14. janúar 2026
1190. tbl - 26. árg.
Jólin kvödd á þrettánda degi jóla Þriðjudaginn 6. janúar var Þrettándinn haldinn hátíðlegur víða. 6. desember er þrettándi dagur jóla og markar hann lok jólahátíðarinnar. Víða um land eru haldnar þrettándabrennur og í Snæfellsbæ stóðu Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán fyrir sinni árlegu skrúðgöngu frá Pakkhúsinu í Ólafsvík og gengið var rétt út fyrir Klif. Í fylgd lögreglunnar og slökkvuliðs gengu viðstaddir saman og leiddi Máni Berg Gunnarsson gönguna með trommuslætti auk Berglindar Long, álfadrottningar, og Jóns Guðmunssonar, álfakonungi. Þegar komið var út fyrir Klif beið þar brenna á vegum Slökkviliðs Snæfellsbæjar, þjóðleg lög ómuðu og að lokum var samkomunni slitið með mikilfenglegri flugeldasýningu frá Lionsklúbbi Ólafsvíkur. Eftir að hafa hvatt jólin með skrúðgöngu og brennu fóru börnin á stjá um bæinn líkt og venjan er á Þrettándanum í Ólafsvík. Klædd í búninga gengur þau úr húsi í hús og óskuðu eftir að fá
eitthvað gott í gogginn frá heimiliseigendum sem tóku á móti þeim með bros á vör. Fullir pokar af nammi og þreytt og ánægð börn skiluðu sér heim eftir þennan síðasta dag jóla.
SJ