Skip to main content

Bæjarblaðið Jökull 1123. tbl.

Page 1

1123. tbl - 24. árg.

22. ágúst 2024

Hugað að sjóvörnum í Staðarsveit

Undanfarna daga hafa íbúar Snæfellsbæjar tekið eftir aukinni umferð vörubíla á vegum sveitarfélagsins, farmur þessara bíla er efni í grjótgarð sem mun verja Barðastaði í Staðarsveit fyrir ágangi sjávar. Efnið er fengið úr grjótnámu við Rif og er gert ráð fyrir að alls fari um 2.520 rúmmetrar af grjóti og kjarna í garðinn en hann verður um 170 metrar að lengd. Áætlanir gera ráð fyrir að verkinu ljúki um næstu mánaðarmót. Verkið var boðið út í apríl á þessu ári og í sama útboði var einnig rúmlega 40 metra garður sem leggja á út við Keflavíkurgötu á Hellissandi, í þann garð fara tæplega 1.100 rúmmetrar af grjóti og kjarna og mun verktakinn fara í það í byrjum september þegar verkinu við Barðastaði er lokið. Í útboðinu var áætlaður verktakakostnaður 30,8 milljónir, fjögur fyrirtæki buðu í verkið og voru

tvö af þeim heimamenn, B. Vigfússon ehf. og Stafnafell ehf., lægsta boðið kom hinsvegar frá Flakkaranum ehf. sem bauð rúmlega 33,5 milljónir sem er um 8,8% yfir áætluðum verktakakostnaði, ekki munaði nema rúmum tvö-

hundruð þúsundum á Flakkaranum ehf. og B. Vigfússyni ehf. sem var með næstlægsta tilboðið. Fleiri framkvæmdir eru áætlaðar hjá Höfnum Snæfellsbæjar á næstunni því að verið er að semja við aðila sem mun sjá um dýpkun

við nýstækkaða trébryggju í Ólafsvík, þá verður fleygað úr klöpp í botni hafnarinnar svo að dýpi við bryggjuna verði ekki undir 3 metrum. Myndina úr Staðarsveit tók Þórður Björnsson. JÓ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook