Skip to main content

BaejarbladidJokull1208tbl

Page 1

20. maí 2026

1208. tbl - 26. árg.

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Kajakræðarar tjölduðu í fjörunni

Ljósmyndara bæjarblaðsins Jökuls beið óvenjuleg sjón í fjörunni í Ólafsvík á dögunum. Þegar ljósmyndara bar að höfðu tveir ferðalangar komið sér fyrir á grjótinu efst í fjörunni aftan við N1 og tjaldað þar tjaldi. Það var greinilegt að um kajakræðara væri að ræða þar sem þeir höfðu lagt

kajökunum á meðan þeir hvíldu sig. Ferðalangarnir höfðu heppnina með sér að ekki hafi verið stórstreymi þessa nóttina en vert er að nefna að tjaldsvæði Snæfellsbæjar hafa opnað og eflaust hægt að ná betri nætursvefni þar. SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Lionsklúbbur Ólafsvíkur mun í ár, eins og undanfarin ár, bjóða upp á fermingarskeyti. Fermt verður 24. maí í Ingjaldshólskirkju og Ólafsvíkurkirkju. Hægt er að nálgast skeytapöntunarblöð í Kassanum og á Facebook-síðu Lionsklúbbs Ólafsvíkur Í Kassanum er hægt að skila skeytapöntunum en að auki er hægt að senda skeytapöntun í tölvupósti á stebbifera@gmail.com


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1208tbl by Steinprent - Issuu