Skip to main content

BaejarbladidJokull1196tbl

Page 1

1196. tbl - 26. árg.

25. febrúar 2026

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Lokið við að reka þil niður

Unnið hefur verið að lengingu bryggjunnar við Norðurgarð í Ólafsvík í nokkurn tíma. Nú er verið að lengja stálþil við Norðurbakka í Ólafsvíkurhöfn um 100 metra, auk þess sem útbúinn verður fyrirstöðugarður og 30 metra grjótvörn við enda þilsins. Um þessar mundir eru verktakar Hagtak hf á höfninni og var síðasta stálþilið slegið niður síðastliðna helgi. Haustið 2025 voru skipin Pétur mikli og Reynir við störf í Ólafsvíkurhöfn við dýpkunarframkvæmdir en grafið var 4,5 metra niður frá hafsbotni til að

mynda þilskurði og skipt um efni í þeim. Hagtak hefur svo slegið þilin niður í þessa þilskurði og notað til þess víbrara sem hangir úr stærðarinnar krana sem sést hefur á höfninni. Þegar síðasta þilinu var slegið niður gekk erfiðlega að koma því á sinn stað svo gripið var til hamars og er það ástæða þess að bæjarbúar urðu skyndilega varir við taktfastan slátt á sunnudagsmorguninn í Ólafsvík. Áætlað er að framkvæmdinni við lengingu á Norðurgarði í Ólafsvík ljúki í maí 2026. Kostnaður við þetta verk er um 600 milljónir króna en þar af

er hlutur ríkisins 60%. Á síðasta fundi hafnarstjórnar Snæfellsbæhar þann 31. janúar var lagt fram til kynningar tillaga að samgönguáætlun fyrir tímabilið 2026 til 2030. Þáverandi hafnarstjóri, Björn Arnaldsson, kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir í höfn-

um Snæfellsbæjar og við sjóvarnir í Snæfellsbæ sem eru í áætluninni á tímabilinu og kom fram að framkvæmdakostnaður hafnarframkvæmda væri áætlaður um 1,72 milljarður króna og sjóvarnaframkvæmdir um 50,4 milljón króna. SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1196tbl by Steinprent - Issuu