyrir ferðalagið og kynnið ykkur ferðaleið og áfangastað. Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma. Gætið þess að vera með nægt eldsneyti eða hleðslu á bifreiðum. Gætið að hreinlæti, að matvæli sé geymd við fullnægjandi aðstæður.

Höfum augun á veginum

Munum að fara varlega og vera ekki með hugann við farsíma heldur með augun á veginum. Virðum öll hraðamörk og spennum bílbeltin.

Sýnum þolinmæði

Sýnum þolinmæði þegar tímabundnar biðraðir myndast. Fylgjum leiðbeiningum yfirvalda og viðbragðsaðila ef upp koma erfiðar aðstæður. Styðjumst við opinberar upplýsingaveitur fyrir nýjustu upplýsingar.

Öryggi og augnheilsa

Notum sérstök sólmyrkvagleraugu eða síur til að fylgjast með þar sem venjuleg sólgleraugu eru ekki örugg til að horfa beint í sólina.

Hafna áformum um lokaða brottfararmiðstöð í

Áform Sólborgar ehf. um að setja upp girt og lokað úrræði fyrir hælisleitendur á Rockvillesvæðinu á Miðnesheiði hafa ekki hlotið brautargengi hjá bæjaryfirvöldum í Suðurnesjabæ. Bæjarráð hafnaði erindi félagsins samhljóða eftir að bæjarstjórn hafði áður vísað málinu þangað til greiningar.

Málið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar þar sem skiptar skoðanir voru um verkefnið, en margir bæjarfulltrúar töldu svæðið þó vera mun skásta kostinn ef af slíkri starfsemi ætti að verða. Á fundinum kom fram að tækifæri gætu falist í því að koma af stað starfsemi á svæðinu, sem hefur verið í niðurníðslu, fjarri íbúabyggð og fjölskyldufólki.

Eftir nánari skoðun og greiningu ákvað bæjarráð hins vegar að hafna beiðni Sólborgar ehf. um milligöngu um afnot af svæðinu og vilyrði fyrir breyttu skipulagi. Meginástæður höfnunarinnar eru þrenns konar:

Rockville

Aðalskipulag meinar gististarfsemi: Svæðið er afmarkað fyrir umhverfisvæna og þrifalega starfsemi vegna nálægðar við vatnsverndarsvæði. Íbúðir, hótel og gististaðir eru ekki heimil þar og því hefði þurft víðtæka og kostnaðarsama breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Jafnræðisregla í opinberu útboði: Verkefnið er hluti af opinberu útboði á vegum ríkisins þar sem Sólborg ehf. er á meðal bjóðenda. Bæjarráð taldi sveitarfélaginu ófært að veita einum þátttakanda jákvætt vilyrði umfram aðra, enda verði að gæta jafnræðis og gagnsæis gagnvart öllum sem koma að útboðsferlinu.

Aðkoma að leigusamningum:

Bæjarráð taldi það vandkvæðum bundið að gengið yrði í milligöngu varðandi leigusamning um landsvæðið.

Með einróma ákvörðun bæjarráðs er ljóst að Suðurnesjabær mun ekki veita vilyrði fyrir breyttu skipulagi á Rockville-svæðinu í tengslum við umrætt útboð.

Það er talsverð gróðursæld þar sem Rockville

Pólitískur viðsnúningur

og viðurkenndu mistök

Það stefndi í harðar deilur og ásakanir um valdníðslu á bæjarstjórnarfundi Suður nesjabæjar nýverið, en þeim lyktaði með fágætum viðsnún ingi þegar meirihlutinn viður kenndi mistök og samþykkti að hleypa tveimur stórum baráttumálum minnihlutans aftur í umræðu.

Málið varðar tvær tillögur Framsóknarflokksins (B-lista) um bráðnauðsynlega uppbygg ingu á knattspyrnuaðstöðu í sveitarfélaginu og eflingu á streymi frá bæjarstjórnar fundum. Bæjarstjórn hafði áður vísað málunum til nánari vinnslu í bæjarráði, en þegar fundargerð ráðsins var lögð fram kom í ljós að meirihluti D- og S-lista hafði einfaldlega fellt þau og afgreitt út af borðinu. Fulltrúar B-listans, þeir Magnús Sigfús Magnússon og Anton Kristinn Guðmundsson, gagnrýndu vinnubrögðin harðlega og sögðu meirihlutann hafa hunsað ákvörðun bæjarstjórnar og gert helming bæjarfulltrúa atkvæðalausan. Anton benti sérstaklega á að vegna aðstöðuleysis þyrftu ungmenni sveitarfélagsins að sækja æfingar í önnur sveitarfélög með tilheyrandi raski og kostnaði fyrir fjölskyldur.

„Við sjáum áframhaldandi eftirspurn eftir þjónustu okkar og erum spennt fyrir komandi tímum.“

Skólamatur stækkar enn á Iðavöllum

Fyrsta skóflustunga að nýrri viðbyggingu. Framleiðslugeta eykst um allt að 50%.

Fyrsta skóflustunga að nýrri viðbyggingu við húsnæði Skóla matar á Iðavöllum í Reykjanesbæ var tekin 7. júlí. Þar með hófust formlega framkvæmdir við næsta stækkunarskref fyrirtækisins, sem þjónustar nú um 125 leikog grunnskóla á suðvesturhorni landsins.

matar, tók fyrstu skóflustunguna við athöfn á framkvæmdasvæðinu. Viðstaddir voru meðal annars Viðar Ellertsson frá Ellert Skúla syni ehf. og Unnar Ragnarsson frá HUG-Verktökum, sem koma að framkvæmd verkefnisins.

Stærri og betri aðstaða

Nýja viðbyggingin verður 126,4 fermetrar að stærð og mun hýsa ný kælisvæði, móttöku fyrir hrá efni og vörur, afhendingarsvæði og geymsluaðstöðu. Samhliða verður núverandi húsnæði endurnýjað að utan og fært í samræmt útlit við aðrar byggingar fyrirtækisins á svæðinu.

Frá því að nýtt miðlægt framleiðslueldhús var tekið í notkun upp á sjálfvirka hitastýringu, blöndunarkerfi og kælimöguleika. Slíkur búnaður gerir fyrirtækinu kleift að framleiða stærri lotur með meiri stöðugleika og betri nýtingu hráefna.

Matvælaöryggi og umhverfismál

Hluti af þessari framkvæmd er gangsetning á tveimur nýjum hraðkælum. Þeir gera mögulegt að kæla stórar framleiðslulotur hratt og örugglega, þannig að matvæli fari á skömmum tíma úr eldunarhita niður í öruggt geymsluhitastig. „Hraðkæling skiptir miklu máli í starfsemi sem þessari. Hún styrkir matvælaöryggi, hjálpar til við að varðveita bragð, áferð og næringargildi matvæla og getur jafnframt dregið úr matarsóun,“ segir Jón. Við val á nýju kælikerfunum var einnig horft til umhverfisþátta. Hraðkælarnir nota CO₂ sem kælimiðil í stað hefðbundinna kæligasa. CO₂ er náttúrulegt kælimiðilsefni sem hefur mun minni loftslagsáhrif en mörg eldri kælimiðilsefni. Með þessari fjárfestingu tekur Skólamatur skref í átt að umhverfisvænni lausnum samhliða aukinni framleiðslugetu.

Systkinin Jón og Fanný, stjórnendur Skólamatar. Á hinni myndinni er Axel faðir þeirra með Viðari Ellertssyni frá Ellerti Skúlasyni ehf. og Unnari Ragnarssyni, HUG byggingaverktaka.

Bjartir tímar framundan

Ný viðbygging, aukin framleiðslugeta og endurbætt vinnuaðstaða eru hluti af þeirri þróun sem átt hefur sér stað hjá Skólamat undanfarin ár.

Þegar framkvæmdunum lýkur síðar á árinu er áætlað að framleiðslugeta fyrirtækisins hafi aukist um allt að 50%. „Við sjáum áframhaldandi eftirspurn eftir þjónustu okkar og erum spennt fyrir komandi tímum. Ný aðstaða og betri búnaður munu hjálpa okkur að halda áfram að bæta þjónustuna og sinna því mikilvæga hlutverki að útvega nemendum í leik- og grunnskólum heilsusamlegar og vandaðar skólamáltíðir á hverjum degi,“ segir Jón Axelsson.

Umræðurnar tóku hins vegar óvænta stefnu þegar Svavar Grétarsson, formaður bæjarráðs og fulltrúi S-lista, steig upp og viðurkenndi mistök:

væri að bíða komu nýs bæjarstjóra áður en stórar ákvarðanir yrðu teknar. Eftir stutt fundarhlé náðist víðtæk sátt. Samþykkt var samhljóða að vísa málunum tveimur aftur til bæjarráðs til efnislegrar umræðu, við mikinn fögnuð viðstaddra, og var málinu fagnað sem farsælli og lýðræðislegri lausn. Bæjarráð hefur núna vísað streymismálum til umræðu um gerð fjárhagsáætlunar. Uppbygging knattspyrnuaðstöðu var lögð fram á síðasta fundi bæjarráðs.

stóð áður á Miðnesheiðinni.

GÓÐA FERÐAHELGI!

Rólegt í heimahöfn en Suðurnesjabátar gera það gott úti á landi

Sko, það fór þá loksins þannig að við á Suðurnesjum fengum loksins sumar, búið að vera í það minnsta sól síðustu daga, en nokkuð hvasst og þetta hvassviðri hefur haft áhrif á sjósókn hjá bátunum.

Reyndar er þetta nú þannig að þessi mánuður er vægast sagt mjög rólegur því að flest fyrirtækin eru í sumarfríi. Einhverjir bátar eru fyrir austan og þar er til dæmis Einhamar ehf. í Grindavík með alla sína þrjá báta og hefur gengið nokkuð vel hjá þeim. Gísli Súrsson GK er kominn með 151 tonn í sextán róðrum og mest 13 tonn. Auður Vésteins SU 114 tonn í sextán róðrum og mest 10 tonn og Vésteinn GK 74 tonn í ellefu og mest 9,6 tonn. Allir þessir bátar hafa verið að landa að mestu á Stöðvarfirði og líka í Neskaupstað. Fáein Suðurnesjaskip og -bátar eru fyrir norðan. Margrét GK sem er á dragnót að eltast við ýsuna. Hefur Margrét GK landað 80 tonnum í tólf róðrum. Landað nokkuð víða: á Hólmavík, Sauðárkróki og Skagaströnd.

Fyrir norðan eru líka togarar Nesfisks sem eru á rækjuveiðum og

hefur Sóley Sigurjóns GK landað 153 tonnum í þremur og Pálína Þórunn GK 90 tonnum í tveimur. Af þessum afla þá er Sóley Sigurjóns GK með 67 tonn af rækju og Pálína Þórunn GK er með 22 tonn af rækju; mest af fiskinum sem báðir togararnir hafa landað er þorskur. Þeir landa á Siglufirði og er rækjunni ekið til vinnslu á Hvammstanga en fiskinum ekið suður til Sandgerðis og Garðs til vinnslu.

Talandi um togara þá hafa sex togarar landað núna í Grindavík. Bergey VE kom með 64 tonn í land snemma í júlí, Hulda Björnsdóttir GK hefur landað 324 tonnum í þremur löndunum og mest 145 tonnum. Birtingur NK með 159 tonn í tveimur löndunum, Vestmanney VE 60 tonn í einni löndun.

Svo komu báðir frystitogararnir, Tómas Þorvaldsson GK kom með 917 tonn og var aflinn ansi blandaður, en þó mest af þorski, 294 tonn, 226 tonn af ýsu, 121 tonn af karfa, 77 tonn af gulllaxi og 62 tonn af grálúðu sem var veidd djúpt úti fyrir Norðurlandi.

Hrafn Sveinbjarnarson GK kom snemma í júlí með 497 tonn í land

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

MARINÓ ADOLFSSON

Kirkjuvegi 5, Keflavík

lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 19. júlí.

Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn 5. ágúst klukkan 13.

Jónína Guðbjörg Sigurjónsdóttir

Signý Ósk Marinósdóttir

Adolf Andersen Marinósson Sigrún Ásta Marinósdóttir

Haraldur Rúnar Hinriksson Berglind Sigrúnardóttir Sverrir Ómar Ingason

barnabörn og barnabarnabörn

tonn af karfa

Sæbjúguveiðarnar ganga ansi vel, Klettur ÍS er kominn með 153 tonn í 13 róðrum og mest 22

tonn, reyndar er Klettur ÍS hættur í Faxaflóanum og kominn vestur til Bolungarvíkur og landaði þar 22 tonnum í einni löndun. Jóhanna ÁR hefur landað 37 tonnum í fjórum róðrum. Annars líður að lokum júlí og enn þá eru strandveiðarnar í gangi og stefnir í að þetta strandveiðitímabil sé orðið eitt það lengsta, því að undanfarin ár hafa veiðar iðulega verið stöðvaðar um miðjan júlí. Verður fróðlegt að sjá hversu langt fram í ágúst strandveiðar verða leyfðar.

AFLAFRÉTTIR

Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.IS

Síðasti dieselbíll Kölku er til sölu

Kalka tekur í notkun nýjan rafmagnsvörubíl

Kalka hefur tekið í notkun nýjan Mercedes-Benz eActros 400 rafmagnsvörubíl sem markar enn eitt skref fyrirtækisins í átt að umhverfisvænni og sjálfbærari starfsemi. Bíllinn er afhentur af Landfara ehf., umboðsaðila Mercedes-Benz Trucks á Íslandi, og er búinn 17 bretta vörukassa frá Kiesling ásamt tveggja og hálfs tonna vörulyftu sem hentar vel fyrir fjölbreytt flutningsverkefni fyrirtækisins.

Mercedes-Benz eActros 400 er fullrafknúinn vörubíll með allt að 400 km drægni við hagstæð skilyrði og er hannaður fyrir krefjandi dreifingar- og flutningsverkefni. Með þessari fjárfestingu dregur Kalka enn frekar úr kolefnisspori starfseminnar og styður við þá stefnu fyrirtækisins að byggja upp hringrásarhagkerfi og lágmarka umhverfisáhrif í allri starfsemi.

Kalka hefur það að leiðarljósi að vera leiðandi í umhverfismálum á sviði úrgangsmeðhöndlunar á Íslandi. Umhverfisstefna fyrirtækisins byggir á ábyrgri meðhöndlun úrgangs, aukinni umhverfisvitund og sjálfbærum lausnum sem endurspegla gildi fyrirtækisins um hringrás, umhverfi og samfélag.

„Við erum afar ánægð með að taka þetta mikilvæga skref að bæta fyrsta rafknúna vörubílnum af þessari stærð við flotann okkar. Rafvæðing flutninga fellur vel að framtíðarsýn Kölku og styður við markmið okkar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og

byggja upp sjálfbærari starfsemi til framtíðar,“ segir Steinþór Þórðarson, framkvæmdastjóri Kölku. Davor Lucic, rekstrarstjóri sorphirðu og endurvinnslustöðva, segir að verkefni fyrir svona bíl hafi smám saman verið að koma upp á yfirborðið. „Við byrjuðum fyrir 6 árum að stækka sendiferðabílinn okkar og nýta ferðir hans betur. Við vorum svo komin upp í stærstu gerð af sendiferðabíl og sáum tækifæri til að nýta ferðir enn betur. Við flytjum m.a. ýmis endurvinnsluefni sem safnast í Vogum og vonandi í Grindavík líka í framtíðinni. Bíllinn kemur sér líka vel í stærri afhendingar á tunnum og kerjum og í flutninga t.d. á textíl inn á höfuðborgarsvæðið. Þá er algengt að eitthvað sé til að taka til baka suðureftir. Það er mjög jákvætt að geta aukið nýtinguna á bílnum og á sama tíma þurrkað kolefnissporið alveg út“, segir Davor. Kalka er með tvo minni sendiferðabíla „í snattinu“ og þeir eru báðir rafdrifnir. „Við næstu endurnýjun vinnuvéla verður skoðað hvort rafknúnar vélar geti hentað verkefnunum hér“, bætir Davor við. Hjá Landfara ehf. ríkir einnig ánægja með afhendinguna. „Það er ánægjulegt að sjá fyrirtæki eins og Kölku taka afgerandi skref í orkuskiptum með því að velja Mercedes-Benz eActros 400. Bíllinn sameinar öfluga afkastagetu, góða drægni og hagkvæman rekstur og hentar afar vel fyrir íslenskar aðstæður. Við erum stolt af því að fá að vera hluti af þessari vegferð með Kölku,“ segir Ólafur Þór Þórðarson, sölustjóri vörubíla hjá Landfara ehf.

Um bílinn

• Mercedes-Benz eActros 400 fullrafknúinn vörubíll

• Allt að 400 km drægni við hagstæð skilyrði

• 17 bretta vörukassi frá Kiesling

• 2,5 tonna vörulyfta

• Afhentur af Landfara ehf., umboðsaðila Mercedes-Benz Trucks á Ísland

Mercedes-Benz eActros 400 er fullrafknúinn vörubíll með allt að 400 km drægni við hagstæð skilyrði og er hannaður fyrir krefjandi dreifingar- og flutningsverkefni. VF-mynd: Hilmar Bragi
og 36 tonn af ufsa.

Framtíðarbyggingarland á svæði sem kallast Keflavíkurborgir. Svona var umhorfs þar í byrjun vikunnar. VF/hilmarbragi

Hart tekist á um sérbýlislóðir í Reykjanesbæ

Minnihlutinn segir nóg til en meirihlutinn vill sækja fram

Skiptar skoðanir eru á milli meirihluta og minnihluta í bæjarráði Reykjanesbæjar um framboð og þörf á sérbýlislóðum í sveitarfélaginu. Ný samantekt skipulagsráðs um stöðu lóða var nýverið lögð fram og leiddi af sér nokkrar umræður og bókanir fulltrúa.

Samkvæmt samantektinni eru nú samtals 289 sérbýlishúsalóðir tilbúnar, í auglýsingu eða með samþykkt deiliskipulag í sveitarfélaginu.

Þar af er um að ræða:

• 50 einbýlishúsalóðir

• 4 parhúsalóðir

• 169 raðhúsalóðir

Við þessar tölur bætast svo um 130 sérbýli í nýja hverfinu, Keflavíkurborgum, sem eru í vinnslu.

Fulltrúar minnihlutans, þær Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (Framsókn) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (Samfylkingu), fögnuðu niðurstöðum samantektarinnar og töldu þær staðfesta það sem þær hefðu áður haldið fram.

„Er niðurstaðan í takt við það sem við höfum statt og stöðugt haldið fram, það er til nóg af sérbýlishúsalóðum í Reykjanesbæ,“ segir í bókun þeirra.

Bentu þær á að þegar 130 sérbýli í Keflavíkurborgum bætast við muni hlutfallið hækka enn frekar. Fulltrúar meirihlutans, Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson (Sjálfstæðisflokki) ásamt Gunnlaugi Kárasyni (Miðflokki), töldu yfirlitið hins vegar staðfesta mikilvægi þess að halda áfram markvissri vinnu við að fjölga sérbýlislóðum.

Meirihlutinn undirstrikaði í sinni bókun að málið snerist ekki einfaldlega um að telja saman lóðir, heldur um stærð, gerð og framboð húsnæðis:

„Það er ekki bara fjöldinn sem skiptir máli heldur stærð og tegund þess húsnæðis sem fyrirhugað er á lóðunum [...]. Markmiðið er ekki aðeins að telja saman lóðir heldur að tryggja stöðuga uppbyggingu, hraða skipulagsvinnu og reglulega úthlutun þannig að framboðið mæti eftirspurn.“

Lögðu fulltrúar meirihlutans áherslu á að skapa fjölskyldum raunverulegt val um búsetu og að fjölgun sérbýlislóða verði áfram eitt af þeirra helstu lykilverkefnum á kjörtímabilinu.

Ungur íbúi kom bæjarstjóra á óvart og bað um háskóla í Voga

Það vantar ekki metnaðinn í unga fólkið í Sveitarfélaginu Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, nýr bæjarstjóri Voga, komst að því á dögunum þegar ungur drengur mætti til hennar með nokkuð óvenjulega en afgerandi ósk.

Björg Ásta hefur staðið í ströngu síðustu vikur eftir að hún tók við embætti, enda mörg stór verkefni á borðinu hjá sveitarfélaginu. Í nýlegum pistli sínum til íbúa segir hún frá fjölmörgum góðum samtölum sem hún hefur átt við bæjarbúa á förnum vegi og í vikulegum viðtalstímum.

Eitt samtalið stóð þó upp úr fyrir frumleika sakir, en þar mætti ungur drengur og bað bæjarstjórann einfaldlega um að stofna háskóla í Vogum.

Hugsa stórt fyrir framtíðina Þótt flestir bæjarstjórar glími jafnan við beiðnir um bætta götulýsingu, hraðahindranir eða betri sýni og skemmtilega framtíðarsýn,“ segir Björg Ásta um samtalið við drenginn.

Hún segir beiðnina hafa verið frábæra hvatningu til þess að íbúar og bæjaryfirvöld leyfi sér að hugsa stórt þegar kemur að framtíð samfélagsins. Þótt háskóli sé kannski ekki á teikniborðinu alveg á næstu dögum, útilokar bæjarstjórinn

Dýptarmæla Sandgerðishöfn til að tryggja ríkisstyrki

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að láta dýptarmæla Sandgerðishöfn til að styrkja umsóknir um ríkisstyrki úr Hafnabótasjóði. Verkefnið er framkvæmt í tengslum við komu mælingaskips Vegagerðarinnar á svæðið, sem var þar við endurnýjun vitaljósa. Aukakostnaði vegna mælinganna verður mætt með hærri hafnartekjum vegna góðs aflaverðs.

Svansvottuð pallaolía

„Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn, fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn,“ segir í hinu kunna ljóði og lagi eftir Ólínu Andrésdóttur sem flestir þekkja og hefur löngum verið notað sem lýsing á dugnaði og sjómennsku Suðurnesjamanna. Tímarnir hafa hins vegar breyst. Samhliða því að sjávarútvegur í Reykjanesbæ sem ein af undirstöðum samfélagsins hefur verið á undanhaldi hefur ferðaþjónusta tekið sífellt stærra hlutverk. Staðsetning Reykjanesbæjar við alþjóðaflugvöllinn hefur skapað ný tækifæri og þau vilja hjónin Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir nýta enn betur með nýrri framtíðarsýn sem ber nafnið KEF Center.

Myndirnar sýna aðeins hugmyndir að framtíðarskipulagi en ekki endanlegt útlit bygginga og mannvirkja.

VATNSNESIÐ

Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is

Myndefni af framtíðarsýn: Jón Stefán Einarsson JeES arkitektar

KEF Center mun gerbreyta miðbæ Reykjanesbæjar á næstu 7–10 árum

Á síðustu áratugum hafa þau byggt upp fjölbreytta starfsemi á svæðinu, allt frá Hótel Keflavík sem opnaði árið 1986 til Diamond Suites, KEF SPA & Fitness og enduruppbyggingar hins sögufræga Vatnsness eins og við greindum frá nýverið. Nú telja þau tímabært að stíga næsta skref.

„Við höfum verið að byggja upp eitt verkefni í einu í tæp fjörutíu ár. Öll þessi verkefni hafa kennt okkur mikið og lagt grunninn að því sem við sjáum nú fyrir okkur. KEF Center er eðlilegt framhald af þeirri vegferð,“ segir Steinþór. Mikil uppbygging síðustu ár

Eftir heimsfaraldurinn árið 2020 tók starfsemi Hótel Keflavíkur miklum breytingum. Á síðustu árum hefur bæst við ný veitingaaðstaða, KEF SPA & Fitness, Diamond Suites og endur-

nýrri bæjarstjórn. Reykjanesbær hefur alla burði til að byggja upp öflugan miðbæ sem nýtir einstaka staðsetningu bæjarins og styrkir samfélagið til framtíðar.“ Hann segir að viðbrögðin hafi verið mjög jákvæð.

„Við höfum sýnt með verkum okkar að við höfum trú á svæðinu. Uppbygging KEF SPA, endurgerð Vatnsness og kaup á lykillóðum eru allt hluti af stærri mynd og í raun upphafið að KEF Center. Nú er verkefnið hins vegar orðið það umfangsmikið að það verður aðeins unnið í góðu samstarfi við aðra.“ Byggt á sérstöðu Reykjanesbæjar Framtíðarsýnin byggir á þeim kostum sem Reykjanesbær býr yfir og tryggir að ferðamenn nýti samfélagið innan bæjarmarka okkar.

Alþjóðaflugvöllurinn, höfnin og nálægðin við höfuðborgarsvæðið skapa tækifæri sem fá sveitarfélög

margir fundir með fjárfestum, lóðareigendum og öðrum sem hafa áhuga á þróun svæðisins.

„Við teljum rétt að kynna þessar hugmyndir fyrir bæjarbúum og

Markmið verkefnisins er að efla miðbæinn með nýjum íbúðum, fjölbreyttri þjónustu, verslun, atvinnustarfsemi og afþreyingu. Hugmyndin er að skapa bæjarumhverfi sem þjónar fyrst og fremst íbúum en verður jafnframt eftirsóknarverður áfangastaður fyrir gesti og ferðamenn sem vilja lifandi samfélag fyrir og eftir flug.

Steinþór segir reynsluna af KEF SPA hafa styrkt þá sannfæringu. „Þegar við kynntum þá hugmynd töldu margir hana of metnaðarfulla. Í dag sjáum við heimamenn, fólk af höfuðborgarsvæðinu og ferðamenn nýta aðstöðuna alla daga ársins. Það sýnir svart á hvítu að ef hugmyndin er góð og framkvæmdin vönduð, þá er hægt að byggja upp öfluga starfsemi hér á svæðinu.“

Samhliða þessu vinnur KEF Service, ferðaskrifstofa þeirra hjóna, að nýjum samstarfsverkefnum með fyrirtækjum á Reykjanesi, flugfélögum og öðrum þjónustuaðilum til að styrkja svæðið enn frekar sem áfangastað.

KEF Lagoon tekur á sig mynd Eitt stærsta verkefnið sem tengist framtíðarsýninni er KEF Lagoon. Að sögn Steinþórs hefur hugmyndin verið í undirbúningi í nokkur ár og meðal annars verið unnið með HS Veitum að því að fara yfir forsendur verkefnisins. Hugmyndin er að KEF Lagoon, sem yrði á besta útsýnisstað Suðurnesja, tengist KEF SPA & Fitness sem gæti stækkað verulega á komandi árum án þess að breyta þeirri upplifun sem gestir þekkja í dag. Göngu- og hjólaleiðin meðfram sjónum verður áfram mikilvægur hluti af svæðinu og tengir nýja uppbyggingu við bæinn. Steinþór

segir jafnframt að fundað hafi verið með flestum eigendum lóða á Vatnsnesi og nokkrar viljayfirlýsingar hafi þegar verið undirritaðar.

Næstu skref og 1.100 nýjar íbúðir

Næst á dagskrá er að vinna deiliskipulag á eigin lóðum félagsins og leggja það fyrir skipulagsyfirvöld. Á sama tíma verður áfram unnið með lóðareigendum, fjárfestum og byggingaraðilum að frekari þróun verkefnisins.

Ein þeirra leiða sem eru til skoðunar er að stofna sameiginlegt þróunarfélag þar sem eigendur leggja inn lóðir og eignir. Slík leið gæti skapað sterkari rekstrargrundvöll,

Miklar breytingar verða á Vatnsnesi verði hugmyndirnar að veruleika.
„Hugmyndirnar ríma vel við framtíðarsýn hafnarinnar“

Hugmyndir um metnaðarfulla upp byggingu á Vatnsnesi, sem Steinþór Jónsson kynnti nýverið, falla eins og flís við rass við framtíðaráform Reykja neshafnar. Þetta segir Halldór K. Her mannsson hafnarstjóri, en stefnt er að því að breyta Keflavíkurhöfn í þjón ustuhöfn fyrir smærri skemmtiferða skip. Að sögn Halldórs hefur það verið leiðar stef í framtíðarsýn Reykjaneshafnar allt frá árinu 2017 að markaðssetja Kefla víkurhöfn fyrir smærri skemmtiferðaskip, með við leguaðstöðu í hjarta bæjarins. Þegar hugmyndirnar um Vatnsnesið voru kynntar fyrir stjórn hafnarinnar á vormánuðum kom á óvart hversu mikil samlegðar áhrif væru á milli verkefnanna. „Ég kynnti þessar hugmyndir um uppbyggingu hafnarinnar og Vatnsnessins fyrir fulltrúum frá

Á horni Vatnsnesvegar og Básvegar. Þarna má sjá hvernig Básvegurinn tekur stakkaskiptum.

„Svæðið býður upp á mjög góða möguleika. Þar eru innviðir til staðar og náttúrulegar aðstæður sem gera verkefnið bæði hagkvæmt og spennandi.“

nokkrum skemmtiferðaskipaútgerðum nú í maí og vöktu þær mikla lukku,“ segir Halldór. Hann vonast til þess að þessi framtíðarsýn raungerist sem mest, enda yrði hún samfélaginu til góðs.

Starfsemin færist yfir í Njarðvík

Innviðirnir tilbúnir fyrir áframhaldandi vöxt

Þessum áformum fylgja jafnframt breytingar á núverandi starfsemi hafnarinnar. Til stendur að færa löndunaraðstöðu, hafnarvog og skrifstofu yfir á hafnarsvæðið við Njarðvíkurhöfn.

Um kostnaðarsama flutninga er að ræða og hefur verið horft til þess að höfnin selji landaðstöðu sína við Víkurbraut til að fjármagna breytingarnar. Að sögn Halldórs á eftir að koma í ljós hvort sú aðstaða verður seld áður en þróun svæðisins hefst eða síðar í ferlinu.

lögð

bygging falli vel að umhverfinu og sögu staðarins.

Hugmyndin er að skapa lifandi bæjarhluta þar sem fólk býr, vinnur og nýtur þjónustu í göngufæri. Svæði sem verður jafn aðlaðandi fyrir íbúa Reykjanesbæjar og þá gesti sem sækja bæinn heim.

Horft til framtíðar

Framtíðarsýn KEF Center hefur verið unnin í samstarfi við JeES arkitekta og Jón Stefán Einarsson. Á næstu misserum verður áfram unnið að skipulagi, samráði og frekari útfærslu verkefnisins.

„Við viljum byggja þetta upp í samvinnu við sem flesta. Því fleiri sem taka þátt, því betra verður verkefnið og því meiri ávinningur verður fyrir Reykjanesbæ til fram tíðar,“ segir Steinþór. Hann hvetur þá sem hafa áhuga á verkefninu, hvort sem það eru lóðareigendur, fjárfestar eða fyrirtæki, til að hafa samband. Áhugasamir geta haft samband við Steinþór Jónsson á netfangið steini@kef.is til að kynna sér verkefnið frekar eða ræða mögulegt samstarf og hugmyndir.

upp öflug og traust veitukerfi. Þau eru vel í stakk búin til að sinna áframhaldandi vexti, bæði hvað varðar íbúðabyggð og atvinnulíf. Búið er að meta hvaða veituinnviði þarf að styrkja miðað við fyrirliggjandi framtíðarsýn fyrir KEF Center. Ljóst er að með markvissri endurnýjun og styrkingu á svæðinu munu veitukerfin fyllilega geta uppfyllt þarfir þeirra hugmynda sem uppi eru um íbúða- og skrifstofuhúsnæði, sem vænta má að byggist upp á komandi árum. Þá er jafnframt hafin vinna hjá HS Veitum við að fara yfir forsendur verkefnisins hvað varðar afhendingu á heitu vatni fyrir fyrirhugað baðlón á svæðinu.

„Frá sjónarhóli HS Veitna er áframhaldandi uppbygging á þessu svæði mjög jákvæð og rennir enn frekari stoðum undir eflingu veituinnviða í Reykjanesbæ í takt við þarfir samfélagsins,“ segir Páll Erland, forstjóri HS Veitna, að lokum.

„Hlökkum til að kynna okkur þessar hugmyndir nánar“

„Það er alltaf ánægjulegt að sjá þann metnað og kraft sem Steinþór og fjölskylda hans sýna í uppbyggingu í Reykjanesbæ. Það blasir við að metnaður þeirra fyrir bæjarfélaginu er mikill og slíku frumkvæði ber alltaf að fagna,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um framtíðarsýnina fyrir Vatnsnesið.

„Hugmyndirnar um KEF Center eru stórhuga og metnaðarfullar. Það er jákvætt þegar einkaaðilar horfa til framtíðar, sjá ný tækifæri og eru tilbúnir að fjárfesta í samfélaginu okkar. Bæjaryfirvöld munu ávallt leggja sig fram um að skapa umhverfi þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta byggt upp, vaxið og

Svæðið hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og þar hafa skapast ný tækifæri til endurnýjunar og fjölbreyttrar uppbyggingar. Uppbyggingin á KEF Spa & Fitness og umbreyting Vatnsneshússins hafa breytt ásýnd svæðisins til hins betra og því verður spennandi að sjá hvort þessar nýju hugmyndir geti orðið næsta skref í þeirri þróun. Ef vel tekst til gæti slíkur þjónustu- og upplifunarkjarni styrkt ferðaþjónustu, atvinnulíf, mannlíf og þjónustu við íbúa. Af hálfu bæjaryfirvalda er stefnan einföld: við viljum greiða götu einstaklinga og fyrirtækja sem vilja fjárfesta og skapa verðmæti í Reykjanesbæ, en ekki leggja stein í götu þeirra. Við hlökkum því til að kynna okkur þessar hugmyndir nánar og eiga gott samtal við alla þá sem vilja leggja sitt af mörkum til að gera Reykjanesbæ enn öflugra samfélag,“ segir Vilhjálmur Árnason.

Sólmyrkvaævintýri í Reykjanesbæ 12.

Samþykktu aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum í Vogum

Bæjarráð Sveitarfélagsins

Voga hefur samþykkt samhljóða tillögur um aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum vegna stöðunnar í leikskólamálum sveitarfélagsins.

Minnisblað þess efnis var lagt fram af bæjarstjóra og kynnt á fundi ráðsins, þar sem Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sat einnig undir þessum lið.

Bæjarstjóra hefur nú verið falið að vinna nánari útfærslu á aðgerðunum, ásamt því að leggja

fram endanlegt kostnaðarmat og tillögu að fjármögnun.

Breytingar taka gildi í haust

Stefnt er að því að útfærðar tillögur verði lagðar fyrir bæjarráð til endanlegrar afgreiðslu í ágúst næstkomandi. Markmiðið með aðgerðunum er að breytingar á heimgreiðslum og niðurgreiðslum vegna barna sem eru 18 mánaða og eldri hjá dagforeldrum geti tekið gildi þann 1. september 2026.

Suðurvalla í Vogum samþykkt

Tillaga vinnuhóps um stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla var samþykkt á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga. Málið hlaut samþykki með tveimur atkvæðum fulltrúa meirihlutans, en fulltrúi minnihlutans sat hjá við afgreiðsluna. Á fundinum gerðu þau Atli Geir Júlíusson, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Verkfræðistofu Suðurnesja, og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, grein fyrir vinnu hópsins og þeirri tillögu sem lögð var fram.

Fulltrúi minnihlutans í bæjarráði ákvað að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna og lét bóka sérstaka athugasemd þess efnis. Í bókuninni kemur fram að greinargerð vinnuhópsins hafi ekki borist minnihlutanum fyrr en sólarhring fyrir fundinn, sem hafi verið of skammur tími til að hægt væri að greiða tillögunni atkvæði.

„Minnihlutinn telur nauðsynlegt að rýna vel í tillöguna, leita álits og svara við þeim spurningum sem er ósvarað svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun.“

Brennuhugur í Suðurnesjabæ

Vilja áramótabrennu á ný

Bæjarfulltrúar í Suðurnesjabæ vilja hefja undirbúning fyrir veglega áramótabrennu strax í haust og skora á meirihlutann að leysa málið úr baklás. Umræðan hófst á bæjarstjórnarfundi þegar Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins, lýsti yfir miklum söknuði ára mótabrenna í sveitarfélaginu.

Hann hvatti til þess að finnaðir yrðu farvegir þrátt fyrir ströng skilyrði brunaeftirlitsins og sagði kyndlagöngur ekki koma í stað hefðbundinnar brennu.

Staðsetning hefur reynst helsta fyrirstaðan þar sem enginn staður í þéttbýlinu í Sandgerði eða Garði uppfyllir öryggiskröfur. Til greina hefði komið að hafa brennuna á svokallaðri „miðju“ á milli byggðakjarnanna. Anton benti á að vinnan hefði stöðvast þegar fráfarandi meirihluti hannaði fótboltavöll á svæðinu. Þar sem sá

völlur væri fjarlægur draumur væri upplagt að dusta rykið af brennuhugmyndinni þar. Árni Gísli Árnason, starfandi bæjarstjóri, og Haukur Andrésson, forseti bæjarstjórnar, tóku undir brýninguna. Almennur stuðningur var á fundinum við að tryggja að íbúar gætu safnast saman við brennu um næstu áramót og mun ferða-, safna- og menningarráð taka málið fyrir á næsta fundi sínum.

Miðvikudaginn 12. ágúst fáum við að upplifa einstakt og magnað augnablik í Reykjanesbæ. Daginn mun dimma um stund þegar almyrkvi á sólu gengur yfir landið. Af þessu sögulega tilefni býður Reykjanesbær íbúum og gestum til Myrkvastundar – stórglæsilegs almyrkvaviðburðar sem fram fer á fjórum mismunandi stöðum í bænum. Tónlist, fræðsla og fjölbreytt dagskrá munu skapa ógleymanlega upplifun fyrir alla aldurshópa á meðan náttúran sjálf tekur sviðið og sýnir sínar allra bestu hliðar.

Stórar eftirlíkingar af sólmyrkvagleraugum munu marka hvern viðburðastað svo auðvelt verður að finna þá. Dagskráin á öllum stöðum fer fram á milli kl. 17:00 og 18:30.

Dagskrá og staðsetningar

Hér má sjá hvar fjörinu verður stýrt og hvað verður í boði á hverjum stað. Finndu þann stað sem hentar þér og þinni fjölskyldu best!

1. Við Kamb í Innri Njarðvík

Tónlist: DJ Mellí heldur uppi stemningunni. Pop-up viðburður: Júlí Mjöll mætir á svæðið.

Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin sjá um að enginn fari svangur heim og bjóða upp á skemmtilega afþreyingu.

Stjörnufræðsla: Sævar Helgi (Stjörnu-Sævar) leiðir gesti í gegnum upplifunina með hljóðupptökum þar sem hann miðlar áhugaverðum fróðleik um almyrkvann.

2. Í Skrúðgarðinum í Ytri Njarðvík

Tónlist: DJ Lexi sér um taktinn. Pop-up viðburður: Margrét Lilja verður með skemmtilega uppákomu.

Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin mæta með fjölbreytta afþreyingu og veitingasölu.

Stjörnufræðsla: Stuttar hljóðupptökur frá Sævari Helga sem útskýra undur sólmyrkvans á meðan hann á sér stað.

3. Í Holtunum ofan við Holtaskóla

Tónlist: DJ Ragga Hólm þeytir skífum og tryggir góðan straum. Pop-up viðburður: Marta Eiríks mætir með tónlist og takt.

Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin sjá um ljúffengar veitingar og afþreyingu fyrir hópinn.

Stjörnufræðsla: Sævar Helgi fræðir gesti með hljóðupptökum sem spilaðar verða á svæðinu.

4. Við Ráðhúsið á Ásbrú

Tónlist: DJ Sóley heldur uppi stuðinu fyrir gesti og gangandi. Pop-up viðburður: Sara Dögg mætir með spennandi pop-up viðburð.

Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin mæta á svæðið með sölu og fjör.

Stjörnufræðsla: Fróðleikur og innsýn í almyrkvann beint úr hljóðupptökum frá Sævari Helga.

Hagnýtar upplýsingar fyrir gesti

Til þess að upplifunin verði sem allra best hvetjum við íbúa og gesti til að hafa eftirfarandi í huga: Skildu bílinn eftir heima: Ef kostur er hvetjum við fólk til að ganga eða hjóla á viðburðinn til að draga úr umferð og njóta ferska loftsins.

Mundu eftir gleraugunum: Öryggið er í fyrirrúmi! Nauðsynlegt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu til að horfa á sólina meðan á myrkvanum stendur. Komdu þér vel fyrir: Taktu með þér hlýtt teppi, útilegustól og klæddu þig eftir veðri svo hægt sé að njóta stundarinnar í botn.

Nú styttist óðum í einn merkilegasta og glæsilegasta náttúruviðburð síðari ára á Íslandi þegar almyrkvinn á sólu verður sýnilegur miðvikudaginn 12. ágúst næstkomandi. Íbúar og gestir á Reykjanesskaga eru í algerri lykilaðstöðu, en almyrkvaslóðin liggur þvert yfir svæðið og gerir það að einum besta áhorfsstað landsins.

Mesta lengd almyrkvans í Suðurnesjabæ verður í Sandgerði, þar sem sólin verður almyrkvuð í um 1 mínútu og 45 sekúndur, en í Garði mun myrkvið standa yfir í tæpar 1 mínútu og 42 sekúndur. Mikill undirbúningur hefur staðið yfir hjá bæjaryfirvöldum enda er búist við straumi innlendra og erlendra gesta á svæðið, sérstaklega á Garðskaga.

Íbúar hvattir til að njóta myrkvans í heimabyggð

Upplifunin af því að sjá almyrkva úr eigin nærumhverfi verður einstök. Bæjaryfirvöld hvetja íbúa Suðurnesjabæjar til að halda sig sem næst sínu heimili eða nýta sér opin svæði í göngufæri, til dæmis:

• Sjávarbraut

í Sandgerði

• Garðskagi í Garði

Til að koma í veg fyrir umferðarhnúta eru áhorfendur sérstaklega hvattir til að ganga eða hjóla á áhorfsstaði ef þess er nokkur kostur.

Víðtækar breytingar á umferð og lokanir

Til að tryggja öryggi vegfarenda, greiða fyrir umferð og tryggja að neyðarbílar komist leiðar sinnar verða tímabundnar breytingar á umferðarskipulagi á milli kl. 12:00 og 19:00 á atburðardaginn:

Sjávarbraut í Sandgerði: Verður alveg lokuð fyrir bílaumferð svo göngufólk geti notið stundarinnar í öruggu umhverfi.

Skagabraut (út á Garðskaga): Verður gerð að einstefnu út að Garðskaga. Umferð til baka mun fara um Útgarðsveg og þaðan inn á Garðskagaveg. Gestir eru hvattir til að mæta snemma og gera ráð fyrir töfum á umferð bæði fyrir og eftir sjónarspilið.

Bílastæði, þjónusta og góð umgengni

Gjaldskyld bílastæði verða í boði á tveimur túnum á Garðskaga í samstarfi við Parka, auk þess sem

sérstakt rútustæði verður á Víðisplaninu. Salernisaðstaða verður tryggð á Garðskaga og við Sjávarbraut.

Gátlisti áhorfenda:

Gætið að eyrunum og augunum: Notaðu aðeins viðurkennd sólarmyrkvagleraugu eða sérstakan öruggan búnað þegar horft er á sólina á meðan hún er ekki almyrkvuð.

Engir drónar: Drónanotkun yfir mannfjölda er eindregið varað við til að raska ekki upplifun annarra og forðast öryggisáhættu. Virðing fyrir náttúrunni: Taktu allt rusl með þér heim og lagðu aðeins í merkt stæði svo viðbragðsaðilar lokist ekki úti.

Fylgdu leiðbeiningum lögreglu, björgunarsveita og starfsfólks á svæðinu.

Nánari upplýsingar og tímasetningar má finna á upplýsingavef Almyrkva 2026 og hjá Visit Reykjanes. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða hringja í þjónustuver í síma 4253000.

Á Garðskaga var verið að undirbúa stórt bílastæði fyrir rútur undir malbikun í byrjun vikunnar. VF/hilmarbragi

DansKompaní skrifar sögu á Dance World Cup – 13

DansKompaní úr Reykjanesbæ náði einstökum árangri á Dance World Cup í ár og sneri heim með alls níu heimsmeistaratitla, fjögur silfurverðlaun, fimm bronsverðlaun og fjölmörg sæti meðal tíu efstu. Að auki hlaut skólinn fjóra eftirsótta Gala-titla, sem veittir eru þeim atriðum sem þykja skara fram úr sem „best of the best“ á mótinu.

Dance World Cup er eitt stærsta og öflugasta dansmót heims. Um 120.000 dansarar frá yfir 60 löndum taka þátt í forkeppnum um heim allan en 11.500 dansarar vinna sér inn keppnisrétt á úrslitamótinu sem haldið var í Dublin í ár. Árangur DansKompaní er því einstakur og staðfestir það öfluga starf sem unnið er í skólanum.

Markviss vinna skilar árangri

Æfingaferlið hófst í byrjun desember en þá undirbjó hópurinn sig fyrir forkeppnina sem haldin var í Borgarleikhúsinu í febrúar. Þar tryggðu öll atriði skólans sér sæti í íslenska landsliðinu fyrir Dance World Cup. Nemendur stóðu sig afar vel í gegnum allt ferlið og sýndu bæði mikla fagmennsku og samheldni.

Foreldrahópurinn á einnig stóran þátt í velgengninni. Foreldrar sjá meðal annars um að panta búninga, smíða sviðsmuni og styðja við bakið á hópnum á fjölbreyttan hátt.

Mótið gekk vonum framar

Frábær stemning og öflug liðsheild einkenndi okkar hóp á mótinu í ár. DansKompaní raðaði inn heimsmeistaratitlum og verðlaunasætum í fjölmörgum flokkum og sýndi aftur og sannið að skólinn er meðal allra fremstu dansskóla heims.

Eitt eftirminnilegasta augnablik mótsins var þegar DansKompaní vann tvo heimsmeistaratitla með aðeins um fimm sekúndna millibili. Þar sem keppt var á fjórum sviðum samtímis fóru tvær verðlaunaafhendingar fram á sama tíma á stærstu sviðunum tveimur og fögnuðu íslensku keppendurnir heimsmeistaratitlum á báðum stöðum samtímis.

Einnig var ánægjulegt að vinna í flokkum sem eru meðal þeirra sterkustu á mótinu. Samheldnin innan hópsins og gleðin sem ríkti alla keppnisdagana standa þó upp úr sem stærsti sigurinn.

Gala-titlar – „Best of the Best“

DansKompaní hlaut fjóra Galatitla:

• Wonka’s WonderlandChildren Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• Munchkins – Mini Large Group Song and dance. Danshöfundar: Helga Ásta og Laufey Soffía

• Today is the Day - Senior small group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• Mr. & Mrs. Smith - Senior duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

Heimsmeistarar

Heimsmeistaratitla hlutu eftirfarandi atriði:

• Wonka’s WonderlandChildren Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• Munchkins – Mini Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta og Laufey Soffía

• FartParty! - Mini Small Group Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta

• Look – Children small group Commercial. Danshöfundur: Helga Ásta

• Mr. & Mrs. Smith - Seniorduet/trio Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• The Black Pearl - Senior Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• Today is the Day - Senior Small Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• Asylum – Junior Small Group Showstopper. Danshöfundur:

Inga Sól

• Class Clowns - Junior Small Group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

2. SÆTI

• Bruce – Children Small Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía

• Sanderson Sisters – Children duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Laufey Soffía

• Funhouse – Children Small Group Showstopper. Danshöfundur: Laufey Soffía

• Captain Jack Sparrow –Senior solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

3. SÆTI

• Revolting Children - Children Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía

• GAGA – Senior Large Group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

• Music Box – Children solo Showstopper. Danshöfundur:

Inga Sól

• Requiem – Children solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• Book of Mormon wife’sSenior large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía.

TOPP 10

• 4th Waitress - Children duet/ trio Song and Dance. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

• 4th Wonderland - Junior Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía

• 5th Joker - Junior Solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta

• 5th MJ - Senior Small group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

• 6th Tóti the ToothfairySenior Solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta

• 6th The best of: FRIENDS

- Junior Large Group Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól

• 7th Journey - Children solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta

• 8th Barbie - Mini solo Street Dance and Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

• 8th Be our Guest - Children solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta

• 8th Therapy - Junior duet/trio Song and Dance. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

• 10th Lay it back - Mini duet/ trio Street Dance and Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

VÍKURFRÉTTA

VIÐ ERUM Á FERÐINNI Í SUMAR

MEÐ MYNDAVÉL OG HLJÓÐNEMA OG GERUM FRÓÐLEG OG SKEMMTILEG INNSLÖG UM SUÐURNESJAFÓLK SEM ER AÐ GERA ÁHUGAVERÐA HLUTI

Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis

SUMARRÁÐ GUÐNA

Bíltúralagið í ár: „Madre Tierra“ með Chayanne. Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Ég krossa puttana og vona innilega að spáin rætist.“

Sumarhefðin: „Við erum ekki með neina fasta sumarhefð, en vegna vinnu og akstursíþrótta þá reynum við konan frekar að taka viku ferð til sólarlanda á haustin, sem er orðin okkar hefð.“

Faldi gimsteinninn: „Það er rosalega flottur staður nálægt Bifröst sem heitir Paradísarlundur. Það er algjörlega falin perla.“

Í sólbaðinu/hjólhýsinu: „Ég ætla að kynna mér og hlusta á hlaðvörpin Götustrákar, Pitturinn og Mótorvarpið.“

Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Með bjartsýnina og jákvæðnina að vopni er allt hægt í þessu. Þannig nýtur maður þess best.“

„Keyrðum

heim og keyptum hjólhýsi“

Guðni Sigurðsson mætir íslenska sumrinu með bjartsýni og jákvæðni að vopni, jafnvel þótt það rigni. Hann á frábærar minningar úr golfinu í æsku, elskar að grilla folaldafillé og krossar fingurna í von um að 20 stiga hitaforspár rætist. Eftir eftirminnilega rigningarútilegu á Akureyri fyrir nokkrum árum tók fjölskyldan hins vegar afgerandi ákvörðun um ferðamáta sína.

Íslandsmeistaratitill, bústaðurinn og folaldafillé

Þegar Guðni er spurður út í sína uppáhalds sumarminningu fer hann aftur til ársins 1996. Þá fékk hann það hlutverk að vera kylfusveinn í sveitakeppni golfklúbba sem fram fór í Hafnarfirði.

„Þetta árið varð Golfklúbbur Suðurnesja (GS) Íslandsmeistari í sveitakeppni. Það var mikill heiður og góð minning fyrir strák að umgangast kylfingana sem

sett beint upp í bústað að slappa af. Þegar það kemur að því að grilla í alvöru sumarveðri flækir hann hlutina ekki um of en gæðin eru í fyrirrúmi: „Það fer alltaf folaldafillé á grillið. Með því finnst mér best að hafa bakaðar kartöflur með heimalöguðu hvítlaukssmjöri og rótargrænmeti.“

Versta ferðasagan: Aldrei aftur fellihýsi!

Guðni á skrautlega sögu frá Akureyri sem markaði ákveðin tímamót í útilegulífi fjölskyldunnar.

„Fyrir þremur árum vorum við í útilegu á Akureyri og áttum þá fellihýsi. Þegar sunnudagurinn rann upp hætti hreinlega ekki að rigna og allt var komið á flot,“ segir Guðni.

„Fellihýsið var rennandi blautt og þegar við reyndum að pakka þessu saman varð hreinlega allt blautt — sængur, koddar og allt dót. Við konan vorum

gúrmei meðlæti á grillinu. Sumarið fer að miklu leyti í að elta fótboltaleiki, en hún á líka óborganlega sögu af því þegar hún reyndi að svindla fjölskyldunni inn á tjaldsvæði. Boltinn, pallurinn og 20 stiga hiti

Fótboltinn einkennir mikið fjölskyldulífið hjá Þórunni og er helsta áhugamál þeirra allra. Uppáhalds sumarminningarnar tengjast einmitt því að elta strákana þrjá á fótboltamót um allt land, ásamt útilegum og ekta íslenskum sumarkvöldum.

En hvað gerir hún þegar það spáir alvöru sumri og 20 stiga hita?

„Ég býð í partý á pallinn minn! Það er besta fjárfesting sem við höfum gert. Það jafnast fátt við góðan sumardag á pallinum með góðum mat og drykkjum.“

Á grillinu er alltaf gott kjöt, en Þórunn viðurkennir að hún sé mikill brasari: „Ég elska að gera gúrmei sumarmeðlæti með kjötinu. Því meira bras, því betra! Uppáhaldið er sumarlegt salat með jarðarberjum, mangó og allskonar gúmmelaði, heimagerðar kaldar sósur eða bernaise, fyllt grillað grænmeti og góðar kartöflur.“

Ómissandi hefðir og húllumhæ: Sankar að sér minningum

Þórunn er mikið í því að koma fólkinu sínu saman á sumrin og

nýtir hvert einasta tækifæri til að skapa gleði og búa til nýjar minningar. Dagbókin er þéttskipuð af föstum hefðum sem mega alls ekki missa sín.

„Verslunarmannahelgin með vinahópnum okkar er ómissandi hluti af sumrinu. Svo elskum við til dæmis stórmót í fótbolta, sem eru annað hvert sumar, og mér finnst gríðarlega gaman að búa til tippleik í kringum það með stór fjölskyldunni,“ segir hún áhuga miðuð.

Hóparnir hennar eiga líka sína föstu hittinga: „Mér finnst nauð synlegt að hóa vinkonuhópunum saman í skemmtun. Svo hittist gamli Danmerkurhópurinn okkar í árlegum golfhittingi og því fylgir alltaf mikið húllumhæ. Að lokum fer ég í árlega langa göngu með gönguhópnum mínum, en við höfum gengið um svo mikið af fallegum perlum á Íslandi.“

Fyndnasta ferðasagan: Rekin af Apavatni

Þegar Þórunn er spurð út í verstu eða fyndnustu útilegusöguna stendur ein upp úr, en hún hefur ekki stigið fæti á viðkomandi stað í tæp tuttugu ár.

SUMARRÁÐ ÞÓRUNNAR

Bíltúralagið í ár: „Kominn heim“ með Kristmundi Axel. „Kannski ekki það sumarlegasta, en mér finnst það æðislegt og það er frekar nýtt.“

Fullkominn frídagur: „Fara í fjallgöngu á Móskarðshnjúka eða með fjölskylduna í brunch í Reykjavík og borða úti. Allavega vera úti allan daginn og njóta.“

Faldi gimsteinninn: „Garðskaginn er einstakur á fallegum sumardegi og kvöldi. Og svo vil ég nefna Kerlingafjöll, það er eins og að vera staddur í fallegu málverki.“

tjaldsvæðið hjá Rafiðnaðarsambandinu og bauð stórfjölskyldunni með. Allir voru mættir, byrjað að grilla og allir í alvöru sumargír þegar tjaldvörðurinn mætir skyndilega á svæðið. Þá voru góð ráð dýr!“ segir Þórunn og hlær.

„Til að gera langa sögu stutta þá reyndi ég að bjarga málunum og sagði að maðurinn minn væri símvirki og var með hörku útskýringar á því. Mitt á meðal þessara ræðuhalda kemur tengdapabbi minn dæmigerður og segir

Í sólbaðinu: „Úfff, mig langar svo að verða bókatýpan! Ég fór til Tenerife í maí með vinkonunum og ætlaði aldeilis að lesa, en niðurstaðan var fimm blaðsíður. Svo ég mæli frekar með hlaðvörpum um allt milli heima og geima.“

Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Finna sér áhugamál utandyra; hlaupa, göngur, golf eða veiði og njóta í góðum félagsskap. Fjárfesta í góðum regn- og ullarfötum og láta veðrið ekki stoppa sig. Við höfum víst enga stjórn á þessu blessaða veðri á þessu landi, en á ótrúlegan hátt jafnast samt ekkert á við gott íslenskt sumar!“

Fleiri viðtöl og góð sumarráð verður að finna á vf.is næstu daga.

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

ÁSA LÚÐVÍKSDÓTTIR

Krossmóa 10, Reykjanesbæ

lést á Hrafnistu Nesvöllum, fimmtudaginn 23. júlí. Útför mun fara fram í kyrrþey.

Innilegar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir hlýja og góða umönnun.

Guðrún Einarsdóttir

Sólveig Einarsdóttir

Magnús Einarsson Gunnar Már Paris Salvör Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn

„Við mamma lágum inni í tjaldi og hlógum að pabba greyinu“

Bylgja Sverrisdóttir fagnar sumrinu með gönguferðum og er nýbyrjuð í golfinu, en hún lætur rigninguna ekkert stoppa sig. Heima á palli finnst henni best að vera þegar sólin skín, en þegar hún rifjar upp útilegur úr æsku stendur upp úr bráðfyndin minning um eltingarleik föður hennar við krulluhund fjölskyldunnar á Úlfljótsvatni.

Húsafellshópurinn, pallurinn og mariðnað súpukjöt

Þegar Bylgja er spurð út í uppáhalds sumarminninguna þarf hún ekki að hugsa sig lengi um. Hún tengist skemmtilegri hefð sem hefur verið órjúfanlegur hluti af sumrinu í mörg ár.

„Það eru ferðirnar í Húsafell með saumaklúbbnum ‚Nálinni‘, mökum og börnum. Við förum alltaf þriðju helgina í júlí á hverju einasta ári og við höfum einhvern

veginn alltaf verið svo heppin að fá gott veður,“ segir Bylgja glöð. Ef hún á hins vegar dásamlegan frídag í vændum þarf hún ekki að fara langt: „Ég myndi fara beint á pallinn minn, því þar er einfaldlega allt til alls.“ Á grillinu hjá Bylgju er nautaog lambakjöt í aðalhlutverki en hún lumar líka á skemmtilegu grilltrikki. „Stundum tek ég súpukjöt, marinera það og set svo upp á grillteina ásamt grænmeti. Með þessu finnst mér best að hafa grillað grænmeti, eða baka það í ofni, og svo klikkar aspasinn auðvitað aldrei.“

Fyndnasta Hundaeltingarleikurferðasagan: á Úlfljótsvatni

Bylgja á margar góðar minningar úr ferðalögum en ein saga úr æskuútilegu með foreldrunum fylgir henni enn.

„Þetta var þegar ég fór með mömmu og pabba í útilegu á Úlf-

SUMARRÁÐ BYLGJU

Bíltúralagið í ár: „Sumarið er tíminn“ með Bubba Morthens. Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Brosa hringinn og fara rakleitt út í góða veðrið.“

Ómissandi sumarhefð: „Auk Húsafellsferðarinnar er það algjör skylda að ná að minnsta kosti einni helgarferð með fjölskyldunni í Grímsnesið.“

Faldi gimsteinninn: „Það er svo margt í boði en mér finnst vera dregnir upp margir ótrúlega fallegir staðir á Reykjanesskaganum.“ Í sólbaðinu/útilegunni: „Ég ætla að kynna mér bókina Umrót, sem frænka mín, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, var að gefa út.“

Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Mér finnst sumarið dásamlegur tími. Ég fer mikið í gönguferðir og er nýbyrjuð í golfi, þannig að ég læt smá rigningu ekkert stoppa mig. Það er bara að klæða sig í regnfötin — við höfum jú enga stjórn á þessu blessaða veðri, svo það er best að njóta dagsins bara í botn!“

ljótsvatni þegar ég var barn. Við áttum krulluhund sem pabba var nú ekkert alltof vel við, og hundurinn slapp tvisvar sinnum út um miðja nótt,“ segir Bylgja og glottir.

„Á meðan pabbi, greyið, var úti á bömmer að reyna að elta hundinn, sem lét ekki ná sér, lágum við mamma inni í hlýju tjaldi og réðum okkur ekki fyrir kæti af hlátri yfir uppákomunni.“

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

KOLBRÚN INGA GUÐMUNDSDÓTTIR

Ásgarði, Suðurnesjabæ lést á Landspítalanum v/Hringbraut, þriðjudaginn 21. júlí.

Útför fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 31. júlí klukkan 13.

Súsanna G. Antonsdóttir

Þröstur Ingi Antonsson Ævar Geirdal Helena Birna Þórðardóttir barnabörn og barnabarnabörn

Öll tölublöð Víkurfrétta frá 1980 og til dagsins í dag eru aðgengileg á timarit.is

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla, vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB, er hafin á skrifstofu sýslumannsins á Suðurnesjum að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ.

Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar á afgreiðslutíma sýsluskrifstofu, sem er alla virka daga frá klukkan 08:30 til 15:00.

Lokað verður 3. ágúst, frídag verslunarmanna.

Frá og með 15. ágúst og fram á kjördag verður einnig unnt að kjósa utan kjörfundar til klukkan 19 á virkum dögum og frá klukkan 10 til 14 á laugardögum.

Á kjördag, 29. ágúst, verður opið fyrir kosningu hjá sýslumanni frá klukkan 10:00 til 14:00, en þann dag verða kjósendur sjálfir að koma atkvæði sínu til skila.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á sjúkrahúsum og hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra í umdæminu verður auglýst síðar, á viðkomandi stöðum.

Kjósandi, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, getur óskað þess að greiða atkvæði í heimahúsi. Umsókn studd vottorði þarf að hafa borist sýslumanni eigi síðar en kl. 10:00 þann 27. ágúst 2026.

Vakin er athygli á að kjósendur geta kosið utan kjörfundar á hvaða skrifstofu sýslumanns sem er. Afgreiðslutíma þeirra má sjá á vef sýslumanna, www.syslumenn.is.

Kjósendur skulu framvísa gildum persónuskilríkjum (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 27. júlí 2026 Ásdís Ármannsdóttir

Ekki þarf maður að skulda neinum til að lenda á vanskilaskrá

Ég undirritaður og konan mín keyptum okkur íbúð að Vatnsnesvegi 29 í Reykjanesbæ. Okkur hefur líkað vel að búa þar, en það kom fljótlega í ljós að það var ekki allt sem sýndist á yfirborðinu. Það kom sem sagt fljótlega í ljós að það fylgdi böggull skammrifi, böggull sem við höfðum keypt okkur inn í.

Árið 1933 hafði verið gerður lóðaleigusamningur um 9004 fermetra sem átti að borga rétt rúmar 90 krónur fyrir á ári í lóðarleigu.

Þessi samningur er orðaður sem hér segir:

„Lóðin er leigð á erfðafestu óuppsegjanlega til óákveðins tíma með rétti fyrir leigutaka til að selja eða veðsetja svo sem væri lóðin hans af leigusala, þó má leigutaki hvorki selja né veðsetja hluta af lóðinni, en aðeins í heild.“

Allir sem ég hef talað við, lögfræðingar og aðrir, segja að svona orðalag í samningum vísi til þess að lóðin sé eignarlóð.

Við hjónin sem búum í íbúð að Vatnsnesvegi 29 neituðum að borga fyrir árið 2025 að borga þá upphæð sem landeigendur

rukkuðu okkur um eða 74 þúsund krónur.

Í matsgerð í matsmálinu nr. -10/1993 kemur fram að metnar voru 318 lóðir en af þeim eru 294 í Keflavík en 24 í Njarðvík.

Það féll dómur um sambæri legt mál í Héraðsdómi Reykjaness 8. nóvember 1996 þar sem segir að lóðaleiga skuli nema 0,5% af lægsta taxta verkamanns.

Við erum með samning, sem fyrr er getið, upp á annað. Við höfum fengið hótunarbréf frá landeig endum.

Kröfuhafinn eru Landeigendur, Ytri Njarðvík, m/Vatnsnesi.

Þegar málin eru skoðuð kemur í ljós að íbúar sem búa á Reykja nesskaga eru rukkaðir um allt upp í 2% af fasteignamati lóðar í lóða leigu, sem þekkist hvergi annars staðar.

Þetta hafa íbúar á Suðurnesjum þurft að sætta sig við, annars beittir hótunum eins og um er rætt í byrjun.

Bæjarfélög hafa rukkað þessi gjöld í sumum tilfellum og reiknað þau út fyrir lóðareigendur, vegna þess að landeigendur segjast eiga

NÆRMYND

Ekki hefur borið mikið á því að bæjarstjórnir sem eru kosnar af almenningi og þiggja laun frá okkur bæjarbúum hafi nokkurn tímann aðstoðað okkur bæjarbúa í þessum málum, heldur reiknað gjöldin út fyrir þá og sent á Motus til innheimtu.

Hermann Nökkvi Gunnarsson er aðstoðarmaður bæjarstjóra í Reykjanesbæ:

„Það er ekkert víst að þetta klikki“

Hermann Nökkvi Gunnarsson er Njarðvíkingur í húð og hár, þótt háskólanám í stjórnmálafræði hafi haldið honum í höfuðborginni síðustu tvö ár. Hermann, sem er fæddur árið 2002, tók nýverið við starfi aðstoðarmanns bæjarstjóra Reykjanesbæjar og fagnar því að vera kominn aftur á heimavöllinn þar sem hann stefnir á að láta gott af sér leiða fyrir íbúana. Í Nærmynd dagsins ræðir hann um uppvöxtinn í Njarðvík, frábær ár í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, bernskudrauma sem rættust aðeins of vel og eldhúsklúður sem breyttist í fullkomna „hot wings“ uppskrift.

Nafn: Hermann Nökkvi Gunnarsson

Fæðingarár:

Búseta: Alla tíð verið í Njarðvík en er síðustu tvö árin búinn að vera búsettur í Reykjavík vegna háskóla náms.

Hverra manna ertu og hvar upp alin? Móðir mín er Guðný Her mannsdóttir og pabbi minn hét Gunnar Björn Björnsson, en hann lést árið 2012 eftir baráttu við krabbamein. Það má rekja móðurætt mína til Stapakots í Innri-Njarðvík, þar sem langamma mín Guðný Kjartansdóttir var alin upp, og svo einnig til Rafnkelsstaða og Vara í Garðinum. Föðurætt mína má rekja til Reykjavíkur og amma mín, Heiður Kristjánsdóttir, var hótelstjóri á gullaldarárum Hótel Borgar. Eftir að hafa lokið sér af Hótel Borg varð hún sölu- og hótelstjóri hjá Bláa lóninu og flutti um leið að sjálfsögðu í besta bæ landsins, Reykjanesbæ. Ég var sjálfur alinn upp í Njarðvík, bæði í Innri-Njarðvík og Ytri-Njarðvík. Starf/nám: Aðstoðarmaður bæjarstjóra Reykjanesbæjar og námsmaður við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands Hvað er í deiglunni? Koma mér fyrir í nýju starfi og gera mitt besta til að láta gott af mér leiða fyrir íbúa Reykjanesbæjar. Hvernig nemandi varstu í grunnskóla? Uppátækjasamur… Hvernig voru framhaldsskólaárin? Gjörsamlega frábær. Sat í aðalstjórn NFS sem busi, varaformaður og svo formaður þannig að stór hluti af námsárunum fór í félagslífið. Kennararnir voru frábærir og árgangarnir sem voru í FS voru líka einstaklega skemmtilegir. Ég held að þú finnir hvergi öflugra félagslíf í íslenskum framhaldsskólum heldur en í FS.

Hver er draumabíllinn?

Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki? PlayStation 3 og 4, ef leikfang skyldi kalla. Besti ilmur sem þú finnur: gras á sólríkum sumardegi. Það er erfitt að toppa þann ilm. Hvernig slakarðu á?

hlusta á góða tónlist

starfaði með pabba, mig einmitt þessarar spurningar.

Siggi: „Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?“

Ég: „Ég ætla að verða eins og pabbi!“

Siggi: „Nú, ætlarðu að verða fasteignasali?“

Ég: „Nei, ég ætla að verða feitur.“ Það má segja að sá draumur hafi ræst fullkomlega! Núna starfa ég hins vegar beint á móti Sporthúsinu og stefni því á að vinda ofan af þessum „áfanga“ á næstu misserum. Hver var fyrsti bíllinn þinn? Notaður Hyundai i10 sem fékk nafnið Hnísan. Hnísan gaf upp öndina innan við tveimur árum seinna á Reykjanesbrautinni á leiðinni í veiði. Það var ekkert fiskerí þann fallega sumardag. Hvernig bíl ertu á í dag? Volkswagen Polo 2012 árgerð. Hann hefur staðið af sér ýmsa storma en ég held að hann eigi 1-2 góð ár eftir.

Það féll dómur um sambæri legt mál í Héraðsdómi Reykjaness 8. nóvember 1996 þar sem segir að lóðaleiga skuli nema 0,5% af lægsta taxta verkamanns.

Eftir dómnum hefur ekki verið farið.

Það eru margir að spyrja um þessi mál og því set ég þetta inn hérna núna.

Þegar við horfum á fréttirnar þá er stundum verið að tala um mannréttindi.

Hvað eru mannréttindi?

Er það eitthvað sem á við okkur eða eru þau bara fyrir fjármagnseigendur?

Mér datt í hug hvort einhver hérna úti gæti búið til forrit sem allir landsmenn geta tekið þátt í og skorað á ríkisstjórnina að setja lög um hámarkslóðaleigu.

Þeir þyrftu kannski að sleppa símanum á meðan, það er ekki flutningskostnaður á því.

Konan mín á frænda á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði og þau eiga jafnstóra íbúð. Það skakkar 50.000 krónum hvað konan mín borgar meira hér í Keflavík.

Erum við ekki fólk með mannréttindi á Reykjanesi?

Látið í ykkur heyra ef þið hafið áhuga, þið sem gætuð búið til svona forrit.

Sigurður Þorleifsson

Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. 18 ára? eftir Chris Stapleton og Metallica Uppáhaldstónlistartímabil?

Hvaða tónlist fær þig til að sperra

Combs, Morgan Wallen og Ellu

Hvers konar tónlist var hlustað á Dægurlagatónlist, klassíska sálartónlist og svo spilaði mamma víst Pavarotti þegar ég var ungbarn… Það útskýrir margt. Nei. Ég fékk gítar að gjöf einu sinni frá mömmu en fann aldrei tíma til að læra á hann. Horfirðu mikið á sjónvarp og Ég horfi ekki mikið á sjónvarp en þegar ég geri það þá er það venjulega bara eitthvað á Netflix. Þættir eins og Blacklist, House of Cards og the Office eru í miklu uppáhaldi.

Besta kvikmyndin: The Green Mile og Forrest Gump

Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur? Extreme Ownership eftir Jocko Willink

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Mamma er best í öllu

Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Ég er nokkuð góður í því að gera hot wings. Sú snilld kom þó ekki áfallalaust enda gerði ég einu sinni vængi sem ég löðraði í matarsóda. Ég hafði þá lesið enskar leiðbeiningar þar sem mælt var með því að setja baking powder (í. lyftiduft) á vængina. Ég keypti óvart baking soda (í. matarsóda) og kaffærði vængina í því til að gera þá stökka. Til að gera langa sögu stutta þá voru um 100 vængir óætir eftir þetta. En í dag er ég búinn að ná að fullkomna þetta. Hvernig er eggið best? Harðsoðið Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Að ég þurfi að sofa. Það mætti

Möguleg kápa ævisögunnar gæti verið svona.

bæta nokkrum klukkutímum við sólarhringinn. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óstundvísi Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun: „Vertu þú sjálfur; allir aðrir eru þegar fráteknir.“ - Oscar Wilde

Hver er elsta minningin sem þú átt?

Elsta minningin mín er eflaust að sjá bandaríska hermenn á varnarsvæðinu frá því að mamma vann hjá hernum.

Orð eða frasi sem þú notar of mikið: Það er ekkert víst að þetta klikki Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu? Eflaust í Hvítá árið 2011 í síðustu veiðiferð okkar bræðranna með pabba

Hver væri titillinn á ævisögu þinni?

Gamall maður fastur í líkama yngri manns Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Ég myndi velja Elon Musk. Ekki til að senda eldflaug út í geim, heldur bara til að komast loksins að því hvað er eiginlega að gerast inni í hausnum á honum. Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Ekki núlifandi einstaklingar en ég myndi vilja bjóða Winston Churchill, Abraham Lincoln og Ólafi Thors. Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2026 hingað til? Þetta er búið að vera gjörsamlega frábært ár í alla

staði. Mörgum áföngum hef ég náð í vinnu en einnig líka í mínu persónulega lífi. Ef fyrri hluti ársins segir eitthvað til um næstu sex mánuði þá verður þetta eflaust eitt af bestu árum lífs míns.

Hvað á að gera í sumar? Ég er þegar búinn að fara til Nashville á Chris Stapleton-tónleika og í kjölfarið fór ég til Minnesota þannig ég veit ekki hvort það verði mikið meira frí hjá mér. Ég stefni aftur á móti á það að rífa upp golfkylfurnar og komast vonandi í veiði einu sinni til tvisvar á ári. Svo var mamma að flytja til Vestmannaeyja og því geri ég ráð fyrir því að kíkja þangað reglulega. Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum, hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim? Ég myndi að sjálfsögðu kíkja með þá á Pulsuvagninn og Olsen Olsen til að fá að upplifa strangheiðarlega matarmenningu okkar Suðurnesjamanna. Svo er ýmislegt til að sýna gestum eins og Gunnuhver, jarðeldasvæðið fyrir utan Grindavík og aðrar eins náttúruperlur. Ég hef tekið upp á því að sýna gestum frá Bandaríkjunum gamla varnarsvæðið á Ásbrú, en þeim finnst sagan um hersetu Bandaríkjanna hér oft mjög merkileg. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu … til Flórída.

Ný og glæsileg áhorfendastúka vígð á Nesfiskvellinum

Víðir fagnar 90 ára afmæli með nýju mannvirki

Ný og glæsileg 320 sæta áhorf endastúka var formlega opnuð við Nesfiskvöllinn í Garði sl. föstudagskvöld við hátíðlega

athöfn. Það var Hrönn Edvins dóttir, heiðursfélagi Víðis, sem fékk það heiðursverkefni að klippa á borðann og opna stúkuna formlega.

Haukur Andrésson, forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, flutti ávarp við opnunina og fagnaði þessum merka áfanga, sem ber upp á sama ár og Knattspyrnufélagið Víðir fagnar 90 ára afmæli sínu.

„Þessi dagur er ekki bara tilefni til að fagna glæsilegu mannvirki. Hann er líka tilefni til að fagna því sem skiptir mestu máli – fólkinu sem stendur á bak við Víði og því öfluga samfélagi sem

félagið hefur byggt upp í heila níu áratugi,“ sagði Haukur í ræðu sinni.

Haukur lagði áherslu á að undirstrika mikilvægi íþróttafélaga í

Úr leik Reynis og Hattar á dögunum. VF/hilmarbragi

Sjóðheitir í Sandgerði

Staða Suðurnesjabæjarliðanna Reynis og Víðis er góð í þriðju deildinni á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Eftir 14 umferðir eru Reynismenn í 2. sæti deildarinnar með 29 stig. Víðismenn eru í 3. sæti með 27 stig. Tindastóll er efstur í deildinni með 31 stig.

velli í sumar. Af sex heimaleikjum er liðið með fimm sigra og eitt tap. Þá hefur liðið skorað 21 mark í þessum sex heimaleikjum sem gerir meðaltal upp á 3,5 mörk í leik.

Jordan Smylie er sjóðheitur á Brons-vellinum, en hann hefur skorað 10 af þessum 21 heima-

samfélaginu og benti á að nýja stúkan væri tákn um metnað og framtíðarsýn í Suðurnesjabæ. Mannvirkið muni bæta upplifun jafnt leikmanna sem áhorfenda

aðeins inni á vellinum heldur alla ævi,“ sagði Haukur. Verkefni sem þetta verða ekki til af sjálfu sér og færði Haukur öllum þeim sem komu að verkinu innilegar þakkir – þar á meðal Knattspyrnufélaginu Víði, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og Suðurnesjabæ. Sérstakar þakkir fengu verktakar framkvæmdarinnar, þeir Bragi Guðmundsson og Gröfuþjónusta Tryggva Einars, fyrir vel unnið verk.

mínútna.“

Þess má til gamans geta að 40 ár eru liðin frá því fyrsta stúkan var reist við Víðisvöllinn. Hún var úr tré og hafði áður þjónað sem áhorfendapallar í útileikhúsi á höfuðborgarsvæðinu. Í gegnum árin og áratugina hafa trépallar þjónað sem stúka við knattspyrnuvöll Víðismanna en nú er komið mannvirki sem er mun traustara og vonandi endingarbetra en forverar þess.

eins úrslitamiðaður í deildinni!“ Leiðin í úrslitaleikinn

Ferill Grindavíkur/Njarðvíkur í bikarnum þetta árið hefur verið glæsilegur, en liðið hefur sýnt mikinn stöðugleika og lagt öflug lið að velli á leið sinni á Laugardalsvöll.

Þetta er í fyrsta sinn sem sameinað lið Grindavíkur/Njarðvíkur leikur til úrslita í Mjólkurbikarnum. Þegar horft er á Bestu deildina eru liðin tvö miklir jafnokar; Grindavík/Njarðvík situr í 5. sæti með 15 stig en Þróttur R. fylgir fast á hæla þeirra í 6. sæti með 13 stig eftir 12 umferðir. Úrslitaleikurinn gegn Þrótti R. fer fram á Laugardalsvelli laugardaginn 12. september kl. 16:00.

Natasha Moraa Anasi sem gerði út um leikinn á 76. mínútu með marki eftir hornspyrnu.

RAGNHEIÐAR ELÍNAR

Lifum vel

Tilboð gilda til 9. ágúst

Ferskt hvítlaukskryddað lambalæri, Kjötborðið

Kristall í dós 2 teg, 300 ml

Ekki hundi út sigandi

Mér hefur verið mikið hugsað til íslenska sumarsins að undanförnu og hef ég fundið mikið til með íbúum suðvesturhornsins í þeirri miklu vætutíð og kulda sem júlímánuður hefur boðið upp á. Úr fjarlægð sýnist manni vart hafa verið hundi út sigandi í allri þessari rigningu – allavega ekki hundi eins og Lubba sem oft og tíðum harðneitaði góðri strandleiðargöngu í slíkum aðstæðum.

Jarðarber Driscoll's, 400g

Tomahawk nautasteik Blue Smoke

Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00

Hér í París hefur þessu verið þveröfugt farið og höfum við upplifað hverja hitabylgjuna eftir aðra og vart hefur komið dropi úr lofti í allt sumar. Hitinn hefur verið á bilinu 30-40 gráður meira eða minna frá júní og allur gróður er að skrælna þannig að sumarlitirnir eru orðnir líkari haustlitum og hræðilegir skógareldar geisa víða. Það sem gerir þetta líka snúið fyrir okkur íbúa er að loftkæling í húsum er ekki almenn í Frakklandi, þannig að hitinn verður nánast óbærilegur innanhúss og margar sveittar nætur að baki. Það var því dásamlegt að geta opnað glugga og fengið svalt loft í lungun í stuttu helgarstoppi til Íslands í lok júní.

Mikið væri það nú gott ef þessu væri ekki svona misskipt, ég myndi fegin sjá af 10+ gráðum héðan og senda í snatri til Íslands. Ég myndi jafnvel fallast á að taka hluta af rigningunni frá Íslandi með í þennan pakka en það er víst ekki svo gott.

Og hefðarhundurinn Lubbi er heldur ekki að fíla þetta og er ekki spenntur fyrir göngutúrum í þessu veðri frekar en í rigningunni á strandleiðinni. Gangstéttirnar eru brennandi heitar, sólin sterk og heit. Uppáhaldsstaðurinn hans er baðkarið sem hann liggur í köldu vatni hvenær sem færi gefst. Þegar ólin hans er tekin fram horfir hann á okkur með miklum vonbrigðum í augum og eins og við séum algjörlega galin: „Heyrðu, elsku góða kona, myndir þú vilja fara út í þetta veður berfætt í pelsi??“. Niðurstaða hans er sannarlega sú að það er vart hundi út sigandi!

Ég sendi kærar verslunarmannahelgarkveðjur til ykkar og vona svo sannarlega að veðrið leiki við ykkur!

Mundi

Það er örugglega heldur ekki gott að vera með „lubba“ í miklum hita ...

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 15. tbl. 47. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu