5. júní 2025
1163. tbl - 25. árg.
Óðinn heimsótti Snæfellsbæ
Gamla varðskipið Óðinn lagðist fyrir utan Ólafsvík fyrir Sjómannahelgina til að taka þátt í fögnuði helgarinnar. Skipið hélt frá Reykjavíkurhöfn þann 29. maí með 19 manns um borð auk Péturs Steinars Jóhannssonar sem sigldi með skipinu vestur. Óðinn er safnskip sem þjónaði Landhelgisgæslu Íslands frá 1960 til 2006. Á föstudagsmorguninn tók Óðinn þátt í minningarathöfn úti á víkinni ásamt bátum frá Ólafsvík og
Rifi. Minnst var látinna sjómanna í athöfninni og blómakransar lagðir á víkina. Óðinn sigldi svo til Ólafsvíkurhafnar ásamt bátunum og var þar til sýnis fyrir almenning á föstudaginn. Mikil umferð var um skipið þar sem fólk kynnti sér starfsemi skipsins og skoðaði sig um. Óðinn sigldi svo úr höfn á laugardagsmorguninn og hélt til heimahafnar í Reykjavík. Myndina tók Þröstur Albertsson
Sjómanndagsmót golfklúbbsins Jökuls
SJ
Golfklúbburinn Jökull í Ólafsvík hélt 9 holu Sjómannadagsmót á Fróðárvelli. 35 kylfingar mættu til leiks til að byrja sjómannadagshelgina með sveiflu. Brynjar Óttar Jóhannsson fór með sigur úr býtum með 22 punkta, í 2. sæti var Guðbjörn
Sigfús Egilsson með 21 punkt og í 3. sæti var Styrmir Páll Sigurðarson með 21 punkt. Styrktaraðilar Sjómannadagsmótsins voru Valafell, Sjávariðjan, Hafkaup og Hraðfrystihús Hellissands. SJ