1212. tbl - 26. árg.
17. júní 2026
s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is
Met þátttaka á Héðinsmóti Árlegt Héðinsmót líkamstæktarinnar Sólarsport fór fram í þriðja sinn laugardaginn 13. júní. Mótið er haldið til minningar um Héðinn Magnússon heitinn sem fórst með Svanborgu SH árið 2001. 19 keppendur mættu til leiks í íþróttahúsinu í Ólafsvík í bekkpressukeppni og keppt var í fjórum flokkum, unglingaflokki, kvennaflokki, karlaflokki undir 100 kg og karlaflokki yfir 100 kg. Líkt og síðustu ár mætti Magnús Ver Magnússon, fjórfaldur sigurvegari í sterkasta manni í heimi, og dæmdi á Héðinsmótinu. Guðmundur Njáll Þórðarsson og Dagbjört Lind, dóttir hans, eru eigendur Sólarsports og sjá um skipulag og framkvæmd mótsins ásamt fjölda sjálfboðaliða en mótið er haldið í samráði við vini og fjölskyldu Héðins. Í ungmennaflokkur var Adrian Pienkowski í 1. sæti með 112,5 kg, í öðru sæti var Vadym Ilnytskaya var í 2. sæti með 110 kg og Oliver Zolobow lyfti 105 kg og lenti í 3. sæti. Í kvennaflokki átti Guðný Hanna Sigurðardóttir sigurinn með 60 kg lyftu, Orsola Balogh var í 2. sæti með 35 kg og Elle Aquino var í 3. sæti einnig með 35 kg. Þá var Hubert Stachecki í 1. sæti í karlaflokki undir 100 kg með 135 kg, Svanlaugur Atli Jónsson var í 2. sæti með 132,5 kg og Mohamed Iratni var í 3. sæti með 125
kg. Að lokum tók Arek Lakomski sigurinn í karlaflokki fyrir 100 kg með 210 kg, Piotr Janewics var í 2. sæti með 190 kg og Benedikt Haukur Guðmundsson var í 3. sæti með 180 kg.
Mótið gekk virkilega vel, fjöldi fólks mætti til að fylgjast með og met þátttaka var á mótinu í ár. Þar að auki sló Arek mótsmet með 210 kg lyftu sinni en ekki munaði miklu að hann hafi náð 220 kg
upp. Það má sjá árangur þátttakenda á milli ára og hafði Magnús Ver orð á því á mótinu hve öflugir keppendur væru, þá sérstaklega þeir í ungmennaflokki. SJ