

Þéttsetið á Páskabingói Ungmennaráðs

stóð nýverið fyrir vel heppnuðu fjölskyldupáskabingói til styrktar Lilju Daggar, sem nú glímir við erfið veikindi. Viðburðurinn vakti mikla athygli og var þátttaka íbúa afar góð, en salurinn fylltist af fólki á öllum aldri sem sameinaðist í góðum tilgangi.
Stemningin var einstaklega hlý og jákvæð og ríkti sannkallaður páskabingó andi í húsinu. Gestir nutu þess að taka þátt, spila saman og eiga notalega stund með öðrum bæjarbúum. Vinningarnir vöktu einnig mikla lukku en þar mátti meðal annars finna fjölbreytt
í Snæfellsbæ, auk girnilegra páskaeggja sem glöddu bæði unga sem aldna.
Ungmennaráð Snæfellsbæjar vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra fyrirtækja sem studdu við viðburðinn með rausnarlegum hætti, sem og til allra sem mættu og lögðu sitt af mörkum til að gera daginn ógleymanlegan. Alls söfnuðust 535.000 krónur sem renna óskiptar til Lilju Daggar. Hugur og stuðningur samfélagsins er með henni á þessum erfiðu tímum.
Ásgeir Trausti

ka í Frystiklefanum á Rifi. Ásgeir Trausti hefur farið um landið í mars og haldið tónleika á vel völdum stöðum áður en hann heldur af stað erlendis í tónleikaferðalag. Mun hann þá ferðast um Evrópu frá apríl og fram í september og í haust færir hann sig svo yfir til Bandaríkanna. Þetta
var því síðasti tækifæri landsmanna til að hlíða á Ásgeir Trausta innan landssteinanna í allavega ár. Á tónleikunum í Frystiklefanum flutti Ásgeir nýútgefið efni af nýrri plötu sinni, Julia, í bland við eldra efni. Tónleikarnir voru vel sóttir og enduðu tónleikagestir þar helgina með ljúfum tónum og notalegri stund. SJ
Jöklasýning í Þjóðgarðsmiðstöðinni
Í tilefni af alþjóðlegum degi jökla sem haldinn er hátíðlegur þann 21. mars ár hvert bauð Snæfellsökulsþjóðgarður til opnunar á ljósmyndasýningunni The Glacier Project föstudaginn 13. mars í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi.
Að sýningunni standa hollensku listamennirnir Merel Klomp og Elmar Janse en þau eru með stofnendur listastúdíósins Encritre í Rotterdam. Um þessar mundir eru þau í listamannadvöl hjá Artic Canvas á Hellnum og munu þau sýna verk sín í Þjóðgarðsmiðstöðinni þar til dvölinni líkur. Flest verkin á sýningunni eru ljósmyndir unnar á Íslandi, þar sem tvíeykið hefur skrásett bráðnandi ís, fléttað bræðsluvatn og síbreytilegt landslag með bæði kyrrmyndum og hreyfimyndum. Stærra verkefni þeirra nær einnig til ferða að jöklum í Frakklandi, Noregi og fleiri stöðum. Með hljóðlátum ljóðrænum blæ, ígrundaðri myndbyggingu og umhverfislegu sjónarhorni leitast Janse og Klomp ekki aðeins við að sýna landslag, heldur einnig

Við sýningaropnunina kynnti Ingunn Ýr Angantýsdóttir, þjónustustjóri Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi nýju sýninguna fyrir gestum, listafólkið Merel og Elmar sögðu viðstöddum frá verkum sínum sem skoðuðu svo
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur
frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
da til 31. mars og geta áhugasa-
Perlað að Krafti

Miðvikudaginn 3. mars stóð Lionsklúbburinn Rán fyrir viðburði þar sem perlað var af krafti í Klifi. Perlað af Krafti er skemmtilegt verkefni á vegum Krafts, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þá koma hópar saman og leggja góðu málefni lið með því að perla armband til styrktar félaginu og gefst svo tækifæri á að kaupa sitt eigið armband.
Verkefna- og líknarnefnd Lions klúbbsins Ránar fékk þá hugmynd af perla saman til þess að sína Lilju Dögg Gunnarsdóttur og fjölskyldu hennar sa-
mhug. Um 120 manns á öllum aldri komu saman í félagsheimilinu og perluðu fjölmörg armbönd merkt Lífið er núna. Konurnar í Lionsklúbbinum Rán seldu kaffiveitingar á viðburðinum og rann allur ágóði kaffisölunnar óskertur til Lilju Daggar og fjölskyldu hennar.
Söfnun fyrir Lilju Dögg og Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein, fór fram úr björtustu vonum á viðburðinum og var stuðningurinn við Lilju og fjölskyldu hennar áþreifanlegur í salnum.
UMFG í úrslitakeppni í blak
Blakdeild UMFG hefur átt lið í 1. deild kvenna í vetur og hafa þær ferðast um landið og lagt allt sitt í mótið. 10 lið keppa í deildinni og keppir hvert lið 18 leiki áður en fjögur efstu liðin í deildinni mæ tast í lokakeppni í apríl. Mótið er að renna sitt skeið en lið UMFG hefur lokið öllum sínum 18 leik jum. 1. deildar lið Grundarfjarðar hefur sigrað 11 af sínum spiluðu leikjum og tapað 7, þá hafa þær unnið 41 hrinu og tapað 27. Með þessum árangri hafa þær landað 3. sætinu í 1. deildinni með 35 stig og tryggt sér sæti á úrslitahelginni 10. til 12. apríl í Laugardalshöll. Enn eiga nokkur lið í deildinni eftir að klára sína leiki, UMFG er þó 4 sti gum yfir næsta liði. Ekkert liðanna á því möguleika á að steypa þeim af stóli og þær með tryggt sæti í Laugardalshöll ásamt KA, Ými og einu öðru liði en hver það verður kemur í ljós í lok mars.

Breytt fyrirkomulag

Breytt fyrirkomulag leigu á Féla gsheimilinu Röst á Hellissandi tók gildi um áramótin. Breytingin felst í því að vínveitingaleyfi fylgir húsinu ekki lengur. Leigjendur sem sjá fyrir sér að selja aðgang að viðburði eða veita áfengi í söluskyni í
húsinu þurfa nú að sækja um tækifærisleyfi til Sýslumanns. Engin breyting er á fyrirkomulagi leigu í Röst vegna viðburða ef hvorki á að selja aðgang að viðburði né veita áfengi í söluskyni.
hefur samið við heimamanninn
Maxymilian Alex Bochra út suma rið 2028. Max er 21 árs og hefur hann komið við sögu í 15 leikjum fyrir Víking Ó í öllum keppnum, hann kemur til Víkings frá Reyni Hellissandi þar sem hann hefur spilað 26 leiki.
Sunnudaginn 15. mars mætti lið Víkings Selfossi í Akraneshöllinn en um þessar mundir keppir liðið í Lengjubikar karla, B deild. Liðið þurfti að vinna Selfoss með að minnsta kosti tveggja marka mun til þess að komast upp fyrir Selfyssinga í riðlinum og gerðu þeir gott betur en það. Strákarnir komu einbeittir inn í leikinn á móti Selfossi, strax á 30. mínútu skoraði Asmer Be-
gic og Kolbeinn Tumi Sveinsson fylgdi á eftir með annað mark á 34. mínútu. Abdelhadi Khalok El -

tið í mark andstæðinganna á 71. mínútu og lauk leiknum 3 - 0 fyrir Víkingi og tryggði þeim efsta sætið í riðlinum. Víkingar klára riðilinn því efstir með fjóra sigra og eitt tap eftir fimm leiki. Þeir standa þó jafnir Selfossi en tróna á toppnum þar sem þeir eru með töluvert betri markatölu. Víkingur er kominn með annan fótinn í undanúrslit B deildar Lengjubikarsins, en það eina sem gæti slegið þá úr undanúrslitunum er að Reynir sigri sinn síðasta leik í riðlinum með 11 marka mun sem er þó afar ólíklegt.
