Skip to main content

BaejarbladidJokull1191tbl

Page 1

1191. tbl - 26. árg.

21. janúar 2026

Fjölmennur kynningarfundur vegna sjóbaða í Krossavík

Fimmtudaginn 15. janúar síð­ astliðinn var boðað til opins fund­ ar í Frystiklefanum á Rifi. Til­ efnið var kynning á sjóböðunum í Krossavík en verkefnið hefur ver­ ið í þróun í fimm ár, áætlað er að hrinda því í framkvæmd á næstu misserum og stefnt er að því að opna böðin um mitt árið 2027. Kári Viðarsson, verkefnastjóri, og Páll Kr. Pálsson, sem sér um utanumhald fjárhagslegrar fram­ vindu verkefnisins, sáu um kynn­ inguna og var farið yfir stöðuna á verkefninu og viðskiptatækifæri tengd stofnun nýs baðstaðar við Krossavík.

Krossavík verður fyrsta vel­ líðunarfyrirtæki sinnar tegund­ ar á Snæfellsnesi. Baðstaðurinn verður staðsettur við höfnina í Krossavík, mitt á milli strand­ lengunnar og bakka Kópatjarn­ ar, um 500 metra vestur af Hell­ issandi. Útlit mannvirkja verð­ ur lágstemmt og í takt við um­ hverfi sitt, með skírskotun í þá starfsemi sem áður prýddi svæð­ ið. Verður þar boðið upp á heita sjólaug með aðgengi að bar, heit­ an sjópott með þara, slökunarað­ stöðu með stórum útsýnisglugga, þrjár saunur með útsýni yfir um­ hverfi Krossavíkur, köld böð og

greitt aðgengi að strönd og sjó. Aðalmarkhópur Krossavíkurbað­ anna verða ferðamenn, farþegar skemmtiferðaskipa, vinnustaðir og félagasamtök á Íslandi og íbú­ ar á nærsvæðinu. Framkvæmdaáætlun gerir ráð fyrir að Jóhann Kjartansson á Arki­ tektastofunni HZA í Osló í Nor­ egi vinni arkitektateikningar fyrir verkefnið, verkfræðistofan EFLA, með Höskuld Goða Þorbjargar­ son sem tengilið, mun sjá um að vinna áætlun um tæknilega út­ færslu og allar framkvæmdir sem tengist uppbyggingu baðanna. Áætlað er að Skipavík í Stykkis­ hólmi sjái um framkvæmd verks­ ins og hönnunarstofan AJ-S, í eigu Antons Jónasar Illugasonar og Símons Viðarssonar, hefur og mun sjá um grafíska hönnun.

Samkvæmt kynningu á verkefn­ inu í Frystiklefanum liggja ítar­ leg fjárhagslíkön fyrir varðandi uppbyggingu, rekstur, afkomu og starfsemi baðstaðarins fyrir. Heildarfjárþörf verkefnisins er um 920 milljónir króna og þegar fundurinn var haldinn þann 15. janúar nam óbrúuð hlutafjáröflun um 200 milljónum króna. Heima­ mönnum var boðið að fjárfesta í sjóböðunum en að mati aðstand­ enda verkefnisins eru þau gögn sem liggja til grundvallar áætlun­ um um framkvæmd verkefnisins og rekstur fyrirtækisins ítarleg og forsendur vel ígrundaðar. Því eru Krossavíkurböðin að þeirra mati álitlegur kostur fyrir fjárfesta og þátttaka í verkefninu sóknarfæri í heimabyggð. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1191tbl by Steinprent - Issuu