Skip to main content

BaejarbladidJokull1201

Page 1


Vaskir keppendur á Páskasundmóti Víkings

deildar Ungmennafélagsins Víkings var haldið í síðustu viku fyrir krakka sem æfa sund hjá Víkingi. 26 kátir krakkar tóku þátt í mótinu og stóðu þau sig öll virkilega vel.

fengu keppendur páskaegg í verðlaun sem Lionsklúbburinn Rán gaf deildinni. JJ

Önnur umferð í mjólkurbikar karla fór fram um liðna helgi og mætti Víkingur Ó. Þrótti Reykjavík á Avis vellinum í mikilli viðureign. Adam Árni Róbertsson byrjaði leikinn vel fyrir Þrótt en hann skoraði mark strax á 18. mínútu leiksins. Aron Snær Ingason bætti við öðru marki fyrir Þrótt á 55. mínútu en Naim Aaras El Hmaidi náði að minnka muninn þegar hann skoraði mark fyrir Víking stuttu seinna. Baldur

Hannes Stefánsson gulltryggði þó sigurinn fyrir Þrótt þegar hann bætta við þriðja markinu á 65. mínútu. Víkingar fengu aukaspyrnu á hættulegum stað á 89. mínútu sem Ingvar Freyr tók en skotið fór fram hjá markinu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og staðan við leikslok því 3-1 fyrir Þrótt R. Þróttarar fara því áfram í bikarnum og Víkingar eru dottnir út.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

D-listinn kynntur í Þjóðgarðsmiðstöðinni

Framboð D listans í Snæfells bæ fyrir komandi sveitarstjórn arkosningar þann 16. maí var kynnt í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi fimmtudaginn 26. mars síðastliðinn. Listinn var sam þykktur samhljóða á fundi Full trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ fyrir kynningarfund inn.

Listinn er skipaður af 14 öflug um einstaklingum víða úr sveitar félaginu, með fjölbreytta þekk ingu og reynslu, á öllum aldri, búsett bæði í þéttbýliskjörnun um og í dreifbýli. Bæjarstjóraefni D-listans er Kristinn Jónasson nú verandi bæjarstjóri í Snæfellsbæ, en Kristinn hefur verið bæjarstjóri síðan árið 1998 eða í 28 ár.

Eftir að listinn var kynntur tók Auður Kjartansdóttir, oddviti list ans, til máls, því næst sagði Jún íana Björg Óttarsdóttir nokkur orð en hún situr í 4. sætinu og að lokum ávarpaði Kristinn Jón asson, bæjarstjóraefni listans og núverandi bæjarstjóri Snæfellsbæjar, gesti fundarins.

Að ávörpum loknum gafst gest-

um fundarins kostur á að ræða við frambjóðendur. Framboðslisti D-listans í heild sinni er eftirfarandi.

1. Auður Kjartansdóttir, fjármálastjóri

2. Eiríkur Böðvar Rúnarsson, véltæknifræðingur

3. Jón Bjarki Jónatansson, sjómaður

4. Júníana Björg Óttarsdóttir, atvinnurekandi

5. Jóhanna Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður forstöðumanns

6. Urszula Zyskowska, afgreiðslukona

7. Illugi Jens Jónasson, skipstjóri

8. Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður

9. Kristgeir Kristinsson, sjómaður

10. Marinó Sigurjónsson, verkstjóri

11. Sara Egilsdóttir, námsmaður

12. Styrmir Páll Sigurðarson, stýrimaður

13. Gunnar Ólafur Sigmarsson, framleiðslustjóri

14. Sigrún Hafdís Guðmundsdóttir, húsvörður/skólaliði

Kort

Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér til hliðar með myndavélinni í símanum.

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur

frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Á hverju ári gefur Markaðsstofa Vesturlands út upplýsingakortið Visit West Iceland sem samstarfsaðilar okkar nýta til að leiðbeina gestum Vesturlands, vekja áhuga og hvetja til lengri dvalar og fjölbreyttrar upplifunar á Vesturlandi. Eftir heimsfaraldurinn Covid-19 sat eftir lager af úreltum kortum, þar sem gestum fækkaði tímabundið. Í stað þess að láta kortin fara til spillis kviknaði hugmynd um að gefa þeim nýtt líf.

Úr varð samstarf Markaðsstofu Vesturlands og Smiðjunnar í Ólafsvík, sem er virkni- og hæfingastöð fyrir fólk með skerta starfsgetu. Starfsmenn og leið-

beinendur Smiðjunnar tóku vel á móti efninu og nýtti það á skapandi hátt í vöruþróun. Úreltu kortin hafa umbreyst í fallegar og skemmtilegar vörur, meðal annars púsl, bókamerki, samstæðuspil og domino og vinnur Smiðjan efnið í samstarfi við veitingahúsið Matarlist í Ólafsvík.

Verkefnið er einstakt dæmi um hvernig endurnýting, hugmyndaauðgi og gott samstarf geta skapað verðmæti á nýjan hátt. Það sem áður var úrelt efni hefur nú fengið nýtt hlutverk við að gleðja, fræða, skapa og auðga upplifun gesta á Vesturlandi.

Skrifstofa Sjóvá verður lokuð dagana 8.-15. apríl vegna sumarfrís starfsmanns.

Ef erindið er brýnt þá er hægt að hringja í 440-2000!

Einnig hægt að senda tölvupóst á sjova@sjova.is eða borgarnes@sjova.is

Haukur Hilmarsson

Dregið í happdrætti 10. bekkjar

Á dögunum hélt 10. bekk ar happdrætti sem fjáröflun fyr

í lok grunnskólagöngu sinnar. Áætlað er að hópurinn ferðist til Kaupmannahafnar í Danmörku til að fagna því að hafa lokið þessum áfanga. Seldu nemendur 10. bekkjar 738 happdrættismiða og var dregið úr um 80 útdráttarvinningum þann 25. mars í beinni útsendingu frá Hampiðjunni í Ólafsvík. Veglegir vinningar voru í boði, þar á meðal aðalvinn-

ingurinn sem var 65” Samsung sjónvarp. Enn er nokkrir ósóttir vinningar en þá má nálgast í Hampiðjunni á opnunartíma, þar á meðal er aðalvinningurinn ósóttur. Ósótt númer eru: 11, 19, 36, 49, 67, 108, 174, 198, 199, 234, 237, 267, 372, 378, 448, 469, 502, 512, 593, 619, 651, 652 SJ

Efni og auglýsingum í Jökul

þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu.

Það er í lagi að skila fyrr.

J-listi Bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að listinn muni ekki bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum 2026. Forsvarsmenn listans vilja sérstaklega þakka þeim sem hafa stutt listann í gegnum tíðina og það traust sem þeim hefur verið sýnt. Tekið er fram í tilkynningunni að þó svo að það hafi ekki tekist að stilla upp lista að þessu sinni þá sé J-listinn ekki úr sögunni. Þau líta frekar á þetta skref sem tímabundið hlé og stefna að því að koma tvíefld til baka í framtíðinni. Framboðsfrestur rennur út þann 10. apríl fyrir kosningarnar sem verða 16. maí.

Sjálfbærnisstefna Snæfellsness

Á Snæfellsnesi hefur verið samþykkt ný og uppfærð sjálfbærnistefna sem markar næsta skref í sameiginlegri vegferð sveitarfélaganna í loftslags- og umhverfismálum. Stefnan byggir á þeirri vinnu sem þegar hefur átt sér stað á svæðinu, en felur í sér skýrari og markvissari markmiðasetningu, sérstaklega þegar kemur að beinni losun gróðurhúsalofttegunda vegna starfsemi sveitarfélaganna sjálfra.

Með stefnunni uppfylla sveitarfélögin hlutverk sitt samkvæmt lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, auk þess að styðja við markmið EarthCheck-vottunar Snæfellsness og aðrar skuldbindingar í sjálfbærnismálum. Áhersla er lögð á ábyrgð, gagnsæi og mælanlegan árangur, þar sem sett eru fram markmið og skilgreindar aðgerðir til að ná þeim.

Stefnan er sameiginleg fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi og endurspeglar sameiginlega sýn um ábyrga auðlindanýtingu og sterkt, sjálfbært samfélag. Samhliða stefnunni fylgja aðgerðaáætlanir, eins og lög kveða á um. Þær eru á ábyrgð hvers og eins

sveitarfélags og fela í sér aðgerð ir sem styðja við markmið stefnunnar.

Fram til þessa hefur reynst áskorun hér á landi og um heim allan að innlima áhrifaríkar aðgerðir í loftslagsmálum inn í starfsemi ríkja og sveitarfélaga. Með þessari nálgun er vonast til að stigin verði markviss skref fram á við á stigi sveitarfélaga, því nú er ekki aðeins horft til framtíðar held

ur einnig til daglegrar starfsemi og ákvarðanatöku innan stjórnsýslunnar. Sjálfbærni er þannig fléttuð inn í rekstur, innkaup, skipulag og þjónustu við íbúa. Snæfellsbær hvetur íbúa, samstarfsaðila og aðra áhugasama til að kynna sér nýju sjálfbærnistefn-

sveitarfélagsins. Með samstilltu átaki getur sveitarfélögin og íbúar þeirra haldið áfram að styrkja Snæfellsnes sem fyrirmyndarsvæði í sjálfbærni. SJ

Laust starf við ræstingar í Ráðhúsi

Snæfellsbær auglýsir laust til umsóknar 50% starf við ræstingar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar og skrifstofurými í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Um er að ræða starf á dagvinnutíma eftir samkomulagi.

Auk þess hefur viðkomandi umsjón með eldhúsi, fundum og afleysingu í móttöku eftir þörfum.

Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 og netfanginu lilja@snb.is.

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2026. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. maí 2026.

Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar á snb.is.

Snæfellsbær er kröftugt samfélag

vilja halda áfram að gera SnæfellsÉg hef setið í bæjarstjórn sl. átta ár ásamt að sinna ýmsum störfum sem tengjast starfi bæjarfulltrúa og hefur það verið ótrúlega lærdómsrík og gefandi reynsla. Það hefur gengið mjög vel á þessum tveimur kjörtímabilum og erum við sífellt að vinna að því að búsetuskilyrðin hér séu sem best. Staða Snæfellsbæjar er góð en alltaf má gera betur. Þessu góða gengi er ekki síst að þakka því frábæra starfsfólki sem starfar hjá Snæfellsbæ og ykkur íbúum sem hér búa. Eins er ánægjulegt að segja frá því að það hefur verið afar gott samstarf í bæjarstjórn enda erum við öll að vinna að því markmiði að gera gott samfélag enn betra. Þá er gott samstarf í bæjarstjórn mikilvægur hlekkur í því að ná að fram góðum rekstri og að veita góða þjónustu hjá sveitarfélaginu - þannig hafa bæjarfulltrúar hagsmuni bæjarbúa í fyrirrúmi. Bæjarstjóraefni D listans er

Kristinn Jónasson starfandi bæjarstjóri til 28 ára. Við fögnum því að hann gefi okkur kost á að njóta krafta hans áfram en Kristinn hefur stýrt bæjarfélaginu af mikilli festu og ábyrgð. Sem fyrr mun D listinn leggja áherslu á trausta fjármálastjórn og stöðugleika í rekstri sveitarfélagsins en þekking og reynsla Kristins gerir hann að sterkum kosti til að halda áfram sínu góða starfi í þágu bæjarbúa. Í Snæfellsbæ er kröftugt samfélag með miklum mannauð sem hér býr og starfar. Við búum í samfélagi sem er umlukið stórbrotinni náttúru og með fjölmörg tækifæri. Snæfellsbær er fjölskylduvænt samfélag með metn-

aðarfullt skólastarf, öflugt íþróttastarf og blómlegt menningarlíf en það eru forréttindi að fá að búa hér og ala upp börn í samfélagi sem þessu. Framundan er skemmtilegur tími þar sem D listinn vinnur að stefnuskrá fyrir næsta kjörtímabil, ég hvet íbúa til að taka þátt í þeirri vinnu með okkur en þar gefst gott tækifæri til að hafa áhrif á framtíð Snæfellsbæjar. Með góðri þátttöku í stefnumótuninni eru meiri líkur að áherslur okkar endurspegli þarfir og vilja samfélagsins.

Auður Kjartansdóttir skipar 1. sæti D listans

Listaverkaskrá Snæfellsbæjar aðgengileg

Listaverk í eigu Snæfellsbæjar eru mörg og mismunandi. Listaverkin eru varðveitt í Ráðhúsi Snæfellsbæjar og öðrum stofnunum sveitarfélagsins og hafa sum þeirra verið keypt á sýningum og önnur fengin að gjöf. Skrá yfir listaverk í eigu Snæfellsbæjar hefur verið birt á vefsíðu Snæfellsbæjar. Þar koma fram upplýsingar um listaverkin, listamenn og aðrar upplýsingar um tilurð verkanna í fórum Snæfellsbæjar auk þess sem

hægt er að smella á hlekk og nálgast ljósmynd af verkunum. Listaverkaskráin er þó enn í vinnslu og verið er að týna til öll þau verk sem eiga heima þar. Töluverð skráningarvinna liggur að baki verkefninu og verður skráin í sífelldri uppfærslu. Þá er stefnt að því að draga saman upplýsingarnar úr listaverkaskránni og birta með myndrænni hætti fyrir íbúa á heimasíðu Snæfellsbæjar, í svipuðum dúr og Listasafn Fjallabyggðar er sett upp á www.lista-

- Bílaviðgerðir

- Skipaþjónusta

- Almenn suðuvinna

- Smurþjónusta

- Smábátaþjónusta

- Dekkjaverkstæði

vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Kolefnisspor

Skýrslan Kolefnisspor Vesturlands 2024 kom út í byrjun árs en hún var unnin af Environice ehf. fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Skýrslan er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Flokkun í anda hringrásarhagkerfis. Í skýrslunni er meðal annars að finna endurmat og uppfærslu á fyrri útreikningum sem Environice vann fyrir SSV á árunum 2020 til 2021. Meginniðurstaða skýrslunnar er að samanlagt kolefnisspor svæðisins árið 2024 nam 2.390.448 tonnum koldíoxíðsígilda (CO2íg) eða um 135 tonnum á hvern íbúa. Tveir þættir

hafa lang mest vægi, það er losun vegna landnotkunar og losun frá iðnaðarferlum stóriðjunnar á Grundartanga. Reiknuð losun vegna landnotkunar var 1.304.345 tonn, eða um 55% af heildarlosuninni og losun frá stóriðju 842.149 tonn eða 35% af heildarlosuninni. Reiknuð samfélagslosun var 243.954 tonn, eða aðeins um 10% af heildarlosuninni. Samfélafslosun er þá losun frá öllum öðrum athöfnum á svæðinu, frá heimilum, þjónustu, samgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, smáiðnaði og meðhöndlun úrgangs.

verk.fjallabyggd.is. Meðfylgjandi mynd er af málverki Baltasar Samper af sögu-

persónunum Hettu, Tögld og Iglu sem taka á móti fólki í Ráðhúsinu. SJ

Vesturlands

Auk samantektar á losun í landshlutanum eru settar fram tillögur um átta aðgerðir til að draga úr losun, þar á meðal að farið verði í kortlagningu á votlendi og framræsts lands á Vesturlandi, kortlagningu á landi til skógræktar og landgræðslu, hvatt verði til minni losunar frá vegasamgöngum, til endaloka urðunar, orkuskipta í höfnum og í iðnaðar- og verktakastarfsemI. Þá verði hvatt til úrbóta í fráveitumálum og samstarf verði á milli sveitarfélaga og fyrirtækja um loftslagsaðgerðir. Í skýrslunni er einnig stutt umfjöllunar um kolefnisjöfnun, en

við núverandi aðstæður er það miklum vandkvæðum bundið fyrir sveitarfélög og samtök þeirra að nýta kolefniseiningar til mótvægis við losun í þeim tilgangi að ná tilteknum markmiðum um samdrátt. Þessi skýrsla Environice ehf. fyrir SSV hefur að geyma upplýsingar sem geta gagnast sveitarfélögum og almenning í loftslags starfi þeirra. Skýrsluna í heild sinni má nálgast á vefsíðu Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi www.ssv.is.

Framfarir í mörgum myndum

Við vitum að árangur í sam félags- og umhverfismálum er ekki hægt að setja upp í einfalda jöfnu. Taka þarf orsakasamhengi inn í jöfnuna – og þá getum við kannski túlkað hvort árangurinn sé sjálfbær eða ekki. Er hann á kostnað samfélags, umhverfis eða efnahags framtíðarinnar? Að meta slíkan árangur er tímafrekt og ítarlegt ferli en með niðurstöðu þess vitum við betur hvort við séum á réttri braut – og hvað betur megi fara.

Á Snæfellsnesi hefur vottunarferli EarthCheck verið lykilþáttur í þessu mati. Árlega skilum við upplýsingum um sjálfbærnivísa: tölfræði um auðlindanotkun, úrgangsmál, atvinnuleysi og aðra samfélagslega þætti. Síðast en ekki síst er farið yfir stefnumál, framfylgd laga- og reglugerða, samskipti við íbúa og gesti, fræðslu, menningarmál og fleira. Vissulega er ekki allt metið, en sjálfbærnivísum hefur fjölgað síðustu ár með aukinni áherslu á gagnsæi. Gögnin eru greind og borin saman við alþjóðleg við-

mið og fyrri ár. Ef eitthvað stendur höllum fæti, þarf að útskýra það – og sýna fram á áætlanir um úrbætur.

Síðasta úttekt fór fram haustið 2025 og eftir ýmsar úrbætur hlutum við vottun á dögunum til eins árs. Vottunin segir ekki að við séum fullkomin eða að hér sé allt í stakasta lagi. Það sem er verið að votta er hvernig við stöndum okkur sem samfélag í því að hugsa um umhverfið, fólkið og efnahaginn til lengri tíma og vottunin gefur til kynna að við séum á réttri leið þótt við gerum okkur grein fyrir að áskoranirnar fram undan séu margar og stórar.

Nokkur dæmi sem tengjast úttekt og vottun

Metin er staða fráveitumála á Snæfellsnesi. Flestar útrásir uppfylla ekki nýjustu reglugerð um fráveitur og skólp. Vinna þarf í átt að því markmiði. Mikilvægt er að við séum meðvituð um stöðuna búum yfir gögnum um hana. Einnig að til séu áætlanir um úrbætur og að markvisst sé unnið að þeim. Vottunin gerir kröfu um stöðugar framfarir – ekki tafarlausa fullkomnun.

Á síðustu árum hefur verið unnið að blágrænum ofanvatnslausnum í Grundarfirði, þar sem náttúrulegar leiðir eru nýttar til að hægja á rennsli vatns, draga úr álagi á fráveitukerfi og auka vistfræðileg gæði. Þetta frumkvæði Grundfirðinga til að laga innviði að vaxandi náttúruvá vegna loftslagsbreytinga eykur seiglu samfélagsins og hefur vak-

ið mikla athygli.

Ýmsar smærri breytingar hafa líka átt sér stað: gömlum bensínog olíudrifnum verkfærum hefur verið skipt út fyrir rafhlöðuknúin tæki, plastpokum undir grasslátt fækkað, hætt að eitra gróður á almenningssvæðum og sums staðar hefur verið ákveðið að hætta hefðbundnum slætti á ákveðnum svæðum og leyfa þeim frekar að vera „viljandi villt“. Það eykur líffræðilega fjölbreytni og dregur um leið úr óþarfa slætti. Á sama tíma hafa orðið töluverðar framfarir í orkumálum með aukinni varmadæluvæðingu og minni notkun mengandi orkugjafa. Einnig hafa orðið framfarir í úrgangsmálum með samræmdri sérsöfnun úrgangs og hefur t.d. hlutfall lífræns úrgangs af heildar úrgangi hækkað töluvert síðustu tvö ár eftir að öll sveitarfélög eru loks komin með söfnun á lífrænum úrgangi.

Góður vilji ekur þungu

hlassi heim

Vottunin tekur líka til samfélagslegra þátta. Í staðlinum er spurt út í íbúasamráð, stuðning við tekjulágar fjölskyldur eða annað tengt fátækt, hvernig unnið er að atvinnuráðgjöf og nýsköpun og samráð við ferðaþjónustuna –svo eitthvað sé nefnt. Íbúafundir, fræðsla og fjölbreytt samskipti skipta hér miklu máli. Sveitarfélögin styðja við tómstundir barna og félagasamtök, unnið er markvisst að nýsköpun og atvinnuþróun og unnið hefur verið að skógræktarverkefnum með skólum og skógræktarfélögum. Hér á sér stað ýmiss konar samstarf, þvert á sveitarfélög, fyrirtæki og/ eða stofnanir.

Snæfellsnes er nú orðið eitt af svæðum heimsins sem hlotið hafa viðurkenningu sem UNESCO Man and the Biosphere (MaB) vistvangur. Þessi viðurkenning felur ekki í sér friðun í hefðbundnum skilningi, heldur staðfestingu á því að hér sé unnið markvisst að jafnvægi milli verndar og nýtingar – að náttúra, samfélag og atvinnulíf geti þróast saman á sjálfbæran hátt.

Náttúrustofa Vesturlands gegnir lykilhlutverki í rannsóknum

og vöktun á náttúru og lífríki á Snæfellsnesi. Hún safnar gögnum, fylgist með breytingum í vistkerfum og leggur faglegt mat á stöðu náttúrunnar. Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun og aðra rannsóknaraðila eru unnin bæði tímabundin og langtímaverkefni sem styrkja þekkingargrunn svæðisins.

Snæfellsjökulsþjóðgarður er hjarta náttúruverndar á Snæfellsnesi og verndar eitt fjölbreyttasta og sérkennilegasta landslag landsins og lífið sem þar þrífst. Auk hans eru víða friðlýst svæði á Snæfellsnesi sem njóta sérstakrar verndar vegna jarðminja, lífríkis eða menningarminja. Slík friðun tryggir ekki aðeins að náttúran fái að njóta sín til framtíðar, heldur skapar hún líka sameiginleg verðmæti fyrir samfélagið.

Heildarsýn og framtíðin

EarthCheck metur hvort umhverfið sé rannsakað og vaktað og þeim upplýsingum miðlað til almennings – þar skipta stjórnarhættir og stefnumótun máli. Sjálfbærnistefna Snæfellsness er rammi sem á að leiða ákvarðanatöku til lengri tíma og skoðar EarthCheck hvort samræmi sé á milli sjálfbærnistefnunnar og annarra stefna og áætlana og hvort henni sé framfylgt. Í raun má segja að EarthCheck-vottunin sé árlegt heilbrigðispróf fyrir áfangastaðinn Snæfellsnes. Hún sýnir okkur hvað gengur vel og hvar við þurfum að bæta okkur. Hún krefst gagnsæis, reglulegrar gagnasöfnunar og skýrrar aðferðafræði. Hún krefst þess að við séum heiðarleg um stöðuna. Vottunin er verkfæri fyrir okkur íbúana. Hún hjálpar okkur að taka upplýstar ákvarðanir, forgangsraða rétt og horfa til framtíðar með ábyrgum hætti.

Snæfellsnes er magnað – en það er ekki sjálfgefið. Það krefst vinnu, samráðs, gagna og stöðugra umbóta að halda því þannig. Það er það sem verið er að votta.

Guðrún Magnea Magnúsdóttir Verkefnastjóri umhverfisvottunar Snæfellsness

Sumarstörf hjá Snæfellsbæ

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar.

Um er að ræða hvort tveggja útivinnu við Áhaldahús Snæfellsbæjar og flokkstjórn vinnuskólahópa.

Störfin hafa það að leiðarljósi að leiðbeina ungmennum Snæfellsbæjar við fyrstu skrefin í atvinnulífinu og fegra bæinn okkar.

Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimsíðu Snæfellsbæjar.

Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026.

Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar á snb.is.

Umsóknir sem berast í tölvupósti eða með öðrum hætti eru ekki teknar gildar. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.

Athugið að vinnuskóli fyrir börn í 8. - 10. bekk verður auglýstur síðar.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1201 by Steinprent - Issuu