Skip to main content

BaejarbladidJokull1192tbl

Page 1

Jökull á Issuu

1192. tbl - 26. árg.

28. janúar 2026

Límmiðahreinsun við Saxhól Útivistarfólk hefur eflaust rekið augun í límmiða sem ferðamenn hafa skilið eftir sig á ýmsum áningastöðum í kringum landið, á ruslatunnum, staurum og útsýnisskífum svo eitthvað sé nefnt. Í Snæfellsjökulsþjóðgarði er sömu sögu að segja og tók einn landvarða þjóðgarðsins sig til nýverið og hreinsaði límmiða af útsýnisskífu við Saxhól sem hafði verið þakin með límmiðum. Að því tilefni gaf Snæfellsjökulsþjóðgarður út áminningu um að slíkar merkingar séu ekki velkomnar en þær geta skemmt bæði náttúruna og upplifun annarra gesta á ferð um svæðið. Þá eru gestir þjóðgarðsins beðnir um að taka allt rusl með sér á ferð sinni um svæðið, það eina sem ætti að vera eftir eftir heimsókn í þjóðgarðinn eru fótspor.

Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.

SJ

45 tonna kvóti í sjóstöng í Snæfellsbæ Fiskistofa hefur úthlutað vilyrðum til félaga sem sóttu um í samræmi við ákvæði reglugerðar um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum. Alls bárust 10 umsóknir og við lok umsóknarfrestar var veitt vilyrði fyrir 200 tonnum sem skiptist á milli félagana í samræmi við umsóknir um magn. Af þessum 200 tonnum sem voru til úthlutunar koma 45 tonn í Snæfellsbæ, annarsvegar 19 tonn til EFSA til að halda Evrópumót í sjóstangaveiði frá Ólafsvík og hinsvegar 26 tonn til Sjóstangaveiðifélags Snæfellsness. Sjóstangveiðimót á Snæfellsnesi eru vinsæl á meðal veiðimanna, bæði innlendra og erlendra, þar sem jafnan þarf stutt að fara til að komast í veiði.

Önnur félög sem fengu úthlutun eru: Sjóstangaveiðifélag Neskaupstaðar fékk 20,5 tonn Sjóstangaveiðifélag Ísafjarðar 4 tonn Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur 25 tonn Sjóstangaveiðifélag Siglufjarðar 24 tonn Sjóstangaveiðifélag Vestmannaeyja 14 tonn Sjóstangaveiðifélag Gullbringusýslu 11,5 tonn Sjóstangaveiðifélag Akureyrar 28,5 tonn Sjóstangaveiðifélagið Skipaskaga 27,5 tonn.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook