
1200. tbl - 26. árg.
25. mars 2026
![]()

1200. tbl - 26. árg.
25. mars 2026
Verkefni sem tekið var fyrstu skrefin í haustið 2025 er nú komið á fullt en sjö kvenfélög á Snæfellsnesi hafa tekið sig saman í gerð Eyrbyggjusögurefils. Eyrbyggja saga er saga Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga og er ein af Íslendingasögunum eða Héraðssaga Snæfellsness. Frá því í október hafa kvenfélögin eitt af öðru fengið sinn hluta refilsins afhentan en nú þegar hefur Kvenfélagið Björk í Helgafellssveit fengið 1. hlutann, 2. hluti fór til Kvenfélagsins Hringsins í Amtsbókasafnið í Stykkishólmi, 3. hluta refilsins fór til Kvenfélagsins Gleym mér ey í Grundarfirði, 6. hluti fór á Lýsuhól þar sem Kvenfélagið Sigurvon mun sauma og 7. hluti Eyrbyggjusögurefils fór á Breiðablik til Kvenfélagsins Liljunnar í Eyja- og Miklaholtshrepp. Núna um miðjan mars fóru síðustu hlutarnir á sinn stað en Kvenfélag Hellissands og Kvenfélag Ólafsvíkur tóku á móti hluta 4 og 5 í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og munu félögin taka höndum saman og vinna þessa tvo hluta sameiginlega. Við afhendinguna voru samstarfssamningar undirritaðir, annars vegar milli Eyrbyggjusögufélagsins og kvenfélaganna og hins vegar
milli Snæfellsjökulsþjóðgarðs og kvenfélaganna. stefnt er að því að Kvenfélag Hellissands og Kvenfélag Ólafsvíkur hefjist handa eftir páska.
Það var Eyrbyggjusögufélagið sem afhenti kvenfélögunum sjö Eyrbyggjurefilinn en Kristín Ragna Gunnarsdóttir hannaði og teiknaði hann fyrir félagið. Kvenfélagskonur munu svo í sameiningu sauma í refilinn og verður hann geymdur í hlutum en þó stöku sinnum mun hann koma saman í heild sinni. Meðfylgjandi myndir eru af afhendingu refilsins til Kvenfélaganna í Snæfellsbæ, Kvenfélags Hellissands, Kvenfélags Ólafsvíkur og Kvenfélagsins Sigurvonar.



Félags eldri borgara í Snæfellsbæ verður haldinn í félagsheimilinu Kli miðvikudaginn 8. apríl 2026 kl. 14:30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn Félags eldri borgara Snæfellsbæ
Góðgerðardagar Grunnskóla Snæfellsbæjar voru haldnir dag ana 17.-19. mars og náðu þeir há punkti með opnu húsi í starfs stöð skólans í Ólafsvík. Allur ágóði af sölu opna hússins rann til Lilju Daggar Gunnarsdóttur, fyrrverandi nemanda við skól ann sem glímir við erfið veik indi. Nemendur skólans höfðu á góðgerðardögunum undirbúið ýmsan varning sem var til sölu. Þau máluðu myndir, skreyttu kerti, bjuggu til og skreyttu fjöl nota poka, bökuðu sætindi, föndruðu páskaskraut og margt fleira. Til sölu voru einnig puls ur og vöfflur sem gestir gátu gætt sér á milli kaupanna. Túlípanar og pottablóm var vinsæl söluvara og gestir gátu einnig nælt sér í dót á tombólu eða snúið lukkuhjóli. Allir nemendur skólans stóðu söluvakt og stóðu sig með

Boðið var upp málverk sem
Hörður Rafnsson, smíðakennari við skólann málaði. Hörður vildi með þessu leggja sitt af mörk-
Fyrsti leikur Víkings Ó. í Mjólkurbikar karla fór fram um liðna helgi þegar liðið mætti Árborg í Akraneshöllinni. Fyrsta mark leiksins gerðir Aron Freyr Margeirsson fyrir lið Árborgar á 16. mínútu leiksins. Mikil harka var í leiknum en tveir leikmenn Árborgar fengu gul spjöld stuttu áður en Ingvar Freyr Þorsteinsson jafnaði leikinn fyrir Víking á 39. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð á hefðbundnum leiktíma og honum því framlengt. Á 107. mínútu tókst Kristóferi Áka Hlinasyni að koma Víkingum yfir og Naim Aaras el Hmaidi bætti þriðja markinu við á 113. Mínútu. Leikmaður Árborgar, Þorsteinn Daníel Þorsteinsson fékk rautt spjald í kjölfarið. Þorkell Þráinsson náði að minnka muninn fyrir Árborg á 120. mínútu en það dugði ekki til sigurs þar
Dögg en hann kenndi henni smíði í nokkur ár. Uppboðið var æsispennandi og var hæstbjóðandi Kristinn Jónasson. Nemend-
ur og starfsfólk skólans eiga hrós skilið fyrir frábæran viðburð þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
hafin í mjólkurbikarnum - Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði
sem dómarinn flautaði leikinn af stuttu seinna. Staðan var því 3-2 fyrir Víking Ó og á liðið næst leik við Þrótt R. á AVIS vellinum þann 28. mars klukkan 14:00.
Reynir Hellissandur átti einnig leik í Mjólkurbikar karla um liðna helgi á Fylkisvellinum á móti sterku liði Elliða. Pétur Óskarsson, Gylfi Gestsson, Benedikt Elí Bachmann og Nikulás Ingi Björnsson skoruðu allir mörk fyrir Elliða á fyrstu 40 mínútum leiksins. Reynir H. átti í erfiðleikum með að klára færin í leiknum en liðsmenn Elliða áttu eftir að bæta við fimm mörkum til viðbótar áður en flautað var til leiksloka. Lokatölur voru því 9-0 fyrir Elliða í erfiðum fyrsta leik Reynis á tímabilinu. JJ
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Tannverndarvikan
Í tilefni af tannverndarvikunni dagana 16. til 20. mars fékk leik skóli Snæfellsbæjar Ara Bjarna son, tannlæknir, í heimsókn föstu daginn 20. mars. Tannverndarvik an tengist Alþjóðlega tann verndardeginum sem haldinn er 20. mars ár hver. Vikan var notuð í að fræðast um tennur, tannheilsu og ýmis verkefni tengd tönnum. Í heimsókn Ara fræddi hann svo börnin enn frekar um mikilvægi góðrar tannumhirðu og að lokum fengu áhugasöm börnin að spyrja Ara hinna ýmsu spurninga. Mikil ánægja var með þessa heimsókn sem var ekki bara fróðleg heldur líka skemmtileg.

26. MARS, 21:00 • ÞJÓÐGARÐSMIÐSTÖÐ Á HELLISSANDI
Framboð D listans í Snæfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026 verður kynnt fimmtudaginn 26. mars kl. 21:00 í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi.
Allir velkomnir

Hunda- og kattahreinsun í Ólafsvík
Snæfellsbær auglýsir hunda- og kattahreinsun í Áhaldahúsinu í Ólafsvík fimmtudaginn 26. mars sem hér segir:
▪ Hundahreinsun verður frá kl. 13:00 - 16:00
▪ Kattahreinsun verður frá kl. 16:00 - 17:00.
Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningu um slíkt til bæjarskrifstofu.
Eigendum óskráðra hunda og katta er bent á að skrá þá þegar í stað.
Við hvetjum fólk til að mæta með hunda og ketti í hreinsun, hvort sem þeir eru skráðir eða óskráðir.

Fyrsta mót í Snæfellingsmótaröðinni fór fram í reiðhöllinni í Ólafsvík föstudaginn 13. mars síðastliðinn. Hestamannafélagið Hringur hélt mótið og kepptu þar 35 þátttakendur í fimm flokkum. Þá voru þrír þátttakendur í pollaflokki, fjórir í flokki 10 til 13 ára, ein í flokki 14 til 17 ára, 17 þátttakendur kepptu í 2. flokki og 9 knap
þrígangi og fór fram forkeppni hvers flokks, í flokki 1 og 2 riðu svo efstu fimm pörin til úrslita í beinu framhaldi af forkeppninni. Í flokki 10 til 13 ára fór Ása Bjarney Ásmundsdóttir á Frygg frá Hólum með sigur úr býtum, Bjartey Ebba Júlíusdóttir á Hylling frá Grundarfirði lenti í 2. sæti og Leonie Lamparter á Freyju frá Grindavík var í 3. sæti. Í flokki 14

Fyrir rúmu ári síðan fékk Grundarfjarðarbær LIFE-styrk frá Evrópusambandinu til þess að bæta blágrænum ofanvatnslausnum í þéttbýli bæjarins þar sem aðalmarkmiðið er að minnka álag úrkomu á fráveitukerfið og skila hreinna vatni til sjávar, en með breyttu loftslagi eru stórir úrkomuviðburðir að aukast í Grundarfjarðarbæ. Vatn er lífsnauðsynlegt, sama í hvaða mynd það birtist. Það er ís og snjór, rennandi vatn, sjór og votlendi, en einnig gufa og raki í loftinu. Vatn snertir allt í lífi okkar, hvort sem það sé vinnan, afþreying og sjálft lifibrauðið. Sunnudaginn 22. mars var dagur vatnsins boðaður af LIFE-ICEWATER og héldu Grundfirðingar daginn hátíðlegan í
til 17 ára keppti Rebecca Luise Lehman. Í 2. flokki sigraði Hera Guðrún Ragnarsdóttir á Vísu frá Syðstu Grund, Íris Huld Sigurbjörnsdóttir á Gusti frá Stykkishólmi var í 2. sæti og Sveinn Bárðarson á Vind frá Grundarfirði var í 3. sæti. Að lokum átti Lárus Ástmar Hannesson 1. sætið í 1. flokki en hann reið á Sónötu frá

þann sama dag. Á viðburðinum var Sprengju-Kata að gera tilraunir, 9. bekkur Grunnskóla Grundarfjarðar bauð upp á andlitsmálningu, Sjómannadagsráð var með sýningu á ýmsu úr sjónum, Lionsklúbbur Grundarfjarðar bauð upp á sína frægu fiskisúpu, kökubasar 9. bekkjar, listasýning 1. og 2. bekkjar, tónlistarskóli Grundarfjarðar var með tónlistaratriði, Rauði kross Íslands, Land og skógur, Snæfellsjökulsþjóðgarður, Umhverfisvottun Snæfellsness, Svæðisgarður Snæfellsness, Kvenfélagið Gleym mér ei og Björgunarsveitin Klakkur voru með kynningu á starfsemi sinni auk fjölda annarra uppákoma og afþreyinga. Mikil gleði var með daginn og þátttakan góð.

son á Kvist frá Blönduhlíð í 2. sæti og Ari Osterhammer Gunnarsson var í 3. sæti á Blakki frá Brimilsvöllum.
Önnur umferð Snæfellingamótaraðarinnar fer svo fram í Stykkishólmi 1. apríl þar sem keppt verður í tölti og endar mótaröðin svo á gæðingakeppni í Grundarfirði þann 17. apríl.

Dagana 1. til 2. maí verður viðburðurinn Matarslóðir Snæfellsness þar sem áhugafólki um matarmenningu og gómsæt matvæli býðst tækifæri til að skoða í matarkistu Snæfellsness og kynnast fólkinu á bak við hráefnið, þeim sem rækta, framleiða og skapa með ástríðu og virðingu fyrir náttúru og staðbundinni menningu. Á Snæfellsnesi mætast hefðir og nýsköpun á einstakan hátt svo úr hefur þróast fjölbreytt framleiðsla á hágæða matvælum, sem þátttakendur fá að smakka, skoða og skilja. Í stuttu máli verður þarna tækifæri til að njóta þess besta sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Innifalið er ævintýrakvöldverður í Hlöðunni á Miðhrauni
degisverður á laugardag, auk fjölmargra heimsókna til smáframleiðenda um allt Snæfellsnes með kynningu á þeirra vörum, smakki og fróðleik bæði á föstudeginum og laugardeginum. Staðir sem verða heimsóttir eru Hrísakot, Æðarsetur, Narfeyrarstofa, Hjá góðu fólki, Miðhraun, Valeria kaffibrennsla og La bruceria, Bjargarsteinn, Samkomuhús Arnarstapa, Björtubrauð og kjöt frá Knarrartungu og Stakkhamar. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Crisscross matarferða og Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi.
Áhugasamir geta skráð sig á viðburðinn á www.slowfood.is fyrir 1. apríl.


Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar.
Um er að ræða hvort tveggja útivinnu við Áhaldahús Snæfellsbæjar og flokkstjórn vinnuskólahópa.
Störfin hafa það að leiðarljósi að leiðbeina ungmennum Snæfellsbæjar við fyrstu skrefin í atvinnulífinu og fegra bæinn okkar.
Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimsíðu Snæfellsbæjar.
Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026.
Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar á snb.is.
Umsóknir sem berast í tölvupósti eða með öðrum hætti eru ekki teknar gildar. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.
Athugið að vinnuskóli fyrir börn í 8. - 10. bekk verður auglýstur síðar.

Laugardaginn 21. mars fór Vesturlandsmótið í skólaskák fram í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Það kepptu nemendur í 1. til 10. bekk og var þeim skipt í þrjá hópa, 1. til 4. bekkur kepptu saman, 5. til 7. bekkur kepptu saman og 8. til 10. bekkur. Tefldar voru 7 umferðir með tímamörkunum 5 plús 2 sekúndur. 19 hressir krakkar mættu og skemmtu sér konunglega og að mótinu loknu fengu allir keppendur páskaegg.
Í hópi 1. til 4. bekk fór Máni Berg Gunnarsson með sigur úr býtum, Bergrós María Arnars-
dóttir var í 2. sæti og Elín Björg Þorsteinsdóttir í því 3.. Víglund

3. sæti. Að lokum hreppti Sævar Hjalti Þorsteinsson 1. sætið í flokki 8. til 10. bekkjar, Gunnar Smári Ragnarsson var í 2. sæti og Kristján Pétur Runólfsson lenti í 3. sæti.
Efstu keppendurnir í sínum
aldursflokki hafa unnið sér inn pláss á Íslandsmótinu í skólaskák sem fer fram í félagsheimilinu Klifi
fellsbæjar og aðstandendur þess eru stolt af því að fá tækifæri til að halda Íslandsmótið. Fyrst verður þó páskamót taflfélagsins og verður það auglýst fljótlega á Facebooksíðu félagsins. SJ
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111
Sr. Ægir Örn Sveinsson stjórnaði. Kirkjukórar prestakallsins sungu undir stjórn Veronicu Oster hammer og Nanna Aðalheiður Þórðardóttir spilaði undir. Mörg

þeirra fermingarbarna sem munu fermast á næstunni tóku þátt og
matsal Jaðars. Þetta er annað árið í röð sem haldin er opin messa


Snæfellsbær auglýsir laust til umsóknar 50% starf við ræstingar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar og skrifstofurými í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Um er að ræða starf á dagvinnutíma eftir samkomulagi.
Auk þess hefur viðkomandi umsjón með eldhúsi, fundum og afleysingu í móttöku eftir þörfum. Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 og netfanginu lilja@snb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2026. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. maí 2026.
Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar á snb.is.

Landsbankinn bauð áhugasömum á Fjármálamót í félagsheimilinu Klifi miðvikudaginn 18. mars síðastliðinn. Um er að ræða fræðslu á vegum Landsbankans um lífeyristöku og netöryggi. Þar fór Gústav Gústavsson, sölustjóri hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu, yfir hvers fólk má vænta við starfslok og hvaða ráðstafanir þarf að gera áður en kemur að lífeyrisaldri og starfslokum. Svo fór Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í Regluvörslu, yfir helstu tegundir netsvika og hvers konar netsvik eru áberandi í dag. Þá fór hún einnig vel yfir hvernig best sé að fyrirbyggja slík svik. Fóru viðstaddir fróðari af fundinum en fræðsla um slík mál er alltaf mikilvægt, sérstaklega umræðan um netöryggi þar sem fólk verður sí aðgengilegra á netinu. Fyrr þessa sömu viku kom góður gestur í Höllina, félagsmiðstöð eldri borgara í Snæfellsbæ og í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Hafþór Ingi, lögreglumaður frá Stykkishólmi heimsótti eldri borgarana og nemendur í 6. og 7. bekk í skól-

anum. Hann hélt erindi um netöryggi og mikilvægi þess að fara varlega á netinu. Unglingar og eldra fólk eru tveir viðkvæmustu hóparnir þegar kemur að netárásum og forvarnir geta bjargað fjölda fólks frá því að lenda í slæmum aðstæðum.



Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617











