Skip to main content

BaejarbladidJokull1197tbl

Page 1

1197. tbl - 26. árg.

4. mars 2026

Fengu rósir í hlýrri kirkjunni Á konudaginn, sunnudaginn 22. febrúar, var haldin konudagsmessa í Ólafsvíkurkirkju. Áttu þar öll saman notalega stund og afhenti sóknarnefndin öllum konum sem mættu til kirkju rós í tilefni dagsins. Eftir guðsþjónustuna héldu kirkjugestur niður í safnaðarheimilið þar sem þau fengu sér saman kaffisopa og hressingu og nutu samverunnar. Guðþjónustan og samveran á eftir var einkar góð þennan sunnudaginn í hlýrri kirkjunni þar sem töluverður munur er á hitanum þar inni eftir nýlegar framkvæmdir. Líkt og kom fram í 1194. tölublaði Jökuls er búið að setja upp tvær varmadælur í Ólafsvíkurkirkju til að bæta hitun kirkjunnar. Rafmagnsofnar voru orðnir

gamlir og orkufrekir og því hafði orkukostnaður kirkjunnar hækkað

Á myndinni sjást varmadælurnar sem veita yl í kirkjuna, myndirnar tók Pétur Steinar Jóhannsson.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

verulega. Áætlaður kostnaður við varmadælurnar er um 1,4 milljónir króna og hefur sóknarnefndin leitað til almennings með fjármögnun. Nú þegar hafa fyrirtæki og einstaklingar veitt veglega styrki til kirkjunnar en er það þó ekki nóg til að standa undir kostnaði. Því biðla þau að nýju til íbúa Snæfellsbæjar og annarra velunnara Ólafsvíkurkirkju að veita sókninni fjárhagslegan stuðning svo unnt

verði að klára að greiða þessa nauðsynlegu framkvæmd. Í nóvember 2027 verður haldið upp á 60 ára vígsluafmæli hennar. Það er metnaður sóknarnefndarinnar og bæjarbúa að kirkjan líti ávallt sem best út og sé vel við haldið.

HÖRÐ Í HORN AÐ TAKA

bótaréttur.is 520 5100 Suðurlandsbraut 24

Bankaupplýsingar fyrir framlög: 0194-26-76 kt:500269-4999.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1197tbl by Steinprent - Issuu