27. maí 2026
1209. tbl - 26. árg.
Gáfu augnlampa og hjartasírita Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands afhentu Heilbrigðisstofnunin Vesturlands veglega gjöf á dögunum. Með myndarlegum framlögum til söfnunar samtakanna gátu þau afhent augnlampa eða raufarlampa til heilsugæslunnar í Ólafsvík og Holter hjartasírita til starfssvæðis HVE. Hjónin Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir færðu söfnuninni höfðinglegt framlag að fjárhæð 2 milljónum króna og sveitarfélagið Snæfellsbær lagði einnig fram 300 þúsund krónur til verkefnisins. Af því tilefni var augnlampinn afhentur formlega á heilsugæslunni í Ólafsvík föstudaginn 22. maí að viðstöddum fulltrúum Hollvinasamtakanna, starfsfólki HVE og styrktaraðilum. Augnlampi eða raufarlampi er nákvæmt greiningartæki sem notað er til að skoða fremri hluta augans, meðal annars hornhimnu, lithimnu og augastein. Með slíkum búnaði er hægt að greina augnsjúkdóma og breytingar á auganu fyrr og með meiri nákvæmni, sem bætir þjónustu við sjúklinga á svæðinu. Sævar Freyr Þráinsson, formaður Hollvinasamtaka HVE segir Hollvinasamtökin einstaklega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem samfélagið sýnir Hollvinasamtökunum og HVE. Þessi framlög skipta verulegu máli fyrir heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi og gera samtökunum kleift að styðja við mikilvægan tækjabúnað sem nýtist bæði starfsfólki og sjúklingum um ókomin ár. Á aðalfundi Hollvinasamtakanna í mars síðastliðnum var samþykkt
Á myndinni eru Ástþór Vilmar Jóhannsson, Svanfríður Kristjánsdóttir, starfsmaður heilsugæslunnar í Ólafsvík, Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir, styrktaraðilar, Sævar Freyr Þráinsson formaður hollvinasamtaka HVE, Þrúður Halla, Patryk Zolobow og Birna Dröfn Birgisdóttir, starfsmenn heilsugæslunnar í Ólafsvík, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá HVE, Regína Ösp Ásgeirsdóttir, starfsmaður heilsugæslunnar í Ólafsvík, Kristjana Hermannsdóttir sem situr í stjórn Hollvinasamtaka HVE og fulltrúi Snæfellsness og Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir, forstjóri HVE.
að næsta söfnunarverkefni samtakanna yrði kaup á augnlampa fyrir Ólafsvík og fjórum Holter hjartasíritum sem nýtast munu um allt starfssvæði HVE. Hollvinasamtökin hvetja áfram fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga til að taka þátt í verkefninu og styðja við áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi en hægt er að gerast félagsmaður Hollvinasamtakanna og greiða árgjald að upphæð 3.000 krónum á Facebook síðu Hollvinasamtakana sem ber nafnið Vesturlandsvaktin. SJ
Rafmagnslaust aðfaranótt föstudags
Aðfaranótt föstudagsins 29. maí n.k. hyggst Landsnet fara í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir í tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rarik í Vatnshömrum. Af þessum sökum mun verða rafmagnslaust á stóru svæði í u.þ.b. 2 klst., eða frá kl. 00:10-02:10 þessa nótt. Svæðið sem um ræðir er allt Snæ-
fellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes. Rarik hvetur viðskiptavini sína á svæðinu til að gera viðeigandi ráðstafanir sé þess þörf. Meðfylgjandi er kort af því svæði sem um ræðir og verður rafmagnslaust í u.þ.b. 2 klst.