Ný bæjarstjórn Reykjanesbæjar kom saman í fyrsta sinn á fundi þriðjudaginn 2. júní þar sem kosningaúrslit, skipan í embætti og nefndir voru staðfest. Áður en bæjarstjórnarfundur hófst í ráðhúsinu á Ásbrú kom bæjarstjórnin saman til ljósmyndatöku
Hafnargata 91, 230 Reykjanesbær
í stofunni í Vatnsnesi, sem hefur verið gert upp á myndarlegan hátt.
F.v.: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B), Róbert J. Guðmundsson (B), Guðbergur Reynisson (D), Kristján Pétur Kristjánsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B), Vilhjálmur Árnason (D), Hjörtur M.
Guðbjartsson (S), Gunnlaugur Kárason (M), Margrét Þórarinsdóttir (D), Alexander Ragnarsson (D) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S). Í nýrri bæjarstjórn eru þrír nýliðar, þeir Vilhjálmur, Kristján Pétur og Gunnlaugur Kárason. VF/pket.
segir að nýja tengivirkið, sem sé tenging þess við Landsnet, geri kleift að taka á móti fimmfalt meiri orku en áður og það hafi gríðarleg áhrif á komandi aukningu í starfseminni sem m.a. má rekja til gervigreindarinnar en hún hafi breytt leiknum á einni nóttu.
„Þetta er einn sá iðnaður á Íslandi sem vex hvað hraðast. Gagnaver í dag eru hreinlega orðin hluti af grunninnviðum samfélagsins, á borð við samgöngur eða rafmagn.“
Styrmir segir mikilvægt að vera í góðu samstarfi við samfélagið á Suðurnesjum og segir hugmyndir um samstarf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja um sérhæfða menntun spennandi. Sjá viðtal við Styrmi á bls. 16-17.
Nýr meirihluti myndaður í Reykjanesbæ
Skrifað var undir málefnasamning nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjanesbæ fimmtudaginn 21. maí. Undirritunin fór fram í Vatnsnesi. Það voru þeir Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokks, og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokks, sem undirrituðu samkomulagið. Það má lesa á vef Víkurfrétta. Fram kom að Vilhjálmur Árnason (D) tekur við sem bæjarstjóri, Gunnlaugur Kárason (M) tekur við sem formaður bæjarráðs og Margrét Þórarinsdóttir (D) tekur við sem forseti bæjarstjórnar. Fyrsti fundur bæjarstjórnar var svo haldinn í gær, þriðjudag, í Vatnsnesi.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjanesbæ samkvæmt lokatölum sveitarstjórnarkosninga 16. maí sl. og fær fimm bæjarfulltrúa, bætir við sig tveimur frá síðustu kosningum. Flokkurinn fékk 39,2% atkvæða. Framsóknarflokkurinn heldur sínum þremur fulltrúum og fékk 26,1% atkvæða. Samfylkingin fékk 18,3% og tvo full-
trúa en missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum.
Miðflokkurinn kemur nýr inn í bæjarstjórn með einn fulltrúa og fékk 11,2% atkvæða. Viðreisn fékk 5,2% og nær ekki inn manni.
Alls eru ellefu fulltrúar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Á kjörskrá voru 17.086 og kjörsókn var 51,6%.
„Tek við af mikilli alvöru og auðmýkt“
Gunnlaugur Kárason er nýr formaður bæjarráðs
Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, tekur við hlutverki formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar í nýja meirihlutanum sem formlega var myndaður í dag með meirihluta samstarfi og málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Hann segir samhljóm flokkanna hafa verið augljósan snemma í kosningabaráttunni og að ekki hafi komið til greina að ræða við fyrri meirihluta Samfylkingar og Framsóknar.
Gunnlaugur segist mjög ánægður með málefnasamninginn og nefnir sérstaklega utanumhald um fjölskyldur, ungt fólk og íþróttir. Þá stendur til að taka á hælisleitendamálum og gera breytingar á húsnæðismálum í bænum, en flokkarnir vilja draga úr uppbyggingu fjölbýlishúsa og horfa til annarra hópa.
Fækkun nefnda og hagræðing í stjórnkerfinu
„Vil losa þann kraft sem íbúarnir og fyrirtækin hafa“
Vilhjálmur Árnason hættir á Alþingi og verður bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Miðflokkurinn fékk rúmlega 11% atkvæða í kosningunum og myndar nú nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Gunnlaugur Kárason segist ekki hafa séð þessa niðurstöðu fyrir þegar lagt var af stað, en hann sé fullkomlega tilbúinn í verkefnið.
Aðspurður hvort það hafi komið til greina að bjóða gömlum meirihluta Samfylkingar og Framsóknarflokks „í dans“ til að mynda stjórn, er svarið neitandi. „Það kom sem sagt ekkert sérstaklega upp í hugann. Það var nokkuð ljóst, held ég, snemma af öllum að við vorum að tala sennilega líkast af öllum, við og Villi [Vilhjálmur Árnason] í Sjálfstæðisflokknum. Þannig að við fórum bara ekki þangað,“ segir Gunnlaugur.
Ekki vaðið yfir Miðflokkinn þrátt fyrir fimm gegn einum
Sjálfstæðisflokkurinn er með fimm fulltrúa í nýja meirihlutanum en Miðflokkurinn einn. Gunnlaugur segir að tekið hafi verið tillit til þess í viðræðunum en samstarfið byggist á jafnræði.
„Við vissum það alveg að þetta væri í ójafnvægi en það er samt ekkert vaðið yfir okkur. Það er bara komist að góðu samkomulagi,“ segir Gunnlaugur og bætir við að hans helsta krafa hafi verið að málefni Miðflokksins fengju pláss í samningnum, sem raunin varð.
Bæjarbúar mega búast við að sjá breytingar strax í sumar þegar nýi meirihlutinn tekur við völdum þann 2. júní. Stendur meðal annars til að fækka nefndum og stokka upp í stjórnkerfinu.
„Við erum fyrst og fremst að tala um að horfa til þess hvort það sé hægt að gera betur þar. Síðan að horfa til þess hvort það sé hægt að gera betur í framkvæmd; hvort það sé hægt að spara í því hvernig við byggjum nýjar eignir og gera þetta betur fyrir minni fjárhæðir en sömu gæði,“ útskýrir Gunnlaugur.
Hann hlakkar mikið til að taka við formennsku í bæjarráði, sem hann lýsir sem framkvæmda- og fjármálaráði bæjarins þar sem hlutirnir gerast.
„Þetta er ábyrgðarmikið starf og ég tek þessu af mikilli alvöru og auðmýkt. Við brennum báðir [hann og Vilhjálmur] fyrir því að Reykjanesbær gangi vel og verði frábær.“
Vilhjálmur Árnason, verðandi bæjarstjóri, segir traust og málefnalegan samhljóm ein kenna sam starfið. Hann mun láta af þingmennsku á næstunni til að snúa sér alfarið að bænum.
Nýr meirihluti er að taka við völdum í Reykjanesbæ eftir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins undirrituðu málefnasamning sinn 21. maí síðastliðinn. Vilhjálmur Árnason, sem leiðir samstarfið sem verðandi bæjarstjóri, segir að samstarfið leggist afar vel í hann.
„Samtalið gekk mjög vel, það var strax mikið traust á milli aðila og mikill málefnalegur samhljómur,“ segir Vilhjálmur og bætir við að flokkarnir hafi strax fundið fyrir samleið í kosningabaráttunni.
Aðspurður um helstu áherslur nýja meirihlutans nefnir Vil-
hjálmur breytingar í skipulagsmálum, þar sem ætlunin sé að ryðja hindrunum úr vegi til að flýta fyrir uppbyggingu atvinnulífs og íbúða. Þá verði rík áhersla lögð á ábyrgari og skilvirkari rekstur með betri áætlanagerð og fullfjármögnun framkvæmda áður en í þær er farið. Íþróttamál verða sömuleiðis í fyrirrúmi, en þar horfir nýi meirihlutinn til þriggja þátta: að styrkja rekstrarumhverfi íþróttahreyfingarinnar, bæta aðstöðu og viðhalda aðstöðu, og tryggja aðgengi allra barna að íþróttastarfi.
„Það er náttúrulega fyrst og fremst aðgengi í gegnum æfingagjöldin, þau þarf að lækka þannig að öll börn, óháð efnahag, hafi aðgengi,“ segir Vilhjálmur. Ásamt lækkun æfingagjalda stendur til að lækka fasteignagjöld og aðrar álögur á bæjarbúa.
Kveður Alþingi í júní
Vilhjálmur lýsti því yfir strax í janúar að hann stefndi á bæjarstjórastólinn og segir ferlið síðan
þá hafa verið bæði skemmtilegt og spennandi, jafnvel enn skemmtilegra nú þegar markmiðinu er náð. Hann viðurkennir þó í léttum tón að vera ekki búinn að máta sjálfan bæjarstjórastólinn enn þá og viti hreinlega ekki hvernig hann líti út.
Breytingarnar þýða jafnframt að Vilhjálmur mun láta af störfum sem alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
„Það liggur þá fyrir núna að ég muni hætta á Alþingi, þannig að nú þarf ég bara að taka það upp við minn þingflokk og minn varaþingmann hvernig við framkvæmum það,“ segir hann, en ný bæjarstjórn tekur formlega við í byrjun júní.
Vilhjálmur segist hlakka mikið til að leiða Reykjanesbæ, sem hann kallar „bæ tækifæranna“. „Hér eru nefnilega mörg tækifæri og hér er svo öflugt fólk. Það sem ég vil gera er að losa þann kraft sem íbúarnir og fyrirtækin hér hafa úr læðingi og þá verður samfélagið öflugt.“
„Ætlum ekki að gera fleiri samninga við ríkið um hælisleitendur“
Margrét Þórarinsdóttir er nýr forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
Margrét Þórarinsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tekur við embætti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í nýja meiri hlutanum. Hún segir nýjan mál efnasamning endurspegla skýrt ákall um breytingar og lofar því að nýja stjórnin muni sýna meiri hörku gagnvart ríkinu. Margrét á að baki fjölbreytta sögu í bæjarpólitíkinni í Reykjanesbæ. Hún hóf ferilinn í Miðflokknum en vegna óánægju með innanbúðarmál þar klauf hún sig frá flokknum og stofnaði framboðið Umbót, sem hún sat fyrir á kjörtímabilinu sem er að líða. Fyrir þessar kosningar gekk hún til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
tengsl hans inn á Alþingi og í ráðuneytin vera mikinn happafeng fyrir sveitarfélagið. Þau tengsl muni nýtast til að sækja fjármagn sem bænum ber, en jafnframt standi til að sýna meira stolt í samstarfinu við ríkisvaldið.
mjög ósammála fráfarandi meirihluta um þau mál í allan vetur. Aðspurð um hvað hún vilji sjá gerast fljótt nefnir Margrét sérstakt 100 daga plan nýja meirihlutans. Hún segir samstarfið í nýja hópnum hafa smellt strax og allir hafi komið að borðinu við ritun málefnasamningsins.
„Við erum bara búin að vinna rosalega vel saman í minnihluta og áherslurnar hjá okkur hafa legið saman. Það lá svona beinast við,“ segir Margrét um flutninginn yfir í Sjálfstæðisflokkinn.
Margrét lofar nýjan bæjarstjóra, Vilhjálm Árnason, og segir
„Við þurfum bara að vera dugleg að sækja fé frá ríkinu og standa í lappirnar líka gagnvart ríkinu,“ segir Margrét og nefnir málaflokk sem hún hefur lengi barist fyrir. „Eins og kemur fram í málefnasamningnum þá ætlum við ekki að gera fleiri samninga við ríkið hvað varðar hælisleitendur og flóttafólk. Við munum standa í lappirnar þar.“
Auk þess nefnir hún að nýi meirihlutinn ætli að snúa við blaðinu í húsnæðismálum, en Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið
„Það voru allir sem komu að borðinu, það var enginn einn, tveir eða þrír. Við ætlum að standa við þessa 100 daga og við hlökkum til að byrja að tikka í boxin.“
Margrét, sem starfað hefur sem flugfreyja, segist spennt að taka við keflinu og stýra fundum bæjarstjórnar á nýjum vettvangi.
„Það verður nú ekki amalegt. Ég er nú svo sem vön að stýra hópum um borð í flugvélum, þannig að ég hlakka til en aðeins á öðrum vettvangi. Ég þakka bara fyrir traustið og þann heiður að fá að verða forseti bæjarstjórnar.“
Gunnlaugur Kárason formaður bæjarráðs, Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar. VF/pket
25,4%, en flokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum. D-listinn fær tvo menn kjörna, sem er jafnmargir og Framsókn og óháðir (B-listi) sem hljóta 22,5% fylgi en standa í stað með tvo fulltrúa.
Miðflokkurinn (M-listi) tryggir sér einnig tvo fulltrúa með 18,0% fylgi.
Kjörsókn í Suðurnesjabæ var 63,5%, en alls voru 3.152 á kjörskrá.
Sjálfstæðismenn stærstir í Vogum
Sjálfstæðismenn og óháðir (D-listi) tryggja sér stöðu sem stærsta aflið Sveirtarfélaginu Vogum með 39,0% atkvæða og halda sínum þremur bæjarfulltrúum óbreyttum. Mestu tíðind nýliðinna sveitarstjórnarkosninga eru hins vegar verulegt fylgistap E-listans (Framboðsfélags E-listans), sem verið hefur í meirihluta.
Flokkurinn missir tvo fulltrúa og fær aðeins 20,2% fylgi sem skilar einum manni inn.
Á sama tíma sækir A-listinn (Fyrir samfélagið) verulega á og fær næstmest fylgi í Vogum, eða 26,1%, sem tryggir honum tvo fulltrúa í nýrri bæjarstjórn. L-listinn (Framfarafélag L-listans) heldur sömuleiðis sínum manni inni með 14,7% fylgi.
timarit.is
Öll tölublöð Víkurfrétta frá 1980 og til dagsins í dag eru aðgengileg á timarit.is
Bæjarfulltrúar S-lista, Samfylkingar og óháðra og D-lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa komist að samkomulagi um samstarf kjörtímabilið 2026–2030.
undirritað í Suðurnesjabæ
Bæjarfulltrúar S-lista, Samfylkingar og óháðra og D-lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa komist að samkomulagi um samstarf kjörtímabilið 2026–2030. Samkomulagið, sem byggir á stefnuskrám beggja framboða, var undirritað af kjörnum fulltrúum þriðjudaginn 26. maí í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
Áður en samkomulagið var undirritað tóku oddvitar beggja framboða, Svavar Grétarsson, S-lista og Haukur Andreasson, D-lista, til máls og tóku meðal annars fram að í samkomulaginu sé áhersla lögð á að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar, lækka álögur á íbúa og bæta lífsgæði allra íbúa með það að leiðarljósi að móta samfélag fyrir alla. Þá verður áframhaldandi vinna lögð í sameiningu byggðakjarnanna tveggja í Suðurnesjabæ eftir sameiningu árið 2018. Þá verður sérstök áhersla lögð á að hefja uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar, málefni barnafólks, fatlaðra og eldri borgara. Oddvit-
arnir tóku báðir fram að þeir vilji leggja áherslu á gott samstarf allra bæjarfulltrúa á kjörtímabilinu og munu leggja áherslu á gott upplýsingaflæði með það að leiðarljósi að allar áætlanir og eftirfylgni verði með sem besta móti.
Þá var tekið fram að tvö af fyrstu verkefnum nýrrar bæjarstjórnar verði að undirbúa fyrsta fund hennar, sem er áætlaður 3. júní, og að auglýsa stöðu bæjarstjóra en farið verður í þá vinnu strax á næstu dögum.
SAMSTJÓRN Í GRINDAVÍK
Framsóknarflokkurinn (B-listi) er stærstur í Grindavík eftir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar með 44,0% atkvæða, sem er veruleg fylgisaukning, og bætir flokkurinn við sig tveimur fulltrúum frá síðustu kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn (D-listi) fylgir fast á hæla þeirra með 41,7% fylgi og bætir við sig einum manni. Þrátt fyrir örfárra prósentustiga mun á flokkunum tveimur eru þeir hnífjafnir þegar kemur að mönnum og fá báðir þrjá fulltrúa inni samkvæmt þessari uppfærslu.
Mesta fylgistapið sýnir Miðflokkurinn (M-listi), sem deilir upphaflega stóru fylgi, þremur fulltrúum, en fellur niður í 14,3%, missir tvo fulltrúa og heldur aðeins einum manni inni.
Oddvitar allra flokka í nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur unnu sameiginlega að samfélagssáttmála um framtíð Grindavíkur og samstarf á nýju kjörtímabili.
Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur tók svo formlega til starfa í,
Sjálfstæðisflokkurinn fékk lang flest atkvæði í skuggakosningum Ungmennaráðs Reykjanesbæjar, Samfylking fékk næst flest og Framsókn í þriðja sæti. Skuggakosningar fóru fram hjá nemendum í 8.-10. bekk í öllum sjö grunnskólum Reykjanesbæjar vikuna 11.-15. maí. Verkefnið var skipulagt og unnið af Ungmennaráði Reykjanesbæjar með það að markmiði að auka áhuga ungmenna á lýðræði, kosningum og samfélagsmálum.Alls tóku 645 ungmenni þátt í kosningunum.
bæjarfulltrúar samfélagssáttmála um endurreisn bæjarins.
Samkomulagið felur í sér breiða samstjórn allra kjörinna fulltrúa listanna þriggja og byggir á þeirri sameiginlegu sýn að uppbygging Grindavíkur krefjist samstöðu, ábyrgðar og skýrrar framtíðarsýnar.
Í samfélagssáttmálanum kemur fram að markmiðið sé að byggja upp örugga, líflega og samheldna Grindavík þar sem íbúar hafi raunhæft val um að snúa heim og byggja upp framtíð sína. Upp-
Nemendur fengu tækifæri til að kynna sér framboð, ræða málefni og upplifa hvernig kosningar fara fram í raunverulegu samfélagi. Kosningarnar voru framkvæmdar með svipuðum hætti og hefðbundnar kosningar þar sem nemendur kusu á kjörstað innan sinna skóla.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ungmennaráði Reykjanesbæjar sem vill þakka öllum skólunum, starfsfólki og nemendum kærlega fyrir samstarfið og þátttökuna í verkefninu.
byggingin byggir á gildunum samstöðu, öryggi, trausti, virðingu og seiglu.
Lögð verður áhersla á áframhaldandi uppbyggingu þjónustu, eflingu atvinnulífs, húsnæðismál, öryggisáætlanir og markvisst samráð við íbúa á næstu misserum.
Ásrún Helga Kristinsdóttir verður forseti bæjarstjórnar fyrri hluta kjörtímabilsins en Guðbjörg Eyjólfsdóttir tekur við embættinu síðari hluta þess. Þær skipta um hlutverk seinni hluta kjörtímabilsins.
Formlegar
meirihlutaviðræður hafnar í Vogum
Formlegar meirihlutaviðræður eru hafnar í Sveitarfélaginu Vogum á milli D listans, E listans og L listans. Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Vogum urðu eftirfarandi: A-listi, Fyrir samfélagið hlaut 223 atkvæði og tvo bæjarfulltrúa. D-listi, Sjálfstæðisflokksins og óháðra hlaut 333 atkvæði og þrjá bæjarfulltrúa. E-listi, Framboðsfélags E-listans hlaut 172 atkvæði og einn bæjarfulltrúa. L-listi, Framfarafélags L-listans haut 125 atkvæði og einn bæjarfulltrúa.
Tvær sóttu um stöðu skólameistara FS
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja en einn dró umsókn sína til baka.
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 29. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 18. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
Vísir óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.
Visirhf.is
vf is
Saltfiskurinn á bestu markaði í sunnanverðri
Hjá Vísi í Grindavík er bæði rekin saltfiskvinnsla og frystihús. Hér verður gefin örlítil innsýn í starfsemina í salthúsinu. Saltfiskverkun Vísis hefur verið rekin í sama húsinu frá því að fyrirtækið var stofnað árið 1965 en byggt var við húsið um aldamótin 2000. Vélbúnaður í salthúsinu hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina og er framleiðslan nú mjög tæknivædd. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Steinar Sæmundsson verkstjóra í salthúsinu og bað hann um að
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma
GUÐBJÖRG ÞORVALDSDÓTTIR Hátún 32 - Keflavík
Lést á Hrafnistu Nesvöllum þann 11.febrúar 2026. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hennar. Innilegar þakkir til starfsfólks HSS og Nesvalla fyrir kærleiksríka umönnun.
Auðun J. Guðmundsson Börn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HRÖNN SIGMUNDSDÓTTIR
Hringbraut 75, Keflavík
segja í fáum orðum frá starfsem inni.
„Hér í salthúsinu vinna um 50 manns og að auki starfa 10 manns í svonefndu Gjögurhúsi sem er slægingar- og pökkun arhús. Mikill meirihluti starfs fólks er af erlendum uppruna og þetta fólk hefur flest starfað lengi hjá fyrirtækinu. Ég gæti trúað að meðalstarfsaldur þess sé 10–15 ár. Starfsmannaveltan er ótrúlega lítil. Stór hluti þessara starfsmanna átti orðið húsnæði í Grindavík áður en bærinn var rýmdur en fólkið hefur haldið áfram að starfa hjá okkur eftir rýmingu. Það sem af er ári hefur verið tekið á móti um 4000 tonnum af hráefni hjá okkur. Hráefnið skiptist þannig eftir teg undum: um 3000 tonn þorskur, um 800 langa og rúmlega 200 ufsi en lítið af öðrum tegundum. Frá áramótum höfum við pakkað um 2000 tonnum af fullunnum saltfiski. Stærstu markaðirnir fyrir saltfiskinn okkar eru Ítalía, Spánn, Grikkland og Portúgal, en þessir markaðir í sunnanverðri Evrópu eru þeir bestu. Línufiskurinn fer mest á Ítalíu, Spán og Grikkland en togarafiskurinn fer á Portúgal. Starfsemin hjá okkur hér í salt húsinu hefur gengið afar vel og það er skemmtilegt að fylgjast með því hve eftirspurnin eftir framleiðslu vörunni okkar er mikil,“ sagði Jón Steinar.
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 28. maí. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 4. júní kl. 13
Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
Rétturinn
Ljú engur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virk a daga
Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu
HEYRN.IS
Getum við sagt að núna sé loksins komið sumar?
Getum við sagt að núna sé loksins komið sumar? Í það minnsta er júnímánuður kominn í gang og hann byrjar með veðurblíðu og fínum hita. Og það þýðir að færa bátarnir eða strandveiðibátarnir geta allir og fóru allir á sjóinn.
Maímánuður var býsna góður og eins og vanalega í maí þá grisjast ansi vel úr línubátaflotanum hérna fyrir sunnan og má segja að allir línubátarnir hafi farið í burtu nema Dúddi Gísla GK sem er í Grindavík en hann réri einungis fyrstu dagana í maí og síðan ekkert meira. Alls var Dúddi Gísla GK með 56 tonn í þessum fjórum róðrum og mest 18 tonn í einni löndun.
Hinn báturinn sem er eftir er Margrét GK frá Sandgerði og reyndar þá réri Margrét GK allan maímánuðinn og var með 94 tonn í 9 róðrum og mest 17,5 tonn í einni löndun, býsna gott.
Lítum aðeins á hafnirnar og byrjum í Grindavík. Töluvert var um togaralandanir þar og togararnir sem lönduðu þar flökkuðu líka á hafnir til dæmis í Vestmannaeyjum og Neskaupstað. Vestmannaey VE landaði 445 tonnum í 5 róðrum í Grindavík og mest 100 tonnum í einni löndun. Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE, var með 324 tonn í 4 löndunum í Grindavík. Vörður ÞH kom aðeins í eitt skipti til Grindavíkur og var þá með fullfermi, 109 tonn, annars landaði Vörður ÞH að mestu í Hafnarfirði. Hinn Gjögurstogarinn, Áskell ÞH, kom líka aðeins í eitt skipti til Grindavíkur með 98 tonn og síðan landaði Áskell ÞH að mestu í Hafnarfirði. Hulda Björnsdóttir GK var með 616 tonn í 4 og mest 188 tonn, öllu landað í Grindavík.
Stóru línubátarnir, Sighvatur GK var með 412 tonn í 4 og Páll Jónsson GK var með 184 tonn í 2, en hann hóf ekki róðra fyrr en seinnipartinn í maí. Reyndar er það þannig með stóru línubátana að þegar komið er fram á þennan tíma ársins og fram á sumar eru línubátarnir að mestu að eltast við keilu og löngu, og til dæmis í aflanum hjá Páli Jónssyni GK þá af þessum 184 tonna afla voru 83 tonn af löngu og 41 tonn af keilu.
Hjá Sighvati GK var svipað, en af 412 tonna afla var Sighvatur GK með 121 tonn af löngu og 96 tonn af keilu.
Dragnótaveiðin gekk vel í maí og voru tveir bátar frá Sandgerði með yfir 200 tonna afla í maí, Aðalbjörg RE var með 240 tonn í 17 róðrum og Sigurfari GK var með svipaðan afla eða um 245 tonn í 8 róðrum, en hann var að mestu að veiðum við Suðurströndina, en Aðalbjörg RE var allan maí á veiðum við Hafnarleir og fór líka aðeins inn í Faxaflóann.
Siggi Bjarna GK var með 150 tonn í 11 róðrum, Benni Sæm GK 142 tonn í 15 róðrum og síðan kom Stapafell SH til Sandgerðis núna
undir lok maí, en hann hóf veiðar árið 2026 frá Sandgerði en hefur síðan landað í Rifi. Stapafell fór síðan til Skagastrandar og landaði þar meðan hrygningarstoppið var hérna fyrir sunnan og við Snæfellsnes, en ekkert hrygningarstopp var í Húnaflóa og gat því Stapafell SH verið þar á veiðum. Annars þá geta strandveiðisjómenn frá Suðurnesjunum, sem voru langflestir í Sandgerði en 49 strandveiðibátar lönduðu þar í maí, og einn bátur náði yfir 10 tonna afla í maí, og var það Jóhann Haukur á Hawkernum GK, en hann gerði sér lítið fyrir og fór í 10,12 tonna afla í 12 róðrum og var aflahæsti strandveiðibáturinn á Suðurnesjunum og í 8. sætinu á svæði D, og í 18. sætinu yfir allt landið. Sem er vægast sagt flottur árangur því að veðurfarið á þessu svæði í byrjun maí var ekki beint auðvelt fyrir strandveiðisjómennina og það voru frekar fáir bátar frá Suðurnesjunum sem náðu að fara í 12 róðra í maí. Í raun voru aðeins fjórir bátar sem náðu að fara í 12 róðra á Suðurnesjunum, en það voru Ólafur GK frá Grindavík og í Sandgerði, Dímon GK, Séra Árni GK og Hawkerinn GK.
Frá salthúsi Vísis í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Varð Suðurnesjamaður vegna
„Mér fannst þetta strax frá upphafi vera mjög spennandi verkefni,“ segir Einar Hannesson, sem ráðinn hefur verið sem svæðisstjóri einstaklinga í nýju útibúi Arion banka og Varðar trygginga á Reykjanesi.
Einar hlakkar til að takast á við þessa nýju áskorun en þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem Arion opnar útibú utan höfuðborgarsvæðisins.
„Já, það er svo margt að gerast hér og mikil fólksfjölgun auðvitað á síðustu árum. Okkur hjá Arion langar að vera nær fólki hér og taka þátt í uppbyggingunni með því að láta fjármál og tryggingar vinna saman.“
Orðinn meiri Suðurnesjamaður en Maddý
Þrátt fyrir að Einar sé fæddur og uppalinn á höfuðborgarsvæðinu kveðst hann vera Keflvíkingur í húð og hár. Hann hefur búið í Reykjanesbæ ásamt konu sinni, Magndísi Andrésdóttur, frá árinu 2005. Magndís (sem alltaf er kölluð Maddý) er frá Keflavík. Maddý fullyrðir að Einar sé þó eiginlega orðinn meiri Keflvíkingur en hún. Ef Einar er ekki í vinnunni megi finna hann í margvíslegu sjálfboðaliðastarfi í æskuliðsstarfi íþróttanna, á spjalli við vini og kunningja í heitu pottunum eða sveiflandi kylfu úti á golfvellinum.
Gaman að ráða ungt fólk af svæðinu
„Æ, ég verð bara leiðinlegur ef ég sit of lengi á rassinum,“ segir Einar og hlær. „Ég þarf að hafa eitthvað fyrir stafni.“
Raðar kátur upp stólum
Hvað leiddi ykkur Maddý fyrst saman til Reykjanesbæjar?
„Árið 2004 fór ég að vinna hjá Icelandair, sem forstöðumaður flugafgreiðslusviðs. Svo fluttumst við hingað í kjölfarið. Hjá Icel-
andair var ég yfirmaður um 300 manna hóps og kynntist því strax fjölda fólks á svæðinu. Við ætluðum bara að vera hér í eitt ár og meta svo stöðuna. Síðan eru liðin, hvað? Tuttugu og eitt ár!“
Einar segir að það hafi gefið honum ótrúlega mikið að komast inn í samfélagið á Reykjanesi.
„Fyrir mér er það til dæmis bara geggjað að raða upp stólum fyrir körfuboltaleiki. Verkefnin skipta ekki öllu máli heldur frekar hitt, sem er að gera það sem þarf að gera og vera virkur þátttakandi í samfélaginu.“
Arion samstæðan opnaði nýja útibúið þann fimmta maí síðast liðinn með pompi og pragt og er það staðsett á Aðaltorgi, skammt frá alþjóðaflugvellinum. Einar segir að með opnun útibúsins vilji Arion styðja enn þéttar við bakið á at hafnasömum einstaklingum og fyr irtækjum á Reykjanesi og vera með í því að byggja upp blómlegt sam félag. Tryggingafélagið Vörður, sem er hluti af Arion, hefur enn fremur fært starfsemi úr Krossmóum yfir á Aðaltorg. Allt starfsfólk útibúsins er búsett á svæðinu og þekkir því vel til samfélagsins.
„Það er svo gaman að ráða til okkar ungt og efnilegt fólk af svæðinu. Við réðum til dæmis til okkar sex unga umsækjendur og horfðum þá sérstaklega eftir frum kvæði og drifkrafti í fari þeirra en það eru eiginleikar sem einkenna menninguna hjá Arion.“
Markar viss tímamót hjá Arion
Opnunin markar viss tímamót hjá Arion banka því að bankinn hefur ekki opnað nýtt útibú í langan tíma. Þá á Vörður sér langa sögu í Reykjanesbæ en trygginga félagið hefur verið með útibú í sveitarfélaginu síðan 1999.
„Fólki finnst auðvitað gott að geta komið og rætt stórar ákvarð anir við okkur undir fjögur augu,“ segir Einar. „Við skiljum það og tökum vel á móti öllum. Svo hvetjum við fólk líka bara til að líta inn í útibúið, skoða aðstöðuna og hitta á okkur. Hér er alltaf heitt á könnunni.“
Einar er hér með nýju framlínufólki Reykjanesbæjar; Gunnlaugi Kárasyni, Margréti Þórarinsdóttur og Vihjálmi Árnasyni ásamt Benedikt Gíslasyni, bankastjóri Arion banka.
Einar Hannesson er hér með starfsfólki nýs útibús Arion banka og Varðar í Reykjanesbæ en starfsemin er í nýju húsnæði við Aðaltorg. Hér að neðan má svo sjá nokkra gesti sem voru í opnunarfögnuði. VF/pket.
Séð inn í afgreiðslu Arion banka við Aðaltorg.
Einar og Magndís kona hans.
Glæsilegur og stærsti útskriftarhópur FS frá upphafi. Myndirnar tók Oddgeir Karlsson.
Dúxinn Ástríður Auðbjörg var með 9,64 í meðaleinkunn.
Ástríður Auðbjörg með fjölskyldu sinni á útskriftardaginn.
Ástríður dúx á vorönn
–
fjölmennasta
útskrift í sögu Fjölbrautaskóla
Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir var dúx á vorönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja er brautskráningin var sú fjölmennasta í sögu skólans en 168 nemendur útskrifuðust. Kristján Ásmundsson skólameistari stýrði sinni síðustu útskrift en hann lætur af störfum í sumar eftir fjörutíu ára starf, þar af sem skólameistari FS síðustu fjórtán ár.
Af þessum 168 útskriftarnemendum voru 127 stúdentar, 19 luku verknámi, 19 luku námi af starfsnámsbrautum, 8 af starfsbrautum og 1 iðnmeistari. Þess má geta að sumir ljúka prófi af fleiri en einni braut. Konur voru 100 en karlar 68. Alls komu 116 úr Reykjanesbæ, 23 úr Suðurnesjabæ, 5 eru með lögheimili úr Grindavík, 1 úr Vogum og 23 komu annars staðar af landinu. Þess má geta að með tilkomu dreifnáms í einka- og styrktarþjálfun hefur þeim útskriftarnemendum sem ekki búa á Suðurnesjum fjölgað verulega. Dagskráin fór fram á sal skólans og var með hefðbundnu sniði en það var Elvar Smári Sævarsson kennari og umsjónarmaður dreifnáms sem kynnti hana. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og
Telma Rut Eiríksdóttir brautarstjóri starfsbrautar flutti skriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni léku Sara Cvjetkovic á píanó og Arnar Geir Halldórsson á selló en þau eru bæði stúdentar frá FS og nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 150.000 kr.
námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn af stúdentsog verknámsbrautum við útskrift og hlaut Ástríður Auðbjörg Hall dórsdóttir styrkinn. Ástríður Auð björg hlaut einnig 50.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af raunvísindabraut með 9,64 í meðaleinkunn. Við útskriftina veittu foreldra félag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur. Það var Elínborg Ingvarsdóttir tómstundafulltrúi skólans sem afhenti verðlaunin. Það voru þau Friðrik Gunnarsson og Ísey Rún Björnsdóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem upp fylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf. Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suð urnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þau Amelía Sara Kamilsdóttir, Hafþór Logi Sigurðsson, Lára Margrét Hermannsdóttir og Salka Eik Nökkvadóttir fengu 40.000 kr. styrk fyrir góðan ár-
Suðurnesja
Kristján stýrði sinni síðustu útskrift. Hér er hann með Guðlaugu Pálsdóttur, aðstoðarskólameistara.
kennararnir Ólöf Hildur Egilsdóttir, Bragi Einarsson, Jón Gunnar Schram og John Richard Middleton kvödd en þau eru öll að fara á eftirlaun eftir að hafa starfað við skólann um árabil. Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari afhenti síðan Kristjáni Ásmundssyni skólameistara gjöf frá skólanum en hann lætur nú af störfum eftir að hafa starfað við skólann í 40 ár sem kennari, aðstoðarskólameistari og skólameistari undanfarin 14 ár. Nánar um verðlaunahafa á heimasíðu FS.
Laus störf
hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa starfsfólk á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ. Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í framþróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu.
Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
Sótt er um á www.hss.is og þar smellt á „Laus störf“
Kristján skólameistari afhenti kennurunum Írisi, Atla og Kolbrúnu fullmerki skólans.
Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti nemendum viðurkenningu úr styrktarsjóði Gunnars Sveinssonar.
Listaverk varð til úr hugmynd á netinu
Tveimur þriggja daga „Masterclass“-námskeiðum í hefðbundinni grjóthleðslu er nýlokið í Höfnum. Leiðbeinandi á námskeiðunum var enginn annar en Dan Snow, einn virtasti grjótlistamaður samtímans, Eitt leiddi af öðru og
Listaverkið: Monument to Rare Coincidence
Afrakstur námskeiðanna tveggja er risavaxið, 10 x 20 metra og 4 metra hátt þurrhlaðið grjótlistaverk sem hannað var af Dan Snow en skipulagt í samstarfi við Svein Enok. Sjálfur lýsir Dan Snow listaverkinu, sem ber heitið „Monument to Rare Coincidence“ (Minnisvarði um sjaldgæfa tilviljun), sem ákveðnum vitnisburði um náttúruöflin á svæðinu:
Verkið er hugsað sem athugasemd við regluleg flóð á svæðinu, sem verða þegar stórstreymt er og hvassviðri blæs af vestri. Svæðið í kringum suðurhluta verksins breytist tímabundið í kastalagröf (moat), á meðan miðja norðurhlutans verður tímabundið að
Sveinn horfir stoltur yfir svæðið eftir stranga en gefandi daga: „Það er eiginlega ótrúlegt að standa þarna núna og horfa á þetta allt saman. Hugmynd sem byrjaði með því að ég sat einn að ganga frá eftir námskeið í Höfnum varð að alþjóðlegu samstarfi, nýrri reynslu og nýjum vináttuböndum.“
Sjóðir styrkja námskeiðin Námskeiðaröðin Fornverk í Höfnum sem Masterclassinn með Dan Snow hefur fengið styrki frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, Samfélagssjóði Landsbankans og Húsfriðunarsjóði.
Nýtt námskeið er hafið þar sem unnið verður að viðgerð á gamalli fjárrétt skammt frá þeim stað þar sem umhverfislistaverkið var reist. Kristín Kelddal skrúðgarðyrkjumeistari er kennari á því námskeiði.
Snow sam-
steinn Elíasson, einn helsti grjót-
Listaverkið er stórt í sniðum eins og sést á þessari drónamynd sem tekin var á lokadegi námskeiðsins. VF/hilmarbragi
Hópurinn sem hlóð listaverkið sem sjá má hér að neðan.
Sveinn Enok Jóhannsson
Dag
Sjómannadeginum verður að vanda fagnað í Grindavík. Boðið verður upp á fjölskylduvæna dagskrá, samveru og viðburði. Nánari dagskrá má sjá á grindavik.is
FÖSTUDAGUR 5.
JÚNÍ
17:00 Árleg ganga um Ingibjargarstíg Árleg gróðursetning sumarblóma við minn isvarða Ingibjargar Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Kvenfélags Grindavíkur. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
21:00 Haffi Önnu á Fish House Haffi snýr heim til Grindavíkur og heldur notalega tónleika á Fish House. Frumsamið efni, kassagítar og ljúf stemning í góðum félagsskap.
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ
11:00 Skemmtisigling
frá Grindavíkurhöfn Boðið verður upp á skemmtisiglingu frá Grindavíkurhöfn þar sem gestir geta notið sjávarins og upplifað Grindavík frá öðru sjónarhorni.
11:00 Zumba Gold í Kvikunni
Jeanette leiðir hressan og skemmtilegan Zumba Gold-tíma í Kvikunni í boði Krabba meinsfélags Suðurnesja. Tilvalið fyrir alla sem vilja byrja daginn á góðri hreyfingu og gleði.
12:00–16:00 Bylgjulestin við Kvikuna Bylgjan sendir út beint frá Grindavík. Líf og fjör, tónlist og stemning í hjarta bæjarins.
14:30–16:00 Börnum
yngstu gestunum á
Kvikuna. 14:30-16:30 Sjómannadagskaffi í Kvikunni Útgerðarfyrirtæki, Sjómanna- og vélstjóra-
Hækkaðu sumarlaunin
Viðbótarlífeyrissparnaður hækkar launin. Þú getur sótt um í appinu.
Við erum betri saman
með útgáfukaffi á Byggðasafninu á Garðskaga á dögunum. Sagan fjallar um ástarsögu Eyþórs Einarssonar (1884–1957) sjómanns á Garðskaga og Ólafíu Ólafsdóttur (1886–1958) þjónustustúlku í Reykjanesvita. Þau gættu ljóssins í vitunum og vegna fjarlægðarinnar notuðu þau ljósið til að blikkast á. Þau bjuggu í Garðskagavita í sjö ár og eignuðust sex dætur og ólu upp dótturson.
„Ástarsaga í vitunum“ komin út á bók
Vegur ástarinnar milli Garðskagavita og Reykjanesvita eins og heilt maraþon
Höfundur bókarinnar er Hjalti Óla, afkomandi hjónanna. Hugmyndin að bókinni kviknaði þegar hann var að sýna frænku sinni frá Englandi gamla vitann á Garðskaga og heimsótti „hina dauðu í Útskálakirkjugarði“ eins og enska frændfólkið gantast með.
„Þegar safnvörður sagði mér að hún skyldi selja bókina á safninu þá hugsaði ég þetta eru skýr skilaboð að handan og nú tveim árum síðar er bókin komin,“ segir Hjalti um verkið.
Bókin fjallar líka um vitana, um Garðskagann og Garðskagaættina frá 1750 og Garðinn, Sandgerði, Hafnir og vitana á vesturströnd Reykjanessins.
á Garðskaga og er hún byggð uppá tveimur stórum spjöldum, öðru um Reykjanesið, séð frá vesturströndinni með sögubrotum og vegi ástarinnar og hitt er brot úr öllum köflum bókarinnar. Spjöldin eru hönnun grafíska hönnuðarins Margrétar Lóu Stefánsdóttur og vitarnir smíðaðir af Einari Mikael Sverrissyni.
Sýningin er opin í allt sumar til loka september frá kl 10 til 17 og frítt er inn.
Búið er að opna fésbókarsíðu verkefnisins með QR-kóða. Bókin
síðunni „Ástarsaga í vitunum“. Hjalti hvetur áhugasama til að keyra veginn frá Garðskagavita til Reykjanesvita eða „veg ástarinnar“ eins og hann kallar hann. Vegurinn er jafn og heilt maraþon, 42 km, leiðin sem hinn ástfangni Eyþór hljóp til að hitta Ólafíu. Upplagt að koma á byggðasafnið á Garðskaga og skoða sýninguna og fá sér svo rúnt suður vesturströndina. Góður dagur, fyrir einstaklinga eða hópa, með bíl eða rútu, eða hlaupara. Það er ósk höfundar að þú les-
fékk Hjalti til liðs við sig rithöf undinn Þuríði Ósk Sigurbjörns Þuríður hefur komið að útgáfu ým
Höfundurinn hefur einnig sett upp sögusýningu á Byggðasafninu
Hjalti og Lóa, Hjalti Örn Ólason og Ólöf Sigurrós Gestsdóttir.
Frá sýningunni á Byggðasafninu á Garðskaga.
Svipmyndir frá útgáfuhófinu á Garðskaga á dögunum.
Líndal tekur við Georg V. Hannah eftir 59 ára verslunarrekstur
Úra- og skartgripaverslunin Líndal hefur opnað dyr sínar að Hafnargötu 49 í Keflavík. Verslunin er arftaki hinnar rótgrónu verslunar Georgs V. Hannah, en nýr eigandi er Helgi Líndal, nýútskrifaður gull smiður. Hann tók við keflinu af Eggert Hannah gullsmið. Við tókum Helga tali á opnunardaginn til að ræða áskoranirnar, vöruúrvalið og framtíðina á Hafnargötunni.
Spennandi áskorun og 59 ára saga
Hvernig er að opna búð í Keflavík í dag?
„Það er bara spennandi, já, ég held ég geti ekki sagt neitt annað en það.“
Hvernig kom þetta til?
„Ég tók starfsnám hérna hjá honum Eggerti Hannah, sem tók við verslunarrekstrinum af foreldrum sínum árið 2017. Ég hóf námssamning hjá honum, byrjaði árið 2022 ef ég man rétt. Ég er búinn að vera hérna síðustu ár að hjálpa honum af og til og kláraði námssamninginn hér. Svo var kominn tími hjá honum að hætta og hann bauð mér að kaupa. Ég sá bara ekki annað í stöðunni en að segja já.“
Varstu þá að læra gullsmíði?
„Já, ég lærði gullsmíði hjá Eggerti og útskrifaðist úr Tækniskólanum fyrir rétt rúmu ári, um miðjan maí í fyrra.“
Þetta er svolítið mikil áskorun að taka við svona rótgróinni verslun?
„Já, þetta er mikið viðbrigði og einmitt áskorun. Þetta er 59 ára gömul verslun. Það verður vinna að halda þessu við en bara ótrúlega spennandi. Krefjandi örugglega, en ég er bara spenntur.“
Ertu að breyta miklu?
„Ekki þannig, ég er bara búinn að breyta útlitinu svolítið inni í búðinni. Ég er enn þá með svipaða vöru en búinn að taka inn eitthvað nýtt. Svo á þetta bara
eftir að þróast. Það þarf að sjá taktinn í þessu, sjá hvað virkar og hvað ekki, og svo bara panta inn það sem mér líst vel á þegar að því kemur.“
Eina úraverslunin á Suðurnesjum
Hvernig var fyrsti dagurinn?
„Hann var mjög góður, virki lega góður og langt fram úr væntingum. Það kom ótrúlega mikið af fólki; sumir komu bara að heilsa og spjalla, það var alveg frábært.“
Þannig að það er alveg grundvöllur fyrir svona sérverslun í bænum?
„Já, ég held það. Þetta er eina úraverslunin á Suðurnesjunum og það er alltaf einhver sem vantar úr eða batterí. Svo finnst mér áhuginn á skartgripum líka vera að aukast hjá fólki. Þannig að ég held að þessi búð eigi fullan rétt á
Og þú sérð fullt af mögu„Já, ekki spurning. Annars væri
Klassísk úr og vasahnífar á sterum
Hvað er „heitt“ í dag?
„Ég er rosa hrifinn af Tissot-úrunum. PRX-línan er mjög vinsæl og heit vara á flottu verði. Svo er ég líka með úr frá Raymond Weil og Orient sem ég er mjög hrifinn af – þau eru á flottu verði miðað við að vera sjálftrekt úr. En svo er ég með alveg heilan helling af batteríisúrum, bæði dömu- og á
með allt frá 5.000 krónum og upp úr, þannig að allir geta komið og verslað hér. Silfurhálsmenin seljast alltaf vel og hjartað er til dæmis alltaf klassík. Ég trúi ekki öðru en að fólk finni eitthvað fyrir sig eða aðra hérna inni.“
Helgi Líndal er einnig að selja Leatherman fjölnotatól og býður upp á áletrun á þau. „Leatherman er geggjuð græja og í raun bara gamli góði vasahnífurinn á sterum og frábær gjöf fyrir iðnnema.“
Þú ert að byrja hérna nánast beint eftir útskriftir úr skólunum, hefðirðu kannski þurft að vera mánuði fyrr á ferðinni?
„Já og nei, þetta var svona eina tímasetningin sem hentaði og var í boði. Við þurftum svolítinn tíma í að breyta hér inni. Svo tók tíma að hafa samband við heildsala og fá nýjar vörur. Ég tók til dæmis inn ný ilmkerti sem heita By Krummi og eru með ótrúlega skemmtilegum lyktum.“
fjölskyldustuðningurinn
Verður þú á bak við alla daga að smíða, eða hvað ætlarðu að gera við gullsmíðina?
Núna gefst loksins almennilegur tími í það. Það er náttúrulega kostnaðarsamt þannig að það tekur tíma, en hægt og rólega mun ég byggja upp ágætis lager. Margir komu í dag og spurðu einmitt um hluti eftir mig, en því miður átti ég engan lager eins og er. En það kemur.“
Hverjir verða með þér í vinnunni?
„Eins og staðan er núna er ég einn, en mamma mín og Elsa kærastan mín eru búnar að hjálpa mér hérna í allan dag. Ég held að þær muni koma og hjálpa mér af og til.“
Mamma þín er nú með smá verslunarreynslu hér við Hafnargötuna ásamt systur sinni?
„Já, þær systur ráku SI-verslunina að Hafnargötu 61 í mörg ár, þannig að þær þekkja rekstur á Hafnargötunni vel.“
Hvernig ætlarðu svo að hafa opið?
„Eins og staðan er núna stefni ég á að hafa opið frá 10 til 18 alla virka daga og frá 11 til 14 á laugardögum. Það gæti svo sem breyst, en það er allavega hugmyndin í dag.“
VIÐSKIPTI
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Georg V. Hannah, Eggert Hannah og Helgi Líndal, sem nú hefur tekið við rekstri verslunarinnar og breytt nafni hennar í Líndal.
Helgi Líndal er nýjasti kaupmaðurinn við Hafnargötuna í Keflavík og verslar með úr og skartgripi, auk annarar gjafavöru.
Gagnaverið Verne á Ásbrú í Reykjanesbæ fagnar senn 15 ára rekstrarsögu. Fyrirtækið hefur nýverið tekið í notkun nýtt tengivirki sem rúmlega fimmfaldar þá orku sem verið getur í flæði á svæðinu. Við settumst niður með Styrmi Hafliðasyni framkvæmdastjóra Verne á Íslandi, og ræddum þessa gríðarlegu stækkun, alþjóðlegu gervigreindarbylgjuna, nýtt samstarf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hvernig það kom til að tóm vöruhús hersins breyttust í hátæknisetur.
Gervigreindin breytti leiknum yfir nóttu
Mikill vöxtur hjá gagnaverinu Verne Global á fimmtán árum. Íslenski vindurinn notaður til að kæla allar ofurtölvurnar. Áætlanir eru um verulega aukningu á fjölda starfsmanna fyrirtækisins á Ásbrú á næstu tveimur árum.
VIÐTALIÐ
Páll Ketilsson pket@vf.is
Fimmföldun á orkugetu inn á svæðið Við byrjum á stóru fréttunum. Þið voruð að taka í notkun nýtt tengivirki á svæðinu. Hvað þýðir þetta nákvæmlega fyrir starfsemina?
„Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu. Við höfum verið í rekstri hér á Ásbrú síðan 2012 og erum því að detta í 15 ár í rekstri gagnavers. Gamla tengivirkið okkar, sem við tókum í notkun í upphafi, var 45 megavött. Nýja tengivirkið er hins vegar upp á 240 megavött, sem er rúmlega fimmföldun á þeirri orku sem við getum tekið á móti. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref fyrir framtíð okkar og skýr skilaboð um hvert við stefnum.“
Af hverju ákváðuð þið á sínum tíma að reka ykkar eigið tengivirki í stað þess að treysta eingöngu á hefðbundna innviði?
„Tengivirkið er í raun tengipunkturinn okkar við Landsnet, sem flytur orkuna til okkar. Við ákváðum snemma að reka eigið tengivirki til þess að hafa betri stjórn á orkunni og hvernig við dreifum henni innan okkar svæðis. Þegar við erum að byggja nýja gagnasali og stækka, þá stjórnum við sjálf leiðunum sem orkan fer.“
Gagnavinnsluver frekar en gagnaver
Gagnaversiðnaðurinn virðist vera í gríðarlegum vexti. Hvað er það sem drífur þessa miklu eftirspurn áfram?
„Þetta er einn sá iðnaður á Íslandi sem vex hvað hraðast. Gagnaver í dag eru hreinlega orðin hluti af grunninnviðum samfélagsins, á borð við samgöngur eða rafmagn. Nútímalífstíllinn okkar treystir á við getum flétt upp fréttum í rauntíma, bókað flug á netinu eða notað heimabankann – öll þessi þjónusta reiðir sig á gagnaver sem grunninnvið.
En það sem hefur gerst á síðustu 12 til 18 mánuðum er eitthvað alveg einstakt. Leikurinn breyttist bókstaflega á alheimsvísu yfir nóttu vegna gervigreindarinnar (AI). Maður er vanur því að iðnaður þróist hægt og bítandi, en þarna var eins og maður hefði farið að sofa á sunnudagskvöldi í ákveðnum veruleika, og vaknað á mánudagsmorgni í nýjum heimi þar sem eftirspurnin hafði margfaldast á alheimsvísu. Allt í einu voru allir farnir að nota gervigreindina. Grunninnviðir gervigreindarinnar eru gagnaver; þar inni keyra líkönin. Með gervigreindinni varð risavaxin breyting í þessum iðnaði.“
Var þetta eitthvað sem þið sáuð fyrir?
„Við vorum ómeðvitað mjög vel undirbúin. Ísland hentar einstaklega vel fyrir tækni sem kallast High Performance Computing (HPC) eða ofurtölvurekstur. Við ákváðum fyrir tíu árum að sérhæfa
Nýja tengivirkið sem nýlega var tekið í notkun.
aðarins. Viðskiptavinir okkar eru í raun miklu meira að vinna úr gríðarlegu magni upplýsinga heldur en að geyma þær. Þess vegna er orðið „gagnaver“ kannski dálítið rangnefni yfir starfsemi okkar á Íslandi – „gagnavinnsluver“ væri mun réttara. Þar sem við vorum þegar sérhæfð í ofurtölvurekstri og öll hönnum okkar á gagnasölum miðaðist við það, smellpössuðum við inn í þarfir gervigreindarlíkananna þegar sú bylgja fór af stað.“
Kom þessi fimmföldun á tengivirkinu þá til vegna þessarar sprengingar?
„Nýja spennuvirkið er búið að vera í framkvæmd í þrjú ár, þannig að ákvörðunin var tekin fyrir þessa miklu AI-bylgju. Við höfum raunar verið í stöðugum framkvæmdaham frá árinu 2012, alltaf að byggja eða breyta. Við gerðum ráð fyrir jöfnum og stöðugum vexti á Ásbrú, en þessi þróun gerir það að verkum að við þurfum að hlaupa mun hraðar en plön gerðu ráð fyrir.“
Frá BMW yfir í íslensku tæknifyrirtækin
Hverjir eru helstu viðskiptavinir ykkar?
„Fókusinn okkar hefur alveg frá byrjun verið á stór, erlend fyrirtæki, svokallaða enterprise viðskiptavini. Einn af okkar allra fyrstu viðskiptavinum árið 2012 var þýski bílaframleiðandinn BMW og síðar var Volkswagen lengi í viðskiptum hjá okkur. Að fá svona stór fyrirtæki strax í upphafi
mótaði fyrirtækið og verkferlana okkar; við urðum að vera með þjónustuna á 100% hreinu til að standast þeirra ströngu alþjóðlegu kröfur, staðla og verkferla . Í dag erum við mikið með erlend fyrirtæki úr upplýsingatæknigeiranum (IT), fjármálageiranum, stórar rannsóknarstofnanir og háskóla, aðallega frá Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum.“
En hvað með innlenda markaðinn, eiga íslensk fyrirtæki hlutdeild hjá ykkur?
„„Já, við erum með nánast öll alla helstu íslensku þjónustufyrirtækin í viðskiptum við okkur. En skalinn á því sem við erum að gera er einfaldlega það stór að þótt öll helstu upplýsingatæknifyrirtæki landsins séu með sinn rekstur hjá okkur, þá telst það samt sem áður mjög lítill hluti af heildarrekstrarumhverfi gagnaversins.“
Sagan á servíettunni og fullkomið veðurfar
Ef við spólum aðeins til baka –hvernig varð þessi hugmynd um stórtækan gagnaversrekstur á Íslandi eiginlega til?
„Fyrirtækið var stofnað árið 2008 en hugmyndin fæddist í raun á servíettu inni á skrifstofu tölvuleikjafyrirtækisins CCP. Hilmar, þáverandi framkvæmdastjóri CCP,
var orðinn langþreyttur á því að þurfa stanslaust að senda tæknimenn til London til þess að vinna í gagnaverinu sem keyrði EVE Online-leikinn. Hann velti því fyrir sér af hverju það væri ekki hægt að reka gagnaver á Íslandi.
Að málinu komu sípan íslenskir og erlendir fjárfestar og stjórnendateymi með mikla reynslu úr gagnaversgeiranum vestanhafs og austan. Þeir sáu strax að Ísland bjó yfir einstökum kostum: Grænni, endurnýjanlegri orku og stanslausum vindi allt árið um kring.“
Skiptir íslenski vindurinn og kuldinn virkilega svona miklu máli?
„Já, heldur betur. Það er ekkert einsdæmi í heiminum að gagnaver nýti umhverfis eða utanaðkomandi loft til kælingar til þess að ná niður rekstrarkostnaði. En munurinn á Íslandi og öðrum löndum, eins og í Skandinavíu eða Kanada, er sá að hér getum við gert þetta allt árið um kring. Sumrin á Íslandi verða ekki of heit og veturnir verða heldur ekki of kaldir. Ef umhverfið úti verður of kalt, þá þarftu að eyða mikilli orku í að hita loftið upp áður en þú hleypir því inn í salina. Ísland liggur hins vegar alltaf á þessu fullkomna hitastigsbili fyrir utanaðkomandi kælingu, sem hefur bein og mjög jákvæð áhrif á orkunotkunina okkar.“
...Þar voru skrifborð með pappírum, pennar og kaffibollar, rétt eins og fólk hefði bara staðið upp og átt von á að mæta aftur daginn eftir. En gekk hreinlega út og sagði bless. Við þurftum að byrja á að hreinsa þetta allt út...
Styrmir Hafliðason framkvæmdstjóri Verne Global á Ásbrú.
Verne hefur nýtt vel húsnæði sem Varnarliðið var með í sinni starfsemi.
...Miðað við okkar útreikninga gerum við ráð fyrir að auka mikið við starfsmannafjöldann hjá okkur á næstu árum. Samhliða því má gera ráð fyrir að afleiddum störfum muni fjölga líka. Þetta eru dýrmæt og verðmæt tæknistörf sem krefjast menntunar..
Af hverju varð Ásbrú á Suðurnesjum fyrir valinu sem staðsetning, yfirgefnar stórbyggingar Varnarliðsins sem var ný farið í burtu?
„Herinn fór árið 2006 og þegar fyrirtækið er stofnað tveimur árum síðar stóðu þarna margar tómar byggingar sem vantaði nýtt hlutverk. Það passaði fullkomlega við okkar umhverfisvænu framtíðarsýn að endurnýta húsnæði fremur en að byggja allt frá grunni. Við keyptum þessar byggingar árið 2008 – gamla verslun varnarliðsins, lagerhúsnæði og hús sem búslóðir hermanna biðu á milli þess sem þeir voru sendir annað. Að utan sérðu nákvæmlega sömu útveggi og þök og voru þá, en öllu innvolsinu hefur verið breytt í hátæknigagnaver.
Þegar við mættum fyrst á svæðið blasti við ákveðin sjón. Sum rými og skrifstofur voru nánast ósnert frá því að Kaninn fór. Þar voru skrifborð með pappírum, pennar og kaffibollar, rétt eins og fólk hefði bara staðið upp og átt von á að mæta aftur daginn eftir. En gekk hreinlega út og sagði bless. Við þurftum að byrja á að hreinsa þetta allt út. Þegar við byrjuðum var gagnaversiðnaður hreinlega ekki til á Íslandi og við þurftum að eiga mikil samtöl við stjórnvöld til að gera umhverfið samkeppnishæft. Við viljum meina að sjálft orðið „gagnaver“ hafi orðið til í íslenskri tungu í kringum tilkomu Verne,“ segir Styrmir kýminn.
Áhrif á nærsamfélagið:
Fjöldi starfa og samstarf við FS
Hvað þýðir starfsemin á Ásbrú fyrir atvinnulífið á Suðurnesjum í dag?
„Í dag starfa tæplega 50 manns beint hjá Verne og starfsmannafjöldinn hefur vaxið stöðugt. Almennt er gert ráð fyrir því að fyrir hvert starf sem er beint að vinna hjá gagnaveri skapist 2-5 afleidd störf. Þetta er fólk frá íslenskum upplýsingatæknifyrirtækjum, iðnaðarmenn og tæknimenn sem þjónusta búnaðinn okkar eða viðskiptavinina. Við erum orðin veigamikill þáttur í atvinnulífi svæðisins og þau áhrif munu aukast.“
Eru áform um frekari stækkun á næstunni?
„Já, við erum með mörg spennandi verkefni í pípunum og horfum björtum augum á fram-
tíðina. Miðað við okkar útreikninga gerum við ráð fyrir að auka mikið við starfsmannafjöldann hjá okkur á næstu árum. Samhliða því má gera ráð fyrir að afleiddum störfum muni fjölga líka. Þetta eru dýrmæt og verðmæt tæknistörf sem krefjast menntunar. Þess vegna erum við mjög ánægðir að fá að taka þátt í þessum rekstri. Það er ekki sjálfgefið að Ísland sé hluti af þessari gervigreindarbylgju sem er að ganga yfir heiminn. Og við þurfum sameiginlegt átak margra aðila með okkur til að standa með okkur í þessari uppbyggingu.“
Þið nefnduð á kynningu á dögunum áhugavert samstarf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS). Í hverju felst það?
„Við sjáum fram á mikla mannaflaþörf í náinni framtíð og viljum tryggja að unga fólkið á svæðinu sjá tækifærin sem eru að skapast. Við settum okkur í samband við FS, en skólinn er með frábærar brautir í rafvirkjun, vélvirkjun, pípulagningum og annarri iðnmenntun. Hugmyndin sem við erum að þróa með þeim er að búa til sérstaka gagnaverssérhæfingu innan veggja skólans.
Krakkarnir myndu áfram læra sína hefðbundnu rafvirkjun eða vélvirkjun, en fengju sérhæfða áfanga eða verkefni sem undirbúa þau beint undir það hvernig stoðkerfi gagnavera virka. Þetta er „win-win“ staða; við fáum vel undirbúið framtíðarstarfsfólk og krakkarnir útskrifast með verðmæta þekkingu beint út í atvinnulífið í sínu nærumhverfi.“
Er nýja Suðurnesjalína 2 mikilvæg forsenda fyrir þessum vaxtaráformum ykkar?
„Jú, hún er algjör forsenda fyrir áframhaldandi framtíðarvexti Verne á þessu svæði. Við erum í nánu og góðu sambandi við Landsnet varðandi það mál, erum vongóðir og treystum því að það mál klárist sem allra fyrst.“
Frá Securitas yfir í framkvæmdastjórastólinn Hverjir eiga gagnaverið á Ásbrú í dag?
„Í upphafi var þetta hópur íslenskra og erlendra fjárfesta og lífeyrissjóðirnir komu inn á tímabili. Árið 2022 var fyrirtækið selt til breska sjóðsins D9 og þá stækkaði Verne-brandið út fyrir landsteinana; gagnaver í Bretlandi og Finnlandi voru færð undir merki Verne þar sem nafnið okkar þykir mjög sterkt á alþjóðavísu. Árið 2024 keypti svo franskur innviðasjóður, sem hetir Ardian, eignasafnið. Þeir eiga einnig Mílu á Íslandi. Ardian er einn stærsti sjóður Evrópu sem sérhæfir sig í innviðum á borð við virkjanir og flugvelli. Gagnaver Verne er eina gagnaverseignin í þeirra safni. En þótt eigendurnir séu erlendir, þá erum við algjörlega rekin sem sjálfstætt, íslenskt fyrirtæki hér heima.“
Að lokum Styrmir, hver er þinn eigin bakgrunnur og hvernig komst þú inn í þennan iðnað?
„Ég er upprunalega Reykvíkingur en flutti á Suðurnesin fyrir um átta árum síðan. Ég hóf störf á svæðinu árið 2011, þá sem starfs-
maður Securitas. Ég var ráðinn til að taka yfir staðbundna gæslu hjá Securitas á svæðinu sem Kjartan Már Kjartansson stýrði þá, og mitt aðalverkefni var að hanna og setja upp öryggisgæsluna og skrifa verkferlana fyrir Verne á Ásbrú. Þannig fékk ég tækifæri til að taka þátt í uppbyggingunni frá fyrsta degi sem verktaki, uns ég var ráðinn yfir sem starfsmaður Verne árið 2013. Eftir að hafa keyrt á milli í fimm ár tókum við fjölskyldan ákvörðun um að flytja suður árið 2014. Konan mín, Fríða, vinnur sem deildarstjóri í Stapaskóli. Við búum í Innri-Njarðvík og erum sammála um að þetta sé ein besta ákvörðun sem við höfum tekið. Samfélagið tók ótrúlega vel á móti okkur. Krakkarnir byrjuðu að æfa með Njarðvík og ég endaði sjálfur á því að vera formaður barnaog unglingaráðs í fótboltanum í Njarðvík í átta ár. Ég skilgreini mig algjörlega sem Reykjanesbæjarbúa í dag.“
Hvernig horfir framtíðin við þér eftir 15 ár í bransanum?
„Það er gríðarleg bjartsýni í gangi en líka ákveðin, heilbrigð óttablandin virðing fyrir því hversu stór verkefnin fram undan eru. En það sem lætur mig sofa afar vel á nóttunni er teymið mitt hérna hjá Verne. Flestir starfsmennirnir okkar hafa verið hér í meira en tíu ár. Sú reynsla og þekking sem þar býr tryggir að við getum með fullu öryggi tekist á við allt það sem framtíðin ber í skauti sér.“
Séð yfir húsakynni Verne Global á Ásbrú. Næsta stækkun verður í austur, til hægri á myndinni.
Pípurnar þar sem kælivatn streymir um í Verne eru vígalegar en kæling er stór þáttur í starfsemi Verne.
Núverandi og verðandi fulltrúar Reykjanesbæjar voru á kynningu í Verne nýlega, f.v. Kjartan Már Kjartansson, fráfarandi bæjarstjóri, Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs og Vilhjálmur Árnason, næsti bæjarstjóri.
Frábær Gosi í Frumleikhúsinu
í Keflavík í lok maí. Hér er á ferðinni fjölskyldusýning um tré brúðuna Gosa sem þráir að verða alvöru drengur. Á ferðalagi sínu lendir hann, ásamt vini sínum Tuma Engisprettu, í alls kyns ævintýrum, kynnist skrautlegum persónum og lærir mikilvægar lexíur um heiðarleika, hugrekki og vináttu.
Í söngleiknum um Gosa taka þátt tugir krakka og ungmenna undir stjórn Elmu Rúnar Kristinsdóttur, eiganda Ungleikhússins, en hún var danshöfundur sýningarinnar. Með henni er leikstjórinn Sigga Ósk og söngþjálfari er engin önnur en Diljá Pétursdóttir, söngkona og fyrrverandi fulltrúi Íslands í Eurovision. Um leikmynd sér Davíð Örn Óskarsson, Sigurður Bogi Ólafsson er með lýsingu og leikgervi eru í höndum Evu Bjargar Harðardóttur.
Sýningin hefur fengið frábær viðbrögð og verið fullt á allar sýningar en nokkrar eru eftir og hægt að kaupa miða á tix.is
Stórstjörnur áttu ekki séns í Ingu Sóllilju
Hin árlega verðlaunahátíð barnanna, Sögur, fór fram í beinni útsendingu á RÚV um helgina og óhætt er að segja að ein skærasta stjarna kvöldsins hafi verið hin unga og stórefni lega Inga Sóllilja Arnarsdóttir. Hún mætti til leiks með fimm tilnefningar en fór heim með hvorki meira né minna en þrenn glæsileg verðlaun eftir að hafa lagt nokkrar af stærstu stjörnum þjóðarinnar að velli.
Skaut Ara Eldjárn og Herra Hnetusmjöri ref fyrir rass
stjarna ársins. Þar átti hún í höggi við algjörar risastjörnur í íslensku skemmtanalífi, en á meðal til nefndra í flokknum voru Ari Eld járn, Aron Can, Auðunn Blöndal og Herra Hnetusmjör.
gríðarlega vinsæl Inga Sóllilja er á meðal yngri kynslóðarinnar að hún skyldi bera sigur úr býtum gegn þessum reynsluboltum.
Sigraði líka í talsetningu og leik
stjarna ársins hreppti Inga Sóllilja
Njarðvíkingurinn Þórunn Elísabet
hlaut
heiðursverðlaun Grímunnar
Myndlistarkonan og hönnuðurinn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir hlaut heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands árið 2026. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu á dögunum, en þetta var í 24. sinn sem Gríman, íslensku sviðslistaverðlaunin, fór fram.
Þórunn Elísabet, sem er uppalin í Njarðvík, hlaut þessa æðstu viðurkenningu sviðslistanna fyrir framúrskarandi og ómetanlegt framlag sitt til íslenskrar leiklistar í gegnum áratugina.
Djúp tenging við handverk og þjóðmenningu
Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Þórunni verðlaunin við mikil fagnaðarlæti viðstaddra. Áður en verðlaunin voru afhent las Lilja Björk Haraldsdóttir forseti Sviðslistasambandsins upp umsögn valnefndar um heiðursverðlaunahafann. Í umsögninni var verkum Þórunnar lýst á einstakan veg:
„Verk hennar hafa alla tíð einkennst af næmri efniskennd, ríkri myndrænni frásögn og djúpri tengingu við íslenska textílhefð en áhugi hennar og ást á íslenskri þjóðmenningu og handverki hefur verið sterkur áhrifavaldur í verkum hennar.“
Þrefaldur Grímuhafi
Heiðursverðlaunin koma í kjölfar langs og afar farsæls ferils Þórunnar í íslensku leikhúslífi. Hún hefur verið einn fremsti búninga- og leikmyndahönnuður landsins og hafa verk hennar oft vakið verðskuldaða athygli. Á ferli sínum hefur hún alls sex sinnum verið tilnefnd til Grímuverðlaunanna fyrir búningahönnun og hlotið verðlaunin þrisvar sinnum:
• Fyrir sýninguna Rómeó og Júlíu í uppsetningu Vesturports.
• Fyrir sýninguna Leg í Þjóðleikhúsinu.
• Fyrir sýninguna Sjö ævintýri um skömm í Þjóðleikhúsinu. Heiðursverðlaunin í ár eru verðskulduð staðfesting á því mikilvæga listræna fótspori sem þessi hæfileikaríki Njarðvíkingur hefur markað í íslenska leiklistarsögu.
Þriðju verðlaun kvöldsins fékk hún svo sem hluti af Leikflokki ársins fyrir sýninguna Oz.
Viðloðandi nánast öll verðlaun kvöldsins
Móðir Ingu Sóllilju, Halla Karen Guðjónsdóttir, lýsti yfir gríðarlegu stolti á samfélagsmiðlum eftir hátíðina og vakti athygli á því að dóttir hennar hefði komið nálægt nánast öllu því efni sem verðlaunað var á hátíðinni:
„Það er mjög gaman að segja frá því að Stundin okkar fékk heiðursverðlaunin 2026 sem hún leikur jú í, Góðir Íslendingar var fjöl skylduþáttur ársins sem hún kom
Þakkarræður Ingu Sóllilju hittu beint í mark og vöktu mikla kátínu í salnum, enda stelpa sem er greinilega jafn fyndin og hún er hæfileikarík. Hún nýtti tækifærið á sviðinu og þakkaði foreldrum sínum sérstaklega fyrir tvo mjög hagnýta hluti: að nenna að skutla henni og að sjá um að senda reikningana.
„Að leika er það skemmtilegasta sem Sóllilja okkar gerir og á meðan svo er þá erum við þakklát fyrir öll þessi frábæru tækifæri sem hún fær til að láta drauma sína rætast,“ segir Halla Karen að lokum. Það er ljóst að Ísland hefur eignast nýja ofurstjörnu sem á framtíðina fyrir
Kristín Júlla hlaut Edduverðlaun
Suðurnesjakonan Kristín Júlla Kristjáns var á meðal þeirra sem fögnuðu sigri á Edduverðlaunahátíðinni sl. föstudagskvöld. Hún hlaut verðlaun fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Felix og Klöru. Kristín Júlla vann verðlaunin ásamt samstarfsfólki sínu, þeim Ástu Hafþórsdóttur og Thomas Foldberg, en þau sáu um gervi, hár og förðun í þáttunum sem Ragnar Bragason leikstýrði.
„Ójá, ég vann Eddu“
Kristín Júlla hóf fagnaðarerindið á samfélagsmiðlum sínum með einföldum en kraftmiklum orðum þar sem hún samgladdist samstarfsfólki sínu: „Ójá ég vann Eddu á föstudaginn ásamt Ástu Hafþórs og Thomas Foldberg. Við unnum fyrir Felix og Klöru, til hamingju allir tilnefndir og allir edduhafar.“
Hamingjuóskir
Sendum starfsfólki okkar hugheilar kveðjur í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins og þakkir fyrir samstarfið í fjóra áratugi.
Sendum öllum sjómönnum hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins.
1986 - 2026
„Þetta snýst alltaf um að fólkið hafi vinnu“
Nesfiskur hryggjarstykkið í Garðinum og fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir
Fjölskyldufyrirtækið Nesfiskur hf. í Garði fagnar um þessar mundir 40 ára afmæli sínu. Reksturinn á sér þó mun dýpri rætur sem teygja sig allt aftur til ársins 1965. Blaðamenn settust niður með Bergþóri Baldvinssyni framkvæmdastjóra, Bryndísi Arnþórsdóttur og Bergi Þór Eggertssyni, aðstoðarframkvæmdastjóra og útgerðarstjóra, til að ræða sögu fyrirtækisins, áföllin, kvótakerfið og hvernig lífið á sjó og landi hefur gjörbreyst á fjórum áratugum.
Beint í djúpu laugina
Þó að Nesfiskur hafi verið stofnaður undir sínu núverandi nafni árið 1986, hófst útgerðarsaga fjöl skyldunnar formlega árið 1965 þegar Baldvin Njálsson og Njáll Benediktsson, afi Bergþórs, létu smíða fyrsta bátinn. Fyrir Bergþór var það nánast sjálfgefið að feta þessa braut, þótt aðstæður hafi hagað því þannig að hann þurfti að herða upp huga sinn mun fyrr en áætlað var.
„Þetta lá bara einhvern veginn fyrir, það var ekkert annað í boði,“ segir Bergþór þegar hann er spurður út í upphafssögu sína í greininni. Í viðtali við Víkurfréttir fyrir nokkrum árum lýsti Þorbjörg Bergsdóttir, móðir Bergþórs, því að álagið hafi verið mikið á upp hafsárunum og þegar Bergþór hafi fengið bílprófið hafi hann strax farið að keyra fyrir fyrirtækið, fara með bjóðin í bátana og sækja fisk.
„Ég var byrjaður í fyrirtækinu löngu áður en ég fékk bílpróf,“ játar Bergþór í hreinskilni. Hann hafi verið ungur að árum þegar hann var farinn að stýra fyrirtækinu og
Á skrifstofu Nesfisks í Gerðum í Garði. Frá vinstri: Bryndís Arnþórsdóttir. Baldvin Þór Bergþórsson, Bergur Þór Eggertsson og Bergþór Baldvinsson. VF/hilmarbragi
Úr vinnslunni og lausfrystingunni hjá Nesfiski í Garði.
Páll Ketilsson pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Í dag heldur Nesfiskur úti öflugum flota og er með um 11.000 tonna þorskígildiskvóta, en Bergþór bendir á að fyrirtækið hafi þurft að kaupa hvert einasta kíló á markaðsvirði síðan kvótakerfið var sett á árið 1984.
„Ef ég hefði vitað í hvað stefndi þegar við byrjuðum endurbygg ingu, hefði ég aldrei farið af stað aftur,“ segir Bergþór. En í stað þess að leggja árar í bát sýndi fjöl skyldan fádæma seiglu. „Við hugs uðum okkur um í nokkra daga, leigðum svo fiskvinnsluhús í ná grenninu, Ásgeirshúsið, á meðan endurbygging stóð yfir, og fluttum inn í nýtt hús ári síðar, 1988. Það var bara jaxlast í gegnum þetta.“
Frá „villta vestrinu“ til hátækninnar í kvótakerfinu
Í dag heldur Nesfiskur úti öflugum flota og er með um 11.000 tonna þorskígildiskvóta, en Bergþór bendir á að fyrirtækið hafi þurft að kaupa hvert einasta kíló á mark aðsvirði síðan kvótakerfið var sett á árið 1984. Auk þess leigir fyrir tækið umtalsverðan kvóta á hverju ári, stundum fyrir allt að milljarð króna, til að tryggja jafnt flæði inn í vinnsluna.
„Við kaupum ekki báta til þess að gera út, heldur eingöngu til að fá fisk inn í vinnsluna svo fólkið hafi vinnu. Það má ekki falla úr dagur,“ útskýrir Bergþór.
Aðspurður um muninn á starfseminni fyrir og eftir tilkomu kvótakerfisins segir hann breytinguna hafa verið stórkostlega:
„Fyrir kvótakerfið var þetta svolítið villta vestrið. Ef sjómaður mætti ekki um borð af því hann var veikur, þá var bara farið inn í
túrnum þar á undan. Fiskurinn lá dögum saman og gæðin voru allt önnur og verri. Með kvótakerfinu fór fólk að hugsa um gæði og markaði,“ segir Bergþór þegar hann lýsir því hvernig þetta var í kringum landið fyrir kvótakerfið.
Fjórir fætur undir borðinu
Til að tryggja reksturinn og dreifa áhættunni hefur Nesfiskur byggt upp öflug dótturfélög, þar á meðal Nýfisk og Miðnes í Sandgerði og rækjuvinnsluna Meleyri á Hvammstanga. „Við keyptum til dæmis rækju
Bergþór lýsir þessu sem fjórum fótum undir borðinu: „Garðurinn sér um frosna fiskinn og stóru markaðina í Suður-Evrópu (Spán, Grikklandi, Ítalíu). Nýfiskur sér um ferskfiskinn fyrir Frakkland, Belgíu og Ameríku. Miðnes vinnur aukaafurðirnar eins og steinbít og kolategundir af öllum bátunum. Svo erum við með rækjuna. Ef frosni markaðurinn er rólegri þá vinnur ferskfiskurinn það upp. Þetta er heildstæð hugmynda fræði.“
Baldvin Njálsson GK og ævintýrið á hafi úti
Mesta stökkbreytingin í sögu fyrirtækisins átti sér stað árið togari, Baldvin Njálsson GK 400, bættist í flotann. Skipinu er stýrt
sem séreiningu sem skaffar ekki fisk í landvinnsluna, heldur frystir aflann (þorsk, ufsa og ýsu) beint í blokkir og öskjur úti á sjó, þaðan sem vörunni er skipað beint á brettum í gáma til útlanda.
„Þetta voru ákveðin tímamót hjá fyrirtækinu,“ segir Bergþór: „Þægindin og tæknin um borð eru ótrúleg.“
Bryndís tekur undir það: „Þegar maður kemur um borð í skipið í dag er eins og maður sé að ganga inn í stofu heima hjá sér. Það er allt hreint upp á „hundraðogtíu“. Þegar ég var krakki á sjó var þetta sko aðeins öðruvísi!“
Tryggur mannauður og nýir tímar
Nesfiskur hefur í gegnum tíðina verið í harðri samkeppni við flugvöllinn um vinnuafl og var meðal fyrstu fyrirtækja á svæðinu til að ráða erlent starfsfólk, fyrst frá Bretlandi og í kringum 1991 tók stór og traustur kjarni Pólverja við.
„Við höfum verið einstaklega heppin með mannskapinn, bæði í landi og á sjó,“ segir Bergþór og nefnir skipstjóra sem hafa verið hjá fyrirtækinu áratugum saman. Einnig eru dæmi úr landvinnslunni um fólk sem hefur verið frá stofnun fyrirtækisins og þeir Pólverjar sem verið hafa lengst hafa verið hjá fyrirtækinu í 35 ár. Í gegnum árin hefur Nesfiskur þurft að kaupa talsvert af húsnæði undir erlenda vinnuaflið og lögð hefur verið áhersla á að kaupa fasteignir sem næst frystihúsinu í Gerðum þannig að það sé auðvelt fyrir fólk að labba til og frá vinnu. Og yfir á bátana. Bergur Þór útgerðarstjóri bendir á að stærsti skorturinn í dag sé ekki á hásetum, heldur vélstjórum: „Það er ekki nóg endurnýjun úr skólunum, strákarnir fara frekar í rafmagnið eða annað.“ Vinnan um borð hefur líka breyst mikið í áranna rás og er í dag orðin mjög tæknileg í nýjustu skipunum.
Úr vinnslunni hjá Nesfiski í Garði.
Höfuðstöðvar og fiskvinnsla Nesfisks í Gerðum í Garði.
Sigurfari GK er eitt af skipum Nesfisks. Hér er hann að koma til Sandgerðis.
Siggi Bjarna GK á veiðum í Garðsjó árið 2003.
Baldvin Njálsson GK 400 kemur nýr til landsins síðla árs 2021. Hér siglir skipið framhjá Garðinum. VF/hilmarbragi
Í landvinnslunni hafa vinnudagarnir líka batnað. „Í gamla daga var mikil yfirvinna, fryst á laugardögum og oft unnið til tíu á kvöldin,“ segir Bergur. „Nú byrjum við 07:00, vinnudagurinn er átta tímar og fólk fær mat úr flottu eldhúsi þar sem Villi kokkur eldar ofan í allt liðið, líka Miðnes og NýÍ 40 ára sögu fyrirtækisins hafa hafa bæði verið skin og skúrir. Stjórnendur fyrirtækisins segja slys þar sem mannskaði varð hafa verið þungbær. Árin eftir fjármálahrunið hafi einnig verið þung, þá hafi gengið erfiðlega að fá greitt fyrir afurðir. Þá kom högg á reksturinn í Covid þar sem markaðir voru lengi að aðlaga sig breyttum aðstæðum en í dag gangi reksturinn vel en Nesfiskur og dótturfélög séu
Miðnes í aukategundum
Miðnes í Sandgerði er eitt af dótturfélögum Nesfisks. Fyrst hét fisk vinnslan Ásberg en nýverið var nafninu breytt í Miðnes til að vera trú sögunni en húsnæði fyrirtækisins var í áratugi þekkt sem Miðnes. Þar eru unnar allar aukategundir sem ekki fara til vinnslu hjá Nesfiski í Garði, eins og t.a.m. flatfiskur ýmiskonar, steinbítur, grálúða og fleira. Hér að neðan er verið að flaka kola.
útlöndum voru í vandræðum því veitingastaðir voru lokaðir. Eftir tvo túra Baldvins Njálssonar GK vorum við með mikið af óseldum fiski. Við ákváðum að fara eina ferð í viðbót. Um það leyti breyttust hlutirnir úti og okkar kaupendur fóru að selja fisk og franskar í „take-away“. Þá breyttist allt aftur og við seldum allan fiskinn til þeirra.“
Ekki á leiðinni að selja: „Þetta er áhugamálið hans“
Hjá Nesfiski starfar nú fjórði og jafnvel fimmti ættliður fjölskyldunnar, þar sem barnabörnin mæta í sumarvinnu þegar aldur leyfir. Þótt Bergþór sé orðinn 66 ára og sögusagnir heyrist stundum á götum úti um að stóru sjávarút-
höfum keypt okkar heimildir á markaðsverði, ákveðið að stækka á meðan aðrir völdu að gera það ekki, og við höldum okkar striki.“ Bryndís brosir og bætir við að lokum: „Fólk spyr oft hvort hann fari ekki að hætta. En honum finnst þetta bara svo skemmtilegt. Þetta er áhugamálið hans og vinnan hans. Við höldum bara áfram.“
Nesfiskur hefur verið hryggjarstykkið í atvinnulífinu í Garði í 40 ár. „Þetta snýst alltaf um að fólkið hafi vinnu,“ segir Bergþór að endingu.
Afmæli Nesfisks verður fagnað með starfsfólki þann 6. júní næstkomandi. Knattspyrnufélagið Víðir hefur tekið að sér veislustjórnina, hokið af reynslu eftir að hafa haldið þorrablót í íþróttamiðstöðinni í
pakkað í plast hjá Nýfiski fyrir ferðalag út í
Nýfiskur ferskur í flug
Nýfiskur í Sandgerði er annað dótturfélag Nesfisks. Hjá Nýfiski er unninn ferskur fiskur í flug. Fiskur sem fer utan í dag er kominn á disk neitenda á morgun. Að ofan má sjá þar sem bretti fullu af ferskum afurðum er pakkað áður en það fer með flutningabíl frá Nesfiski upp á Keflavíkurflugvöll það sem það fer í flugfrakt út í heim.
Veiða
rækju hluta úr ári fyrir
Meleyri
Nesfiskur keypti rækjuvinnsluna Meleyri á Hvammstanga í desember 2012 og hóf vinnslu í febrúar 2013. Helsta ástæða kaupa á Meleyri var að búa til verkefni fyrir togara Nesfisks þegar aflaheimildir í þorski höfðu verið skertar. Það var því hægt að setja hluta af skipum Nesfisks á rækjuveiðar hluta úr ári.
Fékk tólf rétta og sagði upp
Á upphafsárum Nesfisks var mikil samkeppni um vinnuafl á
Suðurnesjum og fyrirtækið brást við því með því að sækja vinnuafl til útlanda. Í frétt frá haustmán uðum 1987 segir: „Erfiðlega hefur gengið að fá fólk til að vinna við fiskvinnslu hér á Íslandi undanfarin ár. Bæði hefur það ekki þótt nægilega „fínt“ að vinna í fiski og þá hafa laun spilað þar inn í. Ástandið hér á Suðurnesjum er vægast sagt ekki nægilega gott. Eftir að skólarnir byrjuðu á ný hefur gengið erfiðlega að fá starfskraft. Nesfiskur í Garði tók það til ráðs að fá sex Breta til fyrirtækisins til að vinna í fiski. Bretarnir komu til landsins í dag og hefja þeir strax störf.“ Bergþór rifjar upp skemmtilega sögu frá þessum tíma. Skömmu eftir að Bretarnir komu til Nes
Steinbítur í vinnslu hjá Miðnesi í Sandgerði.
Húsnæði Miðness í Sandgerði er þekkt fyrir rauða litinn.
Kolaflökun hjá Miðnesi.
Fullu bretti af ferskum fiski
heim.
Afmæliskveðjur!
Sendum Nesfiski ehf. hugheilar kveðjur
í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins og þökkum fyrir viðskiptin.
Getum tekið unga menn á námssamning í járniðnaði. Einnig vantar okkur vana járniðnaðarmenn til starfa.
Upplýsingar gefur Þráinn í síma 420 4810.
„Þegar maður á að gera hús sem á að líta út eins og árið 1934, þá þarf maður að snúa öllum heilafrumum á annan veg.“
Skartgripur frá 1934 vakinn til lífsins
Skartgripur frá 1934 vakinn til lífsins
með endurbyggingu
Hótel Keflavík fagnaði á dögunum glæsilegu 40 ára afmæli sínu samhliða hátíðinni Vor á Vatnsnesi. Hápunktur helgarinnar var óneitanlega opnun hins sögufræga Vatnsneshúss, sem gengið hefur í gegnum gagngerar og ævintýralegar endurbætur.
Dagana 15.–17. maí síðastliðinn iðaði Reykjanesbær af lífi þegar Hótel Keflavík fagnaði 40 ára afmæli sínu með glæsilegu bæjarhátíðinni Vor á Vatnsnesi. Viðtökurnar fóru langt fram úr björtustu vonum, en gestir á öllum aldri söfnuðust saman til að fagna þessum stóra áfanga og skapa einstaka samfélagsstemningu.
Dagskráin var listilega ofin úr sögu bæjarins, menningu og fjölskyldugleði. Hápunktarnir voru fjölmargir; allt frá hinu stórskemmtilega KEF Moët-kampavínshlaupi þar sem dansað var í maíregninu, yfir í hoppukastala og leiksýningar Leikhópsins Lottu sem glöddu yngstu kynslóðina. Á kvöldin brúaði tónlistin kynslóðabil við sjávarsíðuna þar sem Jakob Frímann Magnússon stýrði sögulegu ferðalagi um tónlistarsögu Bítlabæjarins. Þar steig hin goðsagnakennda hljómsveit Óðmenn aftur á svið eftir áratuga hlé í tilfinningaþrunginni stund, auk þess sem ástkærir listamenn á borð við GÓSS, Ásgeir Trausta og Valdimar kórónuðu helgina áður en flugeldasýning lýsti upp næturhimininn.
Einn stærsti og þýðingarmesti áfangi hátíðarinnar var þó formleg og hátíðleg vígsla á hinu sögufræga húsi Vatnsnesi, sem nú hefur fengið nýtt líf og á eftir að verða miðstöð menningar og mannlífs í bænum. Margir hafa þegar kallað eftir því að Vor á Vatnsnesi verði að árlegum viðburði í Reykjanesbæ.
Við settumst niður með Steinþóri Jónssyni hótelstjóra og ræddum við hann um hátíðarhöldin, áskoranirnar við að endurreisa hús frá 1934 og þá einstöku framtíðarsýn sem hótelið hefur fyrir þetta nýja djásn bæjarins. Í skýjunum með afmælishelgina
Nú er stóru afmælishelginni og hátíðinni Vor á Vatnsnesi lokið. Hvernig fór þetta fram og hvernig leggst árangurinn í hótelstjórann?
„Það er eins og með allar stórar uppákomur; maður hlakkar mikið til og það liggur gríðarlega mikil vinna í undirbúningnum. En þegar allt gengur eins vel og raun bar vitni þá er líka dásamleg tilfinning þegar því er lokið. Við erum hrein-
Vatnsness
lega bara í skýjunum með þetta allt saman.
Það var dásamlegt að finna hvernig fólk tók hátíðinni og finna að þetta skiptir máli fyrir fólkið í bænum og bæjarbraginn. Fólk er
farið að reikna dálítið með því að við séum að standa fyrir uppákomum og upplifunum og það er nákvæmlega það sem við viljum. Eftir þessa helgi má segja að við séum alveg tilbúin í næstu 40 árin.“
Handavinna og sag úr loftunum
Stór þáttur í þessari afmælishelgi var opnun Vatnsneshússins. Hvaða hugmyndir liggja að baki því og hvernig var ferlið við að endurgera það? „Ég verð að viðurkenna að verkefnið í kringum Vatnsneshúsið var alltaf miklu stærra en maður gerði sér grein fyrir í upphafi. Verðmæti þessa húss byggjast fyrst og fremst á staðsetningunni og sögunni. Til þess að gera þetta rétt þurftum við að skrapa allan múr utan af húsinu og skrapa tjöruna að innan. Við þurftum til dæmis að moka fimm bílhlössum af sagi úr loftinu, því það er auðvitað bannað í dag að hafa sag sem einangrun.
Þannig að við þurftum í raun að hanna húsið upp á nýtt frá grunni. Þegar maður fær það verkefni í hendurnar að gera hús sem á að líta út eins og á byggingarárinu, árið 1934, þá þarf maður að snúa öllum heilafrumum á annan veg en
Jónsson og Hildur Sigurðardóttir afhjúpuðu skjöld á húsinu sem segir stuttlega frá tilurð þess og endurbótum.
Hildur og Steinþór í stofunni á Vatnsnesi.
Stofan í Vatnsnesi. Þar var fyrsti bæjarstjórnarfundur nýrrar bæjarstjórnar haldinn á þriðjudaginn.
maður er vanur. En ég er gríðarlega ánægður með niðurstöðuna.
Það var mjög gaman að finna að fólk, og jafnvel fagaðilar sem komu að skoða húsið þessa fyrstu helgi, ráku upp stór augu og spurðu hvort þetta væri allt upprunalegt. Þannig að þetta tókst greinilega mjög vel.“
Það er mikill klassi yfir húsinu, en þú hélst samt tryggð við ártalið 1934?
„Já, það var stefnan allan tímann. Við vildum búa til ákveðið herramannssetur í þessum anda. Til dæmis er steypti veggurinn umhverfis húsið upprunalegur og hann setur mikinn svip á húsið og umhverfið. Ég lét mosann halda sér ofan á steinunum. Ég mætti reyndar smá mótspyrnu fyrst þegar ég fékk þá hugmynd, en um leið og búið var að pússa og mála hvítt í kring þá stóð mosinn eftir og sýndi aldur hússins mjög skýrt.
Að innan var húsið upphaflega mjög illa skipulagt og veggir á sérstökum stöðum. Við þurftum að rífa mikið af veggjum, smíða alvöru burðarbita og endurnýja og fela allar lagnir. Ég sagði í gríni í ræðunni minni þegar bæjarstjórnin kom að skoða húsið að veggirnir gætu talað, eins og í gömlum húsum en við erum reyndar með 28 hátalara farna inni í veggjunum.
Það er því mjög auðvelt að búa til góða stemningu eða bókstaflega tala við fólk í húsinu.“
„Eins lykils hús“ þar sem vatni er breytt í vín
Hvað er fleira upprunalegt í húsinu sem vert er að nefna?
„Stiginn á milli kjallara, fyrstu og annarrar hæðar er upprunalegur og það tók gríðarlegan tíma að pússa hann niður og koma honum í þetta glæsilega stand. Sama gildir um útidyrahurðirnar, þær eru allar tæplega 100 ára gamlar en eru núna eins og nýjar eftir mikla vinnu. Svo er skemmtileg sérviska efst í húsinu, en þar er 500 lítra vatnstunna sem ég ætla að breyta í viskítunnu. Ég stel þeirri hugmynd reyndar frá öðrum góðum manni sem breytti vatni í vín,“ segir Steinþór og hlær.
Hvernig sérðu fyrir þér að húsið verði nýtt?
„Húsið er hugsað sem svokallað „eins lykils hús“. Það þýðir að fólk leigir húsið í heild sinni. Við sjáum ekki fyrir okkur að leigja rýmin út til fimm mismunandi einstaklinga í einu. Það er ákveðið grunngjald fyrir að fá húsið, til dæmis fyrir fundi. Ef fólk vill nýta gistinguna á annarri hæðinni, sem er aðalsvíta hússins, þá greiðist aukalega fyrir það, og sömuleiðis ef menn nýta fjögur herbergi með baði sem eru í kjallaranum.
Húsið á líka að vera móttökuhús. Samkomulag Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í bæjarstjórn var undirritað þarna og næsti bæjarstjórnarfundur verður þarna 2. júní. Við sjáum fyrir okkur að kynna húsið fyrir sendiráðum og ráðherrum. Þegar tignir gestir koma í stuttar heimsóknir og lenda
á Keflavíkurflugvelli er tilvalið að skjótast hingað niður í bæ og taka á móti þeim í mat og drykk í þessu fallega umhverfi.
Tekjurnar til lengri tíma munu samt líklega koma frá gistingunni, sem er dýrasti hlutinn. Þetta mun laða að fólk sem vill vera algjörlega út af fyrir sig. Hér gætu til dæmis hjón verið á aðalhæðinni og verið með börnin sín eða þjónustufólk á neðri hæðinni, þar sem er full aðstaða.“
Veislur, einkakokkar og opið hús fyrir bæjarbúa
Verður öll veitingaþjónusta veitt frá Hótel Keflavík?
„Já, bæði og. Vatnsnes er svo vel staðsett að eldhúsið á Hótel Keflavík er nánast beint fyrir neðan húsið, svo það er mjög auðvelt fyrir okkur að þjónusta það. En það er líka fullkomið eldhús á annarri hæðinni í Vatnsnesi. Fólk getur pantað mat á milli eða verið með einkakokk og einkaþjóna.
Þetta opnar líka skemmtilega möguleika fyrir bæjarbúa til að halda upp á afmæli, móttökur eða brúðkaup fyrir allt að 30 manns. Þá er veislan þarna, gestirnir fara heim en brúðhjónin geta gist áfram í húsinu. Möguleikarnir eru enda-
lausir og hönnunin gekk út á að ná þessu öllu undir sama þak. Við viljum líka endilega leyfa bæjarbúum að upplifa húsið. Planið er að vera með kaffiveitingar inni á hátíðisdögum eins og sjómannadaginn og 17. júní og nýta garðinn fyrir utan, en þar erum við með frönsk útihúsgögn sem eru akkúrat frá árinu 1934. Ef veðrið bregst höfum við alltaf glerhúsin á Hótel Keflavík sem varaplan. Þetta gefur okkur rekstrarmöguleika sem við höfðum ekki áður.“
Samstarf við bæinn og framtíðin Hvernig er samningnum við Reykjanesbæ háttað, en bærinn átti húsið, er það ekki?
„Jú, bæjarfélagið fékk húsið á sínum tíma í dánargjöf frá Bjarnfríði Sigurðardóttur árið 1974 og þess vegna tók þetta ferli dálítinn tíma. Niðurstaðan varð sú að Reykjanesbær á 51% í skel hússins
en við eigum 49%. Við sjáum hins vegar um að innrétta húsið og endurbæta það að innan, sem telur um 90% af heildarkostnaðinum. Í staðinn höfum við fullan afnotarétt, lyklavöld og tekjur af húsinu.
En á móti kemur að við ætlum að nýta húsið fyrir uppákomur sem gera bæinn okkar betri og flottari. Þetta á að vera skartgripur bæjarins fyrir okkur öll.“
Að lokum, Vor á Vatnsnesi, er þetta komið til að vera sem árleg vorhátíð?
„Já, algjörlega. Þetta er þriðja árið sem við höldum hátíðina. Þegar ég setti hana af stað hugsaði ég hana sem gott veganesti til að byggja upp stemningu fyrir afmælisárið okkar, 2026. Það var aðeins meira lagt í þetta núna, við fluttum til dæmis inn tónlistarfólk frá Bretlandi fyrir tónleikana sem heppnuðust gríðarlega vel. Við ætlum klárlega að halda áfram með Vor á Vatnsnesi. Margir tóku þátt í verkefninu eins og „Betri bær“, veitingastaðir og aðrir voru með tilboð og við erum mjög þakklát fyrir það. Með árunum vona ég að þetta vaxi og verði enn stærri bæjarhátíð. Við fögnum öllum nýjum hugmyndum og nýjum fyrirtækjum sem vilja vera með okkur í því í framtíðinni.
VOR Á VATNSNESI
Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Svona er svítan á 2. hæðinni í Vatnsnesi.
Jónína Guðjónsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Steinþór Jónsson og Hildur Siðurðardóttir við opnun Vatnsness.
Þórunn Halldórsdóttir, Bylgja Sverrisdóttir og Axel Jónsson.
Jenny Waltersdottir Leja var gripin við spegilinn.
Vor á Vatnsnesi fór fram úr okkar björtustu vonum
Hótel Keflavík fagnaði 40 ára afmæli með tónlist, fjölskyldustemningu og einstakri bæjarhátíð í Reykjanesbæ
Dagana 15.-17. maí hélt Hótel Keflavík upp á 40 ára afmæli sitt með hátíðinni Vor á Vatnsnesi og viðtökurnar fóru sannarlega fram úr okkar björtustu vonum. Gestir á öllum aldri mættu til að fagna með okkur og skapa einstaka stemningu á Vatnsnesi og víðar í Reykjanesbæ.
Í tilefni af þessum stóra áfanga ákváðum við að leggja sérstaklega mikið í dagskrána þetta árið og gera extra vel við gesti hátíðarinnar. Markmiðið var að skapa helgi sem sameinaði bæjarbúa, tónlist, sögu bæjarins og þann hlýleika sem hefur fylgt Hótel Keflavík í gegnum 40 ára ferðalag.
Viðtökurnar og stuðningurinn sem við fundum frá samfélaginu fóru langt fram úr okkar væntingum og við erum ótrúlega þakklát öllum þeim sem tóku þátt í að gera helgina svona einstaka.
KEF Moët-kampavínshlaupið sló í gegn
Einn af hápunktum helgarinnar var án efa KEF Moët-kampavínshlaupið sem vakti mikla lukku meðal gesta og bæjarbúa. Þrátt fyrir íslenskt maíveður var stemningin ótrúleg frá upphafi til enda og þátttakendur mættu í litríkum búningum, með bros á vör og tilbúnir að njóta dagsins saman.
DJ Sakki sá um tónlistina og stemninguna við Vatnsnes og þegar rigningin lét sjá sig gerðum við einfaldlega það besta úr því og dönsuðum saman í rigningunni með bros á vör. Það voru einmitt svona augnablik sem gerðu daginn svo eftirminnilegan. Veitt voru glæsileg verðlaun og gjafapokar að verðmæti tugi þúsunda króna og viljum við færa sérstakar þakkir til allra þeirra fyrirtækja sem lögðu okkur lið með vinningum og stuðningi: Nathan og Olsen, Bætiefna búllan, Zolo & Co, Ölgerðin, Dubliner, Líkami og Boozt, Sport húsið, GeoSilica, Blue Lagoon, Brons, Blue Car Rental, Golfklúbbur Suðurnesja, Andrea Maack, Viney, Langbest, JAD MAR, Bústoð og Snúran, Marion herrafataverslun, Skóbúðin, Fjóla gullsmiður, Sport24, Blómabúð Mögdu, Palóma, Reykjanes Optikk, Hafnargata 15-Gallerí,
Skólamatur, Danól, Lovelceland, CeraVe, La Roche-Posay, Nicks og 7UP.
Stuðningurinn skipti gríðarlega miklu máli og hjálpaði okkur að gera upplifunina enn skemmtilegri fyrir þátttakendur.
Gleði fyrir alla fjölskylduna
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margar fjölskyldur mættu á hátíðina. Börnin
Lúðrasveit Reykjanesbæjar lék fyrir gesti og skapaði einstaklega hlýlega og hátíðlega stemningu á svæðinu.
Vatnsnes er hús með mikla sögu og sterkan karakter og það fyllir okkur stolti að sjá það fá nýtt líf á nýjan leik. Við erum ótrúlega spennt fyrir framtíðinni og hlökkum til að sjá húsið lifna við með menningu, tónlist, viðburðum og mannlífi sem verður bæði bænum og samfélaginu öllu til sóma.
Tónlistin sameinaði kynslóðir
Kvölddagskráin á Vori á Vatnsnesi fór sannarlega fram úr okkar væntingum og það var magnað að sjá fólk á öllum aldri safnast saman við Vatnsnes til að njóta tónlistar, stemningar og samveru í hjarta Reykjanesbæjar. Tónleikarnir voru sérstök ferð í gegnum tónlistarsögu Keflavíkur þar sem gullöld bítlabæjarins mætti nútímanum í einstakri kvöldstund við sjávarsíðuna.
Jakob Frímann Magnússon stýrði kvöldinu af miklum glæsi-
Sérstakur hápunktur kvöldsins var þegar hin goðsagnakennda hljómsveit Óðmenn kom saman á ný eftir margra ára hlé. Endur koma sveitarinnar vakti mikla athygli enda á hún stóran sess í tónlistarsögu Keflavíkur og íslenskrar dægurtónlistar. Með Óðmönnum komu fram sonur
týnda syni sínum skömmu fyrir andlát sitt og vakti það mikla athygli að sonurinn hefur nær nákvæmlega sömu rödd og faðir
augnablik þegar hann flutti lög föður síns með gömlu hljómsveitinni hans á sviðinu við Vatnsnes. Tónlist Hljóma fékk einnig stórt hlutverk á tónleikunum og komu þar fram meðal annars Karl Hermannsson, Eggert Kristinsson, Rúnar Júlíusson, Baldur Guðmundsson og Sindri Baldursson. Með þeim á sviði var söngkonan Shady Owens sem flutti hið sígilda lag Ég elska alla og skapaði einstaka stemningu meðal gesta.
Karl Hermannsson var í fyrstu Hljómum. Hann tók lagið á Vorhátíðinni.
Shady Owens kom frá Englandi og rifjaði upp gamla takta m.a. með Óðmönnum.
Steinþór og Hildur á svölum Vatnsness.
Thorlacius, Sigurður Guð mundsson og Guðmundur Óskarsson úr sveitinni GÓSS sem fluttu lög Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmssonar við frábærar undirtektir. Þá komu einnig fram Magnús og Jóhann og rifjuðu upp tónlist sem tengist sögu bæjarins sterkum böndum.
Keflvíkingarnir Ásgeir Trausti og Valdimar Guðmundsson stigu svo á svið síðar um kvöldið og héldu áfram að magna upp stemninguna við Vatnsnes.
Valdimar sló svo botninn í dagskrána áður en glæsileg flugeldasýning Björgunarsveitar Suðurnesja lýsti upp himininn og kórónaði einstaka afmælishátíð Hótel Keflavík.
Þakklæti fyrir stuðninginn og fallegar kveðjur Víkurfréttum og Morgunblaðinu
Bílasprautun, Bílakjarninn,
Gestirnir nutu tónlistardagskrár.
húsið, Duus Safnahús, GODO, ÓJ&K - Ísam, Prentmet Oddi og Golfklúbbur Suðurnesja.
Við kunnum virkilega að meta hlý orð og stuðning frá fólki og fyrirtækjum sem hafa verið hluti af ferðalaginu okkar í gegnum
Við hjá Hótel Keflavík erum ótrúlega þakklát öllum þeim sem komu að hátíðinni, mættu á viðburði og fögnuðu þessum stóra
verið sérstaklega gaman að heyra hversu margir vilja sjá Vor á Vatnsnesi halda áfram að þróast og verða áfram skemmtilegur hluti af menningar- og bæjarlífi Reykjanesbæjar.
Hlökkum til að sjá ykkur á Hótel KEF, KEF Restaurant og KEF SPA & Fitness. Við munum halda áfram að bjóða upp á góða þjónustu og skemmtilega viðburði. Höfum gaman saman á KEF.
Takk fyrir okkur.
Magnús og Jóhann yljuðu gestum með söng og tónlist.
Stemmningin var góð á Vatnsnesi eins og sjá má.
Þrjár Suðurnesjakonur í forystu
stærstu fræðslusjóða landsins
Það vekur verðskuldaða athygli að þrjár konur, allar uppaldar á Suðurnesjum, skuli í dag leiða þrjá af stærstu fræðslusjóðum landsins. Þær Lísbet Einarsdóttir frá Njarðvík, framkvæmdastjóri Starfsafls, Sólveig Ólöf Magnúsdóttir úr Garðinum, framkvæmdastjóri Landsmenntar og Selma Kristjánsdóttir frá Keflavík, framkvæmdastjóri Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks, gegna hver um sig lykilhlutverki í uppbyggingu hæfni á íslenskum vinnumarkaði.
Allar luku þær stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þeim góða skóla, en þekktust ekki á skólaárunum. Það var fyrst þegar þær tóku við stjórnartaumum í fræðslusjóðunum að leiðir þeirra lágu saman. Í dag starfa Lísbet, Solveig og Selma náið saman og eru í reglulegum samskiptum um málefni starfsmenntunar, sameiginleg verkefni og þróun vinnumarkaðarins.
Fræðslusjóðirnir eru samstarfsverkefni Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélaga og byggja á kjarasamningsbundnu framlagi atvinnurekenda. Hlutverk þeirra er að efla hæfni, auka aðgengi að námi og styðja við einstaklinga og fyrirtæki. Á síðasta ári fögnuðu sjóðirnir 25 ára afmæli svo þeir búa sameiginlega að mikilli og góðri reynslu á starfsmenntun í atvinnulífinu.
Þrátt fyrir að sjóðirnir starfi á ólíkum vettvangi og með mismunandi þjónustufyrirkomulagi er sýn og nálgun þeirra Lísbetar, Sólveigar og Selmu sú sama. Áherslan er á stefnumiðaða fræðslu sem
tengist beint framtíðarsýn, rekstrarlegum markmiðum og raunverulegum hæfniþörfum. „Markmiðið er að starfsmenntastyrkirnir sem sjóðirnir veita nýtist sem markviss fjárfesting í mannauði hvort sem um er að ræða vegna náms til réttinda, tungumálanáms, stafrænnar þróunar, tæknibreytinga, leiðtogahæfni, gæðastjórnunar eða sérhæfðrar fagþekkingar. Starfsþróun er leiðarstefið,“ segja þær. Sameiginleg áhersla þeirra er að fræðsla sé ekki tilviljanakennd aðgerð heldur hluti af heildstæðri stefnu fyrirtækja og markvissri starfsþróun einstaklinga. Þannig verði hún raunverulegt afl til umbreytinga og aukinnar samkeppnishæfni.
Samanlagt greiddu sjóðirnir þrír um tvo milljarða króna í starfsmenntastyrki á síðasta ári. Þar að baki eru þúsundir einstaklinga og hundruð fyrirtækja sem hafa nýtt sér stuðninginn til að byggja upp þekkingu og færni.
Aðspurðar um samstarfið og sýnina á framtíðina segja þær Lísbet, Sólveig og Selma:
„Við lítum á starfsmenntun sem eina mikilvægustu fjárfestingu samfélagsins. Með nánu samstarfi og samræmdri sýn tryggjum við að fjármunirnir nýtist þar sem þeir hafa mest áhrif fyrir fólk, fyrirtæki og atvinnulífið í heild sinni.” Við hvetjum öll fyrirtæki á almenna markaðnum til að kynna sér reglur sjóðanna og hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Það er nefnilega þannig að réttur stofnast með greiðslu launatengdra gjalda. Ef fyrirtæki er með starfsfólk í hlutaðeigandi stéttarfélögum þá á það rétt á allt að 4 milljónum króna í starfstengdan styrk á ári. Gæti ekki verið einfaldara. Mörg fyrirtæki á Suðurnesjum nýta rétt sinn í sjóðunum á hverju ári, til allskonar fræðslu, t.d. Langbest, Hótel Keflavík, Airport Associates, Icelandair, Skólamatur, Algalíf, Bus4u og fleiri. Við erum alltaf til í að svara öllum spurningum og leiðbeina eftir bestu getu og það er alltaf velkomið að hafa samband,“ segja þær.
Sótt er um styrk til allra sjóða með einni aðgerð á www.attin.is sem er sameiginleg vefgátt sjóðanna fyrir fyrirtæki.
Þótt starfsstöðvar þeirra séu í dag á höfuðborgarsvæðinu liggja ræturnar áfram suður með sjó og þeim er hlýtt til þeirra fyrirtækja sem þar starfa og vilja að sjálfsögðu að öll fyrirtæki þar nýti sinn rétt.
Nemendur úr Njarðvíkurskóla fengu Mannréttindabikar ÖBÍ
Nemendurnir Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szym anowska í 5. bekk Njarðvíkur skóla náðu frábærum árangri þegar þær komust alla leið í úr slit Nýsköpunarkeppni grunn skólanna 2026 með hugmynd sína, „Bókin ykkar“ og unnu Mannréttindabikar keppninnar og Öryrkjabandalags Íslands. Halla Tómasdóttir afhenti þeim verðlaunin.
skapa aðgengilega og skemmtilega bók fyrir blinda þar sem saman fara áþreifanlegt efni, hljóðupp lifun og blindraletur. Markmiðið er að gera lestur og upplifun bóka ríkari og aðgengilegri fyrir alla.
komu saman efnilegustu nýsköpunarnemendur landsins til að kynna hugmyndir sínar og fagna árangri sínum eftir viðburðaríkt Mikil samkeppni var í keppninni en alls bárust yfir 500 hugmyndir frá nemendum í 5.–7. bekk víðs vegar af landinu. Aðeins 25 hugmyndir voru valdar til úrslita og því er árangur þeirra Hjördísar Lilju og Stefaníu sérstaklega glæsilegur. Í aðdraganda lokahófsins tóku úrslitanemendur þátt í skapandi vinnustofum þar sem þau fengu tækifæri til að þróa hugmyndir sínar áfram, vinna með sérfræðingum og undirbúa kynningar á
Guðbjörn Gunnarsson:
„ÞAÐ ER SVO MARGT SEM ÞÚ VEIST AÐ ÞÚ VEIST EKKI — FYRR EN ÞÚ VEIST ÞAГ
Ný bók eftir Suðurnesjamanninn Guðbjörn Gunnarsson hefur vakið athygli en hún fjallar um sjálfsskoðun, ábyrgð, sjálfsvirðingu, andlegt burðarþol og hvernig við finnum aftur tengsl við okkur sjálf í heimi þar sem hraði, samanburður og áreiti hafa tekið yfir stóran hluta daglegs lífs.
„Við lifum á tímum þar sem upplýsingar eru alls staðar, en skilningur verður sífellt sjaldgæfari. Þessi bók er skrifuð fyrir fólk sem vill staldra við, hugsa dýpra og horfast í augu við spurningar sem margir finna fyrir, en fáir ræða opinskátt,“ segir Guðbjörn eða Bubbi eins og hann er jafnan kallaður. Bubbi er einkþjálfari og markþjálfimeð yfir tveggja áratuga reynslu. Hann hefur haldiðfyrirlestra, námskeið og útvarpsþætti um sjálfsþekkingu, heilbrigðar venjur og umbreytingu hugafarsins.
Guðbjörn og Margrét systir hans með bókina góðu.
Í starfi og skrifum sameinar hann innsæi og hagnýt verkfæri með áherslu á nærveru, innri kyrrð og varanlegar breytingar.
Í bókinni sem að sögn höfundar er ekki kennslubók heldur spegill þar sem meðal annars er fjallað um:
• sjálfsmynd og innri styrk
• kvíða, skömm og samanburð
• venjur og áhrif þeirra á lífið
• ábyrgð og persónulegan þroska
• hvernig litlar ákvarðanir móta framtíð okkar Þorgrímur Þráinsson rithöfundur sagði um bókina:
„Ég las merkilega bók í gær. Stórmerkilega. Með þeim áhugaverðari sem ég hef lesið.“
„Ef þið viljið hrista upp í lífi ykkar, hætta að hjakka í sama farinu í skjóli óttans og letinnar, er þessi bók skyldulesning.“
Nánari upplýsingar: ggthjalfun.com
Drífa fékk hvatningarverðlaun kennara
Drífa Hjördís Thorstensen, kennari í Háaleitisskóla hlaut VILJA - Hvatningarverðlauna kennara árið 2026 en þau voru afhent á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna sem var um síðustu helgi. Nýsköpunarstarfið í Háaleitisskóli á Ásbrú hafði djúpstæð áhrif á dómnefndina. Það sem vó þyngst í ákvörðun nefndarinnar var sú kerfisbundna og metnaðarfulla vinna sem átt hefur sér stað við að gera nýsköpun og tæknimennt að fastri og jafnrétthárri verkgrein fyrir alla nemendur skólans.
Sérstaklega var hrifning með það hvernig Drífa hefur nýtt nýsköpunina sem alþjóðlegt tungumál sköpunar í fjölmenningarlegu umhverfi skólans.
„Með því að brjóta niður tungumálamúra og virkja fjölbreyttan nemendahóp á jafnréttisgrundvelli, þar sem allir fá tækifæri til að sýna sínar sterku hliðar, hafið þið skapað sanna fyrirmynd sem eftirtektarvert er fyrir skólasamfélagið allt á landsvísu,“ segir í tilkynningu um verðlaunin.
F.v.: Sólveig Ólöf Magnúsdóttir, Selma Kristjánsdóttir og Lísbet Einarsdóttir.
Villi sá þroskamerki fólks á Pulsuvagninum:
„Ég
les uppeldi fólks út frá því hvað það fær sér“
Í áratugi hefur Pulsuvagninn í Keflavík verið fastur punktur í tilveru Suðurnesjamanna. Við stýrið hefur Vilberg Skúlason, jafnan kall aður Villi pulsa, staðið vaktina með bros á vör og mætt hvers kyns sérvisku viðskiptavinanna með jafnaðargeði. Við hittum Villa í alvöru pulsupartýi á sunnudaginn og ræddum um söguna, ballmenninguna, fjölskylduna og leyndardóminn á bak við nafnið á Pulsuvagninum með „u-inu“.
Sérviska og þroskamerki
Margir eiga sínar föstu venjur þegar kemur að pulsunni. Sumir vilja til dæmis bara fá pulsu í bréfinu með sinnepi og engu öðru. Er mikið um svona sérvisku hjá fólki, Villi?
„Nei, ætli það sé ekki bara einn og einn sem er svona sérstakur,“ segir Villi og glottir til blaðamanns, sem er umræddur sérviskupúki. „En það eru samt allir með einhverja sérvisku um hvað þeir vilja hafa á pulsunni sinni. Það er bara merki um betri men, þeir vita nákvæmlega hvað þeir vilja. Flestir vilja þó bara fá sér með öllu. Það er langvinsælast og á að vera svoleiðis. Hitt er svona... maður sér eiginlega á pulsunni hvernig menn eru aldir upp!“
Hvað færð þú þér sjálfur á þína pulsu?
„Ég fæ mér með öllu, nema steiktum lauk. Það er ákveðið þroskamerki. Maður les þroska mannsins alveg í gegnum það hvernig hann raðar á pulsuna.“
Sagan á bak við „u-ið“
Ef við spólum aðeins til baka, hvað kom til að þú fórst út í þennan rekstur á sínum tíma?
„Það var nú bara eins og önnur tilviljun í lífinu. Ég keypti gamlan skúr sem stóð hérna í nágrenninu. Það hafa spunnist margar sögur í kringum það af hverju það er skrifað Pulsuvagninn en ekki Pylsuvagninn, en sannleikurinn er einfaldlega sá að þetta stóð á skúrnum þegar ég keypti hann. Ég vildi bara halda því.“
Þannig að þetta átti ekki að vera nein yfirlýsing?
„Nei, alls ekki. En það hafa sko verið gerðar ýmsar athugasemdir við þetta í gegnum tíðina og fólk er enn að minnast á þetta.“ Frá ballkvöldum til bjórsölunnar
Manstu annars hver fékk fyrstu pulsuna hjá þér?
„Nei, ég man það ekki,“ segir Villi og hugsar sig um. „En ég man hins vegar vel eftir því þegar ég afgreiddi síðasta hamborgarann
Skúlason sem fékk hann. Hann mætir alltaf síðastur!“
Hefur margt breyst á þessum langa tíma sem þú hefur verið með vagninn?
„Ekki mikið, nema hvað fólk gengur miklu betur um núna en áður fyrr. Í gamla daga þurfti maður að vera með opið lengur um helgar, alveg til klukkan fjögur, fimm eða sex á morgnana. Þá mætti fólk beint eftir böllin í Stapa til að fá sér eina með öllu. Maður þurfti að þrífa draslið alveg upp að Bókabúð og niður að Stapafelli eftir lætin.
Guðlaug Skúladóttir og Vilberg
En þetta breyttist allt saman þegar bjórinn var leyfður og opnunartími skemmtistaðanna breyttist. Þá hættu ballstaðirnir að tæmast svona í einu lagi á vagninn. Árgangarnir í kringum 1960 voru gríðarlega stórir og skemmtilegir, þetta var fólk sem ólst upp í mikilli ballmenningu og mætti svo svangt í næturbitann hjá mér.“
Aðspurður um hvort eitthvað hafi dregið úr aðsókninni á Pulsuvagninn í gegnum tíðina með fjölgun veitinga- og skyndibitastaða segir Villi svo ekki vera.
„Við vorum bara tveir í þessu í eina tíð, ég og Raggi í Tjarnarkaffi. Núna stækkar flóran bara og stækkar, en við höfum aldrei gert það betur en einmitt núna. Það fjölgar bara viðskiptavinunum.“
Fjölskyldan og harði skólinn
Nú er Inga Gústafsdóttir að taka við keflinu, en hún er búin að vinna með þér í tuttugu ár. Það hlýtur að vera dásamlegt?
„Það er það besta sem hægt var að gera. Alveg það besta,“ segir Villi stoltur.
Hefur öll fjölskyldan tekið þátt í þessu með þér frá upphafi?
„Já, þau hafa öll komið inn í þetta jafnt og þétt, líka barnabörnin aðeins. Börnin mín fengu nefnilega aldrei neinn vasapening ókeypis, þau urðu bara að vinna fyrir honum.“
Arnór, sonur Villa, grípur inn í spjallið og staðfestir þetta með bros á vör: „Já, ætli það ekki. Mín fyrsta vinna var að tína upp bréfin og draslið í kringum vagninn. Svo vann ég mig upp í það að fá að þrífa glerið, og að lokum fékk maður að afgreiða.“
Svo hefur fjöldinn allur af bæjarbúum líka unnið hjá Villa í gegnum
„Ég er ekki með tölu á þeim en ég á þeim gríðarlegt þakklæti að gjalda. Það er svo fjölbreyttur hópur sem hefur komið hérna við sögu; einn varð meira að segja bæjarstjóri og aðrir hafa farið í ýmis önnur ábyrgðarstörf. En þau
neitt eitt. Það er svo ótrúlega mikið,“ segir Villi pulsa að lokum, horfir yfir torgið hjá Pulsuvagninum og býr sig undir að afgreiða næsta svanga gest í kveðjupartýi Villa sem veit nákvæmlega hvað hann vill á pulsuna sína.
Eins og sjá má voru umbúðirnar rangt merktar og því var Y breytt í U með einu pennastriki.
Það var líf og fjör á torginu við Pulsuvagninn síðasta sunnudag þar sem haldið var stærsta pulsupartí sem haldið hefur verið á Suðurnesjum.
„Ég ætla ekki að breyta því sem virkar
Eftir tuttugu ára farsælt samstarf og meðeigandi að Pulsuvagninum með Villa er Inga Gústafsdóttir nú að taka að fullu við keflinu á Pulsuvagninum í Keflavík. Vaktaskiptunum var fagnað með rækilegu pulsupartíi á torginu við vagninn þar sem viðskiptavinir kvöddu Villa og buðu Ingu velkomna í brúna.
„Mér finnst ég eiga nokkur ár inni“
Hvernig tilfinning er það, Inga, að taka núna ein við rekstrinum eftir að hafa unnið svona lengi við hliðina á Villa?
„Mér finnst ég hreinlega eiga nokkur ár inni í þessu,“ segir Inga.
„Það þarf jú að halda áfram að selja pulsurnar og drífa þetta áfram. Annars hefði ég hreinlega þurft að fara að gera eitthvað annað, en þessi tími er búinn að vera algjörlega yndislegur. Við Villi erum búin að vinna gríðarlega vel saman í gegnum öll þessi ár og ég á alveg klárlega eftir að sakna hans á vaktinni.“
Það er óhætt að segja að það sé glatt á hjalla hérna í dag. Þetta mun vera stærsta pulsupartí sem sögur fara af í Keflavík.
„Já, er það ekki?“ segir Inga og lítur yfir mannfjöldann. „Þetta er bara dásamlegt. Það er dásamlegt að geta kvatt svona vel og tekið á móti mér í leiðinni. Ég á ekki von á öðru en að fólkið taki mér vel, enda er ég búin að vera hérna svo lengi að fólk þekkir mig.“
Er Villi búinn að lauma að þér einhverjum lokaorðum eða leyniráðum fyrir framtíðina?
„Nei, ætli það,“ segir Inga og hlær. „Hann er búinn að tuða í mér
Inga Gústafsdóttir hefur tekið við rekstri Pulsuvagnsins af Villa sem ætlar núna að venda kvæði sínu í kross og gerast bóndi austur í sveitum Suðurlandsins.
í svo mörg ár að þetta er allt komið inn! Ég þarf ekki fleiri ráð.“
Sagan á bak við samstarfið Hvernig kom það til á sínum tíma að þú gerðist meðeigandi að Pulsuvagninum?
„Sagan teygir sig raunar langt aftur. Við Villi kynntumst fyrst í Víkurbæ á sínum tíma þar sem við unnum bæði. Hann kom þangað sem kjötiðnaðarmaður og ég fór að vinna þar líka. Ég sé einmitt að hann Árni Sam, sem réð okkur þangað, er mættur hingað í partíið í dag til að heilsa upp á okkur, sem er rosalega gaman. Seinna fór ég svo að vinna á næturvöktum hjá Villa á Pulsuvagninum. Ég var á þeim tíma að reka mötuneytið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á veturna, þannig að
ég fór í rauninni aldrei í frí. Ég tók einfaldlega við vagninum á sumrin og leyfði Villa að fara í frí. Svo þegar fram liðu stundir vildi hann fara að minnka aðeins við sig og bauð mér að gerast meðeigandi. Síðan þá hefur þetta bara gengið ljómandi vel hjá okkur.“
Engar breytingar á góðu verki Nú ert þú skipstjórinn á vagninum. Á að fara að breyta einhverju eða kynna nýjungar? „Nei, alls ekki,“ segir Inga ákveðin að lokum. „Ég ætla ekki að fara að breyta einhverju sem er frábært og virkar fullkomlega. Það er engin ástæða til að breyta því sem er gott verk. Við höldum okkur bara algjörlega á sömu braut og ég vona að það verði bara áfram flott.“
Inga tekur við keflinu af Villa á Pulsuvagninum:
Hjónin
Skúlason ásamt tveimur af börnum sínum, Gunnhildi Erlu og Arnóri, sem bæði hafa tekið þátt í ævintýrinu á Pulsuvagninum.
Landsmót kvennakóra haldið í Reykjanesbæ
Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið 11.-13. júní næstkomandi í Reykjanesbæ. Kvennakór Suðurnesja er gestgjafi mótsins að þessu sinni en þetta er 12. landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra. Mótin hafa verið haldin víðs vegar um landið á þriggja ára fresti og er þetta í annað skiptið sem Suðurnesjakonur standa fyrir mótinu. Um 330 kvennakórskonur frá öllum landshlutum munu koma saman í söng, gleði og tónleikahaldi. Kórarnir, sem eru 12 talsins, munu flytja eigin dagskrá á tónleikum í Stapa, Hljómahöll föstudaginn 12. júní kl. 18. Þar verður flutt skemmtileg tónlist úr ýmsum áttum, en hver kór mun flytja 2-3 lög.
Kórarnir sem koma fram eru Kvennakórinn Senjórítur frá Reykjavík, Kvennakórinn Heklurnar frá Mosfellsbæ, Kvennakór Ísafjarðar, Kvennakór Hornafjarðar, Kvennakórinn Ymur frá Akranesi, Léttsveit Reykjavíkur, Kvennakór Akureyrar, Kvennakórinn Hrynjandi frá Reykjavík, Kvennakór Reykjavíkur, Kvennakór Hafnarfjarðar, Kvennakórinn Ljósbrá frá Rangárvallasýslu auk gestgjafa mótsins, Kvennakórs Suðurnesja.
Seinni tónleikarnir verða í Stapaskóla laugardaginn 13. júní kl. 16 og bera þeir yfirskriftina „Eldgyðjur“ sem er þema landsmótsins og var valið í tengslum við eldsum-
NÝBURAR
brotin sem hafa erið á Reykjanesi síðustu ár. Á þessum tónleikum munu kórarnir sameinast og flytja afrakstur sameiginlegra æfinga. Þá mun hópurinn skiptast í 5 smiðjur en mismunandi þema er í hverri smiðju. Lagavalið er mjög fjölbreytt, þekkt íslensk lög, kvikmyndatónlist og gospel. Stjórnendur þessara hópa eru Ágota Joó en hún stjórnar smiðjunni Kæru systur, Arnór B. Vilbergsson verður með smiðju sem tileinkuð er Hljómum, þar sem flutt verða lög með hinni ástsælu hljómsveit frá Keflavík, Dagný Þ. Jónsdóttir stjórnar smiðju með vinsælum lögum úr kvikmyndum sem nefnist Hvað er í bíó?, Gísli Magna verður með smiðjuna KONA og Rafn Hlíðkvist stjórnar Gospelgyðjum.
Hápunktur tónleikanna verður síðan þegar allur hópurinn sameinast í frumflutningi landsmótslagsins sem heitir „Taktur trumbunnar“. Hefð er fyrir því að sérstakt mótslag er samið fyrir hvert landsmót og tengist það því svæði sem mótið er haldið á. Að þessu sinni er lagahöfundurinn hinn landsþekkti og dáði Suðurnesjamaður Magnús Þór Sigmundsson. Lagið er samið við ljóð Rutar Gunnarsdóttur sem er fyrrum kórkona Kvennakórs Suðurnesja en hún lést árið 2006 og tengist textinn þema tónleikanna.Miðasala á báða tónleika mótsins er á tix.is.
Stúlka fæddist á ljósmæðravakt HSS þann 1. júní 2026.
Þyngd: 2650 grömm
Lengd: 47 sentimetrar
Foreldrar: Malak Abou Chebli Nasser og Aiham Abufiad Albainy. Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Guðlaug María.
Drengur fæddist á ljósmæðravakt HSS þann 27. apríl 2026. Þyngd: 4350 grömm
Lengd: 54 sentimetrar
Stúlka fæddist á ljósmæðravakt
HSS þann 3. maí 2026.
Þyngd: 2678 grömm
Lengd: 48 sentimetrar
Foreldrar: Hildur Ýr Hafsteinsdóttir og Arnbjörn Óskar Haraldsson. Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Rebekka Saidy og nemi var Thelma Guðlaug Arnarsdóttir.
Foreldrar: Júlía Rut Sigursveinsdóttir og Óskar Arnarsson. Þau eru búsett í Sandgerði.
Ljósmóðir: Stefanía Ósk Margeirsdóttir og nemi var Thelma Guðlaug Arnarsdóttir.
Stúlka fæddist á Ljósmæðravakt HSS 24. maí 2026.
Þyngd: 4050 grömm
Lengd: 50 sentimetrar
Foreldrar: Guðný Hulda Valdimarsdóttir og Ágúst Bjarki Davíðsson. Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Stefanía Ósk Margeirsdóttir.
Til hamingju með daginn sjómenn!
NEMAR OG JÁRNIÐNAÐARMENN
NEMAR OG JÁRNIÐNAÐARMENN
Getum tekið unga menn á námssamning í járniðnaði. Einnig vantar okkur vana járniðnaðarmenn til starfa.
Getum tekið unga menn á námssamning í járniðnaði. Einnig vantar okkur vana járniðnaðarmenn til starfa.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
BJÖRK SIGURÐARDÓTTIR
Hátúni 13, Keflavík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 1. júní. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 10. júní klukkan 13.
Alfreð Georg Alfreðsson
Birgitta Brynjúlfsdóttir
Karen Ósk Alfreðsdóttir
Alfreð Georg Alfreðsson Haukur Hauksson og barnabörn
Magnús hættir
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesja bæjar, mun láta af störfum um næstu mánaðamót eftir um 14 ára starf í þágu sveitarfélagsins.
á sama tíma og núverandi bæjar stjórn skilar umboði sínu til ný kjörinnar bæjarstjórnar un. Magnús hefur stýrt sveitarfélaginu um 14 ára skeið, fyrst sem bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Garði og síðar í Suðurnesjabæ eftir sameiningu Garðs og Sandgerðis árið 2018.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 09–17
Við erum á Aðaltorgi - verið velkomin!
Tímapantanir í síma 420-0077 og á reykjanesoptikk.is Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Hefur kosið í öllum kosningum frá árinu 1950
Jóna Björg, sem er 96 ára, hefur kosið í öllum sveitarstjórnarkosningum frá árinu 1950 en þá var hún tvítug.
Með Jónu Björgu var Hildigunnur Eir Kristjánsdóttir, 18 ára sonardóttir hennar, en Hildigunnur var ekki bara að kjósa í fyrsta sinn heldur var hún líka á framboðslista Viðreisnar í Reykjanesbæ og hefur líklega fengið atkvæði frá ömmu sinni.
Fjóla í toppbaráttunni
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, afrekskylfingur úr Golfklúbbi
Suðurnesja, hefur staðið sig vel og verið í toppbaráttunni á tveimur fyrstu stigamótum ársins þar sem bestu kylfingar landsins eigast við. Fjóla endaði í 2. sæti í Reykja nesmótinu sem fór fram á Hólms velli í Leiru. Hún lék á 75-76 eða níu yfir pari. Hún endaði í 3. sæti í Korpubik arnum um síðustu helgi en hann fór fram á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Þar lék hún á 69-75-74, tveimur yfir pari.
Fjóla Margrét er í 2. sæti stiga listans eftir tvö mót en hún verður aftur á ferðinni í næstu viku þegar þriðja stigamót sumarsins fer fram. Fjóla, sem er 19 ára gömul, sagði í viðtali við Víkurfréttir að hún væri búin að æfa af krafti í allan vetur og það sé að skila sér í góðu golfi.
Atvinna
Ráðgjafi í Reykjanesbæ
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum aðila í útibú okkar í Reykjanesbæ til að sinna þjónustu og sölu til viðskiptavina. Um er að ræða fjölbreytt starf í skemmtilegu starfsumhverfi.
Hjá Sjóvá starfar sterkur og skemmtilegur hópur fólks sem kappkostar að veita viðskiptavinum afburðaþjónustu. Við erum efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni og kannanir sýna að starfsánægja hjá okkur er með því mesta sem mælist hérlendis.
Hún er í Golfklúbbi Suðurnesja en hefur einnig æft með afreksfólki Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.
GRINDAVÍK
ÍSLANDSMEISTARAR Í KÖRFUKNATTLEIK KARLA 2026
Braut ristina en lyfti bikarnum
Það mæddi mikið á Ólafi Ólafssyni, fyrirliða nýkrýndra Íslandsmeistara Grindavíkur, í úrslitakeppninni. Eftir að hafa brotið á sér ristina neyddist hann til að fylgjast með hliðarlínunni í fjórða leiknum í stað þess að vera inni á vellinum á ögurstundu. Þrátt fyrir það fagnaði fyrirliðinn gríðarlega með sínum mönnum degi eftir að stóri titillinn var í höfn, og þegar meisturunum var fagnað innilega af bæjarbúum. Við tókum Ólaf tali í miðjum hátíðarhöldunum.
Það hlýtur að hafa verið gífurlega erfitt að þurfa að sitja fyrir utan í svona úrslitaleik?
„Já, það var mjög erfitt. Það er í raun miklu erfiðara að vera á hliðarlínunni og geta ekki haft nein áhrif á leikinn sjálfan. En strákarnir sýndu það bara enn og aftur hversu miklir töffarar þeir eru.
Tökum Arnór sem dæmi; hann hafði spilað kannski 50 sekúndur í allri úrslitakeppninni en kemur svo inn á í þessum leik og er bara eins og skrímsli. Raggi og Unnsteinn voru geggjaðir, Nökkvi kom öflugur inn, sem og Isaiah og Valur. Þeir voru einhvern veginn allir að fylgja eftir þeim gífurlega krafti sem kom frá Pargo og Jordan Semple. Það á að gefa þessu liði fullt kredit. Margir hafa haldið því fram að við séum ekki með nógu djúpan bekk, en við erum bara með gaura sem gætu spilað í hvaða liði sem er í þessari deild. Við erum einstaklega heppnir með þessa drengi og ég vona innilega að þeir verði áfram hjá okkur.“
Fékk ryk í augun við heimkomuna
Það er skemmtileg stemning hérna degi eftir sigurinn, mikill fögnuður hjá ykkar fólki?
„Já, það er gríðarlega gaman. Ég viðurkenni það alveg að maður fékk pínu ryk í augun þegar maður keyrði inn Víkurbrautina í dag. Maður bjóst alls ekki við svona mikið af fólki. En þetta sýnir okkur enn og aftur hvað þetta samfélag er algjörlega geggjað. Þessi sigur er eitt skref í rétta átt til þess að halda áfram að byggja bæinn okkar upp. Við þurfum nauðsynlega á því að halda. Eins og Jóhann bróðir (þjálfari) sagði, þótt það sé blásið dálítið á móti okkur þá þurfum við bara að stíga upp gegn mótbyrnum, berjast fyrir okkar réttindum og gera það sem þarf til þess að fá líf í bæinn á nýjan leik.“
Gefast aldrei upp fyrir ríkisvaldinu
Ertu bjartsýnn á að þetta muni ganga vel? Grindvíkingar hafa átt í ákveðnum viðræðum og mótun gagnvart ríkisvaldinu og opinberum aðilum undanfarið.
„Ég vona það bara innilega, vegna þess að þetta er svo fallegt og yndislegt samfélag sem við áttum — og eigum enn, þótt við séum ekki öll á sama staðnum í dag. Ég vona svo heitt að allir vilji koma aftur og halda áfram að byggja upp þetta bæjarfélag, sem var eitt það stærsta og sterkasta á landinu.
Við erum búin að stíga gott skref í rétta átt núna. Þetta jú bara málmur sem við komum með,
fyrir bæinn á þessum tímapunkti.
Nú er það bara áfram gakk. Við höldum áfram að slást fyrir okkar málum, við gefumst ekkert upp og höldum alltaf áfram.“
Fyrirliðinn hvergi nærri hættur
En hvað með framhaldið, ætlar Óli sjálfur að halda áfram og hvað með þessi meiðsli?
„Ég braut á mér ristina við það eitt að hlaupa til baka í vörninni, en ég jafna mig fljótt á því. Á meðan fólk fer ekki að segja mér að ég eigi að hætta, þá held ég áfram. Mér finnst ég hreinlega eiga fullt erindi áfram í efstu deild á Íslandi.“
Fagnað með stæl í Grindavík
Hundruð Grindvíkinga tóku á móti Íslandsmeisturunum í körfubolta þegar þeir komu keyrandi inn í bæinn með bikarinn hátt á lofti þaðan sem haldið var í íþróttahúsið og titlinum fagnað. Ólafur Ólafsson, fyrirliði fór fyrir hópnum og hélt Íslandsbikarnum á lofti í glæsilegum vörubíl frá Jóni og Margeiri.
Þegar komið var í íþróttahúsið fóru leikmenn og aðilar liðsins á svið og Jóhann Þór þjálfari liðsins þakkaði fyrir frábæran stuðning og sagði titilinn vonandi hjálpa til í endurreisn samfélagsins í Grindavík.
Leikmenn gáfu eiginhandaráritanir og flestir stuðningsmenn voru klæddir Grindavíkurtreyju. Víkurfréttir ræddu við nokkra stuðningsmenn, styrkaraðila og liðsmenn UMFG.
Íþróttalífið getur verið magnað afl á erfiðum tímum, og það sannaðist heldur betur þegar Grindvíkingar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í körfuknattleik karla. Fyrir Helenu Söndru Antonsdóttur, ötula stuðningskonu og athafnakonu í Grindavík, var þessi sigur sögulegur en jafnframt persónulegur og tilfinningaþrunginn. Sigurinn tileinkar hún Stefáni manni sínum, Stefáni sem lést á síðasta ári en hann var einn dyggasti stuðningsmaður félagsins.
„Þetta var risasigur! Og þessi sigur... hann var fyrir Stebba,“ sagði Sandra, eins og hún er jafnan kölluð, en hún var í stórum hópi Grindvíkinga sem tóku á móti Íslandsmeisturunum á sigurhátíð, daginn eftir sigurinn í Síkinu á Sauðárkróki.
„Ég á eiginlega ennþá erfitt með að trúa þessu. Ég sé hann bara svo ljóslifandi fyrir mér í gær; hvað hann var að fagna þarna með okkur öllum.“
Ætli hann hafi ekki verið að hjálpa liðinu sem andlegur stuðningur í gær?
„Algjörlega. Og það á við um alla heimaleikina okkar, maður sá hann alltaf fyrir framan sig í stúkunni. Ég tala líka oft við hann. Ég segi stundum: „Stebbi, nú verður þú að hjálpa okkur.“ Og í gær, þetta var hreinlega stórkostlegt.“
Lyftir upp andrúmsloftinu í bænum
Hvaða áhrif heldurðu að þessi sigur hafi á samfélagið hérna í Grindavík þegar fram líða stundir?
„Bara gífurlega góð áhrif. Ég trúi því staðfastlega að svona sigur lyfti upp andrúmsloftinu hérna í bænum okkar. Þetta gerir það að verkum að við fáum meira fólk til baka og þetta íþróttafélag hérna... það er bara hreint út sagt geggjað.“
Samstaða fyrirtækja og íbúa
Þið hjónin hafið í gegnum ykkar fyrirtæki verið gríðarlega dugleg að styðja við bakið á Grindavík og sótt leikina stíft, þó að Stebbi hafi náttúrulega verið manna duglegastur við það. Þú hlýtur að vera stolt að sjá þennan mikla árangur raungerast eftir allan þann stuðning sem þið og fleiri fyrirtæki hafið lagt til félagsins?
„Jú, en ég finn líka svo mikið hvað fólk er að þakka mér persónulega. En ég segi alltaf við fólk: „Þið eigið ekki að vera að þakka mér, þetta er okkar allra.“ Þetta snýst ekki bara um Einhamar Seafood, við erum öll í þessu saman að styðja við þetta frábæra lið.“
Áfram gakk þrátt fyrir mótbyr
Finnst þér ástandið vera að breytast eitthvað frá því sem var í upphafi í Grindavík? Þið hafið ekki gefið neitt eftir í ykkar rekstri þrátt fyrir skrýtið ástand?
„Nei, við höfum aldrei gefið eftir. Þetta er í rauninni allt óbreytt hjá okkur. Trúðu því eða ekki, en síðasta ár var raunar besta árið okkar í rekstrinum, þó að það hafi verið gífurlega erfitt á persónulega sviðinu.
Stebbi lenti í þessu hræðilega mótorhjólaslysi í febrúar í fyrra og féll svo frá í ágúst. En ég sagði bara við sjálfa mig að ég yrði að halda áfram. Ég á líka svo dásamlegt starfsfólk sem hefur aðstoðað mig gífurlega mikið í gegnum þetta allt saman.“
Grindvíkingar, liðsenn og yngri peyjar fögnuðu saman heima. VF/pket.
Meira en bara ein dolla
Jóhann þjálfari: „Við erum að reyna að reisa bæinn við í ágætis mótbyr“
Grindvíkingar fögnuðu gífurlega á dögunum þegar Íslandsmeistaratitill karla í körfuknattleik var í höfn eftir magnað úrslitaeinvígi (3-1) við Tindastól. Sigurinn er einstakur í ljósi þeirra miklu erfiðleika og hamfara sem bæjarfélagið hefur gengið í gegnum síðustu ár, þar sem meirihluti íbúa býr nú dreifður um landið. Við ræddum við Jóhann Ólafsson, þjálfara Grindavíkur, tæpum sólarhring eftir að stóri titillinn vannst.
Erfitt að lýsa tilfinningunni með orðum
„Maður er bara að átta sig á hvað er að gerast, hvernig þetta tókst og að þetta sé loksins komið. En þessi sigur gerir svo mikið fyrir fólkið. Ég þreytist ekkert á
Miklu stærra en bara íþróttasigur
Heldurðu að þessi titill hjálpi til í þeirri baráttu?
„Já, þetta hjálpar alveg hundrað prósent í öllu því ferli. Ég vona svo innilega að fólk, ráðamenn og allir þeir sem reyna að stýra þessum málum sjái hvað þetta gerir fyrir samfélagið okkar. Í þeirri vegferð að reisa bæjarfélagið við aftur skiptir svona lagað gríðarlegu máli. Þetta er miklu stærra en bara einhver dolla. Þetta er ofboðslega fallegt og skemmtilegt að fá að taka þátt í þessu.“
Sameiningartákn íbúanna í rýmingunni
Grindvíkingar hafa nánast alla tíð verið þekktir fyrir gríðarlegan
félaginu, þar sem meirihluti bæjarbúa býr nú annars staðar?
„Já, algjörlega, en þetta er einmitt það sem sameinar samfélagið og hefur gert síðustu tvö til þrjú ár. Fólk kemur saman, hittist og sameinast í baráttunni með okkur. Þetta lið hefur verið ákveðið sameiningartákn fyrir bæjarfélagið allt frá því að rýmingin átti sér stað, þannig að já, þetta er algjörlega geggjað.“
Hversu bjartsýnn ertu á endurreisn bæjarfélagsins sjálfs?
„Bara eins mikið og ég get orðið. Við munum reisa bæjarfélagið við aftur, það er alveg klárt. Við munum koma heim og hér verður aftur blómlegt, fallegt og skemmtilegt að vera. Þetta verður mögulega ekki nákvæmlega eins og það var, en við munum finna einhverja endingu og lausn á þeim málum.“
Íslandsmeistarar 2026 í körfuknattleik karla
TilGrindavík!hamingju
Þetta var náttúrulega alveg magnaður leikur hjá ykkur. Var kannski gott, eftir á að hyggja, að mæta með aðrar væntingar inn í leikinn þar sem þrír lykilmenn voru meiddir?
„Já og nei. Við náttúrulega bara lögðum þetta þannig upp að við ætluðum að láta þá hafa verulega mikið fyrir hlutunum; þeir urðu að vinna okkur, við ætluðum sko ekkert að leggjast niður. Við byrjuðum leikinn mjög vel og með frábærri frammistöðu allra auk magnaðs framlags Pargo tókst okkur að vinna. Ég er bara ofboðslega stoltur af liðinu og öllum í kringum það. Þetta var hreinlega geggjað.“
Jóhann þjálfari horfir á Íslandsbikarinn stoltur.
Heiða Dís með gullverðlaun
Viktor Berg Stefánsson og Heiða Dís Helgadóttir náðu góðum árangri á Grand Prix Open í Taekwondo í Búlgaríu um síðustu helgi en það er mót ætlað cadet og junior aldursflokkum (12-17 ára).
Mótið er í E-6 styrkleikaflokki og er jafnframt úrtökumót fyrir lokamót Grand Prix Open sem er haldið í Bosníu í lok árs. Viktor Berg byrjaði sterkt og vann fyrstu tvo bardagana gegn Ítalíu og Króatíu. Því næst keppti hann við sterkan Búlgara sem er með mjög mikla reynslu og hefur m.a. unnið til verðaluna á Evrópumótinu.
Bardaginn var fram og tilbaka þar sem Búlgarinn vann fyrstu lotu en Viktor náði geggjuðu hringsparki í 2. lotu og stal lotunni. Búlgarinn hafði svo betur í 3. lotu og Viktor rétt svo missti af verðlaunum en hefur sýnt og sannað að hann er ótrúlega fær bardagamaður enda nýbúinn að vinna Luxembourg open og Norðurlandamótið. Heiða Dís sigraði fyrsta bardaga gegn Ítalíu örugglega og þann næsta gegn Búlgaríu, einnig á mjög öruggan hátt. Heiða vann til gullverðlauna og keppnisrétt á lokamótinu í desember, fyrst allra Íslendinga.
Gull og silfur til Borðtennisfélags Reykjanesbæjar á Íslandsmótinu
Leikmenn Borðtennisfélags Reykjanesbæjar (BR) létu mikið að sér kveða á Íslandsmóti öldunga í borðtennis, sem fram fór í íþróttahúsi Hagaskóla þann 9. maí sl. Uppskera dagsins var ríkuleg, en félagið hirti bæði Íslandsmeistaratitil og fjölda silfurverðlauna í mismunandi aldursflokkum.
Hápunktur mótsins hjá BR var í flokki karla 40–49 ára í tvíliðaleik. Þar stóðu þeir Piotr Herman og Michał May-Majewski uppi sem sigurvegarar og tryggðu sér gullmedalíuna eftir flotta spilamennsku. Athygli vekur að Piotr er fimmtugur að aldri en nýtti sér reglur Borðtennissambands Ís lands (BTÍ) sem heimiluðu honum þátttöku í yngri flokki.
Önnur úrslit leikmanna BR Félagið átti einnig fulltrúa á verðlaunapalli í einliðaleik og í eldri flokkum:
Karlar 40–49 ára (einliðaleikur): Michał May-Majewski fylgdi eftir sigrinum í tvíliðaleik með því að næla í silfurverðlaun.
Karlar 50–59 ára (einliðaleikur): Piotr Herman hreppti silfrið eftir hörkuleik gegn Erni Þórðarsyni úr HK. Karlar 60–69 ára (einliða leikur): Jón Gunnarsson sýndi mikla seiglu og vann til silfur verðlauna í sínum flokki.
Karlar 60–69 ára (tvíliða leikur): Jón Gunnarsson deildi svo öðru silfri þegar hann paraði
Arnór Daði tekur við Keflavíkur og Pétur til UMFG
Arnór Daði Jónsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari kvennaliðs Keflavíkur í Bónus deildinni í körfubolta. Arnór Daði var að stoðarþjálfari hjá liðinu í vetur en Hörður Axel Vilhjálmsson aðal þjálfari.
Arnór er Keflvíkingur og hefur til fjölda ára þjálfað yngri flokka félagsins. Arnór er sonur Jóns Halldórs Eðvaldsson sem þjálfaði Keflavíkurliðið til margra ára með góðum árangri.
Þá hefur Pétur Már Sigurðsson verið ráðinn þjálfari meistara flokks kvenna hjá Grindavík.
Massafólkið: F.v.: Hörður, Elsa, Jens og Hörður þjálfari.
MASSA lyftingafólk sankaði að sér verðlaunum
Keppendur frá Lyftingadeild UMFN-Massa gerðu heldur betur vel á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði sem fram fór dagana 7. og 8. maí. Þau Elsa Pálsdóttir, Hörður Birkisson og Jens Krist insson sneru aftur heim með farangurinn hlaðinn medalíum, heimsmetum og tugum Íslands meta.
Elsa Pálsdóttir: Evrópumeistari og heimsmethafi
Elsa Pálsdóttir átti stórkost legt mót í -84 kg flokki öldunga (Master 3). Hún sýndi mikla seiglu eftir erfiða byrjun í hné beygju og endaði á að fagna Evrópumeistaratitli í samanlögðu ásamt því að vinna gull í öllum þremur greinum.
Hápunktur mótsins hjá Elsu var í réttstöðulyftu þar sem hún setti tvö heimsmet. Hún lyfti fyrst 175,5 kg og bætti svo um betur í lokalyftunni þegar hún tók 185 kg, sem er nýtt heimsmet.
Samanlagður árangur: 442,5 kg.
Metaskrá: Elsa setti ótrúleg 30 Íslandsmet (vegna aldursflokka), 2 Evrópumet og 2 heimsmet.
Hörður Birkisson: Bronsregn og miklar bætingar
Hörður keppti í -74 kg flokki (Master 3) og átti mjög stöðugt
samtals 27,5 kg á mótinu. 182,5 kg í
UNGMENNAFÉLAGIÐ
NJARÐVÍK
ÍSLANDSMEISTARAR Í KÖRFUKNATTLEIK KVENNA 2026
Þetta var A-frammistaða
Njarðvík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir frábæran 1-3 sigur í úrslitaeinvígi gegn Haukum í Bónus deildinni. Þrjátíu og fimm ár eru liðin síðan karlalið félagsins fagnaði titlinum á heimavelli í Ljónagryfjunni, en í þetta skiptið voru það stelpurnar sem skrifuðu nýjan og glæsilegan kafla í sögubækurnar þegar þær kláruðu dæmið í IceMar höllinni í Innri-Njarðvík.
Afrakstur margra ára starfs
„Þetta eru stór tímamót og hreinlega geggjaður kafli sem er skrifaður í sögu þessa félags. Mér finnst það líka bara mjög við hæfi. Fyrsti fáninn í þetta nýja hús kom hérna þegar stelpurnar
sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari liðsins.
Sýndu einbeitingu frá fyrstu mínútu
Leikurinn var gríðarlega góður hjá ykkur og það sást einhvern
gott betur og það gerðum við með frábærum leik.“
Ungu stelpurnar stíga upp og sýna traust
Það var áhugavert að sjá ungu stelpurnar stíga svona svakalega upp með þessum frábæru atvinnumönnum. Þið eruð með tvær frábærar; Danielu sem er reyndar orðin Íslendingur og svo Brittany sem er frábær leikmaður. Þær eru búnar að leiða liðið í vetur en í þessum leik sáum við ungu stelpurnar fara á
lagastundum í fyrra og það fylgdi okkur einhvern veginn beint inn í þennan vetur. Þannig að þetta er bara algjör liðssigur þar sem allar voru að leggja í púkkið á báðum
Óbreyttur hópur og stöðugleiki
Ertu að vonast til þess að vera með svipaðan hóp á næsta tímabili? Er eitthvað vitað um fram-
fer maður að setjast niður með formanninum. Ég á sjálfur allavega ár eftir af mínum samningi og við Óli væntum þess að það sé vilji fyrir áframhaldandi samstarfi með þennan hóp. Nú förum við bara að skoða þessa hluti í róleg-
ÚRSLITIN:
Haukar-UMFN 80-92
UMFN-Haukar 75-70
Haukar-UMFN 77-69
UMFN-Haukar 95-70
„Þær
minna mig dálítið á Loga og Ölla“
„Þetta var bara stórkostlegur sigur og það sem var svo gaman líka var að sjá hvað þær voru tilbúnar í þetta verkefni. Varnarleikurinn var hreinlega geggjaður í allar 40 mínúturnar. Frammistaðan sýndi okkur svart á hvítu hvað þær langaði mikið í þetta. Þær töpuðu jú í oddaleik á móti sama liði á síðasta tímabili. Það var mjög sárt tap þar sem við áttum síðasta skotið. Núna mættu þær til leiks og ætluðu sér ekkert annað en að vinna þetta, og það sást hreinlega langar leiðir,“ sagði Gunnar.
Sagan endurtekur sig
Það er líka gaman að sjá þessar ungu stelpur stíga
Sagan endtekur sig í Njarðvík
„Sýndum bara hvað í okkur býr“
Hulda María Agnarsdóttir, leikmaður Njarðvíkur segir að liðið hafi mætt með alveg skýrt markmið inn í fjórða leikinn. „Við sýndum bara hvað í okkur býr í þessum leik. Við ætluðum bara að koma sterkar inn, leggja allt sem við áttum eftir í þennan leik, og við sýndum það bara. Hulda María hrósar erlendu leikmönnunum í liðinu í hástert fyrir þeirra inn-
legg, jafnt innan sem utan vallar: „Þær er bara geggjaðar. Þær segja okkur alltaf til, eða hjálpa okkur alltaf ef við erum að gera eitthvað vitlaust, hvetja okkur alltaf áfram og segja okkur að skjóta þessum stóru skotum,“ segir Hulda María, en hún játar því að það hafi verið sérstaklega sætt að klára einvígið og fagna titlinum á heimavelli í Njarðvík.
Liðsfundurinn sem breytti öllu
Sara Björk Logadóttir var í skýjunum með árangurinn þegar hún gerði upp leikinn og tímabilið. Hún segir að nánast allt hafi gengnum upp í fjórða lleiknum vegna þess að hugarfarið var rétt. „Tilfinningin er rosalega góð, þetta er rosa gaman. Við mættum bara tilbúnar, við ætluðum að vinna,“ segir Sara.
er alveg magnað að sjá þetta. Þær eru að spila risastóra rullu í þessu liði, alveg eins og þeir gerðu á sínum tíma.
Þetta eru klárlega okkar framtíðarleikmenn þannig að það er einstaklega gaman að þessu.“
Íþróttirnar eru menning Njarðvíkinga
Það hlýtur að vera dásamleg tilfinning að fylgjast með þessu?
„Já, þetta er frábær tilfinning. Svona sigur gerir bara svo ótrúlega mikið fyrir samfélagið okkar. Við ætlum klárlega að halda áfram að styrkja við bakið á þessu starfi og okkar fyrirtæki verður áfram hérna í stuðningsmannaliðinu. Vonandi koma enn fleiri að borðinu
„Við vildum bara vinna. Við tókum fund og vorum bara að hvetja hver aðra áfram. Við ætluðum bara að koma og vinna,“ segir Sara um viðbrögð liðsins þegar útlitið var sem svartast eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum gegn UMFG í undanúrslitum.
ÞAÐ VAR KOMINN TÍMI Á TITIL
Daniela Rodriguez fagnaði sínum fyrsta titli á ferlinum og leyndi ekki stolti sínu yfir liðinu og sögulegum áfanga félagsins. Hún spilaði í gegnum meiðsli en neitaði að láta það stoppa sig.
„Það var kominn tími til að ég fengi minn fyrsta titil! Það er mikill heiður að vinna fyrsta titil Njarð víkur í 31 ár, algjör blessun. Ég vildi alls ekki fara í fimmta leik. Ég meiddist á hnénu í síðasta leik og sagði við sjálfa mig að ég ætlaði að gefa allt í þetta í
Til hamingju Njarðvíkingar!
Lifum vel
Tilboð gilda til 7. júní
Arizona kjúklingabringur
Bara Matur
Rauð vínber
Hvað er svona merkilegt við það?
Ég las áhugaverðan pistil fyrir stuttu þar sem talað var um að ef við ættum að leggja áherslu á að kenna drengjum að þvo, þrífa og elda þá ættum við í raun einnig að kenna stúlkum að nota sláttuvélar, hengja upp myndir og tengja rafmagn.
Heiðakryddaður lambahryggur Hálfur, lundarmegin
2x120g, Kjötkompaní
Nettó Krossmóa 7:30-24:00 og Nettó Iðavöllum 9:00-21:00
Þegar umræðan um þriðju vaktina stóð sem hæst ákvað ég að fara yfir listann með eiginmanninum. Ég hafði fundið lista á netinu yfir skiptingu heimilisverka og fór að lesa upp. Jólagjafirnar –ég! Taka of lítil föt úr skúffum og skápum barnanna og selja eða gefa – ég! Panta tíma hjá lækni – ég! Þetta byrjaði nokkuð vel og ég taldi mig hafa nokkra yfirburði svona strax í upphafi. Sigri hrósandi hélt ég áfram að lesa upp allt það sem einkenndi þessa þrautagöngu mína sem húsmóðir á heimilinu. Mér til mikillar undrunar fóru þá skyndilega að birtast ákveðin atriði sem einkenndu hana einmitt ekki. Ákveða hvað á að vera í matinn–við bæði. Fara út með ruslið–hann. Skjótast eftir hinu og þessu á öllum tímum sólarhringsins–hann. Grilla kóteletturnar, setja upp trampólínið, bera á pallinn og sjá um garðinn á sumrin–hann. Græja börnin í háttinn–við bæði. Nei, heyrðu, sko, hvurslags listi er þetta eiginlega? Ég sem hélt að þetta ætti einmitt bara að vera mér í hag! Ég stóð sjálfa mig að því að vera farin að hoppa yfir ákveðin atriði. Staðan var 10-7, reyndar fyrir mér, en það var ekki niðurstaðan sem ég var búin að tippa á! Ég lagði símann frá mér og sagðist hreinlega ekki hafa meiri tíma aflögu til þess að lesa allan listann. Það væri jú brjálað að gera hjá mér. Ég þyrfti að fara að vesenast í þvottinum. „Á ég ekki að hjálpa þér?“ spyr hann. „Nei góði, vertu ekkert að því.“