Skip to main content

BaejarbladidJokull1211tbl

Page 1

1211. tbl - 26. árg.

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi, hátíðahöld voru bæði í Grundarfirði og Snæfellsbæ og góð þátttaka enda veður með besta móti. Meðal atriða á Rifi var að þyrla

Landhelgisgæslunnar hífði þrjá sjálfboðaliða Lífsbjargar upp úr höfninni og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Á innsíðum blaðsins er fjallað ítarlega um dagskrá helgarinnar í máli og myndum.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

10. júní 2026

Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á Jaðri

Hátíðardagskrá var á Dvalarog hjúkrunarheimilinu Jaðri um helgina en hún byrjaði á því að kór Átthagafélags Strandamanna kom í heimsókn og söng fyrir íbúa ljúfa tóna. Um kvöldið bauð Sjómannadagsráð íbúum og starfsmönnum upp á veislumat. Sami matseðill var á Jaðri

og á sjómannahófinu sem var haldið í Klifi. Á meðan íbúar og starfsmenn nutu matarins söng Freyr Eyjólfsson veislustjóri sjómannahófsins nokkur vel valin lög. Forsvarsmenn Jaðars vilja þakka kórnum og Sjómannadagsráði fyrir þessa skemmtun og hlýhug í garð Jaðars. JJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1211tbl by Steinprent - Issuu