Stór búrhvalur rak á land við Írskrabrunn við Gufuskála í síðustu viku. Hvalurinn virðist hafa verið dauður í nokkurn tíma þegar hann rak á land en mikil lykt er á svæðinu í kringum hvalinn. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína á staðinn til þess að bera hvalinn augum enda stór skepna eða um
12 metrar á lengd. Búrhvalir geta orðið allt að 20 metra langir og lifað í 60-70 ár. Þeir lifa á öllum helstu hafsvæðum og eru ekki óalgengir í Breiðafirði. Heili þeirra er stærri en í nokkru öðru spendýri og sýna merki um greind, samskipti og tilfinningar.
Snæfellsjökulsþjóðgarður hef-
ur gefið frá sér tilkynningu vegna hræsins en þau hvetja fólk til þess að snerta það ekki og halda fjarlægð. Lyktin næst ekki auðveldlega út fatnaði og bakteríur geta valdið sýkingarhættu. Til viðbótar er fjaran stórgrýtt og mikið um óstöðuga hnullunga sem
geta valdið fallhættu. Starfsmenn þjóðgarðsins hafa verið í sambandi við vísindasamfélagið og taka sýni úr hræinu sem verður sent til greiningar. Þau munu einnig halda áfram að fylgjast með þróun mála á strandstað. JJ
Tveir listar í Grundarfirði
Sveitastjórnarkosningar fara fram á landinu öllu laugardaginn 16. maí næstkomandi. Frestur til að skila framboðslistum rann út á hádegi föstudaginn 10. apríl síðastliðinn. Í Grundarfirði voru tveir framboð sem skiluðu inn lista en það voru annars vegar listi Framsóknar og félagshyggjufólks og hins vegar framboðslisti D og óháðra. Í Snæfellsbæ skilaði einungis eitt framboð inn lista fyrir skilafrest. Samkvæmt lögum bar kjörstjórn að framlengja framboðsfresti um tvo sólarhringa en engum framboðslista var skilað innan þess frests. Listi Sjálfstæðisflokksins verður þannig sjálfkjörinn til setu í bæjarstjórn Snæfellsbæjar á komandi kjörtímabili.
40 ára afmæli Kríubóls á Hellissandi
Leikskólinn Kríuból á Hellissandi fagnaði 40 ára afmæli sínu þann 4. apríl síðastliðinn. Á þeim degi árið 1986 var flutt inn í núverandi húsnæði skólans og því um merkan áfanga að ræða í sögu skólans. Í tilefni afmælisins var foreldrum og öðrum góðum gestum boðið til afmælisveislu í leikskólanum þann 8. apríl síðastliðinn, boðið var upp á kaffiveitingar, falleg listaverk eftir börnin prýddu veggina og saga skólans var til sýnis í máli og myndum. Fjöldi fólks leit við og bárust leikskólanum rausnarlegar gjafir í tilefni áfangans. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar færði leikskólanum 200.000 króna peningagjöf, Kvenfélag Hellissands færði leikskólanum 100.000 króna peningagjöf og Guðrún Halla og fjölskylda hennar færðu leikskólanum spil og púsl. Fyrir hönd foreldrafélagsins færði Valgerður Kristmansdóttir leikskólanum þráðlausann Bluetooth-hátalara, hann kemur með þráðlaus-
um hljóðnema. í hátalaranum er lýsing eða partýljós og er enginn vafi að hann mun nýtast vel í dans og hreyfingu, litla viðburði og ým -
Starfsfólk leikskólans Kríubóls vill þakka öllum þeim gestum sem sáu sér fært að koma og gleðjast
með þeim á afmæli leikskólans og um leið langar þeim að þakka kærlega fyrir góðar gjafir sem leikskólanum bárust í tilefni dagsins. SJ
Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.
Það er í lagi að skila fyrr.
Mfl. Víkings í æfingaferð til Spánar
Meistaraflokkur Víkings Ó. er í æfingaferð á spáni þar sem þeir munu þétta hópinn fyrir sumarið. Þeir spiluðu æfingarleik á móti liði Sindra á þriðjudag, strákarnir stóðu sig frábærlega og unnu leikinn 6-1. Eitt marka Víkings var sjálfsmark Sindra en önnur mörk skoruðu Allyson(2), Naim, Kristófer Áki og Asmer.
