Skip to main content

BaejarbladidJokull1202tbl

Page 1


Blakdeild Snæfells í Stykkishólmi stóð fyrir páskamóti í blaki í íþróttahúsinu í Stykkishólmi mánudaginn 6. apríl, annan í páskum. Mótið var með sama sniði í jólamótið sem var haldið í íþróttahúsinu í Ólafsvík um jólin þar sem blaklið af Snæfellsnesi komu saman á skemmtimóti. Mikil ánægja var með þessa samkomu svo að blakdeild Snæfells bauð heim að þessu sinni og tóku 8 lið þátt í mótinu. Eitt karlalið frá Víking, eitt frá UMFG og tvö frá Snæfell voru skráð til leiks og eitt kvennalið frá Víking, tvö frá UMFG og eitt frá Snæfell.

Þrátt fyrir slæma veðurspá gerði fjöldi fólks sér ferð í íþróttahúsið í Stykkishólmi bæði til að keppa og fylgjast með æsispennandi leikjum. Í kvennadeildinni fór annað lið UMFG með sigur úr býtum en það lið samanstóð af ungum keppendum frá liðinu og lið Snæfells var í 2. sæti. Í karladeildinni voru UMFG líka í 1. sæti og lið Víkings endaði í 2. sæti. SJ

Páskamót í blaki

AÐALFUNDUR

Félags eldri borgara í Snæfellsbæ verður haldinn í félagsheimilinu Kli miðvikudaginn 8. apríl 2026 kl. 14:30.

Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórn Félags eldri borgara Snæfellsbæ

Annað mót Snæfellingamótaraðarinnar

Annað mótið í Snæfellingsmótaröðinni fór fram í Stykkishólmi á Skírdag, fimmtudaginn

2. apríl síðastliðinn. Keppt var í gæðingatölti í flokki 10 til 13 ára, 14 til 17 ára, 2. flokki og 1. flokki auk þess sem riðið var í pollaflokki. 41 keppendur voru skráðir til keppni en áður en keppnin hófst stigu fimiknapar í hestafimleikahópnum Vetrarsól á stokk og sýndu listir sínar, áhorfendum til mikillar gleði.

Í flokki 10 til 13 ára fór Ása Bjarney Ásmundsdóttir á Frygg frá Hólum með sigur úr býtum, Hjördís Hauksdóttir á Blakki var í 2. sæti og Bjartey Ebba Júlíusdóttir á Hylling frá Grundarfirði lenti í 3. sæti. Í flokki 14 til 17 ára keppti Rebecca Luise Lehman á Össu frá Ási II. Í 2. flokki sigraði Sveinn Bárðasson á Vindi frá Grundarfirði, Herborg Sigurðardóttir á Hryðju frá Bjarnarhöfn var í 2. sæti og Steinar Björnsson á Viðbót frá Hólakoti átti 3. sætið. í 1. flokki átti Lárus Ástmar Hannesson 1. sætið á Sónötu frá Lyngási. Þá var Gunnar Tryggvason á Fönix frá Brimilsvöllum í 2. sæti og Ásdís Sigurðardóttir á Tign frá

Hrauni í 3. sæti.

Þriðja og síðasta umferð Snæfellingamótaraðarinnar fer svo fram í Grundarfirði föstudaginn 17. apríl þar sem gæðingakeppni fer fram. Meðfylgjandi mynd tók Nadine Walter af efstu keppendunum í 1. flokki.

SJ

Páskamót í skák

Páskamót Taflfélags Snæfellsbæjar fór fram í félagsheimilinu Klifi á föstudaginn langa, 3. apríl. 14 keppendur tóku þátt og voru veitt verðlaun í yngri flokki og eldri. Allir sem kepptu voru leystir út með páskaeggi en þar að auki fengu efstu þrír í hvorum flokki fyrir sig verðlaun.

Í yngri flokki var Víglundur Orri Heimisson í 1. sæti, Sævar Hjalti Þorsteinsson lenti í 2. sæti og Elín Björg Þorsteinsdóttir í því þriðja. Í eldri flokki bar Ayushtseren Khash sigur úr býtum, Kári Viðarsson lenti í 2. sæti og Sigurður Ólafur Þorvarðarson var í 3. sæti. SJ

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík

355 Snæfellsbæ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Það var líf og fjör á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri laugardaginn 28. mars þegar haldið var skemmtilegt páskabingó fyrir heimilisfólk. Gestir frá Kvenfélagi Hellissands mættu á staðinn og stýrðu bingóinu. Heimilsfólkið spilaði af miklum áhuga og vinningarnir vöktu lukku en þátttakendur áttu möguleika á að vinna vegleg páskaegg auk annarra vinninga. Eftir að allir vinningarnir höfðu gengið út buðu kvenfélagskonur upp á veitingar og enduðu allir samveruna á notalegri stund með góðum kræsingum. SJ

Páskabingó á Jaðri

Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dek kjask ipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

