13. maí 2026
1207. tbl - 26. árg.
Bátur í slipp í Höllinni Menn sem sækja Höllina í Snæfellsbæ og Leikskóli Snæfellsbæjar hafa átt farsælt samstarf þegar kemur að viðgerðum á leiktækjum. Nokkrir vörubílar af útisvæðum leikskólanna hafa verið sendir í viðgerð og komið til baka eins og nýir. Fyrir nokkru fengu þeir Teni og Jón stærra verkefni upp í hendurnar en bátur sem hefur staðið á leikskólalóðinni við Krílakot þurfti yfirhalningu. Nú er báturinn kominn til þeirra í Höllina og hafa þeir staðið í ströngu við lagfæringar undanfarnar vikur. Nemendur af rauðu deild Krílakots heimsóttu þá á dögunum og tóku út verkið. Þeim leist vel á framvinduna og hlakka til að fá endurbættan bát aftur í garðinn eftir fjarveruna. JJ
Úthlutun úr framkvæmdasjóði aldraðra Úthlutun úr framkvæmdasjóði aldraðra fór fram í byrjun mánaðarins og voru um 1,4 milljörðum króna úthlutað sem verður varið í uppbyggingu og eflinu öldrunarþjónustu um allt land. 55 styrkir voru veittir til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á öldrunarstofnunum vegna ársins 2026. Í byrjun árs var reglugerð sjóðsins breytt á þann veg að styrkjahlutföll voru hækkuð í 20/40% í 50%. Með því var sjóðurinn að reyna að laða að umsóknir frá minni öldrunarstofnunum á landsbyggðinni sem hafa átt í erfiðleikum með að fjármagna mótframlögin. Við mat á umsóknum og forgangsröðun úthlutana lagði stjórn sjóðsins sérstaka áherslu á bættan aðbúnað í íbúðum,
lyftur og bætt aðgengi íbúa, öryggiskerfi og öryggismál ásamt viðhaldi húsnæðis, innan og utan. Þá var bættur aðbúnaður í sameiginlegum rýmum og viðgerðir vegna rakaskemmda einnig í forgangi. Hjúkrunarheimilið Fellaskjól sótti um styrk m.a. fyrir endurnýjun rafmagnstöflu og fékk úthlutað 1.193.289 krónum. Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar sótti um styrki fyrir tvenns konar framkvæmdum. Annars vegar var sótt um styrk fyrir endurnýjun lyftu og var þeim úthlutað rúmum 3 milljónum króna og hins vegar var sótt um endurnýjun sjúkrakallkerfis og var heimilinu úthlutað rúmar 2 milljónum króna í verkefnið. JJ
BREYTING AÐALFUNDARDAGS ÓLAFSVÍKURSÓKNAR Aðalfundur verður haldinn í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 9. júní kl 17,00. Á dagskránni eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Fólk er hvatt til að mæta og ræða málefni kirkjunnar og taka þátt í störfum hennar. Sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju.