4. febrúar 2026
1193. tbl - 26. árg.
Þorra blótað í Klifi
Þorrablótið í Ólafsvík var haldið í félagsheimilinu Klifi laugar daginn 31. janúar. Líkt og áður koma aðilar úr Kvenfélagi Ólafs víkur, Lionsklúbbi Ólafsvíkur, Lionsklúbbnum Rán, Átthaga félagi Fróðhreppinga og Leikfé laginu Laugu að skipulagi blóts ins og sjá til þess að allir skemmtu sér vel. 240 miðar seldust á blótið í ár, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sá um veislustjórn og Galito sá um veitingarnar. Guðmundur Jens son fór með minni kvenna og Sól
veig Bláfeld Agnarsdóttir fór með minni karla. Þá steig þorrablóts nefndin á svið með skemmtiat riðin sem margir hafa beðið eftir, tekið var á málum ársins úr samfé laginu, sungið og mikið hlegið. Að því loknu fór hljómsveitin Festival á svið og spilaði fyrir dansglaða gesti þar til húsið lokaði. Mikil ánægja var með þorra blótið og eiga allir sem komu að þorrablótinu lof skilið fyrir vel heppnað blót. SJ
Ölkelduvegur 31 - Nýtt 75 fm raðhús í Grundarfirði Húsið eru í byggingu og verður afhent fullbúið að utan en tilbúin til innréttinga að innan. Verð á fullbúnu húsi með öllu er 42 millj. Einnig er hægt að kaupa eignina á núverandi byggingarstigi og getur þá laghentur kaupandi skapað sér eigið fé á auðveldann hátt. Hægt er að taka hlutdeildarlán á þetta hús. To świetna okazja dla tych, którzy potrafią zrobić coś na własną rękę lub dobrze się bawić. Możesz zaciągnąć pożyczkę partnerską na te domy. Uppl. í síma 840 6100 og 699 3444
699 3444 molby@fastlind.is