1169. tbl - 25. árg.
20. ágúst 2025
29 tóku þátt í PRSmóti Skotgrund
Fossbúinn Challenge PRS Pro fór fram í Grundarfirði dagana 16. og 17. ágúst. Mótið var á vegum Skotfélags Snæfellsness og va það haldið á svæði félagsins í Kolgrafafirði. Keppnin snýst um að keppendur skjóti í skotmörk á löngu færi og hafa þau 2 mínútur til að ljúka hverri þraut. Vindasamt veður gerði keppendum erfitt fyrir á mótinu en það
dró þó ekki úr þeim. 29 þátttakendur voru á mótinu, bæði innlendir og erlendir og var það norðmaðurinn Hans Frederik Vatnedal sem sigraði mótið með 80 stig. Mikil vinna og undirbúningur hefur verið á svæðinu fyrir mótið og félagar í skotfélaginu unnið að mikilli uppbyggingu á skotsvæðinu að undanförnu. Mótið heppnaðist virkilega vel og voru kepp-
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
endur og áhorfendur sáttir með aðbúnað og aðstöðu sem er skot-
félaginu til mikils sóma. Meðfylgjandi mynd tók Sverrir Karlsson.
SJ
Unglingalandsmót
Tæplega 20 keppendur frá HSH tóku þátt á Unglingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Almenn ánægja var með mótið, keppendur stóðu sig mjög vel
og voru sjálfum sér og öðrum til sóma. Mótið er kjörið tækifæri fyrir iðkendur til þess að spreyta sig í nýjum íþróttagreinum. HSH þakkar foreldrum og forráðamönnum fyrir gott mót.