Koddaslagur er ein þeirra keppnisgreina sem eru hvað langlífastar á sjómannadeginum. Þar er oft hart barist en misjafnt hvað bardagar standa lengi yfir. Sumir þurfa bara eitt högg með blautum kodda í andlitið, meðan aðrir eru harðari og fastari fyrir á bitanum. Fleiri myndir frá sjómannadeginum eru inni í blaðinu.
Keflvíkingurinn Ingi Garðar Erlendsson, sem var valinn Reykvíkingur ársins 2025, í skemmtilegu viðtali í miðopnu.
Magnús Stefánsson lætur af störfum
hjá Suðurnesjabæ
Í vikunni sem leið lauk Magnús Stefánsson starfstíma sínum sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Magnús á að baki glæsilegan feril í forystu sveitarfélagsins, en hann hóf störf sem bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs í júlí árið 2012.
Þegar Sandgerðisbær og Garður sameinuðust árið 2018 tók Magnús við keflinu og var ráðinn bæjarstjóri hins nýja sveitarfélags, Suðurnesjabæjar. Hann hefur því gegnt starfi bæjarstjóra á svæðinu í tæp 14 ár.
Mikil uppbygging og íbúafjölgun Á starfstíma Magnúsar hafa orðið miklar breytingar og ör þróun á samfélaginu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á innviðum og þjónustu sveitarfélagsins, samhliða því sem íbúum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Þá hefur verið lagður traustur grunnur að enn frekari uppbyggingu og áframhaldandi íbúafjölgun í nánustu framtíð.
Kveðja frá nýrri bæjarstjórn
Á sínum fyrsta fundi þann 3. júní síðastliðinn bókaði nýkjörin bæjarstjórn Suðurnesjabæjar sérstaka kveðju til Magnúsar:
„Að lokum vill nýkjörin bæjarstjórn þakka fráfarandi bæjarstjóra, Magnúsi Stefánssyni, fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.“
Árni Gísli verður starfandi bæjarstjóri
Suðurnesjabæjar
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að fela ráðningarstofunni Intellecta ehf. að halda utan um ferlið við að finna nýjan bæjarstjóra sveitarfélagsins. Þar til nýr bæjarstjóri tekur opinberlega til starfa mun Árni Gísli Árnason, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, gegna embættinu sem starfandi bæjarstjóri.
Hjúkrunarrýmum fjölgar um
24 með opnun Hlévangs í haust
Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Hlévangi var lokað um síðustu áramót þegar nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu fyrir 80 íbúa var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ. Fljótlega var farið að skoða kosti þess að opna Hlévang tímabundið að nýju, ekki síst til að bregðast við alvarlegri stöðu á bráðamót töku Landspítala. Ljóst var að ráðast þyrfti í töluverðar endurbætur á húsnæðinu til að mæta betur þörfum íbúa og starfsfólks, segir í tilkynningu frá heilbrigðis ráðuneytinu.
Húsnæði Hlévangs er í eigu Reykjanesbæjar. Samningar hafa tekist milli sveitarfélagsins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um leigu á húsnæðinu til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Heilbrigðisráðuneytið útvegar tæki og búnað og fjármagnar reksturinn sem verður á hendi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Dvöl einstaklinga með færni- og heilsumat sem útskrifast af Landspítala í skammtímahjúkrunarrými er tímabundin þar til þeim býðst hjúkrunarheimili þar sem viðkomandi hafa óskað eftir varanlegri bú-
Vilhjálmur Árnason segir af sér sem þingmaður:
„Nú tekur við nýr og spennandi kafli“
staklingum aðbúnað og þjónustu sem uppfyllir allar sömu kröfur og rekstur almennra hjúkrunarheimila, í stað langtímalegu á deildum spítalans þar sem hvorki er pláss né aðstæður til að mæta þörfum þeirra.
Þegar Urðarhvarf var opnað í mars var lokað tímabundið 45 skammtímahjúkrunarrýmum á Vífilsstöðum. Þau verða opnuð á ný í júní eftir endurbætur á húsnæðinu. Þegar öll rými í Urðarhvarfi, á Vífilsstöðum og á Hlévangi verða komin í notkun í haust verður Landspítali kominn með samtals 169 rými til
Nýr meirihluti myndaður í Sveitarfélaginu Vogum
D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi listi Strandar og Voga og
L-listi Listi fólksins hafa myndað nýjan meirihluta í Sveitarfélaginu Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti D-listans, verður bæjarstjóri sveitarfélagsins, Birgir Örn Ólafsson verður formaður bæjarráðs og Kristinn Björgvinsson forseti bæjarstjórnar.
Nýr meirihluti mun byggja á þeim sterka grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili og því góða samstarfi sem tókst um mikilvæg verkefni fyrir sveitarfélagið. Á sama tíma verður horft fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, betri upplýsingagjöf og markvissa uppbyggingu í góðu samtali við íbúa.
Samstarfið byggir á málefnasamningi sem miðar að því að styrkja sveitarfélagið til framtíðar, efla þjónustu í heimabyggð, styrkja innviði, styðja við fjölskyldur og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulíf og félagsstarf í vaxandi og öflugu samfélagi.
„Við erum þakklát fyrir það traust sem íbúar sýndu okkur í
Nýjar tölur Þjóðskrár sýna að íbúum á Suðurnesjum fjölgaði samanlagt um 142 á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. júní 2026. Heildarfjöldi íbúa á svæðinu mælist nú 32.008 manns, sem er 0,4% aukning. Þegar rýnt er í einstök sveitarfélög á svæðinu má sjá áhugaverða þróun, þar sem Vogar og Suðurnesjabær leiða vöxtinn á meðan Reykjanesbær dregst örlítið aftur úr. Sveitarfélagið Vogar sýnir mestu hlutfallslegu fjölgunina á Suðurnesjum á þessu hálfs árs tímabili. Íbúum þar fjölgaði um 47, sem jafngildir 2,4% vexti, og telur sveitarfélagið nú slétta 2.003 íbúa. Suðurnesjabær fylgir fast á eftir en þar fjölgaði íbúum um 91 manns eða 2,1%. Íbúafjöldinn þar
kosningunum og göngum auðmjúk en ákveðin til verka. Fram undan eru stór verkefni en líka mikil tækifæri. Nýr meirihluti mun leggja áherslu á góða samvinnu, skýra forgangsröðun, gott samtal við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, verðandi bæjarstjóri.
Málefnasamningur meirihlutans verður kynntur nánar á næstu dögum, segir í tilkynningu frá nýja meirihlutanum.
hefur farið jafnt og þétt vaxandi síðustu ár og telur sveitarfélagið nú 4.474 manns. Í Grindavíkurbæ fjölgaði íbúum um 11 manns á tímabilinu (1,2% aukning) og eru skráðir íbúar þar nú 903 talsins. Það er talsverður munur frá því fyrir rýmingar, en í desember 2023 mældist íbúafjöldinn þar 3.720 manns. Í stærsta sveitarfélaginu, Reykjanesbæ, má segja að þróunin hafi staðið alveg í stað. Þar fækkaði íbúum um 7 manns (-0,0%) og búa þar nú 24.628 manns samanborið við 24.635 í desember síðastliðnum.
Vilhjálmur Árnason, nýráðinn bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hefur formlega sagt af sér sem alþingismaður. Hann gerði forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni í dag og lýkur þar með þrettán ára samfelldum ferli hans sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Vilhjálmur greindi frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann lítur til baka yfir þingferilinn, sem hófst árið 2013 þegar hann var þriðji yngsti þingmaðurinn á Alþingi.
Fjölskyldan stærsti bakhjarlinn og hlakkar til að starfa í heimabyggð Í færslunni þakkar Vilhjálmur fjölskyldu sinni innilega fyrir stuðninginn og segir þingmennsku verkefni sem öll fjölskyldan taki þátt í. Hann dregur sérstaklega fram þátt eiginkonu sinnar, Sigurlaugar Pétursdóttur: „Sigurlaug, eiginkona mín, hefur verið mín stoð og stytta í gegnum allan þennan tíma. Hún hefur staðið með mér í gegnum súrt og sætt, sýnt ótrúlega þolinmæði og verið minn helsti bakhjarl.“ Hann bætir við að hann hlakki mikið til næstu ára þar sem hann fái loksins að starfa í heimabyggð og verða nær eiginkonunni og strákunum þeirra.
Stoltastur af samgöngubótum og lögreglumálum
Vilhjálmur tók síðast til máls á Alþingi á fimmtudaginn síðasta og fjallaði þá, eins og svo oft áður, um samgöngumál en hann sat lengi í umhverfis- og samgöngunefnd. Hann áréttar að góðir innviðir séu eitt mikilvægasta velferðarmál þjóðarinnar.
Þegar hann lítur yfir farinn veg segist hann stoltastur af verkefnum sem skilað hafa raunverulegum umbótum fyrir fólk um allt land: Samgöngu- og innviðaframkvæmdir: Hringtorg á Reykjanesbraut, tvöföldun brautarinnar og uppbygging hafnarinnar í Þorlákshöfn.
Málefni lögreglunnar: Efling lögreglunnar á landsvísu og flutningur lögreglunáms á háskólastig. Þverpólitísk mál: Breytingar á lögum um nálgunarbann, ættleiðingarlögum og fánalögum.
Spennandi tímar framundan í Reykjanesbæ Vilhjálmur lýkur máli sínu á því að þakka kjósendum í Suðurkjördæmi fyrir traustið og samstarfsfólki á Alþingi fyrir gott samstarf í gegnum árin. Hann hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Alþingi og ríkisstjórn úr brúnni í Reykjanesbæ. „Nú tekur við nýr og spennandi kafli í mínu lífi sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar, stærsta sveitarfélags landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Sjáumst í Reykjanesbæ,“ segir Vilhjálmur að lokum.
Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Suðurnesjabær óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga til að gegna star fi bæjarst jóra.
Bæjarst jóri ber ábyrgð á daglegum rekstri sveitar félagsins og vinnur náið með bæjarst jórn, star fsfólki, íbúum og hagsmunaaðilum að áframhaldandi uppbyggingu og þróun samfélagsins. Leitað er að drífandi leiðtoga sem hefur getu til að efla samheldni, styrkja sveitar félagið enn frekar og skapa traust samstar f milli íbúa, star fsfólks og kjörinna fulltrúa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Ábyrgð á daglegum rekstri, stjórnun og fjármálum Suðurnesjabæjar í samræmi við stefnu bæjarstjórnar.
Vinna að stefnu og framtíðarsýn í málefnum Suðurnesjabæjar.
Ábyrgð á mannauðsmálum og jákvæðri vinnustaðamenningu.
Undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda.
Tryggja skilvirka og góða þjónustu við íbúa. Efla samstarf við atvinnulíf, stofnanir, ríki og önnur sveitarfélög.
Koma fram fyrir hönd Suðurnesjabæjar og gæta hagsmuna sveitarfélagsins á opinberum vettvangi.
Um Suðurnesjabæ:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Umfangsmikil reynsla af stjórnun og leiðtogastörfum.
Reynsla af rekstri, fjármálastjórnun og stefnumótun.
Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum.
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni. Reynsla af breytingastjórnun og að leiða fólk saman.
Hæfni til að skapa traust og vinna með ólík sjónarmið.
Framsýni, metnaður og frumkvæði.
Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitar félagið á Suðurnesjum með rúmlega 4200 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitar félaginu, m.a. er lítur að uppbyggingu nýrra hver fa og miklum möguleikum til atvinnuuppbyggingar. Í Suðurnesjabæ eru tveir grunnskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn og Þekkingarsetur. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður upp á nálægð við náttúruna og einstaka strandleng ju sem umvefur sveitar félagið.
Frekari upplýsingar um Suðurnesjabæ má finna á w w w.sudurnesjabaer.is.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2026.
Umsókn óskast útfyllt á www intellecta is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi
var beðið um að gera
og umhverfi.
Reykjanesbær gerir alvarlegar athugasemdir við risavaxinn
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur tekið fyrir vinnslutillögu Suðurnesjabæjar að nýju aðal- og deiliskipulagi fyrir Bergvík. Uppbyggingin er liður í mótun K64 hringrásariðngarðsins í Helguvík og Bergvík, en ráðið gerir ríkar kröfur um umhverfisvarnir og lýsir yfir þungum áhyggjum af sjónrænum áhrifum fyrirhugaðra mannvirkja.
Í umsögn ráðsins er gerð alvarleg athugasemd við áætlaðan reykháf á svæðinu. Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagsgögnum gæti
reykháfurinn trónað í allt að 150 metra hæð yfir sjávarmáli. Ráðið bendir á að með slíkri hæð myndi mannvirkið breytast í helsta kennileiti Reykjanessins, sem því hugnast ekki.
Krefjast heilnæms umhverfis fyrir íbúa
Ráðið leggur ríka áherslu á að hvers kyns iðnaðaruppbygging á svæðinu verði að samræmast hagsmunum íbúabyggðar í Reykjanesbæ. Gerð er krafa um að starfsemin uppfylli ströngustu skilyrði um bestu aðgengilegu tækni (BAT) og fylgi lögum um
hollustuhætti og mengunarvarnir. Hugsunin þar á bak við er skýr: tryggja verður íbúum í nágrenninu heilnæm lífsskilyrði og ómengað umhverfi.
Vilja samtal um vegi og skólp
Auk athugasemda við ásýnd og mengunarvarnir kallar umhverfis- og skipulagsráð eftir formlegu samtali og samvinnu á milli sveitarfélaganna tveggja. Óskað er eftir fundum um hvernig fráveitumálum á
Rjúfum vítahringinn - opinn fundur í Grindavík
Samtök atvinnulífsins halda opinn fund í Grindavík, föstudaginn 12. júní, undir yfirskriftinni Rjúfum vítahringinn. Þar verður fjallað um verðbólgu, vexti, stöðugleika og þau skilyrði sem þarf að skapa svo atvinnulíf, heimili og samfélög um allt land geti horft örugg fram á veginn.
Fundurinn er hluti af Hringferð SA 2026 þar sem samtökin ferðast um landið og ræða við fyrirtæki, sveitarfélög, launafólk og stjórnvöld um stærstu efnahagslegu áskoranirnar fram undan.
„Grindavík minnir okkur á hvað skiptir mestu þegar á reynir: Öflugt atvinnulíf, sterk samfélög og
sameiginleg ábyrgð. Ef við ætlum að ná niður verðbólgu og vöxtum þurfum við að rjúfa þann vítahring sem hefur haldið aftur af heimilum og fyrirtækjum. Það gerist ekki af sjálfu sér heldur með samtali, ábyrgð og skýrri forgangsröðun,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Á fundinum verður rætt hvernig hægt sé að styrkja stöðugleika, samkeppnishæfni og verðmætasköpun til framtíðar.
Fundurinn sem haldinn er á Bryggjunni í Grindavík er öllum opinn og hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 10.00.
skipulagssvæðinu verður háttað, ásamt því hvernig vegtengingum á milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar verður best stillt upp til framtíðar. Í umsögn ráðsins er gerð alvarleg athugasemd við áætlaðan reykháf á svæðinu. Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagsgögnum gæti reykháfurinn trónað í allt að 150 metra hæð yfir sjávarmáli.
Drífa fékk hvatningar verðlaun kennara
Drífa Hjördís Thorstensen, kennari í Háaleitisskóla, hlaut VILJAhvatningarverðlaun kennara árið 2026 en þau voru afhent á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna sem var um síðustu helgi.
Nýsköpunarstarfið í Háaleitisskóla á Ásbrú hafði djúpstæð áhrif á dómnefndina. Það sem vó þyngst í ákvörðun nefndarinnar var sú kerfisbundna og metnaðarfulla vinna sem átt hefur sér stað við að gera nýsköpun og tæknimennt að fastri og jafnrétthárri verkgrein fyrir alla nemendur skólans.
Sérstaklega var hrifning með það hvernig Drífa hefur nýtt nýsköpunina sem alþjóðlegt tungumál sköpunar í fjölmenningarlegu umhverfi skólans.
„Með því að brjóta niður tungumálamúra og virkja fjölbreyttan nemendahóp á jafnréttisgrundvelli, þar sem allir fá tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar, hafið þið skapað sanna fyrirmynd sem eftirtektarvert er fyrir skólasamfélagið allt á landsvísu,“ segir í tilkynningu um verðlaunin.
Upplýsingar í síma 893-1391 eða tölvupósti: vtengiskuli@simnet.is Til
Til leigu 80 til 90m² skrifstofuhúsnæði. Bjart og rúmgott á annari hæð að Fitjabraut 2, Reyjanesbæ.
Svona gæti möguleg framtíðarsýn á hátæknibrennslustöðina í Bergvík verið. Myndin er unnin með gervigreind út frá teikningu í vinnslutillögu. Gervigreindarmódelið
reykháfinn að umhverfislistaverki með lýsingu. Það skal tekið fram að þessar myndir eru ótengdar verkefninu í Bergvík og aðeins settar fram til að sýna möguleika í útfærslu á mannvirkjum
í Reykjanesbæ 2026
Hátíðardagskrá
Kl. 12:00
Hátíðarguðþjónusta í Ke avíkurkirkju
Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar
Kór Ke avíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista
Heiðabúar standa heiðursvörð og taka þátt í athöfninni
Kl. 13:00
Skrúðganga frá Ke avíkurkirkju
Heiðabúar marsera með hátíðarfánann og lúðrasveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur undir
Kl. 13:20 – 13:45
Hátíðardagskrá í skrúðgarðinum í Ke avík
Fánahylling: Jón Ólafur Jónsson, íþróttakempa og félagsmálafrömuður Þjóðsöngur: Karlakór Ke avíkur
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ lést á Hrafnistu Nesvöllum, föstudaginn 5. júní. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 16. júní kl. 13
Pétur Kristinn Hilmarsson
Borgþór Pétursson
Ásdís Olsen Pétursdóttir
Sigríður Þórdís Pétursdóttir
Anna Borgþórsdóttir Olsen
Eggert Freyr Pétursson
Pétur Olsen og Anna Stella Eggertsbörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RICHARD OLSEN RUNÓLFSSON
Njarðarvöllum 2, Njarðvík, lést á Hrafnistu Nesvöllum þriðjudaginn 19. maí. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. barnabörn og barnabarnabörn
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
Miðflokkurinn vill breyta
fundartíma bæjarstjórnar til að tryggja betri undirbúning
Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar lagði M-listi Miðflokksins fram tillögu þess efnis að fundir bæjarstjórnar verði framvegis haldnir á þriðjudögum klukkan 17:30 í stað miðvikudaga. Er markmiðið með breytingunni að tryggja kjörnum fulltrúum, og þá sérstaklega minnihlutanum, rýmri tíma til að fara yfir fundargögn.
Í rökstuðningi Miðflokksins kemur fram að aðgengi minnihlutans að upplýsingum og gögnum sé almennt takmarkaðra en hjá meirihlutanum. Samkvæmt lögum berast fundargögn að minnsta kosti tveimur sólarhringum fyrir fund, sem þýðir að bæjarfulltrúar fá þau yfirleitt síðdegis á mánudögum. Fyrir fulltrúa í fullri vinnu gefst því mjög naumur tími til undirbúnings fyrir miðvikudagsfundi.
Með því að færa fundina yfir á þriðjudaga myndu gögnin berast síðdegis á föstudögum. Það myndi gefa bæjarfulltrúum helgina til að kynna sér málin og undirbúa afstöðu sína, sem flokkurinn telur að muni stuðla að vandaðri málsmeðferð og markvissari ákvarðanatöku.
Fisktækniskólinn
Í kjölfar umræðna, þar sem þeir Anton Kristinn Guðmundsson, Svavar Grétarsson og Daði Bergþórsson tóku til máls ásamt Árna Gísla Árnasyni sem ritaði fundargerð, kom fram tillaga frá fulltrúa S-lista um að vísa málinu til bæjarráðs til nánari útfærslu. Sú tillaga var samþykkt með atkvæðum fulltrúa S, D og B-lista og hefur málinu því verið vísað til umræðu í bæjarráði. Fulltrúar Miðflokksins (M-lista) sátu hjá við afgreiðsluna.
flytur heim til Grindavíkur
Fisktækniskóli Íslands mun á ný taka til starfa í Grindavík frá og með haustönn 2026 þegar skólinn flytur starfsemi sína í Hópsskóla í Grindavík. Samkomulag hefur náðst um leigu á skólahúsnæði í eigu Grindavíkurbæjar eftir tvö ár í Suðurnesjabæ. Fisktækniskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum sjávarútvegi og hefur verið nátengdur Grindavík frá upphafi. Flutningurinn markar því mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu bæjarins og styrkir um leið mennta- og atvinnulíf á svæðinu. Nýverið útskrifaði skólinn 45 nemendur og áfram verður boðið upp á fjölbreytt og hagnýtt nám á fram-
Hanna Birna Andrésdóttir
Rétturinn
Ljú engur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virk a daga
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS
: Víkurfréttir
haldsskólastigi sem tengist sjávarútvegi. Námið byggir á tveggja ára grunnnámi þar sem skipt er á milli skólanáms og starfsnáms á vinnustöðum, meðal annars í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi.
Einnig verður áfram boðið upp á framhaldsnám í fiskeldi ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sjávarútvegi og tengdum greinum. „Flutningur Fisktækniskólans heim til Grindavíkur er jákvætt skref fyrir samfélagið allt og enn eitt merkið um aukna starfsemi og uppbyggingu í bænum,“ segir á vef Grindavíkurbæjar.
Grímsi GK blár eða rauður?
AFLAFRÉTTIR
Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is
Sjómannahelgin er nýafstaðin og vil ég byrja á því að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til Hamingju með daginn. Ansi mikið breyst á liðnum árum, núna var bara hátíð í Grindavík en frá um 1950 og eitthvað fram yfir aldamótin þá voru hátíðarhöld líka í Sandgerði og í Keflavík. En ekkert var þar í gangi, en það var þó sjómannamessa í Sandgerði, Garði og Reykjanesbæ og voru þær messur vel sóttar.
Annars þá er að færast smá ró yfir bátana á Suðurnesjunum, en þó eru nokkrir dragnótabátar á veiðum. Siggi Bjarna GK og Sigurfari GK hafa verið við veiðar við Suðurströndina frá Vík og austur að Gígjukvísl. Og hafa landað í Þorlákshöfn. Siggi Bjarna GK kom
með fullfermi þangað, 31 tonn, og var steinbítur uppistaðan í þeim afla, 12 tonn og tæp 8 tonn af ýsu. Sigurfari GK hefur landað í Þorlákshöfn um 85 tonnum í 2 róðrum og eins og hjá Sigga Bjarna GK þá er líka steinbítur uppistaðan í aflanum eða um 40 tonn. Í Sandgerði eru þrír bátar á dragnót, Benni Sæm GK sem hefur landað 28 tonnum í 4 róðrum. Stapafell SH með 22 tonn í 4 og Aðalbjörg RE sem er með 44 tonn í 4. Mjög blandaður afli er hjá öllum þessum þremur bátum en þó mest af ýmsum kolategundum. Netabátarnir í Keflavík og Njarðvík eru svo til allir hættir veiðum og er Grímsi GK kominn í slipp en sá bátur hét upprunalega Vesturborg GK þegar að báturinn kom fyrst til Íslands en þá átti Valdimar ehf. í Vogum bátinn, báturinn fékk nafnið Valdimar GK 195 árið 2000 og hefur alla sína tíð á Suðurnesjunum verið á
línu og verið blár á litinn, þangað til að báturinn var seldur til fyrirtækisins Admiral ehf., en á bak við það fyrirtæki er Sighvaldi Eiríkur Hólmgrímsson sem er sonur Hólmgríms sem ég hef margoft skrifað um hérna í þessum pistlum mínum. Hólmgrímur hefur gert út marga báta í gegnum tíðina og alla á netum og allir hafa verið rauðir. Þar sem Valdimar GK var alla sína tíð línubátur þurfti að breyta bátnum töluvert mikið til þess að hægt væri að stunda netaveiðar á honum. Núna er báturinn sem sé kominn í slipp í Njarðvík og verður forvitnilegt að sjá hvort báturinn komi úr slippnum blár eða þá rauður, en það er liturinn sem Hólmgrímur heldur mikið upp á bátana sína og Sigvaldi er svo til sammála honum því að hann segir að báturinn yrði fallegur rauður. Og já, ég er eiginlega sammála honum, held að Grímsi GK verði fallegur rauður á litinn.
Tannlæknastofan Aðalbros
hefur nú opnað við Aðaltorg á Aðalgötu 64
Tannlæknar
u Benedikt Jónsson
u Helena Ósk Árnadóttir
u Jón Björn Sigtryggsson
u Kristjana Benediktsdóttir
u Mohammad Garsiri
u Sandra Rún Sigurðardóttir
Hlökkum til að sjá ykkur
u Sunna María Einarsdóttir
u Sæmundur Már Sæmundsson
u Theódór Friðjónsson
u Þórir Hannesson
u Þorvaldur H. Bragason
Tannsmiðir
u Hjördís Harðardóttir
u Ævar Pétursson
Garðar (t.v.) og bróðir hans, Ögmundur,
„Ef ég slaka á þá dett ég niður dauður“
Keflvíkingurinn Ingi Garðar Erlendsson var valinn Reykvíkingur ársins 2025, þrátt fyrir að hafa alist upp utan höfuðborgarinnar. Ingi Garðar virðist sjaldan sitja auðum höndum enda með fjölbreytt verkefni á sinni könnu. Hann hóf að spila á básúnu tíu ára gamall og hefur síðan fetað fjölbreytta leið í tónlistarlífinu. Í dag er hann hljómsveitarstjóri, tónskáld, kennari og formaður Sambands íslenskra skólalúðrasveita. Þá hlaut Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, þar sem hann er skólastjóri, einnig Íslensku menntaverðlaunin fyrir starfsemi sína. Það heyrist í klarínettum og trompetum úr næsta herbergi þegar við setjumst niður í kennarastofu skólahljómsveitarinnar, sem á sér húsakynni í Vesturbæjarskóla.
„Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja“ er kannski ekki það besta til að segja þegar maður mætir í viðtal við einhvern innan eigin áhugasviðs, enda er blaðamaður sjálf básúnuleikari, en það reynist kannski viðeigandi byrjun á samtali við mann sem hefur gert svona margt.
„Ég er skírður eftir ömmu minni sem hét Ingigerður,“ segir Ingi og bendir á að upphaflega hafi nafnið átt að vera eitt orð en presturinn skráði það í tvennu lagi og þannig hefur það staðið síðan. „Afi skrifaði samt alltaf „Ingigarðar“ í bréfum til mín.“ Það stóð alltaf til að breyta því í eitt nafn, „en ég hef ekki enn gert það,“ segir Ingi Garðar, ekki Ingigarðar.
„Maður var í öllu“
Ingi Garðar er fæddur og uppalinn í Keflavík og talar enn um staðinn sem Keflavík, enda varð sameiningin í Reykjanesbæ síðar. Æskan á níunda og tíunda áratugnum einkenndist af gríðarlega öflugri æskulýðsstarfsemi, sérstaklega ef miðað er við stærð samfélagsins. Ingi æfði íþróttir af krafti, spilaði handbolta, fótbolta og körfubolta og lét sig jafnframt ekki vanta í skák.
Samhliða þessu hóf hann nám í Tónlistarskólanum í Keflavík.
„Maður var í öllu,“ segir hann. Eins og margir byrjaði hann fyrst á blokkflautu en fór svo yfir á althorn: „Ég held að mamma hafi bara sótt um og það hafi verið laust á althorn til að byrja með,“ segir hann. Fyrstu skrefin í tónlist lærði hann svo hjá tónlistarkennaranum Kareni J. Sturlaugsson. „Hún er alveg mín músíkmamma, hún ól
mig upp í tónlist og ég leita enn þá til hennar.“
Síðan færði Ingi sig yfir á básúnu, einfaldlega vegna þess að það vantaði fleiri í þá hljóðfæradeild. „Þá fór maður bara á básúnu og svo festist maður þar og elskaði það.“ Þar lærði hann hjá tónlistarkonunni Sigrúnu SævarsdótturGriffiths.
Ingi var bæði í lúðrasveit og stórsveit, sem æfðu báðar vikulega og fóru í mörg ferðalög. „Við vorum um 20 í stórsveitinni og kannski 30–40 í lúðrasveitinni,“ segir hann. „Svo var það alveg þannig að þeir sem voru duglegir á klarínett og flautu fóru og lærðu líka á saxófón til þess að geta verið með í stórsveitinni.“
Um fimmtán ára aldur fór hann að taka rútu einu sinni í viku til Reykjavíkur í básúnutíma hjá Sigga Þorbergs, þar sem Keflavík
skorti sérhæfða kennara á hans stigi. „Þá var maður bara sendur í bæinn,“ segir hann og bendir á að þetta hafi verið algengt fyrir þá sem vildu komast lengra í hljóðfæranámi.
Þegar tónlistin tók yfir
Það var á framhaldsskóla-árunum sem tónlistin fór smám saman að taka yfir. Þrátt fyrir að hafa alist upp við sterka íþróttamenningu og verið hluti af öflugum fótboltaárgangi í Keflavík, en Ingi er fæddur 1980, fór hann að finna fyrir því að áhuginn lá annars staðar. Liðið náði meðal annars að verða Íslandsmeistarar en á sama tíma fór tónlistin að toga æ meira í hann. Upphaflega stefndi hann á íþróttakennaranám á Laugarvatni en smám saman fór tónlistarnámið að kalla frekar til hans. Ingi lauk námi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og fór fljótlega að sækja í auknum mæli í tónlistarlífið í Reykjavík. Hann hóf nám í blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík og bætti tveimur árum síðar við sig tónsmíðanámi í Listaháskóla Íslands samhliða því. Hann fór jafnframt
að kenna á básúnu og tók að sér nemendur sem voru jafnvel mjög nálægt honum í aldri, þar á meðal Valdimar Guðmundsson sem síðar varð þekktur básúnuleikari og söngvari. Á þessum tíma tók hann einnig þátt í tilraunakenndu tónlistarsamstarfi sem kallast S.L.Á.T.U.R.; Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. Þar var unnið með óhefðbundnar aðferðir við tónsköpun, meðal annars svokallaða hreyfinótnaskrift þar sem tónlistin birtist sem hreyfimynd eða myndband sem flytjandinn fylgir í rauntíma. Í stað hefðbundinna nótna þarf tónlistarmaðurinn að bregðast við því sem gerist á skjánum. „Þetta er liggur við eins og karaoke,“ útskýrir Ingi. Markmiðið var að brjóta upp hefðbundið samband tónlistarmanns og nótna og opna fyrir nýjar leiðir í sköpun og túlkun.
Háskólanám í Hollandi
Áhuginn á jaðartónlist leiddi Inga til Hollands, þar sem hann stundaði tónsmíðanám við Konunglega konservatoríið í Haag frá 2006 til 2010. Að hans sögn var
skólinn ekki fyrir þá sem vildu feta hefðbundnar slóðir. „Ef þú varst að gera eitthvað venjulegt, þá varstu ekki þarna,“ segir hann.
Básúnan kom að sjálfsögðu með út, þó að hann hafi ekki verið að læra á hana úti, „en ég var alveg hættur að æfa mig. Ég bara spilaði. Ég var í tónsmíðanámi og allur tíminn minn fór svolítið í það,“ segir Ingi.
Samhliða náminu í Hollandi var hann mikið á ferðinni með hljómsveitum. „Ef það voru einhverjar hljómsveitir að fara eitthvert í viku þá hoppaði maður bara upp í rútu með þeim,“ segir Ingi. Hann bendir á að tónlistarlífið hafi verið öðruvísi á þessum tíma. „Það var miklu einfaldara fyrir hljómsveitir að túra þá en í dag. Nú er bransinn orðinn svo erfiður að hljómsveitir hafa varla efni á því nema þær séu mjög stórar.“
Fjölbreyttur ferill og verkefni
Eftir námið tók við fjölbreyttur ferill þar sem hann sinnti mörgum hlutverkum samtímis. Stór hluti dagsins fór í kennslu í Keflavík og seinna meir Vesturbænum en hann spilaði líka með ýmsum tónlistar-
Ingi
með hljóðfærin sín
Ingi Garðar með konunni sinni Völu og þremur börnum þeirra, Ísold Önnu, Frosta Pétri og Jökli Inga.
Ingi Garðar með ömmu sinni, Ingigerði.
Viðtal: Sigrún Björk Hjartardóttir, nemandi í blaðamennsku við Háskóla Íslands. Myndir: Úr einkasafni.
mönnum á borð við Sigur Rós, túraði, útsetti og spilaði inn á upptökur. Áður en hann flutti endanlega heim til Íslands lærði hann hljóðfæraviðgerðir í Wales eftir að hafa ítrekað fengið fyrirspurnir um slíkt hérlendis.
„Það var ekkert símasamband þar sem ég var, þannig að ég þurfti að fara í svona rauðan símaklefa til þess að geta hringt heim,“ rifjar hann upp og brosir. Námið stóð yfir í stuttan tíma en nýttist honum vel. Viðgerðirnar urðu að aukastarfi sem hann sinnir enn í dag, oft á kvöldin og um helgar. „Það getur komið bunki af hljóðfærum og ég reyni bara að laga það sem þarf að laga.“
Eftir heimkomu kenndi Ingi tónfræði og hljóðfærakennslu í Reykjanesbæ, þrátt fyrir að vera fluttur til Reykjavíkur. Þar með snerust ferðalögin við, nú var hann farinn að keyra úr borginni til Keflavíkur til að vinna. Meira en bara tónlist
Ingi Garðar hefur búið í Vesturbæ Reykjavíkur síðan 2011 og er í dag í fararbroddi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar. Þar gegnir hann hlutverki skólastjóra, hljómsveitarstjóra og kennara. Hann byrjaði sem kennari í hljómsveitinni í stutta stund áður en hann tók við sem skólastjóri árið 2020. „Ég kenni þó enn aðeins með, því maður á aldrei að kúpla sig alveg frá kennslunni, þótt maður sé orðinn skólastjóri,“
„Það er meðvituð ákvörðun til að halda öllum inni,“ útskýrir hann. Með færri æfingum gefst fleiri börnum kostur á að taka þátt, einnig þeim sem stunda aðrar tómstundir.
Ingi segir félagslegan þátt hljómsveitarinnar vera jafn mikilvægan og tónlistin sjálf. „Þetta snýst líka um vináttu og samfélag.“ Andinn innan hljómsveitarinnar skiptir að sama skapi miklu máli. Hann segir það einfaldara að vinna með börnum en fullorðnum. „Börnin eru bara að koma til að spila,“ segir hann. „Það er miklu minna kjaftæði.“ Hann segir líka vera góðan starfsanda meðal kennaranna, „en ef þú ert almennilegur við fólk þá líkar því við þig. Það er ekkert vesen.“
„Gætu þau ekki bara valið einhvern annan?“
Á síðasta ári var Ingi Garðar valinn Reykvíkingur ársins. Hann segir fyrstu viðbrögð hafa verið vantrú. „Ég hélt að einhver væri að grínast í mér,“ segir hann. „Ég var með hljómsveitinni úti á Spáni svo ég spurði hvort þau gætu ekki bara valið einhvern annan.“ Það stóð að sjálfsögðu ekki til boða og voru honum afhent verðlaunin síðasta júlí. „Þetta er bara rosalega mikill heiður að einhver sé að taka eftir því sem maður er að gera.“
Skömmu síðar hlaut Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar
tónlistarskóli og skólahljómsveit, hefur fengið þessi verðlaun. Það er gott að fá smá vind í seglin og láta í sér heyra. Tónlistarskólakerfið á Íslandi er svo öflugt og við þurfum að standa vörð um það.“ Þrátt fyrir viðurkenningar og árangur hefur vinnusiðferðið lítið breyst. Ingi lýsir sér sem manni sem sé alltaf á fullu. „Ef ég slaka á þá dett ég niður dauður,“ segir
Ingi. Hann talar þó líka um mikilvægi þess að hætta áður en maður brennur út, að finna jafnvægið milli þess að leggja hart að sér og vita hvenær á að stíga til hliðar. „Ef það er ekki gaman lengur, þá þarf að breyta einhverju,“ segir hann. „Ef það tekst ekki er langbest að leyfa einhverjum öðrum að gera það og bakka helst út áður en þú ert orðinn leiðinlegur.“
Horfir fram á veginn
Þegar Ingi Garðar tók við starfinu sem hljómsveitarstjóri setti hann sér tíu ára markmið í starfinu og segist ætla að endurmeta stöðuna árið 2030. Hann útilokar ekki að halda áfram eftir það en er meðvitaður um að starfið krefjist bæði líkamlegs og andlegs úthalds. Það er ekki sjálfgefið að gera þetta endalaust. „Þú þarft bæði mikla reynslu og mikið líkamlegt og andlegt þol. Reynslan verður meiri og meiri en þolið fer minnkandi með aldrinum. Ég er núna fullur orku til þess að gera þetta og ég held ég
Vild
Í Vild færðu betri kjör, meiri fríðindi og fleiri Aukakrónur. Þú finnur þína Vild í appinu.
Nánar á landsbankinn.is/vild
(f.v.) Valdimar, Þorvaldur og Ingi Garðar í góðum gír að spila, undir stjórn Karenar J. Sturlaugsson.
Léttsveit T.K., undir stjórn Veigars Margeirssonar.
REYKJANESBÆR
Páll Ketilsson pket@vf.is
„Munum
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
halda áfram að vinna vel fyrir samfélagið“
Framsóknarflokkurinn í Reykja nesbæ mætir fullur sjálfstrausts til leiks í minnihlutanum eftir sögulega góða kosningu. Hall dóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti flokksins segir nýja hlutverkið í minnihlutanum spennandi og lofar öflugu en málefnalegu að haldi.
Það var létt yfir Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur þegar blaðamaður spjallaði við hana fyrir utan Vatnsnes, þar sem bæjarstjórnin var ljósmynduð í bak og fyrir.
Söguleg kosning Framsóknar
Þótt gamli meirihlutinn hafi ekki haldið fagnar Framsóknarflokk urinn fylgisaukningu. Flokkurinn vann á og fékk rúmlega 26% at kvæða, sem er mesti styrkur sem flokkurinn hefur haft í bænum.
„Við fengum frábæra kosningu og Framsókn hefur aldrei verið eins sterk í Reykjanesbæ og í dag. Við bættum við okkur og fórum úr 22% í rúmlega 26%, sem er stórkostlegt,“ segir Halldóra stolt. „Við erum afskaplega ánægð með kosningabaráttuna. Við spiluðum leikinn eins og við viljum gera, með gleði að vopni. Við höfðum gaman af því og erum stolt af niðurstöðunni.“
stjórnum sé jafnan meiri samstaða og samvinna á milli flokka en fólk á að venjast úr landsmálapólitíkinni
á Alþingi. „Það hefur verið þannig hingað til og ég vona svo sannarlega að það verði svoleiðis líka hér eftir.“
Setja málefni brottfararstöðvarinnar á oddinn
Ný reynsla í minnihluta
Aðspurð um hvernig tilfinning það sé að sitja í minnihluta segir Halldóra það leggjast vel í sig. „Það er bara líka svolítið spennandi. Maður þarf líka að kunna það, þannig að þetta verður ný reynsla fyrir okkur. En við erum að vinna hérna fyrir íbúana; það var einn af hverjum fjórum sem kaus Framsókn og við ætlum að standa okkur fyrir þann fjórðung íbúa. Við munum halda áfram að vinna vel fyrir samfélagið og ætlum ekki að gleyma því í eina sekúndu fyrir hverja við erum að vinna.“
Þegar talið berst að áherslu-málum nýja meirihlutans segist Halldóra ekki enn þekkja þau í þaula en hún viti nákvæmlega hvar áhyggjur Framsóknar liggi. Hún nefnir sérstaklega málefni brottfararstöðvarinnar [fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd] sem verið hefur til umræðu á Alþingi. „Ég fylgdist með því í gær og þetta mál er á leiðinni. Ég vil allavega vinna að því að við séum að stíga þar fast niður fæti. Svo ætlum við bara að leggja ríka áherslu á þau mál sem við vorum kosin fyrir og koma þeim á framfæri,“ segir Halldóra Fríða að lokum.
Á sama tíma og Kjartan Már afhenti Vilhjálmi lyklavöldin að ráðhúsinu í Reykjanesbæ var hann beðinn um að gefa Vilhjálmi gott ráð. „Hlusta á hjartað. Hjartað segir manni mjög oft, eða eiginlega bara alltaf, hvort maður er að gera rétt eða ekki. Bara hlusta á hjartað, gefa þér tíma í það og rétta svarið kemur um leið.“ VF/pket.
„Nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna“
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fór fram á dögunum þar sem nýr meirihluti tók formlega við keflinu. Fram undan eru mikil verkefni, skipulagsbreytingar á nefndakerfinu og nýr bæjarstjóri sem ætlar að fresta sumarfríinu til að láta hendur standa fram úr ermum.
Víkurfréttir náðu tali af Vilhjálmi Árnasyni, nýjum bæjarstjóra, og Gunnlaugi Kárasyni, formanni bæjarráðs, rétt áður en fyrsti fundurinn hófst. Augljós spenna og tilhlökkun var í loftinu hjá þeim félögum.
Lúxusvandamál við skipun í nefndir Á fyrsta fundinum var kosið í fastanefndir og ráð bæjarins. Aðspurðir
„Erum sérfræðingar í bænum okkar“
Eftir tólf ára samfellda setu í framlínu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar er Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar, mætt í minnihluta.
Hún segir tilfinninguna blendna en mætir til leiks með mikla reynslu í farteskinu og lýsir yfir áhyggjum af boðuðum sparnaðarkröfum nýja meirihlutans.
Guðný Birna ræddi við blaðamann fyrir fyrsta fund nýrrar bæjarstjórnar. Hún horfir stolt yfir farinn veg en játar að það fylgi því ákveðin viðbrigði að færast yfir í minnihlutann.
Erfitt að vera lengi í vörn
„Tilfinningin er blendin, við skulum alveg segja það,“ segir Guðný aðspurð um nýja hlutverkið. „Þetta eru búin að vera löng og góð tólf ár og við erum búin að skila góðu verki. En þetta er bara vilji íbúanna og það sem kom upp úr kössunum. Við verðum bara í þéttum minnihluta og stöndum vörð um okkar góðu verk.“
Aðspurð hvort eitthvað hafi klikkað í kosningabaráttunni segir
Guðný svo ekki vera. Henni hafi fundist baráttan hvorki grimm né óvægileg, þótt vissulega hafi ákveðin mál eins og blokkastefna verið dregin fram sem henni finnist kannski fullléttvæg.
„Við lögðum allt í þetta. En það er erfitt að vera í vörn lengi og tólf ár eru langur tími. Við erum bara stolt af okkar verkum.“
Hafa áhyggjur af hálfs milljarðs sparnaði
Guðný segist klárlega ætla að nýta reynslu sína til að veita nýja meiri hlutanum öflugt aðhald og segir hópinn þekkja innviði bæjarins út og inn. „Heldur betur. Við erum sérfræðingar í bænum okkar og við höldum því áfram þótt við séum komin í minnihluta. Við stöndum okkar plikt.“
sögðu þeir Vilhjálmur og Gunnlaugur að það ferli hefði gengið vonum framar, enda búi nýi meirihlutinn yfir öflugum hópi fólks.
„Það gekk bara mjög vel. Við búum yfir öflugum hópi fólks með mikla reynslu og þekkingu á sínum málaflokkum, þannig að við vorum í raun með lúxusvandamál þegar kom að því að velja í nefndir,“ segir Vilhjálmur. Gunnlaugur tekur í sama streng fyrir hönd Miðflokksins, en flokkurinn teflir fram mörgu nýju fólki í bæjarmálin. „Við erum með mikið af óreyndu en rosalega áhugasömu fólki sem er tilbúið að leggja sig fram og skilur þarfirnar í Reykjanesbæ. Það var sami lúxusinn hjá okkur; margir sem hafa áhuga og kraft til að vinna að góðum málum. Það verður enginn skortur á fólki þegar við þurfum að leita út fyrir raðir þeirra sem komust að í þetta skiptið.“
Þegar hún er spurð út í loforð og áherslur nýja meirihlutans dregur hún ekki dul á áhyggjur sínar, sérstaklega hvað varðar fjármálin og stór framkvæmdamál í bænum.
hálfa milljarði í sparnað strax. Ég hef áhyggjur af starfsfólkinu okkar, verkefnunum okkar, framkvæmdunum og viðhaldinu,“ segir Guðný og bendir á mikilvæg verkefni sem standi yfir. „Við erum að klára stóru grunnskólaverkefnin okkar og maður spyr sig hvað verður um þau. Nýi meirihlutinn er ekki búinn að sýna á nein spil enn þá, en þetta bara kemur í ljós á fundinum og á næstu vikum.“
Sumarfríið verður að bíða Fyrir dyrum stendur mikil vinna og segir Gunnlaugur að málefnaskráin sé þétt. Fyrsti fundur bæjarráðs var á fimmtudaginn í síðustu viku (4. júní) og þar var farið beint í að forgangsraða verkefnum. Fram undan eru meðal annars skipulagsmál og breytingar á nefndakerfi bæjarins. Vilhjálmur mætti á sinn fyrsta vinnudag í ráðhúsinu strax morguninn eftir bæjarstjórnarfundinn, þar sem fráfarandi bæjarstjóri tók
á móti honum. Viðtalið við Vilhjálm var tekið fyrir þá móttöku. „Ég ætla að hitta sviðsstjórana strax og komast inn í málefnin hratt og örugglega. Það er mikilvægt að kynnast starfsfólkinu og þeim öfluga mannauði sem Reykjanesbær býr yfir.“
Spurður út í það hvort nýi bæjarstjórinn fari ekkert í sumarfrí stendur ekki á svörum:
„Nei, sumarfríið verður bara að vera einhvern tímann seinna. Það eru næg verkefni fram undan. Við viljum koma mikilvægum málum strax af stað. Svo styttist í 17. júní og við viljum hafa bæinn okkar fallegan og hátíðlegan. Það er mikið að gerast í atvinnumálunum en það eru líka blikur á lofti, eins og í kringum Hafnargötuna, sem þarf að takast á við strax. Þannig að sumarfríið má bíða.“
Finna jákvæðni í samfélaginu
Bæði Vilhjálmur og Gunnlaugur segjast finna fyrir miklum stuðningi og jákvæðni í samfélaginu eftir undirritun málefnasamningsins. Vilhjálmur hrósar jafnframt minnihlutanum fyrir góð viðhorf. „Ég finn það á minnihlutanum að þau ætla að vinna vel með okkur og við ætlum að vinna þetta saman. Bæjarbúar eru almennt spenntir fyrir nýrri bæjarstjórn og ég held að það sé að hefjast nýtt sóknarskeið í bæ tækifæranna,“ segir Vilhjálmur að lokum.
Vilhjálmur
tók við lyklavöldunum og fékk
Tímamót urðu í Reykjanesbæ á dögunum þegar Kjartan Már Kjart ansson, fráfarandi bæjarstjóri, afhenti Vilhjálmi Árnasyni, verðandi bæjarstjóra, aðgangskortið að bæjarskrifstofunum. Athöfnin var hin skemmtilegasta og einkenndist af léttleika, hlátri og góðum ráðum fyrir framtíðina – þar sem bæði hjartans mál og sælgætisát komu við sögu.
Smyglaði sér inn á lokametrunum
Það var létt yfir Kjartani Má þegar hann ávarpaði starfsfólk bæjarins í hinsta sinn í embætti. Hann upplýsti viðstadda kankvís um að það hefði þurft að smygla honum inn í bygginguna.
„Það var búið að loka lykilkortinu mínu. Nei, nei, ég er að grínast. Ég fékk hérna framlengingu um tvo klukkutíma,“ sagði Kjartan við mikinn fögnuð viðstaddra.
Kjartan afhenti eftirmanni sínum blómvönd og nýtt aðgangskort, en minnti á að tækninni fylgdu skyldur. Þar sem Villi mætti
búast við því að vera mikið á skrif stofunni á kvöldin og um helgar, þyrfti hann líka sérstakan ör yggiskóða frá tæknideildinni til að komast inn. Kjartan lofaði því að Vilhjálmur væri að taka við „lands liði bæjarstarfsmanna“ og bað hann að vera bæjarbúum góður.
Saknar ekki næturfundanna á Alþingi
Vilhjálmur, sem situr nú í stóli bæjarstjóra eftir tólf ára farsæla stjórn Kjartans, þakkaði fyrir sig og hrósaði forvera sínum fyrir ein lægni og hjálpsemi í ferlinu. Hann sagði starfið leggjast vel í sig og
„nammiráðleggingar“
stöð“ handa Kjartani inni á hverri einustu skrifstofu á bæjarskrifstofunni. Kjartan staðfesti þetta dálæti sitt og sagði glottandi: „Þau gáfu mér fjögur kíló af sælgæti í
Vilhjálmur sagðist hins vegar hafa fengið dýrmætt ráð á sínum tíma frá Össuri Skarphéðinssyni þegar hann settist fyrst á þing, sem gæti átt við hér líka: „Passaðu þig á
Aðspurður um dýrmætasta ráðið fyrir nýja starfið, stóð ekki á
„Hlusta á hjartað. Hjartað segir manni mjög oft, eða eiginlega bara alltaf, hvort maður er að gera rétt eða ekki. Bara hlusta á hjartað, gefa þér tíma í það og rétta svarið
Kjartan minnti Vilhjálm á að bæjarstjórastarfið væri ekki venjuleg vinna, heldur lífsstíll. Hann yrði að vera viðbúinn því að fá yfir sig spurningar eða skammir, hvort sem hann væri staddur í Nettó á laugardagskvöldi eða í sundi.
Vilhjálmur, sem starfaði í lög
RJÚFUM VÍTA HRINGINN
Hringferð Samtaka atvinnulífsins.
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, bjóða forsvarsmönnum fyrirtækja, launafólks, sveitarstjórnarfólki og öðrum áhugasömum til morgunverðarfundar þar sem áskoranir atvinnulífs og samfélags eru ræddar með sérstakri áherslu á hvernig vítahringur óstöðugleika í efnahagslífinu verður rofinn.
Öflugt atvinnulíf er forsenda stöðugleika og aukinna lífsgæða. Komdu á fund og taktu þátt í samtali um framtíðina.
12. júní
8.30-10.00
Bryggjunni í Grindavík
Nánari upplýsingar og skráning á sa.is
hlakkaði til að kynnast fagfólkinu Varaður við mötuneytinu
Sjóarafjör í Grindavík
Grindavík var full af fólki um sjómannadagshelgina og bærinn iðaði af lífi. Hér eru nokkrar myndir frá gleðinni. Fleiri myndir á vf.is
Fjör hjá fertugum Nesfiski
fram á rauða nótt. Meðfylgjandi myndir voru teknar í veislunni. Fleiri myndir eru væntanlegar á vf.is.
Minnast tveggja Suðurnesjamanna
sem fórust við Hornafjarðarós
Þann 28. október árið 1991 varð hörmulegt slys við Hornafjarðarós þegar skólabáturinn Mímir RE 3 fórst. Sjö manna áhöfn var um borð, fimm drengir ásamt skipstjóra og vélstjóra. Drengirnir fimm komust lífs af en Þórður Örn Karlsson skipstjóri og Bjarni Jóhannsson vélstjóri létust, þeir voru báðir frá Suðurnesjum. Bjarni fannst skömmu eftir slysið en mikil leit var gerð að Þórði sem á þessum tíma var nýkjörinn forseti Kiwanisklúbbsins Keilis. Félagar frá Kiwanisklúbbnum ásamt félögum úr björgunarsveitinni Stakk fjölmenntu austur til að aðstoða við leit og tveimur vikum síðar fannst Þórður. Í september verður næsta umdæmisþing Kiwanisumdæmisins Ísland – Færeyjar haldið á Höfn í Hornafirði og eru þá 35 ár liðin frá slysinu. Í tilefni af þessum tímamótum hefur Kiwanisklúbburinn Keilir ákveðið að gefa Sveitarfélaginu Hornafirði forláta bekk úr graníti sem minnisvarða um þá Suðurnesjamenn sem fórust.
Bekkurinn er kominn á sinn stað í Óslandi og verður vígður seinnipart föstudags 11. september 2026 á umdæmisþinginu.
Kiwanisklúbburinn Keilir vill þakka bæjaryfirvöldum á Hornafirði fyrir að taka vel í hugmyndina og libra þjónustu.
Jóhannes Sigvaldason forseti Kiwanisklúbbsins Keilis segist í tilkynningu vilja fyrir hönd Keilis þakka bæjaryfirvöldum á Hornafirði fyrir að taka vel í hugmyndina og libra þjónustu.
Skoðaðu öll tilboðin
Þórkatla að „slökkva ljósin hjá mörgum“
Mikilvæg skref voru rædd á síðasta upplýsingafundi Járngerðar fyrir sumarfrí þar sem nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur, fulltrúar Grindavíkurnefndarinnar og Þórkötlu fóru yfir stöðu mála. Fram undan var fyrsti opinberi fundur nýrrar bæjarstjórnar þar sem samfélagssáttmáli um framtíð Grindavíkur verður kynntur. Á sama tíma vöktu fyrirhugaðar takmarkanir Þórkötlu á gistiheimildum íbúa hörð viðbrögð. Guðbjörg Eyjólfsdóttir og Ásrún Kristinsdóttir, nýkjörnir bæjarfulltrúar, lýstu yfir mikilli ánægju með þá samstöðu sem ríkir innan nýrrar bæjarstjórnar. Oddvitar allra flokka hafa unnið að sameiginlegum samfélagssáttmála sem var undirritaður og kynntur á fyrsta fundi bæjarstjórnarinnar. Sáttmálanum er ætlað að tryggja breiða samstöðu og efla samráð við íbúa um þau krefjandi verkefni sem við er að glíma á næstu mánuðum og árum.
Umsóknir um skólavist og fyrirspurnir frá ráðuneytinu
Fram kom á fundinum að undirbúningur skólastarfs fyrir haustið væri í fullum gangi. Samkvæmt síðustu tölum hafa borist 22 umsóknir um grunnskólavist og 15 umsóknir um leikskólavist í Grindavík. Þá hefur Grindavíkurbær fengið viðamikla fyrirspurn frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sem inniheldur 28 spurningar þar sem óskað er eftir rökstuðningi með hverju svari, sem
bæjarfulltrúar sögðu krefjandi en viðbúið verkefni.
Þórkatla kynnir takmarkanir: Hámarkað við 12 daga á mánuði í haust
Mesti hitinn á fundinum snerist um gisti- og hollvinasamninga Þórkötlu. Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, tilkynnti að opnað yrði aftur fyrir umsóknir um gistiviðauka í sumar og munu þeir gilda óbreyttir til 31. ágúst. Hins vegar munu taka gildi ákveðnar takmarkanir frá og með 1. september. Þórkatla stefnir á að takmarka gistingu við 12 daga í mánuði á hverja húseign og gera kröfu um að íbúar skrái inn þá daga sem gist er. Örn ítrekaði að þessi hús væru á yfirlýstu hættusvæði og væru ekki hugsuð til fastrar búsetu. Auk þess verður myndavélavöktun í húsunum bönnuð vegna persónuverndar og vinnuumhverfis starfsmanna Þórkötlu sem fara í eftirlitsferðir.
„Það er alveg kýrskýrt í okkar huga að þetta búsetuform er ekki hugsað til lengri tíma veru,“ sagði Örn Viðar og benti á að félagið stefndi frekar á að hrinda endurkaupaáætlun af stað þegar óvissu vegna kvikusöfnunar létti.
Íbúar og fundarmenn óttast að verið sé „að slökkva ljósin“
Fyrirhugaðar takmarkanir mættu mikilli andstöðu meðal annarra fundarmanna. Heiðar Hrafn Eiríksson kallaði áformin ákveðin vonbrigði og benti á að það sýndi
fram á vel heppnað verkefni hve mörgum liði vel í húsunum og vildu dvelja þar. Pétur Hafsteinn Pálsson gagnrýndi Þórkötlu harðlega og sagði hugtakanotkunina óskýra og aðgerðirnar tefja innkomu fólks. Hann minnti á að Þórkatla væri stofnuð sem björgunarfélag fyrir Grindvíkinga en ekki venjulegt fasteignafélag. Ómar Davíð Ólafsson tók í sama streng og sagði Þórkötlu vera að „slökkva ljósin hjá mörgum“ sem biðu óþreyjufullir eftir að eyða sumrinu heima og senda börn sín í skóla í haust.
Sólveig Þorvaldsdóttir velti því upp hvort Þórkatla væri að taka á sig meiri ábyrgð en löggjafinn ætlaðist til, þar sem það væri lögreglu og almannavarna að meta hættu og stýra rýmingum en ekki fasteignafélagsins.
Nýtt áhættumat gæti breytt stöðunni
Guðmundur P. Davíðsson benti á að ákvæðin byggðu á núverandi ástandi en sérfræðingar væru að vinna að endurskilgreiningu á áhættumati fyrir Grindavík. Örn Viðar staðfesti að Þórkatla fylgdist náið með þeirri vinnu og ef forsendur breyttust í lok mánaðarins væri félagið tilbúið að vinna með aðrar sviðsmyndir. Fulltrúar Þórkötlu munu eiga fund með nýkjörnum bæjarfulltrúum Grindavíkur á miðvikudaginn til að ræða nánari útfærslu á þessum umdeildu áformum.
Afsláttur gildir ekki af tilboðsvörum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“.
Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
Opið bréf til ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur
Það sem er hins vegar erfitt að skilja er hversu lítið samráð hefur verið haft við okkur sem eigum mest undir þessum ákvörðunum.
Að tilkynna nú að frá og með 1. september verði einungis heimilt með hollvinasamning að gista í 12 nætur á mánuði er ekki
aðeins breyting á reglum. Þetta er breyting á lífi fólks. Enn ein ákvörðunin sem er kynnt án þess að við finnum fyrir raunverulegu samtali við þá sem hún snertir.
Það sem særir kannski mest er ekki einstök ákvörðun heldur tilfinningin að þeir sem taka ákvarðanirnar séu orðnir svo langt frá fólkinu sem þarf að lifa
Við þurfum upplýsingar um hvað það er sem við þurfum að gera til þess að geta búið í Grindavík. Við erum tilbúin í að lifa með náttúruöflunum og sjá
Grindavík er ekki bara safn af Grindavík er samfélag. Það búa þar enn fjölskyldur. Þar starfa fyrirtæki. Á hverjum degi sækja um 1.400 manns vinnu til Grindavíkur. Þar eru útgerðir, fiskvinnslur, verslanir, þjónustufyrirtæki og fólk sem hefur byggt afkomu sína á bænum í áratugi.
á fullu verði. Þið verðið að tryggja þeim fyrirtækjum réttláta meðferð. Og þið verðið að tryggja þeim einstaklingum sem sækja vinnu til Grindavíkur á hverjum degi aðra atvinnu.
Ef það er raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar að slökkva ljósin í Grindavík, þá bið ég ykkur
En þá verðið þið líka að axla þá ábyrgð sem þeirri ákvörðun fylgir.
Þá verðið þið að kaupa upp hvert einasta fyrirtæki í Grindavík
Eftirfylgd með nemendum
16–18 ára í Suðurnesjabæ
Það eru ýmsar leiðir farnar varðandi virkniúrræði fyrir þá sem eru at vinnulausir - með sjúkdóma/grein ingar en ekki er almenn eftirfylgd með öllum á þessum aldri.
Það að hringja í nemendur sem voru í grunnskólanum, sýna áhuga á því hvað þeir eru að gera, hvort þeir séu í vinnu, skóla eða hafi ekkert fyrir stafni og bjóða þá þeim sem vilja að stoð við að komast aftur í nám eða annað. Margir þessara nemenda hafa staðið höllum fæti og sýna EKKI frum kvæði í að fara af stað í einhverjar virkniaðgerðir, s.s. skóla/námskeið, búa jafnvel heima í foreldrahúsum og einangra sig þar við tölvur/TV o.þ.h. Það er mikilvægt að sveitarfélagið rétti þessum einstaklingum líflínu og dragi þá dálítið að landi, a.m.k. fyrsta spölinn þar til þeir geta synt sjálfir af öryggi. Ég undirrituð hóf að fylgja nemendum eftir í framhaldsskóla haustið 2005 með nemendum í árgangi 1995. Í upphafi hafði ég frumkvæði að því að hafa samband við nemendur og kanna líðan og hvernig gengi í framhaldsskóla. Ég bauð nemendum aðstoð varðandi námið og skipulag þess og ef viðkomandi vildi ekki vera lengur í skóla þá bauð ég viðkomandi aðstoð við gerð ferilskráar og umsókna um störf til þess að þeir kæmust út á vinnumarkað en myndu ekki einangrast heima og missa tengsl við félagana. Fyrstu árin var eftirfylgdin aðeins frá Sandgerðisskóla og ekki formlegt plagg og úrvinnsla. Árið 2014 hófu fræðsluyfirvöld að byggja upp formlegt plagg sem innihélt ákveðna verkferla og svo færðist þessi eftirfylgd einnig til Gerðaskóla og Stóru-Vogaskóla en þessi bæjarfélög eru með sameiginlegt félags- og velferðarsvið. Suðurnesjabær og grunnskólarnir settu upp formlegt plagg þar sem tiltekið var hverjir væru ábyrgðaraðilar með verkefninu og hvert hlutverk hvers og eins væri. Þessi samstarfshópur hittist einu sinni á ári til að skoða hvort uppfæra þurfi verkefnið.
Verklýsing var sett upp og gætt vel að persónuverndarþættinum, verkefnið kynnt að vori í 10. bekk fyrir nemendum og forráðamönnum þeirra. Þeir sem vilja taka þátt skrifa undir upplýst samþykki fyrir því að námsráðgjafi geti fylgt þeim eftir í framhaldsskóla og fengið upplýsingar um framvindu nemenda hjá námsráðgjafa í framhaldsskólanum. Þegar skóli hefst fær námsráðgjafi upplýsingar um hvort allir nemendur sem sóttu um hafi skilað sér í skólann. Þegar kemur að miðannarmati fær námsráðgjafi póst um það hvernig gengi hjá nemanda, hvort hann væri enn í skólanum og hvort viðkomandi þyrfti frekari aðstoð. en geta leitað til okkar í grunnskólanum ef þeir þurfa aðstoð. Náms- og
starfsráðgjafi í FS hefur aðstoðað bæjaryfirvöld í þessu verkefni og eiga þakkir skildar þar sem þetta úrræði gengi ekki nema með aðstoð frá þeim, reyndar námsráðgjafar í fleiri fram haldsskólum.
Ef nemandi skráir sig úr skóla þá fær námsráðgjafi póst um það, hefur sam band við nemandann og býður honum aðstoð við að komast í önnur námsúr ræði en ef viðkomandi vill ekki í nám heldur komast út á vinnumarkaðinn fyllir námsráðgjafi út tilvísunarplagg og kemur því til félagsþjónustu bæjarins. Þar tekur félagsráðgjafi boltann, hefur samband við við komandi nemanda og býður aðstoð við að komast í annað virkniúrræði svo nemandinn einangrist ekki heima og missi tengsl við jafnaldrana.
Þeir nemendur sem skrifa ekki undir upplýst sam þykki fá samt fyrirspurn beint frá námsráðgjafa, t.d. í skilaboðum á samfélagsmiðlum, um það hvernig þeim gangi en þar er það þeirra val að svara eða ekki. Nemendur geta einnig óskað eftir aðstoð námsráðgjafa sjálfir þó að þeir hafi ekki skrifað undir upplýst samþykki. Engum nemendum er neitað um aðstoð en námsráðgjafi fær ekki upplýsingar um gengi viðkomandi nema þá frá honum sjálfum.
Því Grindavík er ekki bara heimili okkar sem þar búum. Hún er líka vinnustaður hundraða fjölskyldna.
Það sem ég bið um er ekki kraftaverk.
Ég bið um heiðarleika.
Og umfram allt bið ég um að stjórnvöld muni að á bak við allar tölur, skýrslur og áhættumat eru raunverulegar manneskjur. Ég er ein þeirra.
Og sama hvað gerist á næstu misserum, þá er eitt sem ég veit með vissu:
Ég ætla að verða gömul í Grindavík – á eigin ábyrgð!
Virðingarfyllst, Eva Lind Matthíasdóttir
Nemendur hafa oft haft samband, beðið um upplýsingar, aðstoð við verkefni sín, yfirlestur verkefna o.þ.h. en námsráðgjafi hjálpar þeim ef mögulegt er. Það eru mjög fáir sem hafa skrifað undir upplýst samþykki sem hafa hætt námi. Ég hef sent sex tilvísanir til félagsþjónustu frá 2017.
Það er mikilvægt fyrir ungmennin, fjölskyldur þeirra og samfélagið í heild að skólaganga þeirra í skyldunámi sem og í framhaldsskóla sé farsæl fyrir samfélagið í heild. Allir eru mikilvægir í tannhjólinu sem keyrir samfélagið áfram.
Síðustu ár hefur náms- og starfsráðgjafi Sandgerðisskóla skilað vorskýrslum um verkefnið, þar sem fram koma upplýsingar um hvernig nemendum skólans hefur gengið í framhaldsskólanum og hvort eitthvert brotthvarf hafi verið.
Það er mikilvægt að fylgja nemendum eftir enda eru þeir börn til 18 ára aldurs en á þeim tímamótum dettur þessi formlega eftirfylgd niður en þau geta eftir sem áður átt aðgang að námsráðgjafa skólans, a.m.k. hjá okkur í Sandgerðisskóla.
Ragnhildur l. Guðmundsdóttir Náms- og starfsráðgjafi Sandgerðisskóli ragnhildur@sandgerdisskoli.is
Frá raunfærnimati til frekara náms
Síðastliðið haust tók Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) aftur upp námsleiðina leikskóla- og stuðningsfulltrúabrú eftir nokk urra ára hlé. Ástæðan var skýr: Sífellt fleiri luku raunfærnimati fyrir leikskóla- og stuðningsfulltrúabrúna og kölluðu eftir tækifæri til að Raunfærnimat gerir fólki kleift að fá þá þekkingu og reynslu sem það hefur aflað sér í starfi metna. Þau sem hafa náð 23 ára aldri og starfað í leik-eða grunnskóla í að minnsta kosti þrjú ár geta átt kost á slíku mati. Fyrir mörg er raunfærnimatið fyrsta skrefið í áframhaldandi námi og starfsþróun, aðrir nýta það til að fá þekkingu sína formlega viðurkennda eða nýta matið sem hluta af undirbúningi fyrir frekara nám. Þannig eru margvísleg tækifæri í raunfærnimati.
Leikskóla- og stuðningsfulltrúabrúin varð til sem næsta skref fyrir þátttakendur sem vilja byggja frekar ofan á þá reynslu og þekkingu sem þeir hafa aflað sér í starfi. Námsleiðin er ætluð ófaglærðu starfsfólki, 23 ára og eldra, sem hefur að lágmarki þriggja ára reynslu af uppeldi og umönnun barna í leik- og grunnskólum.
Viðtökurnar létu ekki á sér standa. Í dag eru tæplega 30 þátttakendur í náminu sem veitir þeim tækifæri til að efla fagþekkingu sína, styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og opna leiðir að frekara námi.
Það býr mikill mannauður innan leikskólanna og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þeim metnaði og áhuga sem þátttakendur sýna náminu. Mörg þeirra sem nú sækja nám hafa um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í leik- og grunnskólum á Suðurnesjum og búa yfir dýrmætri reynslu og þekkingu. Fyrir mörg skiptir miklu máli að geta sótt nám í heimabyggð og þróað sig áfram í starfi án þess að þurfa að sækja langt að. MSS lítur á það sem eitt af sínum lykilhlutverkum að vera í nánu sambandi við atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum og þróa námsframboð sem svarar þörfum hverju sinni. Endurkoma námsleiðarinnar er þannig gott dæmi um hvernig hægt er að þróa námsframboð í takt við þarfir samfélagsins og skapa tækifæri til náms og starfsþróunar í heimabyggð. Skráning í námsleiðina er opin allt árið og geta nýir þátttakendur hafið nám þegar þeim hentar. Fyrsta skrefið er oft það erfiðasta – en það getur líka opnað dyr að nýjum tækifærum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Lindu verkefnastýru eða Steinunni náms- og starfsráðgjafa til að fá upplýsingar og ráðgjöf um næstu skref.
Linda Björk Pálmadóttir, verkefnastýra
Steinunn Björk Jónatansdóttir, náms- og starfsráðgjafi
Garðar með albatross í Leirunni
og Fjóla með draumahögg
Garðar Sigurðsson, kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja gerði sér lítið fyrir og lék 6. brautina á Hólmsvelli, sem er par 5, á tveimur höggum, eða albatross. „Ég var um 215 metra frá pinnanum og eftir drævið var boltinn á 7. brautinni sem er fyrir neðan. Þaðan tók ég „hybrid“ og sló frábært högg. Boltinn lenti fremst á flötinni og svo sá ég ekkert meira en sagði við félaga mína í hollinu að þessi gæti verið ofan í. Ég sá boltann ekki á flötinni og kíkti því í holuna þar sem hann var, geggjað,“ sagði Garðar aðspurður um höggið.
Besta deild karla:
Keflavík um miðja deild
Blendingskylfan hefur reynst
Garðari vel því hann fékk örn á 4. brautinni á Korpu (sjónum) í fyrrasumar.
Líkurnar á því að ná albatrossi er 1 á móti milljón og afar fáir ná því. Líkurnar á því að fara holu í höggi eru frá 5000-12.000. Fjóla
Margrét Viðarsdóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja fór holu í höggi í golfmóti á GSÍ mótaröðinni á Þorláksvelli í Þorlákshöfn um síðustu helgi. Hún sló með 9-járni á 12. braut.
Viltu vera til fyrirmyndar?
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun á næstu mánuðum opna nýja skammtímadeild á Hlévangi fyrir einstaklinga sem ekki hafa heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.
Við erum að byggja upp öflugt teymi starfsfólks sem vill taka þátt í að móta fyrirmyndar þjónustu við skjólstæðinga og starfsfólk.
Við leitum að:
• Deildarstjóra
• Hjúkrunarfræðingum
Lið Keflavíkur er sem stendur í 7. sæti Bestu deildar karla eftir fyrstu níu leiki sína á tímabilinu. Keflvíkingar hafa innbyrt 11 stig til þessa eftir þrjá sigra, tvö jafntefli og fjögur töp. Markatala liðsins er neikvæð um sex mörk, en þeir hafa skorað 12 mörk gegn 18 sem þeir hafa fengið á sig.
Gengi Keflavíkur undanfarið hefur verið nokkuð kaflaskipt og liðið átt erfitt með að tengja saman sigra. Ef litið er til síðustu fimm leikja liðsins er uppskeran svohljóðandi: Tap – Sigur – Jafntefli – Sigur – Tap. Síðasti leikur liðsins var í Eyjum og þar tapaði Keflavík stórt, 6-1, fyrir ÍBV.
Besta deild kvenna:
Grindavík/Njarðvík í harðri baráttu í neðri hlutanum
Sameinað lið Grindavíkur/Njarðvíkur situr í 7. sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir að hafa leikið fyrstu sjö leiki sína á tímabilinu. Suðurnesjaliðið hefur safnað 8 stigum til þessa. Uppskeran er tveir sigrar, tvö jafntefli og þrjú töp, með neikvæða markatölu upp á fimm mörk (8 mörk skoruð gegn 13 fengnum á sig). Form liðsins undanfarið sýnir að það hefur reynst erfitt að knýja fram sigra, en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum, gert tvö jafntefli og tapað tveimur leikjum. Síðasti leikur var gegn Breiðabliki og tapaðist með fimm mörkum Breiðabliks gegn engu heimakvenna.
Lengjudeild karla:
Stutt á milli Suðurnesjaliðanna í neðri hlutanum
Suðurnesjaliðin Njarðvík og Grindavík sitja hlið við hlið í neðri hluta Lengjudeildar karla í fótbolta en aðeins fjögur stig skilja liðin að í töflunni. Bæði lið þurfa á góðum úrslitum að halda í næstu leikjum til að lyfta sér upp í efri hlutann.
Njarðvík situr sem stendur í 8. sæti deildarinnar með 11 stig eftir átta leiki. Gengi liðsins hefur verið nokkuð jafnt en þeir hafa unnið þrjá leiki, gert tvö jafntefli og tapað þremur. Markatala þeirra er í plús um fjögur mörk (11 skoruð gegn 7 fengnum á sig).
Grindvíkingar fylgja fast á hæla granna sinna og sitja í 9. sæti deildarinnar með 7 stig. Grindavík á þó inni leik á flest önnur lið deildarinnar og hefur aðeins spilað sjö leiki. Liðið hefur átt í erfiðleikum með að innbyrða sigra á tímabilinu; þeir hafa unnið einn leik, gert fjögur jafntefli og tapað tveimur, með markatöluna 7-9 (-2).
Lengjudeild kvenna:
Keflavík í 4. sæti í jafnri miðjudeild
Keflavíkurkonur sitja sem stendur í 4. sæti Lengjudeildar kvenna í fótbolta eftir að hafa spilað fimm leiki á tímabilinu. Liðið er með 7 stig eftir tvo sigra, eitt jafntefli og tvö töp. Markatala Keflavíkur er í plús um þrjú mörk, en þær hafa skorað 11 mörk og fengið á sig 8. Gengi Keflavíkur í síðustu fimm leikjum hefur verið nokkuð sveiflukennt, en liðið komst aftur á sigurbraut í síðasta leik: Sigur – Tap – Jafntefli – Tap – Sigur. Það er gríðarleg jafnræði á þessum slóðum í töflunni því heil fjögur lið eru jöfn með 7 stig. Keflavík leiðir þann pakka á markatölu, en ÍA, Selfoss og Völsungur fylgja fast á hæla þeirra með jafnmörg stig (ÍA og Völsungur hafa þó spilað sex leiki). Fimm stiga bil er upp í Gróttu og KR sem sitja í 2. og 3. sæti með 12 stig.
• Sjúkraliðum
• Starfsfólki í umönnun
• Starfsfólki í eldhús og býtibúr
Umsóknarfrestur starfa er til 26. júní 2026
Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu HSS: www.hss.is
Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
L K Mennska Myndugleiki Menning
HANNESAR FRIÐRIKSSONAR
Hvað vilt þú?
Lifum vel
Tilboð gilda til 28. júní
Vatnsmelóna Í lausu
Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
„Þú talar eins og þjóðin ráði þessu,“ kallaði þingmaður Miðflokksins nýverið í Kastljósþætti í sjón-varpinu. Undarleg upphrópun í ljósi þess að sá sami þingmaður var nýkominn af Alþingi, sem hún reyndar kallar „Sjoppuna“, þar sem einmitt hafði verið ákveðið fyrr um daginn að þjóðin réði þessu. Virðing hennar fyrir vinnustaðnum og ákvörðunum er umhugsunarefni. Mér varð hugsað til Lukasar vinar míns. Það er þannig að á lífsleiðinni tekur maður margar ákvarðanir sem breytt geta hlutunum, sumar rangar, aðrar góðar. Það fer eftir því hve vel maður undirbýr ákvörðunina. Við hjónin höfðum fyrir nokkrum árum ákveðið að flytja í sveitina, keyptum lítinn sumarbústað með íbúðarétti. Honum þurfti að breyta í íbúðarhús. Það var þá eftir ábendingar fjölmargra sem við kynntumst Lukasi, yfirburðasmið frá Póllandi sem búið hafði hér í fimmtán ár. Margir, og kannski sérstaklega þeir sem varla höfðu farið út fyrir hurðarhúninn heima hjá sér, vöruðu mig við. Ekki ráða útlending í vinnu. Þeir fara alltaf illa með þig, vilja ræna þig öllu hverju sem er, hamrinum, söginni og peningum þínum. Þú verður gjaldþrota og tapar sjálfstæði þínu. Í stað þess að óttast útlendinginn og meintan illvilja hans ákvað ég að ráða hann til vinnu. Við gerðum samning, urðum samstarfsfélagar það sumar í ilmandi skóginum og fuglasöngnum. Allt endaði þetta vel og báðir höfðu hag af, eins og oft þegar samningar eru gerðir. Nú í sumar þurfum við Íslendingar að taka ákvörðun sem breytt getur lífi okkar, gert það annaðhvort auðveldara eða ekki. Til þess að ákvörðunin verði sem best þurfum við að skoða okkar hug og fá sem réttastar upplýsingar. Fyrir okkur hefur verið lögð spurning. Viljum við hefja aðildarviðræður við ESB? Svarið getur verið já eða nei. Einföld spurning en gildishlaðin fyrir framtíðina. Eigum við að halda áfram á sömu braut með þriðju hæstu vexti í Evrópu auk verðtryggingar, eða eigum við að sjá hvort eitthvað betra geti verið í vændum. Það ákveðum við, þjóðin, ekki þingmaður Miðflokksins. Eins og oft kemur fyrir í nánast öllum framkvæmdum og breytingum koma upp óvænt atvik. Það gerði það líka hjá okkur Lukaszi. Við leituðum ráða hjá sérfræðingum og fengum tillögur frá fagmönnum og fleirum. Í stað þess að henda tillögunum frá okkur sem ómögulegum settumst við niður í lyngið, nutum kaffisins og ræddum málin, hvað var gott og hvað var slæmt. Það gátum við ekki vitað fyrr en við höfðum farið yfir þær. Það var þá sem Lukas kom sterkur inn með það að markmiði að ljúka ákvörðunartöku. Eftir vandlega yfirferð og allar teikningar á borðinu spurði hann, „Hannes, hvað vilt þú, kallenn minn?“, með væntumþykju í röddinni og sinn pólska hreim. Spurningin í sumar snýst nefnilega ekki um hvað þingmaðurinn, pabbi þinn eða gamla frænkan með hárblásarann vilja, heldur HVAÐ VILT ÞÚ?, þannig virkar lýðræðið.