Árið hefur verið viðburðaríkt á svo marga vegu og hefur minnt á hvað samstaða skiptir miklu máli. Á meðan ég get verið stolt af þeim verkefnum sem við í stéttarfélögum höfum komið áleiðis þá er það ljóst að standa þarf vörð um þau réttindi sem þegar hafa áunnist. Þetta ár minnti okkur heldur betur á þá baráttu, þó að árangur náist þá krefst enn meiri vinnu við að halda í þau réttindi.
Að hluta til þá hefur þessi varnarbarátta verið gagnvart íslenskum stjórnvöldum, eða svokallaðri Valkyrjustjórn. Stjórnvöld hafa nú lagt fram áform um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna, sem kveður á um að ekki þurfi að áminna starfsfólk áður en kemur til uppsagna. Hér er verið að tala um lögreglumenn, tollverði, fangaverði, lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og fl. Þessi réttindi eru nátengd réttindum okkar félagsfólks
í Starfsmannafélagi Kópavogs. Þessi staða sem er í boði stjórnvalda, er grafalvarleg.
Eitt meginverkefni stéttarfélaganna hefur falist í því að vekja vinnandi fólk til meðvitundar um vald sitt til að knýja fram breytingar á samfélaginu. Það er þörf á að minna á það sem hefur áunnist á síðustu árum og áratugum, en það hefur Starfsmannafélag Kópavogs gert undir sterkri forystu BSRB og annarra stéttarfélaga.
Verðbólga og háir vextir hafa sett mark sitt á fjölskyldur og komið þeim í þrönga stöðu.
Á sama tíma og við stéttarfélögin tókum ábyrgð og sömdum um mjög hóflegar launahækkanir í síðustu kjarasamningum þá hefur verðbólga, í boði stjórnvalda, hækkað töluvert. Þetta hefur gríðarleg áhrif á okkar félagsfólk sem vinnur undir miklu álagi til að halda sveitarfélaginu gangandi.
Þá virðist það vera sú staða uppi núna að það sé eingöngu á ábyrgð okkar félagsfólks að halda niðri verðbólgu og lágum vöxtum, en ekki alls samfélagsins.
Árið 2025 var kvenna ár, en þá voru liðin 50 ár síðan konur lögðu niður launuð og ólaunuð störf. Fjöldi viðburða voru haldnir um land allt sem endaði á kvennaverkfalli 24. október síðast liðinn. Á árinu voru haldnir viðburðir sem minna á þann mikla kraft sem er innan stéttarfélagsins og hér væri hægt að nefna t.d. kvennaverkfallið 2025, 1. maí, Landsfund Bæjarstarfsmannafélaganna innan BSRB, NTR, öfluga trúnaðarmannafræðslu og svo mætti lengi telja.
Saman erum við sterk og það hefur félagsfólk í Starfsmannafélagi Kópavogs sýnt og sannað hvers megnugt það er. Ég er einstaklega stolt og hrærð yfir þeirri samstöðu sem hefur myndast innan félagsins og hlakka til að takast á við ný verkefni.
Starfsemi SfK Stjórn SfK
Stjórn Starfsmannafélags Kópavogs árin 2025-2026
Marta Ólöf Jónsdóttir
Jóhannes Ævar Hilmarsson
Elísabet Stefánsdóttir
Málfríður Anna Gunnlaugsdóttir
Íris Dögg Sverrisdóttir
Herdís Þóra Snorradóttir
Steina Sigurðardóttir
Stjórn Orlofsnefndar árin 2025-2026
Sigurður Þ. Kjartansson
Sunna S. Söebeck Arnardóttir
Kamilla E. Elísabetardóttir
Óttar Guðmundsson
Sigmundur Karl Kristjánsson
Gylfi Sigurðsson
Guðmundur Kjartansson
Helga Hafsteinsdóttir
Skoðunarmenn reikninga
Atli Sturluson
Bára Eyland Garðarsdóttir
Ágústa Einarsdóttir
Ómar Stefánsson
Formaður
Varaformaður
Ritari
Gjaldkeri
Meðstjórnandi
Varamaður
Varamaður
Formaður
Ritari
Meðstjórnandi
Meðstjórnandi
Meðstjórnandi
Varamaður
Varamaður
Áheyrnarfulltrúi
Aðalmaður
Aðalmaður
Varamaður
Varamaður
Stjórn Starfsmannafélags Kópavogs
hélt 12 fundi á árinu 2025.
Fundir stjórnar eru alla jafna
staðfundir og haldnir í Bæjarlind 14 í Kópavogi. En auk þess þá hefur stjórn verið virk í að nota rafrænar
þátttökuleiðir þegar svo ber undir og halda Teamsfundi. Skipulagðir fundir stjórnar eru yfirleitt einu sinni í mánuði en geta verið oftar ef þurfa þykir.
Eins og gera má ráð fyrir þá koma fjöldamörg mál til afgreiðslu stjórnar á árinu.
Á milli aðalfunda fer stjórn SfK með æðsta vald í málefnum félagsins. Stjórnin stýrir starfseminni í samræmi við lög félagsins og stefnumörkun aðalfundar. Stjórnina skipa alls sjö aðalfulltrúar, fimm aðalmenn og tveir til vara.
Stjórn
Starfsmannafélags Kópavogs er skipuð fólki með fjölbreytta reynslu
Skrifstofa SfK
Starfsfólk Starfsmannafélags Kópavogs tekst á við mörg verkefni og markmið með starfinu er alltaf að veita félagsfólki okkar þjónustu. Starfsfólk fylgir eftir málefnum félagsins sem mótuð eru af kjörnum fulltrúum þess. Starfsfólk gætir hagsmuna félagsfólks og er ávallt tilbúið að veita aðstoð er varðar þau málefni sem koma inn á borð félagsins. Málefnin eru mörg og af ýmsum toga.
Félagsfólk okkar vinnur við ólík störf á margvíslegum starfsstöðvum á vegum Kópavogsbæjar.
Starfsfólk SfK undirbýr mál og skipuleggur aðalfund félagsins, stjórnarfundi, fundi trúnaðarmannaráðs, fundi orlofsnefndar og aðra fundi sem haldnir eru hvort sem það eru viðburðir eða annað. Starfsfólk veitir félagsfólki þess fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf, t.d. varðandi kjaramál, réttindi, orlofsmál, réttindi í sjóði, fræðslu, menntamál og fleira.
Orlofsmálin eru stór þáttur í starfsemi félagsins og stöðugt er verið að bæta kerfin, sinna viðhaldi og öðrum búnaði, vera í samskiptum við umsjónarmenn, kaupa fasteignir og svo mætti lengi telja. En félagið á sjö fasteignir.
Starfsfólk og stjórn SfK leitast við í hvívetna að skoða alla verkferla, hvernig og með hvaða hætti sé best að mæta þörfum okkar félagsfólks með góðri upplýsingagjöf, bættri þjónustu, auknu framboði af viðburðum og fleira í huga.
Hjá Starfsmannafélagi Kópavogs starfar jákvætt starfsfólk með mikla þekkingu og reynslu.
Helga Hafsteinsdóttir
Þjónustufulltrúi
Marta Ólöf Jónsdóttir
Formaður
Heimasíða SfK
Árið 2024 voru nýjar mínar síður opnaðar og var það bylting í þjónustu við félagsfólk í Starfsmannafélagi Kópavogs. Á árinu 2025 var svo bætt um betur og ný og endurbætt heimasíða félagsins tekin í notkun. Með nýju síðunni er búið að bæta aðgengi upplýsinga umtalsvert og getur félagsfólk nálgast upplýsingar sem snúa að réttindum, skyldum og þjónustu félagsins á einfaldan og skýran hátt.
Sérstök áhersla var lögð á notendavæna uppbyggingu, skýra framsetningu og einfalt aðgengi að ítarlegum upplýsingum. Þar má nú finna umfangsmiklar og uppfærðar upplýsingar um kjaramál, réttindi og skyldur, sjóði og styrki, orlofskosti, námskeið og viðburði, auk margvíslegrar annarrar þjónustu sem félagið veitir.
Fréttaveita síðunnar hefur jafnframt verið styrkt til muna og gerir félaginu kleift að miðla upplýsingum hratt og markvisst. Með því er tryggt að félagsfólk sé vel upplýst um kjaramál, viðburði, fræðslu og annað sem varðar starfsemi félagsins.
Einnig voru innleiddir skráningarmöguleikar á námskeið og viðburði, sem auðvelda þátttöku og auka yfirsýn yfir fræðslu- og félagsstarf. Með nýju síðunni hefur verið lagður traustur grunnur að áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu í takt við breyttar þarfir og væntingar félagsfólks.
Elsa Ósk Alfreðsdóttir Verkefnastjóri
Mínar síður SfK í myndmáli
Nú getur félagsfólk skráð sig inn á mínar síður í gegnum heimasíðu félagsins og þær halda utan um alla orlofskostina en einnig utan um styrki.
Nú er handhægt að skoða alla þá orlofskosti sem félagið hefur upp á bjóða hvort sem það er að leigja orlofshús, panta veiðikort, útilegukort, ferðaávísun eða Icelandair gjafabréf. Félagið á sjö eignir, þær eru; Bjarkarás og Birkihlíð í Munaðarnesi, Þverlág á Flúðum, Eiðavatn á Egilsstöðum, Hvassaland á Akureyri, Hvammur í Reykjaskógi og Arnarborg í Stykkishólmi.
Inni á mínum síðum er nú hægt að skoða styrki sem félagið veitir vegna náms og námskeiða, tómstundastyrk og styrk vegna líkamsræktar.
Með auðveldum hætti getur nú félagsfólk séð stöðu styrkja, bætt við gögnum og séð stöðu umsókna. Mínar síður eru í stöðugri þróun og til framtíðar munu mínar síður geta haldið utan um viðburði og annað á vegum félagsins.
Konur eru í miklum meirihluta og telja 1174 á meðan fjöldi karla eru 493 Í félaginu eru 1667 félagsmenn og í lífeyrisdeild eru 218 félagar, í heildina eru 1885 einstaklingar
BSRB
BSRB eru stærstu heildarsamtök starfsfólks í almannaþjónustu á Íslandi. Bandalagið var stofnað þann 14. febrúar 1942 af fjórtán stéttarfélögum með samtals um 1.550 félagsmenn.
BSRB hefur vaxið mikið síðan og í dag eru aðildarfélögin 19 talsins með um það bil 25.000 félagsmenn. Um tveir þriðju félagsmanna aðildarfélaga BSRB eru konur.
Bandalagið leiðir hagsmuna- og réttindabaráttu launafólks sem starfar í almannaþjónustu hjá ríki, sveitarfélögum, óhagnaðardrifnum stofnunum og almennum vinnumarkaði. Bandalagið talar máli félagsmanna aðildarfélaga gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum og vinnur að markmiðum sínum um að stuðla að bættu velferðarsamfélagi og auknum jöfnuði í samfélaginu.
Hlutverk BSRB er einnig að efla aðildarfélög bandalagsins og styðja þau í því að veita félagsmönnum góða þjónustu. Hluti af því er stuðningur við gerð kjarasamninga, aðstoð við úrlausnir á lögfræðilegum álitaefnum, ýmsar greiningar og rannsóknir á sviði hagfræði og stjórnsýslu og vinna tengd fræðslu- og upplýsingamálum.
Aðildarfélög BSRB geta falið bandalaginu að fara með samningsrétt fyrir sína hönd í kjarasamningum í þeim málum þar sem þau eiga sameiginlega hagsmuni en kjarasamningsmál og gerð kjarasamninga er á hendi hvers aðildarfélags.
Þing BSRB, sem haldin eru þriðja hvert ár, fer með æðsta vald í öllum málum bandalagsins. Þar móta þingfulltrúar stefnu bandalagsins og kjósa í helstu embætti. Síðasta þing bandalagsins, það 47. í röðinni, var haldið þann 2. – 4. október 2024.
Starfsmannafélag Kópavogs átti 12 fulltrúa á Þingi BSRB sem tóku þátt í málefnanefndum, en þær voru kjaramál, velferðarmál, jafnrétti og jöfnuður og framtíðarvinnumarkaðurinn. Á þingi BSRB kusu þingfulltrúar formann, tvo varaformenn og stjórnarmenn sem stýra starfsemi bandalagsins í samræmi við samþykktir.
Næsta þing BSRB verður haldið 13. - 15. október 2027 á Hilton Reykjavík Nordica
Formannaráð BSRB
Formannaráð BSRB er skipað formönnum aðildarfélaga bandalagsins hverju sinni.
Ráðið mótar stefnu og megináherslur
BSRB í málum sem koma upp milli þinga bandalagsins og fylgir eftir framkvæmd samþykkta þingsins og annarra mála sem þingið vísar til ráðsins. Fundir ráðsins, sem haldnir eru að minnsta kosti þrisvar á ári, er einnig vettvangur samráðs aðildarfélaga bandalagsins. Formaður BSRB er jafnframt formaður ráðsins.
Formannaráðsfundur BSRB var haldinn í Varmalandi i Borgarfirði, þann 30. september. Fundurinn var vel sóttur og ráðið kom saman til að ræða ýmis mál, meðal annars viðbrögð við þá atlögu sem stjórnvöld gera nú að réttindum vinnandi fólks, með áformum um afnám áminningarskyldunnar.
Efnahagsmálin, staða launafólks sem og forgangsmál og áherslur BSRB í sveitastjórnarkosningunum í vor voru einnig tekin fyrir á fundinum.
Fræðslustyrkir úr Starfsmenntasjóði
Á árinu 2025 voru greiddar 459 umsóknir úr starfsmenntasjóð til félagsfólks, en þær voru 312 árinu 2024. Umsóknum fjölgar um 147.
Það voru veittir 21 styrkir vegna íslenskunáms til félagsfólks sem hefur annað móðurmál en íslensku, en styrkirnir voru 13 á árinu 2024.
Það voru veittir 34 styrkir vegna ráðstefnu innanlands og eða erlendis en þeir voru 23 á árinu 2024.
Veittir voru 50 styrkir vegna tómstunda en þeir voru 28 á árinu 2024.
Styrkir til náms á framhaldsskólastigi voru 102 og er en þeir voru 68 á árinu 2024.
Flestir styrkir eru vegna háskólanáms eða 252 og er það töluverð aukning frá árinu 2024 en þá voru styrkirnir 180.
Úthlutanir úr sjóðnum námu því 29.036.286 krónum og er það sambærilegt og 2024 en þá var úthlutað 20.813.137 krónum.
Styrkir vegna heilsueflingar Námskeið til félagsfólks
Félagið veitir styrk vegna heilsueflingar og voru styrkir til félagsfólks
á árinu 346 og var úthlutað 3.986.177 krónum, en þær voru 302 árinu 2024 að upphæð 2.733.533 krónur. Hámarks styrkur frá SfK er 12.000 krónur á ári til einstaklings en einnig á félagsfólk okkar rétt á styrk frá Styrktarsjóðnum Kletti og er fullur styrkur þar 35.000 krónur.
Styrkveitingar Starfsmannafélags
Kópavogs hafa aukist verulega og má
ætla að Mínar síður félagsins séu að veita nánari og betri upplýsingar til okkar félagsmanna.
Starfsmannafélag Kópavogs
hélt á árinu þrjú námskeið fyrir félagsfólk.
| Páskaeggjanámskeið
Fyrsta námskeiðið sem félagið hélt á árinu var páskaeggjanámskeið og vegna vinsælda þá voru haldin tvö slík námskeið sem voru virkilega vel sótt. Það var hann Halldór konditor sem hélt námskeiðið og félagsfólk fór heim að loknu námskeiði með sitt eigið handgerða páskaegg.
| Vel heppnað Macramé námskeið
Félagið stóð fyrir skapandi og vel sóttum viðburði þar sem félagsfólki bauðst að taka þátt í Macramé vegghengjanámskeiði undir handleiðslu Heru Sigurðardóttur hjá Flóð & Fjöru. Hera leiddi hópinn í gegnum undirstöðuatriði Macramé-hnúta og að loknu námskeiði höfðu allir búið til sitt einstaka vegghengi.
| Lærðu að búa til þín eigin náttúrulegu smyrsl úr lækningarjurtum
Elsa Ósk Alfreðsdóttir, þjóðfræðingur og eigandi Venus kenndi félagsfólki á nokkrar lækningajurtir, virkni þeirra og meðhöndlun. Hún var með kennslu í smyrslagerð, fór yfir ýmsar uppskriftir og allir fengu með sér sitt eigið smyrsl heim.
Hlutverk og ábyrgð trúnaðarmanna Hlutverk og ábyrgð trúnaðarmanna
Hlutverk trúnaðarmanns felst meðal annars í að gæta hagsmuna félagsfólks Starfsmannafélags Kópavogs á vinnustað, miðla upplýsingum á milli félagsfólks um kjara- og réttindamál og gæta þess að kjarasamningar séu virtir. Hlutverkið er bæði fjölbreytt og gefandi og felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu.
Trúnaðarmenn og stjórn Starfsmannafélags Kópavogs mynda saman Trúnaðarmannaráð félagsins sem kosið er til tveggja ára í senn. Trúnaðarmenn eru um 44 talsins. Trúnaðarmenn eru helsta tenging félagsins við vinnustaðina og sinna þeir því afar mikilvægu grasrótarstarfi. Allt félagsfólk getur boðið sig fram sem trúnaðarmenn. Hlutverkið er bæði fjölbreytt og gefandi og felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu, sem gagnast bæði í lífi og starfi. Einnig er á ábyrgð trúnaðarmanna að fjalla um kjara- og réttindamál starfsfólks á vinnustöðum, og miðla til annarra af þekkingu sinni um kjarasamninga sem hafa verið gerðir á opinberum vinnumarkaði. Fundir Trúnaðarmannaráðs voru fjórir á árinu 2025. Starfsmannafélag Kópavogs hefur það að markmiði að viðhalda fjölbreytileika á fundunum, þar sem reynt er að hafa puttann á púlsinum og fjalla um kjaramál sem og málefni félagsins. Fræðsla fyrir trúnaðarmenn hefur verið mjög fjölbreytt og mikið í boði af námskeiðum sem haldin eru af Félagsmálaskóla alþýðu. Markmiðið er að efla þekkingu trúnaðarmanna á kjaramálum, styrkja þá og efla í starfi.
Árið 2024 lagði Starfsmannafélag Kópavogs upp breytt fyrirkomulag á skipulagi trúnaðarmannafunda, þ.e.a.s.. að allir fundir fyrir komandi ár yrðu skipulagðir fram í tímann og settur upp tímaás. Þannig að fundir yrðu að öllu jafna í febrúar, apríl, september og desember, þetta eru þeir fundir sem SfK skipuleggur og heldur utan um. Einnig að í september ár hvert myndi SfK standa fyrir heilsdags fræðslufundi fyrir trúnaðarmenn og félagið myndi kortleggja þá fræðslu sem trúnaðarmenn væru helst að kalla eftir. Þannig megi betur mæta þeim verkefnum sem trúnaðarmenn eru að takast á við á sínum vinnustað. Þegar félagið lagði af stað í þessa vinnu var ljóst að gott tækifæri væri til að gera betur, bæði varðandi skipulag, tímasetningar, hvaða fræðslu ætti að bjóða upp á og fl. Þetta fyrirkomulag var viðhafst árið 2025 og hefur nýst trúnaðarmönnum vel og hefur þátttaka verðir einstaklega góð. Það er fyrir utan þau námskeið og fræðslu til trúnaðarmanna sem Félagsmannaskóli Alþýðunnar heldur utan um.
Á fyrsta trúnaðarmannafundi ársins sem haldinn var í febrúar var greind fræðsluþörf trúnaðarmanna, farið var yfir 36 stunda vinnuviku, kosningu trúnaðarmanna framundan, fariðvar yfir hvaða helstu upplýsingar vanti inn á heimasíðu félagsins til að styðja við trúnaðarmenn og hvernig félagið geti aukið þátttöku og tengsl innan trúnaðarmannahópsins.
Á trúnaðarmannafund félagsins í apríl kom til okkar hún Soffía Ámundadóttir með erindið Ofbeldi barna og ungmenna. Soffía hefur mikla reynslu er kemur að þessum málaflokki og hefur starfað á menntavísindasviði HÍ, á Neyðavistun Stuðla, í Brúarskóla, sérskólum, Endurmenntun HÍ, KVAN, Val og KSÍ.
Mynd frá fræðslufundi trúnaðarmanna í febrúar 2025
Fræðsludagur í Kríunesi
Boðið var upp á frábæra dagskrá þar sem Helena Jónsdóttir frá Mental ráðgjöf kom til okkar og var með erindi og vinnustofur um mörk: Áræðni í samskiptum og sálfræðilegt öryggi. Helena er klínískur sálfræðingur að mennt og hefur t.d. starfað sem sálfræðingur hjá Læknum án landamæra um allan heim en hún er einnig stofnandi og framkvæmdarstjóri Mental ráðgjöf. Þá kom hún Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og listakona með erindið – Er pláss fyrir þig í þínu lífi? Þar fjallaði hún m.a. um streitustjórnun, bjargráð og ásetning. Umræður sem sköpuðust í kjölfarið sýndu að þörfin fyrir slíka fræðslu er brýn og trúnaðarmenn gátu tengt bæði persónuleg málefni sem og málefni sem þeir standa frammi fyrir í trúnaðarmannastarfi sínu fyrir hönd stéttarfélagsins.
Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og almennt var mikil ánægja með fræðsluefnið. Vert er að taka fram að öll fræðsla ársins 2025 er skipulögð út frá þarfagreiningu sem gerð var meðal trúnaðarmanna í upphafi árs.
Síðasti fundur ársins var svo haldinn í desember sem farið var meðal annars yfir lestur launaseðla og gerð var ný þarfagreining fyrir fræðslu ársins 2026.
VIRK Endurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun stofnuð árið 2008 af helstu samtökum stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði. Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.
Starf þeirra felst í að aðstoða félagsmenn við að endurheimta og efla starfsgetu og starfshæfni eftir veikindi eða slys. Lögð er áhersla á að halda vinnusambandi þegar það er til staðar og aðstoða við að finna leiðir til atvinnuþátttöku á nýjan leik.
Ung VIRK er sérsniðin þjónustuleið sem getur hentað fyrir einstaklinga á aldrinum 19-29 ára sem eru með litla nám- eða vinnusögu.
Markmiðið er að ljúka starfsendurhæfingu á farsælan hátt með því að útvega einstaklingum störf við hæfi og fyrirtækjum gott starfsfólk ásamt því að halda uppi virkri atvinnuþátttöku á Íslandi og stuðla að heilbrigðu samfélagi.
Gott samstarf við fyrirtæki er grundvöllur farsællar atvinnutengingar. Atvinnulífstenglar VIRK gegna lykilhlutverki í því að tengja einstaklinga við fyrirtæki eða stofnanir út frá óskum beggja og aðstoða einstaklinginn, en ekki síður vinnustaðinn.
Virk hefur búið til virknisdagatal með jákvæðum tillögum fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.
Þjónustan er veitt einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum með það að markmiði að auka vinnugetu einstaklinga.
Stuðst er við þá þekkingu og reynslu sem hefur skapast innan starfsendurhæfingar VIRK varðandi hindranir, verndandi þætti og aðstæður í vinnuumhverfinu. Litið er til ólíkra þátta er viðkoma líðan í vinnu. Þjónustan er í boði fyrir bæði einstaklinga og vinnustaði.
Þjónustukannanir VIRK sýna að þjónustuþegar eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu. Einstaklingum sem glíma við heilsubrest sem hindrar þá frá vinnu er bent á að ráðfæra sig við lækni varðandi starfsendurhæfingu. Ef læknir metur að þörf sé á starfsendurhæfingu sendir hann tilvísun til VIRK. Félagsmenn sem leita til styrktarsjóð BSRB fá jafnan upplýsingar um þjónustu VIRK.
