Jökull á Issuu
11. febrúar 2026
1194. tbl - 26. árg.
Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.
Slökkviliðsæfing í Átthagastofu
Slökkvilið Snæfellsbæjar hittist fyrsta fimmtudag hvers mánaðar og taka saman slökkviliðsæfingu. Æfingarnar eru af ýmsum toga þar sem æft er meðal annars björgun, reykköfun, viðbragð, samvinnu og fleira sem gæti komið upp í útköllum. Fyrsta fimmtudag febrúarmánaðar, þann 5. febr-
úar, æfði slökkviliðið reykköfun og björgun í Átthagastofu Snæfellsbæjar. Blaðamaður náði þessari mynd á meðan æfingin stóð yfir en sjá má tvo bíla slökkviliðsins og reykinn sem liggur út úr Átthagastofunni.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
SJ
Kristrún á Ólympíuleikunum Kristrún Guðnadóttir, dóttir Friðgerðar Ólafar Jóhannsdóttir og Guðna Gunnarssonar, keppti á Vetrarólympíuleikunum í Tesero í Ítalíu en þetta er annað sinn sem hún tekur þátt í vetrarólympíuleikunum. Kristrún er fædd árið 1997 og er uppalin í Ólafsvík en hún flutti til Noregs ásamt fjölskyldu sinni 12 ára gömul og byrjaði þar að æfa skíðagöngu. Kristrún var á meðal 89 keppenda sem hófu undankeppni sprettgöngunnar á skíðagöngusvæðinu í Tesero en aðeins þriðjungur keppenda komust í úrslit. Hringurinn var 1,5 km og gaf Kristrún allt í eins og hún ætlaði sér að gera. Kláraði hún gönguna á 4:09.30 mínútum og endaði í 61. sæti. Kristrún lenti í 74. sæti fyrir
fjórum árum þegar hún keppto í Kína. Þrátt fyrir að hafa ekki komist í topp 30 þá hækkaði hún sig um þrettán sæti í sprettgöngunni á milli leika og því má fagna. Kristrún var einungis 33,09 sekúndum frá besta tíma göngunnar og 13,02 sekúndum frá 30. sætinu. Hún keppir næst í 10 km skíðagöngu fimmtudaginn 12. febrúar. SJ