Skip to main content

BaejarbladidJokull1205tbl

Page 1

29. apríl 2026

1205. tbl - 26. árg.

Stóri plokkdagurinn var 26. apríl Sunnudaginn 26. apríl var tekið höndum saman á vegum Snæfellsjökulsþjóðgarðs og friðlandið á Arnarstapa hreinsað í tilefni af Stóra plokkdeginum. Hópur vaskra plokkara kom saman á sunnudagsmorgun og týndu rusl sem finna mátti í umhverfinu. Ýmislegt fannst, stórt og smátt sem fjarlægt var af svæðinu og fundu ungir sem aldnir margt forvitnilegt sem ekki á heima í náttúrunni. Fleiri tóku höndum saman í sínu nærumhverfi þennan dag og mun vinnan við að fegra nærumhverfið halda áfram fram á sumarið. Leikskólar og skólar hafa lagt sitt af mörkum, félagasamtök og einstaklingar sömuleiðis en margar hendur vinna létt verk. Meðfylgjandi mynd tók Ingunn Ýr Angantýsdóttir, þjónustustjóri Snæfellsjökulsþjóðgarðs. SJ

Söngskemmtun á Sumardaginn fyrsta AÐALFUNDUR ÓLAFSVÍKURSÓKNAR verður haldinn í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 19. maí kl 17,00. Á dagskránni eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.

Kvennasöngsveitin Skaði, karlakórinn Heiðbjört og Söngfjelagið fögnuðu sumri í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi á Sumardaginn fyrsta. Kórarnir þrír, sem þekktir eru fyrir léttleika og mikla sönggleði leiddu saman hesta sína og sungu vorið inn fyrir tónleikagesti. Söngfjelagið er blandaður kór af höfuðborgarsvæðinu, Heiðbjört samanstendur af körlum af sunnan-

verðu Snæfellsnesi og Skaði er kvennasveit af sunnanverðu Snæfellsnesi. Það sem kórarnir þrír eiga þó sameiginlegt er að allir syngja þeir undir stjórn Hólmfríðar Friðjónsdóttur, kórstjóra og sá hún um kórstjórn á umræddum tónleikum kóranna. Fjöldi fólks gerði sér ferð í Þjóðgarðsmiðstöðina til að hlíða á sönginn og átti þar notalegt upphaf á sumrinu sem var að hefjast. SJ

Fólk er hvatt til að mæta og ræða málefni kirkjunnar og taka þátt í störfum hennar. Sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1205tbl by Steinprent - Issuu