ÆSKAN OG SKÓG URINN Leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga Jón Jósep Jóhannesson og Snorri Sigurðsson tóku saman
ÆSKAN OG SKÓGURINN Leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga
Jón Jósep Jóhannesson og Snorri Sigurðsson tóku saman
ÆSKAN OG SKÓGURINN Leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga
Æskan og skógurinn Leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga ©Jón Jósep Jóhannesson og Snorri Sigurðsson tóku saman. Gert eftir útgáfu Samstarfsnefndar um ár trésins 1980, lítilsháttar breytt Útgefandi: Mál og menning 2020 Öll réttindi áskilin. Hönnun kápu: Íris Irma Ernisdóttir Umbrot: Íris Irma Ernisdóttir Prentvinnsla: Upplýsingatækniskólinn Ljósmyndir: Hildur Guðmundsdóttir og úr safni Tækniskólans Bók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar eða útgefanda. ISBN 9788-7418-5774-9
EFNISYFIRLIT Inngangur
7
Nám í skólagarði 15 Starfað að skógrækt 22 Jarðvegur og gróska 35 Girðingar 45 Skógrækt 47 Óvinir skógarins 51 Þetta land átt þú 53 Örnefnaskrá 58 Plöntuskrá 59
6
Reyniviður.
INNGANGUR
Þetta er sagan af skóginum á Íslandi, að vísu aðeins örfáar svipmyndir af samskiptum þjóðar, lands og skóga. Þessi saga er að því l eyti ólík öðrum sögum að sögulok eru jafnlangt undan þegar bókinni lýkur og er hún hefst. En þ etta er bókin ykkar, h inna ungu Íslendinga. Það eruð þið sem haldið sögunni áfram og síðan taka aðrir við af ykkur og enn aðrir af þeim. Í fáum orðum sagt. Við viljum færa Íslandi aftur þá skóga sem það átti einu sinni, f jölga trjátegundum þess og búa öðrum gróðri yl og næði í s kjóli þeirra. Mikið verkefni bíður okkar. Til þess að geta leyst það af hendi þurfum við að læra margt. Lærdóm og þekkingu getum við sótt til þeirra sem fróðari eru, hlýtt á mál þeirra sótt námskeið og s kóla. En við getum líka sótt þekkingu í okkar eigin bók. Ísland er með y ngstu löndum jarðar og bera jarðmynd anir landsins glögg merki þess. Þau öfl sem sköpuðu landið eru enn að v erki, enda er Ísland eitt af mestu eldfjallalöndum heims. Kunnar eru að minnsta kosti þrjátíu til fjörtíu eldstöðvar sem gosið hafa hundrað og fimmtíu sinnum frá landnámsöld. Landið hefur að langmestu leyti hlaðist upp af tvenns konar bergtegundum, blágrýti og móbergi. Mótun þeirra er ólík enda breytist landslagið þar sem bergmyndanirnar mætast. 7
Blágrýtisfjöllin eru regluleg að lögun, hlaðin upp úr hraunlögum en móbergsfjöllin eru úr lausum, ösku kenndum gosefnum sem hlaðist hafa upp undir jöklum og orðið síðan að f östu bergi. Blágrýtissvæðin eru tvö, annað austanlands frá Breiðamerkursandi til Þistilfjarðar en hitt vestanlands frá Bárðardal til Kollafjarðar. Á milli blágrýtisspildn anna er lægð sem fyllst hefur yngri gosmyndunum, einkum grágrýti og móbergi. Á þessu svæði eru enn flestar hinna virku eldstöðva. Auk þ essa eru líparít myndanir á víð og d reif um landið. Fyrir um tíu þúsund árum eða í lok síðustu ísaldar hafði landslag á Íslandi fengið að mestu þann svip sem það ber nú. Þó hafa margs konar breytingar átt sér stað síðan af völdum eldgosa, vatns og vinda. Myndun landsins lýkur raunar aldrei. Eldgos hlaða upp land ið en jöklar og ár brjóta það niður og úthafið sverfur strendur þess. Gróður landsins var harla fáskrúðugur þegar ísöld lauk. Harðgerðar tegundir t.d. birki, víðir og ýmsar jurtir lifðu af fimbulvetur ísaldanna. Seinna barst til landsins fjöldi tegunda frá öðrum löndum. Fyrst breiddust fáar, nægjusamar plöntur út um auðnina, svo sem grastegundir og nokkrar lágvaxnar blómplöntur ásamt b irki og viði. Þetta er unnt að sjá enn í dag þar sem jöklar eyðast. Gróðurinn hafði næg an tíma til að breiðast um landið eftir því sem jöklanir hopuðu og loftslag hlýnaði. Hér voru engar skepnur til að g randa honum í tíu þúsund ár, uns mannabyggð kom til sögunnar. Gróðurinn skipaði sér í gróðurhverfi eftir því hvern ig lífsskilyrði voru. Háfjallagróðurinn tók sér bólfestu við efstu gróðurmörkin sem neðar tóku önnur gróð urhverfi við. Þar sem vatn stóð uppi og deiglent var settist votlendisgróður að, í vötnum og tjörnum hafðist 8
vatnagróðurinn við, en birkið lagði smám saman undir sig mestallt gróðurlendið og í skjóli skóganna dafnaði hinn fegursti blómjurtagróður. Birkið teygði sig einnig upp fjallshlíðarnar allt upp í fjögur til fimm hundruð metra hæð yfir sjó. Þannig leit Ísland út, þegar fyrstu landnemarnir komu hingað.
Frá landnámsöld og fram á m iðja fjórtándu öld lifðu Íslendingar aðallega á búskap og hlunnindum landsins. En hvað var það sem gerði vaxandi þjóð kleift að lifa nær eingöngu á landbúnaði í meir en fjórar aldir? Það var umfram allt víðáttumikið gróðurlendi, ekki hvað síst birkiskógarnir. Úr birkiskógunum fengu menn eldivið og viðarkol og efnivið í alls konar húsgögn og amboð. Á f yrstu öldum Íslands byggðar var járn unnið úr mýrarrauða. Var sú járnvinnsla nefnd rauðablástur, þurfti til hennar mikið magn viðarkola. Einnig þurfti viðarkol til hvers konar járnsmíða og til að d engja gömlu, íslensku ljáina. En birkiskógurinn v eitti fyrst og fremst öðrum gróðri skjól og verndaði landið gegn uppblæstri. Hann mildaði veðráttuna, skýldi búfé í illviðrum og gerði kvikfjárrækt arðbærari. Hann var líka oft þrautalend ingin í harðindum er heyskortur svarf að en þá var lim höggvið til fóðurs fyrir búfé. Þá var kornrækt miklu árvissari í skjóli skóganna. Á fjórtándu öld dundu yfir þjóðina stórfelldar nátt úruhamfarir. Heil byggðarlög eyddust af völdum eld gosa og jökulhlaupa t.d. í Skaftafellssýslum. Þessum hörmungum fylgdu síðan drepsóttir og hungurdauði. Um miðja öldina fóru atvinnuhættir þjóðarinnar að breytast. Landbúnaði hnignaði þá ört, því að gróður 9
lendi var tekið að minnka mjög. Þjóðinni hafði fækkað, verkkunnáttu hrakaði og búskapur orðið einhæfari, kornyrkja t.d. lagst að m estu leyti niður. Íslensku landnemunum og afkomendum þeirra hefur eflaust þótt vænt um landið engu síður en okk ur. En þá s korti r eynslu og þekkingu til að nytja það skynsamlega og þetta kom harðast niður á skógunum. Þeir voru höggnir gegndarlaust þegar á f yrstu öldum Íslands byggðar. Þjóðin átti fárra kosta völ til þess að halda lífi frá ári til árs, frá öld til aldar. Hún átti þann kost einan að draga fram líf sitt á þeim náttúrugæð um, sem landið lagði í hendur henni. Þ etta gerði hún. Auðlindir landsins nýtti hún sér til bjargar og lét hverjum degi nægja sína þjáningu. Hún spurði ekki, hvernig sú lind yrði á morgun sem þurrausin var í dag og gekk svo n ærri uppsprettunni s jálfri að hún varð aldrei söm eftir. Fáir hafa lýst þessu betur en Stephan G. Steph ansson: Í þúsund ár hrísið og heyið úr haganum reiddu menn inn. Og naktara og nærskafnar flegið gat næstsetumaður en hinn.
Íslendingar gerðu sér ekki grein fyrir afleiðingum fyrr en í óefni var komið. Víða í fornritum okkar er minnst á skógana sem verið hafa í landinu þegar ritin voru samin. Ari f róði segir að landið hafi verið viði vaxið m illi fjalls og fjöru er það byggðist. Þessi frásögn er stórmerk því að hún er skráð af höfundi sem fáir véfengja. Í Landnámu er víða getið um skóga. Við flettum upp í bókinni, finnum eftirfarandi kafla og lesum þar þessa sérstæðu og skemmtilegu frásögn: „Þórir dúfunef var leysingi Öxna-Þóris; hann kom skipi sínu í Gönguskarðsós; þá var byggt hérað allt fyrir 10
vestan; hann fór norður yfir Jökulsá að Landbroti og nam land á milli Glóðafeykis og Djúpár og bjó á Flugu mýri. Í þann tíma kom út skip í Kolbeinsárósi, hlaðið kvikfé en þeim hvarf í Brimnesskógum unghryssi eitt en Þórir dúfunef keypti vonina og fann síðan. Það var allra hrossa skjótast og var kölluð Fluga.“ Í byrjun átjándu aldar lýsa Árni Magnússon prófess or og Páll Vídalín lögmaður Brimnesi þannig: „Rifhrís er hér nokkuð til eldingar.“ Í dag er land þetta skóglaust með öllu. Fátækt, einokun og versnandi stjórnarfar á Íslandi gerði þjóðinni æ erfiðara að b yggja landið, og loks var svo komið um aldamótin 1700 að stjórnvöldin sáu að eitthvað varð að gera til þess að þjóðin yrði ekki aldauða.
