1134. tbl - 24. árg.
7. nóvember 2024
Björgunaræfing með þyrlu Laugardagskvöldið 2. nóvember fór fram samæfing hjá björgunarsveitinni Lífsbjörgu og Landhelgisgæslu Íslands rétt fyrir utan Ólafsvíkurhöfn. Þar tóku Björgunarskipið Björg og Sæbjörg II ásamt 14 félögum björgunarsveitarinnar Lífsbjargar þátt í þyrluæfingu með TF-GNÁ. Æfingin fólst í hífingu úr uppblásnum gúmmíbjörgunarbát og upp úr sjó, auk hífinga til og frá borði á björgunarskipinu Björg. Þetta var fyrsta æfingin á nýju skipi sem tekið var á móti þann 13. október síðastliðinn í Rifshöfn og fór hún mjög vel. Félagar voru ánægðir með reynsluna, þar sem skipið og vinnuaðstaðan um borð eru til fyrirmyndar. Meðfylgjandi mynd tók Sindri Snær Matthíasson af æfingunni. SJ
Jöklarannsóknarfélagið fundaði í í Röst
Miðvikudaginn 30. október hófst ráðstefna norrænu deildar Alþjóða Jöklarannsóknafélagsins í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Ráðstefnan stóð yfir í þrjá daga og dró að sér fjölda íslenskra og erlendra gesta. Á ráðstefnunni er tekið á málum varðandi jöklarannsóknir, hlýnun jarðar og önnur umhverfismál.
Jöklarannsóknafélag Íslands var stofnað árið 1950 og er markmið félagsins er að stuðla að jöklarannsóknum og ferðalögum á jöklum Íslands. Ráðstefnugestir gistu á Adventure Hotel Hellissandur og Beniamin Ondycz og fjölskylda hans á Matarlist sáu til þess að öll væru vel nærð á meðan ráðstefnunni stóð. SJ