Sveitarfélag ársins
Starfsmannafélag Kópavogs stendur fyrir vali á sveitarfélagi ársins ásamt níu öðrum bæjarstarfsmannafélögum BSRB en valið byggir á niðurstöðu könnunar sem send er til starfsfólks sveitarfélaganna. Þau sveitarfélög sem fengu besta niðurstöðu voru heiðruð í athöfn í október síðastliðnum en þetta var í fjórða sinn sem sveitarfélag ársins er valið. Árið 2025 uppfylltu 22 sveitarfélag skilyrði þess að komast á lista til útnefningar og fengu fjögur þeirra nafnbótina „Sveitarfélag ársins 2025“. Þetta eru sveitarfélögin Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiðaog Gnúpverjahreppur.
Starfsfólk SfK annast þetta verkefni í samstarfi við Gallup sem sér um framkvæmd könnunarinnar fyrir bæjarstarfsmannafélögin tíu og sendir út rafrænan spurningalista til félagsfólks þeirra sem eru í 30% starfi eða meira og hafa verið félagsmenn í a.m.k. þrjá mánuði. Einnig gefst sveitarfélögum tækifæri til að gera sérstakan samning við Gallup og fá könnunina lagða fyrir allt starfsfólk þeirra óháð félagsaðild.
Þannig geta í reynd öll sveitarfélög landsins
tekið þátt. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi og stjórnun.
Mælingin nær yfir fjölbreytta þætti en þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi sveitarfélaganna.
Þáttagreining (e. factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem leitast er eftir. Heildareinkunnin er vegið meðaltal úr þáttunum sem greindir eru og er hún grunnur útnefningar á Sveitarfélagi ársins.
Undirbúningur fyrir könnunina Sveitarfélag ársins 2026 er hafinn og verður könnunin send til þátttakenda í apríl.
Landsfundur Bæjarstarfsmannafélaga
| Árlegur landsfundur Bæjarstarfsmannafélagana var haldin á Akureyri 19. – 21. nóvember 2025.
Fundurinn var vel sóttur en það voru fulltrúar frá 11 stéttarfélögum sem sóttu fundinn en það eru; Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannfélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Foss stéttarfélag í almannaþjónustu, Félag opinbera starfsmanna á Austurlandi, Starfsmannafélag Vestmanneyja, Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu og Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu.
Bæjarstarfsmannafélögin héldu kynningu á starfsemi síns félags en þau voru ellefu talsins. Marta Ólöf Jónsdóttir formaður SfK kynnti félagið og starfsemi þess. Sonja Ýr Þorbergsdóttir kynnti hlutverk BSRB og þjónustuviðmið en fór einnig yfir sögulega þróun samtakanna frá stofnun þeirra árið 1942.
Heimspekingurinn Þórgnýr Dýrfjörð flutti erindið „Hin dyggðum prýdda manneskja –um gæði lífsins og hamingjuna sjálfa“. Hann dró fram mismunandi kima siðfræðinnar; hver og hvað ákvarðar rétt og rangt en einnig hvernig dyggðir binda saman gildi og hegðun. Hægt er að þjálfa dyggðir rétt eins og aðra hæfni, til dæmis hugrekki – við getum þjálfað okkur í hugrekki.
Hrund Hlöðversdóttir, framkvæmdarstjóri Mannauðssjóðsins Heklu, kynnti starfsemi sjóðsins. Sveitarfélög, stofnanir og vinnuveitendur sem greiða í sjóðinn geta sótt í hann fyrir sitt starfsfólk en mikilvægt er að skoða úthlutunarreglur áður en sótt er um.
Mannauðssetrið heldur hins vegar utan um verkefni, mótar stefnur og vinnur að fræðslutækifærum. Eitt af verkefnum Mannauðsseturs er könnunin um Sveitarfélag ársins en í ár er fjórða árið sem hún er gerð.
Kvennafrídagurinn
| 24. OKTÓBER 2025
stundin er runnin upp
Tugir þúsunda kvenna og kvára komu saman í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af 50 ára afmæli Kvennafrísins 1975.
Starfsmannafélag Kópavogs var aðili að Kvennaverkfallinu og hvatti félagsfólk til þátttöku í samstöðuaðgerðum og fundum um allt land.
Yfirskrift útifundarins á
Arnarhóli í ár var:
„Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur.“
Sko mömmu hún hreinsaði til“ – söguganga
Dagskráin í Reykjavík hófst með sögugöngu undir yfirskriftinni „Sko mömmu hún hreinsaði til“.
Þar tók Bríet Bjarnhéðinsdóttir (leikin af Söndru Barilli) á móti göngufólki við upphaf göngunnar á Sóleyjargötu og leiddi það inn í sögu kvennabaráttunnar.
Á leiðinni á Arnarhól tók við röð viðburða sem táknuðu vörður í kvennabaráttunni og heiðruðu baráttukonur sögunnar. Viðburðirnir voru fjölbreyttir – meðal annars tónlist, gjörningar og uppistand –og mynduðu lifandi frásögn af sögu kvennabaráttunnar.