Hestaferð
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
11
Friðrik konungur fjórði skipaði því Árna Magnússon og Pál Vídalín til þess að rannsaka hag lands og þjóðar og gera tillögur til umbóta. Bjarni Pálsson, síðar land læknir og Eggert Ólafsson ferðuðust einnig um landið laust eftir m iðja öldina í sama s kyni. Eggert samdi rit um ferðir þeirra félaga þar sem mikinn fróðleik er að finna um skógana á Íslandi. Vegur Skúla Magnússonar landfógeta var þá mestur og eitt af umbótaáformum hans var að s tofna til skóg ræktar í landinu. En þær tilraunir mistókust. Nítjánda öldin hófst með Norðurálfuófriðnum mikla sem h afði örlagarík áhrif hér sem annars staðar. Skóg ræktarhugsjónin lá í gleymsku um sinn. En ekki var langt um liðið á öldina er ýmsir áhrifamenn fóru að rita um skógrækt. Þeir bentu á þær afleiðingar sem eyðing skóganna hefði haft í för með sér. Nú væri svo komið að síðustu skógarleifunum væri stefnt í beinan voða. Þess vegna yrði að gera eitthvað til að b jarga þeim frá tortímingu. Ekkert varð þó úr framkvæmdum fyrr en í lok aldarinnar.
Aldamótunum 1900 var fagnað um gervallt Ísland. Skáldin ortu hvatningarljóð til þjóðarinnar. Vonir um batnandi hag mótuðu kynslóðina sem þá tók til starfa og með henni hefst framfaraskeið í öllum greinum þjóðlífsins. Nokkrir einstaklingar höfðu ræktað tré í görðum sínum, náð góðum árangri og sýnt að gróð urskilyrði leyfðu ræktun trjáa. Árið 1899 hófu danskir áhugamenn tilraunir með ræktun barrtrjáa á nokkrum stöðum og héldu þeim til raunum áfram fyrstu sjö ár aldarinnar. Nokkru seinna var Ræktunarfélag Norðurlands stofnað en það hafði mikið áhrif, einkum norðanlands. Ungmennafélög 12
voru stofnuð um líkt leyti víða um land og tóku m.a. skógrækt á stefnuskrá sína. Árið 1907 voru sett á al þingi lög um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands fyrir forgöngu Hannesar Hafsteins. Landssjóður tók kostnað af skógræktinni á sínar herðar. Skógræktar stjóri var skipaður yfir allt landið en skógarvörður yfir hvern landsfjórðung. Tilraunum með ræktun barrtrjáa var haldið áfram til ársins 1913 en þá var þeim hætt og þráðurinn ekki tekinn upp aftur fyrr en eftir 1930. Starfssvið Skóg ræktar ríkisins verður nú tvíþætt: annars vegar friðun skógarleifa eins og fyrr, hins vegar fræsöfnun og upp eldi trjáplantna frá þeim stöðum á hnettinum þar sem loftslag er líkt og á Íslandi. Hér v erða því tímamót í sögu íslenskra skógræktarmála. Loks skal þess getið að Skógræktarfélag Íslands var stofnað á Alþingishátíðinni 1930 og þjóðin minntist lýðveldis á Íslandi 1944 með stofnun Landgræðslu sjóðs. Brautin er þó aðeins mörkuð en verkefnin bíða okkar. Þetta var árangurinn af hugsjónum íslenskra alda mótamanna sem skáldið Hannes Hafstein lýsir í þ essu erindi: Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa, sveitirnar fyllast, akrar hylja móa, brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, menningin vex í lundi nýrra skóga.
13
14
Blæösp.
NÁM Í SKÓLAGARÐI Við köllum fram ímyndunaraflið og hugsum okkur að við séum stödd í skólagarði, þar sem við eigum að dveljast um tíma við nám og starf. Þessi skólagarður er á margan hátt öðruvísi en þeir sem íslensk æska hefur kynnst hingað til. Við sjáum mismuninn þegar lengra er lesið. Umhverfið er hlýlegt. Skjólbelti úr víði, greni og birki h lífa hinum smágerða gróðri sem við erum að rækta. Hér sjáum við nokkrar trjátegundir í uppvexti en auk þess runna, blóm, kálplöntur og rótarávextir og er öllu þessu snyrtilega fyrir komið. Jafnframt vinn unni er okkur kennt hið nauðsynlegasia til þess að geta skilið ræktunina og farið rétt að öllu. Við byrjum á því að læra ofurlítið um líf trjánna í skólagarðinum en seinna höldum við náminu áfram í Hallormstaðaskógi.
Gerð trjánna Allar plöntur eru gerðar úr frumum. Utan um þær eru frumuveggir og innan þ eirra er frymið en innst er frumukjarninn. Í frymi g rænu plantnanna er blaðgrænan. Hún er mest ofan til í blaðholdinu og í henni fara fram mikil vægustu efnabreytingar plöntunnar. Í hverju tré eru margs konar frumur sem skipa sér saman og mynda vefi þess. Þar ríkir því verkaskipting eins og á sér stað í mannlegu samfélagi. 15
Býfluga
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
Börkurinn eða barkarvefirnir verja tréð gegn hnjaski og varna útgufun. Fyrir innan börkinn liggja sáldæð arnar sem eru myndaðar úr lifandi frumum. Eftir þeim berst næring sú sem grænu kornin v inna úr loftinu. Viðaræðarnar eru aftur á móti gerðar úr dauðum frum um sem eru vel tengdar saman og gefa trénu styrk og sveigjuþol. Innan undir sáldæðunum er vaxtarlagið sem er ein göngu lifandi frumur. Við kynnumst starfi þess síðar. Þar fyrir innan er svo viðarvefurinn sem er myndaður af dauðum viðaræðum og viðarfrumum. Innst er loks trjámergurinn.
Kolsýrunám Trén eru lifandi verur eins og menn og dýr og þurfa þess vegna fæðu. Næringarefnin taka þau til sín úr jarðveginum og loftinu. Á blöðum og barri trjánna eru smáaugu sem and rúmsloftið smýgur inn um. En í loftinu er lítið eitt af koltvísýringi sem er samsettur af tveim frumefnum, kolefni og súrefni. Trén taka til sín koltvísýring úr loftinu en grænukornin vinna kolefnasambönd úr kol tvísýringnum og vatni, svo sem sykur, mjölvi, tréni, olíur og fleiri lífræn efni. 16
Þessi mikilvæga starfsemi getur aðeins farið fram í nægilegri birtu og hita. Allt líf á jörðunni á landi og í sjó á rætur sínar að rekja til þessara efnabreytinga og eru því plönturnar undirstaða lífsins á hnetti okkar.
Öndun Kolsýrunámið fer aðeins fram í hinum grænu hlutum plöntunnar í birtu og hita eins og fyrr greinir, en all ir hlutar hennar anda jafnt á degi sem á nóttu, bæði rætur, stöngull og blöð. Trén anda að sér súrefni sem sameinast kolefna samböndum en á þennan hátt losnar orka sem þau nota til efnabreytingar og vaxtar. Öndunin er því andstæð við kolsýrunámið. Öndun: Súrefnið, sem plantan andar að sér, samein ast kolefnasamböndum hennar. Við það losnar orka, vatn og koltvísýringur. Plantan léttist. Kolsýrunám: Úr kolefni og v etni myndar plantan lífræn efni, en súrefnið hverfur út í andrúmsloftið. Plantan þyngist.
Öflun vatns og útgufun Vatn er trjánum lífsnauðsynlegt við fæðuöflunina. Þau afla þess úr jarðveginum með rótunum og með því berast næringarefnin til hinna ýmsu hluta trésins. Eins er útgufun vatns frá trjánum nauðsynleg, því að hún örvar vökvastrauminn og þar með flutning næringar um tréð. Útgufunin er mest frá laufi og barri trjánna og hún verður því örari sem heitara er í veðri. Einnig örva vindar útgufunina að mun. 17
Venjulegast geta trén bætt sér allt það vatn sem frá þeim fer við útgufunina. En sé hörgull á vatni í jarð veginum t.d. sakir langvarandi hita og þurranæðinga, þá er hætta á því að tréð geti ekki bætt sér missinn. Blöð þess linast og jafnvel visna og svo getur farið, að tréð deyi.
Öflun fæðu úr jarðvegi Jurtanæringarefnin leysast upp í vatni jarðvegsins og berast gegnum ræturnar og upp eftir viðaræðunum. Næringarefnin sem trén taka til sín úr jarðveginum eru aðallega köfnunarefni, fosfór og kalí. Af öðrum næringarefnum má nefna kalk, magníum, brennistein, járn og bór.
Vatn
18
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
Fyrrgreind efni h verfa aftur til jarðar þegar grös s ölna eða tré f alla og fúna. Öðru máli gegnir þegar land er slegið eða b eitt, tré felld og flutt brott úr skógunum. Þá fer jarðveginn að s korta sum þessara efna, einkum köfnunarefni, fosfór og kalí. En unnt er þá að bæta úr næringarskorti með áburði. Plönturnar verða veikbyggðar og hætta að vaxa, ef jarðveginn vantar steinefni eða köfnunarefni. Þess vegna er oft nauðsynlegt að gefa ungum trjám og runn um áburðarskammt en gæta verður þess að hafa hann ekki stóran. Of mikil áburðargjöf hefur skaðleg áhrif og getur grandað smáplöntum. Eitt hið vandasamasta við alla ræktun er því að skera úr um áburðarþörfina. Köfnunarefni eykur vöxt blaða og sprota. Fosfór og kalí örva rótarvöxt og flýta fyrir blómgun og aldinþroska. Tré, sem fá næga næringu, v erja h enni ekki ein göngu til vaxtar, heldur safna þau líka forðanæringu. Í sólríkum sumrum safnast mikil forðanæring í trjánum til næsta árs. Vöxtur þeirra fer því mjög eftir veðráttu undanfarins sumars.
Vöxtur trjánna Á hverju ári bætist við hæð t rjánna. Þetta sést best á furu og greni, því að krans af greinum vex út úr stofnin um þar sem ársvöxturinn byrjar. Þess vegna er auðvelt að geta sér til um aldur ungra trjáa með því að telja greinakransana. En á gömlum trjám eru neðstu greinarnar fallnar brott svo að þessi aldursákvörðun er ekki einhlít. Því er ó kleift að s egja til umaldur gamalla t rjáa fyrr en þau hafa verið felld en þá má telja árhringana. Ljósir og dökkir hringar skiptast á í viðnum eins og sjá má þegar tré hafa verið felld. Þetta kemur af því að frumuskiptingin í vaxtarlaginu er mjög ör á vorin 19
og viðurinn þá laus í sér og mjúkur. En er líða tekur á sumar verður frumuskiptingin hægari og dekkri. Öll tré sem eru af tvíkímblaðaflokknum svo og barrtré, gildna með þvi að bæta við sig nýju vaxtarlagi ár hvert. Á veturna er hvíldartími trjánna. Gott er að k unna skil á v exti p lantna en við verðum einnig að muna að þær eiga sitt ákveðna æviskeið. Grænu plöntunun er skipt í þrjá flokka eftir lífsskeiði þeirra: einærar, tvíærar og fjölærar plöntur. Einærar jurtir s pretta upp af fræi að vori, blómgast, fella fræ og deyja að hausti. Til þessara jurta teljast mörg fegurstu sumarblómin sem ræktuð eru í görðum. Tvíærar jurtir safna forðanæringu fyrra sumarið en hið síðara blómgast þau, bera fræ og deyja að því loknu. Margar nytjajurtir teljast til þessa flokks, t.d. gulrófan og gulrótin. Fjölærar plöntur eru þannig úr garði gerðar að þær geta lifað langa ævi og eru trén langlífust en þau geta lifað áratugum eða jafnvel öldum saman. Broddfuran sem margir kannast við hér á l andi, get ur þannig orðið allt að fjögur þúsund ára gömul. Hins vegar verður t.d. íslenska birkið aðeins um hundrað til eitt hundrað og fimmtíu ára gamalt. Í skógunum þurfa að vaxa samtímis smáplöntur, ungur skógur, frætré og fullvaxinn skógur í hæfilegum hlutföllum. Ef ungu trjáplönturnar ná ekki að þroskast, eyðast skógarnir smátt og smátt.
20
21
Alaskaösp.
STARFAÐ AÐ SKÓGRÆKT Í skólagarðinum skiptist á vinna og fræðsla jöfnum höndum allt sumarið. Komið er fram í ágúst. Reitir okkar eru vel hirtir. Skjólbelti hafa verið klippt, grasfletir slegnir í síðasta sinn og kantar skornir. Á morgun hefst nýr þáttur í náminu. Við eigum að fara í gróðursetningarferð til Austurlands, í Hallormsstaðaskóg en þangað er ferð inni heitið v egna þess að þar er skógrækt á Íslandi lengst á veg komin.
Í Hallormsstaðaskógi Hallormsstaðaskógur er við Lagarfljót sunnanvert. Landslag er þar hæðótt og víða nokkuð brattlent. Fjöll in suðaustur af Hallormsstað rísa allt að sex hundruð metra yfir sjávarmál og setja þau allmikinn svip á landslagið einkum Hallormsstaðaskóg. Lögurinn, eða Lagarfljót öðru nafni, sígur þarna fram á leið til sjávar. Til að sjá er vatnsfallið líkara firði eða stöðuvatni en venjulegu fljóti. Ískalt jökul vatnið er gulgrænt á litinn og víða er það hyldjúpt. Svo lygn er þ essi m ikla móða á kyrrum sumardögum og svo mjúkar eru boglínur hennar í víkum og vogum að landslagið allt fær mildan blæ og ljúfan. Á bökkum þessarar miklu jökulelfar og upp frá þeim hefur vaxið frægasti og mesti skógur á Íslandi. 22
Grös, blóm,jurtir og lynggróður einkenna jurta gróður Hallormsstaðaskógar eins og annarra íslenskra birkiskóga. Gras- og blómlendi eru þar sem jarðvegur er frjór og rakur og virðist jarðrakinn hafa m eiri áhrif á gróðurfarið en hæð yfir sjó. Allt frá 1905 hefur Hallormsstaðaskógur notið meiri eða minni friðunar. Innan skógræktargirðingarinnar eru sex hundruð og tuttugu hektarar lands, sem að mestu leyti er skóglendi. Nú erum við stödd í Hallormsstaðaskógi. Við kynn umst hér nýjum heimi og erum þó á Íslandi.Fyrsta daginn fáum við að vita hitt og þetta um fræ og með ferð þess.
Fræ Öll skógrækt hér á landi er undir því komin að afla fræs af trjám sem vaxið hafa við svipaða veðráttu og ríkir á Íslandi. Það er brýn nauðsyn að k unna skil á fræi t rjánna og meðferð þess það eð á því veltur allt um framtíð skóganna. Fræið þarf hæfilegt raka- og hitastig til þess að spíra. Um spírunartímann verður því að hafa vakandi auga á sáðbeðunum. Einnig sækja fuglar mjög í allt fræ en
Hestaferð
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
23
frost og sjúkdómar s pilla því oft. Það er því vandasamt starf að sá trjáfræi og annast smáplöntur. Lauftré eru dulfrævingar. Þau blómgast og bera fræ í flestum árum en oft líða nokkur ár milli fræára barrtrjánna. Ef fræið á að ná góðum þroska, verður meðalhiti mánaðanna júní–september að vera allt að tíu stig á Celsíus. Þess vegna ræður sumarhitinn mestu um útbreiðslu trjánna á norðurhveli jarðar og hversu hátt þau vaxa til fjalla. Reklatré. Flest algengustu lauftrén sem vaxa í norð anverðri Evrópu teljast til reklatrjáa. Svo eru þau nefnd af því að blómin standa í reklum sem er þéttstæð, ein kynja blómskipun. Til reklatrjánna teljast m.a. birki, víðir og ösp. Barrtré eru berfrævingar. Fræblöð þeirra standa þétt saman og mynda k öngla. Fræin l iggja á milli fræ blaðanna. Kvenblóm barrtrjánna oftast m inni en karl blómin og standa tvö eða þrjú saman á greinarenda en karlblómin standa í klasa umhverfis neðsta hluta sprotans. Kvenblómin mynda könglana. Til barrtrjánna teljast meðal annars fura, g reni og lerki.
Gróðrarstöðin Nú vinnum við um sinn í gróðrarstöðinni á Hallorms stað en þá kemur sér vel að hafa unnið í skólagarði fyrr um sumarið. Allir sem kynnast vilja skógræktarstarfseminni verða að þ ekkja eitthvað til gróðrarstöðva því að þær eru undirstaða íslenskrar skógræktar. Gróðrarstöðin á Hallormsstað er alls átján þúsund fermetrar eða tæpar sex vallardagsláttur að stærð. Hvergi sést yfir hana alla í einu því að h enni er skipt í nokkra stóra r eiti. Á hverju ári koma héðan um þrjú hundruð þúsund trjáplöntur sem er plantað á ýmsum stöðum, einkum á Hallormstað og austanlands. Í stöð 24
Fura
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
inni eru að jafnaði um ein og hálf milljón trjáplantna á aldrinum eins til fjögurra ára. Rétt er að minnast þess þegar horft er yfir þessar breiður af ungum trjáplönt um að þeim er líkt farið og ungum börnum. Þær eru viðkvæmari fyrir hnjaski en fullvaxin tré. Skógarplöntur í uppeldi nema nú um e inni og h álfri milljón á ári. Margar hendur þarf því til að planta þessu magni á sem skemmstum tíma þar sem íslenska sum arið er svo stutt.
Jarðvinnsla Jarðvegur í gróðrarstöð þarf að vera myldinn, hæfilega rakur og nokkuð sandborinn. Vinna þarf jarðveginn vel en til þess eru nú notuð ýmis vélknúin jarðvinnslutæki.
Sáning Trjáfræi er ýmist dreifsáð eða raðsáð í beð. Fræið er misjafnt að stærð og gæðum og því er ekki alltaf sáð sama magni í hvern fermetra. Fara verður gætilega með það og gæta þess að s pilla því ekki í meðförum. Trjáfræ er dýrt og oft komið langan veg. Skógrækt rikisins fær m.a. fræ frá Alaska, Norður-Noregi og Rússlandi svo að nokkur h elstu löndin séu nefnd. 25
Hirðing Fjarlægja verður allt illgresi jafnóðum og það vex og sporna við sjúkdómum eftir mætti.
Vökvun Vatn er nauðsynlegt öllum plöntum svo sem fyrr grein ir. Því þarf að gæta þess vel að h vorki fræ né plöntur þorni um of í beðum, því að þá er dauðinn vís. Hættast er við ofþornun þegar sólfar er mikið og hlýindi. Þarf þá stundum að v ökva daglega.
Dreifsetning Plönturnar eru að jafnaði látnar standa tvö ár í sáðbeði. Snemma vors eru þær teknar upp, greitt gætilega úr rótum þeirra, þeim raðað í kassa og rakur mosi lagður yfir ræturnar. Úr kössunum eru plönturnar dreifsettar, en þá er þeim plantað í beð með fimm til tíu senti metra millibili svo að þær fái nægilegt vaxtarrými. Í þessum beðum standa þær í tvö eða þrjú ár en þá eru þær orðnar svo stórar að þær eru hæfar til plöntunar.
Vetrarumbúðir Öll þessi störf væru unnin fyrir gýg, ef ekki væri búið um plönturnar undir hinn umhleypingasama íslenska vetur. Er þ etta gert með því að leggja lim yfir beðin og sand og mosa að plöntunum svo þær sviðni ekki undan vetrarstormum og í vorkuldum. Þetta er þó ekki ein hlítt því að ávallt ferst eitthvað af plöntum, þrátt fyrir allan umbúnað.
Trjátegundir Við sem erum svo lánsöm að dveljast sólríka vor- og sumardaga í skólagarði og höfum nú vikudvöl í Hall ormsstaðaskógi, hljótum bráðlega að v erða fær um að veita öðrum leiðbeiningar. Við getum strax sagt þeim þetta: 26
Birki eða ilmbjörk hefur myndað skóg hér á landi ein allra trjátegunda. Á Suðurvesturlandi og um Vestfirði er birkið víðast lágvaxið kjarr en svæðið frá Vestfjörð um að Eyjafirði er skóglaust með öllu. Í Þingeyjarsýsl um eru allvíðlendir birkiskógar og kunnastur þeirra er Vaglaskógur, sem er einn beinvaxnasti og fegursti birkiskógur landsins. Á Austur- og Suðausturlandi eru Hallormsstaðaskógur og Bæjarstaðaskógur frægastir en á Fljótsdalshéraði eru mörg skóglendi. Á Suður landi eru skógarleifar í uppsveitum Árnessýslu; suður af Heklu, í Þórsmörk og Skaftártungu. Birki þarf frjóan og rakan jarðveg ef það á að vaxa vel en það getur líka haldið lífi við erfiðari aðstæður en flestar íslenskar plöntur. Það er ljóselskt og þolir illa að standa í skugga. Stærstu bjarkir á Íslandi eru um 13 metrar á hæð. Reyniviður myndar hvergi skóga en vex hér og hvar innan um aðrar trjátegundir. Reynirinn verður allt að tíu metrar á hæð. 27
Guttormslundur
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
Auk íslenska reynisins eru þessar erlendu reyni viðartegundir: gráreynir, silfurreynir og seljureynir. Blæösp hefur fundist villt á fimm stöðum hér á landi og hefur verið ræktuð nokkuð í trjágörðum. Meiri vonir eru tengdar við aspartegund þá sem kennd er við Alaska og flutt var þaðan í fyrsta sinn hingað til lands árið 1944. Alaskaösp hefur nú verið reynd víða um land og vaxið mjög hratt. Aðeins eitt kvæmi1 af henni hefur hingað til verið flutt til landsins en reyna þarf fleiri því að vorhret hafa skemmt hana víða um Suðurland. Alaskaösp þarf frjóan og rakan jarðveg, gott skjól og gras má ekki vaxa að s tofni hennar ef hún á að ná skjótum vexti.
Kvæmi er notað sem þýðing á erlenda orðinu proveniens sem
1
merkir uppruni.
28
Elri, hvítelri og rauðelri svipar til birkis og er af sömu ætt. Það hefur aðeins lítið eitt verið ræktað í trjágörðum hér á landi og í tilraunaskyni í skóginum á Hallormsstað. Elri vex aðallega í rökum og djúpum jarðvegi, eink um meðfram ám og lækjum. Það er útbreitt um Asíu, Evrópu og Norður-Ameríku og vex þar á norðlægum slóðum. Hið merkasta við elri er að á rótum þess lifa sveppir sem vinna köfnunarefni úr loftinu. Álmur, ættaður úr Norður-Noregi, hefur reynst vel hér á landi. Hann er fremur bráðþroska í frjóum jarðvegi og er fremur stormþolinn. Álmur hefur verið notaður í skjólbelti með góðum árangri. Hlynur er fallegt tré með stóra, fagurlagaða k rónu. Hann er ræktaður sem garðtré á nokkrum stöðum hér á landi. Hlynur vex um Evrópu sunnan- og vestanverða og á Bretlandseyjum. Enn mætti n efna ýmis lauftré og margar víðiteg undir er vaxa í Hallormsstaðaskógi og einnig skraut runnar sem henta íslenskum staðháttum og notaðir eru í skrúðgarða. En þ etta verður að n ægja. Lengi er verið að fara um skóginn, þótt aðeins lauf trén séu skoðuð. Nú líður að kvöldi og við verðum að halda heim á leið. Við Kerlingará er numið staðar hjá björk nokkurri sem nú er orðin gömul og feyskin. Sagan segir að ein hverju s inni hafi Páll Ólafsson skáld mælt þ essi orð til hennar er hann fór þar um veg: Gott átt þú, hrísla‘ á grænum bala, glöðum að hlýða lækjarnið.
Árla næsta morguns, áður en vinna hefst, byrjum við að skoða barrtrén og fræðast um líf þeirra. Við förum 29
inn í Guttormslund sem er vísir að fyrsta barrskógi á Íslandi og þar segir skógarvörðurinn okkur frá lerkinu og ræktun þess. Hér sannast, að sjón er sögu ríkari. Síberískt lerki hefur verið ræktað á nokkrum stöðum um alllangt skeið og er því meiri reynsla fengin um vöxt þess við íslenskar aðstæður en flestra annarra barrtrjáa. Lerkið er ljóselskt tré og er mjög hraðvaxta i æsku. Það vex í alls konar jarðvegi en nær bestum þroska í frjórri jörð eins og flest önnur tré. Lerki er kjörviður og er notaður í vönduð hús, báta og bryggjur. Bændur hafa sóst mjög eftir lerkistaur um úr Hallormsstaðaskógi í girðingar af því að slíkir staurar taka öðrum fram að gæðum. Rauðaviðurinn sem svo var nefndur á rekafjörum áður fyrr, var lerki. Lerki er meginlandstré. Þess vegna er áhersla lögð á ræktun þess í innsveitum norðan- og austanlands þar sem úrkoma er lítil. Næst er ferðinni heitið að Jökullæk til að skoða rauðgrenitré. Þessi tré eru mjög fögur og hafa náð ágætum þroska. H æstu tré eru yfir 13 m á hæð.
Sumardagur
30
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
Rauðgreni vex um Norður-Evrópu. Um aldamót var farið að planta því í Tromsfylki í Noregi, jafnvel á stöðum sem eru fimm hundruð kílómetrum norðar en Ísland og þar eru nú gróskumiklir rauðgreniskógar. Hér á Hallormsstað hefur verið plantað talsverðu rauðgreni hin síðari ár. Rauðgreni hefur náð góðum vexti víða um land en því verður að velja skjólríka s taði, helst í h alla og það gerir miklar kröfur til jarðvegs, einkum að hann sé vel rakur. Árlega er flutt til Íslands töluvert af dönsku rauðgreni sem notuð eru í jólatré. Ekki munu líða mörg ár þar til Íslendingar fá nóg af jólatrjám úr íslenskum barrskógum. Það sáum við hér á Hallormsstað. Nú er snúið við og numið staðar á Atlavíkurstekk þar sem ýmsar erlendar trjátegundir vaxa. Hér stendur nú um tuttugu ára hvítgreni sem dafn að hefur allsæmilega. Heimkynni hvítgrenis er Norð ur-Ameríka. Frá Atlavíkurstekk er haldið út í Mörk sem er kunn asti staðurinn í Hallormsstaðaaskógi. Þar er gróðrar stöðin, þar voru fyrstu tilraunirnar gerðar með ræktun erlendra barrtrjáa og standa þar mörg fögur og hávaxin tré frá þeim tíma. Blágreni er sú tegund barrtrjáa sem einna fyrst var gróðursett á Íslandi. Í Mörkinni á Hallormsstað standa nokkur tré sem eru yfir hálfrar aldar gömul. Þau hafa vaxið vel og lofa góðu um ræktun blágrenis á Íslandi. Blágreni hefur verið gróðursett á nokkrum stöðum hin síðari ár, m.a. hafa nokkrar þúsundir p lantna vaxið upp af fræi blágrenitrjánna í Mörkinni. Blágreni er upprunnið í Klettafjöllum Norður-Am eríku. Lýsishóll nefnist svæði utarlega í skóginum og þarna eigum við að b yrja að p lanta. Hér fer saman mikil gróska, fagurt útsýni og fjöldi erlendra trjátegunda sem 31
fróðlegt er að kynnast. Við nemum staðar hjá sitkagreni fyrir neðan Fálkaklett og hlustum á útskýringar þeirra sem vita meira en við. Sitkagreni er bráðþroska trjátegund og þrífst best í loftslagi þar sem úrkoma og loftraki er mikill. Það er útbreitt um vesturströnd Norður-Ameríku, allt norður í Alaska en það vex sjaldan meir en hundrað kílómetra frá sjó. Af þessu sést að sitkagreni þolir vel sjávarseltu og raka og ætti því að vera hentug trjátegund fyrir eyland þar sem veðurskilyrði eru á þekk og í Alaska. Sitkagreni hefur verið gróðursett í tilraunaskyni á Hallormsstað en þar er of þurrviðrasamt fyrir það. Auk fyrrgreindra trjátegunda vaxa svartgreni og broddgreni í Hallormsstaðaskógi. Þá vaxa hér einnig nokkrar tegundir af þin: Síberíuþinur, balsamþinur, hvítþinur og fjallaþinur en hann er vænlegastur til ræktunar hér á landi af þessum tegundum. Fjallaþinur er hið fegursta garðtré og vinsælt jólatré. Loks er skylt að nefna marþöll og fjallaþöll en lítil reynsla er enn fengin um þ roska þ eirra við íslenska staðhætti. Útsýni er fagurt af Lýsishól. Í b jörtu v eðri ber Snæ fell við loft yfir sunnanverðu Lagarfljóti. Fljótið býr yfir sérstæðum töfrum á kyrru kvöldi síðsumars í þann mund er bregða tekur birtu. En þó verður að halda heim. Staðnæmst er við Vín læk, dálitla lind í Gatnaskógi. Þar nema allir staðar sem leið eiga um skóginn. Skógarvörðurinn fer með okkur niður í Mörk, áð ur en við byrjum að v inna næsta dag og sýnir okkur ýmsar furutegundir. Skógarfuran er með elstu barrtrjám heims. Hún vex um alla Norðurálfu allt frá Suður-Evrópu til nyrsta héraða Noregs og austur að Kyrrahafi. Skógarfuran hefur verið gróðursett í Hallorms 32
staðaskógi og fræ fengið frá ýmsum stöðum í Noregi og Svíþjóð. Hún er með nægjusömustu trjám en samt sem áður hefur ræktun hennar á Íslandi gengið mis jafnlega. Orsökin er sú að skjaldlús sækir á hana og gengur oft svo n ærri h enni að ungar plöntur d eyja. Aðrar eru að veslast upp í mörg ár. Örfáar standa þó af sér lúsina og sumar ná sér aftur eftir langan tíma. Elstu skógarfururnar á Hallormsstað voru gróðu settar um 1909 og eru nokkrar þeirra orðnar að fal legum trjám. Fjallafuran er oftast margstofna runni, sem getur orðið allt að því fimm m etra hár. Danir höfðu ræktað fjallafuru á jósku heiðunum í tugi ára áður en skóg rækt hófst á Íslandi. Þess vegna var hún flutt hingað til lands, jafnskjótt og byrjað var á skógrækt hér. Fjallafura er ennþá nægjusamari en skógarfura og þar sem hún vex bætir hún jarðveginn og eykur frjó semi hans. Stundum ber hún hér fullþroska fræ og hef ur sáð sér út af sjálfsdáðun. Heimkynni fjallafurunnar eru í Alpafjöllum. Bergfura er náskyld fjallafuru en sá er munur á þeim að bergfuran vex upp af einum stofni og verður alt að því tíu metra hátt tré. Hún bætir jarðveginn á sama hátt og fjallafuran.Bergfura vex hátt yfir sjó í Alpafjöllum og Pýreneafjöllum. Broddfura er háfjallatré og er mjög seinþroska. Hún verður aldrei stórvaxin fremur en bergfuran, er jafnvel ennþá harðgerðari og á Hallormsstað hefur hún borið þroskað fræ á h verju ári í meir en áratug. Broddfuru var sáð í Mörkina á árunum 1903–1906 og eru þar nú nokkrir tugir trjáa frá þessum árum. Stafafura var ekki gróðursett á Hallormsstað fyrr en 1940. Þá voru fáeinar plöntur settar niður á Atlavík urstekk. En á síðari árum hefur hún verið sett víða um land og dafnar yfirleitt vel. Hún er harðger, hraðvaxta og hefur borið hér þroskað fræ. 33
Heimkynni stafafurunnar eru vesturhéruð Norð ur-Ameríku. Lindifura vex í fjöllum Mið-Evrópu og austur um alla Asíu. Til hennar var sáð á Hallormsstað og víðar á árunum 1903–1906. Í Mörkinni s tanda nú um hundr að lindifurur á víð og dreif og hafa sumar þeirra náð ágætum þroska. Lindifuran er eitt hið fegursta tré með löngu og mjúku b arri og standa fimm nálar ávallt saman í knippi. Við höfum nú skoðað helstu útlendu trjátegundirn ar á Hallormsstað og vinnan verður æ skemmtilegri. Skógurinn er heill ævintýraheimur og við hlökkum til hvers dags því að alltaf gerist eitthvað nýtt. Við hættum vinnu í þetta sinn, setjumst í hvirfingu og tökum lagið. Ljóð Laxness um skóginn varð fyrir valinu í þetta skipti: Bláfjólu má í birkiskógi líta. Blessað sé norðurhvelið, sem mig ól! Hallormur, má þá ei til einhvers nýta þinn unga vin á nýjum sparikjól, . . .
34
Birkigrein með kvenrekli.
JARÐVEGUR OG GRÓSKA Skógurinn er töfraheimur sem margir láta sér nægja að hrífast af en færri hafa kynnt sér. Við skulum enn ganga út í skóg, virða fyrir okkur blóm og grös, fræðast um líf þeirra og sambúð þeirra við skóginn. Frjómoldin er ein mesta auðlind hvers lands. Hún er kvik af lífi. Þar eru heimar ótal tegunda af smádýr um, gerlum og sveppum. Þessar lífverur breyta leifum plantna og dýra í næringu handa nýjum g róðri og stuðla að aukinni frjósemi. Þar sem hlýju og skjóls nýtur, búa þessar lífverur við b etri lífskilyrði en á berangri og því eykst frjósemin á slíkum stöðum. Ef til vill er brýnna fyrir Íslendinga en nokkra aðra þjóð sem fæst við skógrækt að gera sér g rein fyrir þ essu því að landið liggur langt í norðurvegi og má heita skóg laust eins og nú er komið. En þegar skógarnir hurfu, þvarr skjólið sem þeir v eittu og jafnframt minnkaði frjósemi landsins og gróðurbreytingar fylgdu í kjölfar ið. Við þurfum að hafa þetta í huga og v elja um sinn til skógræktar þá staði, svæði eða héruð sem hagstæðust eru fyrir trjágróður. Slíkir staðir eru margir eins og reynslan hefur þeg ar sannað. Við skulum drepa á nokkuð atriði sem miklu máli skipta þegar land er valið til skógræktar: 35
Tré vaxa yfirleitt betur í h alla en á flatlendi. Þar seytlar súrefnisríkt jarðvatn í sífellu um efstu lög jarð vegsins, flýtir fyrir rotnun jurtaleifa og þar verður jarðvegur frjór og gljúpur. Trén þurfa skjól fyrir þurrustu vindáttinni. Helst ætti að velja trjálundum stað í h alla mót suðvestri þar sem staðhættir leyfa. Undir hömrum er skjól og bergið varpar frá sér hita, jafnvel eftir sólsetur. Auðveldast er að átta sig á gæðum jarðvegs með því að athuga gróðurhverfin. Í skógivöxnum löndum eru hæð og aldur trjáa not uð til að dæma um g rósku skógræktarsvæða. Síðan er vaxtarstöðum skipað í gróskuflokka. Hér á l andi er þessu á annan veg farið, þar sem við eigum aðeins birkiskóga sem sætt hafa misjafnri með ferð um langan aldur. En samt getum við haft hliðsjón af þessu. Hallormsstaðaskógi hefur nýlega verið skipt í þrjá gróskuflokka og gróðurhverfin síðan flokkuð eftir þeirri skiptingu. Þetta hefur auðveldað staðarval fyrir ýmsar erlendar trjátegundir og gefið þar með von um betri og árvissari vöxt. Í fyrsta og besta gróskuflokknum vaxa elftingar, reyrgresi og ýmsar blómplöntur. Í slík gróðurhverfi er grenitegundum, þin og lauftrjám plantað. Í öðrum flokki vex língresi, bugðupunktur ásamt bláberja- og hrútaberjalyngi. Þar er aðallega plantað lerki. Kræki- og sortulyng lendir svo í þ riðja og lakasta gróskuflokkn um. Furutegundunum er valinn þessi flokkur, enda fá þær fegurstan vöxt í ó frjórri jörð. Á bersvæði, þar sem land er b eitt um langan tíma, hverfa flestar blómplöntur. Allerfitt er því að dæma um grósku slíks lands. En eftir nokkurra ára friðun skjóta blómplönturnar upp kollinum á nýjan leik. Allr kannast við þetta úr laufskógagirðingum víðs vegar um land. Blágresi, brennisóley, brönugrös, fjalldala 36
fífill, maríustakkur og umfeðmingur vaxa t.d. aðeins í frjórri mold. Þar sem raki er mikill vaxa geithvönn og mjaðurt. Gróðurhverfi, þar sem mest ber á heilgrösum, reyrgresi og elftingum er yfirleitt gott skógræktarland. Kræki- og sortulyng, svo og ýmsar blómplöntur, svo sem holtasóley, blóðberg, geldingahnappur, gulmaðra, lambagras og holurt vaxa helst í frjóefnasnauðu landi. Í tirjóttu og þurru mólendi ber oft mest á þursaskeggi og móasefi, en varhugavert er að taka slíkt land til skógræktar nema bylta því fyrst og bera í það lífrænan áburð. Mýrlendi þar sem ýmsar starir vaxa, getur loks orðið á gætt til skógræktar ef það er hæfilega þurrkað. Þar bíða mikli verkefni. Í mörgum skógræktargirðing um eru leirflög, melar og rofabörð. Í slíkt land má ekki gróðursetja tré nema r ækta jafnhliða annan gróður, til dæmis lúpínur.
Plöntun Fátt virðist einfaldara en setja niður trjáplöntur. En þetta verk verður að leysa af hendi af nákvæmni og fyllstu alúð. Annars er allt unnið fyrir gýg. Oft heyrist því fleygt að trjáplöntum sé víða holað niður í flaustri og þar við látið sitja. Sannarlega má ekki kasta til þess höndum að planta trjám. Sakir hroðvirkni hafa margar plöntur farið for görðum, margfalt fleiri en þær sem d eyja af öðrum orsökum, t.d. í þurrki, frosti og illri meðferð í upptöku eða við flutning.
Hvenær á að planta? Plöntun getur hafist þegar s njóa leysir á vorin og jafn vel áður en frost er úr jörðu. Þá er jarðrakinn mest ur. Halda má verkinu áfram til miðs júní þegar tíð er vætusöm. En þá er vissara að h ætta plöntuninni í bili. Mesta hitatímabil sumarsins er þá framundan og jarðvegurinn farinn að þorna. Í byrjun ágúst má 37
venjulega hefjast handa á nýjan leik en hætta aftur í lok þess mánaðar. Þó má halda áfram nokkru lengur ef gróðursett er inni í skógi eða kjarrlendi.
Staðarval Enginn skyldi hefja trjáplöntun fyrr en hverri tegund hefur verið valinn staður og reiknað út hve mikið land fer undir væntanlega plöntun. Þetta þarf að gera áður en plönturnar eru pantaðar svo tryggt sé að hver teg und fái jarðveg við sitt hæfi. Flokkun á landi eins og sagt er frá í kaflanum um jarðveg og grósku kemur í veg fyrir að menn panti óhentugar trátegundir.
Útvegun plantna Þá kemur að því að útvega plöntur en þær verður að panta tímanlega frá næstu gróðrarstöð. Ef gróðursetja á greni mega plönturnar ekki vera y ngri en fjögurra ára. Stærð og aldur plantnanna verður þó ætíð að miða við vaxtarskilyrði á staðnum. Þar sem grasvöxtur er mikill skal eingöngu planta stórum og þroskamiklum plöntum. Ekki sakar að skýra frá plöntunarstað, ástandi girðingar, landstærð og landgæðum um leið og plönt urnar eru pantaðar svo að skógarverðir eigi auðveldara með að átta sig á verkinu og gefa leiðbeiningar.
Vinnutilhögun Alla vinnu verður að skipuleggja mjög vel áður en plönturnar koma á áfangastað. Verkfæri þurfa að vera næg og góð og útvega þarf eftirfarandi á höld í tæka tíð: bjúgskóflur, haka, stunguskóflu, þjalir, trjá klippur, beittan hníf, plöntupoka, snúrur og hæla eða merkjaflögg. Plantað með haka. Útflött rót.
38
Allt á að vera komið á staðinn áður en plönturnar koma svo að verkið geti hafist án tafar. Þegar plöntur koma á áfangastað s kulu þær strax leystar úr umbúðunum, greiddar varlega í sundur og síðan settar í rásir. Rásirnar skulu vera á skuggsælum og skjólgóðum stað. Þannig má geyma plöntur í nokkra daga. Ef sólfar er mikið er nauðsynlegt að breiða yfir þær en forðast skal að vökva þær um of.
Verkfæri Hér á landi eru einkum notuð tvenns konar verkfæri við plöntun. • Bjúgskófla. Hún er aðallega notuð þar sem jarð vegur er ekki grýttur. Fljótlegt er að p lanta með þessu verkfæri og getur vanur maður sett niður sjö til átta hundruð plöntur með því á einum degi í góðu landi. • Plöntuhaki. Hann er notaður þar sem land er grýtt. Nokkru seinlegra og erfiðara er að planta með haka en bjúgskóflu.
Hvernig á að planta? Trjáplöntur eru settar niður á mismunandi hátt.en eitt verður ávallt að hafa hugfast þegar planta er hand leikin: Hún er lifandi! Hér á l andi er mestallt trjáfræ innflutt og kostnað ur við plöntuuppeldi mikill. Þess vegna er hver planta mikils virði. Því er brýn nauðsyn að sá sem plantar minnist þess ávallt að án vandvirkni hans er einskis árangurs að vænta. Þessar aðferðir eru algengastar við plöntun:
39
1. Plantað við lóðréttan holuvegg a) Bjúgskófla
Hola er stungin eins og með venjulegri skóflu. Bjúg skófla er þannig gerð að stinga þarf aðeins á tvo gagn stæða vegu þannig að moldarhnaus liggur laus á skófl unni í seinni s tungu. Þess verður umfram allt að gæta að annar veggur holunnar sé lóðréttur. Plantan er sett niður í holuna, lögð að lóðrétta veggnum og greitt úr rótum hennar. Síðan er hnausunum ýtt af skóflublað inu ofan í holuna þannig að hann falli í fyrri skorður og loks er stigið á hann með öðrum fæti svo að plantan sitji vel föst. Komi það fyrir að rætur plantna séu langar svo að þær bögglist í botni holunnar, verður að rótstýfa með beittum hníf eða trjáklippum. b) Haki
Þegar haki er notaður við plöntun er grasrótin höggvin af 20x20 sentimetra fleti og hola gerð með hakablað inu þannig að einn veggur hennar v erði lóðréttur, moldinni rótað upp úr holunni með hakablaðinu og mulin, ef með þarf. Þessi plöntun er að því l eyti frábrugðin hinni fyrri að besta gróðurmoldin er nú sett næst rótum plönt unnar, grasrót fjarlægð og áburðargjöf því auðveldari. Sjálfsagt er að planta með haka þar sem land er grýtt eða grasvöxtur mikill. Eftir plöntun skulu greni og furutegundir standa jafndjúpt og þær stóðu í græðireit en lerki og lauftrjám nema birki, r eyni og elri skal planta n okkru d ýpra. 2. Plantað með útflattri rót Grenitegundum er stundum plantað á þennan hátt og er þá haki notaður. Grasrótin er höggvin af eins og getið er um hér að framan. Síðan er jarðvegur losað ur niður í sjö sentimetra dýpt og honum rótað upp úr flaginu með hakanum, Þá er plantan tekin, sett ofan 40
í jarðsárið og greitt úr rótum hennar til a llra hliða. Besta gróðurmoldin er lögð á hvolf kringum plöntuna. Ef þjappað er hæfilega að plöntunni með öðrum fæti á hún að hafa nægilega festu í moldinni. 3. Garðplöntun Alldjúp hola er þá grafin með venjulegri stunguskóflu, lífrænn áburður settur í botn holunnar og honum blandað saman við jarðveg. Þá er plantan tekin og henni haldið í m iðri holu á meðan g reitt er úr rótum og holan fyllt emð mold. Að lokum þarf að stíga þétt ingsfast í kringum plöntuna svo að hún s itji föst. Á þennan hátt eru stórar plöntur yfirleitt settar niður. Við höfum nú rifjað upp ýmislegt sem okkur er kennt um plöntun en við höfum ekki enn minnst á hvernig vinna okkar í skóginum fer fram. Við byrjum á því að taka n okkra tugi trjáplantna úr beðinu sem þær hafa vaxið í, setjum þær í kassa eða plöntustamp og förum með þær út í Lýsishól. Þar eru plönturnar settar niður eins og fyrr segir. Ráðstafan ir eru gerðar til þess að rætur plantnanna þorni ekki, hvorki í upptöku né við plöntun og strangt eftirlit haft með því. Fyrst í stað er ætlast til að tveir vinni saman og setji niður og gangi frá einni plöntu á mínútu. En afköstin vaxa með aukinni leikni. Okkur er skipt í fimm m anna hópi og gert ráð fyrir að hver hópur setji niður til jafnaðar áttatíu plöntur á klukkustund. Einn úr fimm manna flokknum er verkstjóri sem fylgist með því á samt kennaranum, að vandlega sé plantað. Við vinnum þá af kappi í tuttugu mínútur en síðan er hvíld í tíu mínútur. Sá tími er notaður til að f ræða okkur um skógrækt en stundum njótum við einnig hvíldarinnar eins og okkur best lyst ir. Vinnum síðan enn í tuttugu mínútur og aftur er tíu mínútna hvíld. Þannig koll af kolli. 41
Hér hafa snúrur verið strengdar og ætlast er til að plantað sé meðfram þeim svo að bil m illi plönturaða sé jafnt. Þá er lerki og greni sett í plöntupokana og vinnan hefst skipulega. Plantað er í brekku og við byrjum neðst.Þegar lokið er við að p lanta með hverri s núru er hún færð til. Bil milli þ eirra er haft um 1,50 m og á m illi plantnanna er haft svipað bil. Þó verður að gæta þess að velja bestu staðina fyrir plönturnar þótt gert sé ráð fyrir þ essu millibili og planta hvorki á þúfnakolla né í dældir milli þúfna, þar sem h ætta er á að vatn safnist fyrir. Ekki má heldur setja í flög eða melfláka. Unglingarnir planta af krafti og stinga fyrst fyrir með bjúgskóflu eða haka. Þeir gæta þess að taka plönturn ar ekki úr pokunum fyrr en holan er fullgerð. Annars þorna ræturnar. Þeir varast einnig að sólin nái nokkuð að skína á ræturnar. Í fyrstu eru þeim mislagðar hendur en æfast fljótt. Sumir eiga erfitt með að festa plönturnar nægilega, nokkrir böggla ræturnar og aðrir setja plöntuna of djúpt.En það verður hverjum að list sem hann leikur. Þannig líður dagurinn og brátt er vel unnu dags verki lokið. Við göngum frá plöntum og áhöldum og hver hreinsar mold af sínu verkfæri. Við höfðum nú plantað nokkrum þúsundum t rjáa í skóginn. Eftir tuttugu ár getum við vonandi sagt eins og Stephan G. Stephansson í kvæðinu Í Nýjaskógi: Nú prýða sig hæðirnar tvítugum trjám. – Í tirjunum grúfðu þær sviðnar og auðar er kynni vor hófust, frá k olli o´n að tám með kvikuna bera og vorgróður-snauðar.
etta erindi á þó enn betur við þegar við förum að Þ planta í skóglaust land.
42
TIL MINNIS 1. Farið gætilega með rætur plantnanna og látið þær hvorki þ orna né sól skína á þær. 2. Geymið aldrei plöntur í umbúðum dægur langt, hvorki utanhúss né innan. 3. Hellið aldrei vatni á rætur trjáplantna og dýfið þeim því síður niður í vatn. 4. Kynnið ykkur nákvæmlega hve djúpt á að setja hverja trjátegund. 5. Greiðið vel úr rótum plantnanna og skerið heldur af þeim lengstu með beittum hníf en að láta þær bögglast í holunni. 6. Látið ætíð bestu gróðurmoldina falla næst rótunum við plöntun. 7. Farið gætilega með áburð og látið tilbúinn áburð aldrei snerta ræturnar. 8. Skiljið aldrei eftir djúpa laut við plöntuna að plöntun lokinni. 9. Forðist að planta í þurranæðingi eða breyskju hita. 10. Fylgist vel með vexti plantnanna f yrstu árin eftir plöntun og setjið nýjar plöntur í stað þeirra sem deyja.
43
44
GIRÐINGAR
Lerki. Grein með köngli.
Einn daginn hættum við v innu fyrr en endranær. Úti við Hafursá eru menn að lagfæra skógræktar girðinguna og endurnýja nokkurn hluta hennar. Við skulum s kreppa þangað. Það á að sýna okkur hvernig verkið er unnið og hvernig svona girðingar eigi að vera. Við eigum sem sé að kynnast f lestu sem lýtur að skógrækt. Girðingar skal v anda vel því að þær eiga að standa lengi. Fyrst þarf að velja besta girðingarstæðið, því næst útvega gott efni og í þ riðja lagi s etja niður t rausta hornstaura og máttarstólpa á réttum stöðum. Þá er net og gaddavír strengt á þessa s taura en grennri staur ar reknir niður á eftir og girðingin einnig reist á þá. Skógræktargirðingar eru rúmur metri á hæð, sjaldan yfir hundrað metrar milli máttarstólpa og tíu metrar á milli venjulegra s taura. En á m illi þ eirra eru negldar tvær renglur á girðinguna til að treysta hana. Ganga þarf sérstaklega vel frá hlið-, máttar- og hornstólpum.
Grein
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
45
Jarðýtur eru stundum notaðar til að jafna girðingar stæði svo að auðveldara sé að beita vélknúnum tækjum við verkið og létta flutninga efnis. Ekki þarf að hlaða undir slíkar girðingar. Okkur þótti gaman að sjá vinnubrögð girðingar mannanna við Hafursá því að svona v innu höfðum við ekki áður séð. En hitt þótti okkur merkilegt að þarna voru eingöngu notaðir lerkistaurar úr Hallormsstaða skógi. Við höfðum einmitt verið að planta lerki og okkur fannst það öðlast m eira gildi við þ essa sjón. Hvað gæti þjóðin sparað mikið ef hún ræktaði nógan efnivið í girðingastaura í landinu sjálfu, og hvað gætu margir unglingar fengið sumarvinnu við þessa ræktun? Samt er hið mikilvægasta enn ótalið. Við hugsuðum til a llra litlu plantnanna í skóginum. Þær myndu flestar tortímast og aldrei verða að trjám ef landið væri ó girt. Við biðjum því alla að taka höndum saman og muna: • að loka alltaf hliði á eftir okkur • að klifra ekki að ó þörfu yfir girðingar • að klippa aldrei sundur girðingar til þess að komast leiðar okkar með farartæki.
46
SKÓGRÆKT
Rauðgreni. Grein með köngli.
Áður en við förum frá Hallormsstað, skulum við biðja skógarvörðinn að koma með okkur út að Ormsstöð um. Þar er margt merkilegt að sjá: Hér er s væði sem nýlega hefur verið ræst fram og hér er nýtt að læra um skóginn og ræktun hans. En svo oft erum við búin að nefna skógrækt að orðið er farið að skýra sig sjálft. Við erum hætt að h ugsa um hvað í því felst. Og því leggjum við þessa spurningu fyrir skógarvörðinn að leiðarlokum: „Hvað merkir orðið í raun og veru? Hverju eigum við að s vara ef við erum spurð?“ Skógrækt merkir ræktun skóga í þeim tilgangi að afla viðar. Er þá ýmist átt við ræktun eldri skóga eða gróðursetningu trjáplantna þar sem ekki var skógur fyr ir. Skógræktin mótast aðallega af tvennu, annars vegar fjárhagshliðinni en hins vegar af þvi hvaða trjátegundir skuli rækta án þess að frjómáttur jarðvegsins þverri.
Skuggar
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
47
Framræsla Súrefni er nauðsynlegt öllum gróðri. Trén taka til sín súrefni bæði gegnum rætur, barr og blöð. En þegar kyrrstaða er á v atni í jarðvegi verður hann snauður að súrefni. Þar að auki er mjög blautur jarðvegur tyrfinn og kaldur og loftið því svalt sem liggur að honum. Í slíkum jarðvegi vex trjágróður illa og vöxtur trjánna verður óeðlilegur þar til landið hefur verið ræst fram. Þetta sést mjög greinilega í mýrunum fyr ir ofan Ormsstaði. Þær voru skóglausar áður en þær voru ræstar fram.
Sáning Skógurinn yngir sig upp af sjálfsdáðun þegar trén hafa náð vissum aldri og borið fræ. Einnig er unnt að sá til skóga þar sem nóg er af góðu og ódýru fræi.
Plöntun Við höfum áður rætt um plöntun trjátegunda. En hér er rétt að minnast á eftirfarandi atriði. Annaðhvort verður að sá trjáfræi eða s etja niður plöntur þar sem skóglaust land er tekið til skógræktar. Vilji menn taka upp ræktun trjátegunda sem ekki eru fyrir verður að gera hið sama. Síðari aðferðinni er oftast b eitt og l iggja til þesss margar ástæður. Meðal annars er trjáfræ mjög dýrt og torfengið en við sáningu þarf margfalt magn.
Hér sést hvernig plantað er tré.
48
Umhirða Þótt fjöldi trjáplantna hafi verið settur niður má enginn halda að verki sé lokið og aðeins þurfi biðlund þar til skógurinn er fullvaxinn. Alls konar óhöpp geta komið fyrir f yrstu árin eftir plöntun, einkum þó á berangri. Mikill grasvöxtur dregur mjög úr vexti alls trjágróð urs. Hann rænir ljósi, hita, raka og næringu frá hinum ungu, viðkvæmu trjáplöntum og tefur eðlilegan vöxt þeirra. Sömu áhrif hafa birkiteinungar sem mynda þétta runna umhverfis ungar barrplöntur. Því er nauðsynlegt að halda grasvexti og birkisprot um í skefjum eins og frekast er unnt.Fylgjast þarf með því hvort sjúkdómar eru í trjám og fjarlægja þegar þau tré sem sjúk eru. Loks geta vor- og hausthret tortímt ungplöntum og verður þá að f ylla í skörðin ef vanhöld eru mikil.
Grisjun Grisjun er einn veigamesti þáttur skógræktar. Með henni getur skógræktarmaðurinn haft áhrif á vöxt og þroska skógarins. Með öxi og sög mótar hann skóginn að vild sinni. Grisja þarf skóginn þegar hann verður of þéttur og greinar t rjánna ná saman. Sé það ekki gert í tíma verða stofnarnir mjóir og trjákrónur litlar. Auðskilið er að lítil trjákróna á stóru tré megnar ekki að afla því nægrar fæðu svo að tréð hættir að d afna. En grisjun er hið vandasamasta starf og ætti enginn að v inna að henni fyrirhyggjulaust.
49
50
Birki.
ÓVINIR SKÓGARINS Eftir vikudvöl í Hallormsstaðaskógi getur ekki hjá því farið að við höfum komið í Atlavík. Við skulum skreppa þangað enn einu s inni áður en við höldum burt frá Hallormsstað. Atlavík er lítil vík innarlega í Hallormsstaðaskógi upp frá Lagarfljóti. Tær lækur liðast niður víkina um sléttar grundir grasi grónar, vaxnar kjarri hér og þar. Til b eggja handa eru háir, skógivaxnir ásar. Víða sér í nakta hamraveggi sem teygja sig fram að fljótinu, mynda víkina og veita h enni skjól. Atlavíkur er getið í Landnámu og Droplaugarsona sögu og segir þar að G raut-Atli hafi numið þarna land og búið í Atlavík. Enginn veit nú lengur hvenær byggð lagðist þarna niður. Síðan Hallormsstaðaskógur var friðaður hefur Atla vík orðið fjölsóttur ferðamannastaður, því að landslagið er fagurt og einkennilegt. Tjaldstæði eru þarna mörg og góð. Á sumrin er Atlavík vinsælasti samkomustað ur Austfirðinga. Íþ etta sinn förum við til Atlavíkur til að gerast sjálf boðaliðar og hreinsa til eftir síðustu samkomu. Það er allmikið verk; tölum ekki um í hverju það er fólgið. Hitt er nóg að sjá verksummerki. Getur það verið að til séu svo lítilsigldir Íslendingar að fegurð og helgi landsins komi þeim ekkert við? Því miður virðist svo og þeir eru allt of margir. En við vitum að það er vanþekking, fáfræði og hugsunarleysi sem á sökina. Leggjumst því 51
á eitt til að opna augu fólks með því að benda því á að spilla ekki fegurð landsins. En meira að s egja þeir sem vilja vel í öllu geta spillt gróðri og fegurð í andartaks gáleysi. Í skógi og kjarrlendi hefur oft orðið stórtjón vegna þess að ógætilega var farið með eld. Sérstaklega er mikil h ætta í þurrkatíð einkum á vorin. Mosinn og sinan eru þá afar eldfim og mikið bál getur kviknað af litlum neista. Óstöðug veðrátta veldur einnig miklu tjóni öðru hverju. Þá gera alls konar sveppir og skordýr usla í skóg inum. Stundum veldur þetta skemmdum sem illt er við að ráða. En í trjágörðum og smálundum má halda þessum ófögnuði í skefjum.
52
ÞETTA LAND ÁTT ÞÚ
Barr.
Lind í lautu streymir lyng á heiði dreymir þetta land átt þú.
Guðmundur Böðvarsson
Svo segir eitt af b estu skáldum Íslands. Satt er það. Þetta land átt þú. Þetta land eigum við. Skyldur okkar eru að b yggja landið, nytja það skyn samlega og skila því betra og auðugra til næstu kyn slóðar. Það getum við. Skógrækt á Íslandi er ekki lengur draumsýn. Skóg rækt er í senn staðreynd og þjóðarnauðsyn sem ekki er unnt að sniðganga. Vaxandi þjóð krefst aukinnar ræktunnar. Hvaða not, bein og ó bein eru þá af skógunum? Áhrif þ eirra eru margvísleg. Við getum vart ímyndað okkur þau öll, þar sem við lifum í skóglausu landi og þekkjum varla skóga nema í ævintýrum. En við skulum staldra við og athuga þ etta örlítið nánar.
Arður Okkur verður ávallt í fersku minni dvölin á Hallorms stað og sú stund er við sáum Guttormslund. Við heyrum margt um ræktun skóga sem okkur kom algerlega á óvart. Okkur var skýrt frá því að tekjur af Guttorms 53
Haustkyrrð
Ljósm.: Hildur Guðmundsdóttir
lundi um 1960 hafi verið tæpar þrjú þúsund krónur árlega þegar búið var að draga allan kostnað frá. Er þá miðað við einn hektara lands og var þá lundurinn um tuttugu ára.Þessi arður fékkst þó eingöngu með sölu á girðingarstaurum. Við getum líka skyggnst lengra fram í tímann. Sam kvæmt mælingum og útreikningum ætti heildarvöxt urinn í Guttormslundi eftir 80 ár að nema um fjögur hundruð og sextíu teningsmetrum viðar á hektara. Verðmætin aukast þó enn þegar viðnum er flett í bjálka og borð. Hér er aðeins nefnt dæmi um arð af skógrækt á Austurlandi. En í mörgum öðrum héruðum er að vaxa upp ungskógur sem lofar góðu um framtíðina.
Atvinna Hvarvetna veita skógar mikla v innu. Með aukinni skóg rækt á Íslandi yrði fjarmagn flutt inn í sveitir landsins þar sem náttúran ávaxtar það. Mikil vinna er við plöntun, grisjun og hirðingu ungskógar. Hundruð unglinga um allt land starfa við garðyrkju og skógrækt sumarlangt en ættu að skipta þúsundum, því að engin störf eru hollari æskulýðnum. Skógar sem við gróðursetjum bæta landið, efla 54
sveitirnar, veita niðjum okkar vinnu, gera atvinnulíf þjóðarinnar fjölbreyttara og gera þjóðina færari til sjálfbjargar.
Skjól hrif skjóls á allan gróður sést óvíða betur hér á l andi Á en í Hallormsstaðaskógi. Í skógarjaðrinum eru trén veðurbarin og kræklótt. Þau eru engin skrauttré en vernda skóginn gegn veðrum og minni snjóflóðum. Þetta eru útverðir skógarins. En er lengra kemur inn í skóginn v erða trén stórvaxnari og jurtagróður fjöl skrúðugri. Fuglalíf er þar einnig mun auðugra en á bersvæði. Skjólbelti hafa sömu áhrif. Ræktun þeirra er enn skammt á veg komin en vænta má mikils af henni í framtíðinni. Skjólbelti hafa meðal annars þessi áhrif: Þau lægja vindinn og auka jarðvegs- og lofthitann næst yfirborði jarðar. Skjól dregur úr uppgufun og varnar ofþornun. Afurðir búfjár verða m eiri þar sem beitt er á skýlt land. Okkur líður betur við v innu á s kýldu landi, ekki síst við ýmiss konar jarðyrkjustörf.
Vatnsmiðlun Um leið og snjóa leysir á vorin, hleypur vöxtur í ár og læki og þau flæða yfir landið í kring. Skriður falla úr fjallshlíðum og flytja aur og grjót niður á láglendi. En vegir og önnur mannvirki skemmast í vatnavöxtum. Þetta þekkja allir hér á l andi. Í skógivöxnum löndum er þessu annan veg farið. Snjórinn bráðnar þar mun hægar, skógarnir taka til sín mikið vatnsmagn og rætur trjánna binda jarðveginn. Allt þetta eykur jafnstreymi ánna og gerir þær meðal annars hæfari til virkjunar og fiskiræktar. 55
Heilsugjafi Skógarloftið er heilnæmt, tært og hressandi. Heilsu veilt fólk flykkist því til skóganna til þess að öðlast þar nýjan þrótt. Þá sækir þangað f jöldi fólks hvíld og frið frá önnum dagsins. Og enn aðrir stunda þar skemmt anir og útilíf sem aukið getur lífsgleði og heilbrigði ef rétt er á haldið. En nú haustar og tré og runnar í skólagarðinum breyta um svip. Laufin taka að blikna. Eitt og eitt falla þau hljóðlega til jarðar og þegar stormsveipir fara yfir falla þau í hrönnum. Sumarið hefur kvatt, önnur árstíð tekið við en samt er engu lokið. Upphafið getur alveg eins verið hér. Við höfum búið trjábeðinn undir vetur og hlúð að fjölæru blómunum. Í Hallormsstaðaskógi áttum við í sumar dvöl við leiki, nám og störf. Nú er veturinn einnig einráður þar. Ilmurinn frá björkinni er ekki hinn sami og þyturinn í l aufi hennar heyrist ekki lengur. En grenitrén bera sitt barr, þótt vetur s teypi yfir þau h vítri mjöll. L engi sér í grænar greinar sem minna á sumarið. Þótt vetur ríki leynist líf um allan skóg, líf sem bíður nýs sumars, nýs vaxtar. Bókinni lýkur hér en starfinu og sögunni um skóginn er ekki lokið.
56
57
ÖRNEFNASKRÁ Alpafjöll 33 Alaska 26. 28. 32 Asía 25 Atlavík 12, 28, 34 Atlavíkurstekkur 21,22 Austurland 25 Árnessýsla 32,54 Breiðamerkursandur 9, 12,46, 48, 52 Bretlandseyjar 56 Brimnesskógur 21, 38 Bárðardalur 25 Bæjarstaðaskógur 43 Djúpá 10 Evrópa 46, 50 Eyjafjörður 32 Fljótsdalshérað 43 Flugumýri 12,26 Fálkaklettur 23, 46 Gatnaskógur 25,32 Glóðafeykir 12,52 Guttormslundur 51 Gönguskarðsós 8 Hafursá 10 Hallormsstaðaskógur 28 Hekla 56 Jökulsá 26 Jökullækur 29 Kerlingará 38 Klettafjöll 10 Kolafjörður 34,35 Kolbeinsárós 38 Kyrrahaf 34 Lagarfljót 34, 46 Landbrot 39 Lýsishóll 37 Mið-Evrópa 12, 42
58
Mörk 8 Noregur 31 Norður-Ameríka 52 Norður-Noregur 16 Nýiskógur 6 Ormsstaðir 10 Pýreneafjöll 35 Rússland 12, 25, 26, 27, 32, 38, 46, 52 Skaftafellssýslur 22 Skaftártungur 6 Snæfell 12 Suðausturland 52 Suðurland 10 Suðvesturland 6 Svíþjóð 35 Tromsfylki 44 Vaglaskógur 52 Vestfirðir 45 Þingeyjarsýsla 45, 46 Þistilfjörður 23 Þórsmörk 12
PLÖNTUSKRÁ Alaskaösp 23 Álmur 54 Balsamþinur 25, 32 Bergfura 23 Birki 24 Bláber 48 Bláfjóla 45, 52 Blágreni 8 Blágresi 12 Blæösp 16 Blóðberg 8, 25, 26, 25, 32, 38, 46, 52 Brennisóley 17 Broddfura 56 Broddfura Broddgreni 35 Brönugrös 34 Bugðupunktur 18 Elfting 28 Elri 30 Fjallafura 54 Fjallaþinur 32 Fjallaþöll 40 Fjalldalafífill 30 Fura 18 Geldingahnappur 20 Gráreynir 20 Greni 31 Gulmaðra 50 Gulrófa 35 Gulrót 12 Hlynur 45 Holtasóley 25 Holurt 32 Hrútaberjalyng 45 Hvítelri 52 Hvítgreni 13
Hvítþinur 19 Ilmbjörk 42 Krækilyng 23 Lambagras 18 Lerki 42 Lindifura 51 Língresi 20 Maríustakkur 18 Marþöll 35 Móasef 24 Rauðelri 21, 34 Rauðgreni 35 Reynivður 24 Reyrgresi 18, 34 Seljureynir 21 Silfurreynir 14 Sitkagreni 42, 51 Skógarfura 20 Sortulyng 18 Stafafura 53 Svartgreni 24 Síberíuþinur 26 Umfeðmingur 35, 52 Víðir 21 Ösp 21 Þursaskegg 23, 34
59
Til minnis:
Jón Jósep Jóhannesson
Snorri Sigurðsson
Eftir vikudvöl í Hallormsstaðaskógi getur ekki hjá því farið að við höfum komið í Atlavík. Við skulum skreppa þangað enn einu sinni áður en við höldum burt frá Hallormsstað. Atlavík er lítil vík innarlega í Hallormsstaðaskógi upp frá Lagarfljóti. Tær lækur liðast niður víkina um sléttar grundir g rasi grónar, vaxnar kjarri hér og þar. Til beggja handa eru háir, skógivaxnir ásar. Víða sér í nakta hamra veggi sem teygja sig fram að fljótinu, m ynda víkina og veita henni skjól. Atlavíkur er getið í Landnámu og Droplaugarsonasögu og segir þar að G raut-Atli hafi numið þarna land og búið í Atlavík. Enginn veit nú lengur hvenær byggð lagðist þarna niður. Síðan Hallormsstaðaskógur var friðaður hefur Atlavík orðið fjölsóttur ferðamannastaður, því að landslagið er fagurt og einkennilegt. Tjaldstæði eru þ arna mörg og góð. Á sumrin er Atlavík vinsælasti samkomustaður Austfirðinga.