Þökkum stuðninginn
2
4 Aron Hugi
14 Helga Marín
24 Ólöf Inga
34 Regína
44 Sindri Freyr
54 Sóldís Eva
64 Viktoría Eldey
74 Víðar Justinas
84 Víkingur Óli
3
Aron Hugi Guðmundsson Fæddur á Íslandi. Byrjaði að mynda 14 ára og hef ekki lagt myndavélina frá mér síðan. Mynda mest í svarthvítu og hef gengið með Leica M3 daglega frá 16 ára aldri. Uppáhalds filman mín er Ilford HP5, pushed 2 stopp. Ég mynda allt, en hef sérstakan áhuga á mannlífi, götuljósmyndun og abstrakt verkum. Uppáhalds ljósmyndari er Alec Soth. Ég er eiginlega alltaf vopnaður myndavél og elska lyktina af fixer – gæti drukkið hann ef það væri í boði.
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
Helga Marín Jónatansdóttir Ég ólst upp í Reykjavík og er fædd árið 1993. Byrjaði að hafa áhuga á ljósmyndun þegar ég var 14 ára en þá keyptu foreldrar mínir myndavél. Ljósmyndun hefur verið mitt leiðarljós til að skoða heiminn út frá ólíkum sjónarhornum. Þó ég sé búin að fara í yoganám („Find your inner peace… and your best angles“), þá kæri ég mig líka um að fanga alvöru sögur fólks í heimildaljósmyndun. Einnig er ég mikill dýravinur og hef myndað hundana mína mikið enda eru þeir orðnir miklar dívur.
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
Ólöf Inga Einarsdóttir Ég heiti Ólöf Inga og er 18 ára. Áhugi minn á ljósmyndum blómstraði þegar ég var u.þ.b 12 eða 13 ára þegar pabbi minn leyfði mér að taka myndir á myndavélina hans (myndavélin sem ég er að nota í dag). Ég tók fyrstu flottu myndina þegar ég var 13 ára, í ferð með fjölskyldu minni. Ég setti þá mynd á samfélagsmiðla og síðan þá hef ég verið að taka myndir og pósta sumum á Instagram. Eftir þessa daga í fortíðinni hefur áhuginn minn á ljósmyndun blómstrað í margar áttir og stíllinn minn á hvernig ljósmyndari mig langar að vera hefur orðið skýrari og skýrari.
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
Regína Jóhannesdóttir Fædd árið 1997 og er frá Varmahlíð í Skagafirði. Ég flutti í bæinn til að stunda nám við HÍ, leikskólakennarafræði, og mér datt í hug að slá tvær flugur í einu höggi og fara í ljósmyndanám. Frá því ég var barn hef ég alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun og var þetta því algjört draumanám að komast í. Þetta ár hefur verið mjög skemmtilegt, krefjandi og fjölbreytt. Ég hef lært margt en er samt ennþá að finna út hvar áhuginn liggur þegar kemur að ljósmyndun, því það er svo margt sem hægt er að gera. Akkúrat núna er áhuginn minn mest í studio og viðburðum, einnig hefur áhugi minn á filmumyndavél aukist verulega eftir námið.
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
Sindri Freyr Daníelsson Ég hef mikinn áhuga á listrænni ljósmyndun og finnst gaman að fanga augnablik á einstakan og skapandi hátt. Ég byrjaði að taka myndir fyrir tveimur árum og hef síðan þá þróað með mér sterkan stíl og sjónarhorn sem endurspeglar mínar eigin tilfinningar og sýn á heiminn. Ljósmyndunin hefur orðið stór hluti af lífi mínu og ég elska að tjá mig í gegnum myndir. Ég tek mikið af myndum á filmum. Þeri sem veit mér mestan inblástur sem ljósmyndari og myndlistarmanni eru Rineke Dijkstra, Philippe Halsman, Salvador Dalí, Jerry Ulsmann og René Magritte.
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
Sóldís Eva Baldursdóttir Fædd í Reykjavík árið 2006 en ólst upp bæði þar og á Hólmavík. Ég hef alltaf haft áhuga á ljósmyndun og tekið myndir á símann minn. Ég fékk mína fyrstu myndavél þegar ég var fjórtán ára, þá dýpkaði áhuginn og ég byrjaði að taka ljósmyndun alvarlega. Eftir þessar tvær annir sem ég hef verið í námi á sérsviðinu í ljósmyndun hef ég lært meira en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér en þetta hefur líka verið mjög krefjandi.
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
Viktoría Eldey Grétarsdóttir Viktoría Eldey Grétarsdóttir fædd árið 1998. Ein af átta alsystkinum, ættuð frá Raufarhöfn en búið lengst í Reykjavík. Á dóttur, sem er fædd árið 2017, hún heitir Talía Nótt Steinarsdóttir. Byrjaði snemma aldurs að hafa áhuga á ljósmyndun. Fékk fyrstu vélina í jólagjöf árið 2016 frá kærastanum mínum, Steinari. Þá varð áhuginn ennþá meiri og ég fór að skoða nám í ljósmyndun.
64
65
66
67
68
69
70
71
72
73
Víðar Justinas Jónsson Ég fæddist á Íslandi og hef búið hér í 19 ár. Áhugi minn á ljósmyndun kviknaði þegar ég var í kvikmyndagerðar áfanga í grunnskóla. Ég ákvað að skrá mig í ljósmyndun, því ég sá að það er mikilvæg færni fyrir eiginlega allt kvikmyndatengt. Til að nefna nokkur dæmi; Þetta nám krefst þess að finna sinn stíl, hafa stjórn og töku á ljósum, ná samskiptum með fólki, vinna með öðrum, útbúa hugmyndir, vinna með analogue, og svo framvegis. Í þessu skemmtilega en krefjandi námi er ég búinn að öðlast mikla reynslu sem mun gagnast mér í framtíðarverkefnum mínum. Takk til ótrúlega hæfileikaríkra nemenda og kennara.
74
75
76
77
78
79
80
81
82
83
Víkingur Óli Magnússon Halló! Ég heiti Víkingur og er fæddur 2001. Ég hef alltaf haft áhuga á ljósmyndun og tækifærunum sem verða til með myndavélinni. Eftir starf hjá Ferðafélagi Íslands sem skálavörður á Fjallabaki veturinn 2022 kom ég í bæinn nokkuð áttavilltur. Mig langaði að fara í nám sem ég hefði bæði áhuga á og gæti ímyndað mér að nýta seinna í lífinu. Kunningi minn var kominn hingað að læra ljósmyndun og þegar ég var búinn að skoða námið var ég ekki lengi að skrá mig. Í skólanum hef ég lært meira um ljósmyndun sem fag, hvernig ég get tengt hana við mín áhugamál en einnig hvað mig langar að gera eftir útskrift.
84
85
86
87
88
89
90
91
92
93
94
95
FANGAÐU FRAMTÍÐINA MEÐ CANON
96
Nánari upplýsingar á ofar.is/canon