Skip to main content

BaejarbladidJokull1181tbl

Page 1

1181. tbl - 25. árg.

12. nóvember 2025

Hönnunarverðlaun til Gestastofu Hönnunarverðlaun Íslands 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku þann 6. nóvember. Níu framúrskarandi og fjölbreytt verkefni voru tilnefnd til verðlaunanna í ár í þremur mismunandi flokkum, vara ársins, staður ársins og verk ársins. Þar að auki hlaut Náttúruverndarstofnun viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands fyrir framúrskarandi nálgun við uppbyggingu gestastofa með hönnun og arkitektúr að leiðarljósi. Náttúruverndarstofnun rekur átta gestastofur um allt land, þar af tvær í Snæfellsjökulsþjóðgarði, en þær þjóna sem hlið inn á friðlýst svæði og þjóðgarða og veita gestum margvíslega þjónustu og upplýsingar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í þjóðgörðum landsins undanfarna tvo áratugi í takti við fjölgun ferðamanna, íslenskra og erlendra. Mikill metnaður og framsýni hefur einkennt þessa uppbyggingu þar sem vönduð nálgun, verndun náttúrunnar og góð upplifun gesta á friðlýstum svæðum er höfð að leiðarljósi. Þess er vel gætt að framkvæmdir valdi sem minnstu raski og byggingar falli vel að náttúrunni. Dómnefndin leit sérstak-

lega til Snæfellsstofu í Vatnajökulsþjóðgarði, bygging eftir Arkís frá 2010. Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi í Snæfellsjökulsþjóðgarði, bygging eftir Arkís frá 2023, og Skaftárstofu í Vatnajökulsþjóðgarði, bygging eftir Arkís frá 2024. Þá var einnig litið til sýninga í gestastofunum en í Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi í Snæfellsjökulsþjóðgarði er nú verið að setja upp sýningu eftir

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Kvorning Design og Yoke en boðið hefur verið til opnunar sýningarinnar 22. nóvember. Fjöldi manns hafa komið að þessari uppbyggingu, starfsmenn þjóðgarðanna, hönnuðir og arkitektar. Öllu þessu fólki er veitt viðurkenningin Besta fjárfesting í hönnun með ósk um að þjóðgarðarnir undir stjórn Náttúruverndarstofnunar haldi áfram á þessari fallegu og vönduðu vegferð og geti þannig með stolti

þjónustað gesti sem njóta stórbrotinnar náttúru Íslands. Hluti af þessum hóp var viðstaddur á Hönnunnarverðlaununum til að taka við þessari viðurkenningu, þar á meðal Ingunn Ýr Angantýsdóttir, þjónustustjóri Snæfellsjökulsþjóðgarðs, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1181tbl by Steinprent - Issuu