Skip to main content

BaejarbladidJokull1204tbl

Page 1


Steinum skilað í Snæfellsjökulsþjóðgarð

Fjöldi ferðamanna sem fer í gegnum Snæfellsjökulsþjóðgarð er töluverður og fjölgar þeim með ári hverju. Stórbrotin náttúran er framandi sjón fyrir marga og hafa ferðamenn sem eiga leið um svæðið freistast til að taka með sér minjagripi úr náttúrunni, aðallega fjörugrjót og hraun. Þegar heim er komið rennur oft upp fyrir ferðalöngunum að óheimilt er samkvæmt lögum að fjarlægja steina eða önnur jarðefni af friðlýstum svæðum. Þá berast Snæfellsjökulsþjóðgarði gjarnan þungir pakkar frá sakbitnum ferðamönnunum ásamt bréfi með beiðni um að grjótinu sé skilað á sinn rétta stað. Í nýjustu sendingu þjóðgarðsins vísar sendandinn í ógæfu sem hann telur að tengist því að hafa tekið grjótið og biður sérstaklega um að grjótinu verði komið aftur á upprunastað sinn til að snúa ógæfunni við.

Það er með öllu óheimilt að taka grjót eða aðra muni úr friðlýstum svæðum á Íslandi. Slíkar reglur eru settar til að vernda viðkvæm vistkerfi og jarðmyndanir. Með því að virða reglur friðlýstra svæða hjálpast allir að við halda náttúrunni óspilltri.

Tjaldsvæðin opin

Sumarið nálgast óðfluga, vor er í lofti, sólinn lætur sjá sig hitinn er rólega að skríða upp í tveggja stafa tölur. Tjaldsvæði Snæfellsbæjar opnuðu á dögunum fyrir sumarið en tjaldsvæðin á Hellissandi og í Ólafsvík hafa notið mikilla vinsælda síðustu

ár. Snæfellsbær leitast eftir því að bæta sífellt þá aðstöðu og þjónustu sem finna má á tjaldsvæðunum. Gestir á liðnu ári voru tæplega 27.000 og fer þeim vaxandi með hverju ári. Umsjón með tjaldsvæðunum hefur Patrick Roloff.

Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is

Hörður Grímsson á Langaholti

Helgina 17. til 19. apríl var óvenjuleg en skemmtileg helgi á Langaholti. Rúna Björg og Keli Vert á Langaholti héldu utan um skipulag á eftirminnilegum viðburði laugardaginn 18. apríl þar sem aðdáendur Harðar Grímssonar mættu í tugatali víða af landinu og áttu helgi með Stefáni Mána Sigþórssyni, heimamanni og höfundi bókanna vinsælu um Hörð Grímsson. Hörður Grímsson leit fyrst dagsins ljós fyrir 17 árum og hefur Stefán Máni skrifað 13 bækur um vinsæla lögreglumanninn.

Á viðburðinum fór Stefán Máni yfir sögu Harðar, las upp úr öllum 13 bókunum sem þegar hafa komið út og gefa gestum innlit í næstu bók sem er væntanleg í haust. Auk þess fór hann djúpt í allar bækurnar, leyndarmálin og framtíð Harðar. Þá var búningakeppni meðal viðstaddra þar sem keppst var um veglega vinninga með því að

klæðast upp sem einhver persóna úr bókunum um Hörð.

Mikil ánægja var með viðburðinn og hefur nú þegar ver-

ið kallað eftir örðum slíkum viðburði frá aðilum sem misstu af tækifærinu að þessu sinni. Gestir helgarinnar, skipuleggjendur og

vel heppnaða helgi. SJ

Víkingur í úrslit Lengjubikars

Víkingar er komnir í úrslit B-deildar Lengjubikarsins eftir frábæran sigur á sterku liði Dalvíkur/Reynis. Leikurinn byrjaði mjög vel og sjáanlegt að bæði liðin voru mætt á völlinn til þess að sækja sigur. Tveir leikmenn Dalvíkur/Reynis, þeir Guðlaugur Rafn Ingvarsson og Sævar Þór Fylkisson fengu gul spjöld á tuttugustu mínútu eftir harkalega baráttu um boltann. Alysson Fernando Santos Da Silva skoraði fyrsta mark leiksins á 24. mínútu. Almar Örn Róbertsson náði að jafna fyrir Dalvík/Reyni þegar hann skoraði mark í seinni hálfleik en Ellerti Gauta Heiðarssyni tókst að koma Víkingum aftur yfir þremur mínútum seinna. Fleiri mörk komu ekki í leiknum og eru Víkingar því komnir í úrslit í B-deild Lengjubikars karla 2026. Úrslitin munu fara fram á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 25.

apríl klukkan 14:00 þegar Víkingar mæta Haukum. Stuðningsmenn liðsins eru hvattir til að fjölmenna á völlinn á laugardaginn og hvetja okkar menn til sigurs.

Herrakvöld Víkings Ó. verður svo um kvöldið á Sker þar sem stuðningsmenn munu taka þátt í málverkauppboði og happadrætti en aðalvinningur kvöldsins er rúmlega 600.000 króna saunatunna. Miðar á herrakvöldið eru enn fáanlegir og eru menn hvattir til að tryggja sér miða. JJ

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

rithöfundurinn sjálfur voru sátt með

Smáhýsi á lóðum

Snæfellsbær vekur athygli á að sækja þarf um leyfi til byggingarfulltrúa vilji íbúar setja niður smáhýsi innan lóðar.

Ekki er gert ráð fyrir smáhýsum innan lóða í gildandi deiliskipulögum og

því þarf í öllum tilfellum að sækja um leyfi til byggingarfulltrúa hafi íbúar hug á því að setja niður smáhýsi innan lóðarmarka.

Umsókn þarf að fylgja yfirlitsmynd sem sýnir staðsetningu smáhýsis á lóð. Umsókn er tekin til umfjöllunar hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar. Hljóti umsókn jákvæða afgreiðslu nefndarinnar fer málið í grenndarkynningu.

Nánar um byggingareglugerð 9.7.6. má finna í viðeigandi frétt á snb.is.

Ef eitthvað er óljóst bendum við á netfangið byggingarfulltrui@snb.is.

Bækur frá Krabbameinsfélaginu

Á dögunum færði Krabbameinsfélag Snæfellsness Amtsbókasafninu í Stykkishólmi, Bókasafni Snæfellsbæjar og og Bókasafni Grundarfjarðar bókina “Kona verður orðlaus Lygilega sönn reynslusaga” eftir Birnu G. Konráðsdóttur.

Lygilega sönn reynslusaga um málóða konu sem varð „orðlaus“ bæði vegna krabbameins í barka, sem og samskipta við íslenska heilbrigðiskerfið. Bókin er raunsæ, en jafnframt ærslafull ádeila með skáldlegu ívafi. Opinská frásögn um einstaka seiglu í andstreyminu sem vekur lesanda til umhugsunar um hið dýrmæta fjöregg sem líf okkar allra er.

Lesendur eru kynntir fyrir hliðarsjálfum höfundar. Um er að ræða þríeyki með dömu nokkra í broddi fylkingar. Sú er kotroskin kerla sem hjálpaði höfundi við að þrauka erfiða tíma í veikindunum, ásamt guðsbarni og drottningu. Í þessari frásögn kveður við sammannlegan tón, en öll búum við að sögum, reynslu og upplifunum sem aðrir geta sótt styrk í og jafnvel fengið innsýn í áður

ókannaða kima lífsins

Hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur bókina á ykkar bókasafni!

Héðinsmótið í júní

Skráning er hafin á árlegt Héðinsmót Sólarsports í bekkpressu sem haldið verður í Ólafsvík laugardaginn 13. júní 2026. Mótið er haldið til minningar um Héðinn Magnússon heitinn sem fórst með Svanborgu SH árið 2001. Guðmundur Njáll Þórðarsson og dóttir hans, Dagbjört eru eigendur Sólarsports og sjá um skipulag og fram-

kvæmd mótsins en það var endurvakið sumarið 2024 eftir að hafa legið í dvala frá árinu 2005. Mótið er haldið í samráði við vini og fjölskyldu Héðins. Áhugasamir geta skráð sig á blaði í afgreiðslu Sólarsports eða með því að senda skilaboð á Sólarsport eða eigendur.

SJ

Einar tekur við meistaraflokk kvenna

Einar Magnús Gunnlaugsson hefur verið ráðinn markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR, Íþróttafélagi Reykjavíkur. Á dögunum skrifaði Einar undir eins árs samning við félagið um að þjálfa markmenn meistara -

flokks kvenna en hann starfar sem aðalþjálfari 3. flokks kvenna hjá ÍR. Hann þjálfaði einnig U20 lið félagsins í fyrra og þekkir því vel til meðal ungra leikmanna innan liðsins.

Aðal- og deiliskipulagstillögur

Háubakka í Grundar rði

Bæjarstjórn Grundar arðar samþykkti á fundi sínum þann 9. apríl sl. tillögu að deiliskipulagi Háubakka í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Hún hafði áður samþykkt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Háubakka 12. mars sl. Skipulagstillögurnar eru nú auglýstar samhliða á Skipulagsgátt. Með skipulagsgerðinni verða til sex einbýlishúsalóðir norðan Grundargötu vestast í Grundar rði. Tillögurnar eru auglýstar frá 21. apríl - 2. júní 2026. Ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðastalagi þann 2. júní í gegnum Skipulagsgátt HMS. Einnig er tillagan til sýnis í Ráðhúsi Grundar arðar, Sögumiðstöð á Grundargötu 35 og á heimasíðu bæjarins.

Kynningarfundur um tillögurnar verður í Sögumiðstöð, Grundargötu 35, mánudaginn 27. apríl nk. klukkan 17:00-18:30.

Grundar rði. 21. apríl 2026. Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi Grundar arðarbæjar

Bingó í tilefni sumarkomu á Jaðri

Lionsklúbburinn Rán hélt bingó á dvalarheimilinu Jaðri um liðna helgi í tilefni af sumardeginum fyrsta sem er í þessari viku. Ránarkonur komu færandi hendi með glæsilega vinninga fyrir íbúa en meðal þeirra voru konfekt, sælgæti, snyrtivörur og gjafabréf í klippingu og fót-

snyrtingu. Að fimm umferðum loknum buðu þær íbúum, gestum og starfsmönnum upp á gómsætar veitingar. Íbúar og starfsfólk Jaðars þakka ránarkonum kærlega fyrir skemmtunina og hlakka til að endurtaka leika að ári.

Drög að menntastefnu Snæfellsbæjar

Haustið 2025 tók Fræðslunefnd Snæfellsbæjar ákvörðun um að hefja skyldi vinnu við að endur-

skoða menntastefnu Snæfellsbæjar. Eldri stefna sveitarfélagsins var sett fram árið 2009 og því

komin til ára sinna. Fyrir verkefnið var skipaður stýrihópur og ráðinn verkefnastjóri frá Ásgarði

Nýr

framkvæmdastjóri G.RUN

Stjórn Guðmundar Runólfssonar hf hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra til starfa. Arnar Kristjánsson tekur formlega við starfinu 1. ágúst næstkomandi en hann hefur verðið starfandi við hlið núverandi framkvæmdarstjóra, Guðmundar Smára Guðmundsonar frá apríl. Arnar býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fyrirtækinu en hann hefur unnið þar í 36 ár sem sjómaður og farsæll skip-

stjóri á Helga SH og Runólfi SH. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að stefnt sé að áframhaldandi uppbyggingu og vexti í starfsemi félagsins og að Arnari sé vænst til að leiða fyrirtækið áfram með skýra framtíðarsýn. Guðmundur Smári Guðmundsson, fráfarandi framkvæmdarstjóri hefur gegnt starfinu af mikilli alúð og fagmennsku í 44 ár og mun láta af störfum 1. ágúst næstkomandi. SJ

skólaráðgjöf, Gunnþór E. Gunnþórsson. Verkefnið sem stóð þeim fyrir höndum var að greina stöðu í mennta- og uppeldisstarfi í sveitarfélaginu og móta framtíðarsýn til næstu ára með skýrri stefnu og innleiðingaráætlun. Stýrihópurinn ásamt Gunnþóri hafa unnið að uppsetningu stefnunnar með áherslu á samráð að leiðarljósi og því hefur íbúum Snæfellsbæjar gefist kostur á að taka þátt í mótun stefnunnar með íbúafundi og innsendnum ábendingum og nú óskar stýrihópurinn eftir ábendingum íbúa við drög að endurskoðaðri stefnu. Drögin er að finna á vefsíðu Snæfellsbæjar og eru bæjarbúar hvattir til að rýna vel í drögin og koma ábendingum á framfæri við Gunnþór, verkefnastjóra frá Ásgarði skólaráðgjöf, fyrir lok mánudagsins 27. apríl. Endurskoðun á menntastefnunni er áætlað að ljúki í vor ásamt aðgerðaráætlun til innleiðingar sem hefst í haust.

