Skip to main content

Víkurfréttir 13. tbl. 46. árg.

Page 1

Páskablað Víkurfrétta

kemur út í næstu viku. Verið tímanlega með auglýsingar. Hafið samband við auglýsingadeild á póstfangið andrea@vf.is

in Stöndum vakt

a!

Miðvikudagur 2. apríl 2025 // 13. tbl. // 46. árg.

DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK

DAGLEGAR FRÉTTIR

VF/Jón Steinar Sæmundsson

Kvikugangur setti eldgosið í aukahlutverk Stór og mikill kvikugangur myndaðist í kvikuhlaupi sem hófst með ákafri jarðskjálftahrinu kl. 6.30 á þriðjudagsmorgun á Sundhnúksgígaröðinni. Eldgos hófst svo rúmum þremur klukkustundum síðar eða kl. 9:44 norðan varna-

garðarins við Grindavík. Gossprungan opnaðist í gegnum varnargarðinn og rann hraun því bæði innan og utan varnargarða í nokkrar klukkustundir. Skjálftavirkni hélt áfram í allan gærdag og stóð enn þegar blaðið fór í prentun. Skjálftavirknin tengist

kvikuganginum sem hefur verið að myndast og hefur í raun sett þetta áttunda eldgos á Sundhnúkagígaröðinni og það ellefta á Reykjanesskaganum á fjórum árum í aukahlutverk. Síðdegis á þriðjudag urðu stórir jarðskjálftar við Reykjanestá. Sá

Frá upphafi eldgossins við Grindavík að morgni 1. apríl. Hér er sprungan að opnast í gegnum varnargarðinn. VF/Jón Steinar Sæmundsson

öflugasti mældist 4,3 af stærð og varð rétt fyrir kl. 17. Þá hefur skjálftavirknin verið að færast norðar og verið mikil á þeim slóðum þar sem eldgosið var hvað öflugast í ágúst á síðasta ári. Var kvikugangurinn sagður ná þremur kílómetrum lengra í norður en í ágústgosinu í fyrra. Gosvirkni við Grindavík féll hratt eftir hádegið á þriðjudag, 1. apríl, og sást engin gosvirkni uppúr miðjum degi. Þá hafði gosið á um 700 metra langri sprungu í nokkrar klukkustundir. Vísindamenn voru hins vegar ekki tilbúnir að lýsa yfir goslokum stax, enda atburðurinn enn í gangi og hefur jarðskjálftavirkni verið mjög þétt frá því kvikuhlaupið hófst. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, sagði mikla óvissu um atburðinn. Sprunguhreyfingar hafa orðið í byggð í Grindavík og rofnaði m.a. hitaveitulögn í bænum og sáust gufubólstrar stíga upp þar sem lögnin gaf sig. Nánar er fjallað um eldgosið og kvikuganginn, sem var orðinn yfir ellefu kílómetra langur, á vef Víkurfrétta, vf.is.

160 tonna dælustöð í Grindavík

4 8 Þetta er eins og höll

16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Víkurfréttir 13. tbl. 46. árg. by Víkurfréttir ehf - Issuu