Skip to main content

Ægismenn - Björgunarsveitin Ægir í desember 2024

Page 1

ÆGISMENN BJÖRGUNARSVEITIN ÆGIR FRÉTTABRÉF GEFIÐ ÚT Í DESEMBER 2024

Þú getur unnið 100.000 kr. inneign

Brenna og flugeldasýning í Garði um áramótin n Áramótabrenna og flugeldasýning í boði Suðurnesjabæjar verður haldin á gamla malarvellinum við Sandgerðisveg á gamlárskvöld ef veður leyfir. Brennan hefst kl. 20:00 og flugeldasýningin kl. 20:15. Björgunarsveitin Ægir sér ávallt um áramótabrennur í Garði, sem nú eru haldnar annað hvert ár í Garðinum eftir sameiningu sveitarfélagana Garðs og Sandgerðis í Suðurnesjabæ. Hleðsla áramótabrennu hefst á milli jóla og nýárs. Stranglega bannað er að setja efni á brennuna án leyfis. Björgunarsveitin getur tekið á móti örlitlu efni í viðbót. Fólk sem er með eldivið á brennuna getur haft samband við félaga í Ægi í síma 862 9800.

Flugeldasalan er í Þorsteinsbúð n Árleg flugeldasala Björgunarsveitarinnar Ægis er í Þorsteinsbúð að Gerðavegi 20b í Garði. Flugeldasalan er opin dagana 28. til 31. desember. Opnunartímar eru í auglýsingunni hér að neðan.

Ægir tekur drónaflugið

Ægisfólk á fjöllum:

Hálendisvaktin er gott hópefli

- sjá síðu 4

Eldsumbrot hafa breytt miklu n Starfið hjá Björgunarsveitinni Ægi hefur tekið miklum breytingum síðustu misseri. Eldsumbrot á Reykjanesskaganum ráða þar mestu. Að hafa fengið regluleg eldgos frá því í mars 2021 hefur sett mark sitt á starfsemina og mikill þungi farið í bæði útköll og mönnun verkefna í þeim tíu eldgosum sem orðið hafa á Reykjanesskaganum á síðustu árum. Verkefnin tengd eldgosunum hafa einnig tekið breytingum eftir því sem á hefur liðið. Fyrstu gosin voru það sem kalla má ferðamannagos og verkefnin þá tengd því umstangi sem fylgdi því. Eftir að eldgosin færðust nær Grindavík og Sundhnúkagígaröðin varð virk fyrir rétt um ári, hafa verkefni björgunarsveita orðið öðruvísi. „Að fá öll þessi eldgos hefur sett nýja mynd á starfið hjá okkur. Eldgosin gnæfa yfir annað í okkar starfi. Verkefnin sem voru áður eru samt sem áður ennþá til staðar,“ segir Ingólfur Einar Sigurjónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ægis, í samtali við blaðið. Hann bendir á að í tengslum við

eldgosin hafi björgunarsveitin þurft að kaupa öðruvísi búnað. „Við erum til dæmis farnir að reka gasmæla. Þeir eru alls ekki ódýr búnaður og hafa bara ákveðinn líftíma,“ segir Ingólfur. Björgunarsveitin Ægir hafði fram að eldgos-

unum ekki verið með viðbragð fyrir hálendið. Gríðarlegur fjöldi fólks upp til fjalla á Reykjanesskaganum hefur sannað það fyrir björgunarsveitarfólki að það er auðvelt að týnast á Reykjanesskaganum. Til að bregðast við verkefnum tengdum eldsumbrotum hefur Björgunarsveitin Ægir fest kaup á torfærutæki, svokölluðum Buggybíl. Þessi tæki reynast vel á slóðum í og við Fagradalsfjall, björgunarfólk kemst hraðar yfir og Buggy-bílarnir fara betur með mannskapinn. Áður en Buggy-bíllinn var keyptur var notast við jeppa björgunarsveitarinnar. Hann var nær stöðugt í verkefnum og það varð þess valdandi að hann slitnaði mikið, enda mikið álag á bílnum í Fagradalsfjalli. Ingólfur segir að eldgosin hafi útheimt mikla vinnu hjá félögum í Björgunarsveitinni Ægi. Það hafi þurft að samræma gosvaktirnar við önnur verkefni sveitarinnar. „Það hefur þurft að sýna mikla þolinmæði og mannskapurinn hefur sýnt þrautseigju í að takast á við þessar áskoranir.“

Flugeldasala í Garði 28. desember kl. 14:00 - 22:00 29. desember kl. 10:00 - 22:00 30. desember kl. 10:00 - 22:00 31. desember kl. 10:00 - 16:00

ÞORSTEINSBÚÐ — GERÐAVEGUR 20B


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Ægismenn - Björgunarsveitin Ægir í desember 2024 by Víkurfréttir ehf - Issuu