Skip to main content

Embla - Ívar Daníel Karlsson

Page 1

GRAFÍSK MIÐLUN

HAUST 2021

4. TBL. 10. ÁRG

1


Ræktumokkar okkar skóga Ræktum skóga

Prent-og miðlunargreinar eru skapandi og þróast hratt. Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi. IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.

2

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | www.idan.is | idan@idan.is


Um mig – 5 Hvað er „spunaspil“? – 6 RPG tölvuleikir – 10 Raunspilunarþættir – 12 Jötunn (e. giant)

Mynd: LadyofHats

Leiðari Jæja, þá er maður loksins farinn að sjá fyrir end­ ann á þessu blessaða námi. Það hefur tekið mig þó nokkrar heiðarlegar tilraunir að klára eitthvað nám og svei mér þá ef að þetta er ekki bara loks­ ins að fara ganga upp. Þessi önn er svo sannarlega búin að vera önn. Við mættum í skólann, við unnum í verkefnum og við fengum einkunnir. Hvað meira gæti maður óskað sér þegar maður stundar nám? Þetta ótrúlega æðislega tímarit er eitt af sein­ ustu verkefnunum sem við munum bæði vinna í og fá einkunn fyrir hérna í skólanum. Ég ákvað að fjalla um spunaspil þar sem ég hef áhuga á þeim og finnst gaman að spila þau. Seinustu tvö ár hafa ég og félagar mínir kom­ ið saman tvisvar til þrisvar í mánuði og spilað Dungeons & Dragons og tínt okkur í ævintýra­ heiminum sem ég bjó til handa þeim. Þau hafa upplifað hamingju, sorg, reiði, ótta og von. Þau hafa hitt Guði og barist við djöfla. Þau hafa misst ástvini og fundið ástina. Allt þetta bara með því að rúlla teningum, bregðast við aðstæðum, og viljann til að segja vinum sínum sögu og setja sig í fótspor annara. Spunaspil eru stórkostleg og ég vona með því að búa til svona fallegt og magnað tímarit að ég geti deilt með þér kæri lesandi tveim af mínum ástríðum. Hönnun og spunaspil.

Hvar á ég að byrja? – 14

Umbrot og hönnun Ívar Daníel Karlsson Forsíða Ívar Daníel Karlsson Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír UPM Digi 150 g/m2 UPM Digi 250 g/m2

3


4


Ívar Daníel Karlsson Ég heiti Ívar og er mannvera, einstaklingur, karlmaður, sonur, bróðir, frændi, vinur, og nú einnig grafískur miðlari. Ég var fæddur í Reykjavík 1. mars 1988 og síðan þá hef ég verið á lífi. Ég hef átt heima bæði í Kanada og Bandaríkjunum en hef að mestu átt heima á Íslandi. Ég hef stundað fullt af námi en þetta er það fyrsta sem ég klára fyrir utan grunnskóla. Það tók mig smá tíma að finna nám sem að átti við mig, en líka bara að þroskast nóg til að hafa aga í að klára það. Fyrst fór ég á tölvubraut, svo listabraut, og endaði svo á upplýsinga- og fjölmiðlabraut

sem leiddi mig hingað. Það kom í ljós að ég var og er skítsæmilegur í að vinna í Photoshop, InDesign, og Illustrator. Ég stefni á að klára sveinsprófið í grafískri miðlun og fara svo í Stafræna hönnun (gamla Margmiðlunarskólann) þar sem mig langar að læra meira um þrívíddarvinnslu, tæknibrellur og tölvuleikjagerð. Ég hef einmitt mikinn áhuga á tölvuleikjum og kvikmyndum og hugsa að draumastarfið bíði eftir mér einhvers staðar í návist þeirra.

5


Hvað er „spunaspil“? Þetta er spurning sem margir hafa spurt sig og þá sérstaklega á áttunda og níunda áratugnum þegar að foreldrar héldu að krakkarnir sínir væru djúpt sokkin í djöfladýrkun og nornagaldur. For­ eldrar komu að krökkunum sínum þar sem þau sátu saman við borð með bækur fyrir framan sig myndskreyttar drekum og galdrakörlum og voru að tala um atgeira, djöfla, galdra, endurlífgun og stærðfræði. Þau voru að spila Dungeons & Dragons, eitt fyrsta spunaspilið til að líta dagsins ljós og er það enn spilað í dag og hefur í rauninni aldrei verið vinsælla. Fólk kemur saman annað hvort í persónu en nú einnig á netinu og saman búa þau til og segja sögur um hetjudáðir, missi, ást, hamingju, sorg og allt þess á milli. Spunaspil eru í rauninni bara aðferð til að búa til og segja sögur þar sem að teningar og leikreglur ákveða hversu vel sögupersónum tekst að gera það sem þau taka sér fyrir hendur.

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Grundvallaratriðin

6

Flest spunaspil eiga það sameiginlegt að einn spilaranna tekur að sér að vera „stjórnandi“ eða „leikjameistari“ (í Dungeons & Dragons kallast hann „dýflissumeistari“ eða „DM“) og er hálf­ gerður leikstjóri þegar kemur að sögunni og dómari þegar kemur að reglum leiksins. Hann stjórnar heiminum sem að sagan á sér stað í og öllum aukapersónum sem að aðalsögupersón­ urnar eiga samskipti við, hvort sem það séu vinir eða óvinir. Hinir í hópnum eru svo það sem kallast „spilar­ar“

og taka það að sér að leika og stjórna einni af aðalsögupersónum sögunnar. Allar sögupersónur í spunaspilum hvort sem það séu aðalsögupersónurnar sem að spilararnir leika eða aukasögupersónur, skrímsli og vættir sem að leikjameistarinn spilar eru oftast búnar til með því að skilgreina á einhvern hátt líkam­ lega og vitsmunalega getu þeirra, yfirleitt með einhverskonar tölfræði. Ef við tökum spilið Dungeons & Dragons sem dæmi, þá eru allar persónur með þrjá líkamlega og þrjá vitsmunalega eiginleika (e. ability scor­ es). Þeir líkamlegu eru styrkur (e. strength), fimi (e. dexterity) og hreysti (e. constitution) og þeir vitsmunalegu eru greind (e. intelligence), viska (e. wisdom) og þokki (e. charisma). Öllum þessum eiginleikum eru svo gefin ákveðin „stig“ sem segja til um getu viðkomandi persónu á þessum sviðum. Þannig eru líkamlegir og vitsmunalegir eigin­ leikar persóna og vætta túlkuð á tölfræðilegan hátt sem að hefur svo áhrif á hversu vel þeim gengur að framkvæma það sem spilararnir vilja að þau reyni að gera í sögunni. En þegar kemur að því að framkvæma það sem persónurnar vilja gera þá eru það ekki bara þessir eiginleikar sem að segja til um hvort þeim takist verknaðurinn eða ekki, þeir vissulega hjálpa og velta voginni þeim í hag, en það getur alltaf eitthvað farið úrskeiðis og þar koma teningarnir inn í spilið. „Seinasti spilarinn við borðið“ Í spunaspilum eru teningarnir oft kallaðir „sein­


asti spilarinn við borðið“ og beina oft sögunni í skemmtilega og óvænta átt með handahófs­ kenndri dómhörku sinni. Í Dungeons & Dragons er notast við tuttugu hliða tening (d20) þegar kemur að því að rúlla upp á hvort þér takist að gera eitthvað eða ekki. Þessi gjörsamlega hlutlausi leikmaður hefur loka­ orðið þegar kemur að því að ákveða hvort að sögupersónu tekst að framkvæma það sem það sem þau eru að reyna gera, hvort sem það er að stökkva yfir gjá, sannfæra konung um sakleysi sitt eða koma auga á lykilinn að dýflissunni sem er falinn í bókahillu varðstjórans. Eiginleikarnir sem ég nefndi hér á undan gera líkurnar þínar betri þegar þú rúllar teningnum og bæta tölum við það sem kemur upp á teningnum, en það er alltaf hægt að rúlla illa. Á móti kemur að jafnvel þótt þú sért ekki með þá eiginleika sem gera þig betri í því sem þú ert að taka þér fyrir hendur þá er alltaf hægt að rúlla vel og er fátt meira spennandi en að rúlla 20 á tuttugu hliða tening þegar að líf sögupersóna er í húfi.

Dungeons og Dragons bardagi

Ljósm. Rocco Pier Luigi

OPIÐ HÚS

12.–13. febrúar kl. 9 00–16 00 Helgina 12.–13. febrúar mun STRIK vera með opið hús á Laugavegi 59, 101 Reykjavík. Við hvetjum alla til að koma og kynna sér stefnu okkar og hverju mætti breyta og bæta þegar kemur að því hvernig við hugsum um húsnæði. Einnig munum við vera með kynningu á samstarfi okkar við Reykjavíkurborg. Kaffi og kleinur í boði.

@strikarkitektar @strikarkitektar @strikarkitektar 7

Laugavegur 59 | 101 Reykjavík

555 1337

www.strik.is

strik@strik.is


Undirbúningur Þegar byrjað er að spila koma spilarar og stjórn­ andi sér saman um það í hvaða heimi (eða jafn­ vel hvernig heimi) sagan mun eiga sér stað í. Í boði eru heimar sem eru nú þegar til, bæði í sögu Dungeons & Dragons eða jafnvel úr öðrum sögubókum, kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum. Spilarar gætu þess vegna tekið sig saman og ákveðið að segja sögu sem að á sér stað í heimi J.R.R. Tolkien þar sem þau segja sögu fjögurra einstaklinga sem að eru að takast á við sín eigin vandamál á meðan að annars staðar í heiminum eru Frodo og hans vinir að fara með hringinn eina til Mordor. En einnig getur leikjameistarinn tekið það að sér að búa til algjörlega nýjan heim frá grunni fyrir spilarana til að uppgötva, skapa sögu og spila í. Eftir að heimurinn er ákveðinn þá er komið að því fyrir spilarana að búa sér til sögupersónur. Eftir því hvaða reglukerfi, spil, og heim þau eru að fara segja söguna sína í fylgja spilarar ákveðnum leiðbeiningum sem ákveða líkamlegu og vits­ munalegu eiginleika persónunnar sem ég minntist á áðan. Oft er notast við teninga til þess að gera ferlið handahófskenndara og auka líkurnar á því að persónur séu góðar í sumu en ekki öllu. Þetta gefur hverri sögupersónu mismunandi kosti og galla og eykur líkurnar á því að hver sögupersónu fái tækifæri til að skína í mismunandi aðstæðum. Ef við tökum Dungeons & Dragsons aftur sem dæmi, byrjum við á að ákveða hverslags vera persónan er t.d. mannvera, álfur, orki eða hobb­ iti. Allar hafa þessar verur sína kosti, eiginleika, menningu og tungumál. Eftir að þetta hefur verið ákveðið er komið að því að velja sér „stétt“ (e.

8

class) sem að getur þá verið t.d. galdrakarl/kona (e. wizard), bardagamaður/kona (e. fighter) eða klerkur (e. cleric) og mun þetta segja til um hvaða hæfileika persónan þín hefur hvort sem það eru máttugir galdrar, yfirburðar hæfileikar í að slást með sverði, eða að geta kallað fram mátt Guðanna til að lækna sár eða jafnvel reisa upp hina látnu. Persónuleiki sögupersónunnar er svo fullkom­ lega í höndum spilarans en þau geta nýtt sér þær upplýsingar sem þær hafa nú þegar skráð um persónuna til að fá hugmyndir um hvernig sögupersónan muni haga sér. Spilarar eru með fullkomið frelsi til að túlka sínar sögupersónur eins og þau vilja og reyna að gera allt það sem þeim dettur í hug. Það eina sem heldur aftur að því sem þau taka sér fyrir hendur eru eiginleikar persónurnar sem þau hafa skráð hjá sér þegar þau bjuggu persónuna til og teningakastið. Hvernig vinnur maður? Það er í rauninni engin leið til að vinna eða tapa í spunaspili eða allavega ekki á þann hátt sem að flest okkar eru vön þegar kemur að spilum. Sögupersónurnar geta dáið eða mistekist í því sem þau ætla að taka sér fyrir hendur en hægt er að líta svo á að ef dauði persónunnar eða mistökin gera það að verkum að sagan verður betri og allir eru að skemmta sér þá sé það ákveðinn sigur. Á móti kemur að jafnvel þótt að sögupersónurnar takist það sem þær eru að taka sér fyrir hendur og leysa þraut eða sigrast á óvini en fundu aldrei fyrir hættu eða mótspyrnu þá verður það til að sagan verður ekki jafn áhugaverð og spennandi og mætti líta svo á að það sé ákveðinn ósigur.


Varnarkasts kunnátta

Aðal eiginleiki

Lífs teningar

Brynju og vopna kunnátta

Stétt

Lýsing

Barbari

Grimmur stríðsmaður af frumstæðum uppruna sem getur gengið berserksgang

d12

Styrkur

Styrkur & hreysti

Létt og miðlungs herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar­vopn

Bárði

Hvetjandi töframaður sem endurómar tónlist sköpunar­ innar

d8

Þokki

Fimi & þokki

Létt herklæði, einföld vopn, hand lásbogar, langsverð, skilmingar­sverð, stuttsverð

Klerkur

Prestleg kempa sem beitir guðlegum töfrum í þjónustu æðri máttar

d8

Viska

Viska & þokki

Létt og miðlungs herklæði, skyldir, einföld vopn

Drúíði

Prestur af gömlu trúnni, með krafta náttúrunnar. Tunglsljós og plöntuvöxtur. Eldur og eldingar. Einnig geta þeir breytt sér í dýr

d8

Viska

Greind & viska

Létt og miðlungs herklæði (málmlaus), skyldir (málmlausir), kylfur, rýtingar, pílur, kastspjót, málmkylfur, stafir, scimitar, steinslöngvur, spjót

Bardagamað­ ur/kona

Meistari í bardaga, þjálfaður með margs konar vopn og herklæði

d10

Styrkur & fimi

Styrkur & hreysti

Öll herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar­vopn

Munkur

Meistari í bardagalistum, sem beitir krafti líkamans í leit að líkamlegri og andlegri fullkomnun

d8

Fimi & viska

Styrkur & fimi

Einföld vopn, stuttsverð

Trúvörður

Heilagur kappi bundinn heilögum eið

d10

Styrkur & þokki

Viska & þokki

Öll herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar­vopn

Rekki

Stríðsmaður sem notar bar­ dagahæfileika og náttúrutöfra til að berjast gegn ógnum á jaðri siðmenningar

d10

Fimi & viska

Styrkur & fimi

Létt og miðlungs herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar­vopn

Þrjótur

Skúrkur sem notar laumuspil og brögð til að yfirstíga hindr­ anir og óvini

d8

Fimi

Fimi & greind

Létt herklæði, einföld vopn, hand lásbogar, langsverð, skilm­ ingarsverð, stuttsverð

Seiðkarl/kona

Töframaður/kona sem notar eðlislæga töfra frá gjöf eða blóðlínu

d6

Þokki

Hreysti & þokki

Rýtingar, pílur, steinslöngvur, stafir, léttir lásbogar

Seiðskratti

Töframaður/kona sem mund­ ar galdra sem eru sprottnir af samkomulagi við dulræna veru

d8

Þokki

Viska & þokki

Létt herklæði, einföld vopn

Vitki

Fræðilegur töfranotandi sem er fær um að stjórna strúktúr raunveruleikans

d6

Greind

Greind & viska

Rýtingar, pílur, steinslöngvur, stafir, léttir lásbogar

9


RPG tölvuleikir Áhrif spunaspilanna hafa náð víða og kemur það kannski engum á óvart að leið þeirra lá að einhverju leiti að heimi tölvuleikjanna. Bæði spunaspil/hlutverkaspil og tölvuleikir litu fyrst dagsins ljós í byrjun áttunda áratugarins og það tók tölvuleikjahönnuði ekki langan tíma að sækja innblástur í heim spunaspilanna. Fyrsti hlutverkaleikurinn

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Leikurinn „pedit5“ sem einnig var kallaður „The Dungeon“ (Dýflissan) var búinn til 1975, ári eftir að Dungeons and Dragons kom fyrst út. Þetta er af mörgum talinn einn fyrsti leikurinn til að sækja innblástur frá spunaspilum. Þar stjórnuðu spilarar ævintýramanni sem að ráfaði um dýflissu og sankaði að sér fjársjóði og barðist við skrímsli með bæði vopnum og göldrum. Á þessum tíma voru tölvur það frumstæðar að þær höfðu ekki tök á að skapa þær aðstæður og ævintýraheima sem að ímyndunaraflið gat framkallað við spilaborðið, en þetta bauð upp á það að geta spilað án annara spilara og líkir eftir hinu klassíska „dýflissuskriði“ (e. dungeon crawl) sem var algengt á þeim tíma í spunaspilum. Í því var lögð minni áhersla á að segja einhverja flókna sögu og lifa sig inn í ævintýraheiminn og meiri áhersla á að berjast við skrímsli og sanka að sér fjársjóðum. Í kjölfarið af þessu komu út fleiri og fleiri hlut­ verkatölvuleikir. Þessir leikir tóku ekki bara inn­ blástur frá Dungeons & Dragons en einnig skrifum J.R.R. Tolkien, goðafræði, fornum bókmenntum eins og sögunni af Gilgamesh, og jafnvel skák.

10

Ultima og Wizardry Í byrjun níunda áratugarins komu svo út leikirnir Ultima og Wizardry, sem að byrjuðu að móta grunninn að því sem við í dag köllum RPG tölvuleiki eða hlutverkaleiki. Þar var lögð meiri áhersla á að segja epískar sögur, þú stjórnaðir einni aðal persónu og gast fengið til liðs við þig fleiri persónur og myndað föruneyti og öll kerfi sem að voru notuð til að skilgreina getu og styrk persóna urðu flóknari og nákvæmari með hjálp aukinar reiknigetu tölvunnar. Með tímanum jó­ kst einnig geta tölvunnar í að birta heiminn og persónurnar í betri gæðum.

Ultima 1

Skjáskot: Felipe Pepe

Það var einnig í þessum leikjum þar sem leikja­ hönnuðir byrjuðu að þróa meira hvernig mætti nýta þessa leiki í að segja nýjar og áhugaverðar sögur þar sem að spilarinn hefur bein áhrif á söguna og í rauninni „lifir“ í gegnum þær að­ stæður sem að eiga sér stað í sögunni. Sögurnar í leikjunum byrjuðu að tækla samfélagsvandamál eins og bókstafstrú, rasisma og menningarfælni og klæða þau í ævintýrabúning og létu þig, þá sem spilara, þurfa að horfast í augu við og takast á við þessi vandamál. Tilkoma JRPG leikja

Leikurinn pedit5

Skjáskot: Felipe Pepe

Ultima og Wizardry eru taldir hafa verið einn helsti innblástur fyrir tölvuleikjahönnuði í Japan til að búa til leikina Dragon Quest og Final Fantasy og með komu þeirra á sjónarsviðið varð til hálfgerð tví­ skipting á hlutverkatölvuleikjum sem að þróuðust svo í mismunandi áttir. Þetta varð seinna skilgreint


sem vestrænir- og austrænir hlutverkaleikir eða WRPG og JRPG (e. western role playing game og japanese roleplaying game) Vestrænir hlutverkaleikir lögðu meiri áherslu á að gefa þér meira val í að móta aðalsöguhetjuna þína og láta þig taka ákvarðanir í sögunni sem að móta persónuleikann þeirra og siðferði. Þetta var yfirleitt gert með því að gefa þér tvo eða fleiri valmöguleika í hvað sögupersónan þín segir þegar hún er að tala við aðrar persónur í leiknum. Oft fékkstu einnig tækifæri á að búa til fleiri en eina aðalsögupersónu og gast ákveðið hvaða hæfileika og eiginleika þær voru með og meira að segja ákveðið hvernig þær litu út. Þetta var að sjálfsögðu ekki alheimslögmál og voru að sjálfsögðu leikir inn á milli sem að höfðu tilbúnar sögupersónur sem að þú hafði samskipti við og gast fengið til liðs við þig, en aðalsögupersónan þín var nánast alltaf það sem oft er kallað „autt blað“ (e. blank slate) og fyrir vikið þarf sagan í leiknum oft að vera aðeins opnari og ekki jafn markviss þar sem leikurinn þarf að gera ráð fyrir mörgum mismunandi útgáfum af sömu sögupersónunni. Austrænir hlutverkaleikir aftur á móti lögðu meiri áherslu á að segja markvissari sögu þar sem að aðalsögupersónan sem þú leikur er meira mótuð þegar þú tekur við henni. Hún er yfirleitt með skilgreinda baksögu og þú hefur litla stjórn

um hver persónuleikinn hennar er eða hvernig hún bregst við aðstæðum. Aukasögupersónur sem að slást í för með þér eru einnig töluvert mikilvægari í sögunni og eru oft alveg jafn mikilvægar og aðalsögupersónan sem þú byrjar leikinn með. Þetta gaf hönnuðunum aukna stjórn þegar kom að því hvernig sagan í leiknum er sögð. Það var ekki þar með sagt að þú hafðir engar stórar ákvarðanir til að taka í leikjunum eða val um hvern­ ig persónurnar þínar þróuðust, en þessar ákvarð­ anir höfðu yfirleitt minna að gera með söguna og meira að gera með á hvaða hátt hæfileikar sögupersónunnar þinnar þróuðust og hvernig hún kom til með að vera í spilun.

Final Fantasy 1 á NES

Skjáskot: John Nguyen

Tölvuleikja bæklingar Áður en að tölvuleikir byrjuðu að vera nánast alfarið seldir í rafrænu formi, þá fylgdi nánast undantekningarlaust reglubæklingur með tölvuleiknum. Þar mátti þó finna meira en bara útskýringar á reglum leiksins. Þar vor oft heilmikil baksaga og annar texti sem útskýrði heim og persónur leiksins. Hlutverka tölvuleikir voru mjög gjarnan með mjög þykka og efnismikla bæklinga þar sem mikið var af baksögu, persónum, og flóknum reglum sem þurfti að útskýra. Nú til dags eru leikir orðnir töluvert betri í að flétta útskýringum sínum inn

í leikinn sjálfan og er mjög sjaldgæft að tölvuleikjum fylgi bæklingar.

11


Raunspilunarþættir (e. actual play shows) Raunspilunarþættir eru hlaðvörp eða þættir á netinu þar sem hópur fólks kemur saman og spilar spunaspil öðrum til skemmtunar. Margir telja að þeir eiga rætur sínar að rekja í tímarit sem fjalla um spunaspil og herkænskuborðspil eins og Warhammer og Warhammer 40K. Þar var reglu­ lega að finna það sem er kallað „leikjaskýrsla“ (e. play report) þar sem var sagt frá skemmtilegum atvikum sem gerðust í annað hvort spuna- eða herkænskuspilum á skemmtilegan og oft dramat­ ískan hátt. Það er mjög algengt að fólk sem spilar spuna­ spil eða herkænskuspil finnist fátt skemmtilegra en að deila sögum af uppátækjum sínum við spila­ borðið. Hvort sem að það er fyndið atvik, hetju­ legur dauðdagi eða saga af ótrúlegri heppni eða óheppni þá er oft ómögulegt að fá viðkomandi til að hætta að tala eftir að frásögnin er hafin. En það sem kemur oft á óvart er hversu skemmtilegar þessar sögur geta verið (þ.e.a.s. ef að einstak­ lingurinn sem að segir þær er góður að segja frá þeim) og það að skiptast á sögum frá spilaborðinu er líklega hefð sem er jafn gömul og spilin sjálf. Þetta þróaðist svo út í það með tilkomu hlað­ varpa, youtube og streymiþjónustum eins og twitch að milliliðurinn var í rauninni tekinn í burtu og fólk gat upplifað þessar sögur í rauntíma með því að horfa eða hlusta á fólk spila á netinu.

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Acquisitions Incorporated

12

Talið að fyrsti raunspilunarþátturinn hafi orðið til árið 2008 þegar að framleiðendur Dungeons & Dragons, Wizards of the Coast hófu í sam­ starfi við internet teiknimyndasögu framleið­ endurna í Penny Arcade, hlaðvarpið Acquisitions Incorporated. Upprunalega áttu þetta bara að vera nokkrir þættir þar sem vefteiknimyndasögu framleiðendurnir þeir Jerry Holkins, Mike Krahulik og Scott Kurtz spiluðu nokkur stutt ævintýri í fjórðu útgáfu Dungeons & Dragons undir leiðsögn Chris Perkins. Fjórða útgáfa Dungeons & Dragons var nýkomin í hillurnar og átti þetta að vera kynning­ arefni fyrir spilið og gátu þá hlustendur fengið að

heyra hvernig nýja útgáfan var í spilun. Hlaðvarpið fékk aftur á móti ótrúlega góðar viðtökur og árið 2010 byrjuðu spilararnir að streyma spilið á árlegu PAX hátíðinni. Acquisitions Incorporated hefur síðan þá fært anga sína yfir á twitch og youtube og eru þættirnir ennþá í gangi meira en 10 árum síðar. Critical Role Í kjölfarið af velgengni Acquisitions Incorporated hófu fleiri að framleiða raunspilunarþætti á netinu og eru þættirnir Critical Role líklega þeir vin­­sælustu. Í þáttunum koma saman atvinnu raddleikarar og spila Dungeons & Dragons und­ ir leiðsögn raddleikaranns og spunameistarans Matt Mercer. Þó svo að Acquisitions Incorporated væru fyrstir á svið þá má segja að þeir hafi bara verið að hita upp fyrir Critical Role. Þættirnir hafa notið ótrúlegra vinsælda og hefur þeim verið lýst af vefsíðunni VentureBeat sem ábyrgir fyrir því að gera raunspilunarþætti að „nýrri tegund af afþreyingarefni“. Critical Role hafa líka annað slagið verið með sér þætti sem þau kalla „CelebriD&D“ þar sem þau fá til sín fræga leikara til að spila með sér Dungeons & Dragons. Gestir í þáttinn hafa t.d. verið leikararnir Vin Diesel, Terry Crews og John Bradley. Árið 2019 hófu þau svo fjáröflun á síðunni Kickstarter til að reyna fjármagna gerð á teikni­ myndaseríu byggða á Critical Role þáttunum. Þættirnir áttu að heita The Legend of Vox Machina og mundu vera forsaga atburðanna og sögunnar í Critical Role. Fjáröflunin gekk ótrúlega vel og tókst þeim að afla 11,39 milljón Bandaríkjadala og setti met fyrir mestu fjármögnun fyrir kvikmynda- eða sjónvarpsefni í sögu vefsíðunnar. Dimension 20 Nýleg viðbót við heim raunspilunarþátta eru þættirnir Dimension 20 þar sem að hópur spuna­ grínista koma saman að spila D&D með kómísku ívafi. Þættirnir eru sprottnir út frá grínrásinni Col­ lege Humor á youtube og er flestum þáttunum


stjórnað af meðlimi College Humor, honum Brennan Lee Mulligan. Þættirnir eru gefnir út í 4–18 þátta seríum og segja sögur sem eru yfirleitt einhverskonar flétta á þekktum ævintýra stílbrigð­ um. Ein serían gerist t.d. í heimi sem er hálfgerð blanda af ævintýraheim fullum af göldrum, álfum, djöflum og drekum í bland við bandarískar háskóla táningsbíómyndir frá níunda áratugnum eins og t.d. The Breakfast Club. Þar eru álfar, mannverur, orkar og dvergar saman í ævintýraháskóla þar sem þau læra að verða hetjur en á sama tíma þurfa að hafa áhyggjur af í hverju þau ætla að vera á skólaballinu. Þættirnir hafa fengið góðar viðtökur og hafa fengið mikið lof fyrir að vera með góða túlkun og framsetningu á LGBTQ persónum og spilurum og hafa bætt viðhorf og viðmót til LGBTQ fólks innan spunaspilunar menningarinnar. Spunaspil, líkt og tölvuleikir voru því miður lengi vel séð sem hálf­ gerður „strákaklúbbur“ þar sem fordómar gegn kvenfólki og hinsegin fólki viðgekkst allt of lengi en þættir eins og t.d. Dimension 20 hafa átt stóran þátt í því að breyta þessu viðhorfi til hins betra.

VIÐ „BJÚGUM“ Í SAMFÉLAGI! Ráðstefna um fjárhags– og efnahagslegt jafnrétti Í Hörpunni 1.–2. desember

Skannaðu og skráðu þig! Glotthundar (e. gnolls)

Mynd: LadyofHats

13


Hvar á ég að byrja? Þetta er því miður sorglega algeng spurning frá þeim sem eru forvitnir um áhugamálið eða langar að prufa að spila. Oft vex fólki það í augum hversu erfitt það er að byrja að spila spunaspil. Það e.t.v. að reglurnar séu of flóknar eða það þurfi að þekkja einhvern sem hefur spilað áður og vera leiddur inn í áhugamálið. En sannleikurinn er sá að það hefur aldrei verið auðveldara að byrja spila spunaspil en núna. Bæði út af því hversu aðgengileg mörg spilin og kerfin eru orðin en líka með tilkomu internetsins og samfélagsmiðla. Hér eru nokkur góð ráð um hvert þú getur snúið þér ef þú vilt byrja að spila. Roleplayers á Íslandi

Hlutkesti Hlutkesti eru samtök spunaspilara á Íslandi sem skipuleggja og halda oft spilamót og aðra viðburði tengdum spunaspilum. Hlutkesti er einnig með facebook hóp og discord rás þar sem að meðlimir geta spjallað og skipulagt spilahópa eða spilakvöld.

Það er vissulega upphafskostnaður þegar þessi leið er farinn en þetta er líklega auðveldasta og áreiðanlegasta leiðin til að byrja að spila spunaspil. Þó að reglubækurnar séu vissulega stórar og ógnvekjandi þá er alls ekki gert ráð fyrir því að þú lærir þær utanbókar. Það að gera sér grein fyrir grunn reglunum í grófum dráttum og það að vera með reglubókina við hendina á meðan þú lærir restina á meðan þú spilar er mjög algeng leið til að læra reglurnar í spunaspilum. Horfa eða hlusta á raunspilunarþætti Það að horfa eða hlusta á raunspilunarþætti eða hlaðvörp eins og Dimension 20 eða Critical Role er frábær leið til að læra reglurnar í spunaspilum og að sjá hvernig spilun fer fram undir góðum kringumstæðum. Þetta er bæði góð leið til að læra og einnig skemmtilegt afþreyingarefni. Mikið af reglunum í spilinu eru útskýrðar þegar þær koma first við sögu og spilarar spyrja oft um frekari skýringar á leikreglum frá leikjameistaranum. Einnig eru sumir raunspilunarþættir með auka efni þar sem að spunameistarinn svarar spurningum, gefur góð ráð, og útskýrir reglur.

Dreki

Mynd: LadyofHats

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Facebook hópurinn „Roleplayers á Íslandi“ er frábær staður til að bæði kynna sér áhugamálið, spyrja spurningar og jafnvel finna sér hóp til að spila með. Þar eru einnig oft settar inn fréttir og viðburðir tengdum hlutverkaspilum á Íslandi.

Kauptu bækurnar og byrjaðu að spila

14


Sögulega góð prentsmiðja

1967 Litlaprent stofnað Prentsmiðjuna Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett var í sumarbústað á Digraneshæð.

1974 Nýtt húsnæði Árið 1974 fluttist prentsmiðjan að Auðbrekku 48 og keypt var m.a. ein af fyrstu offsetprentvélum á Íslandi.

1999 Litlaprent flytur á Skemmuveg 4

FORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR FORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR FORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR FORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR

Sumarið 1999 var ráðist í að kaupa 700 fm húsnæði undir prentsmiðjuna að Skemmuvegi 4 og fluttist prentsmiðjan þangað um haustið.

SVANS VOTTUN

2000 Nýjar vélar Á árunum 2000–2007 bættust við fjölmargar nýjar vélar m.a. tvær fjöllita prentvélar, fullkominn forvinnslubúnaður, brotvélar, skurðarlína, hefti- og fræsilína, svo eitthvað sé nefnt.

2012 Litlaprent kaupir Miðaprent Árið 2012 er keyptur helmingshlutur í Miðaprent ehf. sem sérhæfir sig í að framleiða m.a. vörulímmiða á rúllum fyrir matvælaiðnaðinn.

Sími 540 1800 | FAX: 540 1801 | Opið virka daga: 8:00–16.00 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is


GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

Góðir félagar Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig. 16

www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Ívar Daníel Karlsson by Tækniskólinn - Issuu