SJ

Lionsklúbbur Ólafsvíkur mun í ár, eins og undanfarin ár, bjóða upp á fermingarskeyti.

Fermt verður í Ingjaldshólskirkju 2. og 24. maí og Ólafsvíkurkirkju verður fermt 24. maí.

Hægt er að nálgast skeytapöntunarblöð í Kassanum og á Facebook-síðu Lionsklúbbs Ólafsvíkur

Í Kassanum er hægt að skila skeytapöntunum en að auki er hægt að senda skeytapöntun í tölvupósti á stebbifera@gmail.com

Sumarið bankar á dyr í Snæfellsbæ

Vorið er komið og er greinilegt að sumarið er á næsta leiti. Sumardagurinn fyrsti er framundan og á þessum tíma er áberandi hvernig bæjarbragurinn tekur að lifna við á ný eftir veturinn.

Á Hellissandi hefur hoppubelgurinn þegar verið opnaður við mikinn fögnuð yngstu kynslóðarinnar og í Ólafsvík er stefnt að opnun hans á sjálfan Sumardaginn fyrsta. Fótbotboltaæfingar

hafa færst út aftur eftir að snjórinn fór og sumarverkin eru líka farin af stað af fullum krafti. Götusóparinn er byrjaður að hreinsa götur bæjarins og víða má sjá starfsmenn við undirbúning og fegrun umhverfisins. Í Ólafsvík er hafin vinna við að mála hina vinsælu regnbogagötu sem vekur mikinn áhuga vegfarenda.

Efni og auglýsingum í Jökul

þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.

Það er í lagi að skila fyrr.

Plokkað

á sunnudag

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um land allt sunnudaginn 26. april og eru landsmenn hvattir til að plokka og fegra nærumhverfi sitt í tilefni dagsins.

Snæfellsbær tekur Stóra plokkdeginum fagnandi og útvegar plokkurum poka sem hægt verður að nálgast í Ráðhúsi Snæfellsbæjar, Sjoppunni Ólafsvík, Smiðjunni Fönix á Rifi og Hraðbúðinni á Hellissandi. Mánudaginn 27. apríl munu starfsmenn áhaldahúss sækja afrakstur plokksins á þrjá söfnunarstaði í þéttbýli Snæfellsbæjar. Söfnunarstaðir verða við gömlu slökkvistöðina að Naustabúð 7 á Hellissandi, aftan við grenndarskýlin við spennistöðina við Háarif og við Áhaldahús Snæfellsbæjar að Norðurtanga 7 í Ólafsvík. Lítil skilti munu merkja söfnunarstaðina.

Í Grundarfirði verður Plokkdagurinn einnig haldinn hátíðlegur en mæting verður klukkan 11:00 í Þríhyrning þar sem fólk skilgreinir hvar það vill plokka eða verður vísað á svæði. Allir fá ruslapoka og hanska og verða skilgreind ruslasöfnunarsvæði víðsvegar um bæinn. Plokkað verður í tvo klukkutíma en klukkan 13:00 hittast allir aftur í Þríhyrning þar sem boðið verður upp á léttar veitingar í boði Kvenfélagsins Gley-mér-ei.

Snæfellsjökulsþjóðgarður mun vera með plokk-viðburð á Arnarstapa á stóra plokkdeginum en þar mun fólk koma saman og hreinsa friðlandið við á Arnarstapa. Fólk er hvatt til að mæta klukkan 11:00 á bílastæðið við styttuna af Bárði Snæfellsás en þaðan gengur hópurinn saman og plokkar. Hressing verður í boði fyrir hressa plokkara að plokkinu loknu.

Sumarstörf hjá

Snæfellsbæ

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar.

Um er að ræða hvort tveggja útivinnu við Áhaldahús Snæfellsbæjar og flokkstjórn vinnuskólahópa.

Störfin hafa það að leiðarljósi að leiðbeina ungmennum Snæfellsbæjar við fyrstu skrefin í atvinnulífinu og fegra bæinn okkar.

Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimsíðu Snæfellsbæjar.

Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026.

Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar á snb.is.

Umsóknir sem berast í tölvupósti eða með öðrum hætti eru ekki teknar gildar. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.

Athugið að vinnuskóli fyrir börn í 8. - 10. bekk verður auglýstur síðar.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1204tbl by Steinprent - Issuu