Eftir sögugönguna söfnuðust konur og kvár saman á útifundi á Arnarhóli þar sem dagskráin var þétt og sjónum beint bæði að samtímanum og framtíðinni.
Krafan var skýr: að stjórnvöld grípi til raunverulegra aðgerða svo fullu jafnrétti verði náð.
Kvennafrídagurinn
Þá hélt formaður Starfsmannafélag Kópavogs, Marta Ólöf Jónsdóttir, ræðu á Arnarhól.
Yfirskrift dagsins – „Við mætum þar til við þurfum ekki að mæta lengur“ – undirstrikaði þrautseigjuna sem hefur einkennt baráttuna í hálfa öld, en líka vonina um samfélag þar sem slíkar aðgerðir verða óþarfar vegna þess að jafnrétti er orðið sjálfsagður raunveruleiki.
Gangan var hressileg áminning um að þeir áfangar í jafnréttisbaráttunni sem nú þegar hafa unnist hafi kostað harða baráttu kvenna sem á undan gengu –og að ekkert gerist af sjálfu sér. Hún minnti jafnframt á að sigrarnir eru margir, en líka að betur má ef duga skal: bakslag hefur birst í jafnréttismálum og mikilvægt er að standa vörð um áfanga fyrri kynslóða.
Hin magnaða kvennasamstaða þvert á pólitískar línur árið 1975 lagði hornsteininn að hinum stórkostlegustu þjóðfélagsbreytingum. En þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi.
Átaks er þörf þegar kemur að ofbeldi og áreiti, launamisrétti, vanmat á störfum kvennastéttar. Brúa þarf bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, vinna markvisst á inngildingu og virðingu fyrir fjölbreytileika og fjölmenningu ásamt því að auðvelda aðgengi fólks með fötlun að vinnumarkaðinum.
Varða Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins
| Ný skýrsla Vörðu sýnir ójafna skiptingu heimilisstarfa meðal karla og kvenna.
Konur sinna heimilisstörfum og ábyrgð heimilisins langt umfram karla. Verkskipting hjá konum og körlum í sambúð er mjög hefðbundin þar sem konur sjá í mun meira mæli um verkefni sem eru dagleg eða unnin oft í viku og innandyra en karlar sjá frekar um störf sem eru unnin utandyra og oftar tilfallandi. Samkvæmt niðurstöðunum sinnir meirihluti kvenna alltaf eða yfirleitt þvotti og þrifum á heimilinu. Karlar sinna hins vegar mun frekar viðhaldi, bílum og reiðhjólum.
| Jafnari ábyrgð á fjármálum og matseld
Ögn jafnari verkaskipting kemur fram í verkefnum sem snúa að matseld og fjármálum heimilisins. Þó hallar á konur þegar kemur að matargerð en nærri helmingur kvenna sér alltaf eða yfirleitt um það sem snýr að innkaupum, eldamennsku og frágangi eftir mat. Hins vegar er hærra hlutfall karla en kvenna sem sinnir alltaf eða yfirleitt fjármálum heimilisins eða ríflega fjórir af hverjum tíu.
| Konur og karlar meta framlag sitt til heimilisstarfa með
ólíkum hætti
Þegar kemur að verkefnum sem karlar segjast sinna í meira mæli en konur, svo sem viðhaldi og umhirðu bíla, er talsvert samræmi milli svara kynjanna um verkskiptingu á heimilinu. Karlar telja sig þar bera meginábyrgð og stór hluti kvenna segir að maki þeirra sjái um þau verkefni. Þegar hins vegar kemur að verkefnum sem konur segjast sinna í meira mæli, eins og þrifum og þvotti, er samræmið minna. Þar telur stór hluti karla að
verkefnunum sé jafnt skipt sem rímar ekki við svör kvennanna. Þetta bendir til þess að talsverður munur sé á því hvernig karlar og konur meta eigið framlag til heimilisstarfa.
Varða Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins
| Konur bera ábyrgð á fleiri þáttum sem falla undir þriðju vaktina
Konur bera langt umfram karla ábyrgð á skipulagi og utanumhaldi heimilisins en umtalsvert hærra hlutfall kvenna en karla ber alltaf eða yfirleitt ábyrgð á sex af átta þáttum sem spurt var um í könnuninni og heyra undir svokallaða þriðju vakt. Þriðja vaktin er hugtak notað til að lýsa þeirri hugrænu vinnu sem felst í að muna eftir og skipuleggja hina ýmsu þætti er varða heimilislíf.
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins var stofnuð í maí 2020 af Alþýðusambandi Íslands og BSRB.
Grundvöllurinn að stofnun sérstakrar rannsóknastofnunar á sviði vinnumarkaðar endurspeglast í sameiginlegum markmiðum ASÍ og BSRB um að skapa víðtæka þekkingu á lífsskilyrðum fólks, byggja brú á milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar sem og að hvetja til sjálfstæðra rannsókna sem hafa þýðingu fyrir launafólk.
Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Skýrsluna má lesa í heild sinni á vefsíðu Vörðu, rannvinn.is.
NTR ráðstefnan
| Dagana 24.–26. ágúst 2025 fór fram NTR ráðstefna þar sem fulltrúar stéttarfélaga opinberra starfsmanna á Norðurlöndum komu saman til að ræða framtíð vinnumarkaðarins. Sérstök áhersla var lögð á áhrif gervigreindar, þróun símenntunar og áherslur Z-kynslóðarinnar. Alls tóku 35 fulltrúar BSRB þátt, þar á meðal þrír frá Starfsmannafélagi Kópavogs og fulltrúar frá Kjöl, FOSS, Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar, Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar, Starfsmannafélagi Vestmannaeyja og Sameyki. Samstaða félaganna var sterk og ákveðið að halda áfram samtali og þekkingaruppbyggingu um þessi lykilþemu. Næsta ráðstefna verður haldin í Þórshöfn í Færeyjum í september 2027.
| Christiane Vejlø, sérfræðingur í stafrænni þróun og framtíðargreiningu, fjallaði um áhrif gervigreindar á störf og samfélag. Hún lagði áherslu á að gervigreind væri komin til að vera og myndi bæði fella niður störf og skapa ný. Hún lýsti gervigreind sem virkum „aðstoðarmanni“ sem geti greint, þróað hugmyndir og haft ráðgefandi áhrif á ákvarðanatöku. Á sama tíma minnti hún á að mennskan – tilfinningar, tengsl og lifuð reynsla – sé það sem aðgreini mannfólk frá vélum. Hún varaði jafnframt við hættum á borð við falsfréttir og djúpfölsun og undirstrikaði mikilvægi ábyrgðar og skýrrar stefnumótunar á tímamótum í þróun vinnumarkaðarins.
| Rebecka Prentell frá ThinkTank, hugsmiðju sænska stéttarfélagsins
Vision, fjallaði um þróun vinnumarkaðarins næstu ár. Hún dró fram áhrif tæknibreytinga og gervigreindar, áskoranir tengdar loftslagsbreytingum, veikingu trausts til lýðræðislegra stofnana og mikilvægi þess að standa vörð um norræna vinnumarkaðslíkanið. Þá lagði hún áherslu á að hefðbundin námsleið sé að víkja fyrir sveigjanlegri og styttri námsúrræðum og að ævilangt nám verði lykilforsenda aðlögunar. Þrátt fyrir áskoranir sé almennt bjartsýni ríkjandi, en aðlögunarhæfni og virk þátttaka stéttarfélaga skipti sköpum fyrir félagslega sjálfbærni.
| Malte Moll Wingender frá
Analysa & Tal kynnti niðurstöður rannsóknar um Z-kynslóðina á vinnumarkaði. Þar kom fram að ungt fólk leggur mesta áherslu á að vinna við það sem það er gott í, upplifa sterkt félagslegt samfélag og fá sanngjörn laun. Áhyggjur af streitu, kulnun og jafnvægi milli vinnu og einkalífs eru áberandi, og einn af hverjum sjö upplifir einmanaleika í starfi. Ungt fólk vill finna til viðurkenningar og taka þátt í ákvarðanatöku. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að stéttarfélög nái til ungs fólks og skapi vettvang þar sem þau upplifa tilheyra og geta byggt upp faglegt sjálfstraust.
NTR ráðstefnan
| Øystein Holm-Haagensen frá norska stéttarfélaginu Delta fjallaði um hvort gervigreind væri samstarfsmaður eða samkeppnisaðili. Hann benti á að tæknin gæti aukið framleiðni og sparað tíma, en einnig skapað ójöfnuð og óöryggi. Hætta sé á að framleiðniaukning skili sér ekki í bættum kjörum launafólks og að bil myndist milli þeirra sem kunna á tæknina og hinna sem gera það ekki. Rannsóknir sýna að margir starfsmenn upplifa bæði áhuga og óöryggi gagnvart gervigreind, en fræðsla eykur jákvæðni og öryggi. Þetta kallar á skýra stefnu og öflugan stuðning stéttarfélaga við símenntun og færniþróun.
| Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdarstjóri Starfsmenntar, fjallaði um ævilangan lærdóm og mikilvægi færniþróunar. Hún lagði áherslu á að nám fari fram allt lífið –í formlegu, ekki-formlegu og óformlegu samhengi – og að vitneskja, færni og viðhorf saman stuðli að aukinni frammistöðu og vellíðan. Hún benti á að hvati og stuðningsumhverfi skipti sköpum og að innri hvöt sé oft sterkari en ytri umbun. Á meðal helstu áskorana eru hraðar tæknibreytingar, breytt aldurssamsetning vinnumarkaðar og skortur á grunnfærni hjá hluta fólks. Hún undirstrikaði að stéttarfélög gegni lykilhlutverki í að skapa rými fyrir símenntun, styðja þá sem standa höllum fæti og byggja áfram á trausti og samtali norræna vinnumarkaðslíkansins.