1183. tbl - 25. árg.
Seinnipart sunnudagsins 23. nóvember barst björgunarsveitum á Snæfellsnesi útkall vegna einstaklings sem komist hafði í sjálfheldu neðan við Eyrarhyrnu, á milli
Kolgrafarfjarðar og Grundarfjarðar. Á myndinni má sjá hve erfiðar aðstæður hafa verið til björgunar en nánar er sagt frá verkefninu og fleiri myndir á innsíðum.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
26. nóvember 2025
Nýr hafnarstjóri ráðinn Á bæjarstjórnarfundi Snæfellsbæjar 18. nóvember var tillaga ráðningarnefndar Snæfellsbæjar um ráðningu nýs hafnarstjóra samþykkt. Ráðningarnefnd samþykkti samhljóða að ráða Þórð Tryggva Stefánsson í stöðuna. Þórður er með háskólapróf í rekstrarfræðum frá Samvinnuháskólanum á Bifröst frá 1990. Hann hefur yfir þrjátíu ára reynslu af stjórnunar- og rekstrarstörfum, meðal annars sem skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur hf., framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsness hf. og sem sjálfstæður atvinnurekandi með rekstur Söluskála ÓK. Þórður hefur setið
í hafnarnefnd bæjarins og gegndi þar formennsku um tíma. Hagvangur sá um umsóknar ferlið og mat á umsækjendum fyrir hönd Snæfellsbæjar. Tólf umsóknir bárust um starfið. JJ