Örvar Þór nýr starfsmaður Grundarfjarðar

Í lok mars hóf nýr starfsmaður störf hjá Grundarfjarðarbæ í stöðu verkefnisstjóra tæknimála og framkvæmda. Vél- og orkutæknifræðingurinn Örvar Þór Örlygsson var ráðinn í starfið og hefur hann þú þegar hafið störf. Örvar er með B.Sc. gráðu í orkuog véltæknifræði frá Háskólan-

um í Reykjavík en auk þess er hann með sveinspróf í vélvirkjun og hefur einnig lokið 2. stigi vélstjórnar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Hann hefur unnið í allskonar verklegum framkvæmdum og sem framleiðslustjóri og hönnunar- og verkefnisstjóri hjá fyrirtæki sem veitir sérhæfða þjónustu sem tengist raf- og vélbúnaði í orkuiðnaði. Í starfi verkefnastjóra tæknimála og framkvæmda mun Örvar hafa umsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum á vegum Grundarfjarðarbæjar en hann er einnig yfirmaður starfsfólks í þjónustumiðstöð bæjarins.

Tveir listar komnir fram í Grundarfirði

Tveir listar hafa tilkynnt framboð sitt í Grundarfjarðarbæ en það er listi framsóknar og félagshyggjufólks og framboðslisti D og óháðra.

Efstu sæti framboðslista D og óháðra haldast óbreytt frá síðustu kosningum en Marta Magnúsdóttir færist neðar á lista og Sólveig Ásta Bergvinsdóttir tekur sjötta sætið í hennar stað en hún er að koma ný inn. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 fékk listinn 52% atkvæða og sátu 4 fulltrúar listans í bæjarstjórn á kjörtímabilinu.

Framboðslisti D- og óháðra í Grundarfirði:

1. Jósef Kjartansson, verktaki

2. Ágústa Einarsdóttir, framkvæmdastjóri, einka- og markþjálfi

3. Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi

4. Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri

5. Davíð Magnússon, framkvæmdastjóri

6. Sólveig Ásta Bergvinsdóttir, bókari

7. Lilja Björk Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur

8. Guðbrandur Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður

9. Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir, kennari

10. Elín Sigurðardóttir, athafnakona

11. Sunneva Gissurardóttir, húsmóðir

12. Marta Magnúsdóttir, athafnakona

13. Arnar Kristjánsson, skipstjóri

14. Ásgeir Valdimarsson, pípulagningameistari

Samstaða Listi fólksins rennur í ár saman

við framboð Framsóknar og myndar nýjan framboðslista til sveitarstjórnarkosninga í maí.

Listi Samstöðu – L listans eiga nú þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Oddviti lista framsóknar og félagshyggjufólks er Fannar Þór Þorfinnsson.

1. Fannar Þór Þorfinnsson

2. Signý Gunnarsdóttir

3. Aðalsteinn Jósepsson

4. Þuríður Gía Jóhannesdóttir

5. Eiríkur Þór Halldórsson

6. Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir

7. Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir

8. Rakel Birgisdóttir

9. Sigurborg Knarran Ólafsdóttir

10. Anna Júlía Skúladóttir

11. Hallur Pálsson

12. Kristján Guðmundsson

13. Loftur Árni Björgvinsson

14. Guðni E. Hallgrímsson

Skrifstofa Sjóvá verður lokuð dagana 8.-15. apríl vegna sumarfrís starfsmanns.

Ef erindið er brýnt þá er hægt að hringja í 440-2000!

Einnig hægt að senda tölvupóst á sjova@sjova.is eða borgarnes@sjova.is

Jón Haukur Hilmarsson

Skíðasvæðið opið um páskana

Eftir snjólítinn vetur tók skíðabrekkan í Grundarfirði á Skíðasvæði Snæfellsness loks við sér nú í lok mars. Þrátt fyrir lítið skíðafæri hefur veturinn þó verið vel nýttur af sjálfboðaliðum skíðasvæðisins í uppsetningu á nýju aðstöðuhúsið á svæðinu og annarri uppbyggingu.

25. mars fór skíðalyftan af stað í fyrsta sinn þennan veturinn og hafa páskarnir verið gjöfulir þrátt fyrir vindasama daga. Á góðviðrisdögunum var brekkan þétt skipuð af fólki á öllum aldri. Sjálfboðaliðar aðstoðuðu fólk í brekkunni, stóðu gæslu og sáu til þess að allt færi vel fram og þegar viðraði vel var einnig efnt til fullorðins opnunar þar sem 18 ára og eldri gafst tækifæri á að spreyta sig í brekkunni að kvöldlagi.

Sjálfboðaliðar og aðstandendur skíðadeildarinnar hafa lagt mikla vinnu í uppbyggingu á svæðinu og hefur svæðinu borist veglegar gjafir í vetur. Eimreiðafélag Grundarfjarðar gaf skíðasvæðinu sex Smith skíðahjálma sem gestir í brekkunni geta fengið að láni

án endurgjalds, þá færði starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar skíðasvæðinu eldvarnar-

búnað til að setja upp í nýja aðstöðuhúsinu auk þess sem hluti af ágóða Kúttmagakvölds Lions rann

til frekari uppbyggingar á skíðasvæðinu. Meðfylgjandi mynd er í eigu Skíðasvæðis Snæfellsness. SJ

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook