1125. tbl - 24. árg.
5. september 2024
20 ára afmælishátíð FSN Fjölbrautaskóli Snæfellinga var stofnaður fyrir 20 árum og var þeim áfanga fagnað 30. ágúst síðastliðinn. Á þessum 20 árum hefur skólinn útskrifað um 600 nemendur og markað sér mikilvæga sérstöðu í framsæknu skólastarfi en hann gegnir lykilhlutverki fyrir framhaldsmenntun og byggðirnar á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum. Fyrir hádegi 30. ágúst var opið hús í skólanum þar sem gestir gátu fylgst með krufningu, fiktað í fab lab stofu skólans, prófað heimsmarkmiðaspil og fleira. Gestum var boðið upp á skúffuköku og mjólk á meðan þeir skoðuðu hvað skólinn hafði upp á að bjóða. Eftir hádegi var hátíðardagsskrá þar sem fyrrum og núverandi þingmenn, ráðherrar, bæjarstjórar, nemendur og aðrir venunnarar skólans voru komnir saman til þess að fagna þessum áfanga. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari skólans, setti hátíðina og kynnti veislustjórann á svið, Gísla Pálsson en hann er einnig íþrótta- og lýðheilsukennari skólans. Sturla Böðvarsson tók til máls en hann var þingmaður svæðisins þegar ákvörðun var tekin um að byggja framhalds-
Á myndinni eru Bjarni Jónsson, Ólafur Tryggvason, Sólrún Guðjónsdóttir, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, Björg Ágústdóttir og Jón Bjarnason.
skóla á Snæfellsnesi. Sturla tók fyrstu skóflustunguna 17. desember árið 2003 en í 30. ágúst 2004 var skólinn vígður. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar, tók til máls en hún talaði um rannsóknarvinnuna sem átti sér stað áður en ákvörðun var tekin um að stofna skólann. Farið var í aðra framhaldsskóla á sambærilegum svæðum og kostir og gallar metnir í samræmi við það. Nú situr hún í stjórn Jeratúns ehf. ásamt bæjarstjórum hinna bæj-
arfélaganna á Snæfellsnesi en hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis FSN. Jeratún ehf. gaf skólanum 2.000.000 króna í tilefni áfangans og er vilji þeirra að gjöfin nýtist í skemmtilega hluti til þess að göfga skólastarfið. Lárus Ástmar Hannesson tók einnig til máls en fjögur börn hans hafa útskrifast frá skólanum. Jón Bjarnason fyrrverandi þingmaður og ráðherra flutti ávarp og rifjaði upp skólahald fyrri tíma á Snæfellsnesi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var menntamálaráðherra þegar FSN var settur í
fyrsta sinn og var hún þá viðstödd setninguna. Hún flutti þá ávarp sem ráðherra en hún var einnig viðstödd 20 ára afmæli skólans og rifjaði upp aðdraganda skólastarfsins. Davíð Svanur Hafþórsson söng nokkur lög við athöfnina en hann tók þátt í söngvakeppni framhaldsskólanna á síðasta ári fyrir FSN. Hólmfríður Friðjónsdóttir þýskukennari spilaði einnig fallega tóna á píanó á hátíðinni. Eftir ræðuhöldin var gestum boðið upp á köku og kaffi.
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði
Davíð Svanur Hafþórsson söng nokkur lög við athöfnina
vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður