Skip to main content

Bæjarblaðið Jökull 1120. tbl.

Page 1

1120. tbl - 24. árg.

27. júní 2024

Fjöldi fólks hljóp við krefjandi aðstæður

Snæfellsjökulshlaupið fór fram síðastliðinn laugardag þegar metfjöldi þátttakenda hljóp frá Arnarstapa, yfir jökulhálsinn og yfir marklínuna við Gilið í Ólafsvík. 304 hlauparar mættu á Arnarstapa um morguninn tilbúnir að takast á við brekkur, rigningu og snjó á toppnum. Fyrir ári voru 176 hlauparar og því talsvert betri þátttaka í ár. Vitað var að þrír til fimm kílómetrar af leiðinni væri þakin snjó en auk þess höfðu leysingar myndað smálæki á leiðinni. Guðlaugur Ari Jónsson var fyrstur karla í mark á tímanum 1:40:46. Fyrsta konan var Halldóra Huld Ingvarsdóttir á tímanum 1:45:16 en hún sló brautarmet í fyrra þegar hún hljóp á

tímanum 1:41:20. Fyrsta heimamaðurinn til að klára hlaupið í ár var Brynjar Vilhjálmsson en hann hljóp á tímanum 1:49:26. Við endalínuna fengu hlauparar frábæran gjafapoka sem starfsmenn Smiðjunnar hafa unnið við að útbúa undanfarna mánuði en í pokanum leyndist næring, drykkur og allskonar glaðningar. Þegar hlaupinu var lokið var verðlaunaafhending í íþróttahúsi Snæfellsbæjar þar sem efstu þrír hlauparar í hverjum flokki fengu veglegar gjafir og verðlaunapening sem var hannaður af Antoni Jónasi Illugasyni fyrir keppnina. Í kjölfarið voru úrdráttarverðlaun afhent þar sem nokkrir heppnir fengu vinninga frá styrktaraðil-

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

um Snæfellsjökulshlaupsins. Allir þátttakendur fengu frítt í sund eftir hlaupið enda flest blaut og köld eftir ævintýrið. Skipuleggjendur hlaupsins vilja koma þökkum á framfæri til styrktaraðila, sjálfboðaliða og

allra þeirra sem lögðu sitt af mörkum á laugardaginn. Án þeirra væri ekki hægt að halda svona stóran viðburð. Myndirnar hér að ofan tók Þröstur Albertsson en fleiri myndir frá hlaupinu eru inni í blaðinu. JJ

Þór dró skemmtiferðaskip

Á Facebooksíðu Landhelgisgæslunnar kemur fram að áhöfnin á varðskipinu Þór hélt á mánudag æfingu með áhöfn franska farþegaskipsins Le Commandant Charcot. Æfingin gekk afar vel og fólst í að koma taug á milli skipanna og draga franska skipið í um hálfa klukkustund. Varðskipið Þór stóðst þessa þolraun vel og náði

mest um 8 hnúta hraða með skipið í togi. Æfingar sem þessar eru sérlega mikilvægar svo áhafnir beggja skipa séu sem best undirbúnar ef á reynir. Ólafur Hlynur Illugason var á veiðum á Jónasi Gunnarssyni SH og smellti meðfylgjandi mynd af æfingunni.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook