Kosningablað SHÍ er komið út! Nú styttist heldur betur í kosningar og við settumst niður með fulltrúum flokka sem bjóða fram í öllum kjördæmum og kynntum okkur þeirra sýn, hvað flokkar þeirra standa fyrir og hvernig þeir sjá háskólamálin fyrir sér. Í blaðinu er einnig að finna greinar eftir nemendur skólans, í bland við léttara efni. Við vonum að þið njótið vel og nýtið kosningaréttinn!