Benjamin Mehic hefur skrifað undir samning við meistaraflokk Víkings og mun koma til með að spila með liðinu í sumar. Benjamin ólst upp í Snæfellsbæ en hann er sonur fyrrum leikmanns Víkings, Zikrets Þórs Mehic. Benni er 25 ára varnarmaður og kemur til Víkings frá Kára en hann hefur spilað með Kára frá árinu 2023. JJ
Laugardaginn 11. apríl opnaði ný sýning Ingu Harðardóttur, listakonu og kennara í Grunnskóla Snæfellsbæjar, í 3 veggjum listrými á Hellissandi. Á sýningunni eru teiknaðar myndir eftir Ingu en ein af hennar fyrstu minningum er að teikna á eldhúsborðið á bernskuheimili sínu. Afi hennar hafði smíðað borð með plötu sem hægt var að teikna á og þvo í burtu og þetta borð varð Ingu endalaus uppspretta til að teikna á en þar teiknaði hún að jafnaði á hverjum degi.
Teikningar hafa verið fylginautur Ingu allt hennar tíð og notar hún hana á ýmsan máta. Stundum leyfir hún því að koma sem kemur þegar hún er með blað og penna auk þess sem hún notar teikningarnar til að skipuleggja sig, muna, íhuga, spá og spek-
úlera, leysa vandamál og finna lausnir. Teikningar hjálpa henni að skýra og koma hugmyndum niður á blað sem annars væru á reiki í huganum. Með teikningunni efnisgerir Inga það sem hún er að hugleiða og það sem vekur athygli hennar í umhverfinu.
Aðsókn á sýningaropnunina var mjög góð en hátt í 50 manns komu þar saman. Sýningin mun stand´í 3 veggjum listrými til 3. mai næstkomandi og er opið fimmtudaga og föstudaga frá klukkan 16:00 til 18:00 og laugardaga og sunnudaga frá klukkan 14:00 til 17:00. Meðfylgjandi mynd er af Ingu Harðardóttir og Bjarna Sigurbjörnssyni, eigandi 3 veggir listrýmis, að ávarpa gesti á opnuninni.
Besta afkoma Snæfellsbæjar frá upphafi
Á 400. fundi bæjarstjórnar 9. apríl síðastliðinn var ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu.
Í stuttu máli má segja að rekstur Snæfellsbæjar hafi komið mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 630 milljónir króna á meðan rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 416 milljón króna. Þetta er besta afkoma Snæfellsbæjar frá upphafi, þrátt fyrir að framkvæmdir og fjárfestingar í sveitarfélaginu hafi jafnframt verið meiri á árinu 2025 en áður.
Snæfellsbær fjárfesti á árinu 2025 fyrir um 954 milljónir króna, þar af voru fjárfestingar A-hluta um 496 milljónir króna. Helstu framkvæmdir sveitarfélagsins voru í gatnaframkvæmdum, hafnarframkvæmdum og viðhaldi og endurbótum á húsnæði stofnana Snæfellsbæjar. Veltufé frá rekstri var 660 milljónir krónu. og í samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var 950 milljónir krónur.
Handbært frá rekstri var 596 milljónir króna hjá A-hluta og 429 milljónir krónur hjá samanteknum rekstrarreikningi Aog B-hluta. Þessi tala gefur vísbendingar um hæfni Snæfellsbæj-
ar til að greiða skuldir og standa undir nauðsynlegum fjárfestingum á árinu. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.467 milljónir króna og í samanteknum ársreikningi um 1.668 milljónir króna. Þar af er lífeyrisskuldbinding A-hluta 761 milljónir króna en hjá samstæðunni 818 milljónir króna. Langtímaskuldir Snæfellsbæjar lækka stöðugt, enda hafa ný langtímalán ekki verið tekin á undanförnum ár-
um. Skuldahlutfall Snæfellsbæjar er lágt, eða 55,6% hjá A-hluta og 50,9% hjá samanteknum reikningi A- og B-hluta. Ef notað er skuldaviðmið samkvæmt reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga, þá fer prósentan niður í 35,2% fyrir A-hluta og 28,72% fyrir samstæðuna. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn
á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 7. maí næstkomandi. Meðfylgjandi mynd er af bæjarstjórn Snæfellsbæjar, bæjarstjóra og bæjarritara ásamt Jónasi Gesti Jónassyni og Marinó Mortensen frá Deloitte á 400. fundi bæjarstjórnar.
• Rekstrarniðurstaða jákvæð um 630 m.kr.
• Fjárfestingar - 954 m.kr.
• Veltufé fra rekstri - 950 m.kr.
• Langtímaskuldir - 850 m.kr.
• Lífeyrisskuldbinding - 818 m.kr.
• Skuldaviðmið 28.72%
Aflatölur í Snæfellsbæ 1. – 12. apríl
Frekar rólegt hefur verið yfir höfnunum síðan apríl mánuður gekk í garð enda fiskveiðistoppið hafið, litla stoppið er 1. – 11. apríl og svo stóra stoppið 12. –21. apríl og svo komu páskarnir inni í þetta líka. En nokkrir bátar hafa þó verið að róa, Magnús hefur veitt vel á rallinu fyrir Hafró, Saxhamar fór suður í Faxaflóa en hann er líka á ralli fyrir Hafró. Kristinn HU, Tryggvi Eðvarðs og
1617
Lilja hafa veitt vel af Steinbít undir Látrarbjargi. Stóru línuskipin í RIfi halda sínu stirki og hafa veitt ágætlega. Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur):
Dragnót:
Esjar 2 tonn í 2 löndunum. Hildur 25 tonn í 3 löndunum.
Net:
Birta 330 kg. í einni löndun. Bárður SH-81 205 tonn í 5 lönd. Magnús 125 tonn í 5 löndunum.
Lína: Kristinn 64 tonn í 3 löndunum. Tryggvi Eðvarðs 28 tonn í 1 lönd. Gullhólmi 26 tonn í 3 lönd. Lilja 18 tonn í 1 löndun. Rifsnes 37 tonn í 1 löndun. Stakkhamar 23 tonn í 4 lönd. Tjaldur 47 tonn í 1 löndun.
Handfæri:
Rakel 1,3 tonn í 3 löndunum. Stella 2,8 tonn í 2 löndunum. ÞB
Áfram veginn – horfum björtum augum til framtíðar
Kæru íbúar Snæfellsbæjar, Það er með auðmýkt sem við á D listanum tökum við þeirri niðurstöðu að verða sjálfkjörin til setu í bæjarstjórn Snæfellsbæjar fyrir komandi kjörtímabil. Það var ekki okkar vilji að einungis einn listi gæfi kost á sér til góðra verka í sveitarfélaginu en sú var niðurstaðan að þessu sinni.
Við tökum verkefninu af mikilli ábyrgð og munum sem fyrr leggja okkur fram við að vinna í þágu samfélagsins alls og vera í góðu sambandi við íbúana. Við viljum að íbúar finni fyrir því að rödd þeirra heyrist og þátttaka þeirra í mótun samfélagsins sé áfram sterk, þó svo að kosningar fari ekki fram að þessu sinni. Virkt samtal við íbúana bæði nú við upphaf kjörtímabilsins sem og á meðan á því stendur er okkur mjög mikilvægt. Við munum leggja upp með að halda íbúafundi þar sem íbúum gefst gott tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum að á kjörtímabilinu. Við erum þegar byrjuð að undirbúa vinnu fyrir stefnumótun komandi kjörtímabils og það
skiptir okkur miklu máli að íbúar taki þátt í þeirri vinnu með okkur. Stefnuskrá er það grunnskjal sem lýsir framtíðarsýn og helstu áherslumálum fyrir komandi kjörtímabil og er leiðarljós fyrir okkur bæjarfulltrúana á kjörtímabilinu. Stefnumótunarfundir verða auglýstir í bæjarblaðinu Jökli og
UMFG tók 4. sætið í 1. deild
Blaklið UMFG sem keppt hefur í 1. deild í vetur með góðum árangri keppti á úrslitahelgi 1. deildar í Laugardalshöllinni síðastliðna helgi. UMFG mætti Ými í undanúrslitum á laugardeginum, stelpurnar stóðu sig vel en leikurinn datt ekki með þeim og töpuðu þær leiknum með engri unni hrinu. Á sunnu-
deginum keppti liðið svo á móti KH B um þriðja sætið og gáfu allt sitt í leikinn en aftur gekk ekki nægilega vel og vann HK leikinn með 3 á móti 1. UMFG endaði því í 4. sæti í 1. deild. stelpurnar eru búnar að standa sig mjög vel í vetur og vilja þær koma fram þökkum til allra sem hafa fylgt þeim og hvatt þær áfram í vetur. SJ
á samfélagsmiðlum í næstu viku. Við horfum björtum augum til framtíðar og hlökkum til að halda áfram að gera gott samfélag enn betra. Með samvinnu við íbúana getum við byggt áfram á þeim árangri sem náðst hefur og haldið áfram að vinna að sameiginlegum markmiðum okkar - að veita öfluga þjónustu, styðja við kröftugt atvinnulíf og tryggja að Snæfellsbær sé góður, aðlaðandi og fjölskylduvænn búsetukostur. Fjár-
hagslega sterk staða Snæfellsbæjar gefur okkur tækifæri til þess.
Snæfellsbær, okkar allra.
Fyrir hönd D listans í Snæfellsbæ, Auður Kjartansdóttir
Eiríkur Böðvar Rúnarsson Jón Bjarki Jónatansson Júníana Björg Óttarsdóttir
Nýlega kom út ný Glefsa sem Vífill Karlsson skrifaði fyrir SSV en í Glefsunum er að finna brot úr hagvísum og skýrslum SSV auk annars efnis. Nýjasta Glefsan heitir Línuívilnun og skeldýrabætur skipta máli og kemur til vegna þingsályktunartillaga innviðaráðherra sem liggur nú fyrir Alþingi um breytingar á pottum íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins sem gæti meðal annars falið í sér algjört afnám bæði línuívilnunar og skel- og rækjubóta. Á Vesturlandi skipta skeldýrabætur og línuívilnun miklu máli enda voru þær á bakvið um 13.000 tonna veiði á árunum 2020 til 2024. Það eru mikil
verðmæti og afnám skeldýrabóta og línuívilnunar yrði mikið högg fyrir útgerðir, sérstaklega á Snæfellsnesi. Gögnin sem eru notuð í Glefsunni koma frá Fiskistofu og er ekki fjallað um kosti eða galla línuívilnunar og skeldýrabóta í henni heldur dregin upp mynd af mikilvægi þeirra í sveitarfélögum á Vesturland.
Á tímabilinu 2020 til 2024 var hvergi á landinu eins mikið af skeldýrabótum og í Sveitarfélaginu
Stykkish ó lmi eða 3.602 tonn. Þess utan var Grundarfjarðarbær í þriðja sæti á eftir Sveitarfélaginu
Stykkish ó lmi með 955 tonn en þessi tvö sveitarfélög eru einu
tvö á Vesturlandi á þessum lista.. Þá var Snæfellsbær þriðja stærsta línuívilnunarsveitarfélag landsins með 7.168 tonn. Sveitarf é lagið Stykkkish ó lmur var l í ka st ó rt í línuívilnunarafla með 1.035 tonn í 16. sæti af 27. Samtals nam afli botnfisktegunda á Vesturlandi, sem rekja mátti til skeldýrabóta og línuívilnunar, um 13.000 tonnum. Það eru mikil verðmæti og verulega atvinnuskapandi en í kringum einn bát innan línuívilnunar geta verið 4-7 manns að störfum.
Dregin var upp mynd af vægi hlutdeildar heildar botnfiskafla sveitarfélaga sem rekja má til almennra aflaheimilda eða venjulegs kvóta á móti afla sem rakinn er til fimm stærstu pottanna, það er skeldýrabóta, línuívilnunar, strandveiða, byggðakvótans almenna og byggðakvótans sértæka. Allar aflaheimildir aðrar en þær sem rekja má til þessara
fimm potta eru kallaðar almennar aflaheimildir í Glefsunni. Í ljós kom að sjávarútvegssveitarfélög voru ákaflega misháð kerfum en sjávarútvegssveitarfélög á Vesturlandi byggðu töluvert mikið á almenna kerfinu en þar var Akraneskaupstaður með mesta vægið í landshlutanum, svo Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær, Dalabyggð og loks Sveitarfélagið Stykkishólmur. Þegar litið er framhjá almennum aflaheimildum og horft er til pottanna á Vesturlandi þá vega skeldýrabætur þyngst í Sveitarfélaginu Stykkishólmi, línuívilnun þyngst í Snæfellsbæ, strandveiðar þyngst í Dalabyggð og Akraneskaupstað á meðan Grundarfjarðarbær er jafnara í mörgum pottum.
Hægt er að nálgast Glefsuna í heild sinni á vefsíðu Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi, www. ssv.is.
SJ
Frábær ferð og góður árangur hjá 3. flokki í Mílanó
Alls héldu 21 strákur úr 3. flokki karla hjá UMF Víkingi út til Mílanó á Ítalíu dagana 1.–7. apríl ásamt tveimur þjálfurum og þremur fararstjórum þar sem þeir tóku þátt í alþjóðlega mótinu Yes Cup. Liðið skrifaði sig í sögubækurnar með því að vera fyrsta íslenska liðið til að taka þátt í mótinu.
Dvölin var afar vel heppnuð en strákarnir nutu þess að spila fótbolta við frábærar aðstæður í sumarlegu veðri allan tímann. Liðið stóð sig vel í keppninni og komst alla leið í átta liða úrslit. Þar voru þeir óheppnir að detta út eftir spennandi vítaspyrnukeppni. Að lokum enduðu þeir í 8. sæti, sem telst glæsilegur árangur í sterkri keppni.
Strákarnir vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til fyrirtækja og einstaklinga á nesinu öllu fyrir stuðninginn við ferðina. Án ykkar hefði þetta ævintýri ekki orðið að veruleika.
Traustur Óðinsmaður, Jón Páll Ásgeirsson
Jón Páll á ættir að rekja í Eyrasveit, amma hans Pálína Jóhanesdóttir var fædd á Hjarðarlandi og fluttist ung að Hlöðum. Hún giftist Jóni Einarssyni frá Firði í Múlasveit, sem var sjómaður. Þau keyptu Akureyjar í Helgafellssveit 1942, en Akureyjar höfðu verið í ætt Pálínu um langt skeið og ekki fór eyjan úr ættini. Bræðurnir Jón Páll og Jóhann stunduðu grásleppuveiðar frá Akureyjum í um 30 ár, á trillunni Brönu. Brana er gamalt bátsnafn úr Eyrasveit. Jóhann er nú látinn.
Jón Páll fædist í Stykkishólmi árið 1950, 1956 flutti fjölskyldan til Keflavíkur og síðan á Seltjarnarnes. Jón hóf 18 ára að nema netagerð en var svo boðið á síld um borð í Reykjaborgu RE-25 og var þar í nokkur ár. Fór svo í stýrimannaskólan 1972 og kláraði 3 bekki, tók svo 4 bekk, varðskipadeildina 2006, starfaði hjá Gæslunni 1975-1980, síðan 1990 til 2020.
Landhelgisgæslan
Fyrsta skiprúm hjá Gæslunni var sem háseti um borð í V/s Ægi með Þresti Sigtryggssyni árið 1975, þar var Jón Páll fljótlega gerður að bátsmanni og svo stýrimanni. Eitt sinn er þeir voru að koma í inniveru, var honum var skutlað um borð í Baldur til Höskuldar Skarphéðinssonar og beint í slaginn fyrir austan, þar sem mörg hildin var háð við Bretana í 200 mílna þorskastríðinu. Jón Páll var svo á Óðni með Kristjáni Þ. Jónssyni m.a. í Smugutúrunum og með Vilberg Magna Óskarssyni, núverandi skipherra safnskipsins Óðins, þegar þeir björguðu flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar, fyrst suður og síðan djúpt vestur
af landinu í apríl 1998. Jón Páll var einnig með Höskuldi á Tý þegar siglt í aftakaveðri með fullt skip af mannskap til Súðavíkur 16. janúar1995.
Brælusiglingin frá Grundarfirði til Flateyrar
Þann 26. október árið 1995 lá Óðinn í vari sunnan undir Jöklinum, þegar fyrirmæli komu um að halda tafarlaust til Grundarfjarðar til að taka björgunarsveitir og flytja til Flateyrar vegna snjóflóðs sem fallið hafði. Á leiðinni fyrir Nesið fengu þeir á sig slæmt brot sem tók einn björgunarbátinn af brúarvængnum. Í Grundarfirði fylltist skipið af fólki og búnaði. Sex sérsveitarmenn Slökkviliðs Reykjavíkur voru í herbergi Jóns Páls yfirstýrimanns, illa haldnir af sjóveiki, liggjandi í kojunni hans, á bekknum og á gólfinu. Það var mannskapur allstaðar, í forsetaíbúðinni, í þyrluskýlinu og messunum, margir illa haldnir af sjóveiki. Fötur voru bundnar á handriðin á göngunum og hásetarnir fóru reglulega um til að safna saman ælunni. Jón Kr. bryti eldaði mikið af kjötbollum og súpu, menn gengu í gegn um eldhúsið og fengu á disk. Mikið af súpunni endaði strax í ælufötunum á leiðinni fram ganginn. Þetta var óþverra brælusigling, settir voru stálhlerar fyrir alla brúargluggana og keyrð var full ferð, sem er sjaldgæft. Skipið nær mest 18 hnútum í logni þegar öll 4.960 hestöflin eru nýtt til fulls. Vélarnar eru tvær 2.480 hestöfl hvor, snarvendar tvígengisvélar sem stjórnað er í vélarúmi með skipunum um vélsíma frá brú, því er ekki um það að ræða að slá af þegar komið er
Þekkt mynd Jóns Páls af Óðni undan Vébjarnarnúpi í Ísafjarðardjúpi, skömmu eftir Flateyrarflóðið. Ef vel er að gáð sést að það vantar fremsta gúmbátinn á brúarvængnum. Þarna háði Óðinn líklega sína hörðustu baráttu í hamfaraveðrinu 4. febrúar 1968, er m/b Heiðrún II, Ross Cleveland og Notts County fórust.
í þykka öldu eins og hægt er að gera á skipum með skiptiskrúfu. Af þessari ástæðu og því hve illa sást út um rifurnar á stálplötunum, var ekki um annað að ræða en að ösla í gegn um sjóina. Farið var eins grunnt fyrir Látrabjarg og þorandi var, samt kom þar slæmt brot á skipið, Týr fór utar í Röstina og þar var snöktum verra sjólag. Við Barðann fékk Óðinn aftur á
sig slæmt brot, það slitnuðu niður myndir af veggjum og ýmislegt fór úrskeiðis. Þegar komið var til Flateyrar kom í ljós að báðir brimbrjótarnir við byssuskýlið voru rifnir upp og undnir. Og síðar kom í ljós að nýja Bofors fallbyssan hafði skekktist svo að hún var ónothæf fyrst á eftir.
Egill Þórðarson
Stýrimennirnir hjá Höskuldi Skarphéðinssyni á Baldri í þorskastríðinu, f.v. Kristján Þ. Jónsson, Páll Ásgeirsson og Halfdán Henrýsson.
Jón Páll í Smugutúr við vélsímann á Óðni.
L a u s a r l ó ð i r í
G r u n d a r f i r ð i
G r u n d a r f j a r ð a r b æ r a u g l ý s i r l a u s a r t i l ú t h l u t u n a r a l l t a ð 1 4 n ý j a r í b ú ð a r h ú s a l ó ð i r
í Ö l k e l d u d a l o g 4 e l d r i l ó ð i r m e ð b r e y t t u s k i p u l a g i , a u k 6 a t v i n n u l ó ð a á i ð n a ð a r s v æ ð i
v e s t a n K v e r n á r . U m s ó k n a r f r e s t u r e r t i l 2 3 . a p r í l n k . F r e k a r i u p p l ý s i n g a r u m l ó ð i r n a r o g u m s ó k n a r f e r l i ð á v e f G r u n d a r f j a r ð a r b æ j a r , g r u n d a r f j o r d u r i s
Í b ú ð a r h ú s a l ó ð i r :
Ö l k e l d u v e g u r 1 0 , 1 2 , 1 4 o g 1 6
Ö l k e l d u v e g u r 1 8 , 2 0 , 2 2 o g 2 4
Ö l k e l d u v e g u r 1 7 a o g 1 7 b
Ö l k e l d u v e g u r 3 9 o g 4 1 , e ð a 3 9 - 4 3
H r a n n a r s t í g u r 4 2 , 4 4 o g 4 6 ( f y r i r 6 0
á r a o g e l d r i )
F e l l a s n e i ð 5
F e l l a s n e i ð 7
A t v i n n u l ó ð i r :
H j a l l a t ú n 4 ; m e t r a l ó ð i r , s e m s k i p t a m á