24. júní 2026
1213. tbl - 26. árg.
Hlaupið yfir Jökulháls í fimmtánda sinn Laugardaginn 20. júní var Snæfellsjökulshlaupið haldið í fimmtánda sinn. 157 hlauparar lögðu af stað frá Arnarstapa og lá leið þeirra yfir jökulhálsinn og yfir til Ólafsvíkur, um 22 kílómetra. Aðstæður í ár voru nokkuð góðar, snjór var á köflum á hluta leiðarinnar og nokkuð vindasamt. Eftir klukkustund og 44 mínútur kom fyrsti hlauparinn í mark en það var heimamaðurinn Brynjar Vilhjálmsson. Þetta er í fyrsta sinn sem heimamaður vinnur Snæfellsjökulshlaupið en Brynjar gerði sér lítið fyrir og hljóp frá Ólafsvík yfir á Arnarstapa áður en hann hóf keppni, hljóp til baka og sigraði. Brynjar Vilhjálmsson sigraði á tímanum 1,44,39. Í öðru sæti var Kristján Svanur Eymundsson á 1,45,29 og í þriðja sæti var Hannes Jóhannsson á tímanum 1,47,01. Í kvennaflokki sigraði Dalrós Inga Ingadóttir á tímanum 01:56:55. Í öðru sæti var Marín Rut Elíasdóttir á 02:05:08 og í þriðja sæti Sigrún Sigurðardóttir sem hljóp á 02:05:18. Ingunn Ýr Angantýsdóttir og Sigrún Ólafsdóttir standa að hlaupinu, þær hafa með sér gott bakland í verkefnið, björgunarsveitin Lífsbjörg sá um drykkjarstöðvar og hvatningu á
hlaupaleiðinni fyrir keppendur og sjúkraflutningsmenn voru til taks ef eitthvað skyldi koma uppá. Karítas Sveina Guðjónsdóttir tók meðfylgjandi myndir sem fanga góða stemningu í vel heppnuðu hlaupi.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
SJ